Verkefni
Unnið verði að því að jafna örorkubyrði lífeyrissjóða og tryggja jafnræði réttinda gagnvart almannatryggingum.
Ráðuneyti
Fjármála- og efnahagsráðuneytiðKafli
Lífeyrismál
Framvinda
Unnið hefur verið að verkefninu í gegnum vinnuferli sem fellur undir endurmat útgjalda á örorkukerfinu. Fyrir liggur skýrsla þar sem greining á málinu hefur farið fram. Fyrirhugað er að í tengslum við heildarendurskoðun á örkulífeyriskerfinu sem er yfirstandandi verði metnir valkostir til að hverfa frá beinni aðkomu ríkisins að jöfnun á örorkubyrði lífeyrissjóða og byggja hana frekar inn í lífeyrissjóðakerfið og þá í samhengi við annað misvægi, einkum vegna mismunandi lífaldurs sjóðsfélaga.Landssamtök lífeyrissjóða hafa tilnefnt fulltrúa í starfshóp með ráðuneytum þar sem fjallað verður um:
- að samræma viðmið til örorkumats almannatrygginga og lífeyrissjóða
- að samþætta örorkutryggingavernd beggja kerfanna
- að finna varanlega lausn á víxlverkunum milli almannatrygginga og greiðslna lífeyrissjóða
- að ráðstafa með markvissari hætti fjármunum sem runnið hafa úr ríkissjóði til jöfnunar á örorkubyrði lífeyrissjóða til að ná þeim árangri sem að er stefnt.
Talnakönnun hefur skilað skýrslu um áhrif afnáms jöfnunarframlagsins á lífeyrissjóðina. Lækkun framlagsins verður gerð í tveimur skrefum og hefur verið gert ráð fyrir því í fjármálaáætlun 2025-2029 og fjárlagafrumvarpi 2025. Gert er ráð fyrir að samtal við lífeyrissjóðina hefjist fljótlega.