Lokið |
Framvinda verkefnisins
Markmið
Fjárveitingar til sóknaráætlana verði auknar og jafnframt stutt við þær með aðgerðum í byggðaáætlun. Markmiðið er að færa heimamönnum aukna ábyrgð á ráðstöfun fjármuna og tengja sóknaráætlanir landshluta við byggðaáætlun.
Staða
Endurnýjaðir voru sóknaráætlanasamningar við öll átta landshlutasamtök sveitarfélaga sem koma til með að gilda árin 2020-2024. Hugmyndafræði sóknaráætlana gengur út á að ná fram betri nýtingu fjármuna og færa ákvarðanatöku nær heimamönnum sem þekkja best til aðstæðna. Framlög til sóknaráætlana hafa aukist um 45% á milli fjárlaga 2017 og fjárlaga 2021. Þá var liður í fjárfestingarátaki stjórnvaldi til að sporna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru og styðja við verkefni á landsbyggðinni að auka fjárveitingar til sóknaráætlana árið 2020 um 200 m.kr.
Jafnframt eru aðgerðir í byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024 sem styðja við sóknaráætlanirnar, s.s. C.1 - sértæk verkefni sóknaráætlanasvæða en alls hefur verið úthlutað rúmlega 450 m.kr. til verkefna á grundvelli hennar.
- Nánar um sóknaráætlanir landshluta
- Frétt um nýja samninga um sóknaráætlanir landshluta (12. nóvember 2019)
- Frétt um viðbótarfjárveitingu vegna Covid-19 (13. maí 2020)
Ábyrgð
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið
Samstarfsráðuneyti
Öll ráðuneytiKafli
Sterkt samfélag