Föstudagspóstur á mánudegi, 6. febrúar 2023
Heil og sæl,
Föstudagspósturinn heilsar ykkur á fyrsta mánudegi febrúarmánaðar. Eins og venjan er hefur margt drifið á dagana í utanríkisþjónustunni í liðinni viku. Förum yfir það helsta.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tók þátt í pallborðsumræðum á ráðstefnunni Arctic Frontiers í Tromsö í upphafi vikunnar. Gestir í pallborði voru sammála um mikilvægi Norðurskautsráðsins sem megin samstarfsvettvangs fyrir málefni norðurslóða. Minntist ráðherra á að grundvallar forsenda þess að alþjóðlegt samstarf af þessum toga gengi upp væri að alþjóðalög og reglur væru virtar og að þegar formennskuríkið gerðist sekt um að brjóta alþjóðalög setti það því miður strik í reikning samstarfsins. Sagt var frá málþinginu í kvöldfréttum RÚV sama dag.
The Arctic, international law and rules-based order pic.twitter.com/QTLbp4g9Fw
— Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir🇮🇸 (@thordiskolbrun) February 2, 2023
Í sömu heimsókn ræddi hún mikilvægi þess að bæði Finnland og Svíþjóð fengju aðild að NATO sem fyrst við norræna kollega
Excellent meeting with my Nordic colleagues onboard Kronprins Haakon. Discussed the urgency of both 🇫🇮 and 🇸🇪 full membership to NATO which is now being used as a political leverage in domestic politics. Also discussed our shared priorities in Arctic cooperation and in Europe. pic.twitter.com/eY2otzTvPN
— Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir🇮🇸 (@thordiskolbrun) February 1, 2023
og heimsótti Kongsberg Sattelite Services í mikilli snjókomu sem hún lét ekkert á sig fá.
.#Nordic FM visit to KSAT in Tromsø. ⁰@ksat_kongsberg operates a global ground station network at 26 different sites world-wide.
— Norway MFA (@NorwayMFA) January 31, 2023
⁰Important for:
Maritime surveilance⁰Environmental monitoring⁰Vessel Detection Service
⁰@thordiskolbrun @ahuitfeldt⁰@Ulkoministerio pic.twitter.com/I2ayBnUEMq
Vjosa Osmani, forseti Kósovó heimsótti landið og átti fundi með Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra, þar sem formennska Íslands í Evrópuráðinu, tvíhliðasamskipti og staða friðarviðræðna milli Serbíu og Kósovó voru efst á baugi.
Málþingið Sækjum fram í breyttum heimi, til heiðurs fyrsta kvensendiherra Íslands, Sigríði Snævarr, var haldið sl. föstudag við miklar og góðar undirtektir. Hér má sjá upptökur af helstu erindum og samræðum sem við hvetjum ykkur öll til að horfa á, enda um afar hugvekjandi efni að ræða.
Þá að sendiskrifstofunum. Sendiráð Íslands í Berlín er þessa dagana að kynna störf kjörræðismanna Íslands í Þýskalandi. Fyrstir í röðinni voru Dr. Roderich Thümmel í Stuttgart
og Friedrich Schwarz í München.
Í Strassborg var íslensk veitingastaðavika, la Semaine Culinaire Islandaise, í fullu fjöri. Viðburðurinn er liður í menningardagskrá formennsku Íslands í Evrópuráðinu og er unninn með Íslandsstofu.
Þar á bæ skrifaði Ragnhildur Arnljótsdóttir einnig undir staðfestingu Íslands á viðbótarbókun við Búdapest sáttmálann um gyðingahatur og kynþáttahyggju sem á sér stað á netinu.
Today 🇮🇸Iceland ratified 1st Additional Protocol on Xenophobia & Racism committed through 💻 Systems to the Budapest Convention on #Cybercrime
— Iceland at CoE 🇮🇸 (@IcelandCoE) January 30, 2023
States have positive obligation to protect human rights & perpetrators of offences - online & offline - should be brought to justice⚖️ pic.twitter.com/ssN9U0JQzd
Auk þess hitti hún mannréttindafulltrúa úkraínska þingsins og fylgdarlið hans og ræddi mannréttindabrot vegna innrásar Rússa í Úkraínu, sem verður til umræðu á komandi leiðtogafundi Evrópuráðsins á Íslandi í maí.
Great pleasure for us to meet with Ukrainian Parliament Commissioner for Human Rights (Ombudsman) @lubinetzs and his team.
— Iceland at CoE 🇮🇸 (@IcelandCoE) January 31, 2023
We discussed the immense human rights challenges caused by Russia’s aggression against 🇺🇦 & we underlined that 🇺🇦 will be high on agenda of #4thCoESummit pic.twitter.com/1xDJDPNGwV
Í Varsjá söfnuðust rúmar 5 milljónir íslenskra króna til heilbrigðisþjónustu fyrir börn og aldraða á uppboði sem rekið er af góðgerðarsamtökum þar í landi sem kalla sig The Great Orchestra of Christmas Charity. Sendiráðið lét ekki sitt eftir liggja til að styðja góðan málstað og meðal þess sem boðið var upp var heimsókn í sendiráðið og fundur með okkar eigin Hannesi Heimissyni, sendiherra Íslands í Póllandi, sem seldist á 20.000 krónur.
We are pleased to announce that our Embassy is joining the 31st final of @fundacjawosp! During the Sunday event organized by the WOŚP staff in Iceland, you will be able to bid on our offer:
— IcelandinPoland (@IcelandinPL) January 27, 2023
First visit to the newly opened Embassy of Iceland in Poland
Good luck! pic.twitter.com/kUnIapks44
Samstarfsráðherrar Norðurlanda komu saman í Húsi Norðurlanda í Kaupmannahöfn 30. janúar. Í formennskutíð sinni leggur Ísland áherslu á frið og áframhaldandi vinnu að Framtíðarsýn okkar 2030. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, samstarfsráðherra á Íslandi, tók þar fyrir alvöru við stjórnartaumunum og mun leiða Norrænu ráðherranefndina í gegnum árið 2023 ásamt hinum norrænu samstarfsráðherrunum. Sagt var frá þessu á vef Norrænu ráðherranefndarinnar á dögunum.
Þá var ljósmyndasýningin Icelandic Transcendence opnuð í anddyri sendiráðsins í Kaupmannahöfn 2. febrúar. Stefanía Kristín Bjarnadóttir menningar- og viðskiptafulltrúi opnaði sýninguna í fjarveru sendiherra og ljósmyndarinn Yanlun Peng ávarpaði viðstadda.
Í Lilongwe hóf Go Fund a Girl Child átakið Empower2Transform með þjálfun leiðbeinenda sem munu tryggja að stúlkur í viðkvæmri stöðu á TA Bwananyambi svæðinu hafi aðgengi að tækifærum til fjárhagslegs sjálfstæðis. Átakið er fjármagnað af íslenskum stjórnvöldum.
Í Stokkhólmi bauð Tobias Billström utanríkisráðherra Svíþjóðar, Bryndísi Kjartansdóttur sendiherra til fundar. Þau ræddu meðal annars um hið góða samband sem ríkir milli landanna.
Í New York bauð Jörundur Valtýsson sendiherra til vikulegs samráðsfundar í norrænu samstarfi á vettvangi Sameinuðu þjóðanna en Ísland tók við formennsku samstarfsins í upphafi árs.
Class of 2023. This year, Iceland is honoured to chair the Nordic co-operation 🇩🇰🇫🇮🇮🇸🇳🇴🇸🇪. It does not necessarily mean that I am the Headmaster, but it allows me to serve my exceptional colleagues and friends weekly coffee and tea - which is always a highlight. pic.twitter.com/a0lF6j2YgC
— Jorundur Valtysson 🇮🇸 (@jvaltysson) February 1, 2023
Í París lauk farsælli vinnuferð menningar- og viðskiptamálaráðherra, Lilju Alfreðsdóttur á heimsókn á vinnustofu Errós, sem hefur lifað og starfað í borginni frá árinu 1958.
Wrapping up a succesful work trip to Paris 🇮🇸 Minister for Culture & Business Affairs @liljaalfreds met on Tuesday with renowned Icelandic artist Erró and got a glimpse of the indcredible art he is creating in his atelier 🎨. Erró has worked and lived in Paris from year 1958🇫🇷 pic.twitter.com/epzkZyuxkA
— L’Islande à Paris 🇮🇸 (@IcelandinParis) February 4, 2023
Í sendiráði Íslands í Tókýó tók Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra á móti kjörræðismanni okkar í Singapore sem leit við í heimsókn, og notaði um leið tækifærið til að minna á það mikilvæga og óeigingjarna starf sem kjörræðismenn okkar um allan heim vinna.
#Iceland’s🇮🇸 network of honorary consuls augments our diplomatic missions providing consular services & assistance to our citizens & assist with trade promotion. Great to meet our man in #Singpore 🇸🇬 Honorary Consul Prakash Pillai - who stoppped by @IcelandEmbTokyo #teamIceland pic.twitter.com/u1ykQKpJok
— Stefan H Johannesson (@stefanhaukurj) February 3, 2023
Í Heimsljósi var sagt frá því að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNHCR, lofaði mjög skuldbindingu Íslands til þess að aðstoða og vernda flóttafólk um allan heim, með auknum fjárframlögum Íslands til stofnunarinnar fyrir árið 2022.
Fleira var það ekki í bili.
Bestu kveðjur frá upplýsingadeild.