Markmið og árangur
Hér á eftir er fjallað um árangur og ávinning af ráðstöfun fjármuna, skipt eftir málefnasviðum og þeim málaflokkum sem eru á forræði umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Tilgreindar eru aðgerðir sem skilgreindar voru til að stuðla að framgangi viðkomandi markmiða á árinu, ásamt stöðu þeirra í árslok 2022.
Verkefni umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins falla að mestu leyti undir málefnasvið 17 Umhverfismál og 15 Orkumál.
17 Umhverfismál. Málefnasviðið og verkefni þessa skiptast í eftirfarandi fimm málaflokka:
- 17.10 Náttúruvernd, skógrækt og landgræðsla
- 17.20 Rannsóknir og vöktun á náttúru Íslands
- 17.30 Meðferð úrgangs
- 17.40 Varnir gegn náttúruvá
- 17.50 Stjórnsýsla umhverfismála
Stofnanirnar Landgræðsla ríkisins og Skógræktin heyra undir matvælaráðuneyti, en málefnin flokkast enn undir málaflokk 17.10 Náttúruvernd, skógrækt og landgræðslu.
Málefnasvið 15 Orkumál ásamt Orkustofnun og orkusjóði, niðurgreiðslur á húshitun og dreifingu raforku o.fl. tengd málefni eru alfarið á ábyrgð umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Á málefnasviði 18 heyrir málaflokkur 18.20 Menningarstofnanir undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Þá heyra Landmælingar, sem flokkast í málaflokk 06.10 undir ráðuneytið.
Ársskýrsla ráðherra 2022
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.