Fundur ríkisstjórnarinnar 6. júlí 2021
Eftirfarandi mál voru á dagskrá ríkisstjórnarinnar í dag:
Forsætisráðherra
1) Nefnd um rýni fjárfestinga í þýðingarmiklum samfélagsinnviðum vegna þjóðaröryggis
2) Þátttaka í alþjóðlegri könnun um traust á vegum OECD
3) Seyðisfjörður: staða mála
4) Menningarvísar Hagstofunnar
5) Úttekt á því hvernig stjórnvöld hafa tekist á við faraldurinn af völdum Covid-19 og tengdum atriðum
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
Sundabraut – viljayfirlýsing
Fjármála- og efnahagsráðherra
1) Drög að fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2022 og útfærsla á útgjaldarömmum málefnasviða
2) Afkoma ríkissjóðs samkvæmt uppgjöri Hagstofu Íslands fyrir janúar til mars 2021
3) Skýrsla OECD um Ísland, helstu niðurstöður og tilmæli
4) Stefna um stafræna þjónustu
Heilbrigðisráðherra
Skýrsla um ójöfnuð í heilsu á Íslandi
Mennta- og menningarmálaráðherra
Samráðsfundur íþróttamálaráðherra Norðurlanda um sameiginlega afstöðu vegna HM í Katar 2022
Mennta- og menningarmálaráðherra / ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
Framtíðarfyrirkomulag Nýsköpunarkeppni grunnskóla - samstarf MRN og ANR
Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra
1) Upplýsingar um stöðu Iceland-málsins fyrir áfrýjunarnefnd Hugverkastofu ESB (e. EUIPO)
2) Breyting á bókun 3 (upprunareglur) við fríverslunarsamning Íslands og Evrópusambandsins frá 1972
3) Breyting á upprunareglum EFTA-sáttmálans (PEM)
4) Upptaka gerða í EES-samninginn á fundi sameiginlegu EES-nefndarinnar þann 9. júlí 2021
Umhverfis- og auðlindaráðherra
Bráðabirgðatölur um losun gróðurhúsalofttegunda árið 2020
Nánari upplýsingar veita hlutaðeigandi ráðuneyti.