Fundur ríkisstjórnarinnar 20. nóvember 2020
Forsætisráðherra
1) Skipulag verkefna og starfshópar vegna COVID innan Stjórnarráðsins
2) Ferðatakmarkanir á landamærum Íslands
3) Ráðstafanir vegna COVID-19
Forsætisráðherra / fjármála- og efnahagsráðherra / samgöngu-og sveitarstjórnarráðherra og félags- og barnamálaráðherra
Viðspyrna fyrir Ísland - Aðgerðir vegna COVID til að styðja við atvinnuleitendur, lífeyrisþega, barnafjölskyldur og félagslega viðkvæma hópa
Forsætisráðherra / fjármála-og efnahagsráðherra
Fræðsluefni um gervigreind fyrir almenning
Forsætisráðherra / dómsmálaráðherra
Viðbótargreiðslur til umsækjenda um alþjóðlega vernd í desember 2020
Fjármála- og efnahagsmálaráðherra
1) Frumvarp til laga um breytingu á lögum er varða rannsókn og saksókn í skattalagabrotum (tvöföld refsing, málsmeðferð)
2) Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (skattalegir hvatar fyrir lögaðila sem starfa til almannaheilla)
3) Frumvarp til laga um viðspyrnustyrki
Fjármála- og efnahagsráðherra/ dómsmálaráðherra
Verkfall og kjaradeila flugvirkja hjá Landhelgisgæslu Íslands
Dómsmálaráðherra
1) Lögfesting samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks og sjálfstæð innlend mannréttindastofnun
2) Allsherjarúttekt SÞ á stöðu mannréttindamála á Íslandi – Universal Periodic Review
Félags- og barnamálaráðherra
1) Frumvarp til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna
2) Frumvarp til laga um Barna- og fjölskyldustofu
3) Frumvarp til laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála
Umhverfis- og auðlindaráðherra
1) Frumvarp til laga um vernd, velferð og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum
2) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um mat á umhverfisáhrifum og lögum um loftlagsmál ( niðurdæling koldíoxíðs)
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um lax- og silungaveiði, nr. 61/2006 (minnihlutavernd o.fl.)
Mennta- og menningarmálaráðherra
Breyting á reglugerð um starfsþjálfun á vinnustað nr. 840/2011
Mennta- og menningarmálaráðherra / félags- og barnamálaráðherra
Stuðningur við íþróttastarf á tímum COVID-19
Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
1) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Neytendastofu og fleiri lögum (stjórnsýsla neytendamála)
2) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku, nr. 98/2004 (verðlagshækkun)
Nánari upplýsingar veita hlutaðeigandi ráðuneyti