Sáttmáli ríkisstjórnar 2017
Sáttmáli Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um ríkisstjórnarsamstarf og eflingu Alþingis
Inngangur
Í nýrri ríkisstjórn munu flokkar sem spanna hið pólitíska litróf allt frá vinstri til hægri freista þess að slá nýjan tón, einhenda sér í þau lykilverkefni sem koma Íslandi í fremstu röð og búa þannig um hnútana að hér verði gott að lifa og starfa fyrir unga sem aldna.
Á Íslandi er staðan í þjóðfélagsmálum um margt óvenjuleg. Tekist hefur að ná jafnvægi í ríkisfjármálum en þegar horft er til innviða samfélagsins og nýrra viðfangsefna blasa við brýn og umfangsmikil verkefni. Efnahagur á landsvísu hefur vænkast hratt undanfarin ár en gæta þarf að jafnvægi með þjóðinni og tækifærum allra sem landið byggja.
Stefna þarf að stöðugleika til lengri tíma og auka gagnsæi í athafnalífi og allri stjórnsýslu til að efla traust almennings á rekstri fyrirtækja, fjármálalífi, stjórnmálum og stofnunum samfélagsins. Frá efnahagshruninu hefur náðst margvíslegur árangur en enn skortir á þá félagslegu sátt sem þjóðin hefur lengi kallað eftir. Að henni þarf að vinna. Um leið þarf að bregðast við örum þjóðfélagsbreytingum og breyttri sýn á samfélagið á ótal sviðum en líka ójöfnuði og umróti á heimsvísu.
Ísland getur verið sterk rödd á alþjóðavettvangi með því að vera fyrirmynd um jafnréttismál þar sem hægt er að gera enn betur, setja sér metnaðarfull loftslagsmarkmið, vernda ósnortin víðerni og hlúa að náttúru og lífinu í landinu. Sjálfbær þróun verður í fyrirrúmi við ákvarðanir í samræmi við alþjóðaskuldbindingar og -markmið.
Allar áætlanir sem eiga að halda til lengri framtíðar þarf að gera í auknu samráði og með bættum samskiptum. Efla þarf samstarf milli flokka á Alþingi, styrkja sjálfstæði þingsins, umbúnað þess, faglegan stuðning og stöðu. Þá verður að auka samráð við vinnumarkaðinn um sterkara samfélag á sem flestum sviðum. Loks þarf að treysta enn samráð og stuðning við sveitarfélög að því er varðar uppbyggingu innviða, byggðaþróun og fjármálaleg samskipti.
Óvenjulegar aðstæður kalla á breytt vinnubrögð, opnari stjórnsýslu, gagnsæi og virðingu gagnvart verkefnum. Það er vilji flokkanna sem nú taka þátt í samstarfi um ríkisstjórn og eflingu Alþingis að nálgast verkefnin með nýjum hætti í þágu alls almennings í landinu, ekki síst með því að styrkja Alþingi með markvissum hætti og auka áhrif þess.
Efling Alþingis
Löggjafar-, fjárstjórnar- og eftirlitshlutverk Alþingis verður styrkt á kjörtímabilinu með auknum stuðningi við nefndastarf og þingflokka. Auk þess vilja ríkisstjórnarflokkarnir ýta allnokkrum verkefnum úr vör með þverpólitískri nálgun og tryggja þar betur en venja er að sú fjölþætta þekking og reynsla sem þingið býr yfir nýtist í þágu lands og þjóðar óháð því hvaða flokkar skipa stjórn og stjórnarandstöðu á hverjum tíma. Á fyrri hluta kjörtímabilsins verða settir á fót þverpólitískir hópar í samráði við viðkomandi fagráðherra, m.a. um stofnun miðhálendisþjóðgarðs, nýsköpunarstefnu, þróun mælikvarða um hagsæld og lífsgæði, orkustefnu, stjórnarskrá, framkvæmd og endurskoðun útlendingalaga og framtíðarnefnd um áskoranir og tækifæri vegna tæknibreytinga.
Sátt þarf að ríkja um fyrirkomulag fjármálakerfisins til framtíðar. Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið á Íslandi verður lögð fyrir Alþingi til umfjöllunar áður en stefnumarkandi ákvarðanir verða teknar um fjármálakerfið.
Megináherslum ríkisstjórnarinnar má skipta í eftirfarandi flokka sem styðja hverjir aðra:
- Sterkt samfélag
- Þróttmikið efnahagslíf
- Umhverfi og loftslag
- Nýsköpun og rannsóknir
- Jöfn tækifæri
- Lýðræði og gagnsæi
- Alþjóðamál
Sterkt samfélag
Heilbrigðismál
Íslenska heilbrigðiskerfið á að standast samanburð við það sem best gerist í heiminum. Allir landsmenn eiga að fá notið góðrar þjónustu, óháð efnahag og búsetu.
Ríkisstjórnin mun fullvinna heilbrigðisstefnu fyrir Ísland með hliðsjón af þörfum allra landsmanna og skilgreina betur hlutverk einstakra þátta innan heilbrigðisþjónustunnar og samspil þeirra. Mótuð verða markmið og leiðir í heilbrigðismálum í samvinnu við fagstéttir og embætti landlæknis í þeim tilgangi að stuðla að góðu heilbrigði þjóðarinnar og skapa eftirsóknarverðan starfsvettvang fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Heilsugæslan verður efld sem fyrsti viðkomustaður notenda. Framkvæmdir við nýjan meðferðarkjarna Landspítala munu hefjast næsta sumar.
Efla á nýsköpun í heilbrigðismálum þannig að Ísland verði í fremstu röð og nýti sér nýjustu tækni á þessu sviði, þ.m.t. fjarlækningar.
Ríkisstjórnin ætlar að draga úr greiðsluþátttöku sjúklinga í heilbrigðiskerfinu og gera það gagnsærra og skilvirkara. Þar þarf að meta árangur núverandi kerfis með hliðsjón af veikasta fólkinu og skoða þá þætti sem eru ekki hluti af því, t.d. ferða- og uppihaldskostnað, tannlækningar og sálfræðiþjónustu.
Geðheilbrigðisáætlun til 2020 verður hrint í framkvæmd og hún fjármögnuð. Geðheilbrigðisþjónusta á heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum úti um land verður efld og bráða- og barna- og unglingageðdeildum Landspítalans verður tryggt fjármagn til að standa undir rekstri þeirra. Heilbrigðisþjónusta í framhaldsskólum verður efld með áherslu á geðheilbrigði.
Ríkisstjórnin mun leggja sérstaka áherslu á forvarnir og lýðheilsu, meðal annars í menntakerfinu og heilbrigðiskerfinu og með stuðningi við íþróttir, æskulýðsstarf og öldrunarstarf. Skoðuð verður beiting efnahagslegra hvata til eflingar lýðheilsu.
Skortur á hjúkrunarrýmum veldur auknu álagi á sjúkrahúsin og skerðir lífsgæði aldraðra. Fyrir liggur að þörf fyrir uppbyggingu er veruleg á næstu fimm árum. Ráðist verður í stórsókn í uppbyggingu og mun hún birtast í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Hluti fyrirhugaðs Þjóðarsjóðs gæti nýst í þetta verkefni. Einnig verður hugað að því að styrkja rekstrargrundvöll hjúkrunarheimila en áhersla verður einnig lögð á aðra þjónustuþætti, svo sem heimahjúkrun, dagþjálfun og endurhæfingu.
Menntun og vísindi
Öflugt menntakerfi er forsenda framfara og boðar ríkisstjórnin stórsókn í menntamálum. Skapandi og gagnrýnin hugsun, læsi og þátttaka í lýðræðissamfélagi verður áfram undirstaða íslenska skólakerfisins. Lögð verður rík áhersla á að efla menntun í landinu með hagsmuni nemenda og þjóðarinnar allrar að leiðarljósi. Nýsköpun og þróun verður að efla á öllum skólastigum enda er menntun kjarninn í nýsköpun til framtíðar.
Mikilvægt er að stuðla að viðurkenningu á störfum kennara, efla faglegt sjálfstæði þeirra og leggja áherslu á skólaþróun á öllum skólastigum. Bregðast þarf við kennaraskorti í samstarfi ríkis, sveitarfélaga og stéttarfélaga. Ríkisstjórnin vill tryggja framhaldsskólum frelsi og fjármagn til eigin stefnumótunar innan ramma framhaldsskólalaga og kanna kosti sveigjanlegra skólaskila.
Ríkisstjórnin ætlar að leggja sérstakra áherslu á listnám og aukna tækniþekkingu sem gera mun íslenskt samfélag samkeppnishæfara á alþjóðavísu. Iðnnám og verk- og starfsnám verður einnig eflt í þágu fjölbreytni og öflugra samfélags.
Jafnt aðgengi að námi óháð búsetu og öðrum aðstæðum verður meginmarkmið. Endurskoða þarf löggjöf um framhaldsfræðslu og setja skýran ramma um starfsemi menntastofnana og samstarf við atvinnulífið. Ísland nái meðaltali OECD-ríkjanna er varðar fjármögnun háskólastigsins fyrir árið 2020 og Norðurlanda árið 2025 í samræmi við áætlanir Vísinda- og tækniráðs sem mun skipta sköpum fyrir bæði kennslu og rannsóknir í íslenskum háskólum. Unnið verður að lausn á húsnæðismálum Listaháskóla Íslands á kjörtímabilinu. Fjármögnuð verður aðgerðaáætlun um máltækni þannig að íslenska verði gjaldgeng í stafrænum heimi.
Ráðist verður í endurskoðun námslánakerfisins í samstarfi við námsmannahreyfingarnar þar sem lögð verður áhersla á jafnrétti til náms, skilvirkni og námsstyrkjakerfi að norrænni fyrirmynd.
Húsnæðismál
Öruggt húsnæði, óháð efnahag og búsetu, er ein af grundvallarforsendum öflugs samfélags. Í því samhengi skiptir hvað mestu að hagstjórn stuðli að áframhaldandi lækkun vaxta. Ríkisstjórnin ætlar að beita sér fyrir umbótum í húsnæðismálum sem stuðla að eflingu og auknu jafnvægi húsnæðismarkaðar. Litið verður til ólíkra áskorana eftir landsvæðum í þessu samhengi og vanda sem stafar frá fyrri tíð. Tryggja þarf að á hverjum tíma séu aðgengilegar greiningar og tölfræði um húsnæðisframboð og -þörf út frá lýðfræðilegri þróun og skipulagsforsendum.
Skammtímaleiga íbúðarhúsnæðis til ferðamanna hefur aukist mikið á undanförnum árum og hefur sú þróun haft afgerandi áhrif á húsnæðismarkað víða um land.
Setja þarf skýrari reglur um slíka starfsemi, í samvinnu við sveitarfélögin og ferðaþjónustuna, ásamt því að efla eftirlit með leyfislausri starfsemi. Kanna þarf forsendur þess að sveitarfélög hafi ríkari heimildir til að stýra leigumarkaði.
Stuðla þarf að bættu aðgengi landsmanna að öruggu húsnæði með eflingu stuðningskerfa og samræmdri stefnumörkun í uppbyggingu félagslegs húsnæðis, auknu gagnsæi á leigumarkaði og aukinni upplýsingagjöf um húsnæðismál.
Ríkisstjórnin mun fara í aðgerðir sem lækka þröskuld ungs fólks og tekjulágra inn á húsnæðismarkaðinn. Í því augnamiði verða stuðningskerfi hins opinbera endurskoðuð þannig að stuðningurinn nýtist fyrst og fremst þessum hópum. Meðal annars verða skoðaðir möguleikar á því að hægt verði að nýta lífeyrissparnað til þessa. Í samskiptum ríkis og sveitarfélaga um tekjustofna og fjárhagsmál verður aukið lóðaframboð og gjaldtaka vegna nýbygginga á dagskrá ásamt því að yfirfara stjórnsýslu vegna byggingaframkvæmda. Styðja þarf áfram við leigufélög sem eru rekin á félagslegum forsendum án hagnaðarsjónarmiða með stofnstyrkjum ríkisins.
Ríkisstjórnin mun taka markviss skref á kjörtímabilinu til afnáms verðtryggingar á lánum en samhliða þeim verður ráðist í mótvægisaðgerðir til að standa vörð um möguleika ungs fólks og tekjulágra til að eignast húsnæði. Sérstök áhersla verður lögð á að gæta efnahagslegs stöðugleika. Ríkisstjórnin vill enn fremur skapa hvata og stuðning til þess að heimili sem það kjósa geti breytt verðtryggðum lánum í óverðtryggð.
Fasteignaverð er liður í neysluvísitölu hér á landi og mikil hækkun þess á undanförnum árum hefur af þeim sökum leitt til þess að höfuðstóll verðtryggðra lána hefur hækkað meira en ella. Ríkisstjórnin mun hefja skoðun á því hvernig megi fjarlægja fasteignaverð úr mælingu neysluvísitölunnar.
Byggðamál
Mikil verðmæti felast í því að landið allt sé í blómlegri byggð. Landsmenn eiga að hafa jafnan aðgang að þjónustu, atvinnutækifærum og lífskjörum um land allt.
Ríkisstjórnin mun auka samráð við sveitarfélögin um verkefni þeirra og fjárhagsleg samskipti. Skilgreina þarf hlutverk landshlutasamtaka og styrk sveitarfélaga til að rísa undir nauðsynlegri þjónustu.
Sóknaráætlanir landshlutanna eru mikilvægt tæki til að reka byggðastefnu á forsendum heimamanna. Þær verða styrktar á kjörtímabilinu. Horft verður til byggðaaðgerða sem tíðkast í nágrannalöndunum en um leið verður svæðisbundin þekking nýtt sem best. Skoðaðir verða kostir þess að nýta námslánakerfið og önnur kerfi sem hvata fyrir fólk til að setjast að í dreifðum byggðum. Ráðuneytum og stofnunum verður falið að skilgreina störf og auglýsa þau án staðsetningar eins og kostur er.
Ríkisstjórnin mun hefja samstarf við sveitarfélögin um gerð þjónustukorts sem sýnir aðgengi landsmanna að allri almennri þjónustu hins opinbera og einkaaðila til að bæta yfirsýn og þar með skapa grundvöll fyrir aðgerðir til að tryggja íbúum þjónustu og jafna kostnað.
Flutnings- og dreifikerfi raforku verður að mæta betur þörfum atvinnulífs og almennings alls staðar á landinu. Uppbygging kerfisins getur stutt við áætlanir um orkuskipti sem miða að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, t.d. með því að hraða þrífösun rafmagns, með varmadæluvæðingu á köldum svæðum, innviðum fyrir rafbíla og rafvæðingu hafna.
Kannaðar verða leiðir til að setja skilyrði við kaup á landi sem taka mið af stefnu stjórnvalda um þróun byggðar, landnýtingu og umgengni um auðlindir.
Samgöngur og fjarskipti
Brýn verkefni blasa við í innviðauppbyggingu um land allt. Þar má nefna verkefni í samgöngum, fjarskiptum, veitukerfum og annarri mannvirkjagerð. Svigrúm er á næstu árum til að nýta eignatekjur ríkisins í slík verkefni og tryggja þannig þá traustu innviði sem eru forsendan fyrir fjölbreyttu og kröftugu atvinnulífi um land allt.
Ríkisstjórnin vill hraða uppbyggingu í vegamálum og öðrum samgönguinnviðum bæði með nýframkvæmdum og viðhaldi. Við forgangsröðun í vegamálum verður sérstaklega litið til ólíkrar stöðu svæða, ferðaþjónustu og öryggissjónarmiða.
Unnið verður að því að gera innanlandsflug að hagkvæmari kosti fyrir íbúa landsbyggðanna. Áfram þarf að byggja upp almenningssamgöngur um land allt og stutt verður við borgarlínu í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Auka þarf möguleika gangandi og hjólandi vegfarenda í þéttbýli. Huga þarf að möguleikum til að opna fleiri hlið inn til landsins og fjölga þannig þeim svæðum sem geta notið góðs af ferðaþjónustu.
Ljósleiðaravæðingu landsins verður lokið árið 2020 sem eykur lífsgæði og fjölgar tækifærum landsmanna til að skapa atvinnu. Ríkisstjórnin vill að Ísland verði áfram í fremstu röð þegar kemur að fjarskipta- og upplýsingatækni og leggur áherslu á aukið samstarf fjarskiptaaðila um uppbyggingu grunninnviða.
Löggæsla
Öflug löggæsla er ein af forsendum þess að öryggi borgaranna sé tryggt. Drög að nýrri löggæsluáætlun fyrir Ísland liggja fyrir þar sem tekið er á öryggisstigi, þjónustustigi, mannaflaþörf og fjárveitingum. Ljúka þarf gerð þessarar áætlunar og vinna í samræmi við hana. Fleiri ferðamenn kalla á aukið fjármagn og styrkja þarf miðhálendislöggæslu yfir háannatíma. Tryggja þarf Landhelgisgæslunni nægilegt fjármagn til að rækja starf sitt.
Snúa þarf af braut harðra refsinga fyrir neyslu fíkniefna en styrkja aðgerðir gegn fíkniefnasölum, innflutningi og framleiðslu fíkniefna. Tryggja þarf fíklum viðunandi meðferðarúrræði með samvinnu dóms-, félags- og heilbrigðiskerfis.
Menning, skapandi greinar og íþróttir
Aðgengi að menningu er mikilvægur þáttur þess að lifa í frjálsu samfélagi. Þess vegna skiptir máli að allir landsmenn geti notið lista og menningar og tekið þátt í slíku starfi. Hlutverk stjórnvalda er að skapa skilyrði fyrir fjölbreytni, sköpun og frumkvæði á sviði lista og menningararfs. Unnin verður aðgerðaáætlun á grundvelli samþykktrar menningarstefnu.
Á kjörtímabilinu verður sérstaklega hugað að því að styrkja starfsemi höfuðsafnanna þriggja. Þar á meðal verður Náttúruminjasafn Íslands styrkt til að opna eigin sýningu og gert ráð fyrir framtíðarhönnun fyrir nýtt safn í fjármálaáætlun til fimm ára.
Hugað verður að breytingum á skattlagningu á tónlist, íslenskt ritmál og fjölmiðla. Fyrsta skref verður að afnema virðisaukaskatt á bókum. Ráðist verður í gerð hagvísa fyrir menningu, listir og skapandi greinar. Áfram verður unnið að því að efla skapandi greinar sem vaxandi atvinnuveg á Íslandi. Höfundagreiðslur sem viðurkennd rétthafasamtök innheimta verða skattlagðar sem eignatekjur. Áfram verður unnið að því að styrkja faglega starfslauna og verkefnasjóði listamanna.
Íþróttir og æskulýðsstarf gegna veigamiklu hlutverki í farsælu og heilbrigðu samfélagi. Áfram verður unnið með félagasamtökum á þessu sviði að uppbyggingu grasrótar og afreksstarfs. Unnið verður með Reykjavíkurborg og íþróttahreyfingunni að uppbyggingu þjóðarleikvangs í Laugardal.
Þróttmikið efnahagslíf
Efnahagslegur styrkur er undirstaða þess að treysta megi til framtíðar samfélagslegan stöðugleika, velsæld og lífsgæði. Ríkisstjórnin mun leggja áherslu á traustar undirstöður í ríkisfjármálum sem gefa tækifæri til að byggja upp og búa í haginn fyrir komandi kynslóðir. Nefnd um endurskoðun peningastefnunnar mun ljúka störfum og í kjölfarið verða gerðar nauðsynlegar breytingar á ramma stefnunnar.
Ríkisstjórnin leggur áherslu á fjölbreytt atvinnulíf og að Ísland búi sig undir að mæta þeim áskorunum og nýta þau tækifæri sem felast í sífellt örari tæknibreytingum. Þeim munu fylgja nýjar kröfur um menntun og hæfni starfsfólks og að til staðar sé umhverfi sem hvetur til nýsköpunar á öllum sviðum, þ.m.t. hjá hinu opinbera og í rótgrónum greinum.
Þjóðarsjóður verður stofnaður utan um arð af auðlindum landsins og byrjað á orkuauðlindinni. Hlutverk sjóðsins verður að byggja upp viðnám til að mæta fjárhagslegum áföllum. Afmarkaður hluti ráðstöfunarfjár sjóðsins verður notaður til að efla nýsköpun og styðja við vöxt og þroska sprotafyrirtækja. Með því verður fræjum sáð til eflingar nýrra vel launaðra starfa í framtíðinni. Einnig verður hluti nýttur til átaks í uppbyggingu hjúkrunarrýma fyrir elstu kynslóðina.
Vinnumarkaður
Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir samstilltu átaki með aðilum vinnumarkaðarins til að tryggja að kjarasamningar skili launafólki og samfélaginu raunverulegum ávinningi. Sátt á vinnumarkaði er nauðsynleg forsenda þess að stuðla að stöðugu verðlagi og jafnvægi og skapa þannig efnahagsleg skilyrði til lægra vaxtastigs og bættra lífskjara.
Ríkisstjórnin vill vinna með aðilum vinnumarkaðarins að ábyrgum vinnumarkaði. Innleiða þarf ákvæði um keðjuábyrgð í ólíkum atvinnugreinum, vinna gegn kynbundnum launamun, félagslegum undirboðum, mansali og kennitöluflakki og efla vinnueftirlit.
Skattar
Launahækkanir undanfarinna ára ásamt hækkuðu lífeyrisframlagi atvinnurekenda og sterkara gengi gjaldmiðilsins hafa dregið úr samkeppnishæfni atvinnulífsins, einkum útflutningsgreina. Mikilvægt er að stjórnvöld og vinnumarkaðurinn leiti leiða til að styrkja samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs samhliða því að halda áfram að bæta kjör almennings í þeirri kjarasamningagerð sem stendur fyrir dyrum. Til að styðja við farsæla niðurstöðu hyggst ríkisstjórnin leggja áherslu á lækkun tekjuskatts í neðra skattþrepi. Þá er það einnig forgangsmál á kjörtímabilinu að lækka tryggingagjald.
Umfram allt er á kjörtímabilinu lögð áhersla á að viðhalda efnahagslegum stöðugleika og að aðgerðir tengdar vinnumarkaði skili sér í raunverulegum kjarabótum. Af þeim sökum mun það ráðast af heildarniðurstöðu kjaraviðræðna á komandi misserum hvernig hægt verður að tímasetja og hrinda í framkvæmd framangreindum markmiðum.
Fjármagnstekjuskattur verður hækkaður í 22% í upphafi kjörtímabils í því markmiði að gera skattkerfið réttlátara óháð uppruna tekna. Samhliða verður skattstofn fjármagnstekjuskatts tekinn til endurskoðunar.
Til að bæta alþjóðlega samkeppnishæfni Íslands mun ríkisstjórnin endurmeta fyrirkomulag á endurgreiðslu kostnaðar vegna rannsókna og þróunar í því skyni að afnema þak sem verið hefur á slíkum endurgreiðslum.
Áform um hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustu verða lögð til hliðar en aðrar leiðir til gjaldtöku kannaðar í samráði við greinina, m.a. möguleikar á álagningu komu eða brottfarargjalds. Gistináttagjald færist yfir til sveitarfélaga á kjörtímabilinu í tengslum við viðræður ríkis og sveitarfélaga um endurskoðun tekjustofna. Gjaldinu verður breytt þannig að það verði hlutfallslegt.
Hugað verður að breytingum á skattlagningu á tónlist, íslenskt ritmál og fjölmiðla. Fyrsta skref verður að afnema virðisaukaskatt á bókum. Höfundagreiðslur sem viðurkennd rétthafasamtök innheimta verða skattlagðar sem eignatekjur.
Tímabært er að huga að heildarendurskoðun gjaldtöku í samgöngum, svokölluðum grænum sköttum og skattaívilnunum, þannig að skattheimtan þjóni loftslagsmarkmiðum. Kolefnisgjald verður hækkað um 50% strax í upphafi kjörtímabils og verður svo áfram hækkað á næstu árum í takt við væntanlega aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Undanþágum frá kolefnisgjaldi verður fækkað.
Skattrannsóknir verða efldar samhliða því að vinna með aðilum vinnumarkaðarins að ábyrgari vinnumarkaði. Áframhaldandi áhersla þarf að vera á alþjóðlegt samstarf gegn skattundanskotum og skattsvikum þannig að Ísland skipi sér í fremstu röð ríkja sem berjast gegn skattaskjólum.
Landbúnaður
Ísland á að vera leiðandi í framleiðslu á heilnæmum landbúnaðarafurðum. Lögð verður áhersla á nýsköpun og vöruþróun til að stuðla að byggðafestu, auka verðmætasköpun og nýta tækifæri sem byggjast á áhuga á matarmenningu með sjálfbærni og gæði að leiðarljósi.
Meginmarkmiðið er að landbúnaður á Íslandi sé sjálfbær og vernd búfjárstofna sé tryggð. Eitt af fyrstu verkefnum ríkisstjórnarinnar verður að bregðast við vanda sauðfjárbænda til skemmri og lengri tíma. Samhliða nýrri kynslóð landbúnaðarsamninga verða innleiddir sérstakir aðlögunarsamningar um nýja starfsemi til sveita. Með þeim verður rudd braut fyrir bændur til að byggja upp nýjar búgreinar eða hasla sér völl á öðrum sviðum. Slíkir aðlögunarsamningar til búháttabreytinga verða tímabundnir og háðir skilyrðum um byggðafestu, verðmætasköpun og búsetu viðkomandi jarðar og geta stuðlað að nýsköpun, náttúruvernd og nýjum áherslum í rannsóknum og menntun.
Forsenda þess að landbúnaður geti nýtt tækifæri framtíðarinnar er jafnvægi í framleiðslu, skilvirkt eftirlit og nýsköpun. Ríkisstjórnin ætlar að tryggja betur rétt neytenda til upplýsinga um uppruna, framleiðsluhætti, lyfjanotkun og umhverfisáhrif.
Ríkisstjórnin mun ráðast í aðgerðir til að þróa lífhagkerfið enn frekar, grænar lausnir og aðferðir til að draga úr umhverfisáhrifum matvælaframleiðslu með hvötum og stuðningi sem miði meðal annars að kolefnisjöfnun greinarinnar. Efla þarf sérstaklega lífrænan landbúnað.
Sjávarútvegur
Íslenskur sjávarútvegur stendur mjög framarlega á alþjóðavísu vegna þeirrar áherslu sem lögð er á sjálfbæra auðlindanýtingu, rannsóknir og þróun. Tryggja þarf samkeppnishæfni sjávarútvegs á alþjóðlegum mörkuðum og að hann geti áfram staðið að nýsköpun og vöruþróun til að auka virði afurðanna. Einnig þarf að stuðla að kolefnisjöfnun greinarinnar, til dæmis með auknum rannsóknum á endurnýjanlegri orku fyrir flotann. Hafrannsóknir gegna lykilhlutverki fyrir sjálfbæra auðlindanýtingu og þær þarf að efla. Við endurskoðun laga um veiðigjöld þarf að hafa það meginmarkmið að tryggja þjóðinni réttlátan hlut af arðsemi auðlindarinnar og að þau taki tillit til afkomu. Auðlindagjöld eiga annars vegar að vera greiðsla fyrir aðgang að takmarkaðri auðlind og hins vegar arðgreiðslur af nýtingu hennar.
Mikilvægt er að efla hinar dreifðu sjávarbyggðir og viðhalda fjölbreytni í vaxtarmöguleikum til að tryggja afkomuöryggi þeirra. Vega þarf og meta fyrirkomulag þeirra aflaheimilda sem ríkið fer með forræði yfir, þ.m.t. strandveiða, með það að markmiði að tryggja betur byggðafestu og nýliðun.
Fiskeldi er vaxandi atvinnugrein sem felur í sér tækifæri til atvinnuuppbyggingar en þarf að byggja upp með ýtrustu varúð í samræmi við ráðgjöf vísindamanna þannig að líffræðilegri fjölbreytni verði ekki ógnað. Samhliða vexti greinarinnar þarf að tryggja nauðsynlegar rannsóknir og eðlilega vöktun áhrifa á lífríkið. Eftir því sem fiskeldinu vex fiskur um hrygg þarf að ræða framtíðarfyrirkomulag gjaldtöku vegna leyfisveitinga.
Ferðaþjónusta
Mörkuð verður langtímastefna um ferðaþjónustu í samvinnu við hagsmunaaðila með sjálfbærni að leiðarljósi. Aukin dreifing ferðamanna um landið er mikilvæg með hliðsjón af náttúruvernd og byggðasjónarmiðum. Styðja þarf við markaðsstofur landshlutanna. Lögð verður áhersla á greiningu þolmarka frá sjónarhóli náttúrunnar, samfélagsins og efnahagslífsins. Metin verður þörf fyrir aðgangsstýringu á ferðamannastöðum í opinberri eigu eða umsjón auk þess sem mögulegt er að beita friðlýsingum sem stjórntæki á viðkvæmum svæðum. Ljúka þarf vinnu sem hafin er við að leysa úr árekstrum almannaréttar og ferðaþjónustu.
Stutt verður myndarlega við rannsóknir í greininni sem og uppbyggingu innviða og landvörslu. Gæta þarf að því að uppbygging bitni ekki á aðdráttarafli svæða og tryggja að áfram verði til fáfarin svæði, bæði til verndar náttúru og vegna upplifunar ferðamanna.
Áform um hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustu verða lögð til hliðar en aðrar leiðir til gjaldtöku kannaðar í samráði við greinina, m.a. möguleikar á álagningu komu eða brottfarargjalds. Mótuð verður eigendastefna fyrir ISAVIA.
Fjármálakerfið
Fjármálakerfið á að vera traust og þjóna samfélaginu á hagkvæman og sanngjarnan hátt. Eignarhald ríkisins á fjármálafyrirtækjum er það umfangsmesta í Evrópu og vill ríkisstjórnin leita leiða til að draga úr því. Ljóst er þó að ríkissjóður verður leiðandi fjárfestir í að minnsta kosti einni kerfislega mikilvægri fjármálastofnun.
Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið á Íslandi verður lögð fyrir Alþingi til umfjöllunar áður en stefnumarkandi ákvarðanir verða teknar um fjármálakerfið.
Leiðarljósin í vinnu við hvítbókina verða aukið traust á íslenskum fjármálamarkaði, aukið gagnsæi og fjármálastöðugleiki. Þótt mikilvægar umbætur hafi verið gerðar á lagaumhverfi fjármálafyrirtækja er brýnt að gera betur. Eignarhald á kerfislega mikilvægum fjármálastofnunum verður að vera gagnsætt. Ríkisstjórnin vill að unnið verði að frekari skilvirkni í fjármálakerfinu með það að leiðarljósi að lækka kostnað neytenda. Mikilvægt er að dregið sé úr áhættu vegna óskyldra þátta í starfsemi fjármálafyrirtækja. Í mótun að framtíðarfyrirkomulagi skal sérstaklega litið til annarra lítilla opinna hagkerfa og reynslu annars staðar á Norðurlöndum.
Umhverfi og loftslag
Loftslagsmál
Leiðarljós loftslagsstefnu Íslands er stefnumið Parísarsamkomulagsins frá 2015 um að takmarka hækkun meðalhitastigs andrúmslofts jarðar við 1,5°C. Meginforsenda loftslagsstefnu ríkisstjórnarinnar er að koma í veg fyrir neikvæð áhrif loftslagsbreytinga á lífríki hafsins. Hvergi í heiminum hefur hitastigshækkun orðið jafnmikil og á norðurslóðum. Þannig á Ísland að efla rannsóknir á súrnun sjávar í samráði við vísindasamfélagið og sjávarútveginn. Ísland á enn fremur að ná 40% samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda miðað við árið 1990 fyrir árið 2030.
Ríkisstjórnin vill gera betur en Parísarsamkomulagið gerir ráð fyrir og stefna að kolefnishlutlausu Íslandi í síðasta lagi árið 2040. Kolefnishlutleysi verði náð með varanlegum samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda en einnig með breyttri landnotkun í samræmi við alþjóðlega viðurkennda staðla og með hliðsjón af vistkerfisnálgun og skipulagssjónarmiðum. Stutt verður við atvinnugreinar, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög í þeirri viðleitni að setja sér loftslagsmarkmið. Ríkisstjórnin stefnir að því að allar stærri áætlanir ríkisins verði metnar út frá loftslagsmarkmiðum. Ívilnanir til nýfjárfestinga byggist á því að verkefnin hafi verið metin út frá loftslagsáhrifum og alþjóðlegum skuldbindingum Íslands um samdrátt í gróðurhúsalofttegundum. Lögð verður áhersla á þátttöku allra geira samfélagsins og almennings í að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og stutt við nýsköpun á þessu sviði.
Loftslagsráð verður sett á laggirnar og aðgerðaáætlun um samdrátt í losun verður tímasett og fjármögnuð. Í aðgerðaáætlun verða meðal annars sett markmið um samgöngur og hlutfall ökutækja sem ganga fyrir vistvænni orku í bílaflota landsmanna, orkunýtni í atvinnulífinu, innleiðingu alþjóðlegra samninga um vernd hafsins, græn skref í ríkisrekstri og loftslagssjóð og stefnt að banni við notkun svartolíu í efnahagslögsögu Íslands.
Gengið verður til samstarfs við sauðfjárbændur um kolefnisjöfnun greinarinnar í samræmi við aðgerðaáætlun þar um. Einnig verður unnið með öðrum atvinnugreinum að sambærilegum verkefnum.
Umhverfis- og auðlindamál
Stofnaður verður þjóðgarður á miðhálendinu í samráði þverpólitískrar þingmannanefndar, umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, sveitarfélaga, náttúruverndar- og útivistarsamtaka og annarra hagsmunaaðila. Skoðaðir verða möguleikar á þjóðgörðum á öðrum svæðum.
Forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar verður að nýta með sem hagkvæmustum hætti þá orku sem þegar hefur verið virkjuð. Í þeim tilgangi þarf að treysta betur flutnings- og dreifikerfi raforku í landinu, tengja betur lykilsvæði og tryggja afhendingaröryggi raforku um land allt. Skoðað verði að hve miklu leyti má nýta jarðstrengi í þessar tengingar með hagkvæmum hætti. Ekki verður ráðist í línulagnir yfir hálendið.
Ljóst er að stjórnsýslumeðferð ákvarðana sem tengjast línulögnum hefur tekið verulegan tíma vegna ýmissa þátta. Mikilvægt er að hraða málsmeðferð þar sem það er hægt samkvæmt gildandi lögum, t.d. með því að styrkja úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Þá eru ríkisstjórnarflokkarnir sammála um að endurskoða á fyrri hluta kjörtímabilsins ákvæði um aðgang samtaka almennings að ákvörðunum á sviði umhverfismála með það að markmiði að sá réttur sé tryggður á fyrri stigum leyfisveitingarferlis og málsmeðferð geti þannig orðið skilvirkari án þess að gengið sé á þennan rétt. Þá verði þjóðréttarskuldbindingum Íslands samkvæmt Árósasamningnum komið til framkvæmda.
Setja þarf lög um vindorkuver ásamt því að vinna með sveitarfélögum leiðbeiningar um skipulagsákvarðanir og leyfisveitingar.
Langtímaorkustefna verður sett á kjörtímabilinu í samráði við alla þingflokka. Í orkustefnu verði byggt á áætlaðri orkuþörf til langs tíma miðað við stefnu stjórnvalda, til að mynda um orkuskipti, og hvernig megi tryggja raforkuframboð fyrir almenning og atvinnulíf. Eigendastefna Landsvirkjunar mun taka mið af orkustefnunni.
Sérstök áhersla verður lögð á friðlýsingar kosta í verndarflokki rammaáætlunar auk verndarsvæða í samræmi við náttúruverndaráætlun með hliðsjón af áformum um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu. Með bókhaldi náttúruauðlinda er hægt að auka yfirsýn yfir auðlindir landsins og skilgreina nýtingu þeirra með sjálfbærni að leiðarljósi.
Ráðist verður í langtímaátak gegn einnota plasti með sérstakri áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir og hreinsun plasts úr umhverfi lands og stranda. Gera þarf átak í fráveitumálum í samstarfi ríkis og sveitarfélaga en veruleg þörf er á uppbyggingu í þessum málaflokki.
Dýralíf á Íslandi er hluti af íslenskri náttúru sem ber að vernda. Náttúran er auk þess stærsta aðdráttarafl Íslands fyrir ferðamenn. Endurskoða þarf löggjöf um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og spendýrum.
Nýsköpun og rannsóknir
Nýsköpun og hvers konar hagnýting hugvits er mikilvæg forsenda fjölbreytts atvinnulífs, sterkrar samkeppnisstöðu, hagvaxtar og velferðar þjóða, ekki síst í ljósi þeirra þjóðfélagsbreytinga sem vænta má í atvinnu- og menntamálum vegna örra tæknibreytinga. Hluti fyrirhugaðs Þjóðarsjóðs mun renna til verkefna á þessu sviði.
Mótuð verður heildstæð nýsköpunarstefna fyrir Ísland í samstarfi við fulltrúa stjórnmálaflokka og í nánu samráði við atvinnulífið og vísindasamfélagið. Þá stefnu þarf einnig að vinna í samráði við skólasamfélagið þar sem nýsköpunarstefnan verður samþætt við framtíðarsýn í menntamálum, frá leikskóla til háskóla.
Ríkisstjórnin mun fylgja eftir aðgerðum í nýlegri aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs og meðal annars láta vinna vegvísi um rannsóknarinnviði. Ríkisstjórnin mun vinna að því að skilyrði hér á landi fyrir frumkvöðla og sprotafyrirtæki verði framúrskarandi. Ljóst er að einfalda þarf starfsumhverfi þeirra, efla stoðkerfið, auka aðgengi að fjármagni og erlendum sérfræðingum og styðja við sókn á alþjóðavettvangi.
Til að bæta alþjóðlega samkeppnishæfni Íslands mun ríkisstjórnin endurmeta fyrirkomulag á endurgreiðslu kostnaðar vegna rannsókna og þróunar í því skyni að afnema þak sem verið hefur á slíkum endurgreiðslum. Áfram verður stutt myndarlega við samkeppnissjóði í samræmi við stefnu Vísinda- og tækniráðs.
Lögð verður áhersla á að hvetja til nýsköpunar á sviði opinberrar þjónustu og stjórnsýslu, velferðarþjónustu og verkefna í þágu loftslagsmarkmiða. Umgjörð og tækifæri hópfjármögnunar verða skoðuð og starfsemi Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins endurskoðuð á grunni væntanlegrar niðurstöðu starfshóps um hana.
Kannaðir verða möguleikar Íslandsstofu til að kynna Ísland betur sem heimahöfn rannsókna- og þróunarverkefna. Sett verður af stað vinna við að undirbúa klasastefnu fyrir Ísland þar sem unnið er með styrkleika ólíkra atvinnugreina í samvinnu menntakerfis, rannsóknastofnana, atvinnulífs, sveitarfélaga og annarra hagsmunaaðila.
Jöfn tækifæri
Ísland á að vera land tækifæranna fyrir alla. Til að svo megi verða þarf að styrkja sérstaklega stöðu þeirra sem höllum fæti standa. Gerð verður úttekt á kjörum tekjulægstu hópanna í íslensku samfélagi, tillögur til úrbóta settar fram og þeim fylgt eftir. Sérstaklega þarf að huga að stöðu barna sem búa við fátækt en þau eru einn af viðkvæmustu hópum samfélagsins.
Jafnréttismál
Ríkisstjórnin leggur áherslu á jafnrétti kynjanna. Meðal þess sem sett verður á dagskrá í samtali stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins er lenging fæðingarorlofs og hækkun orlofsgreiðslna í fæðingarorlofi.
Markviss skref verða tekin til að útrýma kynbundnum launamun. Í því skyni þarf meðal annars að draga muninn betur fram í dagsljósið, til dæmis í ársreikningum fyrirtækja. Tryggja þarf að sambærileg störf séu metin með sambærilegum hætti í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru til fyrirtækja í lögum og eiga að endurspeglast í nýjum jafnlaunastaðli.
Nýrri aðgerðaáætlun um úrbætur í meðferð kynferðisbrota verður framfylgt og hún fjármögnuð að fullu. Með áætluninni er gert ráð fyrir að styrkja innviði réttarvörslukerfisins með það að markmiði að styrkja stöðu brotaþola innan þess og efla og samhæfa þjónustu við brotaþola á landsvísu, ekki síst í heilbrigðiskerfinu.
Lagaumhverfi kynferðisbrota verður rýnt með það að markmiði að styrkja stöðu kærenda kynferðisbrota. Istanbúl-samningurinn um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi verður fullgiltur. Ríkisstjórnin mun enn fremur standa fyrir gerð áætlunar í samstarfi við sveitarfélögin um að útrýma kynbundnu ofbeldi, ekki síst stafrænu kynferðisofbeldi.
Ríkisstjórnin vill koma Íslandi í fremstu röð í málefnum hinsegin fólks með metnaðarfullri löggjöf um kynrænt sjálfræði í samræmi við nýútkomin tilmæli Evrópuráðsins vegna mannréttinda intersex-fólks. Í þeim lögum yrði kveðið á um að einstaklingar megi sjálfir ákveða kyn sitt, kynvitund þeirra njóti viðurkenningar, einstaklingar njóti líkamlegrar friðhelgi og jafnréttis fyrir lögum óháð kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum og kyntjáningu.
Velferðarmál
Gott samfélag er barnvænt samfélag. Alþingi hefur samþykkt að brúa þurfi bil milli fæðingarorlofs og leikskóla og er lenging fæðingarorlofs mikilvægt framlag ríkisins í þá brúarsmíð. Í samskiptum ríkis, sveitarfélaga og annarra aðila þarf að tryggja jöfn tækifæri barna í frístunda- og menningarstarfi. Framfylgja þarf ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, m.a. um aukin áhrif barna í samfélaginu.
Frítekjumark atvinnutekna aldraðra verður hækkað í hundrað þúsund krónur strax um næstu áramót. Gjaldskrá vegna tannlækninga aldraðra og örorkulífeyrisþega verður uppfærð til að lækka kostnað þessara hópa.
Ríkisstjórnin mun efna til samráðs við forsvarsmenn örorkulífeyrisþega um breytingar á bótakerfinu með það að markmiði að skapa sátt um að einfalda kerfið, tryggja framfærslu örorkulífeyrisþega og efla þá til samfélagsþátttöku. Í því samráði munu stjórnvöld fyrst og fremst ræða við Öryrkjabandalagið og Þroskahjálp og stefna að því að ljúka þeirri vinnu sem fyrst. Fyrsta skref af hálfu stjórnvalda verður að skipuleggja framboð hlutastarfa hjá hinu opinbera fyrir fólk með skerta starfsgetu en á síðari stigum er mikilvægt að atvinnulífið taki virkan þátt í því verkefni.
Fjárhagsstaða örorkulífeyrisþega með uppkomin börn í námi verður styrkt með því að viðhalda óbreyttri framfærslu foreldris á hefðbundnum námstíma eftir 18 ára aldur meðan á námi stendur.
Ljúka þarf lögfestingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA) og breytingu á lögum um málefni fatlaðs fólks. Sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verður innleiddur. Skýra þarf í lögum réttinn til táknmálstúlkunar í daglegu lífi.
Aldrei hafa fleiri verið á flótta vegna stríðsátaka, ofsókna og umhverfisvár. Ísland mun leggja sitt af mörkum til lausnar á flóttamannavandanum og taka á móti fleiri flóttamönnum. Mannúðarsjónarmið og alþjóðlegar skuldbindingar verða lögð til grundvallar og áhersla á góða og skilvirka meðhöndlun umsókna um alþjóðlega vernd. Auk þess verður tryggð samfella í þjónustu og aðstoð við þá sem fá slíka vernd. Þverpólitískri þingmannanefnd verður falið að meta framkvæmd útlendingalaga og eftir atvikum endurskoða þau.
Lýðræði og gagnsæi
Ríkisstjórnin leggur áherslu á góð vinnubrögð, opna stjórnsýslu og gagnsæi. Kappkostað verður að miðla upplýsingum um ákvarðanir og ferli sem varða hagsmuni almennings með aðgengilegum hætti.
Ríkisstjórnin vill halda áfram heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar í þverpólitísku samstarfi með aðkomu þjóðarinnar og nýta meðal annars til þess aðferðir almenningssamráðs. Nefnd um málið mun hefja störf í upphafi nýs þings og leggur ríkisstjórnin áherslu á að samstaða náist um feril vinnunnar.
Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir því að efla traust á stjórnmálum og stjórnsýslu. Einn þáttur í því er að yfirfara reglur um hagsmunaskráningu bæði ráðherra og þingmanna með hliðsjón af ábendingum og alþjóðlegum viðmiðum. Annar þáttur er breytingar á lögum sem varða vernd uppljóstrara og umbætur í umhverfi stjórnsýslu og viðskipta, meðal annars í takt við ábendingar alþjóðastofnana. Ríkisstjórnin mun setja sér siðareglur í upphafi kjörtímabilsins. Þá verður lagt til við forsætisnefnd að reikningar Alþingis verði opnaðir í samræmi við það sem þegar hefur verið gert í Stjórnarráðinu.
Gerð verður þjónustukönnun hjá stofnunum á vegum ríkisins á árinu 2018 með það að markmiði að bæta markvisst almannaþjónustu. Sett verður á fót rafræn þjónustugátt þar sem landsmenn geta á einum stað nálgast þjónustu hins opinbera og sinnt þeim erindum sem beinast að stjórnvöldum. Þá verður opnuð samráðsgátt þar sem óskað verður eftir afstöðu almennings til lagasetningar og verkefna þegar á undirbúningsstigi og gagnsæi aukið. Átak verður gert í einföldun regluverks í þágu atvinnulífs og almennings. Ríkisstjórnin leggur áherslu á að stjórnsýsla sé skilvirk og réttlát.
Ríkisstjórnin mun bæta starfsumhverfi fjölmiðla, t.d. með endurskoðun á skattalegu umhverfi þeirra.
Frjáls félagasamtök gegna lykilhlutverki á fjölbreyttum málasviðum sem mikilvægt er að styðja við. Þar má meðal annars nefna jafnréttismál, íþrótta- og æskulýðsmál, umhverfis- og náttúruvernd, geðheilbrigði og málefni hinsegin fólks.
Með aukinni skráningu og miðlun persónuupplýsinga og nýjum tæknilegum möguleikum til að hagnýta slíkar upplýsingar er enn brýnna en áður að verja grundvallarrétt einstaklinga hvað þetta snertir, m.a. til friðhelgi einkalífs. Innleidd verður ný persónuverndarlöggjöf á kjörtímabilinu og fræðsla um þessa þætti efld samhliða henni.
Alþjóðamál
Evrópa og viðskiptakjör
Norrænt samstarf verður áfram einn af hornsteinum utanríkisstefnu Íslands. Hagsmunum Íslands er best borgið með því að standa áfram utan Evrópusambandsins. Ríkisstjórnin telur það vera eitt mikilvægasta hagsmunamál Íslands að sinna framkvæmd EES-samningsins vel og Alþingi þarf að vera virkara á því sviði. Gæta þarf vel að hagsmunum Íslands við úrsögn Breta úr Evrópusambandinu þar sem Bretar eru ein af okkar helstu viðskiptaþjóðum. Frjáls og opin alþjóðaviðskipti eru til hagsbóta fyrir lítil opin hagkerfi og auka velsæld þeirra. Leggja skal áherslu á að fjölga fríverslunarsamningum, bæði tvíhliða og í samvinnu við önnur EFTA-ríki, og að afnema viðskiptahindranir. Við gerð slíkra samninga skal sérstaklega horft til þess að efla umhverfissjónarmið og mannréttindi, þ.m.t. réttindi kvenna.
Norðurslóðir og loftslagsmál
Ísland hefur mikilvæga sérstöðu sem norðurskautsríki þar sem stór hluti efnahagslögsögunnar er innan norðurslóða. Auknum siglingum og annarri starfsemi fylgja tækifæri en líka áskoranir gagnvart umhverfi, lífríki og lífsháttum. Viðkvæmt vistkerfi norðurslóða á að fá að njóta vafans. Ísland mun gegna formennsku í Norðurskautsráðinu 2019– 2021. Málefni norðurslóða snerta nær allar hliðar íslensks samfélags og eru forgangsmál í íslenskri utanríkisstefnu. Ísland mun á vettvangi Norðurskautsráðsins einkum leggja áherslu á heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, loftslagsmál og málefni hafsins. Í samræmi við samþykkta norðurslóðastefnu Íslands verður sérstök áhersla lögð á réttindi frumbyggja og jafnrétti kynjanna.
Öryggis- og þróunarmál
Ríkisstjórnin leggur áherslu á að öryggismál þjóðarinnar séu í traustum skorðum. Þjóðaröryggisstefna Íslands sem samþykkt var af Alþingi verður höfð að leiðarljósi. Framkvæmd stefnunnar þarf að vera í nánu samstarfi við Alþingi hverju sinni. Utanríkisstefna Íslands byggist á skýrum viðmiðum um lýðræði, mannréttindi, jafnrétti, sjálfbæra þróun og friðsamlegar lausnir. Ríkisstjórnin ætlar að auka framlög til þróunarsamvinnu á næstu árum og stefnir að því að þau verði 0,35% af landsframleiðslu eftir fimm ár. Þátttaka Íslands í þróunarverkefnum verði á vegum borgaralegra stofnana.