Um sendiskrifstofu
Sendiráð Íslands í Þýskalandi (þá Vestur-Þýskalandi) var stofnað í Hamborg árið 1952. Það fluttist til Bonn árið 1955 og svo til Berlínar árið 1999 í kjölfar sameiningar Austur- og Vestur-Þýskalands. Sendiráðið hefur jafnframt fyrirsvar gagnvart Tékklandi.
Starfsmenn eru sex talsins, þar af tveir útsendir: Sendiherra og staðgengill sendiherra og fjórir staðarráðnir starfsmenn: Viðskiptafulltrúi, menningarfulltrúi og tveir aðstoðarmenn sendiherra.
Sendiráðið er staðsett á sendiráðssvæði Norðurlandanna við Tiergarten almenningsgarðinn í vesturhluta Berlínar. Norðurlöndin eiga með sér náið samstarf um fjölmörg mál á vettvangi og standa fyrir viðburðum í sameiginlegri menningarmiðstöð sendiráðanna Felleshus.
Meginhlutverk sendiráðsins er að gæta hagsmuna Íslands og Íslendinga í umdæmislöndum þess, sem og að efla og styrkja viðskiptaleg, menningarleg og pólítísk tengls. Sendiráðið veitir jafnframt borgaraþjónustu við Íslendinga í umdæmislöndunum.
Sendiráð Íslands í Berlín
HeimilisfangRauchstraße 1
10787 Berlin
Sími: +49 (0) 30 50 50 40 00
Netfang
Afgreiðsla virka daga frá kl. 09:00 -12:00 og 13:00 - 16:00
Símatími: 13:00 - 16:00