Föstudagspósturinn 29. apríl 2022
Heil og sæl.
Við heilsum ykkur hér frá Rauðarárstígnum á þessum ágæta föstudegi og færum ykkur það helsta úr vikunni sem er að líða.
Við byrjum í New York þar sem þátttaka Íslands og stuðningur við starf Sameinuðu þjóðanna auk stríðsins í Úkraínu voru til umræðu á fundum Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra með stjórnendum stofnunarinnar í vikunni.
Þórdís Kolbrún ræddi við Aminu J. Mohammed, aðstoðarframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna og Abdulla Shahid, forseta allsherjarþingsins um mikilvægi þess að standa vörð um alþjóðasamstarf í ljósi innrásar Rússlands í Úkraínu og mæta afleiðingum hennar bæði fyrir Úkraínu og önnur svæði í heiminum, með skilvirkri neyðar- og mannúðaraðstoð. Þá fundaði hún með Emine Dzhaparova, varautanríkisráðherra Úkraínu um átökin í landinu. Þórdís Kolbrún kom á framfæri upplýsingum um yfirgnæfandi stuðning íslensku þjóðarinnar við málstað Úkraínu, fordæmingu á framferði Rússa og eindregnum vilja til þess að styðja við úkraínsku þjóðina með ráðum og dáð.
Á fundum sínum tilkynnti ráðherra einnig að Ísland muni auka framlög sín til Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF), UN Women og Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) á þessu ári. Stofnanirnar eru allar áherslustofnanir í þróunarsamvinnu Íslands.
Very happy to announce a 12% increase in our core contributions to @UN_Women at my meeting with @unwomenchief Sima Bahous today. pic.twitter.com/o0a0jxL2r0
— Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (@thordiskolbrun) April 25, 2022
Í byrjun vikunnar undirritaði Þórdís Kolbrún nýjan samning við Hnattræna jafnréttissjóðinn. Undirritunin fór fram á fundi ráðherra með Uzra Zeya, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna sem ber ábyrgð á málefnum mannréttinda og lýðræðis, og Jessicu Stern, sérlegs ráðgjafa Bandaríkjaforseta í málefnum hinsegin fólks.
„Sjóðurinn gegnir lykilhlutverki í að efla réttindi hinsegin fólks, sem víða um heim stendur enn frammi fyrir kúgun, fangelsi og jafnvel dauðarefsingum. Ég notaði tækifærið og hrósaði forsvarskonum sjóðsins fyrir skjót viðbrögð við neyðarástandinu í Úkraínu og Afganistan þar sem sjóðurinn hefur styrkt borgaraleg félagasamtök á vettvangi. Í átökum sem þessum er nauðsynlegt að styðja sérstaklega við jaðarsetta og berskjaldaða hópa,“ sagði utanríkisráðherra.
Á miðvikudag var sagt frá framlagaráðstefnu sem fram fór í Genf þar sem íslensk stjórnvöld tilkynntu um að þau myndu veita 80 milljónum króna til mannúðaraðstoðar í Eþíópíu á þessu ári.
Á miðvikudag hlaut Ísland jafnframt gullvottun frá Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (United Nations Development Programme, UNDP) fyrir vinnu á sviði jafnréttismála og þróunarsamvinnu. Ísland er fyrsta framlagsríkið sem undirgengst slíka vottun.
Í gær greindum við svo frá árlegu samráði Íslands og Bandaríkjanna um öryggis- og varnarmál sem fram fór í vikunni í Reykjavík. Í sameiginlegri yfirlýsingu Íslands og Bandaríkjanna í tilefni fundarins kemur meðal annars fram að ríkin hafi rætt öryggis- og varnarmál á Norður-Atlantshafi og samvinnu á vettvangi Atlantshafsbandalagsins og á grundvelli tvíhliða varnar- og öryggissamstarfs.
Í gær fór fram ráðstefna um netógnir á átakatímum sem utanríkisráðuneytið stóð fyrir í Grósku. Netöryggi og netvarnir lykilinnviða í breyttu öryggisumhverfi voru í brennidepli.
„Ísland er eitt af stofnríkjum Atlantshafsbandalaginu og þar tel ég blasa við að við völdum rétt lið. Atlantshafsbandalagsaðildin, ásamt varnarsamningi okkar við Bandaríkin, eru hornsteinar í öryggis- og varnarstefnu okkar,“ sagði ráðherra m.a. í opnunarávarpi sínu.
Þá að sendiskrifstofum okkar.
Jörundur Valtýsson fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum tók vel á móti utanríkisráðherra í fyrstu heimsókn Þórdísar Kolbrúnar til New York sem utanríkisráðherra
Great pleasure to welcome @thordiskolbrun for her first time visit @UN as 🇮🇸 Foreign Minister. Looking forward to interesting meetings in the days to come. pic.twitter.com/8g2yzEDyMU
— Jorundur Valtysson 🇮🇸 (@jvaltysson) April 25, 2022
Þar hefur verið nóg um að vera upp á síðkastið líkt og sjá má á Twitter-síðu fastanefndarinnar, en þar á meðal var niðurstöðuskjal um fjármögnun þróunar formlega samþykkt. Ísland og Grenada leiddu samningaviðræðurnar. Utanríkisráðherra hélt ræðu á ráðherrafundi fyrr í vikunni í tengslum við þetta og áréttaði afstöðu Íslands.
Meeting the moment🇺🇳#FfDForum has come to an end & action-oriented, balanced and forward-looking outcome document adopted. @IcelandUN is proud to have lent a helping hand as co-facilitator with our outstanding colleagues @GrenadaUN 🇮🇸🤝🇬🇩👏 pic.twitter.com/QwL3JXL9pS
— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) April 28, 2022
Sömuleiðis samþykkti allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í vikunni sögulega ályktun um neitunarvald. Sé neitunarvaldi beitt í öryggisráðinu er viðkomandi ríki skylt að gera grein fyrir ákvörðuninni í allsherjarþinginu. Eykst þannig gegnsæi og aðhald við beitingu neitunvalds. Ísland var í hópi meðflutningsríkja og sameinuðust Norðurlöndin um ræðu.
Iceland is a proud co-sponsor of the #VetoInitiative resolution adopted by consensus today! It promotes accountability and transparency following a veto vote in the #UNSC pic.twitter.com/8CCF0GjAz4
— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) April 26, 2022
Í Vín hélt Eva Dröfn Hassell Guðmundsdóttirjómfrúrræðu sína í fastaráði ÖSE. Í ræðunni er vikið sérstaklega að áhrifum stríðsins í Úkraínu á börn og ungmenni.
Í Brussel sat Kristján Andri Stefánsson sendiherra fund Vsevolod Chentsov sendiherra Úkraínu gagnvart Evrópusambandinu með Ingibjörgu Isaksen alþingismanni og öðrum formönnum landsdeilda sameiginlegrar þingmannanefndar EES.
Sameiginlega EES-nefndin fundaði svo í dag í eigin persónu í fyrsta sinn síðan heimsfaraldurinn hófst.
Sendiskrifstofa okkar í Malaví vakti í vikunni athygli á skólamáltíðarverkefni Íslands í samstarfi við Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna
Sendiráð okkar í Kanada birti skemmtilega færslu á dögunum þar sem ungur nemandi lýsti yfir eindregnum áhuga sínum á Íslandi.
Fulltrúar íslenska fyrirtækisins Laki Power voru svo staddir í Winnipeg fyrr í mánuðinum í viðskiptaerindum og stilltu sér upp með ræðismanni Íslands í Gimli, Tammy Axelsson, og Lesley Robertson frá aðalræðisskrifstofunni í Winnipeg.
Í Osló átti Ingibjörg Davíðsdóttir sendiherra fund með Masud Gharahkhani forseta Stórþings Noregs á skrifstofu hans.
Þá var hún einnig stödd í Tromsø í norður-Noregi og átti fundi með ýmsum aðilum, þ.á.m. Grete Wilsgaard ræðismanni Íslands í Tromsø.
Í Stokkhólmi opnaði Hannes Heimisson sendiherra sýninguna The Liptsticks eftir Egil Sæbjörnsson, með formlegum hætti í Andys Gallery í gær.
Í Færeyjum var Flaggdagur á mánudag. „Fáninn eða Merkið, eins og hann er einnig kallaður, varð viðurkenndur sem þjóðarfáni Færeyja 25. apríl 1940“ segir í færslu aðalræðisskrifstofu okkar.
Í Washington fór fram ráðstefna fyrir kjörræðismenn Íslands í umdæmi sendiráðsins. Utanríkisráðherra fundaði í vikunni með ráðamönnum í Washingtonborg og hjá Alþjóðabankanum en gaf sér einnig tíma til að hitta ræðismennina og þakka þeim vel unnin störf í þágu Íslands.
Í Washington ræddu einnig Bergdís Ellertsdóttir sendiherra og norrænir kollegar hennar um öryggi á norðurslóðum.
Thank you @KirstenHillmanA for convening this timely meeting and Minister @AnitaAnandMP for sharing your thoughts on a number of Arctic related security issues and challenges. #Security #ClimateCrisis #Arctic https://t.co/Sh035ZxLME
— Bergdís Ellertsdóttir (@BEllertsdottir) April 29, 2022
Í London hitti Sturla Sigurjónsson sendiherra hóp þingmanna úr öllum flokkum og ræddi um ýmis mál, svo sem málefni Atlantshafsbandalagsins og innrás Rússa í Úkraínu.
A pleasure and honour to meet 33 MP’s in the All Party Parliamentary Group at Westminster today. https://t.co/PvQUJ3fWTD
— Sturla Sigurjónsson (@SturlaSigurjons) April 26, 2022
Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra í Tókýó hitti á dögunum forseta Sophia University í Japan.
The renowned Icelandic novelist and Jesuit priest Jon Sveinsson (Nonni) spent a year in 1937 @SophiaUniv_JP, the oldest catholic university in Japan.
— Stefan H Johannesson (@stefanhaukurj) April 27, 2022
Spoke today with President Terumichi about our strong links and future collaboration. @SophiaUniv_ENG pic.twitter.com/vueTjbIl8S
Unnur Orradóttir sendiherra Íslands í París brá sér til umdæmisríkis sendiráðsins og hitti m.a. ræðismann Íslands í Barselóna, Astrid Helgadóttur.
Sant Jordi last Saturday April 23rd in #Barcelona A day when people offer 🌹and 📚. Also the death anniversary of Cervantes & Shakespeare and the birthday of #Icelandic Nobel prize Halldór Laxness https://t.co/m9H5p49tmU
— Unnur Orradottir (@UOrradottir) April 28, 2022
María Erla Marelsdóttir sendiherra í Þýskalandi hitti ásamt norrænum kollegum sínum varaforseta þýska þingsins, Wolfgang Kubicki.
In unsere nordische Runde haben wir heute #Bundestagsvizepräsident Wolfgang #Kubicki geladen - als #SchleswigHolstein'er dem Norden sehr verbunden. Danke für den wertvollen Austausch zur aktuellen politischen Lage 🇩🇪 & zum Krieg in der #Ukraine. 🙏🗨️#StandwithUkraine 💙💛 pic.twitter.com/dvnrt8mk0N
— Susanne Hyldelund (@BotschafterDK) April 27, 2022
Í Bejing sótti William Freyr Huntingdon-Williams, staðgengill sendihera, fyrirtækið Innolink China, í nýjum höfuðstöðvum þess í Beijing. Stofnandi þess er Halldór Berg Harðarson, en um ráðgjafafyrirtæki er að ræða sem sérhæfir sig í markaðsaðstoð fyrir evrópskt fyrirtæki sem hyggjast sækja á kínverskan markað.
Fleira var það ekki í bili.
Við minnum að endingu á Heimsljós!
Bestu kveðjur frá upplýsingadeild.