Staða barna í Sýrlandi hefur aldrei verið jafnslæm og núna - sex árum eftir að stríðið hófst
Lífi barna í Sýrlandi hefur verið
umturnað í stríðinu og þjáningar þeirra náðu nýjum hæðum í fyrra þegar
ofbeldið í landinu stigmagnaðist. Nú sex árum eftir að stríðið hófst
hafa aðstæður barna í landinu aldrei verið verri. Þetta segir Barnahjálp
Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) í frétt.
"Eftir sex ár af stríðsátökum þurfa nærri sex
milljónir barna á mannúðaraðstoð að halda. Það er tólfföldun frá árinu
2012. Milljónir barna hafa þurft að flýja að heiman og dæmi eru um börn
sem hrakist hafa allt að sjö sinnum á milli staða. UNICEF var í Sýrlandi
fyrir stríðið og er þar nú. Neyðaraðgerðirnar í Sýrlandi og
nágrannaríkjunum eru þær umfangsmestu frá stofnun UNICEF fyrir sjötíu
árum.
UNICEF náði í fyrra að skima nærri eina
milljón barna í Sýrlandi fyrir vannæringu. Þau 460.000 börn sem
greindust vannærð fengu í kjölfarið meðferð. Fleiri en ein milljón barna
fengu sálrænan stuðning og 3,6 milljónir barna fengu aðstoð til að
halda áfram námi.
Hægt er að styðja neyðaraðgerðirnar með því að senda sms-ið STOPP í nr. 1900 (1.900 kr) og styrkja á heimasíðu UNICEF á Íslandi.
Alls búa 280.000 börn á 13 svæðum í Sýrlandi
sem enn er haldið í herkví. Eina leið hjálparsamtaka til að ná til
þeirra er með bílalestum með hjálpargögn. Dæmi eru um að þær hafi verið
stöðvaðar og samtökum þannig meinað að veita særðum og sjúkum hjálp.
Þrátt fyrir þetta náði UNICEF í fyrra að koma hjálpargögnum til 820.000
manna sem haldið er í herkví, í alls 86 aðgerðum.
Börn eru hvergi örugg
Milljónir barna líða fyrir stríðið á hverjum einasta degi og börn eru hvorki örugg heima hjá sér, í skólum, á leiksvæðum, né á sjúkrahúsum. Í fyrra voru að minnsta kosti 338 árásir gerðar á sjúkrahús í Sýrlandi og heilbrigðisstarfsfólk. Alls voru 255 börn drepin í og við skóla. Fleiri börn voru drepin í Sýrlandi í fyrra en áður og fleiri þvinguð til að taka þátt í stríðinu.
Fyrir utan þau börn sem láta lífið af
sárum sínum deyja börn í Sýrlandi vegna sjúkdóma sem undir venjulegum
kringumstæðum hefði mátt koma í veg fyrir.
"Ástandið er skelfilegt og allar aðstæður á
vettvangi mjög erfiðar. Það veitir okkur hins vegar von að sjá
árangurinn af hjálparstarfinu. UNICEF hefur þegar náð að hjálpa
milljónum og aftur milljónum barna. Það hefur meðal annars verið gert
með aðstoð tugþúsunda Íslendinga, bæði heimsforeldra og allra þeirra fjölmörgu sem stutt hafa neyðarsöfnunina okkar," segir Sigríður Víðis Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi UNICEF á Íslandi.
"Þrátt fyrir hörmungarnar gerast kraftaverk í
Sýrlandi á hverjum degi og börn þar í landi hafa sýnt ótrúlegt hugrekki.
Fleiri en 12.000 börn fóru til dæmis í fyrra yfir átakalínurnar til að
taka lokapróf í skólunum sínum. Mörg fóru um langan veg og ferðuðust í
marga daga til að ná að taka prófin. Börnin vilja læra og hafa sýnt
gríðarlega þrautseigju, hafa jafnvel lært í skólum sem komið hefur verið
upp í göngum neðanjarðar."
Hættið að brjóta á börnum
UNICEF ákallar alla aðila stríðsins, þá sem hafa áhrif yfir þeim og alþjóðasamfélagið allt að tryggja tafarlausa pólitíska lausn á stríðinu í Sýrlandi. Enn fremur að hætta að brjóta á börnum - hætta að drepa þau, særa þau, fá þau til liðs við herflokka og hætta árásum á skóla og sjúkrahús. Hætta verður að halda byggðarlögum í herkví og veita þarf óheft aðgengi hjálparsamtaka að börnum í neyð, hvar sem þau eru í Sýrlandi. UNICEF bendir enn fremur á mikilvægi þess að styðja við þau ríki og samfélög sem tekið hafa á móti flestu flóttafólkinu og halda áfram stuðningi við lífsnauðsynlegar aðgerðir UNICEF.
Alheimsljós, eftir Magnús Guðmundsson/ Leiðari í Fréttablaðinu Börn í Sýrlandi eru hvergi örugg/ RÚVSyria, six years of brutal war: World leaders must bring an end to suffering in Syria