Lokið |
Framvinda verkefnisins
Endurskoðun stofns fjármagnstekjuskatts sem m.a. felur í sér möguleika á að færast nær því að skattleggja raunávöxtun. Þar verður m.a. litið til reynslu annarra OECD-ríkja og hvernig skattstofninn er skilgreindur hjá þeim ríkjum.
Lög nr. 96/2017 sem fólu í sér hækkun á fjármagnstekjuskatti í 22%, öðluðust gildi 1. janúar 2018. Í framhaldi af tillögum starfshóps var samið frumvarp varðandi skattstofninn sem fól í sér hækkun á frítekjumarki fjármagnstekna úr 150 þúsund í 300 þúsund auk þess sem frítekjumarkið var einnig látið ná til úthlutaðs arðs og söluhagnaðar hlutabréfa í hlutafélögum. Auk þess var skattskylda af frístundahúsnæði felld niður með ákveðnum skilyrðum. Frumvarpið varð að lögum 17. desember 2020.
Ábyrgð
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Kafli
Þróttmikið efnahagslíf