Fundur ríkisstjórnarinnar 23. mars 2018
Eftirfarandi mál voru á dagskrá ríkisstjórnarinnar í dag:
Fjármála- og efnahagsráðherra
1) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda nr. 155/1998, með síðari breytingum
2) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, nr. 1/1997, með síðari breytingum (hálfur lífeyrir)
Umhverfis- og auðlindaráðherra
1) Tillaga til þingsályktunar um stefnumarkandi landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum 2018-2030
2) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000, með síðari breytingum (EES-reglur, stjórnvaldssektir o.fl.)
Félags- og jafnréttismálaráðherra
1) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn tímabundið til Íslands og starfskjör starfsmanna þeirra og fleiri lögum (vernd réttinda á vinnumarkaði, EES- mál)
2) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum (stefnumótun á sviði húsnæðismála, hlutverk Íbúðalánasjóðs)
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
1) Frumvarp til laga um köfun
2) Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024
3) Kynning á skýrslunni „State of the Nordic Region – 2018“
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
1) Frumvarp til laga um breytingu á ábúðarlögum nr. 80/2004
2) Frumvarp til laga um breytingar á lögum nr. 71/2008 um fiskeldi og fleira
Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
1) Frumvarp til laga um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun
2) Frumvarp til laga um ferðamálastofu
Dómsmálaráðherra
1) Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 80/2016 um útlendinga
2) Frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum nr. 19/1940 (mútubrot)
Mennta- og menningarmálaráðherra
1) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skil menningarverðmæta til annarra landa nr. 57/2011, með síðari breytingum (frestir)
2) Frumvarp til laga um breytingu á kvikmyndalögum, nr. 137/2001 (viðeigandi) ráðstafanir vegna EES-reglna)
3) Kynning á fyrirhuguðu afnámi svokallaðrar 25 ára ,,reglu‘‘
Utanríkisráðherra
1) Upptaka gerða í EES-samninginn á fundi sameiginlegu EES-nefndarinnar 23. mars 2018 – viðbótargerð við ákvörðun nr. 62/2018
2) Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 186/2017 um breytingu á XVII. viðauka (Hugverkaréttindi) við EES-samninginn
Nánari upplýsingar veita hlutaðeigandi ráðuneyti.