Markmið og árangur
Umfjöllun um árangur og ávinning af ráðstöfun fjármuna er kaflaskipt eftir málaflokkum þeirra málefnasviða sem utanríkisráðherra hefur forræði yfir. Uppbygging kaflanna er sambærileg þar sem markmið eru skilgreind, stöðumat er birt og þau verkefni tíunduð sem helst stuðluðu að framgangi viðkomandi markmiða. Árangursmælingar markmiða byggjast annars vegar á mælikvörðum ársins 2021 í fjármálaáætlun 2021–2025 og hins vegar á aðgerðum ársins sem settar voru fram í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2022.
Eftirfarandi skýrsla sýnir markmið og aðgerðir eftir málaflokki. Hægt er að velja málaflokk og undirliggjandi markmið málaflokks og skoða þá mælikvarða sem settir voru fyrir markmið og málaflokk auk stöðu aðgerða sem styðja við markmið.
Þróun markmiða og mælikvarða
Nokkrar breytingar hafa orðið á markmiðum og mælikvörðum, eftir atvikum, með fjármálaáætlun 2022–2026, sem samþykkt var á Alþingi í mars 2021 og aðgerðum í fjárlagafrumvarpi ársins 2022, sem samþykkt var á Alþingi í desember 2021. Gerð er grein fyrir breytingunum og ástæðum þeirra í viðkomandi skjölum.
Staða aðgerða eftir málaflokkum
Yfirlit yfir stöðu aðgerða allra málaflokka eftir málefnasviðum í árslok 2022 er birt í töflum hér á eftir. Alls var skilgreind 31 aðgerð í fjárlagafrumvarpi en sumar þeirra styðja við fleiri en eitt markmið, auk þess sem sundurgreining aðgerða var gerð á stöku stað. Aðgerðir teljast því samtals í skýrslunni 33, 23 aðgerðir fyrir málefnasvið 4 og 10 aðgerðir fyrir málefnasvið 35. Átján aðgerðum er lokið, sjö eru komnar vel á veg og átta aðgerðir eru hafnar. Áfram er unnið að aðgerðum sem þegar eru hafnar.
Ársskýrsla ráðherra 2022
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.