Lokið |
Framvinda verkefnisins
Fjárveitingar til háskóla- og vísindastarfs hafa aukist og hafa aldrei verið hærri en árið 2021. Grundvallarbreyting á námslánakerfinu er afstaðinn, með auknum og sanngjarnari stuðningi við námsmenn. Nýjar reglur um aðfararnám hafa verið settar og reglur um eftirlit með gæðum kennslu og rannsókna. Grænbók um fjármögnun háskóla var gefin út og tillögur að nýju fjárveitingakerfi liggja fyrir. Doktorsnám við Háskólann á Akureyri er orðið að veruleika og kvikmyndanám á háskólastigi hefst næsta vetur. Tvíhliða samstarfsyfirlýsing um háskólanám við S-Kóreu og samkomulag við Kína um gagnkvæma viðurkenningu háskólanáms hefur verið undirritað. Úttekt á lögreglunámi á háskólastigi er lokið.
Ábyrgð
Mennta- og menningarmálaráðuneytið
Kafli
Sterkt samfélag