Lokið |
Framvinda verkefnisins
Árósasamningurinn var fullgiltur á Íslandi árið 2011 en samningurinn leggur skyldur á aðildarríkin að tryggja almenningi aðgengi að upplýsingum um umhverfismál, að geta haft áhrif á ákvarðanatöku sem snertir umhverfið og geta borið ákvarðanir er snerta umhverfið undir óháða úrskurðaraðila. Aðgerðaáætlun um Árósasamninginn hefur verið unnin í ráðuneytinu og ákveðnum aðgerðum þar er lokið.
Starfshópur vann að heildarendurskoðun laga um mat á umhverfisáhrifum. Markmið vinnunnar var m.a. að tryggja þátttökuréttindi almennings. Frumvarp til laga um mat á umhverfisáhrifum varð að lögum á 151. löggjafarþingi (vor).
Ábyrgð
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
Samstarfsráðuneyti
DómsmálaráðuneytiðKafli
Umhverfi og loftslag