Hoppa yfir valmynd
28.01. 2025 Utanríkisráðuneytið

Íslenskir sérfræðingar taka þátt í vinnustofu um konur, frið og öryggi í Síerra Leóne

Tinna Gilbertsdóttir lengst til vinstri, Guðrún Þorgeirsdóttir fyrir miðju og Guðrún Eysteinsdóttir lengst til hægri. - myndKjartan Atli Óskarsson

Sendiráð Íslands í Síerra Leóne styrkti þrjá íslenska sérfræðinga til þátttöku í vinnustofu um konur, frið og öryggi í tengslum við málefni hafsins sem haldin var í Síerra Leóne dagana 14. og 15. janúar síðastliðinn. Vinnustofan varpaði ljósi á mikilvægi þátttöku og framlags kvenna til öryggis- og löggæslu á sjó, þar með talið við eftirlit, leit og björgun og verndun fiskiauðlindarinnar. Sérstök áhersla var lögð á löndin við Gíneuflóa í Vestur-Afríku sem glíma við margs konar áskoranir á þessum sviðum.

Ásdís Bjarnadóttir, forstöðumaður sendiráðs Íslands í Freetown, sagði við upphaf vinnustofunnar að kynjajafnrétti væri hornsteinn í bæði utanríksstefnu og þróunarsamvinnu Íslands og benti sérstaklega á að konur skipuðu nú embætti forseta og forsætisráðherra landsins. Hins vegar væru ennþá starfsgreinar á Íslandi þar sem hallaði á konur, þar á meðal í starfsgreinum sem snúa að málefnum hafsins.

Guðrún Þorgeirsdóttir, starfsmaður á varnarmálasviði Landhelgisgæslunnar, tók þátt í pallborðsumræðum um hvernig auka megi þátttöku kvenna í störfum sem snúa að öryggis – og löggæslu á sjó og Tinna Gilbertsdóttir, formaður samtaka kvenna í sjávarútvegi, tók þátt í pallborðsumræðum um mikilvægi kvenna í sjávarútvegi og hvernig auka megi hlut þeirra í greininni. Einnig hélt Guðrún Eysteinsdóttir, skrifstofustjóri hjá Jafnréttisskóla GRÓ, erindi þar sem að hún kynnti þátttakendum þá möguleika sem námið býður upp á.

Vinnustofan var skipulögð í samstarfi við sendiráð Bandaríkjanna í Freetown og er þetta í fyrsta skipti sem Ísland og Bandaríkin standa saman að viðburði um konur, frið og öryggi í Síerra Leóne. Þátttakendur komu frá tólf löndum og voru 70 talsins. Við þetta tækifæri var „African Maritime Gender Network“ hleypt af stokkunum en vonast er til að það verði til þess að fleiri slíkar vinnustofur fari fram annars staðar í Afríku og komi á fót tengslaneti aðila sem vinna að jafnrétti, öryggismálum og málefnum hafsins í Afríku.

  • Tinna Gilbertsdóttir í pallborðsumræðum. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta