Hoppa yfir valmynd

Verkefni í stjórnarsáttmála

Hér að neðan er yfirlit yfir verkefni í stjórnarsáttmála Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstri-hreyfingarinnar græns framboðs. Hægt er að kalla fram verkefni eftir ráðuneyti, kafla í stjórnarsáttmála og stöðu verkefnis.

Nánari upplýsingar um framvindu verkefna veitir það ráðuneyti sem er ábyrgt fyrir verkefninu.

Uppfært í ágúst 2024

 
VerkefniRáðuneytiKafliStaða verkefnis
Kerfi og stofnanir sem meta einstaklingsbundnar aðstæður og hagsmuni eiga að vera skilvirk, laga- og regluverk skýrt og mannúðlegt og framkvæmd fullnægjandi. Rýna þarf framkvæmd og stytta málsmeðferðartíma í núverandi kerfi, þannig að tryggja megi hraða og skilvirka afgreiðslu mála í samræmi við flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna og koma í veg fyrir langvarandi óvissu hjá einstaklingum og fjölskyldum. DómsmálaráðuneytiðMálefni útlendingaKomið vel á veg
Mikilvægt er að Ísland sé virkur þátttakandi í alþjóðlegri samvinnu vegna netglæpa sem eru skipulagðir þvert á landamæri ríkja auk þess að sinna öflugu  forvarna- og rannsóknarstarfi á þessu sviði. DómsmálaráðuneytiðLöggæslaKomið vel á veg
Áfram verður unnið að styttingu boðunarlista í fangelsi og haldið áfram við uppbyggingu á Litla-Hrauni. Stuðlað verður að auknu aðgengi fanga að fjölbreyttri menntun, virkni og stuðningi að afplánun lokinni. DómsmálaráðuneytiðLöggæslaKomið vel á veg
Unnið verður að umbótum í þjónustu og rekstri sýslumanna í samræmi við útgefna framtíðarsýn þar um, auk þess að ráðast í hagræðingu verkefna samhliða stafrænni þróun.DómsmálaráðuneytiðLöggæslaKomið vel á veg
Lög um útlendinga verða tekin til endurskoðunar með það að markmiði að rýmka ákvæði er varða útgáfu dvalarleyfa á grundvelli atvinnuþátttöku og auka skilvirkni með einföldun ferla. DómsmálaráðuneytiðMálefni útlendingaLokið
Ráðist verður í framhald aðgerðaáætlunar um meðferð kynferðisbrota innan réttarvörslukerfisins þegar hún rennur sitt skeið árið 2022. Þar verður m.a. litið til atriða er varða sáttamiðlun og styttri málsmeðferðartíma.DómsmálaráðuneytiðLöggæslaLokið
Umsóknarferli um dvalar- og atvinnuleyfi fyrir einstaklinga sem sinna störfum sem krefjast sérfræðiþekkingar verður einfaldað.DómsmálaráðuneytiðMálefni útlendingaHafið
Mönnun löggæslunnar þarf að vera í takti við þarfir samfélagsins. Gera þarf tímabundið átak til að fjölga í lögreglunámi á háskólastigi og tryggja þannig aukið öryggi og fagmennsku innan lögreglunnar. Með fjölgun menntaðra lögreglumanna er unnt að bæta þjónustu, stytta rannsóknartíma og auka gæði lögreglustarfanna.DómsmálaráðuneytiðLöggæslaKomið vel á veg
Haga þarf skipulagi og fjölda lögregluembætta og deilda með þeim hætti að sinna megi löggæslustörfum á sem skilvirkastan hátt um allt land.DómsmálaráðuneytiðLöggæslaKomið vel á veg
Áfram verður haldið vinnu við endurskoðun kosningalaga samhliða innleiðingu breytinga og nýs fyrirkomulags Landskjörstjórnar.DómsmálaráðuneytiðStjórnarskrá og kosningalögKomið vel á veg
Unnið verði að útgáfu fullgildra opinberra rafrænna persónuskilríkja.DómsmálaráðuneytiðStafrænar umbreytingarKomið vel á veg
Auka þarf traust og  gagnsæi um ákvarðanir útlendingayfirvalda.DómsmálaráðuneytiðMálefni útlendingaKomið vel á veg
Uppfært frumvarp til laga um styrkari réttarstöðu brotaþola verður lagt fram. DómsmálaráðuneytiðJafnréttismálLokið
Endurskoða á bæði sjálfstætt innra og ytra eftirlit með störfum lögreglu. Horft verður til annarra Norðurlandaþjóða og þeirra aðgerða sem best hafa reynst þar. DómsmálaráðuneytiðLöggæslaKomið vel á veg
Aðgerðaáætlun um meðferð kynferðisbrota verði áfram fylgt eftir en hún gildir til ársins 2022. Hafist verði handa við að vinna nýja áætlun sem taki við af henni þegar í upphafi árs 2023.DómsmálaráðuneytiðJafnréttismálLokið
Tryggja þarf jafnræði í þjónustu við fatlað fólk, m.a. með samráði ríkis og sveitarfélaga um endurmat á kostnaði við málaflokk fatlaðra og með því að festi í sessi framtíðarfyrirkomulag NPA-þjónustu.Félags- og vinnumarkaðsráðuneytiðÖrorkaKomið vel á veg
Einstaklingum sem missa starfsgetuna verður í auknum mæli tryggð þjónusta og stuðningur strax á fyrstu stigum með tilliti til líkamlegra, sálfræðilegra og félagslegra þátta sem hafa áhrif á starfsgetu.Félags- og vinnumarkaðsráðuneytiðÖrorkaLokið
Foreldrum sem missa barn verður tryggt sorgarleyfi.Félags- og vinnumarkaðsráðuneytiðBörnLokið
Þátttaka og endurkoma einstaklinga með skerta starfsgetu á vinnumarkað verður auðvelduð þannig að fólk hafi fjárhagslegan hag af atvinnuþátttöku og fái tækifæri á vinnumarkaði án þess að afkomuöryggi þeirra sé ógnað. Þjónusta og stuðningur til þátttöku og endurhæfingar verða tryggð.Félags- og vinnumarkaðsráðuneytiðÖrorkaLokið
Val um yfirfærslu í nýtt kerfi hafi ekki í för með sér áhættu fyrir örorkulífeyrisþega enda geti þau ákveðið að snúa aftur til fyrra kerfis.Félags- og vinnumarkaðsráðuneytiðÖrorkaLokið
Staða langveikra og alvarlega fatlaðra barna og fjölskyldna þeirra verður bætt með nýju fyrirkomulagi umönnunarstyrks og umönnunargreiðslna. Félags- og vinnumarkaðsráðuneytiðBörnKomið vel á veg
Áfram verður aukið við móttöku kvótaflóttafólks með áherslu á einstaklinga og fjölskyldur í viðkvæmri stöðu. Samræmd móttaka flóttafólks í samstarfi ríkis og sveitarfélaga óháð því á hvaða forsendum fólk kemur til landsins verður áfram styrkt. Félags- og vinnumarkaðsráðuneytiðMálefni útlendingaKomið vel á veg
Eldra fólki verður gert kleift að vera virkir þátttakendur á vinnumarkaði, m.a. með auknum sveigjanleika í starfslokum. Horft verður til aukins sveigjanleika í starfslokum hjá hinu opinbera.Félags- og vinnumarkaðsráðuneytiðEldra fólkKomið vel á veg
Til að sporna gegn félagslegum undirboðum og brotastarfsemi á vinnumarkaði verða starfskjaralög endurskoðuð.Félags- og vinnumarkaðsráðuneytiðVinnumarkaðsmálLokið
Örorkulífeyriskerfið verður einfaldað, dregið úr tekjutengingum og það gert skilvirkara, gagnsærra og réttlátara. Breytingarnar verða innleiddar í áföngum og einstaklingar sem eru með fullt örorkumat við upptöku á nýju kerfi hafi val um hvort þau færast yfir í nýja kerfið. Félags- og vinnumarkaðsráðuneytiðÖrorkaLokið
Sí- og endurmenntun verður efld og löggjöf um framhaldsfræðslu endurskoðuð í breiðu samráði til að tryggja að framhaldsfræðslukerfið sé í stakk búið til að takast á við samfélagsþróun, m.a. vegna loftslagsbreytinga og tæknivæðingar á vinnumarkaði. Félags- og vinnumarkaðsráðuneytiðMenntamálHafið
Stuðlað verður að bættum vinnubrögðum og aukinni skilvirkni við gerð kjarasamninga að höfðu samráði við aðila vinnumarkaðarins. Félags- og vinnumarkaðsráðuneytiðVinnumarkaðsmálLokið
Áfram verða þróaðar fjölbreyttari búsetu- og þjónustuleiðir til að auðvelda eldra fólki að búa sem lengst heima, svo sem með sveigjanlegri dagþjálfun og nýtingu tækni og nýsköpunar í þjónustu við eldra fólk. Sérstaklega verður lögð áhersla á heilsueflandi aðgerðir til að sporna gegn félagslegri einangrun og einmanaleika. Félags- og vinnumarkaðsráðuneytiðEldra fólkKomið vel á veg
Þeim sem hér fá dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða eða sérstakra tengsla við landið veitt undanþága frá kröfu um atvinnuleyfi. Haft verður samráð við aðila vinnumarkaðarins í þessari vinnu.Félags- og vinnumarkaðsráðuneytiðMálefni útlendingaLokið
Styrkja þarf hlutverk ríkissáttasemjara til að bæta undirbúning og verklag við gerð kjarasamninga, fækka málum sem lenda í ágreiningi og tryggja að kjaraviðræður dragist ekki úr hófi fram, til að mynda með standandi gerðardómi í kjaradeilum sem eykur fyrirsjáanleika og réttaröryggi deiluaðila. Félags- og vinnumarkaðsráðuneytiðVinnumarkaðsmálHafið
Löggjöf og regluverk á sviði vinnumarkaðar verður skoðað í samhengi við þróun vinnumarkaðarins og breytinga á ráðningaformi milli launafólks og atvinnurekenda.Félags- og vinnumarkaðsráðuneytiðVinnumarkaðsmálKomið vel á veg
Unnið verður markvisst að því að fjölga sveigjanlegum störfum og hlutastörfum í samvinnu ríkis, sveitarfélaga og atvinnulífs. Menntunartækifæri verða tryggð fyrir fatlað fólk.Félags- og vinnumarkaðsráðuneytiðÖrorkaKomið vel á veg
Mótuð verður skýr og heildstæð stefna í málefnum útlendinga sem miðar að því að fólk sem sest hér að hafi tækifæri til aðlögunar og virkrar þátttöku í samfélaginu og á vinnumarkaði.Félags- og vinnumarkaðsráðuneytiðMálefni útlendingaKomið vel á veg
Afkoma örorkulífeyrisþega verður áfram bætt með það að markmiði að bæta sérstaklega kjör þeirra sem lakast standa.Félags- og vinnumarkaðsráðuneytiðÖrorkaLokið
Byggt verði á aðgerðum í aðgerðaáætlun um fjórðu iðnbyltinguna varðandi úttekt, forgangsröðun og áherslur til umbóta í sí- og endurmenntunarkerfinu til að tryggja tækifæri fólks til menntunar.Félags- og vinnumarkaðsráðuneytiðVinnumarkaðsmálHafið
Afkoma ellilífeyrisþega verður áfram bætt og sérstaklega litið til þeirra sem lakast standa. Almannatryggingakerfi eldri borgara verður endurmetið og frítekjumark atvinnutekna tvöfaldað um næstu áramót. Horfa þarf til þess að draga úr jaðaráhrifum tekjutenginga og tekjuskatts í almannatryggingum og gera kerfið gagnsærra og réttlátara.Félags- og vinnumarkaðsráðuneytiðEldra fólkKomið vel á veg
Skoðuð verða áhrif loftslags- og tæknibreytinga á íslenskan vinnumarkað og settar fram tillögur um viðbrögð og aðgerðir til að mæta þeim.Félags- og vinnumarkaðsráðuneytiðVinnumarkaðsmálHafið
Ísland styður fyrirætlanir OECD um alþjóðlegan lágmarksskatt og samstarf ríkja gegn skattaundanskotum og skattaskjólum og mun beita sér með virkum hætti í þeim efnum. Fjármála- og efnahagsráðuneytiðTekjuöflun, regluverk og opinbert eftirlitKomið vel á veg
Jákvæðum fárfestingahvötum og skilvirkum ívilnunum verður beitt samhliða gjaldtöku á losun gróðurhúsalofttegunda.Fjármála- og efnahagsráðuneytiðLoftslagsmálLokið
Skilvirkni og afköst við tollaeftirlit verða efld með innleiðingu stafrænna lausna á því sviði.Fjármála- og efnahagsráðuneytiðLandbúnaðurEkki hafið
Stefnt verður að því að finna leiðir til auka valfrelsi í viðbótarlífeyrissparnaði með fjölgun fjárfestingakosta. Fjármála- og efnahagsráðuneytiðLífeyrismálLokið
Almannaþjónustan verður efld frekar og skattar lækkaðir í samræmi við þróun ríkisfjármála með það að markmiði að bæta lífskjör þeirra sem verst standa og styrkja samkeppnisstöðu fyrirtækja, þar sem m.a. verður sérstaklega litið til lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Fjármála- og efnahagsráðuneytiðEfnahagur og ríkisfjármálKomið vel á veg
Ríkisstjórnin einsetur sér að Ísland sé meðal allra fremstu þjóða á sviði stafrænnar tækni og þjónustu. Markmiðið er að einfalda stjórnsýslu, bæta þjónustu við almenning, auka gagnsæi og aðgengi að upplýsingum með nýtingu stafrænna lausna. Fjármála- og efnahagsráðuneytiðStafrænar umbreytingarLokið
Sett verður markmið um hlutfall opinberra starfa á landsbyggðinni.Fjármála- og efnahagsráðuneytiðByggðamálHafið
Ríkisstjórnin mun leggja sitt af mörkum til að stuðla að umhverfi lágra vaxta, hóflegrar verðbólgu og góðu samráði við aðila vinnumarkaðarins til stuðla að nauðsynlegu samspili þessara þátta.Fjármála- og efnahagsráðuneytiðEfnahagur og ríkisfjármálKomið vel á veg
Mikilvægt er að stuðla að því að lífeyrissjóðirnir geti ávaxtað eignir sínar með fjölbreyttum, ábyrgum og öruggum hætti að teknu tilliti til vaxandi umsvifa þeirra í íslensku efnahagslífi á undanförnum árum. Fjármála- og efnahagsráðuneytiðLífeyrismálLokið
Tímabundnar heimildir lífeyrissjóða til aukinnar fjárfestingar í nýsköpunar- og vaxtarsjóðum verða gerðar varanlegar.Fjármála- og efnahagsráðuneytiðIðnaður og nýsköpunHafið
Kannað verður í samstarfi við stafrænt Ísland hvernig stuðla megi að stafrænni væðingu í lífeyriskerfinu með greiðari samskiptum milli stofnana til að tryggja betri og samræmdari þjónustu og aðgengi notenda að upplýsingum. Fjármála- og efnahagsráðuneytiðLífeyrismálLokið
Leitað verður leiða til þess að tryggja sveitarfélögum auknar tekjur af komu ferðamanna.Fjármála- og efnahagsráðuneytiðSveitarfélögEkki hafið
Styrkur ríkisfjármála verður byggður upp á ný á grunni aukinnar verðmætasköpunar og stuðlað að sjálfbærni í rekstri ríkisins til lengri tíma. Ýtt verður undir vaxtargetu hagkerfisins með öflugum stuðningi við nýsköpun, rannsóknir og þróun í því skyni að festa nýja stoð efnahagslífsins enn betur í sessi. Fjármála- og efnahagsráðuneytiðEfnahagur og ríkisfjármálKomið vel á veg
Stjórnvöld munu halda áfram að draga úr eignarhaldi ríkisins í fjármálakerfinu og nýta fjármuni sem liggja í slíkum rekstri í uppbyggingu innviða. Fjármála- og efnahagsráðuneytiðTekjuöflun, regluverk og opinbert eftirlitKomið vel á veg
Horfa þarf til þess hvernig auka megi þátttöku sjóðanna í innviðafjárfestingum til að flýta fyrir nauðsynlegum opinberum framkvæmdum sem og nýsköpun og grænum lausnum til að takast á við loftslagsvána.Fjármála- og efnahagsráðuneytiðLífeyrismálHafið
Til að styðja við byggðaþróun og valfrelsi í búsetu verði störf hjá ríkinu ekki staðbundin nema eðli starfsins krefjist þess sérstaklega.Fjármála- og efnahagsráðuneytiðByggðamálKomið vel á veg
Framtíðartekjuöflunarkerfi ríkissjóðs vegna umferðar og orkuskipta verður mótað og innleitt á kjörtímabilinu.Fjármála- og efnahagsráðuneytiðSamgöngumálKomið vel á veg
Skattmatsreglur verða endurskoðaðar og komið í veg fyrir óeðlilega og óheilbrigða hvata til stofnunar einkahlutafélaga. Enn fremur verður regluverk í kringum tekjutilflutning tekið til endurskoðunar til að tryggja að þau sem hafa eingöngu fjármagnstekjur reikni sér endurgjald og greiði þannig útsvar. Fjármála- og efnahagsráðuneytiðTekjuöflun, regluverk og opinbert eftirlitLokið
Unnið verði að því að jafna örorkubyrði lífeyrissjóða og tryggja jafnræði réttinda gagnvart almannatryggingum. Fjármála- og efnahagsráðuneytiðLífeyrismálKomið vel á veg
Fjármálaráð verður styrkt til að auka getu ráðsins til að leggja sjálfstætt, hlutlægt mat á stefnumörkun í opinberum fjármálum. Fjármála- og efnahagsráðuneytiðEfnahagur og ríkisfjármálLokið
Barnabótakerfið verður áfram styrkt og útvíkkað með það að markmiði að jafna kjör barnafjölskyldna.Fjármála- og efnahagsráðuneytiðBörnLokið
Endurgreiðslur vegna rannsókna og þróunar verða framlengdar og farið yfir framkvæmd þeirra og eftirlit. Tímabundin hækkun endurgreiðsluhlutfalls vegna kostnaðar sem fellur til við rannsóknir og þróun verður gerð varanleg. Fjármála- og efnahagsráðuneytiðIðnaður og nýsköpunKomið vel á veg
Lagður verður grunnur að lögfestingu 15,5% lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs og útfærslan unnin að höfðu samráði við aðila vinnumarkaðarins.Fjármála- og efnahagsráðuneytiðLífeyrismálLokið
Grænbók um lífeyrismál verður unnin í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins og lífeyrissjóði á fyrri hluta kjörtímabilsins í því skyni að skapa grundvöll fyrir umræðu, stefnumörkun og ákvarðanir um lífeyriskerfið og framtíðarþróun þess með heildstæðum hætti. Meðal annars verður horft til einföldunar kerfisins og fjallað um grundvallarforsendur varðandi hlutverk, uppbyggingu, sjálfbærni og umfang sjóðanna í efnahagslífinu, uppbyggingu réttinda og samspil milli ólíkra stoða lífeyriskerfisins, nauðsynlega hækkun lífeyrisaldurs og sveigjanleika til töku lífeyris í samhengi við hækkandi lífaldur, tryggingafræðilegar forsendur, fjárfestingarheimildir, starfsumhverfi og eftirlit.Fjármála- og efnahagsráðuneytiðLífeyrismálKomið vel á veg
Skattrannsóknir verða efldar samhliða því að vinna með aðilum vinnumarkaðarins að heilbrigðari vinnumarkaði. Fjármála- og efnahagsráðuneytiðTekjuöflun, regluverk og opinbert eftirlitLokið
Samhliða endurreisn ferðaþjónustunnar verður fyrirkomulag gjaldtöku í greininni tekið til skoðunar. Horft verður til þess að breikka skattstofninn og tryggja jafnræði aðila á markaði. Unnið verður að breytingum á fyrirkomulagi gistináttagjalds í samvinnu við greinina og sveitarfélögin með það að markmiði að sveitarfélögin njóti góðs af gjaldtökunni.Fjármála- og efnahagsráðuneytiðFerðaþjónustaLokið
Ríkisstjórnin mun í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins vinna að því að renna styrkari stoðum undir lífeyriskerfið og stuðla að aukinni sátt um uppbyggingu og hlutverk ólíkra hluta þess.Fjármála- og efnahagsráðuneytiðLífeyrismálHafið
Ívilnanir vegna grænna fjárfestinga verða framlengdar í því skyni að styðja við loftslagsmarkmið ríkisstjórnarinnar og ýta undir áframhaldandi fjárfestingu.Fjármála- og efnahagsráðuneytiðIðnaður og nýsköpunHafið
Löggjöf um skattalega meðferð kauprétta og hlutabréfa hjá nýsköpunarfyrirtækjum verði endurskoðuð þannig að þeim verði gert kleift að keppa um starfsfólk, stjórnendur og ráðgjafa með því að bjóða hlutdeild í framtíðarávinningi með hagkvæmum hætti.Fjármála- og efnahagsráðuneytiðIðnaður og nýsköpunLokið
Lögð verður áhersla á að nýta tækifæri í samrekstri ríkis og sveitarfélaga á stafrænum lausnum í gegnum Ísland.is.Fjármála- og efnahagsráðuneytiðSveitarfélögKomið vel á veg
Ríkisstjórnin ætlar að nýta nýsköpun í auknum mæli til lausna á viðfangsefnum hins opinbera. Skapaðar verða forsendur fyrir opinbera aðila til þess að vinna að jafnaði með nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum í því að hanna og þróa lausnir sem geta leyst viðfangsefni hins opinbera á betri og hagkvæmari hætti en gert er. Fjármála- og efnahagsráðuneytiðIðnaður og nýsköpunLokið
Það verður forgangsmál ríkisstjórnarinnar að stuðla áfram að efnahagslegum og félagslegum stöðugleika á kjörtímabilinu. Fjármála- og efnahagsráðuneytiðEfnahagur og ríkisfjármálKomið vel á veg
Eigendastefnu ríkisins um jarðir og þeim viðmiðum sem þar eru lögð til við kaup og sölu á jörðum verður framfylgt.Fjármála- og efnahagsráðuneytiðJarðamál og mikilvægir innviðirKomið vel á veg
Stofnuð ný Mannréttindastofnun. ForsætisráðuneytiðÖrorkaLokið
Ljúka þarf við heildarendurskoðun á lögum og reglum um eignarráð, ráðstöfun og nýtingu fasteigna, með áherslu á land og landgæði. Fyrir hendi þurfa að vera upplýsingar um grundvallaratriði og stýritæki til að tryggja samræmi við stefnu stjórnvalda, svo sem í landbúnaði, byggðamálum, auðlindanýtingu og náttúruvernd. ForsætisráðuneytiðJarðamál og mikilvægir innviðirKomið vel á veg
Rík áhersla verður lögð á forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun um aðgerðir fyrir árin 2021–2025, í samræmi við þingsályktun þess efnis.ForsætisráðuneytiðJafnréttismálKomið vel á veg
Stefna verður mörkuð um kolefnisbindingu og endurheimt vistkerfa á þjóðlendum og jörðum í opinberri eigu. Haft verður samráð við heimamenn á hverjum stað. Skilgreina þarf mikilvægar jarðir eða jarðarhluta með tilliti til náttúru- og minjaverndar og endurheimtar vistkerfa. ForsætisráðuneytiðJarðamál og mikilvægir innviðirKomið vel á veg
Gerð verður úttekt á úttekt á starfsemi Seðlabanka Íslands og mat lagt á hvernig tekist hefur til við að uppfylla markmið um stöðugt verðlag, fjármálastöðugleika og framkvæmd fjármálaeftirlits auk þess sem litið veður til reynslunnar af sameiningu Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins sem og skipulagi, verkaskiptingu og valdsviði nýrrar stofnunnar. ForsætisráðuneytiðEfnahagur og ríkisfjármálLokið
Ríkisstjórnin mun leggja áherslu á að efla og þróa samstarf á vettvangi velsældarríkja þar sem Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun eru leiðarljós.  Áhersla verður lögð á að Ísland verið meðal forysturíkja í þróun og eftirfylgni velsældarmælikvarða sem treysti stöðu landsins sem velsældarhagkerfis. ForsætisráðuneytiðUtanríkis- og alþjóðamál og þróunarsamvinnaKomið vel á veg
Farið verður í aðgerðir til að draga úr kynbundnum launamun hjá hinu opinbera. ForsætisráðuneytiðVinnumarkaðsmálLokið
Ríkisstjórnin mun setja af stað vinnu sérfræðinga um ákvæði stjórnarskrár um Alþingi, kosningar og kjördæmaskipan, dómstóla og eftir atvikum önnur ákvæði, s.s. mannréttindaákvæði. Efnt verður til samstarfs við fræðasamfélagið um umræðu og umfjöllun um stjórnarskrárbreytingar. Framhald vinnu við stjórnarskrárbreytingar verður metið í framhaldinu.ForsætisráðuneytiðStjórnarskrá og kosningalögKomið vel á veg
Hugmyndafræði sjálfbærni og réttlátra umskipta og aukinnar samkeppnishæfni verður leiðarstef ríkisstjórnarinnar í yfirstandandi umbreytingum vegna loftslagsvárinnar og tæknibreytinga sem hafa áhrif á öllum sviðum samfélagsins. Þessum markmiðum sem og framkvæmd og eftirfylgni aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum verður fylgt eftir í samvinnu forsætisráðuneytis og umhverfis- og auðlindaráðuneytis til að auka samhæfingu, samvinnu og slagkraft innan stjórnarráðsins. Sett verður samræmd stefna um sjálfbæra þróun í samræmi við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. ForsætisráðuneytiðLoftslagsmálKomið vel á veg
Stuðlað verður að endurskoðun á þjóðaröryggisstefnunni á fyrri hluta kjörtímabilsins, sérstaklega í ljósi hnattrænnar og tæknilegrar þróunar, loftslagsbreytinga og úrlausnaefna sem þeim tengjast. Áhersla verður lögð á vernd og órofa virkni þýðingarmikilla innviða og að stuðla að skilvirkum og samhæfðum aðgerðum sem miða að því að tryggja víðtæka öryggishagsmuni þjóðarinnar.ForsætisráðuneytiðUtanríkis- og alþjóðamál og þróunarsamvinnaLokið
Barnamenningarsjóður festur í sessi.ForsætisráðuneytiðMenningarmálLokið
Lagareglur um rýni á tilteknum fjárfestingum erlendra aðila með hliðsjón af þjóðaröryggi og allsherjarreglu verða endurskoðaðar og styrktar.ForsætisráðuneytiðJarðamál og mikilvægir innviðirKomið vel á veg
Ríkisstjórnin mun halda áfram því verki sem hafið var á fyrra kjörtímabili og koma Íslandi í fremstu röð í málefnum hinsegin fólks með sérstakri aðgerðaáætlun og réttarbótum.ForsætisráðuneytiðJafnréttismálKomið vel á veg
Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verður lögfestur.ForsætisráðuneytiðÖrorkaKomið vel á veg
Ríkisstjórnin leggur áherslu á að öryggismál þjóðarinnar séu í traustum skorðum í samræmi við markmið þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland sem samþykkt er af Alþingi.ForsætisráðuneytiðUtanríkis- og alþjóðamál og þróunarsamvinnaKomið vel á veg
Efla þarf samkeppnissjóði á sviði grunnrannsókna og tækniþróunar og halda áfram þróun vísisjóða.Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytiðIðnaður og nýsköpunKomið vel á veg
Rannsóknarstarf um allt land verður eflt. Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytiðMenntamálKomið vel á veg
Áhersla verður lögð á að auka traust almennings á upplýsingatækni, persónuvernd og mikilvægi tjáningarfrelsis. Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytiðStafrænar umbreytingarKomið vel á veg
Auka verður svigrúm og skilvirkni í ráðningu erlendra sérfræðinga og auðvelda íslenskum nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum að ráða fólk með sérþekkingu frá löndum utan EES svæðisins.Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytiðIðnaður og nýsköpunLokið
Stuðla þarf að möguleikum fagstéttar í skólastarfi til starfsþróunar.Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytiðMenntamálLokið
Skipulag náms tengdu matvælaframleiðslu á háskólastigi verður endurskoðað með það að markmiði að styrkja bæði menntun og rannsóknir.  Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytiðMenntamálKomið vel á veg
Markáætlun um samfélagslegar áskoranir  á sviði máltækni, umhverfismála- og sjálfbærni, tæknibreytinga á vinnumarkaði og heilbrigðisvísinda verður framhaldið allt kjörtímabilið. Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytiðMenntamálKomið vel á veg
Efla þarf íslenskukennslu fyrir kennaranema og auka símenntun í takt við breyttar aðstæður.Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytiðMenntamálLokið
Fjölga þarf fagfólki á öllum skólastigum með áframhaldandi hvötum til að sækja kennaranámHáskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytiðMenntamálLokið
Meta þarf mönnunarþörf til lengri tíma í heilbrigðis- og menntakerfinu og skoða í því samhengi hvort breyta þurfi starfsumhverfi og fyrirkomulagi grunnmenntunar til að mæta vaxandi þörf til framtíðar, m.a. með hliðsjón af aðstæðum í dreifðum byggðum.Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytiðMenntamálLokið
Ýta þarf undir framtak og frumkvæði bænda með fræðslu, ráðgjöf, þróun og nýsköpun.Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytiðLandbúnaðurKomið vel á veg
Unnið verður áfram að samræmdri úrvinnslu, geymslu og framsetningu opinberra gagna ásamt því að stuðla að greiðara aðgengi almennings að gögnum. Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytiðStafrænar umbreytingarLokið
Greining á kostum og göllum ólíkra rekstrarforma LHÍ. Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytiðMenntamálLokið
Mikilvægt er að starfsmennta- og háskólar í landbúnaði séu öflugir og í fararbroddi í rannsóknum á sviði landbúnaðar og umhverfismála, s.s. í þágu loftslagsmála, náttúruverndar, landgæða og nýsköpunar í framleiðslu. Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytiðLandbúnaðurLokið
Unnið verður markvisst að því að efla net- og fjarskiptaöryggi. Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytiðStafrænar umbreytingarKomið vel á veg
Haldið verður áfram að styrkja uppbyggingu nýsköpunar á landsbyggðinni með Lóu - nýsköpunarstyrkjum.Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytiðIðnaður og nýsköpunLokið
Stutt verður við þekkingarmiðstöðvar, rannsóknarsetur á landsbyggðinni, náttúrustofur og fjarheilbrigðisþjónustu í smærri byggðalögum. Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytiðByggðamálLokið
Gert verður átak í netvæðingu náms og aðgengi að stafrænu háskólanámi á Íslandi, sem eykur aðgengi að menntun óháð búsetu og aðstæðum. Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytiðMenntamálKomið vel á veg
Haldið verður áfram að styðja við nýsköpun, m.a. með regluverki og umhverfi sem styður við stofnun og rekstur fyrirtækja, ekki síst í fámennari byggðum.Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytiðIðnaður og nýsköpunLokið
Ráðist verður í uppbyggingu framtíðarhúsnæðis Listaháskóla Íslands í Tollhúsinu. Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytiðMenntamálKomið vel á veg
Aðgengi að fjármagni vegna loftslagsverkefna þarf að tryggja, endurskilgreina þarf Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins og veita viðbótarfjármagni inn í Tækniþróunarsjóð fyrir grænar lausnir.Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytiðLoftslagsmálKomið vel á veg
Tryggð verður geta og fjármagn til áframhaldandi uppbyggingar háhraðaneta þar sem markaðsaðilar sinna ekki þeirri þjónustu eða öryggissjónarmið krefjast þess.Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytiðByggðamálLokið
Fjármögnun háskóla verður tryggð í samræmi við áætlanir Vísinda- og tækniráðs.Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytiðMenntamálKomið vel á veg
Ný heilbrigðisstefna til 2030 markar stefnu fyrir heilbrigðiskerfið á komandi árum.HeilbrigðisráðuneytiðHeilbrigðismálLokið
Innleiddar verða stafrænar samræmdar sjúkraskrár sem verða aðgengilegar  sérhverjum notanda heilbrigðisþjónustunnar og viðeigandi heilbrigðisstarfsmönnum í samræmi við óskir hans.HeilbrigðisráðuneytiðHeilbrigðismálKomið vel á veg
Þjónusta heilsugæslunnar verður aukin og heilsugæslustöðvum fjölgað til að minnka álagið á að aðra viðkomustaði á borð við bráðamóttökuna. HeilbrigðisráðuneytiðHeilbrigðismálLokið
Heilsugæslan verður leiðandi þátttakandi í heilsueflingu og aðgerðaáætlun um lýðheilsu og forvarnir.HeilbrigðisráðuneytiðHeilbrigðismálLokið
Geðheilsuteymi um land allt verða efld.HeilbrigðisráðuneytiðHeilbrigðismálLokið
Tryggt að þjónusta sé veitt innan tiltekins ásættanlegs biðtíma. HeilbrigðisráðuneytiðHeilbrigðismálKomið vel á veg
Sérstök áhersla verður lögð á að efla geðheilbrigðisþjónustu í forvarnarskyni. HeilbrigðisráðuneytiðHeilbrigðismálLokið
Áhrif notenda á þjónustuna aukin og stefnt að því að þjónustan sé fjölbreytt og miðuð að ólíkum þörfum. HeilbrigðisráðuneytiðHeilbrigðismálLokið
Áfram verður dregið úr greiðsluþátttöku sjúklinga, með áherslu á viðkvæma hópa. HeilbrigðisráðuneytiðHeilbrigðismálKomið vel á veg
Staða og hlutverk Landspítala sem mikilvægustu heilbrigðisstofnunar landsins verður styrkt. HeilbrigðisráðuneytiðHeilbrigðismálLokið
Heilsugæslan verður styrkt enn frekar sem fyrsti viðkomustaður notenda og byggð upp þverfagleg teymisvinna þar sem unnið er að stöðugum umbótum.HeilbrigðisráðuneytiðHeilbrigðismálLokið
Geðheilbrigðisþjónusta verður áfram efld fyrir alla hópa samfélagsins, ekki síst börn og ungmenni. HeilbrigðisráðuneytiðHeilbrigðismálLokið
Aðgengi allra landsmanna að sérfræðiþjónustu verður bætt í samráði við heilbrigðisstofnanir í öllum umdæmum. HeilbrigðisráðuneytiðHúsnæðismálKomið vel á veg
Stefna í þjónustu við aldraða frá 2021 verður grundvöllur vinnu við aðgerðaáætlun til fimm ára í samstarfi við sveitarfélög, samtök eldri borgara og þjónustuaðila, jafnt opinbera og sjálfstætt starfandi. Skipuð verður verkefnisstjórn í breiðu samráði til að vinna að þessum markmiðum og fylgja eftir þeirri vinnu sem unnin hefur verið, m.a. með drögum að frumvörpum og þingsályktun. Einstaklingurinn á að vera hjartað í kerfinu og hafa aðgang að samþættri þjónustu, heimahjúkrun og stuðningsþjónustu.HeilbrigðisráðuneytiðEldra fólkLokið
Settir upp miðlægir biðlistar.HeilbrigðisráðuneytiðHeilbrigðismálKomið vel á veg
Skipuð verður fagleg stjórn yfir Landspítala að norrænni fyrirmynd. HeilbrigðisráðuneytiðHeilbrigðismálLokið
Sjúkratryggingar Íslands verða efldar sem kaupandi og kostnaðargreinandi heilbrigðisþjónustu fyrir hönd ríkisins.HeilbrigðisráðuneytiðHeilbrigðismálKomið vel á veg
Þjónustutengd fjármögnun verður innleidd í auknum mæli í heilbrigðiskerfið.HeilbrigðisráðuneytiðHeilbrigðismálKomið vel á veg
Unnið verður að innleiðingu stafrænna lausna í heilbrigðisþjónustu og ný tækni nýtt til að auka gæði þjónustu og hagkvæmni. Stuðlað verður að nýsköpun og ýtt undir samstarf opinberra aðila og einkaaðila á sviði tæknilausna. Fjarheilbrigðisþjónusta verður sérstaklega efld. HeilbrigðisráðuneytiðHeilbrigðismálKomið vel á veg
Unnið verður að áframhaldandi uppbyggingu og fjármögnun hágæðaalmenningssamgangna og annarra samgöngumannvirkja á grundvelli samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. InnviðaráðuneytiðSamgöngumálHafið
Lagaleg staða landshlutasamtaka sveitarfélaga verður skýrð gagnvart þeim verkefnum sem þau sinna og landshlutarnir efldir, meðal annars í gegnum sóknaráætlanir landshluta.InnviðaráðuneytiðSveitarfélögKomið vel á veg
Unnið verður í samræmi við samþykkta þingsályktun um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga til ársins 2033 og aðgerðaráætlun um innleiðingu hennar uppfærð til næsta fimm ára tímabils. InnviðaráðuneytiðSveitarfélögKomið vel á veg
Áfram verður stutt við orkuskipti í samgöngum um allt land, þ.m.t. í þungaflutningum, ferjum og höfnum, og net hleðslustöðva þétt til stuðnings orkuskiptum í dreifðum byggðum og ferðaþjónustu. InnviðaráðuneytiðSamgöngumálKomið vel á veg
Ráðist verður í skilgreindar þjóðhagslega arðsamar flýtiframkvæmdir í samgöngum á grundvelli fjölbreyttari fjármögnunar og samstarfs við einkaaðila. InnviðaráðuneytiðSamgöngumálHafið
Þá munu stjórnvöld styðja við stafræna þróun sveitarstjórnarstigsins.   InnviðaráðuneytiðSveitarfélögKomið vel á veg
Húsnæðisöryggi og réttarstaða leigjenda verður bætt, m.a. með traustri lagaumgjörð, samræmdri umsóknargátt um húsnæðisbætur og aðgengilegri upplýsingagjöf.InnviðaráðuneytiðHúsnæðismálKomið vel á veg
Unnið verður að því að endurskoða regluverk, innleiða stafræna stjórnsýslu í auknum mæli og einfalda umgjörð um byggingariðnað í því skyni að lækka byggingarkostnað án þess að það sé á kostnað gæða og algildrar hönnunar. InnviðaráðuneytiðHúsnæðismálHafið
Mæta þarf sérstaklega þeim sem hafa háan húsnæðiskostnað með auknum stuðningi og auka framboð af ódýru leiguhúsnæði fyrir aldraða í samstarfi við sveitarfélögin og samtök aldraðra, m.a. í almenna íbúðakerfinu.InnviðaráðuneytiðEldra fólkKomið vel á veg
Húsnæðismál og skipulagsmál verða færð í nýtt innviðaráðuneyti til að tryggja betri samhæfingu með sveitarfélögum og aukinn stöðugleika á húsnæðismarkaði. Áætlanir í samgöngumálum, húsnæðismálum og skipulagsmálum verða samþættar og lagðar fram samhliða og þannig tryggt að samgöngur séu í þágu byggðar og loftslags til að uppfylla ferðaþörf og skapa sjálfbær hverfi og sjálfbærar byggðir.InnviðaráðuneytiðHúsnæðismálKomið vel á veg
Stuðlað verður að almenningssamgöngum með endurnýjanlegum orkugjöfum milli höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkurflugvallar í samvinnu við sveitarfélögin.InnviðaráðuneytiðSamgöngumálKomið vel á veg
Ráðist verður í sérstakt átak til uppbyggingar á leiguhúsnæði fyrir fatlað fólk og eldra fólk innan almenna íbúðakerfisins.InnviðaráðuneytiðHúsnæðismálHafið
Áfram verður unnið að endurskoðun á verkefnum Þjóðskrár og samlegð þeirra við verkefni annarra stofnana.InnviðaráðuneytiðJarðamál og mikilvægir innviðirLokið
Horft verður til lagabreytinga til að tryggja skilvirkari málsmeðferð innviðaframkvæmda á borð við flutningskerfi raforku, m.a. á grundvelli fyrirliggjandi vinnu þar um.InnviðaráðuneytiðOrkumál og náttúruverndLokið
Unnið verður að því í samstarfi ríkis og sveitarfélaga að efla almenningssamgöngur á landsbyggðinni.InnviðaráðuneytiðSamgöngumálHafið
Horft verður til áframhaldandi uppbyggingar í almenna íbúðakerfinu og framhalds hlutdeildarlána.InnviðaráðuneytiðHúsnæðismálKomið vel á veg
Eignarhald á landi þarf að vera gagnsætt og áhersla er lögð á hraða uppbyggingu Landeignaskrár, í samvinnu við sveitarfélög og landeigendur. InnviðaráðuneytiðJarðamál og mikilvægir innviðirKomið vel á veg
Samhliða verður unnið að eflingu sóknaráætlana landshlutanna.InnviðaráðuneytiðByggðamálKomið vel á veg
Stutt verður við starfsaðstöðu og klasasamstarf hins opinbera og einkaaðila á landsbyggðinni. InnviðaráðuneytiðByggðamálKomið vel á veg
Stuðlað verður að vistvænni mannvirkjagerð á Íslandi og samdrætti í losun frá byggingariðnaði.InnviðaráðuneytiðHúsnæðismálKomið vel á veg
Markvisst verður unnið að lagningu bundins slitlags á tengivegi til að styðja við atvinnu- og byggðaþróun og auðvelda skólaakstur á svæðum sem nú búa við malarvegi. InnviðaráðuneytiðSamgöngumálKomið vel á veg
Tryggður verður samrekstur millilandaflugvalla um land allt í einu kerfi. InnviðaráðuneytiðSamgöngumálLokið
Mótuð verður stefna þar sem svæðisbundið hlutverk Akureyrar sem stærsta þéttbýliskjarnans á landsbyggðinni er skilgreint og stuðlar að uppbyggingu sem geti boðið upp á fjölbreytileika í þjónustu, menningu og atvinnutækifærum.InnviðaráðuneytiðByggðamálKomið vel á veg
Ríkisstjórnin leggur áherslu á að stuðla að uppbyggingu öflugra og sjálfbærra sveitarfélaga þar sem samfélagslegir og fjárhagslegir hvatar eru til sameiningar. InnviðaráðuneytiðSveitarfélögKomið vel á veg
Beita þarf hagrænum hvötum í byggðaþróun, m.a. í gegnum Menntasjóð námsmanna. InnviðaráðuneytiðByggðamálKomið vel á veg
Stigin verða skref til að hefja sjálfbæra lífolíuframleiðslu til að flýta orkuskiptum í fiskiskipum og unnið að því að greiða götu verkefna á því sviði. Stutt verður við möguleg þróunarverkefni í orkuskiptum í innanlandsflugi.InnviðaráðuneytiðSamgöngumálHafið
Loftbrú verður áfram mikilvægur þáttur almenningssamgangna. InnviðaráðuneytiðSamgöngumálKomið vel á veg
Mótuð verður áætlun um uppbyggingu og fjármögnun jarðganga og horft til reynslu nágrannaþjóða. Stofnað verður opinbert félag um jarðgangagerð.InnviðaráðuneytiðSamgöngumálKomið vel á veg
Stuðla þarf að nægilegu framboði byggingarlóða til lengri tíma í samvinnu við sveitarfélög. Tryggt verður að fyrir liggi greinargóðar rauntímaupplýsingar um húsnæðismarkað, framboð íbúða, og stöðu í skipulags- og byggingamálum á öllu landinu.InnviðaráðuneytiðHúsnæðismálKomið vel á veg
Áhersla verður lögð á vinnu við skipulag haf- og strandsvæða.InnviðaráðuneytiðOrkumál og náttúruverndKomið vel á veg
Mótuð verður aðgerðaáætlun um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, m.a. með það að markmiði að fækka „gráum svæðum“ í samstarfi ríkis og sveitarfélaga til að tryggja skilvirkari og betri þjónustu.InnviðaráðuneytiðSveitarfélögKomið vel á veg
Undirbúningi Sundabrautar verður framhaldið með það að markmiði að hún opni fyrir umferð eigi síðar en árið 2031.InnviðaráðuneytiðSamgöngumálHafið
Áfram verður stutt við öflugt styrkjakerfi, samstarf við háskólasamfélagið og stuðningsumhverfi rannsókna og þróunar til að byggja undir nýsköpun í sjávarútvegi og tengdum greinum.MatvælaráðuneytiðSjávarútvegsmálLokið
Við endurskoðun búvörusamninga verður lögð áhersla á að tryggja fæðuöryggi á Íslandi með því að efla innlenda landbúnaðarframleiðslu. Stuðningur hins opinbera verður samhæfður með það að markmiði að styrkja og fjölga stoðum landbúnaðar á grunni sjálfbærrar nýtingar, í þágu loftslagsmála, umhverfis- og náttúruverndar og fjölbreytni í ræktun.MatvælaráðuneytiðLandbúnaðurLokið
Efla þarf landgræðslu, skógrækt og endurheimt votlendis til að mæta skuldbindingum Íslands í loftslagsmálum. Útfærður verður rammi um framleiðslu vottaðra kolefniseininga í landbúnaði og annarri tengdri landnotkun.MatvælaráðuneytiðLandbúnaðurLokið
Skipuð verður nefnd til að kortleggja áskoranir og tækifæri í sjávarútvegi og tengdum greinum og meta þjóðhagslegan ávinning fiskveiðistjórnunarkerfisins. Nefndinni verði falið að bera saman stöðuna hér og erlendis og leggja fram tillögur til að hámarka möguleika Íslendinga til frekari árangurs og samfélagslegrar sáttar um umgjörð greinarinnar. Nefndin fjalli einnig um hvernig hægt er að auka gagnsæi í rekstri fyrirtækja í sjávarútvegi og þá sérstaklega meðal stærstu fyrirtækja landsins. Þá meti nefndin árangur af atvinnu- og byggðakvóta og strandveiðum til að styðja við atvinnulíf í landsbyggðunum.MatvælaráðuneytiðSjávarútvegsmálLokið
Mótuð verður heildstæð stefna um uppbyggingu, umgjörð og gjaldtöku fiskeldis. Við þá vinnu verður lögð áhersla á tækifæri til atvinnusköpunar og mikilvægi þess að greinin byggist upp á grundvelli sjálfbærni, vísindalegrar þekkingar og verndar villtra laxastofna.MatvælaráðuneytiðSjávarútvegsmálLokið
Aukinni framleiðslu á grænmeti verður náð með föstu niðurgreiðsluhlutfalli á raforkuverði til ylræktar og sérstökum stuðningi við útiræktun í gegnum búvörusamninga. Mótuð verður heildstæð, tímasett aðgerðaáætlun til eflingar lífrænnar framleiðslu og akuryrkju.MatvælaráðuneytiðLandbúnaðurKomið vel á veg
Sett verða metnaðarfull markmið í að auka hlutfall hollra og næringarríkra innlendra matvæla til að treysta fæðuöryggi. Með öflugri, innlendri matvælaframleiðslu er stuðlað að heilnæmi matvara og auknu matvælaöryggi, t.a.m. til að viðhalda góðri stöðu Íslands varðandi sýklalyfjaónæmi. Tryggja þarf framhald aðgerðaáætlunar um matvælaöryggi og vernd búfjárstofna.MatvælaráðuneytiðLandbúnaðurKomið vel á veg
Tillaga að landbúnaðarstefnu fyrir Ísland verður lögð fram á Alþingi á fyrri hluta kjörtímabilsins. Verður þar byggt á grunni vinnu verkefnisstjórnar um landbúnaðarstefnu, Ræktum Ísland!, sem nú liggur fyrir.MatvælaráðuneytiðLandbúnaðurLokið
Fylgt verður eftir tillögum starfshóps um græn skref í sjávarútvegi til að flýta eins og kostur er orkuskiptum í sjávarútvegi og ná markmiðum um samdrátt í losun.MatvælaráðuneytiðSjávarútvegsmálKomið vel á veg
Huga þarf sérstaklega að regluverki svo það hamli ekki nýsköpun og framþróun s.s. sölu afurða beint frá býli á neytendamarkað.MatvælaráðuneytiðLandbúnaðurKomið vel á veg
Hugað verður að frekari ráðstöfunum til að vernda gott landbúnaðarland og flýta fyrir flokkun lands með tilliti til ræktunarmöguleika. MatvælaráðuneytiðJarðamál og mikilvægir innviðirKomið vel á veg
Ráðist verður í heildstæða endurskoðun á fyrirkomulagi matvæla- og heilbrigðiseftirlits á Íslandi. Markmið þeirrar vinnu verður að tryggja samræmt einfalt og skilvirkt eftirlit í þágu atvinnulífs og almennings.MatvælaráðuneytiðLandbúnaðurHafið
Umhverfi tónlistargeirans á Íslands verður endurskoðað í framhaldi af skýrslu starfshóps þar um.Menningar- og viðskiptaráðuneytiðMenningarmálLokið
Unnið verður að því að koma menningararfi þjóðarinnar yfir á stafrænt form til að tryggja varðveislu og aðgengi almennings. Menningar- og viðskiptaráðuneytiðMenningarmálKomið vel á veg
Mörkuð verður stefna um íslenskt táknmál með sérstakri áherslu á málumhverfi táknmálstalandi barna og námsefni á leik- og grunnskólastigi. Menningar- og viðskiptaráðuneytiðMenntamálLokið
Stefnt verður að sameiningu Samkeppniseftirlitsins og Neytendastofu og verða kannaðir möguleikar á sameiningu við aðrar stofnanir eftir atvikum sem geta aukið samlegðaráhrif og skilvirkni í opinberu eftirliti. Meginmarkmiðið er að styrkja samkeppni innanlands, tryggja stöðu neytenda betur í nýju umhverfi netviðskipta og efla alþjóðlega samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Menningar- og viðskiptaráðuneytiðTekjuöflun, regluverk og opinbert eftirlitKomið vel á veg
Menningarsókn, aðgerðaáætlun til 2030, verður hrint í framkvæmd. Menningar- og viðskiptaráðuneytiðMenningarmálKomið vel á veg
Sett verður stefna um rafræna langtímavörslu skjala og rafrænir innviðir opinberrar skjalavörslu endurnýjaðir til að mæta þessum kröfum.Menningar- og viðskiptaráðuneytiðMenningarmálKomið vel á veg
Áfram verður unnið að þarfagreiningu vegna óperustarfsemi í landinu, með það að markmiði að setja á laggirnar Þjóðaróperu.Menningar- og viðskiptaráðuneytiðMenningarmálKomið vel á veg
Áfram verður markvisst unnið að því að íslenska verði gjaldgeng í stafrænum heimi. Menningar- og viðskiptaráðuneytiðMenningarmálLokið
Til að sporna gegn félagslegum undirboðum og brotastarfsemi á vinnumarkaði verða varnir gegn kennitöluflakki styrktar með viðeigandi lagabreytingum.Menningar- og viðskiptaráðuneytiðTekjuöflun, regluverk og opinbert eftirlitLokið
Stutt verður eftir föngum við frekari dreifingu ferðamanna um landið allt árið um kring til að byggja undir atvinnusköpun og rekstrargrundvöll ferðaþjónustufyrirtækja. Efla þarf rannsóknir, nýsköpun og menntun í ferðaþjónustu.Menningar- og viðskiptaráðuneytiðFerðaþjónustaLokið
Framtíðarsýn ferðaþjónustu til 2030, sem mótuð var á síðasta kjörtímabili, verður fylgt eftir með aðgerðaáætlun sem styður við bæði langtímamarkmiðin og áhersluatriðin 12 sem henni fylgdu.Menningar- og viðskiptaráðuneytiðFerðaþjónustaLokið
Áfram verður unnið að því að styrkja faglega starfslauna- og verkefnasjóði listamanna með sérstakri áherslu á að starfslaunin tryggi betur afkomu þeirra sem starfa í listum / við skapandi greinar.Menningar- og viðskiptaráðuneytiðMenningarmálLokið
Alþjóðlega samkeppnishæft stuðningskerfi við framleiðslu kvikmynda- og sjónvarpsefnis verður eflt. Stutt verður enn frekar við greinina með hærri endurgreiðslum á skýrt afmörkuðum þáttum til að stuðla að því að fleiri stór verkefni verði unnin alfarið á Íslandi og tryggja aukinn fyrirsjáanleika í fjármögnun kerfisins. Menningar- og viðskiptaráðuneytiðIðnaður og nýsköpunLokið
Horft verður til þess að framlengja „Saman í sókn“, markaðsátak stjórnvalda, greinarinnar og Íslandsstofu, til að stuðla að nauðsynlegri viðspyrnu ferðaþjónustunnar í kjölfar Covid-19.Menningar- og viðskiptaráðuneytiðFerðaþjónustaLokið
Staða einkarekinna fjölmiðla verður metin áður en núverandi stuðningskerfi rennur út og ákveðnar aðgerðir til að tryggja fjölbreytni á fjölmiðlamarkaði og öflugt almannaútvarp.Menningar- og viðskiptaráðuneytiðMenningarmálKomið vel á veg
Staða barna og barnafjölskyldna sem lenda í áföllum verður styrkt.Mennta- og barnamálaráðuneytiðBörnKomið vel á veg
Jafnréttis- og kynfræðsla og ofbeldisforvarnir verða efldar í grunn- og framhaldsskólum.Mennta- og barnamálaráðuneytiðMenntamálKomið vel á veg
Unnið verður að því í samstarfi við sveitarfélög að jafna tækifæri barna til að stunda tómstundastarf óháð efnahag, aðstæðum og búsetu.Mennta- og barnamálaráðuneytiðÍþróttir, æskulýðsstarf og lýðheilsaKomið vel á veg
Lokið verður við heildarendurskoðun barnaverndarlaga.Mennta- og barnamálaráðuneytiðBörnKomið vel á veg
Fjármögnun framhaldsskóla verður tryggð.Mennta- og barnamálaráðuneytiðMenntamálKomið vel á veg
Byggðar verða nýjar höfuðstöðvar fyrir Tækniskólann í Hafnarfirði og unnið að eflingu iðn- og verknáms um land allt. Mennta- og barnamálaráðuneytiðMenntamálKomið vel á veg
Áfram verður unnið að eflingu starfs- og tæknináms og fjölgun raun- og tæknigreinamenntaðraMennta- og barnamálaráðuneytiðMenntamálKomið vel á veg
Áfram verður unnið með félagasamtökum að því að efla umgjörð um afreksstarf íþróttafólks, þar sem verður m.a. litið til eflingar afreksíþróttasjóðs og ferðajöfnunarsjóðs.Mennta- og barnamálaráðuneytiðÍþróttir, æskulýðsstarf og lýðheilsaKomið vel á veg
Stuðningur við börn af erlendum uppruna verður aukinn í skólakerfinu. Rík áhersla verður lögð á stuðning við börn af erlendum uppruna og fjölskyldur þeirra, m.a. gegnum skóla- og frístundastarf og með auknu aðgengi að íslensku- og samfélagsfræðslu. Horft verði til möguleika á móðurmálsfræðslu og túlkaþjónusta efld einkum til að tryggja aðgengi að menntun, heilbrigðisþjónustu og félagslegum réttindum. Mennta- og barnamálaráðuneytiðMenntamálKomið vel á veg
Áætlun með fyrirbyggjandi aðgerðum í þágu barna verður innleidd.Mennta- og barnamálaráðuneytiðBörnKomið vel á veg
Unnið verður að því í samvinnu við sveitarfélögin að brúa bil milli fæðingarorlofs og leikskóla. Mennta- og barnamálaráðuneytiðBörnHafið
Ráðist verður í stefnumörkun og heildarendurskoðun á tónlistarfræðslu á öllum skólastigum. Mennta- og barnamálaráðuneytiðMenntamálKomið vel á veg
Tryggt verður að börn og barnafjölskyldur fái nauðsynlega þjónustu innan tiltekins ásættanlegs biðtíma.Mennta- og barnamálaráðuneytiðBörnHafið
Stutt verður við íþróttahreyfinguna til að jafna stöðu karla og kvenna í íþróttum.Mennta- og barnamálaráðuneytiðÍþróttir, æskulýðsstarf og lýðheilsaKomið vel á veg
Skipulag náms tengdu matvælaframleiðslu á framhaldsskólastigi verður endurskoðað með það að markmiði að styrkja bæði menntun og rannsóknir.Mennta- og barnamálaráðuneytiðMenntamálHafið
Rík áhersla verður lögð á stuðning við börn af erlendum uppruna og fjölskyldur þeirra, m.a. gegnum skóla- og frístundastarf og með auknu aðgengi að íslensku- og samfélagsfræðslu. Horft verði til möguleika á móðurmálsfræðslu og túlkaþjónusta efld einkum til að tryggja aðgengi að menntun, heilbrigðisþjónustu og félagslegum réttindum. Mennta- og barnamálaráðuneytiðMálefni útlendingaKomið vel á veg
Sérstök áhersla verður lögð á að rýna stöðu kynjanna í skólakerfinu og koma til móts við ólíkar þarfir þeirra.Mennta- og barnamálaráðuneytiðMenntamálKomið vel á veg
Sett verður stefna um öflugar rafíþróttir hér á landi, ásamt því að efla skipulagt rafíþróttastarf og byggja upp innviði.Mennta- og barnamálaráðuneytiðÍþróttir, æskulýðsstarf og lýðheilsaKomið vel á veg
Ráðist verður í átak til að stuðla að fjölbreyttri nýsköpun í námsgagnagerð og auknu framboði af nýju námsefni, ekki síst á íslensku, fyrir öll skólastig.Mennta- og barnamálaráðuneytiðMenntamálKomið vel á veg
Unnið verður áfram að uppbyggingu þjóðarhallar inniíþrótta og þjóðarleikvanga.Mennta- og barnamálaráðuneytiðÍþróttir, æskulýðsstarf og lýðheilsaKomið vel á veg
Lögð verður áhersla á fjölbreytt námsframboð á öllum skólastigum í takt við menntastefnu til 2030 með nýsköpun í fyrirrúmi og fjölbreytni aukin í alþjóðlegu námi. Mennta- og barnamálaráðuneytiðMenntamálKomið vel á veg
Úrræði fyrir börn og barnafjölskyldur verða endurskipulögð í samræmi við lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.Mennta- og barnamálaráðuneytiðBörnKomið vel á veg
Samhliða fari fram vinna við að greina og endurskoða þjónustu ríkis og sveitarfélaga við börn og barnafjölskyldur fyrstu ár ævinnar með það að markmiði að auka þjónustu við þennan hóp.Mennta- og barnamálaráðuneytiðBörnKomið vel á veg
Unnin verður áætlun um að efla og þróa rannsóknir og þekkingu á sviði grænna lausna í þágu atvinnulífs og alþjóðlegra verkefna í samstarfi við alþjóðlega aðila. Regluverk verður endurskoðað með hliðsjón af þessum markmiðum og tryggt að allar atvinnugreinar geti tekið þátt í nauðsynlegum loftslagsverkefnum.Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðLoftslagsmálHafið
Sett verða metnaðarfull markmið um samdrátt í losun vegna landnotkunar og áhersla lögð á að efla náttúrumiðaðar lausnir, m.a. með hvötum til aukinnar skógræktar, landgræðslu og endurheimt votlendis. Efla þarf rannsóknir á losun og bindingu kolefnis vegna samspils landnýtingar og loftslagsmála. Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðLoftslagsmálHafið
Efla þarf enn frekar samstarf ríkis og sveitarfélaga á sviðum loftslags- og umhverfismála þar sem þau gegna lykilhlutverki, s.s. í innleiðingu hringrásarhagkerfisins, á sviði fráveitumála, mengunarvarna, vatnsverndar, náttúruverndar og verndunar líffræðilegs fjölbreytileika. Samþætta þarf betur skipulagsáætlanir sveitarfélaga og svæðisskipulagsstefnu til að ná betri nýtingu á innviðum og þjónustu, styðja við loftslagsmarkmið, fá betri sýn yfir framboð á lóðum og húsnæði og styðja við stjórnsýslu skipulagsmála.Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðSveitarfélögKomið vel á veg
Ísland verði lágkolefnishagkerfi og nái kolefnishlutleysi eigi síðar en árið 2040. Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðLoftslagsmálKomið vel á veg
Þá verður stuðlað að nýsköpun og notkun helstu tækninýjunga við endurvinnslu og flokkun sorps.Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðOrkumál og náttúruverndKomið vel á veg
Byggt verður undir endurvinnslu og hringrásarhagskerfi með jákvæðum hvötum gagnvart einstaklingum og fyrirtækjum. Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðOrkumál og náttúruverndHafið
Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir stórátaki í samvinnu við sveitarfélög í frárennslismálum þannig að þau standist ítrustu kröfur náttúruverndar um allt land eigi síðar en 2028.Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðOrkumál og náttúruverndHafið
Stjórnvöld munu í samráði við sveitarfélög og atvinnulífið setja áfangaskipt losunarmarkmið fyrir hvern geira.Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðLoftslagsmálKomið vel á veg
Rannsóknir, vöktun, hættumat og viðbrögð vegna náttúruvár verða efld á grundvelli yfirstandandi þarfagreiningar í samstarfi ríkis og sveitarfélaga. Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðSveitarfélögHafið
Lokið verður við þriðja áfanga rammaáætlunar. Kostum í biðflokki verður fjölgað. Lög um verndar- og orkunýtingaráætlun verða endurskoðuð frá grunni. Markmiðið er að tryggja nýtingu orkuauðlinda með hagkvæmum og sjálfbærum hætti.Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðOrkumál og náttúruverndHafið
Aðgerðaáætlun um samfélagslega aðlögun að loftslagsbreytingum verður unnin á grunni fyrirliggjandi aðlögunarstefnu. Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðLoftslagsmálHafið
Ríkisstjórnin mun ekki gefa út leyfi til olíuleitar í efnahagslögsögu Íslands.Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðLoftslagsmálLokið
Lokið verður við innleiðingu framtíðarlausna til meðhöndlunar á brennanlegum úrgangi í stað urðunar. Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðOrkumál og náttúruverndKomið vel á veg
Ísland á að verða vagga nýrra lausna á grunni auðlinda, þekkingar og staðsetningar. Stutt verður við græna atvinnuuppbyggingu og fjárfestingar ásamt því að greiða götu verkefna, m.a. á sviði föngunar, geymslu og förgunar kolefnis, uppbyggingu hringrásarhagkerfis með fjölnýtingu orkustrauma og orkuskipta. Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðLoftslagsmálKomið vel á veg
Lögð verður fram þingsályktun um orkuskipti og útfösun jarðefnaeldsneytis, þar sem settar verða fram aðgerðir og grunnur lagður að því að fullum orkuskiptum verði náð eigi síðar en 2040 og Ísland verði óháð jarðefnaeldsneyti fyrst þjóða. Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðLoftslagsmálKomið vel á veg
Sérstök lög verða sett um nýtingu vindorku með það að markmiði að einfalda uppbyggingu vindorkuvera til framleiðslu á grænni orku. Áhersla verður lögð á að vindorkuver byggist upp á afmörkuðum svæðum nærri tengivirkjum og flutningslínum þar sem unnt verður að tryggja afhendingaröryggi. Mikilvægt er að breið sátt ríki um uppbyggingu slíkra vindorkuvera og tillit sé tekið til sjónrænna áhrifa, dýralífs og náttúru. Í því samhengi verður tekin afstaða til gjaldtöku fyrir slíka nýtingu. Stefna verður mótuð um vindorkuver á hafi.Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðOrkumál og náttúruverndHafið
Sett verður sjálfstætt landsmarkmið um 55% samdrátt í losun á beinni ábyrgð Íslands fyrir 2030 miðað við árið 2005. Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðLoftslagsmálLokið
Stjórnsýsla loftslagsmála verður styrkt og hlutverk loftslagsráðs tekið til endurskoðunar með aukinni áherslu á ráðgefandi hlutverk og vísindastarf auk aðhalds- og eftirlitshlutverks gagnvart stjórnvöldum. Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðLoftslagsmálKomið vel á veg
Stutt verður við orkuskipti á landsvísu með áherslu á að horfa til orkutengdra verkefna og grænnar orkuframleiðslu. Byggðaáætlun styðji við græn umskipti um allt land.Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðByggðamálLokið
Stofnaður verður þjóðgarður á þegar friðlýstum svæðum og jöklum á þjóðlendum á hálendinu með breytingu á lögum um Vatnajökulsþjóðgarð. Áhersla verður lögð á samtal og samvinnu við heimamenn og svæðisráðum fjölgað. Um atvinnustarfsemi í nýjum þjóðgarði fer samkvæmt lögum um Vatnajökulsþjóðgarð sem eru í samræmi við meginreglur nýrra laga um atvinnustarfsemi í landi ríkisins. Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðOrkumál og náttúruverndHafið
Markviss skref verða tekin til orkuskipta í ferðaþjónustu m.a. með stuðningi við uppbyggingu hleðslunets um land allt, rafvæðingu bílaleigubíla og grænni tengingu við Keflavíkurflugvöll. Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðFerðaþjónustaLokið
Lokið verði við endurskoðun á stefnu um líffræðilega fjölbreytni.Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðOrkumál og náttúruverndHafið
Framlög verða áfram tryggð til jöfnunar húshitunar- og raforkukostnaðar heimila milli dreifbýlis og þéttbýlis. Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðByggðamálLokið
Lokið verður við heildarendurskoðun laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðOrkumál og náttúruverndKomið vel á veg
Vísindaleg þekking er undirstaða allra aðgerða stjórnvalda í loftslagsmálum. Tölfræðiupplýsingar, upplýsingagjöf, fræðsla og miðlun um loftslagsmál verða efld.Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðLoftslagsmálKomið vel á veg
Unnið verður að því að styrkja enn frekar stöðu og ímynd Íslands sem norðurslóðaríkis og byggja áfram upp innlenda þekkingu í málefnum svæðisins, m.a. með eflingu miðstöðva mennta, vísinda og umræðu og mótun rannsóknaáætlunar um norðurslóðir. UtanríkisráðuneytiðUtanríkis- og alþjóðamál og þróunarsamvinnaKomið vel á veg
Öflugt norrænt samstarf verður áfram grundvallarþáttur í alþjóðlegu samstarfi Íslands. UtanríkisráðuneytiðUtanríkis- og alþjóðamál og þróunarsamvinnaKomið vel á veg
Í þróunarsamvinnu Íslands verður stóraukin áhersla lögð á loftslagsmál. Sérstaklega verður horft til verkefna á sviði sjálfbærrar orku með tilliti til íslenskrar sérþekkingar á borð við jarðhitanýtingu, sjálfbæra orku- og auðlindanýtingu, náttúrlegra lausna s.s. landgræðslu og endurheimt vistkerfa og jafnréttismál. UtanríkisráðuneytiðUtanríkis- og alþjóðamál og þróunarsamvinnaKomið vel á veg
Ríkisstjórnin mun leggja aukna áherslu á framkvæmd og þróun EES-samningsins þannig að hagsmunir og fullveldi Íslands í samstarfi og viðskiptum við önnur ríki sé tryggt.UtanríkisráðuneytiðUtanríkis- og alþjóðamál og þróunarsamvinnaKomið vel á veg
Friðsamlegar lausnir, sjálfbær þróun, jafnrétti kynjanna, lýðræði og mannréttindi eru hornsteinar íslenskrar utanríkisstefnu. UtanríkisráðuneytiðUtanríkis- og alþjóðamál og þróunarsamvinnaKomið vel á veg
Lokið verður við endurskoðun viðskiptasamningsins við Evrópusambandið um landbúnaðarafurðir.UtanríkisráðuneytiðLandbúnaðurHafið
Tryggt verður í öllu alþjóðlegu samstarfi að Ísland hafi fullt forræði yfir öllum auðlindum sínum. UtanríkisráðuneytiðUtanríkis- og alþjóðamál og þróunarsamvinnaKomið vel á veg
Lögð verður áhersla á frjáls og opin alþjóðaviðskipti og greiðan aðgang íslensks atvinnulífs að erlendum mörkuðum. Haldið verður áfram að afnema viðskiptahindranir og horft til þess að fjölga fríverslunarsamningum, bæði tvíhliða og í samvinnu við önnur EFTA-ríki.UtanríkisráðuneytiðUtanríkis- og alþjóðamál og þróunarsamvinnaKomið vel á veg
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta