Lokið |
Framvinda verkefnisins
Markmið
Aukin áhersla á samgöngubætur fyrir gangandi og hjólandi, bæði á höfuðborgarsvæðinu en einnig á landsbyggðinni.
Staða
Heildarframlög ríkisins í uppbyggingu göngu- og hjólastíga hafa stóraukist. Í samræmi við samgöngusáttmálann er gert ráð fyrir að um 8,2 milljarðar fari í göngu- og hjólastíga, göngubrýr og undirgöng. Önnur framlög til málaflokksins, sem áður voru fyrir landið allt renna því öll til verkefna utan höfuðborgarsvæðisins. Þá voru ný umferðarlög samþykkt á Alþingi 2019 með nýjum og skýrari ákvæðum um hjólandi vegfarendur sem ætlað er að auka öryggi þeirra og annarra í umferðinni.
- Nánar um sáttmála um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu
- Bættar samgöngur fyrir hjólandi. Frétt á vef Vegagerðarinnar um forgangsröðun uppbyggingar á stofnhjólaleiðum á höfuðborgarsvæðinu (7. júlí 2020)
Ábyrgð
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið
Kafli
Sterkt samfélag