Lokið |
Framvinda verkefnisins
Greiningu á þörf safna fyrir húsnæði og búnað miðar vel en þar er sérstaklega horft til geymslumála, frumathugun er í vinnslu vegna varðveisluhúsnæðis Þjóðskjalasafns Íslands og Listasafns Íslands. Innri starfsemi höfuðsafna hefur verið styrkt með auknum fjárframlögum. Gengið var frá kaupum á safnhúsi við Safnatröð á Seltjarnarnesi fyrir framtíðarhúsakyni Náttúruminjasafn Íslands. Átaksverkefni í skráningu og skönnun hjá höfuðsöfnum hefur skilað góðum árangri. Aukning skráninga í Sarp var verulega umfram viðmið og má m.a. rekja árangurinn til átaks sem miðar að hraðari skilum á gögnum og munum til lögbundinna vörsluaðila.Ábyrgð
Mennta- og menningarmálaráðuneytið
Kafli
Sterkt samfélag