Föstudagspósturinn 5. ágúst 2022
Heil og sæl!
Föstudagspósturinn snýr aftur eftir stutt sumarleyfi og færir ykkur helstu tíðindi úr utanríkisþjónustunni undanfarnar fjórar vikur.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir var heiðursgestur og fulltrúi ríkisstjórnarinnar á Íslendingadeginum í Gimli í Manitóbafylki í Kanada um síðustu helgi og þá tók hún einnig þátt í Íslendingahátíð í bænum Mountain í Norður-Dakóta í Bandaríkjunum á laugardag.
„Sú ræktarsemi sem afkomendur Vesturfara leggja við íslenskar rætur sínar er ákaflega falleg. Ég vildi að sem flestir Íslendingar hefðu tækifæri til að upplifa þá væntumþykju í garð Íslands sem hér er ríkjandi,“ sagði Þórdís Kolbrún.
The 🇮🇸 diaspora in #NorthDakota is incredibly dedicated to the land of their ancestors. Foreign Minister @thordiskolbrun started the day by visiting the resting place of poet #Káinn at #Thingvalla but he emigrated to 🇺🇸 in the late 18th century. pic.twitter.com/NR9WzWUABq
— Iceland in US 🇮🇸 (@IcelandInUS) July 30, 2022
Utanríkisráðherra nýtti einnig ferðina og heimsótti Harbourfront Centre í Torontó sem stýrir menningarverkefninu Nordic Bridges. Þetta alþjóðlega verkefni, sem miðar að því að vekja athygli á norrænni list og menningu í Kanada á árinu 2022, er hið viðamesta nokkru sinni.
Pleasure to visit @HarbourfrontTO for a look at @nordicbridges. Great to see how the very best #Nordic artists, innovators and thinkers are connecting with audiences across #Canada 🇮🇸🇨🇦🇩🇰🇫🇮🇳🇴🇸🇪🇬🇱🇫🇴🇦🇽 Thanks @LauraMcLeod11 for a great tour. pic.twitter.com/I1ZVsxvNFA
— Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (@thordiskolbrun) July 28, 2022
Þá heimsótti Þórdís Kolbrún einnig höfuðstöðvar flughers Kanada í Winnipeg á föstudag og átti tvíhliða fund með Heather Stefansson, forsætisráðherra Manitóba-fylkis.
Great visit to 1 Canadian Air Division HQ in Winnipeg @RCAF_ARC. 🇮🇸 greatly appreciates 🇨🇦's strong focus on the N-Atlantic & the High North, including air policing around 🇮🇸. Canada contributes to our shared security, now under threat due to Russia's invation of Ukraine. pic.twitter.com/qA50H9EHNW
— Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (@thordiskolbrun) July 29, 2022
Utanríkisráðherra sótti ráðstefnu í Haag um stríðsglæpi í Úkraínu fyrr í mánuðinum. Markmið ráðstefnunnar var að styrkja og samhæfa viðbrögð alþjóðasamfélagsins gagnvart þeim glæpum sem framdir hafa verið í Úkraínu. Algjör samstaða var um að draga Rússa til ábyrgðar og styðja við öflun sönnunargagna í því skyni. Í ályktun ráðstefnunnar voru kynbundnir glæpir og glæpir gegn börnum sérstaklega fordæmdir og sérstök áhersla lögð á stuðning við fórnarlömb þeirra.
Í ávarpi sínu lagði utanríkisráðherra áherslu á stuðning við Alþjóðsakamáladómstólinn og þá rannsókn sem hafin er á hans vegum og áréttaði mikilvægi þess að berjast gegn kynferðislegum og kynbundnum glæpum. Hún nefndi að tryggja þurfi þolendum réttláta málsmeðferð og skaðabætur sem taka mið af þörfum, óskum og velferð þeirra. Þá tók ráðherra sérstaklega undir nálgun ríkissaksóknara Úkraínu.
„Alþjóðasamfélagið hefur komið sér saman um það að veita alþjóðlegum sakamáladómstólum lögsögu yfir ákveðnum glæpum sökum þess hve alvarlegir og hryllilegir þeir eru og vegna þess að þeir ógna grunngildum alþjóðasamfélagsins. Stofnun Alþjóðlega sakamáladómstólsins fyrir tuttugu árum var mikilvægt skref í þeirri vegferð að binda enda á refsileysi vegna slíkra glæpa,“ sagði Þórdís Kolbrún.
Þung ráðstefna sem ég sat fyrir Íslands hönd í gær og í dag. Á meðan á henni stóð voru saklausir borgarar myrtir í Úkraínu, þ. á m. Liza, fjögurra ára björt stúlka með Downs heilskenni í gönguferð með móður sinni í Vinnytsya. Draga þarf Rússa til ábyrgðarhttps://t.co/75CtiGHwwP https://t.co/6ge0itbEH3
— Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (@thordiskolbrun) July 14, 2022
Í tengslum við ráðstefnuna átti utanríkisráðherra einnig tvíhliða fundi með utanríkisráðherrum Hollands, Danmerkur og Grikklands. Utanríkisráðherra fundaði einnig sérstaklega með Uzra Zeya aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, en hún hefur m.a. beitt sér fyrir stofnun alþjóðlegs samstarfsvettvangs í baráttunni gegn kynbundnu áreiti og einelti á netinu.
Í Heimsljósi var greint frá ákvörðun íslenskra stjórnvalda um að veita alls 80 milljónum króna í sérstakan sjóð Sameinuðu þjóðanna fyrir Afganistan til að styðja við þróunarverkefni í landinu samhliða mannúðaraðstoð.Thank you @NikosDendias for a good discussion on issues of common interest to Iceland and Greece. Hope to have the occasion to continue our discussion soon. 🇮🇸 🇬🇷 https://t.co/iaUW7wAKRP
— Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (@thordiskolbrun) July 14, 2022
Við megum bæði þakka fyrir það sem við höfum og þakka fyrir að geta verið virkur þátttakandi í samfélagi þjóða. pic.twitter.com/WzHSrbnqLB
— Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (@thordiskolbrun) July 26, 2022
Núna um mánaðamótin hófu fjölmargir starfsmenn utanríkisþjónustunnar störf á nýjum stað en flutningar milli starfstöðva víða um heim er hluti af lífinu í utanríkisþjónustunni. Fjallað var um helstu flutninga í fréttatilkynningu nýverið en þar sem fardagarnir eru nú yfirstandandi rifjum við hana aftur upp.
Og þá að fréttum úr sendiskrifstofum okkar víða um heim:
Sendiráð Íslands í London, í samstarfi við Félag kvenna í nýsköpun, tók á móti alþjóðlegum hópi frumkvöðla í viðskiptum.
Í Brussel fór fram fundur í sameiginlegu EES-nefndinni þar sem 38 nýjar gerðir voru teknar upp í EES-samninginn.
Á vettvangi ÖSE flutti Kristín Árnadóttir, fastafulltrúi Íslands, sameiginlega yfirlýsingu 38 ríkja um ástand mannréttindamála í Rússlandi.
Had the honour 🇮🇸of delivering the Statement invoking the #MoscowMechanism on behalf of 38 @OSCE participating States. #HumanRights and #FundamentalFreedoms in the Russian Federation are under serious threat. The #MoscowMechanism expert mission will examine the situation. pic.twitter.com/m2B5u2t7nU
— Kristín A Árnadóttir (@KAArnadottir) July 28, 2022
Jörundur Valtýsson, fastafulltrúi Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum, tók þátt í viðburði til heiðurs Nelson Mandela.
Hot and humid in 🗽 but keeping busy @UN:#NelsonMandelaDay2022#Moment4Nature #TheAfricaWeWant
— Jorundur Valtysson 🇮🇸 (@jvaltysson) July 20, 2022
🙏 @UN_PGA for convening high level dialogues on remembrance and matters of key importance. pic.twitter.com/rjxtGzqtjm
Þórir Ibsen, sendiherra Íslands í Kína, átti fund með Íslensk-kínverska viðskiptaráðinu.
Excellent meeting with The Icelandic-Chinese Trade Council about the strong and growing trade relations between 🇮🇸and 🇨🇳@MFAIceland @HeRulong @Atvinnurekendur pic.twitter.com/evxoi7FgMq
— Thorir Ibsen (@ThorirIbsen) August 2, 2022
Guðni Bragason, sendiherra Íslands í Nýju Delí, átti fund með forsætisráðherra Himachal Pradesh-fylkis í norð-vesturhluta Indlands undir Himalajafjöllum. Tilgangur var sá að kynna jarðvarmaverkefni GEG Power í fylkinu sem fengið hefur styrk frá Heimsmarkmiðasjóði utanríkisráðuneytisins.
Ambassador meets with the Chief Minister of Himachal Pradesh, Shri Jai Ram Thakur in New Delhi.
— Iceland in India (@IcelandinIndia) July 25, 2022
# Utilization of geothermal energy
# Fish farming
# Sustainable Development pic.twitter.com/hhpS31kfL3
Okkar fólk í Nýju-Delí hefur annars haft í nógu að snúast undanfarið, meðal annars í tengslum við Ólympíumótið í skák sem nú stendur yfir í borginni Chennai og fyrirhugaða skyrframleiðslu fyrir hinn risastóra Indlandsmarkað. Skák og skyr - það gerist varla betra.
Í Helsinki fór Harald Aspelund, nýr sendiherra Íslands í Finnlandi, á fund prótókolstjóra finnska utanríkisráðuneytisins og afhenti honum trúnaðarbréf.
Sendiráð Íslands í Berlín tók þátt í hinsegin hátíð þar í borg.
Wir sind #proud heute Teil der CSD in Berlin zu sein. #DieBotschaftIstLiebe pic.twitter.com/iil6NtR4VE
— Island in Deutschland 🇮🇸 (@IcelandinBerlin) July 23, 2022
Fulltrúar sendiráðs Íslands í Lilongwe í Malaví áttu samráðsfund með öðrum haghöfum til að ræða landaáætlun Íslands í Malaví fyrir árin 2022-2025. Á fundinum fóru fram uppbyggilegar samræður um það sem vel hefur tekist í tvíhliðsamstarfi hingað til, hvernig byggja megi á lærdómi fyrri samstarfsverkefna og hvernig framlag Íslands í Malaví geti nýst best á því tímabili sem landaáætlunin nær yfir.
Þá gerðu íslensk stjórnvöld samstarfssamning við félagasamtökin IPAS í Malaví um bætta heilbrigðisþjónustu fyrir konur og stúlkur sem þjást af eftirköstum ólögmætra þungunarrofa í Mangochi, samstarfshéraði Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu.
Off to a good start this morning with the signing of the agreement between @IcelandDevCoop and @IpasOrg to implement a holistic project on advancing SRHR care in Mangochi to reduce maternal mortality and mobility that result from unsafe abortions. @Pansipam @UchiziChihana pic.twitter.com/iotqPiAF3p
— Inga Petursdottir (@IngaDoraP) July 13, 2022
Í Namayingo héraði í Úganda var ný og endurbætt aðstaða við sex grunnskóla tekin í notkun með viðhöfn. Margt ráðamanna kom saman í Namayingo af þessu tilefni, meðal annars fulltrúar tveggja ráðuneyta, ráðuneyta sveitastjórna og mennta- og íþróttamála, fulltrúar héraðsstjórnar og þingmenn, auk annarra gesta. Finnbogi Rútur Arnarson verkefnastjóri við sendiráð Íslands í Kampala var fulltrúi Íslands.
Látum þetta gott heita í bili.
Gleðilega hinsegin helgi!