Ráðherranefndir
Sjö ráðherranefndir eru starfandi. Um starfshætti ráðherranefnda gilda reglur nr. 166/2013.
Ráðherranefnd um ríkisfjármál
Hlutverk ráðherranefndar um ríkisfjármál er að skipuleggja vinnubrögð á sviði ríkisfjármála á vettvangi ríkisstjórnarinnar og vinnubrögð gagnvart ráðuneytum og Alþingi, svo sem um stefnumótun í opinberum fjármálum, undirbúningi fjárlagagerðar, eftirlit með framkvæmd fjárlaga og langtímaáætlun í ríkisfjármálum.
Forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra eiga fast sæti í nefndinni. Utanríkisráðherra fær boð um fundi í ráðherranefndinni og aðgang að nefndargögnum. Utanríkisráðherra situr fundi nefndarinnar eftir þörfum, í samráði við fjármála- og efnahagsráðherra og forsætisráðherra. Aðrir ráðherrar sitja fundi nefndarinnar eftir þörfum, samkvæmt ákvörðun forsætisráðherra sem stýrir nefndinni.Ráðherranefnd um efnahagsmál
Hlutverk ráðherranefndar um efnahagsmál er að samræma stefnu ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum og hafa eftirlit með framkvæmd efnahagsstefnunnar á einstökum sviðum. Meðal þeirra verkefna sem nefndin fjallar um er framtíðarskipulag peningamála og samræming í fjármálum hins opinbera til skemmri og lengri tíma. Nefndin er auk þess stefnumótandi og í forystu varðandi samskipti við aðila vinnumarkaðarins, uppbyggingu fjármálakerfisins og stöðu Íslands á alþjóðavettvangi með tilliti til efnahagsmála.
Forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra eiga fast sæti í nefndinni. Utanríkisráðherra fær boð um fundi í ráðherranefndinni og aðgang að nefndargögnum. Utanríkisráðherra situr fundi nefndarinnar eftir þörfum, í samráði við fjármála- og efnahagsráðherra og forsætisráðherra. Aðrir ráðherrar sitja fundi nefndarinnar eftir þörfum, samkvæmt ákvörðun forsætisráðherra sem stýrir nefndinni.Ráðherranefnd um vísindi og nýsköpun
Hlutverk ráðherranefndar um vísindi og nýsköpun er að samræma stefnu stjórnvalda á sviði tækniþróunar, vísinda og nýsköpunar. Ráðherranefndin heldur að jafnaði tvo fundi árlega með Vísinda- og nýsköpunarráði, sem starfar sjálfstætt og fjallar um stöðu vísinda, tækniþróunar og nýsköpunar á Íslandi með tilvísun til alþjóðlegrar þróunar í stefnumótun á málefnasviðinu, auk þess að veita ráðherranefnd um vísindi og nýsköpun og ráðherra sem fer með málefni vísinda og nýsköpunar ráðgjöf.
Forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og mennta- og barnamálaráðherra eiga fast sæti í ráðherranefndinni en þar sem málefni vísinda og nýsköpunar snerta fleiri ráðuneyti sitja heilbrigðisráðherra, atvinnuvegaráðherra og umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra einnig í nefndinni, samkvæmt ákvörðun forsætisráðherra sem stýrir nefndinni.
Ráðherranefnd um samræmingu mála er varða fleiri en eitt ráðuneyti
Hlutverk ráðherranefndar um samræmingu mála er að samhæfa stefnu og aðgerðir í málum þar sem málefnasvið og ábyrgð ráðherra skarast og tryggja vandaðan undirbúning mála og upplýsingaflæði á milli ráðherra. Nefndinni er auk þess ætlað að fylgja eftir innleiðingu verkefna í stjórnarsáttmála með markvissum hætti.
Forsætisráðherra á fast sæti í nefndinni. Aðrir ráðherrar sitja fundi nefndarinnar eftir þörfum, samkvæmt ákvörðun forsætisráðherra sem stýrir nefndinni.
Ráðherranefnd um málefni barna og ungmenna
Hlutverk ráðherranefndar um málefni barna og ungmenna er að efla samráð og samhæfingu meðal þeirra ráðuneyta sem vinna að málefnum barna og ungmenna innan Stjórnarráðsins.
Félags- og húsnæðismálaráðherra, dómsmálaráðherra, mennta- og barnamálaráðherra, heilbrigðisráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra eiga fast sæti í nefndinni. Félags- og húsnæðismálaráðherra stýrir nefndinni en aðrir ráðherrar sitja fundi nefndarinnar eftir þörfum, samkvæmt ákvörðun félags- og húsnæðismálaráðherra.
Ráðherranefnd um öldrunarþjónustu
Hlutverk ráðherranefndar um öldrunarþjónustu er að efla samráð og samhæfingu meðal þeirra ráðuneyta sem vinna að öldrunarþjónustu innan Stjórnarráðsins. Nefndinni er ætlað að vera vettvangur fyrir stefnumótun og umræður um aðgerðir á sviði félags- og heilbrigðisþjónustu er varðar eldra fólk. Nefndinni er jafnframt ætlað að koma að framkvæmd og mögulega uppfærslu þingsályktunar um aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2024-2028.
Forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra og heilbrigðisráðherra eiga fast sæti í nefndinni. Aðrir ráðherrar sitja fundi nefndarinnar eftir þörfum, samkvæmt ákvörðun forsætisráðherra sem stýrir nefndinni.
Ráðherranefnd um öryggis- og varnarmál
Hlutverk ráðherranefndar um öryggis- og varnarmál er að vera vettvangur upplýsingaskipta um öryggismál innan Stjórnarráðsins, samræma upplýsingagjöf ríkisstjórnarinnar við stærri atburði sem varða öryggismál og, þegar það á við, undirbúa framlagningu mála sem varða öryggismál í ríkisstjórn.
Forsætisráðherra, utanríkisráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra og dómsmálaráðherra eiga fast sæti í nefndinni. Aðrir ráðherra sitja fundi nefndarinnar eftir þörfum, samkvæmt ákvörðun forsætisráðherra sem stýrir nefndinni. Nefndin setji sér í framhaldinu reglur um undirbúning funda, sem feli í sér að viðkomandi ráðuneytisstjórar, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, ásamt ríkislögreglustjóra og forstjóra Landhelgisgæslunnar, auk annarra og eftir atvikum, undirbúi fundi nefndarinnar og eigi með sér samstarf og nauðsynleg upplýsingaskipti.
Ríkisstjórn
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.