Hoppa yfir valmynd
12.02. 2021 Utanríkisráðuneytið

Rauði krossinn: Neyðarsöfnun vegna COVID-19 í Malaví

Rauði krossinn á Íslandi hefur hrundið af stað neyðarsöfnun vegna COVID-19 í Malaví. „Gríðarstór COVID-19 bylgja herjar nú á berskjaldaða íbúa Malaví, eins þéttbýlasta lands Afríku. Líklegast þykir að hið bráðsmitandi suðurafríska afbrigði veirunnar hafi borist til landsins um og upp úr áramótum og var hlutfall jákvæðra prófa fyrstu vikur ársins allt að 30%,“ segir í frétt frá Rauða krossinum.

Þar segir að faraldurinn hafi fljótt náð fljótt veldisvexti og vitað sé að vegna mjög takmarkaðrar skimunargetu sé raunverulegur fjöldi tilfella að öllum líkindum mun hærri en fjöldi staðfestra tilfella.

„Fjöldi látinna eykst dag frá degi og illa gengur að ná böndum á útbreiðslu veirunnar. Heilbrigðiskerfi þessa fátæka lands er komið að þolmörkum. Súrefni er af skornum skammti og sett hafa verið upp tjaldsjúkrahús til að reyna að anna álagi. Um 1.300 heilbrigðisstarfsmenn hafa greinst með veiruna og enn eru bólusetningar ekki hafnar í landinu,“ segir í fréttinni.

„Rauði krossinn er stærstu hjálparsamtök Malaví og tugþúsundir sjálfboðaliða félagins sinna mikilvægu hlutverki í viðbragðskerfi landsins. Við á Íslandi þekkjum vel mikilvægi þess að geta treyst á vel þjálfaða sjálfboðaliða um land allt - í borgum, bæjum og sveitum – þegar bregðast þarf hratt við og koma mikilvægum upplýsingum til skila.

Frá aldamótum hefur Rauði krossinn á Íslandi starfað náið með systurfélagi sínu í Malaví, bæði að verkefnum í þróunarsamvinnu og að ýmsum neyðaraðgerðum sem sífellt verða tíðari vegna hamfarahlýnunar. Frá því veiran greindist fyrst í Afríku hefur Rauði krossinn lagt áherslu á forvarnir og fræðslu um smitleiðir, mikilvægi handþvottar, grímunotkun, dreifingu hlífðarbúnaðar og þess að viðhalda nálægðarmörkum. Mikil vinna hefur farið í að leiðrétta sögusagnir og tryggja réttar upplýsingar.“

Í frétt Rauða krossins er bent á að einhverjar alvarlegustu afleiðingar faraldursins tengist lokunum skóla og almennum samkomutakmörkunum og margt fólk sem lifir við sárafátækt eygi litla von um að sjá sér farboða. Nefnt er að Heimilisofbeldi hafi aukist og merkja megi aukningu í barnahjónaböndum og barnshafandi unglingsstúlkum fjölgi.

„Verkefninu er ekki lokið. Mannkyn er ekki laust við þennan faraldur fyrr en búið er að ráða niðurlögum hans alls staðar. Tökum slaginn saman. Rauði krossinn veitir lífsbjargandi aðstoð í Malaví og fer þess nú á leit við fólk og fyrirtæki að þau styðji aðgerðirnar dyggilega,“ segir í frétt Rauða krossins.

Hægt er að styðja söfnunina með því að:

  • senda sms-ið TAKK í 1900 (2.900 kr.)
  • styrkja í gegnum Aur (@raudikrossinn / 1235704000)
  • styrkja í gegnum Kass (778 3609)
  • leggja inn á reikning 0342-26-12, kt. 530269-2649

Malaví er eins og flestir vita annað tveggja samstarfsríkja Íslands í tvíhliða þróunarsamvinnu.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
4. Menntun fyrir öll
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta