Hafið |
Framvinda verkefnisins
Samráðshópur um breytt framfærslukerfi vegna skertrar starfsgetu lauk störfum og skilaði af sér tillögum um breytt framfærslukerfi. Í hópnum áttu m.a. sæti fulltrúar Öryrkjabandalags Íslands og Landssamtakanna Þroskahjálpar.
Hópurinn skilaði tillögum sínum í maí 2019 ásamt bókunum. Ákveðið var að fresta framlagningu frumvarpsins og vinna að frekari útfærslum þeirra tillagna sem þar komu fram. Gerðar hafa verið breytingar á lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð, í því skyni að draga úr áhrifum annarra tekna örorkulífeyrisþega á sérstaka uppbót vegna framfærslu auk þess sem breytingar voru gerðar á reglum um meðferð atvinnutekna. Þá hefur verið dregið úr áhrifum bóta almannatrygginga við útreikning sérstakrar uppbótar vegna framfærslu. Þessar breytingar eru hugsaðar sem brú yfir í nýtt greiðslukerfi vegna skertrar starfsgetu þar sem áhersla verður lögð á möguleika fólks til að auka ráðstöfunartekjur sínar með þátttöku á vinnumarkaði og þar sem dregið verði úr skerðingum bóta vegna tekna.
Ábyrgð
Félagsmálaráðuneytið
Samstarfsráðuneyti
Fjármála- og efnahagsráðuneytiðKafli
Jöfn tækifæri