Lokið |
Framvinda verkefnisins
Eðlilegt þyki að tekjur vegna nýtingar á verkum sem þegar hafa verið sköpuð séu skattlagðar eins og aðrar tekjur manna af eignum sínum. Aðgerðin felur í sér að greiðslur til höfunda og/eða annarra einstaklinga sem rétthafa verði ekki lengur skattlagðar sem launatekjur heldur sem fjármagnstekjur og þá án nokkurs frádráttar.
Frumvarp um málefnið var lagt fyrir og lögfest á Alþingi á vorþingi 2019.
Ábyrgð
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Kafli
Sterkt samfélag