Fundur ríkisstjórnarinnar 11. mars 2016
Eftirfarandi mál voru á dagskrá ríkisstjórnarinnar í dag:
Forsætisráðherra
Auglýsing um framboð og kjör forseta Íslands
Innanríkisráðherra
1) Minnisblað um forsetakosningar 2016
2) Minnisblað um landamæraeftirlit vegna fjölgunar ferðamanna
3) Minnisblað um fjárveitingar til að mæta stórauknum fjölda umsókna um hæli á Íslandi
4) Frumvarp til laga um handtöku og afhendingu manna til og frá íslandi vegna refsiverðra verknaða á grundvelli handtökuskipunar (norræn og evrópsk handtökuskipun)
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, nr. 43/1999, með síðari breytingum (framlenging gildistíma, hækkun á hlutfalli endurgreiðslu o.fl.)
Nánari upplýsingar veita hlutaðeigandi ráðuneyti.