Heimastjórn 1904-1918
Hinn 1. febrúar 1904 fengu Íslendingar heimastjórn, þingræði var fest í sessi og Stjórnarráð Íslands stofnað. Ráðherra Íslands fékk aðsetur í Reykjavík, sem varð miðstöð stjórnsýslu. Flutningur framkvæmdavaldsins til Íslands 1. febrúar 1904 markaði þáttaskil og var stærsta skrefið í baráttu þjóðarinnar fyrir sjálfstæði.
Fyrsti ráðherrann Hannes Hafstein var þjóðkunnur, sýslumaður á Ísafirði og eitt ástsælasta skáld þjóðarinnar.
Á eftirfarandi síðum má finna fjölmargt sem tengist heimastjórnarárunum 1904-1918, einu mesta framfaraskeiði þjóðarinnar.
Efnið sem finna má þessum síðum var samið fyrir vefinn heimastjorn.is sem opnaður var árið 2004 í tilefni af því að 100 ár voru liðin frá því Íslendingar fengu heimastjórn. Afrit af upprunalegri útgáfu vefins er að finna í vefsafni Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafni.
Heimastjórn 1904-1918
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.