Fundur ríkisstjórnarinnar 18. október 2024
Eftirfarandi mál voru á dagskrá ríkisstjórnarinnar í dag:
Forsætisráðherra
1) Samantekt á forgangslista yfir þingmál á haustþingi 155. löggjafarþings
2) Norðurlandaráðsþing í Reykjavík 2024 – móttaka ríkisstjórnar Íslands
Fjármála- og efnahagsráðherra
Áframhaldandi húsnæðisuppbygging og þróun lóða innan Reykjanesbæjar
Utanríkisráðherra
Upptaka gerða í EES-samninginn á fundi sameiginlegu EES-nefndarinnar þann 25. október nk.
Menningar- og viðskiptaráðherra
1) Fjölmiðlastefna og aðgerðaáætlun í málefnum fjölmiðla til 2030
2) Skýrsla starfshóps um tillögur að lagabreytingum á sviði fasteignakaupa
3) Talsetningar- og textunarsjóður fjölmiðlaveitna – reglur
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
1) Framkvæmdageta ofanflóðasjóðs
2) Átak í uppbyggingu smávirkjana
3) Frumvarp til laga um breyting á raforkulögum, nr. 65/2003 (raforkuöryggi o.fl.)
Nánari upplýsingar veita hlutaðeigandi ráðuneyti.