Fundur ríkisstjórnarinnar 31. mars 2017
Fréttastofum fjölmiðla hafa verið sendar svofelldar upplýsingar um dagskrá ríkisstjórnarinnar í dag:
Fjármála- og efnahagsráðherra
Flutningur fjárveitinga vegna forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna
Félags- og jafnréttismálaráðherra
1) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn tímabundið til Íslands og starfskjör starfsmanna þeirra, lögum um starfsmannaleigur, lögum um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum, lögum um atvinnuréttindi útlendinga, lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og lögum um frjálsan atvinnu og búseturétt launafóks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum
(eftirlit á vinnumarkaði, EES- mál)
2) Tillaga til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2017-2021