Verkefni
Ríkisstjórnin mun leggja aukna áherslu á framkvæmd og þróun EES-samningsins þannig að hagsmunir og fullveldi Íslands í samstarfi og viðskiptum við önnur ríki sé tryggt.
Ráðuneyti
UtanríkisráðuneytiðKafli
Utanríkis- og alþjóðamál og þróunarsamvinna
Framvinda
Unnið eftir gildandi forgangslista vegna hagsmunagæslu innan EES-samstarfsins og framgangi mála á honum. Undirbúningur hafinn að nýjum forgangslista. Ýmsir viðburðir og aðgerðir vegna 30 ára afmælis EES-samningsins með það að markmiðið að draga fram ávinning af samstarfinu og auka þekkingu á samningnum, til að mynda málþing um EES-samstarfið sem haldið var í samstarfi við Rannís, sendiskrifstofu ESB á Íslandi og fleiri í maí. Unnið að endurskoðun EES-handbókar. Texti EES-samningsins, einkum bókanir og viðaukar, hefur verið endurbirtur í uppfærðri íslenskri útgáfu á ees.is. Starfshópur um aðgerðir gegn gullhúðun hefur skilað tillögum sínum.Staða verkefnis
Komið vel á vegViðvarandi verkefni