Komið vel á veg |
Framvinda verkefnisins
Einföldun og endurskoðun regluverks á sviði veiðistjórnunar með hagkvæmni greinarinnar að markmiði. Aukin áhersla á hagsmunagæslu á alþjóðavettvangi m.a. með þátttöku í samningum um takmörkun á niðurgreiðslum í sjávarútvegi á vettvangi WTO ásamt áherslu á hagfellda samninga við Bretland vegna Brexit. Unnið að bættum viðskiptakjörum fyrir sjávarafurðir frá Íslandi á helstu mörkuðum.
Verkefnið er viðvarandi. Áfram unnið að einföldun regluverks. Einnig að hagstæðum samningum við aðrar þjóðir um fiskveiðiheimildir og bætt viðskiptakjör til að tryggja íslenska hagsmuni. Reglugerðir hafa verið einfaldaðar og þeim fækkað umtalsvert. Verkefnið er viðvarandi.
Ábyrgð
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið
Kafli
Þróttmikið efnahagslíf