Lokið |
Framvinda verkefnisins
Brýnt er að fylgjast með áhrifum súrnunar sjávar á lífríki hafsins. Gerður hefur verið samningur við Hafrannsóknastofnun sem felur í sér að efla vöktun á súrnun hafsins og áhrifum hennar á lífríki og vistkerfi í hafinu umhverfis Ísland. Hafrannsóknastofnun fær 155 milljónir króna til þessa viðfangsefnis á árunum 2019-2023. Rannsóknaniðurstöðum verður m.a. skilað til alþjóðlegra stofnana og samvinnuverkefna sem Ísland tekur þátt í auk þess sem þær verða nýttar í reglulegar vísindaskýrslur um afleiðingar loftslagsbreytinga á Íslandi.
Ábyrgð
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
Samstarfsráðuneyti
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytiðKafli
Umhverfi og loftslag