Stjórnvöld í Tansaníu hvött til að krefjast miskabóta af Þjóðverjum
Þingmenn á tansaníska þinginu hvöttu ríkisstjórnina í síðustu
viku til að þrýsta á stjórnvöld í Þýskalandi að greiða miskabætur vegna
grimmdarverka sem framin voru í svokallaðri Maji Maji uppreisn fyrir
rúmri öld. Ríkisstjórn Tansaníu hyggst fara fram á miskabætur vegna
þeirra tugþúsunda íbúa sem sveltir voru til bana, pyntaðir og drepnir af
þýskum hermönnum sem börðu niður uppreisn Maji Maji ættbálksins á
árunum 1905 til 1907, að því er fram kemur í frétt Deutsche Welle.
https://youtu.be/Hb3O45bFwGo Þetta er önnur miskabótakrafa sem þýsk
stjórnvöld standa frammi fyrir vegna óhæfuverka þýskra nýlenduherra í
Afríku í upphafi tuttugustu aldar. Eins og fram hefur komið í Heimsljósi
áður hafa samningaviðræður verið í gangi milli þýskra og namibískra
stjórnvalda vegna þjóðarmorða á Nama og Herero ættbálkunum. Í
meðfylgjandi myndbandi er fjallað um það mál og rætt fyrir fulltrúa
beggja ættbálkanna sem eru ósáttir við að eiga ekki fulltrúa við
samningaborðið.