Verkefni
Tryggt verður í öllu alþjóðlegu samstarfi að Ísland hafi fullt forræði yfir öllum auðlindum sínum.
Ráðuneyti
UtanríkisráðuneytiðKafli
Utanríkis- og alþjóðamál og þróunarsamvinna
Framvinda
1) Nýr samningur undir Hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna um verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni utan lögsögu ríkja var formlega samþykktur 19. júní 2023 og undirritaður af ráðherra 20. september. Starfshópur viðeigandi ráðuneyta og stofnana hefur hafið störf til að undirbúa fullgildingu og kortleggja mögulega innleiðingarlöggjöf. 2) Sendinefnd Íslands kynnti greinargerð og vísindalegan rökstuðning vegna landgrunnskröfu Íslands á Reykjaneshrygg fyrir landgrunnsnefnd Sameinuðu þjóðanna 9. ágúst 2023. Sendinefndin hefur þegar átt tvær fundarlotur með sérstakri undirnefnd landgrunnsnefndarinnar, í nóvember og febrúar sl. Gert er ráð fyrir tveimur fundarlotum til viðbótar á þessu ári og vonir standa til að niðurstaða náist 2025. Þegar vinnunni með nefndinni lýkur mun hún gefa út tilmæli um ytri mörk landgrunnsins á því svæði sem greinargerðin nær til.Staða verkefnis
Komið vel á vegViðvarandi verkefni