Til skoðunar að hefja samstarf við nýtt hérað í Úganda
Til skoðunar er að hefja undirbúning að verkefnum í nýju samstarfshéraði í Úganda. Nýja héraðið, Namayingo, er í austurhluta landsins, og nær bæði til eyja úti á Viktoríuvatni og samfélaga uppi á landi. „Ísland er reiðubúið að halda áfram stuðningi við fiskimannasamfélög í Úganda í því skyni að bæta lífskjör fólks og stuðla að þróun,“ hefur úgandska dagblaðið New Vision eftir Unni Orradóttur Ramette sendherra í blaðinu í gær.
Fram kemur í fréttinni að þorp í Namayingo myndu fá stuðning á ýmsum sviðum, meðal annars hvað varðar aðgengi að hreinu neysluvatni, hreinlætis- og salernisaðstöðu og skólamálum. Íslendingar hafa um árabil unnið með nágrannasveitarfélagi, Buikwe, að úrbótum á þessum sviðum. Einnig hefur Ísland stutt Kalangala hérað við uppbyggingu innviða og menntun.
Unnur Orradóttir Ramette sendiherra heimsótti Namayingo á dögunum ásamt Smára McCarthy þingmanni sem var í ferð í Úganda í boði GAVI, alþjóða bólusetningarsjóðsins. Samkvæmt frétt New Vision lýsti Unnur verkefnahugmyndum á fundi í grunnskólanum Isinde í Buhemba hreppi. Hún sagði ástand margra skólanna afar bágborið og sagði í skoðun að veita þorpum í Namayingo stuðning.
„Við viljum sjá sérhvert barn í skóla og við viljum sjá það ljúka grunnskólagöngu,“ segir Unnur.
Vincent Makali fræðslustjóri í héraðinu kvaðst finna fyrir feginleika að heyra af stuðningi Íslendinga og sagði ótvírætt að jákvæð þróun fylgdi betra aðgengi að menntun, ekki síst fyrir þau svæði í héraðinu sem stæðu lakast. Meðal atriða í menntamálum sem hann tiltók sérstaklega var skortur á hreinu drykkjarvatni, kennarabústöðum, námsgögnum og viðunandi skólastofum. „Buchumbi grunnskólinn er með 728 nemendur en aðeins sex skólastofur,“ sagði fræðslustjórinn.
Haft er eftir Ronald Sanya héraðsstjóra í blaðinu að stuðningu komi til með að bæta skólasókn í fiskimannaþorpum sem ekki væri vanþörf á því börn í þorpum við vatnið hættu mörg hver í skóla til þess að vinna í fiski eða afla tekna með öðrum hætti. Þessi hugsunarháttur ætti þátt í miklu ólæsi í héraðinu.
Haft er eftir Smára McCarty þingmanni að hann styðji fullkomlega þá vitleitni að bæta grunnþjónustuna í héraðinu. Blaðið hefur eftir honum að hann hafi orðið vitni að óboðlegum aðstæðum og brýnni þörf íbúa fyrir aðgengi að hreinu vatni.