Fundur ríkisstjórnarinnar 22. febrúar 2019
Eftirfarandi mál voru á dagskrá ríkisstjórnarinnar í dag:
Fjármála- og efnahagsráðherra
1) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vátryggingastarfsemi og lögum um vátryggingasamstæður (reglugerðir og reglur)
2) Staða vinnu við gerð fjármálaáætlunar fyrir árin 2020-2024
Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
Frumvarp til laga um rafræna auðkenningu og traustþjónustu fyrir rafræn viðskipti
Utanríkisráðherra
1) Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 21/2019
2) Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 18/2019
3) Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu fyrirhugaðrar ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992 og að fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1129 varðandi lýsingu sem birta skal við útboð verðbréfa á almennum markaði eða þegar þau eru tekin til viðskipta
Mennta- og menningarmálaráðherra
Frumvarp til laga um þátttöku Íslands í Samtökum um evrópska rannsóknainnviði
Nánari upplýsingar veita hlutaðeigandi ráðuneyti.