Fundur ríkisstjórnarinnar 5. mars 2010
Eftirfarandi mál voru á dagskrá ríkisstjórnarinnar 5. mars 2010
Fjármálaráðherra
Frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.
Félags- og tryggingamálaráðherra
Endurskoðun á aðgerðaráætlun gegn kynbundnu ofbeldi.
Efnahags- og viðskiptaráðherra
Mánaðarlegt yfirlit um efnahagsmál og framgang efnahagsstefnunnar í mars.
Gagnaöflun og úrvinnsla til að varpa ljósi á stöðu skuldugra heimila.
Heilbrigðisráðherra
Reglugerð um þátttöku sjúkratrygginga í nauðsynlegum tannlækninga- og tannréttingakostnaði vegna alvarlegra afleiðinga meðfæddra galla, sjúkdóma og slysa.
Félags- og tryggingamálaráðherra
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 45/2007, um réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn tímabundið til Íslands og starfskjör starfsmanna þeirra.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
Frumvarp til umferðarlaga.
Forsætisráðherra og fjármálaráðherra
Staðan í Icesave-málinu.
Nánari upplýsingar veitir hlutaðeigandi ráðuneyti