Komið vel á veg |
Framvinda verkefnisins
Frumvarp forsætisráðherra til laga um breytingu á ýmsum lögum er varða eignarráð og nýtingu fasteigna (aðilar utan Evrópska efnahagssvæðisins, landeignaskrá, ráðstöfun landeigna, aukið gagnsæi o.fl.) var samþykkt á Alþingi í júní 2020, sbr. lög nr. 85/2020. Í meginatriðum fela lögin í sér eftirfarandi:
1) Þrengri heimildir aðila sem búsettir eru í ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins til að öðlast eignarrétt eða afnotarétt yfir fasteign hér á landi.
2) Aukin stýritæki stjórnvalda á sviði land- og jarðanýtingar með áherslu á landbúnaðarland, þ.m.t. lögbýli, og land yfir tilteknum stærðarmörkum.
3) Betri yfirsýn yfir eignarráð og nýtingu á landi og aukið gagnsæi um sömu atriði.
Stýrihópur um heildstæða löggjöf og stjórnsýslu varðandi jarðir, land og aðrar fasteignir fylgi eftir innleiðingu laganna og vann að frekari stefnumótun. Skilað var skýrslu og tillögum í formi lagafrumvarps sem áður hafði verið kynnt í samráðsgátt og skýrslu um heildarverkefni hópsins, sjá nánar: Stjórnarráðið | Skýrsla um heildstæða löggjöf og stjórnsýslu varðandi jarðir, land og aðrar fasteignir lögð fram (stjornarradid.is)
Ábyrgð
Forsætisráðuneytið
Samstarfsráðuneyti
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, umhverfis- og auðlindaráðuneytið, dómsmálaráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytiðKafli
Sterkt samfélag