Fundur ríkisstjórnarinnar 13. desember 2017
Forsætisráðherra
1) Minnisatriði vegna þingsetningar 14. desember 2017
2) Upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar
Fjármála- og efnahagsráðherra
1) Þingsályktunartillaga um fjármálastefnu
2) Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2018 (bandormur)
3) Frumvarp til lokafjárlaga fyrir árið 2016
Félags- og jafnréttismálaráðherra
1) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni fatlaðs fólks og lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum (notendastýrð persónuleg aðstoð)
2) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, með síðari breytingum (innleiðing samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, stjórnsýsla og húsnæðismál)
3) Frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
1) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skráningu og mat fasteigna, nr. 6/2001, með síðari breytingum (ákvörðun matsverðs)
2) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum (fasteignasjóður)
3) Minnisblað um stöðu vinnudeilu Flugvirkjafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins fyrir hönd Icelandair
Dómsmálaráðherra
1) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um dómstóla o.fl. (setning og leyfi dómara, áfrýjun einkamála, lögmannsréttindi)
2) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga (dvalarleyfi vegna náms)
Utanríkisráðherra
Upptaka gerða í EES-samninginn á fundi sameiginlegu EES-nefndarinnar 15. desember 2017
Nánari upplýsingar veita hlutaðeigandi ráðuneyti.