Lokið |
Framvinda verkefnisins
Í febrúar 2018 var opnuð samráðsgátt fyrir opið samráð stjórnvalda við almenning (Samráðsgátt | Öll mál (island.is)). Markmið samráðsgáttarinnar er að auka gagnsæi og möguleika almennings og hagsmunaaðila á þátttöku í stefnumótun, reglusetningu og ákvarðanatöku opinberra aðila. Þar er á einum stað hægt að finna öll mál ráðuneyta sem birt eru til samráðs við almenning og öllum er frjálst að senda inn umsögn eða ábendingu. Tilkoma samráðsgáttarinnar hefur aukið mjög opið samráð ráðuneyta og þar hefur verið góð þátttaka almennings og hagsmunaaðila. Samráðsgáttin mun verða áfram í þróun með aukið gagnsæi og þátttöku að leiðarljósi.
Ábyrgð
Forsætisráðuneytið
Samstarfsráðuneyti
Fjármála- og efnahagsráðuneytið og önnur ráðuneytiKafli
Lýðræði og gagnsæi