Fundur ríkisstjórnarinnar 25. október 2013
Eftirfarandi mál voru á dagskrá ríkisstjórnarinnar í dag:
Forsætisráðherra
Staða vinnu á vegum hagræðinarhóps ráðherranefndar um ríkisfjármál
Utanríkisráðherra
1) Staðfesting samkomulags um breytingu á samningi milli Norðurlandanna um aðgang að æðri menntun
2) Dómur Evrópudómstólsins frá 26. september 2013 í málinu nr. C-431/11. EES-samningurinn og bein réttaráhrif
3) EXPO 2015- tillaga um að Ísland taki ekki þátt
4) Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES- nefndarinnar nr. 113/2013 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir, vottun) við EES-samninginn
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra
1) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um verslanaskrá, firmu og prókúruumboð, nr. 42/1903, lögum um sameignarfélög, nr. 50/2007, og lögum um fyrirtækjaskrá, nr. 17/ 2003 (flutningur firmaskrár frá sýslumönnum til fyrirtækjaskrár)
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
1) Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, með síðari breytingum (viðaukar og reglugerðarheimild)
2) Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 43/1998, um stofnun hlutafélags um síldarútvegsnefnd og stofnun sjóða í þágu síldarútvegsins (síldarrannsóknasjóður)
3) Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 103/1994 með síðari breytingum, um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara (Umsýslustofnun)
Umhverfisráðherra
Mögulegar aðgerðir vegna síldargöngu í Kolgrafafirði
Nánari upplýsingar veita hlutaðeigandi ráðuneyti.