Lokið |
Framvinda verkefnisins
Unnið hefur verið samhliða að því að annars vegar hagræða í rekstri viðskiptabanka í eigu ríkisins og hækka arðsemi þeirra og hins vegar að þróa leiðir til að losa um eignarhald ríkisins í Íslandsbanka að hluta eða öllu leyti um leið og aðstæður leyfa.
Fjármála- og efnahagsráðherra féllst á tillögu Bankasýslu ríkisins um sölu á eignarhlutum í Íslandsbanka í desember 2020. Í samræmi við lagaákvæði lagði ráðherra fram greinargerð fyrir fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis og féllust nefndirnar á málið með vissum ábendingum. Einnig veitti Seðlabanka Íslands sína umsögn í samræmi við ákvæði laga. Um miðjan júní 2021 fór fram sala á 35% af hlutafé í bankanum í almennu útboði sem bæði svonefndir hornfjárfestar og almenningur tóku þátt í. Útboðið tókst vel og var mikil umframeftirspurn og seldust hlutirnir í efri mörkum leiðbeinandi verðbils útboðsins. Í kjölfarið voru öll hlutabréf í bankanum skráð á skipulegan verðbréfamarkað á Íslandi. Allt söluandvirðið úr útboðinu rann til ríkissjóðs
Ábyrgð
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Samstarfsráðuneyti
ForsætisráðuneytiðKafli
Þróttmikið efnahagslíf