Lokið |
Framvinda verkefnisins
Markmið
Þjónustukortinu er ætlað að sýna alla almenna þjónustu hins opinbera og einkaaðila. Markmiðið er að auka og bæta aðgengi almennings að upplýsingum um þjónustu víðsvegar um landið og auka tækifæri til nýsköpunar og frekari stefnumótunar á sviði byggðamála.
Staða
Stafrænt þjónustukort hefur verið opnað en kortið sýnir almenna þjónustu hins opinbera og einkaaðila um land allt með myndrænum hætti. Skráðir hafa verið um 95% þjónustuþátta ríkis og gagnaöflun frá sveitarfélögum stóð yfir á árinu 2020.
Unnið er að frekari viðmótshönnun á kortinu í því skyni að betrumbæta útlit, viðmót og virkni þess. Þá stendur til að þýða á kortið yfir á ensku og pólsku, gera það aðgengilegt fyrir sjóndapra sem og að setja inn mæligildi.
Markmiðið með kortinu er að auka og bæta aðgengi almennings að upplýsingum um þjónustu víðs vegar um landið og auka tækifæri til nýsköpunar og frekari stefnumótunar á sviði byggðamála. Byggðastofnun hefur umsjón með þjónustukortinu sem er í stöðugri þróun og uppfærslu.
Ábyrgð
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið
Samstarfsráðuneyti
Fjármála- og efnahagsráðuneytiðKafli
Sterkt samfélag