Fundur ríkisstjórnarinnar 20. september 2019
Eftirfarandi mál voru á dagskrá ríkisstjórnarinnar í dag:
Forsætisráðherra
1) Staða frumvarpa á þingmálaskrá
2) Staða þingfyrirspurna til ráðherra
Forsætisráðherra / fjármála- og efnahagsráðherra
Framkvæmd þjónustukönnunar
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun í málefnum
sveitarfélaga fyrir árin 2019-2033 og aðgerðaráætlun fyrir árin 2019-2023
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
Breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórnun grásleppu)
Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
1) Frumvarp til laga um félög til almannaheilla
2) Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 34/1991 um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri (búsetuskilyrði EES-borgara)
Dómsmálaráðherra
Frumvarp til breytinga á lögum um meðferð sakamála nr. 88/2008 (sala og meðhöndlun haldlagðra og kyrrsettra muna)
Utanríkisráðherra
1) Þingsályktun vegna staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu EES nefndarinnar nr. 190/2019
2) Þingsályktunartillaga um heimild Alþingis til staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu EES nefndarinnar nr. 78/2019
3) Þingsályktunartillaga til að leita heimildar Alþingis til staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 79/2019
Mennta- og menningarmálaráðherra
Vegvísir um rannsóknarinnviði og kortlagning 2019
Nánari upplýsingar veita hlutaðeigandi ráðuneyti.