Fundur ríkisstjórnarinnar 28. mars 2017
Eftirfarandi mál voru á dagskrá ríkisstjórnarinnar í dag:
Fjármála- og efnahagsráðherra
1) Frumvarp til laga um vátryggingarsamstæður
2) Frumvarp til laga um lánshæfismatsfyrirtæki
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
1) Skýrsla Matvælastofnunar
2) Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 57/1996 og 36/1992 um umgengni um nytjastofna og Fiskistofu (eftirlit með vigtunarleyfishöfum)
Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
1) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög (rafræn fyrirtækjaskrá o.fl.)
2) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða, nr. 75/2011 (hlutverk, framlag ríkissjóðs o.fl.)
Umhverfis- og auðlindaráðherra
1) Frumvarp til laga um landgræðslu
2) Frumvarp til laga um skóga og skógrækt
3) Fjármögnun á verkefnum til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum á svæðum sem eru undir álagi vegna ferðamanna
Heilbrigðisráðherra
1) Frumvarp til laga um breytingar á lögum nr. 6/2002, um tóbaksvarnir, með síðari breytingum (rafsígarettur, EES reglur)
2) Frumvarp til laga um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum
Félags- og húsnæðismálaráðherra
1) Frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir (heildarlög)
2) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 með síðari breytingum (innleiðing samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, stjórnsýsla og húsnæðismál)
3) Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla (jafnlaunavottun)
Nánari upplýsingar veita hlutaðeigandi ráðuneyti.