Fundur ríkisstjórnarinnar 30. mars 2015
Eftirfarandi mál voru á dagskrá ríkisstjórnarinnar í dag:
Forsætisráðherra
1) Tillögur nefndar um leiðir til að sporna gegn sjálfvirkum vísitöluhækkunum
2) Tillaga til þingsályktunar um hvernig minnast skal aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands
3) Sameiginleg þjónusta fyrir Stjórnarráðið
Félags- og húsnæðismálaráðherra
1) Frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994, með síðari breytingum
2) Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 66/2003, um húsnæðissamvinnufélög, með síðari breytingum
Umhverfis- og auðlindaráðherra
1) Frumvarp til laga um breytingu á efnalögum, nr. 61/2013
2) Tillaga til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu 2015 – 2026
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
1) Frumvarp til laga um stjórn veiða á Norðaustur-Atlantshafsmakríl
2) Frumvarp til laga um byggðaáætlun og sóknaráætlanir
3) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðigjöld, nr. 74/2012
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 78/2002, um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar
Nánari upplýsingar veita hlutaðeigandi ráðuneyti.