Fundur ríkisstjórnarinnar 15. mars 2016
Eftirfarandi mál voru á dagskrá ríkisstjórnarinnar í dag:
Fjármála- og efnahagsráðherra
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða (Fjárfestingarheimildir)
Utanríkisráðherra
1) Upptaka gerða í EES-samninginn á fundi sameiginlegu EES-nefndarinnar 18. mars 2016
2) Fullgilding á samningi WTO um viðskiptaliprun (trade facilitation) frá 2014
Innanríkisráðherra
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra
Skýrsla starfshóps um framtíð kyntra veitna og möguleika til nýtingar varmadæla
Mennta- og menningarmálaráðherra
1) Minnisblað um umfang og stöðu skipulagðs íþróttastarfs á Íslandi
2) Samkomulag um stuðning við tónlistarnám og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms
Umhverfis- og auðlindaráðherra / mennta og menningarmálaráðherra
Tillaga um að hafinn verði undirbúningur að tilnefningu Vatnajökulsþjóðgarðs á heimsminjaskrá UNESCO
Nánari upplýsingar veita hlutaðeigandi ráðuneyti.