Lokið |
Framvinda verkefnisins
Lög um jafnlaunavottun tóku gildi 1. janúar 2018. Samkvæmt lögunum eiga öll ráðuneyti, stofnanir og fyrirtæki sem lögin taka til að vera komin með jafnlaunavottun fyrir lok árs 2022. Opinberar stofnanir, sjóðir og fyrirtæki að hálfu eða meira í eigu ríkis, sveitarfélög og fyrirtæki á almennum markaði með 250 starfsmenn eða fleiri eiga að vottast fyrir áramótin 2019/2020 og síðan fer það eftir stærð fyrirtækja hvenær þau uppfylla skilyrði laganna um vottun, síðast 31. desember 2022. Framvinda jafnlaunavottunar verður metin með reglubundnum könnunum og fylgst með að öll fyrirtæki uppfylli skilyrði laga fyrir árslok 2022. Í júní 2021 hafa 305 fyrirtæki og stofnanir þar sem starfa um 63% fólks á vinnumarkaði eða um 92.500 manns fengið vottun. Í ágúst munu liggja fyrir niðurstöður úr launakönnun Hagstofu Íslands, sú fyrsta sem gerð er eftir að lög um jafnlaunavottun voru samþykkt.
Ábyrgð
Forsætisráðuneytið
Kafli
Jöfn tækifæri