Verkefni
Ríkisstjórnin leggur áherslu á að stuðla að uppbyggingu öflugra og sjálfbærra sveitarfélaga þar sem samfélagslegir og fjárhagslegir hvatar eru til sameiningar.
Ráðuneyti
InnviðaráðuneytiðKafli
Sveitarfélög
Framvinda
Ráðuneytið sendi sveitarstjórnum 10 sveitarfélaga með 250 íbúa eða færri umsögn um álit sveitarfélaganna um lögbundið hlutverk þeirra og sameiningarkosti í september 2023. Ráðuneytið hefur eftirlit með því að sveitarstjórnirnar kynni álitið og umsögnina fyrir íbúunum og efni til tveggja umræðna um sameiningarkosti sveitarfélagsins í samræmi við lög. Þrjú af sveitarfélögunum 10 hafa hafið óformlegar viðræður við annað/önnur sveitarfélög um sameiningu. Jöfnunarsjóður veitir sveitarfélögum fjárhagslegan styrk til sameininga.Staða verkefnis
Komið vel á vegViðvarandi verkefni