Lokið |
Framvinda verkefnisins
Stuðningur við fyrstu kaupendur. Hægt að nýta séreignarsparnað til fyrstu kaupa á íbúð. Gerðar hafa verið breytingar á lögum um húsnæðismál. Sett hafa verið á laggirnar sérstök lán hlutdeildarlán, fyrir tekjulægri fyrstu kaupendur og þá sem ekki hafa átt íbúð á síðustu 5 árum. Gert er ráð fyrir að kaupandi leggi sjálfur fram að lágmarki 5% kaupverðs,HMS veitir lán sem nemur 20% af verðmæti eignar og íbúðarkaupandi tekur lán í lánastofnun sem nemur 75% af verði eignar. Hlutdeildarlánið ber ekki vexti á lánstímanum en endurgreiðist við sölu, eða að 25 árum liðnum í síðasta lagi, og nemur þá endurgreiðslufjárhæðin sama hlutfalli af verðmæti fasteignar við endurgreiðslu og upphafleg lánveiting nam. Hægt er að nýta uppsafnaðan séreignarsparnað til fyrstu kaupa á íbúð og til að greiða niður húsnæðislán, sé þess óskað.
Löggjöf um hlutdeildarlán var samþykkt á haustþingi 2020.
Ábyrgð
Félagsmálaráðuneytið
Samstarfsráðuneyti
Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, UtanríkisráðuneytiðKafli
Sterkt samfélag