Brauðmolaslóð fyrir stærri skjái
- Sendiskrifstofur
- Sendiráð Íslands í Berlín
- Sendiráð Íslands í Brussel
- Sendiráð Íslands í Freetown
- Sendiráð Íslands í Helsinki
- Sendiráð Íslands í Kampala
- Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn
- Sendiráð Íslands í Lilongwe
- Sendiráð Íslands í London
- Sendiráð Íslands í Nýju Delí
- Sendiráð Íslands í Osló
- Sendiráð Íslands í Ottawa
- Sendiráð Íslands í París
- Sendiráð Íslands í Peking
- Sendiráð Íslands í Stokkhólmi
- Sendiráð Íslands í Tókýó
- Sendiráð Íslands í Varsjá
- Sendiráð Íslands í Vín
- Sendiráð Íslands í Washington D.C.
- Fastanefnd Íslands hjá Atlantshafsbandalaginu
- Fastanefnd Íslands hjá Evrópuráðinu
- Fastanefnd Íslands í Róm
- Fastanefnd Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum
- Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf
- Aðalræðisskrifstofa Íslands í Nuuk
- Aðalræðisskrifstofa Íslands í Winnipeg
- Aðalræðisskrifstofa Íslands í Þórshöfn, Færeyjum
- Ræður og aðild að yfirlýsingum
- Sendiráð Íslands í Brussel
- Brussel-vaktin
Brussel-vaktin
Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins, í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.
Leita í ráðuneytisfundum
Áskriftir
Dags. | Titill | Leyfa leit |

08. nóvember 2024 | Stækkunarstefna ESB og viðbrögð ESB við sigri Trumps |
Að þessu sinni er fjallað um:

viðbrögð leiðtoga ESB við sigri Trumps

skýrslu um stækkunarstefnu ESB fyrir árið 2024

leiðtogafundi EPC og ESB

rafræna auðkenningu við ferðir inn og út af Schengen-svæðinu

framtíðarhorfur evrópska rannsóknarsvæðisins

yfirheyrslur Evrópuþingsins yfir framkvæmdastjóraefnum

Vaktin kemur næst út föstudaginn 6. desember nk.

Viðbrögð leiðtoga ESB við sigri Trumps

Úrslit forsetakosninga í Bandaríkjunum (BNA) þar sem Donald Trump bar sigur úr bítum hafa eins og við var að búast valdið titringi á vettvangi ESB. Viðbrögð leiðtoga ESB við sigri Trumps hafa þó verið afar diplómatísk, yfirveguð og varfærin.

Ursula von der Leyen (VdL), forseti framkvæmdastjórnar ESB, reið á vaðið og sendi Trump, með sérstakri yfirlýsingu, hlýjar hamingjuóskir með sigurinn. Í yfirlýsingu sinni segist VdL hlakka til að vinna með Trump með það að markmiði að styrkja vestræna samvinnu. ESB og BNA væru meira en bara bandamenn enda byggðu samskipti þeirra á sameiginlegri sögu og stuðningi við frelsi og lýðræði. Í yfirlýsingunni leggur VdL áherslu á mikilvægi viðskipta og fjárfestinga beggja vegna Atlantshafsins fyrir lífskjör fólks í BNA og ESB.

Charles Michel, forseti leiðtogaráðs ESB, óskaði Trump einnig til hamingju og vísaði til þess að ESB og BNA væru varanlegir bandalagsaðilar með söguleg tengsl. Sem bandamenn og vinir hlakki ESB til þess að halda áfram uppbyggilegri samvinnu. Þá tók hann fram að ESB muni framfylgja stefnu sinni í samræmi við fyrirliggjandi stefnuáætlun leiðtogaráðsins (e. strategic agenda) sem sterkur, sameinaður, samkeppnishæfur og fullvalda samstarfsaðili á sama tíma og ESB hyggist standa vörð um fjölþjóðakerfi sem byggt er á reglum (e. rules-based multilateral system).

Roberta Metsola, forseti Evrópuþingsins, óskaði Trump sömuleiðis til hamingju með kosningasigurinn og sagði ESB tilbúið til samvinnu og til að takast á við fordæmislausar landfræðilega pólitískar áskoranir. Vilji ESB stæði til þess að viðhalda sterkum tengslum yfir Atlantshafið sem eigi rætur sínar í sameiginlegum gildum frelsis, mannréttinda, lýðræðis og frjálsra viðskipa.

Þá hafa leiðtogar aðildarríkja ESB vitaskuld einnig sent Trump hamingjuóskir.

Stækkunarskýrsla ESB fyrir árið 2024

Efnisyfirlit umfjöllunar:

Inngangur

Formlegur ferill við meðferð umsókna um aðild að ESB

Umsóknarríkin og staða þeirra í ferlinu

Inngangur

Framkvæmdastjórn ESB birti í síðustu viku árlega skýrslu um framgang stækkunarstefnu ESB (e. EU Enlargement Policy). Skýrslan er birt í formi orðsendingar til Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB, efnahags- og félagsmálanefndar ESB og svæðanefndarinnar. Orðsendingunni fylgja sérstakar framvinduskýrslur og stutt staðreyndarblað (e. fact sheet) um stöðu mála í hverju umsóknarríki fyrir sig en þau eru nú 10 talsins, þ.e. Albanía, Bosnía og Hersegóvína, Kósovó, Svartfjallaland, Norður-Makedónía, Serbía, Georgía, Moldóva, Úkraína og Tyrkland.

Eins og rakið var í umfjöllun Vaktarinnar 10. nóvember 2023 um stækkunarskýrslu ESB fyrir árið 2023 þá er mikill þungi og áhersla á framgang stækkunarmála innan ESB um þessar mundir og er ljóst að árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu og sú þróun sem orðið hefur í alþjóðamálum í kjölfarið, þar sem virkt lýðræði og réttarríkið á í auknum mæli undir högg að sækja, hefur sannfært marga um mikilvægi stækkunar fyrir hagsmuni ESB og Evrópu í heild sinni. Eru tilraunir stjórnvalda í Rússlandi til að seilast til áhrifa í einstökum umsóknarríkjum að undanförnu, svo sem í Moldóvu og Georgíu og fleiri ríkjum til vitnis um þá hagsmuni sem í húfi eru, sbr. m.a. umfjöllun Vaktarinnar 25. október sl. um stöðu aðildarviðræðna við Moldóvu.

Hér á eftir verður núverandi staða einstakra umsóknarríkja í umsóknarferlinu rakin en áður en vikið verður að henni er hér til upprifjunar og glöggvunar fjallað stuttlega um lögformlegan feril við meðferð umsókna um aðild að ESB.

Formlegur ferill við meðferð umsókna um aðild að ESB

Kveðið er á um grunnreglur við meðferð umsókna um aðild að ESB í 49. gr. sáttmála um Evrópusambandið (The Treaty on European Union – TEU). Eins og fram kemur í ákvæðinu þá er sérhverju Evrópuríki sem virðir grundvallargildi ESB, sbr. 2. gr. TEU, og einsetur sér að stuðla að þeim, heimilt að sækja um aðild. Gildin eru eftirfarandi:

virðing fyrir mannlegri reisn

frelsi

lýðræði

jafnrétti

réttarríkið

virðing fyrir mannréttindum, þ.m.t. réttindum þeirra sem tilheyra minnihlutahópum.

Við frummat á umsóknum er framangreint metið en auk þess ber við mat á umsóknum, sbr. lokamálslið 1. mgr. 49. gr. sáttmála um ESB, að taka tillit til skilyrða sem leiðtogaráð ESB hefur samþykkt að umsóknarríki verði að uppfylla. Slík skilyrði voru samþykkt af leiðtogaráðinu á fundi þess í Kaupmannahöfn árið 1993 og eru þau nefnd Kaupmannahafnarskilyrðin (e. Copenhagen criteria). Kaupmannahafnarskilyrðin eru þríþætt og fela í sér pólitísk skilyrði, efnahagsleg skilyrði og lagaleg skilyrði, nánar tiltekið:

um stöðugt stjórnarfar og stofnanir sem tryggja lýðræði, réttarríki og mannréttindi,

um virkt markaðshagkerfi, sem hefur burði til að takast á við þá samkeppni sem fylgir þátttöku á innri markaði ESB,

að ríkið geti og vilji samþykkja og innleiða regluverk ESB og grundvallarmarkmið sambandsins í stjórnmálum og efnahagsmálum.

Umsóknarferlið og samningaviðræður fara fram í mörgum þrepum og er afar ítarlegt eins og Íslendingar þekkja frá þeim tíma er Ísland sótti um aðild að sambandinu árið 2009, sbr. skýrslu um framvinnu og stöðu viðræðanna sem utanríkisráðuneytið gaf út í apríl árið 2013, en umsókn Íslands var eins og kunnugt er dregin til baka í kjölfar alþingiskosninga síðar það ár.

Lögformlegt ákvörðunarvald í ferlinu liggur hjá aðildarríkjunum á vettvangi leiðtogaráðs ESB og á vettvangi ráðherraráðs ESB þar sem formleg ákvarðanataka á sér stað og er gerð krafa um einróma samþykki innan ráðsins í allri ákvörðunartöku. Efnisleg meðferð umsókna og undirbúningur samningaviðræðna og viðræðurnar sjálfar eru hins vegar að mestu á herðum framkvæmdastjórnar ESB. Endanlegt ákvörðunarvald, þ.e. um hvort aðildarsamningur við umsóknarríki er samþykktur, liggur loks hjá Evrópuþinginu og ráðherraráði ESB sameiginlega og þurfa báðar þessar stofnanir ESB að samþykkja aðildarsamning áður en lokafasi samþykktarferlisins getur hafist en það felst í því að aðildarsamningurinn er borinn upp til fullgildingar í öllum aðildaríkjum ESB, og í viðkomandi umsóknarríki jafnframt að sjálfsögðu, í samræmi við stjórnskipunarreglur í hverju ríki.

Í grófum dráttum er aðildarferlið eftirfarandi:

Ríki beinir umsókn um aðild til ráðherraráðs ESB.

Evrópuþinginu og þjóðþingum aðildarríkja er tilkynnt um umsókn.

Ráðherraráð ESB biður framkvæmdastjórn ESB um álit á umsókninni.

Að fengu jákvæðu áliti getur ráðherraráðið ákveðið að veita viðkomandi ríki formlega stöðu umsóknarríkis (e. Candidate status).

Enda þótt ríki hafi fengið formlega stöðu umsóknarríkis þýðir það ekki að aðildarviðræður hefjist heldur er slíkt háð sérstakri ákvörðun ráðherraráðs ESB og er ákvörðun þar að lútandi tekin á grundvelli mats framkvæmdastjórnar ESB á því hvort skilyrðum hafi verið fullnægt af hálfu umsóknarríkis.

Þegar ákvörðun um að hefja aðildarviðræður hefur verið tekin, tekur framkvæmdastjórn ESB í samvinnu við umsóknarríki saman yfirlitsskýrslur um efni löggjafar í umsóknarríki á mismunandi málefnasviðum (efniskaflar/klasar) samanborið við löggjöf ESB og leggur til viðræðuáætlun. Sú áætlun þarf síðan enn á ný að fá einróma samþykki af hálfu aðildarríkjanna á vettvangi ráðherraráðs ESB.

Samið er um hvern efniskafla eða klasa, sbr. skýringarmynd hér að neðan, sérstaklega og tekur ráðherraráð ESB jafnframt ákvarðanir um það hvenær og hvort samningaviðræður um einstaka kafla skuli hafnar á grundvelli tillagna frá framkvæmdastjórninni.

Ráðherraráð ESB tekur jafnframt ákvarðanir um það hvort og þá hvenær loka megi, til bráðabirgða, samningaviðræðum um einstaka efniskafla.

Þegar samningaviðræðum um alla efniskaflana hefur verið lokað er aðildarsamningur í heild sinni borin undir Evrópuþingið og ráðherraráð ESB til samþykktar.

Að fengnu samþykki Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB þarf loks að leggja samninginn fram til fullgildingar í öllum aðildarríkjum ESB og í umsóknarríkinu í samræmi við stjórnskipunarreglur í hverju ríki, þ.e. með þinglegri meðferð og þjóðaratkvæðagreiðslu, eftir atvikum.

Öll ríkin þurfa að fullgilda aðildarsamning til að hann geti öðlast gildi.

Sjá hér yfirlitsmynd yfir samningskafla sem teknar eru fyrir í viðræðunum og hvernig þeim er skipt í klasa.

Umsóknarríkin og staða þeirra í ferlinu

Í eftirfarandi töflu er staða umsóknarríkjanna í framangreindu ferli tilgreind í grófum dráttum. Tilgreint röðunarnúmer endurspeglar mat á því hversu langt löndin eru komið í ferlinu en þar eru fremst Svartfjallaland, Serbía og Albanía. Þar á eftir koma Norður-Makedónía og svo Úkraína og Moldóva sem hafa fengið hraðan framgang að undanförnu. Þar næst kemur Bosnía og Hersegóvína. Loks eru þrjú ríki sem reka lestina þar sem viðræður hafa stöðvast eða viss ómöguleiki er til staðar eins og í tilfelli Kósovó en þau eru Tyrkland, Georgía og Kósovó.

Tafla:

Nánar um stöðuna í einstökum ríkjum:

Albanía
Grunnklasinn með mikilvægustu köflunum var opnaður á 2. ríkjaráðstefnu Albaníu með ESB 15. október sl. Af hálfu ESB er áhersla lögð á að Albanía setji aukinn kraft í umbætur og aðlögun að gildum ESB, einkum því sem lýtur að réttarríkinu, löggæslu, baráttunni gegn spillingu og skipulagðri glæpastarfsemi og eflingu grunnréttinda s.s. fjölmiðlafrelsi, eignarrétti og réttindum minnihlutahópa.

Bosnía og Hersegóvína
Sýnilegur árangur hefur verið í framgangi aðildarumsóknar Bosníu og Hersegóvínu þar á meðal í málefnum er snúa að stjórnun fólksflutninga, samræmingu við utanríkisöryggisstefnu ESB og með lagasetningu um heilindi dómskerfisins, lögum um varnir gegn peningaþvætti og lögum um varnir gegn hagsmunaárekstrum. Í mars sl. ákvað leiðtogaráð ESB að hefja aðildarviðræður við Bosníu og Hersegóvínu. Næst á dagskrá er fyrsta ríkjaráðstefna ESB og Bosníu og Hersegóvínu sem mun marka formlegt upphaf samningaviðræðnanna, en til hennar hefur en sem komið er ekki verið boðað.

Kósovó
Kósovó sótti um aðild að ESB í desember 2022 en ríkið hefur þó enn ekki fengið formlega stöðu umsóknarríkis. Framfarir þykja hafa orðið í ríkinu í baráttunni gegn skipulagðri glæpastarfsemi og einnig þykir viðskiptaumhverfi í ríkinu hafa batnað. Kósovó þarf að efla viðleitni sína til að styrkja réttarríkið og opinbera stjórnsýslu og vernda tjáningarfrelsið. Ljóst er að það hamlar framgangi aðildarumsóknar ríkisins að nokkur aðildarríki ESB hafa enn ekki viðurkennt sjálfstæði þess en þau eru Spánn, Slóvakía, Kýpur, Rúmenía og Grikkland.

Svartfjallaland
Í júní 2024 var staðfest á ríkjaráðstefnu að Svartfjallaland uppfyllti í heildina bráðabirgðaviðmið fyrir kafla 23 og 24, sem fjalla um réttarríkið, og jafnframt var opnað fyrir möguleikann á því að loka öðrum köflum til bráðabirgða að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Á sviði réttarríkisins og dómsmála þykir þó þörf á frekari úrbótum. Svartfjallaland er komið einna lengst í aðildarferlinu þar sem búið er að opna alla kaflana í samningaviðræðunum og loka þremur 25, 26 og 30.

Norður-Makedónía:
Í tilviki Norður-Makedóníu þarf landið að halda áfram að innleiða umbætur, sérstaklega í grunnklasanum og þá einkum á sviðum sem lúta að dómskerfinu, baráttunni gegn spillingu og skipulagðri glæpastarfsemi. Einnig er talin þörf á því að efla traust á réttarkerfinu. Rýni á öllum sex klösunum var lokið í desember 2023.

Serbía:
Framkvæmdastjórnin ítrekar mat sitt á því að Serbía hafi uppfyllt viðmiðin til að opna klasa 3 um samkeppnishæfni og vöxt. Gert er ráð fyrir að Serbía muni hraða vinnu við innleiðingu á umbótum tengdum ESB-aðild á öllum sviðum á næsta ári með sérstakri áherslu á réttarríkið, umhverfi borgaralegs samfélags og fjölmiðla og grípa til trúverðugra aðgerða til að sporna gegn upplýsingaóreiðu og erlendum afskiptum. Alls hafa 22 kaflar verið opnaðir og tveimur hefur verið lokað til bráðabirgða, þ.e. köflum 25 og 26.

Georgía
Leiðtogaráðið veitti Georgíu stöðu umsóknarríkis í desember 2023 en umsóknarferlið stöðvaðist í raun sl. vor þegar þing landsins samþykkti umdeild lög sem þykja sniðin að sambærilegum lögum í Rússlandi og talin eru takmarka verulega starfsemi frjálsra félagasamtaka í landinu og frelsi fjölmiðla, sbr. einnig nýlega löggjöf sem talin er beinast gegn réttinum hinsegin fólks. Georgía sótti um aðild árið 2022 ásamt Úkraínu og Moldóvu í kjölfar árásarstríðs Rússa gagnvart Úkraínu. Þannig fylgdust löndin að í umsóknarferlinu í byrjun þar til ferlið var stöðvað í Georgíu. Samkvæmt opinberum niðurstöðum nýafstaðinna þingkosninga í Georgíu sigraði stjórnmálaflokkurinn Georgíski draumurinn og fékk hreinan meirihluta en flokkurinn hefur verið við völd síðan 2012 og undir hans stjórn sótti landið um aðild að ESB árið 2022. En svo virðist sem stjórnvöldum í Rússlandi hafi tekist að hlutast til um mál í ríkinu með framangreindum afleiðingum.

Moldóva
Samþykkt var hefja samningaviðræður við Moldóvu í desember sl. Fyrsta ríkjaráðstefnan var síðan haldin í júní 2024 og í kjölfar hennar hófst rýni á regluverki landsins sem miðar vel. Vonast er til að samningaviðræður geti hafist á næsta ári með opnun fyrstu samningskaflanna sem tilheyra grunnklasanum. Eins og áður segir var fjallað um aðildaviðræður Moldóvu í Vaktinni 25. október sl. í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslu sem þar var haldin um hvort binda ætti markmið um aðild að ESB í stjórnarskrá landsins sem var samþykkt með naumum meirihluta. Þann 3. nóvember fór svo fram seinni umferð forsetakosninga í landinu þar sem Maia Sandu, núverandi forseti og stuðningsmaður ESB aðildar Moldóvu, vann sigur á andstæðingi sínum Alexandr Stoianoglo sem þykir hallur undir stjórnvöld í Rússlandi.

Úkraína
Líkt og með Moldóvu var samþykkt að hefja samningaviðræður við Úkraínu í desember sl. Fyrsta ríkjaráðstefnan var síðan haldinn í júní sl. og í kjölfar hennar hófst rýni á regluverki landsins sem miðar vel. Opnun aðildarviðræðna við Úkraínu er mikilvæg viðurkenning á vilja Úkraínu til að halda áfram umbótum og aðlögun að gildum ESB. Úkraína sótti um aðild að ESB fljótlega eftir að árásarstríð Rússlands gagnvart ríkinu hófst. Moldóva og Georgía fylgdu í kjölfarið. Vonast er til að efnislegar samningaviðræður geti hafist fljótlega á næsta ári með opnun fyrstu samningskaflanna sem tilheyra grunnklasanum.

Tyrkland
Tyrkland sótti um aðild að ESB árið 1987 og hefur verið lengst allra umsóknarríkja í aðildarferlinu. Samþykkt var að hefja samningaviðræður árið 2004 en eftir það hefur ekki orðið mikill framgangur í aðlögun landsins að ESB sem orðið hefur til þess að aðildarviðræður hafa staðið í stað síðan 2018. ESB hefur áhyggjur af stöðu landsins á sviði grundvallarréttinda og réttarríkisins þar á meðal sjálfstæði dómstóla. Viðræður um réttarríkið og grundvallarréttindi eru þó áfram órjúfanlegur þáttur í samskiptum ESB og Tyrklands

Erfitt er að spá fyrir um hvenær samningaviðræðum við einstök ríki getur lokið. Í skýrslunni er nú sem áður skýrlega tekið fram að framgangur samningaviðræðna verði að byggjast á verðleikum (e. merit based). Ekki þarf einungis að tryggja að umsóknarríkin uppfylli skilyrði og gildi ESB um virkt lýðræði, réttarríkið og mannréttindavernd o.s.frv. heldur þurfa þau jafnframt að uppfylla pólitísk, efnahagsleg og lagaleg skilyrði aðildar áður en til inngöngu kemur.

Ekki er heldur nægjanlegt að umsóknarríkin sjálf uppfylli skilyrði aðildar heldur þarf sambandið sjálft að vera viss um að það ráði við það aukna umfang og flækjustig sem fjölgun aðildaríkja hefur óhjákvæmilega í för með sér. Í því skyni hyggst sambandið gera ýmsar innri umbætur á stjórnskipulagi sínu sem þörf er talin á áður en fleiri aðildarríki bætast í hópinn, s.s. að fækka þeim ákvörðunum sem krefjast einróma samþykkis meðal aðildarríkjanna, sbr. nánari umfjöllun í Vaktinni 3. maí sl., um umbætur á stjórnkerfi ESB í aðdraganda stækkunar.

Leiðtogafundir EPC og ESB

Leiðtogar Evrópu komu saman í Búdapest í Ungverjalandi í gær og í dag.

Annars vegar var um að ræða fund, sem fram fór í gær, á vettvangi sem nefndur hefur verið European Political Community (EPC) þar sem leiðtogum 44 Evrópuríkja, þar á meðal leiðtogum allra 27 ESB-ríkjanna, er boðið að mæta.

Er þetta í fimmta skiptið sem evrópskir leiðtogar hittast á þessum vettvangi, en fyrsti fundurinn fór fram í Prag í október 2022, sbr. umfjöllun um þann fund í Vaktinni 7. október 2022. Yfirlýst markmið hins nýja vettvangs er að skapa leiðtogum Evrópuríkja innan og utan ESB vettvang til skoðanaskipta og stuðla að samvinnu um viðbrögð við þeim margbrotnu áskorunum sem við er að etja á þeim viðsjáverðu tímum sem nú eru. Er ljóst að árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu með þeim alvarlegu ógnum og áskorunum sem það hefur haft í för með sér var megin aflvaki að stofnun vettvangsins enda þótt aðrar veigamiklar áskoranir eins og fyrirhuguð stækkunaráform ESB, sbr. umfjöllun hér að framan, loftslagsbreytingar og flóttamannamál o.fl. hafi einnig knúið þar á um

Eins og á fyrri fundum þá voru öryggis- og varnarmál með hliðsjón af árásarstríði Rússlands gagnvart Úkraínu til umræðu á fundinum en einnig málefni flótta- og farandfólks, hagvarnir og öryggi flutningskerfa á sviði orkumála, fjarskipta og samgangna. Þá voru samskiptin við Bandaríkin, í ljósi nýafstaðinna forsetakosninga, einnig til umræðu.

Hins vegar var um að ræða óformlegan fund leiðtogaráðs ESB sem hófst í gær og lauk síðdegis í dag, 8. nóvember, og var megin umræðuefnið nýr sáttmáli ríkjanna um aukna samkeppnishæfni (e. Competitiveness deal) sem nú er unnið að í línu við þá stefnumörkun sem mótuð hefur verið á vettvangi ráðsins, sbr. einkum Versalayfirlýsingu ráðsins (e. Versailles Declaration) sem samþykkt var á fundi ráðsins 10. og 11. mars 2022, og Granadayfirlýsinguna (e. Granada declaration) sbr. umfjöllun um þessar yfirlýsingar í Vaktinni 13. október 2023, sbr. einnig nýja stefnuáætlun ráðsins, sbr. umfjöllun um hana í Vaktinni 28. júní sl. Samskipti ESB við Bandaríkin voru einnig til umræðu o.fl.

Að loknum fundinum síðdegis í dag sendu leiðtogar ESB-ríkjanna frá sér sameiginlega yfirlýsingu sem nefnd er Búdapestyfirlýsingin þar sem fjallað er um framangreindan sáttmála um aukna samkeppnishæfni ESB. Sjá nánar um yfirlýsinguna og niðurstöður fundarins hér.

Rafræn auðkenning við ferðir inn og út af Schengen-svæðinu

Hinn 8. október sl. lagði framkvæmdastjórn ESB fram tvær löggjafartillögur um rafræna auðkenningu við ferðir til og frá Schengen-svæðinu. Markmið tillagnanna er að auðvelda og auka öryggi landamæraeftirlits á svæðinu.

Í samræmi við gildandi regluverk þurfa allir einstaklingar, þ. á m. ríkisborgarar allra aðildarríkja Schengen-samstarfsins, að fara í gegnum kerfisbundið eftirlit á ytri landamærum þess. Í fyrra voru um 600 milljón ferðir farnar yfir landamærin og er talin þörf á því að flýta landamæraeftirliti án þess þó að gefa eftir í öryggiskröfum og tryggja að hver einasti einstaklingur sé skoðaður. Í tillögunum tveimur er annars vegar lagt til að komið verði á sameiginlegu regluverki um stafvæðingu skilríkja, einkum vegabréfa og nafnskírteina, og hins vegar að gefið verði út sérstakt stafrænt ferðaforrit (e. EU Digital Travel application) vegna ferðalaga til og frá Schengen-svæðinu.

Með rafrænum skilríkjum er átt við stafræna útgáfu af þeim gögnum og upplýsingum sem skráðar eru í örflögur vegabréfa og persónuskilríkja. Gert er ráð fyrir að öllum verði frjálst að sækja um eða nota stafræna útgáfu sinna skilríkja og er jafnframt gert ráð fyrir að slík notkun verði fólki að kostnaðarlausu. Þá er stefnt að því að unnt verði að vista stafræn skilríki í farsímum. Með þessum hætti verður einstaklingum til dæmis unnt að leggja fram stafræna útgáfu sinna ferðaskilríkja fyrir brottför í forskoðun til að tryggja skilvirkari afgreiðslu við komu á landamærastöð. Þannig verður auðveldara að sannreyna auðkenni handhafa og koma betur í veg fyrir notkun falsaðra skilríkja. Þá munu einstaklingar jafnframt eiga þess kost að nota stafrænu skilríkin sín við önnur tilefni, svo sem við flutninga á milli aðildarríkja.

Hið stafræna ferðaforrit verður þróað af framkvæmdastjórn ESB með stuðningi frá Eu-LISA, sem er stofnun ESB um rekstur stórra upplýsingatæknikerfa á sviði frelsis, öryggis og réttlætis. Gert er ráð fyrir að forritið verði aðgengilegt öllum þeim einstaklingum sem hyggjast ferðast til eða frá Schengen-svæðinu á grundvelli vegabréfs eða evrópsks nafnskírteinis sem inniheldur lífkenni (e. biometric data). Einstaklingar geta með þessum hætti tilkynnt inn í forritið sínar ferðaáætlanir með notkun stafrænna ferðaskilríkja áður en lagt er af stað til að flýta fyrir afgreiðslu á landamærastöð og verður þess gætt að forritið uppfylli öll persónuverndarskilyrði ESB.

Tillögur framkvæmdastjórnarinnar eru hluti af stefnu Schengen-samstarfsins, sem samþykktar voru árið 2021, um að stafvæða enn frekar málsmeðferð á ytri landamærum svæðisins. Þá eru þær tengdar stofnun evrópska auðkennisveskisins (e. European Digital Identity Wallets), sbr. umfjöllun í Vaktinni 21. júlí 2023, þar sem á að vera unnt að vista rafræn vegabréf og skilríki ásamt rafrænum ökuskírteinum, lyfseðlum og öðrum skjölum. Enn fremur er framtakið stutt af stefnu framkvæmdastjórnarinnar um stafræna Evrópu (e. Digital Europe) og stafrænan áttavita (e. Digital Compass), sem falla undir stafræna starfsskrá ESB (e. Europe‘s Digital Decade), sem miða að því að stafvæða alla opinbera þjónustu og veita öllum ríkisborgurum aðildarríkja ESB rafræna auðkenningu fyrir árið 2030.

Tillögurnar ganga nú til umfjöllunar á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Framtíðarhorfur evrópska rannsóknarsvæðisins

Þann 22. október 2024 birti framkvæmdastjórn ESB orðsendingu um stöðu innleiðingar á áætlunum ESB um uppbyggingu á hinu svonefnda sameiginlega evrópska rannsóknarsvæði (e. European Research Area - ERA) sem felur í sér að byggður verði upp sameiginlegur markaður fyrir rannsóknir og nýsköpun innan ESB.

Í orðsendingunni eru ítrekaðar skuldbindingar um að rannsóknir og nýsköpun verði í öndvegi í stefnumótun ESB á sviði efnahagsmála.

Meginniðurstaða orðsendingarinnar er sú að með ERA hafi náðst umtalsverður árangur. Enn sé þó mikið verk að vinna til þess að hámarka þau tækifæri sem felast í samstarfi á þessum vettvangi. Tryggja þurfi samfellu í fjármögnun, bæta starfsþróun og auka stuðning við rannsóknaraðila og sprotafyrirtæki til að taka skrefið frá hugmynd til fjárfestinga og framkvæmda sem er forsenda vaxtar og aukningar samkeppnishæfni til framtíðar.

Í orðsendingunni koma meðal annars fram eftirfarandi áherslur:

1. Forgangsröðun fjárfestinga og umbætur í regluverki

Að stefnt skuli að því að a.m.k. 3% af vergri landsframleiðslu aðildarríkja ESB (GDP) fari til rannsókna og þróunar þar sem tveir þriðju hlutar fjárfestingafjármagns komi frá einkageiranum. Kemur fram að þótt náðst hefði árangur með áætlunum svo sem Recovery and Resilience Facility (RRF) og Horizon Europe, þá nemi fjárfesting ESB ríkja aðeins í 2,3% af vergri landsframleiðslu eins og staðan er nú og skortir þar mest á hlutdeild einkageirans auk þess sem mikill munur er á milli aðildarríkjanna er kemur að fjárfestingu einkaaðila. Þykja ýmsar lagalegar og stjórnsýslulegar hindranir m.a. standa í vegi aukinnar einkafjárfestingar.

2. Bætt aðgengi að öndvegisvísindastarfi

Að unnið skuli að því að öll aðildarríki geti tekið fullan þátt í því samstarfi sem ERA felur í sér en að því hefur m.a. verið unnið á vettvangi Horizon Europe að beina samstarfi og fjármögnun til minna þróaðra svæða.

3. Hagnýting rannsókna til efnahagslegs ávinnings

Í orðsendingunni er lögð áhersla á mikilvægi þess að árangur í rannsóknum sé nýttur til nýsköpunar og fjárfestinga í því skyni að styrkja samkeppnishæfni Evrópu. Kemur fram að Evrópska nýsköpunarráðið (European Innovation Council - EIC) hafi orðið leiðandi á sviði fjárfestinga í hátækni og dregið að sér einkafjárfestingar. Þó þurfi meira til að efla nýsköpunarfyrirtæki en talið er að skortur á áhættufjármagni sé ein orsök þess að ESB hafi dregist aftur úr helstu samkeppnisaðilum.

4. Dýpkun evrópska rannsóknarsvæðisins

Þá er í orðsendingunni lögð áhersla á að nýta ERA áfram til að stuðla að betra starfsumhverfi fyrir vísindamenn og til að auka jafnrétti á sviði rannsókna og nýsköpunar. Nýlegar aðgerðir, svo sem tillögur ERA-nefndar ráðherraráðs ESB (European Research Area and Innovation Committee – ERAC) um störf á sviði rannsókna og kynning á aðgerðum eins og ERA Talent Platform og EURAXESS hafa verið hvetjandi en tækifæri til starfsþróunar eru þó enn talin ójöfn á milli aðildarríkja, sérstaklega á minna þróuðum svæðum innan sambandsins.

Ísland tekur virkan þátt í ERA með þátttöku í samstarfsáætlunum ESB á sviði rannsókna og nýsköpunar á grundvelli EES-samningsins, þar á meðal Horizon Europe, og er óhætt að segja að þátttaka Íslands hafi opnað dyr að mikilvægum fjármögnunartækifærum sem styðja við nýsköpun og tækniþróun hér á landi.

Yfirheyrslur Evrópuþingsins yfir framkvæmdastjóraefnum

Yfirheyrslur yfir framkvæmdastjóraefnum í nýrri framkvæmdastjórn, skv. tillögu Ursulu von der Leyen (VdL), hófust í þingnefndum Evrópuþingsins á mánudaginn sl. og er gert ráð fyrir að þeim ljúki í næstu viku, þriðjudaginn 12. nóvember, en þann dag er gert ráð fyrir að yfirheyrslur yfir varaforsetaefnum nýrrar framkvæmdastjórnar fari fram, sbr. dagskrá.

Maroš Šefčovič sem einnig á sæti í núverandi framkvæmdastjórn þar sem hann hefur m.a. borið ábyrgð á rekstri EES-samningsins og samskiptum við EES/EFTA-ríkin var fyrstur til að mæta til yfirheyrslu á mánudaginn, en gert er ráð fyrir því að hann beri áfram m.a. ábyrgð á EES-málefnum í nýrri framkvæmdastjórn, skv. tillögu VdL. Sjá hér upplýsingasíðu hjá þinginu um Šefčovič þar sem m.a. má finna svör hans við skriflegum spurningum þingsins og upptöku af yfirheyrslunni yfir honum.

Almennt má segja að yfirheyrslur hafi gengið vel í vikunni og samkvæmt fréttum hefur tilskilinn meiri hluti í þingnefndunum þegar náðst um framgang allra framkvæmdastjóraefnanna að frátöldum Olivér Várhelyi sem tilnefndur var af hálfu Ungverjalands og hefur honum verið gert að svara viðbótarspurningum frá viðkomandi þingnefndum og í framhaldi af því má vænta að hann verði boðaður til framhaldsyfirheyrslufunda í viðkomandi þingnefndum áður en ákvörðun um brautargengi hans verður tekin.

Samkvæmt núverandi áætlun er gert ráð fyrir að atkvæðagreiðsla í þinginu um nýja framkvæmastjórn í heild sinni geti mögulega fari fram í vikunni 25. – 28. nóvember nk. en sú áætlun er þó fyrirvörum háð.

Sjá nánar um ferlið framundan við skipun nýrrar framkvæmdastjórnar og um hina þinglegu meðferð sem og um tillögu VdL að nýrri framkvæmdastjórn í Vaktinni 27. september sl. og í Vaktinni 11. október sl.

Sjá einnig upplýsingasíðu Evrópuþingsins um hina þinglegu meðferð þar sem m.a. má nálgast upptökur af yfirheyrslum yfir öllum framkvæmdastjóraefnunum og svör þeirra við skriflegum fyrirspurnum þingsins.

Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins, í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra. Leiðréttingar, ábendingar og athugasemdir sendist til ritstjóra Vaktarinnar, Ágústs Geirs Ágústssonar, á netfangið [email protected].

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

25. október 2024 | Málefni flótta- og farandfólks í brennidepli |
Að þessu sinni er fjallað um:

málefni flótta- og farandfólks

stöðu aðildarviðræðna við Moldóvu

reglugerð um varnir gegn eyðingu skóga

Málefni flótta- og farandfólks í brennidepli

Efnisyfirlit umfjöllunar:

Hægrisveifla og raunsæispólitík

Fundur leiðtogaráðs ESB

Bréf VdL til leiðtogaráðsins

Harðlínuhópurinn innan ráðsins

Ályktanir leiðtogaráðsins

Fundur ráðherra dóms- og innanríkismála innan Schengen-ráðsins

Hægrisveifla og raunsæispólitík

Óhætt er að segja að málefni flótta- og farandfólks hafi verið í brennidepli umræðunnar í Brussel á síðustu dögum eftir að leiðtogaráðið birti ályktanir sínar um stefnumótun í málaflokknum í síðustu viku sem almennt eru taldar fela í sér skýra viðhorfs- og stefnubreytingu frá því sem verið hefur.

Tæplega er unnt að velkjast í vafa um að uppgangur stjórnmálaflokka sem skilgreindir eru lengst til hægri á hinum pólitíska kompás eigi ríkan þátt í þeim viðhorfsbreytingum sem eru að eiga sér stað, sbr. meðal annars fylgisaukningu slíkra flokka í nýafstöðnum Evrópuþingskosningum. Í því samhengi er hins vegar athyglisvert að stefnubreytingin er alls ekki bundin við þau ríki þar sem slíkir flokkar hafa komist til beinna áhrifa eða valda heldur virðist viðhorfsbreytingin vera að eiga sér stað þvert á stjórnmálaflokka frá hægri til vinstri og staðfesta áðurnefndar ályktanir leiðtogaráðs ESB, sem samþykktar voru samhljóða af leiðtogum allra aðildarríkja ESB, það svo ekki verður um villst.

Hert stefna vinstri- og miðjuflokka og hófsamari hægriflokka í málaflokknum er þannig augljóst viðnám við þeirri miklu fylgisaukningu sem harðlínuflokkarnir lengst til hægri hafa notið á undanförnum misserum en ljóst þykir að sú fylgisaukning verður að stórum hluta rakin til harðrar stefnu þeirra í útlendingamálum. Stefnubreyting danska Jafnaðarmannaflokksins undir forystu Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur er ef til vill hvað skýrasta dæmið um framangreint en Danmörk er einmitt hluti af kjarna harðlínuhópsins innan leiðtogaráðsins sem beitir sér nú með samhentum hætti fyrir breytingum á stefnu ESB í þessum málaflokki, sbr. nánari umfjöllun hér að neðan.

Það eru þó ekki bara pólitískar hægri áherslur sem stýra þeim viðhorfsbreytingum sem eru að raungerast heldur stjórnast umræða um þessi mál ekki síður af raunsæispólitík. Kerfi margra aðildarríkja virðast einfaldlega vera komin að þolmörkum og áskoranir við inngildingu þeirra sem fá vernd í ríkjunum virðast stærri og umfangsmeiri en ríkin ráða við.

Er ljóst að málefni útlendinga og flótta- og farandfólks munu verða ofarlega á baugi á vettvangi ESB á komandi misserum.

Fundur leiðtogaráðs ESB

Eins og áður segir þá kom leiðtogaráð ESB saman til fundar í síðustu viku, þ.e.  17. október sl. Málefni Úkraínu, Moldóvu og Austurlanda nær voru meðal umræðuefna sem og samkeppnishæfni ESB. Hæst bar þó umræða um málefni flótta- og farandfólks og hafa ályktanir ráðsins í þeim efnum vakið mikla athygli eins og áður segir.

Á fundinum var kastljósið framar öðrum á forsætisráðherra Póllands, Donald Tusk, vegna nýlegra yfirlýsinga hans um að Pólland hygðist ekki veita fólki sem kæmi að landamærum þeirra að Rússlandi og Belarús rétt til að sækja um alþjóðlega vernd í ríkinu og fékk forsætisráðherrann, eins og nánar er vikið að hér að neðan, stuðning í ráðinu við þær fyrirhuguðu aðgerðir.

Bréf VdL til leiðtogaráðsins

Í aðdraganda leiðtogaráðsfundarins sendi forseti framkvæmdastjórnar ESB, Ursula von der Leyen (VdL), bréf til leiðtoga aðildarríkjanna þar sem hún fjallar um þá áfanga sem náðst hafa í málaflokkum með samþykkt hins svonefnda hælispakka ESB (e. Pact on Migration and Asylum) en fjallað var um löggjafarpakkann í Vaktinni 19. janúar sl. þegar samkomulag um efni hans lá fyrir, sbr. einnig umfjöllun í Vaktinni 28. júní sl. um sameiginlega innleiðingaráætlun á þeirri löggjöf.

Í bréfinu áréttar VdL að enda þótt samþykkt hælispakkans hafi falið í sér mikilsverða áfanga þá stæði ásetningur og umboð nýrrar tilvonandi framkvæmdastjórnar til þess að halda áfram á sömu braut, sbr. umfjöllun um stefnuáherslur VdL, stefnuáætlun leiðtogaráðsins og um niðurstöður Evrópuþingskosninganna í Vaktinni að undanförnu. Kemur fram í bréfinu að markmiðið sé að tryggja sanngjarna og staðfasta nálgun í útlendingamálum með sameiginlegar lausnir fyrir aðildaríkin að leiðarljósi. Kemur jafnframt fram í bréfinu að málefni flótta- og farandfólks verði á meðal helstu áherslumála af hálfu framkvæmdastjórnarinnar á komandi árum og er sérstaklega áréttað að málaflokkurinn sé þess eðlis að hann krefðist þess að ráðstafanir og regluverk séu í stöðugri endurskoðun. Eru í bréfinu lagðar til tíu aðgerðir í því sambandi.

Meðal annars er lagt til að innleiðingu á hælispakkanum, sem á að hrinda í framkvæmd á tveimur árum og vera lokið í júní 2026, verði flýtt eins og kostur er og jafnframt að ráðist verði að rót vandans með því að styrkja tengsl og samstarf við helstu upprunaríki og ríki sem flótta- og farandfólks ferðast um á leið sinni til aðildarríkja ESB. Þá er lögð til sameiginleg nálgun við framkvæmd brottvísunarákvarðana en samkvæmt fyrirliggjandi gögnum leiða einungis um 20% slíkra ákvarðana í ESB í reynd til endursendingar eins og staðan er nú. Í því samhengi er boðað í bréfinu að gildandi regluverk á þessu sviði, þ.e. brottvísunartilskipunin frá árinu 2008 (e. Return Directive) verði endurskoðuð m.a. til að skerpa á ákvæðum um samstarfsskyldur þeirra sem brottvísað er og hvernig bæta megi endursendingarferlið. Þá er sérstaklega nefnt að skerpa þurfi á heimildum til að brottvísa einstaklingum sem eru taldir ógn við allsherjarreglu og innra öryggi óháð því hvaðan þeir koma. Tilgreint er að huga þurfi að nýstárlegum lausnum til að koma í veg fyrir komu fólks í óreglulegri för til Evrópu, svo sem með því að endurskoða skilgreiningar á því hvað teljast örugg þriðju ríki og halda áfram könnun á möguleikum á því að koma upp endursendingarmiðstöðvum (e. return hubs) utan ESB. Aðrar aðgerðir snúa að því að nýta betur stefnu sambandsins um áritunarfrelsi og önnur skyld málefnasvið til þess að efla samstarf og auka samstarfsvilja þriðju ríkja við endurviðtöku á eigin ríkisborgurum og til að takast á við mansal og smygl á fólki. Þá eru lagðar til aðgerðir til að bregðast við fjölþáttahernaði (e. hybrid warfare) og til að takast á við þær áskoranir sem átökin í Austurlöndum nær hafa í för með sér. Loks er tiltekið að tryggja þurfi stöðu Úkraínumanna sem nú eru búsettir innan ESB á grundvelli sérreglna um tímabundna vernd vegna árásarstríðs Rússlands gagnvart Úkraínu.

Harðlínuhópurinn innan leiðtogaráðsins

Fyrir fund leiðtogaráðs ESB var efnt til sérstaks óformlegs fundar leiðtoga ESB-ríkja sem tilheyra svonefndum harðlínuríkjahópi innan leiðtogaráðsins í málefnum flótta- og farandfólks. Forsprakkar fundarins voru forsætisráðherra Ítalíu, Giorgia Meloni, forsætisráðherra Hollands, Dick Schoof, og forsætisráðherra Danmerkur, Mette Frederiksen, en auk þeirra sátu fundinn leiðtogar Austurríkis, Kýpur, Tékklands, Grikklands, Ungverjalands, Möltu, Póllands og Slóvakíu auk fulltrúa framkvæmdastjórnar ESB, þ. á m. Von der Leyen sjálf sem kynnti efnisatriði og tillögur sem settar eru fram í framangreindu bréfi sínu til leiðtogaráðsins. Á fundinum kynnti Meloni einnig samkomulag sem Ítalía hefur gert við Albaníu um móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd frá ríkjum sem Ítalía telur örugg auk þess sem leiðtogarnir ræddu inntak skilgreininga á því hvað gætu talist örugg þriðju ríki og um möguleika á uppsetningu endursendingarmiðstöðva. Var það niðurstaða fundarins að ríkin myndu halda áfram að starfa náið saman og samræma afstöðu sína í málaflokknum. Sjá einnig hér til hliðsjónar sameiginlegt bréf þessara ríkja til framkvæmdastjórnar ESB frá því í maí sl.

Ályktanir leiðtogaráðsins

Í umræddum ályktunum leiðtogaráðsins kemur fram að innan ráðsins hafi farið fram ítarleg umræða um hvert stefna skuli í málefnum flótta- og farandfólks. Áréttað er að koma fólks til aðildarríkja ESB í óreglulegri för sé sameiginleg áskorun ríkjanna sem þarfnist sameiginlegra viðbragða. Leiðtogaráðið vísar til fyrrgreinds bréfs VdL og áréttar mikilvægi þess að hraða og tryggja innleiðingu nýrrar löggjafar ESB á þessu sviði, sbr. tilvísun til umfjöllunar í Vaktinni um þá löggjöf hér að framan, og jafnframt að gildandi regluverki verði beitt með virkum hætti til að bregðast við áskorunum sem uppi eru. Þá sé brýnt að auka samstarf við uppruna- og gegnumferðarríki til að sporna gegn smygli á fólki og huga að öruggum og löglegum leiðum til að tryggja reglulega og skipulega fólksflutninga í samræmi við valdheimildir aðildarríkjanna. Auka þurfi skilvirkni endursendinga með þverfaglegri nálgun á öllum viðeigandi málefnasviðum. Leiðtogaráðið hvetur framkvæmdastjórnina til að leggja fram sem allra fyrst tillögur að endurskoðun brottvísunartilskipunarinnar. Lýst er samstöðu með Póllandi og öðrum aðildarríkjum sem hafa þurft að takast á við fjölþátta árásir af hálfu Rússlands og Hvíta-Rússlands sem ógni gildum ESB og grafi undan lýðræði innan aðildarríkja þess. Áréttað er að sérstakar aðstæður krefjist sérstakra ráðstafana. Tryggja þurfi ytri landamæri sambandsins með öllum ráðum í samræmi við reglur ESB og alþjóðalög og að sífellt þurfi að leita nýrra leiða til að lágmarka komu fólks til ESB í óreglulegri för. Þá ítrekar leiðtogaráðið skuldbindingu sína um að vinna gegn misnotkun á farandfólki í pólitískum tilgangi (e. instrumentalisation).

Fundur ráðherra dóms- og innanríkismála innan Schengen-ráðsins

Segja má að tónninn að hörðum ályktunum leiðtogaráðsins hafi verið sleginn á fundi ráðherra dóms- og innanríkismála innan Schengen-ráðsins sem fram fór í Lúxemborg 10. október sl., eða viku fyrir fund leiðtogaráðsins en Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra sótti fundinn fyrir Íslands hönd.

Formleg dagskrá ráðherrafundarins hófst með kynningu Ylvu Johansson núverandi framkvæmdastjóra málaflokksins í framkvæmdastjórn ESB á Schengen Barometer+, sem felur m.a. í sér tölfræðilegt yfirlit um stöðuna í málaflokknum innan Schengen-svæðisins. Yfirlitið er uppfært tvisvar á ári og er ætlað að varpa ljósi á atriði sem geta haft áhrif á svæðið í heild sinni og auka þannig möguleika framkvæmdastjórnarinnar og aðildaríkjanna til að bregðast við í tæka tíð og til að efla samráð og greina veikleika í kerfinu. Samhliða því voru tekin til umræðu helstu forgangsmál Schengen-ráðsins fyrir næsta ár (e. Schengen Council cycle 2024-2025). Rauði þráðurinn þar er að auka viðnámsþol ytri landamæra ESB (e. resilience of external borders) sem er talið grundvallaratriði til að viðhalda og tryggja frjálsa för innan svæðisins, þ.e. án eftirlits á innri landamærum aðildarríkjanna sem hefur mjög færst í vöxt en í dag eru átta ríki með slíkt tímabundið eftirlit.

Á fundinum kynnti innanríkisráðherra Þýskalands ástæður að baki því að Þýskaland tilkynnti nýlega um upptöku tímabundins eftirlits á innri landamærum sínum og er meginástæðan sem tilgreind er sú að þýsk stjórnvöld telja að ytri landamæri Schengen-svæðisins séu ekki nægilega sterk og að Þjóðverjar hefðu orðið fyrir verulegum áhrifum af komu fólks í óreglulegri för, þ. á m. í áframhaldandi för innan svæðisins (e. secondary movement) með þeim hætti að komið væri að þolmörkum, bæði við móttöku nýrra umsækjenda um alþjóðlega vernd og við inngildingu þeirra sem hlotið hafa vernd í Þýskalandi. Lykilatriði væri að ríkið hefði getu til að reka gott verndarkerfi fyrir fólk í raunverulegri neyð og var í því sambandi ítrekað mikilvægi þess að þeir sem ekki fá vernd sé gert að yfirgefa Schengen-svæðið sjálfviljugt en ella í fylgd lögreglu.

Framangreint innlegg Þýskalands setti tóninn fyrir það sem á eftir kom. Flest ríki ítrekuðu mikilvægi þess að betri stjórn yrði náð á ytri landamærum Schengen-svæðisins. Auka þyrfti samstarf við þriðju ríki, bæði uppruna- og gegnumferðarríki, bæta þyrfti innleiðingu mikilvægra upplýsingatæknikerfa, svo sem komu- og brottfararkerfið (e. Entry/Exit System) og auka skilvirkni endursendinga, þ. á m. að endurskoða brottvísunartilskipunina og huga að nýstárlegum lausnum við endursendingar. Í þessu skyni þyrfti m.a. að útvíkka valdsvið Landamæra- og strandgæslustofnunar Evrópu (e. Frontex) og efla Löggæslusamvinnustofnun ESB (e. Europol). Þá þyrfti að innleiða hælispakka ESB hratt og vel, einkum reglugerðina um forskoðun umsókna um alþjóðlega vernd á ytri landamærum Schengen-svæðisins (e. Screening Regulation), auka eftirlit með framkvæmd stefnu um áritunarfrelsi og bæta notkun aðildarríkjanna á Schengen-upplýsingakerfinu (e. Schengen Information System) og vegabréfsáritunarupplýsingakerfinu (e. Visa Information System) sem og að efla varnir gegn fjölþátta ógnum (e. hybrid threats) svo sem misnotkun á farandfólki í pólitískum tilgangi.

Eitt af aðalumræðuefnum ráðherrafundarins var hvernig finna mætti leiðir til að auka skilvirkni endursendinga en það er jafnframt eitt af lykilforgangsmálum ungversku formennskunnar, sbr. umfjöllun um formennskuáætlun þeirra í Vaktinni 28. júní sl., auk þess sem það er hluti af stefnuáherslum VdL fyrir nýja framkvæmdastjórn, sbr. umfjöllun um stefnuáherslur VdL í Vaktinni 26. júlí sl. Skilvirkt endursendingarkerfi hefur almennt verið talið lykilforsenda þess að unnt sé að reka trúverðuga fólksflutningastefnu í ESB og er endursendingarkerfið lykilþáttur í landamærastefnu sambandsins. Talið er að veruleg tækifæri séu til umbóta á því kerfi.

Almennt voru öll ríkin sammála um að það væri mikið forgangsmál að auka skilvirkni endursendinga. Ýmsar hindranir væru til staðar í gildandi kerfi og regluverki sem hefði áhrif á framkvæmd og skilvirkni. Ráðast þyrfti í endurskoðun brottvísunartilskipunarinnar en tillaga að endurskoðun þeirrar tilskipunar (e. Recast Return Directive), kom fram árið 2018 en hefur ekki náð fram að ganga. Mikilvægt væri að regluverkið endurspegli raunverulega stöðu í málaflokknum eins og hún er í dag en í því sambandi var m.a. vísað til þess að endurskoða þyrfti skilgreiningar á því hvað teldust örugg upprunaríki, og kveða skýrar á um samstarfsskyldur einstaklinga við brottvísun og hvaða afleiðingar það hafi ef viðkomandi sýnir ekki samstarfsvilja, hvenær vista megi einstaklinga í brottfararúrræði (e. detention center) og almennt að tryggja að ekki verði unnt að misnota verndarkerfið til að stöðva framkvæmd brottvísunarákvarðana. Þá var kallað eftir því að hugað yrði að nýstárlegum leiðum í þessum efnum, t.d. með fyrrgreindum endursendingarmiðstöðvum (e. return hubs) í öruggum þriðju ríkjum. Þá þyrfti að tryggja innleiðingu á reglugerð ESB um brottvísunarferli á ytri landamærum (e. Return Border Procedure Regulation), sem er hluti af hælispakkanum, sem talið er að muni hafa jákvæð áhrif og létta á þrýstingi á ytri landamærum svæðisins.

Ráðherrarnir áréttuðu jafnframt mikilvægi þess að bæta og nýta betur þau úrræði sem væru til staðar í gildandi regluverki. Þeir nefndu m.a. nauðsyn þess að beita þriðju ríki þrýstingi til að knýja á um betra samstarf við endurviðtöku á eigin ríkisborgurum m.a. með því að beita vegabréfsáritunarstefnu ESB og tengja saman stefnu í málefnum útlendinga við fleiri málefnasvið svo sem við viðskiptastefnu og þróunarsamvinnu. Þá fór fram umræða um öryggisógnir og endursendingar hættulegra einstaklinga.

Viðræður um aðild Moldóvu að ESB halda áfram eftir nauman sigur í þjóðaratkvæðagreiðslu

Í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fór í Moldóvu síðastliðinn sunnudag var samþykkt að binda markmið um aðild að ESB í stjórnarskrá landsins með naumum meirihluta eða 50,4% atkvæða. Hart var tekist á í kosningabaráttunni en talið er að rússnesk stjórnvöld hafi reynt að hafa áhrif á niðurstöður hennar og hafa þau m.a. verið sökuð um að hafa borið fé á kjósendur gegn loforði um að þeir greiddu atkvæði gegn stjórnarskrárbreytinunni.

Viðræður Moldóvu um aðild að ESB munu því halda áfram í samræmi við framangreinda niðurstöðu. Viðræðurnar hófust formlega hinn 25. júní sl. og er stefnt að því að opna samningskafla sem varða réttarríkið, vernd mannréttinda og lýðræðislegt stjórnarfar á fyrri hluta næsta árs, þegar Pólland fer með formennsku í ráðherrarráði ESB. Núverandi ríkisstjórn Moldóvu hefur mjög metnaðarfull áform um framhald aðildarviðræðnanna og stefna þau að því að viðræður um þá kafla sem varða innri markaðinn og utanríkismál geti einnig hafist á næsta ári. Stefna stjórnvöld í Moldóvu að því að aðildarviðræðum geti verið lokið árið 2027.

Þjóðaratkvæðagreiðslan fór fram samhliða forsetakjöri í Moldóvu þar sem sitjandi forseti, sem jafnframt er eindregin stuðningsmaður ESB-aðildar, Maia Sandu, var í framboði og fékk hún um 42% atkvæða. Alexandr Stoianoglo, sem var andvígur tillögunni sem lögð var fyrir þjóðaratkvæði sl. sunnudag og er studdur af stjórnmálaflokki sem talinn er hallur undir stjórnvöld í Moskvu,, fékk næst flest atkvæði eða 26,1% og verður því kosið um þau tvö í seinni umferð forsetakjörsins sem fram fer sunnudaginn 3. nóvember nk.

Enda þótt núverandi forseti, Maia Sandu, hafi fengið afgerandi flest atkvæði í fyrri umferð, er hún þó ekki talin fyllilega örugg með sigur í seinni umferð. Tapi hún kosningunum er verulega óvíst um framgang aðildarumsóknar Moldóvu að ESB enda þótt framangreint markmið hafi verið fest í stjórnarskrá landsins. Flokkur Maiu Sandu, er nú með hreinan meirihluta á Moldóvska þinginu eða 62 þingmenn af 101 en þingkosningar fara fram í Moldóvu á næsta ári og mun það væntanlega ekki skýrast endanlega fyrr en þá hvort ríkið fetar brautina áfram í átt til aðildar að ESB eða ekki. Er óttast að rússnesk stjórnvöld muni, líkt og í nýafstaðinni þjóðaratkvæðagreiðslu, reyna að hafa áhrif niðurstöður seinni umferðar forsetakjörsins sem og á niðurstöður komandi þingkosninga á næsta ári.

Moldóva hefur fylgt Úkraínu í umsóknarferli sínu að ESB og eru taldar líkur á því að þessi lönd gangi í takt allt umsóknarferlið, þ.e. ef pólitísk öfl sem eru hlynnt aðild halda velli. Sjá nánar um stuðning ESB við Moldóvu og Úkraínu og framgang aðildarviðræðna við ríkin í Vaktinni 11. október sl.

Leiðarstef ESB gagnvart framtíðarstækkun sambandsins er hins vegar stækkun á grundvelli verðleika (e. „merit-based enlargement“). Í þessu felst að framvinda aðildarviðræðna við einstök umsóknarríki er háð því hversu vel þau eru í stakk búin til þess að uppfylla þær kröfur sem ESB gerir til aðildarríkja sinna.

ESB hefur þannig tekið upp nýja nálgun í aðildarviðræðum þar sem vernd réttarríkisins, mannréttinda og lýðræðislegs stjórnarfars eru sett í öndvegi. Í þessari nálgun felst að samningsköflunum í viðræðunum er nú skipt í nokkra klasa og heyra samningskaflar sem varðar réttarríkið, sjálfstæði dómstóla, vernd mannréttinda og lýðræðislegt stjórnarfar undir einn klasa sem nefndur er grundvallarklasi. Samningskaflarnir sem falla undir þennan klasa eru þeir fyrstu sem opnaðir verða í viðræðunum en þeim verður líka lokað síðast.

Núverandi ríkisstjórn Moldóvu hefur þegar ráðist í umtalsverðar umbætur á stjórnkerfi og efnahagslífi landsins. Eigi að síður er það mat framkvæmdastjórnar ESB að enn sé mikið verk óunnið til að unnt sé að segja að ríkið sé í stakk búið til þess að takast á hendur fulla aðild að ESB og raunar er talið að lyfta þurfi Grettistaki í þeim efnum.

Framvinda aðildarviðræðnanna er því háð því að ríkisstjórn landsins haldi áfram umbótum á stjórnkerfi ríkisins og í efnahagsmálum. Ljóst er að til þess mun þurfa sterkan pólitískan stuðning og því mun önnur umferð forsetakosninganna hafa mikið um framhaldið að segja.

ESB hefur veitt Moldóvu talsverðan stuðning, þ.m.t. fjárhagsstuðning, til að koma þessum umbótum til framkvæmda. Nýjasti þátturinn í þeim stuðningi er svonefnd „hagvaxtaráætlun“ fyrir Moldóvu (e. Growth Plan) sem Ursula von der Leyen, kynnti hinn 10. október sl. í Chișinău, höfuðborg Moldóvu, á sameiginlegum blaðamannafundi hennar og Maiu Sandu, forseta Moldóvu. Í áætluninni felst m.a. að ESB mun veita 1,8 milljörðum evra á næstu þremur árum til að styrkja efnahag landsins, m.a. til að standa undir uppbyggingu samgöngumannvirkja, efla orkuöryggi með því að styrkja uppbyggingu raforkunetsins, uppbyggingu tveggja nýrra sjúkrahúsa, fjármögnun á uppbyggingu á ljósleiðarkerfi og framlög til að auðvelda fyrirtækjum í landinu að nálgast lánsfjármagn og fjárhagsstuðning. Fjárhagsstuðningur ESB til Moldóvu er hins vegar háður því skilyrði að stjórnvöld þar í landi haldi áfram að hrinda nauðsynlegum efnahags- og stjórnarfarsumbótum í framkvæmd.

Þau lönd sem álitið er að komin séu lengst í aðildarviðræðunum við ESB um þessar mundir eru Svartfjallaland og Albanía. Moldóva og Úkraína koma þar á eftir, auk Norður-Makedóníu.

Almennt er á hinn bóginn litið svo á að framgangur aðildarumsóknar Georgíu hafi stöðvast fyrr á árinu þegar þing landsins samþykkti umdeild lög sem þykja sniðin af sambærilegum lögum í Rússlandi sem talin eru takmarka verulega starfsemi frjálsra félagasamtaka í landinu og frelsi fjölmiðla, sbr. einnig nýlega löggjöf sem talin er beinast gegn hinsegin fólki. Þingkosningar verða í Georgíu á morgun, laugardag, og verður áhugavert að sjá niðurstöður þeirra kosninga. Stærsti flokkur landsins, Georgíski draumurinn, sem er nú með 74 þingmenn af 150 eða rétt tæpan helming þingmanna, myndar meirihluta á georgíska þinginu með stuðningi tveggja annarra flokka, People‘s Power sem eru með 9 þingmenn og European Socialists sem eru með 4 þingmenn. Georgía sótti um aðild að ESB árið 2022 undir forystu núverandi stjórnvalda en stjórnarandstaðan í landinu er þó í reynd talin mun meira fylgjandi ESB aðild landsins en stjórnarflokkarnir.

Reglugerð um varnir gegn eyðingu skóga

Í maí í fyrra samþykkti ESB reglugerð um varnir gegn eyðingu skóga (e. deforestation regulation). Með reglugerðinni eru settar hömlur á markaðsetningu vara á innri markaðnum ef álitið er að hráefnið í vörurnar komi frá ræktunarlandi sem áður var skógi vaxið en hefur verið rutt. Kemur reglugerðin í staðinn fyrir eldri gerð sama eðlis sem þó náði aðeins til viðskipta með timbur.

Skógar þekja nú um 30% alls landsvæðis á jörðinni en sú hlutfallstala fer sífellt minnkandi sem er sérstakt áhyggjuefni enda er mikilvægi skóga í vistkerfi jarðarinnar og í loftlagsmálum almennt talið gríðarlega mikilvægt. Þannig er talið að skógar hýsi um 80% af líffræðilegum fjölbreytileika sem finnst á landi. Í mörgum löndum hafa skógar verið ruddir til að búa til ræktunarland án þess að hugað hafi verið að mikilvægi þeirra fyrir loftslagið og líffræðilegan fjölbreytileika. Markmið ESB er að sporna við þessari þróun með vogarafli markaðarins.

Eins og áður segir náði eldri reglugerð sambandsins einungis til viðskipta með timbur en með nýrri reglugerð er öðrum ræktuðum landbúnaðarvörum s.s. nautakjöti, kakói, kaffi, pálmaolíu, gúmmíi, sojabaunum og afleiddum vörum bætt við.

Þessi gerð kallar á viðbrögð aðila sem markaðssetja ofangreindar vörur á innri markaðinum, og er m.a. gerð krafa um áreiðanleikakönnun fyrir hverja vöru í ofangreindum vöruflokkum sem sannar að hún sé ekki ræktuð á landi þar sem skógur hefur verið ruddur samkvæmt nánari skilgreiningum.

Gerðin er að meginstefnu til talin falla undir EES-samninginn og er hún nú í upptökuferli. Vegna umfangs gerðarinnar og nauðsynlegs undirbúnings allra aðila sem málið varðar hefur nú verið á ákveðið að fresta gildistöku gerðarinnar innan ESB um eitt ár frá því sem upphaflega var áætlað, en gerðin átti að taka gildi nú í árslok fyrir stærri fyrirtæki og 30. júní 2025 fyrir minni fyrirtæki, en nú er áætlað að gerðin taki gildi í árslok 2025 fyrir stærri fyrirtæki og 30. júní 2026 fyrir minni fyrirtæki. Þá hefur ESB birt sérstakar leiðbeiningar fyrir aðildarríkin og þriðju ríki og aðra hlutaðeigandi aðila um væntanlega framkvæmd löggjafarinnar.

Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins, í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra. Leiðréttingar, ábendingar og athugasemdir sendist til ritstjóra Vaktarinnar, Ágústs Geirs Ágústssonar, á netfangið [email protected].

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

11. október 2024 | Þverlægar gerðir og áskoranir sem þeim fylgja |
Að þessu sinni er fjallað um:

skýrslu átakshóps EFTA um þverlægar gerðir

skýrslu um framtíð landbúnaðar í ESB

viðræður við ESB um samstarf á sviði heilbrigðismála

fyrsta samning HERA-Invest

endurskoðun tilmæla um reyklaus svæði

jöfnunartolla á kínverska rafbíla

aukinn stuðning ESB við Úkraínu og Moldóvu

skipulag þinglegrar meðferðar tillögu VdL um nýja framkvæmdastjórn

Skýrsla átakshóps EFTA um þverlægar gerðir

Efnisyfirlit umfjöllunar:

Inngangur

Breyttur veruleiki – breytt sýn

Áskoranir í tengslum við þverlægar gerðir frá sjónarhóli EES-samningsins

Heildstætt mat – þrír meginþættir sem hafa þarf augun á

Áhrif og mögulegar afleiðingar þess ef ákveðið er taka þverlæga gerð ekki upp í EES-samninginn

Strategískar spurningar

Ályktanir og ráðleggingar

Inngangur

Eins og fjallað hefur verið um í Vaktinni á umliðnum misserum við margvísleg tilefni, sbr. m.a. umfjöllun Vaktarinnar 24. nóvember 2023 um strategískt sjálfræði ESB og þróun innri markaðarins, þá hefur það færst mjög í vöxt á vettvangi ESB að einstakar löggjafartillögur og gerðir mæli ekki aðeins fyrir um málefni innri markaðarins í hefðbundnum skilningi, heldur taki til þátta eða stefnumörkunar sem fellur utan við gildissvið EES-samningsins, t.d. varðandi:

viðskiptastefnu ESB gagnvart þriðju ríkjum,

iðnaðarstefnu ESB,

ráðstafanir sem snúa að efnahagslegu öryggi ESB og hagvörnum

eða ráðstafanir til að ná markmiðum í tengslum við græn og stafræn umskipti.

Framangreind löggjafarþróun á vettvangi ESB endurspeglar breytta sýn ESB á innri markaðinn sem mótast hefur samhliða þeim breytingum sem hafa átt sér stað í alþjóðasamskiptum og -viðskiptum á umliðunum árum og þeim krísum sem riðið hafa yfir, fyrst með kórónuveirufaraldrinum og í framhaldi af honum með árásarstríði Rússlands gagnvart Úkraínu. Þessar krísur þykja hafa varpað ljósi á veikleika ESB á ýmsum sviðum svo sem á sviði orkumála, heilbrigðismála, öryggis- og varnarmála, samkeppnismála og síðast en ekki síst á sviði efnahagsöryggismála. Jafnframt er ESB í vaxandi mæli að bregðast við breyttri stöðu í alþjóðamálum, þar sem helstu efnahagsveldi heims hafa í vaxandi mæli gripið til verndarstefnu í utanríkisviðskiptum og virðing fyrir alþjóðalögum og grundvallarreglum alþjóðasamfélagsins hefur farið þverrandi. Til að bregðast við hefur ESB í sífellt auknum mæli kosið að nýta innri markaðinn, afl hans og styrk, sem tæki til að vinna gegn framangreindum veikleikum.

Tillögur af þessu tagi fela jafnan í sér áskoranir er kemur að upptöku þeirra í EES-samninginn, enda þótt meginefni þeirra kunni að falla skýrlega undir gildissvið hans.

Til að leggja mat á stöðuna og hvernig megi bregðast við henni skipaði fastanefnd EFTA í júlí 2023 sérstakan átakshóp um þverlægar ESB-gerðir (e. Task Force on Files with Distinctive Horizontal Dimensions). Hópurinn hefur nú skilað skýrslu til fastanefndarinnar undir yfirskriftinni Cross-sectoral EU initiatives: The way ahead for the EEA.

Er það ein af megin niðurstöðum skýrslunnar að hætta sé á að þverlægar gerðir geti leitt til þess EES/EFTA-ríkin verði í einhverjum tilvikum talin til þriðju ríkja í löggjöf ESB sem varðar innri markaðinn. Það fylgir sú hætta að til verði tveggja þrepa innri markaður þar sem EES/EFTA-ríkin standi skör lægra og standi jafnvel frammi fyrir nýjum viðskiptahindrunum með tilheyrandi afleiðingum fyrir samkeppnishæfni atvinnulífs í ríkjunum.

Hér á eftir eru helstu efnisatriði skýrslunnar rakin í stuttu máli.

Breyttur veruleiki – breytt sýn

Í fyrstu tveimur köflum skýrslunnar er rakið í stuttu máli hvernig hugmyndafræði og sýn ESB á innri markaðinn hefur þróast og breyst á allra síðustu árum. Í þeim efnum markaði Versalayfirlýsing leiðtogaráðs ESB (e. Versailles Declaration) sem samþykkt var á fundi ráðsins 10. og 11. mars 2022, einungis nokkrum dögum eftir að Rússar réðust á Úkraínu, hvað skýrust skil, sbr. einnig Granadayfirlýsinguna (e. Granada declaration) sem samþykkt var á fundi leiðtogaráðsins 6. október 2023, sbr. umfjöllun um þessar yfirlýsingar í Vaktinni 13. október 2023. Frá útgáfu Versalayfirlýsingarinnar hafa fjölmargar löggjafartillögur og gerðir litið dagsins ljós sem endurspegla hina breyttu sýn.

Sumar þessara löggjafartillagna byggja á svonefndri framkvæmdaáætlun Græna sáttmálans (e. Green Deal Industrial Plan for the Net-Zero Age) sem framkvæmdastjórn ESB birti 1. febrúar 2023, svo sem ný reglugerð um kolefnishlutlausan tækniiðnað (e. Net-Zero Industry Act), sbr. umfjöllum um þá gerð í Vaktinni 16. febrúar sl., og reglugerð um mikilvæg hráefni (e. Critical Raw Materials Act), sbr. umfjöllun um þá gerð í Vaktinni 24. nóvember sl. o.fl., sbr. einnig umfjöllun Vaktarinnar 24. mars 2023 um framfylgd þeirrar áætlunar. Ýmsar aðrar löggjafartillögur og gerðir fjalla einnig í þennan flokk, svo sem ný löggjöf um hálfleiðara (e. The European Chips Act), sbr. umfjöllun Vaktarinnar um þá tillögu 21. apríl 2023, gerð um auknar valdheimildir framkvæmdastjórnar ESB til ráðstafana á innri markaði í neyðaraðstæðum (e. Single Market Emergency Instrument - SMEI), sbr. umfjöllun um þá gerð í Vaktinni 23. september 2022, bann við að setja vörur sem framleiddar eru með nauðungarvinnu á markað í ESB (e. Forced labour products ban), sbr. umfjöllun um þá gerð í Vaktinni 23. september 2022, tillögur um heildarendurskoðun á tollkerfi bandalagsins (e. EU Customs Reform), sbr. umfjöllun um þá gerð í Vaktinni 9. júní 2023, gerð um kolefnisjöfnunargjald við landamæri (e. Carbon Border Adjustment Mechanism, CBAM), sbr. umfjöllun um þá gerð í Vaktinni 23. júní 2023, og þannig mætti áfram telja, sbr. viðauka II í skýrslunni þar sem finna má upptalningu á öllum gerðum ESB sem fela í sér eða eru taldar fela í sér þverlæga reglusetningu af því tagi sem hér um ræðir.

Breytt sýn ESB á innri markaðinn endurspeglast ekki einungis í einstökum gerðum heldur einnig í heildarstefnumótun ESB á ýmsum grundvallarsviðum. Framkvæmdaáætlun Græna sáttmálans, sem áður var nefnd, er ein birtingarmynd þessa, en einnig má nefna, líkt og gert er í skýrslunni, nýja efnahagsöryggisáætlun ESB, sbr. umfjöllun um þá áætlun í Vaktinni 23. júní 2023, sbr. og umfjöllun Vaktarinnar 2. febrúar sl. um framfylgd þeirrar áætlunar, og nýja stefnumótun ESB á sviði varnarmála, sbr. umfjöllun um þá stefnumótun í Vaktinni 15. mars sl.

Ef litið er fram á við þá má jafnframt ráða af nýrri stefnuáætlun leiðtogaráðs ESB og stefnuáherslum forseta framkvæmdastjórnar ESB, Ursulu von der Leyen (VdL), sbr. einnig skýrslu Draghi annars vegar og skýrslu Letta hins vegar, að þverlæg stefnumörkun og lagasetning á vettvangi ESB muni síst minnka á komandi stefnumótunartímabili heldur þvert á móti, sbr. umfjöllun um þessi stefnuskjöl í Vaktinni 28. júní sl. og í Vaktinni 26. júlí sl., sbr. einnig umfjöllun um Draghi-skýrsluna í Vaktinni 13. september sl. og um Letta-skýrsluna í Vaktinni 19. apríl sl.

Áskoranir í tengslum við þverlægar gerðir frá sjónarhóli EES-samningsins

Í skýrslunni er þverlægum gerðum (og þverlægri stefnumótun) og áskorunum sem af þeim rísa við rekstur og framkvæmd EES-samningsins gróflega skipt í fjóra efnisflokka þ.e.:

Gerðir sem fela í sér ákvæði um viðskipti við þriðju ríki.

Gerðir sem fela í sér ákvæði um framkvæmd iðnaðarstefnu ESB.

Gerðir sem fela í sér ákvæði sem lúta að öryggis- og varnarmálum ESB.

Gerðir sem fela í sér ákvæði um strategíska beitingu og notkun á samstarfsáætlunum og samkeppnissjóðum ESB.

Nánar um framangreinda efnisflokka:

1) EES-samningurinn tekur ekki til viðskipta við þriðju ríki eða sameiginlegrar stefnumótunar á því sviði né heldur til annarrar reglusetningar almennt um samskipti við þriðju ríki. Sökum þess að ESB leitast í sífellt auknum mæli eftir því að ná fram markmiðum sínum í viðskipum við þriðju ríki með reglusetningu og beitingu innri markaðarins verður sífellt erfiðara að greina skýrlega á milli reglusetningar um innri markaðinn annars vegar og hins vegar reglusetningar sem miðar að því að hrinda viðskiptastefnumótun ESB í framkvæmd.

2) EES-samningurinn felur ekki sér sameiginlega iðnaðarstefnu milli samningsaðila. Áskoranir geta því komið upp þegar markmið gerðar er jöfnum höndum að framfylgja slíkri stefnu og auka viðnámsþol innri markaðarins.

3) EES-samningurinn tekur ekki til sameiginlegrar utanríkisstefnu ESB eða sameiginlegrar öryggis- og varnarmálastefnu ESB og hafa gerðir sem varða þessi málefni í samræmi við það almennt verið taldar falla utan gildissviðs samningsins. Á þessu hafa verið tilteknar undantekningar þegar upptaka gerða í samninginn hefur verið talin nauðsynleg til tryggja einkaréttarlega stöðu einstaklinga og fyrirtækja á innri markaðinum. Nú er hins vegar fyrirséð að ný varnarmálastefna ESB og framfylgd hennar geti mögulega skapað nýjar áskoranir á þessu sviði.

4) EES-samningurinn tryggir rétt EES/EFTA-ríkjanna til þátttöku í flestum samstarfsáætlunum ESB og hefur Ísland nýtt sér þann rétt í ríkum mæli, sbr. til hliðsjónar umfjöllun Vaktarinnar 23. júní sl. um nýjan tækniþróunarvettvang ESB. Strategísk beiting og notkun á samstarfsáætlunum og samkeppnissjóðum ESB í þágu markmiða ESB á sviðum sem falla utan gildissviðs EES-samningsins getur því raskað hagsmunum og þátttökugrundvelli EES/EFTA-ríkjanna í þessum áætlunum.

Það getur síðan flækt málin enn frekar þegar þverlægar gerðir hafa að geyma tilvísanir til hvor annarra.

Sjá nánari umfjöllun um framangreinda efnisflokka í 3. kafla skýrslunnar.

Heildstætt mat – þrír meginþættir sem hafa þarf augun á

Í skýrslunni er sérstaklega undirstrikað að við mat á einstökum þverlægum gerðum sé mikilvægt að til staðar sé breiður skilningur á þeirri stefnumótun sem er undirliggjandi og markmiðasetningu sem henni fylgir. Ella sé hætt við því að mikilvæg atriði misfarist og að nálgun við rekstur samningsins verði brotakennd. Skýrsluhöfundar skilgreinda þrjá meginþætti í stefnumótun ESB sem hafa þarf augun á sérstaklega, þ.e.:

Ný nálgun ESB á öryggi aðfangakeðja á innri markaðinum.

Breyttur skilningur ESB á efnahagslegu öryggi.

Aukið hlutverk tollyfirvalda við verndun innri markaðarins.

Sjá nánari umfjöllun um þessa þrjá meginþætti í 4. kafla skýrslunnar.

Áhrif og mögulegar afleiðingar þess ef ákveðið er taka þverlæga gerð ekki upp í EES-samninginn

Í skýrslunni eru skilgreind áhrif og mögulegar áhættur sem geta falist í því fyrir EES/EFTA-ríkin ef komist er að þeirri niðurstöðu í einstökum tilvikum að þverlæg gerð skuli ekki tekin upp í EES-samninginn. Skilgreindir áhættuþættir eru eftirfarandi:

Að EES/EFTA-ríkin verði skilgreind og meðhöndluð sem þriðju ríki á innri markaðnum á viðkomandi sviði.

Að gerðar verði meiri kröfur til vöruútflutnings frá EES/EFTA-ríkjunum til ESB en almennt gildir um frjálsa vöruflutninga á innri markaðinum.

Að EES/EFTA-ríkin njóti ekki ráðstafana sem ESB gerir til að tryggja öryggi aðfangakeðja á innri markaðnum með tilheyrandi áhættu fyrir samkeppnishæfni ríkjanna ef á reynir.

Að ESB kunni að grípa til ráðstafana gagnvart EES/EFTA-ríkjunum ef það telur að ríkin séu í einhverjum tilvikum notuð til að sniðganga ESB-reglur við innflutning vara inn á innri markaðinn (e. Anti-circumvention measures).

Að orðspor EES/EFTA-ríkjanna sem áreiðanlegra samstarfsaðila á innri markaðnum geti beðið hnekki.

Sjá nánari umfjöllun um framangreinda áhættuþætti í 5. kafla skýrslunnar.

Strategískar spurningar – heildstætt mat

Eins og áður segir er lögð rík áhersla á það í skýrslunni að innan EES/EFTA-ríkjanna sé skilningur á þeim breytingum sem orðið hafa á alþjóðapólitískum áherslum ESB og á hvern hátt sambandið beiti innri markaðnum til að ná efnahagspólitískum markmiðum og efla samkeppnishæfni hans gagnvart öðrum viðskiptablokkum. Gæta verði að því að ákvarðanir EES/EFTA-ríkjanna leiði ekki að ófyrirsynju til þess að ríkin verði í reynd meðhöndluð sem þriðju ríki á innri markaðnum, sbr. þær hættur sem skilgreindar eru í skýrslunni og fjallað er um hér að framan. Í því samhengi sé mikilvægt að EES/EFTA-ríkin marki sér sameiginlega afstöðu til þess hvernig meðhöndla skuli þverlægar gerðir.

Fara þurfi heildstætt yfir hvaða afleiðingar það hafi að innleiða ekki þverlæga gerð í samninginn og leggja nður fyrir sér hvort núverandi mat á því hvaða gerðir tilheyri innri markaðnum sé fullnægjandi til að bregðast við þróuninni innan EES. Að sama skapi þurfi ávallt að spyrja hvort upptaka gerða í samninginn geti raskað sambandi EES/EFTA-ríkjanna við önnur náin samstarfsríki þeirra. Nánar tiltekið þarf að meta eftirtalin atriði heildstætt:

Hvort tilgangur gerðar sé að koma í veg fyrir uppbrot á innri markaðinum almennt?

Hvort ákvörðun um að taka gerð ekki upp geti skaðað hagsmuni EES/EFTA-ríkjanna og efnahagslegt öryggi þeirra?

Hvort upptaka gerðar í samninginn hafi áhrif á gildissvið hans?

Hvort og þá hvernig upptaka gerðar sé í samræmi við strategískar áherslur EES/EFTA-ríkjanna við upptöku annarra þverlægra gerða?

Ályktanir sem dregnar eru í skýrslunni og ráðleggingar byggðar á þeim

Í lokakafla skýrslunnar eru settar fram ályktanir og ráðleggingar til stofnana EFTA og EES/EFTA-ríkjanna. Lögð er áhersla á það sérkenni EES-samningsins að eðli og inntak hans sé í stöðugri þróun með upptöku nýrra gerða í samninginn. Á þeirri vegferð síðastliðin 30 ár hafa báðir samningsaðilar verið lausnamiðaðir með hagsmuni beggja samningsaðila að leiðarljósi. Brýnt sé að nálgast rekstur samningsins þannig áfram enda þótt svigrúm til aðlögunar innan gildissvið EES-samningsins sé engan veginn ótakmarkað.

Tilmæli eða ráðleggingar sem settar eru fram í skýrslunni eru eftirfarandi.

Almennar ráðleggingar:

Að viðhöfð sé virk vöktun á þróun innri markaðarins allt frá því að fyrstu hugmyndir um breytingar koma fram.

Að sjónarhorni og afstöðu EES/EFTA-ríkjanna sé komið á framfæri í stefnumótunarferlum innan ESB þegar við á.

Að leitast sé við að leiða fram og undirbyggja umræður um þverlægar gerðir og þverlæga stefnumótun á meðal hagaðila í EES/EFTA-ríkjunum.

Að tryggja hraða málsmeðferð við upptöku þverlægra gerða þar sem EES/EFTA-ríkin hafa sammælst um upptöku.

Að þess sé gætt að bæði séu metin áhrif af því að taka gerð upp og að taka hana ekki upp.

Að leita leiða til að lágmarka áhrif þess á einsleitni innri markaðarins þegar tillögur að nýjum gerðum eru einungis taldar falla undir EES-samninginn að hluta.

Að tryggja eins og unnt er að þverlægar gerðir og möguleg upptaka þeirra raski ekki sambandi EES/EFTA-ríkjanna við náin samstarfsríki utan ESB.

Ráðleggingar til stofnana EFTA eru eftirfarandi:

Til fastanefndar EFTA:

Að athugun hennar á áskorunum vegna þverlægra gerða verði framhaldið í samræmi við ályktanir og ráðleggingar í skýrslunni.

Að skipulag nefndarinnar, undirnefnda hennar og vinnuhópa sé í stöðugri endurskoðun með hliðsjón af þróun mála hjá ESB.

Að beina því til undirnefnda og vinnuhópa að meta þverlægar gerðir frá öllum sjónarhornum eins og lagt er til í skýrslunni.

Að leggja fram áætlun fyrir árslok 2024 um hvernig brugðist verði við ábendingum og ráðleggingum í skýrslunni.

Að innleiðingu á ályktunum og ráðleggingum sem settar eru fram í skýrslunni verði fylgt eftir, t.d. með reglulegri skýrslugjöf EFTA-skrifstofunnar til nefndarinnar.

Til EFTA-skrifstofunnar:

Að efla enn frekar snemmtæka vöktun á þverlægri stefnumótun og gerðum hjá ESB.

Að styðja við þverfaglegt mat á vettvangi undirnefnda fastanefndar EFTA og vinnuhópa.

Að undirbyggja virkt samtal við ESB á fyrstu stigum stefnumótunar þegar við á.

Að sjá til þess að ályktanir og ráðleggingar átakshópsins skili sér við þjálfun sérfræðinga á sviði EES-mála.

Ráðleggingar verkefnishópsins heilt yfir:

Að fastanefnd EFTA, EES/EFTA-ríkin og skrifsstofa EFTA leggist sameiginlega á árarnar til að tryggja að þverlæg stefnumótun og gerðir séu teknar tímanlega til skoðunar og mats í samræmi við framangreint.

Skýrsla um framtíð landbúnaðar í ESB

Í síðasta mánuði kom út skýrsla um framtíð landbúnaðar í ESB (e. Strategic Dialogue on the future of EU agriculture) sem unnin var að beiðni Ursulu von der Leyen (VdL) forseta framkvæmdastjórnar ESB. Alls komu um 30 hagsmunaaðilar að gerð skýrslunnar en verkefninu var stýrt af Peter Strohschneider fyrrverandi prófessors við tækniháskólann í Dresden í Þýskalandi.

Gert er ráð fyrir að stuðst verði við tillögur skýrslunnar við mótun nýrrar framtíðarstefnu í landbúnaði og matvælaframleiðslu í ESB (e. Vision for Agriculture and Food) sem VdL hefur boðað að birt verði á fyrstu 100 starfsdögum nýrrar framkvæmdastjórnar sem mun væntanlega taka við 1. desember nk., sbr. umfjöllun Vaktarinnar 26. júlí sl. um stefnuáherslur VdL, sbr. einnig umfjöllun Vaktarinnar 27. september sl. um tillögu VdL að nýrri framkvæmdastjórn. Í drögum að erindisbréfum nýrra framkvæmdastjóra sem fylgir tillögunni er skýrslan tilgreind sérstaklega, sem ein af fjórum skýrslum, sem framkvæmdastjóraefnum er gert að horfa sérstaklega til í störfum sínum. Hinar þrjár skýrslunar sem vísað er til eru skýrsla Mario Draghi um samkeppnishæfni ESB til framtíðar, sbr. umfjöllun Vaktarinnar 13. september sl., um þá skýrslu. Í öðru lagi væntanleg skýrsla Sauli Niinistö, fyrrverandi forseta Finnlands, um hvernig styrkja megi viðbúnað og getu ESB í varnar- og öryggismálum og í þriðja lagi skýrsla Enrico Letta um framtíð innri markaðarins, sbr. umfjöllun Vaktarinnar 19. apríl sl. um þá skýrslu.

Helstu tillögur skýrslunnar eru:

Að styrkja stöðu bænda í virðiskeðju matvæla:
Með því að hvetja bændur til að vinna betur saman, draga úr kostnaði, auka skilvirkni og bæta verðmyndun afurða og tryggja sanngjarna tekjuafkomu. Þetta krefst virkra aðgerða á vettvangi ESB og meðal einstakra aðildarríkja. Aðgerðirnar eiga að miða að því að auka samkeppnishæfni bænda og gagnsæi í matvælaframleiðslunni, styðja við sjálfbærni o.s.frv.

Að innleidd verði ný nálgun um sjálfbærni:
Með því að viðhalda og framfylgja núgildandi löggjöf ESB og finna leiðir til að bæta framkvæmd hennar og setja á fót ESB-kerfi til samanburðarmælinga í landbúnaði og matvælaframleiðslu.

Að ráðist verði í breytingar á landbúnaðarstefnu ESB (e. CAP):
Með því að aðlaga stefnuna að nýjum áskorunum og flýta fyrir grænum umskiptum í framleiðslu og dreifingu landbúnaðarvara. Einnig er talin þörf á breytingum með hliðsjón af stækkunaráformum ESB.

Að tryggja fjármögnun vegna grænna umskipta:
Með því m.a. að stofna bráðabirgðasjóð til að styðja við hröð umskipti í átt að sjálfbærni í landbúnaðargeiranum og til að tryggja að umskiptin séu réttlát.

Að efla sjálfbærni og samkeppnishæfni í utanríkisviðskiptum með landbúnaðarvörur:
Með því að tryggja betra samræmi milli viðskiptastefnu og sjálfbærnistefnu í landbúnaði og auka skilning á mikilvægi landbúnaðar og matvælaframleiðslu í viðskiptasamningum við önnur ríki.

Að tryggja framboð af heilsusamlegum og umhverfisvænum matvælum:
Með því að aðlaga framboð af landbúnaðarvörum að eftirspurn og breyttum neysluvenjum fólks og leita leiða til að ná jafnvægi á milli neyslu dýrapróteina og plöntupróteina.

Að efla sjálfbæra landbúnaðarhætti:
Með því að ráðast í brýnar og metnaðarfullar aðgerðir til að tryggja að landbúnaðarframleiðsla gangi ekki um of á náttúruna og stuðli að verndun loftslags, náttúruauðlinda og endurheimt vistkerfa.

Að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í landbúnaði:
Með því að innleiða fjárhagslega hvata til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í landbúnaði.

Að bæta landnotkun og vatnsvernd
Með því að grípa til frekari aðgerða til að varðveita og stjórna landgæðum, m.a. með því að setja lögbundin markmið um takmörkun á töku lands til landbúnaðarnota fyrir árið 2050" (e. no net land take by 2050).

Að efla áhættustjórnun og viðbrögð við áföllum:
Með því að þróa betri viðbrögð og úrræði við hamförum og áföllum s.s. vegna loftslagsbreytinga, umhverfisskilyrða, efnahagsaðstæðna (markaðsmála) og væringa á alþjóðastjórnmálasviðinu.

Að byggja upp aðlaðandi og fjölbreyttan landbúnaðargeira:
Með því m.a. að efla nýliðun í landbúnaði og tryggja ytri aðstæður sem eru til þess fallnar að laða ungt fólk að greininni.

Að efla þekkingu og nýsköpun:
Með því m.a. að bæta aðgengi að þekkingu og auka menntun og nýsköpun í landbúnaði.

Að ráðist verði í stjórnkerfisbreytingar
Með því að setja á fót nýjan vettvang eða ráð um landbúnaðarframleiðslu (e. European Board on Agri-food (EBAF)) sem verði falið að útfæra tillögur skýrslunnar nánar og vinna að þeim stjórnkerfisbreytingum sem nauðsynlegar eru til að þær geti náð fram að ganga

Viðræður við ESB um samstarf á sviði heilbrigðismála

Framkvæmdastjórn ESB hefur tilkynnt að hún mæli með því við ráðherraráð ESB að formlegar viðræður við EES/EFTA-ríkin þrjú, Ísland, Liechtenstein og Noreg, um samstarf í heilbrigðismálum verði hafnar. Viðræðurnar munu m.a. snúa að aðgengi að nauðsynlegum lækningavörum, viðnámi við heilsuvá og læknisfræðilegum úrræðum (e. medical countermeasures) á neyðartímum.

Tillaga framkvæmdastjórnarinnar kemur í framhaldi af sameiginlegri yfirlýsingu tveggja framkvæmdastjóra í framkvæmdastjórn ESB sem birt var í desember sl. og fjallað var um í Vaktinni 19. janúar sl. sbr. einnig umfjöllun í Vaktinni 8 .desember sl. þar sem fjallað var um endurmat á hlutverki og stöðu neyðar- og viðbragðsskrifstofu framkvæmdastjórnarinnar, HERA, sem sett var á stofn í heimsfaraldrinum og hefur það hlutverk að tryggja aðgengi að bóluefnum, lyfjum og öðrum nauðsynlegum viðbúnaði á heilbrigðissviði. Í tillögu sinni nú leggur framkvæmdastjórn ESB til að komið verði á varanlegum samstarfsramma á þeim sviðum heilbrigðismála sem liggur utan EES-samningsins en ríkin hafa átt í óformlegum viðræðum við ESB um þau málefni í um tveggja ára skeið.

Ísland tekur þátt í samstarfi ESB á sviði heilbrigðismála, að hluta, í gegnum EES-samninginn. Þrjár gerðir sem styrkja neyðarviðbúnað og -viðbragð bandalagsins þegar lýðheilsu er ógnað þvert á landamæri, hafa nú þegar verið teknar upp í samninginn og bíða innleiðingar í íslenska löggjöf. Þó innleiðingu þeirra sé ólokið er vinna þegar hafin á Íslandi sem snýr m.a. að samræmdu verklagi við gerð viðbragðsáætlana, en gerðirnar þrjár endurspegla m.a. lærdóminn af kórónuveirufaraldrinum.

Tillaga framkvæmdarstjórnarinnar gengur nú til afgreiðslu hjá ráðherraráði ESB, en búast má við að það ferli geti tekið nokkurn tíma áður en eiginlegar formlegar viðræður geta hafist. Sjá til hliðsjónar umfjöllun RÚV um tillögu framkvæmdastjórnarinnar.

Fyrsti samningur HERA-Invest

Í vikunni birti framkvæmdastjórn ESB frétt um að neyðar- og viðbragðsskrifstofa ESB (Health Emergency Preparedness and Response Authority - HERA) og Fjárfestingarbanki Evrópu (European Investment Bank) hefðu undirritað 20 milljóna evra samning við franska líftæknifyrirtækið Fabentech um þróun breiðvirkrar meðferðar til að takast á við faraldra, á borð við kórónuveirufaraldurinn, sem ógna lýðheilsu þvert á landamæri.

Samningurinn er fyrsti sinnar tegundar sem gerður er undir merkjum HERA-Invest. Fleiri samningar af þessu tagi eru sagðir í burðarliðnum við önnur evrópsk fyrirtæki. Þeim er ætlað að örva nýsköpun á sviði heilbrigðismála til að bregðast við hverskyns heilbrigðisvá hvort heldur sem þær eru af efna-, líf-, eða geislafræðilegum toga eða af völdum kjarnorku (chemical, biological, radiological, nuclear - CBRN) eða sýklalyfjaónæmis.

HERA-Invest hefur til ráðstöfunar 100 milljónir evra sem er einskonar viðbót við InvestEU áætlunina sem Ísland er nú aðili að, sbr. umfjöllun í Vaktinni 9. júní 2023.

HERA-Invest framtakið er sniðið að litlum og meðalstórum fyrirtækjum, og veitir Fjárfestingabanki Evrópu áhættulán sem dekka að hámarki 50% af heildarkostnaði verkefnis.

Gert er ráð fyrir að væntanlegar samningaviðræður EES/EFTA-ríkjanna við ESB um samstarf í heilbrigðismálum sem fjallað er um hér að framan muni m.a. snúast um aðgengi að þeim læknisfræðilegu meðferðarúrræðum (e. medical countermeasure) sem HERA-Invest mun semja um.

Endurskoðun tilmæla um reyklaus svæði

Þann 17. september sl. lagði framkvæmdastjórn ESB fram tillögu til ráðherraráðs ESB um heildarendurskoðun á tilmælum ráðsins um reyklaus svæði. Núgildandi tilmæli eru frá árinu 2009 og hefur endurskoðunin einkum beinst að ákvæðum tilmælanna sem varða áhrif óbeinna reykinga á börn og ungt fólk og notkun nýrra tóbakslíkra vara. Eru aðildarríkin samkvæmt tillögunni hvött til þess að fjölga reyklausum svæðum og láta þau ná til útivistarsvæða þar sem börn eru líkleg til að safnast saman. Þar undir falla svæði eins og leikvellir, skemmtigarðar, sundlaugar, og svæði sem tengjast opinberum byggingum eins og mennta- og heilbrigðisstofnunum. Í tilmælunum er einnig gert ráð fyrir að þau nái yfir tóbakslíkar vörur eins og upphitaðar tóbaksvörur (HTP) og rafrettur sem í auknum mæli vekja áhuga yngri notenda en síðustu árin hefur markaðshlutdeild slíkra vara stóraukist. Þá hefur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) bent á að reykur frá slíkum vörum geti haft skaðleg áhrif á öndunarfæri og hjarta- og æðakerfi.

Þá er hvatt til þess að aðildarríkin vinni betur saman og skiptist t.a.m. á upplýsingum um áhrifaríkar leiðir í baráttunni. Tilmælin eru ekki bindandi fyrir aðildarríkin, en hvatt til innleiðingar þeirra í regluverk ríkjanna og stefnumótun á þessu sviði.

Framkvæmdastjórnin hyggst styðja við innleiðingu tilmælanna með ýmsum hætti, m.a. með beinum styrkveitingum að fjárhæð 16 milljónir evra (um 2,4 milljarða IKR) í gegnum EU4Health samstarfsáætlunina og með þróun á forvarnaúrræðum (e. a prevention toolkit) til afnota fyrir ríkin.

Til mikils er að vinna en áætlað er að á hverju ári láti 700.000 íbúar Evrópusambandsríkjanna lífið af völdum tóbaksnotkunar, þar á meðal tugir þúsunda vegna óbeinna reykinga. Tilmælunum er þannig jafnframt ætlað að styðja við markmið í krabbameinsáætlun ESB (e. Europe´s Beating Cancer Plan) um reyklausa kynslóð (e. Tobacco Free Generation) sem felur m.a. í sér það markmið að minna en 5% íbúa ESB noti tóbak fyrir árið 2040.

Samkvæmt fyrirliggjandi þingmálaskrá ríkisstjórnar Íslands er gert ráð fyrir að heilbrigðisráðherra leggi fram frumvarp til nýrra heildarlaga um tóbaksvarnir, rafrettur og nikótínvörur á vorþingi. Með frumvarpinu er ráðgert að leggja til að sameinaðir verði tveir lagabálkar í einn, þ.e. lög um tóbaksvarnir, nr. 6/2002, og lög um nikótínvörur, rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur, nr. 87/2018. Jafnframt verði gerðar breytingar sem lúta m.a. að eftirliti og um leið lagt til að sambærilegt gjald verði lagt á tóbaksvörur og tóbakslíkar vörur eins og nikótínpúða. Nái frumvarpið fram að ganga munu samræmdar reglur gilda um þessar vörutegundir.

Aðildarríki ESB samþykkja jöfnunartolla á kínverska rafbíla

Þann 4. október sl. samþykktu aðildarríki ESB ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB frá í sumar um að leggja jöfnunartolla á kínverska rafbíla.

Framkvæmdastjórnin hafði þann 12. júní sl. lagt til jöfnunartollana eftir rannsókn á meintri ósanngjarnri niðurgreiðslu rafbílaframleiðslu í Kína eins og fjallað var um í Vaktinni 14. júní sl. en jafnframt var fjallað um tildrög og aðdraganda rannsóknarinnar í Vaktinni 13. október 2023.

Jöfnunartollarnir voru samþykktir í atkvæðagreiðslu í ráðherraráði ESB en fimm aðildarríki, þ. á m. Þýskaland og Ungverjaland, greiddu atkvæði gegn tollunum þar sem þau óttast mótaðgerðir Kínverja. Ljóst er að fullur einhugur ríkir ekki um málið meðal aðildarríkja ESB en 12 aðildarríki, þ. á m. Spánn og Svíþjóð, sátu hjá við afgreiðslu málsins.

Samhliða aðgerðum ESB hafa diplómatískar viðræður ESB og Kína um lausn málsins haldið áfram. ESB hefur lagt áherslu á að mögulegar lausnir verði að standast reglur Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar og megi ekki fela í sér skaðlega ríkisstyrki auk þess sem gerð er krafa um að hægt verði að viðhafa eftirlit með því að efnisákvæði mögulegs samkomulags séu virt.

Kína hefur þegar brugðist við með því að tilkynna um álagningu tolla á innflutning koníaks frá Frakklandi en kínverski markaðurinn er annar stærsti markaðurinn fyrir koníak á heimsvísu. Sú staðreynd að Kína beinir spjótum sínum að Frakklandi er ekki tilviljun, þar sem Frakkland var það ríki innan ESB sem hvað helst beitti sér fyrir samþykkt jöfnunartollanna. Í ljós á eftir að koma hvort samþykkt ráðherraráðsins nú muni hafa frekari eftirmála í för með sér, en af umræðu að dæma er ljóst að margir hafa áhyggjur af því að málið kunni að marka upphafið að margbrotnara viðskiptastríði á milli ESB og Kína með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

Búast má við að framfylgdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar um álagningu tollanna verði birt í síðasta lagi 30. október nk.

Aukinn stuðningur ESB við Úkraínu og Moldóvu

Ráðherraráð ESB samþykkti í vikunni fjárhagsaðstoðarpakka til Úkraínu, þar á meðal lán upp á allt að 35 milljarða evra sem verður notað m.a. til að greiða niður lán frá samstarfsaðilum ESB og G7-ríkjunum. Fjárhagsaðstoðin miðar að því að veita tafarlausa aðstoð til að mæta brýnni fjármögnunarþörf Úkraínu sem hefur aukist samfara auknum sóknarþunga Rússlands í stríðinu. Lánið er veitt samkvæmt sérstökum lánaskilmálum (e. Extraordinary Revenue Acceleration Loans for Ukraine“ (ERA)), sem gerir ráð fyrir að endurgreiðsla lánsins verði fjármögnuð með vaxtatekjum af frystum rússneskum eignum.

Þessi fjárhagsaðstoð er til viðbótar 50 milljarða dollara láni sem leiðtogar G7-ríkjanna veittu Úkraínu í júní sl. en það lán var veitt á grundvelli sömu lánaskilmála.

Framkvæmdastjórn ESB samþykkti jafnframt í gær að veita Moldóvu 1,8 milljarða evra stuðning til uppbyggingar á innviðum og til almennra umbóta í landinu m.a. vegna aðlögunar að ESB í ljósi aðildarumsóknar ríkisins að sambandinu. Ursula von der Leyen var í Chisinau, höfuðborg Moldóvu, í gær til að fylgja eftir þessum stuðningi sem veittur er í aðdraganda forsetakosninga í landinu sem fram fara 20. október nk. Samhliða kosningunum verður haldin þjóðaratkvæðagreiða um hvort aðild landsins að ESB skuli vera stjórnarskrárbundið markmið eða ekki.

Formlegar aðildarviðræður við Úkraínu og Moldóvu hófust þann 25. júní síðastliðinn en þá voru haldnar milliríkjaráðstefnur (e. Intergovernmental conferences) þar sem fulltrúar allra aðildaríkja sambandsins komu saman til fyrsta formlega samningafundarins milli sambandsins og ríkjanna tveggja. Fundirnir marka upphafið af formlegum aðildarviðræðum við ríkin tvö en leiðtogaráð ESB hafði áður samþykkt að opna aðildarviðræður við ríkin í desember 2023. Hadja Lahbib, utanríkisráðherra Belgíu, sem nú er tilnefnd sem framkvæmdastjóri í nýrri framkvæmdastjórn af hálfu Belgíu, fór fyrir samninganefnd ESB á fundinum en Belgar fóru með formennsku í ráðherraráðinu á fyrri hluta ársins en áhersla var lögð á að hefja formlega viðræður við Úkraínu og Moldóvu áður en Ungverjar tæku við formennsku í ráðherraráði ESB 1. júlí sl.

Samstarf ríkjanna við ESB, m.a. á sviði utanríkis- og öryggismála, er þegar hafið og í maí sl. undirritaði Moldóva m.a. samning um öryggis- og varnarsamstarf við ESB sem er sá fyrsti sinnar tegundar sem ESB gerir við þriðja ríki.

Ráðherraráð ESB hefur falið framkvæmdastjórninni að halda aðildarviðræðunum áfram við bæði ríkin og verður næst farið í að opna einstaka efniskafla aðildarsamnings. Þeim er nú safnað í nokkra klasa en samtals eru kaflarnir 35, sbr. til hliðsjónar umfjöllun Vaktarinnar 10. nóvember sl. um stækkunarstefnu ESB og ferli aðildaviðræðna.

Ungverjar tóku við formennsku í ráðherraráði ESB 1. júlí sl. eins og áður segir. Í formennskuáætlun þeirra kemur fram það mat ungversku formennskunnar að stækkun ESB á umliðnum árum hafi reynst afar farsæl og er þar jafnframt lýst yfir stuðningi við áframhaldandi stækkun sambandsins enda sé stækkunarferlið samræmt og framgangur umsóknarríkja byggður á verðleikum. Ungverska formennskan leggur sérstaka áherslu framgang umsókna frá Vestur-Balkanskaga, þ.e. Serbíu, Albaníu, Norður-Makedóníu og Bosníu-Hersegóvínu en athygli hefur vakið að ekkert er minnst á Úkraínu og Moldóvu í þessu samhengi, ekki heldur þegar Orbán kynnti Evrópuþinginu áherslur ungversku formennskunnar 9. október. Sjá nánari umfjöllum um formennskuáætlun Ungverja í Vaktinni 28. júní sl.

Skipulag þinglegrar meðferðar tillögu VdL um nýja framkvæmdastjórn

Forsætisnefnd Evrópuþingsins tók í gær endanlega ákvörðun um skipulag þinglegrar meðferðar tillögu VdL um nýja framkvæmdastjórn, sbr. umfjöllun um tillöguna og fyrirkomulag hinnar þinglegu meðferðar samkvæmt þingsköpum Evrópuþingsins í Vaktinni 27. september sl.

Samkvæmt ákvörðun forsætisnefndar munu yfirheyrslur þingnefnda yfir framkvæmdastjóraefnum hefjast 4. nóvember og standa til 12. nóvember nk.

Dagskráin er þéttskipuð og munu framkvæmdastjóraefnin flest þurfa svara spurningum frá nefndarmönnum nokkurra þingnefnda enda er verkaskipting samkvæmt tillögunni afar þverlæg, sbr. umfjöllun um tillöguna í Vaktinni 27. september sl.

Við framangreinda skipulagningu var helst tekist á um það hvort yfirheyrslur yfir varaforsetaefnunum sex samkvæmt tillögunni ættu að vera fremst á dagskránni eða aftast. Svo virðist sem hægri vængur þingsins hafi hallast að hinu síðarnefnda, þar með talið EPP, á meðan vinstri vængurinn, þar á meðal S&D, hafi hallast að hinu fyrrnefnda. Megin ástæðan að baki afstöðu S&D virðist hafa verið sú að þeir vildu að varaforsetaefnið Teresa Ribera, sem flestir eru sammála um að verði fremst á meðal jafningja í nýrri framkvæmdastjórn, yrði fremst á dagskránni, en fyrir liggur að þá verður athyglin, þar á meðal fjölmiðlaathyglin, mest.

Niðurstaðan sem nú liggur fyrir er hins vegar sú að yfirheyrslur yfir varaforsetaefnunum munu fara fram í lok dagskrárinnar eða þann 12. nóvember, og hafa sumir túlkað það sem einskonar sigur hægri vængsins, en það er langsótt ef horft er til eðli máls.

Athugun laganefndar (e. Committee on Legal Affairs) sem hefur það hlutverk, eins rakið er í Vaktinni 27. september sl., að yfirfara hagsmunaskráningu þeirra einstaklinga sem tilnefndir eru og staðfesta almennt hæfi þeirra, er lokið og hefur nefndin staðfest almennt hæfi allra sem tilnefndir eru.

Framangreindar yfirheyrslur verða haldnar fyrir opnum tjöldum og streymt á vef Evrópuþingsins.

Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins, í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra. Leiðréttingar, ábendingar og athugasemdir sendist til ritstjóra Vaktarinnar, Ágústs Geirs Ágústssonar, á netfangið [email protected].

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

27. september 2024 | Tillaga VdL að nýrri framkvæmdastjórn |
Tillaga Ursulu von der Leyen (VdL) að nýrri framkvæmdastjórn og verkaskiptingu innan hennar

Efnisyfirlit umfjöllunar:

Inngangur

Ferlið framundan – þingleg meðferð

Almennt um tillöguna og meginsjónarmið að baki henni

Nánar um stöðu og verkefni einstakra framkvæmdastjóra

Inngangur

Þann 17. september sl. kynnti VdL forseti framkvæmdastjórnar ESB, tillögu sína, sem áður hafði verið samþykkt í ráðherraráði ESB, að skipan nýrrar framkvæmdastjórnar ESB til næstu fimm ára.

Eins og kunnugt er hlaut VdL tilnefningu leiðtogaráðs ESB til áframhaldandi setu á stóli forseta 27. júní sl. og var hún staðfest af Evrópuþinginu með ríflegum meiri hluta atkvæða þann 18. júlí, sbr. umfjöllun Vaktarinnar 26. júlí. Frá þeim tíma hefur VdL unnið að tillögugerð að skipan nýrrar framkvæmdastjórnar og verkaskiptingu innan hennar. Eitt og annað hefur komið upp í því ferli, sbr. umfjöllun um stöðu þeirra mála í Vaktinni 13. september sl. og enn frekari vendingar urðu síðan 16. september sl., einungis degi áður en tillagan var kynnt, þegar Thierry Breton, sem farið hefur með málefni innri markaðarins í fráfarandi framkvæmdastjórn, tilkynnti óvænt um afsögn sína úr framkvæmdastjórninni. Afsögn Breton fól jafnframt í sér, eðli málsins samkvæmt, að hann myndi ekki gefa kost á sér til setu í nýrri framkvæmdastjórn en hann hafði áður verið tilnefndur til áframhaldandi setu af hálfu Emmanuel Macron Frakklandsforseta. Síðar sama dag var tilkynnt um að Frakkland hefði tilnefnt Stéphane Séjourné, fráfarandi utanríkisráðherra, í stað Breton. Brotthvarf Breton er rakið, eins og sjá má af afsagnarbréfi hans til VdL, til afar stirðra samskipta hans og VdL og herma fregnir að VdL hefði beinlínis tjáð Macron að hún treysti sér vart til að vinna með Breton á nýju tímabili. Frakkland stæði því frammi fyrir því vali að geta tilnefnt nýjan einstakling sem gæti fengið stærra og víðtækara hlutverk í framkvæmdastjórninni eða halda sig við Breton sem yrði þá úthlutað viðaminna verkefni.

Framangreindar vendingar sem og þær sem á undan höfðu gengið varpa ljósi á það með hvaða hætti verkstjórnarvald forsetans getur einnig nýst til að hafa áhrif á skipan framkvæmdastjórnarinnar. Því hefur einnig verið beitt til að jafna hlutfall kynjanna innan framkvæmdastjórnarinnar með nokkrum árangri. Brotthvarf Breton er sérstaklega áhugavert í þessu samhengi. Almennt þykir framangreind atburðarás hafa styrkt stöðu VdL og má jafnvel segja að hún hafi við meðferð verkstjórnarvaldsins ljáð því nýtt og áður óþekkt vægi.

Ferlið framundan – þingleg meðferð

Tillaga VdL gengur nú til meðferðar og afgreiðslu á Evrópuþinginu í samræmi við 17. gr. sáttmála um ESB og 129. gr. þingskaparreglna Evrópuþingins og VII. viðauka við þær. Samþykki þingsins, bæði fyrir skipun einstakra framkvæmdastjóra og framkvæmdastjórnarinnar í heild sinni, er nauðsynleg til að tillagan geti náð fram að ganga. Málsmeðferðin framundan er í grófum dráttum eftirfarandi:

Hlutverk laganefndar þingsins (e. Committee on Legal Affairs). Tillagan gengur til að byrja með í heild sinni til laganefndar sem hefur það hlutverk að yfirfara hagsmunaskráningu þeirra einstaklinga sem tilnefndir eru og staðfesta almennt hæfi þeirra. Jákvæð niðurstaða laganefndar er forsenda áframhaldandi málsmeðferðar gagnvart einstökum framkvæmdastjóraefnum.

Skriflegar spurningar og svör. Þegar niðurstaða laganefndar liggur fyrir er framkvæmdastjóraefnum sendar skriflegar spurningar af hálfu þingsins og verða spurningarnar birtar á vef þingsins þegar þar að kemur sem og svör framkvæmdastjóraefnanna.

Yfirheyrslur í þingnefndum. Framkvæmastjóraefnin mæta síðan fyrir viðeigandi þingnefnd, eina eða fleiri, í samræmi við þá málaflokka sem til stendur að fela þeim, þar sem þeim gefst kostur á að kynna sýn sína til málefnanna og svara spurningum þingmanna. Er gert ráð fyrir að þessir fundir geti staðið í allt að fjóra klukkutíma og verður unnt að fylgjast með fundunum á vef þingsins.

Hæfnismat og samþykki þingnefnda. Þingnefndir, eða réttara sagt tilteknar samræmingarnefndir innan hverrar þingnefndar þar sem allir þingflokkar eiga fulltrúa, taka síðan saman greinargerð (e. evaluation letter) hæfni framkvæmdastjóraefna þar sem m.a. er litið til afstöðu þeirra til Evrópusamvinnu, samskiptahæfni og þekkingu þeirra á þeim málefnum sem um ræðir. Til að framkvæmdastjóraefni teljist samþykkt af þingnefnd þurfa fulltrúar í samræmingarnefnd sem hafa umboð a.m.k. 2/3 hluta nefndarmanna sem tilheyra þingflokkum að samþykkja viðkomandi. Náist tilskilið samþykki er hæfnismatið sent forsætisnefnd þingsins sem getur þá lýst því yfir að hæfnismati sé lokið. Náist ekki slíkt samþykki getur þingnefnd ákveðið að kalla eftir viðbótarupplýsingum og boðað til framhaldsyfirheyrslufunda. Náist ekki tilskilið samþykki í samræmingarnefnd þrátt fyrir framhaldsmeðferð ber formanni nefndar að bera það upp í atkvæðagreiðslu í nefndinni hvort framkvæmdastjóraefni telst samþykkt eða hafnað. Ef framkvæmdastjóraefni er hafnað af þingnefnd, eða hlutaðeigandi þingnefndum sameiginlega, hefur í framkvæmd hefur verið litið svo á að þar með þurfi að endurtilnefna í stöðuna og endurtaka ferlið.

Umfjöllun á þingfundi og atkvæðagreiðsla. Þegar jákvætt hæfnismat varðandi öll framkvæmdastjóraefnin liggur fyrir er málið tekið fyrir á þingfundi þar sem kjörinn forseti kynnir nýja framkvæmdastjórn og vinnuáætlun hennar. Í framhaldi fara fram umræður og loks atkvæðagreiðsla um hvort ný framkvæmdastjórn teljist samþykkt eða ekki. Með hliðsjón af því ferli sem á undan er gengið og að framan er rakið verður það að teljast afskaplega fjarlægur möguleiki að framkvæmdastjórn sé hafnað í slíkri atkvæðagreiðslu en ef svo færi þyrfti að endurtaka ferlið.

Formleg skipan nýrrar framkvæmdastjórnar. Þegar þinglegri meðferð er lokið með samþykki þingsins kemur málið á ný til kasta leiðtogaráðs ESB sem tekur endanlega ákvörðun, með auknum meiri hluta atkvæða, um skipan hinnar nýju framkvæmdastjórnar.

Sjá hér nánari reifun á málsmeðferð Evrópuþingsins þar sem jafnframt er fjallað um álitaefni sem upp hafa komið í meðferð þingsins á fyrri árum og vikið að þeim tilvikum þar sem framkvæmdastjóraefnum hefur verið hafnað í meðförum þingsins. Þannig var t.d. þremur framkvæmdastjórnaefnum hafnað í meðferð þingsins árið 2019, tveimur af laganefnd þingsins þar sem hagsmunaskráning þótti ófullnægjandi og einum að undangengnu faglegu hæfnismat af hálfu þingnefndar en þar átti í hlut tilnefndur fulltrúi Frakklands og var áðurnefndur Thierry Breton þá tilnefndur í stað hins fyrra.

Almennt um tillöguna og meginsjónarmið að baki henni

Í áðurnefndri kynningu VdL á tillögu sinni kemur fram að hugsunin að baki skipulagi nýrrar framkvæmdastjórnar og verkaskiptingu innan hennar byggist á þremur megin þáttum sem skipulaginu er ætlað að hlúa að sérstaklega, þ.e. hagsæld, öryggi og lýðræði innan ESB þar sem meginmarkmiðið um aukna samkeppnishæfni samhliða grænum og stafrænum umskiptum liggur eins og rauður þráður um skipulagið í heild sinni. Framangreindar megináherslur rýma vel, eins og til er ætlast, við meginstefin í stefnuáætlun leiðtogaráðs ESB (e. strategic agenda) sem samþykkt var í júlí sl., sbr. umfjöllun um þá áætlun í Vaktinni 26. júlí sl., þar sem meginmarkmiðin eru sett fram undir merkjum:

frelsis og lýðræðis (e. A free and democratic Europe)

styrks og öryggis (e. A strong and secure Europe)

hagsældar og samkeppnishæfni (e. A prosperous and competitive Europe)

Þá endurspegla áherslur í tillögunni í heild sinni og í erindisbréfum einstakra framkvæmdastjóra vitaskuld einnig vandlega stefnuáherslur VdL eins og hún kynnti þær fyrir Evrópuþinginu í aðdraganda að staðfestingu á tilnefningu hennar í embætti forseta framkvæmdastjórnarinnar en einnig var fjallað um þær stefnuáherslur VdL í framangreindri Brussel-vakt 26. júlí sl.

Tillaga VdL er frábrugðin því skipulagi sem verið hefur í gildi síðastliðin fimm ár að því leyti að flokkun varaforseta í annars vegar Executive Vice-Presidents og hins vegar Vice-Presidents er aflögð. Þess í stað er lagt til að allir sex varaforsetarnir í nýrri stjórn muni, auk þess að gegna hlutverki varaforseta á tilteknum málefnasviðum, jafnframt gegna stöðu framkvæmdastjóra á tilteknum málefnasviðum og fara með yfirstjórn viðeigandi stjórnardeilda (e. Directorate-General) innan framkvæmdastjórnarinnar, að hluta eða öllu leyti, og bera embættisheitið Executive Vice-President, sbr. nánari umfjöllun um stöðu hvers og eins varaforseta í skipuriti nýrrar framkvæmdastjórnar hér að neðan. Er breytingin hugsuð til að jafna stöðu varaforsetanna innbyrðis og jafnframt til að auka samstarf og samhæfingu á milli þeirra og framkvæmdastjórnarinnar í heild sinni og þar með á milli ólíkra stjórnardeilda innan hennar og vinna þannig gegn svonefndri sílómyndun sem nokkuð hefur þótt bera á í núverandi skipulagi. Við skoðun á tillögunni er ljóst að skörun á málefnasviðum og stjórnarmálefnum á milli framkvæmdastjóra er nokkur og mikil á köflum. Skörun málefna í þessum mæli verður þó ekki rakin til mistaka við tillögugerðina heldur er það beinlínis hugmyndin að hún knýi varaforseta og aðra framkvæmdastjóra til samráðs og samhæfingar þvert á skipuritið undir yfirstjórn VdL. Hvort þau markmið náist á eftir að koma í ljós en ágallar skipulags af þessu tagi geta einnig reynst umtalsverðir ef brestir koma fram í samstarfi.

Í tillögu sinni hefur VdL, eins og fjallað var um í Vaktinni 13. september sl., reynt til hins ýtrasta að tryggja sem jöfnust kynjahlutföll í nýrri framkvæmdastjórn. Þótt útlitið í þeim efnum hafi ekki verið álitlegt um tíma er niðurstaðan þó sú að hlutfall kvenna samkvæmt tillögunni er nú 40%. Á hinn bóginn er hlutfall kvenna hærra eða 60% í hópi varaforsetanna, þ.e. fjórar konur á móti tveimur karlmönnum. Með því móti er líkast til leitast við að jafna ásýnd nýrrar framkvæmdastjórnar eins og kostur er. Landfræðileg sjónarmið liggja einnig að baki tillögum um varaforsetaefni. Tveir af sex varaforsetum koma t.a.m. frá nýfrjálsu ríkjunum og með forsetanum sjálfum eiga fjögur stærstu ríkin öll fulltrúa í þessu efsta lagi framkvæmdastjórnarinnar og einn varaforsetanna kemur af Norðurlöndum.

Í eftirfarandi töflu* er að finna yfirlit yfir efni tillögu VdL um skipan tilnefndra einstaklinga í embætti og verkskiptingu á milli þeirra, sbr. einnig yfirlitsmynd frá framkvæmdastjórninni þar að neðan:

Aðildarríki

Tilnefndur

Staða og ábyrgðarsvið

Núverandi staða**

Spánn

Teresa Ribera

Varaforseti á sviði grænna, réttlátra og samkeppnishæfari umskipta. Einnig framkvæmdastjóri samkeppnismála.

Varaforsætisráðherra

Finnland

Henna Virkkunen

Varaforseti á sviði tæknimála og sjálfstæðis ESB á því sviði, öryggismála og lýðræðismála. Einnig framkvæmdastjóri stafrænna málefna og þróunar á sviði hátækni.

Þingmaður á Evrópuþinginu

Frakkland

Stéphane Séjourné

Varaforseti á sviði hagsældar og stefnumótunar á sviði iðnaðar. Einnig framkvæmdastjóri í málefnum iðnaðarins og lítilla og meðalstórra fyrirtækja og innri markaðsmála almennt.

Utanríkisráðherra

Eistland

Kaja Kallas

Varaforseti og utanríkismálastjóri

Fv. forsætisráðherra

Rúmenía

Roxana Minzatu

Varaforseti á sviði samfélagslegra verkefna, færni vinnuafls og viðbúnaðar og viðbragðsstjórnunar. Einnig framkvæmdastjóri á sviði færni og menntunar, vinnumarkaðsmála og félagslegra réttinda.

Þingmaður á Evrópuþinginu

Ítalía

Raffaele Fitto

Varaforseti á sviði samheldnismála og umbóta. Einnig framkvæmdastjóri samheldnismála og byggðaþróunar.

Evrópumálaráðherra

Slóvakía

Maroš Šefčovič

Framkvæmdastjóri viðskipta- og efnahagsöryggismála, þ.m.t. tollamála. Einnig framkvæmdastjóri samhæfingar- og samskipta á milli stofnana ESB.

Varaforseti framkvæmdastjórnar ESB

Lettland

Valdis Dombrovskis

Framkvæmdastjóri efnahagsmála. Einnig framkvæmdastjóri innleiðingar og einföldunar regluverks.

Framkvæmdastjóri efnahagsmála í framkvæmdastjórn ESB

Króatía

Dubravka Šuica

Framkvæmdastjóri samstarfs og samskipta við nágrannaríki ESB sem liggja að Miðjarðarhafinu.

Framkvæmdastjóri lýðræðismála í framkvæmdastjórn ESB

Ungverjaland

Olivér Várhelyi

Framkvæmdastjóri heilbrigðismála og dýravelferðarmála.

Framkvæmdastjóri stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB

Holland

Wopke Hoekstra

Framkvæmdastjóri loftslagsmála, kolefnishlutleysis og sjálfbærs hagvaxtar.

Framkvæmdastjóri loftslagsmála í framkvæmdastjórn ESB

Litáen

Andrius Kubilius

Framkvæmdastjóri varnarmála og geimmála.

Þingmaður á Evrópuþinginu

Slóvenía

Marta Kos

Framkvæmdastjóri stækkunarmála.

Fv. sendiherra gagnvart Þýskalandi og Sviss

Tékkland

Jozef Síkela

Framkvæmdastjóri samstarfsverkefna við þriðju ríki.

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra

Kýpur

Costas Kadis

Framkvæmdastjóri sjávarútvegsmála og málefna hafsins.

Deildarforseti við Frederick háskólann

Portúgal

Maria Luís Albuquerque

Framkvæmdastjóri fjármálaþjónustu og uppbyggingu sameiginlegs fjármagnsmarkaðar.

Ráðsmaður í eftirlitsráði Morgan Stanley Europe

Belgía

Hadja Lahbib

Framkvæmdastjóri viðbúnaðar, viðbragðsstjórnunar og almannavarna. Einnig framkvæmdastjóri jafnréttismála.

Utanríkisráðherra

Austurríki

Magnus Brunner

Framkvæmdastjóri innri öryggismála, öryggi landamæra og málefna flótta- og farandsfólks.

Fjármálaráðherra

Svíþjóð

Jessika Roswall

Framkvæmdastjóri umhverfismála, vatnsverndarmála og hringrásarhagkerfisins.

Evrópumálaráðherra

Pólland

Piotr Serafin

Framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrar.

Sendiherra Póllands gagnvart ESB

Danmörk

Dan Jørgensen

Framkvæmdastjóri orkumála og húsnæðismála.

Þróunar- og loftslagsráðherra

Búlgaría

Ekaterina

Zaharieva

Framkvæmdastjóri rannsókna og nýsköpunar.

Þingmaður

Írland

Michael McGrath

Framkvæmdastjóri lýðræðismála, dóms- og réttarríkismála.

Fjármálaráðherra

Grikkland

Apostolos Tzitzikostas

Framkvæmdastjóri samgöngu- og ferðamála.

Ríkisstjóri Mið-Makedóníu

Lúxemborg

Christophe Hansen

Framkvæmdastjóri landbúnaðar- og matvælamála.

Þingmaður á Evrópuþinginu

Malta

Glenn Micallef

Framkvæmdastjóri kynslóðajafnréttis, menningarmála og æskulýðs- og íþróttamála.

Ráðgjafi forsætisráðherra í ESB málum

*Í framangreindri töflu eru framkvæmdastjóraefnin talin upp í sömu röð og gert er í tilkynningu VdL um málið, sjá hér.

**Vísað er til núverandi stöðu í heimaríkinu, nema annað sé tekið fram.

Sjá einnig eftirfarandi skipurit nýrrar framkvæmdastjórnar eins og fréttamiðillinn Politico hefur kosið að stilla því upp í samræmi við fyrirliggjandi tillögu VdL:

Sérstök erindisbréf eða öllu fremur drög að erindisbréfum, því ekki er útilokað að einhverjar breytingar verði á verkaskiptingu í því ferli sem framundan er, fyrir hvern tilnefndan framkvæmdastjóra um sig hafa þegar verið birt. Í inngangsköflum erindisbréfanna, sem eru efnislega samhljóða í öllum bréfunum, er farið almennum orðum um markmið og stefnu nýrrar framkvæmdastjórnar þar sem áhersla er lögð á áðurnefnda þrjá þætti, þ.e. hagsæld, öryggi og lýðræði þar sem aukin samkeppnishæfni samhliða grænum og stafrænum umskiptum, sem meginmarkmið er undirstrikað. Þar er einnig lögð rík áhersla á samhæfingu, samstarf og jafnræði á milli allra framkvæmdastjóra, auk þess sem fjallað er um almennar starfsskyldur og siðareglur. Sömuleiðis er lagt fyrir framkvæmdastjórana að styrka tengsl sín við aðrar helstu stofnanir ESB og þá einkum við Evrópuþingið og hlutaðeigandi þingnefndir. Þá er boðað átak í samráði við almenning og hagaðila og sér í lagi við ungt fólk.

Framkvæmdastjórum, tilnefndum, er uppálagt, hverjum á sínu málefnasviði, að sýna frumkvæði í stuðningi við ríki sem sótt hafa um aðild að sambandinu og jafnframt að leggja sitt af mörkum er kemur að innra umbótastarfi sem talið er nauðsynlegt að ráðast í áður en til stækkunar kemur (e. pre-enlargement reforms and policy reviews).

Þá eru framkvæmdastjórar m.a. beðnir um að horfa sérstaklega til fjögurra nýlegra og væntanlegra skýrslna í störfum sínum. Í fyrsta lagi til skýrslu Mario Draghi um samkeppnishæfni ESB til framtíðar, sbr. umfjöllun Vaktarinnar 13. september sl., um þá skýrslu. Í öðru lagi til væntanlegrar skýrslu Sauli Niinistö, fyrrverandi forseta Finnlands, um hvernig megi styrka viðbúnað og getu ESB í varnar- og almannaöryggismálum. Í þriðja lagi til nýrrar skýrslu um framtíð landbúnaðar í ESB og í fjórða lagi til skýrslu Enrico Letta um framtíð innri markaðarins, sbr. umfjöllun Vaktarinnar 19. apríl sl. um þá skýrslu.

Nánar um stöðu og verkefni einstakra framkvæmdastjóra

Teresa Ribera, varaforseti á sviði grænna, réttlátra og samkeppnishæfari umskipta. Einnig framkvæmdastjóri samkeppnismála.

Málefnasvið Ribera sem varaforseta er víðtækt að efni og snertir að auki kjarnaþætti í þeim megin stefnuáherslum sem teiknast hafa upp fyrir nýja framkvæmdastjórn, sbr. umfjöllun hér að framan. Fjórir aðrir framkvæmdastjórar munu starfa undir henni með beinum hætti í nýju skipuriti þ.e. Wopke Hoekstra, Jessika Roswall, Dan Jørgensen og Olivér Várhelyi. Málefnasvið hennar sem varaforseta krefst þó mun víðara samráðs og samhæfingar þvert á skipuritið eins og raunar á við um alla varaforsetana en í mismiklum mæli þó. Almennt hefur verið litið svo á að Ribera sé fremst meðal jafningja í nýju skipulagi er kemur að valdahlutföllum og áhrifamætti.

Auk varaforsetahlutverksins mun Ribera gegna hlutverki framkvæmdastjóra samkeppnismála og sem slík fara með yfirstjórn stjórnardeildar samkeppnismála í framkvæmdastjórninni (e. Directorate-General (DG) for Competition).

Sjá nánari umfjöllun í fyrirliggjandi erindisbréfi um helstu verkefni og áherslur sem lagt er til að Ribera verði falið að vinna eftir.

Henna Virkkunen varaforseti á sviði tæknimála og sjálfstæðis ESB á því sviði, öryggismála og lýðræðismála. Einnig framkvæmdastjóri stafrænna málefna og þróunar á sviði hátækni.

Málefnasvið Virkkunen sem varaforseta er víðtækt að efni og snertir að auki, líkt og hjá Ribera, kjarnaþætti í megin stefnuáherslum nýrrar framkvæmdastjórnar og þá einkum á sviði öryggismála, nýsköpunar og stafrænna umskipa. Fjórir aðrir framkvæmdastjórar munu starfa undir henni með beinum hætti í nýju skipuriti þ.e. Andrius Kubilius, Ekaterina Zaharieva, Magnus Brunner og Michael McGrath en málefnasvið hennar sem varaforseta krefst þó víðtækara samráðs og samhæfingar þvert á skipurit nýrrar framkvæmdastjórnar.

Auk varaforsetahlutverksins mun Virkkunen gegna hlutverki framkvæmdastjóra á sviði stafrænna málefna og hátæknimála og sem slík fara með yfirstjórn viðkomandi stjórnardeilda í framkvæmdastjórninni þ.e. DG for Communications Networks, Content and Technology og DG for Digital Services.

Sjá nánari umfjöllun í fyrirliggjandi erindisbréfi um helstu verkefni og áherslur sem lagt er til að Virkkunen verði falið að vinna eftir.

Stéphane Séjourné varaforseti á sviði hagsældar og stefnumótunar á sviði iðnaðar. Einnig framkvæmdastjóri í málefnum iðnaðarins og lítilla og meðalstórra fyrirtækja og innri markaðsmála almennt.

Málefnasvið Séjourné sem varaforseta er víðtækt að efni og nær yfir kjarnaþættina í efnahagsmálum ESB og ekki síst í efnahagsöryggismálum ESB og hagvörnum en þau málefni eru á meðal þeirra stærstu sem ESB glímir við um þessar mundir. Undir málefnasvið Séjourné sem varaforseta falla einnig málefni fjármálamarkaða og uppbygging hins sameiginlega fjármagnsmarkaðar sem að mörgum er talin meginforsendan þess að ESB nái að halda í við önnur helstu efnahagsveldi er kemur að samkeppnishæfni til framtíðar. Auk þessa er honum ætlað að leiða vinnu við heildarstefnumörkun á sviði iðnaðarstarfsemi sem jafnframt mun skipta sköpum er kemur að samkeppnishæfni ESB til framtíðar. Fjórir aðrir framkvæmdastjórar munu starfa undir honum með beinum hætti í nýju skipuriti þ.e. Maroš Šefčovič, Valdis Dombrovskis, Maria Luís Albuquerque og Ekaterina Zaharieva, að hluta, en málefnasvið hans sem varaforseta krefst þó víðara samráðs og samhæfingar þvert á skipurit nýrrar framkvæmdastjórnar.

Auk varaforsetahlutverksins mun Séjourné gegna hlutverki framkvæmdastjóra á sviði iðnaðar og lítilla og meðalstórra fyrirtækja og á sviði innri markaðsmála almennt og sem slíkur fara með yfirstjórn viðkomandi stjórnardeildar í framkvæmdastjórninni þ.e. DG for Internal Market, Industry, Entrepreneurship and SMEs.

Sjá nánari umfjöllun í fyrirliggjandi erindisbréfi um helstu verkefni og áherslur sem lagt er til að Séjourné verði falið að vinna eftir.

Kaja Kallas varaforseti og utanríkismálastjóri.

Kallas nýtur tiltekinnar sérstöðu sem varaforseti og utanríkismálastjóri ESB (e. High Representative) sem endurspeglast í því að leiðtogaráð ESB útnefnir hana sérstaklega í stöðu utanríkismálastjóra en Kallas var útnefnd af ráðinu á sama tíma og VdL var tilnefnd til embættis forseta, sbr. umfjöllun í Vaktinni 28. júní sl. Það breytir þó ekki því að hún þarf samþykki þingsins sem varaforseti framkvæmdastjórnarinnar. Fjórir aðrir framkvæmdastjórar munu starfa undir henni með beinum hætti í nýju skipuriti að hluta eða öllu leyti, þ.e. Jozef Síkela, Marta Kos, Hadja Lahbib og Dubravka Šuica, en málefnasvið hennar sem varaforseta krefst þó víðtækara samráðs og samhæfingar þvert á skipurit nýrrar framkvæmdastjórnar.

Kallas mun sem utanríkismálastjóri fara með yfirstjórn utanríkisþjónustu ESB (e. European External Action Service – EEAS).

Sjá nánari umfjöllun í fyrirliggjandi erindisbréfi um helstu verkefni og áherslur sem lagt er til að Kallas verði falið að vinna eftir.

Roxana Minzatu varaforseti á sviði samfélagslegra verkefna, færni vinnuafls og viðbúnaðar og viðbragðsstjórnunar. Einnig framkvæmdastjóri á sviði færni og menntunar, vinnumarkaðsmála og félagslegra réttinda.

Málefnasvið Minzatu sem varaforseta er víðtækt að efni eins og annarra varaforseta og tekur yfir alla meginþætti félags-, vinnumarkaðs-, heilbrigðis-, mennta- og menningarmála og lýðfræðilegra mála á vettvangi ESB. Fjórir aðrir framkvæmdastjórar munu starfa undir henni með beinum hætti í nýju skipuriti þ.e. Hadja Lahbib, Glenn Micallef, Dubravka Šuica og Olivér Várhelyi, að hluta, en málefnasvið hennar sem varaforseta krefst þó víðtækara samráðs og samhæfingar þvert á skipurit nýrrar framkvæmdastjórnar.

Auk varaforsetahlutverksins mun Minzatu gegna hlutverki framkvæmdastjóra á sviði færni og menntunar, vinnumarkaðsmála og félagslegra réttinda og sem slík fara með yfirstjórn viðkomandi stjórnardeildar í framkvæmdastjórninni þ.e. DG for Education, Youth, Sport, and Culture (að hluta) og DG for Employment, Social Affairs, and Inclusion.

Sjá nánari umfjöllun í fyrirliggjandi erindisbréfi um helstu verkefni og áherslur sem lagt er til að Minzatu verði falið að vinna eftir.

Raffaele Fitto varaforseti á sviði samheldnismála og umbóta. Einnig framkvæmdastjóri samheldnisstefnu ESB og byggðaþróunar.

Málefnasvið Fitto sem varaforseta tekur til samheldnisverkefna ESB (e. cohesion) en þar undir falla m.a. sameiginleg landbúnaðar- og sjávarútvegsstefna ESB og byggðaþróunarverkefni auk þess sem samgöngumál og ferðaþjónusta eru felld undir málefnasvið hans sem varaforseta. Þrír aðrir framkvæmdastjórar munu starfa undir honum með beinum hætti í nýju skipuriti, þ.e. Costas Kadis, Apostolos Tzitzikostas og Christophe Hansen en málefnasvið hans sem varaforseta krefst þó víðtækara samráðs og samhæfingar þvert á skipurit nýrrar framkvæmdastjórnar.

Auk varaforsetahlutverksins mun Fitto gegna hlutverki framkvæmdastjóra samheldnisstefnu og byggðaþróunar og sem slíkur fara með yfirstjórn viðkomandi stjórnardeildar í framkvæmdastjórninni þ.e. DG Regional and Urban Policy

Sjá nánari umfjöllun í fyrirliggjandi erindisbréfi um helstu verkefni og áherslur sem lagt er til að Fitto verði falið að vinna eftir.

Maroš Šefčovič framkvæmdastjóri utanríkisviðskipta- og efnahagsöryggismála, þ.m.t. tollamála. Einnig framkvæmdastjóri samhæfingar og samskipta á milli stofnana ESB.

Lagt er til að Šefčovič, sem einnig á sæti í núverandi framkvæmdastjórn, fái tvíþætt hlutverki í nýrri stjórn.

Annars vegar er lagt til að hann fái stöðu framkvæmdastjóra utanríkisviðskipta- og efnahagsöryggismála, þ.m.t. tollamála, og mun hann sem slíkur fara með yfirstjórn viðkomandi stjórnardeilda í framkvæmdastjórninni þ.e. DG Trade and Economic Security og DG Taxation and Customs Union (deilt með Hoekstra). Við framkvæmd þessara starfa mun hann heyra undir Séjourné varaforseta.

Hins vegar er lagt til að hann fái stöðu framkvæmdastjóra samhæfingar- og samskipta á milli stofnana ESB mun Šefčovič hins vegar heyra beint undir VdL.

Šefčovič hefur í núverandi framkvæmdastjórn borið ábyrgð á rekstri EES-samningsins og samskiptum við EES/EFTA-ríkin. Fyrir liggur að svo verði áfram.

Þá mun útgáfuskrifstofa ESB (e. EU Publications Office) falla undir ábyrgðarsvið hans.

Sjá nánari umfjöllun í fyrirliggjandi erindisbréfi um helstu verkefni og áherslur sem lagt er til að Šefčovič verði falið að vinna eftir.

Valdis Dombrovskis framkvæmdastjóri efnahagsmála. Einnig framkvæmdastjóri innleiðingar og einföldunar á regluverki.

Dombrovskis á, líkt og Šefčovič, sæti í núverandi framkvæmdastjórn, og er jafnframt lagt til að hann, líkt og Šefčovič, fái tvíþætt hlutverk í nýrri stjórn.

Annars vegar er lagt til að hann fái stöðu framkvæmdastjóra efnahagsmála og mun hann sem slíkur fara með yfirstjórn viðkomandi stjórnardeildar í framkvæmdastjórninni, þ.e. DG for Economic and Financial Affairs auk þess sem hann mun bera ábyrgð á starfsemi Hagstofu ESB (e. Eurostat). Við framkvæmd þeirra starfa mun hann heyra undir Séjourné varaforseta.

Hins vegar er lagt til að hann fái stöðu framkvæmdastjóra innleiðingar og einföldunar á regluverki og mun Dombrovskis í því hlutverki heyra beint undir VdL.

Sjá nánari umfjöllun í fyrirliggjandi erindisbréfi um helstu verkefni og áherslur sem lagt er til að Dombrovskis verði falið að vinna eftir.

Dubravka Šuica framkvæmdastjóri samstarfs og samskipta við nágrannaríki ESB sem liggja að Miðjarðarhafinu.

Staða framkvæmdastjóra í málefnum Miðjarðarhafsins hefur ekki áður verið til vettvangi framkvæmdastjórnarinnar og stendur til að stofna nýja stjórnardeild innan stjórnarinnar til að vinna að þessum málum, þ.e. DG of the Mediterranean og mun Šuica fara með yfirstjórn hennar. Við framkvæmd starfa sinna mun hún heyra undir Kallas utanríkismálastjóra.

Sjá nánari umfjöllun í fyrirliggjandi erindisbréfi um helstu verkefni og áherslur sem lagt er til að Šuica verði falið að vinna eftir.

Olivér Várhelyi framkvæmdastjóri heilbrigðismála og dýravelferðarmála.

Lagt er til að Várhelyi, sem einnig á sæti í núverandi framkvæmdastjórn, verði falin staða framkvæmdastjóra heilbirgðismála og dýravelferðarmála. Sem slíkur mun hann fara með yfirstjórn viðkomandi stjórnardeildar í framkvæmdastjórninni, þ.e. DG for Health and Food Safety auk þess sem hann mun fara með yfirstjórn nýrrar Neyðar- og viðbragðsskrifstofu ESB á sviði heilbrigðismála (e. Health Emergency Preparedness and Response Authority - HERA). Við framkvæmd starfa sinna mun hann heyra undir Ribera varaforseta sem og undir Minzatu varaforseta er kemur að viðbragðsstjórnun vegna heilsuvár.

Sjá nánari umfjöllun í fyrirliggjandi erindisbréfi um helstu verkefni og áherslur sem lagt er til að Várhelyi verði falið að vinna eftir.

Wopke Hoekstra framkvæmdastjóri loftslagsmála, kolefnishlutleysis og sjálfbærs hagvaxtar

Lagt er til að Hoekstra, sem einnig á sæti í núverandi framkvæmdastjórn, verði falin staða framkvæmdastjóra loftslagsmála, kolefnishlutleysis og sjálfbærs hagvaxtar. Sem slíkur mun hann fara með yfirstjórn viðkomandi stjórnardeilda í framkvæmdastjórninni, þ.e. DG for Climate Action og DG for Taxation and Customs Union ( deilt með Šefčovič). Við framkvæmd starfa sinna mun hann heyra undir Ribera varaforseta.

Sjá nánari umfjöllun í fyrirliggjandi erindisbréfi um helstu verkefni og áherslur sem lagt er til að Hoekstra verði falið að vinna eftir.

Andrius Kubilius framkvæmdastjóri varnarmála og geimmála.

Lagt er til að Kubilius, sem einnig á sæti í núverandi framkvæmdastjórn, verði falinn staða framkvæmdastjóra varnarmála og geimmála sem er ný staða í framkvæmdastjórninni. Sem slíkur mun hann fara með yfirstjórn viðkomandi stjórnardeildar í framkvæmdastjórninni, þ.e. DG for Defence Industry and Space. Við framkvæmd starfa sinna mun hann heyra undir Virkkunen varaforseta, auk þess sem tekið er fram að hann skuli vinna náið með Kallas utanríkismálastjóra.

Sjá nánari umfjöllun í fyrirliggjandi erindisbréfi um helstu verkefni og áherslur sem lagt er til að Kubilius verði falið að vinna eftir.

Marta Kos framkvæmdastjóri stækkunarmála.

Lagt er til að Kos verði falin staða framkvæmdastjóra stækkunarmála. Sem slík mun hún fara með yfirstjórn viðkomandi stjórnardeildar í framkvæmdastjórninni, þ.e. DG for Enlargement and Eastern Neighbourhood. Við framkvæmd starfa sinna mun hún heyra undir Kallas utanríkismálastjóra annars vegar og hins vegar undir Fitto varaforseta.

Sjá nánari umfjöllun í fyrirliggjandi erindisbréfi um helstu verkefni og áherslur sem lagt er til að Kos verði falið að vinna eftir.

Jozef Síkela framkvæmdastjóri samstarfsverkefna við þriðju ríki.

Lagt er til að Síkela verði falin staða framkvæmdastjóra samtarfsverkefna við þriðju ríki. Sem slíkur mun hann fara með yfirstjórn viðkomandi stjórnardeildar í framkvæmdastjórninni, þ.e. DG for International Partnerships. Við framkvæmd starfa sinna mun hann heyra undir Kallas utanríkismálastjóra.

Sjá nánari umfjöllun í fyrirliggjandi erindisbréfi um helstu verkefni og áherslur sem lagt er til að Síkela verði falið að vinna eftir.

Costas Kadis framkvæmdastjóri sjávarútvegsmála og málefna hafsins.

Lagt er til að Kadis verði falin staða framkvæmdastjóra sjávarútvegsmála og málefna hafsins. Sem slíkur mun hann fara með yfirstjórn viðkomandi stjórnardeildar í framkvæmdastjórninni, þ.e. DG for Maritime Affairs and Fisheries. Við framkvæmd starfa sinna mun hann heyra undir Fitto varaforseta.

Sjá nánari umfjöllun í fyrirliggjandi erindisbréfi um helstu verkefni og áherslur sem lagt er til að Kadis verði falið að vinna eftir.

Maria Luís Albuquerque framkvæmdastjóri fjármálaþjónustu og uppbyggingu sameiginlegs fjármagnsmarkaðar.

Lagt er til að Albuquerque verði falin staða framkvæmdastjóra fjármálaþjónustu og uppbyggingu sameiginlegs fjármagnsmarkaðar. Sem slík mun hún fara með yfirstjórn viðkomandi stjórnardeildar í framkvæmdastjórninni, þ.e. DG for Financial Stability, Financial Services and Capital Markets Union. Við framkvæmd starfa sinna mun hún heyra undir Séjourné varaforseta.

Sjá nánari umfjöllun í fyrirliggjandi erindisbréfi um helstu verkefni og áherslur sem lagt er til að Albuquerque verði falið að vinna eftir.

Hadja Lahbib framkvæmdastjóri viðbúnaðar og almannavarna. Einnig framkvæmdastjóri jafnréttismála.

Lagt er til að Lahbib verði falið tvíþætt hlutverk, annars vegar staða framkvæmdastjóra almannavarna og hins vegar staða framkvæmdastjóra jafnréttismála. Í krafti fyrrnefndu stöðunnar mun hún fara með yfirstjórn viðkomandi stjórnardeildar í framkvæmdastjórninni, þ.e. DG for European Civil Protection and Humanitarian Aid Operations og heyra annars vegar undir Minzatu varaforseta annars vegar og hins vegar undir Kallas utanríkisráðherra er kemur að mannúðaraðstoð til þriðju ríkja. Við framkvæmd starfa á sviði jafnréttismála mun Lahbib njóta stuðnings Taskforce on Equality og heyra undir Minzatu varaforseta.

Sjá nánari umfjöllun í fyrirliggjandi erindisbréfi um helstu verkefni og áherslur sem lagt er til að Lahbib verði falið að vinna eftir.

Magnus Brunner framkvæmdastjóri innri öryggismála, öryggi landamæra og málefna flótta- og farandsfólks.

Lagt er til að Brunner verði falin staða framkvæmdastjóra innri öryggismála, öryggi landamæra og málefna flótta- og farandsfólks. Sem slíkur mun hann fara með yfirstjórn viðkomandi stjórnardeildar í framkvæmdastjórninni, þ.e. DG for Migration and Home Affairs. Við framkvæmd starfa sinna mun hann heyra undir Virkkunen varaforseta.

Sjá nánari umfjöllun í fyrirliggjandi erindisbréfi um helstu verkefni og áherslur sem lagt er til að Brunner verði falið að vinna eftir.

Jessika Roswall framkvæmdastjóri umhverfismála, vatnsverndarmála og hringrásarhagkerfisins.

Lagt er til að Roswall verði falin staða framkvæmdastjóra umhverfismála, vatnsverndarmála og hringrásarhagkerfisins. Sem slík mun hún fara með yfirstjórn viðkomandi stjórnardeildar í framkvæmdastjórninni, þ.e. DG for Environment. Við framkvæmd starfa sinna mun hún heyra undir Ribera varaforseta.

Sjá nánari umfjöllun í fyrirliggjandi erindisbréfi um helstu verkefni og áherslur sem lagt er til að Roswall verði falið að vinna eftir.

Piotr Serafin framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrar.

Lagt er til að Serafin verði falin staða framkvæmdastjóra fjármála- og rekstrar. Sem slíkur mun hann fara með yfirstjórn viðkomandi stjórnardeilda í framkvæmdastjórninni, þ.e. DG for Budget, DG for Human Resources and Security, DG for Translation, DG for Interpretation auk þess sem fleiri skrifstofur á sviði fjármála og rekstrar munu heyra undir hann. Við framkvæmd starfa sinna mun hann heyra beint undir VdL.

Sjá nánari umfjöllun í fyrirliggjandi erindisbréfi um helstu verkefni og áherslur sem lagt er til að Serafin verði falið að vinna eftir.

Dan Jørgensen framkvæmdastjóri orkumála og húsnæðismála.

Lagt er til að Jørgensen verði falin staða framkvæmdastjóra orkumála og húsnæðismála. Sem slíkur mun hann fara með yfirstjórn viðkomandi stjórnardeildar í framkvæmdastjórninni, þ.e. DG for Energy auk þess hann mun njóta aðstoðar nýs aðgerðahóps innan framkvæmdastjórnarinnar á sviði húsnæðismála (e. New taskforce on housing). Við framkvæmd starfa sinna mun hann heyra undir Ribera varaforseta.

Sjá nánari umfjöllun í fyrirliggjandi erindisbréfi um helstu verkefni og áherslur sem lagt er til að Jørgensen verði falið að vinna eftir.

Ekaterina Zaharieva framkvæmdastjóri rannsókna, nýsköpunar og frumkvöldastarfsemi.

Lagt er til að Zaharieva verði falin staða framkvæmdastjóra rannsókna, nýsköpunar og frumkvöldastarfsemi. Sem slík mun hún fara með yfirstjórn viðkomandi stjórnardeildar í framkvæmdastjórninni, þ.e. DG for Innovation and Research og Joint Research Centre auk þess sem hún mun njóta aðstoðar sérstaks aðgerðarhóps á sviði nýsköpunar og frumkvöðlastarfsemi (e. Taskforce on startups). Við framkvæmd starfa sinna mun hún heyra undir Séjourné varaforseta.

Sjá nánari umfjöllun í fyrirliggjandi erindisbréfi um helstu verkefni og áherslur sem lagt er til að Zaharieva verði falið að vinna eftir.

Michael McGrath framkvæmdastjóri lýðræðismála, dóms- og réttarríkismála.

Lagt er til að McGrath verði falin staða framkvæmdastjóra lýðræðismála, dóms- og réttarríkismála. Sem slíkur mun hann fara með yfirstjórn viðkomandi stjórnardeildar í framkvæmdastjórninni, þ.e. DG for Justice and Consumers. Við framkvæmd starfa sinna mun hann heyra undir Virkkunen varaforseta.

Sjá nánari umfjöllun í fyrirliggjandi erindisbréfi um helstu verkefni og áherslur sem lagt er til að McGrath verði falið að vinna eftir.

Apostolos Tzitzikostas framkvæmdastjóri samgöngu- og ferðamála.

Lagt er til að Tzitzikostas verði falin staða framkvæmdastjóra samgöngu- og ferðamála. Sem slíkur mun hann fara með yfirstjórn viðkomandi stjórnardeildar í framkvæmdastjórninni, þ.e. DG for Mobility and Transport. Við framkvæmd starfa sinna mun hann heyra undir Fitto varaforseta.

Sjá nánari umfjöllun í fyrirliggjandi erindisbréfi um helstu verkefni og áherslur sem lagt er til að Tzitzikostas verði falið að vinna eftir.

Christophe Hansen framkvæmdastjóri landbúnaðar- og matvælamála.

Lagt er til að Hansen verði falin staða framkvæmdastjóra landbúnaðar- og matvælamála. Sem slíkur mun hann fara með yfirstjórn viðkomandi stjórnardeildar í framkvæmdastjórninni, þ.e. DG for Agriculture and Rural Development. Við framkvæmd starfa sinna mun hann heyra undir Fitto varaforseta.

Sjá nánari umfjöllun í fyrirliggjandi erindisbréfi um helstu verkefni og áherslur sem lagt er til að Hansen verði falið að vinna eftir.

Glenn Micallef framkvæmdastjóri kynslóðajafnréttis, menningarmála og æskulýðs- og íþróttamála.

Lagt er til að Micallef verði falin staða framkvæmdastjóra kynslóðajafnréttis, menningarmála og æskulýðs- og íþróttamála. Sem slíkur mun hann fara með yfirstjórn viðkomandi stjórnardeildar í framkvæmdastjórninni, þ.e. DG for Education, Culture, Youth and Sport (deilt með Mînzatu). Við framkvæmd starfa sinna mun hann heyra undir Mînzatu varaforseta.

Sjá nánari umfjöllun í fyrirliggjandi erindisbréfi um helstu verkefni og áherslur sem lagt er til að Micallef verði falið að vinna eftir.

Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins, í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra. Leiðréttingar, ábendingar og athugasemdir sendist til ritstjóra Vaktarinnar, Ágústs Geirs Ágústssonar, á netfangið [email protected].

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

13. september 2024 | Skýrsla Draghi - Draghi endurómar gagnrýni Íslands á nýlegar breytingar á viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir fyrir flug |
Að þessu sinni er fjallað um:

stöðu mála varðandi skipun nýrrar framkvæmdastjórnar ESB

skýrslu Mario Draghi um samkeppnishæfni ESB til framtíðar

Skipan nýrrar framkvæmdastjórnar – staða mála

Skipan nýrrar framkvæmdastjórnar ESB, að afloknum kosningum til Evrópuþingsins, á sér stað með tveggja þrepa málsmeðferð, þ.e.:

Með kjöri Evrópuþingsins á forseta framkvæmdastjórnarinnar samkvæmt tillögu leiðtogaráðs ESB.

Með skipun framkvæmdastjórnarinnar í heild sinni samkvæmt tillögu kjörins forseta, sem er staðfest af ráðherraráði ESB, af hálfu leiðtogaráðs ESB að fengnu samþykki Evrópuþingsins.

Eins og greint var frá í Vaktinni 26. júlí sl. þá lauk fyrri hluta málsmeðferðarinnar með endurkjöri Ursulu von der Leyen (VdL) í embættið til næstu fimm ára.

VdL, sem kjörinn forseti (e. president-elect), hefur síðan unnið að undirbúningi skipunar nýrrar framkvæmdastjórnar í heild sinni. Fyrsta skref í þá veru var að senda ríkisstjórnum aðildarríkja ESB bréf þar sem hún óskaði formlega eftir því að ríkin tilnefndu einstaklinga til setu í nýrri framkvæmdastjórn. Fyrir liggur að í bréfinu óskaði VdL eftir því að ríkin tilnefndu bæði karl og konu með þeirri undantekningu að slíkt væri ekki nauðsynlegt í þeim tilvikum þar sem ríkin hygðust endurtilnefna einstakling sem þegar ætti sæti í núverandi framkvæmdastjórn til áframhaldandi setu. Ósk VdL er vitaskuld sett fram með það að markmiði að henni sé unnt að tryggja sem jöfnust kynjahlutföll í nýrri framkvæmdastjórn en það liggur þó einnig fyrir að með beiðninni leitast hún við að auka svigrúm sitt og val við mönnun nýrrar framkvæmdastjórnar.

Legið hefur fyrir frá upphafi að framangreind beiðni VdL á sér ekki stoð í sáttmálum ESB sem þýðir með öðrum orðum að ríkisstjórnum aðildarríkjanna er ekki skylt að verða við henni. Tilnefningar hafa nú borist frá öllum aðildarríkjunum og er ljóst að þau hafa, af einni ástæðu eða annarri, kosið að líta framhjá framangreindri ósk VdL. Þetta á við um öll aðildarríkin nema Búlgaríu sem er eina ríkið sem hefur tilnefnt bæði konu og karl. Athyglisvert er ennfremur að einungis 9 ríki hafa tilnefnt konu sem í raun útilokar, að óbreyttu, að VdL geti náð að hafa sem jafnasta kynjaskiptingu innan framkvæmdastjórarnarinnar. Þótt formlegar tilnefningar frá öllum aðildarríkum samkvæmt framangreindu hafi legið fyrir frá því snemma í þessum mánuði er kunnugt um að VdL hefur biðlað til tiltekinna aðildarríkja um að endurskoða tilnefningu sína í því skyni að fjölga konum í hópi tilnefndra.

Í lok síðustu viku benti fátt til að framangreindar málaleitanir bæru árangur allt þar til tilnefndur fulltrúi Slóveníu dró sig tilbaka og fregnir bárust af því að kona yrði tilnefnd í hans stað. Ný tilnefning Slóveníu telst þó ekki formlega gild, samkvæmt reglum þar í landi, fyrr en tiltekin fastanefnd þjóðþings Slóveníu hefur staðfest hana og er þess nú beðið en ekki virðist ljóst á þessu stigi hvenær sú staðfesting muni liggja fyrir, sbr. fréttir af því að formaður nefndarinnar sem jafnframt er leiðtogi stjórnarandstöðunnar þar í landi og fyrrum forsætisráðherra, Janez Janša, krefjist frekari skýringa á því hvaða raunverulegu ástæður liggi að baki því að fyrri kandídat landsins dró sitt til baka. Standa vonir þó til þess að það geti orðið í næstu viku. Með breyttri tilnefningu af hálfu Slóveníu fjölgar tilnefndum konum í 10 og ef VdL er sjálf talin með gætu konur í nýrri framkvæmdastjórn orðið 11 á móti 16 karlmönnum.

Þessar tafir ollu því að áformum um að kynna tillögu að nýrri framkvæmdastjórn og verkaskiptingu innan hennar fyrir forsætisnefnd í þinginu í þessari viku var frestað fram í næstu viku. Dragist tilnefning af hálfu Slóveníu gætu þau áform dregist enn frekar. Það er þegar talið munu hafa þau áhrif að ný framkvæmdastjórn geti ekki tekið við 1. nóvember eins og áformað var og þykir 1. desember líklegri dagsetning, en sá möguleiki er einnig til staðar að skipan hennar dragist enn lengur.

Þá á jafnframt eftir að koma í ljós hversu tímafrek málsmeðferð Evrópuþingsins á eftir að verða, þ.e. hvernig þingið bregst við einstökum tilnefningum og jafnframt hvernig það bregst við því kynjaójafnvægi sem enn er í kortunum þrátt fyrir breytta tilnefningu af hálfu Slóveníu. Hafni þingið einstökum framkvæmastjóraefnum þurfa viðkomandi ríki að tilnefna á ný með þeim töfum sem því fylgir.

Nánar verður fjallað um tillögu VdL um skipan nýrrar framkvæmdastjórnar í Vaktinni þegar hún liggur fyrir og um ferlið sem er framundan í Evrópuþinginu og vettvangi leiðtogaráðs ESB.

Eftirtaldir hafa hlotið tilnefningu frá aðildaríkjunum til setu í nýrri framkvæmdastjórn ESB:

Aðildarríki

Tilnefndur

Núverandi staða

Austurríki

Magnus Brunner

Fjármálaráðherra

Belgía

Hadja Lahbib

Utanríkisráðherra

Búlgaría

Ekaterina Zaharieva

& Julian Popov

Þingmaður

Starfar hjá Evrópsku loftlagssamtökunum (e. European Climate Foundation)

Danmörk

Dan Jørgensen

Þróunar- og loftlagsráðherra

Eistland

Kaja Kallas

Fv. forsætisráðherra Eistlands

Finnland

Henna Virkkunen

Þingmaður á Evrópuþinginu

Frakkland

Thierry Breton

Framkvæmdastjóri innri markaðsmála í framkvæmdastjórn ESB

Grikkland

Apostolos Tzitzikostas

Ríkisstjóri Mið-Makedóníu

Holland

Wopke Hoekstra

Framkvæmdastjóri loftlagsmála í framkvæmdastjórn ESB

Írland

Michael McGrath

Fjármálaráðherra

Ítalía

Raffaele Fitto

Evrópumálaráðherra

Króatía

Dubravka Šuica

Framkvæmdastjóri lýðræðismála í framkvæmdastjórn ESB

Kýpur

Costas Kadis

Deildarforseti við Frederick háskólann

Lettland

Valdis Dombrovskis

Framkvæmdastjóri efnahagsmála í framkvæmdastjórn ESB

Litáen

Andrius Kubilius

Þingmaður á Evrópuþinginu

Lúxemborg

Christophe Hansen

Þingmaður á Evrópuþinginu

Malta

Glenn Micallef

Ráðgjafi forsætisráðherra í ESB málum

Pólland

Piotr Serafin

Sendiherra Póllands gagnvart ESB

Portúgal

Maria Luís Albuquerque

Ráðmaður í eftirlitsráði Morgan Stanley Europe

Rúmenía

Roxana Minzatu

Þingmaður á Evrópuþinginu

Slóvakía

Maroš Šefčovič

Varaforseti framkvæmdastjórnar ESB

Slóvenía

Marta Kos

Fv. sendiherra gagnvart Þýskalandi og Sviss

Spánn

Teresa Ribera

Varaforsætisráðherra

Svíþjóð

Jessika Roswall

Evrópumálaráðherra

Tékkland

Jozef Síkela

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra

Ungverjaland

Olivér Várhelyi

Framkvæmdastjóri stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB

Þýskaland

Ursula von der Leyen

Forseti framkvæmdastjórnar ESB

Skýrsla Mario Draghi um samkeppnishæfni ESB til framtíðar

Efnisyfirlit umfjöllunnar:

Inngangur

Aðgerðir til að efla nýsköpun og vaxtarumhverfi nýsköpunarfyrirtækja

Helstu hindranir

Leiðir til úrbóta

Samþætting áætlana um kolefnishlutleysi og aukna samkeppnishæfni

Öryggis- og varnarmál, hagvarnir og strategískt sjálfræði ESB

Fjármögnun framkvæmda – uppbygging sameiginlegs fjármála- og fjármagnsmarkaðar

Umbætur í stjórnsýslu og einföldun regluverks

1. Inngangur

Þann 9. september sl. afhenti Mario Draghi, fv. forsætisráðherra Ítalíu og fv. seðlabankastjóri Seðlabanka Evrópu, forseta framkvæmdastjórnar ESB, Ursulu von der Leyen (VdL) skýrslu sína um samkeppnishæfni ESB til framtíðar. Skýrslunnar hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu, en upphaflega var gert ráð fyrir að hún yrði birt fyrir kosningar til Evrópuþingsins og gæti þannig orðið innlegg í málefnalega umræðu fyrir kosningarnar sem og við mótun nýrrar stefnuáætlunar leiðtogaráðs ESB (e. strategic agenda), sem samþykkt var á fundi ráðsins 17. júní sl., og jafnframt við mótun á stefnuáherslum tilnefnds forseta nýrrar framkvæmdastjórnar (e. Political Guidelines), en fjallað var um bæði þessi stefnuskjöl í Vaktinni 26. júlí sl. Þetta gekk þó ekki eftir og kom skýrslan ekki út fyrr en byrjun þessarar viku eins og áður segir. Það breytir því þó ekki að ætla má að skýrslan og sú stefnumörkun og tillögur sem þar eru lagðar til muni hafa áhrif á stefnu nýrrar framkvæmdastjórnar sem nú er í mótun undir forustu VdL, sbr. umfjöllun að framan um stöðu mála varðandi skipun nýrrar framkvæmdastjórnar. Í því samhengi ber að hafa í huga að hópur sérfræðinga innan úr framkvæmdastjórn ESB var Draghi til halds og trausts við skýrslugerðina. Þá ber að hafa í huga að tillögur skýrslunnar eru í fæstum tilvikum nýjar í grunninn, enda fátt nýtt undir sólinni ef út í það er farið. Þannig má einnig greina ágætan samhljóm í skýrslu Draghi við skýrslu Enrico Letta um framtíð innri markaðarins, um ýmis atriði, svo sem um uppbyggingu hins sameiginlega fjármagnsmarkaðar ESB og breytingar á samkeppnisreglum á sviði fjarskipta, sbr. til hliðsjónar umfjöllun Vaktarinnar 19. apríl sl. um skýrslu Letta.

Heilt yfir þá verður því vart neitað að í skýrslunni er dregin upp allsvört sviðsmynd af núverandi samkeppnishæfni ESB samanborið við BNA og Kína og einnig hvernig hún mun þróast með neikvæðum hætti ef ekki verður gripið til ráðstafana af því tagi sem lagðar eru til í skýrslunni.

Skýrslan er yfirgripsmikil, samtals um fjögur hundruð blaðsíður, og er henni skipt í A- og B-hluta. Það einkennir skýrsluna og eykur vægi einstakra ályktana sem dregnar eru að þær eru almennt vel undirbyggðar með sæmilega skýrum tölulegum upplýsingum og gögnum.

Í A-hluta er lögð til almenn strategísk áætlun um hvernig endurvekja megi sjálfbæran hagvöxt og efla samkeppnishæfni ESB þar sem megin áherslur eru þríþættar. Í fyrsta lagi að gripið verði til aðgerða til að efla nýsköpunarþrótt og vaxtarumhverfi nýsköpunarfyrirtækja innan ESB þannig að hann jafnist á við það sem nú á sér stað í Bandaríkjum Norður Ameríku (BNA) og Kína. Í öðru lagi að mótuð verði samþætt áætlun um kolefnishlutleysi annars vegar og aukna samkeppnishæfni hins vegar og í þriðja lagi að hert verði á hagvörnum og gætt betur að strategísku sjálfræði ESB. Framangreint er fellt undir heildstæða tillögu um það sem kallað er ný iðnaðaráætlun fyrir ESB (e. New industrial strategy for Europe).

Þá er í A-hlutanum fjallað um fjármögnun framkvæmda til eflingar á samkeppnishæfni m.a. með uppbyggingu hins sameiginlegs fjármagnsmarkaðar og bætta stjórnsýslu innan ESB og einföldun regluverks.

Í B-hluta er staða mála á einstökum sviðum greind nánar auk þess sem úrbótatillögur eru sundurgreindar nánar og útlistaðar. Þannig eru úrbótatillögur greindar niður á einstök málefnasvið sem mestu eru talin skipta fyrir samkeppnishæfni ESB til framtíðar, þ.e. orkumál, öflun mikilvægra hráefna, stafræn umskipti, þróun og innleiðing gervigreindar til hagnýtingar í hagkerfinu, þróun og framleiðsla á hálfleiðurum, málefni orkufreks iðnaðar, málefni græns tækniiðnaðar, varnarmál, geimmál, lyfjamál og samgöngumál o.fl. Þá eru einnig settar fram nánari tillögur um úrbætur á tilteknum þverfaglegum málefnasviðum. Eru tillögur á hverju sviði teknar saman í lok umfjöllunar í hverjum kafla í B-hluta skýrslunnar og er hér látið nægja að vísa til þess sem þar segir.

Athygli vekur að í skýrslunni er sett fram efnislega samhljóða gagnrýni á viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir fyrir flug og Ísland hefur haldið einarðlega á lofti á umliðnum misserum í tengslum við nýlegar breytingar á kerfinu. Bendir Draghi á að kerfið í núverandi mynd skekki samkeppnisstöðu tengiflugvalla innan Evrópska efnahagssvæðisins og geti leitt til kolefnisleka sem er samhljóða þeirri gagnrýni sem Ísland hefur haldið á lofti og fjallað hefur verið ítarlega um í Vaktinni, sbr. m.a. í umfjöllun Vaktarinnar dags. 26. maí 2023 þar sem fjallað var um samkomulag við ESB um aðlögun fyrir Ísland í stóra flugmálinu, svonefnda.

Hér á eftir er í stuttu máli fjallað um nokkur helstu efnisatriði í A-hluta skýrslunnar, sbr. framangreint efnisyfirlit umfjöllunarinnar.

2. Aðgerðir til að efla nýsköpun og vaxtarumhverfi nýsköpunarfyrirtækja

Aðgerðir til að efla nýsköpun og vaxtarumhverfi nýsköpunarfyrirtækja innan ESB, þannig að nýsköpunargeirinn jafnist á við það sem nú á sér stað í Bandaríkjum Norður-Ameríku (BNA) og Kína er ein af þremur meginforsendum þess að það takist að efla sjálfbæran hagvöxt í ESB að mati Draghi. Framleiðni í ESB hefur farið minnkandi og til að snúa þeirri þróun við þarf, að mati Draghi, að stórefla nýsköpun, sérstaklega í tæknigreinum, og ryðja brautina frá nýsköpun til markaðssetningar. Þá þarf að tryggja vaxtarumhverfi, þ.m.t. fjármögnunarmöguleika, nýsköpunarfyrirtækja og ráðast í samstillt átak til að tryggja að til staðar sé fært vinnuafl.

Megin ástæðan fyrir sífellt auknum framleiðnimun á milli ESB og BNA liggur fyrst og fremst á sviði þróunar í stafrænni tækni þar sem BNA ber höfuð og herðar yfir ESB og er útlit fyrir að munurinn þar muni einungis aukast að óbreyttu. Talið er að þróun og nýsköpun í stafrænni tækni verði megin drifkraftur vaxtar í framtíðinni rétt eins og verið hefur undanfarin ár. Er talið að næsta stóra byltingin verði á sviði skammtatölva en af 10 helstu tæknifyrirtækjum sem vinna að þróun á því sviði eru 6 þeirra staðsett í BNA og 4 í Kína, en ekkert í ESB. Staðan er svipuð er kemur að þróun gervigreindar og skýjaþjónstu svo dæmi séu tekin. Rík áhersla er lögð á mikilvægi þess að ESB hasli sér nýjan völl á þessu sviði til að tryggja framleiðni til framtíðar, sem meðal annars er forsenda þess að unnt verði að viðhalda félagslegum kerfum í Evrópu. Er þetta enn mikilvægara ef litið er til þeirra lýðfræðilegu breytinga sem eru að eiga sér stað í álfunni og munu draga verulega úr framleiðni nema annað komi til mótvægis.

Undirrót veikrar stöðu ESB á sviði stafrænnar tækni er talin liggja í stöðnuðu iðnaðarumhverfi og vítahring lítilla fjárfestinga og lítillar nýsköpunar á meðan þungi rannsókna og nýsköpunar í BNA hefur færst frá bíla- og lyfjaiðnaði til hugbúnaðar- og tölvuþróunar sem hefur drifið áfram framleiðni og búið til nýjar undirstöður í bandarísku hagkerfi.

2.a. Helstu hindranir:

Rjúfa þarf stöðnun í iðnaðarumhverfi innan ESB og vítahring lítilla fjárfestinga og lítillar nýsköpunar sem er undirrót veikrar stöðu ESB á sviði stafrænnar tækni, eins og áður segir.

Efla þarf háskólakerfið og tengja rannsóknir í háskólum betur saman við nýsköpunar- og frumkvöðlasetur.

Auka þarf opinber útgjöld ESB til rannsókna og nýsköpunar og skerpa áherslur. Þannig er bent á að málefnasvið sem falla undir helstu rannsóknar- og nýsköpunaráætlun ESB, Horizon Europe, sem hefur hátt í 100 milljarða evra til ráðstöfunar, séu of mörg auk þess sem bent er á að ferlið við að sækja um styrki úr sjóðnum sé flókið og þungt í vöfum.

Uppbrot á innri markaði ESB hindrar nýsköpunarfyrirtæki í því að stækka þvert á markaðinn, sem aftur dregur úr eftirspurn eftir fjármögnun.

Hindranir í regluverki og mismunandi regluverk á milli aðildarríkja eru taldar sérstaklega íþyngjandi í tæknigeiranum auk þess sem fjöldi landsbundinna stjórnvalda er íþyngjandi. Þá getur svonefnd „gullhúðun“ af hendi yfirvalda í einstökum aðildarríkjum einnig falið í sér hindranir fyrir fyrirtæki.

Mismunandi regluverk, skattkerfi og ófullkominn innri markaður skapar margvíslegar hindranir fyrir fyrirtæki til að vaxa sem aftur hefur áhrif á burði þeirra til að innleiða nýja tækni í starfsemi sinni eins og nýtingu gervigreindar.

Skortur á tölvugetu (e. computing power) og ófullnægjandi uppbygging áhraðaneta getur brátt birst sem flöskuháls í vexti tæknifyrirtækja.

Nýsköpun í öðrum greinum eins og lyfjaiðnaði á einnig undir högg að sækja vegna skorts á fjárfestingum í rannsóknum og þróun og of mikillar reglubyrði.

2.b. Leiðir til úrbóta:

Endurskoða þarf stuðningskerfi ESB vegna rannsókna og nýsköpunar, sbr. framangreinda umfjöllun um samstarfsáætlunina Horizon Europe.

Samræma þarf opinberar rannsókna- og þróunarstefnur þvert á aðildarríkin og er lagt til að mótuð verði aðgerðaráætlun í því skyni (e. European Research and Innovation Action Plan).

Styrkja þarf háskóla- og fræðastofnanir m.a. í gegnum Evrópska rannsóknarráðið (e. The European Research Council (ERC)) og með auknum fjárveitingum.

Styðja þarf við uppfinningamenn og sprotafyrirtæki til að taka skrefið frá hugmynd til fjárfestinga og framkvæmda.

Bæta þarf fjármögnunarmöguleika nýsköpunar- og sprotafyrirtækja, sbr. umfjöllun að neðan um fjármögnun framkvæmda og uppbyggingu hins sameiginlega fjármála- og fjármagnsmarkaðar í ESB.

Talið er að ESB hafi mikla möguleika til þess að lækka kostnað við uppsetningu og nýtingu gervigreindar af hálfu fyrirtækja með því auka tölvugetu og gera samtengd tölvunet aðgengileg.

Mælt er með því að unnið verði að aukinni samvinnu og miðlun gagna milli iðngreina til að flýta fyrir innleiðingu og notkun gervigreindar í evrópskum iðnaði.

Lagt er til að greitt verði fyrir ,möguleikum fyrir stækkun fyrirtækja á fjarskiptamarkaði þvert á aðildarríki ESB m.a. til að auka fjárfestingar í fjarskiptatengingum með því að endurskilgreina fjarskiptamarkaði þvert á ESB í stað þess að afmarka markaðssvæði við hvert aðildarríki.

3. Samþætt áætlun um kolefnishlutleysi og samkeppnishæfni.

Í skýrslunni er bent á að hár orkukostnaður standi vexti fyrir þrifum. Flutningsgeta orkuinnviða sé ekki nægileg til að standa undir stafrænni þróun og rafvæðingu samgangna. Áform ESB um afkolun og kolefnishlutleysi (e. decarbonisation) eru um margt metnaðarfyllri en keppinautanna sem stuðlar að skammtímakostnaði fyrir evrópskan iðnað.

Með afkolun geti ESB hins vegar lækkað orkuverð til framtíðar, tryggt aukið orkuöryggi og tekið forystuhlutverk í hreinorkutækni.

ESB verður að forgangsraða til þess að ná markmiðum um afkolun en um leið að vernda samkeppnishæfni evrópsk iðnaðar í alþjóðlegu samhengi. Áætlanir ESB á mörgum ólíkum sviðum verða að taka mið af þessu.

Orkugeirinn eigi við strúktúrvandamál að stríða sem leiðir til hás orkuverðs. Evrópa hefur takmarkaðar orkuauðlindir og reiðir sig að stórum hluta á innflutt gas. Innviðafjárfestingar eru hægar og óskilvirkar m.a. vegna flókinna leyfisveitinga, og markaðsreglur koma í veg fyrir lækkun smásöluverðs og afleiðuviðskipti í orkugeiranum leiða til óþarflega mikilla sveiflna í orkuverði. Einnig er nefnt að orkuskattar séu hærri í ESB en annars staðar sem stuðli að hærra orkuverði. Þá sé samningsstaða ESB sem stórinnflytjanda á gasi ekki nýtt nægilega vel til að tryggja verðstöðugleika.

Í skýrslunni er nefnt að ESB sé leiðandi í hreinorkutækni en eigi á hættu að glutra niður tækifærum í þeim geira vegna veikleika í nýsköpunarumhverfi ESB. Nýsköpunarmöguleikar séu miklir en hætta sé á að það að skili sér ekki í framleiðslu á hreinorkutækni þrátt fyrir stærð markaðarins. Vinna verði á grundvelli sameiginlegrar iðnstefnu á þessu sviði af sama metnaði og helstu keppinautar gera. Uppgangur evrópska rafhlöðuiðngeirans sé gott dæmi um að samhent stefnumótunarátak geti skilað sér.

Í ofanálag þá sé stuðningur almennings við markmið í loftlagsmálum og fjárfestingu í sjálfbærum orkugjöfum ekki nægilegur. Samgöngur spili lykilhlutverk er kemur að afkolun evrópska hagkerfisins en slíkt verði að skipuleggja með fullnægjandi hætti. Bílaiðnaðurinn sé gott dæmi um iðnað þar sem ESB hefur ráðist í stefnumótun á sviði loftslagsmála án þess að því hafi verið fylgt eftir með kröftugri iðnaðarstefnu. Breytingar á viðskiptakerfi með loftlagsheimildir fyrir flug er annað dæmi, sbr. umfjöllun að framan í inngangi, er annað dæmi þar sem stefnumótun á sviði loftlagsmála hefur verið hrint í framkvæmd án þess að nægjanlega hafi verið gætt að samkeppnishæfni.

Lagt er til að áætlanir um kolefnishlutleysi og samkeppnishæfni verði samþættar til þess að ná niður orkuverði, aftengja gasverð og verð á hreinorku og hraða afkolun á skilvirkan og tæknihlutlausan hátt. Lykilþáttur í þessu er að hraða uppbyggingu sameiginlegra orkuinnviða með því að flýta ákvarðanatöku og leyfisveitingum og samræma eftirlits- og stjórnunarkerfi orkugeirans. Brýnt sé að forgangsraða upp á nýtt í þágu tækni sem er þegar framarlega í samkeppni eða þar sem vaxtarrými er til staðar innanlands.

Lagt er til að viðskiptastefna ESB verð nýtt til að samþætta afkolun og samkeppnishæfni með því að tryggja aðfangakeðjur, markaði í vexti og vega upp á móti ríkisstyrktri framleiðslu frá keppinautum. Þróa verði iðnstefnu fyrir bílaiðnaðinn sem tengd er markmiðum um afkolun og kolefnishlutleysi.

4. Öryggis- og varnarmál, hagvarnir og strategískt sjálfræði ESB

Fram kemur að ESB sé umtalsvert háð þriðju ríkjum á ýmsum sviðum, allt frá öflun ýmissa mikilvægra hráefna til þróaðrar tækni. Ósjálfstæði að þessu leyti geti falið í sér alvarlega veikleika ef aðfangakeðjur bresta svo sem vegna pólitísks óstöðugleika og efnahagslegra þvingunarráðstafanna en um 40% af innflutningi ESB kemur frá þröngum hópi birgja sem erfitt er að skipta um og helmingur þess innflutnings kemur frá löndum sem teljast ekki til samherja í pólitísku eða hernaðarlegu tilliti. Á hinn bóginn eru, enn komið er, fáar vísbendingar um að alþjóðaviðskipti séu að dragast saman, eða að skyndileg lokun aðfangaleiða sé líkleg. Þannig hefur hvorki Kína né ESB hagsmuni af því að ýta undir slíka þróun. Á hinn bóginn er meiri hætta á að ósjálfstæði með aðföng geti verið notað af þriðju ríkjum í þvingunarskyni til að ná fram einstökum markmiðum eða til grafa undan samstöðu meðal ríkja í ESB. Þá getur óvissa um aðföng dregið úr vilja fyrirtækja til fjárfestinga.

Aukin spenna í alþjóðasamskiptum skapar þörf fyrir aukin framlög til varnarmála og í því samhengi sé brýnt að auka þróunar- og framleiðslugetu hergagnaiðnaðarins í ESB en þannig verði öryggi ESB best tryggt um leið og það styður við tækniiðnað í ESB. Að mati framkvæmdastjórnarinnar er talið að auka þurfi framlög til varnarmála um 100 milljarða evra á næsta áratug.

Þá sé það hluti af sjálfstæði og óhæði ESB til framtíðar að það tryggi sér áfram sjálfstæðan aðgang að geimnum.

Vakin er athygli á því kostnaður mun fylgja ráðstöfunum aðildarríkja ESB til að draga úr ósjálfstæði á framangreindum sviðum. Á hinn bóginn geta aðildarríkin dreift þeim kostnaði m.a. með því að beina viðskiptum inn á við þar sem það er hægt og byggja upp framleiðslu og nýsköpun á hátæknivörum með samræmdum aðgerðum og með gerð viðskiptasamninga við vinveitt þriðju ríki.

Eins og áður segir þá eru viðkvæmar aðfangakeðjur að mikilvægri hrávöru einn helsti veikleikinn er kemur að efnahagslegu öryggi ESB. Á meðan önnur helstu efnahagsveldin, svo sem Kína, BNA og Japan, hafa unnið markvisst að því um árabil að tryggja stöðu sína á þessu sviði og draga úr veikleikum hefur minna verið gert á vettvangi ESB enda þótt breyting hafi orðið þar á á síðustu tveimur árum eða svo, sbr. nýja löggjöf um mikilvæg hráefni (e. Critical Raw Materials Act). Er áhersla lögð á mikilvægi þess að sú löggjöf verði innleidd hratt og að fullu. Sömuleiðis er lögð áhersla á að möguleikar til námuvinnslu innan ESB verði nýttir en þar eru margir möguleikar taldir ónýttir, svo sem möguleg litíum námuvinnsla í Portúgal, og er í því samhengi lögð áhersla á að aðildarríkin innleiði með hraði þær breytingar á útgáfu námuvinnsluleyfa sem mælt er fyrir um í nýjum lögum um mikilvæg hráefni. Þá þarf að efla endurvinnslu mikilvægra hráefna og þróun nýrra efna er geti mögulega í einhverjum tilvikum komið í stað náttúrulegra hráefna.

5. Fjármögnun fjárfestinga til eflingar á samkeppnishæfni ESB

Samkvæmt skýrslunni er fjárfestingaþörfin gríðarleg ætli ESB sér að ná markmiðum um aukna samkeppnishæfni sem sett eru fram í skýrslunni. Samkvæmt mati Draghi þarf að ráðast í viðbótar fjárfestingar upp á 750 – 800 milljarða evra á hverju ári til að ná markmiðunum. Á hinn bóginn er sú jákvæða ályktun dregin upp að hagkerfi ESB er talið geta mætt þessum fjárfestingarþörfum án þess að gengið sé of nærri efnahagslegu þanþoli.

Hin gríðarlega mikla aukna fjárfestingarþörf skýrist m.a. af því, að sem stendur sé arðbær fjárfesting hlutfallslega lág þrátt fyrir hátt hlutfall einkasparnaðar í ESB sem sé vísbending um að fjármagnið sem er til staðar sé ekki að skila sér með skilvirkum hætti út í efnahagskerfi ESB. Talið er að megin ástæðan fyrir þessu liggi í sundurleitni fjármagnsmarkaða innan ESB. Enda þó ýmislegt hafi verið gert til að byggja upp sameiginlegan fjármagnsmarkað (e. Capital Markets Union) þá skorti enn veigamikla þætti til að markmiðið um virkan sameiginlegan fjármagnsmarkað náist, sbr. umfjöllun Vaktarinnar 15. mars sl. um uppbyggingu hins sameiginlega fjármagnsmarkaðar. Að mati Draghi þarf ESB í fyrsta lagi að koma sér saman upp eitt eftirlitsstjórnvald á verðbréfamarkaði og tryggja að unnið sé eftir sameiginlegri reglubók um alla þætti verðbréfaviðskipta. Í öðru lagi þarf að samræma og bæta regluverkið sem gildir í framhaldi af viðskiptum, þ.e. um stöðustofnun (e. clearing) og uppgjör en í þeim þætti verðbréfaviðskipta þykir ESB standa BNA langt að baki. Í þriðja lagi þarf að samræma enn frekar aðferðir við staðgreiðslu skatta og meðferð þrotabúa. Þá þykir skorta langtímafjármagn á fjármagnsmarkaði ESB sem skýrist m.a. af því að lífeyrissjóðir flestra aðildarríkja ESB eru litlir sem skýrist aftur af því að lífeyriskerfi flestra ríkjanna eru byggð á gegnumstreymissjóðum. Digrir lífeyrissjóðir skapi því ekki þann grunn á fjármagnsmarkaðinum eins og víða á við í þróuðum hagkerfum. Úr þessu þurfi að bæta. Vanvirkur fjármagnsmarkaður hafi leitt til þess að óhóflega stór hluti af fjármögnun framkvæmda innan ESB er með bankalánum, en slík fjármögnun hentar nýsköpunarverkefnum almennt ekki þar sem áhætta er oft á tíðum mikil og meiri en lánareglur banka leyfa. Við framangreint bætist að geta ESB til að styðja miðlægt við fjárfestingar er lítil, enda fjárlög ESB einungis 1% af landframleiðslu ESB. Þá skorti skarpari forgagnsröðun við úthlutun fjármuna og umsóknarferli eru flókin í samkeppnissjóðum auk þess sem áhættufælni er talin of mikil. Áréttað er að það sé óumdeilt að sameiginleg skuldabréfaútgáfa myndi styrkja og dýpka hinn sameiginlega fjármagnsmarkað mjög. Þá sé aukin sameiginleg fjármögnun fjárfestinga á vettvangi ESB nauðsynleg til að hámarka framleiðniaukningu, þetta á við t.d. um mikilvæga rannsóknarstarfsemi, innviði fyrir nýtingu gervigreindar, innviði vegna raforku- og nettenginga og sameiginlegra innkaupa m.a. á hergögnum en sameiginlegar fjárfestingar væri einmitt hægt fjármagna með útgáfu sameiginlegra skuldabréfa.

6. Umbætur í stjórnsýslu og einföldun regluverks

Til að ná markmiðum sem felast í þeirri iðnaðarstefnu sem kynnt er í skýrslunni er talið nauðsynlegt að gera breytingar á stofnanaskipulagi og starfsemi ESB. Farsæl sameiginleg iðnaðarstefna þarf að ná yfir fjárfestingaráætlanir, skattaumhverfi, menntunarstefnu, fjármagnsmarkaði og viðskipta- og utanríkisstefnu. Helstu samkeppnisaðilar ESB, þ.e. BNA og Kína, hafa sem einstök ríki, öll þessi spil á hendi og nýta þau með skilvirkum hætti, sbr. meðal annars umfjöllun Vaktarinnar 27. janúar 2023 um stuðningsaðgerðir við grænan iðnað í BNA. Ákvörðunartökuferli innan ESB skýrist vitaskuld af því að ESB er samband margra fullvalda ríkja en eftir sem áður sé ákvörðunarferlið of hægt og torsótt á köflum að mati Draghi og ferlið hefur ekki þróast sem skyldi í samræmi við fjölgun aðildarríkja. Endurskoða þurfi sáttmála ESB í þessu skyni, en margt sé þó hægt að gera þar til samstaða næst um sáttmálabreytingar. Lagt er til að komið verði á fót nýjum samræmingarvettvangi á sviði samkeppnishæfni (e. Competitiveness Coordination Framework) sem haldi utan um samræmingu á milli aðildarríkjanna á forgangssviðum, í samræmi við forgangsröðun ESB um samkeppnishæfni (e. EU Competitiveness Priorities) sem verði mótuð og samþykkt af leiðtogaráði ESB í upphafi hvers fimm ára stefnumótunartímabils. Náist ekki samstaða um aukna samvinnu á einstaka sviðum eða ef mikilvægar ákvarðanir eru hindraðar með beitingu neitunarvalds af hálfu einstakra aðildarríkja beri að skoða nýtingu heimilda í sáttmálum ESB til að breyta ákvörðunartökureglum á einstökum sviðum eða eftir atvikum að nýta heimildir í sáttmálum ESB til að efna til aukinnar samvinnu milli þess hluta aðildarríkja sambandsins sem eru viljug til þess. Til þrautavara kemur til greina að mati Draghi að einstök ríki efni til aukins samstarfs með milliríkjasamningum sem væru þá framkvæmdir utan stofnanakerfis ESB. Þá sé brýnt að ráðast í átak til að minnka reglubyrði og einfalda regluverk.

Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins, í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra. Leiðréttingar, ábendingar og athugasemdir sendist til ritstjóra Vaktarinnar, Ágústs Geirs Ágústssonar, á netfangið [email protected].

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

26. júlí 2024 | Þingsetning og stefnuáherslur VdL til næstu fimm ára |
Að þessu sinni er fjallað um:

setningu Evrópuþingsins

stefnuáætlun leiðtogaráðs Evrópusambandsins (ESB)

stefnuáherslur Ursulu von der Leyen (VdL)

Hlé verður nú gert á útgáfu Vaktarinnar vegna sumarleyfa og kemur Vaktin næst út um miðjan september.

Setning Evrópuþingsins

Efnisyfirlit umfjöllunar:

Almennt

Breytingar á skipan þingflokka

Kjör forseta Evrópuþingsins og yfirstjórnar þingsins.

Forsætisnefnd þingsins

Skipan þingnefnda

Endurkjör VdL og næstu skref við skipun nýrrar framkvæmdastjórnar

Almennt

Eins og ítarlega hefur verið fjallað um í Vaktinni að undanförnu fóru kosningar til Evrópuþingsins fram dagana 6.–9. júní sl. Frá því að úrslit kosninganna lágu fyrir hafa viðræður staðið yfir á milli leiðtoga ESB og ráðandi afla í þinginu um það hvernig skipað verði í æðstu stöður ESB á nýju tímabili, þar á meðal í ýmsar valdastöður í þinginu og jafnframt hvernig haga skuli stefnumótun af hálfu ESB til næstu fimm ára.

Nýkjörið Evrópuþing, hið tíunda í röðinni, var síðan sett í síðustu viku, 16. júlí, og voru fyrstu verkefni þingsins að kjósa í helstu stöður og koma skipulagi á störf þingsins.

Hér á eftir er gerð nánari grein fyrir helstu niðurstöðum um kjör í embætti og um skipulag þingsins.

Breytingar á skipan þingflokka

Í aðdraganda þingsetningar dró til nokkurra tíðinda þegar tilkynnt var um breytingar á skipulagi þingflokka á hægri væng þingsins. Frá því að úrslit kosninganna voru ljós, þar sem flokkar sem skilgreindir eru lengst til hægri á hinu pólitíska litrófi juku fylgi sitt nokkuð, hefur legið í loftinu að einhverjar breytingar kynnu að verða á skipan þingflokka á þeim væng stjórnmálanna. Eftir ýmsar þreifingar fór svo að lokum að þingflokkur evrópsku stjórnmálasamtakanna Identity and Democracy Party (ID), eða stærstur hluti hans, varð hluti af nýjum þingflokki sem ber nafnið Patriots for Europe Group (PfE) en auk þingmanna ID, þar á meðal 30 þingmenn Þjóðernisfylkingar Le Pen í Frakklandi, gengu 11 þingmenn flokks Viktor Orbán, Fidesz, í Ungverjalandi, sem tilheyrt hafa evrópsku stjórnmálasamtökunum European Conservatives and Reformists (ECR) til liðs við hinn nýja þingflokk sem og allir fjórir þingmenn evrópsku stjórnmálasamtakanna European Christian Political Movement (ECPM). Samanlagt hefur hinn nýi þingflokkur á að skipa 84 þingmönnum sem gerir flokkinn að þriðja stærsta þingflokki Evrópuþingsins á eftir þingflokki EPP (European People‘s Party) sem hefur 188 þingmenn og þingflokki S&D (Group of the Progressive Alliance of Socialists and Democrats in the European Parliament) sem hefur 136 þingmenn. Framangreint voru ekki einu breytingarnar sem urðu á þingflokkaskipan því auk PfE varð til annar nýr þingflokkur á hægri kantinum. Þingflokkur sá sem fengið hefur heitið Europe of Sovereign Nations (ESN) er í raun klofningur úr röðum ID en uppistaðan í flokknum eru 14 þingmenn hins umdeilda hægri öfgaflokks í Þýskalandi Alternative for Germany (AfD) en samtals telur þingflokkurinn 25 þingmenn frá átta aðildarríkjum og er þingflokkurinn sá fámennasti á þinginu og rétt yfir lágmarkinu til að teljast þingflokkur. Þingflokkur evrópsku stjórnmálasamtakanna European Conservatives and Reformists (ECR) undir forustu Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, sem einnig er skilgreindur harðlínu hægri flokkur en þó hófsamari en föðurlandsvinirnir bætti einnig við sig þingmönnum í nýafstöðnum kosningum, hefur nú 78 þingmenn og er fjórði stærsti þingflokkurinn. Þingflokkar lengst til hægri á þinginu eru því nú þrír talsins í stað tveggja áður, sem dregur kannski meira en annað fram þá innbyrðis sundrungu sem lengi hefur loðað við harðlínuflokka af þessu tagi, sbr. til hliðsjónar umfjöllun í Vaktinni 31. maí sl. þar sem fjallað var um hægri sveifluna og stöðu flokkanna lengst til hægri. Þannig hefur valdastaða og áhrif harðlínuaflanna á Evrópuþinginu í raun lítið breyst eftir kosningarnar – þrátt fyrir fylgisaukningu, svo sem vikið er að að neðan.

Kjör forseta Evrópuþingsins og yfirstjórnar þingsins

Fyrsta verkefni þingmanna var að kjósa forseta þingsins. Legið hafði fyrir að Roberta Metsola myndi bjóða sig fram til áframhaldandi setu á stóli forseta og jafnframt hafði legið fyrir að hún hefði til þess stuðning meiri hluta leiðtogaráðs ESB og þingflokka meiri hlutans á þinginu a.m.k., sbr. umfjöllun í Vaktinni 28. júní sl. þar sem fjallað er um skipanir í æðstu embætti ESB. Skemmst er frá því að segja að Metsola hlaut afgerandi kosningu í embættið eða 562 atkvæði af þeim 699 atkvæðum sem greidd voru og því réttkjörin forseti til næstu tveggja og hálfs árs. Einn þingmaður bauð sig fram til málamynda á móti henni, þ.e. Irene Montero varaformaður þingflokks The Left og hlaut hún 61 atkvæði.

Jafnframt voru kjörnir 14 varaforsetar þingsins og fimm quaestorar sem saman mynda ásamt forseta yfirstjórn skrifstofu þingsins (e. Bureau of the European Parliament) sem sér um fjárhagsmálefni þingsins, starfsmannahald o.fl. Sjá hér lista yfir þá sem kjörnir voru í yfirstjórn skrifstofu þingsins til næstu tveggja og hálfs árs. Hér vekur athygli, enda þótt það komi í sjálfu sér ekki á óvart, að nýju þingflokkarnir tveir á hægri vængnum sem fjallað er um hér að framan, þ.e. PfE og ESN, eiga enga fulltrúa í yfirstjórn þingsins, öfugt við hinn hófsamari ECR, sem Meloni stýrir, sem fékk tvo fulltrúa kjörna.

Forsætisnefnd þingsins

Varast ber að rugla framangreindri yfirstjórn þingsins saman við forsætisnefnd þingsins (e. Conference of Presidents) sem saman stendur af forseta þingsins annars vegar og formönnum þingflokka hins vegar, sjá hér lista yfir þá sem skipa nefndina. Forsætisnefndin, sem í vissum skilningi er valdamesta nefnd þingsins, hefur það hlutverk að skipuleggja þinghaldið og ákveða dagskrá þingfunda á hverjum tíma auk þess sem nefndin hefur ákveðið hlutverk við skipulagningu og mönnun þingnefnda og sendinefnda þingsins auk þess sem nefndin heldur utan um samskipti við aðrar stofnanir ESB og þjóðþing aðildarríkjanna og annarra ríkja jafnframt. Ákvarðanir í nefndinni eru teknar samhljóða eða eftir atvikum með atkvæðagreiðslum þar sem vægi atkvæða formanna þingflokka tekur mið af hlutfallslegum styrk þingflokka þeirra.

Skipan þingnefnda

Skipan í nefndir þingsins er ákveðin með þeim hætti að þingið greiðir atkvæði um tillögu forsætisnefndar um hversu margir þingmenn skuli eiga sæti í hverri fastanefnd þingsins og undirnefndum. Fastanefndir þingsins eru 20 talsins auk þess sem fjórar undirnefndir eru starfræktar, en þar að auki eru starfandi 48 sendinefndir á vettvangi þingsins. Greidd voru atkvæði um fjölda þingmanna sem sitja skuli í hverri fastanefnd og undirnefnd þann 17. júlí sl. og var tillaga forsætisnefndar samþykkt, sbr. hér. Að fenginni niðurstöðu um fjölda þingmanna í hverri nefnd kemur það í hlut þingflokka að tilnefna fulltrúa til setu í nefndunum fyrir sína hönd í hverja nefnd og ræðst fjöldi fulltrúa hvers þingflokks af hlutfallslegum þingstyrk. Voru tilnefningar þingflokka tilkynntar og staðfestar í þinginu 19. júlí sl. en nálgast má upplýsingar um skipan í hverja nefnd fyrir sig á vefsíðum nefndanna. Fyrsti fundur í þingnefndum fór síðan fram síðastliðinn þriðjudag, 23. júlí, þar sem nefndirnar kusu sér hver um sig formann og fjóra varaformenn úr sínum röðum. Sjá hér yfirlit yfir þá sem fengu kosningu sem formenn og varaformenn í nefndunum. Hér vekur athygli líkt og á við um kjör yfirstjórnar þingsins að nýju harðlínu þingflokkarnir tveir á hægri vængnum sem fjallað er um hér að framan, þ.e. PfE og ESN, eiga enga fulltrúa í framangreindum forustusveitum þingnefndanna, öfugt við hin hófsamari harðlínu öfl í ECR sem fær þrjú formannssæti í sinn hlut sem og 10 varaformannssæti. Er ljóst að þingflokkar meiri hlutans hafi sammælst um að útiloka þingmenn PfE og ESN frá embættum.

Nefnd formanna fastanefnda (e. Conference of Committee Chairs) fundar reglulega til að efla samvinnu og samræma störf nefndanna. Þá getur nefndin jafnframt komið á framfæri tillögum til forsætisnefndar um skipulag þinghaldsins og veitt ráðleggingar þegar skiptar skoðanir eru á því til hvaða nefndar einstök mál skuli ganga.

Endurkjör VdL og næstu skref við skipun nýrrar framkvæmdastjórnar

Eins og fjallað var um í Vaktinni 28. júní sl. þá hlaut Ursula von der Leyen (VdL) tilnefningu leiðtogaráðs ESB á fundi ráðsins 27. júní sl. til áframhaldandi setu á stóli forseta framkvæmdastjórnar ESB til næstu fimm ára. Skipan hennar var þó háð samþykki Evrópuþingsins og fór atkvæðagreiðsla um það fram í þinginu fimmtudaginn 18. júlí sl. Þrátt fyrir að nokkur spenna hafi verið í loftinu og að ýmsir teldu að kjör hennar gæti staðið tæpt fór það svo að hún fékk örugga kosningu í embættið eða 401 atkvæði eða 40 atkvæðum meira en nægt hefði til að ná kjöri. Er það mun betri kosning en hún fékk árið 2019. Atkvæðagreiðslan var eins og kunnugt er leynileg því er ekki unnt að segja með vissu hvaða þingmenn nákvæmlega greiddu henni atkvæði sitt en þó er talið að auk þingmanna úr þingflokkum meiri hlutans með einhverjum afföllum, hafi flestir þingmenn úr þingflokki græningja ákveðið að styðja VdL. Hvort einhverjir þingmenn úr þingflokki ECR hafi einnig ákveðið að styðja VdL í kjörinu er óljósara en flokkurinn gaf það út fyrir kosninguna að þingmenn hans gengju óbundnir til kjörsins. VdL fundaði með öllum þingflokkum í aðdraganda kjörsins og gerði grein fyrir stefnuáherslum sínum. Henni hlýtur þó að hafa verið nokkur vandi á höndum enda höfðu S&D gefið út fyrir kosninguna að þeir myndu hverfa frá stuðningi við hana ef hún biðlaði beint um stuðning til hægri harðlínu aflanna, þ. á m. flokks Meloni, ECR, og sama á við um EPP, hennar eiginn flokk, ef hún myndi lofa Græningjum of miklu.

Áður en til atkvæðagreiðslunnar kom flutti VdL ávarp, eða framboðsræðu, í þinginu og fóru fram umræður um ræðuna í kjölfarið. Samhliða birti VdL einnig stefnuáherslur sínar (e. Political Guidelines) til næstu fimm ára. Eins og rakið er í umfjöllun Vaktarinnar 17. maí sl. um stefnumörkun ESB til næstu fimm ára, þá er útgáfa á stefnuáherslum tilnefnds forseta framkvæmdastjórnar ESB mikilvægt skref í mótun nýrrar heildarstefnumörkunar fyrir ESB. Gert er ráð fyrir því, eðli málsins samkvæmt, að stefnuáherslur tilnefnds forseta séu reistar á grunni stefnuáætlunar leiðtogaráðs ESB sem samþykkt var í leiðtogaráðinu á sama fundi og VdL var tilnefnd, sbr. umfjöllun í Vaktinni 28. júní sl. um fund leiðtogaráðsins.

Hér á eftir er í fyrsta lagi gerð nánari grein fyrir innihaldi stefnuáætlunar leiðtogaráðs ESB og í framhaldi af því fjallað ítarlega um stefnuáherslur VdL. Endanleg heildarstefnumörkun og starfsáætlun af hálfu nýrrar framkvæmdastjórnar verður þó ekki ljós fyrr en stjórnin hefur verið fullskipuð og þegar hún tekur til starfa undir lok árs.

Næstu skref við skipun framkvæmdastjórnar ESB eru eftirfarandi:

VdL, sem kjörinn forseti til næstu fimm ára, sendir ríkisstjórnum aðildarríkjanna bréf þar sem hún óskar formlega eftir því að ríkin, í samráði við hana, tilnefni einstakling til setu í nýrri framkvæmdastjórn. Óskað er eftir því að ríkin tilnefni bæði karl og konu og á það við í öllum tilvikum nema ef ríkin hyggjast tilnefna einstakling sem á sæti í núverandi framkvæmdastjórn til áframhaldandi setu. Krafan um að tilnefnd séu bæði karl og kona er gerð í því augnamiði að unnt sé að tryggja sem jöfnust kynjahlutföll í nýrri framkvæmdastjórn. Þess ber þó að geta að það verður ekki leitt af sáttmálum ESB að aðildarríkjunum sé beinlínis skylt að verða við ósk kjörins forseta um að tilnefna bæði karl og konu. Þannig hefur forsætisráðherra Írlands t.d. þegar tilkynnt að stjórnvöld þar hyggist einungis að þessu sinni tilnefna einn einstakling, þ.e. núverandi efnahagsráðherra landsins, Michael McGrath. Eftir á að koma í ljóst hvort því verði haldið til streitu í ferlinu sem er framundan.

Það er síðan í verkahring VdL að stilla upp tillögu að mönnun nýrrar framkvæmdastjórnar og jafnframt hvernig verkum er skipt á milli þeirra. Þetta gerir hún í nánu samráði við ríkisstjórnir aðildarríkjanna á vettvangi ráðherraráðs ESB, sem þarf að samþykkja tillögu VdL áður en hún er send Evrópuþinginu til umfjöllunar. Föst venja er að framkvæmdastjórnin sé skipuð einum einstaklingi frá hverju aðildarríki, en það er þó ekki nauðsynlegt samkvæmt sáttmálum ESB. Meðlimir framkvæmastjórnarinnar gætu m.ö.o. verið færri ef pólitískt samkomulag tækist um það. Ný framkvæmdastjórn verður þannig væntanlega skipuð 27 framkvæmastjórum að meðtaldri VdL sjálfri, sem kemur frá Þýskalandi, og Kaju Kallas, sem þegar hefur verið tilnefnd af leiðtogaráðinu sem nýr utanríkismálastjóri ESB, og kemur frá Eistlandi.

Samþykkt tillaga að skipan nýrrar framkvæmdastjórnar í heild sinni og verkaskiptingu á milli framkvæmdastjóraefna er síðan lögð fyrir Evrópuþingið til samþykktar. Evrópuþingið efnir til sérstakrar málsmeðferðar til að meta tillöguna og hæfni framkvæmdastjóraefnanna og eru þau boðuð á fundi í þingnefndum þar sem þingmönnum gefst kostur á a spyrja tilnefnda framkvæmdastjóra spjörunum úr. Að lokinni málsmeðferð gefa nefndir þingsins út álit eða mat á tillögunni og loks eru greidd atkvæði um hana. Þingið, eða þingnefndir, geta komist að þeirri niðurstöðu að rétt sé að hafna einstökum framkvæmdastjóraefnum og þarf þá að tilnefna á ný í þau embætti. Eru dæmi um slíkt, m.a. frá 2019. Þá getur þingið einnig fræðilega komist að þeirri niðurstöðu að rétt sé að hafna tillögunni í heild sinni, enda þótt slík atburðarás verði að teljast afar ólíkleg, en þá þyrfti að endurtaka tillöguferlið í heild sinni.

Þegar samþykki þingsins fyrir skipan nýrrar framkvæmastjórnar í heild sinni liggur fyrir gengur málið til leiðtogaráðs ESB sem skipar nýja framkvæmdastjórn formlega.

Miðað við þann hraða sem hefur verið á tilnefningu og samþykki forseta framkvæmdastjórnarinnar, vali á forseta leiðtogaráðsins og utanríkismálastjóra ESB og kjöri þingforseta, má ætla að leitast verði við að hraða einnig málsmeðferð við skipan nýrrar framkvæmdastjórnar eins og kostur er á haustmisseri.

Stefnuáætlun leiðtogaráðs ESB

Efnisyfirlit umfjöllunar:

Almennt

Frjáls og lýðræðisleg Evrópa

Sterk og örugg Evrópa

Aukin hagsæld og samkeppnishæfni

Almennt

Eins og greint var frá í umfjöllun Vaktarinnar 28. júlí sl. þá hefur leiðtogaráð ESB samþykkt nýja fimm ára stefnuáætlun (e. strategic agenda).

Áætluninni er ætlað að marka stefnu ESB til næstu fimm ára í grófum dráttum og er gert ráð fyrir því að með henni sé lagður ákveðinn grunnur að annarri stefnumörkun ESB fyrir komandi starfstímabil 2024-2029, sbr. stefnuáherslur kjörins forseta framkvæmdastjórnar ESB, Ursulu von der Leyen (VdL), sem hún lagði fram í aðdraganda atkvæðagreiðslu um kjör hennar á Evrópuþinginu og fjallað er um sérstaklega hér að neðan í Vaktinni. Jafnframt er síðan gert ráð fyrir að stefnuáætlun leiðtogaráðsins leggi grunn að nýrri fimm ára stefnuáætlun nýrrar framkvæmdastjórnar ESB (e. Commission priorities for 2024 - 2029) þegar hún hefur verið fullskipuð undir lok árs. Loks er gert ráð fyrir að áætlanir formennskuríkis í ráðherraráði ESB á hverju hálfs árs tímabili séu í línu við þá grunnstefnumörkun sem þar birtist. Undirbúningur að áætluninni hefur staðið yfir síðastliðið ár, sbr. nánari umfjöllun Vaktarinnar 17. maí sl. þar sem fjallað var um undirbúning að stefnumörkun ESB til næstu fimm ára og um stefnumótunarferlið.

Stefnuáætlun leiðtogaráðs ESB er skipt upp í þrjá hluta þar sem sett eru fram stefnumarkmið fyrir ESB undir merkjum:

frelsis og lýðræðis (e. A free and democratic Europe)

styrks og öryggis (e. A strong and secure Europe)

hagsældar og samkeppnishæfni (e. A prosperous and competitive Europe)

Efnistök í stefnuáætluninni markast mjög af þeirri stöðu sem nú er uppi í Evrópu og í alþjóðasamskiptum og -viðskiptum sem og af stöðu umhverfis- og loftlagsmála. Árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu hefur gjörbreytt stöðu mála í Evrópu í fjölmörgu tilliti. Ein meginástæða fyrir stofnun ESB í upphafi var að tryggja frið, hagsæld og samvinnu á milli Evrópuríkja eftir þá hildarleiki sem háðir voru í fyrri og seinni heimstyrjöldinni. Árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu hefur á ný fært aðildarríkjum ESB heim sannindi fyrir mikilvægi þessara grunnástæðna fyrir tilvist sambandsins. Á sama tíma hafa samskipti almennt á milli ríkja og ríkjablokka harnað og sjónarmið frjálsra alþjóðaviðskipta og alþjóðavæðingar látið undan síga. Það hefur aftur kallað á aðgerðir ESB til að tryggja efnahagslegt öryggi og strategískt sjálfræði ESB (e. Strategic Autonomy). Ein skýrasta birtingarmynd framangreinds hefur verið á vettvangi framþróunar í grænum tækniiðnaði, sbr. m.a. umfjöllun í Vaktinni 24. nóvember sl. um strategískt sjálfræði ESB og þróun innri markaðarins.

Meginþemað í áætlun leiðtogaráðsins er eftirfarandi:

að styrkja samkeppnishæfni ESB og um leið að ná markmiðum um kolefnishlutleysi og umhverfisvernd m.a. uppbyggingu og þróun græns tækniiðnaðar og stafrænum umskipum,

að takast á við áskoranir vegna fólksflutninga,

að taka nauðsynlega ábyrgð á varnar- og öryggismálum,

að takast á við alþjóðlegar áskoranir á grundvelli alþjóðalaga og á vettvangi alþjóðastofnana,

að byggja upp samkeppnishæft félagslegt efnahagskerfi,

að hlúa að frumkvöðlastarfsemi

og að næsta fjármálaáætlun ESB endurspegli framangreindar stefnuáherslur

Hér á eftir eru helstu efnisatriði í stefnuáætluninni rakin nánar.

Frjáls og lýðræðisleg Evrópa

Að unnið verði að því að halda uppi gildum ESB á innri vettvangi sambandsins

Grundvallargildi ESB, sbr. 2. gr. sáttmála um ESB (TEU), eru eftirfarandi:

virðing fyrir mannlegri reisn

frelsi

lýðræði

jafnrétti

réttarríkið

virðing fyrir mannréttindum, þ.m.t. réttindum þeirra sem tilheyra minnihlutahópum.

Leiðtogaráð ESB dregur framangreind grunngildi ESB fram og leggur sérstaka áherslu á að unnið verði markvisst að því að halda þau í heiðri í innra starfi sambandsins. Þessi áhersla á gildin, sem mörgum þykja þó sjálfssögð, endurspeglar þær áhyggjur sem hafa farið vaxandi á umliðnum árum um að nú sé úr ýmsum áttum vegið alvarlega að lýðræðinu, réttarríkinu og öðrum gildum ESB.

Að ESB starfi í samræmi við gildi sambandsins á alþjóðavettvangi

Leiðtogaráðið leggur áherslu á að ESB starfi í samræmi við gildi sín ekki aðeins inn á við heldur einnig út á við með því að vinna samkvæmt alþjóðalögum og styðja stofnanir á vegum Sameinuðu þjóðanna, vinna að friði í heiminum og réttlæti og stöðugleika, lýðræði og mannréttindum og sjálfbærum þróunarmarkmiðum.

Sterk og örugg Evrópa

Að tryggð verði samhent og áhrifarík utanríkisstefna á vettvangi ESB

Vegna mikillar óvissu í alþjóðamálum, sbr. umfjöllun að framan, kemur fram að mikilvægt sé að ESB komi fram með samhentum hætti gagnvart þriðju ríkjum og ríkjabandalögum. Þá er skýr áhersla lögð á að ESB muni standa með Úkraínu eins lengi og þarf á meðan ríkið berst fyrir sjálfstæði sínu og fullveldi og styðja við endurreisn þess og leiðina að réttlátum friði.

Að varnar- og öryggismál verði efld

Vísað er til þess að þegar hafi verið tekin stór skref sem miða að því að styrkja varnarviðbúnað sambandsins og getu þess m.a. með auknum útgjöldum til varnarmála. Lagður hafi verið grunnur að stórauknum sameiginlegum fjárfestingum á þessu sviði með það að markmiði að dregið verði úr kerfislægum veikleikum m.a. á grundvelli aukinnar afkastagetu evrópsk hergagnaiðnaðar. Þá leggur leiðtogaráðið áherslur á að unnið verði að aukinni samhæfingu á milli herja aðildarríkjanna. Markmiðið er að efla samstarf á milli aðildarríkja ESB á sviði öryggis- og varnarmála sem muni styðja við varnarsamstarf á vettvangi Atlantshafsbandalagsins, Nató. Jafnframt verður unnið að auknu samstarfi á sviði dóms- og löggæslumála svo sem vegna skipulagðrar glæpastarfsemi, netglæpa og hryðjuverka- og fjölþáttaógna.

Að unnið verði að undirbúningi vegna áforma um stækkun ESB

Mikilvægi þess að stækkunaráform ESB nái fram að ganga er áréttaðenda er litið svo á að stækkun ESB sé fjárfesting í friði, stöðugleika og velmegun til lengri tíma. Inntaka nýrra ríkja í sambandið verði þó að vera byggð á verðleikum þeirra, þ.e. vilja þeirra og getu til að undirgangast gildi ESB með öllu því sem fylgir. Sjá til hliðsjónar umfjöllun Vaktarinnar 10. nóvember sl. um stækkunarstefnu ESB. Styðja þarf við umsóknarríkin til að undirbúa þau fyrir inngöngu. Jafnframt þurfi ESB að huga að umbótum í innri starfsemi sinni til að tryggja að stofnanir ESB geti starfað áfram með áhrifaríkum hætti eftir fjölgun aðildarríkja. Þá þurfi að huga vel að ytri landamærum ESB og Schengen-svæðisins og málefnum er varða flótta- og farandfólk og er í reynd kallað eftir því að lögð verði fram ný evrópsk stefna um innra öryggi Schengen-svæðisins.

Aukin hagsæld og samkeppnishæfni

Að samkeppnishæfni ESB verði styrkt

Stefnt er að aukinni samkeppnishæfni í því skyni að bæta efnahagslega og félagslega velmegun með auknum kaupmætti almennings, nýjum störfum og með því að tryggja gæði vöru og þjónustu. Styrkja á getu og strategískt sjálfræði ESB er kemur að mikilvægum greinum á sviðum tækni og iðnaðar með það að markmiði að ESB verði miðstöð slíkrar starfsemi. Unnið verði markvisst að því að jafna samkeppnisbilið við önnur markaðssvæði og samkeppnisaðila. Til þess að þetta geti orðið að veruleika þarf umtalsvert sameiginlegt fjárfestingaátak þar sem saman fari opinber fjármögnun og einkafjármögnun, m.a. með aðkomu Evrópska fjárfestingabankans. Fram kemur að helsta verkfæri ESB til ná markmiðum um aukna samkeppnishæfni sé innri markaðurinn. Efla þurfi innri markaðinn einkum á sviði orkumála, fjármögnunar og fjarskipa. Þá þurfi að tryggja að ríkisaðstoðarkerfi ESB stuðli að jafnvægi og skilvirkri ríkisstoð sem raski ekki samkeppnisgrundvelli innan markaðarins. Lögð er áhersla á mikilvægi lítilla og meðalstórra fyrirtækja í efnahagskerfi ESB. Skýr áhersla er lögð á uppbyggingu hins sameiginlega fjármagnsmarkaðar. Leitast verður við að styrkja viðskiptasambönd við þriðju ríki á grundvelli gagnkvæms markaðsaðgangs og að mikilvægar aðfangakeðjur verði styrktar. Þá verði geta, þ.m.t. framleiðslugeta, ESB á tilteknum mikilvægum sviðum efld, þ.e. á sviði varnarmála, geimmála, gervigreindar, skammtatækni, hálfleiðara, 5G/6G fjarskiptatækni, heilbrigðismála, lyfja, kemískra efna og háþróaðra efna (e. advanced materials).

Enda þótt þess sé ekki getið með beinum hætti í stefnuskjali leiðtogaráðsins, þá virðist ljóst að hér að framan er ráðið um margt að vísa til nýrrar skýrslu Enrico Letta um framtíð innri markaðarins, sbr. umfjöllun um þá skýrslu í Vaktinni 19. apríl 2024.

Árangursrík græn og stafræn umskipti

Til að ná markmiðum um kolefnishlutleysi fyrir árið 2050 þarf að nýta vel alla möguleikana sem falist geta í grænum og stafrænum umskiptum. Leiðtogaráðið leggur áherslu á að umgjörð vegna stuðningsaðgerða verði fyrirsjáanlegri og efli vaxtarmöguleika mikilvægra greina. Auka þarf orkuöryggi og orkusjálfstæði ESB með því að tryggja nægt framboð af umhverfisvænni grænni orku. Þetta mun krefjast mikilla fjárfestinga í uppbyggingu raforkukerfisins og samtengingu þeirra. Með sama hætti þarf að ráðast í miklar fjárfestingar til að byggja upp háþróaða stafræna innviði og finna leiðir til að nýta möguleika stafrænna umskipta á ólíkum sviðum svo sem m.a. á sviði landbúnaðar. Þá verði haldið áfram á þeirri braut sem fetuð hefur verið á við endurheimt vistkerfa, vatnsvernd o.fl.

Að stutt verði við nýsköpun og viðskiptavænt umhverfi

Leiðtogaráðið leggur áherslu á að stutt sé dyggilega við nýsköpun í atvinnurekstri og hlúð að fyrirtækjarekstri og iðnaði þannig að ESB verði aðlagandi fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Þannig beri að efla rannsóknir og nýsköpun og standa vörð um heilbrigða samkeppni. Í þessu skyni þurfi að einfalda regluverk og minnka reglubyrði á öllum sviðum og auka stafræna stjórnsýslu.

Framfarir fyrir alla

Búa þarf þannig um hnútana að hagvöxtur komi öllum íbúum ESB til góða. Þannig leggur leiðtogaráðið áherslu á að félagslegum úrræðum verði beitt til að tryggja að ávinningur af grænum og stafrænum umskiptum verði öllum til hagsbóta. Huga þurfi að áskorunum sem uppi eru vegna lýðfræðilegrar þróunar og hvaða áhrif sú þróun geti haft á samkeppnishæfni, mannauð og jafnrétti innan ESB. Tryggja þarf að efnahagslífið og velferðarkerfið geti stutt við samfélag þar sem öldruðum fjölgar hlutfallslega. Í þessu skyni þurfi að huga að enn frekara heilbrigðissamstarfi og bættum aðgangi að lyfjum. Fjárfesta þarf í færni fólks og endurmenntun og auka atvinnuþátttöku.

Stefnuáherslur VdL

Efnisyfirlit umfjöllunar:

Inngangur

Ný áætlun um sjálfbæra hagsæld og samkeppnishæfni

Nýir tímar í varnar- og öryggismálum Evrópu

Stuðningur við samfélög og velferðarkerfi

Viðhald lífsgæða: fæðuöryggi, vatnsvernd og náttúruvernd

Vernd lýðræðis og grunngilda ESB

Staða ESB á sviði heimsmála

Árangur fyrir alla og framtíðarsýn

Inngangur

Eins og vikið er að hér að framan birti VdL stefnuáherslur sínar (e. Political Guidelines) til næstu fimm ára þann 18. júlí sl. Eins og rakið er í umfjöllun Vaktarinnar 17. maí sl. um stefnumótunarferlið í ESB í framhaldi af kosningum til Evrópuþingsins, þá er útgáfa á stefnuáherslum tilnefnds forseta framkvæmdastjórnar ESB afar mikilvægt skref við mótun nýrrar heildarstefnumörkunar fyrir ESB. Gert er ráð fyrir því, eðli málsins samkvæmt, að stefnuáherslur tilnefnds forseta séu reistar á grunni stefnuáætlunar leiðtogaráðs ESB, sbr. umfjöllun um þá áætlun hér að framan, en jafnframt er gert ráð fyrir að úrslit Evrópuþingskosninganna og þær áherslur sem verða ofan á í kjölfar kosninganna við myndun meirihluta í þinginu endurspeglist í skjalinu, sbr. til hliðsjónar umfjöllun hér að framan um setningu Evrópuþingsins.

Stefnuskjal VdL ber yfirskriftina Val Evrópu (e. Europe‘s Choice) en í inngangsorðum skjalsins kemur fram sú afstaða VdL að á þeim óvissutímum sem nú eru uppi standi ESB og aðildarríki þess frammi fyrir skýrum valkostum, þ.e. að þau hafi:

val um að standa ein, hvert ríki um sig, eða sameinuð á grundvelli sameiginlegra gilda ESB,

val um að vera sundruð og háð öðrum eða djörf, metnaðarfull og fullvalda í sameiginlegum aðgerðum í nánu samstarfi við samstarfsríki og fjölþjóðlegar stofnanir um allan heim,

val um að hunsa breyttan veruleika eða horfa skýrum augum á heiminn eins og hann er og þær ógnir sem raunverulega steðja að, og

val um að láta öfgamenn og popúlisma hafa vinninginn eða tryggja að lýðræðisleg öfl haldi velli

Að mati VdL verður stærstu áskorunum samtímans, hvort sem það er á sviði öryggismála, loftlagsbreytinga eða samkeppnishæfni einungis mætt á áhrifaríkan hátt með sameiginlegum aðgerðum. Ógnirnar eru einfaldlega of umfangsmiklar til að hvert ríki geti tekist á við þær af eigin rammleik og tækifærin sömuleiðis af þeirri stærðargráðu að erfitt er að hagnýta þau að fullu nema með sameiginlegu átaki.

Svar VdL er því skýrt, hún vill öflugra ESB og hún vill stækka ESB með inntöku nýrra aðildarríkja.

Stefnuskjalinu er skipt upp í sjö kafla sem eru eftirfarandi:

Ný áætlun um sjálfbæra hagsæld og samkeppnishæfni (e. A new plan for Europe’s sustainable prosperity and competitiveness)

Nýir tímar í varnar- og öryggismálum Evrópu (e. A new era for European Defence and Security)

Stuðningur við samfélög og velferðarkerfi (e. Supporting people, strengthening our societies and our social model)

Viðhald lífsgæða: fæðuöryggi, vatnsvernd og náttúruvernd. (e. Sustaining our quality of life: food security, water and nature)

Vernd lýðræðis og grunngilda ESB (e. Protecting our democracy, upholding our values)

Staða ESB á sviði heimsmála: (e. A global Europe: Leveraging our power and partnerships)

Árangur fyrir alla og framtíðarsýn (e. Delivering together and preparing our Union for the future)

Hér á eftir verður nánar fjallað um framangreinda kafla stefnuskjalsins.

1. Ný áætlun um sjálfbæra hagsæld og samkeppnishæfni

Óhætt er að segja að meginþunginn í stefnuáherslum VdL liggi í þessum fyrsta kafla stefnuskjalsins þar sem aðgerðir til að auka samkeppnishæfni innri markaðar ESB eru númer eitt, tvö og þrjú. Þessi áhersla á samkeppnishæfni sem snýr jöfnum höndum að aðgerðum sem miða að því að auka samkeppnishæfni innri markaðarins inn á við og aðgerðum sem miða að því að koma við hagvörnum, ef þarf, til að tryggja efnahagslegt öryggi og strategískt sjálfræði ESB út á við. Þessar áherslur á aukna samkeppnishæfni og strategískt sjálfræði ESB hafa verið afar áberandi í umræðu á vettvangi ESB á umliðnum misserum og þá sérstaklega eftir að Rússar hófu árásarstríð sitt gagnvart Úkraínu. Ítarlega hefur verið fjallað um þessar áherslubreytingar í stefnumótun á vettvangi ESB í Vaktinni á umliðnum misserum við ýmis tilefni, svo sem í Vaktinni 17. maí sl. þar sem fjallað var um væntanlega stefnumörkun ESB til næstu fimm ára, í Vaktinni 19. apríl sl. þar sem fjallað var um skýrslu Enrico Letta um framtíð innri markaðarins, í Vaktinni 2. febrúar sl. þar sem fjallað var um nýja efnahagsöryggisáætlun ESB, í Vaktinni 24. nóvember sl. þar sem fjallað er um strategískt sjálfræði ESB og þróun innri markaðarins og í Vaktinni 13. nóvember þar sem fjallað er um Granada-yfirlýsingu leiðtogaráðs ESB og þannig mætti áfram telja. Þrátt fyrir þá miklu styrkleika sem felast í innri markaðinum og því félagslega markaðshagkerfi sem hann byggist á standa evrópsk fyrirtæki frammi fyrir mörgum áskorunum í alþjóðlegri samkeppni, svo sem vegna ósanngjarnrar samkeppni, hás orkuverðs, skorts á hæfu vinnuafli og nægilegu fjármagni til fjárfestinga. Kapphlaup sé í gangi á milli ríkja og ríkjabandalaga er kemur að þróun græns tækniiðnaðar sem mun móta hagkerfi heimsins næstu áratugi að mati VdL og ráða stöðu viðkomandi ríkja og ríkjabandalaga í því hagkerfi. ESB verði að vera virkur þátttakandi í þessu kapphlaupi vilji það tryggja samkeppnisstöðu sína og hagsæld.

Stefnuáherslum VdL á þessu sviði er skipt upp í eftirfarandi hluta í stefnuskjalinu:

Aðgerðir til að liðka fyrir viðskiptum og fyrirtækjarekstri

Að gerður verði grænn iðnaðarsáttmáli sem miði að kolefnishlutleysi og lækkun orkuverðs.

Að þáttur hringrásar í hagkerfinu og viðnámsþol þess verði eflt.

Að stafrænar lausnir verði innleiddar til að auka framleiðni

Að rannsóknir og nýsköpun verði sett í öndvegi

Að ráðist verði í stórfellt fjárfestingarátak

Að gripið verði til aðgerða til að bregðast við skorti á vinnuafli og sérhæfðu vinnuafli.

Helstu efnisatriðin sem felld eru undir hvern framangreindan hluta eru eftirfarandi:

Aðgerðir til að liðka fyrir viðskiptum og fyrirtækjarekstri

Að innri markaðurinn verði fullgerður á sviðum sem varða þjónustu, orkumál, varnarmál, fjármál og fjarskiptamál.

Að gerðar verði breytingar á nálgun í samkeppnismálum sem gerir evrópskum fyrirtækjum betur kleift að standast alþjóðlega samkeppni. Sjá í þessu samhengi m.a. umfjöllun Vaktarinnar 19. apríl sl. þar sem fjallað er um skýrslu Enrico Letta og umfjöllun hans um að rýmka þurfi samkeppnisreglur m.a. á sviði fjarskipta.

Einföldun regluverks. VdL hyggst fella öllum framkvæmdastjórum í nýrri framkvæmdastjórn að ráðast í aðgerðir til að létta á reglubyrði. Í því skyni stendur m.a. til að innleiða nýtt álagspróf sem notað verði til að meta þá byrði sem hlýst af regluverki ESB.

Nýr grænn iðnaðarsáttmáli

Grænn iðnaðarsáttmáli (e. Clean Industrial Deal) felur í raun í sér beint framhald af Græna sáttmálanum og þá jafnframt af framkvæmdaáætlun (iðnaðaráætlun) Græna sáttmálans, sbr. til hliðsjónar umfjöllun Vaktarinnar 10. febrúar 2023, um þá áætlun. Ljóst er þó að fókusinn hefur færst til, þ.e. hann er nú í grunninn settur á iðnaðarmarkmiðin en síður á umhverfismarkmiðin. Þetta er þó frekar spurning um orðalag en markmið, því markmiðin vinna hvort með öðru og breytingin því ef til vill lítil.

Lögð verður áhersla á að klára innleiðingu löggjafar á þessu sviði sem samþykkt var á nýliðnu tímabili. Er hér m.a. vísað til nýrrar reglugerðar um kolefnishlutlausan tækniiðnað (e. Net-Zero Industry Act), sbr. umfjöllum um þá gerð í Vaktinni 16. febrúar sl., og reglugerð um mikilvæg hráefni (e. Critical Raw Materials Act), sbr. umfjöllun um þá gerð í Vaktinni 24. nóvember sl. o.fl., sjá nánar til hliðsjónar umfjöllun Vaktarinnar 24. mars 2023 um framfylgd framkvæmdaáætlunar Græna sáttmálans.

Gert er ráð fyrir að grænn iðnaðarsáttmáli verði birtur innan 100 daga frá því að skipunartímabil nýrrar framkvæmdastjórnar hefst.

Lagt er til að markmiðið um 90% samdrátt í kolefnislosun fyrir árið 2040 verði lögfest.

Boðuð er ný löggjöf, svonefnd Industrial Decarbonisation Accelerator Act, sem mun hafa það markmið að hraða grænum umskiptum í atvinnulífinu einkum í orkufrekum greinum.

Haldið verður áfram að vinna að lækkun orkuverðs til heimila og fyrirtækja með margvíslegum aðgerðum.

Unnið verður að nýju grænu viðskipta- og fjárfestingasamstarfi við önnur ríki og ríkjabandalög um allan heim til að tryggja öruggt framboð mikilvægra hráefna, orku og græns tækniiðnaðar.

Boðuð er ný reglugerð um sameiginlegt stafrænt bókunar- og miðasölukerfi vegna lestarsamganga í ESB (e. Single Digital Booking and Ticketing Regulation) sem hefur það markmið að auka hlut lestarsamganga í samgöngukerfi ESB með því að auðvelda lestarmiðakaup á lengri ferðum og tryggja um leið réttindi neytenda ef lestaráætlanir riðlast.

Boðað er að tilteknar breytingar kunni að verða gerðar á áður samþykktu regluverki um kolefnishlutleysi bílaflotans árið 2035 sem miði að því að gera þróun á þessu sviði tæknióháða (e. techonlogially neutral).

Aukinn þáttur hringrásar í hagkerfinu

Boðuð er ný hringrásarhagkerfislöggjöf (e. Circular Economy Act) sem mun hafa það markmið að styðja við myndun sameiginlegs markaðar með úrgang ogendurunnin hráefni, þar sem sérstök áhersla verður lögð á endurvinnslu mikilvægra hráefna með tengingu við nýja reglugerð um mikilvæg hráefni sem vísað er til að framan.

Boðaður er nýr aðgerðarpakki á sviði efnaiðnaðar (e. chemicals industry package) sem mun hafa það markmið að auka viðnámsþol á því sviði.

Boðuð er ný löggjöf um mikilvæg lyf (e. Critical Medicines Act) sem jafnframt mun hafa það markmið að auka viðnámsþol ESB á sviði lyfjamála.

Aðgerðir til að auka framleiðni með stafrænum lausnum

Fram kemur að lág framleiðni í ESB samanborið við helstu keppinauta standi samkeppnishæfni fyrir þrifum og að ein megin orsökin sé ófullnægjandi útbreiðsla stafrænna lausna sem hefur áhrif á getu ESB til að þróa nýja þjónustu og viðskiptamótel.

Lögð verður áhersla á innleiðingu og eftirfylgni nýrra laga á þessu sviði. Er hér fyrst og fremst vísað til nýrrar reglugerðar á sviði rafrænnar þjónustu (e. Digital Services Act – DSA) sem tók gildi í aðildarríkjum ESB 16. nóvember 2022 og reglugerðar á sviði rafrænna markaða (Digital Markets Act – DMA) sem tók gildi í ESB 1. nóvember 2022, sbr. umfjöllun í Vaktinni 18. nóvember 2022.

Fram kemur að ef markmið nást um raunverulegan innri markað á stafræna sviðinu myndi það stórefla framleiðni og þar með samkeppnishæfni.

Ráðgert er að stórauka fjárfestingu í tækni framtíðarinnar svo sem í ofurtölvugetu, framleiðslu hálfleiðara, netvæðingu nytjahluta (e. internet of things), líftækni, skammtatækni, geimtækni o.fl.

Stefnt er á að ESB verði í fararbroddi er kemur að gervigreind, ekki bara við reglusetningu á því sviði, heldur einnig við þróun hennar og hagnýtingu. Í því skyni er m.a. áformað að á fyrstu 100 starfsdögum nýrrar framkvæmdastjórnar verði sérstöku verkefni (e. AI Factories initiative) hrint í framkvæmd sem ætlað er að tryggja nýsköpunarfyrirtækjum og iðnfyrirtækjum á sviði gervigreindar sérstakan aðgang að sérsniðinni ofurtölvugetu fyrir gervigreind. Þá verður jafnframt mótuð gervigreindarstefna til að styðja við aukna notkun gervigreindar á mismunandi sviðum.

Boðuð er stefnumótun um notkun gagna og gagnasafna (e. European Data Union Strategy) en miklir ónýttir möguleikar eru taldir vera fyrir hendi á því sviði, m.a. við þróun gervigreindar.

Rannsóknir og nýsköpun í öndvegi í hagkerfi ESB

Öflugt rannsóknar- og nýsköpunarstarf á vettvangi ESB er forsenda þess að ESB geti verið í forustu er kemur að hreinu og stafrænu hagkerfi að mati VdL.

Auka á fjárveitingar til rannsókna og skerpa á forgangröðun við styrkveitingar.

Boðuð er ný löggjöf um líftækniiðnað (e. European Biotech Act) og er ráðgert að tillaga þar að lútandi líti dagsins ljós á næsta ári. Tillagan verður hluti af víðtækari stefnumótun á sviði lífvísinda (e. Strategy for European Life Sciences).

Stórátak í fjárfestingum

Boðað er stórátak í fjárfestingum til að greiða fyrir grænu og stafrænu umskiptunum og að náið verði unnið með Evrópska fjárfestingabankanum (European Investment Bank).

Gripið verður til ráðstafana til að draga úr áhættu almennra lánveitenda og fjárfesta við að fjárfesta í nýsköpunarfyrirtækjum og fyrirtækjum í örum vexti.

Boðuð er tillaga um sparnaðar- og fjárfestingasamband ESB (e. European Savings and Investments Union). Tillagan sem á rót sína að rekja til tillögu í skýrslu Enrico Letta um framtíð innri markaðarins, sem áður hefur verið vísað til, er hluti af áætlun um uppbyggingu hins sameiginlega fjármagnsmarkaðar (e. Capital Markets Union) , sbr. m.a. umfjöllun í Vaktinni 31. maí sl. um þá áætlun. Hagsmunir sem hér hanga á spýtunni eru metnir gríðarlegir en talið er að unnt gæti verið að laða að 470 milljarða evra í fjárfestingar til viðbótar við það sem nú er.

Boðuð er endurskoðun á tilskipun ESB um opinber útboð (e. Revision of the Public Procurement Directive) með það markmiði að útboðsleiðin verði hagnýtt betur en nú er.

Boðað er að settur verði á fót nýr samkeppnishæfnissjóður (e. European Competitiveness Fund) og er boðað að stofnun sjóðsins verði hluti af næstu tillögu að fjármálaáætlun ESB (e. Multiannual financial framework).

Aðgerðir til að bregðast við skorti á vinnuafli og sérhæfðu vinnuafli

Gera þarf stórátak til að auka færni vinnuafls á öllum sviðum og á öllum sviðum þjálfunar og menntunar að mati VdL. Í því skyndi hyggst hún efna til sérstaks sameiginlegs færniátaks sem hún nefnir Union of Skills.

Mótuð verði sérstök menntastefna á sviði verkfræði, stærðfræði, raunvísinda og náttúruvísinda (e. STEM Education Strategic Plan).

Jafnframt er boðað að mótuð verði sérstök stefna fyrir starfsmenntun, starfsþjálfun og símenntun (e. European Strategy for Vocational Education and Training).

Áfram verði unnið að því að koma á fót samræmdri umgjörð evrópskra prófgráða (e. Joint European degree) og aðgerða til að tryggja gagnkvæma viðurkenningu á hæfni og prófgráðum milli aðildarríkja (e. Skills Portability Initiative).

2. Nýir tímar í varnar- og öryggismálum Evrópu.

Sú staðreynd að áherslum í varnar- og öryggismálum er teflt fram í öðrum kafla í stefnuskjali VdL endurspeglar þá ríku áherslu sem nú er lögð á þennan málaflokk í ESB í kjölfar árásarstríðs Rússlands gagnvart Úkraínu. Ekki leikur á því vafi að ESB er með skýrum og einbeittum hætti að hasla sér völl á sviði varnar- og öryggismála sem er ákveðin breyting frá því sem verið hefur þar sem almennt hefur verið gengið verið út frá því að varnarmál væru á hendi aðildarríkjanna hvers um sig, jafnvel þótt þau hafi stillt saman strengi á vettvangi PSC (Political and Security Committee) auk þess sem flest aðildarríkin eiga aðild að NATO. Sjá nánari umfjöllun um þessar áherslubreytingar í Vaktinni 15. mars sl.

Stefnuáherslum VdL á þessu sviði er skipt upp í eftirfarandi hluta í stefnuskjalinu:

Varnarsamstarf ESB

Viðbúnaðarbandalag til að bregðast við krísum og öryggisógnum

Öruggari Evrópa

Öruggari sameiginleg landamæri

Sanngjörn og styrk stefna í málefnum flótta- og farandsfólks

Helstu efnisatriðin sem felld eru undir hvern framangreindan hluta eru eftirfarandi:

Varnarsamstarf ESB

Stefnt er að því að byggja upp raunverulegt varnarsamstarf á vettvangi ESB (e. European Defence Union).

Að skipaður verði framkvæmdastjóri varnarmála í framkvæmdastjórn ESB (e. Commissioner for Defence) sem vinna muni náið með nýjum utanríkismálastjóra ESB.

Boðuð er útgáfa hvítbókar um framtíð varnarsambands ESB (e. White Paper on the Future of European Defence) og er stefnt að því að hvítbókin komi út innan 100 daga frá því að ný framkvæmdastjórn tekur við. Meðal þess sem til stendur til að fjalla um í hvítbókinni er hvernig styrkja megi samband ESB og Nató.

Nýr varnarmálasjóður ESB (e.European Defence Fund) verður byggður upp og fjárveitingar til hans hækkaðar en talið er að aðildarríkin þurfi að stórauka framlög sín til varnarmála og efla hergagnaiðnað innan sambandins, sbr. hergagnaiðnaðaráætlun ESB (e. European Defence Industry Programme).

Innri markaður á sviði hergagna verður efldur m.a. með auknum sameiginlegum útboðum.

Fjöldi sameiginlegra varnarmálaverkefna verður kynntur svo sem um loftvarnir ESB (e. European Air Shield) og netvarnir (e. cyber defence).

Viðbúnaðarbandalag til að bregðast við krísum og öryggisógnum

Unnið verður að mótun viðbúnaðarstefnu fyrir ESB (e. Preparedness Union Strategy). Við þá stefnumótun verður m.a. litið til skýrslu sem fyrrverandi forseti Finnlands, Sauli Niinistö, vinnur nú að og væntanleg er síðar á þessu ári.

Öruggari Evrópa

Undir þessum hluta er boðað að mörkuð verði stefna í baráttunni gegn skipulagðri glæpastarfsemi og í innri öryggismálum ESB (e. European Internal Security Strategy).

Boðað er að starfsemi Europol verði efld stórlega með meira en tvöföldun á starfsliði stofnunarinnar yfir lengri tíma.

Efla þurfi heimildir og notkun evrópsku handtökuskipunarinnar (e. European Arrest Warrant).

Skoðað verður hvernig efla megi valdheimildir saksóknaraembættis ESB (e. European Public Prosecutors’ Office) er kemur að saksókn þvert á landamæri.

Kynnt verður aðgerðaráætlun til að sporna við eiturlyfjasmygli (e. European action plan against drug trafficking), en þáttur í því verður að styrkja sameiginlega hafnarstefnu ESB.

Ný áætlun um aðgerðir gegn hryðjuverkastarfsemi (e. Counter-Terrorism Agenda) verður kynnt.

Nýtt miðlægt samskiptakerfi (e. European Critical Communication System) fyrir stjórnvöld sem sinna öryggismálum, m.a. vegna skipulagðra glæpastarfsemi, verður innleitt.

Öruggari sameiginleg landamæri

Umsýsla í tengslum við för fólks yfir landamærin verður að fullu gerð stafræn.

Evrópa verði fullkomnasti ferðaáfangastaður í heimi með stafrænni landamærastjórn.

Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex) verður styrkt enn frekar og lagt er til að stöðugildum innan stofnunarinnar verði fjölgað úr 10 þúsund í 30 þúsund.

Endurbætur verði gerðar á vegabréfsáritunarstefnu ESB (e. EU Visa Policy Strategy).

Málefni flótta- og farandfólks

Áhersla verður lögð á innleiðingu nýsamþykkts löggjafarpakka um málefni flótta- og farandfólks (e. Asylum & Migration Pact), sbr. umfjöllun um innleiðingaráætlun ESB vegna þeirrar löggjafar í Vaktinni 28. júní sl. Jafnframt er boðað að unnið verði að framtíðarstefnumótun á þessu sviði.

Unnið verður að bættu samstarfi við þriðju ríki á þessu sviði m.a. á grundvelli sáttmála um aðgerðir á Miðjarðarhafssvæðinu.

Barist verður gegn smygli á fólki og mansali og leitað leiða til opna nýjar löglegar leiðir fyrir farandfólk til ESB.

3. Stuðningur við samfélög og velferðarkerfi

Fram kemur að lífsgæði í ESB séu einstök. Kreppur undanfarinna ára hafi þó haft áhrif á lífsgæði margra. Tryggja verður sanngirni og jöfn tækifæri fyrir alla og forðast misskiptingu.

Stefnuáherslum VdL á þessu sviði er skipt upp í eftirfarandi hluta í stefnuskjalinu:

Félagslegt réttlæti í nútíma hagkerfi

Samheldni samfélaga og stuðningur við ungt fólk

Jafnréttissáttmáli

Helstu efnisatriðin sem felld eru undir hvern framangreindan hluta eru eftirfarandi:

Félagslegt réttlæti í nútíma hagkerfi

Boðað er nýtt aðgerðarplan til innleiðingar á félagslegri réttindastoð ESB (e. Action Plan on the Implementation of the European Pillar of Social Rights). Sjá til hliðsjónar umfjöllun Vaktarinnar 18. nóvember 2022 um félagslega réttindastoð ESB.

Boðuð er útgáfa vegvísis um sköpun vandaðra starfa (e. Quality Jobs Roadmap).

Lögð verður áhersla á sanngjörn uppskipti fyrir alla í þeim grænu og stafrænu umskiptum sem framundan eru.

Kynntur verður nýr sáttmáli um félagslegt samráð (e. Pact for European Social Dialogue) snemma næsta árs.

Kynnt verður ný stefna, sú fyrsta sinnar tegundar, um aðgerðir gegn fátækt (e. EU Anti-Poverty Strategy).

Ný húsnæðisstefna ESB (e. European Affordable Housing Plan), einnig sú fyrsta sinnar tegundar, verður lögð fram en almennt hefur ekki verið litið svo á hingað til að mótun húsnæðisstefnu væri í verkahring aðildarríkjanna í hverju tilviki.

Áskoranir sem við blasa vegna lýðfræðilegrar þróunar verða ávarpaðar.

Samheldni samfélaga og stuðningur við ungt fólk

Unnið verður gegn aukinni skautun í samfélögum og samfélagsumræðu.

Erasmus+ samstarfsáætlunin á sviði mennta og starfsþjálfunar verður efld.

Framkvæmdastjórum verður falið að skipuleggja samráð við ungt fólk (e. Youth Policy Dialogues) strax á fyrstu 100 starfsdögum nýrrar framkvæmdastjórnar og að síðan verði efnt til slíks samráðs árlega eftir það. Til að efla skipulegt samráð við ungt fólk enn frekar hyggst VdL koma upp sérstöku ungmennaráði sem verði henni til ráðgjafar (e. President’s Youth Advisory Board).

Hugað verður að geðheilsu ungmenna í stafrænum heimi og m.a. sett fram aðgerðaráætlun gegn neteinelti (e. action plan against cyberbullying).
Jafnréttissáttmáli

Framkvæmdastjóra jafnréttismála í framkvæmastjórn ESB verður falið að uppfæra stefnu ESB í málefnum hinsegin fólks (e. strategy on LGBTIQ equality) sem og að þróa nýja áætlun gegn kynþáttafordómum.

Boðuð er ný stefna um jafnrétti kynjanna eftir árið 2025 en auk þess hyggst VdL beita sér fyrir því að kynntur verði vegvísir um réttindi kvenna (e. Roadmap for Women’s Rights) á næsta alþjóðlega baráttudegi kvenna, þ.e. 8. mars 2025.

4. Viðhald lífsgæða: fæðuöryggi, vatnsvernd og náttúruvernd

Helstu efnisatriðin sem felld eru undir þennan kafla stefnuskjalsins eru eftirfarandi:

Fram kemur að aðgangur að öruggri fæðu á viðráðanlegu verði sem framleidd er á heimaslóðum sé grunnforsenda almennra lífsgæða í ESB.

Boðað er að kynnt verði framtíðarsýn fyrir evrópskan landbúnað og fæðuöryggi í ESB á fyrstu 100 starfsdögum nýrrar framkvæmdastjórnar.

Tryggja verður réttláta afkomu bænda og verðlauna þá bændur sem stunda umhverfisvænan landbúnað.

Skipaður verður framkvæmdastjóri sjávarútvegs og haftengdrar starfsemi og kynntur til sögunar sáttmáli um málefni hafsins þar sem sjálfbærni verður höfð að leiðarljósi.

Haldið verður áfram á braut náttúruverndar og endurheimt vistkerfa.

Lögð er áhersla á aðlögun vegna loftlagsbreytinga, aukinn viðbúnað og viðnámsþol með þátttöku alls samfélagsins og stofnanna þess og er boðað að kynnt verði aðgerðaáætlun um þetta efni (e. European Climate Adaptation Plan). Þá viðrar VdL jafnframt þá skoðun að byggja þurfi upp sameiginlegt almannavarnarkerfi ESB (e. European Civil Defence Mechanism).

Boðuð er framlagning nýrrar stefnu á sviði vatnsverndar (e. European Water Resilience Strategy).

5. Vernd lýðræðis og grunngilda ESB

Helstu efnisatriðin sem felld eru undir þennan kafla stefnuskjalsins eru eftirfarandi:

Fram kemur að lýðræðiskerfi ESB sæti nú árásum bæði innan frá og af hendi erlendra afla. Erfiðara sé nú en áður að mæta slíkum árásum á tímum stafrænnar tækni og samfélagsmiðla. Við þessar aðstæður þurfi að gæta sérstaklega að lýðræðinu.

Boðuð er framlagning áætlunar um lýðræðisvarnir (e. European Democracy Shield).

Styrkja þarf réttarríkið og verður unnið að því dag hvern ogáréttar VdL að virðing stjórnvalda í aðildarríkjunum fyrir réttarríkinu sé forsenda þess að ríkin eigi rétt til aðgangs að fjármunum úr sjóðum ESB.

Fjölmiðlafrelsi er ein af forsendum réttarríkisins og verður unnið dyggilega að innleiðingu nýrra laga um frelsi fjölmiðla m.a. með auknum stuðningi við vernd fjölmiðla og fréttamanna, sjá nánar umfjöllun Vaktarinnar 19. janúar sl. um þá löggjöf.

Stuðlað verður að auknu þátttökulýðræði með ýmsum hætti.

6. Staða ESB á sviði heimsmála

Stefnuáherslur VdL á þessu sviði eru að ýmsu leyti nátengdar þeim stefnuáherslum sem kynntar eru í 1. kafla stefnuskjalsins um sjálfbæra hagsæld og samkeppnishæfni ESB. Áherslurnar hér hafa þannig að ýmsu leyti snertingu við stefnumótun sem varðar efnahagslegt öryggi og strategískt sjálfræði ESB eða eins og segir í skjalinu:

We have entered an age of geostrategic rivalries

Stefnuáherslum VdL á þessu sviði er skipt upp í eftirfarandi hluta í stefnuskjalinu:

Stækkun ESB með hliðsjón af pólitískum landfræðilegum sjónarmiðum

Strategísk stefnumótun í málefnum nágrannaríkja ESB

Ný efnahagsutanríkistefna ESB

Endurmótun alþjóðasamstarfs

Helstu efnisatriðin sem felld eru undir hvern framangreindan hluta eru eftirfarandi:

Stækkun ESB með hliðsjón af pólitískum landfræðilegum sjónarmiðum

Að mati VdL er það siðferðileg skylda og pólitísk og strategísk landfræðileg nauðsyn að halda stækkunarferli ESB áfram í samræmi við þau fyrirheit sem gefin eru í sáttmálum ESB.

Möguleg aðild umsóknarríkja mun þó ávallt á endanum verða byggð á verðleikamiðuðu mati á því hvort umsóknarríki uppfyllti skilyrði aðildar. Sjá til hliðsjónar umfjöllun Vaktarinnar 10. nóvember sl. um stækkunarstefnu ESB.
Strategísk stefnumótun í málefnum nágrannaríkja ESB

Samhliða hnitmiðaðri stækkunarstefnu þarf, að mati VdL, að skerpa fókus gagnvart öðrum nágrannaríkjum ESB og þá sérstaklega ríkjunum við Miðjarðahafið. Í því skyni hyggst hún m.a. eins og áður segir skipa framkvæmdastjóra til að fara með málefni Miðjarðarhafssvæðisins almennt og er boðað, eins og fram er komið, að leitast verði við að koma á sáttmála við ríki á Miðjarðarhafssvæðinu um sameiginleg málefni

Þá er boðuð sérstök stefnumótun í málefnum Austurlanda nær, þar sem sérstaklega verður hugað að því hvernig tryggja megi réttláta og varanlega lausn á átökunum á Gaza.

Ný efnahagsutanríkistefna ESB

Boðað er að mótuð verði ný efnahagsutanríkisstefna ESB (e. Economic Foreign Policy). Slík stefnumótun þykir nauðsynleg í breyttum heimi þar sem skilin á milli efnahagsmála og öryggismála eru orðin óskýr og ákvarðanir um efnahagsleg málefni taka í sífellt auknum mæli mið af pólitískum landfræðilegum sjónarmiðum (e. geopolitics and geoeconomics). Ný stefna mun byggja á þremur megin stoðum, þ.e. efnahagslegu öryggi, viðskiptum og fjárfestingasamstarfi við þriðju ríki.

Stutt verði við alþjóðaviðskipti á grundvelli alþjóðareglna og með því að styrkja og endurskipuleggja Alþjóðaviðskiptastofnunina (World Trade Organization).

Lögð verður fram tillaga að nýrri áætlun um samskipti ESB og Indlands (e. Strategic EU-India Agenda). Þá er boðað að settur verði endurnýjaður kraftur í samskipti ESB við ríki Afríku sem og ríki Suður-Ameríku og Karabíska hafsins svo dæmi séu tekin.

Endurmótun alþjóðasamstarfs

Skýrt er tekið fram að ESB muni ávallt standa með og beita sér fyrir alþjóðasamskiptum sem reist eru á alþjóðalögum.

Metnaður VdL stendur til þess að ESB taki að sér forustuhlutverk við endurmótun alþjóðakerfisins.

7. Árangur fyrir alla og framtíðarsýn

Helstu efnisatriðin sem felld eru undir þennan síðasta kafla í stefnuskjalinu eru eftirfarandi:

Lögð er áhersla á skilvirka innleiðingu þeirra miklu lagabreytinga sem samþykktar hafa verið á umliðnu tímabili og fjármögnun verkefna sem þar eru undir þannig að löggjöfin skili þeim árangri sem lagt er upp með. Ný væntanlegfjármálaáætlun ESB skiptir þar höfuðmáli.

Endurskoðun og umbætur á sáttmálum ESB og grundvallarmarkmiðum er áríðandi að mati VdL, m.a. til undirbúnings fyrir hugsanlega stækkun sambandsins með inntöku nýrra aðildarríkja (e. pre-enlargement policy reviews), sbr. nánari umfjöllun í Vaktinni 3. maí sl.

VdL hyggst vinna að því að styrkja enn frekar tengslin á milli Evrópuþingisins og framkvæmdastjórnar ESB og veita þinginu meiri aðkomu að undirbúningsferli löggjafartillagna.

Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins, í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra. Leiðréttingar, ábendingar og athugasemdir sendist til ritstjóra Vaktarinnar, Ágústs Geirs Ágústssonar, á netfangið [email protected].

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

28. júní 2024 | Toppstöður og stefnumótun |
Að þessu sinni er fjallað um:

fund leiðtogaráðs ESB

formennskuáætlun Ungverja

ályktanir ráðherraráðs ESB um samskipti ESB við Ísland, Noreg og Liechtenstein

Uppbyggingarsjóð EES

innleiðingaráætlun vegna nýrrar löggjafar um flótta- og farandfólk

Brussel-vaktin kemur næst út föstudaginn 26. júlí nk.

Fundur leiðtogaráðs ESB

Efnisyfirlit umfjöllunar:

Almennt um fundinn

Skipanir í æðstu embætti ESB

Ný stefnuáætlun leiðtogaráðsins

Samkeppnishæfni ESB

Öryggis- og varnarmál almennt

Málefni Úkraínu

Málefni Austurlanda nær

Almennt

Leiðtogaráð ESB kom saman í gær til síns fyrsta formlega fundar eftir Evrópuþingskosningarnar. Ráðið kom þó saman til óformlegs fundar þann 17. júní sl. þar sem niðurstöður kosninganna og skipan í æðstu stöður voru ræddar. Vonir stóðu raunar til að hægt yrði að afgreiða tilnefningar í þær þegar á þeim fundi en af því varð þó ekki. Mörg önnur mikilvæg mál voru til umræðu á formlega fundinum í gær þar á meðal ný stefnuáætlun leiðtogaráðsins (e. strategic agenda) ætluð sem leiðarljós fyrir næstu framkvæmdastjórn, málefni Úkraínu og árásarstríð Rússlands gagnvart landinu, málefni Austurlanda nær, öryggis- og varnarmál almennt, samkeppnishæfni ESB, málefni flóttamanna, stækkunarmálefni, fjölþáttaógnir, baráttan gegn gyðingahatri og kynþátta- og útlendingafordómum o.fl.

Upphaflega hafði verið gert ráð fyrir að fundurinn gæti staðið í tvo daga en til þess kom þó ekki og var fundinum lokið seint í gærkvöldi. Hér á eftir verður stuttlega fjallað um nokkur af helstu málefnum sem rædd voru á fundinum en öðru leyti er vísað til ályktana ráðsins um málefnin, sjá hér.

Skipanir í æðstu embætti ESB

Fyrir ráðinu lá að taka ákvarðanir er varða skipanir í þrjú af æðstu embættum ESB, þ.e. eftirfarandi:

Að tilnefna einstakling í stöðu forseta framkvæmdastjórnar ESB. (Endanlegt ákvörðunarvald er hjá Evrópuþinginu sem þarf að samþykkja tilnefningu með einföldum meirihluta atkvæða, þ.e. 361 atkvæði.)

Að kjósa næsta forseta leiðtogaráðsins.

Að tilnefna einstakling í stöðu utanríkismálastjóra ESB. (Evrópuþingið þarf á síðari stigum að veita samþykki fyrir tilnefningunni áður en ráðið skipar endanlega í embættið og jafnframt þarf forseti framkvæmdastjórnar ESB, þegar hann hefur verið kjörin af Evrópuþinginu, að staðfesta tilnefninguna - þannig er tilnefning í stöðu utanríkismálastjóra með óbeinum hætti einnig undir við kjör forseta.).

Aukinn meirihluti (e. qualified majority) í leiðtogaráðinu er nægjanlegur til að komast að niðurstöðu um framangreint. Ákvarðanir leiðtogaráðsins um þessi embætti endurspegla vitaskuld niðurstöður kosninga til Evrópuþingsins og þann meirihluta sem þar er nú í myndun og leiðtogarnir, þ.e. aukinn meirihluti þeirra, telja að sé nægjanlegur til að styðja við það forsetaefni sem þeir tilnefna. Af þeim niðurstöðum ráðsins sem nú liggja fyrir er ljóst að áframhaldandi meirihluta samstarf EPP, S&D og Renew Europe er í kortunum, en sú niðurstaða hefur raunar verið í kortunum alveg frá því að niðurstöður Evrópuþingskosninganna lágu fyrir, sbr. umfjöllun Vaktarinnar 14. júní sl. um úrslitin. Þannig var það samþykkt af meirihluta ráðsins að eftirfarandi fulltrúar framangreindra flokka skipi umræddar toppstöður ESB næstu fimm árin:

Ursula von der Leyen (EPP), er tilnefnd til áframhaldandi setu í stóli forseta framkvæmdastjórnar ESB.

António Costa (S&D), fyrrverandi forsætisráðherra Portúgals, var kosinn næsti forseti leiðtogaráðs ESB (kosið er í embættið til tveggja og hálfs árs í senn en fyrirfram er gert ráð fyrir að Costa sitji í tvö tímabil, sem er hámark, eða í fimm ár.)

Kaja Kallas (Renew Europe), fyrrverandi forsætisráðherra Eistlands, er tilnefnd sem næsti utanríkismálastjóri ESB.

Framangreindar ákvarðanir ráðsins endurspegla ekki endanlega hvernig meirihluti í þinginu verður samsettur þegar upp er staðið. Þannig er ekki útilokað að þingflokkur græningja styðji tilnefningu forsetans. Á hinn bóginn virðist útilokað að ECR verði í einhverri mynd formlegur aðili að tilnefningunni enda hafa bæði sósíalistar og frjálslyndir boðað að þeir myndu þá falla frá stuðningi sínum.Það skýrir sennilega líka hvers vegna forsætisráðherra Ítalíu, Giorgia Meloni, sem jafnframt er forustumaður ECR, gat ekki verið hluti af því samráðsferli sem leiddi til þeirrar niðurstöðu jafnvel þótt hún léti í ljós óánægju sína með framangreindar ákvarðanir þar sem hún taldi að með þeim væri ekki nægjanlegt tillit tekið til úrslita kosninganna og stöðu ECR sem, samkvæmt stöðunni eins og hún lítur út núna í þinginu, hefur á að skipa þriðja stærsta þingflokknum. Kaus hún gegn Costa og Kallas en sat hjá við tilnefningu von der Leyen (VdL). Forsætisráðherra Ungverjalands, Viktor Orbán, lagðist einnig gegn þessum ákvörðunum að hluta, kaus, eins og gert hafði verið ráð fyrir, gegn VdL, sat hjá gagnvart Kallas en kaus með Costa.

Vettvangur valdataflsins færist nú yfir til Evrópuþingsins en VdL þarf eins og áður segir að tryggja sér meirihluta stuðning á þinginu, 361 atkvæði, til að ná kjöri. Framangreindir flokkar hafa, eins og staðan er nú, samtals 399 þingmenn. Svo sem nánar var rakið og útskýrt í Vaktinni 14. júní sl. þá er alls ekki víst að þessi þingmeirihluti dugi til enda viðbúið að ýmsir þingmenn flokkanna geti gengið úr skaftinu. Þannig virðist sem mjótt geti orðið á munum í forsetakjörinu. Ýmislegt á þó eftir að skýrast í þessum efnum, m.a. er enn ekki fullljóst hvernig þingmenn munu skipta sér í þingflokka þegar þingið kemur saman um miðjan næsta mánuð. Þá hefur VdL einnig ýmis spil á hendi til að tryggja sér atkvæði í þinginu þvert á þingflokka og felast þau spil annars vegar málefnasamningum og hins vegar í verkskipulagsvaldinu, þ.e. hvernig störfum er skipt á milli framkvæmdastjóraembætta í framkvæmdastjórninni og hvaða framkvæmdastjórastól hvert aðildarríki fær í sinn hlut þegar ný framkvæmdastjórn verður skipuð í heild sinni, en um það hefur kjörinn forseti mikið að segja. Von der Leyen verður þó að fara afar varlega í að biðla til þingmanna ECR enda gæti það þýtt að hún missi stuðning bæði S&D og Renew. VdL er þó talin eiga góða möguleika, eins og áður segir, að tryggja sér atkvæði úr röðum græningja jafnvel þótt þeir hafi ekki stutt hana fyrir fimm árum síðan.

Framangreind niðurstaða ráðsins um skipanir í embætti er í samræmi við það sem gert hefur verið ráð fyrir að yrði niðurstaðan nú um nokkurt skeið og voru þessar tillögur einnig á borðum á fundi ráðsins 17. júní sl.

Í niðurstöðum ráðsins er ekki fjallað um embætti forseta Evrópuþingsins, enda á leiðtogaráðið enga formlega aðkomu að kjöri þingsins í það embætti. Hins vegar liggur fyrir að kjör í það embætti er einnig hluti af samkomulagi leiðtoga í leiðtogaráðinu og gerir samkomulagið ráð fyrir að Roberta Metsola (EPP) verði kjörin til áframhaldandi setu í embætti forseta þingsins til næstu tveggja og hálfs ára með tilstyrk meirihlutans.

Ný stefnuáætlun leiðtogaráðs ESB

Ný fimm ára stefnuáætlun leiðtogaráðs ESB (e. strategic agenda) var samþykkt á fundinum. Áætluninni er ætlað að marka stefnu ESB til næstu fimm ára í grófum dráttum og er henni skipt upp í þrjá hluta þar sem sett eru stefnumarkmið fyrir ESB undir merkjum:

frelsis og lýðræðis (e. A free and democratic Europe)

styrks og öryggis (e. A strong and secure Europe)

hagsældar og samkeppnishæfni (e. A prosperous and competitive Europe)

Undirbúningur að áætluninni hefur staðið yfir síðastliðið ár, sbr. nánar umfjöllun Vaktarinnar 17. maí sl. þar sem stefnumótunarferlið framundan er rakið og þær áherslur sem uppi hafa verið á undirbúningstímanum. Nánar verður fjallað um nýja stefnuáætlun leiðtogaráðs ESB í Vaktinni á næstunni.

Málefni Úkraínu

Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, var sérstakur gestur ráðsins í upphafi fundarins þar sem m.a. var undirrituð sameiginleg yfirlýsing ESB og Úkraínu um sameiginlegar öryggisskuldbindingar til næstu fimm ára. Yfirlýsingin er athyglisverð og gefur skýr skilaboð og áréttingu, nú í upphafi nýs stefnumótunartímabils, að ESB og aðildarríki þess hyggjast standa með Úkraínu í varnarbaráttu þeirra gegn Rússum eins lengi og þörf krefur.

Samkeppnishæfni ESB

Í ályktunum ráðsins um samkeppnishæfni ESB er sérstaklega vikið að uppbyggingu hins sameiginlega fjármagnsmarkaðar ESB. Kallar leiðtogaráðið eftir því við framkvæmdastjórn ESB að hún flýti vinnu við gerð tillagna á því sviði. Sjá til hliðsjónar umfjöllun Vaktarinnar 15. mars sl. um uppbyggingu sameiginlegs fjármagnsmarkaðar í ESB, sbr. einnig umfjöllun um skýrslu Enrico Letta um framtíð innri markaðarins í Vaktinni 19. apríl sl.

Öryggis- og varnarmál

Öryggis- og varnarmál, sbr. nýja stefnumótun framkvæmdastjórnar ESB á þessu sviði, voru til umræðu á fundinum, sbr. til hliðsjónar umfjöllun Vaktarinnar 15. mars sl. um þá stefnumótun.

Málefni Austurlanda nær

Málefni Austurlanda nær voru til umræðu á fundinum og þá vitaskuld einkum hin grafalvarlega staða sem uppi er á Gasa en einnig hin aukna spenna sem hefur verið að byggjast upp á landamærum Ísraels og Líbanons. Í ályktunum ráðsins nú er líkt áður reynt að gæta jafnvægis í fordæmingu á hryðjuverkum Hamas, sem mörkuðu upphafið af þeim átökum sem nú geysa, um leið og lýst er afar þungum áhyggjum af stöðunni á Gasa og í nágrannaríkjum.

Formennskuáætlun Ungverja

Ungverjar taka við formennsku í ráðherraráði ESB á mánudaginn kemur, 1. júlí, en þá lýkur formennskutíð Belga í ráðinu. Formennska í ráðinu gengur á milli aðildarríkja ESB í ákveðinni röð og er formennskutímabilið sex mánuðir. Stendur formennskutímabil Ungverja samkvæmt því frá 1. júlí – 31. desember 2024 en þá munu Pólverjar taka við formennskukeflinu, þar á eftir Danir og síðan Kýpverjar á fyrri hluta árs 2026.

Ráðherraráð ESB er ein þriggja megin valdastofnana ESB. Hinar tvær eru Evrópuþingið og framkvæmdastjórn ESB. Algengt er að ráðherraráðinu (e. Council of the European Union) annars vegar og leiðtogaráði ESB (e. European Council) hins vegar sé ruglað saman í almennri umræðu en þar er í raun um tvær aðskildar stofnanir sambandsins að ræða. Leiðtogaráðið, þar sem sæti eiga leiðtogar aðildarríkja ESB, hefur tiltölulega fáar formlegar valdheimildir en áhrifavald þess er vitaskuld mikið og afgerandi í stærri stefnumálum. Ráðherraráð ESB fer hins vegar m.a. með hið formlega löggjafarvald á vettvangi ESB ásamt Evrópuþinginu.

Ráðherraráð ESB starfar í deildum og taka ráðherrar í ríkisstjórnum aðildarríkjanna þátt í fundum ráðsins í samræmi við skiptingu stjórnarmálefna á milli ráðherra innan ríkisstjórnar hvers aðildarríkis.

Er það hlutverk formennskuríkis á hverjum tíma að stjórna fundum í öllum deildum ráðherraráðs ESB en formennskuríki getur þó óskað eftir því að fulltrúar annarra ríkja fari með formennsku í einstökum deildum eða undirnefndum ráðsins ef þannig stendur á. Þá stýrir formennskuríkið einnig samningaviðræðum fyrir hönd ráðsins við Evrópuþingið og framkvæmdastjórn ESB í þríhliða viðræðum um löggjafarmálefni og önnur málefni eftir atvikum. Umtalsvert áhrifavald fylgir formennskunni á hverjum tíma enda geta áherslur formennskuríkis haft mikið um það að segja hvort tiltekin mál fái framgang eða ekki. Á hinn bóginn er þess jafnan vænst, venju samkvæmt, að formennskuríkið gegni hlutverki sáttamiðlara (e. honest broker) í viðræðum aðildarríkjanna innan ráðsins. (Sjá hér útskýringarsíðu á vef ráðsins um hlutverk ráðherraráðsins og formennskuríkis.)

Ungverjar kynntu formennskuáætlun sína þann 18. júlí sl. með slagorðinu „Make Europe Great Again!“ sem aftur hefur verið skammstafað MEGA. Slagorðið skapar augljós hugrenningatengsl við slagorð Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðanda, og verður vart annað ráðið en að það hafi einmitt verið ætlunin.

Ungverjar taka við formennsku í ráðherraráðinu á krítískum tímapunkti nú þegar kosningar til Evrópuþingsins eru nýafstaðnar og þegar fyrir liggur að skipa á ný í öll helstu embætti ESB, sbr. framangreinda umfjöllun um fund leiðtogaráðs ESB, og þegar ástand heimsmála er eins og raun ber vitni. Í formennskuáætlun Ungverja kemur skýrt fram að þeir muni beita sér fyrir greiðum umskiptum á milli tímabila samkvæmt framangreindu og jafnframt gæta þess að efnisatriði nýrrar stefnuáætlunar leiðtogaráðs ESB, sbr. umfjöllun hér að framan, skili sér í heildarstefnumörkun framkvæmdastjórnar ESB til næstu fimm ára.

Eins og vikið hefur verið að í Vaktinni við ýmis tilefni á undanförnum misserum þá hefur afstaða ríkjandi stjórnvalda í Ungverjalandi til ýmissa grundvallarmálefna verið á skjön við ríkjandi stefnu ESB. Á þetta ekki síst við um afstöðu Ungverjalands til árásarstríðs Rússlands gagnvart Úkraínu, sbr. umfjöllun Vaktarinnar 2. febrúar sl. um langtímastuðning við Úkraínu, sbr. einnig afstöðu þeirra til stækkunarstefnu ESB, sbr. þá einkum til aðildarumsóknar Úkraínu að ógleymdri þeirri hörðu deilu sem uppi hefur verið á milli framkvæmdastjórnar ESB og Ungverjalands vegna athugasemda framkvæmdastjórnarinnar um stöðu réttarríkis í landinu, sbr. m.a. umfjöllun Vaktarinnar 2. desember 2022 og 16. desember sama ár um þau mál.

Með hliðsjón af framangreindu, meðal annars, hefur víða á vettvangi ESB mátt greina áhyggjur af því hvernig Ungverjar muni sinna formennskuhlutverkinu og axla þá ábyrgð sem því fylgir. Slagorðið sem áður var vikið að varð ekki til að létta þær áhyggjur en þess ber þó að geta að slagorðið sem slíkt kemur hvergi fram í formennskuáætlun Ungverja né er það að finna í aðalútgáfu af formennskumerki þeirra, enda þótt útgáfa með slagorðinu sé einnig til og í dreifingu af hálfu Ungverja, sbr. hér. Verður reynslan að leiða í ljós hvernig þeim farnast hlutverkið.

Ef litið er til fyrirliggjandi formennskuáætlunar Ungverja þá verður þó ekki séð að hún, út af fyrir sig, gefi tilefni til að hafa áhyggjur. Áætlunin er í raun mjög hefðbundin og þar er slegið á kunnuglega strengi auk þess sem sérstaklega er áréttað í upphafi skjalsins að Ungverjar ætli sér að taka málamiðlunarhlutverkið alvarlega með frið, öryggi og velsæld Evrópu að leiðarljósi. Þá verður ekki annað sagt en að formennskuáætlunin og þær megináherslur sem þar eru séu í góðu samræmi við nýsamþykkta stefnuáætlun leiðtogaráðs ESB.

Í inngangi formennskuáætlunarinnar eru síðan dregin fram sjö almenn forgangsmál en þau eru eftirfarandi:

Nýr sáttmáli um samkeppnishæfni (e. New European Competitiveness Deal)
Þörf á nýjum sáttmála í þessu skyni er rökstudd m.a. með vísan til aukinnar alþjóðlegrar samkeppni, raskana sem orðið hafa á aðfangakeðjum, háu orkuverði, aukinni verðbólgu o.s.frv. Tekið er fram að horft verði til tillagna í nýlegri skýrslu Enrico Letta, fv. forsætisráðherra Ítalíu, sbr. umfjöllun Vaktarinnar dags. 19. apríl sl. um þá skýrslu, sem og til tillagna í væntanlegri skýrslu sem Mario Draghi, annar fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu og fv. seðlabankastjóri Evrópu, vinnur nú að um samkeppnishæfni ESB til framtíðar.

Efling varnarmálastefnu ESB (e. The reinforcement of European defence policy)
Þetta áherslumál er rökstutt með vísan til þróunar á sviði öryggis- og varnarmála sem kalli á að ESB og aðildaríki þess auki varnarviðbúnað og viðbragðsgetu sína verulega. Lögð er áhersla á að ESB verði í auknum mæli fær um að standa á eigin fótum á þessu sviði og er í þessu efni m.a. vísað til nýlegrar stefnu ESB á sviði varnarmála, sbr. umfjöllun Vaktarinnar 15. mars sl. um þá stefnu.

Verðleikamiðuð stækkunarstefna (e. A consistent and merit-based enlargement policy)
Í áætluninni kemur fram það mat ungversku formennskunnar að stækkun ESB á umliðnum árum hafi reynst afar farsæl og er þar jafnframt lýst yfir stuðningi við áframhaldandi stækkun sambandsins enda sé stækkunarferlið samræmt og framgangur umsóknarríkja byggður á verðleikum. Í þessu sambandi er sérstaklega vikið að mögulegri inngöngu umsóknarríkjanna á Vestur-Balkanskaga, þ.e. Serbíu, Albaníu, Norður-Makedóníu og Bosníu-Hersegóvínu, og áhersla lögð á að jafnvægi ríki í framgangi aðildarferlis einstakra umsóknarríkja. Athygli vekur að ekkert er minnst á Úkraínu og Moldóvu í þessu samhengi en þess ber þó að geta að belgíska formennskan lauk formennskutíð sinni með ríkjaráðstefnum við bæði þessi ríki sem hrindi viðræðum við þau af stokkunum. Tæknilega á því ekkert að standa því í vegi að þær geti siglt áfram meðan á formennsku Ungverjalands sttendur. Heilt yfir virðast áherslur Ungverja í þessum málaflokki vera í samræmi við gildandi stækkunarstefnu ESB, sbr. umfjöllun Vaktarinnar 10. nóvember sl.

Hertar aðgerðir gegn ólögmætum fólksflutningum (e. Stemming illlegal migration)
Áherslumálið er rökstutt með vísan til áskorana og byrða sem ólögmætir fólksflutningar til ESB hafa haft í för með sér fyrir einstök aðildarríki og þá einkum þeirra sem liggja að ytri landamærum ESB. Í þessu sambandi er m.a. lögð áhersla eflingu Schengen-samstarfsins, en einnig að styrkja samstarf við nágrannaríki ESB. Er því lýst yfir að ungverska formennskan muni vinna að innleiðingu nýrrar löggjafar í málefnum flótta- og farandsfólks, sem tókst loks að klára endanlega í tíð belgísku formennskunnar, sbr. umfjöllun hér að neðan um nýja innleiðingaráætlun sem framkvæmdastjórn ESB hefur gefið út vegna þeirrar löggjafar. Ljóst er þó að ungversk stjórnvöld telja hina nýju löggjöf ekki gallalausa og að leita þurfi frekari lausna.

Mótun samheldnisstefnu til framtíðar (e. Shaping the future of cohesion policy)
Fram kemur að vel mótuð samheldnisstefna sé lykillinn að því að draga úr svæðisbundnu misræmi og misskiptingu, bæði efnahagslegri og félagslegri. Bent er á að nýjasta samheldnisskýrsla framkvæmdastjórnar ESB sýni að enn er talsverð misskipting á milli svæða og er málefnið þess vegna sett í forgang af hálfu Ungverja. Sjá í þessu samhengi m.a. umfjöllun Vaktarinnar hér að neðan um Uppbyggingarsjóð EES, en tilgangur þess sjóðs er einmitt að draga úr misræmi og misskiptingu á hinu evrópska efnahagssvæði.

Landbúnaðarstefna sem tekur mið af hagsmunum bænda (e. A farmer-oriented EU agricultural policy)
Fram kemur að evrópskur landbúnaðar hafi aldrei staðið frammi fyrir eins miklum áskorunum og nú. Þar spili inn í loftslagsbreytingar, vaxandi framleiðslukostnaður, aukinn innflutningur frá þriðju ríkjum og íþyngjandi regluverk, m.a. vegna umhverfisverndar, sem dregið hafi úr samkeppnishæfni greinarinnar. Ungverska formennskan hyggst því þannig beita sér fyrir því að fundið verði betra jafnvægi milli markmiða er lúta að framkvæmd Græna sáttmálans og þess að tryggja stöðugleika í greininni og að tryggja viðunandi lífskjör bænda. Sjá til hliðsjónar umfjöllun Vaktarinnar 1. mars sl. um mótmæli bænda sem voru áberandi og fyrirferðarmikil í aðdraganda kosninga til Evrópuþingsins.

Lýðfræðilegar áskoranir (e. Addressing demographic challenges)
Fyrirséð er að áskoranir vegna lýðfræðilegra breytinga, m.a. vegna hækkandi meðalaldurs og öldrunar, munu aukast mjög á komandi árum sem geti stofnað efnahagslegri velmegun og samkeppnishæfni ESB í hættu. Vill ungverska formennskan vekja sérstaka athygli á þessum áskorunum með því að setja þetta fram sem forgangsmál á umræðuvettvangi ráðsins. Er í þessu sambandi m.a. vísað til nýlegrar orðsendingar framkvæmdastjórnar ESB þar sem kynnt eru stefnutæki til að bregðast við lýðfræðilegri þróun, sbr. umfjöllun Vaktarinnar 13. október sl., um þá orðsendingu.

Auk framangreindra forgangsmála er í formennskuáætluninni fjallað um málefni ESB á breiðum grundvelli og umfjölluninni skipt upp í samræmi við verkaskiptingu á milli deilda ráðherraráðsins, sjá hér formennskuáætlunina í heild sinni.

Ályktanir ráðherraráðs ESB um samskipti ESB við Ísland, Noreg og Liechtenstein

Ráðherraráð ESB samþykki hinn 25. júní sl. ályktanir um samskipti ESB við Vestur-Evrópuríki sem standa utan ESB. Tekur samþykktin til ályktana um samskipti ESB við EES/EFTA-ríkin Ísland, Noreg og Liechtenstein auk þess sem fjallað eru um samskiptin við smáríkin Andorra, San Marínó og Mónakó og loks jafnframt við Færeyjar. Þá er að auki ályktað sérstaklega um stöðu EES-samstarfsins.

Ráðherraráð ESB ályktar með þessum hætti á tveggja ára fresti og var síðasta ályktun ráðsins samþykkt 21. júní 2022.

Ályktanir ráðherraráðsins á þessu sviði eru undirbúnar af sérstökum EFTA vinnuhópi ráðsins (e. Working Party on European Free Trade Association) og mættu sendiherra Íslands í Brussel, Kristján Andri Stefánsson, og Katrín Sverrisdóttir, forstöðumaður EES-samræmingar í sendiráðinu, á fund vinnuhópsins 14. febrúar sl. þar sem þau gerðu ítarlega grein fyrir stöðu mála á Íslandi og afstöðu Íslands til samstarfsins við ESB á vettvangi EES-samningsins og utan hans.

Ályktanir ráðherraráðsins nú fjalla um ýmsa þætti í samskiptum ESB við framangreind ríki og segja má að með þeim marki ráðið afstöðu sína og áhersluatriði í þeim samskiptum en á meðal þess sem fram kemur í ályktunum er eftirfarandi:

Ráðið áréttar mikilvægi samstöðu andspænis árásarstríði Rússlands gagnvart Úkraínu og er stuðningi Íslands, Liechtenstein og Noregs við þvingunaraðgerðir ESB gagnvart Rússlandi fagnað.

Ráðið lýsir Íslandi sem nánu og áreiðanlegu samstarfsríki ESB og að EES-samningurinn sé hornsteinn þeirra samskipta. Íslandi er sérstaklega hrósað fyrir frammistöðu sína er það gegndi formennsku í Evrópuráðinu (Council of Europe) frá nóvember 2022 til maí 2023, m.a. með því að hafa haft frumkvæði af því að koma á fót tjónaskrá vegna árasárstríðs Rússlands gagnvart Úkraínu. Ráðið fagnar góðum samskiptum við Ísland á sviði fiskveiðimála og segir það sameiginlega hagsmuni beggja aðila að styrkja tvíhliða samskiptin á þessu sviði. Hins vegar hvetur ráðið Ísland til að hlíta hvalveiðibanni Alþjóðahvalveiðiráðsins og falla frá fyrirvörum við samning um alþjóðaverslun með tegundir villtra dýra og plantna sem eru í útrýmingarhættu (Convention on International Trade in Endangered Species - CITES), sbr. lög frá Alþingi 85/2000.

Ályktanir ráðsins um samskiptin við Noreg eru almennt sömuleiðis jákvæðar og Noregi lýst sem mikilvægu og nánu samstarfsríki ESB, m.a. á sviði öryggis- og varnarmála, auk þess að vera áreiðanlegur birgir fyrir olíu og gas. Hins vegar slær við annan tón þegar kemur að umfjöllun um samskipti ESB og Noregs á sviði fiskveiðamála. Ráðið harmar (e. "deplores") skort á árangri í viðræðum um stjórnun sameiginlegra stofna og skort á samstarfsvilja af hálfu Norðmanna. Sömuleiðis harmar ráðið einhliða ákvarðanir Noregs um hámarksafla á makríl sem gangi lengra en stofninn þoli sem og takmarkanir á heimildum fiskiskipaflota aðildarríkjanna til að veiða í norskri lögsögu.

Ályktanir ráðsins um samskiptin við Liechtenstein eru jafnframt jákvæðar.

Ráðið er afar jákvætt í afstöðu sinni gagnvart EES-samningnum þar sem 30 ára afmæli samningsins er fagnað og litið á samninginn sem fyrirmynd að samstarfi náinna samstarfsríkja. Hins vegar er áréttað mikilvægi þess að vinna á upptökuhallanum og eru nokkrar lagagerðir sem setið hafa á hakanum um alllangt skeið nefndar í því sambandi.

Uppbyggingarsjóður EES

Ráðherraráð ESB samþykkti á fundi 25. júní sl. fyrirliggjandi samkomulag EES/EFTA-ríkjanna og ESB um fjárframlög í Uppbyggingarsjóð EES fyrir tímabilið 2021-2028 og um tollkvóta fyrir tilteknar sjávarafurðir frá Íslandi inn á markað ESB fyrir sama tímabil.

Sjá nánar um samkomulagið í umfjöllun Vaktarinnar 8. desember sl.

Alþingi heimilaði stjórnvöldum að samþykkja amkomulagið 22. júní sl.

Innleiðingaráætlun vegna nýrrar löggjafar um flótta- og farandfólk

Hinn 12. júní sl. kynnti framkvæmdastjórn ESB sameignlega innleiðingaráætlun vegna nýrrar löggjafar um málefni flótta- og farandfólks (e. Common Implementation Plan for the Pact on Migration and Asylum). Löggjafarpakkinn, sem var endanlega samþykktur 14. maí sl., samanstendur af 10 lagagerðum, reglugerðum og tilskipunum. Gerðirnar tóku gildi 20 dögum eftir að þær birtust í stjórnartíðindum ESB, þ.e. þriðjudaginn 11. júní sl. og munu þær koma til framkvæmda að tveimur árum liðnum eða í júní 2026. Fjallað var um löggjafarpakkann í Vaktinni 19. janúar sl. þegar samkomulag um efni hans lá fyrir í þríhliða viðræðum Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB.

Innleiðingaráætlunin samanstendur af sjálfstæðum en nátengdum meginstoðum sem varða ákveðna lykilþætti í löggjafarpakkanum sem eru eftirfarandi:

Nýr fingrafaragagnagrunnur (EURODAC)

Nýtt ferli svo ná megi betri stjórn á ytri landamærum Schengen-svæðisins

Viðunandi móttökuúrræði

Sanngjarnt, skilvirkt og samræmt hæliskerfi

Skilvirkt og sanngjarnt brottvísunarkerfi

Sanngjarnt og skilvirkt ábyrgðarkerfi (e. responsibility)

Samábyrgðarkerfi (e. solidarity)

Áætlanagerð um framtíðarstefnu í hælismálum og krísustjórnun

Nýjar varnir fyrir umsækjendur um vernd og einstaklinga í viðkvæmri stöðu

Endurbætt kvótaflóttakerfi (e. Resettlement)

Skilvirkari inngilding

Um afar umfangsmikla löggjöf er að ræða sem hefur það að markmiði að ná betri yfirsýn og stjórn á málefnum einstaklinga í ólögmætri för innan Schengen-svæðisins og til að bæta og hraða málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd. Líkt og fjallað var um í Vaktinni 19. janúar sl. hefur hagsmunagæsla Íslands gagnvart ESB einkum lotið að því að tryggja skýra afmörkun á almennum málsmeðferðarreglum ESB í málum er varðar alþjóðlega vernd, þ. á m. hvað varðar samábyrgðareglur ESB, og þeim reglum sem Ísland hefur skuldbundið sig til að innleiða á grundvelli Schengen-samningsins og samnings um þátttöku Íslands í Dyflinnarsamstarfinu svonefnda og fingrafaragagnagrunni Eurodac.

Ísland hefur á vettvangi ráðherraráðs ESB áréttað að Ísland muni innleiða að fullu þær gerðir sem það er skuldbundið til að innleiða á grundvelli Schengen-samningsins og samnings Íslands um aðild að Dyflinnarsamstarfinu og Eurodac. Jafnframt hefur verið gefið út að fyrir Ísland sé mikilvægt að skoða hælispakka ESB í heild sinni til að tryggja samræmi í allri framkvæmd.

Framkvæmdastjórn ESB mun halda utan um innleiðingarferlið innan aðildarríkja ESB og samstarfsríkja Schengen eftir því sem við á og mun Ísland taka þátt í því ferli.

Svo tryggja megi að innleiðing hælispakkans verði að fullu lokið í aðildarríkjum ESB og samstarfsríkjum Schengen, Íslandi, Noregi, Sviss og Liechtenstein, þegar reglurnar eiga að koma til framkvæmda í júní 2026 ber hverju ríki að útbúa landsáætlun sem á vera tilbúin 12. desember nk. Landsáætlun er ætlað að taka mið af ofangreindum meginstoðum og fela í sér skýra tímaramma fyrir innleiðingu. Í landsáætlun Íslands verður lögð áhersla á þær meginstoðir sem rúmast innan skuldbindinga Íslands en einnig þarf að móta afstöðu til þeirra gerða, eins og áður segir, sem Ísland er ekki skuldbundið til að innleiða en stendur eftir sem áður til boða að gera.

Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins, í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra. Leiðréttingar, ábendingar og athugasemdir sendist til ritstjóra Vaktarinnar, Ágústs Geirs Ágústssonar, á netfangið [email protected].

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

14. júní 2024 | Úrslit Evrópuþingskosninganna |
Að þessu sinni er fjallað um:

niðurstöður kosninga til Evrópuþingsins

leiðtogafundi á næstu dögum

jöfnunartolla á kínverska rafbíla

Niðurstöður kosninga til Evrópuþingsins

Efnisyfirlit umfjöllunar:

Heildarniðurstöður

Niðurstöður í einstökum ríkjum

Kjör forseta framkvæmdastjórnar ESB

Áhrif kosninganna á stefnumótun ESB

Heildarniðurstöður

Niðurstöður kosninga til Evrópuþingsins sem fram fóru dagana 6. – 9. júní sl. voru heilt yfir í samræmi við það sem skoðanakannanir og kosningaspár höfðu gert ráð fyrir, sbr. umfjöllun um kosningarnar í Vaktinni 3. maí sl. og 31. maí sl.

Meiri hluti miðjuflokkanna á þinginu, þ.e. meiri hluti EPP (kristilegir demókratar), Renew Europe (frjálslyndir) og S&D (jafnaðarmenn) heldur velli með 406 þingmenn af 720. Fleiri þingmenn kunna að eiga eftir að bætast í raðir þessara þingflokka á næstu dögum og vikum eða allt fram að þingsetningu um miðjan júlí nk., en þá fyrst verður endanlega ljóst hvernig þingmenn muni raða sér í þingflokka en óvissa þar um snýr fyrst og fremst að þeim 44 þingmönnum sem náðu kjöri í aðildaríkjunum en tilheyra framboðum sem enn hafa ekki lýst yfir stuðningi eða fengið inngöngu í einhvern af núverandi stjórnmálaflokkum ESB eða í þá þingflokka sem starfræktir voru á afstöðnu þingi. Almennt má gera ráð fyrir að flestir þessara þingmanna muni skipa sér í raðir þeirra þingflokka sem fyrir eru, en sá möguleiki er einnig fyrir hendi að nýir þingflokkar verði til en til að stofna þingflokk þarf 23 þingmenn frá a.m.k. 7 aðildarríkjum. Þá er loks sá möguleiki til staðar að þingmenn starfi utan þingflokka en á nýliðnu þingi voru 62 þingmenn utan þingflokka þegar þinghaldi var frestað fyrir kosningarnar og er þegar gert ráð fyrir að 45 þingmenn (sem eru til viðbótar við þessa 46 þingmenn sem áður voru nefndir) eigi ekki samleið með núverandi þingflokkum en sú áætlun byggist þó einungis á stöðunni eins og hún var á þinginu fyrir kosningar. Þannig eru nú þegar í gangi þreifingar og viðræður um að þingmenn í þeim hópi gangi til liðs við núverandi þingflokka, þá einkum flokkana lengst til hægri það er ID og ECR. Samtals eru því, eins og staðan er nú, 89 þingmenn skilgreindir utan þingflokka en viðbúið er að þessi tala muni lækka, jafnt og þétt, næstu daga og vikur.

Það er því ekki fyllilega ljóst enn sem komið er hver þingstyrkur einstakra þingflokka verður og á það við um framangreinda þrjá þingflokka sem myndað hafa meiri hluta eins og aðra. Heilt yfir má ætla að þingstyrkur meirihluta flokkanna verði samanlagt áþekkur eða eilítið lægri en hann var á afstöðnu þingi en þá höfðu umræddir flokkar 417 þingmenn af 705 í sínum röðum þegar þinghaldi var frestað fyrir nýafstaðnar þingkosningar. Innbyrðis styrkur umræddra þriggja flokka hefur þó breyst nokkuð. Þannig hefur EPP styrkt stöðu sína umtalsvert, var með 176 þingmenn við lok fráfarandi þings en hefur nú (að lágmarki) 190 þingmenn. S&D stendur svo að segja í stað, hafði 139 þingmenn en hefur nú (að lágmarki) 136. Renew Europe tapar hins vegar töluverðu, hafði 102 þingmenn en hefur nú (að lágmarki) 80 þingmenn.

Þingflokkur Greens/EFA (græningja) tapar hins vegar hlutfallslega mestu í kosningunum, hafði 71 þingmann en hefur nú einungis 52 þingmenn (að lágmarki). Þingflokkur græningja hefur á umliðnu þingi stutt dyggilega við meirihlutann á þinginu, einkum við afgreiðslu löggjafarmála er varða framgang Græna sáttmálans.

Þingflokkur ID, sem er skilgreindur lengst til hægri, bætir hlutfallslega mest við sig, hafði 49 þingmenn en fær nú (að lágmarki) 58 þingmenn. Þingflokkur ECR sem einnig er skilgreindur lengst til hægri en telst þó hófsamari en ID bætir einnig við sig, hafði 69 þingmenn en fær 76 (að lágmarki). Þess ber þó að geta að fyrir liggur að stór hluti þeirra 45 þingmanna sem skilgreindir eru utan þingflokka koma úr slíkum flokkum og munar þar mestu um 10 þingmenn Fidesz-KDNP í Ungverjalandi og 17 þingmenn AfD í Þýskalandi. Fylgisaukning flokkanna lengst til hægri er þó eftir sem áður heilt yfir minni en kosningaspár höfðu gert ráð fyrir.

Þingflokkur The Left sem er sá flokkur sem er lengst til vinstri á þinginu hafi 37 þingmenn en hefur nú (að lágmarki) 39 þingmenn. Flokkurinn heldur því sínu. Athuga ber að flokkurinn hefur líkt og á við um flokkana lengst til hægri efasemdir um frekari samþættingu aðildarríkjanna á vettvangi ESB auk þess sem afstaða flokksins til árásarstríðs Rússlands gagnvart Úkraínu er einnig að vissu leyti áþekk því sem sést hefur í málflutningi flokkanna lengst til hægri þar sem mælt er gegn vopnasendingum til Úkraínu og áhersla lögð á vopnahléssamninga.

Niðurstöður í einstökum ríkjum

Niðurstöður í einstökum aðildarríkjum endurspegla eins og vænta mátti þær stefnur og strauma sem þar ráða ríkjum, enda þótt frávik séu sýnileg. Hér á eftir er nánar rýnt í stöðuna í nokkrum aðildarríkjum þar sem niðurstöður kosninganna hafa hvað helst vakið athygli, og þá einkum vegna hinnar títtræddu hægri sveiflu.

Frakkland

Stórsigur RN (Rassemblement national eða Þjóðfylkingarinnar, upp á íslensku) flokks Marine Le Pen, undir forystu Jordan Bardella, sem hlaut 31,4% í kosningunum eru stórtíðindi í evrópskum stjórnmálum en þau úrslit voru þó ekki óvænt enda höfðu skoðanakannanir sýnt að þetta gæti orðið raunin. Sú ákvörðun forseta Frakklands að rjúfa þing og boða til snemmbúinna þingkosninga 30. júní og 7. júlí nk., sem hann tilkynnti skömmu eftir lokun kjörstaða síðastliðið sunnudagskvöld, var hins vegar afar óvænt og hefur ákvörðunin valdið gríðarlegum titringi í Frakklandi og þvert á ESB. Ljóst er að þessi ákvörðun Emmanuel Macron er djörf og að líkindum er það fordæmalaust, í Frakklandi allavega, að forseti boði til snemmbúinna þingkosninga þegar vísbendingar benda svo eindregið til þess að kosningar geti leitt til ósigurs sitjandi stjórnarflokka en þess ber þó að gæta að flokkur forsetans nýtur heldur ekki meirihluta á sitjandi þingi. Ljóst er Macron bindur vonir við að flokkur hans Renaissance og aðrir Evrópusinnaðir miðjuflokkar til hægri og vinstri geti náð vopnum sínum og haldið meiri hluta á þinginu. Hefur það m.a. verið nefnt í þessu sambandi að ólíkt kosningafyrirkomulag í þingkosningum í Frakklandi, þar sem kosið er í einmenningskjördæmum í tveimur umferðum, samanborið við hlutfallskosningakerfið sem notað er í Evrópuþingskosningum, og sú staðreynd að kosningaþátttaka er almennt mun minni í Evrópuþingskosningum, geti aukið líkurnar á því að vonir Macron verði að veruleika. Ályktanir í þessa veru eru þó umdeilanlegar. Kosningakerfi sem byggast á einmenningskjördæmum eru almennt til þess fallinn að skerpa línur á milli stærstu pólitísku aflanna sem takast á, en takmarka um leið möguleika minni flokka til að komast til áhrifa og fá menn kjörna. Hvorum megin hryggjar lukkan lendir í komandi kosningum mun því að líkindum ráðast af afli þeirra kosningabandalaga og sameiginlegra framboða sem tekst að efna til á þeim skamma tíma sem er til kosninga. Í grófum dráttum er þó fyrirséð að þrjár pólitískar blokkir muni takast á í kosningunum, þ.e. frjálslynda miðjublokkin sem Macron fer fyrir, hægri blokk Le Pen, og loks samfylking flokka á vinstri vængnum. Kosningafyrirkomulagið býður þannig upp á að umtalsverðar sviptingar geti orðið, spurningin er bara í hvaða átt sveiflan verður. Ef teningarnir falla ekki Macron í vil geta mál auðveldlega æxlast þannig að forsætisráðherrastóllinn falli í hendur RN.

Komi framangreind staða upp er óhætt að segja að flókin staða sé kominn upp í frönskum stjórnmálum og í stjórnkerfi Frakklands þar sem gjörólík hugmyndafræði og stefna væri lögð til grundvallar af forseta annars vegar og ríkisstjórn hins vegar, en Macron hefur þegar gefið það út að hann hyggist sitja áfram á stóli forseta óháð því hvernig þingkosningarnar fara.

Athyglisvert er að á blaðamannafundi sem Macron efndi til í vikunni til að útskýra ákvörðun sína kom fram að með ákvörðun sinni væri hann ekki síður að horfa til þess hvernig farið gæti í næstu forsetakosningum í Frakklandi sem áætlaðar eru 2027. Af ummælum á blaðamannafundinum er ljóst að hann óttast að áframhaldandi uppgangur aflanna lengst til hægri geti endað með því að þeim takist að hreppa forsetaembættið í næstu forsetakosningum. Þannig virðist þingrofið nú og boðaðar þingkosningar ekki síst vera hugsuð til þess að stöðva eða hægja á risi þessara flokka fyrir komandi forsetakosningar eftir þrjú ár með því að vekja almenning og hófsömu stjórnmálaöflin til umhugsunar um það hvaða afleiðingar uppgangur þeirra geti haft fyrir Frakkland. Ríkisstjórnarseta þessara afla kunni þannig jafnvel, ef almenningur kýs svo, að vera leið til að vekja fólk til þeirrar umhugsunar. Macron situr nú á stóli forseta sitt annað kjörtímabil og getur því ekki boðið sig fram að nýju árið 2027. Nýr einstaklingur mun því setjast í stól forseta 2027 og getur sá forseti ákveðið efna á ný til snemmbúinna þingkosninga eftir að hann tekur við embætti, telji hann þörf á, og þannig mögulega stytt kjörtímabilið sem fram undan er. Komi framangreind staða upp getur það hæglega haft áhrif á Evrópusamstarfið á vettvangi ESB og EES með margvíslegum hætti enda er Frakkland, ásamt Þýskalandi, kjölfesta Evrópusambandsins í sinni núverandi mynd.

Þýskaland og Austurríki

Í Þýskaland er þrennt sem einkennir niðurstöður kosninganna. Í fyrsta lagi afar slakt gengi SPD, jafnaðarmannaflokks kanslara Þýskalands Olaf Scholz, sem hlaut einungis 13,9% atkvæða. Í öðru lagi afar sterk útkoma CDU, flokk kristilegra demókrata, sem jafnframt er flokkur Ursulu von der Leyen (VdL) sem fékk 30% atkvæða. Í þriðja lagi og síðasta lagi en ekki síst hafa kosningarnar vakið athygli fyrir sterka útkomu þýska hægri öfgaflokksins AfD sem fékk 15,9% atkvæða eða næst flest atkvæði á eftir flokki CDU í kosningunum þar í landi.

Uppgangur hægri öfgaflokksins FPÖ (Die Freiheitliche Partei Österreichs) í Austurríki hefur einnig hlotið athygli þar sem flokkurinn hlut mest fylgi eða 25,4%.

Ítalía og Pólland

Á Ítalíu vann hinn þjóðernissinnaði flokkur forsætisráðherra landsins, Giorgia Meloni, Bræðralag Ítalíu, sigur með 28,8% fylgi. Flokkurinn tilheyrir þingflokki ECR sem hefur ásamt ID verið flokkaður lengst til hægri á Evrópuþinginu. Eins og áður hefur verið fjallað um í Vaktinni 31. maí sl. eru skýr merki þess að flokkur ECR sé, þrátt fyrir sínar þjóðernislegu rætur, orðinn Evrópusinnaðri á síðari árum undir stjórn Meloni en áður var.

Auk Meloni hafði einungis einn annar leiðtogi í ESB tilefni til að fagna góðum árangi í kosningunum en það var forsætisráðherra Póllands, Donald Tusk, en bandalag flokka sem hann fer fyrir, og tilheyrir þingflokki EPP, bætti verulega við sig í kosningunum en þau úrslit eru í samræmi við kosningasigur sem flokkarnir unnu á síðasta ári. Að sama skapi tapaði fyrrverandi stjórnarflokkur Póllands, Lög og regla (PiS), sem tilheyrir ECR eins og flokkur Meloni nokkru fylgi í kosningunum.

Hægri sveiflan í öðrum aðildarríkjum

Þrátt fyrir nokkra uppsveiflu flokkanna lengst til hægri heilt yfir, sbr. framangreint, er einnig athyglivert að sveiflan lengst til hægri var víða minni en kannanir höfðu bent til. Á það m.a. við um aðildarríki ESB á Norðurlöndum, Svíþjóð, Finnland og Danmörku, þar sem flokkar lengst til hægri stóðu í stað eða töpuðu fylgi. Portúgal er einnig dæmi um þetta þar sem flokkurinn Chega, sem nýlega vann sigur í þingkosningum þar í landi með 18% atkvæða, fékk einungis tæp 10% atkvæða í Evrópuþingkosningunum nú. Holland og Belgía eru einnig dæmi um ríki þar sem hægri sveiflan reyndist minni en spáð hafði verið en í þessum löndum virðist sem margir hægri sinnaðir kjósendur hafi þegar á hólminn var komið frekar ákveðið að kjósa hófsamari mið-hægri flokka en flokkana lengst til hægri. Þannig héldu flokkar í Hollandi, sem eru aðilar að EPP á Evrópuþinginu, nokkuð óvænt þeim 6 þingmönnum (þeim gæti fjölgað) sem þeir höfðu áður.

Kjör forseta framkvæmdastjórnar ESB

Eins og fjallað hefur verið um í Vaktinni 29. september sl. og 3. maí sl. þarf Evrópuþingið að samþykkja þann sem leiðtogaráð ESB tilnefnir sem forseta framkvæmdastjórnar ESB. Kjör forseta fer þannig fram, sbr. 7. mgr. 17. gr. sáttmála um Evrópusambandið (The Treaty on European Union – TEU), að leiðtogaráð ESB tilnefnir einstakling til að gegna embættinu, með hliðsjón af niðurstöðum kosninga til Evrópuþingsins. Tilnefning ráðsins er síðan borin undir atkvæði í Evrópuþinginu, að undangenginni athugun af hálfu þingsins, og ræður einfaldur meirihluti úrslitum – að þessu sinni 361 atkvæði af 720. Náist meirihluti telst forsetaefnið réttkjörið en ella gengur sá kandídat úr skaftinu og leiðtogaráðið þarf þá að koma sér saman um aðra tilnefningu í embættið innan mánaðar. Í samræmi við þessar valdheimildir hefur vilji þingsins lengi staðið til þess að tryggja að með nýtingu kosningaréttar í kosningum til Evrópuþingsins séu kjósendur ekki aðeins að hafa áhrif á skipan þingsins sjálfs heldur einnig á það hver muni leiða framkvæmdarvaldsarm ESB sem forseti framkvæmdastjórnarinnar. Til að ná framangreindu markmiði hefur hugmyndin um oddvitaaðferðina við val á forseta framkvæmdastjórnar ESB fest rætur á umliðnum árum enda þótt framkvæmdin hafi verið brokkgeng og oddviti stærsta flokksins, Ursula von der Leyen, ekki einu sinni sjálf í framboði fyrir flokkinn. Aðferðinni svipar þó að einhverju marki til þeirrar aðferðar sem notuð er í þingræðisríkjum eins og á Íslandi við myndun ríkisstjórnar. Er þannig gert ráð fyrir að forseti framkvæmdastjórnarinnar komi úr röðum oddvita stjórnmálasamtakanna sem bjóða fram til Evrópuþingsins og að sá oddviti verði fyrir valinu sem vilji meiri hluta þingsins segir til um. Af þeirri kosningabaráttu sem háð var fyrir nýafstaðnar kosningar er ljóst hugmyndin um þessa aðferð, oddvitaaðferðina, (þý. Spitzenkandidaten process eða e. lead candidate process), við val á forseta framkvæmdastjórnar ESB heldur enn lífi, enda þótt framkvæmdin hafi e.t.v. ekki verið að öllu leyti með þeim hætti sem höfundar ætluðust til. Þannig tilnefndu stjórnmálaflokkar ESB flestir oddvita fyrir kosningarnar og mættust þeir í skipulögðum oddvitakappræðum í kosningabaráttunni, sbr. m.a. í Eurovision debate. Ef horft er til úrslita kosninganna er ljóst að einungis einn af þeim oddvitum sem þar tókust á, kom í reynd til greina í stöðu forseta, það er oddviti EPP og núverandi forseti framkvæmdastjórnar ESB, Ursula von der Leyen (VdL) jafnvel þótt hún væri ekki sjálf í kjöri til þings. Staða EPP á þinginu í kjölfar kosninganna er gríðarsterk og má segja að flokkurinn sé í algjörri lykilstöðu sem lang stærsti flokkurinn og í raun virðist útilokað, ef horft er til samsetningar þingsins og yfirlýsinga flokka á miðjunni og vinstra megin við miðju um að hafna með öllu samstarfi við bæði ID og ECR, að hægt sé mynda meiri hluta á þinginu án aðkomu flokksins. Staða EPP er því afar sterk og um leið staða VdL sem yfirlýsts oddvita flokksins.

Hvað sem framangreindu líður þá tilnefnir leiðtogaráð ESB í stöðu forseta. Við þá tilnefningu er það ekki bundið af því að tilnefna einstakling úr röðum oddvita flokkanna. Þó hlýtur ráðið að þurfa að tilnefna kandídat sem þingið er líklegt til að samþykkja. Af því leyti er í raun óhjákvæmilegt að það hafi hliðsjón af niðurstöðu kosninganna. Eins og áður hefur verið rakið í Vakinni þá var það einmitt það sem gerðist eftir síðustu Evrópuþingskosningarnar árið 2019. Manfred Weber hafði þá háð langa kosningabaráttu sem oddviti EPP og jafnvel þótt flokkur hans fengi langflesta menn kjörna á Evrópuþingið 2019 gerði leiðtogaráðið ekki tillögu um hann í embætti forseta framkvæmdastjórnar ESB heldur VdL eins og kunnugt er. VdL kom þó einnig, líkt Weber, úr röðum kristilegra demókrata í Þýskalandi, og þannig séð úr baklandi EPP, og í því ljósi mátti segja að leiðtogaráðið hafi haft niðurstöður kosninganna til hliðsjónar við tilnefningu sína. Sama staða er í raun uppi nú, þ.e. hyggist leiðtogaráðið tilnefna einhvern annan en VdL til embættis forseta, sem verður þó að teljast afar ólíklegt, er langlíklegast að sá fulltrúi komi úr röðum þeirra flokka í aðildarríkjunum sem tilheyra EPP. Þannig má nánast slá því föstu að í valdataflinu sem nú á sér stað í ESB að þar sé embætti forseta framkvæmdastjórnar ESB eyrnamerkt EPP.

Eins og vikið hefur verið að er langlíklegast að VdL hljóti tilnefningu leiðtogaráðs ESB til áframhaldandi setu í embætti forseta framkvæmdastjórnarinnar og má vænta þess ákvörðun þar að lútandi verði tekin á fundi leiðtogaráðsins sem áformaður er 27. og 28. júní nk. en fyrstu snertingar leiðtogaráðsins á þessu fara fram á sérstökum fundi sem boðað hefur verið til að kvöldi 17. júní nk. Þar með er björninn þó ekki unninn, enda þarf hún eins og áður segir að tryggja sér meiri hluta stuðning á Evrópuþinginu eða 361 atkvæði. Í fljótu bragði mætti halda að sá stuðningur væri auðfenginn með stuðningi núverandi meiri hluta flokka á þinginu, þ.e. með stuðningi þingflokka EPP, S&D og Renew Europe sem samtals hafa nú (að lágmarki) 406 þingmenn eins og rakið er að framan. Þetta er þó ekki svo klippt og skorið. Flokkshollusta innan þingflokka á Evrópuþinginu er minni en gengur og gerist á þjóðþingum og við það bætist að atkvæðagreiðsla við kjör á forseta framkvæmdastjórnar ESB í þinginu er leynileg sem væntanlega eykur líkurnar á því að einstakir þingmenn í þingflokkum meirihlutans hlaupi undan merkjum þegar á hólminn er komið af einhverjum ástæðum. Þannig er sú þumalputtaregla oft nefnd að við kjör á forseta megi að jafnaði gera ráð fyrir 10% afföllum úr liði meirihluta flokkanna.

Skýrasta dæmið um veikleika í röðum EPP þingmanna er ef til vill í Frakklandi þar sem gengið er út frá því að liðsmenn íhaldsflokksins LR (Les Républicains), sem fékk 6 þingmenn kjörna í liðnum kosningum, muni ekki styðja VdL í væntanlegu forsetakjöri. Hvort sú atburðarás sem nú á sér stað í Frakklandi þar sem segja má að leiðtogi LR, Eric Ciotti, hafi fellt grímuna þegar hann upplýsti í vikunni að hann hefði nálgast RN, flokk Le Pen, með hugsanlegt kosningabandalag í huga breyti einhverju þar um, er erfitt að meta. Framangreind umleitan Ciotti virðist þó ekki hafa verið gerð í miklu samráði innan flokksins og hefur honum nú verið vikið úr embætti formanns flokksins. Hvað sem því líður þá má ef til vill ráða af þessum sviptingum að skilin milli hófsamari hægri afla og róttækari hægriafla (e. far right) séu sums staðar að verða óljósari.

Framangreint dæmi um veikleika í röðum EPP þingmanna er ekki einsdæmi, veikleikarnir eru víðar. Þannig kann að vera að VdL þurfi að reiða sig á stuðning þingmanna utan þingflokka meirihlutans og þar má ætla að hún eigi nokkra möguleika. Er þar fyrst að nefna þingflokk græningja, en þar er líklegt að VdL geti tryggt sér einhver atkvæði enda er hún mikils metin í þeirra röðum eftir að hafa sett Græna sáttmálann á oddinn sem flaggskip núverandi framkvæmdastjórnar. Hefur raunar verið rætt um að þingflokkurinn verði formlegur hluti af meirihluta samstarfi EPP, S&D og Renew Europe, en ekkert er þó staðfest í þeim efnum. Þá er ekki útilokað VdL kunni einnig að geta tryggt sér einhver atkvæði úr röðum þingmanna ECR og þá kannski sér í lagi frá liðsmönnum flokks Meloni á Ítalíu.

Áhrif kosninganna á stefnumótun ESB

Eftir er að koma í ljós hvaða áhrif niðurstöður kosninganna munu hafa á stefnumótun ESB til næstu fimm ára. Fyrsta birtingarmyndin verður þegar leiðtogaráð ESB gefur út stefnuáætlun sína (e. strategic agenda) til næstu fimm ára en ráðgert er að sú áætlun verði samþykkt og birt fyrir lok þessa mánaðar, sbr. umfjöllun hér að neðan í Vaktinni um næsta fund leiðtogaráðs ESB. Fjallað var um undirbúning að stefnumörkun ESB til næstu fimm ára í Vaktinni 17. maí sl. þar sem jafnframt var lagt mat á það fyrirfram, með hliðsjón af kosningaspám, hvaða áhrif kosningarnar myndu að líkindum hafa á stefnumótunarvinnuna.

Leiðtogafundir á næstu dögum

Leiðtogafundur G7-ríkjanna

Leiðtogafundur G7-ríkjanna stendur nú yfir á Ítalíu en Ítalía fer nú með formennsku í G7-samstarfinu. Auk leiðtoga aðildarríkjanna sjö, Kanada, Frakklands, Þýskalands, Ítalíu, Japans, Bretlands og Bandaríkjanna á ESB aðild að samstarfinu og sóttu Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, og Charles Michel, forseti leiðtogaráðs ESB, fundinn fyrir hönd ESB. Dagskrá fundarins sem hófst í gær og lýkur á morgun, laugardag, með fréttamannafundi ítölsku formennskunnar er þéttskipuð, þar sem málefni Afríku, loftlagsbreytingar, staðan í Austurlöndum nær og árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu verða m.a. til umræðu og er gert ráð fyrir að sérstök yfirlýsing leiðtoganna verði gefin út á morgun.

Enda þótt málefni ESB og niðurstöður Evrópuþingskosninganna séu vitaskuld ekki til formlegrar umræðu á fundinum þá má fastlega búast við því að þær komi óformlega til tals á milli leiðtoga ESB-ríkjanna og fulltrúa ESB á fundinum.

Ráðstefna um frið í Úkraínu

Um helgina, 15. og 16. júní, fer fram stór alþjóðleg ráðstefna um frið í Úkraínu. Ráðstefnan er haldin í Sviss og eru þarlend stjórnvöld gestgjafar ráðstefnunnar. Gert er ráð fyrir að fjölmargir þjóðarleiðtogar muni mæta á ráðstefnuna en alls hafa um 90 ríki tilkynnt þátttöku en listi yfir þátttakendur hefur þó enn ekki verið birtur þegar þetta er skrifað. Fyrir liggur þó að hvorki Rússland né Kína munu taka þátt í ráðstefnunni.

Óformlegur fundur leiðtogaráðs ESB

Á mánudaginn, 17. júní, verður, eins og vikið er að að framan í umfjöllun um niðurstöður Evrópuþingskosninganna, efnt til óformlegs fundar í leiðtogaráði ESB. Á fundinum verða niðurstöður kosninganna og kjörtímabilið framundan ræddar sem og hverja skuli tilnefna eða skipa til að gegna æðstu embættum ESB á tímabilinu, en þar ber vitaskuld hæst hvern skuli tilnefna í embætti forseta framkvæmdastjórnar ESB, en einnig liggur fyrir ráðinu að komast að niðurstöðu um eftirmann Charles Michel í embætti forseta leiðtogaráðsins sem og hvern skuli tilnefna í stöðu utanríkismálastjóra sambandsins. Auk framangreinds hafði verið gert ráð fyrir að drög að nýrri fimm ára stefnuáætlun leiðtogaráðs ESB (e. strategic agenda) yrði til umræðu á fundinum en nú lítur út fyrir að það náist ekki. Áfram er þó gert ráð fyrir að leiðtogaráðið samþykki nýja stefnuáætlun fyrir lok þessa mánaðar, þ.e. á formlegum fundi ráðsins 27. og 28. júní nk. Sjá nánari umfjöllun um undirbúning nýrrar stefnuáætlunar í Vaktinni 17. maí sl.

ESB leggur allt að 38% jöfnunartolla á kínverska rafbíla

Þann 12. júní sl. komst framkvæmdastjórn ESB að bráðabirgðaniðurstöðu í rannsókn á meintum niðurgreiðslum Kínverja til rafbílaframleiðslu sem hófst 4. október sl. en fjallað var um tildrög og upphaf rannsóknarinnar í Vaktinni 13. október sl. Bráðabirgðaniðurstaða rannsóknarinnar er að kínverskir rafbílaframleiðendur njóti niðurgreiðslna í þeim mæli að þær verði að teljast ósanngjarnar gagnvart bílaframleiðendum í ESB og séu til þess fallnar að valda þeim efnahagslegu tjóni.

Framkvæmdastjórn ESB hefur heimildir til að leggja á jöfnunartolla vegna ósanngjarnra niðurgreiðslna erlendra ríkja og hefur nú greint kínverskum stjórnvöldum frá niðurstöðum rannsóknarinnar og fyrirhuguðum jöfnunartollum sem verða að óbreyttu lagðir á innflutning kínverskra rafbíla frá og með 4. júlí nk. Tollarnir munu nema frá 17,4% til 38,1%, og eru breytilegir eftir rafbílaframleiðendum í Kína. Samhliða þessu hefur framkvæmdastjórn ESB lýst yfir vilja til reyna að leysa málið á grundvelli reglna Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar áður en tollar verði lagðir á.

Kínversk stjórnvöld brugðust hart við þessari ráðstöfun og hafa hótað að svara í sömu mynt gagnvart evrópskum flugiðnaði, bændum og vínframleiðendum. Á þessari stundu liggur hins vegar ekki fyrir hvert svar Kínverja verður.

Markmið ESB með jöfnunartollunum er að jafna samkeppnisstöðu á innri markaðnum en varað hefur verið við að aðgerðirnar geti leitt til viðskiptastríðs milli ESB og Kína.

Aðildarríkin munu þurfa að taka endanlega afstöðu til jöfnunartollana í atkvæðagreiðslu í haust en aukinn meirihluta í ráðherraráði ESB þarf til að hnekkja tollunum. Þjóðverjar hafa verið gagnrýnir á tollana og lagt áherslu á frjáls alþjóðaviðskipti í þessu samhengi á meðan Frakkar virðast að svo stöddu ekki deila þeim áhyggjum.

Málið varðar EES/EFTA-ríkin ekki með beinum hætti enda tekur EES-samningurinn ekki til tollabandalags ESB en aðgerðirnar geta þó eftir sem áður haft umtalsverð og almenn áhrif á framboð og eftirspurn rafbíla á Evrópska efnahagssvæðinu.

Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins, í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra. Leiðréttingar, ábendingar og athugasemdir sendist til ritstjóra Vaktarinnar, Ágústs Geirs Ágústssonar, á netfangið [email protected].

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

31. maí 2024 | Vika í Evrópuþingskosningar - Eurovision Debate |
Að þessu sinni er fjallað um:

kosningabaráttuna, hægri sveifluna og stöðu VdL

fund EES-ráðsins og afmælisráðstefnu

framgang stefnuáætlunar ESB á sviði heilbrigðismála

vegvísi evruhópsins um uppbyggingu sameiginlegs fjármagnsmarkaðar

samræmingu á málsmeðferðarreglum við innheimtu staðgreiðsluskatta

nýja LULUCF handbók

Eurovision debate – vika í kosningar

Kosningar til Evrópuþingsins fara fram dagana 6. – 9. júní. Aðalkjördagurinn er sunnudagurinn 9. júní í flestum ríkjum og verða fyrstu tölur birtar þá um kvöldið eða þegar kjörstöðum hefur verið lokað í öllum aðildarríkjunum.

Eins og nánar er rakið í umfjöllun Vaktarinnar 3. maí sl. um kosningarnar þá er kosningabaráttan háð á tveimur vígstöðvum ef svo má segja eða kannski réttara sagt á 28 vígstöðvum. Annars vegar í aðildarríkjunum hverju fyrir sig og síðan þvert á aðildarríkin á vettvangi viðurkenndra stjórnmálasamtaka ESB, hins vegar.

Kosningabaráttan í aðildarríkjunum tekur á sig fjölbreyttar myndir sem endurspeglar vitaskuld hið pólitíska landslag í hverju ríki um sig og þær stefnur og strauma sem þar ráða ríkjum.

Er kemur að kosningabaráttunni sem háð er þvert á aðildarríkin þá eru áhersluatriðin sem skilja stjórnmálaflokkana að ef til vill almennari, eðli málsins samkvæmt, en á hinn bóginn birtast þar hinar stóru pólitísku línur þvert á aðildarríki ESB sem erfitt getur verið að greina þegar rýnt er í stöðuna í einstökum aðildarríkjum.

Skoðanakannanir og kosningaspár benda til þess að fylgið heilt yfir sé í nokkrum mæli að færast til hægri og þá einkum til flokka sem skilgreindir hafa verið lengst til hægri (e. far right) á hinum pólitíska kompás. Þessi þróun hefur ollið titringi á hinu pólitíska sviði innan ESB og hafa flokkar sem skilgreina sig á miðju stórnmálanna og vinstra megin við miðju lýst því yfir eða tekið undir yfirlýsingar þess efnis að þeir hafni með öllu samstarfi við slíka flokka. PES (Party of European Socialists) sem er stærsti miðju-vinstri-flokkurinn og uppistaðan í þingflokki S&D á Evrópuþinginu reið á vaðið hvað þetta varðar með sérstakri yfirlýsingu (Berlin Democracy Declaration) þar sem samstarfi við flokkana lengst til hægri (öfga hægri) er hafnað og hafa fleiri flokkar tekið undir þá yfirlýsingu en þó ekki allir. EPP (European People‘s Party), flokkur Ursulu von der Leyen (VdL), hefur t.d. hafnað því að taka undir yfirlýsinguna. VdL hefur þó eftir sem áður skýrlega hafnað samstarfi við ID flokkinn (Identity and Democracy), en sá flokkur er ótvírætt skilgreindur lengst til hægri á Evrópuþinginu nú um stundir. Með yfirlýsingu PES er þó ekki einvörðungu hafnað samstarfi við ID heldur er samstarfi við hófsamari hægri öfga flokkinn ECR (European Conservatives and Reformists) einnig hafnað en honum tilheyrir m.a. flokkur Giorgiu Meloni, forsætisráðherra Ítalíu. Hefur EPP, með VdL í fararbroddi, ekki verið tilbúin til þess að útiloka fyrirfram samstarf við þann flokk á þinginu á komandi kjörtímabili. Þvert á móti þá hefur VdL gefið hugsanlegu samstarfi EPP og ECR eftir kosningarnar undir fótinn með tilheyrandi auknu hugarangri núverandi samstarfsflokka EPP á miðjunni og til vinstri. Hverja skoðun sem menn kunna að hafa á þessari afstöðu EPP þá hefur flokkur ECR á umliðnu kjörtímabili orðið Evrópusinnaðri, ef svo má segja, undir stjórn Meloni. Ótvírætt merki þar um var þegar fulltrúar flokks Viktors Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, Fidesz, á Evrópuþinginu gengu úr eða hrökkluðust úr þingflokki ECR, eftir því hvernig menn vilja orða það. Enda þótt ástæður þeirra sambandsslita verði í grunninn raktar til ólíkrar afstöðu til árásarstríðs Rússlands gagnvart Úkraínu, þá verður því vart neitað að úrganga þessara þingmanna úr ECR hefur ótvírætt breytt ásýnd stjórnmálasamtakanna.

Jafnvel þótt fylgisaukning flokkanna lengst til hægri, sem spáð er, verði að veruleika í kosningunum virðist þó ólíklegt sem stendur að flokkarnir nái með beinum hætti að nýta þá fylgisaukningu til að seilast til meiri áhrifa á Evrópuþinginu. Fyrir því eru ýmsar ástæður en það sem mestu skiptir er án vafa að flokkarnir á hægri vængnum, að frátöldum flokki EPP, eru í raun þverklofnir. Liðsmenn Fidesz eru eins og áður segir klofnir frá ECR, og eru sem stendur utan þingflokka á Evrópuþinginu. Auk þessa má segja að ECR hafi að einhverju leyti fjarlægst þá gallhörðu þjóðernishyggju sem almennt einkennir flokka sem skilgreindir eru lengst til hægri, þ.e. flokkurinn er orðinn meira Evrópusinnaður (e. Pro-Europeanism). Klofningur kom einnig upp í ID nýverið þegar þýska öfgahægriflokknum AFD (Alternative for Germany) var vikið úr stjórnmálasamtökunum. ID gengur því laskaður til kosninganna sem endurspeglast kannski best í því að flokknum hefur ekki tekist að tilnefna oddvita (e. lead candidate) fyrir kosningarnar. Um tíma virtist þó ljóst að danski þingmaðurinn Anders Vistisen kæmi fram sem oddviti fyrir flokkinn og það gerði hann í reynd í Maastricht kappræðunum, en hann hefur ekki tekið þátt í kappræðum fyrir flokkinn eftir það. Hvað sem framangreindu líður á þó enn eftir að koma í ljós hvernig væntanlegir þingmenn þessara flokka kjósa að skipa sér í þingflokka á Evrópuþinginu að afloknum kosningunum og þegar þing kemur saman um miðjan júlí nk. Ekki er hægt að útiloka að þingmenn þeirra nái málefnasamningi sín á milli þótt þeir treysti sér ekki til að koma fram undir sama nafni í kosningabaráttunni.

Fleira dregur úr líkunum á því að bein áhrif flokkanna lengst til hægri muni aukast á nýju kjörtímabili Evrópuþingsins. Er þar helst að nefna þá staðreynd að flokkarnir lengst til hægri sækja tilverugrundvöll sinn að stórum hluta í hugmyndafræði þjóðernishyggju. Samstarf þingmanna ólíkra þjóðríkja sem byggja umboð sitt á slíkum grunni, hver í sínu ríki, getur því verið brokkgengt. Þar við bætist að þingmenn á Evrópuþinginu hafa ólíkt því sem við á um þingmenn á þjóðþingum ekki frumkvæðisrétt til að leggja til breytingar á regluverki ESB, heldur hvílir sá réttur eingöngu hjá framkvæmdastjórn ESB. Segja má að sú staðreynd feli í sér innbyggða hindrun fyrir virku samstarfi þjóðernissinnaðra afla innan Evrópuþingsins nema hreinlega ef þeim myndi takast að mynda meirihluta við kjör á forseta framkvæmdastjórnar sambandsins. Engar líkur verða þó taldar á því að sú valdastaða komi upp úr kjörkössunum jafnvel þótt Marine Le Pen leiðtogi Rassemblement National í Frakklandi svermi mikið fyrir því að Meloni og leiðtogar annarra hófsamari hægri öfgaflokka taki höndum saman um að brjóta upp hefðbundnar flokkablokkir með það fyrir augum að ná undirtökum á Evrópuþinginu að loknum kosningum.

Líklegasta niðurstaða kosninganna er sú að núverandi meiri hluti á þinginu haldi velli, þ.e. meiri hluti EPP, PES (S&D) og ALDE (Renew Europe) + EGP (European Green Party) eftir atvikum. Með þessu er þó ekki sagt að hægri sveiflan muni ekki hafa áhrif á stefnumótun framkvæmdarstjórnar ESB á komandi tímabili.

Hægri sveiflan hefur í raun þegar haft merkjanleg áhrif á stefnumörkun ESB þar sem hægri áherslur hafa fengið aukið vægi á vettvangi ESB á lokamisserum núverandi kjörtímabils, svo sem með aukinni áherslu á samkeppnishæfni, öryggis og varnarmál, almennt harðari stefnu í málefnum farands- og flóttafólks og tilteknu fráhvarfi frá ítrustu áherslum Græna sáttmálans. Hversu mikil þessi áhrif verða þegar upp er staðið á eftir að koma í ljós, sbr. nánari umfjöllun í Vaktinni 17. maí sl. um undirbúning að stefnumörkun ESB til næstu fimm ára.

Framangreind líkindi varpa tilteknu ljósi á ákvörðun EPP og VdL um að taka ekki undir yfirlýsingu PES. Þannig kann sú ákvörðun fremur að vera hugsuð til þess að skapa EPP og VdL sem oddvita sterkari stöðu er kemur að tilnefningu leiðtogaráðs ESB í embætti forseta framkvæmdastjórnar ESB og við myndun málefnasamnings sem legið geti til grundvallar stuðningi meiri hluta þingsins fyrir áframhaldandi setu VdL í forsetastóli, enda þarf hún í leiðtogaráðinu einnig á stuðningi leiðtoga innan ECR að halda. Mögulegt meiri hluta samstarf EPP og ECR með þátttöku miðju- og vinstriflokkana er hins vegar nánast út af borðinu nema aðkoma ECR reynist beinlínis nauðsynleg til að mynda starfhæfan meiri hluta. EPP er hins vegar í lykilstöðu, sem stærsti flokkurinn á þinginu, og verður vart séð að myndun starfhæfs meiri hluta á þinginu sé möguleg án þátttöku flokksins. Staða VdL er því sterk og er lang líklegast er að hún hljóti tilnefningu leiðtogaráðs ESB til áframhaldandi setu sem forseti framkvæmdastjórnar ESB. Ekkert er þó öruggt í pólitík og hefur umtal t.d. orðið hávært að undanförnu um að forseti Frakklands, Emmanuel Macron, vinni að því að Mario Draghi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, hljóti tilnefningu leiðtogaráðsins fremur en VdL. Takist Macron að sannfæra kanslara Þýskalands um þá ráðagerð eru dagar VdL í embætti forseta væntanlega taldir enda þótt óljóst sé hvernig Evrópuþingið og þá einkum flokkur EPP myndi bregðast við slíkri tilnefningu ef á reyndi. Þá ber að hafa í huga að það hefur verið ríkur vilji til þess á Evrópuþinginu að festa oddvitaaðferðina svonefndu (þý. Spitzenkandidaten process eða e. lead candidate process) við val á forseta framkvæmdastjórnar ESB í sessi, enda er aðferðin til þess fallin að styrkja stöðu þingsins í stjórnskipan ESB.

Oddvitar stjórnmálaflokka ESB, þ.e. þeirra sem tilnefnt hafa oddvita, hafa mæst í kappræðum að undanförnu, sjá upptökur af umræðunum hér:

Maastricht Debate

Bruegel and Financial Times Debate

Eurovision debate

Fundur EES-ráðsins og ráðstefna í tilefni af 30 ára afmæli EES-samningsins

EES-ráðið kom saman til reglulegs fundar í Brussel 28. maí sl. Ráðið er æðsta stofnunin í sameiginlegu stofnanakerfi EES/EFTA-ríkjanna og ESB sem sett var á fót með samningnum um Evrópska efnahagssvæðið (EES). Ráðið er skipað utanríkisráðherrum Íslands, Noregs og Liechtenstein og háttsettum fulltrúum ráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB og hefur það meginhlutverk að vera formlegur pólitískur samráðsvettvangur um rekstur EES-samningsins.

Hadja Lahbib, utanríkisráðherra Belgíu, en Belgía fer nú með formennsku í ráðherraráði ESB, stýrði fundinum að þessu sinni ásamt Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra Íslands, en Ísland fer um þessar mundir með formennsku í fastanefnd EFTA. Auk þeirra sátu fundinn Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs, Dominique Hasler, utanríkisráðherra Liechtenstein, og Maroš Šefčovič, varaforseti framkvæmdastjórnar ESB.

Í ár eru, eins og kunnugt er, 30 ár liðin frá því að EES-samningurinn tók gildi og var þeim tímamótum fagnað sérstaklega á fundinum. Eins og sameiginleg yfirlýsing sem EES/EFTA-ríkin og ESB gáfu út í tengslum við fundinn ber með sér var það samdóma álit fundarmanna að samningurinn hefði reynst farsæll fyrir alla aðila og jafnframt að samningurinn hefði hingað til reynst nægjanlega sveigjanlegur til að mæta þeim fjölmörgu áskorunum sem upp hafa komið á samningstímanum. Innri markaðurinn hefur tekið stakkaskiptum í stærð og margbreytileika á þeim tíma sem liðinn er síðan samningurinn var gerður árið 1994. Af fundinum nú og þeirri afmælisráðstefnu sem efnt var til í framhaldi hans verður ekki annað ráðið en að það sé einbeittur vilji samningsaðila til ganga saman fram veginn og takast á við þær áskoranir sem nú eru uppi og þær sem framtíðin kann að færa okkur. Áskoranir sem nú er við að etja spretta í grunninn af breyttum grundvallarsjónarmiðum og -áherslum sem í æ ríkari mæli eru lögð til grundavallar við stefnumótun og lagasetningu á fjölmörgum sviðum innan ESB, en þessar breyttu áherslur hafa verið kenndar við það sem nefnt hefur verið opið strategískt sjálfræði ESB (e. EU open Strategic Autonomy). Ítarlega hefur verið fjallað um þessar áherslubreytingar í Vaktinni á síðustu misserum, nú síðast í Vaktinni 17. maí sl.

Voru framangreindar áskoranir, eðli málsins samkvæmt, m.a. ræddar á ráðsfundinum og einnig á afmælisráðstefnunni sem nánar er vikið að hér að neðan í samhengi við almenna umræðu um stöðu og framkvæmd EES-samningsins og samkeppnishæfni innri markaðarins og grænu umskiptin.

Í framangreindu samhengi verður æ meira áberandi að í umræðu um þessi mál og í samstarfi EES/EFTA-ríkjanna við ESB skiptir spurningin um hvort stefnumótun eða einstakar ESB-gerðir falli undir eða varði EES-samninginn eða ekki í raun ekki meginmáli heldur fremur hvort viðkomandi gerð eða stefnumótun snerti hagsmuni ríkjanna með þeim hætti að ástæða sé til að leita eftir samstarfi, hvort sem það er undir hatti EES-samningsins eða ekki. Þessar áherslur eru m.a. áberandi í nýrri norskri skýrslu um þróun EES-samningsins, en um þá skýrslu var fjallað í Vaktinni 19. apríl sl. (sbr. einnig til hliðsjónar nýlega birta enska þýðingu á niðurstöðukafla þeirrar skýrslu).

Eins og áður segir var efnt til afmælisráðstefnu í beinu framhaldi af ráðsfundinum og með þátttöku framangreindra ráðherra og varaforseta framkvæmdastjórnar ESB í pallborði. Þar fluttu inngangsávörp Enrico Letta fv. forsætisráðherra Ítalíu og núverandi forstöðumaður Jacques Delors stofnunarinnar í París sem nýverið skilaði leiðtogaráði ESB umbeðinni skýrslu um framtíð innri markaðarins, sbr. umfjöllun um þá skýrslu í Vaktinni 19. apríl sl., og Rosa Balfour hjá Carnegie Europe. Nálgast má upptökur af þeim ávörpum og af umræðum á ráðstefnunni hér.

Sjá einnig sameiginlegt EES/EFTA-álit sem gefið var út í aðdraganda ráðsfundarins og í tilefni 30 ára afmælisins.

Framgangur stefnuáætlunar ESB á sviði heilbrigðismála

Í síðustu viku birti framkvæmdastjórn ESB orðsendingu um stefnuáætlun ESB á sviði heilbrigðismála (e. European Health Union). Um er að ræða samantekt á framgangi og stöðu þeirra aðgerða sem unnið hefur verið að samkvæmt stefnunni. Stefnan var í grunninn mótuð strax í upphafi skipunartímabils núverandi framkvæmdstjórnar ESB fyrir um fimm árum síðan og var metnaðarfull strax í upphafi, þar sem megináherslurnar miðuðu að bættri meðferð og forvörnum gegn krabbameinssjúkdómum, hvernig tryggja mætti sjálfbærni innan ESB er kemur að framboði lyfja á viðráðanlegu verði og hvernig nýta mætti til fulls möguleika stafrænna lausna innan heilbrigðisgeirans. Á hinn bóginn er ljóst að kórónaveirufaraldurinn, sem skall á aðeins nokkrum mánuðum eftir að framkvæmdastjórnin tók til starfa, umbylti þeim áherslum sem lagðar voru á aukið samstarf á heilbrigðissviði innan ESB. Þær áskoranir sem þá risu voru af þeirri stærðargráðu að þær í reynd knúðu aðildarríki ESB til nánara samstarfs á sviði heilbrigðismála. Sú brýna þörf fyrir samstöðu og samstarf sem þar raungerðist hefur leitt af sér nýja vídd í Evrópusamstarfinu á þessu sviði á vettvangi ESB og jafnframt á vettvangi þess samstarfs sem Ísland á við ESB, bæði á vettvangi EES-samningsins og utan hans. Íslands naut eins og kunnugt er mikils ábata af heilbrigðissamstarfi við ESB á tímum faraldursins, meðal annars við bóluefnainnkaup, og hefur síðan verið unnið að því að viðhalda því samstarfi m.a. með því að leita eftir nánari þátttöku í samstarfi ESB á sviði heilbrigðismála og í sameiginlegum viðbrögðum við heilsuvá.

Markmið samstarfs aðildarríkja ESB á sviði heilbrigðismála er að standa vörð um velferð og heilbrigði íbúa sambandsins og stuðla að pólitískum og efnahagslegum stöðugleika innan svæðisins. Þessi framtíðarsýn hefur nú þegar tryggt að aðildarríki ESB eru nú mun betur undirbúin til að bregðast við heilbrigðisvá þvert á landamæri ríkjanna en áður.

Staða helstu verkefna samkvæmt áætluninni eru eftirfarandi:

Bætt samhæfing aðgerða til að undirbúa og bregðast við framtíðarógnum.
Unnið er að innleiðingu regluverks sem styrkir getu ESB og aðildarríkja þess til að takast á við heilsufarsógnir á borð við heimsfaraldur kórónuveiru, sbr. umfjöllun í Vaktinni 21. október 2022 um heildstæðan aðgerðarpakka framkvæmdastjórnar ESB á sviði neyðar- og viðbragsstjórnunar á krísutímum, þar á meðal um stofnsetningu sérstakrar Neyðar- og viðbragðsskrifstofu ESB, HERA, sem m.a. hefur það hlutverk að stjórna og samþætta viðbrögð aðildarríkja og stýra sameiginlegum innkaupum þegar vá steðjar að. Í Vaktinni 8. desember sl. var síðan greint frá fyrirhugaðri stöðutöku og endurmati á hlutverki HERU að loknum tveggja ára starfstíma hennar.

Jafnt aðgengi að lyfjum á viðráðanlegu verði fyrir alla íbúa svæðisins óháð búsetu.
Tillögur að víðtækri endurskoðun á lyfjalöggjöf ESB voru kynntar fyrir rúmu ári, en þær eru nú til umfjöllunar á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB. Í Vaktinni 26. maí 2023 var fjallað um tillögurnar, en meginmarkmið þeirra er að stuðla að auknu framboði og jöfnu aðgengi að öruggum og áhrifaríkum lyfjum á sanngjörnu og viðráðanlegu verði fyrir íbúa óháð búsetu. Auk þess hefur framkvæmdastjórnin allt sl. ár kynnt margvíslegar aðgerðir gegn lyfjaskorti og auknu afhendingaröryggi lyfja bæði til lengri og skemmri tíma, en lyfjaskortur er vaxandi áhyggjuefni innan Evrópu. Fjallað hefur verið um þessar aðgerðir framkvæmdastjórnarinnar m.a. í Vaktinni 27. október sl., 19. janúar sl. og 3. maí sl.

Krabbameinsáætlun í forgangi.
Áætlun framkvæmdastjórnar ESB í baráttunni við krabbamein (Europe´s Beating Cancer Plan), var samþykkt í febrúar 2021. Í henni eru skilgreind tíu verkefni og aðgerðir þeim til stuðnings sem hrinda á í framkvæmd á árunum 2021 – 2025. Í október ár hvert er vakin athygli á krabbameinum og þá sérstakalega forvörnum. Í tilefni af bleikum október á síðastliðnu ári var í Vaktinni 13. október sl. fjallað um fyrirhuguð tilmæli framkvæmdastjórnarinnar gegn húðkrabbameini og aðgerðum hennar til að draga úr notkun ljósabekkja. Samhliða var vakin athygli á áætluninni sjálfri sem spannar feril sjúkdómsins, allt frá forvörnum og meðhöndlun sjúkdómsins til þess að bæta lífsgæði krabbameinssjúklinga og eftirlifenda.

Bætt notkun stafrænnar tækni við veitingu heilbrigðisþjónustu.
Fyrir liggur ákvörðun um stofnun samevrópsks gagnagrunns á heilbrigðissviði (e. European Health Data space) en markmið hans er að tryggja hinum almenna borgara innan ESB betra aðgengi að heilbrigðisþjónustu hvar sem er innan sambandsins. Grunnurinn á einnig að auðvelda rannsóknir og þróun nýrra meðferðarúrræða til hagsbóta fyrir sjúklinga framtíðarinnar. Sjá umfjallanir um málið í Vaktinni 13. maí 2022 og í Vaktinni 19. apríl sl.

Stefnumörkun um bætt geðheilbrigði.
Þverfagleg stefna í geðheilbrigðismálum var birt fyrir tæpu ári síðan, en frá henni var greint í Vaktinni 9. júní 2023. Í stefnunni er undirstrikað að andleg heilsa skiptir engu minna máli en líkamlegt heilbrigði og lögð á það áhersla að góð geðheilsa verði ekki tryggð með því einu að bæta geðheilbrigðisþjónustu heldur þurfi að samþætta stefnumörkun í geðheilbrigðismálum við stefnu annarra málefnasviða.

Aukið öryggi sjúklinga og hvernig tryggja megi framboð m.a. á blóði í meðferðarskyni.
Gefendur og þiggjendur m.a. á blóði, frumum og vefum úr mönnum njóta nú betri verndar en áður í samræmi við endurskoðaðar reglur um gæði og öryggi blóðs, fruma og vefja sem notað er í lækningaskyni, sbr. nánari umfjöllun í Vaktinni 2. febrúar sl. um nýja endurskoðaða reglugerð á þessu sviði.

Notkun hugmyndafræði Einnar Heilsu (e. one health approach) til að takast á við heisluvá.

Með því að viðurkenna tengslin milli heilbrigðis manna, dýra og umhverfis telur ESB sig vera betur í stakk búið til að marka stefnu til að takast á við heisluvá eins og sýklalyfjaónæmi og áhrif loftlagsbreytinga á heilsufar. Fjallað var um baráttuna gegn sýklalyfjaónæmi og tilmæli framkvæmdastjórnar ESB þar að lútandi í Vaktinni 26. maí 2023.

Þátttaka Íslands í samstarfi á heilbrigðissviði.

ESB styður myndarlega við fjölda aðgerða sem undir samstarfið falla með fjárframlögum úr sjóðum sem myndaðir hafa verið í tengslum við samstarfsáætlun á sviði heilbrigðismála (EU4Health). Ísland gerðist formlegur þátttakandi í áætluninni á grunni EES-samningsins haustið 2021. Fjallað var um þátttöku Íslands í samstarfinu í Vaktinni 15. mars sl. í tengslum við umfjöllun um styrkveitingu til tveggja stórra verkefna sem Ísland er aðili að og er ætlað að styðja annars vegar við aðgerðir til að sporna við sýklalyfjaónæmi og hins vegar að forvörnum gegn krabbameini og öðrum ósmitbærum sjúkdómum m.a. geðsjúkdómum. Þá tekur Ísland mið af krabbameins- og geðheilbrigðisáætlun ESB og er metið hverju sinni hvort tilefni sé til að óska eftir þátttöku í verkefnum sem þeim tengjast.

Ísland er þannig beinn þátttakandi í hluta samstarfs ESB á heilbrigðissviði í gegnum EES-samninginn. Þrjár samþykktar ESB-gerðir sem styrkja neyðarviðbúnað og -viðbragð þegar vá ógnar lýðheilsu bíða nú upptöku í EES-samninginn og innleiðingar í íslenska löggjöf. Þótt upptöku og innleiðingu sé ólokið er vinna þó þegar hafin á Íslandi að því sem snýr m.a. að samræmdu verklagi við gerð viðbragðsáætlana. Þá vonast Ísland til að geta hafið samningaviðræður við ESB fljótlega um aðkomu að viðbragðsstjórnun ESB á neyðartímum, sem liggur utan EES-samningsins. Slíkum samningi er ætlað að auðvelda og tryggja aðgengi að lyfjum, bóluefnum og öðrum neyðarvörum á krísutímum, sbr. umfjöllun um málið í Vaktinni 8. desember sl. og  21. október 2022.

Gert er ráð fyrir að nýjar reglur um gagnagrunn á heilbrigðissviði verði teknar upp í EES-samninginn og í íslenska löggjöf. Miðstöð rafrænna heilbrigðislausna hjá embætti landlæknis vinnur nú að uppbyggingu á svonefndri landsgátt til að miðla samantekt um heilsufar sjúklinga á milli landa og er ráðgert að sú lausn verði hluti af umræddum gagnagrunni um heilbrigðisupplýsingar þegar fram í sækir. Verkefnið er í tveimur hlutum og fjármagnað af samstarfsáætlun ESB á sviði heilbrigðismála með beinum styrkjum samtals að fjárhæð rúmlega 4 milljónir evra, sbr. nánari umfjöllun í Vaktinni 19. apríl sl.

Samstarf við ESB á sviði lyfjamála á sér langa sögu, enda fellur löggjöf á sviði lyfjamála almennt undir EES-samninginn, sbr. fyrirliggjandi tillögur um endurskoðun lyfjalöggjafar ESB sem áður hefur verið vikið að. Fram komnar tillögur fela m.a. í sér heimild fyrir notkun rafrænna fylgiseðla með lyfjum í stað pappírsseðla. Ísland hefur beitt sér markvisst fyrir því um árabil að notkun slíkra rafrænna seðla yrði heimiluð og er óhætt að segja að Ísland hafi átt ríkt frumkvæði að því að breytingatillaga í þessa veru hefur litið dagsins ljós. Auk augljósra jákvæðra umhverfisáhrifa þá getur slík heimild sérstaklega þjónað hagsmunum lítilla markaðssvæða eins og Íslands og er til þess fallin að lækka kostnað við markaðssetningu og stuðla að auknu aðgengi lyfja. Þá er Lyfjastofnun Íslands virkur þátttakandi í samstarfi evrópskra lyfjastofnana og á vettvangi Lyfjastofnunar Evrópu.

Vegvísir um uppbyggingu sameiginlegs fjármagnsmarkaðar

Á fundi evruhópsins svonefnda, á vettvangi ráðherraráðs ESB, þann 11. mars sl náðist samkomulag um yfirlýsingu um framtíð fjármagnsmarkaða í ESB, en fjallað var um yfirlýsinguna í Vaktinni 15. mars sl. Á fundi hópsins 13. maí sl. var yfirlýsingunni síðan fylgt eftir með sérstakri yfirlýsingu formanns hópsins og útgáfu vegvísis sem ætlað er að marka leiðina fram á við næsta árið og tryggja að vinna við uppbyggingu fjármagnsmarkaðarins hafi forgang í störfum hópsins og innan hvers aðildarríkis fyrir sig en gert er ráð fyrir að fjármálaráðherrar í hverju ríki fyrir sig vinni að málinu í samræmi við vegvísinn.

Áhersla og umræða um mikilvægi þess að hraða uppbyggingu hins sameiginlega fjármagnsmarkaðar hefur verið áberandi á vettvangi ESB að undanförnu og í þeirri kosningabaráttu sem nú er háð vegna kosninga til Evrópuþingsins. Almennt er nú álitið að virkur sameiginlegur fjármagnsmarkaður sé tiltekin forsenda þess að unnt sé að auka samkeppnishæfni ESB, m.a. á sviði grænna og stafrænna umskipta, sbr. m.a. umfjöllun Vaktarinnar 19. apríl sl. um skýrslu Enrico Letta um framtíð innri markaðarins, sbr. einnig umfjöllun hér að neðan í Vaktinni um samræmingu á málsmeðferðarreglum vegna staðgreiðsluskatta.

Samræming á málsmeðferðarreglum við innheimtu staðgreiðsluskatta

Á vettvangi ráðherraráðs ESB er nú unnið að setningu nýrra málsmeðferðarreglna til að koma í veg fyrir tvísköttun við fjárfestingar þvert á landamæri. Samkvæmt núgildandi reglum halda mörg aðildarríki ESB eftir staðgreiðsluskatti af arði og vöxtum sem greidd eru fjárfestum sem búa í öðru ríki. Í slíkum tilvikum þurfa fjárfestar oft á tíðum jafnframt að greiða skatt í heimaríki sínu sem getur leitt til tvísköttunar þegar upp er staðið. Slíkt gerist þrátt fyrir að til staðar séu samningar sem ætlað er að fyrirbyggja tvísköttun, þar sem reglur um endurgreiðslu ofgoldinna skatta eru mismunandi milli aðildarríkjanna og endurgreiðsla skatts frá ríki sem fjárfest var í getur tekið umtalsverðan tíma og falið í sér kostnað eftir atvikum. Þá þykir núgildandi fyrirkomulag á skattheimtu af fjárfestingu yfir landamæri í ESB einnig berskjaldað fyrir skattsvikum og -undanskotum.

Með nýju reglunum stendur til að innleiða nýtt stafrænt auðkenningarkerfi í skattalegum tilgangi fyrir aðila sem hafa aðsetur í ESB, svokallað EU digital tax residence certificate (eTRC). Gert er ráð fyrir að með kerfinu verði skapaður grundvöllur fyrir skjóta og einfalda afgreiðslu undanþágubeiðna frá staðgreiðsluskatti fyrir þá sem fjárfesta yfir landamæri innan ESB.

Aukin samræming á skattheimtu vegna fjárfestinga yfir landamæri er einn þáttur í uppbyggingu sameiginlegs fjármagnsmarkaðar innan ESB en mikil áhersla er nú lögð á það innan ESB að hraða uppbyggingu hans til að bæta samkeppnishæfni ESB gagnvart helstu keppinautum á alþjóðasviðinu, einkum Bandaríkjunum og Kína, sbr. m.a. umfjöllun hér að framan um vegvísi evruhópsins.

Gert er ráð fyrir að nýjar reglur taki gildi 1. janúar 2030.

Reglur ESB um skattheimtu falla ekki undir EES-samninginn en aukin samræming á því sviði innan ESB vekur þó upp spurningar um stöðu þessara mála á Íslandi en aukin samræming og einföldun regluverks innan ESB í skattamálum kann, enda þótt sú mynd sé flókin, með óbeinum hætti að skerða samkeppnishæfni Íslands á innri markaðinum er kemur að því að laða að erlent fjármagn ef ekki er gripið til mótvægisaðgerða.

LULUCF handbók

Stýring landsnota skiptir sköpum í viðbrögðum við loftslagsbreytingum. LULUCF sem er skammstöfun á heiti reglugerðar ESB nr. 2018/841 (e. Regulations on land use, land use changes and forestry) sem fjallar um skuldbindingar og uppgjörsreglur aðildarríkjanna vegna losunar og bindingar kolefnis vegna landnotkunar. Reglugerðinni er ætlað að styðja við að markmiðum ESB um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda á tímabilinu 2021-2030 verði náð.

Framkvæmdastjórn ESB hefur nú birt handbók um framkvæmd reglugerðarinnar sem ætlað er að styðja við framkvæmdina í aðildarríkjunum.

Samhliða útgáfu handbókarinnar birti framkvæmdastjórn ESB nýja skýrslu þar sem staðan á innleiðingu á LULUCF reglugerðinni er greind. Áformar framkvæmdastjórnin að hefja endurmat á ákvæðum reglugerðarinnar og samræmi hennar við aðrar stefnur á umhverfissviðinu.

Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins, í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra. Leiðréttingar, ábendingar og athugasemdir sendist til ritstjóra Vaktarinnar, Ágústs Geirs Ágústssonar, á netfangið [email protected].

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

17. maí 2024 | Stefnumörkun ESB til næstu fimm ára |
Að þessu sinni er fjallað um:

undirbúning að stefnumörkun ESB til næstu fimm ára

áhuga ungs fólks á komandi kosningum til Evrópuþingsins

tilmæli og leiðbeiningar um hvernig hraða megi uppbyggingu endurnýjanlegra orkugjafa

vorspá um efnahagshorfur í ESB og á evrusvæðinu

Schengen-stöðuskýrslu fyrir starfsárið 2023-2024

aukna samstöðu á sviði netöryggismála

Stefnumörkun ESB til næstu fimm ára

Efnisyfirlit umfjöllunar:

Inngangur

Stefnumótunarferlið framundan

Ný fimm ára stefnuáætlun leiðtogaráðs ESB – hvers má vænta?

Innlegg Danmerkur í yfirstandandi stefnumótunarvinnu

Nánar um hagvarnir ESB og efnahagslegt öryggi

Niðurlag

Inngangur

Kosningar til Evrópuþingsins fara fram 6. – 9. júní nk., sbr. nánari umfjöllun um kosningarnar í Vaktinni 3. maí sl. Í framhaldi kosninganna tekur við nýtt fimm ára stefnumótunar- og löggjafartímabil innan ESB.

Undangengið tímabil hefur einkennst af viðbrögðum við tveimur meiri háttar krísum, þ.e. kórónuveirufaraldrinum annars vegar og árásarstríði Rússlands gagnvart Úkraínu hins vegar. Áskoranir sem fylgt hafa þessum krísum hafa verið af þeirri stærðargráðu að þær hafa í reynd knúið aðildarríki ESB til nánara samstarfs á ýmsum sviðum. Á tímum kórónuveirufaraldursins reyndi mjög á aukið samstarf á sviði heilbrigðismála og hefur sú brýna þörf fyrir samstöðu og samstarf sem þar raungerðist leitt af sér nýja vídd í Evrópusamstarfinu á vettvangi ESB og jafnframt á vettvangi EES, sbr. stefnumörkun ESB á sviði heilbrigðismála (e. European Health Union). Ísland, á grunni þess nána samstarfs sem það hefur við ESB á grundvelli EES-samningsins, naut mikils ábata af þessu samstarfi á tímum faraldursins, meðal annars við bóluefnainnkaup. Þá hefur Ísland jafnframt leitað eftir þátttöku í því aukna samstarfi sem unnið hefur verið að síðan á vettvangi sambandsins á heilbrigðissviðinu, sbr. m.a. umfjöllun Vaktarinnar 21. október 2022, um nýjar reglur um neyðar- og viðbragðsstjórnun ESB á sviði heilbrigðismála.

Árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu og sú þróun á sviði alþjóðasamskipta og -viðskipta hefur síðan knúið á um og eftir atvikum skapað krefjandi ákall um enn frekari samhæfingu og samstarf á milli aðildarríkjanna, þar sem raunsæispólitík, framar öðru, ræður ríkjum, svo sem nánar er vikið að hér að neðan. En fyrst nokkur orð um stefnumótunarferlið sem er framundan.

Stefnumótunarferlið framundan

Það leiðir af sáttmálum um Evrópusambandið (The Treaty on European Union – TEU) að úrslitum kosninga til Evrópuþingsins er ætlað að leggja tiltekin lýðræðislegan grunn að heildarstefnumörkun ESB fyrir hvert stefnumótunartímabil. Hið eiginlega og efnislega stefnumótunarhlutverk er hins vegar á hendi framkvæmdarvaldsarms ESB, þ.e. leiðtogaráðs ESB í grunninn og svo í framhaldinu og í nákvæmari útfærslu á hendi framkvæmdastjórnar ESB, og ráðherraráðs ESB.

Ferlið við gerð nýrrar heildarstefnumörkunar fyrir ESB í framhaldi af kosningum til Evrópuþingsins á sér í grófum dráttum stað í eftirfarandi skrefum:

Með útgáfu fimm ára stefnuáætlunar leiðtogaráðs ESB (e. Strategic Agenda), en við frágang þeirrar áætlunar ber leiðtogaráðinu að hafa hliðsjón af niðurstöðum afstaðinna kosninga til Evrópuþingsins.

Með stefnuáherslum (e. political guidelines) tilnefnds forseta framkvæmdastjórnar ESB sem hann kynnir Evrópuþinginu áður en kosning fer fram um kjör hans í embættið, sbr. til hliðsjónar áherslur sem Ursula von der Leyen kynnti þinginu sumarið 2019 eftir að hún hafði hlotið tilnefningu í embættið. Stefnuáherslur tilnefnds forseta taka eðli málsins samkvæmt mið af stefnuáætlun leiðtogaráðsins sem aftur taka mið af úrslitum kosninganna. Stefnuáherslur tilnefnds forseta þurfa síðan jafnframt, vitaskuld, að samræmast áherslum eða því málefnasamkomulagi sem náðst hefur á meðal þess meiri hluta þingmanna og þingflokka innan Evrópuþingsins sem hyggst styðja tilnefndan forseta í kjörinu.

Með útgáfu fimm ára stefnuáætlunar (e. Commission priorities for 2024 - 2029) nýrrar framkvæmdastjórnar ESB. Gert er ráð fyrir að stefnuáætlun nýrrar framkvæmdastjórnar sé í línu við stefnuáætlun leiðtogaráðsins en jafnframt í sátt við Evrópuþingið eða að minnsta kosti meiri hlutann á Evrópuþinginu sem stendur að baki kjöri forseta framkvæmdastjórnarinnar og að baki skipan framkvæmdastjórnarinnar í heild sinni, sbr. framangreint (framkvæmdastjórnin gefur síðan út árlegar starfsáætlanir (e. work programmes) út áætlunartímabilið sem fela í sér nánari útfærslu og aðgerðir).

Þá er loks gert ráð fyrir að áætlanir formennskuríkis í ráðherraráði ESB á hverju hálfs árs tímabili lúti að framgangi framangreindrar heildarstefnumörkunar, enda þótt áherslur formennskuríkis í hverju tilviki, kunni einnig eftir atvikum að eiga þar sinn sess.

Undirbúningur nýrrar fimm ára stefnuáætlunar ESB

Eins og vikið er að í inngangi þá hafa krísur síðastliðinna ára og þá einkum árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu og sú aukna spenna í samskiptum ríkja og ríkjabandalaga sem fylgt hafa í kjölfarið leitt af sér afgerandi áherslubreytingar er kemur að þróun stefnumörkunar á fjölmörgum sviðum innan ESB síðastliðin tvö ár. Þessar breyttu áherslur eru jafnan kenndar við það sem nefnt hefur verið strategískt sjálfræði ESB (e. EU Strategic Autonomy) eða eftir atvikum opið strategískt sjálfræði ESB (e. EU open Strategic Autonomy). Með hugtakinu er vísað til þess að við stefnumótun og töku ákvarðana á vettvangi ESB skuli ávallt gæta að sjálfstæði og frelsi ESB til athafna, eða með öðrum orðum getu sambandsins til að standa á eigin fótum og vera óháð öðrum, ef á reynir, til lengri og skemmri tíma. Um leið felst í hugtakinu yfirlýsing um vilja ESB til að vinna með öðrum ríkjum og ríkjabandalögum að því marki sem unnt er, án þess að sjálfræðinu sé raskað. Áherslur í þessa veru hafa snertifleti við fjölmörg málefnasvið, svo sem lyfjamál, fjarskiptamál, fæðuöryggismál en snúa þó ef til vill með hvað skýrustum hætti að tveimur málefnasviðum þ.e. hagvörnum og efnahagsöryggi og samkeppnishæfni annars vegar og varnar- og öryggismálum hins vegar.

Framangreindar áherslur komu fyrst fram meðan faraldurinn geisaði og strax í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu var ljóst að áfram yrði haldið á sömu braut, sbr. Versalayfirlýsingu leiðtogaráðs ESB (e. Versailles Declaration) sem samþykkt var á fundi ráðsins 10. og 11. mars 2022. Þessar áherslur voru síðan áréttaðar í bréfi forseta leiðtogaráðs ESB, Charles Michel, frá 23. júní sl., og áréttaðar skýrlega í Granadayfirlýsingu ráðsins (e. Granada declaration) sem gefin var út í framhaldi af óformlegum fundi ráðsins 6. október sl., en þeirri yfirlýsingu var ætlað að marka upphaf umræðu og undirbúning að nýrri fimm ára stefnuáætlun ráðsins, sbr. nánari umfjöllun um fund ráðsins og efni þeirrar yfirlýsingarinnar í Vaktinni 13. október sl. Eins og umræðan hefur þróast verður vart annað séð en að yfirlýsingin og þau efnisatriði sem þar eru tilgreind hafi gott forspárgildi um efni væntanlegar stefnuáætlunar leiðtogaráðsins til næstu fimm ára, sbr. m.a. nýja skýrslu Enrico Letta, forseta Jacques Delors stofnunarinnar og fyrrum forsætisráðherra Ítalíu, um framtíð innri markaðarins, sem unnin var að beiðni leiðtogaráðsins en fjallað var um skýrsluna í Vaktinni 19. apríl sl. Þannig er þess að vænta að efni nýrrar áætlunar muni í ríkum mæli snúa að efnahagslegu öryggi, viðnámsþoli og samkeppnishæfni innri markaðarins, orkusjálfstæði, eflingu iðnaðarstarfsemi, öryggi og fjölbreytni aðfangakeðja, lyfjaöryggismálum, vísinda- og tæknimálum og síðast en ekki síst að utanríkis-, öryggis- og varnarmálum. Loftslags- og umhverfismál og græn umskipti, sem og stafræn umskipti, verða þó einnig væntanlega og eftir sem áður í öndvegi en þó hugsanlega í ríkari mæli á forsendum efnahagslegs öryggis, orkuöryggis og eflingu græns iðnaðar auk þess sem vænta má að haldið verði áfram að beita afli innri markaðarins til að knýja á um framfarir á sviði umhverfismála, sem og á sviði mannréttindamála, bæði innan og utan innri markaðarins, þ.e. gagnvart þriðju ríkjum. Af þeim sökum, en einnig í tengslum við áherslur á sviði hagvarna og öryggis- og varnarmála, má búast við því að þverlæg stefnumótun og reglusetning verði áfram algeng. Með þverlægri stefnumótun og reglusetningu er átt við þau tilvik þar sem ESB-gerðir lúta bæði í senn að leikreglum á innri markaðinum og reglum er varða aðra stefnumörkun á öðrum sviðum, t.d. utanríkisstefnu ESB eða viðskiptum við þriðju ríki, sbr. m.a. umfjallanir Vaktarinnar um framkvæmdaáætlun Græna sáttmálans í Vaktinni 10. febrúar sl. og 24. mars sl., sbr. einnig umfjöllun í Vaktinni um 27. janúar sl. um viðbrögð ESB við nýjum stuðningsaðgerðum við grænan iðnað í Bandaríkjunum, eða svonefndri IRA löggjöf Bandaríkjanna (e. US Inflation Reduction Act), sbr. einnig nýja efnahagsöryggisáætlun ESB sem fjallað var um í Vaktinni 23. júní sl. Slík þverlæg stefnumótun og reglusetning felur jafnan í sér áskoranir við rekstur EES-samningsins, sbr. umfjöllun um strategískt sjálfræði ESB og þróun innri markaðarins í Vaktinni 24. nóvember sl.

Með hliðsjón af framangreindu er viðbúið að ný stefnuáætlun leiðtogaráðsins verði eilítið frábrugðin þeirri áætlun sem leiðtogaráðið samþykkti að loknum Evrópuþingskosningunum í júní árið 2019 fyrir árin 2019 – 2024. Við gerð þeirrar áætlunar óraði vitaskuld engan fyrir því sem framundan var með heimsfaraldri kórónuveiru, stríðsátökum, orkukreppu og kreppu í alþjóðasamskiptum í þeim mæli sem raun ber vitni og ber áætlunin þess merki. Að sama skapi bendir allt til þess að ný stefnuáætlun leiðtogaráðsins muni litast mjög af framangreindum atburðum sem ekki sér fyrir endann á og þeim áherslum sem raktar hafa verið.

Innlegg Danmerkur í yfirstandandi stefnumótunarvinnu

Danska ríkisstjórnin kynnti í byrjun maí sl. áherslur sínar í þeirri stefnumótunarvinnu sem nú stendur yfir. Í áhersluskjalinu kemur fram sú afstaða að ESB standi nú frammi fyrir mestu áskorunum frá stofnun sambandsins er kemur að alþjóðasamskiptum og utanríkismálum í víðum skilningi (e. geopolitical challenges). Í því óvissuástandi sem nú ríkir sé þörf fyrir sterkt ESB sem hafi getu og vilja til að standa vörð um hagsmuni ESB, ekki hvað síst í þeirri ágengu alþjóðlegu samkeppni sem nú viðgengst. Lögð er áhersla á að ESB verði að taka ábyrgð á eigin öryggi og varnarmálum og að landamæri ESB verði styrkt. Efla þurfi samkeppnishæfni innri markaðarins með því að draga úr reglubyrði og einfalda regluverk. Þá er lögð áhersla á orkuöryggi og aukna græna orkuframleiðslu og að ESB verði að koma með afgerandi hætti að uppbyggingu grænna orkuinnviða á sjó og er bent á að Norðursjór geti orðið græn orkumiðstöð ESB (e. green power plant of Europe), en til þess þurfi sameiginlegt fjárfestingarátak af hálfu ESB í innviðum. Þá kemur fram að stækkunarstefna ESB kalli á skilvirkari úrræði til að tryggja samheldni, sameiginleg gildi, lýðræði og réttarríkið.

Danmörk mun taka við formennsku í ráðherraráði ESB á seinni hluta næsta árs, 2025.

Nánar um hagvarnir og efnahagslegt öryggi

Hugveita Evrópuþingsins (EP Think Tank) birti nýverið ítarlega greiningu á hagvörnum ESB. Í greiningunni, sem unnin var að beiðni þingnefndar Evrópuþingsins um milliríkjaviðskipti, er farið yfir núverandi framkvæmd og jafnframt rýnt í mögulega þróun á þessu sviði. Rýnt er í mismunandi nálgun þriðju ríkja er kemur að hagvörnum og er sérstaklega er fjallað um Bandaríkin (BNA), Kína og Japan í því samhengi. Er það niðurstaða greiningarinnar að ESB hafi verið seinni til en helstu keppinautar til að þróa úrræði á sviði hagvarna. Mikilvæg skref hafi á hinn bóginn verið stigin með tilkomu nýrrar efnahagsöryggisáætlunar ESB sem kom út í júní á síðasta ári, sbr. umfjöllun um þá áætlun í Vaktinni 23. júní sl. Er það niðurstaða greiningar á stefnunni og framkvæmd hennar að ESB hafi dregið lærdóma af því hvernig BNA og Japan hafi hagað sínum hagvörnum. Eftir sem áður standi ESB frammi fyrir stórum áskorunum á þessu sviði og lúta þær fyrst og fremst að skorti á samhæfingu og samþættingu á mikilvægum sviðum hagvarna sem eru enn sem komið er að miklu leyti á forræði hvers aðildarríkis fyrir sig, en skilvirk beiting slíkra varna velti hins vegar á því að aðildarríki ESB beiti sér með samhentum hætti. Sjá í þessu samhengi m.a. umfjöllun Vaktarinnar 15. mars sl. um uppbyggingu sameiginlegs fjármagnsmarkaðar í ESB (e. Capital Markets Union). Er það niðurstaða greiningarskýrslunnar að aðildarríkin þurfi að skuldbinda sig til að framfylgja efnahagsöryggisáætluninni og móta sameiginlega utanríkisstefnu sem styður við hana.

Niðurlag

Atburðir undanfarinna ára og sú staða og áskoranir sem nú eru uppi, einkum vegna árásarstríðs Rússlands gagnvart Úkraínu og þróunar í milliríkjasamskiptum, hafa leitt ESB að krossgötum, ef svo má segja, er kemur að stefnumörkun og þróun sambandsins á mikilvægum sviðum til næstu ára. Eins og rakið er að fram, sbr. jafnframt umfjöllun Vaktarinnar 3. maí sl. um Evrópuþingskosningarnar, bendir flest til þess að stefnan verði tekin í átt til frekari samþættingar og samhæfingar enda þótt ekkert sé gefið í þeim efnum. Í öllu falli er ástæða til að gæta vandlega að stöðu Íslands í því þróunarferli sem er framundan og hvernig best verði staðið vörð um hagsmuni landsins á vettvangi EES-samningsins og jafnframt að hvaða marki Ísland eigi að taka þátt samstarfsverkefnum ESB, óháð því hvort slík þátttaka verði beinlínis felld undir samningsinn eða ekki, sbr. m.a. umfjöllun Vaktarinnar 19. apríl sl. um nýja norska skýrslu um þróun EES-samningsins en þar kemur fram sú afstaða að Noregi beri að leita eftir aðild að nýjum samstarfsáætlunum ESB á sviði utanríkis-, öryggis- og varnarmála óháð því hvort slíkt samstarf falli undir EES-samninginn eða ekki. Sjá einnig í þessu samhengi umfjöllun Vaktarinnar 15. mars sl. þar sem fjallað er um nýja stefnumótun ESB á sviði varnarmála.

Áhugi ungs fólks á komandi kosningum til Evrópuþingsins

Ný könnun um afstöðu ungs fólks til lýðræðismála gefur til kynna mikinn áhuga ungu kynslóðarinnar á komandi á kosningum til Evrópuþingsins. Þannig segjast 64% ætla að nýta atkvæðisrétt sinn í komandi kosningum, meðan einungis 13% gefa skýrt til kynna að þau hyggist ekki gera það. Könnunin sýnir enn fremur að stór hluti ungs fólks hefur á umliðnum mánuðum tekið þátt í einhvers konar viðburðum eða aðgerðum sem miða að því að hafa áhrif á samfélagsþróun. Þau málefni sem skora hæst hjá ungu fólki eru mannrétttindamál, loftslagsbreytingar og umhverfismál, heilbrigðis- og velferðarmál og jafnréttismál. Þá telur mikill meiri hluti að menntakerfið hafi undirbúið þau vel til að takast á við áskoranir sem þeim mæta á sviði lýðræðismála, svo sem er kemur að stafrænni færni og færni til að bera kennsl á falsfréttir og upplýsingaóreiðu. Mikill meiri hluti telur jafnframt að menntakerfið að kennt þeim að vera umhugað um umhverfið.

Sjá nánar um könnunina hér.

Tilmæli og leiðbeiningar um hvernig hraða megi uppbyggingu endurnýjanlegra orkugjafa

Ítarlega hefur verið fjallað um orkumál í Vaktinni á liðnum misserum. Endurnýjanleg orka er lykilþáttur í áætlun ESB við að ná markmiðum um kolefnishlutleysi fyrir árið 2050. Litið er á markmið um kolefnishlutleysi sem efnahagslegt tækifæri fyrir ESB þar sem samkeppnishæfni sambandsins mun í sífellt auknum mæli velta á getu þess til að þróa og styðja við uppbyggingu á kolefnishlutlausum tækniiðnaði sem aftur mun gera umskipti yfir í græna orku mögulega.

Þann 13. maí sl. sendi framkvæmdastjórn ESB frá sér uppfærð tilmæli og leiðbeiningar um hvernig hraða megi uppbyggingu endurnýjanlegra orkugjafa í samræmi REPowerEU áætlunina, sem samþykkt var fyrir tæpum tveimur árum í kjölfar árásarstríðs Rússlands gagnvart Úkraínu en eitt megin markmið áætlunarinnar er að gera ESB óháð innflutningi á jarðefnaeldsneyti frá Rússlandi. Framkvæmdastjórn ESB hefur samþykkt fjölda nýrra og uppfærðra tilmæla og leiðbeiningarskjala til að bæta, hraða og einfalda leyfisveitingarferli og uppboð fyrir uppbyggingu endurnýjanlegrar orkugjafa, sbr. m.a. umfjöllun Vaktarinnar 10. febrúar 2023 um framkvæmdaáætlun Græna sáttmálans, sbr. og umfjöllun Vaktarinnar 24. mars 2024 um framfylgd þeirrar áætlunar.

Hraðari og einfaldari leyfisveitingar

Aukinn fyrirsjáanleiki við leyfisveitingar og hraðari leyfisveitingarferli eru til þess fallin að hvetja fyrirtæki í orkugeiranum til að auka fjárfestingar í endurnýjanlegum orkugjöfum. Í uppfærðum tilmælum um hvernig flýta megi málsmeðferð við leyfisveitingar, sbr. og í meðfylgjandi leiðbeiningum um sama efni, er bent á leiðir til að bæta skipulags- og leyfisferli fyrir uppbyggingu endurnýjanlega orkugjafa og tengd innviðaverkefni og eru þar m.a. tekin dæmi um góða starfshætti auk þess sem mikilvægi stafrænna ferla er undirstrikað o.s.frv.

Í tengslum við framangreint hefur framkvæmdastjórn ESB einnig sent frá sér frekari leiðbeiningar um hvernig standa beri að vali á skilgreindum uppbyggingarsvæðum (e. acceleration areas). Hugtakið á sér stoð í endurskoðaðri tilskipun um endurnýjanlega orkugjafa sem var endanlega samþykkt á vettvangi ESB í september í fyrra, sbr. umfjöllun um gerðina í Vaktinni 21. apríl 2023. Samkvæmt tilskipuninni eru þetta svæði þar sem fyrirfram hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að ekki sé talið að uppsetning endurnýjanlegrar orkuvera hafi umtalsverð umhverfisáhrif og að á þeim grunni sé hægt að viðhafa einfaldari og hraðari málsmeðferð við veitingu leyfa. Til að tryggja farsæla skilgreiningu slíkra uppbyggingarsvæða er í leiðbeiningunum m.a. lögð áhersla á aðkomu haghafa og samráð við almenning.

Endurbætt uppboðshönnun

Uppboð gegna lykilhlutverki í uppbyggingu endurnýjanlegrar orkugjafa. Þegar uppboð eru vel hönnuð geta þau stutt við stöðugan og sjálfbæran vöxt á þessu sviði. Með því að útlista staðlaða þætti við hönnun uppboða fyrir uppbyggingu endurnýjanlega orkugjafa í sérstökum tilmælum og leiðbeiningum er stefnt að því að samhæfa og einfalda framkvæmd slíkra uppboða í samræmi við nýja reglugerð um kolefnishlutlausan tækniiðnað (e. Net-Zero Industry Act), sbr. umfjöllun Vaktarinnar 16. febrúar sl. um þá reglugerð.

Samhliða útgáfu framangreindra tilmæla og leiðbeininga hefur framkvæmdastjórnin uppfært stafræna upplýsingagátt sína um fyrirhuguð uppboð og tengd atriði í þeim tilgangi að auka sýnileika og fyrirsjáanleika fyrir fjárfesta í virðiskeðju uppbyggingar á endurnýjanlegum orkugjöfum.

Vorspá um efnahagshorfur í ESB og á evrusvæðinu

Vorspá framkvæmdastjórnar ESB um stöðu efnahagsmála kom út 15. maí sl.

Þar kemur fram að vöxtur á fyrsta ársfjórðungi 2024 hafi verið umfram væntingar en hann nam 0,3% á tímabilinu, bæði í ESB í heild og á evrusvæðinu. Spáð er að hagvöxtur í ESB á árinu 2024 verði 1% en 1,6% á næsta ári. Búist er við að verðbólga í ESB miðað við samræmda vísitölu neysluverðs fari úr 6,4% árið 2023 í 2,7% 2024 og lækki enn frekar árið 2025, eða í 2,2%.

Gert er ráð fyrir að hagvöxtur í ár og árið 2025 verði fyrst og fremst drifinn áfram af vexti einkaneyslunnar, sem muni ráðast af vexti kaupmáttar launa og atvinnuþátttöku. Mikil sparnaðarhneigð almennings innan ESB gæti hins vegar dregið úr líkum á því að kaupmáttaraukningin leiði til aukinnar neyslu. Vöxtur fjárfestinga er aftur á móti að minnka, m.a. vegna samdráttar í nýbyggingu íbúðarhúsnæðis. Væntingar á markaði standa til þess að vaxtalækkanir verði hægari í nánustu framtíð en búist var við í vetur, sbr. umfjöllun Vaktarinnar 1. mars sl. um vetrarspána. Í spánni nú er gert ráð fyrir að bati í utanríkisviðskiptum muni styðja við útflutning frá ESB en með sterkari eftirspurn innan sambandsins muni innflutningur aukast og draga úr framlagi útflutnings til hagvaxtar.

Verðbólga á mælikvarða samræmdrar vísitölu neysluverðs náði hámarki sínu innan evrusvæðisins í október 2022 þegar hún nam 10,6%. Í apríl 2024 er talið að hún hafi verið 2,4%. Spáin gerir ráð fyrir að verðbólgumarkmið náist fyrr á árinu 2025 en spáð hafði verið í vetur. Lækkun verðbólgu skýrist af lækkun vöruverðs en þó er búist við að orkuverð hækki lítillega og að verð á þjónustu lækki smám saman, samhliða minni þrýstingi til launahækkana. Spáin gerir ráð fyrir að verðbólga innan sambandsins í heild fylgi svipuðum ferli en verði þó örlítið hærri.

Þrátt fyrir lítinn hagvöxt síðustu misseri mældist atvinnuþátttaka 80,1% og hlutfall starfandi einstaklinga á aldrinum 20-64 ára mælist 75,5% í lok árs 2023, sem hvort tveggja eru hæstu gildi sem mælst hafa í ESB. Á sama tíma er atvinnuleysi með lægsta móti, eða 6,0%, og líklegt er talið að það verði svipað áfram. Framboð vinnuafls er mikið, einkum vegna innflytjenda, en eftirspurnin er engu að síður sterk. Búist er við að það hægist nokkuð um á vinnumarkaði á þessu ári og á því næsta og að það dragi úr vexti nafnlauna sem náði hápunkti á árinu 2023 með vexti upp á 5,8%.

Gert er ráð fyrir að halli í opinberum rekstri dragist saman í ár og á næsta ári, einkum vegna minni stuðnings til heimila og fyrirtækja vegna hás orkuverðs. Spáð er að skuldahlutfallið verði um 82,9% í ár en hækki um 0,4% árið 2025, einkum vegna hærri vaxtakostnaðar og lítils hagvaxtar.

Talið er að óvissa og líkur á því að áhættuþættir raungerist hafi aukist síðustu mánuði, einkum vegna þróunar í árásarstríði Rússlands gagnvart Úkraínu og átakanna í Mið-Austurlöndum og vegna vaxandi spennu í alþjóðasamskiptum almennt. Þá gæti orðið nokkur bið á vaxtalækkunum í Bandaríkjunum þar sem verðbólga hefur haldist há og því líkur á að skilyrði á fjármálamörkuðum heimsins verði þrengri en ella. Framangreint geti leitt til þess að verðbólgustig innan sambandsins muni lækka hægar en gert er ráð fyrir í spánni og að bið eftir vaxtalækkunum verði þar af leiðandi lengri. Þá eru líkur á að einhver aðildarríki ESB grípi til frekari aðhaldsaðgerða í fjárlögum sínum fyrir næsta ár en gert er ráð fyrir í spánni og gætu slíkar ráðstafanir haft áhrif á hagvöxt á næsta ári. Aftur á móti gæti hugsanleg minni sparnaðarhneigð á meðal almennings aukið neyslu auk þess sem uppbygging húsnæðis kann að verða meiri en gert er ráð fyrir. Loks eru áhættuþættir í tengslum við loftslagsbreytingar taldir fara vaxandi.

Schengen stöðuskýrsla fyrir starfsárið 2023-2024

Hinn 16. apríl sl. gaf framkvæmdastjórn ESB út Schengen stöðuskýrslu fyrir starfsárið 2023-2024 (e. Report on State of Schengen). Þetta er í þriðja skiptið sem framkvæmdastjórnin gefur út skýrslu af þessu tagi en fjallað var um fyrri tvær skýrslunnar í Vaktinni 22. júní 2022 og 26. maí sl. Skýrslan er liður í að efla eftirlit með innleiðingu og framkvæmd Schengen-samningsins og verður skýrslan m.a. til umræðu á fundi dóms- og innanríkisráðherra, á vettvangi ráðherraráðs ESB, í Lúxemborg þann 23. júní nk. Í skýrslunni er farið yfir framgang mála á vettvangi Schengen-samstarfsins á síðastliðnu ári ásamt því sem helstu forgangsmál næsta starfsárs, 2024-2025, eru tilgreind.

Schengen-svæðið er stærsta svæði sinnar tegundar í heiminum þar sem 450 milljón íbúar geta notið öruggrar og frjálsrar farar innan svæðisins.

Árið 2023 hélt Schengen-svæðið áfram að vera eitt mest heimsótta svæði heims með um hálfan milljarð heimsókna. Þá voru gefnar út um 10 milljón vegabréfsáritanir inn á svæðið. Þetta hefur mikil og góð áhrif á efnahag ríkjanna en ferðamannaiðnaðurinn er um 10% af vergri landsframleiðslu ESB ríkja og skapar atvinnu fyrir um 22,6 milljónir manna.

Skýrslan sýnir að almennt er Schengen-regluverkið innleitt með fullnægjandi hætti innan aðildarríkjanna, þó svo greina megi ákveðnar misfellur. Fram kemur Schengen-samhæfingarstjórinn (e. Schengen Coordinator), sem tók til starfa árið 2022, hafi heimsótt nokkur aðildarríki á árinu, þar á meðal Ísland, með það að markmiði að styðja betur við innleiðingu ríkjanna á regluverkinu, en við úttekt sem fram fór á Schengen-samstarfinu á Íslandi árið 2022 komu fram annmarkar og athugasemdir er snéru að lögreglusamvinnu en í skýrslunni er því lýst að Ísland hafi nú bætt þar úr og alvarlegir annmarkar séu ekki lengur til staðar. Samhæfingarstjórinn heimsótti jafnframt Litáen, Finnland og Lettland. Þá kemur m.a. fram að skráning í gagnagrunn um vegabréfsáritanir (VIS) sé ábótavant á meðal aðildarríkja, með undir 48% uppflettingar í kerfinu, en tiltekin ríki standi sig þó vel, þ.e. Belgía, Lettland, Lúxemborg, Holland og Ísland þar sem tilteknum þröskuldi, þ.e. um 80% uppflettinga, sé náð.

Samhliða útgáfu skýrslunnar lagði framkvæmdastjórn ESB í fyrsta sinn fram tillögu að tilmælum ráðherraráðs ESB fyrir komandi Schengen-starfsár (e. Proposal for a Council Recommendation for the 2024/2025 Schengen Cycle). Er tillögunni ætlað að greiða fyrir innleiðingu á þeim forgangsmálum sem reifuð eru í skýrslunni. Meðal annars um aukna viðbragðsgetu aðildarríkjanna, um aukið öryggi innan þeirra, um aukið viðnámsþol á ytri landamærum, m.a. með aukinni samvinnu við þriðju ríki, um eflingu baráttunnar gegn skipulagðri glæpastarfsemi og um aðgerðir til að koma í veg fyrir ólögmæta för og til að auka og virkja betur sameiginlegt kerfi er kemur að brottvísunum.

Líkt og fyrr segir verður skýrslan til umræðu á vettvangi ráðherraráðs ESB í Lúxemborg 13. júní nk. og er þar lagt upp með að ráðherrar samþykki fyrrnefnd ráðstilmæli.

Aukin samstaða á sviði netöryggismála

Þann 6. mars sl. náðist samkomulag um efni nýrrar reglugerðar sem miðar að því að auka samstöðu innan ESB á sviði netöryggismála (e. Cyber Solidarity Act) en í samkomulaginu felst einnig að gerðar verði tilteknar breytingar á reglugerð um netöryggi (e. Cyber Security Act). Fjallað var um tillögu að nýju reglugerðinni í Vaktinni 5. maí 2023.

Markmiðið með löggjöfinni er að auka viðbragðsgetu ESB og aðildarríkja þess er kemur að stórfelldum netógnum og netöryggi almennt. Helstu þættir reglugerðarinnar snúa að því að auka vitund þvert á aðildarríkin um netöryggisógnir og efla viðbúnað og vernda innviði og netþjónustur sem metnir eru þjóðhagslega mikilvægir, s.s. heilbrigðisþjónustu, flutnings- og orkukerfi o.s.frv., með því að koma á fót sérstöku neyðarkerfi um netöryggi (e. cybersecurity emergency mechanism). Þá er ætlunin að efla samstöðu aðildarríkja sambandsins og samstilla hættustjórnun og viðbragðsgetu og loks stuðla að því að tryggja öruggt stafrænt umhverfi fyrir almenna borgara, fyrirtæki og stofnanir.

Evrópuþingið samþykkti málið endanlega fyrir sitt leyti 24. apríl sl. en enn er beðið eftir endanlegu samþykki ráðherraráðsins. Þegar endanlegt samþykki ráðsins liggur fyrir verður löggjöfin birt í Stjórnartíðindum ESB og tekur hún gildi innan sambandsins 20 dögum eftir birtingu.

Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins, í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra. Leiðréttingar, ábendingar og athugasemdir sendist til ritstjóra Vaktarinnar, Ágústs Geirs Ágústssonar, á netfangið [email protected].

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

03. maí 2024 | Evrópuþingskosningar |
Að þessu sinni er fjallað um:

Evrópuþingskosningarnar í næsta mánuði

framkvæmd Græna sáttmálans og samráð við fulltrúa evrópsks iðnaðar og aðila vinnumarkaðarins

umbætur á stjórnkerfi ESB í aðdraganda stækkunar

tilmæli um þróun og samþættingu barnaverndarkerfa

samráð við aðila vinnumarkaðarins um sanngjarna fjarvinnu og um réttinn til þess að aftengjast

bandalag til að sporna við skorti á mikilvægum lyfjum

Evrópuþingskosningar

Efnisyfirlit umfjöllunar:

Inngangur

Stjórnmálakerfi ESB

Þróun á fylgi stjórnmálaflokkanna

Vænt kosningaþátttaka og helstu málefnin sem brenna á kjósendum

Oddvitaaðferðin við val á forseta framkvæmdastjórnar ESB

Kosningabaráttan, oddvitakappræður og Evrópudagurinn 9. maí nk.

Niðurlag

Inngangur

Kosningar til Evrópuþingsins fara fram dagana 6. – 9. júní nk. Síðasti þingfundur fyrir kosningar var haldinn 25. apríl sl. og í framhaldi af honum hófst þinghlé sem mun standa fram yfir kosningarnar. Nýtt þing verður síðan sett um miðjan júlí með kjöri forseta og varaforseta þingsins.

Allt stefnir í spennandi kosningar og mælist áhugi kjósenda á kosningunum miklum mun meiri en áður auk þess sem kosningarnar eru í huga kjósenda mikilvægari nú en áður. Skýrist það án vafa af þeim miklu áskorunum sem Evrópa stendur frammi fyrir vegna árásarstríðs Rússlands á Úkraínu, harðnandi alþjóðlegri samkeppni og baráttunni við loftslagsbreytingar svo eitthvað sé nefnt.

Kosningarnar marka eins og kunnugt er jafnframt lok skipunartímabils núverandi framkvæmdastjórnar ESB. Meðal fyrstu verka nýkjörins þings verður að fjalla um og greiða atkvæði um tillögu leiðtogaráðs ESB um það hver skuli gegna embætti forseta framkvæmdastjórnar ESB næstu fimm árin en ákvörðun um það er háð samþykki meirihluta þingsins. Þegar kjör forseta liggur fyrir mun þingið jafnframt fjalla um og greiða atkvæði um tilnefningar í önnur embætti innan framkvæmdastjórnarinnar. Að þessu sinni er gert ráð fyrir að atkvæðagreiðsla um kjör forseta fari fram í september, eða þegar þing kemur saman að nýju að loknu sumarleyfi í ágúst. Eftir kosningarnar árið 2019 tókst að ljúka kjöri á forseta framkvæmdastjórnarinnar í júlí en þess ber að gæta að þá fóru kosningarnar fram nokkru fyrr en nú er. Því er fremur gert ráð fyrir að niðurstaða um þetta muni ekki liggja fyrir fyrr en í september að þessu sinni, enda þótt það sé ekki útilokað að þetta náist fyrir sumarleyfi í júlí. Niðurstaðna um skipan í aðrar stöður innan framkvæmdastjórnarinnar er síðan að vænta síðla árs, í nóvember líklega, og mun núverandi framkvæmdastjórn gegna störfum þar til gengið hefur verið frá skipun nýrrar framkvæmdastjórnar í heild sinni.

Eins og nánar er rakið í umfjöllun Vaktarinnar 29. september sl. hafa áhrif Evrópuþingsins og hlutdeild í lagasetningarferli ESB aukist umtalsvert á umliðnum árum. Áður var það einungis ráðgefandi þing en með Lissabon-sáttmálanum árið 2007 er staða þess sem eins handhafa löggjafarvalds (e. co-legislator) innsigluð. Auk þess veitir þingið framkvæmdarvaldsarmi ESB mikilvægt aðhald og gegnir að því leyti áþekku hlutverki og þjóðþing aðildarríkjanna gera gagnvart handhöfum framkvæmdarvalds í hverju ríki um sig.

Til að gefa nánari innsýn inn í kosningarnar sem fram undan eru verður hér á eftir fjallað stuttlega um stjórnmálakerfi ESB, þ.e. um stjórnmálaflokkanna og samtök þeirra, um þróun á fylgi flokkanna samkvæmt skoðanakönnunum, um helstu málefni sem brenna á kjósendum fyrir kosningarnar, hvert stefnir með kosningaþátttöku, um oddvitaaðferðina og um kosningabaráttuna, oddvitakappræður og um Evrópudaginn 9. maí nk.

Stjórnmálakerfi ESB

Stjórnmálakerfi ESB byggist á fjölflokkakerfi og má segja að það sé tvískipt. Í grunninn byggist það annars vegar á þeim stjórnmálaflokkum sem eru starfræktir í hverju aðildarríki um sig og hins vegar á samevrópskum stjórnmálasamtökum eða -flokkum sem virka í raun sem regnhlífarsamtök skyldra flokka í aðildarríkjunum. Um stofnun og rekstur samevrópskra stjórnmálasamtaka ESB gildir reglugerð ESB nr. 1141/2014 (e. Regulation on the statute and funding of European political parties and European political foundations - APPF) og hafa þeir flokkar sem stofnað hefur verið til á grundvelli reglugerðarinnar rétt til að heyja sameiginlega kosningabaráttu fyrir hönd sinna aðildarflokka þvert á aðildarríkin.

Framkvæmd kosninganna í hverju aðildarríki um sig fer fram í samræmi við kosningalöggjöf sem þar gildir og eru það stjórnmálaflokkarnir sem þar starfa sem bjóða fram lista í kosningunum. Val kjósenda í hverju ríki stendur því að jafnaði á milli sömu flokka og þegar kosið er í öðrum kosningum innan ríkisins. Hins vegar má kjósendum að jafnaði vitaskuld vera ljóst hvaða samevrópsku stjórnmálasamtökum flokkarnir tilheyra og þar með, með hvaða hætti fulltrúar þeirra munu skipta sér í þingflokka innan Evrópuþingsins að afloknum kosningum, nái þeir kjöri.

Skráð stjórnmálasamtök ESB, skv. APPF-reglugerðinni, eru nú tíu talsins, þ.e. eftirtalin (talin upp eftir styrk þeirra á Evrópuþinginu nú):

EPP (European People‘s Party): Flokkurinn er skilgreindur hægra megin við miðju (e. centre-right) og er óhætt að segja að flokkurinn sé og hafi verið mesti valdaflokkurinn í stjórnmálakerfi ESB á umliðnum árum. Ursula von der Leyen (VDL), núverandi forseti framkvæmdastjórnar ESB, tilheyrir þessum flokki, líkt og flokkssystkini hennar í Kristilega demókrataflokkunum í Þýskalandi þar sem hún á pólitískar rætur. Samtals koma 10 af 27 framkvæmdastjórum í framkvæmdastjórn ESB úr röðum stjórnmálaflokka sem tilheyra EPP. Þá koma13 leiðtogar aðildarríkja í leiðtogaráði ESB nú úr röðum stjórnmálaflokka sem tilheyra EPP. VDL hefur nú verið útnefnd sem oddviti flokksins í kosningunum og til áframhaldandi setu í embætti forseta framkvæmdastjórnarinnar af hálfu flokksins. Hún mun þó ekki verða í framboði til setu á Evrópuþinginu fyrir hönd EPP í komandi kosningum. EPP myndar þingflokk með ECPM, sbr. umfjöllun um þann flokk hér að neðan, og telur þingflokkurinn nú samtals 177 þingmenn af þeim 705 sem nú eiga sæti á Evrópuþinginu. (Þingmönnum mun fjölga um 15 í komandi kosningum samkvæmt ákvörðun leiðtogaráðs ESB og verða þingmenn samtals 720 eftir kosningarnar.)

PES (Party of European Socialists): Flokkurinn er skilgreindur vinstra megin við miðju (e. Centre-left) og myndaði flokkurinn ásamt EPP og ALDE meirihluta á þinginu þegar atkvæði voru greidd um VDL og skipan framkvæmdastjórnar hennar árið 2019. Átta framkvæmdastjórar í framkvæmdastjórn ESB koma nú úr röðum PES. Þá koma níu af leiðtogum aðildarríkja í leiðtogaráði ESB nú úr röðum stjórnmálaflokka sem heyra til PES. Nicolas Schmit hefur verið útnefndur sem oddviti flokksins fyrir komandi kosningar. Schmit er núverandi framkvæmdastjóri félags- og atvinnumála í framkvæmdastjórn ESB. Flokkurinn myndar þingflokk undir nafninu Group of the Progressive Alliance of Socialists and Democrats in the European Parliament (S&D) og telur þingflokkurinn samtals 140 þingmenn.

ALDE (Alliance of Liberals and Democrats for Europe Party): Flokkurinn er skilgreindur sem miðjuflokkur (e. Centre) og myndaði hann eins og áður segir meirihluta með EPP og S&D við kjör núverandi framkvæmdastjórnar ESB eftir kosningarnar 2019. Sex fulltrúar í núverandi framkvæmdastjórn ESB koma úr röðum flokka sem tilheyra ALDE. Þrír af leiðtogum aðildarríkja í leiðtogaráði ESB koma nú úr röðum stjórnmálaflokka sem tilheyra ALDE. Sandro Gozi, Marie-Agnes Strack-Zimmermann og Valérie Hayer hafa verið útnefnd sem oddvitar ALDE og EDP. Gozi er frá Frakklandi og núverandi þingmaður á Evrópuþinginu. Strack-Zimmermann er frá Þýskalandi og er núverandi þingmaður á þýska sambandsþinginu. Hayer er frá Frakklandi og núverandi þingmaður á Evrópuþinginu og formaður þingflokks Renew Europe. Þingmenn flokksins sitja saman í þingflokki með þingmönnum European Democratic Party (EDP), sbr. umfjöllun um þann flokk hér að neðan, undir nafninu Renew Europe og telur þingflokkurinn nú 102 þingmenn.

ECR (European Conservatives and Reformists): Flokkurinn er skilgreindur sem hægriflokkur (e. Right-wing) og öfugt við það sem á við um framangreinda þrjá flokka, og fleiri, þá gætir tiltekinnar gagnrýni og efasemda um frekari samþættingu aðildarríkjanna innan ESB í málflutningi talsmanna flokksins (e. Soft Euroscepticism). ECR á einn fulltrúa í framkvæmdastjórn ESB. Einn leiðtogi aðildarríkis í leiðtogaráði ESB kemur úr röðum stjórnmálaflokka sem heyra til ECR, þ.e. Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, en hún er jafnframt formaður stjórnmálasamtakanna. ECR hefur ákveðið að útnefna ekki sérstakan oddvita fyrir komandi kosningar. (Þess má geta að grundvallar stefnuskrá flokksins var samþykkt í Reykjavík 21. mars 2014 á ráðsfundi flokksins sem þar var haldinn og nefnist Reykjavík Declaration.) Þingflokkur ECR telur nú 68 þingmenn.

ID (Identity and Democracy): Flokkurinn er skilgreindur lengst til hægri af þeim flokkum sem fulltrúa eiga á þinginu (e. Right-wing to far-right). Líkt og á við um ECR hefur flokkurinn uppi efasemdir og gagnrýni á samþættingu aðildarríkjanna innan ESB. Afstaða talsmanna ID er þó mun harðari í þessum efnum en afstaða ECR og vill flokkurinn í raun hverfa til baka á sviði samþættingar innan ESB á ýmsum sviðum (e. Euroscepticism). ID hefur útnefnt Anders Vistisen sem oddvita fyrir komandi kosningar. Vistisen er frá Danmörku og núverandi þingmaður á Evrópuþinginu. Þingflokkur ID telur nú 59 þingmenn.

EGP (European Green Party): Flokkurinn er skilgreindur vinstra megin við miðju (e. Centre-left to left-wing). EGP hefur útnefnt Terry Reintke og Bas Eickhout sem oddvita flokksins fyrir komandi kosningar. Reintke er frá Þýskalandi og er núverandi þingmaður á Evrópuþinginu og einn af varaforsetum þingsins. Eickhout er frá Hollandi og er einnig núverandi þingmaður á Evrópuþinginu og varaformaður þingflokks Greens/EFA. EGP myndar þingflokk með European Free Alliance (EFA) undir nafninu Greens /EFA og telur þingflokkurinn samtals 72 þingmenn.

EL (Party of the European Left): Flokkurinn er skilgreindur lengst til vinstri af þeim flokkum sem fulltrúa eiga á þinginu (e. Left-wing to far-left). Líkt og á við um ECR þá gætir gagnrýni á frekari samþættingu aðildarríkjanna innan ESB enda þótt hún bygg á öðrum forsendum (e. Soft Euroscepticism). Walter Baier hefur verið útnefndur sem oddviti. Baier er frá Austurríki og er núverandi formaður flokksins. Flokkurinn myndar þingflokk undir nafninu The Left group in the European Parliament - GUE/NGL (The Left) og telur þingflokkurinn nú 37 þingmenn.

EDF (European Democratic Party): Flokkurinn er skilgreindur sem miðjuflokkur líkt og ALDE og myndar flokkurinn þingflokk með ALDE undir merkjum Renew Europe, og tefla flokkarnir fram oddvitum sameiginlega, sbr. umfjöllun að framan um ALDE.

EFA (European Free Alliance): Flokkurinn er hvorki skilgreindur til hægri né vinstri á hinum pólitíska skala heldur lítur flokkurinn svo á að hann rúmi breitt mengi skoðana þvert á hið pólitíska litróf (e. Big tent). Flokkurinn hefur útnefnt Maylis Roßberg annars vegar og Raül Romeva hins vegar sem oddvita flokksins fyrir komandi kosningar. Roßberg er frá Þýskalandi og er hún formaður ungliðahreyfingar flokksins. Romeva er frá Spáni og er fyrrverandi þingmaður á Evrópuþinginu en hefur einnig gegnt ráðherraembætti í stjórn Katalóníu á Spáni. EFA myndar þingflokk með EGP (European Green Party), undir nafninu Greens /EFA, sbr. umfjöllun hér að framan

ECPM (European Christian Political Movement). Flokkurinn er skilgreindur hægra megin við miðju (e. Centre). Flokkurinn hefur útnefnt Valeriu Ghilețchi sem oddvita flokksins fyrir komandi kosningar. Ghilețchi er frá Moldóvu og er fyrrverandi þingmaður á moldóvska þinginu. Flokkurinn myndar þingflokk með EPP, sbr. umfjöllun að framan.

50 þingmenn, eða um 7% þingmanna, eru sem stendur utan þingflokka, þar með taldir eru fulltrúar flokks Viktors Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, Fidesz.

Þróun á fylgi stjórnmálaflokkanna

Skoðanakannanir á fylgi stjórnmálaaflanna eru að jafnaði ekki framkvæmdar þvert á aðildaríki ESB, heldur er heildarstaða stjórnmálasamtaka ESB metinn á grundvelli margvíslegra kannana sem gerðar eru á stöðu stjórnmálaflokkanna í hverju aðildarríki fyrir sig. Á grundvelli þeirra eru kosningaspár um fylgi stjórnmálasamtaka ESB unnar. Þær kosningaspár sem nú liggja fyrir sýna að fylgið hefur á undanförnum misserum leitað nokkuð til hægri. Þannig hefur fylgi EPP verið á uppleið að undanförnu og stefnir í að EPP haldi stöðu sinni örugglega sem stærsti flokkurinn á þinginu. ID hefur einnig bætt töluverðu fylgi við sig í könnunum á umliðnu ári. Á allra síðustu vikum hefur fylgið þó dalað aðeins en er þó enn mikið í sögulegu samhengi og mælist það t.d. meira en fylgi ECR sem er breyting frá því sem verið hefur að undanförnu. Fylgi ECR hefur þó einnig vaxið á kjörtímabilinu.

Að sama skapi hefur fylgi þeirra flokka sem skilgreina sig til vinstri dalað í könnunum. Á það við um PES (S&D), EGP (Greens/EFA) og EL (Left). Sömu sögu verður sagt um miðjuflokkana ALDE og EDF (Renew Europe) en þar hefur fylgið heldur dalað.

Sjá nánar í kosningaspá Politico (e. Poll of Polls).

Vænt kosningaþátttaka og helstu málefnin sem brenna á kjósendum

Kosningaþátttaka jókst umtalsvert í síðustu kosningum árið 2019 miðað við kosningarnar þar á undan, var tæp 51% árið 2019 samanborið við einungis 43% árið 2014. Væntingar eru um þessi þróun haldi áfram, sbr. niðurstöður vorkönnunar, Eurobarometer 2024, um stöðu lýðræðismála í ESB, þar sem fram kemur að 60% kjósenda hafi áhuga á komandi kosningum, en það er aukning um 11% frá árinu 2019. Þá telur 71% kjósenda líklegt að þeir muni nýti atkvæðisréttinn í komandi kosningum, en þetta hlutfall var 10% lægra í vorkönnuninni 2019. Það eru því sterkar vísbendingar um að kjörsókn muni aukast talsvert í komandi kosningum.

Helstu málefni sem kjósendur vilja fá umræðu um í kosningabaráttunni eru samkvæmt skýrslunni aðgerðir gegn fátækt og félagslegri einangrun og heilbrigðismál. Þar á eftir koma stuðningsaðgerðir við atvinnulífið, sköpun nýrra starfa, varnar- og öryggismál, aðgerðir gegn loftslagsbreytingum, málefni flótta- og farandsfólks og svo mætti áfram telja.

Þegar kjósendur eru beðnir að horfa til stöðu ESB á alþjóðasviðinu og hvaða áherslur beri að leggja til að tryggja áhrif og stöðu ESB til framtíðar nefna flestir varnar- og öryggismál sem fyrsta forgangsmál. Þar á eftir koma orkumál og svo fæðuöryggis- og landbúnaðarmál. Stóraukin áhersla kjósenda á varnarmál er vitaskuld rakin beint til árásarstríðs Rússlands gagnvart Úkraínu.

Mikill meiri hluti kjósenda, 73%, eru þeirra skoðunar að aðgerðir ESB hafi áhrif á þeirra daglega líf. Áþekkt hlutfall kjósenda, 71%, telur að heimalönd þeirra hafi hag af Evrópusambandsaðildinni.

Eftirfarandi gildi skora hæst þegar kjósendur eru beðnir um tilgreina hvaða gildi ESB skuli helst standa vörð um: friður, lýðræði og mannréttindavernd.

Oddvitaaðferðin við val á forseta framkvæmdastjórnar ESB

Eins og vikið er að í inngangi fer Evrópuþingið með veigamikið hlutverk er kemur að skipan framkvæmdastjórnar ESB, sbr. 7. mgr. 17. gr. sáttmála um Evrópusambandið (The Treaty on European Union – TEU), sbr. einnig nánari umfjöllun í Vaktinni 29. september sl. Í samræmi við þessar valdheimildir hefur vilji þingsins lengi staðið til þess að tryggja að með nýtingu kosningaréttar í kosningum til Evrópuþingsins séu kjósendur ekki aðeins að hafa áhrif á skipan þingsins sjálfs heldur einnig á það hver muni leiða framkvæmdarvaldsarm ESB sem forseti framkvæmdastjórnar ESB.

Til að ná framangreindu markmiði hefur hugmyndin um oddvitaaðferðina við val á forseta framkvæmdastjórnar ESB fest rætur í stofnanakerfi ESB á umliðnum árum. Aðferðin svipar til þeirrar aðferðar sem notuð er í þingræðisríkjum eins og á Íslandi við myndun ríkisstjórnar. Er þannig gert ráð fyrir að forseti framkvæmdastjórnarinnar komi úr röðum oddvita flokkanna sem bjóða fram til Evrópuþingsins og að sá oddviti verði fyrir valinu sem meiri hluti þingsins nær samstöðu um. Enn sem komið er hefur þessi aðferð þó ekki skilað oddvita neins af flokkunum sem sæti eiga á Evrópuþinginu í stól forseta framkvæmdastjórnarinnar.

Þessi aðferð, oddvitaaðferðin, (þý. Spitzenkandidaten process eða e. lead candidate process), á sér ekki beina stoð í sáttmálum ESB. Leiðtogaráð ESB tilnefnir eftir sem áður í stöðu forseta og er ekki bundið af að velja hann eða hana úr röðum oddvita flokkanna. Það var einmitt það sem gerðist eftir síðustu Evrópuþingskosningarnar árið 2019. Manfred Weber hafði þá háð langa kosningabaráttu sem oddviti EPP og jafnvel þótt flokkur hans fengi langflesta menn kjörna á Evrópuþingið 2019 og flokkarnir skiptu bróðurlega með sér helstu embættum gerði leiðtogaráðið ekki tillögu um hann í embætti forseta framkvæmdastjórnar ESB heldur Ursulu von der Leyen (VDL), en hún hafði hvorki verið í kjöri til Evrópuþingsins fyrir kosningarnar árið 2019 né hafði hún verið útnefnd sem oddviti einhvers af flokkunum fyrir kosningarnar. Þrátt fyrir þetta samþykkti þingið tillögu um kjör hennar í embættið, þó með nokkuð naumum meirihluta atkvæða.

Jafnvel þótt oddvitaaðferðin hafi ekki enn sem komið er ekki skilað tilætluðum árangri virðist hugmyndin lifa góðu lífi fyrir komandi kosningar enda byggist hún á sterkum lýðræðislegum grunni. Öll stjórnmálasamtök í aðildarríkjum ESB að frátöldum flokki ECR hafa nú útnefnt oddvita úr sínum röðum, þ. á m. hefur EPP valið sitjandi forseta sem sinn kandídat jafnvel þótt hún sé sjálf ekki í kjöri til Evrópuþingsins. Með þessu móti er ekki útilokað að oddvitaaðferðinni vaxi með tímanum ásmegin.

Kosningabaráttan, oddvitakappræður og Evrópudagurinn 9. maí nk.

Kosningabaráttan er löngu hafin og er hún háð á mörgum vígstöðvum. Á hinu opinbera stjórnmálasviði er hún háð á tvennum vígstöðvum. Í samræmi við uppbyggingu á stjórnmálakerfis ESB er hún annars vegar háð á vettvangi stjórnmálaflokkanna í hverju aðildarríki fyrir sig og hins vegar á vettvangi stjórnmálasamtaka ESB þar sem baráttan fer fram þvert á aðildarríkin og þar eru oddvitar stjórnmálasamtakanna mest áberandi.

Fyrstu kappræður oddvitanna fóru fram í Maastricht í Hollandi 29. apríl sl. (Maastricht debate). Í kappræðunum, sem eru sérstaklega stílaðar inn ungt fólk, voru þrjú megin málefni til umræðu, þ.e. loftslagsbreytingar, utanríkis- og öryggismálastefna ESB og lýðræðismál. Umræður voru fjörugar og var á köflum hart tekist á. Horfa má á upptöku af kappræðunum hér.

Stóru kappræður oddvitanna fyrir kosningarnar, svonefndar Eurovision Debate, fara fram 23. maí. Kappræðurnar eru skipulagðar af Samtökum evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) í samstarfi við Evrópuþingið og stjórnmálaflokka ESB.

Eins og staðan er nú er talið langlíklegast að VDL verði tilnefnd af leiðtogaráðinu til áframhaldandi setu sem forseti framkvæmdastjórnar ESB. Grunnforsenda þess er þó sú að hún njóti stuðnings síns heimaríkis, þ.e. stuðnings ríkisstjórnar og kanslara Þýskalands, Olaf Scholz, en í því sambandi er til þess að líta að Scholz fer fyrir flokki sósíaldemókrata (SPD) í Þýskalandi en sá flokkur tilheyrir PES, en ekki EPP. Að þessu leyti er staða VDL ólík því sem var árið 2019 þegar flokkur hennar, Kristilegir demókratar, fóru með völd í Þýskalandi. Þrátt fyrir þetta þykir flest benda til að hún muni njóta stuðnings Scholz og ríkisstjórnar hans innan ráðsins. Gangi kjör VDL ekki eftir virðast samningar milli stjórnarflokkanna í Þýskalandi ganga út á að Græningjar muni tilnefna fulltrúa Þýskalands í næstu framkvæmdastjórn, en eins og kunnugt er þá hefur hvert aðildarríki rétt á að tilnefna einn fulltrúa í framkvæmdastjórnina, sem aftur er háð samþykki ráðsins og þingsins. Fái VDL stuðning Scholz þá þykir næsta víst að hún muni njóta stuðnings nægilega margra leiðtoga í leiðtogaráðinu til að hljóta tilnefningu. Að jafnaði hefur samstaða tekist um tilnefningu í embætti forsetans af hálfu leiðtogaráðsins, en reglur um það gera þó ráð fyrir að ákvörðun um það megi taka með auknum meirihluta í ráðinu. Einn leiðtogi hefur þegar lýst andstöðu við áframhaldandi setu VDL í stóli forseta, þ.e. forsætisráðherra Ungverjalands, Viktor Orbán. Jafnframt er talið líklegt að meirihluti þingsins muni styðja kjör hennar þar sem allt bendir til að stjórnmálasamtök hennar, EPP, fái mest fylgi og flesta þingmenn í komandi kosningum. Þá þykir hún almennt hafa staðið sig vel í embætti á umliðnum fimm árum á þeim miklu ólgutímum sem verið hafa. Loks þykir frammistaða hennar í framangreindum Maastricht kappræðum hafa styrkt stöðu hennar en hún var vitaskuld jafnframt lang þekktust þeirra sem þar öttu kappi.

Evrópudagurinn, 9. maí, er haldin hátíðlegur ár hvert af hálfu stofnana og aðildarríkja ESB þar sem undirritun Schuman-yfirlýsingarinnar 9. maí árið 1950 er minnst. Dagskrá í tilefni dagsins er viðamikil í ár og hefst hún í raun á morgun, laugardaginn 4. maí, þegar almenningi gefst kostur á því að heimsækja stofnanir ESB í Brussel og víðar í aðildarríkjunum. Af hálfu Evrópuþingsins er lögð áhersla á að dagurinn í ár verði nýttur til að minna kjósendur á kosningarnar framundan, mikilvægi þeirra og mikilvægi þess að kjósendur nýti atkvæðarétt sinn og rekur þingið nú auglýsingaherferð undir yfirskriftinni: Use your vote. Or others will decide for you. Hefur þingið m.a. birt tilfinningahlaðið myndband sem ætlað er að leggja áherslu á mikilvægi lýðræðislegra kosninga, sbr. einnig kosningavef þingsins þar sem finna má margvíslegar upplýsingar um kosningarnar og framkvæmd þeirra.

Niðurlag

Fyrir liggur að úrslit Evrópuþingskosninganna geta haft mikil áhrif á þróun sambandsins á komandi árum, og þar með einnig á þróun EES-samningsins og þeirrar Evrópulöggjafar sem tekin er upp í samninginn. Þannig kunna úrslit kosninganna nú m.a. að hafa mikil áhrif á hvernig haldið verður áfram með innleiðingu og framfylgd Græna sáttmálans og sama er að segja um með þróun innri markaðarins almennt. Brussel-vaktin mun fylgjast áfram með þróun kosningabaráttunnar á næstu vikum og leitast við að greina úrslitin og framvindu mála í kjölfar þeirra þegar þar að kemur.

Framkvæmd Græna sáttmálans - samráð við fulltrúa evrópsks iðnaðar og aðila vinnumarkaðarins

Í upphafi skipunartímabils núverandi framkvæmdastjórnar ESB árið 2019 kynnti framkvæmdastjórnin stefnumörkun á sviði umhverfis- og loftlagsmála undir merki Græna sáttmálans (e. Green deal) með það fyrir augum að umbreyta ESB í hreint, auðlindahagkvæmt, sanngjarnt og samkeppnishæft hagkerfi. Græna sáttmálanum hefur verið fylgt eftir með fjölda aðgerða og löggjafartillögum sem að mestu hafa nú verið teknar upp í löggjöf ESB, eins og ítarlega hefur verið fjallað um í Vaktinni á umliðnum misserum. Áherslan nú lítur að innleiðingu og framkvæmd þeirrar löggjafar sem sett hefur verið. Fyrir liggur að atvinnulífið og aðilar vinnumarkaðarins munu gegna lykilhlutverki er kemur að þeirri framkvæmd, sbr. meðal annars umfjöllun í Vaktinni 24. mars sl. þar sem fjallað er um framfylgd framkvæmdaáætlunar Græna sáttmálans.

Í fimmtu stefnuræðu (e. State of the Union Address) Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB, á Evrópuþinginu 13. september sl. tilkynnti hún um upphaf samráðsferlis við fulltrúa evrópsks iðnaðar og aðila vinnumarkaðarins með það fyrir augum að skilja betur þær áskoranir sem iðnaðurinn stendur frammi fyrir við innleiðingu Græna sáttmálans og hvernig hægt er að styðja við þá innleiðingu.

Þann 10. apríl sl. sendi framkvæmdastjórn ESB frá sér orðsendingu þar sem greint er frá stöðu framangreindra viðræðna og samráðs.

Níu viðræðulotur hafa átt sér stað það sem af er. Samkvæmt orðsendingunni liggur fyrir skýr vilji aðila til að vinna að því að móta og innleiða Græna sáttmálann. Aðilar vinnumarkaðarins hafa lagt áherslu á mikilvægi þess að tryggja félagslega sanngirni við umskiptin og að sköpuð séu vönduð störf. Viðræðurnar hafa m.a. beinst að vetnisframleiðslu, orkufrekum iðnaði, hreinni tækni, orkuinnviðum, mikilvægum hráefnum, sjálfbærri skógrækt og timburframleiðslu til að styðja við græn umskipti og sjálfbært hagkerfi, borgarþróun, umhverfisvænar samgöngur og stálframleiðslu.

Í framangreindri orðsendingu er lögð áhersla á tiltekna lykilþætti sem hafa verið ofarlega á baugi í viðræðunum, þ.e. einföldun regluverks, aðgerðir til að stemma stigu við háu orkuverði, innviðauppbyggingu, bættu aðgengi að fjármagni og innri markað sem stenst alþjóðlega samkeppni, sbr. nánari umfjöllun í fréttatilkynningu framkvæmdastjórnarinnar um málið.

Sjá til hliðsjónar í þessu samhengi umfjöllun Vaktarinnar 1. mars sl. um ákall atvinnulífsins í ESB um aukna samkeppnishæfni og framfylgd Græna sáttamálans, eða svonefndaAntwerpen yfirlýsingu, en aðilum sem skrifað hafa undir yfirlýsinguna hefur fjölgað ört frá því að yfirlýsingin var birt í upphafi. Yfirlýsingin og ákallið sem í henni felast hafa einnig verið áberandi í þeirri málefnaumræðu sem nú fer fram í aðdraganda Evrópuþingskosninganna.

Umbætur í aðdraganda stækkunar ESB

Hinn 20. mars sl. sendi framkvæmdastjórn ESB frá sér orðsendingu til Evrópuþingsins, leiðtogaráðs ESB og ráðherraráðs ESB um ýmsar innri umbætur á stjórnskipulegi ESB sem hún telur þörf á að að ráðast í áður en fleiri aðildarríki bætast í hóp þeirra sem fyrir eru. (e. communication on pre-enlargement reforms and policy reviews).

Eins og nánar er rakið í umfjöllun Vaktarinnar 10. nóvember sl. um stækkunarstefnu ESB hafa nú tíu ríki leitað eftir aðild að ESB, þ.e. Albanía, Bosnía og Hersegóvína, Kósovó, Svartfjallaland, Norður-Makedónía, Serbía, Tyrkland, Úkraína, Moldóva og Georgía.

Jafnvel þótt viðbúið sé að svo mikil stækkun ESB muni hafa miklar breytingar í för með sér innan sambandsins og á það samstarf sem þar fer fram, er framangreind stefnumörkun af hendi ESB til marks um að eindreginn stuðning hennar við stækkun sambandsins sem einu leiðina fram á við. Í takt við hana er nú unnið markvisst að því að aðildarumsóknir flestra framangreindra ríkja fái framgang í samræmi við þann árangur sem næst í viðræðum við umsóknarríkin og aðlögun þeirra að regluverki ESB. Blandast engum hugur um að aflvakinn þar er árásarstríð Rússlands á hendur Úkraínu og sú þróun sem orðið hefur í alþjóðamálum í kjölfarið þar sem virkt lýðræði og réttarríkið á í auknum mæli undir högg að sækja.

Enda þótt kostir stækkunar séu um margt augljósir þá er eftir sem áður að mörgu að hyggja. Ekki þarf einungis að tryggja að umsóknarríkin uppfylli skilyrði og gildi ESB um virkt lýðræði, réttarríkið og mannréttindavernd (Kaupmannahafnarviðmiðin). Jafnframt þurfa þau að uppfylla pólitísk, efnahagsleg og lagaleg skilyrði aðildar áður en til inngöngu kemur. Ennfremur þarf að vera tryggt að sambandið sjálft ráði við það aukna umfang og flækjustig sem fjölgun aðildaríkja hefur óhjákvæmilega í för með sér og er orðsendingunni ætlað að leggja grunn að umræðu um slíkar umbætur.

Umbæturnar sem fjallað er um snúa í megindráttum að fjórum málefnasviðum. Í fyrsta lagi að því hvernig efla megi úrræði til að framfylgja gildum sambandsins. í öðru lagi hvernig tryggja megi að stefnumótun á helstu málefnasviðum raskist ekki og mæti áskorunum sem stækkun fylgja. Í þriðja lagi að hugað sé að nægjanlegri fjármögnun ESB og samstarfsáætlana á vegum þess til að standa straum af útgjöldum sem óhjákvæmilega fylgja stækkun og aðlögun nýrra ríkja að ESB. Og loks í fjórða lagi að hugað verði að umbótum á stjórnsýslu og starfsháttum sambandsins og þá einkum því hvernig ákvarðanir eru teknar með það að markmiði að fækka þeim ákvörðunum sem krefjast samhljóða samþykkis í ráði ESB þar sem aðildarríkin sitja. Bent er á að svigrúm sé til staðar í núgildandi sáttmálum ESB til breytinga á atkvæðagreiðslureglum, náist samstaða um slíkt. Reynist svigrúmið í þá veru ekki nægjanlegt lýsir framkvæmdastjórnin sig reiðubúna til að skoða breytingar á grundvallarsáttmálum ESB til að ná fram nauðsynlegum umbótum.

Gert er ráð fyrir að vinnu við útfærslu umbótatillagnanna verði framhaldið að afloknum Evrópuþingskosningum og á vettvangi nýrrar framkvæmdastjórnar ESB á fyrri hluta árs 2025.

Tilmæli um þróun og samþættingu barnaverndarkerfa

Hinn 23. apríl sl. gaf framkvæmdstjórn ESB út ráðleggingar og tilmæli til aðildaríkjanna um hvernig megi þróa, styrkja og samþætta barnaverndarkerfin í aðildarríkjunum.

Um 80 milljónir barna eru búsett í aðilarríkjum ESB. Þrátt fyrir að talsvert hafi áunnist á undanförnum árum í bættum aðbúnaði og öryggi barna er ofbeldi gegn börnum enn veruleg áskorun bæði innan og utan ESB. Þannig sýna kannanir að nær 14% fullorðinna kvenna hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi í æsku og að 13-29% 15 ára barna í aðilarríkjunum telja sig oft verða fyrir einelti. Af þessum tölum er ljóst að það er mikilvægt efla barnavernd með hagsmuni og velferð barna að leiðarljósi, en í því felst jafnframt mikilvæg fjárfesting til framtíðar fyrir samfélagið.

Tilmælunum er ætlað að styðja við regluverk aðildarríkjanna á sviði barnaverndar sem tryggi velferð og réttindi barna. Lögð er áhersla á að barnaverndarkerfi séu löguð að þörfum barna og að börn hafi aðkomu og áhrif á ákvarðanir sem snerta hagsmuni þeirra. Þá hyggst ESB nýta betur þau úrræði sem sambandið hefur til þess að styðja við aðildarríkin í þessu skyni.

Gert er ráð fyrir að aðildarríkin setji sér aðgerðaráætlun sem miði að því að binda enda á ofbeldi gegn börnum, og að þau komi sér upp samþættu regluverki á sviði barnaverndar með þverfaglegri samhæfingu og samvinnu. Gert er ráð fyrir samræmdum stuðningsaðgerðum til að bregðast við ofbeldi gegn börnum, allt frá forvörnum til snemmtækra inngripa og þverfagslegs stuðnings. Í tilmælunum er einnig gert ráð fyrir aðgerðum til þess að bæta öryggi barna í netheimum með bættri fræðslu og aðgerðum gegn hvers konar einelti. Að lokum eru aðildarríkin hvött til að þróa geðheilbrigðisáætlanir þar sem börn og geðheilbrigði þeirra eru sett í forgang.

Tilmælin byggjast m.a. á sáttmála ESB um grundvallarréttindi og á barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna auk þess sem þau eru liður í innleiðingu stefnuáætlunar ESB um réttindi barna.

Samráð við aðila vinnumarkaðarins um fjarvinnu og réttinn til þess að aftengjast

Hinn 30. apríl sl. tilkynnti framkvæmdastjórn ESB að hafið hefði verið samráðsferli við aðila vinnumarkaðarins um sanngjarnt fyrirkomulag fjarvinnu og um rétt launþega til að aftengjast. Hefur framkvæmdastjórn ESB í þessu skyni birt samráðsskjal þar sem áskoranir á þessu sviði eru reifaðar. Tilefni samráðsins er sú stórfellda aukning sem orðið hefur í fjarvinnu í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru en kannanir Eurostat um evrópska vinnumarkaðinn leiða m.a. í ljós að hlutfall fólks í fjarvinnu hafi aukist mjög frá því sem áður var. Þar kemur jafnframt fram að yfir 60 prósent svarenda séu hlynntir því að eiga möguleika á því að vinna hluta vinnuvikunnar í fjarvinnu.

Þrátt fyrir að kostir fjarvinnu séu fjölmargir þá fylgja slíku vinnufyrirkomulagi áskoranir. Til að mynda hefur reynst erfitt að tryggja að réttindi starfsfólks séu virt í stafrænu vinnuumhverfi. Álitið er að hið sveigjanlega fyrirkomulag geti leitt til þess að sú vinnumenning þróist að það sé ætíð gert ráð fyrir því að hægt sé að ná í starfsmann til bregðast við hinum ýmsu verkefnum. Hefur þetta vakið upp umræðu um rétt fólks til þess að aftengjast og draga þannig skýr mörk á milli vinnu og einkalífs.

Samráðsskjalið sem birt hefur verið á rætur sínar að rekja í ályktun Evrópuþingsins frá 2021 þar sem ályktað var að framangreind atriði skyldu tekin til skoðunar og að brugðist yrði við þeirri þróun sem að framan er rakin. Gert er ráð fyrir að samráðið sem hafið er standi til 11. júní nk. og hafa aðilar vinnumarkaðarins þann tíma til að koma á framfæri sjónarmiðum sínum og hugmyndum. Um er að ræða fyrsta fasa samráðs þar er farið er yfir helstu álitaefnin í breiðu samhengi en á síðari stigum þess verður sjónum beint nánar að einstökum efnisþáttum málsins.

Bandalag til að sporna við skorti á mikilvægum lyfjum

Í síðustu viku birti framkvæmdastjórn ESB fréttatilkynningu um stofnun bandalags opinberra aðila og einkaaðila sem hefur það markmið að sporna gegn skorti á framboði mikilvægra lyfja (e. Critical Medicines Alliance). Bandalagið er svar framkvæmdastjórnarinnar við ákalli 23 aðildarríkja um að tryggja afhendingaröryggi lyfja, m.a. með eigin lyfjaframleiðslu, og sjá þannig til þess að Evrópa verði sem mest sjálfbær er kemur að framboði lyfja og óháð öðrum ríkjum. Þessi stefnumörkun er hluti af því að tryggja efnahagslegt öryggi og hagvarnir Evrópu undir merkjum strategísks sjálfræðis ESB (e. EU strategic autonomy). Það var að frumkvæði Belga, sem nú gegna formennsku í ráðherraráði ESB, að hugmyndin um bandalag af þessu tagi var kynnt á óformlegum fundi heilbrigðisráðherra ESB sem haldinn var í Stokkhólmi í byrjun maí á síðasta ári.

Með samstarfi HERA (e. Health Emergency Preparedness and Response Authority) og ráðherraráðs ESB er gert ráð fyrir að framangreint bandalag verði hluti af aðgerðum til að byggja upp öflugt evrópskt samstarf á sviði heilbrigðismála (e. European Health Union). Formleg stofnun bandalagsins átti sér stað í kjölfar óformlegs fundar heilbrigðisráðherra ESB sem haldinn var í Brussel í síðustu viku. Heilbrigðisráðherrum EES/EFTA-ríkjanna auk Sviss var einnig boðið að sitja fundinn og sótti Ásta Valdimarsdóttir ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu fundinn fyrir Íslands hönd.

Síðastliðið ár hefur framkvæmdastjórn ESB unnið að margvíslegum aðgerðum bæði til skemmri og lengri tíma sem hafa það að markmiði að vinna gegn lyfjaskorti og tryggja afhendingaröryggi nauðsynlegra lyfja en lyfjaskortur er vaxandi áhyggjuefni meðal ESB og ESS/EFTA ríkja. Um þær aðgerðir og ýmislegt sem þeim tengist hefur verið fjallað í Vaktinni að undanförnu, sbr. m.a. umfjöllun Vaktarinnar 26. maí sl. þar sem fjallað var um tillögur að endurskoðuðum lyfjalögum ESB en meginmarkmið þeirra er að stuðla að auknu framboði og jöfnu aðgengi að öruggum og áhrifaríkum lyfjum á sanngjörnu og viðráðanlegu verði fyrir íbúa óháð búsetu. Þær tillögur eru nú til umfjöllunar hjá ráðherraráði ESB og á Evrópuþinginu. Þá var í Vaktinni 21. júlí sl. fjallað um aðgerðir til að sporna gegn skorti á sýklalyfjum sérstaklega, sbr. einnig umfjöllun um aðgerðir til að sporna gegn lyfjaskorti almennt og til að auka afhendingaröryggi lyfja í Vaktinni 27. október sl. Loks var fjallað um útgáfu lista yfir mikilvæg lyf sem framkvæmdastjórn ESB hefur gefið út í Vaktinni 19. janúar sl.

Því bandalagi sem nú hefur verið efnt til er ætlað að leiða saman hópa sérfræðinga af vettvangi stjórnvalda aðildarríkjanna og stofnana ESB, lyfjaiðnaðarins og úr heilbrigðisstofnunum og almenna borgara með það sameiginlega markmið að tryggja sjúklingum aðgengi að þeim lyfjum sem þeir þarfnast á hverjum tíma.

Bandalaginu er ætlað að vera ráðgefandi gagnvart framkvæmdastjórninni og aðildarríkjunum. Því er ætlað að greina veikleika í aðfangakeðjum og þróa bestu mögulegu leiðir til að bregðast við og forða skorti á mikilvægum lyfjum. Þá er því einnig ætlað að leggja áherslu á eflingu evrópsks lyfjaiðnaðar.

Þátttaka í bandalaginu er valkvæð og er opin nýjum meðlimum hvenær sem er. Íslensk stjórnvöld hafa enn sem komið er ekki tekið afstöðu til aðildar að bandalaginu en möguleg þátttaka er nú til skoðunar. Listi þátttakenda telur nú 250 aðila og má þar m.a. finna íslenska lyfjafyrirtækið Alvotech S.A.

Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins, í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra. Leiðréttingar, ábendingar og athugasemdir sendist til ritstjóra Vaktarinnar, Ágústs Geirs Ágústssonar, á netfangið [email protected].

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

19. apríl 2024 | Norsk skýrsla um þróun EES-samningsins og skýrsla Enrico Letta um framtíð innri markaðarins |
Að þessu sinni er fjallað um:

nýja norska skýrslu um þróun EES-samningsins og reynslu Norðmanna

fund leiðtogaráðs ESB og skýrslu Enrico Letta um framtíð innri markaðarins

samkomulag um stofnun samevrópsks gagnagrunns á heilbrigðissviði

tillögu um bætt starfsskilyrði starfsnema

aðgerðaáætlun til að bregðast við skorti á hæfu vinnuafli

samkomulag um nýjan tækniþróunarvettvang

Norsk skýrsla um þróun EES-samningsins og reynslu Norðmanna

Með ákvörðun ríkisstjórnar Noregs 6. maí 2022 var sérstök nefnd sérfræðinga og fulltrúa hagsmunaaðila í norsku atvinnulífi skipuð til að rannsaka og leggja mat á þróun og reynslu Norðmanna af EES-samningnum síðastliðin 10 ár og jafnframt af öðrum þýðingarmiklum samningum sem Noregur hefur gert við ESB á umliðnum árum. Verkefni nefndarinnar var jafnframt að veita norskum stjórnvöldum ráðleggingar um hvernig best verði staðinn vörður um norska hagsmuni í samskiptum og í samstarfi við ESB, m.a. á grundvelli EES-samningsins.

Þann 11. apríl sl. lauk nefndin starfi sínu með skilum á skýrslu til utanríkisráðherra Noregs (NOU 2024:7). Skýrslan er einskonar framhald af sambærilegri skýrslu sem gefin var út í janúar 2012 (NOU 2012:2). Skýrslan er umfangsmikil, tæpar 350 blaðsíður, auk fylgiskjala, og er efni hennar skipt í 15 meginkafla sem eru eftirfarandi:

Meginniðurstöður, hugleiðingar og ráðleggingar nefndarinnar

Skipun nefndarinnar og verkefni

ESB og staðan á alþjóðavettvangi: Erfiður áratugur að baki

Samstarf Noregs við ESB síðastliðinn áratug, 2012 – 2023

Rekstur og framkvæmd EES-samningsins

Svigrúm til þátttöku, áhrifa og aðlögunar

Lýðræðis- og réttindamál

Loftslags- og umhverfismál

Orkupólitík

Áhrif á norskt efnahagslíf

Atvinnu- og viðskiptamál

Vinnumarkaðsmál

Viðbragðs- og krísustjórnun innan ESB og EES

Utanríkis-, öryggis- og varnarmál

Samningar sem önnur ríki hafa náð: Sviss, Bretland og Kanada

Hér á eftir er í stuttu máli gerð nánari grein fyrir helstu niðurstöðum og ráðleggingum nefndarinnar til stjórnvalda.

Almennar niðurstöður og þróun EES-samstarfsins

Rakið er hvernig ESB hefur þróast á umliðnum árum í takt við breytta heimsmynd. Þannig hafi áherslan færst yfir á þá efnahagslegu áhættuþætti sem felast í því að starfrækja opið markaðshagkerfi. Áherslan sé nú á að tryggja efnahagslegt öryggi og það sem nefnt hefur verið opið strategískt sjálfræði ESB, sbr. til hliðsjónar umfjöllun í Vaktinni 24. nóvember sl. um strategískt sjálfræði ESB og þróun innri markaðarins. Skýrt er tekið af skarið um að EES-samningurinn sé langmikilvægasti og yfirgripsmesti alþjóðasamningur Noregs. Hann verði hins vegar auknum mæli að skoða í samhengi við aðra samstarfssamninga Noregs við ESB. Í þessu samhengi er bent á að stefnumótun og löggjöf af hálfu ESB snúi nú í auknum mæli jafnt að almennri reglusetningu á innri markaðinum og að því að takast á við breytta öryggis- og viðskiptastefnu gagnvart þriðju ríkjum annars vegar og til að bregðast við áskorunum á sviði loftslags- og umhverfismála hins vegar. Tekið er fram að þessi þróun hafi og muni áfram leiða til áskorana við rekstur og framkvæmd EES-samningsins. Gagnrýnt er í skýrslunni að umræða um EES-málefni sé oft á tíðum afmörkuð við þröngan hóp sérfræðinga, enda þótt eðli málanna séu með þeim hætti að þau kalli á víðtækari pólitíska og samfélagslega umræðu. Er skýrslunni m.a. ætlað að gagnast sem uppfærður þekkingargagnagrunnur fyrir slíka umræðu.

Að mati nefndarinnar hefur EES-samningurinn hingað til reynst nægjanlega sveigjanlegur til að halda í við þróun regluverks ESB og að hann veiti norskum fyrirtækjum og starfsmönnum þeirra réttindi sem eru umtalsvert betri en unnt væri að ná fram með hefðbundnum viðskiptasamningi.

Tekið er fram að það sem á við Noreg í umfjöllun um EES-samninginn í skýrslunni eigi einnig almennt jafnt við um önnur EES/EFTA-ríki, þ.e. um Ísland og Liechtenstein, enda þótt skýrsluhöfundar leyfi sér einungis, eðli málsins samkvæmt, að vísa til Noregs í umfjöllun sinni.

Stjórnsýsla og framkvæmd EES-samningsins

Nefndin beinir eftirfarandi tilmælum til norskra stjórnvalda er kemur að stjórnsýslu og framkvæmd EES-samningsins:

Að Noregur leggi sitt að mörkum til að draga úr svonefndum upptökuhalla, þ.e. að stytta lista þeirra ESB-gerða sem bíða þess að verða teknar upp í EES-samninginn. Í því samhengi er nefnt að samningsaðilar, þ.e. ESB og EES/EFTA-ríkin, ættu að koma sér saman um almennar viðmiðunarreglur er kemur að aðlögun gerða að tveggja stoða kerfi EES-samningsins, t.d. með uppfærslu á bókun 1 við EES-samninginn.

Að í þeim tilvikum þar sem sjálfstæðum stjórnsýslustofnunum ESB er falið vald til að taka bindandi ákvarðanir beri jafnframt að veita Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) sambærilegar valdheimildir í samræmi við tveggja stoða kerfið.

Að huga þurfi að úrræðum ESA vegna nýrra verkefna og aukins málafjölda.

Að samráð við ESA verði eflt þannig að stofnunin sé sem best upplýst um stöðu mála í Noregi á hverjum tíma.

Að vísbendingar séu um að styrkja þurfi EFTA-dómstólinn vegna aukins umfangs og flóknari mála.

Að meira þurfi að gera, að mati nefndarinnar, til viðhalda og þróa áfram sérþekkingu á EES-rétti í stjórnsýslu Noregs á öllum stjórnsýslustigum.

Að nýta þurfi betur tækifæri til að senda norska sérfræðinga til starfa hjá framkvæmdarstjórn ESB og fjölga þeim málefnasviðum innan framkvæmdastjórnarinnar sem sérfræðingar eru sendir til að starfa við og jafnframt að umræddir sérfræðingar séu hluti af langtímaáætlun stjórnvalda til að styrkja þekkingu á ESB innan norsku stjórnsýslunnar.

Svigrúm til þátttöku, áhrifa og aðlögunar

Nefndin beinir eftirfarandi tilmælum til norskra stjórnvalda er kemur að svigrúmi til þátttöku, áhrifa og aðlögunar við mótun ESB-gerða, upptöku þeirra í EES-samninginn og framkvæmd þeirra:

Að aðkoma hagsmunaaðila á mótunarstigi gerða verði aukin.

Að Noregur auki þekkingu sína á því hvernig önnur ríki innleiða reglur ESB og að metið verði hvort taka eigi upp kerfisbundna athugun á því hvernig nágrannaríki innleiða reglur líkt og gert er í Danmörku.

Að norsk stjórnvöld nýti sér tækifæri sem gefast til að taka þátt í dómsmálum fyrir EFTA-dómstólnum og Evrópudómstólnum í málum sem varða norska hagsmuni.

Að í þeim tilvikum sem stjórnvöld leggi til grundvallar óvissa túlkun um efni EES-reglna beri þeim að upplýsa að svo sé og að leggja sitt af mörkum til að túlkunin sé staðfest eða skýrð af dómstólum þegar tækifæri gefst til.

Þá er í skýrslunni fjallað almennt um möguleikana til að hafa áhrif á efni EES-löggjafar á mótunarstigi þeirra og við upptöku þeirra í EES-samninginn.

Lýðræðis- og réttindamál

Nefndin beinir eftirfarandi tilmælum til stjórnvalda á sviði lýðræðis- og réttindamála:

Að þess verði betur gætt við innleiðingu EES-gerða í norska löggjöf að það sé gert með lögum frá Stórþinginu þegar efnisinnihald viðkomandi gerða hefðu, undir hefðbundnum kringumstæðum, kallað á aðkomu þingsins.

Að skoðaðar verði breytingar á stjórnarskrá í tengslum við stjórnskipulega málsmeðferð við samþykkt Stórþingsins á EES-reglum sem fela í sér framsal eftirlitsvalds til ESA eða sjálfstæðra stofnana ESB.

Að árlega verði gefin út hvítbók, til framlagningar á Stórþinginu, um þróun stefnumótunar á vettvangi ESB og um málefni sem eru til umfjöllunar eða væntanleg.

Að þýðingum á EES-gerðum verði flýtt og að formleg þýðing gerðar skuli liggja fyrir eigi síðar en þegar norsk löggjöf til innleiðingar er birt. Jafnframt að kannaðir verði möguleikar á því að fá norskar þýðingar á gerðum birtar í stafrænum lagagagnagrunni ESB, EUR-Lex.

Að leitast verði við að tryggja aðgang fulltrúa sveitarfélaga snemma í ferlinu.

Að norska EES-upplýsingakerfið verði endurskoðað og einfaldað.

Að fræðsla um ESB og EES verði stærri hluti af námsskrá grunn- og framhaldsskóla.

Umhverfis- og loftslagsmál

Nefndin beinir eftirfarandi tilmælum til stjórnvalda á sviði umhverfis- og loftlagsmála:

Að grípa þurfi til aukinna ráðstafana til að draga úr kolefnislosun í Noregi til ná loftslagsmarkmiðum sem samið hafi verið um við ESB, en fram kemur í skýrslunni að Noregur hafi með kaupum á losunarheimildum frá öðrum löndum, meðal annars í gegnum viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, gert kleift að fresta samdrætti í losun „heima fyrir“.

Að dregið verði úr upptökuhalla gerða á sviði grænna umskipta.

Að viðhalda skuli loftslagssamstarfi við ESB m.a. með stefnumótun til ársins 2050. (Einn nefndarmaður skilaði séráliti um þetta atriði.)

Orkumál

Nefndin beinir eftirfarandi tilmælum til stjórnvalda á sviði orkumála:

Að gerð verði gangskör að því að komast að niðurstöðu um hvort útistandandi ESB-gerðir á sviði orkumála falli undir EES-samninginn og að dregið verði úr upptökuhalla vegna þeirra gerða sem undir samninginn falla.

Að það þjóni hagsmunum Noregs að til staðar sé virkur evrópskur orkumarkaður og að því beri að styðja við aðgerðir ESB til að koma slíkum markaði á og viðhalda honum.

Að svigrúm sem er til staðar innan EES-samningsins og EES-reglna beri að nýta til að styðja við heimili og til að tryggja framboð orku.

Að stjórnvöld eigi með virkum hætti að taka þátt í umræðu á vettvangi ESB um nauðsyn þess að styðja við iðnað og atvinnulíf til að tryggja að lausnirnar tryggi samkeppnishæfni Noregs og aðfanga- og afhendingaröryggi orku.

Að tryggja beri breiðari aðkomu ólíkra hagsmunaaðila að vinnu er varðar EES-gerðir á orkusviðinu.

Áhrif á norskt efnahagslíf

Í umfjöllun nefndarinnar um áhrif af þátttöku á innri markaðnum fyrir norskt efnahagslíf er vísað til fyrri úttekta og þeirrar niðurstöðu að áhrif EES-samningsins á norskt efnahagslíf séu jákvæð. Þá nálgast nefndin álitaefnið með því að reifa hvaða áhrif það kynni að hafa ef Noregur segði sig frá samningnum og lítur til reynslu Bretlands (Brexit) í þeim efnum.

Atvinnu- og viðskiptamál (n. Næringspolitikk)

Nefndin beinir eftirfarandi tilmælum til stjórnvalda á sviði atvinnulífs og viðskiptamála:

Að leggja beri EES-samninginn, í eins ríkum mæli og unnt er, til grundvallar við frekari þróun samstarfs við ESB á sviði viðskiptamála.

Að forgangsraða skuli samtalinu við ESA um áframhaldandi samþykki fyrir því að heimilt verði að leggja á svonefnt sérstakt tryggingagjald í N-Noregi, en það gjald er lægra en almenna tryggingagjaldið.

Að stjórnvöld séu sérstaklega á varðbergi gagnvart breytingum á löggjöf ESB sem ekki fellur undir EES-samninginn en kann eftir sem áður að hafa áhrif á samkeppnishæfni á innri markaðnum.

Að stjórnvöld fylgist með stuðningsaðgerðum ESB fyrir atvinnulíf og meti afleiðingar þeirra fyrir norskt atvinnulíf og hvort og þá að hvaða marki sé tilefni til að grípa til mótvægisaðgerða.

Að aukin þverlæg reglusetning af hálfu ESB geri það mikilvægara að stjórnvöld hugi vel að aðkomu allra viðkomandi hagaðila að meðferð gerða af því tagi í hverju tilviki.

Að tryggja beri þátttöku Noregs í viðeigandi samstarfsáætlunum á vettvangi ESB og nýta sem best þá stuðningsmöguleika sem í þeim felast og eru opnir fyrir norskt atvinnulíf og nýsköpunar- og rannsóknaraðila.

Að fylgja beri sömu ferlum og reglum og gilda um aðildarríki ESB er kemur að eftirliti með fjárfestingum og óska eftir nánu samstarfi við ESB um framkvæmdina.

Að tryggja verði, með hliðsjón af samkeppnishæfni, að lagarammi norsks atvinnulífs og úrræði séu í samræmi við það sem gildir um atvinnulíf innan ESB.

Vinnumarkaður

Nefndin beinir eftirfarandi tilmælum til stjórnvalda á sviði vinnumarkaðsmála:

Að móta beri skýra stefnu er kemur að því að tryggja nauðsynlegt framboð vinnuafls frá EES-svæðinu til lengri tíma en á sama tíma styðja við aðgerðir til að byggja upp hæft vinnuafl innanlands.

Að skipulag á vinnumarkaði sé tryggt og að gripið sé til aðgerða til að berjast gegn lögbrotum og félagslegum undirboðum reynist þess þörf.

Að svigrúm innan regluverks sé nýtt til að tryggja framangreint.

Að sérstökum áskorunum innan samgöngugeirans verði mætt með skýru regluverki og skýrri framkvæmd stjórnvalda við eftirlit og framkvæmd reglna.

Að norsk stjórnvöld verði að beita sér snemma í löggjafarferlinu innan ESB er kemur að mótun löggjafar á sviði vinnumarkaðar og draga lærdóm af lausnum einstakra aðildarríkja.

Að styrkja þurfi samstarf stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins á sviði EES-mála.

Viðbragðs- og krísustjórnun innan ESB og EES

Nefndin beinir eftirfarandi tilmælum til stjórnvalda á sviði viðbragðs- og krísustjórnunar:

Að Norðmenn leggi áherslu á víðtækari öryggispólitíska þýðingu samstarfs á sviði viðbúnaðar og krísustjórnunar í því skyni að standa vörð um traust og samstöðu milli landanna og til að efla almennt samfélagslegt öryggi í álfunni.

Að vinna beri að því að fá eins góðan aðgang og mögulegt er að fundum og upplýsingaskiptum innan ESB vegna krísuviðbúnaðar og hægt er eins og t.d. á vettvangi EU's Integrated political crisis response (IPCR) og á óformlegum ráðherrafundum á vettvangi ráðherraráðs ESB, þar sem EES-samningurinn veitir ekki samningsbundinn rétt til þátttöku.

Að styrkja beri samstarf á þessu sviði alþjóðlega, á milli Norðurlandanna og við ESB.

Utanríkis-, öryggis- og varnarmál

Nefndin beinir eftirfarandi tilmælum til stjórnvalda á sviði utanríkis-, öryggis- og varnarmála:

Að halda beri áfram að leita eftir nánu samstarfi við ESB á þessum sviðum.

Að Noregur skuli leitast eftir aðild að nýjum samstarfsáætlunum og aðgerðum ESB á þessum sviðum þegar þær falla utan gildissviðs EES-samningsins.

Að stjórnvöld fylgi eftir hugmyndum ESB um strategískt samstarf með það að markmiði að skýra nánar hvernig unnt er að útfæra slíkt samstarf.

Af hálfu nefndarinnar er lögð áhersla á alvarleika þeirrar stöðu sem upp er komin í öryggis- og varnarmálum. Meirihluti nefndarinnar leggur áherslu á, að til viðbótar við þátttöku Noregs í NATO, eigi að leggja aukna áherslu á að efla samstarf við ESB og aðildarríki þess á þessum sviðum til að tryggja öryggi.

Reynsla annarra ríkja: Sviss, Bretland og Kanada.

Nefndin skoðaði sérstaklega tvíhliða samninga sem ESB hefur gert við Sviss, Bretland og Kanada og er það niðurstaða nefndarinnar að þeir samningar séu þrengri að efni og umfangi og veiti lakari markaðsaðgang en EES-samningurinn. Er það einróma niðurstaða nefndarinnar að EES-samningurinn þjóni þörfum Noregs betur en slíkir tvíhliða samningar.

Fundur leiðtogaráðs ESB og skýrsla Enrico Letta um framtíð innri markaðarins

Leiðtogaráð ESB kom saman til tveggja daga fundar í vikunni, 17. og 18. apríl.

Stuðningur við Úkraínu, staða mála í Austurlöndum nær og samskipti ESB við Tyrkland voru til umfjöllunar á fyrri fundardeginum. Þá var upplýsingaóreiða í aðdraganda kosninga til Evrópuþingsins og erlend íhlutun á því sviði einnig til umræðu.

Á síðari fundardegi ráðsins var blásið til sérstakrar umræðu um samkeppnishæfni og innri markaðinn, hvernig styrkja megi efnahaginn, framleiðslustarfsemi, iðnað, tæknigetu og fjármagnsmarkaði í ESB. Einnig voru tækifæri sem tengjast markmiðum um kolefnishlutleysi, stafvæðingu og eflingu hringrásarhagkerfisins til umræðu auk þess sem sérstaklega var rætt um samkeppnishæfni, sjálfbærni og viðnámsþrótt í landbúnaði.

Á fundinum kynnti Enrico Letta, forseti Jacques Delors stofnunarinnar og fyrrum forsætisráðherra Ítalíu, skýrslu um framtíð innri markaðarins sem beðið hefur verið eftir með nokkurri eftirvæntingu. Skýrslan var unnin að beiðni leiðtogaráðsins og hefur verið í smíðum frá því í september í fyrra. Við gerð skýrslurnar var haft víðtækt samráð og sótti Enrico Letta m.a. yfir 400 fundi í 65 borgum í ESB til að undirbúa skýrsluna og hlusta eftir sjónarmiðum, þar á meðal á fundi með forsætisráðherrum EES/EFTA-ríkjanna í Brussel 22. Mars sl. og á fundi sameiginlegu þingmannanefndar EES sem haldinn var í Strasbourg 28. febrúar sl., sbr. umfjöllun um þann fund í Vaktinni 1. mars sl., sbr. einnig umfjöllun í Vaktinni 16. febrúar sl. um óformlegan ráðherrafund ESB um samkeppnishæfni og framtíð innri markaðarins.

Skýrslan sem ber heitið, Much more than a market, er víðfeðm að efni til og þar er settur fram fjöldi tillagna sem miða að því að efla innri markaðinn og auka samkeppnishæfni hans gagnvart helstu keppinautum á heimsvísu, s.s. Bandaríkjunum og Kína í ljósi efnahagslegra áskorana og þróunar sem orðið hefur á alþjóðavettvangi.

Sú tillaga sem fyrsta kastið hefur e.t.v. vakið hvað mesta athygli er að koma þurfi á fót sérstöku miðlægu ríkisaðstoðarkerfi á vettvangi ESB. Slíkt kerfi er að mati Letta nauðsynlegt til að tryggja samkeppnishæfa iðnaðarstefnu og til að ná fram strategískum markmiðum ESB. Til að koma á fót slíku kerfi þarf hins vegar pólitíska sátt og nægilegt fjármagn frá aðildarríkjunum. Umfang ríkisaðstoðar hefur verið í brennidepli umræðu á vettvangi ESB um nokkurt skeið enda verja tvö stærstu aðildarríkin, Frakkland og Þýskaland, töluverðum fjárhæðum, í skjóli ákvarðana um tímabundna rýmkun á reglum um ríkisaðstoð, til að styrkja innlendan iðnað. Minni aðildarríki sem ekki eru eins megnug hafa á móti lagt áherslu á að stigið sé varlega til jarðar þegar kemur að tilslökunum á reglum um ríkisaðstoð enda geti slíkt leitt til uppskiptingar á innri markaðnum og röskunar á heilbrigðri samkeppni innan hans. Er framangreind tillaga Letta einmitt hugsuð til að jafna þennan aðstöðumun á milli aðildarríkjanna og forðast röskun á innri markaðnum en um leið að tryggja að unnt sé að veita evrópskum iðnaði og atvinnustarfsemi, í samræmi við stefnumörkun ESB á hverjum tíma, þann stuðning sem nauðsynlegur er talinn til að standast alþjóðlega samkeppni frá hinum stóru viðskiptablokkunum.

Í skýrslunni er bent á að fjármögnun verkefna af hálfu einkageirans sé nauðsynleg til að ná strategískum markmiðum um græn og stafræn umskipti og til að auka getu á sviði varnarmála. Mikilvægt sé að gera nauðsynlegar breytingar til að koma á virkum sameiginlegum fjármagnsmarkaði til að miðla fjármagni með betra móti frá einkaaðilum í mikilvægar fjárfestingar á innri markaðinum. Unnið hefur verið að umbótum á regluverki til uppbyggingar á sameiginlegum fjármagnsmarkaði (Capital markets union) um árabil en mörgum þyki þó lítið hafa áunnist, sem skýrist af því að ríki ESB hafa ólíka sýn á það og hvað þurfi til að ná þeim markmiðum sem að er stefnt. Vegast þar á sjónarmið um aukna samvinnu aðildarríkja ESB til að ná sameiginlegum mikilvægum markmiðum annars vegar og hins vegar rótgróin sjónarmið um sjálfstæði og fullveldi ríkjanna er kemur að ríkisfjármálum, útgáfu ríkisskuldabréfa, tekjustofnum og samræmingu skattareglna innan sambandsins. Sjá nánari umfjöllun um uppbyggingu sameiginlegs fjármagnsmarkaðar í ESB í Vaktinni 15. mars sl.

Í skýrslunni er áhersla lögð á fjórfrelsið sem er megin inntak innri markaðar ESB, þ.e. frjálst flæði vöru, vinnuafls, þjónustu og fjármagns, en það hefur reynst viðvarandi verkefni, á þeim 30 árum sem liðin eru frá því að stofnað var til hans, að hrinda hindrunum á þessum sviðum úr vegi. Til dæmis er bent á að fjarskiptamarkaðurinn sé enn nokkuð sundurskiptur og landsbundinn innan ESB og að þörf sé á að leyfa í auknum mæli samruna fjarskiptafyrirtækja til að þau standist alþjóðlega samkeppni, sbr. einnig framangreindra umfjöllun um hindranir í vegi uppbyggingar á virkum sameiginlegum fjármagnsmarkaði.

Ein af tillögum skýrslunnar gengur út á að komið verði á fót fimmta „frelsinu“ til viðbótar við framangreint fjórfrelsi, sem taki til rannsókna, nýsköpunar og menntunar á innri markaðinum.

Annað sem vekur athygli í skýrslunni, við fyrstu rýni, er að kallað er eftir ýmsum umbótum á sviði samgangna. Má þar helst nefna tillögu um samevrópskt háhraðajárnbrautakerfi sem tengi allar höfuðborgir og stærri borgir innan ESB saman. Slíkt kerfi myndi umbylta ferðalögum innan ESB og verða aflvaki fyrir frekari samþættingu innan ESB.

Fjöldi annarra tillagna er að finna í skýrslunni og er leiðtogaráðið hvatt til þess að hafa skýrsluna til hliðsjónar við mótun stefnu til framtíðar, sbr. yfirstandandi vinnu við nýja fimm ára stefnumörkun leiðtogaráðs ESB (e. EU strategic agenda 2024 – 2029) sem nú er unnið að og gert er ráð fyrir að leiðtogaráðið samþykki í kjölfar Evrópuþingskosninganna í júní nk., sbr. umfjöllun í Vaktinni 13. október sl. um fund ráðsins sem haldinn var í Granada á Spáni.

Við gerð skýrslunnar komu Ísland, Noregur og Liechtenstein á framfæri sjónarmiðum sínum vegna þátttöku ríkjanna á innri markaði ESB á grundvelli EES-samningsins. Athugasemdum var komið á framfæri bæði sameiginlega af hálfu EES/EFTA-ríkjanna auk þess sem Noregur og Ísland komu hvort um sig athugasemdum á framfæri.

Í lokakafla skýrslunnar sérstaklega vikið að þátttöku EES/EFTA-ríkjanna á innri markaðinum og að mikilvægi þeirra er kemur að efnahagslegu öryggi, viðnámsþrótti og samkeppnishæfni innri markaðarins. Þá er sú ályktun dregin, að þátttaka EES/EFTA ríkjanna á innri markaðnum á grundvelli EES-samningsins, árétti kosti markaðarins og mikilvægi hans á alþjóðavísu.

Þá er athyglivert að í skýrslunni er gerð grein fyrir að EES-samningurinn taki almennt ekki til viðskiptastefnu gagnvart þriðju ríkjum, öryggisstefnu eða iðnaðarstefnu á vettvangi ESB en það eru einmitt þau málefnasvið sem hafa verið í mikilli þróun hjá ESB að undanförnu vegna þeirra alþjóðlegu áskorana sem uppi eru, sbr. meðal annars umfjöllun í Vaktinni 24. nóvember sl. þar sem fjallað er um strategískt sjálfræði ESB og þróun innri markaðarins. Áréttað er í skýrslunni mikilvægi þess að tryggja að þróunin í þessa veru verði ekki, að ófyrirsynju til þess að skapa viðskiptahindranir á innri markaðinum. Þannig er lögð áhersla á að halda uppi samtali við EES/EFTA-ríkin um áframhaldandi þróun samstarfsins til að tryggja ekki brotni uppúr þátttöku þeirra í innri markaðinum.

Í lok fundar leiðtogaráðsins í gær ályktaði ráðið meðal annars um nýjan sáttmála ESB um samkeppnishæfni (e. New European Competitiveness deal) sem tryggja eigi langtíma samkeppnishæfni, velmegun og strategískt sjálfræði ESB. Af ályktuninni er ljóst að ESB mun áfram styðjast við heildstæða nálgun á öllum málefnasviðum til að ná markmiðum um aukna framleiðni, sjálfbæran vöxt og nýsköpun samtímis því að styðja við félagslega og efnahagslega stefnu ESB. Stefnt skuli að því að dýpka innri markaðinn, aflétta hindrunum, stuðla að heilbrigðri samkeppni og bæta frjálst flæði vöru, þjónustu og fjármagns. Þá verði áfram unnið að því að koma á fót skilvirkum og aðgengilegum sameiginlegum fjármagnsmarkaði sem stuðli að fjárfestingum með skilvirkari hætti en nú er. Enn fremur er gert ráð fyrir frekari stuðningi og þróun iðnaðarstefnu ESB til að ná markmiðum um kolefnishlutleysi og samkeppnishæfni ESB á sviði tæknimála.

Í ályktunum ráðsins er jafnframt m.a. vikið að stuðningi við framleiðslu hreinnar orku og fjárfestingum í orkuinnviðum til að ná markmiðum um kolefnishlutleysi. Stefnt skuli að því að styrkja rannsóknir og nýsköpun, hringrásarhagkerfið og stafrænu umskiptin. Einnig verði lögð áhersla á að bæta og einfalda regluverk ESB í þágu lítilla og meðalstórra fyrirtækja og endurskoða reglur sem ná ekki tilsettum árangri. Þá verði ráðist í aðgerðir á vinnumarkaði til að stuðla að aukinni færni vinnuafls, auknum hreyfanleika og atvinnuþátttöku. Enn fremur skuli ráðast í aðgerðir til að styðja við samkeppnishæfni, sjálfbærni og viðnámsþrótt í landbúnaði þar á meðal með því að minnka reglubyrði, tryggja réttláta samkeppni og umhverfisvernd.

Samkomulag um stofnun samevrópsk gagnagrunns á heilbrigðissviði

Þann 15. mars sl. náðist samkomulag á milli Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB um efni nýrrar reglugerðar um stofnun gagnagrunns á heilbrigðissviði (e. European Health Data Space, EHDS). Tillaga að reglugerðinni var lögð fram af hálfu framkvæmdastjórnar ESB 3. maí 2022 en hennar hafði þá verið beðið með óþreyju um nokkurt skeið í kjölfar kórónuveirufaraldursins. Fjallað var um tillöguna í Vaktinni 13. maí 2022.

Litið er á EHDS sem eina af meginstoðunum við uppbyggingu á samstarfi aðildarríkja ESB á sviði heilbrigðismála (e. European Health Union ). Til framtíðar er samstarfinu m.a. ætlað að nýtast til að bregðast með samhentum hætti við heilsuvá.

Markmið með reglugerðinni er að færa hinum almenna borgara vald til að bæta og stýra aðgengi að eigin heilbrigðisupplýsingum og í leiðinni að auðvelda heilbrigðisstarfsfólki aðgengi að nauðsynlegum gögnum í meðferðarskyni, óháð búsetu. Talað er um aðalnotkun gagnanna (e. primary use) í þessu samhengi. Þá er regluverkinu ætlað að liðka fyrir og auðvelda svokallaða afleidda notkun gagnanna þ.e. í rannsóknar- og nýsköpunarskyni og við opinbera stefnumörkun (e. secondary use). Auk þess er reglugerðinni ætlað að bæta virkni innri markaðarins gagnvart þróun, markaðssetningu og notkun á stafrænni heilbrigðisþjónustu þar sem gögn eru sett fram með samræmdum og samhæfðum hætti.

Frá því tillögurnar komu fram hafa umræður og álitaefni einkum snúist um möguleika einstaklinga til að neita því að gögn um þá sjálfa séu sýnileg og notuð (e. Opt-out of sharing their health data). Gagnrýnisraddir halda því fram að um leið og opnað sé á þann möguleika kunni ávinningur af gagnagrunninum að vera í hættu.

Fyrirliggjandi samkomulag byggist á miðlunartilllögu sem sett var fram af hálfu Belga, en þeir fara nú með formennsku í ráðherraráði ESB.

Samkvæmt samkomulaginu verður sá möguleiki fyrir hendi að einstaklingar geti sagt sig úr grunninum „opt-out in primary use“ vegna notkunar gagnanna í meðferðarskyni og jafnframt vegna aukanotkunar gagnanna (opt-out in secondary use) en ákvörðun um innleiðingu þessara möguleika í landsrétt aðildarríkjanna verður valkvæð fyrir aðildarríkin. Til að gæta samræmis er þó skylt að sniðmát sjúkraskrárgagna sem sett er í grunninn sé það sama hvort heldur ætlunin er að nota upplýsingarnar innanlands eða í öðrum löndum. Eftir sem áður verður heimilt að nýta gögnin í rökstuddum undantekningartilvikum þegar almannahagsmunir eru í húfi, sbr. 34. gr. reglugerðarinnar.

Kröfur eru settar á framleiðendur um að meta sjúkrakrárkerfi (e. Eloctronic Health Record (EHR) system) með sérstökum aðferðum (e. self certification assessment) áður en þau eru sett á markað og eiga niðurstöður þess mats að fylgja með tæknilegum upplýsingum um kerfið. Þá er gerð krafa um að gögn, sem nota á í rannsóknarskyni ( e. secondary use), verði geymd og unnin innan ESB með ákveðnum undantekningum fyrir þriðju ríki. Aðildarríki geta hins vegar gert kröfur í landslögum um rafræna vinnslu heilbrigðisupplýsinga úr gögnum sem ætluð eru til notkunar í meðferðarskyni (e. Primary use).

Sérstakir tímafrestir um innleiðingu og framkvæmdahraða eru styttir frá því sem lagt var upp með af hálfu ráðherraráðsins og er innleiðingartími hinna ýmsu ákvæða reglugerðarinnar allt frá einu upp í 10 ár frá gildistöku hennar með hliðsjón af tegundum gagna og notkun þeirra.

Reglugerðin gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við samkomulagið og er lokaatkvæðagreiðsla um málið á Evrópuþinginu áætluð í næstu viku.

Aðkoma embættis landlæknis að uppbyggingu gagnagrunnsins.

Í samhengi við framangreint er þess að geta að miðstöð rafrænna heilbrigðislausna hjá embætti landlæknis vinnur nú að uppbyggingu á svonefndri landsgátt til að miðla samantekt um heilsufar sjúklings (e. Patient summary) á milli landa og er ráðgert að sú lausn verði hluti af umræddum gagnagrunni um heilbrigðisupplýsingar þegar fram í sækir. Verkefnið er í tveimur hlutum og fjármagnað af samstarfsáætlun ESB á sviði heilbrigðismála (EU4Health) með beinum styrkjum samtals að fjárhæð rúmlega 4 milljónir evra. Fyrri hluta þess mun ljúka í lok ágúst 2025 og seinni hluta þess í árslok 2026. Verkefnið mun hafa mikinn ávinning í för með sér fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi sem mun með þátttöku í því koma sér upp miðlægum aðgangi að sjúkrasögu sjúklings. Sjá nánar um styrkveitingu til verkefnisins í fréttatilkynningu embættis landlæknis.

Bætt starfsskilyrði starfsnema

Þann 20. mars sl. lagði framkvæmdastjórn ESB fram tillögu að nýrri tilskipun sem hefur það markmið að bæta starfsskilyrði starfsnema.

Mikið atvinnuleysi ungs fólks (15-25 ára) er áskorun innan ESB þar sem atvinnuleysistölur í þeim hópi eru tvöfalt hærri en meðaltalsatvinnuleysi í ESB. Markmið ESB er að lækka þetta hlutfall, þ.e. að hlutfall ungs fólks sem hvorki er í vinnu, starfsþjálfun eða námi lækki niður í 9% fyrir árið 2030 en hlutfallið var um 13% árið 2019. Um 3 milljónir ungra einstaklinga er í starfsþjálfun innan ESB á hverjum tíma og er um helmingur þeirra starfa launaður. Miðar tillagan að því að tryggja að starfsnemar njóti ekki lakari aðbúnaðar en aðrir starfsmenn innan vinnustaðar, t.d. þannig að fulltrúar starfsmanna, s.s. trúnaðarmenn geti beitt sér fyrir réttindum þeirra. Þá er gert ráð fyrir því að sett verði viðmið um tímalengd starfsþjálfunar og haft verði eftirlit með því að almenn störf séu ekki eyrnamerkt eða rangnefnd sem starfsþjálfunarstörf. Að lokum er gert ráð fyrir auknu gagnsæi þannig að upplýst sé um verkefni starfsnemanna, tækifæri til frekara náms og endurgjald sem í boði er þegar fyrirtæki auglýsa starfsþjálfunarstöður lausar til umsókna.

Tillagan byggir á mati og fenginni reynslu á framkvæmd tilmæla ráðherraráðs ESB um gæðaramma starfsþjálfunar frá árinu 2014 og er samhliða lögð fram tillaga að endurskoðun þeirra tilmæla. Þar er meðal annars mælt með því að starfsnemar fái sanngjörn laun og njóti félagslegrar verndar, auk þess að stuðlað sé að jöfnu aðgengi og tækifærum til starfsþjálfunar með því að tryggja að vinnustaðir séu aðgengilegir fyrir fatlaða starfsnema. Þá eru vinnuveitendur m.a. hvattir til að bjóða nemendum fasta stöðu, eða veita þeim starfsráðgjöf, að lokinni starfsþjálfun.

Framangreindar tillögur fela jafnframt í sér viðbrögð við ákalli um endurskoðun verklags á þessu sviði á vettvangi ESB, m.a. frá Evrópuþinginu sem samþykkti þingsályktun um þetta efni í júní 2023.

Tillögurnar ganga nú til umfjöllunar á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Aðgerðaáætlun til að bregðast við skorti á hæfu vinnuafli

Í lok marsmánaðar sendi framkvæmdastjórn ESB frá sér orðsendingu þar sem kynnt var aðgerðaáætlun til að bregðast við skorti á hæfu vinnuafli í ESB. Skortur á vinnuafli á tilteknum sviðum sérstaklega hefur verið vaxandi vandamál í aðildarríkjum ESB og er talið að skorturinn muni standa samkeppnishæfni ESB fyrir þrifum ef ekki verður að gert. Líkur eru taldar á vandamálið muni að óbreyttu vaxa á komandi árum, bæði vegna lýðfræðilegrar þróunar og vegna aukinnar eftirspurnar eftir sérhæfðu starfsfólki samhliða breytingum á vinnumarkaði vegna grænna og stafrænna umskipta. Til að bregðast við þessu eru í aðgerðaáætluninni lagðar til aðgerðir á fimm eftirfarandi sviðum sem vonir standa til að unnt sé að hrinda í framkvæmd með skjótum hætti:

Á sviði þátttöku minnihluta hópa á vinnumarkaði.

Á sviði starfsþróunar, þjálfunar og menntunar.

Á sviði bættra starfsaðstæðna í tilteknum atvinnugreinum.

Á sviði hreyfanleika vinnuafls og námsfólks á innri markaði ESB.

Á sviði innflytjendamála með því að laða hæfileikafólk, utan ESB, til starfa innan sambandsins.

Við framsetningu aðgerðaáætlunarinnar var m.a. haft samráð við aðila markaðarins en áætlunin byggir jafnframt á fjölmörgum aðgerðum og stefnum sem framkvæmdastjórnin hefur þegar lagt fram.

Framlagning aðgerðaáætlunar á þessu sviði var boðuð í stefnuræðu forseta framkvæmdastjórnar ESB, Ursulu von der Leyen, síðastliðið haust, sbr. m.a. umfjöllun um ræðuna í Vaktinni 15. september sl.

Sjá nánar um aðgerðaráætlunina, einstakar aðgerðir og um boðaða eftirfylgni með henni í fréttatilkynningu framkvæmdastjórnar ESB um málið.

Samkomulag um nýjan tækniþróunarvettvang

Samkomulag náðist 7. febrúar sl. milli ráðherraráðs ESB og Evrópuþingsins um efni tillögu að reglugerð um stofnun nýs tækniþróunarvettvangs (Strategic Technologies for Europe Platform - STEP). Tillagan var síðan endanlega samþykkt í Evrópuþinginu 27. febrúar sl. og í ráðherraráði ESB 28. febrúar í samræmi við samkomulagið.

Með STEP mun eiga sér stað tiltekin endurskoðun á regluverki samstarfsáætlana- og samkeppnissjóðakerfis ESB, svo sem varðandi InvestEU, Horizon Europe, Innovation Fund, the Recovery and Resilience Facility og samheldnisjóð ESB (e. Cohesion Fund), sbr. einnig hinn nýja European Defence Fund en ákveðið hefur verið að 1,5 milljarður evra muni renna í þann sjóð á yfirstandandi úthlutunartímabili, árin 2021-2027.

Markmiðið með vettvangnum er að veita öflugri stuðning við þróun og framleiðslu nýrrar tækni sem talin er mikilvæg fyrir græn og stafræn umskipti, efnahagslegt öryggi ESB, samkeppnishæfni og strategískt sjálfræði ESB.

Fjallað var um tillögu að reglugerðinni í Vaktinni 23. júní sl. og er þar jafnframt farið stuttlega yfir þátttöku Íslands í samstarfsáætlunum ESB og yfir endurskoðun og endurskipulagningu sambandsins á samstarfsáætlana- og sjóðakerfi þess sem nú stendur yfir og framangreind reglugerð er hluti af.

Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins, í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra. Leiðréttingar, ábendingar og athugasemdir sendist til ritstjóra Vaktarinnar, Ágústs Geirs Ágústssonar, á netfangið [email protected].

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

15. mars 2024 | ESB haslar sér völl á sviði varnarmála |
Að þessu sinni er fjallað um:

nýja stefnumótun Evrópusambandsins (ESB) á sviði varnarmála

framgang umsókna Bosníu og Hersegóvínu, Úkraínu og Moldóvu um aðild að ESB

samkomulag um nýjar reglur um söfnun og miðlun upplýsinga um flugfarþega í landamæra- og löggæslutilgangi

tillögu um breytingar á reglum um niðurfellingu á áritunarfrelsi þriðja ríkis

uppbyggingu sameiginlegs fjármagnsmarkaðar í ESB

samkomulag um bann á vörum sem framleiddar eru með nauðungarvinnu

þátttöku Íslands í samstarfsáætlunum ESB á sviði heilbrigðismála

aðgerðir til að sporna gegn skorti á lækningatækjum

samkomulag um breytingar á reglum um stjórnun loftrýmisins

samkomulag um tvær gerðir siglingaöryggispakkans

samkomulag um sjálfbærari umbúðir og minni umbúðaúrgang

samkomulag um breytingar á tilskipun um umferðalagabrot

·viðbragðsstjórnun vegna loftslagsbreytinga og áhættuþátta sem fylgja

Hvítbók um stafræna innviði

Vegna páskaleyfa er næsti útgáfudagur Vaktarinnar áætlaður um miðjan apríl.

Ný stefnumótun ESB á sviði varnarmála

Þann 5. mars sl. sendi framkvæmdastjórn og utanríkismálastjóri ESB frá sér orðsendingu um stefnumörkun á sviði varnarmála. Er þetta í fyrsta sinn sem stefnumörkun af þessu tagi lítur dagsins ljós á vettvangi ESB. Með nýrri stefnumörkun eru lagðar til metnaðarfullar aðgerðir til að styðja við samkeppnishæfni og framleiðslugetu hergagnaiðnaðarins innan ESB (e. defence industrial strategy) - auk þess sem vikið er að auknu varnarmálasamstarfi almennt.

Stefnumörkunin er hluti af viðbrögðum ESB við breyttri stöðu varnar- og öryggismála í Evrópu í kjölfar árásarstríðs Rússlands gagnvart Úkraínu og þeirri gríðarlegu öryggisógn sem stríðið hefur skapað í álfunni. Hefur stríðið leitt í ljós brotalamir í getu aðildarríkjanna, m.a. til að framleiða hergögn og skotfæri. Þannig hefur t.d. komið í ljós að ESB hefur ekki tekist, á grundvelli eigin framleiðslu, að standa fyllilega við skuldbindingar og loforð um skotfærasendingar til Úkraínu. Þá hafa ýmis ummæli fv. forseta Bandaríkjanna (BNA) og núverandi forsetaframbjóðanda Donald Trump aukið mjög á óróa innan ESB og aðildarríkjanna er kemur að varnarmálum. Þannig hefur vitund ráðamanna innan ESB um nauðsyn þess að standa á eigin fótum er kemur að vörnum og öryggismálum vaxið hröðum skrefum á undanförnum misserum.

Enda þótt ESB hafi gripið til margvíslegra sameiginlegra ráðstafana til stuðnings Úkraínu, m.a. á sviði hermála, sbr. t.d. með neðangreindri ASAP-reglugerð sem lýtur að stuðningi við skotfæraframleiðslu innan ESB og EDIRPA-reglugerð er lýtur að sameiginlegum opinberum útboðum við innkaup á hergögnum, þá er ljóst að með orðsendingunni og þeirri reglugerðartillögu sem henni fylgir er sleginn nýr tónn, með langtímastefnumörkun til 10 ára á sviði varnartengdra mála.

Í stefnunni eru skilgreindar áskoranir sem hergagnaiðnaðurinn í Evrópu stendur frammi fyrir um leið og leitað er leiða til að mæta þeim m.a. með því að fullnýta möguleika iðnaðarstarfseminnar í ESB með aukum fjárfestingum aðildarríkjanna, fjölgun sameiginlegra útboða og auknum innkaupum á hergögnum sem framleidd eru í ESB ásamt öðrum samþættum aðgerðum á sviði varnarmála. Orðsendingunni fylgir eins og áður segir tillaga til ráðsins og Evrópuþingsins að nýrri reglugerð sem ætlað er að hraða framleiðslu og tryggja nægjanlegt framboð hergagna til lengri tíma. Með því móti verði brúað ákveðið bil við þær skammtímaráðstafanir sem áður hefur verið gripið til, sbr. áðurnefnda ASAP-reglugerð og EDIRPA-reglugerð, sem teknar voru upp í EES-samninginn á fundi sameiginlegu EES-nefndarinnar fyrr í dag, undir bókun 31 við EES-samninginn að beiðni Noregs (með undanþágu fyrir Ísland).

Athuga ber að nýja reglugerðartillagan sem fylgir orðsendingunni er merkt EES-tæk af hálfu framkvæmdastjórnar ESB en endanleg afstaða þar um mun ráðast af sameiginlegu mati ESB og EES/EFTA ríkjanna þegar þar að kemur.

Til að samþætta og styðja við hergagnaframleiðslu enn frekar er í stefnumörkunarskjalinu kallað eftir því að vogarafli Evrópska fjárfestingarbankans verði beitt með endurskoðun á lánastefnu bankans en bankinn er framlengdur fjárfestingaarmur ESB og á meðal stærstu opinberu fjármálastofnana á sviði fjárfestinga í heiminum í dag, ef ekki sá stærsti.

Auk áherslu á aukna hergagnaframleiðslu þá er í stefnunni lögð áhersla á að samþætta stefnumótun og varnarviðbrögð aðildaríkjanna um leið og boðuð er aukin samvinna við NATO og aðra vinveitta samstarfsaðila. Í því sambandi er sérstaklega og eðli málsins samkvæmt fjallað um samstarf við Úkraínu. Er Úkraína nánast meðhöndluð með sama hætti og um aðildarríki ESB væri að ræða. Þannig er lagt upp með að Úkraínu verði gert kleift að taka þátt í sameiginlegum hergagnainnkaupum og að úkraínskum fyrirtækjum verði heimilaður aðgangur að neðangreindum 1,5 milljarða evra sjóði til jafns við fyrirtæki innan ESB. Framangreint áréttar enn og aftur eindreginn stuðning ESB við Úkraínu og endurspeglar jafnframt ríkan pólitískan vilja til að Úkraína verði með tíð og tíma fullgilt aðildarríki ESB, sbr. umfjöllun hér að neðan í Vaktinni um framgang umsóknar Úkraínu um aðild að ESB. Sjá einnig í þessu samhengi nýja ákvörðun ESB í vikunni um fjárstuðning við Úkraínu.

Boðað aukið samstarf og samvinna ESB við NATO er áhugavert enda þótt samvinna á milli NATO og ESB sé vitaskuld ekki ný af nálinni, sbr. t.d. sameiginlegu ESB-NATO samstarfsyfirlýsinguna frá 10. janúar sl. en fyrsta yfirlýsingin af því tagi var gefin út árið 2016. Ný stefnumörkun ESB á sviði varnarmála leggur skýrari línur en áður um sameiginlega stefnu aðildarríkja ESB á þessu sviði, a.m.k. að því er varðar hergagnaframleiðslu, en NATO hefur einnig nýverið, eða í desember sl., samþykkt aðgerðarplan um aukna hergagnaframleiðslu, þar sem m.a. var sett á fór nýtt hergagnaiðnaðarráð, sjá nánar hér.

Fókusinn í framangreindri hergagnaiðnaðarstefna ESB er mjög mikið inn á við, þ.e. er á aukna framleiðslu og innkaup hergagna sem framleidd eru í ESB og í Úkraínu eftir atvikum. Stefnan getur þannig vart talist góðar fréttir fyrir hergagnaframleiðendur í öðrum löndum, svo sem í Bandaríkjunum. Boðuð endurskoðun á lánareglum Evrópska fjárfestingabankans sem vikið er að hér að framan er einnig athygliverð í þessu tilliti.

Í fyrirliggjandi tillögum er gert er ráð fyrir 1,5 milljarði evra fjárveitingu af hálfu ESB til að auka samkeppnishæfni hergagnaiðnaðarins í ESB á árunum 2025 til 2027, en ekki er ólíklegt að þetta sé aðeins blábyrjunin. Hefur Thierry Breton, framkvæmdastjóri innri markaðsmála og „varnarmála“ í framkvæmdastjórn ESB látið hafa eftir sér að hann vilji sjá 100 milljarða evra í sameiginlega varnarmálasjóðnum.

Í síðustu viku fór fram umræða í Evrópuþinginu um öryggis- og varnarmál. Þar flutti Ursula von der Leyen (VDL) ræðu þar sem hún lagði þunga áherslu á aukið vægi varnarmála í ESB. Þar vísaði hún m.a. til Versalayfirlýsingarinnar, sem leiðtogaráð ESB sendi frá sér eftir fund ráðsins 10. og 11. mars 2022, sbr. einnig Granadayfirlýsinguna sem gefin var út í framhaldi af fundi ráðsins 6. október 2023, sbr. nánari umfjöllun í Vaktinni 13. október 2023. Varnar- og öryggismál hafa allar götur síðan verið á dagskrá funda leiðtogaráðs ESB. Á því verður engin undantekning þegar leiðtogaráð ESB kemur saman í næstu viku.

Í ræðu VDL sagðist hún vilja að stofnað verði til sérstaks embættis framkvæmdastjóra varnarmála í framkvæmdastjórn ESB á næsta skipunartímabili framkvæmdastjórnarinnar. Endurspeglar þetta ef til vill betur en margt annað þá þungu áherslu sem nú er lögð á málaflokkinn innan ESB.

Gert er ráð fyrir að framkvæmdastjórnin fylgi stefnumörkuninni eftir með því að mæla framfylgd og framfarir innan aðildarríkjanna á sviði hergagnaframleiðslu á grundvelli sérstakra mælikvarða.

Framgangur umsókna Bosníu og Hersegóvínu, Úkraínu og Moldóvu um aðild að ESB

Framkvæmdastjórn ESB kynnti í vikunni orðsendingu til ráðherraráðs ESB og Evrópuþingsins um framgang umsóknar Bosníu og Hersegóvínu um aðild að ESB, en í orðsendingunni er mælt með því að aðildarviðræður við ríkið verði hafnar. Samhliða framangreindu tilkynnti framkvæmdastjórn ESB einnig að hún hefði lokið við tillögugerð til ráðherraráðs ESB um viðræðuáætlun fyrir Úkraínu annars vegar og við Moldóvu hins vegar og mun framkvæmdastjórnin flytja ráðherraráði ESB munnlega skýrslu um þá tillögugerð, væntanlega á fundi almenna ráðsins (General Affairs Council) næstkomandi þriðjudag. Þá er jafnframt ráðgert að þessi málefni komi til umræðu á fundi leiðtogaráðs ESB á fimmtudag og föstudag í næstu viku.

Framangreindar framgangstillögur ríkjanna eru í samræmi við nýjustu ársskýrslu framkvæmdastjórnarinnar um stækkunarstefnu ESB, en ítarlega var fjallað um þá skýrslu og stöðu einstakra umsóknarríkja í Vaktinni 10. nóvember sl. Í þeirri umfjöllun er einnig gerð grein fyrir mismunandi skrefum í umsóknarferlinu en krafist er einróma samþykkis allra aðildarríkja ESB í ráðherraráðinu í hvert sinn sem umsókn fær formlegan framgang í ferlinu og á það við um þau skref sem nú er lagt til að tekin verði. Tillögur um framgang umsókna Úkraínu og Moldóvu eru einnig í samræmi við áherslur sem fram komu á fundi leiðtogaráðs ESB 14. og 15. desember sl.

Áhugi á stækkunarmálum hefur aukist mjög innan ESB í kjölfar árásarstríðs Rússlands gagnvart Úkraínu og í kjölfar þeirrar þróunar sem orðið hefur í alþjóðamálum í kjölfarið, þar sem virkt lýðræði og réttarríkið eiga í auknum mæli undir högg að sækja. Að sama skapi hefur áhugi og þrýstingur af hálfu umsóknarríkja, sumra a.m.k., um hraðari framgang umsókna þeirra aukist mjög. Hraður framgangur umsókna Úkraínu og Moldóvu, en bæði ríkin sóttu um aðild fljótlega í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu eða í byrjun mars 2022, er til marks um þetta.

Í framvinduskýrslu framkvæmdastjórnar ESB til ráðherraráðsins nú, sbr. framangreinda orðsendingu, fær Bosnía og Hersegóvína jákvæða umsögn og er þar m.a. vísað til nýlegra lagasetninga á sviði réttarríkismála o.fl. Þá þykir landið auk þess hafa aðlagað sig vel að utanríkis- og öryggismálastefnu ESB.

Samkomulag um nýjar reglur um söfnun og miðlun upplýsinga um flugfarþega í landamæra- og löggæslutilgangi

Hinn 1. mars sl. náðist samkomulag í þríhliða viðræðum milli Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB um tillögur að tveimur reglugerðum sem varða söfnun og miðlun upplýsinga um flugfarþega, annars vegar í landamæratilgangi og hins vegar í löggæslutilgangi, þ.e. einkum í tengslum við baráttuna gegn hryðjuverkum og skipulagðri glæpastarfsemi. Fjallað var um tillögurnar í Vaktinni 16. desember 2022.

Nýjum reglum er ætlað að bæta meðhöndlun fyrirframgefinna upplýsinga um flugfarþega (e. Avance Passanger Information) (API). Reglunum er annars vegar ætlað að tryggja að upplýsingarnar liggi fyrir áður en farþeginn kemur inn fyrir ytri landamæri Schengen-svæðisins og hins vegar er kemur að flugi innan svæðisins.

Til frekari útskýringa þá eru API gögn samansafn upplýsinga sem fengnar eru úr ferðaskilríkjum einstaklinga auk staðlaðra flugupplýsinga sem miðlað er til stjórnvalda þess ríkis sem farþegi hyggst ferðast til bæði fyrir og eftir flugtak. Um er að ræða nákvæman nafnalista, fæðingardag, ríkisfang, tegund og númer ferðaskilríkis, sætisupplýsingar og upplýsingar um farangur. Til viðbótar verður flugrekendum gert skylt að safna ákveðnum upplýsingum, s.s. flugnúmeri, flugvallarnúmeri og tímasetningum komu og brottfarar.

Reglurnar eru til fyllingar tilskipun ESB frá árinu 2016 um farþegabókunargögn (e. Passanger Name Record) (PNR). PNR gögn eru samansafn af bókunargögnum fyrir flugfarþega og innihalda upplýsingar um ferðaáætlun farþega og upplýsingar um bókunarferlið. Þegar API gögnin og PNR gögnin eru lesin saman geta þau verið áhrifarík til að bera kennsl á ferðamenn sem talist geta ógn við almannaöryggi og eins til að staðfesta ákveðið ferðamynstur einstaklinga sem liggja undir grun um ólögmætt athæfi.

Ísland er á grundvelli Schengen-samstarfsins skuldbundið til að innleiða aðra API reglugerðina, þ.e. þá sem varðar söfnun og miðlun API ganga í landamæratilgangi. Við mótun beggja reglnanna var hagsmunamál fyrir Ísland að sett yrði inn heimild í reglugerðina um söfnun API gagna í löggæslutilgangi jafnframt sem gæti heimilað ESB að vinna tvíhliða samning við Ísland um söfnun og miðlun þeirra gagna einnig. Eins var það áherslumál að aðildarríki ESB virtu norræna vegabréfasamstarfið við vinnslu reglnanna en samstarfið kveður á um að ríkisborgarar Norðurlandanna geti ferðast óhindrað milli landanna án þess að framvísa vegabréfi.

Framangreind áherslumál Íslands gengu eftir og er ráðgert að Ísland ásamt öðrum samstarfsríkjum Schengen, Noregi, Sviss og Liechtenstein (SAC) hefji samningaviðræður við framkvæmdastjórn ESB í næstu viku um tvíhliða samning sem hefur það að markmiði að veita flugrekendum og aðildarríkjum ESB heimild til að miðla PNR gögnum og API gögnum í löggæslutilgangi til SAC ríkjanna.

Tillaga um breytingar á reglum um niðurfellingu á áritunarfrelsi þriðja ríkis

Í október sl. lagði framkvæmdastjórn ESB fram tillögu um breytingar á reglugerð um um heimildir til að víkja til hliðar áður fenginni undanþágu þriðja ríkis frá áritunarskyldu inn á Schengen-svæðið (e. Visa Suspension Mechanisma), sbr. m.a. til hliðsjónar umfjöllun um málefnið í Vaktinni 10. mars 2023 þar sem fjallað er um fund Schengen-ráðsins. Tillagan hefur verið til umfjöllunar á vettvangi Evrópuþingsins og í ráðherraráði ESB en þar náðist í vikunni samkomulag um efnislega afstöðu ráðsins til málsins fyrir komandi þríhliða viðræður við Evrópuþingið og framkvæmdastjórn ESB um endanlegar lyktir málsins. Þá liggja nú jafnframt fyrir drög að nefndaráliti dóms- og innanríkismálanefndar Evrópuþingsins um málið

Það að ríkisborgarar tiltekins þriðja ríkis geti ferðast án vegabréfsáritunar inn á Schengen-svæðið getur haft mikil og góð áhrif á hagkerfi aðildarríkja Schengen -samstarfsins og þá einkum á ferðamannaiðnað auk þess sem slíkt áritunarfrelsi getur skipt sköpum er kemur að félags- og menningarsamskiptum milli ríkja. Aðildarríki ESB hafa áritunarsamninga við 61 ríki en ríkisborgarar þessara ríkja hafa heimild til að dvelja innan Schengen-svæðisins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili. Með þátttöku í Schengen-samstarfinu hefur Ísland skuldbundið sig til að fylgja stefnu ESB í áritunarmálum.

Misnotkun á áritunarfrelsi þriðja ríkis getur hins vegar haft neikvæðar og alvarlegar afleiðingar í för með sér, t.d. þegar einstaklingar dvelja fram yfir heimilaða dvöl inn á Schengen-svæðinu eða leggja fram tilhæfulausar umsóknir um alþjóðlega vernd auk annarra áskorana sem varða öryggi innan svæðisins.

Heimildin til að fella tímabundið niður áritunarfrelsi þriðja ríkis að ákveðnum skilyrðum uppfylltum tók fyrst gildi árið 2013. Regluverkið hefur þó ekki þótt virka nægilega vel í framkvæmd og er framangreindri tillögu ætlað að bæta þar úr, en fyrir liggur þó að sum aðildarríki hafi viljað ganga enn lengra í breytingum en tillagan gerir ráð fyrir.

Í tillögunni er kveðið á um ný og uppfærð skilyrði þess að til greina geti komið að fella niður þegar fengið áritunarfrelsi þriðja ríkis, svo sem þegar upp koma fjölþáttaógnir eða annmarkar á skilríkjaútgáfu og við veitingu ríkisborgararéttar í viðkomandi þriðja ríki. Þá felur tillagan einnig í sér að heimilt verður að fella niður áritunarfrelsi ef utanríkissamskipti milli viðkomandi ríkis og ESB versna snögglega. Áfram verður heimilt að afnema áritunarfrelsi ef mikil aukning verður á fjölda ríkisborgara tiltekins þriðja ríkis sem meinuð er koma inn á Schengen-svæðið og eins ef aukning verður á tilhæfulausum umsóknum um alþjóðlega vernd frá ríkisborgurum þriðja ríkis sem nýtur áritunarfrelsis inn á Schengen-svæðið. Eins ef ríkið sýnir ekki samvinnu er kemur að endurviðtöku á eigin ríkisborgurum.

Almennt er gert ráð fyrir að niðurfelling á áritunarfrelsi sé til að byrja með tímabundin til 12 mánaða sem heimilt er að framlengja um aðra 24 mánuði. Á því tímabili er framkvæmdastjórn ESB ætlað að vinna með viðkomandi ríki að lausn vandans. Finnist ekki lausn geta aðildarríki ESB ákveðið að fella niður áritunarfrelsi þriðja ríkis varanlega.

Þess er að vænta að þríhliða viðræður um málið hefjist þegar Evrópuþingið hefur samþykkt framangreind drög að nefndaráliti um málið.

Uppbygging sameiginlegs fjármagnsmarkaðar í ESB

Fjármögnun fyrirtækja í Evrópu hvílir í meira mæli á lántökum í viðskiptabankakerfinu en t.d. í Bandaríkjunum þar sem fjármögnunarmöguleikar á fjármagnsmarkaði þykja fjölbreyttari. Þetta getur staðið nýsköpunarfyrirtækjum og smærri fyrirtækjum fyrir þrifum, þar sem mikil þörf er á fjárfestingum í rannsóknum og þróun, en slíkar fjárfestingar er oft á tíðum áhættusamar og fyrirtækin oft ekki í færum til að veita nægjanlegar tryggingar sem jafnan er krafist við lántöku í bönkum. ESB hefur um nokkurt skeið stefnt að því að koma á virkum og samþættum innri markaði með fjármagn, þ.e. skráðum markaði fyrir skuldabréf og hlutabréf, til þess einmitt m.a. að styðja við fyrirtæki í þessari stöðu, auka fjölbreytni fjármögnunarmöguleika og ýta undir nýsköpun og framleiðni.

Sterkur fjármagnsmarkaður í Evrópu hefur öðlast umtalsvert meiri þýðingu í breyttu umhverfi alþjóðamála frá því að fyrsta aðgerðaáætlun um sameiginlegan fjármagnsmarkað leit dagsins ljós (e. Capital Markets Union, CMU) árið 2015. Þrátt fyrir að núverandi framkvæmdastjórn ESB hafi sett fram nýja aðgerðaáætlun fyrir sameiginlegan fjármagnsmarkað árið 2020 hefur stóru markmiðunum ekki enn verið náð. Vissulega hafa umbætur átt sér stað á lagaumgjörðinni, sbr. m.a. nýlegar umfjallanir í Vaktinni 1. mars sl. um aukið gagnsæi á fjármálamörkuðum og um nýjar reglur um sjóði og jafnframt í Vaktinni 16. febrúar sl. þar sem fjallað er um breytingar á reglum um stöðustofnun og reglum sem ætlað er að auðvelda litum og meðalstórum fyrirtækjum aðgengi að fjármagni í ESB. Þótt áhrif þessara lagabreytinga hafi ekki að fullu komið fram ennþá er það álit margra að enn vanti nokkuð upp á til að ná markmiðum um virkan og djúpan fjármagnsmarkað sem miðlar fjármagni milli fjárfesta og fyrirtækja í Evrópu með skilvirkum hætti.

Þannig er það ekki endilega magn sparnaðar sem stendur fjármagnsmarkaði í ESB fyrir þrifum heldur það að ekki hefur tekist að skapa umhverfi þar sem sparnaði er miðlað á markaði til þeirra sem geta nýtt hann til verðmætasköpunar. Mörg dæmi eru um nýsköpunarfyrirtæki innan sambandsins sem hafa flutt starfsemi sína annað, til að mynda til Bandaríkjanna, þar sem auðveldara er að fjármagna starfsemina. Þannig flyst verðmætasköpun og þau störf sem fyrirtækjunum fylgja frá sambandinu. Þá liggur vandamálið einnig í því að þrátt fyrir ýmsar umbætur þá flyst fjármagn ekki auðveldlega á milli aðildarríkja ESB.

Nú eru ráðamenn í ESB farnir að ókyrrast um að skortur á öflugum fjármagnsmarkaði í sambandinu standi öðrum markmiðum þess fyrir þrifum, svo sem strategísku sjálfræði og grænum og stafrænum umskiptum. Breytingar eru enn meira áríðandi í ljósi nýrrar heimsmyndar alþjóðaviðskipta og -samskipta. Samþættur fjármagnsmarkaður er talinn vera ein af megin forsendum þess að það takist að efla samkeppnishæfni ESB um þessar mundir.

Í liðinni viku birti evruhópurinn í sinni breiðu mynd, þ.e. þegar hann samanstendur af fjármálaráðherrum allra ESB landa, ekki einungis evruríkjanna, yfirlýsingu um framtíð fjármagnsmarkaðar í ESB. Yfirlýsingin er nokkurs konar brýning fyrir næstu framkvæmdastjórn ESB og í henni eru tilgreindar 13 aðgerðir sem eiga að styðja við myndun og starfrækslu hins samþætta og sameiginlega fjármagnsmarkaðar. Ekki er þó unnt að segja að á listanum séu margar nýjar hugmyndir, heldur er þar fremur að finna gamalkunnug stef eins og um einföldun regluverks og umbætur á eftirlitsumgjörð.

Það sem er kannski helst markvert í yfirlýsingunni er hvernig tekið er á stærstu raunverulegu hindrunum sem standa í vegi þess að markmið náist, en telja má að þau liggi í mismunandi skattareglum í aðildarríkjum ESB, vöntun á öflugra bankasambandi og skorti á útgáfu og framboði öruggra verðbréfa í evrum, svipuðum bandarískum ríkisvíxlum og -skuldabréfum. Í yfirlýsingunni er látið nægja að hvetja aðildarríkin til þess að skoða, hvert um sig, hvað þau geti gert í skattkerfinu heima fyrir til að stuðla að öflugri fjármagnsmörkuðum, en ekki verður talið líklegt að slík hvatning ein og sér skili miklum árangri. Öflugt bankasamband (e. Banking Union) hefur verið talið grundvöllur fyrir sterkum fjármagnsmarkaði því að bankar gegna gjarnan stóru hlutverki í verðbréfaviðskiptum og skráningu bréfa á markað. Það er lítillega minnst á þetta atriði í lok yfirlýsingarinnar þ.e. að evruhópurinn styðji framgang bankasambandsins. Loks er ekkert minnst á skort á útgáfu á öruggum verðbréfum í evrum, sem ýmsir telja lykilinn samþættingu fjármagnsmarkaða innan ESB, en þögnin um þetta atriði verður væntanlega rakin til þess að aðildarríki ESB eru mjög ósammála er kemur að beinni útgáfu sambandsins á skuldabréfum og þá á hvaða tekjustofnum sú útgáfa ætti að hvíla.

Samkomulag um bann á vörum sem framleiddar eru með nauðungarvinnu

Þann 5. mars sl. náðist samkomulag milli Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB um efni tillögu framkvæmdastjórnar ESB að nýrri reglugerð um bann við vörum sem framleiddar eru með nauðungarvinnu á innri markaði ESB. Fjallað var um tillöguna í Vaktinni þann 23. september 2022.

Talið er að tæplega 28 milljónir manna á heimsvísu séu í nauðungarvinnu, en við mat á þeim fjölda hefur verið byggt á skilgreiningu Alþjóðavinnumálastofnunarinnar á því hvað teljist til nauðungarvinnu. Reglugerðinni er ætlað að styðja við aðrar aðgerðir og stefnur ESB á þessu sviði m.a. stefnu um réttindi barna.

Samkomulag það sem nú liggur fyrir um efni málsins styður við öll meginmarkmið tillögunnar, þ.m.t. að banna vörur sem framleiddar eru með nauðungarvinnu en bannið tekur allt í senn til framleiðslu, markaðssetningar og útflutnings. Fyrirtækjum sem eru skráð eða hafa starfsemi innan ESB eða stunda viðskipti innan ESB er gert að tryggja að vörur þeirra og aðföng til framleiðslu þeirra séu ekki framleiddar með nauðungarvinnu.

Í samkomulaginu felst þó að tilteknar breytingar verði gerðar, einkum til að skýra nánar verkaskiptingu milli framkvæmdastjórnar ESB og lögbærra yfirvalda aðildarríkjanna við eftirlit með framfylgd reglnanna. Framkvæmdastjórninni verður falið að leiða eftirlitsaðgerðir utan landamæra ESB en lögbær yfirvöld einstakra aðildarríkja munu sinna eftirliti þegar áhætta af nauðungarvinnu er talin tengjast viðkomandi aðildarríki. Þá er kveðið um gagnkvæma tilkynningarskyldu lögbærra yfirvalda ef þau verða vör við meinta nauðungarvinnu hvort heldur er í öðrum aðildarríkjum eða utan landamæra ESB. Ákvarðanir um bann, afturköllun eða förgun vöru verða teknar af því stjórnvaldi sem rannsakaði málið og munu gilda með gagnkvæmum hætti yfir landamæri aðildarríkja.

Þá felur samkomulagið í sér að framkvæmdastjórn ESB verði gert að setja upp gagnagrunn um áhættu sem tengist nauðungarvinnu sem mun gagnast bæði framkvæmdastjórninni og lögbærum yfirvöldum aðildarríkjanna við að meta möguleg brot gegn reglugerðinni auk þess sem gefnar verða út leiðbeiningar til atvinnurekenda og lögbærra yfirvalda til að tryggja eftirfylgni með framkvæmd reglugerðarinnar, þ.m.t. með verklagsreglum til að stemma stigu við mismunandi tegundum nauðungarvinnu.

Í samkomulaginu eru jafnframt skilgreind viðmið fyrir líkindamat á því hvort að um brot á ákvæðum reglugerðarinnar sé ræða fyrir framkvæmdastjórnina og lögbær yfirvöld aðildarríkjanna til að miða við.

Tillagan gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Þess má geta að efni tillögunnar tengist að nokkru leyti tillögu að tilskipun um áreiðanleikakannanir á sjálfbærni fyrirtækja, sem fjallað var um í Vaktinni 1. mars sl. Gildissviðið er þó talsvert víðtækara þar sem reglugerðinni er ætlað að ná til allra fyrirtækja sem starfa á innri markaði ESB eða í tengslum við ESB, en reglugerðin um áreiðanleikakannanir á sjálfbærni fyrirtækja nær eingöngu til stórra fyrirtækja.

Þátttaka Íslands í samstarfsáætlun ESB á sviði heilbrigðismála (EU4Health)

Þann 13. febrúar sl. birti framkvæmdastjórn ESB frétt um styrkveitingu að fjárhæð 126 miljón evra til tveggja stórra nýrra verkefna á grundvelli samstarfsáætlunar ESB á sviði heilbrigðismála, EU4Health, en í september 2021 var tekin ákvörðun um formlega þátttöku Íslands í „EU4Health“ og var það í fyrsta skiptið sem Ísland tekur formlega þátt í heilbrigðissamstarfi af þessu tagi á vettvangi ESB.

Verkefnin sem um ræðir styðja annars vegar við aðgerðir til að sporna gegn sýklalyfjaónæmi (e. Antimicrobial resistance - AMR), en vinnuheiti þess verkefnis er „JAMRAI 2“, og hins vegar við forvarnir gegn krabbameini og öðrum ósmitbærum sjúkdómum þar með talið geðsjúkdómum (e. Non-Communicable Diseases - NCDs) og er vinnuheiti þess verkefnis „JA PreventNCD“. Verkefnunum er ætlað að skjóta styrkari stoðum undir samstarf og samvinnu Evrópuríkja á sviði heilbrigðismála (e. European Health Union). Báðum verkefnunum var formlega ýtt úr vör 1. janúar sl. og er ætlað að vara í fjögur ár. Ísland er þátttakandi í báðum verkefnunum.

JAMRAI 2

Baráttan við sýklalyfjaónæmi verður sífellt fyrirferðarmeiri og er nú talin ein helsta heilbrigðisógn samtímans. Á hverju ári eru 35.000 dauðsföll rakin til sýklalyfjaónæmis innan evrópska efnahagssvæðisins. Talað er um þögla faraldurinn (e. silent pandemic), sbr. umfjöllun í Vaktinni 26. maí sl. þar sem fjallað var um tilmæli ESB um aðgerðir gegn sýklalyfjaónæmi og í Vaktinni 21.júlí sl. þar sem greint var frá aðgerðum ESB til að sporna við mögulegum skorti á sýklalyfjum.

Verkefnastyrkurinn er 50 milljónir evra, en öll aðildarríki ESB auk Íslands, Noregs og Úkraínu taka þátt í verkefninu. Markmið „JAMRAI 2“ er að styrka aðgerðaráætlanir á landsvísu í þátttökuríkjunum og innleiða skilvirkar aðgerðir til vöktunar og forvarna í anda „One Health“ stefnu Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar sem miðar að sjálfbæru jafnvægi í vistkerfi manna, dýra og platna. Verkefnin snúa einkum að sýklalyfjagæslu, sýkingarvörnum, vöktun, aðgengi að sýklalyfjum og vitundarvakningu um sýklalyfjaónæmi.

Í nýlegri fréttatilkynningu frá Embætti landlæknis má lesa um þátttöku Íslands í þessu verkefni, en þar kemur fram að styrkfjárhæðin sem kemur í hlut Íslands nemi um 113 millj.kr. Þar er einnig að finna tengil á frétt um nýja aðgerðaráætlun heilbrigðisráðherra til að sporna við útbreiðslu sýklalyfjaónæmis á Íslandi, en hún er unnin af þverfaglegum starfshópi sem skipaður var af heilbrigðisráðherra í samvinnu við matvæla- og landbúnaðarráðherra og umhverfis- orku- og loftslagsráðherra.

JA PreventNCD

Framkvæmdastjórn ESB hefur haft á stefnuskrá sinni á þessu kjörtímabili að auka forvarnir gegn krabbameini og öðrum ósmitbærum sjúkdómum. Árið 2020 voru 2,7 milljónir manna greind með krabbamein, sama ár létust 1,3 milljónir manna af völdum sjúkdómsins, þar af 2.000 ungmenni. Ef ekkert er að gert er því spáð að krabbameinstilfellum muni fjölga um 24% fram til ársins 2035 sem gæti leitt til þess að krabbamein yrði helsta dánarorsök Evrópubúa. Í febrúar 2021 var áætlun ESB gegn krabbameini (e. Europe‘s Beating Cancer plan) birt en í henni eru kynntar aðgerðir til að styðja við baráttu ríkja gegn krabbameinssjúkdómum. Verkefnið sem hér um ræðir er hluti þeirra aðgerða sem þar eru nefndar, en fjárhæð styrksins nemur 76 milljónum evra og er hæsti einstaki styrkur sem ESB hefur veitt til lýðheilsumála. Í verkefninu taka þátt 22 aðildarríki ESB auk Íslands, Noregs og Úkraínu. Verkefnið snýr einnig að forvörnum gegn geðsjúkdómum, en fjallað var um stefnumörkun ESB á sviði geðheilbrigðismála í Vaktinni 9. júní sl.

Meginmarkmið verkefnisins er að innleiða aðgerðir til að koma í veg fyrir ósmitbæra sjúkdóma eins og krabbamein, sykursýki og hjarta- og æðasjúkdóma. Vitað er að helstu áhættuþættir ósmitbærra sjúkdóma er óhollt mataræði, hreyfingarleysi, reykingar, áfengisneysla og geðheilbrigðisvandamál.

Þátttaka Íslands í verkefninu er leidd af lýðheilsusviði Embættis landlæknis, sbr. nánar um verkefnið og þátttöku Íslands í frétt embættisins frá 21. febrúar sl.

Aðgerðir til að sporna gegn skorti á lækningatækjum

Þann 23. janúar sl. lagði framkvæmdastjórn ESB fram tillögu að breytingum á reglugerðum um lækningatæki sem ætlað er að vinna gegn skorti lækningatækja á markaði og liðka fyrir auknu gagnsæi og aðgengi að upplýsingum.

Með tillögunni eru lagðar til breytingar á tveimur gerðum; (ESB) 2017/745 um lækningatæki og (ESB) 2017/246 um lækningatæki til sjúkdómsgreiningar í glasi (In Vitro Diagnostic Medical Devices (IVDR)).

Tillagan hefur fengið hraða málsmeðferð innan Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB, en eftir óformlegt samráð milli stofnanna er nú stefnt að því að tillaga verði tekin til formlegra afgreiðslu án breytinga. Sjá nánar um málið í fréttatilkynningu ráðherraráðs ESB frá 21. febrúar sl. og í reifun Evrópuþingsins á málinu.

Framkvæmdastjórn ESB hefur jafnframt nýverið tilkynnt að frekara mat og greining á virkri framangreindra ESB-reglugerða um lækningatæki sé fyrirhuguð. Hefur framkvæmdastjórnin í því skyni hug á því að efna til opins samráðs á þriðja ársfjórðungi þessa árs um skilvirkni reglugerðanna og hvort þær mæti núverandi þörfum og þörfum til framtíðar.

Samkomulag um breytingar á reglum um stjórnun loftrýmisins (SES2+)

Evrópuþingið og ráðherraráð ESB náðu þann 6. mars sl. efnislegu samkomulagi um tillögu að breytingum á reglugerð um stjórnun loftrýmisins og breytingu á reglugerð um hlutverk Flugöryggisstofnunar Evrópu. Tillagan miðar að því að bæta frammistöðu, getu, aðlögunarhæfni, skilvirkni við stjórnun lofrýmisins yfir ESB og eftirlit með þeirri stjórnun um leið og stefnt er að því að draga úr kostnaði og áhrifum loftferða á umhverfið og loftslag.

Reglur um stjórnun lofrýmisins hafa ekki verið endurskoðaðar síðan árið 2009 en tillögur þar að lútandi sem lagðar voru fram árið 2013 náðu ekki fram að ganga. Endurskoðaðar tillögur á grunni tillagnanna frá 2013 voru svo lagðar fram í september árið 2020 og samþykkti ráðherraráð ESB almenna afstöðu til þeirra 4. júní 2021 og þann 7. júlí sama ár samþykkti þingið afstöðu til málsins. Enda þótt mikið hafi borið á milli þingsins og ráðsins samkvæmt framangreindu hefur nú, nokkuð óvænt, náðst pólitískt samkomulag á milli þeirra um endanlegt efni gerðarinnar.

Reglur ESB um stjórnun loftrýmisins hafa verið teknar upp í EES-samninginn. Aðrar reglur gilda þó um stjórnun flugumferðar yfir N-Atlantshafi og hafa ESB-reglurnar því verið aðlagaðar að þeim veruleika við upptöku í samninginn og við innleiðingu þeirra á Íslandi.

Helstu atriði samkomulagsins

Það samkomulag sem nú liggur fyrir lítur m.a. að fyrirkomulagi eftirlits og heimildum til að fela einkaaðilum framkvæmd tiltekinna þjónustuþátta. Þá verður sérstökum eftirlitsaðilum aðildarríkjanna í samstarfi við framkvæmdastjórnina og svonefnt skilvirkniráð (e. Performance review board) falið að meta skilvirkni flugumferðarþjónustu í samræmi við reglur um meðalhóf og skiptingu ábyrgðar milli ESB og aðildarríkjanna.

Í samkomulaginu felst einnig að tekin verða upp ákvæði um samsetningu leiðsögugjalda að undangenginni nytja- og kostnaðargreiningu. Ætlunin er að hvetja þá sem njóta þjónustunnar til að nota umhverfisvæna tækni og velja umhverfisvænar flugleiðir.

Loks felst í samkomulaginu að aukin verkefni verði færð til Eurocontrol er varða leiðarstjórnun sem ætlað er að stuðla að sjálfbærni og skilvirkni við notkun loftrýmisins.

Tillagan, að lokinni textavinnslu, gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Samkomulag um tvær gerðir siglingaöryggispakkans

Evrópuþingið og ráðherraráð ESB náðu þann 27. febrúar sl. samkomulagi um efni tillögu að breytingum á tilskipun um hafnaríkiseftirlit og tilskipun um fánaríkiseftirlit. Tillögurnar eru hluti af tillögupakka framkvæmdastjórnarinnar um aukið siglingaöryggi sem fjallað var um í Vaktinni 9. júní sl., sbr. einnig umfjöllun um samkomulag um tilskipun um mengun frá skipum í Vaktinni 1. mars sl.

Tilskipun um fánaríkiseftirlit

Tilgangur tilskipunarinnar er að tryggja að skip skráð í ríkjum ESB uppfylli reglur Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar en sú ábyrgð liggur hjá viðkomandi aðildarríki, þ.e.a.s. hjá fánaríkinu.

Ákvæði regluverksins miða að því að aðildarríki hafi getu til að standa undir ábyrgð sinni sem fánaríki á samkvæman, skilvirkan og fullnægjandi hátt. Nánar tiltekið er markmið endurskoðaðra reglna að:

Uppfæra gildandi reglur til samræmis við breytingar á alþjóðasáttmálum á vegum IMO og viðeigandi stöðlum.

Tryggja fullnægjandi skipaeftirlit og eftirlit með skoðunaraðilum.

Stuðla að hraðari innleiðingu stafrænna lausna.

Tryggja samræmda framkvæmd er varðar túlkun, skýrslugerð og mælikvarða á skilvirkni flota fánaríkis og skyldur þess.

Samkomulagið felur í sér að tilteknar breytingar verði gerðar á tillögunni en meginefni hennar stendur þó óbreytt.

Tilskipun um hafnaríkiseftirlit

Tilgangur tilskipunar um hafnaríkiseftirlit er að hafa eftirlit með skipum þriðju ríkja sem koma til hafnar innan EES svæðisins og kanna hvort skipið, áhafnir og búnaður uppfylli kröfur Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar. Eftirlitið er mikilvægur þáttur í að tryggja öryggi skipa og vernd umhverfisins. Tilgangur endurskoðaðra reglna er að:

Uppfæra gildandi reglur til samræmis við breytingar á alþjóðasáttmálum á vegum IMO og viðeigandi stöðlum.

Auka öryggi fiskisskipa, áhafna þeirra og umhverfisins með því að kveða á um, valkvætt eftirlit, með fiskiskipum yfir 24 metrum að lengd.

Tryggja samræmda og skilvirka framkvæmd hafnaríkiseftirlits.

Samkomulagið felur í sér að tilteknar breytingar verði gerðar á tillögunni en meginefni hennar stendur þó óbreytt.

Tillagan, að lokinni textavinnslu, gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Samkomulag um breytingar á tilskipun um umferðalagabrot

Evrópuþingið og ráðherraráð ESB náðu þann 12. mars sl. efnislegu samkomulagi um tillögu að breytingum á tilskipun um miðlun upplýsinga um umferðalagabrot milli ríkja ESB. Tillagan er hluti af svokölluðum umferðaröryggispakka sem framkvæmdastjórnin birti 1. mars sl. og fjallað var um í Vaktinni 10. mars sl.

Tilgangurinn er að bæta framfylgd viðurlagaákvarðana óháð því hvar brot er framið. Breytingunum er einnig ætlað að stuðla að auknu umferðaröryggi í samræmi við markmið sambandsins um fækkun dauðsfalla og alvarlegra slysa í umferðinni um 50% fyrir árið 2030.

Samkomulagið felur í sér að tilteknar breytingar verði gerðar á tillögunni en meginefni hennar stendur þó óbreytt. Meðal breytinga sem samkomulagið felur í sér er að:

hlutverk landstengiliða (e. contact point) og viðurkenndra stjórnvalda (e. competent authorities) er skýrt nánar,

gildissvið gerðarinnar er víkkað út þannig að hún taki til fleiri tegunda umferðalagabrota,

·verkferlar sem snúa að aðgengi að skráningarupplýsingum ökutækis eru skýrðir,

·og betur er gætt að öllum nauðsynlegum varnöglum er lúta að réttindum og persónuvernd ökumanns eða annarra viðkomandi aðila.

Tillagan gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Samkomulag um sjálfbærari umbúðir og minni umbúðaúrgang

Þann 4. mars sl. náðist samkomulag milli Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB um efni tillögu að reglugerð um umbúðir og umbúðarúrgang sem miðar að því að gera umbúðir sjálfbærari og draga úr magni umbúðaúrgangs í ESB. Markmiðið er að takast á við aukningu á umbúðaúrgangi sem myndast í ESB, samræma innri markaðinn fyrir umbúðir og efla hringrásarhagkerfið þannig að umbúðageirinn verði kolefnishlutlaus fyrir árið 2050.

Fjallað var um tillöguna í Vaktinni 2. desember 2022.

Endurskoðun á gerðinni um umbúðir og umbúðaúrgang er hluti aðgerðaráætlun ESB um hringrásarhagkerfið sem framkvæmdastjórn ESB samþykkti í mars 2020. Aðgerðaráætlunin um hringrásarhagkerfið er ein af grunnstoðum Græna sáttmála Evrópu, sbr. m.a. umfjöllun í Vaktinni 1. apríl 2022,

Með tillögunni eru lagðar til breytingar sem eiga að tryggja að umbúðir séu öruggar og sjálfbærar, með því að krefjast þess að allar umbúðir séu endurvinnanlegar og að tilvist skaðlegra efna sé haldið í lágmarki. Til að bæta upplýsingagjöf til neytenda er kveðið á um samræmingu merkinga. Í samræmi við forgangsröðun við meðhöndlun úrgangs (e. waste hierarchy) miðar tillagan að því að draga verulega úr myndun umbúðaúrgangs með því að setja bindandi endurnýtingarmarkmið, takmarka ákveðnar tegundir einnota umbúða og krefjast þess að rekstraraðilar lágmarki umfang þeirra umbúða sem notaðar eru.

Helstu atriði samkomulagsins

Kröfur um sjálfbærni umbúða og endurunnið efni

Í tillögunni er kveðið á um sjálfbærnikröfur fyrir allar umbúðir sem settar eru á markað. Með samkomulaginu eru kröfur til efna í umbúðum hertar með því að setja ákvæði um takmörkun á markaðssetningu umbúða sem komast í snertingu við matvæli og innihalda PFAS (e. per- and polyfluorinated alkyl substances) yfir ákveðnum viðmiðunarmörkum.

Samkomulagið viðheldur meginmarkmiðum sem sett voru fram í tillögunni fyrir árin 2030 og 2040 um lágmarks endurunnið efni í plastumbúðum. Lífbrjótanlegar plastumbúðir (e. compostable plastic packaging) og umbúðir þar sem hlutfall plasts er undir 5% af heildarþyngd umbúðanna eru þó undanþegnar markmiðunum. Kveðið er á um að framkvæmdastjórn ESB taki markmiðin til endurskoðunar þegar á líður. Jafnframt er skorað á framkvæmdastjórn ESB að hún meti stöðu tækniþróunar á plastumbúðum framleiddum úr lífmassa (e. bio-based plastic packaging) og á grundvelli þess mats, verði settar sjálfbærnikröfur fyrir innihald lífplasts (e. bio-based) í plastumbúðum.

Kröfur um endurnotkun umbúða og áfyllingu

Samkomulagið kveður á um ný bindandi markmið um endurnotkun umbúða fyrir árið 2030 og leiðbeinandi markmið fyrir árið 2040. Markmiðin eru mismunandi eftir því hvers konar umbúðir rekstraraðilar nota og eru pappaumbúðir almennt undanþegnar kröfunum. Örfyrirtæki eru undanþegin framangreindum markmiðum.

Til að stuðla að endurnotkun umbúða, eða áfyllingu, verður fyrirtækjum sem bjóða fólki að taka með sér tilbúnar máltíðir gert að bjóða viðskiptavinum sínum upp á að koma með eigin ílát fyrir slíkar máltíð og að auki að fyrir árið 2030 verði slíkir þjónustuaðilar (e. take-away businesses) að bjóða fram 10% af vörum sínum í umbúðum sem henta til endurnotkunar.

Kröfur um upptöku á skilagjaldskerfi

Aðildarríki þurfa fyrir árið 2029 að tryggja að a.m.k. 90% af einnota plastflöskum og drykkjarvöruumbúðum úr málmi sé safnað til endurvinnslu. Til að ná því markmiði þurfa aðildaríki að setja upp skilagjaldkerfi (e. deposit return systems - DRS) fyrir umræddar umbúðir. Lágmarkskröfur fyrir skilakerfi gilda ekki um kerfi sem þegar eru til staðar fyrir gildistöku reglugerðarinnar, nái viðkomandi kerfi 90% markmiðinu fyrir árið 2029.

Takmarkanir á tilteknum umbúðum

Kveðið er á um tilteknar takmarkanir á tegundum umbúða, þ. á m. á notkun einnota plastumbúða fyrir ávexti og grænmeti, fyrir mat og drykki, krydd, litlar snyrtivörur og snyrtivörur sem notaðar eru á hótelum og gististöðum og fyrir mjög létta plastpoka.

Næstu skref

Tillagan gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Viðbragðsstjórnun vegna loftslagsbreytinga og áhættuþátta

Þann 12. mars sl. sendi framkvæmdastjórn ESB frá sér orðsendingu um viðbragðsstjórnun vegna loftslagsbreytinga og áhættuþátta sem þeim breytingum fylgja, svo sem þurrkum, flóðum, skógareldum, sjúkdómum, uppskerubresti og hitabylgjum. Markmið orðsendingarinnar er að greina hvernig ESB og aðildarríki þess geti séð betur fyrir, skilið og tekist á við þá vaxandi vá sem stafar af loftslagsbreytingum.

Orðsendingin felur í sér viðbragð við fyrstu vísindaskýrslu Umhverfisstofnunar Evrópu (EUCRA) um áhættumat vegna loftslagsbreytinga sem birt var 11. mars sl.

Síðasta ár, árið 2023, var heitasta árið sem mælst hefur á jörðinni en samkvæmt skýrslu Copernicus Climate Change Service fór meðalhiti á jörðinni síðustu 12 mánuði yfir 1,5 gráðu þröskuldinn. Evrópa þarf því að byggja upp viðnám gegn áhrifum loftslagsbreytinga, með því að greina áhættu, bæta viðbúnað og móta heildarstefnu um það hvernig vernda til megi líf og lífsviðurværi íbúa og vistkerfa. Samkvæmt könnun á vegum ESB, Eurobarometer survey, líta 77% Evrópubúa á loftslagsbreytingar sem mjög alvarlegt vandamál og meira en einn af hverjum þremur Evrópubúum (37%) telja að þeir séu persónulega útsettir fyrir loftslagsvá.

Orðsendingin og vísindaskýrslan fela í sér ákall um aðgerðir á öllum stigum stjórnsýslunnar, sem og hjá atvinnulífi og almenningi.

Í orðsendingunni er leitað leiða um það hvernig ESB og aðildarríki þess geti á áhrifaríkan hátt tekist á við loftslagsvána og byggt upp aukið viðnám gegn loftslagsbreytingum en í því skyni leggur framkvæmdastjórn ESB til aðgerðir sem skipt er upp í fjóra meginflokka sem lúta að:

bættum stjórnarháttum í aðildarríkjunum á þessu sviði og skýrri ábyrgðarskiptingu á milli mismunandi stjórnsýslustiga og stofnana,

betri aðgangi stefnumótandi aðila, fyrirtækja og fjárfesta að upplýsingum og úrlausnarleiðum til að takast á við og auka skilning á tengslunum á milli loftslagsvár, fjárfestinga og fjármögnunaráætlana til lengri tíma,

mótun skipulagsstefnu í aðildarríkjunum sem styður við varnir gegn loftslagsvá,

og loks að bættri fjármögnun til aðgerða til að auka viðnámsþol gegn loftslagsvá.

Orðsendingin gengur nú til umfjöllunar í stofnunum ESB.

Hvítbók um stafræna innviði

Framkvæmdastjórn ESB birti hinn 21. febrúar sl. hvítbók um mögulegar leiðir til að byggja upp örugga stafræna innviði til framtíðar og leiðbeiningar um það hvernig tryggja megi öryggi og viðnám neðansjávarkapla.

Í tilkynningu um bókina segir að mikilvægt sé að vel takist til við uppbygginguna, annars vegar ef tekið er tillit til öryggissjónarmiða og hins vegar ef litið er til samkeppnishæfni og nýsköpunar í Evrópu til lengri tíma. Í hvítbókinni eru skilgreindar þrjár megin stoðir við uppbyggingu og rekstur stafrænna innviða til framtíðar.

Fyrsta stoðin felur í sér að komið verði á fót svokölluðu 3C kerfi (Connected Collaborative Computing – 3C Network), en því er lýst sem stafrænu umhverfi með framúrskarandi innviði innan Evrópu sem tryggt getur grósku og nýsköpun á hinum ýmsu sviðum staf- og tæknivæðingar, svo sem á sviði gervigreindar, skýjalausna, útvarpstækni, gagnastjórnun, hálfleiðaraframleiðslu o.fl.

Önnur stoðin snýr að því að samræma nálgun innan ESB er kemur að hinum stafræna innri markaði og tryggja jafna stöðu allra sem að honum koma. Í því sambandi þurfi m.a. að taka inn í myndina þarfir rekstraraðila sem hafa aðkomu að fjárfestingum í stafrænum innviðum og samræma betur og skýra regluverk og ferla sem varða rekstur fjarskiptafyrirtækja.

Þriðja stoðin snýr að því hvernig tryggja megi öryggi og viðnám neðansjávarkapla en þar er m.a. komið inn á mikilvægi samstarfs og samhæfingar á milli aðildarríkjanna, einföldun ferla við veitingu leyfa og að úrræðum, sem beita megi til að tryggja að framangreint markmið náðist, verði fjölgað.

Hvítbókin hefur jafnframt verið birt í samráðsgátt ESB og er umsagnarfrestur til 30. júní nk.

Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins, í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra. Leiðréttingar, ábendingar og athugasemdir sendist til ritstjóra Vaktarinnar, Ágústs Geirs Ágústssonar, á netfangið [email protected].

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

01. mars 2024 | Vetnisvæðing á Evrópska efnahagssvæðinu |
Að þessu sinni er fjallað um:

vetnisvæðingu á Evrópska efnahagssvæðinu (EES)

samkomulag um vottunarramma fyrir kolefnisbindingu

vetrarspá um stöðu efnahagsmála

mótmæli bænda og viðbrögð ESB

ákall iðnleiðtoga um aukna samkeppnishæfni og framfylgd Græna sáttmálans

samkomulag um endurskoðun tilskipunar um loftgæði

hringrásarhagkerfið og rétt til viðgerða á vörum

samkomulag um breytingar á tilskipun um mengun frá skipum

samkomulag um samræmdar reglur um akstur vinnuvéla á vegum

aukið gagnsæi á fjármálamörkuðum

nýjar reglur um sjóði

fund sameiginlegu þingmannanefndar EES

Vetnisvæðing á Evrópska efnahagssvæðinu

Uppbygging vetnisframleiðslu og innviða á því sviði er hluti af metnaðarfullum áætlunum ESB um orkuskipti. Mikill skriður er á þeim áætlunum um þessar mundir og risavaxin verkefni í gangi eða í burðarliðunum. Fyrir íslenskum stjórnvöldum liggur að meta hvort og þá hvernig Ísland geti tekið þátt í þeirri uppbyggingu. Hér á eftir er gerð stuttlega grein fyrir stöðu þessara mála á vettvangi ESB og í framhaldi af því er vikið nánar að möguleikum Íslands til þátttöku í vetnisvæðingunni.

IPCEI-ríkisstyrkir

Hinn 15. febrúar sl. lagði framkvæmdastjórn ESB blessun sína yfir 6,9 milljarða evra ríkisstuðning vegna verkefna á sviði vetnisframleiðslu og uppbyggingu innviða á því sviði. Verkefnapakkinn sem um ræðir var metinn á grundvelli ríkisstyrkjareglna ESB, nánar tiltekið á grundvelli viðmiða sem sett eru fram í orðsendingu framkvæmdastjórnar ESB um mat á réttmæti ríkisaðstoðar vegna mikilvægra verkefna sem varða sameiginlega hagsmuni ESB (e. Communication on Important Projects of Common European Interest – IPCEI). Heimilt er að veita hlutfallslega hærri ríkisstyrki til verkefna sem falla undir þessi viðmið en leyfilegt er í öðrum tilvikum.

Verkefnapakkinn sem um ræðir og nefndur er „IPCEI Hy2Infra“ var undirbúinn sameiginlega af sjö aðildarríkjum ESB, Frakklandi, Þýskalandi, Ítalíu, Hollandi, Póllandi, Portúgal og Slóvakíu og er gert ráð fyrir að ríkin muni veita samtals 6,9 milljörðum evra í opinber framlög til verkefna sem þar liggja. Að auki er gert ráð fyrir 5,4 milljarða evra fjárfestingu einkaaðila á móti, en 32 fyrirtæki koma að verkefninu sem tekur til allra þátta í virðiskeðju vetnismarkaðar, allt frá sjálfri framleiðslunni og tæknilausnum á því sviði til uppbyggingar innviða fyrir geymslu og flutnings vetnis á milli svæða.

Er þetta í þriðja sinn sem verkefni eru samþykkt á grundvelli IPCEI á sviði vetnismála. Fyrsta verkefnið, nefnt IPCEI Hy2Tech, var samþykkt í júlí 2022, og annað verkefnið, nefnt IPCEI Hy2Use, var samþykkt 21. september 2022. Noregur er þátttakandi í síðarnefnda verkefninu, IPCEI Hy2Use, og kom það í hlut Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA), í samræmi við tveggja stoða kerfi EES-samningsins, að leggja blessun sína yfir fyrirhugaða ríkisaðstoð af hálfu Noregs til þeirra tveggja verkefna í pakkanum sem Noregur kemur að, sjá niðurstöðu ESB hér.

Styrkir úr samkeppnissjóðum ESB

Auk þátttöku í framangreindum IPCEI-verkefnum hefur verið unnt að sækja um styrki úr sjóðum ESB til einstakra verkefna á sviði vetnismála, einkum úr nýsköpunarsjóði ESB á sviði loftslagsmála (e. Innovation Fund).

Áætlanagerð ESB á sviði vetnismála

Framangreind verkefni og stuðningur við þau í formi ríkisstyrkja og styrkja úr samkeppnissjóðum ESB eru eins og áður segir hluti af áætlun ESB um að þróa og byggja upp virkan vetnismarkað á innri markaði hins Evrópska efnahagsvæðis, sbr. orðsendingu framkvæmdastjórnar ESB um Vetnisbanka Evrópu, orðsendingu um vetnisáætlun, RePowerEU áætlunina og nýja tilskipun og áætlanir um uppbyggingu endurnýjanlegra orkugjafa, sbr. m.a. umfjallanir í Vaktinni 21. apríl sl. Samkvæmt þessum áætlunum er það metið svo að vetnisorka geti orðið mikilvæg á sviðum þar sem ekki er talið raunhæft eða skilvirkt að nota rafhlöður eða rafmagn við orkuskipti. Getur slíkt m.a. átt við í orkufrekum samgöngum eins og t.d. í flugi.

Til að undirbyggja framangreinda vetnisvæðingu hefur verið unnið að endurskoðun og setningu reglna um vetnismarkað á vettvangi ESB og í desember sl. náðist loks samkomulag í þríhliða viðræðum um efni tillögu um markaðsreglur fyrir gas og vetni, sbr. umfjöllun í Vaktinni 2. febrúar sl., sbr. einnig tvær gerðir sem framkvæmdastjórn ESB setti um þetta efni í júní sl.

Möguleg þátttaka Íslands

Eins og áður segir þá er m.a. horft til þess sérstaklega í áætlunum ESB að vetni geti komið í stað jarðefnaeldsneytis í flugsamgöngum að einhverju marki, a.m.k. sem íblöndunarefni. Möguleikar Íslands til virkrar þátttöku í uppbyggingu vetnismarkaðar á innri markaði EES-svæðisins hafa einkum verið taldir liggja á því sviði, annars vegar vegna legu landsins og starfrækslu alþjóðaflugvallarins í Keflavík, á flugleiðinni milli Evrópu og Norður-Ameríku, og hins vegar vegna þeirrar sjálfbæru orku sem mögulegt er að framleiða á Íslandi og nauðsynleg er til sjálfbærrar vetnisframleiðslu. en ætla má að með hliðsjón af framangreindri sérstöðu geti vetnisframleiðsla á Íslandi orðið arðbær til lengri tíma litið, jafnvel verulega, en stofnkostnaður er þó einnig verulegur. Við mat á mögulegri þátttöku Íslands samkvæmt framangreindu þarf að hafa í huga að komi ekki til sjálfstæðrar vetnisframleiðslu á Íslandi, mun Ísland að líkindum þurfa að flytja inn vetni í framtíðinni, til að uppfylla lagalegar kröfur um notkun vistvæns flugvélaeldsneytis m.a., sbr. umfjöllun í Vaktinni 5. maí sl. um nýja löggjöf ESB á því sviði.

Möguleikar Íslands á þessu sviði voru m.a. til umræðu í tengslum við samningaviðræður við ESB um aðlögun fyrir Íslands í stóra flugmálinu svokallaða, sbr. m.a. umfjöllun í Vaktinni 24. febrúar 2023 en þar var m.a. greint frá skipun starfshóps sem umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra skipaði í febrúar á síðasta ári til að skoða leiðir til að hraða orkuskiptum í flugi, sbr. einnig drög að stefnu og aðgerðaáætlun um orkuskipti í flugi sem innviðaráðuneytið birti í Samráðsgátt stjórnvalda 30. mars. sl.

Vottunarrammi fyrir kolefnisbindingu

Þann 20. febrúar sl. náðist samkomulag milli Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB um efni tillögu framkvæmdastjórnar ESB að reglugerð um vottunarramma fyrir aðferðir við varanlega kolefnisbindingu, kolefnisföngun með ræktun og kolefnisgeymslu í vörum. Fjallað var um tillöguna á samráðsstigi í Vaktinni 18. febrúar 2022. Sjá einnig til hliðsjónar umfjöllun um nýja orðsendingu framkvæmdastjórnar ESB um kolefnisföngun og -geymslu í Vaktinni 16. febrúar sl.

Vottunarrammanum er ætlað að auðvelda og flýta fyrir innleiðingu á hágæða aðferðum við kolefnisbindingu sem og aðferðum til draga úr losun CO2 við landnotkun (e. soil emission reduction activities). Með reglugerðinni er stigið fyrsta skrefið í átt að því að innleiða í löggjöf ESB alhliða vottunarramma fyrir aðferðir við kolefnisbindingu sem er mikilvægur þáttur í því að ná markmiði ESB um kolefnishlutleysi fyrir árið 2050.

Gildissvið reglugerðarinnar

Skilgreining á kolefnisbindingu samkvæmt tillögunni er í samræmi við fyrirliggjandi skilgreiningu milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) og nær til kolefnisbindingar úr andrúmslofti eða aðgerða til að fjarlægja kolefni af lífrænum uppruna (e. biogenic carbon removals).

Samkvæmt reglugerðinni eru eftirfarandi flokkar kolefnisbindingar skilgreindir:

varanleg kolefnisbinding, þ.e. aðferðir sem binda kolefni úr andrúmslofti eða lífrænt kolefni til langs tíma, í nokkrar aldir,

tímabundin geymsla kolefnis í vörum með langan líftíma (e. long-lasting products), t.d. byggingarvörur úr viði,

tímabundin geymsla kolefnis með kolefnisræktun, t.d. ræktun skóga eða endurheimt þeirra og endurheimt jarðvegs og votlendis,

samdráttur í losun frá landi, með jarðvegsstjórnun sem felur í sér minnkun á losun kolefnis og nituroxíðs (e. soil management). Er þetta nýr flokkur kolefnisbindingar sem bætist við tillöguna samkvæmt því samkomulagi sem nú liggur fyrir.

Reglugerðin tekur samkvæmt efni sínu einungis til bindingar á kolefni og nituroxíðs en í samkomulaginu er kveðið á um að framkvæmdastjórn ESB skuli, fyrir árið 2026, taka saman skýrslu um hagkvæmni þess að votta starfsemi og aðferðir sem leitt geta til samdráttar í losun annarra mengandi efna frá landnotkun.

Áréttað er að verkefni, sem ekki fela beinlínis í sér kolefnisbindingu, svo sem verkefni sem ætlað er að koma í veg fyrir eyðingu skóga eða kolefnisföngun í tengslum við framleiðslu á endurnýjanlegri orku, svo sem vetni, sbr. umfjöllun hér að framan í Vaktinni um vetnisvæðingu EES, falla ekki undir gildissvið reglugerðarinnar.

Vottunarrammi fyrir kolefnisbindingu samkvæmt reglugerðinni mun einungis gilda fyrir starfsemi innan ESB. Í samkomulaginu er hins vegar kallað eftir því að framkvæmdastjórn ESB íhugi þann möguleika, við endurskoðun reglugerðarinnar þegar þar að kemur, að heimila vottun kolefnisbindingar í jarðlögum í nágrannaríkjum ESB að uppfylltum umhverfis- og öryggiskröfum ESB.

Vottunarviðmið og verklagsreglur

Kolefnisbinding þarf samkvæmt reglugerðinni að uppfylla fjögur nánar tilgreind viðmið til að hljóta vottun, þ.e. um magngreiningu þess kolefnis sem bundin er, um viðbótarvirkni bindingar miðað við að ekki væri aðhafst, um greiningu á geymslutíma bindingar og um sjálfbærni þeirrar aðferðar sem beitt er. Gert er ráð fyrir að þróaðar verði sérsniðnar vottunaraðferðir fyrir mismunandi aðferðir við kolefnisbindingu til að tryggja rétta, samræmda og hagkvæma framkvæmd reglugerðarinnar.

Ávinningur af vottun

Vottuð kolefnisbinding og aðgerðir sem draga úr losun kolefnis vegna landnotkunar verða reiknaðar til eininga og mun ein eining jafngilda einu tonni af CO2. Felur samkomulagið í sér að einungis megi nota vottaðar einingar við útreikning á landsbundnu framlagi (e. nationally determined contribution - NDC) við framfylgd loftslagsmarkmiða ESB.

Eftirlit og ábyrgð

Í reglugerðinni er kveðið á um eftirlit með og ábyrgð rekstraraðila kolefnisbindingar. Í samkomulaginu er framkvæmdastjórn ESB hvött til þess að tryggja að við þróun vottunarkerfa verði kveðið skýrt á um afleiðingar ófullnægjandi eftirlits og vanefnda af hálfu rekstraraðila.

Upplýsingagjöf til almennings

Til að gera upplýsingar um vottun og áunnar einingar rekstraraðila aðgengilegar fyrir almenning er framkvæmdastjórn ESB hvött til þess að koma á fót samræmdri rafrænni skrá er verði tilbúin eigi síðar en fjórum árum eftir gildistöku reglugerðarinnar.

Tillagan gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Vetrarspá um stöðu efnahagsmála

Þann 15. febrúar sl. birti framkvæmdastjórn ESB nýja efnahagsspá fyrir ESB sem bendir til hægari gangs í hagkerfinu árið 2024 en áður. Gert er ráð fyrir að vöxtur á árinu 2024 verði 0,9% í ESB (1,3% í haustspánni) og 0,8% á Evrusvæðinu (1,2% í haustspánni). Áfram er búist við kröftugri vexti á næsta ári, 1,7% fyrir ESB og 1,5% á Evrusvæðinu. Fjallað var um haustspána í Vaktinni 24. nóvember sl.

Útlit er fyrir að verðbólga hjaðni hraðar en efnahagsspáin í haust benti til. Samræmd neysluverðsvísitala er talin munu fara úr 6,3% árið 2023 í 3,0% árið 2024 og 2,5% árið 2025 í ESB og verða nokkuð lægri á evrusvæðinu eða 5,4%, 2,7% og 2,2%.

Það dró úr hagvexti árið 2023 sökum minnkandi kaupmáttar heimila, auknu aðhaldi peningastefnu og ríkisfjármálastefnu og minnkandi eftirspurnar eftir útflutningi frá ESB. Fyrsti ársfjórðungur ársins 2024 fór hægt af stað en útlit er fyrir að hagvöxtur muni aukast jafnt og þétt yfir árið. Lækkandi verðbólga, hækkun raunlauna og sterkur vinnumarkaður munu ýta undir eftirspurn. Þrátt fyrir minnkandi hagnaðarhlutfall fyrirtækja eru líkur á að fjárfesting muni aukast vegna betri fjármögnunarskilyrða og virkrar beitingar Bjargráðasjóðsins sem fjallað var um í Vaktinni 19. mars 2021. Útlit er fyrir að utanríkisviðskipti nái sér aftur á strik eftir lítil umsvif í fyrra.

Verðbólga minnkaði mun meira á árinu 2023 en gert hafði verið ráð fyrir og má rekja það fyrst og fremst til lækkandi orkuverðs. Sökum minnkandi umsvifa í hagkerfinu minnkaði verðbólguþrýstingur einnig í öðrum geirum á síðari hluta ársins 2023. Lækkandi verðbólgutölur síðastliðna mánuði, lækkandi orkuverð og minni þróttur í hagkerfinu leiða til þess að talið er að verðbólga muni lækka enn hraðar en talið var í haust. Til skamms tíma gætu minnkandi niðurgreiðslur hins opinbera á orku og hærra flutningsverð vegna ástandsins við Rauðahafið aukið verðbólguþrýsting án þess þó að trufla lækkunarferilinn að ráði. Við lok spátímabilsins (2025) er talið að verðbólga á evrusvæðinu verði örlítið umfram verðbólgumarkmið Seðlabanka Evrópu.

Í spánni er fjallað um aukna óvissu tengda spennu í samskiptum ríkja heimsins. Ástandið við Rauðahafið, í sinni núverandi mynd, er talið hafa óveruleg áhrif en stigmögnun þess geti truflað virðiskeðjur sem aftur gæti dregið úr framleiðni og hækkað verð. Helstu óvissuþættir innan sambandsins snúa að eftirspurn, launahækkunum, hagnaðarhorfum fyrirtækja og hversu háir vextir verða og hve lengi. Þá er bent á áhættu tengda loftslagsbreytingum og auknum öfgum í veðurfari.

Mótmæli bænda og viðbrögð ESB

Bændur hafa staðið fyrir mótmælum víða um Evrópu að undanförnu. Meðal annars mótmæltu þeir af fullri hörku í Brussel síðastliðinn mánudag þar sem kom til átaka á milli þeirra og lögreglu.

Ástæður mótmælanna eru skert kjör bænda vegna hækkandi framleiðslukostnaðar, lágs afurðaverðs, aukinnar samkeppni vegna innflutnings á ódýrum landbúnaðarvörum frá þriðju ríkjum, auknu regluverki ESB á sviði umhverfismála og auknu skrifræði sem því fylgir.

Framleiðslukostnaður í landbúnaði óx á tímum kórónuveirufaraldurins og í kjölfar árásarstríðs Rússlands gagnvart Úkraínu hafa aðföng hækkað enn frekar í verði og framleiðslukostnaður sömuleiðis. Þá hafa þurrkar, flóð og skógareldar haft neikvæð áhrifa á rekstrarskilyrði bænda víðs vegar um Evrópu. Þá var það ein af aðgerðum ESB til stuðnings Úkraínu að veita þeim viðskiptafrelsi með landbúnaðarvörur. Sú ákvörðun hefur bitnað á bændum, sérstaklega í þeim löndum sem liggja næst Úkraínu.

Auknar kröfur til bænda á sviði umhverfismála, bæði kröfur sem tengjast stuðningskerfi ESB við bændur samkvæmt almennu landbúnaðarstefnunni (CAP) og ýmsum reglum sem eru hluti af Græna sáttmálanum s.s. um endurheimt og varðveislu vistkerfa, sbr. umfjöllun í Vaktinni 24. nóvember sl., auknar kröfur um samdrátt í notkun skordýraeiturs, kröfur um aukna lífræna framleiðslu o.s.frv. hefur haft í för með sér umtalsvert skrifræði og kostnað fyrir bændur. Hefur þetta, ofan á afar erfitt markaðsástand eins og rakið er að framan, aukið mjög á ónægju bænda.

ESB hefur brugðist við mótmælum bænda og lofað úrbótum. Í lok janúar sendi framkvæmdastjórn ESB frá sér tillögu að aðgerðum sem ætlað er að koma til móts við bændur aðallega með því að heimila þeim að víkja frá ákveðnum skilyrðum í landbúnaðarstefnunni tímabundið í eitt ár. Þetta eru svokölluð GAEC skilyrði sem lúta að umhverfismálum (e. Good Agricultural And Environmental Conditions) en þau eru alls níu fyrir utan önnur skilyrði sem lúta að plöntu- og dýravelferð og dýraheilbrigði.

Landbúnaðarráðherrar aðildarríkjanna staðfestu þessar tillögur framkvæmdastjórnarinnar á fundi þeirra í ráðherraráði ESB sem fram fór sama dag og mótmælin stóðu yfir síðastliðinn mánudag. Á fundi ráðherranna var lagt fram umræðuskjal frá framkvæmdastjórn ESB sem byggist á framangreindri tillögu. Þá lögðu ráðherrarnir blessun sína yfir ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB um að draga til baka fyrirhugaða reglusetningu þar sem gert var ráð fyrir um 50% samdrætti á notkun skordýraeiturs í landbúnaði fyrir árið 2030, sbr. umfjöllun um þá tillögu í Vaktinni 21. apríl sl. þar sem fjallað er um býflugnavænan landbúnað. Þá stendur til nú í framhaldinu að gera könnun á meðal bænda í aðildarríkjunum um hvað það er nákvæmlega sem þeir eru ósáttir við, m.a. í regluverki ESB, svo hægt sé móta aðgerðir til að koma til móts við þá til lengri tíma.

Tilslakanir ESB í þágu bænda nú, m.a. framangreind afturköllun á tillögu um skordýraeitur, þykja bera þess merki að kosningar til Evrópuþingsins eru í nánd. Í kosningabaráttunni sem er fram undan mun Græni sáttmálinn, sem hefur verið eitt að meginstefnumálum núverandi framkvæmdastjórnar, og það regluverk sem þar er undir, verða í brennidepli.

EES-samningurinn tekur eins og kunnugt er ekki til almennu landbúnaðarstefnu ESB en á hinn bóginn tekur samningurinn til matvælalöggjafar ESB sem og til ákveðinna þátta í umhverfislöggjöfinni. Viðbrögð ESB nú geta því snert gildissvið samningsins og fylgjast íslensk stjórnvöld því vel með þróuninni. Þá hafa bændur á Íslandi einnig glímt við versnandi rekstrarskilyrði á undanförnum árum og eru þau að ýmsu leyti af svipuðum meiði og vandi bænda innan ESB.

Ákall iðnleiðtoga um aukna samkeppnishæfni og framfylgd Græna sáttmálans

Þann 20. febrúar sl. afhentu evrópskir iðnrekendur forystu ESB svonefnda Antwerpen yfirlýsingu þar sem stuðningi er heitið við framfylgd iðnaðaráætlunar (e. industrial policy) sem styður við markmið Græna sáttmálans. Belgía fer nú með formennsku í ráðherraráði ESB og veitti Alexander Croo forsætisráðherra henni viðtöku ásamt og Ursulu von der Leyen forseta framkvæmdastjórnar ESB. Yfirlýsingin var undirrituð af 73 iðnrekendum innan ESB og alls 474 aðilum í 20 geirum iðnaðar innan ESB. Yfirlýsingin er mikilvæg í aðdraganda kosninga til Evrópuþingsins því með henni er lýst yfir stuðningi við þá stefnumótun sem felst í Græna sáttmálanum, sem stundum er gagnrýndur fyrir að honum fylgi aukinn kostnaður og íþyngjandi skrifræði, sbr. meðal annars umfjöllun hér að framan um mótmæli bænda og viðbrögð ESB við þeim. Græni sáttmálinn og framfylgd hans hefur verið eitt af megin leiðarstefum núverandi framkvæmdastjórnar ESB síðastliðin fimm ár undir stjórn Ursulu von der Leyen. Með yfirlýsingunni má jafnframt greina skýran stuðning við stafrænu starfsskrána sem framkvæmdastjórnin hefur einnig unnið að sem og við áherslur um opið strategískt sjálfræði ESB, en ítarlega hefur verið fjallað um þessi málefni í Vaktinni á umliðnum misserum.

Iðnrekendurnir kalla eftir margföldun í fjárfestingum í iðnaði innan ESB, í vistvænni orku- og rafmagnsframleiðslu og í tengdri innviðauppbyggingu í samræmi við markmið ESB um kolefnishlutleysi fyrir árið 2050.

Í yfirlýsingunni kemur m.a. fram að iðnaður innan ESB standi frammi fyrir ýmsum áskorunum vegna efnahagslegra þrenginga, aukins framleiðslukostnaðar, minnkandi eftirspurnar og þverrandi fjárfestinga. Þá hafi nýlegar stuðningsaðgerðir við grænan iðnað í Bandaríkjunum og Kína haft áhrif á samkeppnishæfni iðnaðar innan ESB, sbr. til hliðsjónar umfjöllun í Vaktinni 27. janúar 2023 um viðbrögð ESB við stuðningsaðgerðum við grænan iðnað í Bandaríkjunum og umfjöllun um framkvæmdaáætlun Græna sáttmálans og framfylgd hennar í Vaktinni 10. febrúar 2023 og 24. mars sama ár.

Í yfirlýsingunni er stuðningi heitið við stefnumótun ESB um opið strategískt sjálfræði, sbr. umfjöllun um þá stefnu í Vaktinni 24. nóvember sl., sem er álitin nauðsynleg til að tryggja samkeppnishæfni ESB að teknu tilliti til núverandi stöðu heimsmála. Áréttað er að markmiðum ESB verði ekki náð nema fjárfest sé markvisst í iðnaði innan ESB. Án skýrrar iðnaðarstefnu eigi ESB á hættu að verða háð öðrum ríkjum um bæði vörur og hráefni.

Nánar tiltekið er kallað eftir eftirtöldum aðgerðum til að styðja við iðnað innan ESB, þ.e.:

að evrópsk iðnaðarstefna verði í fyrirrúmi í nýrri strategískri stefnu leiðtogaráðs ESB fyrir árin 2024-2029 sem stefnt er að því að samþykkja á fundi ráðsins í júní nk. að afloknum kosningum til Evrópuþingsins,

að aukið verði við enn frekar við opinberar fjárfestingar í grænni tækni fyrir orkufrekan iðnað,

að stutt verði sérstaklega við aukningu í framleiðslu endurnýjanlegra orkugjafa, þar með talið kjarnorku, á viðráðanlegu verði, auk innviða fyrir vetnisorku, rafmagn og aðra græna orkugjafa, sbr. til hliðsjónar umfjöllun um vetnisvæðingu EES hér að framan í Vaktinni,

að sett verði í brennidepil að stórbæta samgönguinnviði, stafræna innviði, orkuinnviði og innviði fyrir endurvinnslu,

að auka og bæta öruggt aðgengi að mikilvægum hráefnum innan ESB með auknum stuðningi við námustarfsemi og hringrásarhagkerfið,

að unnið sé að því auka eftirspurn eftir kolefnishlutlausum eða lágkolefnis vörum,

að innri markaðurinn verði almennt efldur og styrktur,

að stuðningur við nýsköpun í vísinda- og tæknigreinum, við stafvæðingu og að lagaleg vernd á sviði hugverka- og einkaleyfisréttar verði aukin, sbr. til hliðsjónar umfjöllun Vaktarinnar 5. maí sl., um nýjar tillögur á því sviði.

að unnið sé skipulega að einföldun regluverks,

og loks að fyrsta varaforseta framkvæmdastjórnar ESB verði falið að gæta þess miðlægt að iðnaðarsáttmálanum sé hrint í framkvæmd með samræmdum hætti í heild sinni.

Samkomulag um endurskoðun tilskipunar um loftgæði

Þann 20. febrúar sl. náðist samkomulag milli Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB um efni tillögu um endurskoðun tilskipunar um loftgæði sem miðar að því að ná svonefndri núllmengun (e. zero pollution) í andrúmslofti eigi síðar en árið 2050. Gert er ráð fyrir að nýju reglurnar muni bæta loftgæði til muna og stuðla að því að hægt sé að takast á við loftmengun og heilsufarslegar afleiðingar hennar á áhrifaríkan hátt. Sjá umfjöllun um tillöguna í Vaktinni 4. nóvember 2022 þar sem fjallað var um margþættar tillögur framkvæmdastjórnar ESB á sviði mengunarvarnamála.

Helstu atriði samkomulagsins

Samkomulagið felur í sér að settar verði auknar kröfur um bráðabirgðamörk fyrir árið 2030 í formi viðmiðunar- og umhverfismarka í samræmi við ráðleggingar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Kveðið er á um að mörk vegna loftmengandi efna skuli endurskoðuð reglulega þ. á m. vegna svifryks (PM2.5 og PM10), köfnunarefnisdíoxíðs (NO2), brennisteinsdíoxíðs (SO2), bensó(a)pýren, arsen, blýs og nikkels. Árleg viðmiðunarmörk (e. annual limit values) fyrir þau mengunarefni sem hafa mest sannreynd áhrif á heilsu manna munu lækka, t.d. fer PM2.5 úr 25 µg/m³ í 10 µg/m³ og NO2 úr 40 µg/m³ í 20 µg/m³.

Aðildarríki ESB hafa möguleika til 31. janúar 2029, ef sérstakar aðstæður eru fyrir hendi og að uppfylltum ströngum skilyrðum, að óska eftir lengri á fresti til að ná loftgæðaviðmiðunarmörkum (e. air quality limit values). Ef óskað er eftir fresti þurfa aðildarríkin að setja sér loftgæðaáætlanir og sýna fram á að reynt sé til hins ítrasta að ná settum markmiðum.

Í því skyni að tryggja að kröfur samkvæmt loftgæðatilskipuninni séu í samræmi við leiðbeiningar WHO á hverjum tíma er í samkomulaginu skorað á framkvæmdastjórn ESB að taka tilskipunina til endurskoðunar reglulega.

Þá er í samkomulaginu skerpt á reglum um heimildir félagasamtaka og einstaklinga til að láta reyna á ákvæði tilskipunarinnar með málsóknum fyrir dómstólum, eftir atvikum, og um rétt til skaðabóta ef heilsutjón verður rakið til skorts á innleiðingu hennar.

Tillagan gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Sjá nánar um loftmengun í ESB: Staðreyndir og tölur.

Hringrásarhagkerfið – Réttur til viðgerðar

Þann 2. febrúar sl. náðist samkomulag milli Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB um efni tillögu sem gengur undir nafninu tilskipun um rétt til viðgerðar (e. right-to-repair (R2R) directive). Fjallað var um tillöguna í Vaktinni 24. mars sl.

Markmið tilskipunarinnar er auðvelda neytendum að leita eftir viðgerð á vöru þegar bilun eða skemmdir verða í stað þess að kaupa nýja. Tillagan er hluti af tillögupakka framkvæmdastjórnar ESB um hringrásarhagkerfið, sbr. umfjöllun í Vaktinni 1. apríl 2022.

Með samkomulaginu nú er áhersla ESB á hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins undirstrikuð enn á ný. Með því að mæla fyrir um rétt neytenda til viðgerðarþjónustu og skyldu seljenda og framleiðenda vara til að trygga að slík þjónusta sé í boði er vörum gefið nýtt líf um leið og vönduð störf í viðgerðarþjónustu eru sköpuð. Samhliða er dregið úr sóun á náttúrugæðum og myndun úrgangs með tilheyrandi jákvæðum umhverfisáhrifum.

Tillagan gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Samkomulag um breytingar á tilskipun um mengun frá skipum

Evrópuþingið og ráðherraráð ESB náðu þann 13. febrúar sl. samkomulagi um efni tillögu að breytingum á tilskipun um mengun frá skipum. Tillagan er hluti af tillögupakka framkvæmdastjórnar ESB um aukið siglingaöryggi sem fjallað var um í Vaktinni 9. júní sl.

Með breytingunum eru alþjóðlegir staðlar innleiddir í löggjöf ESB m.a. til að tryggja að þeir sem verða uppvísir að ólöglegri losun mengandi úrgangs frá skipum munu sæta viðhlítandi refsingu þannig að varnaðaráhrif löggjafarinnar aukist samfara betri úrræðum landsyfirvalda til að framfylgja reglunum með stjórnsýsluviðurlögum sem og með auknu samstarfi milli aðildarríkjanna og stofnana ESB.

Í samkomulaginu felst m.a. að gerður er skýrari greinarmunur á refsiákvæðum og stjórnsýsluviðurlögum en gert er ráð fyrir að framvegis verði kveðið á um samræmingu refsiákvæða vegna umhverfislagabrota í aðildarríkjunum í endurskoðaðri tilskipun um vernd umhverfis með refsiréttarviðurlögum, en tillaga að endurskoðun þeirrar tilskipunar var lögð fram árið 2021 og er nú til meðferðar í Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Samkomulagið gerir jafnframt ráð fyrir tilteknum sveigjanleika er kemur að skyldum aðildarríkja með tillit til mismunandi aðstæðna í ríkjunum svo sem landfræðilegri stöðu og mismunandi umfangi stofnana.

Tillagan gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Samkomulag um samræmdar reglur um akstur vinnuvéla á vegum

Evrópuþingið og ráðherraráð ESB náðu þann 21. febrúar sl. samkomulagi um efni tillögu að reglugerð um eftirlit og markaðseftirlit með vinnuvélum í ferð á vegum sem almennt eru ekki þar á ferð. Fjallað var um tillöguna í Vaktinni 21. apríl sl..

Með reglugerðinni verða reglur aðildarríkjanna um akstur vinnuvéla (t.d. landbúnaðarvéla af ýmsu tagi og jarðýta) á vegum samræmdar.

Samkomulagið felur m.a. í sér að kveðið er á um nýjan flokk farartækja sem bætist við þá flokkun sem fyrir er í gildandi reglum um ökutæki. Þá er í samkomulaginu m.a. kveðið á um heimildir fyrir yfirvöld til að takmarka umferð sjálfvirkra vinnuvéla og vinnuvéla í yfirstærð ef stærð þeirra takmarkar stjórnhæfi þeirra á vegum og eins ef þyngd þeirra er meiri en samgöngumannvirki þola með góðu móti.

Tillagan gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Aukið gagnsæi á fjármálamörkuðum

Þann 29. júní sl. náðist samkomulag í þríhliða viðræðum um efni tillagna um breytingar á reglum er snúa að gagnsæi í verðbréfaviðskiptum og voru breytingarnar endanlega samþykktar af ráðherraráði ESB 20. febrúar sl.

Breytingarnar miða að því að bæta aðgengi fjárfesta í ESB að viðeigandi upplýsingum þannig að þeim sé betur kleift að taka upplýstar ákvarðanir um fjárfestingar í fjármálagerningum. Er auknu gagnsæi ætlað að efla samkeppnishæfni fjármagnsmarkaða ESB og tryggja jafna samkeppnisstöðu. Breytingarnar ná til reglugerðar og tilskipunar um markaði fyrir fjármálagerninga, MiFIR og MiFID.

Eins og vikið er að hér að framan er helsta markmið reglnanna að auka gagnsæi en í því skyni verður komið á fót vettvangi þar sem upplýsingum um verðbréfaviðskipti er safnað saman og miðlað með einföldum hætti til fjárfesta. Í dag er upplýsingar um verðbréfaviðskipti innan ESB að finna á fjölmörgum stöðum og í mörgum mismunandi kerfum. Með reglunum á að koma á fót miðlægri upplýsingaveitu sem safnar saman upplýsingum frá aðildarríkjunum og mismunandi kerfum og birtir þær eins nærri rauntíma og mögulegt er. Þannig hafi fjárfestar aðgang að nauðsynlegum upplýsingum um verðbréfaviðskipti innan ESB og geti betur áttað sig á verði og magni viðskipta og tímasetningu þeirra.

Nýju reglurnar fela í sér bann við tilteknum umboðsgreiðslum til verðbréfamiðlara (e. payment for order flow), þ.e. að þeim sé greitt fyrir, af hálfu viðskiptavettvanga (e. trading platforms), að beina viðskiptavinum til þeirra. Verða slíkar greiðslur með öllu óheimilar frá 30. júní 2026.

Með breytingunum eru einnig settar nýjar reglur um viðskipti með hrávöruafleiður.

Gerðirnar taka gildi 10. mars nk. í aðildarríkjum ESB en þau hafa 18 mánuði til þess að innleiða breytingar sem felast í tilskipuninni í eigin löggjöf.

Nýjar reglur um sjóði

Framkvæmdastjórn ESB kynnti 25. nóvember 2021 aðgerðapakka til þess að styðja við fjármagnsmarkaði innan sambandsins. Markmiðið er að auðvelda fyrirtækjum að afla fjár innan ESB og tryggja að íbúar sambandsins fái bestu kjör á sparnaði og fjárfestingum. Í pakkanum voru löggjafartillögur um i) eina upplýsingagátt fyrir fjárfesta í ESB, ii) endurskoðun á lagaumgjörð evrópskra langtímafjárfestingarsjóða, ELTIF, iii) endurskoðun á tilskipun um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, AIFMD og iv) endurskoðun á reglugerð um markaði fyrir fjármálagerninga, MiFIR.

Í júlí 2023 náðist bráðabirgðasamkomulag í þríhliða viðræðum um lagabreytingar sem varð tilskipun um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, AIFMD, og umgjörð um UCITS-sjóði. Hinn 26. febrúar sl. samþykkti ráðið svo lagabreytingarnar. Er nýju reglunum ætlað að stuðla að samþættingu eignastýringarmarkaða auk þess sem eftirlitsreglur með sjóðum eru uppfærðar. Með reglunum er möguleikum til lausafjárstýringar fjölgað í þeim tilgangi að stuðla að því að sjóðsstjórar séu í stakk búnir til þess að takast á við mikið útflæði á álagstímum. Reglubreytingin felur einnig í sér breytingu á skilyrðum eignastýrenda til að útvista verkefnum til þriðja aðila með það að markmiði að þeir geti betur nýtt þekkingu annarra en þó undir tryggu eftirliti og með þeim hætti sem tryggir heilindi markaðarins. Þá er í reglunum að finna ákvæði um bætta upplýsingagjöf milli eftirlitsaðila, ákvæði sem eiga að takmarka misvísandi nafnagjöf sjóða og aðgerðir til þess að bera kennsl á óþarfa kostnað sjóða sem yfirleitt er á endanum borinn uppi af fjárfestum.

Tilskipunin tekur gildi 17. mars nk. Aðildarríkin hafa 24 mánuði til þess að taka reglurnar upp innlenda löggjöf.

Fundur sameiginlegu þingmannanefndar EES

Sameiginleg þingmannanefnd Evrópska efnahagssvæðisins kom saman til vikunni, dagana 28.–29. febrúar sl. Nefndin samanstendur af þingmönnum þjóðþinga EES-EFTA ríkjanna, Íslands, Noregs og Liechtenstein, og þingmönnum Evrópuþingsins auk þess sem Sviss á áheyrnarfulltrúa í nefndinni. Að þessu sinni sóttu íslensku þingmennirnir Diljá Mist Einarsdóttir og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir fundinn fyrir hönd Íslands.

Á fundinum var þess minnst að í ár eru 30 ár liðin frá því að EES-samningurinn tók gildi og var framtíð innri markaðarins á þeim tímamótum til umræðu á fundinum. Ávarpaði Enrico Letta, forseti Jacques Delors stofnunarinnar, fundinn og greindi frá inntaki skýrslu sem hann vinnur nú að beiðni leiðtogaráðs ESB að um framtíð innri markaðarins. Viðbrögð við almannavarnaástandi voru einnig til umræðu á fundinum þar sem eldsumbrotin á Íslandi komu m.a. til sérstakrar umræðu og flutti Matthew James Roberts, framkvæmdastjóri Þjónustu- og rannsóknarsviðs Veðurstofu Íslands kynningu á stöðu mála á Reykjanesskaganum. Stuðningur við Úkraínu sem og framgangur aðildarumsóknar ríkisins að ESB, ný löggjöf um gervigreind, nýjar tollareglur á grundvelli sjálfbærnikrafna ESB voru einnig til umræðu.

Þá fór fram, venju samkvæmt, almenn umræða um framkvæmd og þróun EES-samningsins og stöðuna á upptöku ESB-gerða í samninginn og innleiðingu þeirra í landsrétt aðildarríkjanna. Ísland fer nú með formennsku í EES-ráðinu og flutti sendiherra Íslands í Brussel og núverandi formaður fastanefndar EFTA um EES-samstarfið, Kristján Andri Stefánsson, erindi undir þessum dagskrárlið um það sem efst er á baugi við rekstur samningsins frá sjónarhóli EES/EFTA-ríkjanna auk þess sem hann greindi frá þeim viðburðum sem til stendur að efna til í tilefni af 30 ára afmæli EES-samningsins, sbr. nánari umfjöllun í Vaktinni 19. janúar sl. Undir þessum dagskrárlið töluðu einnig fulltrúi framkvæmdastjórnarinnar, Thomas McClenaghan, formaður EFTA-vinnuhóps ráðherraráðs ESB, Michael Mareel, og Árni Páll Árnason, stjórnarmaður í stjórn Eftirlitsstofnunar EFTA.

Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins, í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra. Leiðréttingar, ábendingar og athugasemdir sendist til ritstjóra Vaktarinnar, Ágústs Geirs Ágústssonar, á netfangið [email protected].

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

16. febrúar 2024 | Kolefnishlutlaus tækniiðnaður, kolefnisföngun, sjálfbærnikröfur til fyrirtækja, peningaþvætti, fjármálareglur, Schengen o.fl. o.fl. |
Að þessu sinni er fjallað um:

einföldun regluverks og stuðning við kolefnishlutlausan tækniiðnað

kolefnisföngun og -geymslu

áreiðanleikakannanir á sjálfbærni fyrirtækja

nýja reglugerð um för yfir landamæri

endurskoðun reglna um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

endurskoðun fjármálareglna ESB

ofbeldi gagnvart konum og heimilisofbeldi

neyðarregluverk fyrir innri markaðinn

samevrópsk öryrkjaskírteini og bílastæðakort

aksturs- og hvíldartímareglur fyrir ökumenn hópferðabíla

reglur um rannsóknir sjóslysa

notkun kvikasilfurs

umbætur á reglum um stöðustofnun

aðgengi lítilla og meðalstórra fyrirtækja að fjármagni í ESB

uppfærslu regluverks um evrópska hagskýrslugerð

óformlegan fund ráðherraráðs ESB um samkeppnishæfni og framtíð innri markaðarins

uppfærðan lista yfir forgangsmál í hagsmunagæslu gagnvart ESB

Einföldun regluverks og stuðningur við kolefnishlutlausan tækniiðnað

Þann 6. febrúar sl. síðastliðinn náðist samkomulag milli Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB um efni tillögu framkvæmdastjórnar ESB að reglugerð um kolefnishlutlausan tækniiðnað (e. Net-Zero Industry Act) sem ætlað er að hraða umtalsvert uppbyggingu nauðsynlegs tækniiðnaðar á innri markaðnum til að ná loftslagsmarkmiðum ESB.

Fjallað var um tillöguna í Vaktinni 24. mars sl., sbr. einnig í Vaktinni 10. febrúar sl., þar sem fjallað er um framfylgd framkvæmdaáætlunar Græna sáttmálans (e. Green Deal Industrial Plan for the Net-Zero Age).

Tillagan tengist einnig náið áherslum ESB sem kenndar eru við opið strategískt sjálfræði (e. Open Strategic Autonomy) og hafa að markmiði að tryggja samkeppnishæfni evrópsks iðnaðar, dreifa áhættu í aðfangakeðjum og auka frelsi ESB til athafna á alþjóðavettvangi eins og nánar var fjallað um í Vaktinni 24. nóvember sl., sbr. einnig m.a. umfjöllun í Vaktinni 2. febrúar sl. þar sem fjallað er um tillögur að aðgerðum til að efla efnahagslegt öryggi ESB.

Afstaða EES/EFTA-ríkjanna

EES/EFTA-ríkin, Ísland, Noregur og Liechtenstein, komu á framfæri afstöðu sinni til tillögunnar í sameiginlegu EES/EFTA áliti þann 11. desember sl. Í álitinu var tillögunni fagnað og áhersla lögð á að hún yrði styrkt. Jafnframt var lögð áhersla á að Ísland og Noregur nytu sérstöðu sem forysturíki í þróun tæknilausna sem snúa að föngun, geymslu og förgun kolefnis. Sjá nánari umfjöllun um kolefnisföngun og -geymslu kolefnis hér að neðan í Vaktinni.

Meginatriði samkomulagsins

Samkomulag Evrópuþingsins og ráðherraráðsins styður við öll meginmarkmið tillögunnar auk þess sem hún er styrkt með einfaldari leyfisveitingarferlum, tilkomu iðnaðarsvæða sem tileinkuð verða kolefnishlutleysi og skýrari viðmiðum fyrir útboð og opinber innkaup.

Með samkomulaginu verður gefinn út listi yfir nauðsynlega tækni og viðmið við val á strategískum verkefnum sem stuðla muni að markmiðum um kolefnishlutleysi. Þannig er markmiðið að skapa vissu fyrir fjárfesta og fyrirtæki sem starfa í geiranum. Verkefnin sem verða fyrir valinu munu njóta hraðari leyfisveitinga og bætts aðgengis að lánsfé.

Samkomulagið felur einnig í sér að tímarammi leyfisveitinga fyrir verkefni sem eru stærri en 1 gígavatt verður að hámarki 18 mánuðir. Að sama skapi verður tímaramminn fyrir smærri verkefni (undir 1 gígavatti) að hámarki 12 mánuðir. Styttri tímafrestir munu verða settir fyrir strategísk verkefni. Gætt verður að öryggi verkefnanna auk félagslegra og umhverfisáhrifa verkefna svo þau standist allar viðeigandi kröfur.

Reglugerðin mun styðja við þróun fyrirtækjaklasa á sérstökum iðnaðarsvæðum sem tileinkuð verða kolefnishlutlausri tækni. Svæðunum er ætlað að laða fyrirtæki að ESB og stuðla að enduriðnvæðingu.

Reglugerðin mun kveða á um ramma fyrir opinber innkaup á vörum og þjónustu sem tengist strategískri kolefnishlutlausri tækni. Séð verður til þess að ferlar séu gagnsæir, raunhæfir og samræmdir og stuðli að fjölbreyttu framboði slíkrar tækni á innri markaðnum ásamt því að tryggja viðeigandi sveigjanleika fyrir kaupendur. Reglunum er ætlað að hvetja til opinberra innkaupa á kolefnishlutlausri tækni auk þess sem gerðar eru kröfur um sjálfbærni og viðnámsþrótt.

Auk ofangreinds mun reglugerðin koma á útboðskerfi fyrir kolefnishlutlausa tækni. Unnt verður að gera ófjárhagslegar kröfur í útboðum á borð við sjálfbærni, nýsköpun eða samþættingu við fyrirliggjandi dreifikerfi orku. Slíkar kröfur munu eiga við að minnsta kosti 30% innkaupa á ársgrundvelli í aðildarríkjunum.

Tillagan gengur nú til formlegrar samþykktar á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Kolefnisföngun og -geymsla – Ísland í framvarðasveit að mati ESB

Þann 6. febrúar sl. sendi framkvæmdastjórn ESB frá sér orðsendingu um kolefnisföngun (Industrial Carbon Management Communication) þar sem fjallað er um leiðir til að fanga, geyma og nota kolefni á sjálfbæran hátt með það að markmiði að ná kolefnishlutleysi fyrir árið 2050. Í orðsendingunni er Ísland nefnt sem eitt af fjórum ríkjum í framvarðasveit Evrópu er kemur að geymslu kolefnis í jarðlögum á iðnaðarskala sem sýnir að íslenska fyrirtækið Carbfix og skyld verkefni hafa vakið mikla og verðskuldaða athygli.

Framangreind orðsending og sú stefnumótun sem í henni felst er sett fram í samhengi við NZIA reglugerð sem mælir fyrir um aðgerðir til að styrkja kolefnishlutlausan tækniiðnað (Net-Zero Industry Act), sbr. umfjöllunum þá reglugerð hér að framan í Vaktinni.

Eins og kunnugt er hefur ESB skuldbundið sig til að ná fram kolefnishlutleysi fyrir árið 2050. Enda þótt megin hluti viðleitni í þessa veru sé að draga úr losun kolefnis er einnig horft til þess með hvaða hætti sé unnt að fanga koldíoxíð og fjarlæga það úr andrúmsloftinu til geymslu eða nýtingar eftir atvikum. Er þetta sérlega mikilvægt á þeim sviðum þar sem erfitt og kostnaðarsamt er að draga úr losun.

Kolefnisföngun hefur verið mikið til umræðu á vettvangi ESB og EFTA að undanförnu. Meðal annars efndu Eftirlitsstofnun EFTA og EFTA-skrifstofan í Brussel til ráðstefnu um þróun kolefnisföngunar og geymslu (CCS – Carbon Capture and Storage) þann 30. janúar sl. Kadri Simson, orkumálastjóri ESB, Kristján Andri Stefánsson, sendiherra Íslands í Brussel, og Terje Aasland, orkumálaráðherra Noregs, fluttu ávörp á fundinum. Auk þess tóku Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar Jónína S. Lárusdóttir, forstöðumaður innri markaðs sviðs ESA, og Edda Sif Pind Aradóttir, forstjóri Carbfix, þátt í pallborðsumræðum. Sjá nánar um ráðstefnuna í fréttatilkynningu EFTA-skrifstofunnar.

Í NZIA er lagt upp með að ESB byggi upp geymslugetu fyrir a.m.k. 50 milljónir tonna af koldíoxíði fyrir árið 2030. Byggt á mati á áhrifum á ráðlögðum loftslagsmarkmiðum ESB fyrir árið 2040, mun þessi tala þurfa að hækka í um 280 milljónir tonna árið 2040. Í orðsendingunni er sett fram alhliða stefnumótun til að ná þessum markmiðum.

Í orðsendingunni er fjallað um aðgerðir sem grípa á til á vettvangi ESB og í aðildarríkjunum til að mögulegt verði að beita CCS-tækni (CCS – Carbon Capture and Storage) og til að byggja upp nauðsynlega innviði fyrir sameiginlegan kolefnismarkað í Evrópu á næstu áratugum.

Sjá í þessu samhengi skýrslu sem Sameiginlega rannsóknarmiðstöð framkvæmdastjórnar ESB (Joint Research Centre - JRC) gaf út nýverið um framtíð flutningsinnviða og fjárfestingarþarfir.

Fyrirhugað er að framkvæmdastjórn ESB muni meta magn koldíoxíðs sem þarf að fanga til að mæta markmiðum ESB um samdrátt í losun. Mun þetta væntanlega jafnframt fela í sér mat á því hvernig hægt er að gera grein fyrir flutningi og varanlegri geymslu á kolefni á grundvelli viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir (ETS), sbr. hér.

Sjá í samhengi við framangreint nýja orðsendingu framkvæmdastjórnar ESB um losunarmarkmið fyrir árið 2040, sem einnig var birt 6. febrúar sl., þar sem lagt er mat á mismunandi leiðir til að ná markmiðum í loftlagsmálum fyrir árið 2040 og kolefnishlutleysi fyrir árið 2050.

Tilskipun um áreiðanleikakannanir á sjálfbærni fyrirtækja

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lagði þann 23. febrúar 2022 fram tillögu að tilskipun um áreiðanleikakannanir á sjálfbærni fyrirtækja (e. Corporate Sustainability Due Diligence).

Með tillögunni er lagt til að settar verði skyldur á stórfyrirtæki um að forðast að starfsemi þeirra hafi raunveruleg eða möguleg slæm áhrif á umhverfið eða mannréttindi, m.t.t. viðskiptaaðila á fyrri stigum í aðfangakeðju (e. upstream business partners) og að hluta til m.t.t. viðskipaaðila í fráliggjandi starfsemi (e. downstream activities).

Í tillögunni er einnig lagt til að settar verði reglur um viðurlög og einkaréttarlega ábyrgð vegna brota á framangreindum skyldum. Þá er lagt til að stórfyrirtækjum verði gert að setja sér aðgerðaáætlun til að tryggja að viðskiptamódel og áætlanir þeirra séu í samræmi við Parísarsamkomulagið vegna loftslagsbreytinga.

Lagt er til að fyrirtækjum verði gert skylt að leitast við að greina og afstýra neikvæðum áhrifum af starfsemi þeirra á mannréttindi og umhverfi. Þar getur verið um að ræða mögulega barnaþrælkun, slæman aðbúnað verkamanna, mengandi starfsemi eða starfsemi sem hefur skaðleg áhrif á vistkerfi og líffræðilega fjölbreytni. Gert er ráð fyrir að reglurnar, verði þær að veruleika, skýri réttarstöðu fyrirtækja á þessu sviði um leið og gagnsæi er aukið til hagsbóta fyrir fjárfesta og neytendur.

Samkomulag um efni málsins

Þann 14. desember 2023 náðist pólitískt samkomulag í þríhliða viðræðum milli ráðherraráðs ESB, Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB um efni tillögunnar.

Samkvæmt samkomulaginu mun gildissvið tillögunnar ekki taka miklum breytingum. Gert er ráð fyrir að tilskipunin muni að meginreglu ná til stórfyrirtækja, þ.e. fyrirtækja með 500 starfmenn eða fleiri að meðaltali og meira en 150 milljónir evra í ársveltu.

Tilskipunin mun þó einnig ná til fyrirtækja með 250 starfsmenn eða fleiri að meðaltali og meira en 40 milljónir evra í ársveltu ef 50% eða meira af ársveltunni má rekja til starfsemi í nánar tilteknum geirum atvinnulífsins sem taldir eru áhættusamir. Þar má sem dæmi nefna textíliðnað, landbúnað og námuvinnslu en einnig fiskveiðar og fiskeldi.

Fyrirtæki í þriðju ríkjum (utan EES-svæðisins) sem felld verða undir fyrirhugað regluverk eru þau sem hafa meira en 300 milljónir evra í ársveltu í ESB, samkvæmt mælingu sem gerð verður þremur árum eftir að gerðin öðlast gildi. Framkvæmdastjórn ESB mun birta lista yfir fyrirtæki í þriðju ríkjum sem felld verða undir gerðina.

Fjármálageirinn verður undanskilinn gildissviði gerðarinnar til bráðabirgða. Í tillögunni er hins vegar að finna ákvæði til bráðabirgða um endurmat á gildissviðinu að þessu leyti eftir að fullnægjandi mat á áhrifum hefur farið fram.

Þá felur samkomulagið í sér að ákvæði tillögunnar um skyldur stórfyrirtækja til að setja sér aðgerðaráætlun vegna loftslagsbreytinga verði styrkt.

Þá felst í samkomulaginu að stórfyrirtæki muni þurfa, sem þrautavaraúræði, að binda enda á viðskiptasamband við fyrirtæki sem hafa slæm áhrif á umhverfið eða mannréttindi ef ekki reynist unnt að knýja á um úrbætur til koma í veg fyrir áhrifin.

Málsóknarréttur er veittur þeim sem brot hefur áhrif á (einstaklingum, stéttarfélögum og borgaralegum samtökum) og fyrnist slíkur réttur á fimm árum. Þá er kveðið á um sektir, lögbann, o.fl. í tillögunum.

Lagt er til að unnt verði að tengja fylgni við gerðina við rétt til þess að taka þátt í opinberum útboðum innan ESB.

Óvissa um endanlega afgreiðslu málsins

Eins og alla jafna á við þegar samkomulag í þríhliða viðræðum er kynnt þá er enn eftir nokkur vinna við tæknilegan frágang og textagerð þar sem texti tillögu er færður til samræmis við hið efnislega samkomulag sem gert hefur verið, þannig að unnt sé að taka málið til formlegrar lokaafgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Eins og á við um fleiri mál nú í aðdraganda kosninga til Evrópuþingsins þá hafa verið blikur á lofti um lokaafgreiðslu þessa máls. Atkvæðagreiðslum um lokatexta gerðarinnar á vettvangi sendiherra innan ráðherraráðs ESB hefur ítrekað verið frestað. Á þessu stigi er því ekki fyllilega ljóst hvort málið nái fram að ganga á núverandi kjörtímabili Evrópuþingsins, þar sem tímaramminn til afgreiðslu mála fyrir þinghlé í lok apríl þrengist óðum.

Sjálfbærni í fyrirtækjarekstri hefur verið í umræðunni á Íslandi að undanförnu líkt og víða annars staðar. Meðal annars komu framangreind málefni til umræðu á síðustu janúarráðstefnu Festu, miðstöðvar um sjálfbærni, þar sem Róbert Spanó, fyrrverandi forseti Mannréttindadómstóls Evrópu, flutti m.a. erindi um löggjafarþróun á þessu sviði.

Ný reglugerð um för yfir landamæri

Líkt og fjallað var um í Vaktinni þann 23. desember 2021 lagði framkvæmdastjórn ESB fram tillögu að uppfærðri reglugerð um för yfir landamæri (e. Schengen Borders Code) þann 14. desember s.á. Hinn 6. febrúar sl. náðist loks pólitískt bráðabirgðasamkomulag um tillöguna í þríhliða viðræðum Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB.

Frjáls för yfir innri landamæri Schengen-svæðisins annars vegar og öryggi ytri landamæranna hins vegar eru hornsteinar Schengen-samstarfsins. Uppfærð reglugerð skýtur styrkari stoðum undir þá grundvallarþætti samstarfsins sem að þessu lúta og skýrir sérstaklega reglur um heimildir til að taka upp tímabundið eftirlit á innri landamærum, líkt og víða var gert í kórónuveirufaraldrinum, og er breytingunum ætlað að tryggja að slíkt sé einungis gert í algjörum undantekningartilvikum. Með reglugerðinni er einnig boðið upp á ákveðnar lausnir þegar umsækjendur um vernd eru misnotaðir í pólitískum tilgangi (e. instrumentalisation) og sömuleiðis er kveðið á um heimildir til að grípa til sameiginlegra ferðatakmarkana standi ríkin frammi fyrir heilbrigðisvá á borð við heimsfaraldur.

Misnotkun umsækjenda um vernd í pólitískum tilgangi (e. instrumentalisation)

Uppfærð reglugerð veitir heimildir til handa aðildarríkjunum til að ná styrkari stjórn á ytri landamærum og tryggja öryggi þeirra ef talið er að verið sé að misnota umsækjendur um alþjóðlega vernd í pólitískum tilgangi, t.d. flytja þá að ytri landamærum Schengen-svæðisins til að ógna öryggi þess. Er aðildarríkjunum heimilt í þessum tilvikum að takmarka fjölda landamærastöðva sem eru opnar eða stytta opnunartíma þeirra. Þess má geta að Finnland hefur nýverið beitt aðgerðum af þessu tagi við ytri landamæri sín að Rússlandi.

Upptaka eftirlits á innri landamærum Schengen-svæðisins

Reglugerðin skýrir einnig heimildir aðildarríkja til upptöku eftirlits á innri landamærum svæðisins. Um er að ræða afar erfitt og flókið pólitískt úrlausnarefni fyrir aðildarríkin og Evrópuþingið og hefur gengið erfiðlega að ná saman um þessar reglur undanfarin ár. Aðildarríkjum verður áfram heimilt að grípa til þessa úrræðis en þó einungis ef allt annað þrýtur. Eins þurfa aðildarríkin að tryggja meðalhóf við slíka ákvarðanatöku og meta nauðsyn þess að grípa til eftirlits á innri landamærunum, þ.e. að tryggja að engar aðrar vægari aðgerðir dugi til. Samkvæmt nýju reglunum munu aðildarríkin geta gripið til eftirlits á innri landamærum tafarlaust, standi ríki frammi fyrir ófyrirséðri ógn við öryggi og allsherjarreglu. Tilkynna þarf framkvæmdastjórn ESB um eftirlitið, aðildarríkjunum og Evrópuþinginu samtímis. Þess konar eftirlit er einungis heimilt að tilkynna fyrir einn mánuð í upphafi og framlengja um að hámarki þrjá mánuði. Þegar kemur að upptöku eftirlits á innri landamærum vegna fyrirsjáanlegra ógna er heimilt að tilkynna það til 6 mánaða með heimild til framlengingar um sex mánuði í senn í að hámarki í tvö ár. Í algjörum undantekningartilvikum verður heimilt að framlengja tvisvar sinnum um sex mánuði til viðbótar.

Aðrar aðgerðir sem grípa má til

Í reglugerðinni er jafnframt að finna nýmæli um aðgerðir sem heimilt er að grípa til svo bregðast megi við ólögmætri för einstaklinga sem dvelja ólöglega innan Schengen-svæðisins. Verður aðildarríki heimilt að flytja einstakling, sem dvelur ólöglega innan Schengen-svæðisins, til þess aðildarríkis sem hann kom frá. Flutningar af þessu tagi verða framkvæmdir á grundvelli tvíhliða endurviðtökusamninga sem aðildarríkin munu gera sín á milli.

Valdheimildir ráðherraráðs ESB í ljósi reynslunnar af heimsfaraldri kórónuveiru

Samkvæmt nýrri reglugerð fær ráðheraráðið heimildir til að samþykkja bindandi ákvarðanir um tímabundnar ferðatakmarkanir á ytri landamærum ef um neyðarástand er að ræða. Meðan á kórónuveirufaraldrinum stóð gat ráðherraráðið aðeins gefið út óbindandi tilmæli til aðildarríkjanna. Bindandi ákvarðanir ráðsins geta falið í sér heilsutengdar ferðatakmarkanir eins og skyldu til að gangast undir sýnatöku eða sæta sóttkví og einangrun. Eins er heimilt að undanþiggja ákveðna einstaklinga frá framangreindu, s.s. ríkisborgara EES svæðisins sem njóta frjálsrar farar innan svæðisins, einstaklinga sem hafa langtíma dvalarleyfi innan svæðisins eða njóta alþjóðlegrar verndar.

Tillagan gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag. Gert er ráð fyrir því að reglugerðin taki gildi 30 dögum eftir að hún birtist í stjórnartíðindum Evrópusambandsins. Þar sem reglugerðin flokkast sem þróun á Schengen regluverkinu er hún skuldbindandi fyrir Ísland.

Endurskoðun reglna um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Í framhaldi af aðgerðaáætlun sem kynnt var 7. maí 2020 lagði framkvæmdastjórn ESB fram sérstakan löggjafarpakka um aðgerðir gegn peningaþvætti í júlí 2021. Fjallað var um aðgerðaáætlunina í Vaktinni 30. október 2020 og löggjafarpakkann í Vaktinni 3. september 2021. Í pakkanum eru þrjár tillögur sem eiga að stuðla að meiri samþættingu í aðgerðum gegn peningaþvætti innan ESB. Tillögurnar eru tilskipun um aðgerðir gegn peningaþvætti (AMLD), reglugerð um aðgerðir gegn peningaþvætti (AMLR) og sérstök reglugerð um nýtt eftirlitsstjórnvald um aðgerðir gegn peningaþvætti, sem er þungamiðjan í nýja regluverkinu (AMLA reglugerð, e. anti-money laundering agency).

Hinn 17. janúar sl. var tilkynnt að þingið og ráðið hefðu komist að samkomulagi um efni reglugerðarinnar og tilskipunarinnar. Áður hafði náðst samkomulag milli þingsins og ráðsins um efni AMLA reglugerðarinnar.

Í tillögu framkvæmdastjórnarinnar var gert ráð fyrir að mengi eftirlitsskyldra aðila samkvæmt reglugerðinni yrði nokkuð víðfeðmt og að til þess teldust m.a. fjármálastofnanir, fasteignasalar, eignastýrendur og spilavíti. Samkomulagið sem náðist í síðasta mánuði felur í sér að mengið er víkkað enn frekar út þannig að það nái t.d. til þjónustuaðila sýndareigna, sbr. umfjöllun í Vaktinni 7. júlí 2023 um nýja reglugerð um markaði með slíkar eignir, og atvinnuknattspyrnufélög og – umboðsmenn þeirra. Samkomulagið felur einnig í sér að gera þarf ítarlegri áreiðanleikakönnun í skilgreindum áhættusömum tilvikum. Regluverkið felur í sér samræmdar reglur um raunverulegt eignarhald og setur hámark á leyfilegar greiðslur í reiðufé innan ESB, eða 10.000 evrur. Breytingarnar taka mið af tæknibreytingum sem orðið hafa í fjármálageiranum, svo sem um rafmyntir og sýndareignir, eins og áður segir, og um samtengingu skráa um bankareikninga. Markmið reglugerðarinnar er að samræma reglur um aðgerðir gegn peningaþvætti í ESB til að minnka möguleika á sniðgöngu.

Tilskipunin kveður á um stofnanauppbyggingu eftirlits með peningaþvætti í aðildarríkjum ESB. Haldin verður sérstök samræmd skrá um raunverulegt eignarhald og aðilar sem sæta viðskiptaþvingunum verða merktir sérstaklega. Þá er að finna samræmdar heimildir fyrir rannsóknaraðila fjárhagsbrota í ríkjunum, á borð við skrifstofu fjármálagreininga lögreglu hjá embætti héraðssaksóknara á Íslandi (e. financial intelligence units), til aðgengis að upplýsingum, til dreifingar á upplýsingum og til að stöðva ákveðnar greiðslur meðan þær eru rannsakaðar.

Enn hefur ekki verið ákveðið hvar ný miðlæg ESB stofnun, AMLA, verður staðsett. Fulltrúar þeirra níu borga sem koma til greina, en það eru Róm, Vín, Vilníus, Ríga, Frankfurt, Dyflinn, Madríd, Brussel og París, komu nýverið fyrir Evrópuþingið til að kynna hvað þær hefðu fram að bjóða í því sambandi.

Hlutverk stofnunarinnar verður að hafa beint eftirlit með tilteknum fjármálastofnunum sem starfa í mörgum aðildarríkjum þar sem áhætta er metin mikil eða yfirvofandi. Þá mun hún starfa með eftirlitsstjórnvöldum í aðildarríkjunum og samræma aðgerðir þeirra eftir þörfum.

Tillögurnar ganga nú til formlegrar afgreiðslu í Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Samkomulag um endurskoðun fjármálareglna ESB

Samkomulag náðist í þríhliða viðræðum Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB 10. febrúar sl. um endurskoðun fjármálareglna ESB. Tillögur að breytingum á reglunum voru lagðar fram í apríl sl. og var fjallað um þær í Vaktinni 5. maí sl.

Fjármálareglunum var vikið til hliðar tímabundið til þess að hægt yrði að bregðast við efnahagslegum áskorunum í kjölfar heimsfaraldurs kórónaveiru og miklum hækkunum orkuverðs víða í Evrópu í kjölfar innrásar Rússa inn í Úkraínu. Tilefni þótti til að endurskoða fjármálareglurnar áður en þær tækju gildi aftur til þess að taka á þekktum annmörkum þeirra. Aðildarríki ESB höfðu mismunandi skoðanir á þessari endurskoðun sem endurspeglaði að vissu leyti stöðu ríkisfjármála í hverju landi fyrir sig. Nýjar reglur fela í sér nokkuð sveigjanlegri ramma fyrir ríkisfjármál aðildarríkja ESB en áður gilti.

Samkomulagið sem nú liggur fyrir breytir ekki þeim meginmarkmiðum sem stefnt hefur verið að með endurskoðuninni sem er að lækka skuldahlutföll og halla í ríkisfjármálum aðildarríkjanna jafnt og þétt með raunhæfum, viðráðanlegum leiðum sem jafnframt styðja við vöxt og fjárfestingu í mikilvægum greinum s.s. stafrænni þróun, grænum verkefnum og varnarmálum.

Áfram verður stuðst við skuldaviðmið sem nemur 60% af VLF og 3% afkomuviðmið. Fari ríki umfram það mun framkvæmdastjórn ESB leggja línurnar um hvernig eigi að komast undir viðmiðin á ný á fjórum árum. Samkomulagið felur í sér að áður en að því kemur eigi sér stað viðræður milli framkvæmdastjórnarinnar og viðkomandi aðildarríkis sem um ræðir. Í samkomulaginu felst jafnframt að tekið verði upp sérstakt eftirlitsfyrirkomulag til að fylgjast með því hvort afkoma ríkisins er í samræmi við upplegg framkvæmdastjórnarinnar.

Til að verja og efla samkeppnisstöðu ESB í breyttu alþjóðaskipulagi er talið mikilvægt að fjármálareglurnar hefti ekki óhóflega möguleika aðildarríkjanna til að fjárfesta í tilteknum mikilvægum greinum. Til að mynda verður hægt að óska eftir því að framangreindur fjögurra ára frestur verði framlengdur um þrjú ár ef ríkin ráðast í fjárfestingar og umbætur sem efla viðnámsþrótt, styðja við vaxtargetu, sjálfbærni ríkisfjármála og sameiginleg markmið ESB. Takist aðildarríki ekki að komast undir skuldamarkmið á sjö árum verður heimilt að líta svo á, að skilyrðum uppfylltum, að framgangur þess sé eftir sem áður í samræmi við reglurnar svo lengi sem skuldahlutafallið er á niðurleið.

Tillögurnar ganga nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Fjármálareglur ESB falla vitaskuld ekki undir EES-samninginn. Íslensk stjórnvöld fylgjast þó ávallt náið með þróun mála og umræðu á þessu sviði innan ESB, með hliðsjón af hagsmunum Íslands á innri markaðinum og með hliðsjón sjónarmiðum við efnahagsstjórn á Íslandi og framkvæmd laga um opinber fjármál þar sem m.a. er kveðið á um opinberar fjármálareglur fyrir Ísland.

Ofbeldi gagnvart konum og heimilisofbeldi

Samkomulag náðist í þríhliða viðræðum 6. febrúar sl. um efni nýrrar tilskipunar um baráttuna gegn ofbeldi gagnvart konum og heimilisofbeldi. Um er að ræða fyrstu ESB-löggjöfina á þessu sviði og markar tilskipunin því tímamót.

Fjallað var stuttlega um tillöguna í Vaktinni 18. mars 2022 en markmið hennar er að samræma meginreglur og auka forvarnir á þessu sviði meðal aðildaríkja ESB. Á þetta m.a. við um refsiréttarlega skilgreiningu á hugtakinu nauðgun en í tillögunni er m.a. lagt til að samþykki verði lykilþáttur í skilgreiningu á nauðgun. Fjölmargar aðrar mikilvægar breytingar eru lagar til, svo sem að limlesting á kynfærum kvenna (umskurður), nauðungarhjónabönd, miðlun myndefnis í nánum samböndum, neteinelti o.fl. verði lýst refsivert þvert á aðildaríkin. Sjá nánar um tillöguna í fréttatilkynningu framkvæmdastjórnar ESB frá 8. mars 2022.

Framkvæmdastjórn ESB hefur með sérstakri fréttatilkynningu fagnað því samkomulagi sem nú liggur fyrir. Það varpar þó óneitanlega skugga á málið að ekki náðist samkomulag um framangreinda megintillögu um að samþykki verði samræmt skilgreiningaratriði á hugtakinu nauðgun í hegningarlögum aðildarríkjanna. Er það ennþá skilgreiningaratriði og skilyrði refsingar fyrir nauðgun í mörgum ríkjum sambandsins að ofbeldi í einhverri mynd hafi verið beitt.

Tillagan gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Umrædd tilskipun fellur ekki undir EES-samninginn. Á hinn bóginn hefur verið unnið að endurskoðun þessara mála á Íslandi á umliðnum árum. Þannig var skilgreiningu á nauðgun í almennum hegningarlögum m.a. breytt árið 2018, sbr. lög nr. 16/2018, þannig að hver sá sem hefur samræði eða önnur kynferðismök við mann án samþykkis hans gerist sekur um nauðgun og er sérstaklega undirstrikað að samþykki er aðeins gilt ef það er tjáð af frjálsum vilja. Þá var limlesting á kynfærum kvenna sérstaklega lýst refsiverð með breytingu á almennum hegningarlögum á Íslandi árið 2005, sbr. lög nr. 83/2005. Á allra síðustu árum hafa að auki verið gerðar margvíslegar fleiri breytingar á almennum hegningarlögum sem varða þessi málefni, svo sem lög nr. 8/2021 um kynferðislega friðhelgi, lög nr. 5/2021, um umsáturseinelti, lög nr. 79/2021, um mansal og lög nr. 29/2022, um barnaníðsefni, hatursorðræðu, mismunun o.fl., sbr. einnig lög nr. 40/2022 um breytingu á hjúskaparlögum, um aldur hjónaefna, könnunarmenn o.fl. og lög nr. 43/2023, um breytingu á lögum um heilbrigðisstarfsmenn, um tilkynningar um heimilisofbeldi. Sjá nánar um aðgerðir íslenskra stjórnvalda á þessu sviði í nýrri samantektarskýrslu sem forsætisráðuneytið birti í janúar sl.

Samkomulag um neyðarregluverk fyrir innri markaðinn

Þann 1. febrúar sl. náðist samkomulag milli Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB um efni tillögu að neyðarregluverki fyrir innri markaðinn (e. Single Market Emergency Instrument (SMEI)).

Fjallað var um tillöguna í Vaktinni þann 23. september sl. Tillagan var lögð fram í kjölfar áskorana sem innri markaðurinn hefur staðið frammi fyrir vegna kórónaveirufaraldursins, árásarstríðs Rússlands gagnvart Úkraínu og orkukreppunnar sem fylgt hefur í kjölfarið.

Samkvæmt samkomulaginu mun reglugerðin hljóta nýtt heiti: „Internal Market Emergency and Resilience Act (IMERA)“. Samkomulagið felur einnig í sér að gerðar verði breytingar á ýmissi tengdri löggjöf, m.a. á sviði vöruöryggis og staðla, sem styðja mun við markmið reglugerðarinnar (IMERA Omnibus). Löggjafarpakkanum er í heild sinni ætlað að gera ESB betur kleift að sjá fyrir, undirbúa og bregðast við hættuástandi á innri markaðnum.

Gert er ráð fyrir að komið verði á fót viðvarandi viðbragðs- og viðvörunarkerfi vegna mögulegs hættuástands og þegar hættuástand er talið fyrir hendi sé neyðarregluverkið virkjað til þess að aðildarríkin geti samræmt viðbrögð sín á skilvirkan hátt. Einnig er gert ráð fyrir að komið verði á fót ráðgjafarráði sem ætlað er að aðstoða og styðja við starf framkvæmdastjórnar ESB og aðildarríkjanna á þessu sviði auk þess sem því er ætlað að miðla upplýsingum til Evrópuþingsins.

Skerpt er á því að gildissvið reglugerðarinnar er bundið við aðgerðir sem tengjast innri markaðnum í neyðaraðstæðum og að regluverkið takmarki ekki með neinum hætti sjálfstæðar valdheimildir aðildarríkjanna á sviði þjóðaröryggis.

Samkomulagið gerir einnig m.a. ráð fyrir því að framkvæmdastjórn ESB framkvæmi regluleg álagspróf til að mæla viðnámsþrótt og möguleg áhrif mismunandi aðstæðna á fjórfrelsið.

Auk framangreinds er mælt nánar fyrir um heimildir til að efna til sameiginlegra útboða til innkaupa á vörum og þjónustu sem teljast nauðsynlegar vegna hættuástands sem uppi er og eftir atvikum til samhæfingar við framkvæmd opinberra innkaupa einstaka aðildarríkja.

Tillagan gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Samevrópsk öryrkjaskírteini og bílastæðakort

Þann 8. febrúar náðist pólitískt samkomulag milli ráðherraráðs ESB og Evrópuþingsins um tilskipun um evrópska öryrkjaskírteinið og evrópska bílastæðakortið. Eins og greint var frá í Vaktinni 15. september sl. er tilgangur gerðanna að auðvelda fólki með fötlun frjálsa för, með því að tryggja að þeim standi til boða sami réttur til þjónustu og forgangs og fólki með fötlun stendur til boða í viðkomandi ríki. Tilskipunin er hluti af aðgerðaráætlun Evrópusambandsins fyrir árin 2021-2030 um réttindi fólks með fötlun sem á að tryggja framfylgd samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks í Evrópu og á einnig að styðja við markmið félagslegu réttindastoðarinnar. Í fréttatilkynningu frá ráðherraráðinu kemur fram að samkvæmt samkomulaginu er gert ráð fyrir því að gildissvið tilskipunarinnar um öryrkjaskírteinin verði útvíkkað nokkuð frá því sem upphafleg tillaga gerði ráð fyrir. Þannig er nú gert ráð fyrir því að reglurnar gildi ekki eingöngu fyrir ferðamenn, eins og upphaflega var ætlunin heldur einnig fyrir þá einstaklinga með fötlun sem nýta einhverja af áætlunum ESB til að stunda nám eða störf í einhverju aðildarríkjanna utan heimalands síns. Einnig er gert ráð fyrir því að aðildarríkjunum sé frjálst að útvíkka gildissviðið enn frekar en rétt er að taka fram að tilskipunin nær ekki til lífeyrisgreiðslna eða félagslegrar aðstoðar sem fatlaðir kunna að eiga rétt á í sínu heimalandi. Þó má geta þess að samkvæmt fréttatilkynningu European Disability Forum, evrópskra regnhlífasamtaka öryrkjabandalaga, sem send var út í tilefni af samkomulaginu er greint frá því að framkvæmdastjórn ESB hafi lýst sig reiðubúna til þess að skoða möguleika á því að öryrkjaskilríkin geti tekið til flutnings á frekari réttindum öryrkja milli aðildarríkja. Aðildarríkin, hvert fyrir sig, munu standa straum af kostnaði við innleiðingu gerðarinnar og útgáfu kortanna sem verða bæði í föstu og stafrænu formi en gert er ráð fyrir að útgáfan verði endurgjaldslaus eða gegn mjög hóflegu gjaldi.

Hvað samræmdu evrópsku bílastæðakortin varðar þá er gert ráð fyrir að þau komi alfarið í stað þeirra korta sem ríkin gefa nú út til íbúa sinna og verða þau fyrst um sinn einvörðungu í föstu formi en aðildarríkin geta samhliða gefið þau út í stafrænu formi kjósi þau það.

Sjá nánar um tilskipunina í fréttatilkynningu sem framkvæmdastjórn ESB sendi frá sér í tilefni af samkomulaginu.

Tillagan gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Aksturs- og hvíldartímareglur fyrir ökumenn hópferðabíla

Evrópuþingið og ráðherraráð ESB náðu þann 29. janúar sl. samkomulagi um efni tillögu að breytingum á aksturs- og hvíldartímareglum ökumanna í fólksflutningum. Breytingarnar miða m.a. að því að bæta umferðaröryggi og vinnuaðstæður ökumanna með auknum sveigjanleika og betri þjónustu við ferðamenn með því að heimila frávik frá reglunum þegar bílstjórar sinna tilfallandi hópferðaflutningum. Hámarks vinnutími og lágmarks hvíldartími helst þó óbreyttur.

Breytingarnar fela í sér að heimilt verður að:

skipta lágmarkshvíldartíma í tvær 45 mín lotur yfir 4,5 tíma aksturstíma.

fresta daglegum hvíldartíma um eina klukkustund að því gefnu að heildaraksturstími fari ekki yfir 7 klst. Leyfilegt er að nýta þennan sveigjanleika einu sinni í ferðum sem taka 6 daga og tvisvar ef ferðin tekur að minnsta kosti 8 daga.

fresta vikulegum hvíldartíma í allt að 12 samliggjandi daga eftir vikulegan hvíldartíma.

Kveðið er á um þróun stafræns viðmóts fyrir skrásetningar á viðeigandi upplýsingum vegna eftirfylgni og eftirlits með framkvæmd reglnanna. Þar til undirbúningi vegna stafrænnar skráningar er lokið þurfa bílstjórar að skrá niður upplýsingar án tengingar við miðlæga ökuritakerfið og hafa þær aðgengilegar fyrir eftirlitsaðila. Í samkomulaginu felst einnig að kveðið er skýrar á um eftirlit og viðurlagaheimildir ef á reynir, m.a. að því ríki þar sem brot á sér stað sé heimilt að refsa fyrir það þó svo að starfsstöð ökumanns sé í öðru aðildarríki.

Tillagan gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Samkomulag um breytingar á reglum um rannsóknir sjóslysa

Evrópuþingið og ráðherraráð ESB komust þann 13. febrúar sl. að samkomulagi um efni tillögu að breytingum á reglugerð um rannsókn sjóslysa. Tillagan er hluti af tillögupakka framkvæmdastjórnar ESB um aukið siglingaöryggi sem fjallað var um í Vaktinni 9. júní sl.

Markmið tillögunnar er að einfalda og skýra núverandi reglur um rannsókn sjóslysa. Gildissvið rannsókna er víkkað út auk annarra breytinga sem samræmir gerðina við fánaríkis- og hafnarríkiseftirlit með fiskiskipum.

Nánar tiltekið eru helstu markmið breytinganna eftirfarandi:

Að auka öryggi fiskiskipa, áhafna og umhverfisins með samræmdri kerfisbundinni rannsókn á dauðaslysum og skipssköðum.

Að skýra gildissvið gerðarinnar.

Að auka getu rannsóknanefnda til að rannsaka og gefa út vandaðar óháðar skýrslur tímanlega.

Að uppfæra ýmsar skilgreiningar til samræmis við tengda löggjöf ESB og IMO (Alþjóðasiglingamálastofnunin) og tilvísanir í aðra löggjöf ESB og IMO til að auka skýrleika gerðarinnar.

Aðrar breytingar miða að því að styrkja sjálfstæði rannsóknanefnda, tryggja trúnað aðila við skýrslugerð og einfalda regluverkið sem þær starfa eftir.

Nánar tiltekið snúa breytingarnar að því að:

færa reglurnar til samræmis við reglur IMO um tilkynningarskyldu þegar grunsemdir vakna um að brot hafi verið framið.

samræma reglurnar við aðra löggjöf ESB svo sem við tilskipun um öryggisbúnað skipa.

innleiða valkvætt ákvæði um gæðakerfi fyrir rannsóknir og leiðbeiningar um notkun þess.

innleiða samræmdan tveggja mánaða frest til að gera bráðabirgðarannsókn á slysum minni fiskiskipa.

Tillagan gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Samkomulag um að hætta notkun kvikasilfurs

Þann 8. febrúar sl. náðist samkomulag milli Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB um efni reglugerðartillögu um að fasa út kvikasilfur í ESB. Tillagan felst í því að hætta notkun tannsilfurs (amalgams) í áföngum og banna framleiðslu, innflutning og útflutning á fjölda kvikasilfursbættra vara, þ. á m. tiltekinna lampa og ljósapera með það að lokamarkmiði að notkun kvikasilfurs verði alfarið hætt í ESB.

Í Vaktinni 18. mars 2022 var sagt frá því að ráðherraráð ESB hefði samþykkt tvær ákvarðanir sem tengjast afstöðu ESB til Minamata samningsins um kvikasilfur. Ísland er aðili að samningnum og eru ákvæði hans innleidd á EES-svæðinu með reglugerð Evrópuþingsins og ráðráðherraráðs ESB um kvikasilfur. Minamata samningurinn var undirritaður árið 2013 til að vernda heilsu manna og umhverfið gegn skaðlegum áhrifum kvikasilfurs. Reglugerð ESB um kvikasilfur, (ESB) 2017/852, gegnir lykilhlutverki við að ná markmiðum samningsins og stuðla að markmiði ESB um að takmarka og hætta notkun, framleiðslu og útflutningi á kvikasilfri og vörum sem innihalda kvikasilfur.

Í júlí 2023 lagði framkvæmdastjórn ESB til markvissa endurskoðun á reglugerðinni til að takast á við þá notkun á kvikasilfri sem enn er til staðar í ESB í samræmi við aðgerðaráætlun ESB um núllmengun (e. Zero pollution action plan). Kvikasilfur er hættulegt umhverfi og heilsu. Hingað til hefur stefna ESB átt stóran þátt í að draga verulega úr notkun kvikasilfurs og útsetningu fólks og umhverfis fyrir þessu mjög svo eitraða efni. Nú er eins og áður segir stefnt að því að hætta notkun þess alfarið.

Helstu atriði samkomulagsins eru:

Gildandi reglur banna notkun tannsilfur við tannviðgerðir barna yngri en 15 ára, barnshafandi kvenna og kvenna með barn á brjósti. Samkomulagið sem náðst hefur miðar við að bannið nái til allra sjúklinga frá og með 1. janúar 2025, með tilteknum tímabundnum undantekningum þó.

Enn fremur var samþykkt að frá og með 1. janúar 2025 verði bannað að flytja út tannsilfur og jafnframt að framleiðsla og innflutningur þess verði óheimil frá 30. júní 2026, með tilteknum tímabundnum undantekningum þó.

Auk þess fela breytingarnar í sér áform um leiðir til að takmarka losun kvikasilfurs út í andrúmsloftið frá líkbrennsluofnum og mun framkvæmdastjórnin, eigi síðar en 31. desember 2029, endurskoða framkvæmdina og áhrif leiðbeininga í aðildarríkjum um hvernig megi draga úr losun frá líkbrennsluofnum

Frá og með 31. desember 2025 og 31. desember 2026, verður sett bann á framleiðslu og inn- og útflutningi á tilteknum tegundum ljósapera sem innihalda kvikasilfur.

Tillagan gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Samkomulag um umbætur á reglum um stöðustofnun

Samkomulag náðist í þríhliða viðræðum Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB um endurskoðun á reglugerð og tilskipun um OTC-afleiður, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár (e. The European market infrastructure regulation and directive, EMIR) 7. febrúar sl. Tillaga að endurskoðun reglugerðarinnar var lögð fram í desember 2022 og er hluti af aðgerðaráætlun til að styrkja fjármálamarkaði í ESB (e. Capital markets Union).

Endurskoðun á EMIR er ætlað að gera stöðustofnun (e. clearing) í ESB meira aðlaðandi og auka viðnámsþrótt. Stöðustofnun er hugtak sem er notað í afleiðuviðskiptum og merkir ferlið við að stofna stöður, þ.m.t. útreikning á hreinni skuldbindingu, og við að tryggja að fjármálagerningar, reiðufé, eða hvort tveggja, sé til staðar í viðskiptum til að tryggja áhættuskuldbindingar sem leiða af þeim stöðum. Gildandi reglur um stöðustofnun hafa fælt fjárfesta frá ESB til annarra landa og er það liður í efnahagsáætlun ESB að laða viðskiptin til sambandsins.

Í samkomulaginu felast breytingar sem eiga að gera það raunhæft fyrir eftirlitsaðila að beita einfaldari eftirlitsaðgerðum. Jafnframt er markmiðið að styrkja samvinnu, samræmingu og upplýsingaskipti milli eftirlitsaðila og Evrópsku verðbréfaeftirlitsstofnunarinnar (ESMA). ESMA fær ýmis ný hlutverk, t.d. hlutverk samræmingaraðila þegar upp koma neyðartilvik en ákvarðanataka liggur áfram hjá eftirlitsstjórnvaldi í hverju ríki. Þá er kveðið á um eins konar greiðslureikning (e. active account requirement) þar sem ákveðnir mótaðilar verða skyldugir til þess að halda reikning hjá miðlægum mótaðila innan ESB, t.d. svo hægt sé að eiga viðskipti fyrir hans hönd með stuttum fyrirvara. Sett verður upp sérstakt sameiginlegt eftirlitskerfi (e. joint monitoring mechanism) með þessum greiðslureikningum.

Tillögurnar ganga nú til formlegrar afgreiðslu í Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Samkomulag um reglur til að auðvelda litlum og meðalstórum fyrirtækjum aðgengi að fjármagni í ESB

Í september 2020 birti framkvæmdastjórnin aðgerðaráætlun til þess að styrkja fjármagnsmarkaði í Evrópusambandinu (e. Capital markets Union). Í áætluninni eru 16 aðgerðir tilgreindar og miðar ein þeirra að því að auka aðgengi fyrirtækja að fjármagni á fjármálamörkuðum (e. Listing Act package). Samkomulag hefur nú náðst, 1. febrúar sl., í þríhliða viðræðum Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB, um tvær gerðir í þessum pakka.

Annars vegar er um að ræða tillögu að tilskipun um skráningu verðbréfa á fjármagnsmarkaði. Markmið tillögunnar er að draga úr aðgangshindrunum og kostnaði og fjölga þannig mögulegum leiðum fyrir fyrirtæki innan ESB til að sækja sér fjármagn. Tilskipunin nær til fyrirtækja af öllum stærðum en sérstök áhersla er lögð á að bæta aðgengi lítilla og meðalstórra fyrirtækja að fjármagni. Þetta er gert t.d. með því að draga úr kröfum um upplýsingagjöf, einfalda útboðslýsingar og slaka á reglum um hvernig upplýsingar um fjárfestingakosti eru veittar og af hverjum.

Hins vegar er um að ræða tillögu að tilskipun um mismunandi atkvæðafjölda hluthafa í litlum og meðalstórum fyrirtækjum (e. directive on multiple vote share structures). Miða breytingar samkvæmt tillögunni fyrst og fremst að því að stofnendur fyrirtækja geti haft aukinn atkvæðisrétt umfram nýja fjárfesta eftir skráningu á markað. Þetta fyrirkomulag er talið hvetjandi fyrir eigendur lítilla og meðalstórra fyrirtækja til skráningar fyrirtækjanna á markað svo þeir missi ekki yfirráð yfir fyrirtæki sínu við skráninguna. Eftir sem áður er sérstaklega hugað að réttindum nýrra fjárfesta og aðgengi þeirra að upplýsingum í tengslum við beitingu á umræddum auknum atkvæðarétti. Í samkomulaginu felst að gildissvið reglnanna verði útvíkkað þannig að reglurnar munu gilda á fleiri fjármagnsmörkuðum en skilgreindum vaxtarmörkuðum fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Evrópsku verðbréfastofnuninni verður falið að setja tæknistaðla um hvernig best sé að merkja og tilgreina hlutabréf með mismunandi atkvæðavægi.

Tillögurnar ganga nú til formlegrar afgreiðslu í Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Evrópsk hagskýrslugerð

Þann 1. febrúar sl. náðist samkomulag í þríhliða viðræðum Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB um efni tillögu um breytingar á reglugerð um evrópska hagskýrslugerð.

Núgildandi regluverk er frá árinu 2009 og er megin markmið breytinganna nú að uppfæra það til samræmis við þau umfangsmiklu stafrænu umskipti sem nú eiga sér stað og hafa mikil áhrif á opinbera hagskýrslugerð eins og aðra þætti opinberrar stjórnsýslu.

Tillagan gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Óformlegur fundur ráðherra ESB ríkja um samkeppnishæfni og framtíð innri markaðarins

Dagana 8. - 9. febrúar sl. blés belgíska formennskan í ráðherraráði ESB til óformlegs ráðherrafundar um framtíð innri markaðarins og samkeppnishæfni ESB á alþjóðavettvangi. Fundurinn var haldinn í tækni- og nýsköpunarklasanum Thor Park í Genk í Belgíu. Fundurinn var sóttur af ráðherrum aðildarríkja ESB sem bera ábyrgð á samkeppnishæfni auk fulltrúa frá öllum EFTA ríkjunum. Kristján Andri Stefánsson sendiherra sótti fundinn fyrir Íslands hönd.

Á fundinum var meðal annars rætt um viðnámsþrótt evrópsks iðnaðar og hlutverk ríkisaðstoðar í því samhengi og hvernig tryggja megi betur opið strategískt sjálfræði ESB. Þá var rætt um nýsköpunarmál, bætt viðskiptaumhverfi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki, einföldun regluverks, grænu og stafrænu umskiptin og bætta reglusetningu ESB.

Skýrsla Enrico Letta um framtíð innri markaðarins.

Meðal dagskrárliða á fundinum í Genk var vinnufundur með Enrico Letta, fyrrum forsætisráðherra Ítalíu, en hann vinnur nú að beiðni leiðtogaráðs ESB að gerð skýrslu um framtíð innri markaðarins sem von er á nú í vor.

Kveikjan að skýrsluskrifunum er breytt heimsmynd í kjölfar Covid-19 faraldursins, árásarstríðs Rússlands í Úkraínu og aukinnar spennu í alþjóðasamskiptum sem hefur haft í för með sér ýmsar áskoranir á innri markaðnum. Áhrif þessa má m.a. sjá í aukinni áherslu ESB á opið strategískt sjálfræði og eflingu efnahagslegs öryggis ESB, sbr. m.a. umfjöllun í Vaktinni 24. nóvember sl. um strategískt sjálfræði ESB og þróun innri markaðarins. Þá hafa grænu og stafrænu umskiptin hafa talsverð áhrif á innri markaðinn.

Á fundinum ræddi Kristján Andri Stefánsson sendiherra við Enrico Letta um skýrslugerðina og lagði meðal annars áherslu á mikilvægi EES-samningsins fyrir Ísland og þátttöku Íslands í innri markaði ESB.

Uppfærður listi yfir forgangsmál Íslands í hagsmunagæslu gagnvart ESB

Ríkisstjórnin samþykkti hinn 9. febrúar sl. uppfærðan lista yfir forgangsmál í hagsmunagæslu Íslands gagnvart Evrópusambandinu (ESB).

Þar sem kosningar til Evrópuþingsins fara fram í júní nk. og ný framkvæmdastjórn ESB verður skipuð í kjölfarið var tekin ákvörðun um að uppfæra og framlengja gildistíma forgangslista 2022-2023 fram á mitt ár 2024, eða til loka skipunartímabils núverandi framkvæmdastjórnar. Næsta heildarendurskoðun á forgangslistanum mun þannig fara fram við upphaf skipunartímabils nýrrar framkvæmdastjórnar þegar helstu línur liggja fyrir um stefnu hennar.

Drög að uppfærðum forgangslista voru birt í samráðsgátt stjórnvalda 29. nóvember sl. Umsagnir bárust frá Landsvirkjun, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Samtökum iðnaðarins ásamt sameiginlegri umsögn frá Samtökum atvinnulífsins, Samtökum verslunar og þjónustu, Viðskiptaráði Íslands og Samtökum ferðaþjónustunnar. Tekið hefur verið tillit til þeirra sjónarmiða sem koma fram í umsögnunum við uppfærslu listans eða verða þau höfð til hliðsjónar í hagsmunagæslunni. Þá var listinn kynntur utanríkismálanefnd Alþingis 31. janúar sl. og hann loks samþykktur í ríkisstjórn eins og áður segir.

Ný mál hafa verið sett á listann og stöðu annarra breytt í samræmi við stöðu þeirra í lagasetningarferli ESB eða upptökuferli EES. Af málum sem eru ný á listanum má nefna tillögu að reglugerð um þróun valfrjáls vottunarramma sambandsins fyrir fjarlægingu kolefnis, tillögu að reglugerð sem mælir fyrir um aðgerðir til að styrkja kolefnishlutlausan tækniiðnað (e. Net Zero Industry Act), sbr. umfjöllun um þá gerð hér að framan í Vaktinni, tillögu að reglugerð um mikilvæg hráefni (e. Critical Raw Materials Act) og tillögu sem varðar fráveitur og hreinsun á skólpi frá þéttbýli.

Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins, í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra. Leiðréttingar, ábendingar og athugasemdir sendist til ritstjóra Vaktarinnar, Ágústs Geirs Ágústssonar, á netfangið [email protected].

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

02. febrúar 2024 | Efnahagslegt öryggi ESB og langtímastuðningur við Úkraínu |
Að þessu sinni er fjallað um:

tillögur að aðgerðum til að efla efnahagslegt öryggi ESB

aukafund leiðtogaráðs ESB og langtímastuðning við Úkraínu

fráveitur og hreinsun skólps

lokafrágang nýrrar reglugerðar um gervigreind

gæði og öryggi blóðs, fruma og vefja úr mönnum sem notað er í lækningaskyni

CO2 losunarkröfur til þungra ökutækja

markaðsreglur fyrir gas og vetni

morgunverðartilskipanir

Evrópsk samstarfsráð í fyrirtækjum

óformlegan fund atvinnu- og félagsmálaráðherra

Tillögur að aðgerðum til að efla efnahagslegt öryggi ESB

Hinn 24. janúar sl. lagði framkvæmdastjórn ESB fram umræðuskjöl og tillögur að aðgerðum sem miða að því að efla efnahagslegt öryggi sambandsins. Tillögupakkinn tekur mið af nýrri efnahagsöryggisáætlun ESB sem kynnt var síðastliðið sumar, sbr. umfjöllun í Vaktinni 22. júní sl. og eru tillögurnar hluti af víðtækri þriggja þátta nálgun ESB um það hvernig efla megi efnahagslegt öryggi, þ.e. að i) efla samkeppnishæfni ESB, ii) verja efnahagslífið gegn hættum og iii) efla samstarf við önnur ríki til að gæta sameiginlegra hagsmuna.

Með fylgir orðsending til Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB þar sem umræðuskjölin og tillögurnar eru kynnt heildstætt en meginmarkmið pakkans er að leita leiða til að tryggja efnahagslegt öryggi um leið og reynt er að viðhalda frjálsum viðskiptum og rannsóknum í þeim viðsjárverðu aðstæðum sem nú ríkja í heimsmálum.

Um er að ræða eftirfarandi tillögur og umræðuskjöl:

Tillögu að reglugerð um samræmt rýniferli erlendra fjárfestinga innan ESB (e. Screening of foreign investments in the Union).

Hvítbók um fjárfestingar í þriðju ríkjum (e. White Paper on Outbound Investments).

Hvítbók um útflutningseftirlit (e. White Paper on export controls)

Hvítbók um valkosti við að efla stuðning við rannsóknir og þróun á tækni sem unnt er að nota í tvíþættum tilgangi (e. White Paper on options for enhancing support for research and development involving technologies with dual-use potential).

Tillögu að tilmælum ráðherraráðs ESB um aukið öryggi rannsókna og rannsóknarniðurstaðna (e. Enhancing research security).

Enda þótt framangreindar tillögur og málefnasvið sem umræðuskjölin lúta að falli að meginstefnu til utan gildissviðs EES-samningsins þá kunna málefnin sem þar er fjallað um að varða hagsmuni Íslands í margvíslegu tilliti. Fókusinn er á mögulegt aukið eftirlit, reglusetningu og takmarkanir á inn- og útflutning og þar þarf Ísland að gæta að stöðu sinni á öllum stigum. Sama gildir er kemur að samstarfi á sviði rannsókna og nýsköpunar en á þeim vettvangi er Ísland virkur aðili með þátttöku í mörgum samstarfsáætlunum ESB. Sjá í þessu samhengi umfjöllun í Vaktinni 24. nóvember sl. um strategískt sjálfræði ESB og þróun innri markaðarins.

Nánar um framangreindar tillögur og umræðuskjöl:

Tillaga að reglugerð um samræmt rýniferli erlendra fjárfestinga innan ESB hefur það að markmiði að innleiða samræmt rýniferli vegna erlendra fjárfestinga í öllum aðildarríkjum ESB sem og að mæla fyrir um samræmdar reglur um það hvenær slík rýni skuli viðhöfð. Reglugerðin felur í sér breytingu á núgildandi regluverki ESB um erlendar fjárfestingar. Þá er lagt til að fjárfestingar af hálfu fyrirtækja sem þegar eru með staðfestu innan ESB en eru raunverulega talin í eigu eða undir stjórn ríkja utan ESB muni undirgangast sambærilega rýni og nýjar fjárfestingar frá aðilum utan ESB.

Markmið Hvítbókar um fjárfestingar í þriðju ríkjum er að efna til umræðu og athugunar á fjárfestingum ESB í hátæknigreinum í þriðju ríkjum með hliðsjón af þeim auknu áhyggjum sem uppi eru af því að slík hátækni geti verið nýtt til að styrkja hernaðar- eða njósnagetu aðila sem eru andsnúnir ESB og kynnu að vilja nota slíka tækni gegn ESB eða til þess að grafa undan friði eða öryggi í heiminum almennt. Fjárfestingar af þessu tagi lúta, eins og staðan er nú, engu sérstöku eftirliti, hvorki af hálfu stofnana ESB eða aðildarríkjanna. Lagt er til að ráðist verði í sérstaka greiningu á þessum fjárfestingum meðal aðildarríkjanna, m.a. með sérstöku opnu samráðsferli við haghafa, en því samráðsferli hefur þegar verið hrint af stað, og í kjölfarið verði gefin út áhættumatsskýrsla. Á grundvelli hennar muni framkvæmdastjórnin í samráði við aðildarríkin meta hvort þörf sé á sérstökum viðbrögðum.

Markmið Hvítbókar um útflutningseftirlit er að kynna tillögur að auknu eftirliti með útflutningi frá ESB á vörum sem nota má í skilgreindum tvíþættum tilgangi, þ.e. bæði í borgaralegum og hernaðarlegum tilgangi (e. dual use), t.d. háþróaðri rafeindatæknivöru. Er lagt til að tekið verði upp samræmt eftirlit innan ESB með ákveðnum útflutningsvörum sem falla í þennan flokk. Í gildi er reglugerð um vörur af þessu tagi frá árinu 2021 og er nú stefnt að endurskoðun hennar árið 2025.

Markmið Hvítbókar um valkosti við að efla stuðning við rannsóknir og þróun á tækni sem hægt er að nota í tvíþættum tilgangi er að leita leiða hvernig best verði staðið að stuðningi við slíkar rannsóknir í ljósi vaxandi áskorana á alþjóðasviðinu. Í þessu skyni hefur hvítbókin m.a. verði birt í opnu samráði í samráðsgátt ESB og er umsagnarfrestur þar til 8. maí nk. Í hvítbókinni er m.a. fjallað um núverandi fjármögnunarleiðir slíkra rannsókna í gegnum rannsóknarsjóði ESB og samstarfsáætlanir eins og Horizon Europe og þann lagaramma sem um þær gilda og er markmið hvítbókarinnar m.a. að leggja mat að það hvort þær séu fullnægjandi eða hvort breytinga sé þörf.

Tillaga að tilmælum ráðherraráðs ESB um aukið öryggi rannsókna og rannsóknaniðurstaðna er sett fram til að mæta sífellt auknum áhyggjum um að opið og landamæralaust samstarf í rannsóknum kunni að vera misnotað eða notað gegn ríkjum ESB. Tilmælunum er ætlað að styðja við og leiðbeina aðildarríkjunum og rannsóknarsamfélaginu í heild til að takast á við áskoranir og samræma aðferðafræði á þessu sviði.

Langtímastuðningur við Úkraínu

Leiðtogaráð ESB kom saman til sérstaks aukafundar í gær, 1. febrúar.

Meginefni fundarins var fyrirliggjandi tillögupakki framkvæmdastjórnar ESB um endurskoðun fjármálaáætlunar ESB fyrir árin 2021 – 2027 sem lagður var fram 20. júní sl. Er þetta í fyrsta skipti sem slík endurskoðun á langtíma fjármálaáætlun sambandsins er lögð til á miðju tímabili. Ástæðan er fyrst og fremst árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu og þær áskoranir og alvarlegu afleiðingar sem það hefur haft í för með sér.

Stefnt hafði verið að því að leiðtogaráðið tæki afstöðu til tillögupakkans á fundi leiðtogaráðsins 14. og 15. desember sl. Það tókst hins vegar ekki, eins og þekkt er, vegna andstöðu forsætisráðherra Ungverjalands, Victor Orbáns, við efni tillögunnar er lítur að langtímastuðningi við Úkraínu.

Fundurinn nú var því einskonar framhald af fundi ráðsins í desember þar sem m.a. var samþykkt að hefja aðildarviðræður við Úkraínu og Moldóvu auk þess sem ákveðið var að veita Georgíu stöðu umsóknarríkis. Sjá í því samhengi umfjöllun um stækkunarstefnu ESB í Vaktinni 10. nóvember sl.

Eins og vikið er að hér að framan fela tillögur framkvæmdarstjórnarinnar í sér að tekin verði langtímaákvörðun um stuðning við Úkraínu auk þess sem það er m.a. sérstakt markmið hennar að skjóta fjárhagslegum stoðum undir nýjan tækniþróunarvettvang ESB (e. Strategic Technologies for Europe Platform - STEP), sem ætlað er spila stórt hlutverk við eflingu á samkeppnishæfni ESB, sbr. umfjöllun um STEP í Vaktinni 23. júní sl. Þá felast í endurskoðuninni tillögur um hækkun fjárhagsramma til fleiri verkefna og málefnasviða svo sem flóttamannamála. Sjá nánar um helstu atriði í tillögu framkvæmdastjórnar ESB frá 20. júní sl. hér.

Merki voru um það í aðdraganda fundarins að leiðtogarnir væru að færast nær því að ná samkomulagi um málið. Þannig gaf það t.d. tiltekin fyrirheit þegar sendiherrar aðildaríkjanna á vettvangi ráðherraráðs ESB samþykktu afstöðu til tillögu er lítur að fyrirkomulagi langtímastuðnings við Úkraínu þann 10. janúar sl. en þann sama dag var einnig samþykkt afstaða til fyrirliggjandi löggjafartillögu um STEP. Ekkert virðist þó hafa verið fyllilega í hendi, ekki opinberlega hið minnsta, þegar leiðtogarnir komu saman til fundar í gær og því var nokkur spenna í loftinu.

Skemmst er frá því að segja að á fundinum náðist einróma niðurstaða um endurskoðunina í heild sinni með tilteknum breytingum. Í ályktun fundarins er lýst stuðningi við tillögur um langtímastuðning við Úkraínu þar sem gert er ráð fyrir fjárhagslegum stuðningi upp á 50 milljarða evra á næstu fjórum árum. Í samkomulaginu felst að framkvæmdastjórn ESB verður gert að gefa út árlega skýrslu um framkvæmd fjárhagsaðstoðarinnar og að þær skýrslur verði teknar til umræðu í leiðtogaráðinu ef tilefni er til. Jafnframt er kveðið á um að leiðtogaráðið muni, eftir tvö ár, kalla eftir því við framkvæmdastjórn ESB að hún taki fjármálaáætlunina til endurskoðunar með hliðsjón af þeim ályktunum leiðtogaráðsins sem þá munu liggja fyrir. Ljóst virðist að ályktanir um framangreinda skýrslugjöf og endurskoðun voru teknar inn til að tryggja stuðning forsætisráðherra Ungverjalands og þær fela þó ekki í sér að honum verði kleift að taka greiðslur á tímabilinu í gíslingu eins og hann lagði upphaflega upp með heldur gildir sú niðurstaða sem leiðtogaráðið samþykkti í dag, sbr. framangreint, út tímabilið.

Í framhaldi af samþykkt leiðtogaráðsins liggur fyrir Evrópuþinginu og ráðherraráði ESB að álykta um og afgreiða tillögur sem lúta að framangreindri endurskoðun og er þess vænst að afgreiðsla þeirra mála náist á næstu vikum eða fyrir þinghlé í lok apríl nk.

Fráveitur og hreinsun skólps

Þann 29. janúar sl. náðist samkomulag milli Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB um efni tillögu að heildarendurskoðun tilskipunar um fráveitur og hreinsun skólps frá þéttbýli (e. urban wastewater treatment).

Fjallað var um tillöguna í Vaktinni 4. nóvember 2022, sbr. einnig umfjöllun í Vaktinni 10. mars sl., þar sem fjallað var um afstöðu íslenskra stjórnvalda til málsins, sbr. afstöðuskjal sem Ísland lagði fram við meðferð málsins hjá stofnunum ESB.

Endurskoðun tilskipunarinnar er ein af lykilaðgerðum samkvæmt aðgerðaráætlun ESB um núllmengun (e. Zero pollution action plan) og er markmið hennar að koma í veg fyrir að skaðleg efni eins og örplast verði losuð út í umhverfið.

Núgildandi tilskipun um hreinsun skólps frá þéttbýli er frá árinu 1991. Samkvæmt henni ber að tryggja að skólp frá þéttbýli sem losar yfir 2.000 persónueiningar (pe) sé safnað og meðhöndlað í samræmi við tilteknar lágmarkskröfur. Í úttekt framkvæmdastjórnar ESB frá árinu 2019 á framkvæmd tilskipunarinnar undanfarna þrjá áratugi var leitt í ljós að framkvæmdin hefur reynst árangursrík við að draga úr mengun vatns og bæta meðhöndlun skólps á þeim þéttbýlissvæðum sem hún tekur til.

Ísland hefur fylgst náið með framgangi tillögunnar frá því að hún var lögð fram í október 2022 og hefur áherslum Íslands verið komið á framfæri. Þó að Ísland styðji metnaðarfull markmið tilskipunarinnar, sérstaklega varðandi vernd ferskvatns og hafs, hefur Ísland lagt áherslu á að nauðsynlegt sé að hafa sveigjanleika í tilskipuninni til að mæta aðstæðum í strjálbýlu landi eins og Íslandi þar sem aðstæður séu oft á tíðum afar ólíkar því sem gengur og gerist á meginlandi Evrópu. Hefur þannig verið lögð áhersla á að taka þurfi tillit til sérstakra aðstæðna að þessu leyti til að kostnaður verði í samræmi við aukinn ávinning fyrir umhverfið þannig að framkvæmd tilskipunarinnar verði hagkvæm og raunhæf.

Gert er ráð fyrir að endanleg drög að texta tillögunnar í samræmi við samkomulagið liggi fyrir innan nokkurra vikna. Þá verður hægt að greina textann betur m.t.t. áherslna Íslands. Með fyrirvara um endanlega útfærslu á textanum þá virðist þó sem þær breytingar sem samkomulagið felur í sér komi nokkuð til móts við athugasemdir sem íslensk stjórnvöld hafa haft uppi í málinu, svo sem að halda inni ákvæðum sem lúta að síður viðkvæmum viðtökum losun frá minni þéttbýlum í strandsjó, lengri tímafrestum og að tilteknar undanþágur séu heimilaðar, að gætt sé að tengingu við stjórn vatnamála og að áhættumat og áhættustjórnun verði beitt og liggi til grundvallar forgangsröðun og ákvörðunum um meðhöndlun skólps.

Meðal helstu breytinga sem ný tilskipun mun fela í sér, sbr. framangreint samkomulag, eru eftirfarandi:

Gildissvið tilskipunarinnar
Lagt er til að gildissvið tilskipunarinnar verði víkkað út þannig að hún taki til fráveitna með 1.000 persónueiningum (pe) í staðinn fyrir 2.000 pe samkvæmt gildandi tilskipun. Í þessu felst að skylt verður að setja upp söfnunar- og hreinsikerfi fyrir fráveitu skólps frá slíku þéttbýli og verður frestur til að uppfylla þessa skyldu til ársins 2035. Í fyrirliggjandi samkomulagi felst þó að bætt er við tilteknum undanþágum fyrir fráveitur smærri þéttbýlisstaða sem losa í strandsjó eða síður viðkvæma viðtaka (e. less sensitive areas).

Áætlanir um stjórn fráveitumála
Kveðið er á um skyldu aðildarríkja til að setja fram áætlanir um stjórn fráveitumála fyrir stærri þéttbýlisvæði sem endurskoða skal á sex ára fresti í samræmi við tilskipun um stjórn vatnamála.

Skólphreinsun
Skylda til að beita svonefndri tveggja þrepa hreinsun áður en skólp er losað út í umhverfið er útvíkkuð þannig að hún nái til allra þéttbýlisstaða sem losa yfir 1.000 pe og skulu kröfur þar að lútandi uppfylltar fyrir árið 2035. Í framhaldi af því er gert ráð fyrir því að skylda til að viðhafa þriggja og síðan fjögurra þrepa hreinsun verði innleidd í áföngum. Tilteknar undanþágur verða heimilaðar fyrir smærri þéttbýlisstaði.

Framlengd framleiðendaábyrgð
Til að standa straum af þeim viðbótarkostnaði sem mun fylgja fjórða þreps hreinsun er gert ráð fyrir því að framleiðendum lyfja og snyrtivara, sem hafa mengun í för með sér, verði gert að greiða að lágmarki 80% af kostnaði við þá viðbótarhreinsun sem þar um ræðir.

Orkuhlutleysi og endurnýjanleg orka
Gerðar verða kröfur um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda við starfrækslu fráveitu- og skólphreinsistöðva. Gert er ráð fyrir að frá og með árinu 2045 verða hreinsistöðvar í þéttbýli færar um að framleiða orku úr endurnýjanlegum orkugjöfum sem til falla í starfseminni sem muni mæta kröfum um orkuhlutleysi þeirra að hluta a.m.k.

Tillagan gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Lokafrágangur nýrrar reglugerðar um gervigreind

Bráðabirgðasamkomulag í þríhliða viðræðum Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB um efni tillögu að nýrri reglugerð um gervigreind náðist í desember.

Fjallað var um tillöguna í Vaktinni 9. júní sl. en eins og þar er rakið þá hefur málið verið á aðgerðalista framkvæmdastjórnar ESB allt núverandi skipunartímabil hennar eða frá árinu 2019, sbr. jafnframt umfjöllun í Vaktinni 4. mars 2020, þar sem fjallað var um Hvítbók um gervigreind og í Vaktinni 24. nóvember sl. þar sem fjallað var um siðareglur fyrir þróunaraðila gervigreindar.

Tekist hefur verið á um málið á vettvangi ESB en eftir strangar samningaviðræður dagana 6. - 8. desember sl. var tilkynnt þann 9. desember að samkomulag hefði náðst um meginefni málsins, sbr. fréttatilkynningar þar um frá ráðherraráði ESB, Evrópuþinginu og framkvæmdastjórn ESB.

Helstu breytingar sem framangreint samkomulag felur í sér eru eftirfarandi:

Gildissvið og skilgreining gervigreindartækni. Kveðið er skýrar á um skilgreiningu gervigreindar og um heimilaðan tilgang stórra gervigreindarlíkana og -kerfa, sem hafa burði til að hafa mikil áhrif og skapa mikla áhættu. Er tekið mið af skilgreiningu OECD í þessu sambandi. Miðar skilgreiningin að því að greina stór gervigreindarlíkön og -kerfi frá veigaminni hugbúnaði, sem einungis er talinn geta falið í sér takmarkaða áhættu. Eru meiri kröfur, eðli málsins samkvæmt, gerðar til hinar fyrrnefndu tegundar gervigreindarkerfa. Gervigreindartækni sem talin er hafa takmarkaða áhættu í för með sér þarf að sæta minni kvöðum en tækni með meiri áhættu sem er háð strangari reglum.

Jafnframt er kveðið skýrar á um að reglugerðinni er ekki ætlað að takmarka heimildir opinberra stjórnvalda í aðildarríkjunum til notkunar gervigreindar til að tryggja þjóðaröryggi og varnarhagsmuni. Þá eru gerðar undanþágur fyrir gervigreindarkerfi sem hönnuð eru í rannsóknar- og nýsköpunartilgangi eingöngu.

Stjórnkerfi gervigreindarmála. Ákvæði um stjórnkerfi gervigreindarmála eru skýrð og valdheimilum sem unnt er að beita af hálfu stofnanna ESB, m.a. í formi sektarviðurlaga, bætt við. Gert er ráð fyrir að m.a. verði sett á fót ný gervigreindarskrifstofa innan framkvæmdastjórnar ESB (e. AI Office) sem sinnir þessum málum.

Fjölgun bannákvæða. Bannákvæðum, þ.e. ákvæðum þar sem lagt er bann við notkun gervigreindartækni, er fjölgað á grundvelli þess að óviðunandi áhætta er talin geta fylgt notkun á því sviði, svo sem beitingu gervigreindar til að hafa óeðlileg áhrif á hugræna atferlismótun (e. cognitive behavioural manipulation) eða til að greina tilfinningar einstaklinga á vinnustað eða í skólum eða með svonefndri félagslegri einkunnagjöf (e. social scoring) o.fl.

Líffræðileg auðkenning úr fjarlægð. Löggæsluyfirvöld í aðildarríkjunum munu njóta sérstakra undanþága þegar kemur að tilteknum þáttum reglugerðarinnar. Þannig gerir samkomulagið m.a. ráð fyrir að þeim verði heimilt, að uppfylltum ströngum skilyrðum og á grundvelli laga sem sett eru um slíkt eftirlit í aðildarríkjunum, að nýta sér svonefnda líffræðilega auðkenningu úr fjarlægð (e. Remote biometric identification - RBI) en það er þegar gervigreindarkerfi eru nýtt til að bera kennsl á einstaklinga úr fjarlægð með því að bera saman einstök líffræðileg auðkenni þeirra við upplýsingar úr gagnagrunni, t.d. með andlitsskönnun eða raddgreiningu.

Aukin réttindi almennings og neytenda. Mælt er fyrir um aukin réttindi almennings og neytenda til að leggja fram kvartanir og fá efnislega úrlausn þeirra ef þeir telja að reglur laganna séu sniðgengnar. Í þessu samhengi gerir samkomulagið m.a. ráð fyrir að fram fari mat á áhrifum nýrra áhættumikilla gervigreindarkerfa á grundvallarréttindi einstaklinga áður en þau eru sett á markað.

Virðiskeðja, ábyrgðarskipting og samspil við aðra löggjöf. Í samkomulaginu er leitast við að skýra nánar skiptingu ábyrgðar og hlutverka milli hinna ýmsu aðila sem koma að framleiðslu gervigreindarlíkana og -kerfa sem og veitenda og notenda slíkra kerfa og enn fremur að skýra betur samspil reglugerðarinnar við almennar persónuverndarreglur (General Data Protection Regulation, GDPR), reglur um stjórnun gagna (Data Governance Act), reglur um gögn (Data Act) og svokallaða NIS-tilskipun um öryggi net- og upplýsingakerfa o.fl.

Eins og alla jafna á við þegar samkomulag í þríhliða viðræðum er kynnt þá er enn eftir nokkur vinna við tæknilegan frágang og textagerð þar sem texti tillögu er færður til samræmis við hið efnislega samkomulag sem gert hefur verið, þannig að unnt sé að taka málið til formlegrar lokaafgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Framangreindur lokafrágangur í þessu máli hefur á hinn bóginn reynst torsóttari en gengur og gerist. Af fréttaflutningi að dæma virðist sem tafir í málinu megi helst rekja til ágreinings um endanlega útfærslu ákvæða um líffræðilega auðkenningu úr fjarlægð, sbr. umfjöllun um þann þátt samkomulagsins hér að framan, en fleiri atriði tillögunnar hafa þó einnig verið til frekari skoðunar.

Upphaflega stóð til að texti gerðarinnar yrði tilbúinn fyrir áramót og lá textaskjal til lokaafgreiðslu fyrir 22. desember sl. Þegar til kom reyndist þó ekki samstaða um að ljúka málinu á þeim grundvelli. Nýtt textaskjal leit dagsins ljós 22. janúar sl. og var sú útgáfa tekin fyrir og samþykkt að fundi sendiherra aðildarríkjanna fyrr í dag, 2. febrúar sl. og má gera ráð fyrir því að málið sé þar með útkljáð. Formleg afgreiðsla málsins er þó enn eftir á Evrópuþinginu.

Gæði og öryggi blóðs, fruma og vefja úr mönnum sem notað er í lækningaskyni

Þann 14. desember sl. náðist samkomulag á milli Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB um efni tillögu framkvæmdarstjórnar ESB að nýrri reglugerð um gæði og öryggi blóðs, fruma og vefja úr mönnum sem notað er í lækninga- og rannsóknaskyni. Í daglegu tali gengur reglugerðin undir heitinu SoHo sem er skammstöfun á ensku orðunum „substances of human origin“.
Er reglugerðinni ætlað að leysa af hólmi tvær eldri tilskipanir um sama efni, tilskipun nr. 2002/98/EC, um öryggi og gæði blóðs og blóðhluta úr mönnum, og tilskipun nr. 2004/23/EC, um öryggi og gæði vefja og fruma. Ákveðið var að ráðast í endurskoðun á gildandi lagaramma til að endurspegla betur þá þróun sem orðið hefur í líftækni og vísindum á þessu sviði og tryggja betur öryggi og vernd þeirra sem gefa blóð, frumur og vefi í lækningaskyni sem og þeirra sjúklinga sem njóta þeirra gjafa. Jafnframt er nýju regluverki ætlað að styðja betur við rannsóknir og nýsköpun á þessu sviði.
Þá miðar reglugerðin að því að samræma stjórnsýslu og eftirlit á vegum aðildaríkjanna á þessu sviði. Helstu breytingar þar að lútandi eru eftirfarandi:

Á vettvangi ESB verður sett upp SoHo samhæfingarstjórn (e. EU SoHo coordination board) og er henni ætlað að gegna lykilhlutverki við innleiðingu reglugerðarinnar.

Kynntar verða sameiginlegar verklagsreglur ESB um veitingu leyfa og mat á efnum og efnablöndum sem ætlaðar eru til klínískra nota.

Gerð verður krafa um að í aðildarríkjunum sé til staðar lögbært landsyfirvald á þessu sviði.

Settar verða viðbótarkröfur um útgáfu starfsleyfa og eftirlit með aðilum sem vinna með blóð, frumur og vefi úr mönnum, geyma slík efni eða flytja þau á milli staða.

Settur verður á laggirnar sameiginlegur rafrænn upplýsingavettvangur um SoHo tengd málefni (e. EU SoHo Platform) til að skrá og skiptast á upplýsingum.

Í reglugerðinni er lögð áhersla á að standa vörð um þá mikilvægu grunnforsendu sem starfsemi á þessu sviði byggir á, þ.e. um sjálfboðaliðana sem gefa blóð, frumur og vefi af fúsum og frjálsum vilja. Lagt er bann við því að hafa áhrif á gefendur með fjárhagslegum hvötum. Lifandi gjöfum er þó heimilt að þiggja viðeigandi þóknun enda sé það í samræmi við ákvæði laga í viðkomandi ríki.

Loks er í reglugerðinni kveðið á um einskonar neyðarviðvörunarkerfi (e. rapid alerts system) til að geta tekist á við alvarleg tilvik sem upp koma og eru líkleg til að skapa hættu fyrir bæði gjafa og þega. Þá er jafnframt gerð krafa um að ríkin fylgist vel með innlendu framboði, m.a. með gerð neyðaráætlana til að geta brugðist við mögulegum skorti.

Tillagan gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Samkomulag um CO2 losunarkröfur til þungra ökutækja

Evrópuþingið og ráðherraráð ESB náðu þann 18. janúar sl. samkomulagi um efni tillögu að nýrri reglugerð um takmörkun CO2 útblásturs frá nýjum stórum og þungum ökutækjum. Fjallað var um tillöguna þegar hún kom fram í Vaktinni 24. febrúar 2023 en hún er liður í stefnu sambandsins um að ná kolefnishlutleysi fyrir árið 2050. Sjá einnig til hliðsjónar umfjöllun í Vaktinni 4. nóvember 2022 þar sem fjallað var um samkomulag um kolefnishlutleysi fólks- og sendibifreiða.

Samkomulagið felur í sér að gildissvið reglugerðarinnar verði víkkað út frá því sem upphaflega var áformað, þannig að markmið hennar um samdrátt í losun nái til allra nýskráðra þungra ökutækja, þ.m.t. minni trukka, fólksflutningabifreiða í borgum, hópferðabifreiða, vagna (trailers) o.fl.

Þó er gert ráð fyrir tilteknum undantekningum, þ.e. fyrir:

smærri framleiðendur ökutækja

ökutæki sem notuð eru fyrir námugröft, skógarhögg og akuryrkju.

ökutæki fyrir her og slökkvilið

ökutæki fyrir löggæslustarfsemi, almannavarnir og heilbrigðisstarfsemi

Í tillögunni eru sett markmið um samdrátt í losun um 45% fyrir 2030, 65% fyrir 2035 og 90% fyrir 2040 samanborið við losun 2019. Samkomulagið hróflar ekki við þessum almennu markmiðum. Hins vegar felur samkomulagið í sér að horfið er frá því undirmarkmiði sem sett var fram í tillögunni um að samdráttur í losun hjá nýskráðum almenningsvögnum skuli nema 90% strax árið 2030 og að þeir skuli vera kolefnislausir árið 2035. Þess í stað mælir samkomulagið fyrir um að almenningsvagnar skuli felldir undir almennu markmiðin eins og önnur ökutæki sem reglugerðin tekur til.

Í samkomulaginu er gert ráð fyrir að sett verði inn ákvæði um að árangur af framkvæmd reglugerðarinnar skuli metinn árið 2027. Felur það m.a. í sér að kveðið er á um að framkvæmdastjórnin skuli skoða hvort fýsilegt sé að þróa samræmt verklag til þess að meta losun kolefnis yfir líftíma nýrra þungra ökutækja.

Tillagan gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Sjá nánar um samkomulagið í fréttatilkynningu ráðherraráðs ESB og í fréttatilkynningu framkvæmdastjórnar ESB.

Gaspakkinn - markaðsreglur fyrir gas og vetni

Til að tryggja orkuöryggi í Evrópu lagði framkvæmdastjórn ESB í desember 2021 fram pakka af tillögum, sem hluta af framfylgd Græna sáttmálans, til að draga úr kolefnislosun á gasmarkaði og auðvelda upptöku endurnýjanlegra og lágkolefnislofttegunda, þ.m.t. vetnis. Um er að ræða lykilráðstafanir til að ná markmiðum um kolefnishlutleysi í ESB fyrir árið 2050 og draga úr losun um að minnsta kosti 55% fyrir árið 2030. Tillögunum fylgdi stefnumótandi framtíðarsýn sem sett er fram í orkukerfisáætlun ESB og vetnisáætlun ESB.

Hinn 8. desember sl. náðist samkomulag í þríhliða viðræðum milli Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB um efni reglugerðar sem kveður á um sameiginlegar innri markaðsreglur fyrir endurnýjanlega orkugjafa, jarðgas og vetni. Tilgangur reglugerðarinnar er að liðka fyrir dreifingu og notkun endurnýjanlegrar orku og lágkolefnislofttegunda, einkum vetnis og lífmetans (e. biomethane).

Tillagan gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Morgunverðartilskipanir

Í vikunni náðist samkomulag milli Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB um efni tillögu framkvæmdastjórnar ESB þar sem lagðar eru til breytingar á tilskipunum sem nefndar hafa verið morgunverðartilskipanir ESB en markmið þeirra er að tryggja hollustu tiltekinna afurða sem gjarnan sjást á morgunverðarborðum íbúa sambandsins og hjálpa neytendum að taka upplýstar ákvarðanir og tryggja gagnsæi varðandi uppruna umræddra vara.

Um er að ræða breytingar á fjórum tilskipunum og eru helstu breytingar sem samkomulag hefur nú náðst um eftirfarandi:

Um hunang: Skylt verður tilgreina upprunaland vörunnar á umbúðum, ef varan er blanda af innihaldsefnum frá fleiri löndum þarf að tilgreina hlutfall hvers lands upp að vissu marki.

Um ávaxtasafa og hliðstæðar vörur: Lagðar eru til breytingar á reglum um merkingar til að endurspegla vaxandi eftirspurn eftir sykurskertum vörum í þessum flokki og er gert ráð fyrir að þremur nýjum flokkum merkinga verði bætt við: „sykurskertur ávaxtasafi“, „sykurskertur ávaxtasafi úr ávaxtaþykkni“ og „sykurskert ávaxtaþykkni“. Að auki verður rekstraraðilum heimilt að nota merkinguna „ávaxtasafi inniheldur einungis náttúrulegan sykur“ ef við á.

Um ávaxtasultur: Lagt er til að lágmarksinnihald ávaxta í ávaxtasultum verði hækkað um 10 prósentustig frá því sem nú er í venjulegum ávaxtasultum þannig að ávaxtainnihald þurfi að vera a.m.k. 45% af innihaldi. Jafnframt er lögð til 5% hækkun á lágmarksinnihaldi ávaxta í ávaxtameiri sultum (e. extra jam) þannig að lágmarks ávaxtainnihald þeirra verði 50%. Þessi aukning á lágmarks ávaxtainnihaldi er hugsuð til að minnka hlutfall viðbætts sykurs í sultum.

Um mjólkurduft: Lagt er til að framleiðsla á laktósafríu mjólkurdufti verði heimiluð.

Tillagan gengur til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Endurskoðun tilskipunar um Evrópsk samstarfsráð í fyrirtækjum

Í síðastliðinni viku kynnti framkvæmdastjórn ESB tillögu að endurskoðaðri tilskipun um Evrópsk samstarfsráð í fyrirtækjum.

Tilskipun um Evrópsk starfsmannaráð er í grunninn frá árinu 2009 og er henni ætlað að stuðla að jafnræði og bættum félagslegum réttindum starfsmanna í stórum fjölþjóðlegum fyrirtækjum innan ESB. Í tilskipuninni er mælt fyrir um rétt starfsmanna í fyrirtækjum og fyrirtækjasamstæðum sem hafa 1000 starfsmenn eða fleiri og eru starfrækt í tveimur eða fleiri aðildarríkjum til að stofna sérstakt samstarfsráð (e. European Works Council) sem er ætlað að vera vettvangur fyrir samráð og skoðanaskipti um þverþjóðleg málefni milli starfsmanna og fulltrúa vinnuveitanda.

Með endurskoðun tilskipunarinnar nú er verið að bregðast við gagnrýni og veikleikum sem þykja hafa komið í ljós við framkvæmd hennar m.a. varðandi það hvaða málefni sé skylt bera undir slík samstarfsráð, hvernig samráðsferli skuli hagað og hvaða leiðir starfsmenn hafi til að leita úrlausnar ef þeir telja að reglum tilskipunarinnar sé ekki fylgt. Þá þykir hafa skort á samræmi milli aðildarríkjanna er kemur að beitingu viðurlaga við brotum. Evrópsk verkalýðsfélög hafa kallað eftir endurskoðun tilskipunarinnar og það hefur Evrópuþingið einnig gert, sbr. ályktun Evrópuþingsins frá 2. febrúar sl.

Lagt er til að staða samstarfsráðanna verði styrkt meðal annars með því að mæla fyrir um víðtækari rétt starfsmanna til að stofna til slíkra samstarfsráða, skýrari ákvæði eru sett um það hvaða mál sé skylt að fjalla um og með hvaða hætti auk þess sem sett eru ákvæði sem ætlað er að stuðla að jöfnu hlutfalli kynjanna í slíkum ráðum sem og samninganefnda á þeirra vegum.

Tillagan gengur nú til umfjöllunar á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Tillagan hefur samhliða verið birt í samráðsgátt ESB og er umsagnarfrestur til 26. mars nk.

Óformlegur fundur atvinnu- og félagsmálaráðherra

Dagana 11. - 12. janúar fór fram í Namur í Belgíu óformlegur fundur ráðherra á vettvangi ráðherraráðs ESB sem bera ábyrgð á atvinnu- og félagsmálum. Ráðherrum EES/EFTA-ríkjanna var boðið til fundarins og tók Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra þátt í fundinum fyrir Íslands hönd.

Megináhersla fundarins var á megingildi hinnar félagslegu réttindastoðar ESB (European Pillar of Social Rights), sbr. m.a. umfjöllun um fimm ára afmæli réttindastoðarinnar í Vaktinni 18. nóvember 2022. Fjölmargar tillögur og gerðir hafa verið settar fram á undanförnum árum á grundvelli réttindastoðarinnar og má þar nefna reglur á sviði vinnuverndar, svo sem vinnutímatilskipunina, sem hefur verið innleidd í íslenskan rétt og tilskipunar um gagnsæ og fyrirsjáanleg skilyrði á vinnumarkaði auk þeirra tveggja tilskipana sem nú eru helstar í umræðunni á sviði vinnuréttar, þ.e. tillögu að tilskipun um réttindi starfsmanna sem sinna störfum með milligöngu stafrænna vettvanga, sbr. umfjöllun um þá tillögu í Vaktinni nú síðast 19. janúar sl. auk nýlegrar tilskipunar um lágmarkslaun, sbr. umfjöllun í Vaktinni 9. september 2022.

Á fundinum var m.a. rætt um hvað hefði tekist vel og hvað síður og voru ráðherrarnir hvattir til að hugleiða hvernig mætti þróa réttindastoðina áfram til frekari velsældar í Evrópu að teknu tilliti til þeirra áskorana sem uppi eru vegna lýðfræðilegra breytinga og þeirra grænu og stafrænu umskipta sem framundan eru. Rætt var um áskoranir á vinnumarkaði til framtíðar vegna skorts á hæfu starfsfólki og hugsanlegar leiðir til að bregðast við þeim skorti en nýlega var kynntur aðgerðapakki sem m.a. er ætlað að bregðast við þessum áskorunum og bæta samkeppnishæfni Evrópu, sbr. umfjöllun í Vaktinni 24. nóvember sl. Þá var umræða um samheldni og félagslegt réttlæti og hvernig ESB geti stuðlað að slíku jafnt innan sem utan Evrópu.

Aðalframkvæmdastjóri Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO), Gilbert Houngbo ávarpaði ráðherrafundinn og gerði grein fyrir tillögu sinni „Global coalition for social Justice“ sem stjórn Alþjóðavinnumálastofnunarinnar samþykkti í nóvember sl. og er ætlað að vera vettvangur pólitískra aðgerða fyrir verkefni sem stuðla að félagslegu réttlæti og mannsæmandi vinnu. Þátttakendur á fundinum lýstu almennt yfir stuðningi sínum við framtakið og Belgar og fulltrúar nokkurra annarra aðildarríkja notuðu tækifærið og tilkynntu að þau myndu taka þátt í samstarfinu.

Á fundinum átti Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, nokkra tvíhliða fundi, m.a. með Oksönu Zholnovych félagsmálaráðherra Úkraínu, þar sem hún þakkaði fyrir veittan stuðning og lagði áherslu á mikilvægi þess að þjóðir heimsins, þar á meðal Ísland haldi áfram sínum mikilvæga stuðningi við Úkraínu.

Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins, í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra. Leiðréttingar, ábendingar og athugasemdir sendist til ritstjóra Vaktarinnar, Ágústs Geir Ágústssonar, á netfangið [email protected].

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

19. janúar 2024 | Formennska Íslands í fastanefnd EFTA og 30 ára afmæli EES-samningsins |
Að þessu sinni er fjallað um:

formennsku Íslands í fastanefnd EFTA og 30 ára afmæli EES-samningsins

formennskuáætlun Belga

málefni flótta- og farandfólks

Schengen-aðild Búlgaríu og Rúmeníu

reglugerð um fjölmiðlafrelsi

endurbætur á regluverki raforkumarkaðar

útvíkkun netöryggislöggjafarinnar

nýjan losunarstaðal, EURO 7, fyrir ökutæki

byggingavörur og hringrásarhagkerfið

tafarlausar millifærslur í evrum

vinnuskilyrði starfsmanna sem sinna störfum með milligöngu stafrænna vettvanga

„Daisy chains“ tillögur

stjórnsýslu jafnréttismála

yfirlýsingu framkvæmdastjórnar ESB um heilbrigðissamstarf

lista yfir mikilvæg lyf til að sporna gegn lyfjaskorti

Formennska Íslands í fastanefnd EFTA og 30 ára afmæli EES-samningsins

Ísland tók við formennsku í fastanefnd EFTA (e. EFTA Standing Committee) 1. janúar sl.

Formennska í fastanefndinni gengur á milli EES/EFTA-ríkjanna þriggja, Íslands, Liechtensteins og Noregs og er formennskutímabilið sex mánuðir í senn. Nefndin er skipuð sendiherrum EES/EFTA-ríkjanna og er megin hlutverk hennar að samræma afstöðu ríkjanna gagnvart ESB áður en gerðir eru teknar upp í EES-samninginn á vettvangi sameiginlegu EES-nefndarinnar.

Formennskuáætlun og áherslur Íslands fyrir komandi tímabil eru birt á vefsíðu EFTA-skrifstofunnar.

Ber þar hæst 30 ára afmæli samningsins um Evrópska efnahagsvæðið en þann 1. janúar sl. voru 30 liðin frá því að samningurinn tók gildi. Af því tilefni birtu Josep Borrell utanríkismálastjóri ESB, og Maroš Šefčovič, sem báðir eru meðal varaforseta framkvæmdastjórnar ESB, á nýársdag sameiginlega yfirlýsingu þar sem EES-samningnum er m.a. lýst sem fyrirmynd að farsælu samstarfi við önnur náin samstarfsríki. Jafnframt sendu utanríkisráðherrar EES/EFTA-ríkjanna frá sér sameiginlega yfirlýsingu á nýársdag þar sem tímamótanna og farsæls reksturs EES-samningsins á umliðnum árum er minnst. Þá er þess getið í yfirlýsingu utanríkisráðherranna að tímamótanna verði minnst með viðburðum og fundum á afmælisárinu sem í hönd fer. Í framangreindri formennskuáætlun Íslands er nánar fjallað um þá viðburði sem ákveðnir hafa verið. Er þar fyrst að nefna sameiginlegan fund leiðtoga EES-ríkjanna, sem áformað er að efnt verði til í tengslum við fund leiðtogaráðs ESB sem haldinn verður 21. og 22. mars nk. Þá er m.a. fyrirhugað að efna til ráðstefnu um þróun og framtíð innri markaðarins í tengslum við næsta fund EES-ráðsins í maí þar sem utanríkisráðherrar EES/EFTA-ríkjanna munu taka þátt ásamt fulltrúum framkvæmdastjórnar ESB og ráðherraráðs ESB.

Ennfremur stendur til að efna til dagskrár til að segja frá niðurstöðum málþings um plastmengun í hafi, sem haldin var á Íslandi í nóvember sl., og ræða í samhengi við stefnumörkun ESB á því sviði. Einnig verður í tengslum við viðburðinn opnuð listsýning með sama þema í EFTA-húsinu í Brussel á vegum Arctic Creatures þríeykisins.

Sjá í þessu samhengi umfjöllun Vaktarinnar 13. janúar 2023 um setningu laga nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið.

Er kemur að almennum rekstri EES-samningsins þá er megin áherslan nú sem fyrr á skilvirkni við reksturinn þar sem tímanleg upptaka EES-tækra gerða í samninginn skiptir sköpum til að tryggja einsleitni á innri markaðinum og stöðu EES/EFTA-ríkjanna í því sambandi.

Á hinn bóginn er innri markaðurinn í stöðugri þróun og á það ekki síst við á tímum óvissuástands í heimsmálum. Stríðsátökin hafa leitt til aukinnar blokkamyndunar og einangrunarhyggju í samskiptum ríkja og ríkjabandalaga þar sem þau leitast við tryggja betur framleiðslugetu sína, aðföng og efnahagslegt öryggi. Breytingar í þessa veru birtast m.a. í því að tillögur að nýjum gerðum sem varða innri markaðinn eru oft á tíðum þverlægari og margbrotnari að efni til í þeim skilningi að þær varða ekki aðeins málefni innri markaðarins heldur einnig málefni sem falla utan hans og þar með utan gildissviðs EES-samningsins. Það á t.d. við um iðnaðarstefnu og utanríkisstefnu ESB o.fl. Er mikilvægt að EES/EFTA-ríkin gæti vel að stöðu sinni í þessu samhengi og er þýðing þess sérstaklega áréttuð í formennskuáætlun Íslands. Tillögur þessu marki brenndar fela jafnan í sér áskoranir er kemur að upptöku þeirra í EES-samninginn. Meta þarf hagsmuni EES/EFTA-ríkjanna í hverju tilviki, að virtri samkeppnisstöðu og þróunar á alþjóðavettvangi og gildissviði EES-samningsins, af því hvort og þá að hvaða marki eigi að taka viðkomandi gerðir upp í EES-samninginn og þá jafnframt hvaða áhrif það kunni að hafa ef niðurstaðan er sú að taka þær ekki upp í EES-samninginn, eða einungis að hluta með efnislegum aðlögunum. Sjá í þessu samhengi m.a. umfjöllun í Vaktinni 24. nóvember sl. um strategískt sjálfræði ESB og þróun innri markaðarins og í Vaktinni 23. júní sl. um efnahagsöryggisáætlun ESB.

EES/EFTA-ríkin hafa í gegnum tíðina sammælst um að láta framkvæmdastjórninni í té álit um ákveðnar gerðir á undirbúningsstigi sem eru til meðferðar á vettvangi ESB. Í formennskuáætlun Íslands er lögð aukin áhersla á að koma athugasemdum á framfæri við ESB með því móti. Jafnframt verði stefnt að því að móta skýrari stefnu um það hvenær tilefni er til að senda inn slík álit og athugasemdir og að málsmeðferð við undirbúning slíkra álitsgerða verði einfaldað.

Þá er mikilvægi þátttöku EES/EFTA-ríkjanna í samstarfsáætlunum ESB (e. EU programmes) áréttað.

Formennskuáætlun Belga

Belgar tóku við formennsku í ráðherraráði ESB 1. janúar sl. en þá lauk formennskutíð Spánverja í ráðinu. Formennska í ráðinu gengur á milli aðildarríkja ESB í ákveðinni röð og er formennskutímabilið sex mánuðir. Stendur formennskutímabil Belga samkvæmt því frá 1. janúar – 30. júní 2024 en þá munu Ungverjar, samkvæmt gildandi ákvörðun ráðherraráðs ESB taka við formennskukeflinu, þar á eftir Pólverjar og síðan Danir á síðari hluta árs 2025.

Ráðherraráð ESB er ein þriggja megin valdastofnana ESB. Hinar tvær eru Evrópuþingið og framkvæmdastjórn ESB. Algengt er að ráðherraráðinu (e. Council of the European Union) annars vegar og leiðtogaráði ESB (e. European Council) hins vegar sé ruglað saman í almennri umræðu en þar er í raun um tvær aðskildar stofnanir sambandsins að ræða. Leiðtogaráðið, þar sem sæti eiga leiðtogar, oftast forsætisráðherrar, aðildarríkja ESB, hefur fáar formlegar valdheimildir en áhrifavald þess er vitaskuld mikið og afgerandi í stærri stefnumálum. Ráðherraráð ESB fer hins vegar m.a. með hið formlega löggjafarvald á vettvangi ESB ásamt Evrópuþinginu. (Sjá hér útskýringarsíðu á vef ráðsins um hlutverk þess.)

Ráðherraráð ESB starfar í deildum og taka ráðherrar í ríkisstjórnum aðildarríkjanna þátt í fundum ráðsins í samræmi við skiptingu stjórnarmálefna á milli ráðherra innan ríkisstjórnar hvers aðildarríkis.

Er það hlutverk formennskuríkis á hverjum tíma að stjórna fundum í öllum deildum ráðherraráðs ESB. Þá stýrir formennskuríkið einnig samningaviðræðum fyrir hönd ráðsins við Evrópuþingið og framkvæmdastjórn ESB í þríhliða viðræðum um löggjafarmálefni og önnur málefni eftir atvikum. Umtalsvert áhrifavald fylgir formennskunni á hverjum tíma enda geta áherslur formennskuríkis haft mikið um það að segja hvort tiltekin mál fái framgang eða ekki. Á hinn bóginn er þess jafnan vænst, venju samkvæmt, að formennskuríkið gegni hlutverki sáttamiðlara í viðræðum aðildarríkjanna innan ráðsins.

Formennskuáætlun Belga sem birt var í upphafi árs tekur eðli málsins samkvæmt mið af því að senn líður að lokum kjörtímabils þingmanna á Evrópuþinginu, með kosningum til Evrópuþingsins dagana 6. – 9. júní nk., en kosningarnar marka jafnframt lok skipunartímabils núverandi framkvæmdastjórnar ESB. Munu kraftar belgísku formennskunnar á fyrri hluta tímabilsins fara í að reyna ná lokaniðurstöðu í meðferð löggjafartillaga sem eru fyrirliggjandi og raunhæft er talið að klára áður en þinghlé verður gert í aðdraganda Evrópuþingskosninganna 26. apríl nk. Tímaramminn til að ljúka meðferð löggjafartillagna og allri þeirri tæknilegu vinnu og textagerð sem til þarf til að unnt sé að taka tillögur til lokaafgreiðslu eftir að samkomulag hefur náðst um efni þeirra er því orðinn mjög knappur. Ætla má að mál þurfi að vera fullbúin til formlegrar afgreiðslu fyrri hluti febrúarmánaðar til að almennt sé talið raunhæft að ljúka þeim á yfirstandandi þingi.

Í formennskuáætluninni kemur fram að Belgar muni leggja sig fram um að tryggja að umskipti milli stofnanatímabila (e. Institutional Cycle) í kjölfar Evrópuþingskosninganna verði fumlaus. Þá hyggjast þeir að leggja ríkulega vinnu í að styðja við mótun og samþykkt nýrrar fimm ára stefnuáætlunar leiðtogaráðs ESB (e. EU strategic agenda 2024 – 2029) sem gert er ráð fyrir að leiðtogaráðið samþykki í kjölfar Evrópuþingskosninganna í júní nk. Lagður var grunnur að þessari stefnuáætlun á fundi leiðtogaráðsins sem fram fór í Granada á Spáni 6. október sl., sbr. umfjöllun um þann fund í Vaktinni 13. október 2023. Loks er lögð rík áhersla á áframhaldandi dyggan stuðning við Úkraínu í varnarbaráttu þeirra vegna innrásar Rússa.

Í inngangi formennskuáætlunarinnar eru dregin fram almenn forgangsmál Belga sem skipt er í sex eftirfarandi málefnasvið, en þau eru eftirfarandi:

Að verja réttarríkið, lýðræðið og samstöðu innan sambandsins.

Að styrkja samkeppnishæfni ESB bæði inn á við og út á við.

Að halda áfram grænum umskiptum og tryggja að þau séu réttlát.

Að efla samstarf á sviði félags- og heilbrigðismála.

Að klára vinnu við frágang löggjafarmálefna er varða málefni farands- og flóttafólks og styrkja landamæri ESB .

Að styðja við viðnámsþol og strategískt sjálfræði ESB í breyttu alþjóðlegu umhverfi.

Í formennskuáætluninni er síðan gerð nánari grein fyrir þeim einstöku málefnum og löggjafartillögum sem Belgar hyggjast beita sér fyrir og eru áherslumálin flokkuð eftir málefnasviðum í 13 köflum sem að meginstefnu taka mið af deildaskiptingu innan ráðherraráðsins. Hér að neðan eru nokkur af þessum málum talin upp með sérstakri áherslu á löggjafartillögur og stefnumótun sem varðað geta EES-samninginn með einum eða öðrum hætti. Til nánari glöggvunar á einstökum málum er vísað til umfjöllunar í áður útkomnum fréttabréfum Brussel-vaktarinnar, þar sem við á. Auk þeirra málefnasviða sem tilgreind eru hér að neðan er í formennskuáætluninni, fjallað um áherslur Belga í utanríkismálum og varnarmálum en um þau áherslumál er hér að meginstefnu látið nægja að vísa til þess sem fram kemur í áætluninni.

Formennskuáætlunin er afar ítarleg og fjölmörg málefni dregin fram, eftirfarandi upptalning speglar hins vegar aðeins hluta þeirra áherslumála.

Á meðal helstu mála sem nefnd eru, flokkað eftir málefnasviðum, eru:

Á sviði samstarfs á vegum EES-samningsins:

Lýst er vilja til að styrkja áframhaldandi gott samstarf við EES/EFTA-ríkin á grundvelli EES-samningsins og til að fagna 30 ára gildistökuafmæli EES-samningsins, sbr. umfjöllun hér að neðan í Vaktinni þar sem fjallað er um formennsku Ísland í fastanefnd EFTA og 30 ára afmælið.

Á sviði lýðræðis- og stækkunarmála:

Örugg framkvæmd frjálsra og lýðræðislegra kosninga til Evrópuþingsins. Sjá til hliðsjónar umfjöllun í Vaktinni um Evrópuþingið og kosningarnar í Vaktinni 29. septembersl.

Framfylgd stækkunarstefnu ESB. Sjá umfjöllun um stefnuna í Vaktinni 10. nóvember sl.

Á sviði efnahags- og fjármála:

Framgangur tillögu um skilgreiningu á tekjuskattstofni fyrirtækja (BEFIT). Sjá umfjöllun um tillöguna í Vaktinni 15. september sl.

Framgangur tillagna um heildarendurskoðun á tollkerfi ESB. Sjá umfjöllun í Vaktinni 9. júní sl.

Framgangur tillagna um endurskoðun á lagaumhverfi evrópskra viðskiptabanka og löggjöf um innstæðutryggingar. Sjá umfjöllun í Vaktinni 21. apríl sl.

Framgangur margvíslegra tillagna sem kynnar hafa verið til að draga úr reglubyrði og einfalda regluverk. Sjá umfjöllun í Vaktinni 27. október 2023 um starfsáætlun framkvæmdastjórnar ESB fyrir árið 2024

Á sviði dóms- og innanríkismála:

Framgangur útafstandandi tillagna er varða málefni flótta- og farandsfólks (e. The Pact on migration and asylum). Sjá umfjöllun hér að neðan í Vaktinni um málefnið, sbr. einnig umfjöllun í Vaktinni 9. júní sl.

Málefni Schengen-svæðisins, meðal annars með framlagningu tillagna sem miða að því að styrkja framkvæmd Schengen-samstarfsins og öryggi landamæra svæðisins.

Á sviði heilbrigðismála:

Framgangur áætlana um uppbyggingu samstarfs á sviði heilbrigðismála til að geta betur brugðist við framtíðarógnum á borð við kórónaveirufaraldurinn með samræmdum hætti (e. European Health Union). Sjá m.a. umfjöllun í Vaktinni 21. október sl., sbr. jafnframt umfjöllun í Vaktinni 8. desember sl. um endurmat á hlutverki nýrrar Neyðar- og viðbragðsskrifstofu ESB á sviði heilbrigðismála.

Framgangur tillagna um samevrópskan gagnagrunn fyrir heilbrigðisupplýsingar. Sjá umfjöllun í Vaktinni 8. júlí 2022.

Framgangur tillagna um endurskoðun lyfjalöggjafar ESB. Sjá umfjöllun í Vaktinni 26. maí sl., sbr. einnig umfjöllun að hér að neðan um mikilvæg lyf.

Lokafrágangur tillögu um notkun líffæra, blóðs og vefja úr mönnum í lækningaskyni. Sjá umfjöllun um málið hér að neðan í Vaktinni.

Á sviði atvinnu- og félagsmála:

Framfylgd aðgerðaráætlunar félagslegu réttindastoðar ESB sem samþykkt var í ráðherraráðinu í mars 2021, sbr. m.a. umfjöllun í Vaktinni 18. nóvember sl., en auk þess er boðað að áhersla verði lögð á að móta öfluga og víðtæka félagsmálastefnu til næstu fimm ára.

Framfylgd stefnumörkunar um geðheilbrigðismál. Sjá umfjöllun í Vaktinni 9. júní sl.

Framfylgd aðgerða til eflingar félagslega hagkerfisins. Sjá umfjöllun í Vaktinni 23. júní sl.

Efnt verður umræðu um jafnréttismál í víðu samhengi, skipulag stjórnsýslu jafnréttismála, kynbundið ofbeldi, um efnahagslegt sjálfstæði og valdeflingu kvenna o.fl.

Framfylgd áætlunar um evrópska umönnunarstefnu (e. European Care Strategy). Sjá umfjöllun í Vaktinni 9. september 2022.

Framfylgd áætlunar í málefnum hinsegin fólks fyrir árin 2020 – 2025.

Framfylgd áætlunar gegn kynþáttafordómum og kynþáttahyggju fyrir árin 2020 – 2025.

Á sviði iðnaðar og málefna innri markaðarins:

Standa vörð um strategískt sjálfræði ESB til aðgerða (e. Open Strategic Autonomy). Sjá m.a. umfjöllun í Vaktinni 23. júní sl. um nýja efnahagsöryggisáætlun ESB, sbr. einnig umfjöllun í Vaktinni 24. nóvember sl. um strategískt sjálfræði ESB og þróun innri markaðarins.

Uppbygging mikilvægs iðnaðar til að styðja við græn og stafræn umskipti, sbr. fyrirliggjandi stefnumótun og tillögugerð á því sviði, sbr. m.a. umfjöllun um framfylgd framkvæmdaáætlunar Græna sáttmálans í Vaktinni 24. mars sl.

Framgangur aðgerða fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Sjá m.a. umfjöllun í Vaktinni 15. september sl. um aðgerðarpakka fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.

Innri markaðsmálefni, m.a. framgangur tillagna um auknar valdheimildir framkvæmdastjórnar ESB til ráðstafana á innri markaði í neyðaraðstæðum (e. Single Market Emergency Instrument - SMEI). Sjá umfjöllun í Vaktinni 23. september 2022.

Framgangur tillagna um bann við vörum sem framleiddar eru með nauðungarvinnu. Sjá umfjöllun í Vaktinni 23. september 2022.

Framgangur tillagna um hringrásarhagkerfið. Sjá m.a. umfjöllun í Vaktinni 1. apríl 2022.

Framgangur tillagna um kolefnisförgun. Sjá m.a. umfjöllun í Vaktinni 18. febrúar 2022 um vottorð vegna kolefnisbindingar og í Vaktinni 24. mars sl. um framfylgd framkvæmdaáætlunar Græna sáttmálans.

Framgangur tillagna á sviði hugverka- og einkaleyfisréttar. Sjá umfjöllun í Vaktinni 5. maí sl.

Framgangur tillagna um bætta réttarvernd ferðamanna. Sjá umfjöllun í Vaktinni 8. desember sl.

Á sviði rannsókna, nýsköpunar og geimmála:

Endurskoðun regluverks um samstarfsáætlanir og samkeppnissjóðakerfi ESB. Sjá umfjöllun í Vaktinni 23. júní sl. um nýjan tækniþróunarvettvang ESB.

Framgangur geimáætlunar og stefnumótunar á sviði geimréttar og áforma um öryggisfjarskiptakerfi um gervihnetti. Sjá með m.a. umfjöllun í Vaktinni 27. október sl. og í Vaktinni 29. september sl.

Á sviði samgöngumála:

Endurskoðun reglna um samevrópskt samgöngukerfi (e. Trans-European Transport Network).

Framgangur óafgreiddra „Fit for 55“ tillagna á sviði samgöngumála.

Framgangur væntanlegra tillagna á sviði umhverfisvænni flutninga (e. Greening Transport Package)

Framgangur tillagna um sameinað loftrými og flugumferðarstjórn (e. Single European Sky 11).

Framgangur tillagna á sviði siglingaöryggis. Sjá umfjöllun í Vaktinni 9. júní sl. og 24. nóvember sl.

Framgangur tillagna um bætt umferðaröryggi. Sjá umfjöllun í Vaktinni 10. mars sl.

Á sviði stafrænna mála, fjarskipta og netöryggis:

Framgangur ýmissa tillagna í stafrænu starfsskrá ESB.

Lokafrágangur tillagna um gervigreind. Sjá umfjöllun í Vaktinni 9. júní sl.

sbr. einnig umfjöllun í Vaktinni 24. nóvember sl.

Framgangur tillagna um evrópsk stafræn skilríki (e. European Digital Identity).

Framgangur tillagna um auka samstöðu innan ESB á sviði netöryggismála (e. Cyber Solidarity Act). Sjá umfjöllun í Vaktinni 5. maí sl.

Áframhaldandi framfylgd „REPowerEU“ áætlunar ESB, með sérstakri áherslu á framfylgd áætlunar um að koma á fót virkum evrópskum vetnismarkaði. Sjá m.a. umfjöllun í Vaktinni 5. maí sl. um vistvænt flugvélaeldsneyti.

Framgangur tillagna um aukna samstöðu innan ESB á sviði netöryggismála (e. Cyber Solidarity Act). Sjá m.a. umfjöllun í Vaktinni 5. maí sl.

Á sviði orkumála:

Áframhaldandi framfylgd „REPowerEU“ áætlunar ESB. Sjá m.a. umfjöllun í Vaktinni 5. maí sl. um vistvænt flugvélaeldsneyti

Á sviði landbúnaðar og sjávarútvegs:

Framgangur tillagna um nýja erfðatækni í landbúnaði. Sjá umfjöllun í Vaktinni 7. júlí sl.

Framgangur tillagna til að draga úr notkun skordýraeiturs. Sjá m.a. umfjöllun í Vaktinni 21. apríl sl. um býflugnavænan landbúnað.

Framgangur tillagna um vöktun skóga. Sjá umfjöllun í Vaktinni 24. nóvember sl.

Framgangur tillagna um velferð dýra. Sjá umfjöllun í Vaktinni 8. desember sl.

Á sviði umhverfismála:

Framgangur óafgreiddra tillagna um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda um allt að 55% fyrir árið 2030 (e. Fit for 55).

Framgangur tillagna um strangari reglur um mengunarvarnir, um loftgæði, hreinleika yfirborðs- og grunnvatns og meðferð og hreinsun skólps frá þéttbýli með núll-mengun að markmiði (e. Zero Pollution goal). Sjá umfjöllun í Vaktinni 4. nóvember 2022, sbr. einnig umfjöllun í Vaktinni 10. mars sl., um afstöðu Íslands til nýrrar fráveitutilskipunar ESB.

Framgangur tillagna um umbúðir. Sjá umfjöllun í Vaktinni 2. desember 2022.

Framgangur tillagna um endurreisn vistkerfa. Sjá umfjöllun í Vaktinni 24. júní 2022.

Framgangur tillagna um hringrásarhagkerfið. Sjá m.a. umfjöllun í Vaktinni 1. apríl 2022.

Sérstök áhersla er lögð á að umskiptin samkvæmt Græna sáttmálanum verði réttlát.

Á sviði menntunar, æskulýðsmála, menningar, fjölmiðlamála og íþrótta:

Framfylgd æskulýðsstefnu ESB fyrir árin 2019 – 2027.

Lokafrágangur tillagna að nýrri löggjöf um frelsi fjölmiðla. Sjá umfjöllun hér að neðan í Vaktinni og í Vaktinni 23. september 2022.

Málefni flótta- og farandfólks

Skömmu fyrir jól, eða þann 21. desember sl., náðist tímamótasamkomulag í þríhliða viðræðum Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnarinnar um meginþætti þeirra fimm reglugerða sem mynda heildarpakka ESB í útlendingamálum. Er nú unnið við frágang textagerðar í samræmi við samkomulagið þannig að unnt sé að leggja gerðirnar fyrir Evrópuþingið og ráðherraráð ESB til formlegrar afgreiðslu en allt kapp er lagt á að ná formlegri afgreiðslu á málinu á yfirstandandi kjörtímabili þingsins. Eins og rakið er umfjöllun að framan um formennskuáætlun Belga þá er tímaramminn í þeim efnum knappur.

Ítarlega hefur verið fjallað um málefni flótta- og farandfólks í Vaktinni að undanförnu, sbr. umfjallanir 2. desember 2022, 9. júní sl., og 13. október sl. Hefur það reynst þrautinni þyngra að ná samkomulagi innan stofnana ESB um heildarpakka ESB. Upphaflega var tillögupakkinn birtur árið 2016 en endurskoðuð útgáfa var lögð fram af framkvæmdastjórn ESB í september 2020. Það hefur því tekið um átta ár að ná því samkomulagi og niðurstöðu sem nú liggur fyrir.

Í ummælum Fernando Grande-Marlaska Gómez, innanríkisráðherra Spánar, í tilefni af samkomulaginu kom fram að með því væri ESB að uppfylla gefið loforð um að tekið yrði á málefnum farandfólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd. Endurbætt regluverk væri vissulega mikilvægt skref í rétta átt en enn þyrfti þó að vinna með upprunaríkjum og ríkjum sem flótta- og farandfólk ferðast í gegn um að rót vandans auk þess sem leggja yrði mikla áherslu á að uppræta smygl á farandfólki sem færst hefur verulega í aukana undanfarið.

Eins og áður segir inniheldur pakkinn fimm reglugerðir sem kveða á um feril umsóknar um alþjóðlega vernd, allt frá því er umsækjandi sækir um alþjóðlega vernd á ytri landamærum Schengen-svæðisins og þar til honum er veitt vernd eða eftir atvikum brottvísað af svæðinu.

Regluverkið felur í sér að allir einstaklingar í ólögmætri för verða forskoðaðir við komuna til Evrópu (e. Screening regulation). Í þessu fyrsta skrefi, sem telst þróun á Schengen-regluverkinu og er því skuldbindandi fyrir Ísland, felst að einstaklingar eru auðkenndir, öryggiskannaðir, aldursgreindir og tryggt að réttindi þeirra séu virt og að þeir hljóti viðeigandi málsmeðferð í samræmi við stöðu sína.

Þá verður komið á fót sérstakri forgangsmeðferð á ytri landamærum Schengen-svæðisins (e. Asylum Border Procedure), en í þeirri málsmeðferð sker ábyrgt aðildarríki, fljótt og örugglega, úr um það hvort umsókn eigi við rök að styðjast eða hvort hún sé tilhæfulaus, m.a. með tilvísun til lista yfir örugg upprunaríki. Gert er ráð fyrir að þessi málsmeðferð taki að hámarki 12 vikur. Þessi tiltekna málsmeðferð er skyldbundin ef um er að ræða einstakling sem telst ógn við alþjóðaöryggi eða allsherjarreglu og eins ef talið er að einstaklingur hafi villt um fyrir stjórnvöldum, s.s. með framvísun falsaðra gagna eða villt á sér heimildir. Eins er hún skyldbundin ef viðkomandi kemur frá ríki þar sem viðurkenningarhlutfall er undir 20%. Fylgdarlaus börn verða undanþegin þessari málsmeðferð nema ef öryggisógn er talin felast í komu þeirra. Framangreind málsmeðferð telst ekki til þróunar á Schengen-regluverkinu og er Ísland því ekki skuldbundið til að innleiða hana. Eftir sem áður kann þó að vera ástæða til að skoða það sérstaklega og meta hvort skynsamlegt sé að taka upp sambærilegar reglur á Íslandi.

Í pakkanum felst einnig uppfærsla á reglum sem við þekkjum undir nafni Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kveðið er á um hvaða ríki beri ábyrgð á vinnslu umsóknar um alþjóðlega vernd. Dyflinnarreglugerðin sem slík hefur verið felld niður, en uppfærðar efnisreglur hennar er nú að finna í nýrri reglugerð um stjórn útlendingamála og mála er varða alþjóðlega vernd (e. Asylum and Migration Management Regulation). Í reglugerðinni eru ákveðnar meginreglur skýrðar nánar og ferlið straumlínulagað. Nýrri reglugerð er ætlað að draga úr áframhaldandi för einstaklinga (e. Secondary Movement) með því að takmarka möguleika umsækjenda um alþjóðlega vernd til að velja hvaða aðildarríki beri að taka umsókn þeirra um vernd til efnislegrar meðferðar.

Undir sömu reglugerð má finna nýtt samábyrgðarkerfi (e. Solidarity Mechanism) en reglurnar munu samanstanda af skyldubundnum samábyrgðarreglum með ákveðnum sveigjanleika þó þannig að aðildarríki geti haft eitthvað um það að segja í hverju samábyrgðin felst. Samábyrgðin getur falist í flutningsaðstoð (e. relocation), fjárframlögum og annarri veittri aðstoð, s.s. með því að útvega sérfræðinga eða aðstoð við uppbyggingu innviða.

Reglugerðin um fingrafaragagnagrunninn Eurodac var einnig endurbætt og gildisviðið útvíkkað en gagangrunnurinn mun nú einnig ná utan um skráningu þeirra sem hlotið hafa tímabundna vernd innan Evrópu. Fingrafaragagnarunnurinn mun nú einnig geyma viðbótar lífkennaupplýsingar, s.s. andlitsmyndir. Skráning þessara lífkennaupplýsinga verður nú skyldubundin fyrir alla umsækjendur um vernd sem náð hafa sex ára aldri.

Hagsmunagæsla Íslands hefur einkum falist í því að gæta að framkvæmd Schengen-samningsins og gildissviði samkomulags milli ESB og Íslands um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um vernd sem lögð er fram í aðildarríki ESB eða á Íslandi. Mikilvægt hefur reynst að tryggja að Ísland sé ekki skuldbundið til að innleiða regluverk hælispakka ESB sem ekki rúmast innan ofangreindra samninga. Við hagsmunagæsluna hefur ítarlegt samráð verið átt við önnur samstarfsríki Schengen, Noreg, Sviss og Liechtenstein og eins Danmörku og Írland sem hafa einnig sérstaka aðkomu að hælisreglum ESB. Ísland og Noregur lögðu fram sameiginlega yfirlýsingu til ráðherraráðs ESB í tengslum við gerð framangreinds samkomulags þar sem skuldbindingar ríkjanna voru ítrekaðar og rétt framkvæmd Schengen-samningsins áréttuð.

Schengen-aðild Búlgaríu og Rúmeníu

Eins og ítarlega hefur verið fjallað um í Vaktinni, sbr. umfjöllun 4. nóvember 2022, 18. nóvember 2022  og 16. desember 2022 hefur mikill þrýstingur verið á aðildarríki ESB að veita Búlgaríu og Rúmeníu fulla aðild að Schengen-samstarfinu.

Þann 30. desember sl. samþykkti ráðherraráð ESB loks einróma að veita ríkjunum aðild að Schengen-svæðinu. Ákvörðunin markar tímamót enda eru nú liðin 13 ár frá því að ríkin luku hefðbundnu Schengen úttektarferli þar sem metið var að þau uppfylltu öll skilyrði aðildar.

Er þetta í níunda skiptið sem tekin er ákvörðun um stækkun Schengen-svæðisins frá því að til þess var stofnað árið 1985. Með ákvörðuninni verða aðildarríkin 29 talsins, þ.e. 25 aðildarríki ESB auk samstarfsríkja Schengen, Íslandi, Noregi, Sviss og Liechtenstein. Einungis tvö aðildarríki ESB standa þá utan samstarfsins, en mat á því hvort Kýpur sé reiðubúið til að hefja umsóknarferli er nú yfirstandandi.

Þátttaka Búlgaríu og Rúmeníu í samstarfinu mun koma til framkvæmda í skrefum og verður fyrsta skrefið tekið í mars nk. með niðurfellingu á eftirliti á innri landamærum milli ríkjanna tveggja og annarra Schengen-ríkja sem mörkuð eru um flughafnir og hafnir sem notaðar eru við reglubundnar ferjusiglingar, þ.e. á sjó og í lofti. Frekari viðræður munu eiga sér stað á árinu um að fella niður landamæraeftirlit á landi þó nákvæm tímasetning um ákvörðun ráðsins þar að lútandi liggi enn sem komið er ekki fyrir. Forseti framkvæmdastjórnar ESB hefur fagnað þessum merka áfanga sem mun styrkja innri markað ESB enn frekar og Schengen-svæðið til hagsbóta fyrir borgara aðildarríkjanna.

Bæði Búlgaría og Rúmenía hafa lagt mikla vinnu í að undirbúa aðild sína að samstarfinu allt frá árinu 2011 m.a. með lagabreytingum, setningu verkferla og með að sýna að þau uppfylli skýrlega þau skilyrði sem til þarf til þess að gerast aðilarríki. Þetta hefur framkvæmdastjórn ESB staðfest í þremur úttektum á landamæraeftirliti í ríkjunum tveimur á árunum 2022 og 2023. Auk þess hefur framkvæmastjórnin aðstoðað ríkin við að styrkja landamæraeftirlit, auka samvinnu við nágrannalönd sín og setja upp viðeigandi reglur og verkferla fyrir skjóta afgreiðslu hælisumsókna og endurviðtökubeiðna. Mun það samstarf halda áfram með fjárveitingum og aðstoð frá Frontex, landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu. Á sama tíma hefur ESB unnið að því að styrkja Schengen-svæðið með aukinni öryggis- og lögreglusamvinnu til þess að ESB standi styrkara gegn öryggisógnum.

Reglugerð um fjölmiðlafrelsi

Þann 15. desember sl. náðist samkomulag milli Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB um efni tillögu framkvæmdastjórnar ESB að nýrri reglugerð um fjölmiðlafrelsi en gengið var til þríhliða viðræðna um tillöguna þann 19. október síðastliðinn. Fjallað var um tillöguna í Vaktinni 22. september 2023.

Markmið tillögunnar er vernda sjálfstæði, frelsi og fjölhyggju fjölmiðla innan ESB og er með henni er brugðist við stöðu og þróun fjölmiðlaumhverfisins á undanförnum árum sem vakið hefur áhyggjur. Í tillögunni er lögð áhersla á sjálfstæði fjölmiðla, trygga fjármögnun fjölmiðla í almannaþjónustu, gagnsæi eignarhalds yfir fjölmiðlum og jafnræði fjölmiðla við kaup opinberra aðila á auglýsingum. Þá eru lögð til ákvæði um mat á fjölmiðlasamstæðum og lagt til að sett verði á fót nýtt ráðgefandi Evrópskt fjölmiðlaráð (e. European Board for Media Services). Auk þess eru lagðar til verndarráðstafanir gegn pólitískum afskiptum af ritstjórnarákvörðunum og eftirliti og ráðstafanir til að vernda sjálfstæði ritstjóra og um skyldu þeirra til að upplýsa um hagsmunaárekstra. Þá er leitast við að auðvelda fjölmiðlum að starfa yfir landamæri.

Með samkomulaginu nú er nánar tiltekið lagt til að hið Evrópska fjölmiðlaráð (e. European Board for Media Services) samanstandi af landsbundnum stjórnvöldum sem fara með málefni fjölmiðla. Gert er ráð fyrir að fjölmiðlaráðið aðstoði framkvæmdastjórnina við að útbúa leiðbeiningar um regluverk fjölmiðla. Ráðið mun einnig veita álit um landsbundnar ráðstafanir og ákvarðanir sem hafa áhrif á fjölmiðlamarkaði og fjölmiðlasamstæður á markaði. Með samkomulaginu er sjálfstæði ráðsins styrkt umfram það sem fólst í upprunalegri tillögu framkvæmdastjórnarinnar og einnig lagt til að það geti sett á fót undirhópa til að vinna að ákveðnum verkefnum og átt milliliðalaust samráð við fjölmiðlaþjónustuveitendur.

Með samkomulaginu er skylda aðildarríkjanna til að varðveita fjölhyggju, sjálfstæði og eðlilega starfsemi fjölmiðlaþjónustuveitenda innan landamæra ríkjanna gerð skýrari. Samkvæmt tillögunni þurfa fjölmiðlar í almannaþjónustu að tryggja að þeir sinni hlutverki sínu á óhlutdrægan hátt, þar sem mismunandi skoðanir fá að heyrast og upplýsingastreymi er fjölbreytt.

Aðildarríkjunum er gert að tryggja að fjármögnun fjölmiðla í almannaþjónustu sé fullnægjandi og stöðugt þannig að þeir fái sinnt hlutverki sínu og hafi nægilegt ritstjórnarlegt sjálfstæði. Þá skulu aðildarríkin tryggja að stjórnir og forstjórar slíkra fjölmiðla séu skipaðar á opinn og gagnsæjan hátt og á jafnréttisgrundvelli. Aðildarríkin skulu einnig tryggja að fyrir hendi séu reglur til að meta áhrif fjölmiðlasamstæðna á fjölhyggju fjölmiðla (e. Media pluralism) og ritstjórnarlegt sjálfstæði og að til staðar séu landsbundin stjórnvöld til að framkvæma slíkt mat.

Samkvæmt samkomulaginu þurfa aðildarríki ESB að tryggja ritstjórnarlegt sjálfstæði fjölmiðlaþjónusta og fullnægjandi vernd heimildarmanna. Meðal annars er lagt til að bannað verði að þvinga fjölmiðlamenn til að gefa upp heimildarmenn eða trúnaðarupplýsingar nema í undantekningartilfellum.

Samkomulagið felur einnig í sér að kröfur um gagnsæi eru auknar, bæði að því er varðar eignarhald og úthlutun á almannafé til auglýsinga (e. State advertising). Fjölmiðlaþjónustur munu þurfa að tryggja gagnsæi eignarhalds með viðeigandi upplýsingagjöf. Úthlutun á almannafé til auglýsinga skal vera gagnsæ og á jafnréttisgrundvelli. Stjórnvöld skulu birta upplýsingar um fjármagn sem varið er til kaupa á auglýsingum hjá fjölmiðlaþjónustum. Einnig eru lagðar til reglur sem eiga að bæta gagnsæi og óhlutdrægni í kerfum sem mæla áhorfstölur sem hafa áhrif á auglýsingatekjur.

Í tillögunni er byggt á reglugerð um stafræna þjónustu, sbr. umfjöllun um þá reglugerð í Vaktinni 18. nóvember 2022, og lagt til að fjölmiðlaefni sem er framleitt með faglegum hætti verði verndað gegn því að vera fjarlægt af netinu með óréttmætum hætti. Með breytingum sem samkomulagið felur í sér er leitast við að samræma betur reglur fjölmiðlalaganna að ákvæðum umræddar reglugerðar um stafræna þjónustu og samband stórra netvangsþjónustuveitenda og fjölmiðlaþjónustuveitenda skýrt nánar. Þá er fjölmiðlaþjónustuveitendum gert kleift að bregðast við innan 24 tíma ef stórir netvangsþjónustuveitendur ákveða að fjarlægja efni fjölmiðlaþjónustuveitenda sem ekki samræmist skilmálum þeirra.

Í tillögunni er auk framangreinds kveðið á um bann við notkun njósnahugbúnaðar (e. spyware) til að fylgjast með starfsemi fjölmiðlaþjónusta, starfsmanna þeirra eða fjölskyldu nema í þröngum undantekningartilfellum svo sem ef notkunin er talin réttlætanleg m.t.t. þjóðaröryggis.

Þá gerir tillagan neytendum í auknum mæli kleift að breyta sjálfgefnum stillingum á viðtækjum til að velja og setja saman eigið fjölmiðlaefni.

Þess má geta að EES/EFTA-ríkin, Ísland, Noregur og Liechtenstein, komu á framfæri afstöðu sinni gagnvart tillögunni í sameiginlegu EES EFTA-áliti þann 22. maí sl. Í álitinu er lögð áhersla á að aðildarríki geti sjálf ákveðið að setja strangari innlendar reglur til að vernda fjölmiðla og fjölhyggju. EES/EFTA-ríkin lýsa stuðningi við að settar yrðu skýrar reglur og verkferlar um afskipti stórra netvettvanga af efni sem birt hefur verið af fjölmiðlaþjónustum, þ.m.t. ákvarðanir þeirra um að fjarlægja efni, forgangsraða leitarniðurstöðum eða takmarka aðgengi að efni eða sýnileika þess.

EES/EFTA-ríkin lögðu til að hið sama myndi gilda um mjög stórar leitarvélar í samræmi við reglugerð um stafræna þjónustu. EES/EFTA-ríkin fögnuðu einnig tillögum um að vernda ritstjóra gegn ótilhlýðilegum afskiptum af einstökum ritstjórnarákvörðunum og lögðu áherslu á að styrkja enn frekar sjálfstæði ritstjórna.

Tillagan gengur nú til formlegrar samþykktar á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Endurbætur á regluverki raforkumarkaðar

Á vettvangi ESB hefur um allnokkurt skeið verið unnið að úrræðum til að takast á við hækkandi raforkuverð og orkuskort. Samhliða hefur ESB unnið að því að hraða þróun og dreifingu á endurnýjanlegri orku og auka neytendavernd á orkumarkaði og vernda heimili og atvinnulíf betur gegn óhóflegum verðsveiflum með því að innleiða markaðstæki til að stuðla að stöðugra verðlagi og samningum sem byggjast á raunverulegum kostnaði við orkuframleiðslu, þannig að tryggja megi öllum beinan aðgang að hreinni orku á viðráðanlegu verði. Í þessu skyni hefur m.a. verið ráðist í heildstæða endurskoðun reglna um evrópskan raforkumarkað nánar tiltekið á raforkureglugerð ESB nr. 2019/943, raforkutilskipun ESB nr. 2019/944 og reglugerð ESB nr. 1227/2011 um heildsölu á raforku (REMIT), sbr. umfjöllun í Vaktinni 27. janúar og 24. mars sl. þar sem fjallað er um framfylgd framkvæmdaáætlunar Græna sáttmálans. Nátengd þessum tillögum er tillaga um breytingar á reglugerð sem beinist að því að bæta vernd ESB gegn markaðsmisnotkun með betra eftirliti og gagnsæi (REMIT) en samkomulag náðist um þá gerð 16. nóvember sl., sbr. umfjöllun um það mál í Vaktinni 8. desember sl.

Þann 14. desember sl. náðist samkomulag í þríhliða viðræðum milli Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB um efni tillagna um breytingar á framangreindum gerðum um endurbætur á raforkumarkaði (reform of EU’s electricity market design (EMD)).

Í samkomulaginu felast m.a. breytingar sem miða að því að vernda neytendur enn frekar, ekki síst þá sem viðkvæmir eru og illa standa, fyrir miklum verðsveiflum á raforkumarkaði. Þá eru tekin upp ákvæði sem ætlað er að hvetja aðildaríkin til samningagerðar um kaup á nýrri endurnýjanlegri raforku, auk þess sem ráðherraráð ESB, að fenginni tillögu frá framkvæmdastjórn ESB, verður heimilt að lýsa yfir kreppu- eða hættuástandi ef miklar verðhækkanir verða á raforkuverði. Sjá nánar um efni samkomulagsins í fréttatilkynningu ráðherraráðs ESB um málið og í fréttatilkynningu Evrópuþingsins.

Tillagan gengur nú til formlegar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Útvíkkun netöryggislöggjafarinnar

Í lok nóvember sl. náðist samkomulag í þríhliða viðræðum Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB um efni tillagna sem miða að því að útvíkka gildissvið netöryggisreglna þannig að gerðar verði netöryggiskröfur við hönnun, þróun og framleiðslu á hvers kyns nettengdum vörum sem boðnar eru til sölu á innri markaði ESB. Fjallað var um tillöguna er hún var lögð fram í Vaktinni 23. september 2022, sbr. einnig umfjöllun í Vaktinni 2. desember 2022.

Eitt höfuðmarkmið Cyber resilience act er að tryggja að sömu netöryggisreglur gildi á öllu innra markaðssvæði ESB. Reglugerðin mun gilda um allar vörur sem eru beint eða óbeint tengdar öðrum tækjum eða netkerfi. Þó eru nokkrar undantekningar gerðar vegna vara sem þegar eru háðar öryggiskröfum samkvæmt öðrum gildandi reglugerðum ESB, t.d. lækningartæki, loftför og bifreiðar.

Netárásir í gegnum nettengdar vörur hvers konar hafa aukist mikið undanfarið og hafa almenningur og fyrirtæki orðið fyrir skakkaföllum af þeim sökum.

Samkvæmt endurskoðaðri gerð verða nettengdar vörur flokkaðar eftir mikilvægi og þeirri öryggisáhættu sem notkun þeirra getur fylgt og er gert ráð fyrir að sú flokkun verði endurskoðuð reglulega af framkvæmdastjórninni.

Sjá nánar um efni samkomulagsins í fréttatilkynningu ráðherraráðs ESB og í fréttatilkynningu Evrópuþingsins.

Tillagan gengur nú til formlegrar afgreiðslu í Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Nýr losunarstaðall, EURO 7, fyrir ökutæki

Í Vaktinni 22. nóvember 2022 var fjallað um tillögu framkvæmdastjórnar ESB að nýjum losunarstaðli fyrir stærri bifreiðar.

Þann 18. desember sl. náðist samkomulag í þríhliða viðræðum Evrópuþingins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnarinnar um efni tillögunnar. Í samkomulaginu felst að nýr EURO 7 staðall muni leysa af hólmi staðla, ekki bara fyrir stærri og þyngri ökutæki heldur einnig staðla fyrir léttar bifreiðar (Euro 6 og Euro VI). Losunarkröfur fyrir fólksbifreiðar verða þó óbreyttar og dregið er úr kröfum til þyngri fólks- og vöruflutningabifreiða miðað við upprunalega tillögu. Nýi staðallinn setur einnig hámark á losun agna frá bremsubúnaði ökutækja.

Sjá nánar um samkomulagið í fréttatilkynningu ráðherraráðs ESB og í fréttatilkynningu Evrópuþingsins.

Málið gengur nú til formlegrar afgreiðslu í Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Byggingavörur og hringrásarhagkerfið

Í Vaktinni 1. apríl 2022 var greint frá löggjafartillögum framkvæmdarstjórnar ESB er lúta að eflingu hringrásarhagkerfisins. Meðal tillagna þar var tillaga um samræmd skilyrði fyrir markaðssetningu byggingavara á innri markaði ESB.

Þann 13. desember sl. náðu Evrópuþingið og ráðherraráðið samkomulagi í þríhliða viðræðum um efni framangreindrar tillögu um markaðssetningu byggingavara sem hefur það markmið að bæta umgengni í samræmi við sjónarmið að baki hringrásarhagkerfinu um endurnýtingu og skilvirkni. Framkvæmd þeirra reglna sem tillagan felur í sér er umfangsmikil og flókin. Samkomulagið felur í sér breytingar sem ætlað er að skýra notkun staðla um byggingarvörur og er framkvæmdastjórninni veitt verkfæri til þess að grípa inn í ef tilefni er til t.d. með því að gefa út afleiddar gerðir.

Í samkomulaginu eru einnig ákvæði sem heimila framkvæmdastjórninni að kveða á um lágmarkskröfur um sjálfbærni byggingavara í opinberum útboðum. Markmiðið með því er að stuðla að auknu framboði sjálfbærra byggingarefna á markaði. Heimild er veitt til að víkja frá umhverfiskröfum m.a. ef sýnt þykir að bjóðendur búi ekki yfir getu til þess að uppfylla skilyrði og sýnt þykir að kostnaðarauki verði yfir 10% af því sem annars yrði.

Samkvæmt samkomulaginu er gert ráð fyrir að nýtt regluverk komi til framkvæmda í áföngum, til að tryggja hnökralausa yfirfærslu, og að nýtt regluverk verði að fullu komið til framkvæmda eftir 15 ár, þ.e. 2039.

Sjá nánar um samkomulagið í fréttatilkynningu ráðherraráðs ESB.

Tillagan gengur nú til formlegrar samþykktar á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Tafarlausar millifærslur í evrum

Samkomulag náðist þann 7. nóvember sl. í þríhliða viðræðum Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnarinnar um efni tillögu um tafarlausar millifærslur í evrum (e. instant payments). Fjallað var um tillöguna í Vaktinni 9. júní sl. en í henni er lagt til að fjármálafyrirtækjum verði skylt að tryggja að millifærslur í evrum á milli bankareikninga eigi sér stað án tafar eða á innan við 10 sekúndum óháð því hvenær sólarhrings millifærslan er framkvæmd. Þá er m.a. kveðið á um að kostnaður við millifærsluna megi ekki vera hærri en fyrir almenna millifærslu fjármuna (e. standard credit transfer). Samkomulagið sem nú liggur fyrir felur í sér að framangreind skylda um tafarlausar millifærslur verði einnig lögð á greiðslustofnanir og rafeyrisfyrirtæki að tilteknum aðlögunartíma loknum. Til að svo geti orðið þarf að veita þeim aðgang að greiðslukerfum með breytingu á tilskipun um endanlegt uppgjör (e. settlement finality directive, SFD). Þá náðist sátt um að aðlögunartími að nýjum reglum yrði styttri í aðildaríkjum ESB sem hafa evru sem gjaldmiðil en þeim ríkjum sem ekki hafa evru sem gjaldmiðil.

Tillagan gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Vinnuskilyrði starfsmanna sem sinna störfum með milligöngu stafrænna vettvanga

Þann 13. desember sl. náðist samkomulag í þríhliða viðræðum Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB um efni tillögu að tilskipun um bætt vinnuskilyrði þeirra sem sinna störfum með milligöngu stafrænna vettvanga (e. Platfom workers). Fjallað var um tillöguna og afstöðu ráðherraráðs ESB til hennar í Vaktinni 23. júní sl.

Tilskipunin miðar að því að tryggja réttarstöðu og bæta starfskjör fólks sem sinnir vinnu með milligöngu stafrænna vettvanga auk þess að innleiða reglur um notkun gervigreindar og algrímis á vinnustað og munu þetta vera fyrstu reglurnar á sviði gervigreindar, ásamt gervigreindartillögunni sjálfri, sem settar eru á vettvangi ESB þegar þar að kemur.

Um 30 milljónir manna vinna nú við stafræna vinnuvettvanga innan ESB og fer þeim ört fjölgandi. Langflestir þeirra eru skráðir sem sjálfstæðir verktakar.

Um er að ræða fjölbreytt störf þó sendlaþjónusta og leigubílafyrirtækið Uber, hafi verið mest áberandi í umræðunni. Enda þótt vöxtur í þjónustu af þessu tagi hafi leitt til aukinna atvinnumöguleika til hagsbóta fyrir fjölmarga hefur þetta leitt til þess að aukinn fjöldi fólks á vinnumarkaði nýtur ekki þeirrar félagslegu verndar sem alla jafna felast í ráðningarsambandi.

Talið er að um 20% starfsmanna sem sinna störfum af þessu tagi séu í svokallaðri gerviverktöku og njóti því ekki þeirrar félagslegu verndar sem þeim ber í raun. Reynt hefur á þetta atriði fyrir evrópskum dómstólum í meira en eitt hundrað dómsmálum og þrátt fyrir nokkuð misvísandi niðurstöður, hafa dómstólarnir í langflestum tilvikum komist að því að um ráðningarsamband hafi verið að ræða.

Skilgreining á starfsmanni er einmitt sá hluti tillögunnar sem erfiðast hefur reynst að ná samkomulagi um innan ESB. Í framangreindu samkomulagi felast nokkrar breytingar frá upphaflegri tillögu. Þar er m.a. settur fram listi yfir viðmið sem þykja benda til þess að um ráðningarsamband sé að ræða. Séu tvö tilvikanna til staðar verði taldar löglíkur á því að um ráðningarsamband sé að ræða og þarf atvinnurekandi þá að sýna fram á að svo sé ekki vilji hann ekki fallast á þá niðurstöðu.

Í tillögunni er einnig mælt fyrir um rétt starfsmanna til aðgangs að upplýsingum um þær forsendur sem liggja til grundvallar ákvörðunum sem teknar eru af sjálfvirkum kerfum, m.a. um úthlutun verkefna. Þá er krafist mannlegrar aðkomu að mikilvægum ákvörðunum, svo sem uppsögnum og einnig til að leggja mat á áhrif ákvarðana sem teknar eru af sjálfvirkum vöktunarkerfum á vinnuskilyrði, heilsu og öryggi starfsmanna.

Þrátt fyrir að samkomulag liggi fyrir samkvæmt framangreindu hefur enn sem komið er ekki náðst niðurstaða um endanlega textagerð og frágang málsins til formlegrar afgreiðslu þess á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB. Var fyrstu drögum að endanlegum texta hafnað á vettvangi ráðherraráðs ESB.

Kemur það því í hlut belgísku formennskunnar að freista þess að leiða málið til lykta innan ramma samkomulagsins eftir atvikum og er það mikilvæga verkefni tilgreint í formennskuáætlun þeirra, sbr. umfjöllun um áætlunina hér að framan í Vaktinni, en tímaramminn í þeim efnum er þröngur við núverandi aðstæður eins og þar er jafnframt rakið og því ákveðin óvissa uppi um það hvort það náist að klára málið, sbr. frétt um málið hér.

„Daisy chains“ tillögur

Í byrjun desember sl. náðist samkomulag í þríhliða viðræðum milli Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnarinnar um efni tillagna (e. daisy chains proposal) er lúta annars vegar að breytingum á reglum um endurreisn og slitameðferð fjármálafyrirtækja (e. bank recovery and resolution directive, BRRD) og hins vegar að reglugerð um sameiginlegt skilameðferðarkerfi (e. single resolution mechanism regulation, SRMR).

Framangreindar tillögur eru hluti af tillögupakka er lýtur að endurskoðun á lagaumhverfi evrópskra viðskiptabanka, en fjallað var um tillögupakkann í Vaktinni 21. apríl sl.

Markmið gerðanna er að stuðla að auknu meðalhófi við mat og meðferð á gerningum sem gerðir eru til að mæta lágmarkskröfu um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar innan samstæðu. (e. minimum requirement for own funds and eligible liabilities - MREL)

Sjá nánar um samkomulagið í fréttatilkynningu ráðherraráðs ESB.

Tillögurnar ganga nú til formlegar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Stjórnsýsla jafnréttismála

Samkomulag náðist hinn 12. desember sl. í þríhliða viðræðum Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB um efni tillögu um stjórnsýslu jafnréttismála innan ESB. Um er að ræða tvær tilskipanir sem ætlað er að setja skýrari ramma um stöðu, hlutverk og valdsvið jafnréttisstofnana (e. equality bodies) innan ESB. Fjallað var um málið í Vaktinni 23. júní sl.

Aðildarríkjum ESB er nú þegar skylt að starfrækja jafnréttisstofnanir til að berjast gegn mismunun á vinnustöðum á grundvelli kynferðis, en umboð og valdsvið þessara stofnana er mismunandi eftir aðildarríkjum. Löggjöfin sem samþykkt var og um ræðir hér að framan lögfestir nokkur grundvallaratriði sem styrkja stöðu jafnréttisstofnana innan aðildarríkjanna. Þessi atriði snúa m.a. að því að tryggja stofnunum aukna hæfni til að berjast gegn mismunun, sjálfstæði frá utanaðkomandi áhrifum, fjárhagslegar og tæknilegar bjargir til að sinna hlutverki sínu og setur kröfu um að opinberar stofnanir hafi samráð við jafnréttisstofnanir um málefni sem tengjast kynbundinni mismunun o.fl.

Tillagan gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Skýrari rammi og umgjörð um stjórnsýslu jafnréttismála almennt á Íslandi var settur með lögum um stjórnsýslu jafnréttismála, nr. 151/2020. Að ýmsu leyti má segja að sú endurskoðun hafi að nokkru leyti falið í sér svipaða nálgun og birtist í framangreindri lagasetningu ESB.

Yfirlýsing framkvæmdastjórnar ESB um heilbrigðissamtarf

Hinn 14. desember sl. birti framkvæmdastjórn ESB yfirlýsingu þar sem ósk EES/EFTA-ríkjanna um viðræður um nánara samstarf á sviði heilbrigðismála er fagnað. Fjallað hefur verið um umleitan Íslands um nánara samstarf við ESB á þessu sviði í Vaktinni að undanförnu, nú síðast 8. desember sl., þar sem greint var frá endurmati á hlutverki Neyðar- og viðbragðsskrifstofu ESB á sviði heilbrigðismála. Samstarfið sem um ræðir snýr að undirbúningi og viðbrögðum vegna heilsuvár. Sjá einnig m.a. umfjöllun í Vaktinni 26. maí sl. þar sem fjallað var um óformlegan fund heilbrigðisráðherra ESB.

Liechtenstein hefur nú einnig nýverið lýst yfir áhuga á að taka þátt í samstarfinu og eru EES/EFTA-ríkin því nú samferða í málaleitan sinni á þessu sviði sem getur hraðað framgangi þeirra eins og raunar er vikið að í framangreindri yfirlýsingu framkvæmdastjórnarinnar.

Í yfirlýsingunni kemur fram sú afstaða framkvæmdastjórnarinnar að viðræður um framangreint sé rökrétt framhald á góðu samstarfi ESB og EES/EFTA-ríkjanna á grundvelli EES-samningsins.

Með yfirlýsingunni lýsir framkvæmdastjórn ESB jafnframt yfir vilja til að hraða viðræðum við ríkin þrjú um varanlegan samstarfsramma á sviði heilbrigðismála. Legið hefur fyrir að hluti slíks samstarfs geti fallið innan gildissviðs EES-samningsins og er sú vinna í góðum farvegi. Frekari viðræður þurfa hins vegar að eiga sér stað um þátttöku á þeim sviðum samstarfsins sem kæmu því til viðbótar.

Listi yfir mikilvæg lyf til að sporna gegn lyfjaskorti

Lyfjaskortur er vaxandi áhyggjuefni meðal ríkja ESB, en eitt af forgangsverkefnum framkvæmdastjórnar ESB á sviði heilbrigðismála síðastliðin misseri hefur verið að grípa til ráðstafana til tryggja framboð lífsnauðsynlegra lyfja. Greint var frá aðgerðum framkvæmdastjórnarinnar til að sporna gegn lyfjaskorti og auka afhendingaröryggi lífsnauðsynlegra lyfja nú síðast í Vaktinni 27. október sl. Ein þeirra aðgerða sem þar var kynnt sneri að útgáfu lista yfir þau lyf sem mikilvægust eru. Með fréttatilkynningu framkvæmdastjórnar ESB 12. desember sl. var fyrsta útgáfa slíks lista birtur.

Gerð listans er samstarfsverkefni framkvæmdastjórnar ESB, Evrópsku Lyfjastofnunarinnar (EMA) og samtaka forstjóra lyfjastofnana Evrópu (HMA). Með útgáfu hans er verið að flýta framkvæmd sem stefnt er að því að lögfesta í tillögum að nýjum lyfjalögum sem nú eru til umfjöllunar í ráðherraráði ESB og á Evrópuþinginu, sbr. umfjöllun um þær tillögur í Vaktinni 26. maí sl., en framgangur þeirra tillagna er á meðal forgangsmála í formennskuáætlun Belga á sviði heilbrigðismála, sbr. umfjöllun um áætlunina hér að framan.

Listanum er ætlað að byggja undir frekara samstarf innan ESB á sviði heilbrigðismála (e. European Health Union) og styrkja strategískt sjálfræði ríkjasambandsins er kemur að aðgengi að lyfjum og aðföngum til framleiðslu lyfja á þeim óvissutímum sem nú ríkja í heimsmálum og alþjóðaviðskiptum.

EMA gegnir lykilhlutverki við að samræma viðbrögð innan ESB og evrópska efnahagssvæðisins þegar aðgengi að lífsnauðsynlegum lyfjum er ógnað á neyðartímum og örðugt er að leysa úr málum með ráðstöfunum sem gripið er til innan einstakra aðildaríkja. Á vegum stofnunarinnar starfa tveir samráðshópar að þessum verkefnum, annars vegar stýrihópur um skort og öryggi lyfja (e. Executive Steering Group on Shortages and Safety of Medicinal Products (MSSG)) og hins vegar vinnuhópur um lyfjaskort (e. The Medicine Shortages Single Point of Contact (SPOC)). Í framkvæmd eru það þessir tveir hópar sem vakta lyfjalistann og leggja til ráðstafanir ef truflanir verða á eðlilegu birgðahaldi einstakra lyfja. Ísland á fulltrúa í báðum þessum hópum, forstjóri Lyfjastofnunar situr í stýrihópnum og sérfræðingur stofnunarinnar á sæti í vinnuhópnum.

Við gerð listans var fyrirfram ákveðinni aðferðarfræði fylgt sem þróuð var á tímum kórónuveiru heimsfaraldursins. Lyf er skráð mikilvægt (lífsnauðsynlegt) ef það er grundvöllur þess að geta veitt gæða heilbrigðsþjónustu sem tryggir samfellu í meðferð sjúklings og góða lýðheilsu íbúa. Horft er til alvarleika sjúkdómsins sem þau eru notuð til meðferðar á og framboði annarra lyfja sem gagnast við meðferð hans. Þá er það viðbótarskilyrði sett að til að lyf komist á listann þarf það að hafa verið metið mikilvægt í að minnsta kosti þriðjungi ríkja á evrópska efnahagssvæðinu.

Á þessum fyrsta sameiginlega lista sambandsins eru skráð meira en 200 virk innihaldsefni sem notuð eru í lyf fyrir fólk. Þar er að finna bæði nýstárleg lyf og samheitalyf á fjölmörgum lækningasviðum eins og bóluefni og lyf við sjaldgæfum sjúkdómum. Listinn er ekki endanlegur heldur er gert ráð fyrir að hann verði endurskoðaður árlega og má gera ráð fyrir að listinn muni lengjast.

Gagnlegar upplýsingar sem tengjast gerð listans o.fl. má finna á vefsíðu EMA.

Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins, í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

08. desember 2023 | Sameiginlega EES-nefndin afgreiðir flugmálið, samkomulag um framlög í Uppbyggingarsjóð EES, auknir tollkvótar fyrir sjávarafurðir o.fl. |
Að þessu sinni er fjallað um:

samkomulag um framlög í Uppbyggingarsjóð EES og aukna tollkvóta fyrir sjávarafurðir

aðgerðir gegn hatursorðræðu og hatursglæpum

markaðsmisnotkun á orkumarkaði

orkunýtni bygginga

losun frá iðnaði

vistvæna hönnun framleiðsluvara

flokkun, merkingar og pökkun hættulegra efna

réttarvernd ferðamanna

velferð dýra

EES/EFTA álit um breytingu á tilskipun um ökuskírteini

endurmat á hlutverki nýrrar Neyðar- og viðbragðsskrifstofu ESB á sviði heilbrigðismála

fundi innviðaráðherra í Brussel

uppfærslu forgangslista fyrir hagsmunagæslu Íslands gagnvart ESB

fund sameiginlegu EES-nefndarinnar í dag

Vaktin heilsar ykkur næst á nýju ári, 30 ára afmælisári EES-samningsins.

Samkomulag um framlög í Uppbyggingarsjóð EES og aukna tollkvóta fyrir sjávarafurðir

Í síðustu viku náðist samkomulag í viðræðum EES/EFTA ríkjanna og ESB um fjárframlög í Uppbyggingarsjóð EES fyrir tímabilið 2021-2028 og um tollkvóta fyrir tilteknar sjávarafurðir frá Íslandi inn á markað ESB fyrir sama tímabil.

Allt frá gildistöku EES-samningsins 1. janúar 1994 hafa EES/EFTA-ríkin, nú Ísland, Noregur og Liechtenstein, skuldbundið sig til að inna af hendi tiltekin framlög til að draga úr efnahagslegum og félagslegum ójöfnuði milli svæða innan EES með það fyrir augum að stuðla að jafnri og stöðugri eflingu viðskipta- og efnahagstengsla samningsaðila eins og kveðið er á um í 1. mgr. 115. gr. EES-samningsins.

Hefur þetta falist í fjárframlögum EES/EFTA-ríkjanna til tiltekinna ríkja innan ESB í gegnum Uppbyggingarsjóð EES, sbr. nánar um Uppbyggingarsjóðinn og ráðstöfun framlaga úr honum hér á vefsíðu Stjórnarráðsins og í Vaktinni 24. febrúar sl.

Hefur þessi þáttur í EES-samstarfinu ávallt verið tímabundinn og er metið í lok hvers tímabils hvort ástæða sé til að halda áfram að inna slík framlög af hendi. Hefur þá verið miðað við að þau ríki geti notið aðstoðar úr sjóðnum þar sem þjóðartekjur eru undir 90% af meðaltali þjóðartekna í Evrópu. Er það sama viðmið og notað er við mat á því hvaða ríki geti notið aðstoðar úr samheldnissjóðum ESB og má til sanns vegar færa að Uppbyggingarsjóðurinn sé nokkurs konar framlenging af þeim.

Í kjölfar stækkunar EES árið 2002, vegna fjölgunar aðildarríkja ESB, gerði ESB ríkari kröfur en áður til EES/EFTA-ríkjanna um fjárhagsleg framlög á grundvelli framangreindra ákvæða EES-samningsins. Niðurstaða samningaviðræðna varð sú að fjármagnskerfi EES eða Uppbyggingarsjóðs EES var endurskoðað og hækkuðu fjárframlög þá frá því sem verið hafði. Framlögin hækkuðu ennfremur árið 2007 þegar Búlgaría og Rúmenía gengu í EES og bættust í hóp þeirra ríkja sem nutu framlaga úr sjóðnum og enn á ný þegar Króatía gekk í EES árið 2014. Frumvörp vegna inngöngu þessara þjóða voru samþykkt á Alþingi árin 2004 og 2007 og síðan 2014.

Samkvæmt nýjum samningi verða heildarframlög EES/EFTA-ríkjanna til Uppbyggingarsjóðs EES rúmlega 1,7 milljarður evra á samningstímabilinu. Því til viðbótar verður 100 milljónum evra ráðstafað til verkefna í viðtökuríkjum sjóðsins sem tengjast afleiðingum innrásarinnar í Úkraínu. Hækkun framlaga frá fyrra tímabili nemur að öllu samanlögðu 16,6%. Hækkunin er í takt við verðlagsbreytingar sem orðið hafa á evrusvæðinu frá því síðast var samið. Hlutur Íslands hefur upp á síðkastið numið um 4,5% af heildarframlögum, en hlutfallið er breytilegt á milli ára og tekur mið af þróun landsframleiðslu. Ef gert er ráð fyrir óbreyttu greiðsluhlutfalli Íslands út samningstímabilið þá gæti framlag Íslands að jafnaði numið um 1,7 milljörðum íslenskra króna á ári miðað við núverandi gengi og miðað við fulla nýtingu sjóðsins.

Eins og áður segir er samningsgrundvöllur fjárframlaga til Uppbyggingarsjóðs EES að finna í VIII. hluta EES samningsins, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, en þar er einnig kveðið á um að efla skuli viðskipta- og efnahagstengsl samningsaðila og er í því sambandi sérstaklega vísað til sjávarútvegs og landbúnaðar. Í kjölfar framangreindra stækkana ESB missti Ísland marga tvíhliða viðskiptasamninga með fisk og sjávarafurðir við ríki í Mið- og Austur-Evrópu. Af þeim sökum hefur allt frá árinu 2004 tíðkast að semja samhliða um betri markaðsaðgang fyrir fisk og sjávarafurðir.

Að þessu sinni tókust samningar um umtalsvert aukið magn tollfrjálsra tollkvóta fyrir sjávarafurðir frá Íslandi miðað við fyrra tímabil, eða 15.000 tonn á ári í stað 6.450 tonna eins og fyrri samningur kvað á um en auk þess felur samningurinn í sér mun breiðari samsetningu afurða í tollkvótum. Nánar tiltekið felur samningurinn í sér átta mismunandi tollkvóta sem ná til 52 afurðategunda en til samanburðar náði síðasti samningur til fjögurra tollkvóta og jafnmargra afurðategunda. Standa vonir til að nýir tollkvótar og breytt útfærsla þeirra muni gera útflytjendum íslenskra sjávarafurða betur kleift að nýta umsamda kvóta til fulls.

Eins og á fyrri sjóðstímabilum var samið um að ónýttir tollkvótar fyrir þau tvö ár sem þegar eru liðin af núverandi sjóðstímabili deilist á þau ár sem eftir eru af tímabilinu. Einnig náðist fram það nýmæli að kvóta sem ekki næst að nýta á samningstímabilinu verði hægt að nýta í tvö ár eftir að samningstímanum lýkur. Gildistími tollkvótanna er frá 1. maí 2024 til 30. apríl 2028, en unnt að nýta þá til 30. apríl 2030, ef á reynir.

Loks náðist hliðarsamkomulag á milli ESB og Íslands um að ráðist verði í heildstæða endurskoðun á markaðsaðgangi í vöruviðskiptum Íslands og ESB með það að markmiði að endurskoðun klárist fyrir lok samningstímabilsins 2028. Með því samkomulagi hefur verið skapaður vettvangur til viðræðna við ESB um heildstæða endurskoðun á núverandi viðskiptakjörum og þá einkum fyrir bættan markaðsaðgang fyrir íslenskar sjávarafurðir til ESB. Við mótun samningsmarkmiða fyrir þessar viðræður er vert að hafa í huga að fyrir utan ofangreint samkomulag um tollkvóta fyrir sjávarafurðir þá er í gildi víðtækur fríverslunarsamningur milli Íslands og ESB um sjávarafurðir, sbr. fríverslunarsamning milli Íslands og EBE frá árinu 1972, sbr. og (bókun 6) og bókun 9 við EES samninginn. Samningarnir kveða á um fríverslun með okkar helstu sjávarafurðir eins og þorsk, ýsu, ufsa o.fl. og skiluðu um það bil 95% fríverslun með sjávarafurðir frá Íslandi til ESB árið 1995. Þau viðskiptakjör hafa á hinn bóginn heilt yfir versnað á umliðnum árum einkum vegna breyttrar samsetningar útflutnings sjávarfangs frá Íslandi til ESB en nú er meira flutt af afurðum til ESB sem ekki falla undir umræddan fríverslunarsamning svo sem uppsjávartegundir og eldisfiskur, einkum eldislax. Hefur þetta leitt til þess að hlutfall tollfrjáls útflutnings sjávarafurða til ESB var komið niður í um það bil 70% árið 2021.

Sendiherra Íslands í Brussel var aðalsamningamaður Íslands í viðræðunum. Jafnframt tóku þátt í viðræðunum fulltrúar utanríkisráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis og matvælaráðuneytis. Haft var samráð við fulltrúa hagsmunaaðila í sjávarútvegi á meðan á samningaferlinu um niðurfellingu tolla á sjávarafurðum stóð.

Framangreint samkomulag um Uppbyggingarsjóð EES og um tollkvóta fyrir sjávarafurðir gengur nú til fullgildingar í EES/EFTA-ríkjunum og hjá aðildaríkjum ESB á vettvangi ráðherraráðs ESB. Nýr samningur kallar á breytingu á EES-samningnum, og á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, þar sem ný bókun, bókun 38d, bætist við saminginn. Mun samkomulagið í því formi koma til umræðu og afgreiðslu á Alþingi, sbr. til hliðsjónar lög nr. 81/2016, um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, þar sem samkomulag um sjóðinn fyrir tímabilið 2014-2021 var staðfest.

Aðgerðaráætlun gegn hatursorðræðu og hatursglæpum

Framkvæmdastjórn ESB og utanríkismálastjóri ESB sendu í vikunni frá sér sameiginlega orðsendingu til Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB um varnir gegn hatursorðræðu og hatursglæpum undir yfirskriftinni „No place for hate: a Europe united against hatred“. Felur orðsendingin í sér ákall til allra Evrópubúa um að standa gegn hatri og tala fyrir umburðarlyndi og virðingu fyrir öllu fólki. Með orðsendingunni er framkvæmdavaldsarmur ESB jafnframt að skerpa á viðleitni sinni og annarra stofnanna ESB til að berjast gegn hatri í öllum sínum birtingarmyndum og þvert á stefnumótun og framkvæmd á ólíkum málefnasviðum, hvort sem það er á sviði öryggismála, stafrænna mála, mennta- og menningarmála eða íþróttamála með grunngildi ESB og fjölmenningarsamfélagsins að leiðarljósi.

Tilefni orðsendingarinnar nú er sú mikla aukning á hatursorðræðu sem orðið hefur vart við að undanförnu sem og aukningu í hatursglæpum en gögn sýna að samfélög gyðinga annars vegar og íslamstrúarfólks hins vegar hafi sérstaklega orðið útsett fyrir slíkri orðræðu og glæpum í auknum mæli. Hefur þróunin vakið ugg í brjóstum manna enda þykir þróunin um margt minna á þær hörmungar sem riðu yfir Evrópu á tuttugustu öldinni einkum á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar og rekja má beint til skelfilegrar hatursorðræðu.

Samkvæmt orðsendingunni er vernd fólks í almannarýminu forgangsverkefni og er kallað eftir því að fjárveitingar til sameiginlegs öryggissjóðs ESB (The Internal Security Fund – ISF) verði auknar og fjármunir m.a. nýttir í auknum mæli til að vernda tilbeiðslustaði ólíkra trúarbragðahópa. Þá er boðað að gripið verði til sérstakra ráðstafana til að vinna gegn hatursorðræðu á netinu, m.a. með endurbættum siðareglum sem verða m.a. grundvallaðar á nýrri reglugerð ESA á sviði rafrænnar þjónustu (e. Digital Services Act – DSA) sem tók gildi í aðildarríkjum ESB hinn 16. nóvember 2022, sbr. umfjöllun um þá löggjöf í Vaktinni 18. nóvember 2022, og er gert ráð fyrir að nýjar siðareglur verði birtar fljótlega í upphafi næsta árs.

Í orðsendingunni er lögð rík áhersla á mikilvægi þess að virkja samfélagið í heild sinni gegn hatursorðræðu og er lagt til að starf samræmingarstjóra ESB gegn kynþátta- og trúarbragðafordómum verði eflt í þessu skyni. Þekking og aukin vitund um þessi málefni meðal fólks almennt er lykillinn að árangri og þar gegna fjölmiðlar og mennta- og menningarkerfið lykilhlutverki og er boðað að gripið verði til aðgerða til vitundarvakningar.

Þá er lögð áhersla á alþjóðlega samvinnu til að sporna gegn hatursorðræðu og hatursglæpum.

Hyggst framkvæmdastjórnin, snemma á næsta ári, efna til ráðstefnu þar sem þeim sem helst standa í stafni í baráttunni gegn hatri og mismunun verður boðin þátttaka. Þá er jafnframt gert ráð fyrir að ráðstefnunni verði fylgt eftir með víðtækum umræðum með þátttöku almennings með það að markmiði að unnt verði að sameinast um efni tilmæla eða ráðlegginga um hvernig byggja megi brýr á milli ólíkra hópa samfélagsins.

Orðsendingin nú byggir á gildandi stefnum ESB á skyldum sviðum svo sem á stefnu og aðgerðarplani ESB um varnir gegn kynþáttafordómum ( EU Anti-racism Action Plan 2020-2025), um varnir gegn gyðingahatri (the Strategy on combating antisemitism and fostering Jewish life in the EU), um jafnrétti kynjanna (Gender Equality Strategy 2020-2025, um réttindi hinsegin fólks (LGBTIQ Equality Stratgy 2020-2025), um réttindi fólks með fötlun (Strategy for the rights of persons with disabilities 2021 – 2030) um réttindi Rómafólks (EU Roma strategic framework for equality, inclusion and participation 2020-2030) og um réttindi þeirra sem á er brotið (EU Strategy on victims' rights (2020-2025)), sbr. einnig m.a. löggjöf sambandsins frá 2008, um baráttuna gegn kynþátta- og útlendingahatri og um refsiviðurlög á því sviði (e. Framework Decision on combating certain forms and expressions of racism and xenophobia by means of criminal law). Þá hafa varnir gegn hatursorðræðu og hatursglæpum einnig verið til umræðu á Evrópuþinginu á umliðnum árum, sjá samantekt rannsóknarþjónustu Evrópuþingsins um þau störf hér.

Eins og kunnug er hafa aðgerðir gegn hatursorðræðu verið til umræðu á Alþingi á þessu ári en í lok febrúar sl. var af hálfu forsætisráðherra lögð fram stjórnartillaga til þingsályktunar um aðgerðaráætlun gegn hatursorðræðu fyrir árin 2023-2026. Í tillögunni eru lagðar til alls 22 aðgerðir sem ætlað er að skilgreina stefnu stjórnvalda á þessu sviði og lýsa tilteknum verkefnum sem ýmist er ætlað að varpa ljósi á stöðu viðkvæmra hópa í samfélaginu eða fela í sér beinar aðgerðir til að fræða og upplýsa og greina mögulega annmarka m.a. í löggjöf. Tillagan gekk til fyrstu umræðu og til allsherjar- og menntamálanefndar en ekki náðist að afgreiða tillöguna úr nefndinni fyrir þinglok síðastliðið vor.

Framangreind þingsályktunartillaga var meðal annars byggð á nýlegum tilmælum Evrópuráðsins CM/Rec (2022)16 um baráttu gegn hatursorðræðu (Recommendation of the Committee of Ministers to member States on combating hate speech) en tilmælin hafa verið þýdd á íslensku og eru birt á vefsvæði forsætisráðuneytisins.

Má ætla að orðsending ESB, sem gerð er grein fyrir að framan, geti orðið innlegg í þá umræðu sem á sér stað á Íslandi um þessi mikilvægu málefni.

Aukin vernd gegn markaðsmisnotkun á orkumarkaði

Til að bregðast við þeirri orkukreppu sem hrjáð hefur Evrópu í kjölfar árásarstríðs Rússlands gagnvart Úkraínu hefur framkvæmdastjórn ESB gripið til margvíslegra ráðstafana til að sporna við háu orkuverði m.a. með tillögum um endurskipulagningu orkumarkaðar ESB með það að markmiði að verja neytendur fyrir óhóflegum verðhækkunum og markaðsmisnotkun og tryggja samkeppnishæfni evrópsks atvinnulífs og flýta um leið orkuskiptum, sbr. m.a. umfjöllun í Vaktinni 7. október 2022, þar sem fjallað var um neyðarráðstafanir til að sporna gegn háu orkuverði, í Vaktinni 7. janúar 2023, þar sem fjallað var um opin samráð um endurskoðun reglna um evrópskan raforkumarkað, og í Vaktinni 24. mars 2023 þar sem fjallað var um framfylgd framkvæmaáætlunar græna sáttmálans.

Hinn 16. nóvember sl. komust Evrópuþingið, ráðherraráð ESB og framkvæmdastjórn ESB, að samkomulagi í þríhliða viðræðum um breytingar á svonefndri REMIT reglugerð (Regulation on Wholesale Energy Market Integrity and Transparency) sem ætlað er tryggja aukna vernd neytenda og fyrirtækja gegn markaðsmisnotkun á heildsöluorkumarkaði. Breytingarnar á REMIT reglugerðinni nú eru hluti af framangreindum umbótum á skipulagi orkumarkaða innan ESB sem unnið hefur verið að. Miða umbæturnar að því að gera raforkuverð óháðara verðsveiflum á jarðefnaeldsneytismarkaði, verja neytendur fyrir verðhækkunum og flýta fyrir uppbyggingu endurnýjanlegrar orkuframleiðslu.

Samkomulagið nú felur m.a. í sér:

Skráningu markaðsaðila, sem felur í sér að markaðsaðilar frá þriðju ríkjum sem eru virkir á heildsölumarkaði innan ESB verða að tilnefna umboðsaðila, með aðsetur í aðildaríki ESB, sem hefur heimild til að koma fram fyrir hönd hans gagnvart orkumálayfirvöldum í ESB.

Að Orkumálastofnun ESB (The European Union Agency for the Cooperation of Energy Regulators - ACER) fái ákvörðunarvald og heimildir til að beita viðurlögum.

Auknar heimildir til handa ACER til að rannsaka mál sem ná yfir landamæri þar sem háttsemin hefur áhrif á a.m.k. tvö aðildarríki.

Að eftirlitsstjórnvöld einstakra ríkja muni áfram geta andmælt beitingu rannsóknarheimilda af hálfu ACER hafi stjórnvaldið sjálf formlega hafið eða framkvæmt rannsókn á sama máli og ACER hyggst taka fyrir.

Tillagan gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Orkunýtni bygginga

Undanfarið hefur ESB unnið að endurskoðun hreinorkugerða og er endurskoðunin hluti af framfylgd stefnuáætlunarinnar „Fær í 55“ og er tillaga um heildarendurskoðun tilskipunar um orkunýtni bygginga (Energy Performance of Buildings Directive (EPBD)) hluti af þeirri endurskoðun.

Tillaga að endurgerð tilskipunarinnar var lögð fram þann 15. desember 2021 og er þar sett fram sú framtíðarsýn að byggingar verði kolefnishlutlausar árið 2050. Þetta er sérstaklega mikilvægt þar sem byggingar standa fyrir 40% af orkunotkun og 36% af orkutengdri losun gróðurhúsalofttegunda í ESB.

Í núgildandi tilskipun, þ.e. tilskipun nr. 2010/31/ESB sbr. tilskipun um breytingar á þeirri tilskipun nr. 2018/844/ESB, er mælt fyrir um lágmarkskröfur um orkunýtni nýrra bygginga og núverandi bygginga sem verið er að gera upp. Þar er mælt fyrir um aðferðafræði til að reikna út samþætta orkunýtni bygginga og kveðið á um orkunýtnivottun bygginga. Ísland fékk undanþágu, með sérstakri efnilegri aðlögun, frá tilskipuninni árið 2010 með hliðsjón af þeirri sérstöðu sem Ísland hefur með háu hlutfalli endurnýjanlegra orkugjafa. Eftir breytingarnar árið 2018 er undanþágan þó skilyrt því að Ísland þarf að taka til greina nýmæli sem kveðið var á um í nýrri tilskipun 2018/844/ESB, sem til að mynda lýtur að snjallvæðingu bygginga og hleðslumöguleikum fyrir rafbíla.

Hinn 7. desember sl. náðist samkomulag milli Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB, um efni framangreindar tillögu að heildarendurskoðun tilskipunar um orkunýtni bygginga. Fjallað var um tillöguna í Vaktinni 4. nóvember 2022 þar sem fjallað var um orkukreppuna og sagt frá fundi orkumálaráðherra ESB í október 2022 og afstöðu ráðherraráðs ESB til tillögunnar sem þá var samþykkt.

Fyrirliggjandi tillaga felur í sér nýjar og metnaðarfyllri kröfur um orkunýtni fyrir nýjar og endurnýjaðar byggingar innan ESB. Meginmarkmið endurskoðunarinnar er að árið 2030 verði allar nýjar byggingar kolefnishlutlausar og að árið 2050 nái það til allra bygginga. Metið verður, m.a. með hliðsjón af forsögu málsins, hvort aðlagana sé þörf fyrir Ísland er kemur að upptöku gerðarinnar í EES-samninginn en tillagan er til umfjöllunar í vinnuhópi EFTA um orkumál.

Tillagan gengur nú til formlegar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Losun frá iðnaði

Eins og fjallað var um í Vaktinni 24. mars 2023 þá samþykkti ráðherraráð ESB afstöðu sína til efnis tillögu um breytingar á tilskipun um losun frá iðnaði (IED) á fundi sínum 16. mars sl. Í framhaldi af því hófust þríhliða viðræður Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB um endanlegt efni tillögunar. Hinn 29. nóvember sl. náðist samkomulag um endanlegt efni tilskipunarinnar og jafnframt um efni tillögu að nýrri reglugerð um stofnun upplýsingagáttar fyrir losun frá iðnaði (IEP).

Markmið með breyttum reglum er að draga enn frekar úr hvers kyns skaðlegri losun úrgangs frá iðnaði, þar með talið kolefnislosun, og bæta þar með heilsu fólks og umhverfið. Markmiðið er einnig að hvetja til nýsköpunar og jafna samkeppnisskilyrði iðnaðar á innri markaðinum. Þá miða reglurnar að því að einfalda og bæta upplýsingagjöf iðnrekenda til stjórnvalda og almennings á þessu sviði m.a. með því að uppfæra núverandi samevrópska skrá yfir losun og flutning mengunarefna og koma á fót ítarlegri og samþættri upplýsingagátt fyrir losun frá iðnaði. Loks er það markmið reglnanna að bæta orkunýtingu í iðnaði og að efla hringrásarhagkerfið.

Tilskipunin um losun frá iðnaði er helsta tæki ESB til að hafa stjórn á mengun frá iðnaðarmannvirkjum, þ. m. t. frá svonefndu þauleldi (e. intensive livestock farms), svo sem mengun vegna köfnunarefnis, ammoníaks, kvikasilfurs, metans og koldíoxíðs.

Samkomulagið nú felur m.a. í sér að sett eru tiltekin viðmiðunarmörk fyrir þauleldi; þ.e. eldi svína, alifulga og blandað eldi. Hefðbundin bú og búfjárrækt til heimilisnota eru þó undanskilin gildissviði tilskipunarinnar. Samkomulagið færir einnig tiltekna námustarfsemi undir gildissvið tilskipunarinnar. Kveðið er á um losunarmörk og m.a. sett fram hugtakið umhverfisviðmiðunarmörk (e. environmental performance limit values - EPLV) sem nýtt verður við framkvæmd tilskipunarinnar.

Eins og áður segir tekur samkomulagið einnig til efnis nýrrar reglugerðar um stofnun upplýsingagáttar fyrir losun frá iðnaði (IEP). Gáttin á m.a. að auka aðgengi almennings að upplýsingum um losun frá iðnaði og auðvelda þátttöku almennings í ákvarðanatöku í umhverfismálum. Í gáttinni verða gögn um notkun á vatni, orku og lykilhráefnum frá einstökum starfsstöðvum iðnaðar.

Tillögurnar ganga nú til formlegar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Vistvæn hönnun framleiðsluvara

Hinn 4. desember sl. náðist samkomulag milli Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB, um efni tillögu að nýrri reglugerð er setur ramma utan um kröfur til visthönnunar fyrir sjálfbærar vörur (e. Regulation establishing a framework for setting ecodesign requirements for sustainable products).

Fjallað var um tillöguna í Vaktinni 1. apríl 2022 þar sem fjallað er um tillögupakka framkvæmdastjórnar ESB um hringrásarhagkerfið.

Tillaga að nýrri reglugerð byggir á gildandi tilskipun um visthönnun sem hefur með góðum árangri knúið áfram bætta orkunýtni framleiðsluvara í tæpa tvo áratugi. Með nýrri reglugerð og því samkomulagi sem náðst hefur er gert ráð fyrir að gildissvið núverandi löggjafar verði víkkað út. Til að tryggja fyrirsjáanleika og gagnsæi um hvaða vörur verði felldar undir gerðina og hvenær, mun framkvæmdastjórn ESB samþykkja og uppfæra reglulega lista yfir vörur sem auðkenndar verða á grundvelli ítarlegrar greiningar og viðmiðana er tengjast einkum loftslags-, umhverfis- og orkunýtnimarkmiðum ESB. Tilteknar vörur sem hafa mikil umhverfisáhrif verða settar í forgang þ.e. textílvörur, húsgögn o.fl. en gert er ráð fyrir að hin nýja reglugerð taki að lokum til nánast allra vöruflokka.

Nýjar kröfur um visthönnun ganga þannig mun lengra en núgildandi tilskipun þar sem stefnt er að því að nánast allar vörur verði felldar undir hringráshagkerfið.

Tillagan gengur nú til formlegar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag. Í framhaldinu verður fyrsta vinnuáætlunin samkvæmt nýju reglugerðinni samþykkt þar sem koma mun fram hvaða vörur verði felldar undir regluverk gerðinnar í fyrstu umferð.

Flokkun, merkingar og pökkun hættulegra efna

Samkomulag náðist í vikunni í þríhliða viðræðum Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB um efni tillögu um endurskoðun reglugerðar um flokkun, merkingar og pökkun hættulegra efna.

Markmið reglugerðarinnar er að vernda fólk og umhverfið fyrir skaðlegum áhrifum slíkra efna og tryggja öruggt og frjálst flæði vara sem innihalda slík efni á innri markaðinum.

Tillagan gengur nú til formlegrar samþykktar á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Bætt réttarvernd ferðamanna

Þann 29. nóvember síðastliðinn lagði framkvæmdastjórn ESB fram tillögur til að styrkja réttarvernd ferðamanna. Tillögurnar taka mið af reynslu síðustu ára vegna Covid-19 faraldursins og gjaldþrota í ferðabransanum sem fylgdu í kjölfarið.

Breytingartillögunum er ætlað að skýra reglur um endurgreiðslu vegna niðurfellingar á flugi og bæta upplýsingaflæði til neytenda. Einnig er lagt til að bæta réttarvernd fatlaðra og hreyfihamlaðra ferðamanna með því að tryggja þeim rétt til viðeigandi aðstoðar og þjónustu.

Nánar tiltekið er lagt að eftirlit með framkvæmd reglugerðar um réttindi flugfarþega verði hert en einnig að farþegum sem bókuðu í gegnum millilið verði gert kleift að fá endurgreitt. Þá eru lagðar til breytingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar um fjölþátta ferðaupplýsingaþjónustu sem miða að því að gera ferðamönnum auðveldara að nálgast upplýsingar í rauntíma um þjónustu, aðgengi, ferðamöguleika, seinkanir og niðurfelld flug. Lagt er til að fatlaðir og hreyfihamlaðir farþegar njóti viðeigandi þjónustu ef þeir þurfa að breyta um ferðamáta. Einnig er lagt til að aðstoðarmenn fatlaðra eða hreyfihamlaðra flugfarþega fljúgi endurgjaldslaust og eigi rétt á að sitja við hlið ferðamannsins ef það er raunhæft.

Þá er kveðið á um að ferðaskrifstofur skuli eiga rétt til endurgreiðslu frá þjónustuveitendum innan viku frest, þegar endurgreiðslukröfur stofnast. Þetta gerir ferðaskrifstofum aftur betur kleift að endurgreiða ferðamönnum innan áskilins tveggja vikna frests þegar þeir eiga rétt á endurgreiðslu. Tillögurnar fela einnig í sér að innágreiðslur ferðamanna inn á pakkaferðir megi ekki nema meira en 25% af heildarverði pakkaferðarinnar nema í undantekningartilfellum og að ferðaskipuleggjendur megi ekki krefjast heildargreiðslu fyrr en 28 dögum fyrir upphaf pakkaferðarinnar.

Sé ferðamönnum boðin inneignarnóta vegna niðurfellingar ferðar er lagt til að þeim verði gert skylt að greina þeim frá skilmálum inneignarnótunnar og upplýsa ferðamann hvort hann eigi rétt á endurgreiðslu í stað inneignarnótu. Þá er þess krafist að inneignarnótur sem ekki eru nýttar séu sjálfkrafa endurgreiddar í lok gildistíma þeirra. Enn fremur er lagt til að bæði inneignarnótur og endurgreiðslur verði tryggðar reynist ferðaþjónustuaðili ógjaldfær. Jafnframt er lagt til að ferðamönnum verði veittar skýrar upplýsingar um réttindi sín, hvaða ferðasamsetningar teljist til pakkaferða og hver sé ábyrgur vegna vanefnda.

Tillögurnar ganga nú til umfjöllunar á Evrópuþingsins og í ráðherraráði ESB.

Velferð dýra

Í vikunni lagði framkvæmdastjórn ESB fram tillögur að endurskoðun reglna um velferð dýra. Um er að ræða tvær tillögur annars vegar tillögu um umbætur er kemur að velferð dýra þegar þau eru flutt á milli staða og hins vegar tillögu að nýrri reglugerð um velferð og rekjanleika hunda og katta sem ræktuð eru í viðskiptalegum tilgangi.

Fyrri tillagan felur í sér endurskoðun á gildandi reglum ESB um aðbúnað dýra þegar þau eru flutt á milli staða og taka tillögurnar mið af vísindalegum rannsóknum og tækninýjungum á þessu sviði.

Með seinni tillögunni er í fyrsta sinn stefnt að því að koma á samræmdum reglum um meðhöndlun hunda og katta í ræktunarstöðvum og gæludýraverslunum sem og í athvörfum sem rekin eru fyrir slík dýr. Jafnframt er kveðið á um skyldubundna auðkenningu og skráningu hunda og katta í innlenda gagnagrunna til að berjast gegn ólöglegum viðskiptum með slík dýr og til að bæta eftirlit með aðstæðum dýranna og rekjanleika.

Að lokum leggur framkvæmdastjórnin til frekari skref til að bregðast við frumkvæðismáli evrópskra borgara (e. European Citizen Iniciative) „Fur Free Europe“, þar sem kallað er eftir því að bann verði lagt við loðdýrarækt og sölu á vörum sem innihalda loðfeldi af dýrum á innri markaðnum. Í viðbrögðum framkvæmdastjórnarinnar nú er frumkvæðinu fagnað og viðurkennt að velferð dýra sé enn mikið áhyggjuefni fyrir evrópska borgara. Hefur framkvæmdastjórnin falið Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) að veita vísindalegt álit á velferð loðdýra á loðdýrabúum. Í framhaldi af þeirri álitsgjöf verði tekin afstaða til næstu skrefa í málinu.

Hér má finna skýrslu (e. briefing) frá rannsóknarþjónustu Evrópuþingsins (e. EPRS) um dýravelferð í aðildarríkjum ESB sem birt var í vikunni.

Framangreindar tillögur ganga nú til umfjöllunar á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

EES/EFTA álit um löggjafartillögu um ökuskírteini

Þann 1. mars sl. lagði framkvæmdastjórn ESB fram þrjár löggjafartillögur á sviði umferðaröryggis og var fjallað um tillögurnar í Vaktinni 10. mars sl. Löggjafartillögurnar hafa frá þeim tíma verið til umfjöllunar á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB og samþykkti ráðið afstöðu sína til málsins fyrir komandi þríhliða viðræður á fundi samgönguráðherra ESB 4. desember sl. en enn er beðið eftir að Evrópuþingið samþykki afstöðu sína fyrir viðræðurnar.

Samhliða umfjöllun í stofnunum ESB hafa EES/EFTA-ríkin unnið að greiningu og mati á tillögunum með hliðsjón af skuldbindingum og hagsmunum ríkjanna samkvæmt EES-samningnum. Fjallað hefur verið um tillögurnar á vettvangi vinnuhóps EFTA um samgöngumál og var ákveðið í kjölfar umræðu þar að senda inn sérstakt álit (EEA EFTA Comment) um eina af framangreindum þremur tillögum, þ.e. um breytingartillögu við tilskipun um ökuskírteini og hefur álitið verið sent stofnunum ESB sem hafa tillögurnar til umfjöllunar, þ.e. til Evrópuþingsins, ráðherraherraráðs ESB, framkvæmdastjórnar ESB og fleiri aðila.

Í áliti EES/EFTA-ríkjanna er goldið varhug við að færa aldurstakmörk fyrir aukin ökuréttindi niður í 17 ár jafnvel þótt krafa sé gerð um að svonefndur fylgdarökumaður sé viðstaddur akstur. Þá vara ríkin ennfremur við því að þrepaskipt skilyrði fyrir því að öðlast ökuskírteini í C og D flokki verði afnumin. Er það mat EES/EFTA-ríkjanna að þessi atriði tillögunnar gætu haft neikvæð áhrif á umferðaröryggi.

Þrátt fyrir framangreint er í álitinu lýst yfir fullum stuðningi við megin markmið tillögunnar er miða að auknu umferðaröryggi. EES/EFTA ríkin lýsa yfir fullum stuðningi við ákvæði um upptöku rafrænna samevrópskra ökuskírteina enda muni það hafa margvísleg jákvæð áhrif á innri markaðinum. Þá lýsa EES/EFTA ríkin yfir stuðningi við ákvæði um að hækka þyngdartakmörk bifreiða sem ökumönnum bifreiða með almenn ökuskírteini er heimilt að aka, en með hækkun þeirra marka er leitast við að taka tillit til rafbíla sem eru jafnan þyngri en jarðefnaeldsneytisbifreiðar vegna þyngdar rafhlöðunnar. Þá styðja EES/EFTA ríkin tillögu um að ökumaður sem staðinn hefur verið að akstri undir áhrifum geti átt val um að settur verði svonefndur áfengislás í bifreið viðkomandi í stað þess að undirgangast ökubann. Áfengislás virkar með þeim hætti að ökumaður þarf að blása í þar til gert tæki sem tengt er við bílinn áður en hann er gangsettur og mælir tækið hvort viðkomandi sé undir áhrifum. Mælist ökumaðurinn yfir mörkum er ekki unnt að ræsa bíllinn. Hafa rannsóknir leitt í ljós að áfengislás er áhrifaríkari leið en ökubann til að koma í veg fyrir akstur undir áhrifum.

Mat á hlutverki og stöðu nýrrar Neyðar- og viðbragðsskrifstofu ESB á sviði heilbrigðismála

Framkvæmdastjórn ESB hefur birt til umsagnar í samráðsgátt ESB skjal um mat á hlutverki og stöðu nýrrar Neyðar- og viðbragðsskrifstofu ESB á sviði heilbrigðismála (e. Health Emergency Preparedness and Response Authority - HERA).

HERA hefur nú verið starfrækt um tveggja ára skeið. Var skrifstofan sett á fót til að bregðast við veikleikum sem Covid-19 heimsfaraldurinn þótti hafa leitt í ljós. Var HERA þannig sett á fót til að styrkja neyðarviðbúnað og viðbrögð ESB þegar lýðheilsu er ógnað. Er það m.a. hlutverk HERU að undirbúa, stjórna og samþætta viðbrögð aðildarríkjanna þegar alvarleg heilsuvá steðjar að. Þá gegnir HERA einnig því hlutverki að tryggja aðgengi að bóluefnum, lyfjum og öðrum nauðsynlegum vörum og viðbúnaði á heilbrigðissviði (e. medical countermeasures).

Í ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB um stofnun HERU kemur fram að fyrir árið 2025 skuli framkvæmt ítarlegt mat á starfsemi skrifstofunnar, þar með talið á skipulagi og stjórnarháttum. Þar segir einnig að framkvæmdastjórnin muni upplýsa Evrópuþingið, ráðherraráð ESB, stjórn HERU sem og almenning um niðurstöður matsins.

Það samráðsferli sem nú er hafið er þáttur í því að leggja mat á það hvort núverandi umgjörð skrifstofunnar sé fullnægjandi til að henni sé kleift að sinna þeim verkefnum sem henni hafa verið falin á skilvirkan hátt og jafnframt að leggja mat á þann ávinning sem störf HERU hafa fyrir við vinnu stofnana ESB á skyldum sviðum og hvort breytinga sé þörf.

Þess má geta að Ísland og Noregur hafa nú um tveggja ára skeið, unnið að því að tryggja þátttöku í heilbrigðissamstarfi ESB á breiðum grundvelli bæði hvað varðar undirbúning vegna heilsuvár en einnig er kemur að viðbrögðum þegar krísuástand skellur á. Þátttaka í HERU er hluti af því, en fyrr á árinu fékk Ísland áheyrnaraðild að stjórn skrifstofunnar.

Ísland á einnig aðkomu að stjórnarnefndum um helstu samstarfsáætlanir sem nýttar eru til að fjármagna samstarfið en frekari viðræður þurfa að eiga sér stað við ESB um þátttöku á þegar áföll ríða yfir, m.a. með tilliti til fjárframlaga við slíkar aðstæður og aðkomu að ákvörðunartöku. Markmiðið er að fyrir liggi samstarfsrammi sem grípa megi til þegar bregðast þarf við aðsteðjandi hættu, t.d. um sameiginleg innkaup.

Árið 2022 áttu fulltrúar Íslands og Noregs könnunarviðræður við fulltrúa framkvæmdastjórnar ESB þar sem m.a. var rætt um hvernig útfæra mætti samstarfið og helstu álitaefni. Framkvæmdastjórn ESB hefur verið jákvæð fyrir þátttöku ríkjanna og vinnur nú að nánari útfærslu og öflun umboðs frá aðildarríkjum ESB til frekari viðræðna.

Umsagnarfrestur um samráðsskjalið sem birt hefur verið í samráðsgátt ESB er til 19. febrúar nk.

Fundir innviðaráðherra í Brussel

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra sótti Brussel heim í vikunni til ýmissa fundarhalda.

Átti ráðherra fund með norrænum samráðherrum sínum þeim Andreas Carlson, innviðaráðherra Svíþjóðar, Jon-Ivar Nygård, samgönguráðherra Noregs, Lulu Ranne, samgöngu- og fjarskiptaráðherra Finnlands og Thomas Danielsen, samgönguráðherra Danmerkur.

Á fundinum var rætt um ýmsar tillögur sem nú eru til umfjöllunar á vettvangi ESB og lúta að samgöngum og umferðaröryggi, og teljast EES-tækar.

Ráðherrarnir ræddu m.a. tillögur framkvæmdastjórnar ESB um bætt umferðaröryggi, sbr. umfjöllun um þær tillögur í Vaktinni 10. mars sl., sbr. einnig umfjöllun hér að ofan í Vaktinni um EES/EFTA-álit um breytingar á tilskipun um ökuskírteini.

Einnig var tillaga um hámarksstærð og þyngd flutningabifreiða á vegum rædd sem og tillaga um verklag við að meta kolefnislosun frá vöruflutningum en markmið þeirra er hvetja til minni losunar kolefnis við vöruflutninga og samræma útreikninga á losun kolefnis. Tillögurnar eru hluti af áætlun ESB um græna vöruflutninga, sbr. umfjöllun um þá áætlun í Vaktinni 21. júlí sl.

Loks voru tillögur framkvæmdastjórnar ESB að endurbættu regluverki um siglingaöryggi og hvernig stuðla megi að umhverfisvænum og nútímalegum siglingum til umræðu, sbr. nánar um tillögurnar í Vaktinni 9. júní sl.

Framangreindar tillögur voru síðan jafnframt til umræðu á fundi ráðherraráðs ESB mánudaginn 4. desember sl., þar sem afstaða ráðsins til þriggja af fjórum tillögum pakkans voru samþykktar. Sjá nánar um fund ráðherraráðsins og niðurstöður hans hér.

Innviðaráðherra átti einnig fund með háttsettum fulltrúum hjá DG-Defis, skrifstofu málefna varnariðnaðar og geimáætlunar ESB í framkvæmdastjórn ESB. Þar var m.a. rætt um málefni EGNOS kerfisins sem styður við GPS leiðsögukerfið, og eykur nákvæmni þess og veitir notendum upplýsingar um áreiðanleika þess við krefjandi aðstæður t.d. við að leiðbeina flugvélum við lendingu á flugvöllum. Þá var áætlun ESB um öruggt samskiptakerfi um gervihnetti til umræðu en Ísland hefur ákveðið að óska eftir viðræðum við ESB um þátttöku í því verkefni, sbr. umfjöllun um málið í Vaktinni 29. september sl. Sjá nánar um fundinn í fréttatilkynningu innviðaráðuneytisins.

Loks skrifaði ráðherra undir stofnsáttmála Eurocontrol en unnið hefur verið að þátttöku Íslands að alþjóðasamningi um Eurocontrol stofnunina um nokkurt skeið og var m.a. gerður aðlögunarsamningur um væntanlega þátttöku Íslands á síðastliðnu ári. Mun Ísland fá fulla aðild að stofnuninni, að undangengnu fullgildingarferli íslenskra stjórnvalda, frá og með áramótum 2024-5. Sjá nánar um málið í fréttatilkynningu innviðaráðuneytisins.

Uppfærsla á lista yfir forgangsmál í hagsmunagæslu Íslands gagnvart ESB birt í samráðsgátt

Uppfærður listi yfir forgangsmál í hagsmunagæslu Íslands gagnvar ESB var birtur í samráðsgátt stjórnvalda 29. nóvember sl.

Núgildandi forgangslisti var samþykktur í ríkisstjórn í júní 2022 með gildistíma fyrir árin 2022-2023. Með hliðsjón af því að kosningar til Evrópuþingsins fara fram næsta sumar og því að þá rennur jafnframt út skipunartími núverandi framkvæmdastjórnar ESB hefur verið ákveðið að framlengja gildistíma listans, með uppfærslum fram á mitt ár 2024 eða til loka skipunartímabils núverandi framkvæmdastjórnar ESB.

Í samræmi við framangreint er fyrirhugað að næsta heildarendurskoðun, í formi nýs forgangslista, fari fram við upphaf skipunartímabils nýrrar framkvæmdastjórnar en vænta má að hún verði fullskipuð um mitt næsta ár eða næsta haust og að meginstefna hennar liggi þá fyrir. Þá er gert ráð fyrir að næsta heildarendurskoðun forgangslistans þar á eftir eigi sér stað þegar fimm ára skipunartímabil næstu framkvæmdastjórnar er hálfnað.

Uppfærsla forgangslistans hefur verið unnin í samvinnu allra ráðuneyta Stjórnarráðsins, sem hvert um sig ber ábyrgð á því, í samræmi við forsetaúrskurð um skiptingu stjórnarmálefna á milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, að vakta málefni er varðað geta EES-samninginn á vettvangi ESB. Við gerð listans og uppfærslu hans nú var meðal annars lögð til grundvallar áætlun framkvæmdastjórnar ESB fyrir árin 2019-2024 og árlegar starfsáætlanir hennar, nú síðast starfsáætlun fyrir árið 2024, sbr. m.a. umfjöllun um þá áætlun í Vaktinni 27. október sl. Ný mál hafa verið sett á listann og önnur felld út í samræmi við stöðu þeirra í lagasetningarferli ESB.

Tilgangur forgangslistans er að auka skilvirkni í þátttöku Íslands í EES-samstarfinu og ákveða og skilgreina hvernig hagsmunagæslu af Íslands hálfu verði best háttað hverju sinni. Listinn er í grunninn einskorðaður við mál sem eru á undirbúnings- eða forstigi hjá framkvæmdastjórn ESB og mál sem lögð hafa verið fram til umfjöllunar í Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB. Í einstaka tilfellum eru mál á listanum þar sem búið er að taka ákvörðun hjá ESB en huga þarf sérstaklega að upptöku viðkomandi gerða í EES-samninginn, t.d. með því fara fram á efnislegar aðlaganir.

Umsagnarfrestur um uppfærðan forgangslista er til 13. desember nk.

Sameiginlega EES-nefndin afgreiðir flugmálið

Sameiginlega EES-nefndin (e. EEA Joint Committee) kom saman til fundar í Brussel í dag.

Eins og kunnugt er er nefndin helsti samstarfsvettvangur aðila samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Hlutverk nefndarinnar er að tryggja virka framkvæmd EES-samningsins og tekur nefndin ákvarðanir um upptöku ESB-gerða í EES-samninginn og hafa ákvarðanir nefndarinnar þjóðréttarlega stöðu sem milliríkjasamningar.

Á fundinum í dag, sem var síðasti fundur nefndarinnar á þessu ári, var 81 ný gerð tekin upp í EES-samninginn en þá hefur samtals 621 gerð verið tekin upp í samninginn á árinu. Meðal gerða sem teknar voru upp í samninginn í dag var svonefnd ETS-gerð um breytingar á núgildandi löggjöf ESB um viðskiptakerfi með losunarheimildir fyrir flug. Var gerðin tekin upp í samninginn með efnislegri aðlögun fyrir Ísland sem samkomulag tókst um við ESB síðastliðið vor, sbr. umfjöllun um það samkomulag í Vaktinni 26. maí sl., en ítarlega hefur verið fjallað um málið í Vaktinni við fjölmörg tilefni á umliðnum misserum.

Ísland mun taka við formennsku í fastanefnd EFTA um áramótin og gegna henni fram á mitt ár 2024. Í tilefni af því gerði sendiherra Íslands í Brussel, Kristján Andri Stefánsson, nefndinni munnlega grein fyrir helstu áherslumálum Íslands á komandi formennskutíð en ráðgert er að gefa formennskuáætlun Íslands út fljótlega í byrjun næsta árs. Næsta ár markar 30 ára afmæli EES-samningsins og mun Ísland sem formennskuríki verða í fararbroddi EES/EFTA-ríkjanna við framkvæmd viðburða sem til stendur að efna til af því tilefni.

Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins, í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

24. nóvember 2023 | Strategískt sjálfræði ESB og þróun innri markaðarins |
Að þessu sinni er fjallað um:

strategískt sjálfræði Evrópusambandsins (ESB) og þróun innri markaðarins

samkomulag um löggjafartillögu um mikilvæg hráefni

haustspá um stöðu efnahagsmála

siðareglur fyrir þróunaraðila gervigreindar

endurheimt og varðveislu vistkerfa

vöktun skóga

flutning á úrgangi milli landa (Basel-reglugerðin)

samdrátt í losun metans

skammtímaleigu íbúðarhúsnæðis til ferðamanna

aukna vernd starfsmanna fyrir efnamengun

aðgerðapakka um aukna færni vinnuafls

EES/EFTA álit um löggjafartillögur um siglingaöryggi

fund fjármála- og efnahagsráðherra með Paolo Gentiloni

fund EES-ráðsins

Strategískt sjálfræði ESB og þróun innri markaðarins

Strategískt sjálfræði ESB

Á síðustu árum hefur efnahagsstefna ESB og aðildarríkja þess í auknum mæli einkennst af beinum efnahagslegum afskiptum og verndarráðstöfunum sem miða að því tryggja samkeppnishæfni evrópsks iðnaðar og atvinnustarfsemi á innri markaði ESB, í alþjóðlegu samhengi, og um leið efnahagslegt öryggi ESB. Breytt heimsmynd í kjölfar kórónuveirufaraldursins og árásarstríðs Rússlands gagnvart Úkraínu og sú aukna spenna í samskiptum ríkja og ríkjabandalaga sem fylgt hefur í kjölfarið, er megin aflvaki þessara breytinga.

Hefur það verið í brennidepli ESB á umliðnum misserum að tryggja aðfangakeðjur hvort sem það er að tryggja bóluefni vegna heimsfaraldurs, tryggja gas í orkukreppu, örgjörva vegna stafvæðingar eða nauðsynleg hráefni til orkuskipta.

ESB hefur í samræmi við framangreint lagt áherslu á að móta sína eigin stefnu á alþjóðavettvangi bæði að því er varðar öryggis- og varnarmál en einnig á sviði efnahagsmála og milliríkjaviðskipta með það að markmiði að vernda samkeppnishæfni innri markaðarins og frelsi og sjálfræði ESB til aðgerða til lengri tíma. Áherslan er þannig á að tryggja efnahagslegt öryggi ESB svo það sé á hverjum tíma nægilega sjálfstætt og óháð öðrum ríkjum til að geta brugðist við með fullnægjandi hætti ef aðstæður breytast.

Þessar áherslur er jafnan kenndar við strategískt sjálfræði ESB (e. Strategic Autonomy) eða eftir atvikum opið strategískt sjálfræði ESB (e. EU open Strategic Autonomy) en með hugtakinu er vísað til stefnu og vilja ESB til að vinna með öðrum, ef unnt er, um leið og því er lýst yfir að það muni tryggja sjálfræði sitt og frelsi til athafna ef þörf krefur og ef á reynir. Þessar áherslur hafa verið áréttaðar af leiðtogaráði ESB í Versalayfirlýsingunni, þann 10. og 11. mars 2022, en ef til vill hvað skýrast í Granadayfirlýsingunni sem gefin var út í framhaldi af fundi ráðsins 6. október sl., sbr. nánari umfjöllun um fund ráðsins og yfirlýsinguna í Vaktinni 13. október sl.

Stefnumótun um strategískt sjálfræði tengist jafnframt áherslu ESB á stafvæðingu, græn umskipti, iðnaðarstefnu ESB og framkvæmdaáætlun Græna sáttmálans, sbr. m.a. umfjallanir í Vaktinni 10. febrúar sl. um þá áætlun og í Vaktinni 24. mars sl. um framfylgd hennar, sbr. einnig umfjöllun í Vaktinni um 27. janúar sl. um viðbrögð ESB við nýjum stuðningsaðgerðum við grænan iðnað í Bandaríkjunum, eða svonefndri IRA löggjöf Bandaríkjanna (e. US Inflation Reduction Act). IRA-löggjöf BNA og viðbrögð ESB við henni endurspeglar skýrlega þá stöðu að breytt heimsmynd hefur einnig leitt til aukinnar spennu á milli náinna samstarfsaðila eins og ESB og BNA, þ.e. er kemur að efnahags- og samskeppnismálum. Ný efnahagsöryggisáætlun ESB sem fjallað var um í Vaktinni 23. júní sl. endurspeglar þessar áherslur ESB einnig skýrlega.

Framkvæmdastjórn ESB hefur lagt fram fjölmargar löggjafartillögur til að bregðast við framangreindri stöðu, þ.e. til þess að verja stragetískt fulllveldi ESB, og má þar nefna tillögu að reglugerð um kolefnishlutlausan tækniiðnað (e. Net Zero Industry Act) sem hefur það markmið að hraða umtalsvert uppbyggingu tækniiðnaðar á sviði grænnar orku og orkuskipta og tillögu að reglugerð um mikilvæg hráefni (e. Critical Raw Materials Act) sem ætlað er að tryggja sjálfbærni og öruggt framboð mikilvægra hráefna í iðnaði, sbr. nánari umfjöllun um það mál hér að neðan í Vaktinni. Tillaga að reglugerð um hálfleiðara (e. Chips Act) sem ætlað er að styðja við öruggt framboð og aðgengi að hálfleiðurum (e. Semiconductor) innan ESB, sbr. nánari umfjöllun um það mál í Vaktinni 21. apríl sl., fellur einnig í þennan flokk.

Auk ofangreinds má nefna löggjafartillögur sem hafa þegar verið samþykktar og er ætlað er að vernda innri markaðinn og vinna gegn ósanngjörnum viðskiptaháttum af hálfu þriðju ríkja eins og t.d. reglugerð um erlenda styrki (e. Foreign Subsidies Act), sbr. umfjöllun um það mál í Vaktinni 10. febrúar sl., eða eftir atvikum að jafna samkeppnisskilyrði vegna kostnaðar af reglubyrði innan ESB, vegna umhverfisráðstafana einkum, sem ekki er til staðar utan Evrópska efnahagssvæðisins, sbr. t.d. reglugerð um kolefnisjöfnunargjald við landamæri (e. Carbon Border Adjustment Mechanism - CBAM), sbr. nánari umfjöllun og greiningu á málinu í Vaktinni 23. júní 2023.

Þverlægar löggjafartillögur

Segja má að innri markaðurinn, afl hans og styrkur, sé helsta verkfærið í framangreindri stefnumótun og aðgerðum ESB til að að tryggja opið strategískt sjálfræði ESB. Birtingarmynd þess er m.a. að löggjafartillögur framkvæmdastjórnarinnar eru nú oft á tíðum mun þverlægari og margbrotnari en áður tíðkaðist og tengjast jafnan utanríkisstefnu ESB sem og málefnum innri markaðarins. Þannig innfela löggjafartillögur á tíðum ákvæði sem tengjast samskiptum, samstarfsverkefnum eða viðskiptum ESB við þriðju ríki eða ákvæði sem snúa að sameiginlegum innkaupum aðildarríkjanna. Auk þess tengjast tillögurnar oftar en ekki auknum fjárframlögum í gegnum ýmis fjármögnunarverkefni og samstarfsáætlanir sem standa ríkjum utan ESB ekki til boða. Þá geta tillögurnar haft áhrif á ýmis samstarfsverkefni við þriðju ríki um þróun og rannsóknir í iðnaði.

Tillögur þessu marki brenndar fela jafnan í sér áskoranir er kemur að upptöku þeirra í EES-samninginn, enda þótt meginefni þeirra kunni að falla skýrlega undir gildissvið EES-samningsins.

EES-samningurinn felur hvorki í sér tollabandalag né sameiginlega viðskiptastefnu EES/EFTA-ríkjanna gagnvart þriðju ríkjum. Samningurinn bindur því ekki hendur EES/EFTA-ríkjanna til að gera viðskiptasamninga við þriðju ríki. Hæfi ESB til að gera samninga við þriðju ríki bindur að sama skapi ekki heldur EES-ríkin. Í sumum tilfellum kann það t.d. að hafa áhrif á samkeppnisstöðu EES/EFTA-ríkjanna að vera flokkuð sem þriðja ríki í löggjöf ESB. Ákvæði gerðanna um milliríkjaviðskipti geta því skapað hættu á því að tveggja þrepa innri markaður verði til þar sem EES/EFTA-ríkin gætu átt það á hættu að vera utanveltu í einhverju tilliti með tilheyrandi afleiðingum fyrir samkeppnishæfni atvinnulífs í löndum þeirra.

Hagsmunamat

Ofangreindar tillögur eru mislangt komnar í löggjafarferli ESB. Sumar hafa verið samþykktar, en bíða ákvörðunar um upptöku í EES-samninginn, en aðrar bíða niðurstöðu í þríhliða viðræðum Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnarinnar. Meta þarf hagsmuni EES/EFTA-ríkjanna, að virtri samkeppnisstöðu og þróunar á alþjóðavettvangi, af því hvort og þá að hvaða marki eigi að taka gerðirnar upp í EES-samninginn og hvaða áhrif það kunni að hafa ef niðurstaðan verður að taka þær ekki upp í EES-samninginn, eða einungis að hluta með efnislegum aðlögunum.

Á vegum EFTA-skrifstofunnar og af hálfu stjórnvalda í EES/EFTA-ríkjunum er nú unnið að greiningu tillagnanna. Í þessu skyni hafa EES/EFTA-ríkin m.a. komið á framfæri EES/EFTA áliti um tillögu að reglugerð um mikilvæg hráefni. Í álitinu var m.a. lagt til að ál yrði fellt undir lista tillögunnar yfir mikilvæg hráefni. Þann 13. október sl. náðist samkomulag í þríhliða viðræðum um málið á milli ráðherraráðs ESB og Evrópuþingsins um afgreiðslu tillögunnar, sbr. nánari umfjöllun um samkomulagið hér að neðan í Vaktinni.

Þá hefur á vettvangi EFTA-skrifstofunnar verið komið á fót þverlægum stýrihópi EES/EFTA-ríkjanna sem mun skoða heildarmyndina, meta áhrif gerðanna og hvaða áhrif þær hafi fyrir EES/EFTA-ríkin og á þróun EES-samstarfsins sem og mögulegar leiðir við upptöku þeirra í EES-samninginn. Fyrsti fundur stýrihópsins fór fram í Brussel þann 7. nóvember sl.

Samkomulag um löggjafartillögu um mikilvæg hráefni

Í mars á þessu ári lagði framkvæmdastjórn ESB fram tillögu að reglugerð um mikilvæg hráefni (e. Critical Raw Materials Act) en henni er ætlað að auka framleiðslu og endurvinnslu mikilvægra hráefna innan ESB og þannig auka fjölbreytni í aðfangakeðjum og draga úr áhættu í alþjóðaviðskiptum, sbr. nánari umfjöllun um efni tillögunar í Vaktinni 24. mars sl. þar sem fjallað er um framfylgd framkvæmdaáætlunar Græna sáttmálans.

Þróun í alþjóðamálum að undanförnu hefur leitt til aukinnar áherslu ESB á eigið sjálfstæði á þessu sviði sem og öðrum (e. Strategic autonomy), sbr. umfjöllun hér að framan í Vaktinni um innri markað EES.

Þann 13. nóvember síðastliðinn náðist samkomulag í þríhliða viðræðum Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB um efni tillögunnar. Framkvæmdastjórn ESB fagnar samkomulaginu en ekki er algengt að samkomulag náist á svo skömmum tíma en einungis átta mánuðir eru liðnir frá því tillagan var lögð fram.

Með samkomulaginu haldast markmið tillögunnar að öllu jöfnu óbreytt en lagðar eru til nokkrar breytingar til að styrkja tillöguna enn frekar. Þannig er m.a. lagt til að áli verði bætt við lista tillögunnar yfir strategísk hráefni og er sú niðurstaða í samræmi við tillögu sem EES/EFTA-ríkin komu á framfæri í EES/EFTA áliti um málið sem send var viðeigandi aðilum innan ESB þann 20. september sl. Í tillögunni eru því nú skilgreind 34 mikilvæg hráefni og 17 strategísk hráefni sem skipta verulegu máli fyrir grænan iðnað, stafrænu umskiptin og m.t.t. varnarmála og geimáætlunar ESB.

Í tillögunni er nú jafnframt lagt til að endurvinnsluviðmið verði hækkuð úr 15% yfir í 25%. Einnig eru lagðar til breytingar sem miða að því að skýra betur leyfisveitingaferli vegna strategískra verkefna. Þá er lagt til að stórfyrirtæki í mikilvægum geirum á borð við rafhlöðuframleiðendur, vetnisframleiðendur, aðilar í endurvinnslugeiranum, gagnaver og flugvélaframleiðendur, þurfi að framkvæma áhættumat m.t.t. aðfangakeðja strategískra hráefna sem þau nota.

Málið gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Haustspá um stöðu efnahagsmála

Hinn 15. nóvember sl. kom út haustspá framkvæmdastjórnar ESB um stöðu efnahagsmála.

Fram kemur að hagvöxtur í ESB á fyrstu þremur ársfjórðungum ársins 2023 hafi verið nánast enginn og spár um hagvöxt fyrir árið allt hafa verið lækkaðar frá síðustu spá, úr 0,8% í 0,6%. Hins vegar er búist við að hagvöxtur aukist næstu tvö ár vegna aukinnar einkaneyslu. Þær væntingar má m.a. rekja til þess að þrátt fyrir lítinn vöxt í hagkerfinu er enn töluverð spenna á vinnumarkaði. Atvinnuleysi í ESB mælist nú 6% og hefur sjaldan verið lægra. Þá er búist við að kaupmáttur fari vaxandi sökum lækkandi verðbólgu en hún er talin hafa verið 2,9% í október sem er það lægsta sem sést hefur síðastliðin tvö ár. Þó lægra orkuverð eigi vissulega sinn þátt í lækkun verðbólgu þá hefur lækkunin þó verið á allbreiðum grundvelli undanfarið.

Talið er að halli á opinberum fjármálum í ESB fari minnkandi og skuldahlutfall lækki vegna minnkandi umfangs stuðningsaðgerða í tengslum við heimsfaraldurinn, samdrátt í stuðningi við niðurgreiðslu orkuverðs og umfangsminni stuðningsaðgerða vegna fjárfestinga einkaaðila. Síðastnefnda ástæðan sem tilgreind er, er áhugaverð þar sem ESB hefur um þessar mundir miklar áhyggjur af samkeppnisstöðu ýmissa atvinnugreina innan ESB gagnvart t.d. Bandaríkjunum og Kína sem beita slíkum stuðningi í miklum mæli nú um stundir til að efla ákveðnar atvinnugreinar. En það hefur ESB og aðildarríki þess einnig gert á undanförnum misserum hvað sem síðar verður.

Helstu áhættuþættir í efnahagsspánni til framtíðar er áframhaldandi árasarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu og átök fyrir botni Miðjarðarhafs en átökin þar hafa þó enn sem komið er ekki haft mikil áhrif á olíuverð en það er talið geta breyst. Loks veldur þróun mála í helstu viðskiptaríkjum ESB, einkum í Kína, áhyggjum.

Leiðbeinandi meginreglur og siðareglur fyrir þróunaraðila gervigreindar

Eins og fjallað var um í Vaktinni 9. júní sl. eru tillögur framkvæmdastjórnar ESB að nýrri löggjöf um gervigreind nú til umfjöllunar á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB og standa nú yfir þríhliða viðræður framangreindra aðila um endanlegt efni tillagnanna, sbr. nánar annars vegar afstöðu þingsins til málsins og hins vegar afstöðu ráðsins. Megin markmið fyrirliggjandi tillagna er að annars vegar að búa þróun gervigreindar framúrskarandi vaxtarumhverfi (e. ecosystem of excellence) og hins vegar að sett verði regluverk um gervigreind er skapi traust á tækninni (e. ecosystem of trust).

Svo sem kunnugt er á sér nú stað umfangsmikil umræða um allan heim um gervigreind og áframhaldandi þróun hennar og hefur sú umræða ótal birtingarmyndir. Sú sem vegur þyngst er þó án efa umræðan um það hvernig unnt sé að tryggja að þróun gervigreindar verði með þeim hætti að hún nýtist með jákvæðum hætti fyrir fólk og samfélög og að hún valdi ekki samfélagslegum skaða. Umræðan er alþjóðleg, eðli málsins samkvæmt, og fer nú fram á vettvangi allra helstu alþjóðastofnana heimsins eins og Sameinuðu þjóðanna, Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD), „Global Partnership on Artificial Intelligence (GPAI)“, Evrópuráðsins og svo mætti áfram telja en einnig á vettvangi ríkjabandalaga og að frumkvæði einstakra ríkja.

Þróun gervigreindar hefur meðal annars verið til umræðu vettvangi G7 sem er pólitískur samráðsvettvangur Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands, Ítalíu, Japans, Kanada og Þýskalands, auk þess sem ESB á þar sæti. Á leiðtogafundi G7-ríkjanna sem fram fór í Hiroshima í Japan 19. – 21. maí sl. var ákveðið að setja af stað stefnumótunarvinnu (e. Hiroshima Artificial Intelligence Process) til að móta umgjörð um þróun gervigreindar sem geti orðið innlegg í alþjóðlega umræðu um þróun gervigreindar.

Í lok október sl. voru afurðir framangreindrar vinnu kynntar. Er þar annars vegar um að ræða leiðbeinandi meginreglur og hins vegar siðareglur sem æskilegt er talið að þróunaraðilar gervigreindar hafi til hliðsjónar í störfum sínum.

Hinar leiðbeinandi meginreglur (e. Hiroshima Process International Guiding Principles for Organizations Developing Advanced AI system), sem í grunninn eru byggðar á meginreglum OECD (e. OECD AI Principles) um sama efni, er ætlað að vera stuðningur við aðila sem vinna að þróun framsækinna gervigreindarkerfa. Skýrt er tekið fram að meginreglurnar 11 sem tilgreindar eru séu ekki hoggnar í stein heldur geti þær tekið breytingum eftir því umræðan og skilningur á tækninni þróast. Markmið þeirra er að styðja við þann samfélagslega ávinning sem gervigreindartæknin getur haft í för með sér og um leið að draga úr áhættu sem tækninni getur fylgt.

Siðareglur fyrir þróunaraðila gervigreindar (e. Hiroshima Process International Code of Conduct for Organizations Developing Advanced AI Systems), byggjast á framangreindum meginreglum og miða að því m.a. og að efla traust og tiltrú almennings á þróunaraðilum gervigreindarkerfa með mannréttindi og grundvallarfrelsi almennings að leiðarljósi.

Í sérstakri yfirlýsingu sem leiðtogar G7-ríkjanna sendu frá sér við birtingu framangreindra reglna er þeim fagnað.

Það gerði framkvæmdastjórn ESB einnig í fréttatilkynningu sem hún sendi frá sér samhliða birtingu reglnanna og þar er því jafnframt lýst yfir að reglurnar verði hafðar til hliðsjónar við lokafrágang í þríhliða viðræðum á framgangreindum löggjafartillögum um gervigreind.

Markvert er einnig að sama dag og framangreindar reglur voru kynntar, 30. október sl., gaf forseti Bandaríkjanna út tilskipun um örugga og áreiðanlega þróun og notkun gervigreindar og endurspeglar tilskipunin áherslur úr framangreindri vinnu G7-ríkjanna.

Eins og vikið er að framan á sér nú stað víðtæk alþjóðleg umræða um þróun gervigreindar. Forsætisráðherra Bretlands, Rishi Sunak efndi m.a. til alþjóðlegrar ráðstefnu um málefnið, „AI Security Summit“, í London 1. og 2. nóvember sl. Afrakstur þeirrar ráðstefnu var svokölluð Bletchley-yfirlýsing, sem undirrituð var af stórum hópi ríkja heims, m.a. Kína. Þar kemur fram vilji til að stofnað verði til alþjóðlegrar gervigreindarrannsóknarstofnunar. Þá tilkynnti Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, á ráðstefnunni um áform sín um að efna til alþjóðlegrar ráðstefnu með áherslu á gervigreind og áhrif hennar á vinnumarkað á næsta ári.

Er það til marks um aukinn þunga í málefnum er varða gervigreind á vettvangi ESB að ákveðið var nýverið að setja upp sérstaka skrifstofueiningu innan framkvæmdastjórnarinnar til að halda utan um málefni gervigreindar og stefnumótunar á því sviði.

Endurheimt og varðveisla vistkerfa

Evrópuþingið, ráðherraráð ESB og framkvæmdastjórn ESB komust hinn 9. nóvember sl. að samkomulagi í þríhliða viðræðum um efni nýrra löggjafartillagna um varðveislu búsvæða og endurheimt skemmdra búsvæða í ESB. Allhart hefur verið tekist á um málið á vettvangi ESB og í aðildarríkjunum á umliðnum misserum og stóð það tæpt í atkvæðagreiðslu á Evrópuþinginu þegar greidd voru atkvæði um afstöðu þingsins í júní og júlí sl. Hefur andstaða við málið aðallega sprottið af áhyggjum af áhrifum tillagnanna á hagsmuni og stöðu bænda, sbr. nánari umfjöllun um málið í Vaktinni 21. júlí sl.

Málið gengur nú til formlegar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við samkomulagið. Verði samkomulagið staðfest, svo sem vænta má, verður um að ræða fyrstu almennu náttúruverndarlöggjöf sem sett hefur verið á vettvangi ESB.

Nýja reglugerðin er m.a. hluti af áætlun og markmiðum ESB um aukinn líffræðilegan fjölbreytileika fyrir árið 2030 og mun stuðla að því að ESB nái sértækum markmiðum sem samþykkt voru í Kunming-Montreal árið 2022 á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um líffræðilegan fjölbreytileika (COP15).

Náttúruvernd almennt fellur ekki undir EES-samninginn. Framangreind löggjöf hefur þó snertifleti við ýmis málefnasvið sem felld hafa verið undir samninginn, s.s. loftslagsmál, vatnsvernd o.fl. auk þess sem væntanleg löggjöf er í samræmi við ýmsar áherslur og verkefni á sviði náttúruverndar sem unnið hefur verið að á Íslandi, s.s. framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár o.fl.

Vöktun skóga

Framkvæmdastjórnin lagði í vikunni fram tillögu að nýrri reglugerð um vöktun skóga. Markmið hennar er að auka og samræma upplýsingasöfnun um evrópska skóga og byggja upp alhliða þekkingargagnagrunn sem nýst geti aðildarríkjunum, skógareigendum og skógarstjórnendum til að bæta viðbrögð sín við vaxandi hættum sem steðja að skógum og styrkja viðnámsþol þeirra.

Skógar gegna lykilhlutverki í baráttunni gegn loftslagsbreytingum sem og til að viðhalda og efla líffræðilegan fjölbreytileika. Skógar í Evrópu hafa átt undir högg að sækja af margvíslegum ástæðum, svo sem loftslagsbreytingum og ósjálfbærum athöfnum manna.

Standa vonir til þess að með betri vöktun og þekkingu ástandi skóga verði hagaðilar betur í stakk búnir til að bregðast við ýmsum ógnum sem steðjað geta að skógum svo sem vegna þurrka og skógarelda. Þá er meðal annars talið að með betri vöktun og þekkingaröflun geti skapast aukin tækifæri á sviði kolefnisbindingar með skógrækt (e. carbon farming) um leið vöktunin styður við að farið sé að lögum sambandsins um þau efni.

Tillagan gengur nú til umræðu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Flutningur á úrgangi milli landa

Evrópuþingið, ráðherraráð ESB og framkvæmdastjórn ESB komust hinn 16. nóvember sl. að samkomulagi í þríhliða viðræðum um efni tillagna um breytingu á reglugerð um flutning á úrgangi milli landa. Fjallað var um efni tillagnanna í Vaktinni 26. maí sl.

Reglugerð ESB um flutning á úrgangi milli landa innleiðir í löggjöf ESB ákvæði Basel-samningsins um eftirlit með flutningi spilliefna milli landa og förgun þeirra. Ísland er aðili að þessum samningi.

Markmiðið með breytingum á reglugerðinni nú er að stuðla að því að ESB-ríkin taki aukna ábyrgð á förgun eigin úrgangs, sem er vandasamt er að meðhöndla, í stað þess að flytja hann til þriðju ríkja og jafnframt að ef slíkt er gert að herða reglur um athugunarskyldu af hálfu aðildarríkjanna áður en til útflutnings kemur.

Í samkomulaginu felst m.a. að gildissvið reglugerðarinnar er útvíkkað þannig að það nái yfir þær lykilskuldbindingar er felast í Græna sáttmálanum hvað kolefnishlutleysi varðar, aðgerðaáætlun um hringrásarhagkerfið og aðgerðaáætlun um núllmengun (e. Zero pollution action plan).

Tillagan gengur nú til formlegar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Samkomulag um samdrátt í losun metans

Evrópuþingið, ráðherraráð ESB og framkvæmdastjórn ESB, komust hinn 15. nóvember sl. að samkomulagi í þríhliða viðræðum um efni reglugerðartillögu um samdrátt í losun metans í orkugeiranum. Fjallað var um reglugerðartillögurnar í Vaktinni 13. janúar sl. í tengslum við umfjöllun um orkumál.

Tillagan fellur undir löggjafarpakkann „Fær í 55“ sem miðar að því að samræma loftslags- og orkulöggjöf ESB að markmiðum um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Metan er mjög öflug gróðurhúsaloftslagstegund og sú lofttegund sem veldur næst mestum gróðurhúsaáhrifum á eftir koldíoxíði, en talið er að rekja megi um 30% af gróðurhúsaáhrifunum til metanlosunar.

Samdráttur í losun metans er því mikilvægur þáttur í því að ná loftslagsmarkmiðum. Markmið reglugerðarinnar er að gera ESB kleift að standa við skuldbindingar sínar um samdrátt í losun metans um 30% fyrir árið 2030 sem ESB setti sér á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna árið 2021 (COP 26) (Global Methane Pledge) þar sem yfir 100 ríki, þar á meðal Bandaríkin, skuldbundu sig til að draga úr losun metans. Nú eru um 150 ríki aðilar að þessu samstarfi, m.a. Ísland.

Samkomulagið nú felur m.a. í sér að sett verði ákvæði um sérstaka fresti og tíðni fyrir vöktun, skýrslugjöf og skoðanir á hugsanlegum upptökum metanlosunar. Innan tiltekinna tímafresta (ýmist innan 18, 24, 36 eða 48 mánaða) frá gildistöku reglugerðarinnar verða rekstraraðilar að skila skýrslum til stjórnvalda með upplýsingum um greiningu á magni losunar og um niðurstöður beinna mælinga á metanlosun á upprunastað.

Samkomulag varð um að skipta innleiðingu reglugerðarinnar í þrjá áfanga er kemur að innflutningi á metani. Fyrsti áfanginn snýr að gagnasöfnun og alþjóðlegri vöktun. Annar og þriðji áfanginn varðar ráðstafanir sem snúa að eftirliti, skýrslugjöf og sannprófunum vegna innflutnings á metani. Þá fá aðildarríki ESB heimild til að beita viðurlögum verði þessi ákvæði reglugerðarinnar ekki uppfyllt.

Samkomulagið kveður jafnframt á um að aðildarríkin skuli viðhalda og uppfæra reglulega skrá yfir allar borholur. Færa skal sönnur á að engin metanlosun sé frá holum sem ekki eru í rekstri (varanlega lokaðar/stíflaðar) eða hafa verið yfirgefnar á síðustu 30 árum. Uppfæra skal reglulega og viðhalda upplýsingum um mótvægisaðgerðir, lagfæringar, endurheimt og enduropnum borhola.

Loks felur samkomulagið í sér ákvæði um að kolanámur sem hafa verið lokaðar eða yfirgefnar fyrir minna en 70 árum skuli falla undir ákvæði reglugerðarinnar um vöktun, skýrslugjöf og mótvægisaðgerðir, með tilteknum undanþágum.

Málið gengur nú til formlegar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Skammtímaleiga íbúðarhúsnæðis til ferðamanna

Þann 16. nóvember sl. náðist samkomulag í þríhliða viðræðum Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB um efni fyrirliggjandi tillögu að reglugerðu um skammtímaleigu íbúðarhúsnæðis til ferðamanna, sbr. nánari umfjöllun um tillöguna í Vaktinni 26. maí sl.

Helstu breytingar sem felast í samkomulaginu snúa að því að sníða tillögurnar betur að viðeigandi ákvæðum þjónustutilskipunar ESB og að nýrri reglugerð á sviði rafrænnar þjónustu (e. Digital Services Act – DSA) tók gildi í aðildarríkjum ESB hinn 16. nóvember 2022 sl., sbr. umfjöllun um þá löggjöf í Vaktinni 18. nóvember 2022.

Málið gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Samkomulag um tillögur um aukna vernd starfsmanna fyrir efnamengun

Hinn 15. nóvember sl. náðist samkomulag í þríhliðaviðræðum ráðherraráðs ESB, Evrópuþingsins og framkvæmdastjórnar ESB um efni breytingartillagana á tveimur tilskipunum á sviði vinnuverndar sem snúa að viðmiðunarmörkum vegna hættulegra efna á vinnustað.

Tillögurnar eru byggar á stefnumörkun ESB um heilsu og öryggi á vinnustöðum fyrir árin 2021 – 2027 og er afrakstur samstarfs og samráðs við aðila vinnumarkaðarins, vísindamanna og fulltrúa aðildarríkjanna og eru þær álitnar mikilvægt skref í átt að innleiðingu Evrópsku réttindastoðarinnar um öruggt vinnuumhverfi.

Um er að ræða breytingar á tveimur tilskipunum, annars vegar tilskipun um verndun starfsmanna gegn áhættu vegna krabbameinsvaldandi efna á vinnustað, og hins vegar tilskipun ráðsins um að tryggja öryggi og vernda heilsu starfsmanna gegn áhættu vegna mengunar frá efnum á vinnustað.

Reglur um viðmiðunarmörk fyrir útsetningu starfsmanna fyrir blýmengun hafa verið í gildi frá árinu 1982. Þekkt er að slík mengun getur haft alvarleg áhrif á æxlunarfæri og fósturþroska hjá barnshafandi einstaklingum, auk þess sem hún getur valdið skemmdum á taugakerfi, nýrum, hjarta og blóði og eru viðmiðunarmörkin nú endurskoðun með hliðsjón af nýjustu þekkingu.

Á vettvangi Evrópusambandsins hafa hingað til ekki verið viðmiðunarmörk í gildi fyrir útsetningu fyrir díosínötum (e. diisocyanates) sem eru efnasambönd sem eru notuð í ýmsum iðnaði. Talið er að yfir fjórar milljónir verkamanna í ESB séu útsettar fyrir þessum efnasamböndum við vinnu sína. Þekkt er að þessi efnasambönd geti valdið astma og öðrum öndunarfærasjúkdómum og er því lagt til að kveðið verði á um viðmiðunarmörk vegna þeirra,

Þess má geta að nýlega var jafnframt samþykkt breyting á tilskipun um varnir gegn útsetningu starfsmanna fyrir asbesti.

Tillögurnar ganga nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við samkomulagið.

Aðgerðapakki um aukna færni vinnuafls

Hinn 15. nóvember sl. kynnti framkvæmdastjórn ESB aðgerðapakka sem er ætlað að bæta samkeppnishæfni Evrópu með því að mæta áskorunum sem uppi eru á vinnumarkaði í Evrópu vegna skorts á hæfu vinnuafli á ýmsum sviðum.

Með aðgerðapakkanum er stefnumiðum sem sett voru fram í tengslum við Evrópska færniárið 2023 fylgt eftir, sbr. nánari umfjöllun um Evrópska færniárið í Vaktinni 10. febrúar sl.

Skortur á hæfu vinnuafli hefur verið talinn standa samkeppnishæfni Evrópu fyrir þrifum. Lýðfræðilegar breytingar leiða til þess að sífellt færri eru á vinnumarkaði um leið og þeim fjölgar sem þarfnast stuðnings og umönnunar. Atvinnuleysi hefur verið í sögulegu lágmarki í Evrópu að undanförnu og talsverður skortur er á starfsfólki í ýmsum starfssviðum, á það bæði við um hátæknigreinar og atvinnugreinar þar sem lægri menntunarkröfur eru gerðar og má þar nefna umönnunargeirann. Leitað hefur verið leiða til þess að virkja vinnuafl innan Evrópu með aukinni áherslu og fjárfestingu í sí- og endurmenntun og aukinni þátttöku kvenna og hópa í viðkvæmri stöðu á vinnumarkaði. Ljóst þykir hins vegar að ef mæta á skorti á vinnuafli þarf einnig að leita fanga utan Evrópu og laða að hæfa starfsmenn hvaðanæva að úr heiminum. Horft er til þess að samvinna um menntun og innflutning vinnuafls frá þriðju ríkjum til Evrópu geti verið sameiginlegur ávinningur beggja landa.

Lögð er fram tillaga að reglugerð um Evrópskan hæfileikabrunn (e. EU Talent Pool) sem felur í sér að settur verði upp nýr vinnumiðlunarvettvangur sem er ætlað að liðka fyrir ráðningum starfsmanna frá ríkjum utan Evrópusambandsins til Evrópu. Núverandi ferli á þessu sviði þykir þungt í vöfum og kostnaðarsamt, einkum fyrir minni fyrirtæki. Gert er ráð fyrir að þátttaka aðildarríkjanna í verkefninu verði valfrjáls. Í fjölmiðlum hér úti hefur hinum nýja vinnumiðlunarvettvangi verði líkt við stefnumótavettvanginn Tinder, sem einhverjir lesendur Vaktarinnar kunna að kannast við, þar sem áhugasamir atvinnuleitendur og atvinnurekendur geta sett inn upplýsingar um hæfni sína og starfsáhuga annars vegar og um laus störf hins vegar og athugað hvort þeir fái samsvörun.

Í aðgerðapakkanum er leitað leiða og lagðar fram tillögur að aðgerðum til að einfalda og flýta fyrir viðurkenningu á kunnáttu og færni ríkisborgara þriðja lands og samræma það því kerfi sem komið hefur verið á fyrir gagnkvæma viðurkenningu réttinda milli ríkja Evrópska efnahagssvæðisins. Er þessum tillögum ætlað að auðvelda borgurum frá þriðju ríkjum til fá viðurkenningu opinberra aðila á sinni menntun og/eða færni þegar þeir sækja um atvinnu- og búsetuleyfi í löndum ESB til þess að stunda þar vinnu eða frekara nám.

Þá er í aðgerðapakkanum að finna tillögu að tilmælum ráðsins um fjölbreytta námsmöguleika fyrir alla undir yfirskriftinni „Europe on the Move“. Miðar tillagan að því að auka hreyfanleika námsmanna og námsmöguleika á öllum sviðum menntunar og þjálfunar en skiptinám og annað nám fjarri heimahögum er talið fela í sér dýrmæta reynslu fyrir fólk og auka víðsýni og skilning á sameiginlegum gildum ESB. Þessi tillaga er merkt EES-tæk og varðar m.a. samstarfsáætlunina Erasmus+ á sviði mennta-, æskulýðs- og íþróttamála sem Ísland er aðili að.

Tillögurnar ganga nú umfjöllunar í ráðherraráði ESB og á Evrópuþinginu.

EES/EFTA álit um löggjafartillögur um siglingaöryggi

Framkvæmdastjórn ESB birti þann 1. júní sl. fimm löggjafartillögur á sviði siglingaöryggis og var fjallað um tillögurnar í Vaktinni 9. júní sl. Löggjafartillögurnar hafa síðan þá verið til umfjöllunar á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB en reiknað er með að ráðið samþykki afstöðu sína til málsins fyrir komandi þríhliða viðræður á fundi samgönguráðherra ESB 4. desember nk. Samhliða umfjöllun í stofnunum ESB hafa EES/EFTA-ríkin unnið að greiningu og mati á tillögunum með hliðsjón af skuldbindingum og hagsmunum ríkjanna samkvæmt EES-samningnum.

Fjallað hefur verið um tillögurnar á vettvangi vinnuhóps EFTA um samgöngumál og hefur sérstakt álit (EEA EFTA Comment) nú verið sent til stofnana ESB sem hafa tillögurnar til umfjöllunar, þ.e. til Evrópuþingsins, ráðherraherraráðs ESB, framkvæmdastjórnar ESB og fleiri aðila.

Í álitinu er fjallað um fjórar af fimm framangreindum löggjafartillögum. Enda þótt þar komi almennt fram jákvæð afstaða til efnis tillagnanna þá eru engu að síður gerðar athugasemdir við nokkur atriði, svo sem að verið sé að draga úr sveigjanleika fyrir siglingayfirvöld í ríkjunum til að forgangsraða verkefnum í samræmi við áhættumat hverju sinni. Í því sambandi er varað við því að settar séu strangari reglur fyrir fánaríki EES en almennt gilda samkvæmt samþykktum Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar. Leggja EES/EFTA-ríkin almennt áherslu á að EES-löggjöfin á þessu sviði sé í sem mestu samræmi við samþykktir Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar og að ekki séu gerðar viðbótarkröfur nema að vel athuguðu máli. Í þessu samhengi eru gerðar athugasemdir við tillögu um að lágmarki tveir skipaskoðunarmenn skuli sinna hafnaríkiseftirliti í hverju tilviki. Einnig er gerð athugasemd við þá mælikvarða sem lagt er til að notaðir verði við mat á mengunarhættu frá skipum með þeim rökum að mælikvarðanir séu ekki nægilega þróaðir til þess að byggja slíkt áhættumat á. Loks er gerð athugasemd við kröfu um vottað gæðakerfi fyrir sjóslysarannsóknir.

Álitið var kynnt sérstaklega fyrir fulltrúum framkvæmdastjórnar ESB á fundi vinnuhóps EFTA um samgöngumál samhliða útgáfu þess.

Fundur fjármála- og efnahagsráðherra með Paolo Gentiloni

Fjármála- og efnahagsráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, átti fund með Paolo Gentiloni, sem fer með efnahagsmál og fjármál hjá framkvæmdastjórn ESB, 14. nóvember sl.

Á fundinum gerði Gentiloni ráðherra grein fyrir helstu atriðum haustspár framkvæmdastjórnar ESB um stöðu efnahagsmála sem þá var rétt óútkomin, en meginatriði hennar eru rakin hér að framan í Vaktinni.

Meðal annarra umræðuefna voru viðbrögð ESB við stuðningi þriðju ríkja við ákveðnar atvinnugreinar, s.s. stuðning Bandaríkjanna við grænan iðnað fyrir tilstilli nýrra laga þar í landi, svonefndrar IRA-löggjafar (e. US Inflation Reduction Act), sbr. ítarlega umfjöllun um efni þeirra laga í Vaktinni 27. janúar sl. Þá voru hugmyndir ESB um að nýta frystar eignir Rússa til uppbyggingar í Úkraínu einnig ræddar en ljóst er að þar er að ýmsu að huga m.a. út frá lagalegu sjónarhorni auk þess sem ná þarf breiðri samstöðu meðal ríkja heims um aðgerðirnar. Gentiloni sagðist bjartsýnn á að slík samstaða gæti náðst áður en langt um liði.

Framkvæmd EES-samningsins almennt kom einnig til umræðu og lagði Þórdís Kolbrún áherslu mikilvægi þess að hugað væri að áhrifum gerða á samninginn og á EES/EFTA-ríkin þegar nýjar tilskipanir eða reglugerðir væru í smíðum. Gentiloni þakkaði gott samstarf við rekstur samningsins. Hann sagði framkvæmdastjórnina gjarnan vilja heyra sjónarmið EES/EFTA-ríkjanna og nefndi sérstaklega í því samhengi nýjar reglur um kolefnisjöfnunargjald við landamæri (e. carbon border adjustment mechanism, CBAM) sem þegar hafa tekið gildi að hluta í ESB en koma þó ekki að fullu til framkvæmda fyrr en 1. janúar 2026. Er gerðin nú til skoðunar hjá EES/EFTA-ríkjunum en ákvörðun um hvort og þá hvernig gerðin verði tekin upp í EES-samninginn liggur enn sem komið er ekki fyrir. Sjá nánari umfjöllun um CBAM í Vaktinni 23. júní sl.

Fundur EES-ráðsins

EES-ráðið kom saman til fundar í EFTA-húsinu Brussel 20. nóvember sl. Ráðið er æðsta stofnunin í sameiginlegu stofnanakerfi EES/EFTA-ríkjanna og ESB sem sett var á fót með samningnum um Evrópska efnahagssvæðið (EES). Ráðið er skipað utanríkisráðherrum Íslands, Noregs og Liechtenstein og fulltrúum ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB og hefur það meginhlutverk að vera formlegur pólitískur samráðsvettvangur um rekstur EES-samningsins. Pascual Ignacio Navarro Ríos, aðstoðarráðherra í utanríkisráðuneyti Spánar, en Spánn fer nú með formennsku í ráðherraráði ESB, stýrði fundinum að þessu sinni ásamt Dominique Hasler, utanríkisráðherra Liechtenstein, en Liechtenstein fer nú með formennsku í fastanefnd EFTA. Auk þeirra sátu fundinn Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra Íslands, Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs, Maroš Šefčovič, varaforseti framkvæmdastjórnar ESB auk Marko Makovec frá utanríkisþjónustu ESB.

Auk almennrar umræðu um stöðu og framkvæmd EES-samningsins voru málefni sem lúta að efnahagslegu öryggi á Evrópska efnahagssvæðinu tekin til sérstakrar umræðu.

Í tengslum við ráðsfundinn átti Bjarni Benediktsson tvíhliða fund með Maroš Šefčovič. Jafnframt áttu utanríkisráðherrar EES/EFTA-ríkjanna fund með ráðgjafanefnd EFTA og þingmannanefnd EFTA. Sjá nánar í fréttatilkynningu utanríkisráðuneytisins um fundi ráðherra.

Í tilefni fundarins gáfu EES/EFTA-ríkin frá sér yfirlýsingu þar sem lögð er áhersla á mikilvægi EES-samningsins, ekki hvað síst á þeim óvissutímum sem nú eru þar sem mestu skiptir að tryggja samkeppnishæfni og efnahagslegt öryggi. Þá er í yfirlýsingunni vikið að því að á næsta ári verða 30 ár liðin frá því að EES-samningurinn tók gildi en ráðgert er að minnast þeirra tímamóta með ýmsum hætti á komandi ári.

Fyrir fund ráðsins fóru fram óformlegar pólitískar viðræður milli ráðherranna, og fulltrúa ESB þar sem samstaða með Úkraínu, ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs og staðan í viðræðum um næsta tímabil Uppbyggingarsjóðs EES voru í brennidepli. Hér má nálgast myndir frá fundinum.

Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins, í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

10. nóvember 2023 | Stækkunarstefna ESB og marglaga Evrópusamstarf |
Að þessu sinni er fjallað um:

stækkunarstefnu Evrópusambandsins (ESB) og marglaga Evrópusamstarf

samningsafstöðu ESB á COP 28

gagnsæi pólitískra auglýsinga

græna vöruflutninga og eflingu samþættra flutninga

samkomulag um heildar aflamark fyrir makríl, kolmuna og síld í Norður- Atlantshafi

vinnufund forsætisráðherra EES/EFTA-ríkjanna

heimsókn fjármála- og efnahagsráðherra til Brussel

Stækkunarstefna ESB og marglaga Evrópusamstarf

Efnisyfirlit umfjöllunar:

Inngangur

Formlegur ferill við meðferð umsókna um aðild að ESB

Umsóknarríkin og staða þeirra í ferlinu

Áskoranir sem fylgja stækkun og hugmyndir um marglaga Evrópusamstarf

Inngangur

Framkvæmdastjórn ESB birti í vikunni árlega skýrslu um stækkunarstefnu ESB (e. EU Enlargement Policy). Skýrslan er birt í formi orðsendingar til Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB, efnahags- og félagsmálanefndar ESB og svæðanefndarinnar. Orðsendingunni fylgja sérstakar framvinduskýrslur um stöðu mála gagnvart hverju ríki sem sótt hefur um aðild að sambandinu en þau eru nú 10 talsins, þ.e. Albanía, Bosnía og Hersegóvína, Kósovó, Svartfjallaland, Norður-Makedónía, Serbía, Tyrkland, Úkraína, Moldóva og Georgía.

Síðasta ríkið til að ganga í ESB var Króatía árið 2013. Síðan þá hefur ekkert ríki í raun komist nálægt því að ganga í ESB, þrátt fyrir umtalsverða vinnu af hálfu framkvæmdastjórnar ESB, aðildarríkja ESB og umsóknarríkja.

Skýrslu framkvæmdastjórnarinnar hefur hins vegar verið beðið með nokkurri óþreyju að þessu sinni enda hefur áhugi innan stofnana ESB sem og innan aðildarríkjanna á stækkunarmálum aukist mjög í kjölfar árásarstríðs Rússlands gagnvart Úkraínu og þeirrar þróunar sem orðið hefur í alþjóðamálum í kjölfarið, þar sem virkt lýðræði og réttarríkið á í auknum mæli undir högg að sækja.

Saga stækkunar ESB er farsældarsaga sagði Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, í stefnuræðu sinni í haust, sbr. umfjöllun um ræðuna í Vaktinni 15. september sl. Enda þótt mat á þeirri fullyrðingu kunni að vera mismunandi þá liggur a.m.k. fyrir að frá „stofnun“ sambandsins, hafa ekki brotist út hernaðarátök á milli þeirra ríkja sem sambandið hafa myndað á hverjum tíma eða í 70 ár rúmlega. Ef litið er til sögu Evrópu þá er það vafalaust einhvers konar met og það má til sanns vegar færa að friði fylgir farsæld sem er ómetanleg. Í ræðunni hvatti von der Leyen til þess að áfram yrði unnið að stækkun ESB, og nefndi hún Úkraínu, ríki Vestur-Balkanskagans og Moldóvu sérstaklega í því sambandi.

Von der Leyen var á sömu nótum í yfirlýsingu sem hún flutti á blaðamannafundi sem haldinn var í tengslum við birtingu orðsendingarinnar þar sem hún talaði m.a. um metnað sinn til þess að fullgera bandalagið:

„Completing our Union is the call of history, it is the natural horizon of the European Union. The citizens of countries that want to join are Europeans – just like those of today's Union. Because we all know that geography, history and common values bind us. So, completing our Union also has a strong economic and geopolitical logic. If you look at the history of the last enlargement rounds, you see that they have shown that there are enormous benefits both for those countries which access the European Union and the European Union itself. Basically, we all win.“

Forseti leiðtogaráðs ESB, Charles Michel, hefur einnig hvatt til þess að unnið sé markvisst að stækkunarmálum og að tímalínu viðræðna við umsóknarríki verði hraðað. Hefur verið haft eftir honum að ESB þurfi að vera tilbúið til stækkunar fyrir árið 2030. Undir þetta hefur stækkunarstjóri framkvæmdastjórnar ESB, Ungverjinn Olivér Várhelyi, tekið. Vegna umræðu um tiltekin tímamörk af þessu tagi hefur yfirstjórn framkvæmdastjórnar ESB þó séð ástæðu til að árétta að engar ákveðnar tímasetningar liggi til grundvallar í viðræðum við einstök ríki heldur ráði efnislegur framgangur mála innan umsóknarríkis mestu um tímalínu ferlisins í hverju tilviki fyrir sig, og er sú grundvallarafstaða raunar áréttuð orðsendingunni nú. Hvað sem líður ágreiningi eða áherslumun um einstök atriði af þessu tagi er ljóst að stuðningur innan stofnana sambandsins og sömuleiðis meðal flestra aðildarríkja við stækkun, og hraðari málsmeðferð eftir því sem efni standa til, er mikill þessi misserin, sbr. meðal annars Granada-yfirlýsingu leiðtogaráðs ESB sem fjallað var um í Vaktinni 13. október sl., og er jafnframt ljóst, eins og áður segir, að árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu og aðildarumsókn Úkraínu í kjölfarið hefur fært stóraukinn kraft í umræðuna.

En áður en vikið er að efni orðsendingarinnar og stöðu einstakra umsóknarríkja er hér að neðan fjallað stuttlega um lögformlegan feril við meðferð umsókna um aðild að ESB.

Formlegur ferill við meðferð umsókna um aðild að ESB

Kveðið er á um grunnreglur við meðferð umsókna um aðild að ESB í 49. gr. sáttmála um Evrópusambandið(The Treaty on European Union – TEU). Eins og fram kemur í ákvæðinu þá er sérhverju Evrópuríki sem virðir grundvallargildi ESB, sbr. 2. gr. TEU, og einsetur sér að stuðla að þeim, heimilt að sækja um aðild. Gildin eru eftirfarandi:

virðing fyrir mannlegri reisn

frelsi

lýðræði

jafnrétti

réttarríkið

virðing fyrir mannréttindum, þ.m.t. réttindum þeirra sem tilheyra minnihlutahópum.

Við frummat á umsóknum er framangreint metið en auk þess ber við mat á umsóknum, sbr. lokamálslið 1. mgr. 49. gr. sáttmála um ESB, að taka tillit til skilyrða sem leiðtogaráð ESB hefur samþykkt að umsóknarríki verði að uppfylla. Slík skilyrði voru samþykkt af leiðtogaráðinu á fundi þess í Kaupmannahöfn árið 1993 og eru þau nefnd Kaupmannahafnarskilyrðin (e. Copenhagen criteria). Kaupmannahafnarskilyrðin eru þríþætt og fela í sér pólitísk skilyrði, efnahagsleg skilyrði og lagaleg skilyrði, nánar tiltekið:

um stöðugt stjórnarfar og stofnanir sem tryggja lýðræði, réttarríki og mannréttindi,

um virkt markaðshagkerfi, sem hefur burði til að takast á við þá samkeppni sem fylgir þátttöku á innri markaði ESB,

að ríkið geti og vilji samþykkja og innleiða regluverk ESB og grundvallarmarkmið sambandsins í stjórnmálum og efnahagsmálum.

Umsóknarferlið og samningaviðræður fara fram í mörgum þrepum og er afar ítarlegt eins og Íslendingar þekkja frá þeim tíma er Ísland sótti um aðild að sambandinu árið 2009, sbr. skýrslu um framvinnu og stöðu viðræðanna sem utanríkisráðuneytið gaf út í apríl árið 2013, en umsókn Íslands var eins og kunnugt er dregin til baka í kjölfar alþingiskosninga síðar það ár.

Lögformlegt ákvörðunarvald í ferlinu liggur hjá aðildarríkjunum á vettvangi ráðherraráðs ESB og er gerð krafa um einróma samþykki innan ráðsins í allri ákvörðunartöku. Efnisleg meðferð umsókna og undirbúningur samningaviðræðna og viðræðurnar sjálfar eru hins vegar að mestu á herðum framkvæmdastjórnar ESB. Endanlegt ákvörðunarvald, þ.e. um hvort aðildarsamningur við umsóknarríki er samþykktur, liggur hins vegar hjá Evrópuþinginu og ráðherraráði ESB og þurfa báðar þessar stofnanir ESB að samþykkja aðildarsamning áður en lokafasi samþykktarferlisins hefst en það felst í því að aðildarsamningurinn er borinn upp til fullgildingar í öllum aðildaríkjum ESB, og í viðkomandi umsóknarríki jafnframt að sjálfsögðu, í samræmi við stjórnskipunarreglur í hverju ríki.

Í grófum dráttum er aðildarferlið eftirfarandi:

Ríki beinir umsókn um aðild til ráðherraráðs ESB.

Evrópuþinginu og þjóðþingum aðildarríkja er tilkynnt um umsókn.

Ráðherraráð ESB biður framkvæmdastjórn ESB um álit á umsókninni.

Að fengu jákvæðu áliti getur ráðherraráðið ákveðið að veita viðkomandi ríki formlega stöðu umsóknarríkis (e. Candidate status).

Enda þótt ríki hafi fengið formlega stöðu umsóknarríkis þýðir það ekki að aðildarviðræður hefjist heldur er slíkt háð sérstakri ákvörðun ráðherraráðs ESB og er ákvörðun þar að lútandi tekin á grundvelli mats framkvæmdastjórnar ESB á því hvort skilyrðum hafi verið fullnægt af hálfu umsóknarríkis.

Þegar ákvörðun um að hefja aðildarviðræður hefur verið tekin, tekur framkvæmdastjórn ESB í samvinnu við umsóknarríki saman yfirlitsskýrslur um efni löggjafar í umsóknarríki á mismunandi málefnasviðum (efniskaflar) samanborið við löggjöf ESB og leggur til viðræðuáætlun. Sú áætlun þarf síðan enn á ný að fá einróma samþykki af hálfu aðildarríkjanna á vettvangi ráðherraráðs ESB.

Samið er um hvern efniskafla sérstaklega og tekur ráðherraráð ESB jafnframt ákvarðanir um það hvenær og hvort samningaviðræður um einstaka kafla skuli hafnar á grundvelli tillagna frá framkvæmdastjórninni.

Ráðherraráð ESB tekur jafnframt ákvarðanir um það hvort og þá hvenær loka megi, til bráðabirgða, samningaviðræðum um einstaka efniskafla.

Þegar samningaviðræðum um alla efniskaflana hefur verið lokað er aðildarsamningur í heild sinni borin undir Evrópuþingið og ráðherraráð ESB til samþykktar.

Að fengnu samþykki Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB þarf loks að leggja samninginn fram til fullgildingar í öllum aðildarríkjum ESB og í umsóknarríkinu í samræmi við stjórnskipunarreglur í hverju ríki, þ.e. með þinglegri meðferð og þjóðaratkvæðagreiðslu, eftir atvikum.

Öll ríkin þurfa að fullgilda aðildarsamning til að hann geti öðlast gildi.

Umsóknarríkin og staða þeirra í ferlinu

Eins og áður segir hafa eftirtalin ríki sótt um aðild að ESB: Albanía, Bosnía og Hersegóvína, Kósovó, Svartfjallaland, Norður-Makedónía, Serbía, Tyrkland, Úkraína, Moldóva og Georgía.

Skipta má ríkjunum í eftirfarandi þrjá flokka eftir núverandi stöðu þeirra í umsóknarferlinu:

Ríki sem ákveðið hefur verið að hefja aðildarviðræður við, þ.e. Albanía, Norður-Makedónía, Serbía, Svartfjallaland og Tyrkland.

Ríki sem fengið hafa formlega stöðu umsóknarríkis, en formlegar aðildarviðræður ekki hafnar, þ.e. Bosnía og Hersegóvína, Úkraína og Moldóva

Ríki sem sótt hafa um aðild en ekki enn fengið stöðu umsóknarríkis, þ.e. Kósovó og Georgía.

Leggur framkvæmdastjórn ESB til að stöðu þriggja þessara ríkja í hinu formlega ferli verði breytt, þ.e. Úkraínu, Moldóvu og Georgíu, auk þess sem boðað er að lítið kunni að vanta upp á að mat á framgangi Bosníu og Hersegóvínu breytist.

Nánar um stöðuna í einstökum ríkjum:

Úkraína

Framkvæmdastjórnin leggur til að formlegar aðildarviðræður við Úkraínu verði hafnar.

Úkraína sótti um aðild að ESB strax í kjölfar innrásar Rússlands í landið, eða í lok febrúar 2022, og fékk með skjótum hætti stöðu umsóknarríkis, í júní 2022. Eins og vikið er að hér að framan þá hefur árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu sett stóraukinn kraft í viðleitni stofnana ESB og aðildarríkja þess til þess að unnið verði markvisst, ekki einungis að framgangi aðildarumsóknar Úkraínu, heldur einnig að umsóknum annarra ríkja.

Þrátt fyrir stríðsátökin, þá er það mat framkvæmdastjórnarinnar, að Úkraína hafi náð að gera umbætur, sbr. framangreind skilyrði um aðild að sambandinu, er dugi til þess að unnt sé að hefja formlegar aðildarviðræður. Þetta er ítarlega rökstutt í stækkunarstefnunni og í framvinduskýrslu um Úkraínu. Eftir sem áður er ekki ástæða til að efast um að mat framkvæmdastjórnarinnar í tilviki Úkraínu litist af þeirri stöðu sem árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu hefur skapað og er heilt yfir drifkrafturinn í þeirri stækkunarumræðu sem nú á sér stað.

Moldóva

Framkvæmdastjórnin leggur til að formlegar aðildarviðræður við Moldóvu verði hafnar. Moldóva sótti, rétt eins og Úkraína, um aðild að ESB fljótlega í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu, eða í byrjun mars 2022 og fékk ríkið formlega stöðu umsóknarríkis sama dag og Úkraína, þann 23. júní 2022. Moldóva þykir hafa staðið sig einkar vel er kemur að undirbúningi og umbótum sem krafist er, sbr. nánar framvinduskýrslu um Moldóvu.

Georgía

Framkvæmdastjórnin leggur til að Georgía fái formlega stöðu umsóknarríkis. Georgía sótti um aðild, rétt eins og Úkraína og Moldóva, í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu, eða í byrjun mars 2022. Á hinn bóginn fékk ríkið ekki þann sama skjóta framgang og framangreind ríki enda þótt umsókn þess hafi verið vel tekið. Nú hins vegar er það mat framkvæmdastjórnar ESB að efni standi til þess að veita ríkinu framgang, sbr. nánar í framvinduskýrslu um Georgíu.

Bosnía og Hersegóvína

Framkvæmdastjórnin boðar að lítið kunni að vanta upp á að mat á framgangi Bosníu og Hersegóvínu breytist þannig að unnt verði mæla með því að formlegar aðildarviðræður við ríkið verði hafnar. Bosnía og Hersegóvína sótti um aðild árið 2016 og fékk ríkið formlega stöðu umsóknarríkis árið 2022. Óljóst eða loðið orðalag stækkunaráætlunarinnar um stöðu ríkisins gefur til kynna að mat af hálfu framkvæmdastjórnarinnar um stöðu landsins hafi á endanum verið háð málamiðlun. Hvað sem því líður þá verður ekki önnur ályktun dregin en að stutt kunni að vera í að umsókn ríkisins fái framgang, sbr. nánar í framvinduskýrslu um Bosníu og Hersegóvínu.

Albanía

Ekki er mælt með breytingum á stöðu Albaníu. Albanía fékk stöðu umsóknaríkis árið 2014 og í mars 2020 voru formlegar aðildarviðræður hafnar. Enda þótt framgangur hafi orðið í viðræðunum þykir enn skorta á umbætur svo sem á sviði tjáningarfrelsis, vernd minni hluta hópa og vernd eignaréttar, spillingarmála o.fl., sbr. nánar í framvinduskýrslu um Albaníu.

Norður-Makedónía

Ekki er mælt með breytingum á stöðu Norður-Makedóníu. Norður-Makedónía sótti um aðild árið 2004 og fékk stöðu umsóknaríkis árið 2005. Ný drög að rýniskýrslu vegna aðildarumsóknarinnar voru kynnt ráðherraráði ESB síðasliðið sumar en enn virðist þó töluvert vanta upp á til að unnt sé talið að veita ríkinu frekari framgang, m.a. umbætur er snúa að dómskerfi, spillingarmálum, vörnum gegn skipulagðri glæpastarfsemi, umbótum í stjórnsýslu og opinberum fjármálum o.fl., sbr. nánar í framvinduskýrslu um Norður-Makedóníu.

Serbía

Ekki er mælt með breytingum á stöðu Serbíu. Vegferð Serbíu í átt til aðildar hófst, líkt og flestra annarra ríkja Vestur-Balkansskagans, árið 2003 á leiðtogafundi ESB og Vestur-Balkanríkjanna sem var haldinn var í Þessalóníku á Grikklandi það ár. Serbía sótti þó ekki formlega um aðild fyrr en árið 2009 og fékk landið formlega stöðu umsóknarríkis árið 2012 og árið 2014 voru formlegar aðildarviðræður hafnar. Enda þótt framgangur hafi orðið þykir enn skorta á ýmislegt, svo sem á sviði utanríkis- og öryggismála en Serbía hefur til að mynda ekki viljað fylgja línu ESB varðandi viðskiptaþvinganir gagnvart Rússlandi. Þá skortir á að unnið sé að bættum samskiptum við Kósovó en sú gagnrýni á einnig við um síðarnefnda landið, sbr. nánar í framvinduskýrslu um Serbíu.

Kósovó

Ekki er mælt með breytingum á stöðu Kósovó. Vegferð Kósovó í átt til aðildar hófst, líkt og Serbíu árið 2003 á leiðtogafundi ESB og Vestur-Balkanríkjanna sem haldinn var í Þessalóníku á Grikklandi það ár. Aðildarumsókn Kósovó er í þeirri undarlegu stöðu að fimm af aðildarríkjum ESB viðurkenna ekki sjálfstæði Kósovó. Meðal annars af þeirri ástæðu hefur landið ekki ennþá formlega fengið stöðu umsóknarríkis. Enda þótt framgangur hafi orðið þykir enn skorta á umbætur á ýmsum sviðum svo sem á dómskerfinu. Þá skortir m.a. á, eins áður segir, að unnið sé að bættum samskiptum við Serbíu, sbr. nánar í framvinduskýrslu um Kósovó.

Svartfjallaland

Ekki er mælt með breytingum á stöðu Svartfjallalands. Vegferð Svartfjallalands í átt til aðildar hófst, líkt og Serbíu og Kósovó, árið 2003 á leiðtogafundi ESB og Vestur-Balkanríkjanna sem haldinn var í Þessalóníku á Grikklandi það ár. Svartfjallaland fékk stöðu umsóknarríkis árið 2010 og voru formlegar aðildarviðræður hafnar árið 2012. Framgangur mála hefur verið lítill að undanförnu að mati ESB. Vonir standa þó til að nýlegar breytingar á stjórnskipan landsins verði ríkinu til framdráttar en einnig er kallað eftir frekari umbótum á sviði réttarríkismála. Utanríkis- og öryggisstefna ríkisins er hins vegar að fullu í línu við stefnu ESB. Sjá nánar í framvinduskýrslu um Svartfjallaland.

Tyrkland

Ekki er mælt með breytingum á stöðu Tyrklands. Vegferð Tyrklands í átt til aðildar á sér langa sögu sem verður rakin allt aftur til ársins 1959. Tyrkland sótti þó ekki formlega um aðild fyrr en árið 1987 og fékk ríkið formlega stöðu umsóknaríkis árið 1999. Árið 2004 var síðan samþykkt að hefja formlegar aðildarviðræður við ríkið. Síðastliðin ár, eða frá árinu 2018, hefur lítill sem engin framgangur orðið og viðræður að mestu legið niðri. Raunar er staðan sú að landið hefur fremur fjarlægst það að uppfylla skilyrði aðilar, einkum á sviði mannréttindamála. Sjá nánar í framvinduskýrslu um Tyrkland.

Framangreind stækkunarstefna og tillögur framkvæmdastjórnarinnar ganga nú til umfjöllunar í ráðherraráði ESB og jafnframt í leiðtogaráði ESB, en gert er ráð fyrir að stefnan verði til umræðu á fundi leiðtogaráðsins sem áformaður er um miðjan desember nk. Þegar afstaða leiðtogaráðsins liggur fyrir gengur málið til formlegrar ákvörðunartöku á vettvangi ráðherraráðs ESB.

Áskoranir sem fylgja stækkun og hugmyndir um marglaga Evrópusamstarf

Auk umræðu um stækkunarstefnu ESB er viðbúið að umræða skapist á væntanlegum fundi leiðtogaráðs ESB í desember um það hvort sambandið sé tilbúið að taka á móti nýjum aðildarríkjum, stofnanalega séð, þ.e. hvaða áhrif það geti haft á skilvirkni sambandsins ef aðildarríkjum er fjölgað án þess að samhliða sé ráðist í umbætur á stjórnskipan þess, m.a. með endurskoðun á því hvernig ákvarðanir eru teknar, þ.e. hvar krafist sé einróma samþykkis og hvar aukinn meirihluti skuli ráða niðurstöðu. Þá hafa hugmyndir um marghliða Evrópusamstarf einnig verið fyrirferðamiklar í álfunni að undanförnu, sbr. skýrslu vinnuhóps sem stjórnvöld í Frakklandi og Þýskalandi settu saman í því skyni að fjalla um framtíð Evrópusamstarfs og áhrif stækkunar ESB á stofnanir og stjórnkerfi þess. Í skýrslunni sem hefur verið lögð fram á vettvangi ráðherraráðs ESB, bæði á fundi Evrópuráðherra og fundi utanríkisráðherra ESB, eru viðraðar ýmsar hugmyndir og tillögur sem m.a. ná til breytinga á sáttmálum ESB (e. Treaty on European Union). Í skýrslunni er lögð áhersla á að styrkja þurfi réttarríkið og veita sambandinu betri verkfæri til þess að standa vörð um það. Þá eru reifaðar hugmyndir um hvernig megi einfalda starfsemi sambandsins, sérstaklega í ljósi fyrirhugaðrar stækkunar þess, m.a. með því að styrkja tekjugrundvöll þess, fækka þingmönnum á Evrópuþinginu og framkvæmdastjórum í framkvæmdastjórn ESB, auka heimildir ráðherraráðs ESB til að taka ákvarðanir með auknum meirihluta og draga umtalsvert úr kröfu til fullrar samstöðu um tilteknar ákvarðanir, þ.e. að draga verulega úr neitunarvaldi aðildarríkja. Þá er loks í skýrslunni fleytt hugmyndum um lagskipt Evrópusamstarf þar sem innsta hlutann skipi ríki sem tækju þátt í öllum þáttum samstarfsins, þar með talið t.d. evru-samstarfinu og Schengen-samstarfinu, í næsta lagi væri ESB eins og það er nú í grófum dráttum, þriðja lagið innifeli ríki sem eigi aðild að innri markaðinum (sbr. t.d. EES) og þau sem aðhyllast sömu grunngildi og ESB almennt, og fjórða og ysta lagið yrði svo vettvangur á borð við European Political Community (EPC), sbr. meðfylgjandi skýringarmynd:

Skýrslan er sögð hugsuð sem innlegg inn í umræðuna en ekki sem opinbert stefnumótunarskjal af hálfu ESB eða ríkjanna sem stóðu að henni.

Samningsafstaða ESB á COP 28

Hinn 30. nóvember nk. hefst tveggja vikna loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna (SÞ), COP 28, í Dúbaí í Sameinuðu arabísku fustadæmunum. Ríki heims koma þar saman til að leggja á ráðin um stöðu loftslagsmála og stilla saman strengi í baráttunni við loftslagsvána.

Samningsafstaða ESB fyrir komandi ráðstefnu var samþykkt á fundi umhverfisráðherra ESB þann 16. október sl. Samkvæmt henni hyggst ESB leggja áherslu á þau miklu tækifæri sem felast í því fyrir jörðina og íbúa hennar og hagkerfi heimisins að ráðast í metnaðarfullar loftlagsaðgerðir. Jafnframt verður lögð áhersla á mikilvægi þess að tryggja réttlát umskipti fyrir alla í ferlinu.

ESB hyggst vera í fararbroddi í viðræðunum um auknar aðgerðir og hvetja aðrar þjóðir til að fylgja fordæmi þess. Áherslur ESB felast í auknum metnaði á heimsvísu í átt að loftslagshlutleysi, að notkun jarðefnaeldsneytis verði hætt í áföngum samhliða aukinni virkjun og notkun endurnýjanlegrar orku ásamt nauðsynlegum mótvægisaðgerðum til að tryggja réttlát umskipti. Auknar aðgerðir séu nauðsynlegar til að unnt sé að ná markmiðum Parísarsamkomulagsins. Að mati ESB munu núverandi landsframlög og uppfærslur á þeim sem kynntar hafa verið ekki duga til að ná settu markmiði og því mikilvægt að helstu hagkerfi heims auki metnað sinn og uppfæri langtímaþróunaráætlanir sínar um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda þannig að markmið um kolefnishlutleysi verði náð fyrir árið 2050. Þannig mun ESB fyrir sitt leyti leggja fyrir ráðstefnuna uppfært framlag ESB-ríkja sem endurspeglar grundvallarþætti stefnumörkunar ESB samkvæmt „Fit for 55“ pakkanum, sem fjallað hefur verið um hér í Vaktinni við ýmis tilefni, sem áætlað er að muni gera ESB kleift að draga úr nettólosun gróðurhúsalofttegunda um a.m.k. 55% fyrir 2030 miðað við árið 1990 og ná kolefnishlutleysi fyrir árið 2050. Í gegnum uppfært landsframlag ítrekar ESB, og aðildarríki þess, skuldbindingu sína við þetta markmið, sem er nú lagalega bindandi innan ESB, og sendir um leið sterk skilaboð til annarra ríkja um að fylkja liði í átt að kolefnishlutlausri framtíð.

Ráðstefnan í ár markar þau tímamót að þar verður í fyrsta sinn frá gildistöku Parísarsáttmálans árið 2020 framkvæmt heildstætt stöðumat (e. Global Stocktake) á framkvæmd hans og hvar við, heimurinn, stöndum með hliðsjón af þeim markmiðum sem þar eru sett. Framkvæmd stöðumats af þessu tagi er áskilið í sáttmálanum og er matinu ætlað að þjóna sem grundvöllur fyrir umræður um nauðsyn aukinna aðgerða.

Ísland er aðili að loftslagssamningi SÞ og mun sendinefnd Íslands sækja ráðstefnuna.

Gagnsæi pólitískra auglýsinga

Samkomulag náðist 7. nóvember sl. í þríhliðaviðræðum milli Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB um efni löggjafartillagna sem miða að því að bæta regluverk í tengslum við kosningar og lýðræðislega umræðu með því að auka gagnsæi við birtingu pólitískra auglýsinga. Fjallað var um tillöguna í Vaktinni 26. nóvember 2021 er hún var lögð fram af framkvæmdastjórninni.

Samkvæmt tillögunni og því samkomulagi sem nú liggur fyrir er gert ráð fyrir að pólitískar auglýsingar þurfi að vera auðkenndar sérstaklega og geyma upplýsingar um hver standi á bak við þær, hver kosti þær og hversu mikið hafi verið greitt fyrir þær.

Eins og vikið er að í umfjöllun Vaktarinnar 26. nóvember 2021 var með lögum frá Alþingi nr. 109/2021, um breytingu á lögum um starfsemi stjórnmálasamtaka, sbr. einnig lög nr. 139/2018, um breytingu á sömu lögum, hert á kröfum um aukið gagnsæi við birtingu á pólitískum auglýsingum á Íslandi og áþekkum hætti en löggjafarþróun á Íslandi á þessu sviði hefur verið nokkuð á undan þróuninni hjá ESB.

Reglugerðin gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við framangreint samkomulag.

Grænir vöruflutningar - efling samþættra flutninga

Framkvæmdastjórnin birti þann 7. nóvember sl. tillögu að breytingu á tilskipun um samþætta flutninga (e. combined transport). Tillagan er sú síðasta í röð tillagna um græna vöruflutninga sem framkvæmdastjórnin hefur lagt fram en aðrar tillögur um efnið voru birtar síðastliðið sumar, sbr. umfjöllun í Vaktinni 21. júlí sl. Markmiðið er að stuðla að aukinni skilvirkni og hagkvæmni í vöruflutningum og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda vegna þeirra.

Með tillögunni er stefnt að því að draga úr vöruflutningum á vegum á lengri leiðum en stuðla þess í stað að auknum vöruflutningum með lestum og skipum, sem er almennt vistvænni flutningsmáti, þar sem staðlaðar flutningseiningar eru notaðar, svo sem gámar, en nýta sveigjanleika í vöruflutningum á akvegum einungis fyrir fyrsta og síðasta hluta flutningsleiðar, þ.e. frá dyrum sendanda að lestarstöð eða höfn og loks að dyrum móttakanda.

Tillögunni, verði hún samþykkt, er ætlað að leiða til aukinnar samkeppnishæfni og skilvirkni samþættra flutninga samanborið við flutninga með vöruflutningabifreiðum á vegum og verður ýmsum stuðningsaðgerðum beitt til að ná þeim markmiðum.

Tillagan gengur nú til umfjöllunar á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Tillaga hefur jafnframt verið birt í samráðsgátt ESB og er umsagnarfrestur til 3. janúar 2024.

Samkomulag um heildar aflamark fyrir makríl, kolmunna og síld í Norður Atlantshafi

Sendinefndir ESB, Íslands, Færeyja, Grænlands, Noregs og Bretlands náðu samkomulagi í síðasta mánuði um heildarveiði á makríl, kolmunna og síld í Norðaustur-Atlantshafi fyrir árið 2024. Samkomulagið byggir á vísindalegum ráðleggingum frá Alþjóðahafrannsóknarráðinu (ICES).

Hvað makríl varðar þá samþykktu strandríkin 739.386 tonna aflamark. Aflamarkið er í samræmi við ráðgjöf ICES, samkvæmt nálguninni um sjálfbæra hámarksnýtingu og er 5% lægra en aflamarkið sem samþykkt var fyrir árið 2023.

Að auki ræddu sendinefndirnar nýja langtímastefnu um stjórn veiða úr makrílstofninum og viðurkenndu mikilvægi þess að skipta heildarkvótanum þannig að heildarveiði verði ekki umfram ráðgjöf. Undanfarin ár hefur heildarveiði úr stofninum verið umtalsvert yfir settu aflamarki eða um 40% og stafar það að því að löndin hafa ekki komið sér saman um innbyrðis skiptingu kvótans.

Þess má geta að Bretland og Noregur gerðu með sér tvíhliða samkomulag um veiðar úr markílstofninum fyrir árið 2023 í sumar eins og fjallað var um í Vaktinni 23. júní sl.

Fyrir kolmunna samþykktu ESB, Noregur, Færeyjar, Ísland og Bretland að miða aflamark fyrir árið 2024 við 1.529.754 tonn. Þetta aflamark er í samræmi við ráðgjöf ICES. Það samsvarar 12,5% aukningu miðað við aflamark sem sett var fyrir árið 2023.

Fyrir síldina var samið um að aflamark fyrir árið 2024 yrði 390.010 tonn, sem er 24% samdráttur miðað við aflamark ársins í ár. Er samþykkt aflamark hér einnig í samræmi við ráðgjöf ICES. Hefur ESB í viðræðum nú gert kröfu um að vera viðurkennt sem strandríki er kemur að síldveiðum og er sú krafa byggð á vísindalegum vísbendingum um að síld hafist við að einhverju marki á ESB-hafsvæðum.

Sendinefndirnar sammæltust einnig um að taka innbyrðis skiptingu kvótans í öllum þremur tegundunum til umfjöllunar eins fljótt og auðið er og eigi síðar en snemma árs 2024.

Vinnufundur forsætisráðherra EES/EFTA-ríkjanna

Forsætisráðherrar EES/EFTA-ríkjanna, Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, Danil Risch, forsætisráðherra Liechtenstein og forsætisráðherra Íslands, Katrín Jakobsdóttir, hittust á vinnufundi í Ósló þann 30. október sl. Var fundurinn haldinn í tengslum við leiðtogafund norrænna forsætisráðherra þar í borg en Ísland fer nú eins og kunnugt er með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni.

Ýmis málefni voru til umræðu á fundinum þ. á m. staða mála í Mið-Austurlöndum, grænu umskiptin, helstu málefni á vettvangi ESB og þróun EES-samstarfsins en í byrjun næsta árs verða þrjátíu ár liðin frá því að samningurinn um Evrópska efnahagsvæðið tók gildi, sbr. m.a. umfjöllun í Vaktinni 13. janúar sl., þar sem staðfestingu laga um Evrópska efnahagssvæðisins var minnst. Skiptust ráðherrarnir m.a. á skoðunum um viðburði sem til stendur að efna til á næsta ári af því tilefni.

Heimsókn fjármála- og efnahagsráðherra til Brussel

Fjármála- og efnahagsráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, heimsótti Brussel í vikunni. Á miðvikudag stýrði hún fundi í norrænu ráðherranefndinni um efnahags- og fjármál þar sem hið háa verðbólgustig, sem verið hefur viðvarandi síðastliðin misseri, og þær áskoranir sem verðbólgan hefur haft í för með sér við stjórn efnahagsmála var megin umræðuefnið. Sjá nánar um fundinn í fréttatilkynningu fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Á fimmtudag sat ráðherrann árlegan sameiginlegan fund fjármála- og efnahagsráðherra ESB- og EFTA-ríkjanna sem haldinn er á vettvangi ráðherraráðs ESB (ECOFIN). Fyrir fundinum lá m.a. skjal sem EFTA ríkin höfðu tekið saman um breytt umhverfi iðnaðarframleiðslu innan ESB, m.a. fyrir tilstilli aukinna ríkisstyrkja sem eiga að styðja við samkeppnishæfni evrópsks iðnaðar og grænar áherslur ESB. Í tengslum við efni skjalsins gerðu fjármála- og efnahagsráðherrar EFTA-ríkjanna grein fyrir því hvaða áhrif auknir styrkir ESB og aðildarríkja þess til iðnaðarframleiðslu hafi haft á framleiðslu í löndum sínum. Auk þess gerðu ráðherrarnir grein fyrir stöðu efnahagsmála almennt í löndum sínum. Í máli Þórdísar Kolbrúnar kom m.a. fram að opinberar stuðningsaðgerðir til nýsköpunar á Ísland væru almennt útfærðar á breiðum grundvelli fremur en með styrkjum til ákveðinna fyrirtækja eða geira atvinnulífsins. Þá kynnti framkvæmdastjórn ESB á fundinum drög að nýrri efnahagsspá fyrir ESB sem áætlað er að birt verði í næstu viku. Sjá nánar um fundinn og þátttöku ráðherra í honum í fréttatilkynningu fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins, í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

27. október 2023 | Starfsáætlun framkvæmdastjórnar ESB fyrir árið 2024 |
Að þessu sinni er fjallað um:

starfsáætlun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB) fyrir árið 2024

fund leiðtogaráðs ESB

aðgerðaáætlun um vindorku

orkutækniáætlun ESB

aðgerðir til að sporna gegn lyfjaskorti og auka afhendingaröryggi

endurskoðun reglna um fiskveiðieftirlit

vernd vöruheita

ráðstafanir til að sporna við misnotkun og ólöglegri notkun dróna

áform um lagasetningu á sviði geimréttar

einföldun regluverks á sviði samgagna

umbætur í opinberri stjórnsýslu aðildarríkja ESB

Starfsáætlun framkvæmdastjórnar ESB fyrir árið 2024

Framkvæmdastjórn ESB birti þann 17. október sl. starfsáætlun fyrir árið 2024.

Með áætluninni eru línur lagðar fyrir síðasta starfsár sitjandi framkvæmdastjórnar en eins og kunnugt er munu kosningar til Evrópuþingsins fara fram í byrjun júní á næsta ári og rennur þá jafnframt út skipunartímabil framkvæmdastjórnarinnar, sbr. umfjöllun um komandi Evrópuþingskosningar í Vaktinni 29. september sl.

Ný ársáætlun endurspeglar, eins og jafnan, þær áherslur og málefni sem forseti framkvæmdastjórnar ESB hefur áður boðað í stefnuræðu sinni (e. State of the Union Address) á Evrópuþinginu að vori, sbr. umfjöllun um síðustu stefnuræðu Ursulu von der Leyen í Vaktinni 15. september sl., sbr. einnig viljayfirlýsingu (e. Letter of intent) framkvæmdastjórnar ESB til Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB sem gefin er út samhliða. Eins og fram kom í stefnuræðunni, og áréttað er í viljayfirlýsingunni, er það mat framkvæmdastjórnarinnar að 90% af þeim pólitísku stefnumálum sem stjórn von der Leyen lagði upp með í stefnuáætlun sinni í upphafi skipunartímabilsins árið 2019 hafi þegar náð fram að ganga. Ný frumkvæðismál eru því fremur fá í áætluninni. Er þess í stað lögð megináhersla á framgang aðgerða sem ætlað er að draga úr reglubyrði og einfalda regluverk, ekki síst fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Sumar hagræðingartillögur í þá veru eru þegar komnar fram svo sem löggjafartillögur um heildarendurskoðun á tollkerfi ESB, sbr. umfjöllun um þær tillögur í Vaktinni 9. júní sl. en aðrar eru í farvatninu. Eru í starfsáætluninni boðaðar samtals 26 nýjar tillögur sem ætlað er að stuðla að einföldun á ýmsum málefnasviðum og miða þær m.a. að því að færa upplýsingagjöf og skýrslugerð á rafrænt form, draga úr endurtekinni upplýsingagjöf fyrirtækja um sama efni með því að samnýta upplýsingar og draga úr tíðni upplýsingagjafar af hálfu atvinnurekenda. Sjá lista yfir framangreindar hagræðingartillögur í viðauka II með starfsáætluninni.

Þá er í áætluninni lögð áhersla á framgang þeirra tillagna sem þegar hafa verið lagðar fram en í viðauka III er að finna lista yfir framkomnar löggjafartillögur sem bíða afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB en þar er samtals um að ræða 154 tillögur sem snerta öll sex meginstefnumið framkvæmdastjórnarinnar.

Í viðauka I er síðan að finna lista yfir ný frumkvæðismál sem boðuð eru en þau snerta sömuleiðis öll sex meginstefnumið framkvæmdastjórnarinnar og flokkast sem hér segir:

Græni sáttmáli ESB (e. The European Green Deal)

Nýr vindorkupakki. Boðaðar eru aðgerðir sem ætlað er að einfalda og flýta leyfisveitingum á sviði vindorku, bæta fjármögnunarmöguleika og bæta samkeppnishæfni evrópsks iðnaðar á þessu sviði. Er orðsending um þetta þegar komin fram, sbr. umfjöllun hér að neðan í Vaktinni.

Setning markmiða í loftlagsmálum fyrir árið 2040. Boðað er að sett verði af stað ferli fyrir töku ákvarðana um markmiðssetningu í loftlagsmálum fyrir árið 2040, með hliðsjón af meginmarkmiðinu um kolefnishlutleysi fyrir árið 2050. Í því samhengi verður meðal annars sett fram áætlun um hvernig ná megi árangri með kolefnisförgun (e. Carbon Removal).

Stefna á sviði vatnamála (e. Water resilience). Kynnt verður stefna á sviði vatnamála, þ.e. hvernig hægt er að tryggja aðgang að vatni, fyrir almenning, atvinnulíf og náttúru um leið og leitað er leiða til að takast á við afleiðingar flóða annars vegar og vatnsskorts hins vegar.

Stafræn geta og færni (e. Europe fit for digital age)

Stefnumótun á sviði geimréttar. Kynnt verður stefnumótun á sviði geimréttar til að styðja við stafræn og græn umskipti. Er annars vegar stefnt að framlagningu löggjafartillagna á sviði geimréttar (e. European space law) og hins vegar að sett verði fram stefna um notkun gagna sem aflað er í geimnum í þágu atvinnulífs og til eflingar á geimhagkerfinu (e. Strategy on the space data economy). Sjá nánar umfjöllun hér að neðan í Vaktinni um samráðferli sem hafið er vegna þessara áforma um lagasetningu á sviði geimréttar.

Stefnumörkun um ábyrga notkun gervigreindartækni.

Hagkerfi sem virkar (e. An economy that works for people)

Stefna um líftækni og líftækniframleiðslu. Kynnt verður stefna um hvernig fullnýta megi möguleika líftækni og líftækniframleiðslu til að auka samkeppnishæfni evrópsks iðnaðar.

Samtal um félags- og vinnumarkaðsmálefni. Efnt verður til fundar með forustumönnum aðila vinnumarkaðarins innan ESB til að ræða margvíslegar áskoranir sem vinnumarkaðurinn stendur frammi fyrir m.a. vegna skorts á færu vinnuafli o.fl.

Stefnumótun á sviði grænna og stafrænna umskipta. Boðuð er frekari stefnumótun á sviði grænna og stafrænna umskipta með hliðsjón af efnahagsöryggistefnu ESB og sjónarmiða um efnahagslegt öryggi og sjálfstæði ESB (e. Open strategic autonomy). Sjá hér m.a. umfjöllun um nýja efnahagsöryggisáætlun ESB í Vaktinni 23. júní sl.

Endurskoðun á tilskipun um Evrópska samstarfsráðið (e. European Work Council). Með endurskoðuninni er brugðist við ákalli frá Evrópuþinginu um endurskoðun tilskipunarinnar.

Efling ESB á vettvangi heimsmála (e. A stronger Europe in the world)

Efling samskipta við ríki Afríku. Boðuð er útgáfa orðsendingar um eflingu samskipta við ríki Afríku.

Áætlun um eflingu evrópsks iðnaðar á sviði vopna- og varnartengdrar framleiðslu. Boðuð er útgáfa áætlunar um eflingu iðnaðar á þessu sviði til að bregðast við veikleikum sem þykja hafa komið í ljós í kjölfar árásarstríðs Rússlands gagnvart Úkraínu.

Efling samevrópskra lífshátta (e. Promoting our European way of life)

Endurskoðun lagaramma til að takast á við smygl á flóttafólki. Boðuð er framlagning löggjafartillagna um endurskoðun á lagaramma til að takast á við smygl á flóttafólki til ESB og jafnframt að samráð á milli aðildarríkjanna til að takast á við vandamálið verði aukið.

Samræmd umgjörð evrópskra prófgráða (e. Joint European degree). Kynnt verður tillaga um hvernig samræma megi umgjörð evrópskra prófgráða sem og tilmæli um samræmda viðurkenningu menntunar innan ESB o.fl.

Efling og vernd lýðræðis (e. A new push for European democracy)

Útgáfa orðsendingar um undirbúning og umbætur vegna mögulegrar stækkunar ESB.

Útgáfa tilmæla um samþættingu barnaverndarkerfa í aðildarríkjunum.

Starfsáætlun framkvæmdastjórnarinnar var kynnt í Evrópuþinginu sama dag og hún kom út, 17. október sl., og er ráðgert að hún komi til formlegrar kynningar vettvangi ráðherraráðs ESB, á fundi Evrópumálaráðherra ESB, sem áætlaður er 18. nóvember nk.

Fundur leiðtogaráðs ESB

Leiðtogaráð ESB kom saman til fundar í Brussel í gær, 26. október, og lauk fundinum síðdegis í dag.

Átökin sem nú geisa fyrir botni Miðjarðahafs, í kjölfar hrottalegrar hryðjuverkaárásar Hamas-samtakanna á Ísrael 15. október sl., var megin umfjöllunarefni fundarins í gær og sendu leiðtogarnir frá sér ályktun í lok fundarins þar sem árásin er fordæmd og réttur Ísraels til að verja sig er áréttaður.

Á hinn bóginn lýsir leiðtogaráðið þungum áhyggjum af versnandi mannúðarástandi á Gasaströndinni í kjölfar gagnaðgerða Ísraelshers og kallar eftir því að nauðsynleg aðstoð verði veitt almenningi án tafar og heita leiðtogarnir stuðningi ESB í því sambandi.

Í ályktuninni lýsa leiðtogarnir jafnframt yfir vilja til að leggja sitt að mörkum svo hægt verði að endurvekja samningaviðræður og friðarferli á milli Ísraels og Palestínu með tveggja ríkja lausn að leiðarljósi. Þá lýsa leiðtogarnir yfir stuðningi við hugmyndir um að alþjóðleg friðarráðstefna verði haldin fljótlega.

Eins og áður segir var fundi leiðtogaráðsins framhaldið í dag og var árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu til umræðu, þar sem ófrávíkjanlegan stuðningur ESB við Úkraínu var áréttaður. Markverðast er að leiðtogarnir sammæltust um að nýta bæri ávöxtun af frystum rússneskum fjármunum innan ESB til enduruppbyggingar í Úkraínu og er í niðurstöðu fundarins kallað eftir því að framkvæmdastjórnin komi fram með tillögur þar að lútandi. Talið er að eignir að verðmæti yfir 200 milljarðar evra í rússneskri eigu séu innan aðildarríkja ESB og því um talsverðar fjárhæðir að ræða.

Að auki voru efnahagsmál og samkeppnishæfni innri markaðar ESB rædd og kölluðu leiðtogarnir meðal annars eftir því að afgreiðsla mikilvægra mála eins og löggjafartillagna um kolefnislausan iðnað (e. Net Zero Industry Act), um mikilvæg hráefni (e. Critical Raw Materials Act) og um endurskoðun reglna um raforkumarkað ESB (e. Electricity Market Reform) verði hraðað eins og kostur er, sbr. umfjöllun um þessi málefni í Vaktinni 24. mars sl.

Einnig kölluðu ráðherrarnir eftir því að nýrri orðsendingu um aðgerðir til að sporna gegn lyfjaskorti og auka afhendingaöryggi lyfja verði fylgt eftir með skjótum hætti, sbr. nánari umfjöllum um þessa orðsendingu hér að neðan í Vaktinni.

Málefni flótta- og farandfólks og fjölmörg önnur mikilvægi málefni voru til umræðu á fundinum. Sjá nánar um niðurstöður fundarins hér.

Í framhaldi af leiðtogafundinum fór fram leiðtogafundur evruríkjanna (Euro summit). Sjá nánar um niðurstöður þess fundar hér.

Aðgerðaáætlun um vindorku

Uppbygging innviða til framleiðslu og nýtingu endurnýjanlegrar orku er grunnforsenda þess að markmið ESB um kolefnishlutleysi fyrir árið 2050 samkvæmt Græna sáttmálanum og REPowerEU áætluninni geti náðst. Þannig hefur ESB nýlega sett sér metnaðarfyllri markmið um aukinn hlut endurnýjanlegrar orku fyrir árið 2030, sbr. umfjöllun í Vaktinni 21. apríl 2023, sbr. einnig svonefnda TEN-E reglugerð sem miðar að því að bæta afhendingaröryggi, markaðssamþættingu, samkeppni og sjálfbærni í orkugeiranum.

Áframhaldandi virkjun vindorku gegnir mikilvægu hlutverki ef takast á að ná þessum markmiðum en áætlað er að nýting vindorku þurfi að vaxa úr 204 GW árið 2022 í yfir 500 GW árið 2030.

Þrátt fyrir að virkjun vindorku og iðnaður á sviði vindmylluframleiðslu innan ESB hafi gengið vel á umliðnum árum eru blikur á lofti og áskoranir er kemur að frekari uppbyggingu og iðnaðarframleiðslu á þessu sviði innan ESB, svo sem óviss eftirspurn, seinvirkt og flókið leyfisveitingakerfi, skortur og hátt verð á nauðsynlegu hráefni, há verðbólga og aukin alþjóðleg samkeppni á vindmyllumarkaði og skortur á hæfu vinnuafli til framleiðslunnar.

Í stefnuræðu sinni á Evrópuþinginu 13. september sl., sbr. umfjöllun um ræðuna í Vaktinni 15. september sl., brást Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, við þeim vaxandi vanda sem vindorkugeirinn hefur staðið frammi fyrir að undanförnu og boðaði aðgerðapakka um vindorku þar sem lögð yrði áhersla á að finna leiðir til að flýta fyrir leyfisveitingum, einfalda þær og liðka fyrir fjármögnun á þessu sviði. Þessi áform voru síðan áréttuð í starfsáætlun framkvæmdastjórnar ESB fyrir árið 2024, sbr. umfjöllun um þá áætlun hér að framan í Vaktinni.

Þann 24. október sl. sendi framkvæmdastjórn ESB síðan frá sér orðsendingu til Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB, efnahags- og félagsmálanefndar ESB og svæðanefndarinnar þar sem boðaðar eru tafarlausar aðgerðir til að styðja við evrópskan vindorkuiðnað.

Markmið með aðgerðaáætluninni er að stuðla að og viðhalda samkeppnishæfni vindorkuiðnaðar í ESB, einfalda ferla við leyfisveitingar og auðvelda aðgang að nauðsynlegri fjármögnun.

Framkvæmdastjórnin hefur einnig, samhliða, gefið út orðsendingu um stöðu mála varðandi nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa á hafi úti (e. offshore). Snýr sú orðsending bæði að virkjun vindorku á hafi úti og að orkuframleiðslu með virkjun sjávarfalla, sbr. áætlun ESB um nýtingu endurnýtanlega orku á hafi úti sem samþykkt var fyrir þremur árum.

Á Íslandi hefur einnig átt sér stað mikil umræða um vindorku undanfarið. Í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar kemur fram að stefnt skuli að setningu sérlaga um nýtingu vindorku með það að markmiði að einfalda uppbyggingu vindorkuvera. Til að vinna að þessu skipaði umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra starfshóp um nýtingu vindorku og skilaði hópurinn skýrslu til ráðherra í apríl síðastliðnum undir heitingu Vindorka - valkostir og greining. Meðal niðurstaðna starfshópsins er að skýr og greinargóð heildarstefnumörkun stjórnvalda um virkjun vindorku sé mikilvæg og að best væri að slík stefna yrði samþykkt á Alþingi. Ráðherra skipaði jafnframt starfshóp til að fjalla um nýtingu vinds á hafi í lögsögu Íslands og skilaði sá hópur skýrslu til ráðherra í sumar þar sem lagt er til að á næstunni verði unnið að rannsóknum og undirbúningi sem lið í mótun stefnu um nýtingu vinorku á hafi úti. Vænta má að umræða og aðgerðir á vettvangi ESB nýtist í þeirri vinnu sem framundan er á Íslandi.

Endurskoðun á orkutækniáætlun ESB

Framkvæmdastjórn ESB birti þann 26. október sl. uppfærslu á orkutækniáætlun ESB (e. Strategic Energy Technology (SET) Plan) í formi orðsendingar til Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB, efnahags- og félagsmálanefndar ESB og svæðanefndarinnar.

Með uppfærslunni eru upprunaleg markmið SET-áætlunarinnar, sem sett var á laggirnar árið 2007, samræmd markmiðum Græna sáttmálans, RRPowerEU-áætlunarinnar sem og þeim markmiðum sem sett voru í framkvæmdaáætlun Græna sáttmálans, sbr. einkum löggjafartillögur um stuðning við uppbyggingu tækniiðnaðar sem stutt getur við markmið um kolefnishlutleysi (e. Net-Zero Industry Act), sbr. umfjöllun um framkvæmdaáætlunina í Vaktinni 24. mars sl.

Árlega eru gefnar út skýrslur um framgang SET-áætlunarinnar en Ísland er aðili að áætluninni.

Sjá einnig til hliðsjónar umfjöllun hér að ofan í Vaktinni um nýja aðgerðaáætlun ESB á sviði vindorku.

Sjá hér einnig til hliðsjónar nýja skýrslu framkvæmdastjórnarinnar um stöðu orkumála í ESB á árinu 2023, en í viðaukum með skýrslunni má finna yfirlit yfir stöðuna í hverju aðildarríki ESB fyrir sig.

Aukinn kraftur settur í aðgerðir til að sporna gegn lyfjaskorti og auka afhendingaröryggi

Framkvæmdastjórn ESB birti í vikunni orðsendingu til Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB, efnahags- og félagsmálanefndar ESB og svæðanefndarinnar um aðgerðir til að bregðast frekar við og draga úr mögulegum skorti á lyfjum í aðildarríkjunum fyrir komandi vetur og ár. Lyfjaskortur er vaxandi áhyggjuefni meðal ríkja ESB. Undanfarin misseri, sérstaklega síðasta vetur, hafa sum aðildarríki ESB staðið frammi fyrir alvarlegum skorti á lyfjum, m.a. lífsnauðsynlegum sýklalyfjum. Þörfin fyrir samræmdar aðgerðir þykir brýn og hefur verið eftir þeim kallað af hálfu aðildarríkja ESB. Aðgerðirnar miða að því að tryggja afhendingaröryggi lyfja og styrkja aðfangakeðjur með aukna sjálfbærni að leiðarljósi.

Nú þegar hefur verið gripið til aðgerða til undirbúnings vegna mögulegs lyfjaskorts á komandi vetri. Nefna má að á liðnu sumri gaf framkvæmdastjórnin í samstarfi við samtök forstjóra lyfjastofnana Evrópu (HMA) og Evrópsku Lyfjastofnunina (EMA), út tilmæli um hvernig sporna megi við skorti á lífsnauðsynlegum sýklalyfjum sem notuð eru gegn öndunarfærasýkingum, en Neyðar- og viðbragðsskrifstofa ESB (HERA) ásamt EMA hafa unnið að því að skilgreina mikilvægustu sýklalyfin í þessu sambandi. Fjallað var um tilmælin í Vaktinni 21. júlí sl.

Þá verður baráttan við sýklalyfjaónæmi sífellt fyrirferðarmeiri. Um það og fleira þessu tengt má m.a. lesa í Vaktinni 26. maí sl. þar sem fjallað er um endurskoðun lyfjalöggjafar ESB, ný tilmæli um aðgerðir gegn sýklalyfjaónæmi og um óformlegan fund heilbrigðisráðherra í Stokkhólmi þar sem lyfjamál og aðgengi að lyfjum voru til umfjöllunar.

Með orðsendingunni nú eru boðaðar frekari aðgerðir til að koma í veg fyrir lyfjaskort. Í því sambandi er sérstaklega horft til þess hvernig tryggja megi öruggt framboð lífsnauðsynlegra lyfja. Orðsendingin byggir einkum á endurskoðuðu hlutverki evrópsku Lyfjastofnunarinnar (EMA) og nýlegum tillögum framkvæmdastjórnarinnar að endurskoðaðari lyfjalöggjöf sem vísað er til að framan, en hvorutveggja er hluti af sífellt viðameira samstarfi ESB á sviði heilbrigðismála (European Health Union).

Aðgerðirnar sem nú eru kynntar eru eftirfarandi:

Komið verði upp samevrópsku lyfjaupplýsingakerfi (e. European Voluntary Solidarity Mechanism for medicines) þar sem aðildarríki geta komið á framfæri upplýsingum um stöðu birgðahalds á einstökum mikilvægum lyfjum, þ.e. hvort útlit sé fyrir skort og um leið kannað hvort önnur ríki séu aflögufær um þau lyf.

Gefinn verði út listi yfir þau lyf sem mikilvægust eru talin, og er gert ráð fyrir að slíkur listi verði tilbúinn í árslok. Er listinn hugsaður sem fyrsta skrefið í áttina að því að greina aðfangakeðju mikilvægustu lyfjanna, og á þeirri greiningu að vera lokið í apríl 2024. Er greiningunni ætlað að leiða í ljós hvar frekari aðgerða er þörf.

Innbyggður sveigjanleiki núverandi regluverks verði nýttur með markvissari hætti, þegar mikið liggur við, með hagmuni sjúklinga að leiðarljósi, s.s. með því að lengja geymsluþol lyfja og veita markaðsleyfi fyrir lyf með hraðari hætti en almennar reglur mæla fyrir um.

Sérstakar leiðbeiningar ESB um innkaup á lyfjum verði gefnar út til að tryggja afhendingaröryggi og er boðað að þær liggi fyrir í byrjun árs 2024.

Að innkaup sýklalyfja gegn öndunarfærasýkingum verði boðin út sameiginlega næsta vetur.

Ráðstafanir sem miða að því að styrkja afhendingaröryggi til lengri tíma eru eftirfarandi:

Að efnt verði til nánara samstarfs vegna mikilvægra lyfja (e. Critical Medicines Alliance). Talað er um nýja stoð í heilbrigðissamstarfi ESB í þessu sambandi - einskonar iðnaðarstoð. Stefnt er að því að leiða saman hagaðila eins og stjórnvöld í aðildaríkjunum, lyfjaiðnaðinn, almenning og stofnanir ESB til að samræma aðgerðir gegn lyfjaskorti og vakta veikburða aðfangakeðjur.Framkvæmdastjórnin sér fyrir sér að framangreint geti varðað leiðina að mögulegri löggjöf um þetta efni (e. Critical Medicines Act) og boðar sérstaka undirbúningsvinnu í þeim efnum sem hefjast á fyrir lok þessa árs og rutt getur brautina fyrir gerð áhrifamats vegna slíkrar lagasetningar.

Að komið verði á fót alþjóðlegu tengslaneti til að styrkja aðfangakeðjur.

Að sett verði á laggirnar samstarf við þriðju ríki um framleiðslu mikilvægra lyfja bæði til að svara þörfum viðkomandi ríkja og þörfum ESB sem og eftirspurn á heimsvísu.

Með þessum aðgerðum er framkvæmdastjórnin að flýta framkvæmd hluta þeirra aðgerða sem gert er ráð fyrir að verði lögfestar, sbr. tillögu að nýjum lyfjalögum sem nú eru til umfjöllunar í ráðherraráði ESB og á Evrópuþinginu.

Endurskoðun reglna um fiskveiðieftirlit

Í maí 2018 lagði framkvæmdastjórn ESB fram tillögu um endurskoðun reglugerða um fiskveiðieftirlitskerfi sambandsins og miðar tillagan að því að nútímavæða og einfalda reglur um eftirlit með fiskveiðum í samræmi við markmið sameiginlegu sjávarútvegsstefnu ESB (e. Common fisheries policy - CFP). Endurskoðunin lítur aðallega að breytingum á reglugerð nr. 1224/2009 um fiskveiðieftirlitskerfi ESB en jafnframt eru lagðar til breytingar á öðrum tengdum reglugerðum, s.s. reglugerð um Fiskveiðieftirlitsstofnun ESB (European Fisheries Control Agency - EFCA).

Helstu breytingar samkvæmt tillögunni lúta að:

Rafrænni vöktun allra fiskiskipa í gegnum gervihnattatengingar og farsímakerfi.

Skyldu fiskiskipa til að halda rafræna dagbók og færa þar inn upplýsingar um allan afla.

Einföldun á kerfi til að sannprófa vélarafl skipa og innleiðingu á kerfi til að sannprófa stærð (tonnafjölda) skipa.

Uppsetningu kerfis til að hafa stjórn á frístundaveiðum með skráningu eða leyfisveitingum og til að safna gögnum um afla þeirra sem stunda frístundaveiðar.

Auknum rekjanleika fiskafurða með tengingum við upplýsingakerfi um löndun afla og verður rekstraraðilum gert skylt að tryggja að upplýsingar um hverja framleiðslueiningu séu skráðar og sendar rafrænt.

Nánari skilgreiningu á tegundum brota og samræmingu á beitingu viðurlaga á milli aðildaríkjanna.

Komið verði á myndavélaeftirlitskerfi (CCTV) í skipum til að fylgjast með veiðum og löndun afla.

Samkomulag um efni málsins í þríhliða viðræðum Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnarinnar náðist í lok maí sl.

Meðal breytinga sem samkomulagið felur í sér er að:

Stutt verði við fullan stafrænan rekjanleika fisks- og fiskeldisafurða (bæði ferskar og frystar) í aðfangakeðjunni.

Slegið verði af kröfum um eftirlit með smábátum, undir 9 metrum að lengd (sem nota eingöngu einföld veiðarfæri, halda sig innan sex sjómílna frá ströndinni og eyða aldrei meira en 24 klukkustundum í senn á sjó). Upprunaleg tillaga fól í sér slíka undanþágu, en þó aðeins tímabundna, þ.e. til 31. desember 2029.

Skylda til notkunar á eftirlitsmyndavélum verði bundin við stærri skip,18 metra og lengri.

Tilteknar undanþágur frá reglunni um 10% vikmörk við skilgreiningu á ofveiði verði heimilaðar.

Við ákvörðun á upphæð sekta vegna brota skuli tekið mið af væntum hagnaði vegna þeirra og að ítrekuð brot leiði til hærri sekta.

Aðildarríkjunum verði falið eftirlit með frístundaveiðum og að þau setji upp gagnasöfnunarkrefi í því skyni.

Stærri skip verði útbúin með varanlegum tækjabúnaði sem geri eftirlitsyfirvöldum kleift að fylgjast stöðugt með vélarafli þeirra.

Tillagan, með þeim breytingum sem samkomulagið kveður á um, bíður nú formlegrar afgreiðslu í ráðherraráði ESB en samkomulagið var formlega staðfest í Evrópuþinginu fyrr í þessum mánuði.

Þess má geta starfsmenn sjávarútvegsskrifstofu Evrópuþingsins óskuðu eftir fundi með fulltrúa matvælaráðuneytisins hjá sendinefnd Íslands gagnvart ESB í Brussel í apríl sl. í þeim tilgangi að fá upplýsingar um fyrirkomulag fiskveiðieftirlits á Íslandi. Fundurinn var haldinn í byrjun maí og var þar farið var yfir helstu þætti hins íslenska fiskveiðieftirlitskerfis. Virðist óhætt að segja að hið íslenska fiskveiðieftirlitskerfi hafi staðið ESB-kerfinu framar í flestum atriðum hingað til. Þar sem margir þættir eftirlitsins á Íslandi hafa verið rafrænir um alllangt skeið og brot vel skilgreind og viðurlögum við þeim beitt með virkum hætti.

Endurskoðun á reglum um vernd vöruheita

Samkomulag náðist í vikunni í þríhliðaviðræðum milli Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB um endurskoðun á reglum um landfræðilegar merkingar (e. geographical indications) sem lýtur að vernd vöruheita fyrir vín, brennda drykki og landbúnaðarafurðir í aðildarríkjunum, sbr. umfjöllun um málið í Vaktinni 1. apríl 2022 þegar tillögur framkvæmdastjórnarinnar komu fram. Markmiðið með endurskoðun reglanna er að opna fyrir nýjungar og veita framleiðendum aukna vernd, sérstaklega vegna markaðssetningar á netinu. Markmiðið er jafnframt að styðja við þróun á hágæða matvælum innan sambandsins og tryggja að staðbundin menningar- og matararfleifð verði varðveitt og vottuð innan ESB og um allan heim.

Helstu atriði í nýjum reglum eru:

Að innleiða einn lagaramma fyrir alla þrjá flokkana og stytta og einfalda skráningarferli nýrra vara.

Að auka vernd innihaldsefna í vörum og vara sem seldar eru á netinu.

Að sjálfbærir framleiðsluhættir verði viðurkenndir og að framleiðendur geti sett merkingar á vörur sínar þess efnis.

Að efla samstarf á meðal framleiðendahópa á einstökum svæðum og að slíkir hópar geti fengið hlutverk við stjórnun og þróun landfræðilegra merkinga til að styrkja virðiskeðjuna.

Framfylgd reglna um landfræðilegar merkingar verður áfram á ábyrgð aðildarríkja. Framkvæmdastjórn ESB ber hins vegar áfram ábyrgð á skráningu vöruheita.

Tillögurnar ganga nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Eins og fjallað var um í Vaktinni 24. mars sl. þá hlaut íslenskt lambakjöt nýverið vernd sem skráð afurðarheiti hjá ESB á grundvelli núgildandi reglna um þetta efni með vísun til landfræðilegs uppruna og sérstöðu íslenska lambakjötsins. Áður hafði íslenskt lambakjöt fengið vernd sem afurðarheiti á Íslandi árið 2018.

Ráðstafanir til að sporna við misnotkun og ólöglegri notkun dróna

Framkvæmdastjórnin birti þann 18. október sl. orðsendingu til ráðherraráðs ESB og til Evrópuþingsins um mögulegar hættur sem steðjað geta af notkun dróna sem ætlaðir eru fyrir borgaraleg not. Í orðsendingunni kemur fram að drónar séu í auknum mæli notaðir í ólögmætum tilgangi svo sem til að smygla varningi eins og eiturlyfjum, til að afla upplýsinga með ólögmætum hætti og til njósna, auk þess sem notkun dróna í þéttbýli getur almennt raskað friðhelgi einkalífs fólks. Þá er talin vaxandi hætta á að drónar verði notaðir til hryðjuverka.

Með orðsendingunni er stefnumörkun um notkun dróna, sbr. umfjöllun í Vaktinni 21. apríl sl., útfærð nánar um leið og kynnar eru aðgerðir sem miða m.a. að aukinni miðlun upplýsinga meðal aðildaríkjanna í þessum efnum. Eru tilgreindar sex aðgerðir í þessu skyni:

Aukin miðlun upplýsinga á meðal aðildaríkjanna um framkvæmd stefnunnar, m.a. með stofnun sérfræðinganefndar á þessu sviði.

Metin verði þörf á aukinni reglusetningu um dróna auk þess sem núverandi reglur verði samræmdar.

Aðildarríkjum verði boðin aðstoð við val á tæknibúnaði til að vinna gegn hættulegri og ólöglegri notkun dróna (e. counter drone technologies).

Aðildarríkjum verði boðin leiðsögn og stuðningur við þjálfun starfsfólk sem sinnir löggæslu eða öryggisgæslu til að bregðast við hættulegri og ólöglegri notkun dróna.

Rannsóknir og nýsköpun á viðbúnaði við hættulegri og ólögmætri notkun dróna verði styrktar, m.a. í gegnum Horizon áætlunina.

Auknu fjármagni verði varið til að til að styrkja verkefni er varða viðbúnað við ólöglegri notkun dróna.

Stefnt er að því framvindumat á þeim aðgerðum sem tilgreindar eru í orðsendingunni verði unnið árið 2027 og að aðgerðaplanið verði endurskoðað í heild sinni árið 2030, í síðasta lagi.

Áform um lagasetningu á sviði geimréttar

Í starfsáætlun framkvæmdastjórnar ESB fyrir árið 2024, sbr. umfjöllun um áætlunina hér að framan, kemur fram að áætlað er að kynna stefnumótun um málefni geimsins á fyrsta ársfjórðungi 2024 og jafnframt að stefnt sé að því að leggja fram löggjafartillögur á sviði geimréttar. Markmið löggjafarinnar verður að samræma löggjöf ríkja sambandsins um öryggi, seiglu og sjálfbærni verkefna og starfsemi er lýtur að starfsemi í geimnum. Ætlunin er að koma í veg fyrir eða eyða hindrunum á sameiginlega markaðnum sem stafa af ósamstæðum reglum eða skorti á reglum og stuðla þannig að aukinni samkeppnishæfni ESB á þessu sviði á alþjóðavísu. Gert er ráð fyrir að löggjafartillögunar byggi á þremur eftirfarandi stoðum:

Öruggir sporbaugar: Tryggðar verði öruggar ferðir gervihnatta m.t.t. vaxandi hættu á árekstrum og tjóni vegna geimrusls.

Seigla í þjónustu gervihnatta: Samræmdar verði verndarráðstafanir aðildarríkja gagnvart ógnunum sem stafa af netárásum.

Sjálfbærni: Tryggð verði sjálfbærni geimverkefna með því að styrkja möguleika ESB á að nýta geiminn sem vettvang til að veita efnahagslega þjónustu og auka hagvöxt.

Framkvæmdastjórnin hefur nú birt samráðsskjal á vefsíðu sinni vegna framangreindra mála og er umsagnafrestur til 2. nóvember nk.

Einföldun regluverks á sviði samgagna

Eins og rakið er að framan í umfjöllun um starfsáætlun framkvæmdastjórnar ESB fyrir árið 2024 hyggst framkvæmdastjórnin gera átak í því að draga úr reglubyrði og einfalda regluverk á komandi misserum.

Nýlega voru birtar í samráðsgátt tvær tillögur um einföldun regluverks er snúa að flugstarfsemi og flutningum á vegum, sbr. hér og hér, og er frestur til að senda inn umsagnir um málin til 19. desember nk. Á sama tíma birti framkvæmdastjórnin tillögu að breytingu á tilskipun um að draga úr tíðni upplýsingagjafar um staðbundna (e. spatial) innviði í samráðsgátt, en þar er einnig gefinn umsagnafrestur til 19. desember nk.

Umbætur í opinberri stjórnsýslu aðildarríkja ESB

Framkvæmdastjórn ESB birti í vikunni orðsendingu til Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB, efnahags- og félagsmálanefndar ESB og svæðanefndarinnar um aðgerðir til að efla starfshæfni og skilvirkni opinberrar stjórnsýslu í aðildarríkjum sambandsins (Communication on Enhancing the European Administrative Space – ComPAct).

Er aðgerðunum ætlað að styrkja opinbera aðila þannig að þeir geti mætt þörfum fólks og fyrirtækja í álfunni þannig og brugðist við áskorunum sem uppi eru nú og í framtíðinni. Tuttugu og fimm aðgerðir eru boðaðar og eiga þær að stuðla að auknu samstarfi opinberra aðila og stafrænum og grænum umskiptum.

Auknir umbótastyrkir til eflingar á starfsemi opinberra aðila eru boðaðir og munu þeir að stærstum hluta koma í gegnum samstarfsáætlunina Technical Support Instrument (TSI), en einnig eftir öðrum leiðum, s.s. í gegnum Digital Europe Programme sem er samstarfsáætlun sem Ísland tekur m.a. þátt á tímabilinu 2021-2027.

Fram kemur í orðsendingunni að aðildarríkin geti með stigvaxandi hætti tekið þátt í ComPAct eins og þeim hentar og í samræmi við þarfir þeirra og stofnanauppbyggingu. Markmiðið er að styðja við og læra hvert af öðru, móta nýtt verklag og bæta skilvirkni opinberrar stjórnsýslu.

Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins, í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

13. október 2023 | Leiðtogaráð ESB gefur tóninn um stefnumörkun til næstu fimm ára |
Að þessu sinni er fjallað um:

leiðtogafundi EPC og ESB

gerð sérstaks áhættumats á fjórum mikilvægum tæknisviðum

rannsókn á meintri niðurgreiðslu rafbílaframleiðslu í Kína

flúoraðar gróðurhúsalofttegundir og ósoneyðandi efni

samkomulag innan ráðherraráðs ESB um nýjan heildarpakka í málefnum farand- og flóttafólks

stefnutæki til að bregðast við lýðfræðilegri þróun

leiðir til að auka þátt hjólreiða í samgöngum

forvarnir gegn húðkrabbameini og aðgerðir til að draga úr notkun ljósabekkja – bleikur október

Leiðtogafundir EPC og ESB

Leiðtogar Evrópu komu saman í Granada á Spáni dagana 5. og 6. október sl.

Annars vegar var um að ræða leiðtogafund hins nýja pólitíska vettvangs sem nefndur hefur verið European Political Community (EPC) þar sem leiðtogar 44 Evrópuríkja, þar á meðal leiðtogar allra 27 ESB-ríkjanna, komu saman þann 5. október. Meðal leiðtoga á fundinum var forsætisráðherra Íslands, Katrín Jakobsdóttir. Þá sóttu fundinn forseti leiðtogaráðs ESB, Charles Michel, og forseti framkvæmdastjórnar ESB, Urslua von der Leyen, og utanríkismálastjóri ESB, Josep Borrell.

Er þetta í þriðja skiptið sem evrópskir leiðtogar hittast á þessum vettvangi, en fyrsti fundurinn fór fram í Prag í október í fyrra, sbr. umfjöllun um þann fund í Vaktinni 7. október 2022. Yfirlýst markmið hins nýja vettvangs er að skapa leiðtogum Evrópuríkja innan og utan ESB vettvang til skoðanaskipta og stuðla að samvinnu um viðbrögð við þeim margbrotnu áskorunum sem við er að etja á þeim viðsjáverðu tímum sem nú eru. Er ljóst að árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu með þeim alvarlegu ógnum og áskorunum sem það hefur haft í för með sér var megin aflvaki að stofnun vettvangsins enda þótt aðrar veigamiklar áskoranir eins og stækkun ESB, loftslagsbreytingar og flóttamannamál hafi einnig knúið þar á um.

Eins og á fyrri fundum þá var staða mála vegna árásarstríðs Rússlands gagnvart Úkraínu megin umfjöllunarefni fundarins og var full samstaða með Úkraínu ítrekuð.

Deila Armeníu og Aserbaídsjan, og mögulegar friðarumleitanir, voru einnig til umræðu á fundinum. Í aðdraganda fundarins stóðu vonir til þess að leiðtogar ríkjanna tveggja myndu hittast á sérstökum fundi. Til þess kom þó ekki þar sem Ilham Aliyev, forsætisráðherra Aserbaídsjan, hætti við þátttöku á leiðtogafundinum á síðustu stundu og sama gerði forseti Tyrklands, Recep Tayyip Erdoğan, raunar líka. Á hinn bóginn áttu Charles Michel, forseti leiðtogaráðs ESB, Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, og Emmanuel Macron, forseti Frakklands, fund með Nikol Pashinyan forsætisráðherra Armeníu og var sameiginleg yfirlýsing þessara aðila birt að loknum þeim fundi þar sem m.a. var lýst áhuga á nánara sambandi á milli ESB og Armeníu, en undirliggjandi skilyrði þess af hálfu ESB er þó væntanlega að landið hverfi frá samstarfi sínu við Rússland. Enda þótt ekki hafi orðið að fundi leiðtoga Armeníu og Aserbaídsjan nú standa vondir til þess að slíkur fundur geti átt sér stað síðar á þessu ári.

Hinn nýi pólitíski vettvangur EPC hefur sætt vaxandi gagnrýni að undanförnu m.a. á þeim grunni að umgjörð hans sé óskýr og tilgangurinn sömuleiðis. Þessi gagnrýni fékk byr undir báða vængi þegar fréttamannafundi sem boðað hafði verið til í lok leiðtogafundarins var aflýst með stuttum fyrirvara en á þeim fundi hafði staðið til að gestgjafi fundarins Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, myndi skýra frá niðurstöðum fundarins auk þess sem gert var ráð fyrir að Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, myndi bjóða til og greina frá áherslum fyrir næsta EPC fund sem gert er ráð fyrir að fram fari á Bretlandi.

Hvað sem gagnrýni líður og skorti á beinhörðum niðurstöðum þá verður því væntanlega ekki á móti mælt að samtal leiðtoganna er jákvætt og mikils virði í sjálfu sér við núverandi aðstæður.

Eins og áður segir tók Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, þátt í fundinum fyrir Íslands hönd. Tók ráðherra m.a. þátt í hringborðsumræðum um orku-, umhverfis- og loftslagsmál. Lagði Katrín þar áherslu á mikilvægi þess að Evrópuríki hraði grænum orkuskiptum og tryggi réttlát umskipti í því ferli og einnig á mikilvægi þess að þrátt fyrir margar áskoranir á alþjóðavettvangi megi ríki heims ekki missa sjónar af markmiðum Parísarsáttmálans til að mæta loftslagsvánni sem sé stærsta viðfangsefni samtímans, sjá nánar um þátttöku ráðherra í fréttatilkynningu forsætisráðuneytisins.

Lesa má nánar um meginniðurstöður EPC fundarins á vefsíðu leiðtogaráðs ESB, sbr. einnig m.a. reifun hugveitu Evrópuþingsins á efni fundarins

Hins vegar var um að ræða óformlegan fund leiðtogaráðs ESB sem fram fór daginn eftir, 6. október.

Óformlegir leiðtogaráðsfundir fara jafnan fram í því ríki ESB sem fer með formennsku í ráðherraráði ESB á hverju sex mánaða tímabili. Slíkir fundir eru þó einungis óformlegir í þeim skilningi að ráðið er ekki bært til að beita valdheimildum sínum á slíkum fundum. Tilvist og staða leiðtogaráðs ESB byggir hins vegar ekki á beinum valdheimildum nema að litlu leyti, heldur áhrifavaldi fyrst og fremst sem endurspeglast síðan vettvangi ráðherraráðs ESB við ákvarðanatöku í einstökum málum og er því alla jafnan fátt sem greinir á milli formlegra og óformlegra funda ráðsins, nema fundarstaðurinn og ef til vill sérstök áherslumál eða hugarefni formennskuríkisins.

Að loknum fundinum sendu leiðtogarnir frá sér sameiginlega yfirlýsingu (e. The Granada declaration) og markar yfirlýsingin upphaf umræðu og undirbúning að nýrri fimm ára stefnuáætlun ráðsins (e. The Strategic Agenda) sem gert er ráð fyrir að verði samþykkt að afloknum kosningum til Evrópuþingsins í júní á næsta ári, sbr. til hliðsjónar núverandi stefnuáætlun ráðsins fyrir árin 2019 – 2024 sem samþykkt var 20. júní 2019. Við samningu þeirrar áætlunar óraði vitaskuld engan við því sem framundan var með heimsfaraldri kórónuveiru, stríðsátökum, orkukreppu og kreppu í alþjóðasamskiptum í þeim mæli sem raun ber vitni o.s.frv. og ber áætlunin þess merki. Að sama skapi liggur fyrir að ný stefnuáætlun leiðtogaráðsins muni litast mjög af framangreindum atburðum og þeirri stöðu sem uppi er, og kemur sú sýn skýrt fram í framangreindri Granada-yfirlýsingu þar sem m.a. er lögð er áhersla á:

Að styrkja viðnámsþol ESB í víðum skilningi

Að vernda og styðja við efnahagslegt öryggi og sjálfstæði ESB

Að efla getu og sjálfstæði ESB á sviði öryggis- og varnarmála

Stuðning við Úkraínu

Að tryggja orkusjálfstæði ESB

Að ná markmiðum í loftslagsmálum

Að grípa til aðgerða sem nauðsynlegar eru til að aðlagast loftslagsbreytingum

Að auka viðnámsgetu við náttúrhamförum

Að vernda og efla innri markað ESB og auka samkeppnishæfni hans inn á við og út á við

Að tryggja aðgengi að mikilvægum hráefnum og lyfjum og auka fjölbreytni aðfangakeðja

Að efla samstarf og viðskipti við samstarfsríki

Að styðja við og efla forustuhlutverk ESB á sviði iðnaðar

Að efla rannsóknir og vísindi

Að vinna að stafrænum umskiptum

Að takast á við lýðfræðilegar breytingar, m.a. vegna öldrunar, sbr. umfjöllun um það málefni hér að neðan í Vaktinni.

Að efla neyðarviðbúnað og viðbragðskerfi við heilbrigðisvá

Að vinna að stækkunarmálum með grundvallargildi ESB um lýðræði og réttarríkið að leiðarljósi, enda sé stækkun ESB til þess falinn að stuðla að friði, öryggi, stöðugleika og aukinni velmegun íbúa aðildarríkjanna.

Eins og að framan greinir hefur leiðtogaráðið með yfirlýsingunni nú gefið tóninn um efni væntanlegrar stefnuáætlunar leiðtogaráðsins fyrir næsta fimm ára tímabil, 2024 – 2029, en umræðan um áherslur væntanlegrar áætlunar á þó vitaskuld eftir að mótast, þroskast á komandi misserum og við endanlega gerð hennar verður vitaskuld einnig tekið mið af niðurstöðum Evrópuþingskosninganna. Framangreind málefni voru mörg til umræðu á fundinum en þó einkum þau er lúta að auknu viðnámsþoli ESB, meðal annars á sviði öryggis- og varnarmála og hvernig tryggja megi efnahagslegt öryggi og sjálfstæði ESB til aðgerða. Til grundvallar umræðu um þessi málefni á fundinum lá m.a. fyrir orðsending framkvæmdastjórnar ESB um aukið viðnámsþol ESB, samkeppnishæfni og sjálfbærni (e. Communication towards a more resilient, competitive and sustainable Europe) en fjallað var stuttlega um þá orðsendingu í Vaktinni 29. september sl. Þá lá jafnframt fyrir skýrsla sem spænska formennskan hefur tekið saman og birt um þessi efni „Resilient EU2030“, sbr. einnig umfjöllun hér að neðan í Vaktinni um tilmæli sem framkvæmdastjórn ESB þar sem hún mælir með því að aðildarríkin ráðist í gerð sérstaks áhættumats á mikilvægum tæknisviðum.

Auk framangreindra málefna komu málefni flótta- og farandfólks til umræðu á fundinum. Athygli hefur vakið að ekki er vikið að þessum málaflokki í Granada-yfirlýsingunni og hefur það verið rakið til andstöðu Póllands og Ungverjalands til þess samkomulags sem nú hefur náðst í ráðherraráði ESB í málaflokknum, sbr. sérstaka umfjöllun um það efni hér að neðan í Vaktinni. Birti forseti leiðtogaráðsins, þess í stað yfirlýsingu í eigin nafni, um mikilvægi málaflokksins.

Mælt með gerð sérstaks áhættumats á fjórum mikilvægum tæknisviðum

Þann 3. október sl. birti framkvæmdastjórn ESB tilmæli til aðildarríkjanna þar sem mælt er með því að þau ráðist í gerð sérstaks áhættumats á fjórum mikilvægum tæknisviðum. Eru tilmælin gefin út á grundvelli stefnuskjals sem framkvæmdastjórn ESB og utanríkismálaþjónusta ESB birtu sameiginlega þann 20. júní sl. um efnahagsöryggisáætlun ESB (e. European economic security strategy), sbr. nánari umfjöllun um þá áætlun í Vaktinni 23. júní sl.

Í orðsendingunni eru raunar skilgreind 10 mikilvæg tæknisvið en af þeim eru fjögur svið, þar sem áhættur er tengjast tækniöryggi og tækni- og þekkingarleka eru taldar mestar, dregin fram sérstaklega. Þessi tæknisvið eru eftirfarandi:

Háþróuð hálfleiðaratækni (e. Semiconductor), sbr. umfjöllun í Vaktinni um Chips Act 21. apríl sl.

Gervigreindartækni (e. Artificial Intelligence), sbr. umfjöllun í Vaktinni 9. júní sl. um löggjafartillögur þar að lútandi.

Skammtatækni (e. Quantum technologies).

Líftækni (e. Biotechnologies)

Mælir framkvæmdastjórnin með því að aðildarríkin, í samstarfi við framkvæmdastjórnina, geri til að byrja með sameiginlegt áhættumat á þessu fjórum sviðum sem verði klárað fyrir lok þessa árs og fela tilmælin í sér tillögur um hvernig staðið verður að framkvæmd matsins. Í framhaldinu verði síðan metið hvort fleiri svið verði tekin til skoðunar og jafnframt til hvaða ráðstafana verði gripið með hliðsjón af þeim áhættuþáttum og áhættustigi sem greind verða.

Rannsókn á meintri niðurgreiðslu rafbílaframleiðslu í Kína

Eins og greint var frá í Vaktinni 15. september sl. boðaði forseti framkvæmdastjórnar ESB, Ursula von der Leyen, í stefnuræðu sinni í Evrópuþinginu 13. september sl. að framkvæmdastjórnin hygðist hefja rannsókn á því hvort Kína sé að niðurgreiða rafbílaframleiðslu með ósanngjörnum hætti í því skyni að öðlast markaðshlutdeild.

Framkvæmdastjórn ESB hefur heimildir til að hefja rannsóknir af því tagi sem hér um ræðir þegar erlent ríki er grunað um að niðurgreiða vörur með þeim hætti að skaðað geti evrópskan iðnað. Takist að leiða í ljós að svo sé getur framkvæmdastjórnin í framhaldinu lagt á innflutningstolla eða jöfnunartolla eins og þeir eru kallaðir, þ.e. aukatolla til að jafna samkeppnisstöðu á innri markaði ESB.

Þann 4. október sl. tilkynnti framkvæmdastjórnin síðan að formleg ákvörðun um að hefja framangreinda rannsókn hafi verið tekin.

Gert er ráð fyrir að rannsókninni verði lokið innan 13 mánaða og kemur þá væntanlega í ljós hvort forsendur séu til að leggja jöfnunartolla á kínverska rafbíla.

Flúoraðar gróðurhúsalofttegundir og ósoneyðandi efni

Evrópuþingið, ráðherraráð ESB og framkvæmdastjórn ESB, komust hinn 5. október sl. að samkomulagi í þríhliða viðræðum um efni reglugerðartillagna um hertar reglur sem miða að því að að draga umtalsvert úr losun flúoraðra gróðurhúsalofttegunda, F-gasi, (e. Fluorinated greenhouse gases) og ósoneyðandi efna. Núgildandi löggjöf ESB á þessu sviði er ströng en með breytingartillögunum nú er lagt til að reglurnar verði hertar enn frekar enda er það talið nauðsynlegt til að ná markmiðum Parísarsáttmálans um loftlagsmál. Eru breytingarnar þannig mikilvægar í því skyni að berjast gegn loftslagsbreytingum, uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar í loftslagsmálum og til að unnt verði að ná loftslagsmarkmiðum ESB um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um a.m.k. 55% fyrir árið 2030 og um kolefnishlutleysi árið 2050.

Samkvæmt samkomulaginu verður notkun vetnisflúorkolefna (HFC) að fullu hætt árið 2050 og framleiðsla á HFC minnkuð í áföngum frá og með árinu 2036.

Notkun ósoneyðandi efna í nýjum vörum og búnaði er þegar bönnuð í ESB. Með því að innleiða nýjar ráðstafanir, sem snerta vörur þar sem þessi efni voru áður löglega notuð, áætlar ESB að unnt verði að koma í veg fyrir um 200 milljóna tonna losun af CO2 ígildum og 32.000 tonna losun ósoneyðandi efna fyrir árið 2050. Er áætlað að mestum árangri verði náð með því að krefjast þess að ósoneyðandi efni séu endurheimt eða eytt úr einangrunarfroðu við niðurrif og endurgerð bygginga.

Með breytingunum er áætlað að framkvæmd og framfylgd reglnanna verði bætt. Toll- og eftirlitsstjórnvöld verður gert auðveldara að viðhafa eftirlit með inn- og útflutningi og taka á ólöglegum viðskiptum með umrædd efni og tengdum búnaði. Eftirlitið verður yfirgripsmeira og mun ná til fleiri efna og tegunda af starfsemi.

Málið gengur nú til formlegar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við samkomulagið og er gert ráð fyrir að breyttar reglur komi þegar til framkvæmda eftir birtingu í Stjórnartíðindum ESB.

Samkomulag innan ráðherraráðs ESB um nýjan heildarpakka í útlendingamálum

Síðan framkvæmdastjórn ESB lagði fram endurskoðaða útgáfu af áætlun ESB í útlendingamálum í september 2020 hafa aðildarríkin unnið hörðum höndum að því að ná saman um lykilþætti hennar. Ljóst er að málið hefur reynst pólitískt erfitt en ríkin hafa náð að þoka málinu áfram með því að fjalla um áætlunina og þær reglugerðartillögur sem hún innifelur í skrefum. Líkt og fjallað var um í Vaktinni þann 2. desember 2022 hefur það hins vegar hamlað framgangi áætlunarinnar að aðildarríkin samþykktu á sínum tíma, árið 2016, þegar áætlunin var fyrst lögð fram að svokölluð heildarnálgun yrði viðhöfð í málaflokknum (e. package approach), sem felur í sér að einstakar tillögur innan pakkans geta ekki tekið gildi fyrr en samkomulag hefur náðst um þær allar.

Mikilvægum áfanga var náð á fundi ráðherrarráðs ESB í Lúxemborg þann 8. júní sl. þar sem samkomulag náðist, eftir langar samningaviðræður, um lykilþætti áætlunarinnar, þ.e.a.s. um tvær stærstu reglugerðirnar, annars vegar reglugerð um málsmeðferð á ytri landamærum (e. Asylum Procedure Regulation (APR)) og reglugerð um stjórn hælis- og útlendingamála (e. Asylum and Migration Management Regulation (AMMR)) sem varða m.a. samábyrgðarreglur, einfaldari málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd og skyldubundna flýtimeðferð á ytri landamærum. Fjallað var um þann tímamótaáfanga í Vaktinni 9. júní sl.

Þrátt fyrir framangreint átti ráðið enn eftir að ná saman um innihald svokallaðrar krísu-reglugerðar (e. Regulation addressing situations of crisis and force mejure in the field of migration and asylum (Crisis Regulation)) en sú reglugerð fjallar sérstaklega um aðgerðir og málsmeðferð þegar krísuaðstæður koma upp í flóttamannamálum. Ísland, sem samstarfsríki Schengen, er bundið af tveimur ákvæðum reglugerðarinnar, þ.e. greinum 4x og 4xa, sem kveða á um breytta framkvæmd svonefndrar Dyflinnarreglugerðar í óvenjulegum aðstæðum, þ.e. framkvæmd reglna um það hvaða ríki innan Schengen beri ábyrgð á afgreiðslu umsóknar um vernd.

Á fundi sendiherra (COREPER II) þann 4. október sl. náðist samkomulag milli meiri hluta ríkjanna um umboð til spænsku formennskunnar um að hefja þríhliða viðræður við Evrópuþingið um endanlega útgáfu og afgreiðslu fyrrnefndrar reglugerðar. Samkomulag um framangreint innan ráðherraráðs ESB, er einkar mikilvægt svo hægt verði að ná settu markmiði um að ljúka vinnu við heildarpakka ESB í útlendingamálum á skipunartímabili núverandi framkvæmdastjórnar og á kjörtímabili sitjandi Evrópuþings sem rennur út í júní á næsta ári.

Stefnutæki til að bregðast við lýðfræðilegri þróun

Framkvæmdastjórn ESB sendi í vikunni frá sér orðsendingu um viðbrögð og úrræði vegna lýðfræðilegra breytinga. Um er að ræða eins konar stefnutæki (e. policy tools) sem aðildarríki sambandsins geta nýtt sér til að bregðast við breytingum á lýðfræðilegu mynstri í álfunni, m.a. vegna öldrunar, sem útlit er fyrir að muni breyta samfélögum ríkja og hagkerfum þeirra svo um munar.

Stefnutækin sem um ræðir byggja á reynslu hvarvetna úr Evrópu og er þar lögð áhersla á fjóra meginþætti. Í fyrsta lagi stuðning við foreldra með því að tryggja gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs og gott aðgengi að dagvistun barna. Í öðru lagi með stuðningi við yngri kynslóðir með því að búa þeim tækifæri til að þróa færni sína, tryggja aðgang þeirra að öflugum vinnumarkaði og húsnæði á viðráðanlegu verði. Í þriðja lagi með stuðningi við eldri kynslóðir; að velferð þeirra sé tryggð og að öflugt vinnumarkaðs- og vinnustaðastefna taki tilliti til sérþarfa þessa hóps. Í fjórða og síðasta lagi að takast á við skort á vinnuafli með því að stuðla að fólksflutningum sem tryggi að færni og þekking skili sér þangað sem þörf er fyrir hana.

Ný könnun Eurobarometer um viðhorf gagnvart lýðfræðilegri þróun leiðir í ljós að sjö af hverjum tíu Evrópubúum telja hana stofna efnahagslegri velmegun og samkeppnishæfni ESB í hættu til lengri tíma litið. Í orðsendingunni kemur fram að á næstu árum muni íbúum ESB fækka og meðalaldur hækka, komi ekki til samstilltra og afgerandi aðgerða, sem muni til lengri tíma litið hafa áhrif á efnahag aðildarríkjanna, samfélag og samkeppnishæfni. Slík þróun muni leiða til skorts á vinnuafli með samfarandi auknu álagi á efnahagslega afkomu aðildaríkjanna

Vonir standa til að stefnutækin sem framkvæmdastjórnin hefur nú kynnt muni nýtast aðildarríkjunum á praktískan hátt og geti fallið vel að gildandi stefnum á mismunandi stjórnstigum innan ríkjanna.

Sambærileg vinna, sem tekur tillit til lýðfræðilegra breytinga á sér stað hér á landi um þessar mundir, t.a.m. í framtíðarnefnd Alþingis sem skipuð var í fyrra.

Leiðir til að auka þátt hjólreiða í samgöngum

Þann 4. október sl. birti framkvæmdastjórnin orðsendingu til Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB, efnahags- og félagsmálanefndar ESB og svæðanefndarinnar sem inniheldur tillögur um leiðir til að auka þátt hjólreiða í samgöngum.

Í kynningu framkvæmdastjórnarinnar segir að með orðsendingunni sé tekið undir þau sjónarmið að hjólreiðar séu sjálfbær, aðgengilegur, hagkvæmur og heilsusamlegur ferðmáti fyrir alla þjóðfélagshópa. Hjólreiðar séu að auki mikilvægar fyrir efnahagslíf sambandsins. Nauðsynlegt sé fyrir aðildarríki að skuldbinda sig til að styðja við uppbyggingu innviða fyrir hjólreiðar s.s. með öruggum og greiðum hjólaleiðum í borgum, betri tengingu við almenningssamgöngur, með öruggum hjólastæðum og að settar verði upp hleðslustöðvar fyrir rafmagnshjól. Að auki eru hjólaleiðir sem tengja borgir við dreifbýl svæði taldar mikilvægar.

Er orðsendingin jafnframt þáttur í viðleitni ESB til að stuðla að því að markmið græna sáttmálans um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda náist. Orðsendingin gengur nú til umfjöllunar í þeim stofnunum ESB sem henni er beint til.

Forvarnir gegn húðkrabbameini og aðgerðir til að draga úr notkun ljósabekkja – bleikur október

Framkvæmdastjórn ESB vinnur nú að gerð tilmæla (e. recommendation) um forvarnir gegn húðkrabbameini sem miðar m.a. að því að draga úr áhættu vegna útfjólublárra geislunar, m.a. af völdum ljósabekkja, en útfjólublá geislun eykur líkurnar á sortuæxli sem er alvarlegasta tegund húðkrabbameina.

Hefur framkvæmdastjórnin nú auglýst eftir sjónarmiðum, hugmyndum og gögnum (e. call for evidence) sem nýst geta við gerð tilmælanna í samráðsgátt ESB (e. Have your say).

Gerð tilmælanna er liður í framfylgd Evrópuáætlunar framkvæmdastjórnar ESB um baráttuna við krabbamein (Europe´s Beating Cancer Plan), sem samþykkt var í febrúar 2021. Áætlunin spannar feril sjúkdómsins, allt frá forvörnum og meðhöndlun sjúkdómsins til þess að bæta lífsgæði krabbameinssjúklinga og eftirlifenda.

Krabbameinsáætlunin er forgangsverkefni framkvæmdastjórnarinnar á sviði heilbrigðismála og einn lykilþátturinn í sífellt öflugra heilbrigðissamstarfi innan ESB (European Health Union). Á grundvelli hennar hefur og mun framkvæmdastjórnin grípa til ýmissa ráðstafana í baráttunni við krabbamein. Í því skyni eru tilgreind tíu flaggskipsverkefni og aðgerðir þeim til stuðnings sem hrinda á í framkvæmd á árunum 2021 til 2025 og áætlar framkvæmdastjórnin að 4 milljörðum evra verði varið til þeirra verkefna.

Árið 2020 greindust 2,7 milljónir Evrópubúa með krabbamein, auk þess létu 1,3 milljónir lífið af völdum meinsins, en þar af voru fleiri en 2000 ungmenni. Að óbreyttu var gert ráð fyrir að krabbameinstilfellum myndi fjölga um 25% til ársins 2035 og yrði þá aðaldánarorsök Evrópubúa.

Umræðan um krabbamein og þá sérstaklega forvarnir gegn krabbameini fær aukna athygli alþjóðlega í októbermánuði ár hvert – þökk sé bleikum október. RÚV greindi nýlega frá því að notkun ljósabekkja væri aftur komin í tísku á Íslandi og merki væru um að íslensk ungmenni stundi notkun þeirra í auknum mæli. Gengur það þvert á kannanir sem hafa gefið til kynna að dregið hafi úr almennri notkun ljósabekkja síðustu ár en þær kannanir hafa á hinn bóginn ekki náð til ungmenna, þar sem aldurstakmark fyrir notkun ljósabekkja á Íslandi hefur verið 18 ár allt frá 1. janúar 2011. Það hefur þó ekki, ef marka má fréttina, komið í veg fyrir að ungmenni noti bekkina.

Skaðleg áhrif ljósabekkja eru þekkt og í skýrslu Alþjóða-heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) sem kom út 2017 er talið að notkun ljósabekkja valdi meira en 10 þúsund tilfellum sortuæxla árlega og meira en 450 þúsund tilfellum af öðrum húðkrabbameinum. Skýr heilbrigðisrök liggja því til grundvallar aðgerðum til að takmarka notkun ljósabekkja.

Hagaðilar á Íslandi geta tekið þátt í því opna samráðsferli sem nú stendur yfir og vísað er til að framan, en frestur til að senda inn sjónarmið, hugmyndir og gögn er til 6. nóvember nk.

Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins, í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

29. september 2023 | Evrópuþingið og komandi þingkosningar |
Að þessu sinni er fjallað um:

Evrópuþingið og komandi þingkosningar

stefnumörkun framkvæmdastjórnar ESB í átt að auknu viðnámsþoli, samkeppnishæfni og sjálfbærni

gjaldskrá Lyfjastofnunar Evrópu

grænþvott og aukna neytendavernd

áætlun ESB um öryggisfjarskiptakerfi um gervihnetti

óformlegan fund samgönguráðherra

framtíð vinnumarkaða og samráð aðila vinnumarkaðarins

fjármálalæsi barna og ungmenna

Evrópuþingið og komandi þingkosningar

Dagana 6. – 9. júní 2024 fara fram kosningar til Evrópuþingsins. Kosningarnar marka jafnframt lok skipunartímabils núverandi framkvæmdastjórnar Ursulu von der Leyen.

Evrópuþingið (e. European Parliament) er ein af sjö meginstofnunum ESB, sbr. 13. gr. sáttmálana um Evrópusambandið (The Treaty on European Union – TEU) , hinar stofnanir eru:

Leiðtogaráð ESB (e. European Council)

Ráðherraráð ESB (e. Council of the European Union)

Framkvæmdastjórn ESB (e. European Commisson)

Dómstóll ESB (e. Court of Justice of the European Union)

Seðlabanki Evrópu (e. European Central Bank)

Endurskoðunarréttur ESB (e. European Court of Auditors)

Staða Evrópuþingsins í stjórnskipan ESB hefur þróast og styrkst á umliðnum áratugum frá því að vera einungis ráðgefandi þing yfir í að vera ein helsta valdastofnun ESB. Var núverandi staða þingsins innsigluð með Lissabon-sáttmálanum árið 2007.

Evrópuþingið fer með löggjafarvald innan ESB og gegnir auk þess áþekkum hlutverkum gagnvart framkvæmdarvaldsarmi ESB og þjóðþing aðildarríkjanna gegna almennt gagnvart handhöfum framkvæmdarvalds í hverju ríki.

Evrópuþingið deilir löggjafarvaldinu með ráðherraráði ESB samkvæmt sérstökum málsmeðferðarreglum en auk þess fer framkvæmdastjórn ESB með veigamikinn þátt í löggjafarferlinu þar sem hún ein hefur rétt til að eiga frumkvæði að lagabreytingum með framlagningu formlegra lagafrumvarpa, sbr. 225. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandins (The Treaty on the Functioning of the European Union - TFEU). Framangreint rýrir vissulega stöðu Evrópuþingsins sem handhafa löggjafarvalds því enda þótt þingið geti vissulega kallað eftir því við framkvæmdastjórnina að lagafrumvarp sé undirbúið og lagt fram er það komið undir endanlegu mati framkvæmdastjórnarinnar sjálfrar hvort af því verði. Hefur þingið kallað eftir því, nú síðast með sérstakri þingsályktun sem samþykkt var í júní í fyrra, að sáttmálum ESB verði breytt til að rétta hlut þingsins að þessu leyti.

Þingið á sömuleiðis hlutdeild í fjárstjórnarvaldi ESB en deilir því valdi einnig með ráðherraráði ESB og þurfa fjárveitingatillögur framkvæmdastjórnarinnar samþykki þingsins til að ná fram að ganga, sbr. 314. gr. TFEU.

Evrópuþinginu er í orði kveðnu ætlað stórt hlutverk við skipan framkvæmdastjórnar ESB. Kjör forseta framkvæmdastjórnarinnar fer þannig fram, sbr. 7. mgr. 17. gr. TEU, að leiðtogaráð ESB tilnefnir einstakling til að gegna embættinu, með hliðsjón af niðurstöðum kosninga til Evrópuþingsins. Tilnefning ráðsins er síðan borin undir atkvæði í Evrópuþinginu, að undangenginni athugun af hálfu þingsins, og ræður einfaldur meiri hluti úrslitum. Náist meiri hluti telst forsetinn réttkjörinn en ella gengur málið aftur til leiðtogaráðsins sem þarf þá að koma sér saman um nýja tilnefningu í embættið.

Þingið hefur jafnframt ítök er kemur að skipun framkvæmdastjóra einstakra málefnasviða (ráðherra) innan framkvæmdastjórnarinnar en þar er tilnefningarvaldið hjá aðildarríkjunum á vettvangi ráðherraráðs ESB, að höfðu samráði við kjörinn forseta. Listi tilnefndra framkvæmdastjóra er síðan borinn undir Evrópuþingið til samþykktar. Að fengnu samþykki þingsins gengur listinn síðan til leiðtogaráðs ESB sem fer með hið endanlegt skipunarvald en aukinn meiri hluta í ráðinu þarf til þess að listinn teljist samþykktur, sbr. aftur framangreinda 7. mgr. 17. gr. TEU.

Framangreind aðkoma Evrópuþingsins að skipan framkvæmdastjórnarinnar endurspeglar vitaskuld þá hugsun að framkvæmdarvaldsarmur ESB sitji í skjóli Evrópuþingsins og getur þingið jafnframt lýst vantrausti á framkvæmdastjórnina og skal hún þá víkja, sbr. 8. mgr. 17. gr. TEU. Til að vantrauststillaga nái fram að ganga þarf þó tvo þriðju hluta greiddra atkvæða í þinginu og er þröskuldurinn því all hár, sbr. 234. gr. TFEU.

Á framangreindum grundvelli er þinginu og þingmönnum síðan ætlað að veita framkvæmdastjórn ESB lýðræðislegt aðhald í störfum sínum, svo sem með þingfyrirspurnum, sbr. 230. gr. TFEU, athugunum af hálfu þingnefnda auk þess sem þingið getur sett á fót tímabundnar sérnefndir eða rannsóknarnefndir til að skoða einstök mál, sbr. 226. gr. TFEU. Þá getur þingið jafnframt m.a. höfðað mál gegn öðrum stofnunum ESB fyrir dómstóli ESB, ef það telur að viðkomandi stofnun hafi brotið gegn sáttmálum ESB.

Þá kýst Evrópuþingið evrópska umboðsmanninn (European Ombudsman), sbr. 228. gr. TFEU. Þingið hefur jafnframt forustuhlutverk þegar kemur að úrvinnslu formlegra undirskriftasafnana og frumkvæðismála sem stafa frá borgurum ESB, sbr. 227. gr. TFEU.

Eins og áður segir þá munu kosningar fara fram til Evrópuþingsins á næsta ári og leiðir það af framangreindri stöðu Evrópuþingsins í stjórnskipan ESB að úrslit kosninganna geta haft mikil áhrif á þróun sambandsins á komandi árum og stefnumótun innan þess og þar með einnig á þróun EES-samningsins og þeirrar Evrópulöggjafar sem Íslandi ber að taka upp og innleiða á grundvelli samningsins. Þannig er auðvelt, svo dæmi sé tekið, að leiða líkur að því að úrslit kosninganna til Evrópuþingsins árið 2019 hafi haft veruleg áhrif á það að svo metnaðarfullur Grænn sáttmáli (e. The European Green Deal) með þeirri fjölbreyttu lagasetningu á sviði umhverfis- og loftlagsmála, sem raun ber vitni, leit dagsins ljós.

Framkvæmd kosninga til Evrópuþingsins er ekki stjórnað miðlægt heldur fara kosningarnar fram í aðildarríkjunum í samræmi við kosningalöggjöf í hverju ríki. Hlutbundin listakosning (D'Hondt) er algengasta kosningaformið en það er sama aðferð og notuð er við kosningar á Íslandi.

Hámarksfjöldi þingmanna á Evrópuþinginu er ákvarðaður í 2. mgr. 14. gr. TEU og er hámarksfjöldi þingmanna 750 að viðbættum forseta þingsins, eða 751. Sáttmáli ESB ákvarðar einnig hámarks- og lágmarkstölu þingmanna sem koma í hlut einstakra aðildarríkja og deilast þingmenn á milli ríkja innan þeirra marka í hlutfalli við íbúafjölda þeirra (e. principle of degressive proportionality). Lágmarksfjöldi sem hvert ríki fær eru sex þingmenn og hámarksfjöldi er 96 þingmenn. Þrjú ríki, þ.e. Malta, Lúxemborg og Kýpur njóta lágmarksreglunnar og hafa sex þingmenn. Þýskaland er eina ríkið sem hefur hámarksfjölda þingmanna eða 96. Þýskaland myndi þó eiga rétt á fleiri þingmönnum ef hlutfallsreglan ein réði ríkjum. Önnur aðildarríki hafa þingmannafjölda í réttu hlutfalli við íbúafjölda að teknu tilliti til framangreinds.

Ákvörðun um mengið, þ.e. fjölda þingsæta sem verður í boði í næstu kosningum, hefur verið tekin en ákvörðun þar að lútandi er á valdsviði leiðtogaráðs ESB, að fengnu samþykkti Evrópuþingsins sjálfs. Samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðun, dags. 22. september sl., þá verða þingsæti á Evrópuþinginu á næsta kjörtímabili 720. Er það fjölgun um 15 sæti frá því sem nú er, en þess ber þó að geta að í síðustu Evrópuþingskosningum var reglan um hámarksfjölda þingsæta nýtt að fullu og voru þingsætin 751. Þingsætum fækkaði hins vegar við útgöngu Breta úr ESB árið 2020. Sjá nánar hér um skiptingu þingsæta á milli aðildarríkja og hverjar breytingar verða á innbyrðis skiptingu þeirra á milli aðildarríkja, en ákvarðanir um slíkar breytingar taka mið af lýðfræðilegum breytingum sem verða á milli kosninga.

Að loknum kosningum þá skipa kjörnir fulltrúar sér í þingflokka innan Evrópuþingsins. Núverandi þingflokkar á Evrópuþinginu eru 7 talsins og endurspegla þeir pólitíska litrófið í Evrópu. Sjá nánar um kosningarnar og framkvæmd þeirra á kosningasíðu sem sett hefur verið upp á vef Evrópuþingsins.

Brussel-vaktin mun fjalla nánar um væntanlegar kosningar, þingflokkana og málefnin og svonefnda oddvitaaðferð (Spitzenkandidaten process) við val á forseta framkvæmdastjórnar ESB á næstu misserum.

Stefnumörkun framkvæmdastjórnar ESB í átt að auknu viðnámsþoli, samkeppnishæfni og sjálfbærni

Framkvæmdastjórn ESB birti í vikunni orðsendingu til Evrópuþingsins, leiðtogaráðs ESB, ráðherraráðs ESB, efnahags- og félagsmálanefndar ESB og svæðanefndarinnar um aukið viðnámsþol ESB, samkeppnishæfni og sjálfbærni (e. Communication towards a more resilient, competitive and sustainable Europe).

Birting orðsendingar nú í aðdraganda að óformlegum fundi leiðtogaráðs ESB sem haldinn verður í Granada á Spáni 6. október nk. er af hálfu framkvæmdastjórnarinnar m.a. hugsuð sem framlag og innlegg í væntanlegar samræður leiðtoganna um það hvernig efnahagslegt öryggi og sjálfstæði Evrópu verði tryggt til framtíðar (e. EU‘s Open Strategic Autonomy). Open Strategic Autonomy er meðal helstu stefnumála Spánverja á formennskutímabili þeirra í ráðherraráðinu og mun skýrslan „Resilient EU2030“ sem Spánn hefur tekið saman um þessi efni einnig liggja til grundvallar umræðu á fundinum.

Gert er ráð fyrir að framangreind málefni verði jafnframt til umræðu á fundi European Political Community (EPC) sem haldinn verður daginn áður, 5. október, þar sem forsætisráðherra Íslands tekur þátt ásamt öðrum þjóðarleiðtogum Evrópu, flestum. Sjá nánar um þann fund hér.

Orðsending framkvæmdastjórnarinnar er m.a. byggð á Versalayfirlýsingunni sem leiðtogaráðið samþykkti á fundi sínum 10. og 11. mars 2022

Gjaldskrá Lyfjastofnunar Evrópu

Í vikunni náðu ráðherraráð ESB, Evrópuþingið og framkvæmdastjórn ESB samkomulagi í þríhliða viðræðum um breytingar á reglugerð um gjaldskrá Lyfjastofnunar Evrópu (European Medicines Agency – EMA). Haft er eftir starfandi heilbrigðisráðherra Spánar, en Spánverjar fara nú með formennsku í ráðherraráðinu, að með reglugerðinni taki við sjálfbært, einfaldara og sveigjanlegra gjaldskrárkerfi sem tryggi örugg hágæða lyf á innri markaði sambandsins. Þá sé það grundvallaratriði að með breyttum reglum sé Lyfjastofnun Evrópu og lyfjastofnunum í ríkjunum tryggð fullnægjandi fjármögnun til framtíðar. Sjá einnig nánar um samkomulagið í fréttatilkynningu framkvæmdastjórnar ESB.

Með nýju gjaldskrárkerfi er horfið frá kerfi fastra gjalda og tekið upp kerfi sem tryggir betur að gjöldin endurspegli raunkostnað við þá vinnu sem innt er af hendi hverju sinni. Þá á kerfið að vera gagnsærra um þær fjárhæðir sem greiddar eru til stjórnvalda í ríkjunum. Reglurnar mæla einnig fyrir um virkt kostnaðareftirlit og aukinn sveigjanleika við að aðlaga gjöldin ef breytingar verða á undirliggjandi kostnaði. Þannig standa vonir til að nýtt greiðslukerfi verði sjálfbært og sveigjanlegt og að það tryggi fjármögnun EMA og annarra lyfjastofnana á EES-svæðinu til framtíðar.

Fjallað var um málið í Vaktinni 10.mars sl. Þar kemur fram að hagsmunir Íslands í málinu eru töluverðir. Framlag Íslands við veitingu markaðsleyfa fyrir ný lyf innan EES-svæðisins hefur aðallega verið á sviði vísindaráðgjafar en síðastliðið ár hefur hlutdeild Lyfjastofnunar Íslands í þeirri vinnu verið um 8%. Hlutdeildin er há í samanburði við stærð stofnunarinnar. Eins og rakið var í framangreindri umfjöllun í Vaktinni þá hafa verið uppi áhyggjur af því að breytingatillögurnar gætu haft í för með sér tekjutap fyrir Lyfjastofnun með þeim afleiðingum að erfitt kynni að verða að viðhalda þeirri sérfræðiþekkingu sem byggst hefur upp á þessu sviði innan stofnunarinnar og var þeim áhyggjum komið á framfæri við ESB.

Í fréttatilkynningu ráðherraráðsins kemur fram að samkomulagið feli í sér þrjár megin breytingar á tillögum framkvæmdastjórnarinnar sem allar miða að því leiðrétta gjaldaliði til hækkunar, þ.e.:

fyrir almennri verðbólgu

fyrir vísindaráðgjöf og vinnu við samheitalyf

fyrir liði sem ráðstafað er til lyfjastofnana viðkomandi landa (landsyfirvalda) sem vinna fyrir EMA til að tryggja hæft starfsfólk

Eftir því sem best verður séð, en útgáfa reglugerðarinnar með framangreindum breytingum hefur ekki enn verið birt, koma þessar breytingar ágætlega til móts við sjónarmið og hagsmuni Íslands. Lyfjastofnun getur þokkalega vel við unað og er í góðum færum til áframhaldandi samstarfs við EMA og systurstofnanir á EES-svæðinu.

Samkomulagið bíður nú formlegrar afgreiðslu í Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB og verður reglugerðin í framhaldinu birt í Stjórnartíðindum ESB og tekur hún gildi í framhaldi af því.

Tekið á grænþvotti og neytendur efldir

Samkomulag náðist í síðustu viku í þríhliða viðræðum ráðherraráðs ESB, Evrópuþingsins og framkvæmdastjórnar ESB um efni tillögu að tilskipun sem ætlað er að efla neytendur til þátttöku í grænu umskiptunum svonefndu.

Tillagan var lögð fram af framkvæmdastjórn ESB í mars á síðasta ári og er hluti nýrrar aðgerðaáætlunar um neytendavernd (e. New Consumer Agenda) og áætlunar um hringrásarhagkerfi (e. Circular Economy Action Plan), sbr. umfjöllun í Vaktinni 1. apríl 2022. Tillögunni er jafnframt ætlað að fylgja eftir stefnumörkun Græna sáttmálans (e. The European Green Deal). Tillagan er ein fjögurra tillagna í pakka sem einnig tekur til visthönnunar, grænna fullyrðinga og réttar neytenda til viðgerða á vörum, sbr. umfjallanir um þau mál í Vaktinni 1. apríl 2022 og 24. mars 2023.

Í meðförum tveggja fastanefnda Evrópuþingsins var tillagan styrkt nokkuð að því er varðar kröfur til umhverfismerkja og samanburðartóla til að meta sjálfbærni vara og eru þær breytingartillögur hluti af samkomulaginu nú. Ákvæði tillögunnar um grænþvott hafa vakið hvað mesta athygli en með þeim er lagt til að tekið verði fyrir notkun fyrirtækja á almennum og óljósum umhverfisfullyrðingum á borð við „kolefnishlutlaust“ eða „umhverfisvænt“ ef þær styðjast ekki við viðurkennd viðmið og viðeigandi sönnunargögn. Þannig mun fyrirtækjum reynast erfiðara að styðjast við hin ýmsu kolefnisjöfnunarverkefni sem standa til boða gegn endurgjaldi ef þau hafa ekki verið viðurkennd.

Tillagan miðar almennt að því að efla neytendur og auka tækifæri þeirra til sparnaðar og til að ná markmiðum um sjálfbæra neyslu og framleiðslu á vörum. Með tillögunni er þannig m.a. stefnt að aukinni þátttöku neytenda í hringrásarhagkerfinu.

Lögð er áhersla á bætta upplýsingagjöf til neytenda um endingu og viðgerðir á vörum og að komið sé í veg fyrir grænþvott, skipulagða úreldingu vara og notkun óáreiðanlegra og ógagnsærra umhverfismerkja.

Ný tilskipun mun fela í sér talsverðar breytingar á tilskipun um óréttmæta viðskiptahætti gagnvart neytendum á innri markaðnum og tilskipun um réttindi neytenda og lúta breytingarnar meðal annars af eftirtöldum þáttum:

Gerðar verða auknar gagnsæiskröfur og eftirlit aukið með fullyrðingum um framtíðarframmistöðu í umhverfismálum.

Skylt verður að upplýsa neytendur um það hvort hægt sé að gera við vörur og hve lengi þær endast. Jafnframt verður óréttmætt að veita villandi upplýsingar um viðgerðir og endingu sem og um umhverfis- og samfélagsleg áhrif vara.

Gerðar verða auknar kröfur til gagnsæis við samanburð seljenda á sjálfbærum vörum og gert óréttmætt að villa um fyrir neytendum.

Tíu tegundir óréttmætra viðskiptahátta bætast við svonefndan svarta lista tilskipunar um óréttmæta viðskiptahætti gagnvart neytendum á innri markaðnum. Þetta eru m.a. viðskiptahættir sem tengjast notkun umhverfisfullyrðinga, umhverfismerkja, endingu vara, viðgerða á vörum, o.s.frv.

Tekin verður upp samræmd merking með upplýsingum um ábyrgðir auk þess að upplýsingaskyldur seljenda um lögbundnar ábyrgðir verða hertar. Við kaup verður skylt að upplýsa neytendur sérstaklega ef samningsbundin ábyrgð er í boði fyrir vöruna sem gengur lengra en lögbundin ábyrgð. Þá verður í ákveðnum tilfellum skylt að veita upplýsingar um hagkvæmni viðgerða eða upplýsingar um framboð varahluta og notenda- og viðgerðahandbækur ef við á.

Tillagan gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráð ESB. Gert er ráð fyrir atkvæðagreiðslu í Evrópuþinginu í nóvember 2023. Gert er ráð fyrir að ný tilskipun taki gildi gildi í aðildarríkjum ESB árið 2026.

Áætlun ESB um öryggisfjarskiptakerfi um gervihnetti

Þann 17. mars 2023 var reglugerð ESB um öryggisfjarskiptakerfi um gervihnetti (e. Infrastructure for Resilience, Interconnectivity and Security by Satellite - IRIS²) birt í stjórnartíðindum ESB. Fjallað hefur verið reglulega um málið í Vaktinni á fyrri stigum, sbr. umfjallanir 4. mars 2022, 24. júní 2022, 16. desember sl. og nú síðast 10. mars sl. þar sem greint var frá því að EES/EFTA ríkin hafi sameiginlega óskað eftir þátttöku í verkefninu á grundvelli EES-samningsins.

Á grundvelli reglugerðarinnar hefur framkvæmdastjórnin nú auglýst útboð á fyrsta áfanga kerfisins, sem metinn er á 2,4 milljarða evra en áætlað er að kerfið verði tilbúið til notkunar 2027.

Samkvæmt reglugerðinni er markmiðið með uppbyggingu fjarskiptanets um gervihnetti að styrkja viðnámsþol þátttökuríkja við áföllum og tryggja stjórnvöldum áreiðanlegt fjarskiptakerfi sem m.a. styður við eftirlitskerfi stjórnvalda, vernd mikilvægra innviða, stjórnun á neyðarstund og við landvarnir.

Unnið er að áætluninni í samvinnu við Geimvísindastofnun Evrópu (The European Space Agency) og fyrirtækja á sviði geimvísinda. Kerfið nýtir núverandi Govsat gervihnattakerfið sem grunn fyrir frekari uppbyggingu og verða einstakir hlutar nýja kerfisins boðnir út sem samvinnuverkefni opinberra aðila og einkaaðila.

Á fundum vinnunefndar EFTA um samgöngumál hefur gerðin reglulega verið til umræðu og að frumkvæði Norðmanna skiluðu EFTA-ríkin þrjú, Ísland, Liechtenstein og Noregur þann 17. júní 2022 sameiginlegri EES EFTA-umsögn til ráðsins og Evrópuþingsins þegar hún var þar til umfjöllunar.

Noregur hefur lagt mikla áherslu á þátttöku í áætluninni annars vegar til þess að vera í aðstöðu til að hafa áhrif á mótun kerfisins og til að tryggja stjórnvöldum aðgang að þjónustu þess þegar þar að kemur. Sömuleiðis muni kerfið tryggja netsambönd fyrir fjarlægar byggðir og svæði sem hafa ekki aðgang að fjarskiptainnviðum á landi. Þá vilja norsk yfirvöld tryggja norskum rannsóknastofnunum og fyrirtækjum á geimvísindasviði aðgang að verkefnum við þróun og uppbyggingu kerfisins. Aðild Noregs að Geimvísindastofnun Evrópu, ESA, styður auk þess við þetta markmið þeirra.

Reglugerðin hefur eins og áður segir verið til umfjöllunar í vinnunefnd EFTA um samgöngumál en sú nefnd fær almennt tillögur er varða geiminn til umfjöllunar. Þessi tiltekna áætlunin snýr hins vegar að fjarskiptum, þ.e. öryggisfjarskiptum, neyðarfjarskiptum, fjarskiptum vegna varnarmála og netsambandi við dreifbýl svæði. Áætlunin varðar þannig þjóðaröryggi, neyðarfjarskipti, fjarskipti viðbragðsaðila, löggæsluaðila og varnarmál og kemur þannig inn á málefnasvið ýmissa ráðuneyta.

Á ríkisstjórnarfundi 8. september sl. kynnti háskóla,- iðnaðar og nýsköpunarráðherra sem jafnframt fer með fjarskiptamál í Stjórnarráði Íslands minnisblað um áætlunina og mögulega aðkomu Íslands að henni og var ákveðið í framhaldinu að hefja samtal við framkvæmdastjórn ESB um mögulega þátttöku Íslands í áætluninni.

Áætlað er að heildarkostnaður við áætlunina muni nema um 6 milljörðum evra og er gert ráð fyrir að hluti kerfisins verði samvinnuverkefni við einkaaðila sem koma þá til með að fjármagna hluta þess. Þá verða sjóðakerfi ESB nýtt til fjármögnunar svo sem Horizon áætlunin og Galileo áætlunin.

Ísland tekur þátt í Horizon, Digital Europe og hluta af Galileo-áætlunum. Samkvæmt grófu mati EFTA skrifstofunnar er áætlað að mögulegur kostnaður Íslands af þátttöku í verkefninu geti orðið um 3-400 millj. kr. á tímabilinu 2023-2027.

Óformlegur fundur samgönguráðherra ESB

Óformlegur fundur samgönguráðherra ESB var haldinn í Barselóna 21. – 22. september sl. Megin umræðuefni fundarins var þáttur samgangna í því að tryggja félagslegt jafnrétti (e. social cohesion) og til að stuðla að samheldni innan landsvæða (e. cohesion of territories). Samgönguráðherrum EFTA ríkjanna var boðið á fundinn. Í forföllum Sigurðar Inga Jóhannsson innviðaráðherra sótti fundinn Kristján Andri Stefánsson sendiherra Íslands í Brussel.

Á fundinum lagði hann áherslu á mikilvægi þess að stuðla að samheldni EES-svæðisins í heild sinni er kemur að samgöngum. Í því samhengi þyrfti að hafa hugfast að flug væri eini raunhæfi samgöngumátinn fyrir farþega til og frá Íslandi. Frá Íslandi væru um 1.500 km til næsta flugvallar innan EES-svæðisins og að meðaltali væru 2.200 km til flugvalla í Evrópu sem þjónað er frá Íslandi. Flug til og frá Íslandi væri í dag að fullu sjálfbært, þ.e. án opinberra styrkja, en áhyggjur færu þó vaxandi af auknum kostnaði í flugi m.a. vegna aðgerða á sviði loftlagsmála. Var í því sambandi sérstaklega vísað til viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir fyrir flug, sem ítarlega hefur verið fjallað um í Vaktinni umliðnum misserum síðast 26. maí sl. Slíkar hækkanir gætu komið sérstaklega illa niður á efnaminni fjölskyldum og þar með leitt af sér aukið félagslegt ójafnrétti. Þá þyrfti sérstaklega að gæta að því viðskiptakerfið leiddi ekki til kolefnisleka og skertrar samkeppnisstöðu evrópskra flugfélaga sem nota tengiflugvelli innan Evrópu.

Ávarp samgönguráðherra Portúgals á fundinum vakti sérstaka athygli en þar tók ráðherrann sterkt til orða er hann fjallaði um viðskiptakerfi með losunarheimildir fyrir siglingar. Sagði hann að kerfið setti umskipunarhafnir innan ESB við Miðjarðarhafið í lakari samkeppnisstöðu gagnvart höfnum í Norður-Afríku og að útgerðarfélög gámaflutningaskipa sem sigldu með varning frá austurlöndum til og frá ESB væru nú í óða önn að endurskoða viðskiptamódel sín vegna þessa með það fyrir augum að færa umskipunarviðskipti sín til hafna í Norður-Afríku. Sagði ráðherrann að þróunin í þessa átt væri hröð og að brýnt væri að framkvæmdastjórn ESB brygðist við. Margir ráðherrar tóku undir þessar áhyggjur, sér í lagi ráðherrar ríkja er liggja að Miðjarðahafinu. Er áhugavert að sjá að þessi málflutningur og þessar áhyggjur eru af sama toga og áhyggjur og málflutningur Íslands er kemur að samkeppnisstöðu tengiflugvallarins í Keflavík í flugi yfir Norður-Atlantshafið en um 40% farþega Keflavíkurflugvallar eru farþegar í tengiflugi yfir hafið. Þær áhyggjur má einnig yfirfæra á aðra tengiflugvelli innan EES-svæðisins enda þótt áhrifin þar séu hlutfallslega minni.

Á fundinum undirrituðu ráðherrarnir yfirlýsingu „Barcelona Declaration“ sem staðfesti vilja þeirra til að vinna að jafnræði (e. equitable) og aðgengilegum samgöngum sem stuðluðu að félagslegri samheldni og samheldni svæða almennt. Markmiðið er að ríkin sameinist um þá stefnu sem mörkuð hefur verið með Græna sáttmálanum og um virkar samgöngutengingar yfir allt evrópska efnahagssvæðið, þéttbýlissvæði, dreifbýl svæði og landfræðilega erfið svæði.

Um framtíð vinnumarkaða og samráð aðila vinnumarkaðarins

Þann 22. september sótti Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, fund ráðherra og háttsettra embættismanna á vegum spænsku formennskunnar í ráðherraráði Evrópusambandsins í Santiago de Compostela í Galisíu á Spáni.

Aukið samráð við aðila vinnumarkaðarins er eitt af áherslumálum spænsku formennskunnar á sviði vinnumarkaðsmála. Talið er að samvinna og samtal aðila markaðarins sé til þess fallin að stuðla að félagslegu réttlæti og auka hagsæld og viðnámsþrótt Evrópu. Markmið fundarins í Santiego de Compostela var að varpa ljósi á það með hvaða hætti stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins geti sameiginlega greitt fyrir framgangi loftslagsmarkmiða og tekist á við stafrænar breytingar á vinnumarkaði, með samtali stjórnvalda og aðila markaðarins. Talið er að fjölmörg tækifæri í því efni geti meðal annars falist í því að styðja við vinnustaðalýðræði og nýta kjarasamninga til þess að ná markmiðum í loftslagsmálum.

Fundinn sátu auk Guðmundar nokkrir ráðherrar Evrópuríkja, háttsettir embættismenn og fulltrúar aðila vinnumarkaðarins á Spáni og víðar úr Evrópu.

Sjá nánar um fundinn og þátttöku ráðherra í fréttatilkynningu félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins um málið.

Fjármálalæsi barna og ungmenna

Framkvæmdastjórn ESB kynnti í vikunni sameiginlegan ramma ESB og Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um bætt fjármálalæsi barna og ungmenna er geti nýst þeim nú og til framtíðar.

Rannsóknir hafa leitt í ljós að fjármálalæsi er í heildina litið bágborið í aðildarríkjum ESB. Ramminn er kynntur á grundvelli aðgerðaáætlunar frá 2020 (Capital Markets Union Action Plan) sem hefur auk þess leitt af sér ramma um fjármálalæsi og -færni fullorðinna.

Markmiðið með rammanum er að skapa sameiginlegan skilning meðal aðildarríkjanna um mikilvægi þess að börn og ungmenni séu læs á fjármál. Á þeim grunni muni ramminn styðja við þróun stefnu og áætlana sem ýti undir fjármálalæsi og að unnið verði kennsluefni hjá opinberum aðilum, einkaaðilum og hagsmunaaðilum.

Framkvæmdastjórn ESB og OECD munu nú vinna að því að hvetja yfirvöld í aðildarríkjunum, sérfræðinga og hagsmunaaðila til að ráðast í aðgerðir á grundvelli rammans.

Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins, í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

15. september 2023 | Fimmta stefnuræða von der Leyen |
Að þessu sinni er fjallað um:

stefnuræðu forseta framkvæmdastjórnar ESB

aðgerðapakka fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki

skilgreiningu á tekjuskattsstofni evrópskra fyrirtækja

samevrópsk öryrkjaskírteini

stafræna samræmingu almannatryggingakerfa í Evrópu

öryggisstaðla fyrir leikföng

breytt bóluefni gegn Covid-19 sjúkdómnum

heimsókn stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

ritstjórnarstefnu Brussel-vaktarinnar og bætt aðgengi

Stefnuræða forseta framkvæmdastjórnar ESB

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, flutti stefnuræðu (e. State of the Union Address) á Evrópuþinginu á miðvikudaginn var, 13. september sl. Var þetta fimmta og jafnframt síðasta stefnuræða Ursulu á þinginu á yfirstandandi fimm ára skipunartímabili stjórnar hennar sem hófst árið 2019. Evrópuþingskosningar fara fram á næsta ári, dagana 6. – 9. júní nk., og í framhaldi af þeim verður ný framkvæmdastjórn ESB skipuð. Enda þótt töluverðar líkur séu taldar á því að von der Leyen muni gefa kost á sér til áframhaldandi setu sem forseti hefur hún sjálf ekkert gefið upp um það og ekki gerði hún það heldur í ræðunni á miðvikudag eins og margir voru þó að vonast eftir. Þess má geta að von der Leyen hefur einnig verið orðuð við stöðu framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, en nú liggur fyrir að Jens Stoltenberg, núverandi framkvæmdastjóri, muni láta af því starfi 1. október á næsta ári.

Óhætt er að segja að stjórn hennar hafi skilað árangri. Samkvæmt tölfræði framkvæmdastjórnarinnar sjálfrar hefur náðst að uppfylla 90% af þeim pólitísku stefnumálum sem stjórn von der Leyen lagði upp með í stefnuáætlun sinni árið 2019 og er þó enn ár eftir af skipunartímanum. Það gerir árangurinn enn markverðari að á sama tíma hefur framkvæmdastjórnin þurft að glíma við heimsfaraldur og afleiðingar árásarstríðs Rússlands gagnvart Úkraínu. Þakkaði hún þinginu, aðildarríkjunum og framkvæmdastjórn sinni og góðu samstarfi þessara aðila árangurinn.

Það var því keikur forseti sem stóð í ræðupúlti Evrópuþingsins á miðvikudaginn.

Hugur von der Leyen var við kosningarnar framundan, unga fólkið, grunngildi ESB og þá sýn um betri framtíð sem sambandið var reist á í kjölfar seinni heimstyrjaldarinnar, sýn sem verður á ný ljóslifandi nú þegar stríð geisar á evrópskri grundu.

Hún fagnaði sérstaklega árangri sem náðst hefur í grænu og stafrænu umskiptunum, að tekist hafi að byggja grunnstoðir heilbrigðissambands ESB (e. European Health Union) og síðast en ekki síst þeim áföngum sem náðst hafa í jafnréttismálum og vísaði hún þar m.a. til aðildar ESB að Istanbúlsamningnum, sbr. umfjöllun í Vaktinni 9. júní sl., tilskipunar um launagagnsæi, sbr. umfjöllun í Vaktinni 5. maí sl., auk þess sem hún hvatti til þess að sú grundvallarregla, að nei, þýði nei, verði fest í lög ESB.

Græni sáttmáli ESB

Græni sáttmáli ESB (e. European Grean Deal) var von der Leyen ofarlega í huga enda eitt af flaggskipum stefnumörkunar framkvæmdastjórnarinnar. Sagði hún sáttmálann vera orðinn að miðpunkti hagkerfis ESB og er kemur að fjárfestingum og nýsköpun. Hún sagði sáttmálann metnaðarfullan enda væri metnaður nauðsynlegur á þessu sviði með hliðsjón af loftslagsvánni sem birtist okkur æ skýrar með öfgum í veðurfari, hækkandi hitastigi og skógareldum.

Sagði hún aðgerðir þegar farnar að skila árangri og nefndi hún m.a. að á síðustu fimm árum hefði umhverfisvænum stálverksmiðjum í ESB fjölgað frá því að vera engin í 38. Þá sagði hún að fjárfesting í vetnisframleiðslu væri nú meiri innan ESB en í Bandaríkjunum og Kína til samans.

Hét hún evrópskum iðnaði áframhaldandi stuðningi við þau grænu umskipti sem nú standa yfir og vísaði hún þar til iðnaðaráætlunar ESB og sérstaklega til fyrirliggjandi löggjafartillagna um kolefnislausan iðnað (e. Net Zero Industry Act) annars vegar og um mikilvæg hráefni (e. Critical Raw Materials Act) hins vegar. Sjá nánari umfjöllun um þessar tillögur í Vaktinni 24. mars sl. þar sem fjallað er um framfylgd framkvæmdaáætlunar Græna sáttmálans. Boðaði hún að farið yrði í sérstakt samráðsferli við aðila iðnaðarins til að tryggja framgang umskiptanna.

Boðaði hún jafnframt áframhaldandi sókn á sviði umhverfis- og loftlagsmála, m.a. nýjan vindorkuaðgerðapakka þar sem lögð verður áhersla á finna leiðir til að flýta og einfalda leyfisveitingar og liðka fyrir fjármögnun. Með þessari yfirlýsingu er von der Leyen að bregðast við vaxandi vandamálum sem vindorkugeirinn þykir hafa staðið frammi fyrir að undanförnu.

Loks boðaði hún að þess yrði gætt eins og framast væri unnt að grænu umskiptin yrðu réttlát bæði fyrir fólk og fyrirtæki.

Von der Leyen lagði áherslu á mikilvægi þess að vernda líffræðilegan fjölbreytileika skóga og vistkerfa en lagði að sama skapi áherslu á mikilvægi landbúnaðar og matvælaframleiðslu. Er ljóst að í umfjöllun um þessi mál reyndi von der Leyen að leita jafnvægis milli andstæðra sjónarmiða á þessu sviði, sjónarmiða sem brutust út með látum í aðdraganda lokaafgreiðslu Evrópuþingsins á nýrri reglugerð um endurheimt vistkerfa í júní sl., sbr. umfjöllun um það mál í Vaktinni 21. júlí sl. Til að samræma sjónarmið í þessum efnum boðaði hún að teknar yrðu upp stefnumótandi umræður um framtíð landbúnaðar í ESB.

Samkeppnishæfni evrópsks atvinnulífs

Evrópskt atvinnulíf kann að meta virka og sanngjarna samkeppni. Samkeppni er góð fyrir viðskipti sagði von der Leyen, en bara ef hún er sanngjörn. Kvað hún ESB ekki hafa gleymt þeirri ósanngjörnu samkeppni sem Kína hefði viðhaft á sólarsellumarkaði fyrir margt löngu og þeim afdrifaríku afleiðingum sem það hefði haft á evrópska sólarselluframleiðslu. Sagði hún að álíka blikur væru nú á lofti á rafbílamarkaði þar sem ódýrir kínverskir bílar streymdu nú inn á einkabílamarkað um heim allan.

Boðaði von der Leyen að framkvæmdastjórnin myndi hefja rannsókn á því hvort Kína sé að niðurgreiða rafbílaframleiðslu með ósanngjörnum hætti í því skyni að öðlast markaðshlutdeild. Yfirlýsing von der Leyen um þessa rannsókn er líklega sá hluti ræðu hennar sem hlotið hefur mesta athygli enda er hún djörf og ljóst að með henni er tekin pólitísk og efnahagsleg áhætta vegna mögulegra mótaðgerða Kínverja. Viðbrögð við yfirlýsingunni í aðildaríkjunum og í þinginu hafa þó verið fremur jákvæð enn sem komið er.

Framkvæmdastjórn ESB hefur heimildir til að hefja rannsóknir af því tagi sem von der Leyen boðar þegar erlent ríki er grunað um að niðurgreiða vörur með þeim hætti að skaðað geti evrópskan iðnað. Ljóst er af ræðu von der Leyen að hún telur að sú kunni að vera raunin er kemur að rafbílaframleiðslu í Kína. Við væntanlega rannsókn, sem þó er enn ekki hafin opinberlega, mun framkvæmdastjórnin þurfa að leita viðbragða frá kínverskum stjórnvöldum og hlutaðeigandi fyrirtækjum í Kína og er ljóst að það getur reynst örðugt. Það er síðan framkvæmdastjórnarinnar að sýna fram á að um niðurgreiðslur sé að ræða sem skaðað geta evrópskan bílaiðnað. Verði það niðurstaðan getur framkvæmdastjórnin í framhaldinu lagt á innflutningstolla eða jöfnunartolla eins og þeir eru kallaðir, þ.e. aukatolla til að jafna samkeppnisstöðu.

Þrátt fyrir framangreint lagði von der Leyen áherslu á mikilvægi þess að halda samskiptum og viðræðum við Kína opnum og vísaði hún þar m.a. til fyrirhugaðs leiðtogafundar ESB og Kína (e. EU-China Summit) sem fyrirhugaður er síðar á þessu ári.

Þrjár stórar áskoranir í efnahagslífinu

Í máli von der Leyen kom fram að við stæðum frammi fyrir efnahagslegum mótvindi, og að þar sæi hún þrjár stórar áskoranir, þ.e. skort á hæfu vinnuafli, neikvæðar verðbólguhorfur og hvernig greiða megi fyrir og auðvelda viðskipti og starfsemi fyrirtækja.

Huga þurfi að stöðu mála á vinnumarkaði. Tekist hafi, þvert á allar spár, að varðveita störf í gegnum heimsfaraldurinn og að þar hafi hugmyndafræði félagslegs markaðshagkerfis sannað sig í verki með þeim árangri sem við sjáum í dag, þar sem atvinnuleysi er lítið. Hins vegar þurfi að huga að færni vinnuafls og að stutt sé við færniuppbyggingu á þeim sviðum þar sem þörfin er til staðar.

Gæta þurfi að jafnvægi á milli heimilis og einkalífs og að þar þurfi sérstaklega huga að stöðu kvenna, m.a. með því efla barnagæslu og leikskólastarfsemi, þannig að báðir foreldrar geti tekið þátt í vinnumarkaðnum. Tilkynnti von der Leyen að framkvæmdastjórnin, í samvinnu við Belga sem fara munu með formennsku í ráðherraráðinu á fyrri hluta næsta árs, ætli að skipuleggja og boða til sérstaks leiðtogafundar með aðilum vinnumarkaðarins til að ræða stöðuna á vinnumarkaði og þær áskoranir sem þar eru uppi.

Viðvarandi há verðbólga þessi misserin er mikil áskorun að mati von der Leyen. Tekist hefur með samhentum hætti að lækka orkuverð verulega þvert á spár og er það mikilsvert. Leitast þurfi við að beita líkum aðferðum og þar voru notaðar til að ná niður verði á öðrum sviðum svo sem verði á ýmsum mikilvægum hráefnum.

Hvernig greiða megi fyrir og auðvelda starfsemi fyrirtækja til að gera þau samkeppnishæfari er þriðja stóra áskorunin sem von der Leyen sér fyrir sér. Boðaði hún að lagðar yrðu fram löggjafartillögur í næsta mánuði þar sem stefnt væri að því að draga úr stjórnsýslubyrði fyrirtækja umtalsvert. Sjá einnig í þessu samhengi umfjöllun hér að neðan um nýjan aðgerðarpakka framkvæmdastjórnarinnar fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.

Til að greina nánar þessar áskoranir tilkynnti von der Leyen að hún hefði beðið hinn virta hagfræðing Mario Draghi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, að taka saman skýrs,lu um framtíðarsamkeppnishæfni ESB.

Áhersla á nýsköpun og þróun og hagvarnir

Von der Leyen lagði ríka áherslu á mikilvægi nýsköpunar og þróunar auk mikilvægi þess að stutt sé við slíka starfsemi og vísaði hún þar meðal annars til fyrirliggjandi löggjafartillagna um nýjan tækniþróunarvettvang ESB (STEP), sbr. nánari umfjöllun um þær tillögur í Vaktinni 23. júní sl.

Von der Leyen kom einnig skýrlega inn á mikivægi hagvarna eins og nýlegar útflutningstakmarkanir Kína á gallíum og germaníum sanna. Sjá nánar hér umfjöllun um nýja efnahagsöryggisstefnu ESB í Vaktinni 23. júní sl.

Stafræn umskipti og gervigreind

Von der Leyen gerði mikilvægi stafrænna umskipta að umtalsefni. Vísaði hún m.a. til þess að ESB væri alþjóðlegur brautryðjandi þegar kæmi að því að tryggja borgaraleg réttindi í stafrænum heimi og vísaði hún þar m.a. til reglugerðar á sviði rafrænnar þjónustu (e. Digital Services Act – DSA) og reglugerðar á sviði rafrænna markaða (Digital Markets Act – DMA), sbr. m.a. umfjöllun um þessi mál í Vaktinni 18. nóvember sl.

Einnig gerði hún framþróun í gervigreind að umtalsefni þar sem tækifærin væru gríðarleg en hætturnar sömuleiðis. Vísaði hún í þessu sambandi til fyrirliggjandi tillögu að reglugerð um gervigreind (e. Artificial Intelligence Act) þar sem ESB væri einnig brautryðjandi, sbr. umfjöllun í Vaktinni 9. júní sl. um það mál.

Flóttamannamál

Von der Leyen gerði stöðu flóttamannamála að umtalsefni. Mikilvægt væri að gera umbætur á flóttamannakerfi ESB og vísaði hún þar til fyrirliggjandi tillögupakka ESB í hælismálum, svokallaðs hælispakka ESB (e. The Pact on migration and asylum) sem lengi hefur verið til umræðu innan ESB en ekki enn fengið afgreiðslu, sbr. m.a. umfjöllun í Vaktinni 2. desember sl. um málefni flótta- og farandsfólks. Þá væri brýnt að uppræta starfsemi glæpagengja sem hagnast á neyð flóttafólks um leið og þau setja líf þess í bráða hættu.

Þá kallaði hún eftir því að aðildarumsóknir Búlgaríu og Rúmeníu að Schengen-samstarfinu yrðu samþykktar.

Utanríkismál - Árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu.

Umræða um stöðu heimsmála og árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu var einnig fyrirferðarmikil í ræðu von der Leyen þá ekki síst þau áhrif sem stríðið hefur haft á heimsmálin með beinum og óbeinum hætti. Lýsti von der Leyen enn og aftur yfir óhagganlegum stuðningi við Úkraínu.

Stækkunarmál

Von der Leyen tók sterkt til orða um mögulega stækkun ESB, sagði framtíð Úkraínu vera í ESB sem og ríkja vestur-Balkanskagans og Moldóvu og að henni væri jafnframt vel kunnugt um mikinn vilja Georgíu til að ganga í bandalagið. Kom skýrt fram í ræðunni sú afstaða von der Leyen að stækkun sambandsins síðustu 20 ár hefði ætíð verið til velfarnaðar.

Aðgerðapakki fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki

Þann 12. september sl. lagði framkvæmdastjórn ESB fram aðgerðapakka sem ætlað er að efla samkeppnisfærni og viðnámsþrótt lítilla og meðalstórra fyrirtækja í núverandi efnahagsumhverfi.

Framkvæmdastjórnin hefur frá árinu 2020 lagt mikla áherslu á stuðning við lítil og meðalstór fyrirtæki sem eru um 99% evrópskra fyrirtækja. Að mati framkvæmdastjórnarinnar eru þau mikilvægur hlekkur í grænu og stafrænu umskiptunum sem nú standa yfir. Lítil og meðalstór fyrirtæki standa hins vegar frammi fyrir miklum efnahagslegum áskorunum, hömlum á aðföngum, skorti á vinnuafli og ósanngjarnri samkeppni.

Aðgerðapakkanum er ætlað að styðja við þessi fyrirtæki til skemmri tíma en einnig að auka samkeppnishæfni þeirra, vöxt og viðnám til lengri tíma litið.

Aðgerðirnar samanstanda af tveimur löggjafartillögum, annars vegar tillögu að reglugerð um greiðsludrátt og hins vegar af tillögu að tilskipun um einföldun á skattaumhverfi. Auk þessa eru settar fram margvíslegar úrbótatillögur í sérstakri orðsendingu sem fylgir pakkanum.

Reglugerð um greiðsludrátt

Með tillögunni er lagt til að sett verði ný reglugerð um greiðsludrætti í verslunarviðskiptum. Tillagan tekur einkum til ósanngjarnra tafa á greiðslum sem hafa áhrif á sjóðsstreymi lítilla og meðalstórra fyrirtækja og hamla samkeppnishæfni og viðnámi í aðfangakeðjum.

Nýrri reglugerð er ætlað að koma í stað eldri tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2011/7/ESB um átak gegn greiðsludrætti í verslunarviðskiptum sem innleidd var í íslenskan rétt með lögum um greiðsludrátt í verslunarviðskiptum nr. 8/2015.

Tillagan felur í sér að tekið verði upp strangara hámarksgreiðslumark sem yrði 30 dagar. Með tillögunni er einnig lagt til að uppfæra og skýra betur texta núgildandi tilskipunar um sama efni. Með tillögunni er einnig gert ráð fyrir sjálfvirkri greiðslu áfallinna vaxta og bóta auk þess sem kynnt eru til sögunnar ný réttarúrræði vegna vanefnda.

Tilskipun um einföldun á skattaumhverfi

Með tillögunni er lagt til að komið verði á fót miðlægu skattkerfi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki (e. Head Office Tax system).

Fyrirtæki sem stunda viðskipti yfir landamæri standa oft frammi fyrir háum kostnaði og flækjustigi þegar þau eiga við mismunandi skattkerfi aðildarríkjanna. Með tillögunni er m.a. gert ráð fyrir að lítil og meðalstór fyrirtæki sem hafa skattskylda starfsemi og höfuðstöðvar með staðfestu í einu aðildarríki geti reiknað skattstofn sinn samkvæmt reglum heimaríkisins vegna útibúa sinna í öðrum aðildarríkjum. Gert er ráð fyrir að tillagan geti sparað allt að 32% kostnaðar vegna reglufylgni eða allt að 3,4 milljarða evra á ársgrundvelli. Sjá í samhengi við þetta sérstaka umfjöllun hér að neðan um nýja tillögu um samræmda skilgreiningu á tekjuskattstofni evrópskra fyrirtækja.

Ýmsar fleiri aðgerðir eru í pakkanum sem ætlað er að leysa úr læðingi efnahagslega möguleika lítilla og meðalstórra fyrirtækja og má þar helst nefna:

Umbætur á regluverki fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki

Framkvæmdastjórnin stefnir að því gera starfsumhverfi lítilla og meðalstórra fyrirtækja viðskiptavænna. Þessu hyggst framkvæmdastjórnin ná með einföldun regluverks, m.a. með þeim hætti að leggja meiri áherslu á að ein regla fari út fyrir hverja nýja reglu sem er sett inn (e. One in, one out). Þá er lagt til að við mat á áhrifum löggjafar Evrópusambandsins verði sérstökum mælikvörðum beitt sem tryggi hag lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Þá verður tilnefndur sérstakur sendifulltrúi sem hefur það verkefni að gæta hagsmuna lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Sendifulltrúinn mun heyra beint undir forseta framkvæmdastjórnarinnar og er henni til leiðbeiningar og ráðgjafar. Framkvæmdastjórnin mun einnig stuðla að notkun svokallaðra verkfærakista til að efla tilraunir og nýsköpun lítilla og meðalstórra fyrirtækja.

Einfaldari stjórnsýsla

Stefnt er að því að einfalda litlum og meðalstórum fyrirtækjum stjórnsýslu, m.a. með útfærslu sérstakrar stafrænnar gáttar (e. Single Digital Gateway) sem auðveldar alla gagnaframlagningu. Kröfur til gagnaframlagningar og skýrslugjafar lítilla og meðalstórra fyrirtækja verða einnig einfaldaðar með stafrænum lausnum.

Örvun fjárfestinga

Stefnt er að því að örva enn frekar fjármögnunarmöguleika lítilla og meðalstórra fyrirtækja og er gert ráð fyrir að það verði til viðbótar þeim 200 milljarða evra sem standa litlum og meðalstórum fyrirtækjum til boða í gegnum ýmsar fjármögnunaráætlanir Evrópusambandsins nú þegar til ársins 2027. Þá verður séð til þess að lítil og meðalstór fyrirtæki geti auðveldlega nýtt sér hinn nýja tækniþróunarvettvang (e. Strategic Technologies for Europe Platform - STEP) sem nú er í farvatninu þar sem gert er ráð fyrir að 7,5 milljarðar evra í heild sinni verði til skiptanna, sbr. umfjöllun um þann vettvang í Vaktinni 23. júní sl.

Þjálfun vinnuafls

Haldið verður áfram að styðja við þjálfun hæfs vinnuafls í gegnum ýmis evrópsk stuðningsverkefni og mæta þannig þörfum lítilla og meðalstórra fyrirtækja á evrópskum vinnumarkaði, sbr. m.a. umfjöllun um evrópska færniárið 2023 í Vaktinni 10. febrúar sl.

Endurskilgreining lítilla og meðalstórra fyrirtækja

Loks er boðað að fyrir árslok 2023 verði skilgreining lítilla og meðalstórra fyrirtækja endurskoðuð.

Framangreindar tillögur ganga nú til Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB til umfjöllunar.

Skilgreining á tekjuskattsstofni evrópskra fyrirtækja

Þann 12. september sl. lagði framkvæmdastjórn ESB fram tillögu að nýrri tilskipun ráðherraráðs ESB um samevrópska skilgreiningu á tekjuskattsstofni fyrirtækja. Tillagan byggir á byggir á samkomulagi OECD og G20-ríkjanna um lágmarksskatt á heimsvísu. Tillagan ber heitið „Viðskipti í Evrópu: Tekjuskattsrammi“ (e. Business in Europe: Framework for Income Taxation, BEFIT).

Stór fyrirtæki sem starfa víða innan ESB bera mikinn kostnað af því að þurfa að gera upp skatta í aðildarríkjunum í samræmi við allt að 27 mismunandi skattareglur. Mat framkvæmdastjórnarinnar er að ef tillagan nái fram að ganga geti hún sparað stórum fyrirtækjum allt að 65% kostnaði. Samkvæmt tillögunni verður stærri fyrirtækjum gert skylt að styðjast við þessar skilgreiningar við skattuppgjör en minni fyrirtæki geta valið að gera það.

Framkvæmdastjórnin lagði samhliða fram tillögu til ráðherraráðsins um nýja tilskipun um milliverðlagningu (e. transfer pricing). Henni er ætlað að draga úr óvissu við skattlagningu og þar með hættunni á málaferlum og tvísköttun.

Enda þótt tillögurnar teljist ekki EES-tækar er fullt tilefni fyrir Ísland að fylgjast vel með þróun samræmingar á sviði skattamála innan ESB enda kann hún að varða samkeppnishæfni fyrirtækja hér á landi.

Samevrópsk öryrkjaskírteini

Þann 6. september sl. lagði framkvæmdarstjón ESB fram tillögu að tilskipun um samevrópsk öryrkjaskírteini og bílastæðakort (e. European Disability Card and the European Parking Card for persons with disabilities). Skírteininu er ætlað að tryggja gagnkvæma viðurkenningu á stöðu einstaklinga með fötlun í öllum aðildarríkjum ESB og er þannig ætlað að auðvelda frjálsa för fatlaðs fólks innan ESB.

Skilríkjunum er þannig ætlað að tryggja einstaklingum með fötlun jafnan aðgang að tiltekinni þjónustu sem fötluðum stendur til boða í einstökum aðildarríkjum ESB, hvort heldur er hjá einkafyrirtækjum eða opinberum aðilum. Rétt er að taka fram að tillagan nær ekki til lífeyrisgreiðslna eða félagslegrar aðstoðar sem fatlað fólk kunna að eiga rétt á í sínu heimalandi.

Í tillögunni, sem er merkt EES tæk af hálfu framkvæmdastjórnarinnar, er gert ráð fyrir því að yfirvöld í hverju og einu ríki gefi út örorkuskírteini til sinna íbúa en kortunum er þó ekki ætlað að koma í stað þeirra innlendu örorkuskírteina sem ríkin, hvert fyrir sig, kunna nú þegar að gefa út. Á hinn bóginn er gert ráð fyrir að samevrópsku bílastæðakortin leysi af hólmi þau bílastæðakort sem nú eru í gildi í einstökum aðildarríkjum. Einkabíllinn er í mörgum tilvikum sá samgöngukostur sem helst veitir fötluðu fólki möguleika á því að komast leiðar sinnar á eigin spýtur. Með samræmdum kortum á fatlað fólk því að geta nýtt forgangsrétt sinn til bílastæða sem fötluðum er tryggður í öllum aðildarríkjum ESB óháð því hvor það er statt í sínu heimaríki eða annar staðar innan sambandsins. Kortin verða gefin út bæði í föstu og stafrænu formi.

Samkvæmt tillögunni verður aðildarríkjunum gert skylt að tryggja að fatlað fólk og aðildarfélög þeirra hafi möguleika á að leita réttar síns ef réttur til aðgangs að þjónustu sem tilskipunin mælir fyrir um er ekki virtur og einnig að til staðar séu lagaleg úrræði til að krefjast úrbóta og/eða leggja sektir á þá sem ekki virða efni tilskipunarinnar.

Tillagan er hluti af aðgerðaráætlun Evrópusambandsins fyrir árin 2021-2030 um réttindi fólks með fötlun sem á að tryggja framfylgd samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks í Evrópu og á einnig að styðja við markmið Evrópsku réttindastoðarinnar.

Tillagan gengur nú til umfjöllunar á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB. Eins og greint var frá í Vaktinni 21. október sl. er tillagan hluti af starfsáætlun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins fyrir árið 2023 og er málið á meðal áherslumála Spánverja í ráðherraráðinu, sbr. umfjöllun um formennskuáætlun Spánverja í Vaktinni 7. júlí sl.

Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir að aðildarríkin fái tvö ár til þess að innleiða gerðina, eftir að hún hefur verið samþykkt á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Þess má geta að tillagan byggir á fenginni reynslu af tilraunaverkefni sem átta aðildarríki ESB tóku þátt í og voru niðurstöður þess verkefnis jákvæðar.

Stafræn samræming almannatryggingakerfa í Evrópu

Þann 7. júní sl. birti framkvæmdastjórn ESB orðsendingu til Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB, efnahags- og félagsmálanefndar ESB og svæðanefndarinnar um stafræna samræmingu almannatryggingakerfa í ESB. Markmiðið með orðsendingunni og þeim tillögum sem þar eru settar fram er að leita leiða til að styðja við frjálsa för fólks á innri markaði ESB og greiða fyrir því að fólk geti búið, unnið og stundað nám hvarvetna innan svæðisins. Tillögunum sem settar eru fram í orðsendingunni er þannig ætlað að bæta aðgengi fólks að almannatryggingum aðildaríkjanna með bættri notkun upplýsingatækni og minnka flækjustig og skriffinnsku bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki og hlutaðeigandi stjórnvöld. Þrátt fyrir að talsvert hafi áunnist á þessu sviði á undanförnum árum getur enn reynst vandkvæðum bundið fyrir einstaklinga að sýna fram á rétt sinn til almannatrygginga utan heimalands síns og sömuleiðis getur reynst torvelt fyrir stofnanir og fyrirtæki að skiptast á upplýsingum með greiðum hætti um réttindastöðu fólks sem nýtir sér frjálsa för.

Tillögur framkvæmdastjórnarinnar eru eftirfarandi:

Að aðildarríkin flýti innleiðingu EESSI sem er rafrænt upplýsingaskiptakerfi.

Að aðildarríkin geri fleiri umsóknir á þessu sviði að fullu rafrænar.

Að aðildarríkin taki fullan þátt í innleiðingu ESSPASS, sem er rafrænt almannatryggingaskilríki.

Að unnið verði að upptöku rafrænnar auðkenningar (e. EU Digital Identity - EUDI) þannig að stofnanir geti staðreynt réttindi milli landa. Sjá umfjöllun um EUDI í Vaktinni 21. júlí sl.

Orðsendingin er liður í framkvæmd heildarstefnumótunar ESB um stafræn umskipti (e. A Europe fit for the digital age) og er henni ætlað að tryggja að þjónusta á þessu sviði sé aðgengileg öllum í traustu og öruggu netumhverfi. Framkvæmdastjórnin býður aðildarríkjunum tæknilega aðstoð og mögulega styrki úr sjóðum sambandsins til að vinna að framgangi þessara tillagna.

Orðsendingin er ekki bindandi fyrir EES/EFTA-ríkin nema sérstök ákvörðun verði tekin um að taka hana upp í EES-samninginn og er nú unnið að því af hálfu EFTA-skrifstofunnar í Brussel að kanna afstöðu ríkjanna til þess.

Öryggisstaðlar fyrir leikföng

Framkvæmdastjórn ESB kynnti hinn 28. júlí sl. tillögu að reglugerð um öryggisstaðla fyrir leikföng. Um er að ræða tillögu um breytingu á gildandi reglum sem ætlað er að vernda börn gegn hættum sem kunna að vera til staðar í leikföngum.

Leikföng á markaði ESB eru nú þegar á meðal þeirra hættuminnstu á heimsvísu en með tillögunni er hugað að aukinni vernd barna gegn skaðlegum efnum í leikföngum, t.a.m. efnum sem hafa skaðleg áhrif á innkirtlakerfi, öndunarfæri og tiltekin líffæri. Þá er fyrirhuguðum breytingum einnig ætlað að styrkja framfylgd laganna þannig að einungis leikföng sem talist geta örugg séu seld í aðildarríkjum sambandsins.

Þannig verður notkun svokallaðs stafræns vöruvegabréfs (e. Digital Product Passport) tekin upp, en með því fæst staðfest að framangreindum reglum sé framfylgt, og sérstöku upplýsingatæknikerfi komið á fót þar sem fylgst verður með innflutningi á leikföngum á landamærum aðildarríkjanna og í netverslun.

Tillagan gengur nú til umfjöllunar á Evrópuþinginu og í ráðherraráðinu.

Breytt bóluefni gegn Covid-19 sjúkdómnum

Framkvæmdastjórn ESB hefur heimilað nýja útgáfu af COVID-19 bóluefni, sem þróað er af BioNTech-Pfizer til að bregðast við nýjum afbrigðum kórónuveirunnar. Lyfið er talið marka enn einn mikilvægan áfanga í baráttunni gegn sjúkdómnum. Er hér á ferðinni þriðja útgáfa bóluefnisins sem talið er að muni styrkja ónæmi einstaklinga enn betur, bæði gegn ríkjandi afbrigðum veirunnar sem og nýjum. Sjá nánar um málið í fréttatilkynningu framkvæmdastjórnar ESB.

Bóluefnið er ætlað bæði fullorðnum og börnum eldri en 6 mánaða. Samkvæmt ráðleggingum Lyfjastofnunar Evrópu og Sóttvarnastofnunar Evrópu eiga fullorðnir og börn frá 5 ára aldri sem þurfa bólusetningu að fá einn skammt, óháð sögu þeirra um fyrri COVID-19 bólusetningar.

Leyfi fyrir bóluefninu fór í gegn um strangt hraðmatskerfi Lyfjastofnunar Evrópu. Í kjölfar matsins heimilaði framkvæmdastjórnin bóluefnið samkvæmt svokallaðri flýtimeðferð til að gera aðildarríkjum sambandsins kleift að undirbúa sig í tæka tíð fyrir bólusetningarherferð í haust og á komandi vetri.

Samingur við BioTech-Pfizer um kaup á bóluefni gegn kórónaveirunni var endurskoðaður og samþykktur í maí sl. Samkvæmt honum er aðildarríkjum tryggður aðgangur að bóluefnum sem aðlöguð hafa verið nýjum afbrigðum á næstu árum.

Þess má geta að Ísland nýtur góðs af samningnum og hefur nú þegar samið um kaup á bóluefninu í gegnum Svíþjóð og er von á sendingu til landsins á næstu dögum.

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga í heimsókn

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga heimsótti sendiráð Íslands í Brussels ásamt nokkrum starfsmönnum skrifstofu sambandsins. Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður stjórnar sambandsins, leiddi hópinn. Sendiherra Íslands í Brussel, Kristján Andri Stefánsson, tók á móti hópnum og kynnti starfsemi sendiráðsins auk þess sem hópurinn fékk kynningu á margvíslegum EES-tengdum málefnum er varða verkefni sveitarfélaga, m.a.:

Samgöngu- og innviðamálum, almennt.

Mengunarvörnum, fráveitu- og úrgangsmálum og loftgæðismálum, sbr. m.a. umfjöllun í Vaktinni 4. nóvember sl. og 10. mars sl. þar sem sérstaklega var fjallað um afstöðu Íslands til tillögu að nýrri fráveitutilskipun ESB sem nú er til meðferðar.

Samstarfsáætlun sem Ísland tekur þátt í, sbr. m.a. umfjöllun í Vaktinni um nýjan tækniþróunarvettvang ESB, 23. júní sl.

Fjármálareglum ESB og stöðu vinnu við endurskoðun þeirra, sbr. umfjöllun í Vaktinni 5. maí sl.

Félags- og vinnumarkaðsmálefnum, almennt.

Sjá nánar um heimsóknina á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Ritstjórnarstefna Brussel-vaktarinnar og bætt aðgengi

Brussel-vaktin hefur sett sér ritstjórnarstefnu. Með henni er leitast við að upplýsa og útskýra, inn á við og út á við, um efnistök og markmið með útgáfu Vaktarinnar. Sjá nánar hér.

Þá hefur aðgengi að efni Vaktarinnar verið bætt með nýrri leitarvél, sbr. hér á forsíðu Vaktarinnar.

Vaktin vekur jafnframt athygli á því að hægt er að hlusta á talgervilsupplestur á fréttabréfunum á Vaktarsíðunni, hægt er að smella á hnappinn ,,Hlutsa" efst í hægra horninu.

Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins, í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

21. júlí 2023 | Græni sáttmálinn og endurheimt vistkerfa |
Að þessu sinni er fjallað um:

endurheimt vistkerfa

græna vöruflutninga

bifreiðar og hringrásarhagkerfið

eflingu á starfsþróunarumhverfi rannsakenda í Evrópu

rafræna auðkenningu innan Evrópusambandsins (ESB)

sýndarveruleika og fjórðu kynslóð veraldarvefsins

aðgerðir til að sporna við mögulegum skorti á sýklalyfjum á komandi vetri

stöðu réttarríkisins

Vaktin fer nú í sumarfrí og kemur næst út um miðjan september.

Endurheimt vistkerfa

Eins og fjallað var um í Vaktinni í júní 2022 lagði framkvæmdastjórn ESB fram tillögu að nýrri reglugerð um endurheimt vistkerfa 22. júní 2022 (e. Nature Restoration Law). Verði tillagan samþykkt verður um að ræða fyrstu almennu löggjöf á sviði náttúrverndar sem sett hefur verið á vettvangi ESB. Hefur verið litið á tillöguna sem eitt af hryggjarstykkjum Græna sáttmála ESB (e. European Green deal). Tillagan gengur út á að endurheimta skemmd vistkerfi bæði á landi og í hafi, s.s. vistkerfi votlendis, fljóta, skóga, graslendis, sjávarvistkerfi og vistkerfi í þéttbýli og eru tillögurnar nátengdar áætlunum ESB um líffræðilega fjölbreytni (e. Biodiversity Strategy for 2030) og frá haga til maga (e. Farm to Fork strategies). Er tillagan sögð lykilþáttur í að afstýra hruni vistkerfa með tilheyrandi stórfelldri hnignun líffræðilegrar fjölbreytni. Tilgangurinn er m.a. að skapa nýtt jafnvægi lífríkis og mannlegra athafna án þess að ganga ætíð svo langt að fella tiltekin svæði undir náttúruvernd.

Markmiðið er endurheimta eða lagfæra 80% af náttúrulegu umhverfi búsvæða í ESB sem eru skemmd eða í slæmu ástandi. Gert er ráð fyrir að áætlunin nái til um 20% alls landsvæðis og hafsvæðis í aðildarríkjum ESB fyrir 2030 og er lagt til að þessi markmið verði bindandi fyrir aðildarríkin. Í tillögunni er einnig lagt til að dregið verði úr notkun á óumhverfisvænu skordýraeitri um 50% fyrir árið 2030.

Tillagan hefur verið til umræðu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB frá því að hún var lögð fram.

Þann 20. júní sl. náðist samkomulag á vettvangi ráðherraráðsins um afstöðu til efnis reglugerðarinnar og var þess vænst að Evrópuþingið myndi í framhaldi af því samþykkja afstöðu sína til málsins fyrir komandi þríhliða viðræður um málið.

Löggjafartillagan var til umfjöllunar í umhverfis-, lýðheilsu- og matvælaöryggisnefnd Evrópuþingsins (e. The Committee on Environment, Public Health and Food Safety) Til tíðinda dró í nefndinni þegar ekki tókst að mynda meirihluta við atkvæðagreiðslu um fyrirliggjandi drög að nefndaráliti heldur féllu atkvæði jöfn, þar sem 44 nefndarmenn greiddu atkvæði með nefndarálitinu en 44 nefndarmenn reyndust vera því mótfallnir. Kom það því í hlut þingheims alls í framhaldinu að taka afstöðu til þess hvort vísa ætti tillögunni aftur til framkvæmdastjórnar ESB, sem hefði þýtt að málið væri úr sögunni, a.m.k. fram yfir Evrópuþingskosningar á næsta ári, eða hvort halda ætti áfram með það á þeim grunni sem lagður hafði verið með fyrirliggjandi nefndaráliti og breytingatillögum.

Í all dramatískri atkvæðagreiðslu þann 12. júlí sl. var því hafnað af þingheimi að vísa málinu heim til framkvæmdastjórnar ESB þar sem 312 þingmenn greiddu atkvæði með frávísun en 324 voru á móti, 12 sátu hjá. Í framhaldinu voru greidd atkvæði um hvort ganga ætti til þríhliða viðræðna við ráðherraráð ESB og framkvæmdastjórn ESB á grundvelli fyrirliggjandi nefndarálits og breytingatillagna og var það þá samþykkt með 336 atkvæðum gegn 300, en 13 sátu hjá.

Vitað var í aðdraganda framangreindra atkvæðagreiðslna að töluverð andstaða við málið væri að byggjast upp innan þingsins. En andstaðan er aðallega til komin vegna áhyggna af áhrifum tillagnanna á hagsmuni og stöðu bænda sem munu þurfa, að einhverju leyti, að gefa eftir hluta af ræktuðu landi til að endurheimta votlendi, jafnvel í þeim mæli að ógnað geti fæðuöryggi, en einnig eru uppi áhyggjur af stöðu sjómanna vegna mögulegrar aukinnar verndunar hafsvæða vegna endurheimt sjávarvistkerfa.

Andstaðan í Evrópuþinginu var leidd af Manfred Weber formanni þingflokks mið og hægri flokka European People´s party (EPP) sem flokkur Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnarinnar, tilheyrir einnig. Andstaða EPP eða hluta þingflokksins var studd af öðrum þingflokkum hægri flokka á Evrópuþinginu. Auk þess hafa bændur mótmælt tillögunni sem og hagsmunasamtök þeirra og hagsmunasamtök sjómanna. Einnig greiddu nokkur aðildarríki sambandsins atkvæði gegn tillögunni þegar afstaða til málsins var afgreitt vettvangi ráðherraráðs ESB, þ.e. Holland, Pólland, Ítalía, Svíþjóð, Finnland, Austurríki og Belgía.

Helsti talsmaður tillögunnar er Frans Timmermans, varaforseti framkvæmdastjórnar ESB og sá sem leiðir framgang Græna sáttmála ESB, en hann hefur verið í fremstu víglínu, með dyggum stuðningi forseta framkvæmdastjórnarinnar, Ursulu von der Leyen, við að verja tillöguna falli og nýtur hann þar stuðnings vinstri flokkanna á Evrópuþinginu.

Með samþykkt Evrópuþingsins á fyrirliggjandi nefndaráliti og breytingatillögum er ekkert því til fyrirstöðu fyrir Evrópuþingið að ganga til þríhliða viðræðna við ráðherraráðið og framkvæmdastjórnina um endanlegt efni væntanlegra laga og herma fregnir að þær viðræður séu þegar hafnar þegar þetta er ritað. Er ljóst að í þeim viðræðum verður að veita sjónarmiðum hægri flokkanna viðeigandi vægi til að koma í veg fyrir að andstaða við löggjafartillöguna aukist ekki og að tryggt sé að væntanleg samningsniðurstaða fái brautargengi við lokaafgreiðslu í ráðinu og á þinginu nú í aðdraganda Evrópuþingskosninganna sem fram munu fara næsta sumar.

Grænir vöruflutningar

Þann 11. júlí sl. lagði framkvæmdastjórn ESB fram þrjár löggjafartillögur ásamt orðsendingu sem ætlað er að stuðla að aukinni skilvirkni í vöruflutningastarfsemi innan ESB og um leið og dregið verður úr umhverfisáhrifum slíkra flutninga.

Í fyrsta lagi er um að ræða tillögu um breytingar á reglum um notkun járnbrautainnviða fyrir vöruflutninga innan sambandsins. Markmið hennar er að auka skilvirkni við úthlutun á ferðatíma um lestarteina, auka samhæfingu á skipulagi yfir landamæri og bæta stundvísi og áreiðanleika lestarflutninga. Reiknað er með að þessar umbætur stuðli að auknum vöruflutningum með járnbrautalestum sambandsins.

Í öðru lagi er um að ræða tillögu að breytingu á tilskipun um hámarksstærð og þyngd flutningabifreiða á vegum. Er m.a. lagt til að hámarksþyngd kolefnislausra ökutækja verði aukin m.a. þar sem slík ökutæki eru jafnan þyngri en eldri ökutæki sem knúin eru með jarðeldsneyti. Nýju tillögunni er ætlað að hvetja til notkunar á nýrri tækni í flutningabifreiðum sem leiða til minni losunar kolefnis. Þegar fram líða stundir og ný tækni verður léttari mun hagkvæmni við notkun kolefnislausra flutningabifreiða aukast. Þá er tillögunni ætlað að skýra lagalega stöðu flutningabifreiða á ferð yfir landamæri í tilvikum þar sem einstök aðildarríki heimila flutning með stærri og þyngri vagnlestum en samræmdar reglur kveða á um. Loks er lagt til að heimilað verði að flytja þyngri farm í stöðluðum einingum s.s. gámum þegar flutningurinn fer fram með fleiri en einum samgöngukosti, s.s. með lest og flutningabifreið.

Í þriðja lagi inniheldur pakkinn tillögu að nýrri reglugerð um samræmda aðferðafræði við útreikning á losun gróðurhúsalofttegunda í flutningastarfsemi. Aðferðafræðin byggir á nýlegum ISO-stöðlum um útreikning og birtingu upplýsinga um losun gróðurhúsalofttegunda vegna fólks- og vöruflutninga. Áreiðanlegar upplýsingar um losun gera neytendum kleift að taka upplýstar ákvarðanir um val á samgönguaðila fyrir eigin ferðir og vörusendingar.

Samhliða tillögunum var birt orðsending um græna flutninga (e. Greening Freight Transport) en með henni er sett fram heilstæð stefnumörkun um græna vöruflutninga innan ESB.

Tillögurnar eru liður í stefnu sambandsins um að draga úr losun frá samgöngum um 90% fyrir árið 2050.

Tillögurnar ganga nú til meðferðar á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB. Tillögurnar hafa jafnframt verið birtar í samráðsgátt ESB og er umsagnarfrestur fram í september, sjá hér, hér og hér.

Bifreiðar og hringrásarhagkerfið

Þann 13. júlí sl. lagði framkvæmdastjórn ESB fram tillögu að nýrri reglugerð sem ætlað er að efla hringrás bifreiða og tekur tillagan til hönnunar, framleiðslu og endurnotkunar og endurvinnslu ökutækja. Auk umhverfis- og loftslagsmarkmiða er tillögunum ætlað að auka framboð hráefna sem notuð eru í bifreiðaframleiðslu innan ESB um leið og tekist er á við áskoranir í tengslum við græn umskipti bílgreinarinnar.

Á hverju ári úreltast yfir sex milljónir ökutækja í Evrópu. Ófullnægjandi meðhöndlun þessara ökutækja veldur mengun og verðmæti tapast. Nýlegt mat á núverandi ESB-löggjöf (tilskipun 2000/53/EB um úr sér gengin ökutæki og tilskipun 2005/64/EB um gerðarviðurkenningu vélknúinna ökutækja með tilliti til endurnotanleika, endurvinnanleika og endurnýtanleika) hefur sýnt að umtalsverðar úrbætur eru nauðsynlegar til að efla umskipti bílgreinarinnar yfir í hringrásahagkerfið og draga þannig úr neikvæðum umhverfisáhrifum sem tengjast framleiðslu og meðhöndlun úreldra ökutækja og efla sjálfbærni ökutækja- og endurvinnsluiðnaðar í Evrópu.

Gert er ráð fyrir að reglugerðartillagan sem ætlað er koma í stað framangreindra tilskipana muni, verði hún samþykkt, skili 1,8 milljarða evra ávinningi árið 2035, með nýjum störfum og auknu tekjustreymi fyrir úrgangsstjórnun og endurvinnslu. Þar að auki er gert ráð fyrir ráðstafanir sem tillögurnar fela í sér muni stuðla að bættu umferðaröryggi í ríkjum utan ESB sem flytja inn notuð ökutæki frá ESB með því að koma í veg fyrir útflutning á úr sér gengnum ökutækjum og einnig draga úr mengun og áhættu fyrir heilsu fólks í þeim löndum.

Fyrirhuguð reglugerð er í samræmi við markmið Græna sáttmálans og aðgerðaáætlun um hringrásarhagkerfið. Fyrirhuguð reglugerð tengist og styður við innleiðingu nokkurra annarra mikilvægra gerða, svo sem væntanlegrar reglugerðar um mikilvæg hráefni, sbr. umfjöllun í Vaktinni 24. mars sl., reglugerðar um rafhlöður, sbr. umfjöllun í Vaktinni 23. júní sl. reglugerðar um vistvæna hönnun, sbr. umfjöllun um hringrásarkerfið í Vaktinni 1. apríl 2022 og tilskipun um rétt til viðgerða á vörum, sbr. umfjöllun í Vaktinni 24. mars sl.

Gert er ráð fyrir að reglugerðin muni hafa umtalsverðan umhverfisávinning; þ. á m. er gert ráð fyrir að framfylgd hennar muni draga úr árlegri losun CO2 um 12,3 milljónir tonna fyrir árið 2035 og stuðla að betri nýtingu hráefna og auka endurheimt þeirra og þannig gera bifreiðaframleiðendur minna háða innfluttu hráefni og stuðla að sjálfbærum og hringlaga viðskiptamódelum.

Gert er ráð fyrir að ökutækjaframleiðslugeirinn verði stærsti notandi mikilvægra hráefna í framtíðinni og er aukin endurvinnsla á þessu sviði því afar mikilvæg til að auka viðnámsþol ESB gegn mögulegum truflunum á aðfangakeðjum.

Sjá nánar um tillöguna og forsendur að baki henni á sérstakri vefsíðu framkvæmdastjórnarinnar um úr sér gengin ökutæki.

Tillagan gengur til umfjöllunar á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Efling á starfsþróunarumhverfi rannsakenda í Evrópu

Framkvæmdastjórn ESB kynnti þann 13. júlí sl. aðgerðapakka sem ætlað er að styrkja rannsóknarumhverfi og rannsóknarsvæði Evrópu (e. European Research Area – ERA) sem Ísland er þátttakandi í m.a. í gegnum samstarfsáætlunina „Horizon Europe. Pakkinn samanstendur af tillögu til ráðherraráðs ESB um útgáfu tilmæla um nýja umgjörð til að laða að hæfileikafólk á sviði rannsókna og til að styðja við rannsókna- og frumkvöðlastarf í ESB, nýjum sáttmála og siðareglum fyrir rannsakendur og nýjum hæfnisramma fyrir vísindamenn sem meðal annars verður miðlað á nýrri vefsíðu sem til stendur að setja á fót (ResearchComp).

Tillaga framkvæmdastjórnarinnar hefur verið í vinnslu um nokkurt skeið og byggir hún á stefnumörkun sem sett var fram í orðsendingu framkvæmdastjórnar ESB til Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB, efnahags- og félagsmálanefndar ESB og svæðanefndarinnar frá árinu 2020 um umbætur á evrópska rannsóknarsvæðinu (ERA), en orðsendingin fól m.a. í sér viðurkenningu á mikilvægi rammaáætlunar um rannsóknarstarfsferil vísindamanna (e. research careers) í Evrópu.

Tillagan miðar að því að takast á við áskoranir sem rannsakendur og vísindamenn standa frammi fyrir og lúta m.a. að atvinnuöryggi, skorti á tækifærum til framgangs og hreyfanleika og spekileka frá jaðarsvæðum.

Eitt meginmarkmið tillögunnar er þannig að auka möguleika og bæta starfsskilyrði ungra vísindamanna innan evrópska rannsóknarsvæðisins.

Tillagan byggir á fyrri tilmælum, svo sem sáttmála og siðareglum fyrir vísindamenn (Charter and Code for Researchers), mannauðsstefnu fyrir vísindamenn (Human Resources Strategy for Researchers) og EURAXESS og felur í sér svar við ákalli ráðsins og þingsins um að gera starfsvettvang á sviði rannsókna í Evrópu eftirsóknarverðari.

Í tillögunni má finna skilgreiningu á hvað felist í því að vera rannsakandi (e. researcher) í Evrópu og er henni ætlað að móta samræmdan skilning á rannsóknarstarfi á mismunandi fræðasviðum, í viðskiptalífi, í opinberri stjórnsýslu og hjá sjálfseignarstofnunum (e. non-profit). Skilgreiningin dregur einnig fram mikilvægi hlutverks stjórnenda rannsókna. Tillagan gerir ráð fyrir bættum starfsskilyrðum, aukinni félagslegri vernd og jafnvægi á milli vinnu og einkalífs fyrir rannsakendur, sérstaklega fyrir unga rannsakendur. Hún gerir einnig ráð fyrir þróun nýs sáttmála fyrir vísindamenn, sem geti leyst af hólmi framangreindan sáttmála og siðareglur fyrir vísindamenn frá árinu 2005.

Tillagan miðar að því að efla færniuppbyggingu vísindamanna, sér í lagi þverfræðilega, með því að nýta sér evrópska hæfnisrammann fyrir vísindamenn (European Competence Framework for Researchers - ResearchComp) og útgáfu örprófskírteina (e. micro-credential) fyrir styttri menntun og þekkingaröflun sem rannsakendur sækja sér. Markmiðið er að stuðla að hreyfanleika á milli rannsóknarsviða og svæða innan Evrópu með því að skapa hvata og umbun fyrir fjölþættan starfsferil og með því að styðja við starfsþróunarráðgjöf.

Fleiri verkfæri til starfsþróunar fyrir rannsakendur og vísindamenn eru á teikniborðinu hjá framkvæmdastjórninni, svo sem þróun hæfileikavettvangs (e. talent platform), og þróun fjárfestingarstefnu vegna rannsóknarstarfsemi þar sem m.a. verður leitað betri leiða fyrir ESB, aðildarríkin og atvinnulífið til að vinna saman að því að styðja við starfsþróunarferla hjá rannsakendum og efla tengsl á milli háskóla og atvinnulífs.

Að lokum er með tillögunni lagt til að komið verði á fót eftirlitsmiðstöð fyrir rannsóknarstarfsemi sem fái það hlutverk að fylgjast með innleiðingu og framkvæmd tilmælanna þegar þar að kemur. Eftirlitsmiðstöðinni er ætlað að leggja fram gagnreynd gögn til að styðja við starfsemi stefnumótandi aðila og haghafa á sviði rannsóknarstarfsemi innan Evrópu.

Að bæta starfsþróunarferla er eitt af forgangsverkefnum ERA og er ein af 20 aðgerðum sem upphaflega voru settar fram í stefnuskrá ERA fyrir 2022 - 2024.

Tillagan gengur nú til umfjöllunar í ráðherraráði ESB.

Rafræn auðkenning innan ESB

Framkvæmdastjórn ESB, Evrópuþingið og ráðherraráð ESB komust hinn 29. júní sl. að samkomulagi, að afloknum þríhliða viðræðum, um tillögu að breytingu á lagaramma fyrir evrópska rafræna auðkenningu (e. European Digital Identity). Með breytingunum er eins konar persónulegu rafrænu veski (e. EU Digital Identity Wallet) komið á fót innan ESB og verður það í formi smáforrits í snjallsímum.

Forritinu er ætlað að tryggja áreiðanlegan aðgang fyrir einstaklinga og fyrirtæki innan ESB að margvíslegri þjónustu hins opinbera og eftir atvikum hins einkarekna. Veskið mun koma til með að geyma rafrænt ökuskírteini og önnur sambærileg skírteini. Í gegnum forritið verður auk þess hægt að sækja um t.a.m. afrit af fæðingarvottorði, óska eftir læknisvottorði eða nota það til að breyta skráningu á heimilisfangi, opna nýjan bankareikning, skila skattframtali eða taka út pöntun á lyfseðli, svo dæmi séu tekin.

Tillagan er hluti af stafrænum umskiptum ESB fyrir árið 2030. Framkvæmdastjórnin hefur í þessu sambandi og undir formerkjum Digital Europe-áætlunarinnar farið af stað með fjögur umfangsmikil stafræn verkefni sem ætlað er að undirbúa jarðveginn fyrir notkun rafræns veskis og rafrænna skilríkja innan ESB. Fjárfesting vegna þessara verkefna nemur samanlagt um 46 milljónum evra.

Vinna við tæknilega útfærslu lagabreytinganna stendur nú yfir á grundvelli hins pólitíska samkomulags framkvæmdastjórnarinnar, þingsins og ráðsins. Tillagan gengur svo að lokum til samþykktar þingsins og ráðsins og mun í kjölfar samþykkis öðlast gildi á tuttugasta degi frá birtingu í Stjórnartíðindum ESB.

Tillagan er ekki merkt EES-tæk af hálfu framkvæmdastjórnarinnar en með henni er þó verið að gera breytingar á ESB-reglugerð nr. 910/2014 sem tekin hefur verið upp í EES-samninginn og innleidd í íslenskan rétt, sbr. lög nr. 55/2019 um rafræna auðkenningu og traustþjónustu fyrir rafræn viðskipti.

Sýndarveruleikar og fjórða kynslóð veraldarvefsins

Þann 11. júlí sl. birti framkvæmdastjórn ESB orðsendingu til Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB, efnahags- og félagsmálanefndar og svæðanefndarinnar um fjórðu kynslóð veraldarvefsins og sýndarveruleika (e. Strategy on Web 4.0 and virtual worlds). Orðsendingin felur í sér framtíðarsýn og stefnumótun vegna þeirrar tækniumbyltingar sem fyrirséð er á þessu sviði og miðar hún að því að því að tryggja opið og öruggt vefumhverfi fyrir almenning, fyrirtæki og stofnanir. Stefnumótunin er í samræmi við stafræna starfsskrá ESB  og áætlanir um uppbyggingu öflugra fjarskiptatenginga m.a. og er áhersla lögð á eftirfarandi:

Að efla færi fólks til að nýta sér tæknina á eigin forsendum.

Að efla evrópskan tækniiðnað á þessu sviði.

Að leita leiða til að nýta möguleika nýrrar tækni til bæta opinbera þjónustu og stafræna stjórnsýslu.

Að beita sér fyrir því að mótaðir verði alþjóðlegir staðlar á þessu sviði til að mismunandi sýndarveruleikar geti starfað saman en með því er talað að unnt sé forðast markaðsyfirráð stórra aðila.

Sjá hér samantekt upplýsingaþjónustu Evrópuþingsins um málefnið.

Aðgerðir ESB til að sporna við mögulegum skorti á sýklalyfjum á komandi vetri

Framkvæmdastjórn ESB í samstarfi við samtök forstjóra lyfjastofnana Evrópu (HMA) og evrópsku lyfjastofnunina (EMA), gáfu í vikunni út tilmæli (e. recommendations) um hvernig sporna megi við skorti á lífsnauðsynlegum sýklalyfjum sem notuð eru gegn öndunarfærasýkingum fyrir næsta vetur. Tilmælin eru unnin af stýrihópi um lyfjaskort og öryggi lyfja (e. Executive Steering Group on Shortages and Safety of Medicinal Products - MSSG) og styður við vinnu um þróun lista fyrir ESB yfir mikilvæg og lífsnauðsynleg lyf. Í nánu samstarfi við aðildarríki mun framkvæmdastjórnin fylgja eftir aðgerðunum þar sem það er talið nauðsynlegt m.a. með sameiginlegum innkaupum.

Með þessum tilmælum nú er verið að bregðast við áskorunum sem þjóðir standa frammi fyrir og valda töluverðum áhyggjum. Framboðsskortur á lífsnauðsynlegum lyfjum hefur reynst vaxandi vandamál innan ESB. Auk þess sem baráttan við sýklalyfjaónæmi verður sífellt fyrirferðarmeiri. Um þetta og fleira þessu tengt má m.a. lesa í Vaktinni 26. maí sl. þar sem fjallað er um nýjar tillögur að endurskoðuðum lyfjalögum, ný tilmæli um aðgerðir gegn sýklalyfjaónæmi og um óformlegan fund heilbrigðisráðherra í Stokkhólmi þar sem lyfjamál og aðgengi að lyfjum voru til umfjöllunar.

Verði eftirspurn evrópskra sjúklinga eftir sýklalyfjum næsta vetur svipuð og neysla þeirra á fyrri árum, benda gögn til þess að framboð helstu sýklalyfja verði á pari við eftirspurn á tímabilinu. Engu að síður er talin ástæða til að hvetja og brýna aðila til eftirfarandi fyrirbyggjandi aðgerða sem miða að því að tryggja nægilegt framboð sýklalyfja á komandi hausti og næsta vetur:

Vinna að aukinni framleiðslu lífsnauðsynlegra sýklalyfja. EMA og HERA (Health Emergency Preparedness and Response) hvetja til áframhaldandi samtals við markaðsleyfishafa lyfja í þeim tilgangi að auka framleiðslu.

Tryggja næganlegt eftirlit með framboði og eftirspurn. EMA og framkvæmdastjórn ESB í samstarfi við aðildarríki munu halda áfram að fylgjast með eftirspurn og framboði í samvinnu við fyrirtæki á þessu sviði. Í ljósi ráðstafana sem gripið er til og tryggja eiga nægilegt framboð eru allir hagsmunaaðilar hvattir til að panta lyf eins og verið hefur án þess þó að safna birgðum enda er talið að birgðasöfnun geti gert illt verra.

Auka meðvitund almennings og hvetja til skynsamlegrar notkunar. Mikilvægt er að nota sýklalyf skynsamlega til að viðhalda virkni þeirra og forðast sýklalyfjaónæmi. Læknar gegna þar lykilhlutverki. Sýklalyfjum ætti einungis að ávísa til að meðhöndla bakteríusýkingar enda gagnast þau ekki gegn öðrum veikindum. Einnig er mælst til þess að auka vitund og þekkingu hins almenna borgara með fræðslu og ráðgjöf um viðfangsefnið.

Staða réttarríkisins

Þann 5. júlí sl. birti framkvæmdastjórn ESB skýrslu um stöðu réttarríkisins (e. Rule of Law Report) fyrir árið 2023, en þetta er í fjórða skiptið sem slík skýrsla er gefin út.

Skýrslan greinir frá stöðu réttarríkisins innan sambandsins í heild en einnig í sérstökum landsköflum um hvert og eitt aðildarríkjanna 27. Líkt og í fyrri skýrslum eru fjögur áherslusvið útlistuð og greint frá stöðu mála í hverju ríki fyrir sig auk þess sem gerðar eru tillögur til úrbóta þar sem tilefni þykir til. Sviðin eru eftirfarandi:

Umbætur á réttarkerfinu (e. justice reforms).

Umgjörð gegn spillingu (e. anti-corruption framework).

Fjölmiðlafrelsi og fjölhyggja (e. media freedom and pluralism).

Eftirlit með stofnunum og staða óháðra og borgaralegra samtaka (e. institutional checks and balances).

Málefni réttarríkisins hafa verið mikið í umræðunni á vettvangi ESB undanfarin misseri og hafa áhyggjur einkum beinst að stöðu mála í Póllandi og Ungverjalandi sem þykja ekki hafa brugðist nægjanlega vel við athugasemdum og tillögum til úrbóta, sbr. m.a. umfjöllun í Vaktinni 16. desember sl.

Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

07. júlí 2023 | Formennskuáætlun Spánverja |
Að þessu sinni er fjallað um:

formennskuáætlun Spánverja

fund leiðtogaráðs ESB

rafrænar Schengen vegabréfsáritanir

erfðatækni í landbúnaði

fræ og græðlinga

nýja jarðvegstilskipun

textíl og hringrásarhagkerfið

markmið um minni matarsóun

notkun á reiðufé og regluverk um stafræna evru

markaði með sýndareignir

nútíma greiðsluþjónustu og opinn aðgang að gögnum

reglugerð um gögn

samvinnu evrópskra persónuverndarstofnana

Formennskuáætlun Spánverja

Spánverjar tóku við formennsku í ráðherraráði ESB 1. júlí sl. en þann sama dag var formennskuáætlun þeirra birt. Áður höfðu Spánverjar kynnt fjögur helstu áherslumál sín fyrir komandi formennskutíð eins og fjallað var um í Vaktinni 23. júní sl. og eru umrædd áherslumál leiðarstef formennskuáætlunarinnar sem nú hefur verið birt, en þau eru:

Ný iðnvæðing á vettvangi ESB og varðveisla á sjálfræði og sjálfstæði ESB til aðgerða (e. Reindustrialise the EU and guarantee ist open strategic autonomy).

Græn umskipti og aðlögun að breyttum umhverfisaðstæðum (e. Make progress in the green transition and in enviromental adaptaion).

Aukið félagslegt og efnahagslegt réttlæti (e. Promote greater social and economic justice).

Aukin evrópsk samheldni (e. Strengthen European unity).

Í formennskuáætluninni er gerð nánari grein fyrir þeim einstöku málefnum og löggjafartillögum sem Spánverjar hyggjast beita sér fyrir. Hér að neðan eru nokkur af þessum málum tilgreind með sérstakri áherslu á löggjafartillögur og stefnumótun sem varðað geta EES-samninginn. Til nánari glöggvunar á einstökum málum er vísað til umfjöllunar í áður útkomnum fréttabréfum Brussel-vaktarinnar, þar sem við á. Auk þeirra málefnasviða sem tilgreind eru hér að neðan er í formennskuáætlunni fjallað um áherslur Spánverja í utanríkis- og varnarmálum, stækkunarmálum og innri lýðræðis- og samheldnismálum o.fl. en um þau mál er hér látið nægja að vísa til þess sem fram kemur í áætluninni.

Á meðal helstu mála, flokkað eftir málefnasviðum og verkaskiptingu innan deilda ráðherraráðs ESB, sem Spánverjar hyggjast beita sér fyrir eru:

Á sviði efnahags- og fjármála:

Framgangur tillagna um endurskoðun á fjármálareglum ESB (e. Fiscal rules of Growth and Stability Pact). Sjá umfjöllun í Vaktinni 5. maí sl.

Framgangur tillagna um endurskoðun á lagaumhverfi evrópskra viðskiptabanka og löggjöf um innstæðutryggingar. Sjá umfjöllun í Vaktinni 21. apríl sl.

Framþróun regluverks um sjálfbæra fjármögnun og grænar fjárfestingar (e. Sustainable Finandce). Sjá umfjöllun í Vaktinni 23. júní sl.

Framgangur tillagna um stafræna evru. Sjá sérstaka umfjöllun í Vaktinni í hér að neðan.

Framgangur tillagna um heildarendurskoðun á tollkerfi ESB. Sjá umfjöllun í Vaktinni 9. júní sl.

Samkeppnishæfni og samheldni. Lögð er áhersla á mikilvægi þess að ráðist verið endurskoðun reglna á sviði samkeppnis- og ríkisaðstoðarmála og samheldnismála (e. cohesion). Sjá m.a. umfjöllun í Vaktinni 10. mars sl. um tímabundna útvíkkun ríkisaðstoðarreglna.

Á sviði dóms- og innanríkismála:

Margvísleg mál á sviði réttarvörslukerfisins eru nefnd.

Framgangur viðræðna um mögulega aðild ESB að Evrópuráðinu. Sjá umfjöllun í Vaktinni 10. febrúar sl.

Framgangur tillagna um málefni flótta- og farandsfólks (e. The Pact on migration and asylum). Sjá umfjöllun í Vaktinni 9. júní sl.

Málefni Schengen-svæðisins, m.a. framgangur umsókna Rúmeníu og Búlgaríu um aðild að samstarfinu. Sjá m.a. umfjöllun í Vaktinni 18. nóvember sl.

Á sviði samkeppnismála og samkeppnishæfni:

Varðveisla á sjálfræði og sjálfstæði ESB til aðgerða (e. Open Strategic Autonomy). Sjá m.a. umfjöllun í Vaktinni 23. júní sl. um nýja efnahagsöryggisáætlun ESB.

Uppbygging mikilvægs iðnaðar til að styðja við græn og stafræn umskipti, sbr. fyrirliggjandi stefnumótun og tillögugerð á því sviði, sbr. m.a. umfjöllun um framfylgd framkvæmdaáætlunar Græna sáttmálans í Vaktinni 24. mars sl.

Innri markaðsmálefni, m.a. framgangur tillagna um auknar valdheimildir framkvæmdastjórnar ESB til ráðstafana á innri markaði í neyðaraðstæðum (e. Single Market Emergency Instrument - SMEI). Sjá umfjöllun í Vaktinni 23. september sl.

Framfylgd orðsendinga framkvæmdastjórnar ESB um samkeppnishæfni ESB til lengri tíma. Sjá umfjöllun í Vaktinni 24. mars sl.

Endurskoðun reglna um skammtímaleigu íbúðarhúsnæðis. Sjá umfjöllun í Vaktinni 26. maí sl.

Endurskoðun reglna á sviði hugverka- og einkaleyfisréttar. Sjá umfjöllun í Vaktinni 5. maí sl.

Endurskoðun regluverks um samstarfsáætlanir og samkeppnissjóðakerfi ESB. Sjá umfjöllun í Vaktinni 23. júní sl. um nýjan tækniþróunarvettvang ESB.

Á sviði umhverfismála:

Undirbúningur fyrir næstu loftlagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (COP-28) sem haldin verður í Dubai 30. nóvember – 12. desember nk. Sjá til hliðsjónar umfjöllun í Vaktinni 4. nóvember sl. um samningsafstöðu ESB fyrir COP-27.

Framgangur óafgreiddra tillagna um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda um allt að 55% fyrir árið 2030 (e. Fit for 55).

Framgangur tillaga um strangari reglur um mengunarvarnir, um loftgæði, hreinleika yfirborðs- og grunnvatns og meðferð og hreinsun skólps frá þéttbýli með núll-mengun að markmiði (e. Zero Pollution goal). Sjá umfjöllun í Vaktinni 4. nóvember sl.

Framgangur tillagna um endurreisn vistkerfa. Sjá umfjöllun í Vaktinni 24. júní 2022.

Á sviði samgöngu-, fjarskipta- og orkumála:

Endurskoðun reglna um samevrópskt samgöngukerfi (e. Trans-European Transport Network).

Framgangur óafgreiddra „Fit for 55“ tillagna á sviði samgöngumála.

Framgangur væntanlegra tillagna á sviði umhverfisvænni flutninga (e. Greening Transport Package)

Framgangur tillagna um sameinað loftrými og flugumferðarstjórn (e. Single European Sky 11).

Framgangur tillagna á sviði siglingaöryggis. Sjá umfjöllun í Vaktinni 9. júní sl.

Framgangur tillagna um bætt umferðaröryggi. Sjá umfjöllun í Vaktinni 10. mars sl.

Framgangur ýmissa tillagna í stafrænu starfskrá ESB.

Framgangur tillagna um gervigreind. Sjá umfjöllun í Vaktinni 9. júní sl.

Framgangur tillaga um evrópsk stafræn skilríki (e. European Digital Identity).

Framgangur tillagna um auka samstöðu innan ESB á sviði netöryggismála (e. Cyber Solidarity Act). Sjá umfjöllun í Vaktinni 5. maí sl.

Áframhaldandi framfylgd „REPowerEU“ áætlunar ESB, með sérstakri áherslu á framfylgd áætlunar um að koma á fót virkum evrópskum vetnismarkaði. Sjá m.a. umfjöllun í Vaktinni 5. maí sl. um vistvænt flugvélaeldsneyti

Á sviði atvinnu-, félags- og heilbrigðismála og neytendaverndar:

Framfylgd aðgerðaráætlunar félagslegu réttindastoðar ESB sem samþykkt var í ráðherraráðinu í mars 2021. Sjá umfjöllun í Vaktinni 18. nóvember sl.

Framfylgd stefnumörkunar um geðheilbrigðismál, m.a. með mögulegri ályktun ráðherraráðsins um málið. Sjá umfjöllun í Vaktinni 9. júní sl.

Framfylgd aðgerða til eflingar félagslega hagkerfisins. Sjá umfjöllun í Vaktinni 23. júní 2023.

Sérstök áhersla er lögð á framgang tillagna um samevrópsk öryrkjaskilríki (e. EU Disability Card) sem tryggi gagnkvæma viðurkenningu á stöðu fötlunar hjá einstaklingum í aðildarríkjunum.

Framgangur tillagna um forvarnir og baráttuna gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi. Sjá umfjöllun í Vaktinni 18. mars 2022.

Framfylgd áætlunar um evrópska umönnunarstefnu (e. European Care Strategy). Sjá umfjöllun í Vaktinni 9. september 2022.

Framfylgd áætlunar í málefnum hinsegin fólks fyrir árin 2020 – 2025.

Framfylgd áætlunar gegn kynþáttafordómum og kynþáttahyggju fyrir árin 2020 – 2025.

Framgangur tillagna um stjórnsýslu jafnréttismála. Sjá umfjöllun í Vaktinni 23. júní sl.

Framhald viðræðna um fyrirliggjandi tillögu um samræmingu almannatryggingakerfa í aðildarríkjunum.

Vinna að ályktun ráðsins um vernd einyrkja í almannatryggingakerfinu.

Framgangur áætlana um uppbyggingu samstarfs á sviði heilbrigðismála til að geta betur brugðist við framtíðarógnum á borð við kórónaveirufaraldurinn með samræmdum hætti (e. European Health Union). Sjá m.a. umfjöllun í Vaktinni 21. október sl.

Framgangur tillagna um samevrópskan gagnagrunn fyrir heilbrigðisupplýsingar. Sjá umfjöllun í Vaktinni 8. júlí 2022.

Framgangur tillagna um breytingar á gjöldum og þóknunum sem Lyfjastofnun Evrópu innheimtir. Sjá umfjöllun í Vaktinni 10 mars sl.

Framgangur tillagna á sviði hringrásarhagkerfisins er í forgrunni er kemur að neytendavernd, svo sem tillaga um rétt neytenda til aðgangs að viðgerðarþjónustu á vörum. Sjá umfjöllun í Vaktinni 24. mars sl.

Á sviði menntunar, æskulýðsmála, menningar og íþrótta:

Framfylgd aðgerðaáætlunar um evrópska færniárið sem nú stendur yfir. Sjá m.a. umfjöllun í Vaktinni 10. mars sl.

Stuðningur við þróun regluverks um samræmd stafræn vottorð um viðurkenningu starfsréttinda innan ESB.

Framfylgd æskulýðsstefnu ESB fyrir árin 2019 - 2027 með áherslu á geðheilbrigðisvanda ungs fólks.

Framgangur tillagna að nýrri löggjöf um frelsi fjölmiðla. Sjá umfjöllun í Vaktinni 23. september sl.

Er kemur að íþróttamálum er lögð áhersla á stöðu kvenna og jafnrétti í íþróttum.

Á sviði landbúnaðar- og sjávarútvegsmála:

Framgangur tillagna um erfðabreytt matvæli og vernd náttúrulegra jarðargæða. Sjá nánari umfjöllun um þær tillögur hér að neðan í Vaktinni.

Framgangur tillagna til að draga úr notkun skordýraeiturs. Sjá m.a. umfjöllun í Vaktinni 21. apríl sl. um býflugnavænan landbúnað.

Framgangur nýrrar landbúnaðarstefnu ESB. Sjá umfjöllun í Vaktinni 16. desember sl.

Á sviði sjávarútvegsmála er lögð áhersla græn og stafræn umskipti og sjálfbærni í veiðum en einnig að leitað verði leiða til að styrkja sameiginlega sjávarútvegsstefnu ESB og jafnræði ESB er kemur að hlutdeild í veiðum og veiðimöguleikum úr stofnum sem deilt er með öðrum.

Auk framangreindar formennskuáætlunar Spánverja hefur nú verið birt ný þriggja ríkja áætlun (e. Trio Programme) sem tekur til næstu 18 mánaða. Auk Spánverja, standa Belgar, sem fara munu með formennsku í ráðinu á fyrri hluta næsta árs, 2024, og Ungverjar, sem fara munu með formennsku á seinni hluta árs 2024, að áætluninni. Leysir áætlunin af hólmi þriggja ríkja áætlun sem þrjú síðustu formennskuríki stóðu að, þ.e. Svíar, Tékkar og Frakkar.

Fundur leiðtogaráðs ESB

Leiðtogaráð ESB kom saman til fundar dagana 29. og 30. júní sl. Eins og á undanförnum fundum ráðsins var staða mála vegna ársarstríðs Rússlands gagnvart Úkraínu megin umfjöllunarefni leiðtoganna og áframhaldandi stuðningur ESB og aðildarríkja þess við Úkraínu. Meðal annarra umræðuefna á fundinum var staða efnahags- og samkeppnismála, öryggis- og varnarmál, stækkunarmál ESB. Jafnframt voru samskipti og tengsl ESB við önnur ríki og ríkjasambönd voru til umræðu en sérstaklega var þó rætt um samband ESB og Kína, sbr. ályktanir leiðtogaráðsins þar að lútandi, sbr. einnig nýja efnahagsöryggisstefnu ESB sem fjallað var um í Vaktinni 23. júní sl., en hún var undirliggjandi í umræðum leiðtoganna um alþjóðamálin.

Málefni flótta- og farandsfólks voru einnig til umræðu á fundinum, sbr. umfjöllun í Vaktinni 9. júní sl. um nýlegt meirihluta samkomulag sem náðist í ráðherraráði ESB í málaflokkunum. Ekki náðist hins vegar samstaða í leiðtogaráðinu um sameiginlega ályktun ráðsins um málið, vegna andstöðu frá forsætisráðherrum Ungverjalands og Póllands, og fór svo að lokum að forseti leiðtogaráðsins sendi frá sér einhliða ályktun.

Eins og áður segir voru málefni Úkraínu megin umfjöllunarefni fundarins og ávarpaði framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, Jens Stoltenberg, fundinn undir þeim dagskrárlið sem og forseti Úkraínu, Volodymyr Selenskí, í gegnum fjarfundabúnað. Í ályktunum sem samþykktar voru á fundinum er fordæming á árásarstríði Rússlands gagnvart Úkraínu ítrekuð sem og loforð um að stuðningi, m.a. hernaðarlegum, verði framhaldið eins lengi og þörf krefur. Ráðið áréttaði einnig þá afstöðu sína að Rússland bæri fulla ábyrgð á þeim skaða sem stríðið hefði valdið, og fagnaði ráðið m.a. samkomulagi um tjónaskrá sem náðist á leiðtogafundi Evrópuráðsins í Reykjavík í apríl. Staða aðildarumsóknar Úkraínu að ESB var einnig rædd en Úkraína hefur einarðlega unnið að því að uppfylla skilyrði aðildar að undanförnu. Var áframhaldandi stuðningi við Úkraínu heitið á vegferð þeirra til að uppfylla skilyrði ESB-aðildar.

Í tengslum við umræður um efnahagsmál og samkeppnishæfni innri markaðar ESB, bæði inn á við og út á við, til lengri tíma litið og með hliðsjón af grænu og stafrænu umskiptunum og utanaðkomandi áskorunum, ályktaði ráðið m.a. eftirfarandi:

Að löggjafarstofnanir ESB, þ.e. Evrópuþingið og ráðherraráð ESB ásamt framkvæmdastjórn ESB, flýti vinnu við afgreiðslu löggjafartillagna um kolefnishlutlausan iðnað (e. Net Zero Industry Act) og mikilvæg hráefni (e. Critical Raw Materials Act) þannig að unnt verði að ljúka málunum á kjörtímabili Evrópuþingsins sem nú situr. Sjá umfjöllun um framangreindar löggjafartillögur í Vaktinni 24. mars sl.

Að tryggt verði að ESB verði kjörlendi fyrir áframhaldandi þróun og nýsköpun á sviði gervigreindartækni um leið og leitast verði við að skapa traust á tækninni. Í þessu skyni hvatti leiðtogaráðið löggjafarstofnanir ESB, þingið og ráðið, til að klára vinnu við fyrirliggjandi löggjafartillögur um gervigreind, sbr. umfjöllun um þær tillögur í Vaktinni 9. júní sl.

Að framkvæmdastjórn ESB hefði frumkvæði að ráðstöfunum til að tryggja næga framleiðslu og framboð mikilvægra lyfja. Í þessu skyni hvatti leiðtogaráðið löggjafarstofnanir ESB til að flýta meðferð tillagna um endurskoðun lyfjalaga. Sjá umfjöllun um þær tillögur í Vaktinni 26. maí sl.

Ráðið fagnaði sérstaklega gildistöku hins nýja evrópska einkaleyfakerfis (e. Unitary Patent System) þann 1. júní sl. sem talið er að geti eflt nýsköpun og samkeppni til muna, sbr. m.a. umfjöllun í Vaktinni 5. maí sl.

Þá gerði framkvæmdastjórn ESB leiðtogaráðinu grein fyrir stöðu viðræðna ESB og Bandaríkjanna um áhrif bandarísku IRA-löggjafarinnar svonefndu. Sjá nánar m.a. um málið í Vaktinni 23. janúar sl.

Rafrænar Schengen vegabréfsáritanir

Þriðjudaginn 13. júní sl. náðist samkomulag í þríhliða viðræðum ráðherraráðs ESB, Evrópuþingsins og framkvæmdastjórnar ESB um nýja reglugerð um rafræna útgáfu Schengen vegabréfsáritana. Umrædd reglugerð er partur af Schengen stefnu framkvæmdastjórnar ESB sem var lögð fram í júní 2021, sbr. umfjöllun í Vaktinni 4. júní 2021.

Með nýrri reglugerð verður hægt að sækja rafrænt um vegabréfsáritun inn á Schengen-svæðið í gegnum þar til gert vefsvæði (e. Visa Platform) og eins verða áritanamiðarnir sjálfir gefnir út á rafrænu formi. Í gegnum vefsvæðið verður hægt að leggja fram umsókn um vegabréfsáritun, nauðsynleg fylgigögn og greiða áritunargjaldið. Núverandi fyrirkomulag getur verið íþyngjandi og kostnaðarsamt fyrir hinn almenna umsækjenda sem og fyrir aðildarríkin sjálf. Eins hefur misræmis gætt í framkvæmd á milli aðildarríkja en sum þeirra bjóða þegar upp á rafrænt ferli að hluta en önnur ekki. Núverandi áritanamiðar eru einnig viðkvæmir fyrir fölsunum, svikum og þjófnaði, en það er eitthvað sem vonir standa til samræmdir rafrænir áritanamiðar muni bæta verulega.

Markmið reglugerðarinnar er því annars vegar að gera umsóknarferlið skilvirkara og hins vegar að bæta öryggi innan Schengen-svæðisins.

Reglugerðin felur nánar tiltekið í sér eftirfarandi:

Eitt sameiginlegt evrópsk umsóknarsvæði fyrir vegabréfsáritun á netinu, þar sem umsækjendur um vegabréfsáritun geta sótt um áritun óháð því hvaða Schengen ríki þeir vilja heimsækja

Hægt verður að leggja fram umsókn um áritun í gegnum hið sameiginlega vefsvæði og eins getur umsækjandi fylgst með stöðu umsóknarinnar og hvort upplýsingar eða gögn vanti.

Netspjall er mögulegt þar sem umsækjandi getur fengið svör við helstu spurningum.

Núverandi áritunarmiðum verður skipt út fyrir rafræn 2D strikamerki.

Reglugerðin kveður á um 7 ára aðlögunartímabil svo aðildarríkin eiga að hafa nægan tíma til að tengjast hinu nýja rafræna kerfi.

Ný erfðatæki í landbúnaði

Framkvæmdastjórn ESB lagði í vikunni fram tillögu að reglugerð sem heimilar notkun á nýrri erfðatækni við ræktun plantna (e. New Genomic Techniques). Nýja erfðatæknin styður við markmið sambandsins um sjálfbæran landbúnað með því að heimila þróun plöntuafbrigða sem þola betur veðurbreytingar, eru ónæm fyrir meindýrum, krefjast minni áburðar og skordýraeiturs og geta tryggt meiri uppskeru. Þar að auki er talið að hin nýja erfðatækni geti hjálpað til við að draga úr notkun á óumhverfisvænu skordýraeitri í ræktun, en stefna sambandsins er að minnka notkun skordýraeiturs um helming fyrir árið 2030, sbr. m.a. umfjöllun í Vaktinni 21. apríl sl. um býflugnavænan landbúnað. Loks er áætlað að ný erfðatækni muni draga úr þörf sambandsins fyrir innflutning á landbúnaðarvörum.

Tillagan er hluti af nýjum aðgerðapakka ESB um aukna sjálfbærni við nýtingu náttúrulegra jarðargæða.

Almenn reglugerð ESB um erfðabreytt matvæli og fóður er frá árinu 2003 og hafa verið gerðar nokkrar breytingar og viðbætur á regluverkinu síðan. Notkun á hefðbundinni erfðatækni við ræktun matvæla sætir miklum takmörkunum í ESB samkvæmt gildandi reglum og hefur ESB hingað til farið mjög varlega í að hagnýta slíka tækni í varúðarskyni til að vernda heilsu manna og umhverfið. Hafa sum ríki ESB alfarið bannað notkun á erfðatækni við framleiðslu matvæla og fóðurs.

Hin nýja erfðatækni sem framangreind reglugerðartillaga vísar til byggir á nýjum aðferðum sem taldar eru náttúrulegri og áhættuminni en eldri erfðatækni. Eftir sem áður gerir tillagan aðeins ráð fyrir að hin nýja erfðatækni verði leyfð á þröngu sviði til að byrja með, þ.e. á sviði plönturæktunar. Hyggst framkvæmdastjórn ESB byggja upp frekari þekkingu á erfðatækni í dýrum og örverum áður en tillögur um mögulegar tilslakanir þar verða kynntar.

Grunnreglugerð ESB um erfðabreytt matvæli og fóður er eins og áður segir frá árinu 2003. Enda þótt litið sé svo á að reglugerðin falli undir EES-samninginn þá hefur hún enn sem komið er ekki verið tekin upp í samninginn. Dráttur á upptöku þessarar gerðar hefur verið til umræðu á vettvangi EES-samningsins að undanförnu og er nú leitað leiða til að finna lausn á málinu.

Framangreind tillaga um nýja erfðatækni í landbúnaði gengur nú til umfjöllunar á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Fræ og græðlingar

Þann 5. júlí sl. lagði framkvæmdastjórn ESB fram löggjafartillögur um framleiðslu og markaðssetningu á plöntufræjum og græðlingum trjáa (e. plant and forest reproductive material)

Tillagan er hluti af nýjum aðgerðapakka ESB um aukna sjálfbærni við nýtingu náttúrulegra jarðargæða.

Núverandi löggjöf ESB um fræ og græðlinga þykir hafa sannað gildi sitt við að tryggja frammistöðu og gæði fræa og græðlinga auk þess sem hún hefur stuðlað að því að byggja upp alþjóðlegan og samkeppnishæfan iðnaði í ESB á þessu sviði. Markmið þeirrar endurskoðunar á löggjöfinni er að tryggja jöfn samkeppnisskilyrði fyrir slíka rekstraraðila á þessu sviði innan ESB, styðja við nýsköpun og samkeppnishæfni iðnaðarins og stuðla að sjálfbærni, líffræðilegum fjölbreytileika um leið og tekist er á við áskoranir vegna loftlagsbreytinga.

Sjá nánar um tillögurnar hér og hér.

Tillagan gengur nú til umfjöllunar á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Tillaga að nýrri jarðvegstilskipun

Þann 5. júlí 2023 lagði framkvæmdastjórn ESB fram tillögu að nýrri jarðvegstilskipun sem hefur það að markmiði að tryggja samræmt eftirlit með jarðvegi, vernd og endurheimt jarðvegs og sjálfbæra notkun hans til framtíðar.

Tillagan er hluti af nýjum aðgerðapakka ESB um aukna sjálfbærni við nýtingu náttúrulegra jarðargæða.

Talið er að yfir 60% af evrópskum jarðvegi sé óheilbrigður og vísindaleg gögn benda til þess að ástand jarðvegs fari versnandi, m.a. vegna ósjálfbærrar landnýtingar, mengunar, jarðvegsrofs og áhrifa loftslagsbreytinga m.a. með auknum öfgum í veðurfari.

Skaddaður jarðvegur dregur úr gæðum þeirra afurða sem eiga rót sína að rekja þangað, s.s. matvæla, fóðurs, trefja, timburs og svo mætti lengi telja. Skaddaður jarðvegur dregur úr náttúrulegri hringrás næringarefna, takmarkar kolefnisbindingu og vatnsstjórnun. Fjárhagslegt tap vegna þessa innan ESB er talið nema að minnsta kosti 50 milljörðum evra á ári.

Heilbrigður jarðvegur er mikilvæg forsenda þess að unnt sé að ná markmiðum um kolefnishlutleysi, hreint hringrásarhagkerfi, stöðvun eyðimerkurmyndunar og landhnignunar, verndun líffræðilegrar fjölbreytni, hollustu matvæla og um heilsusamlegt umhverfi fólks.

Framlagning tillögunnar er hluti af framfylgd jarðvegsáætlunar ESB sem birt var í nóvember 2021 og er um að ræða lykilþátt í stefnu ESB um verndun líffræðilegrar fjölbreytni fyrir árið 2030 samkvæmt Græna sáttmálanum.

Með tillögunni er lagður til lagarammi sem ætlað er að styðja við markmið um heilbrigðan jarðveg fyrir árið 2050, m.a. með því að:

mæla fyrir um samræmt eftirlit í aðildarríkjunum með ástandi jarðvegs þannig að þau geti með skilvirkum hætti gert ráðstafanir til að endurnýja skaddaðan jarðveg,

tryggja að sjálfbær stjórnun lands og jarðvegsnýting verði meginregla hvarvetna innan ESB,

einstök ríki beri kennsl á hugsanlega mengaða staði, rannsaki þá og geri viðeigandi ráðstafanir ef hætta er talin steðja að umhverfi eða heilsu manna og stuðli þannig að eiturefnalausu umhverfi fyrir árið 2050.

Tillagan gengur nú til umfjöllunar á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Textíll og hringrásahagkerfið

Þann 5. júlí sl. lagði framkvæmdastjórn ESB fram tillögu að breytingu á rammatilskipun ESB um úrgang sem miðar að því að styðja við sjálfbæra meðhöndlun textílúrgangs í samræmi við markmið hringrásarhagkerfisins með aukinni flokkun, endurnotkun og endurvinnslu. Gert er ráð fyrir að aukið framboð á notaðri textílvöru sé til þess fallið að skapa staðbundin störf og spara fjármuni fyrir neytendur um leið og endurnotkun og endurvinnsla dregur úr áhrifum textílframleiðslu á umhverfið og náttú,ruauðlindir.

Tillagan er hluti af nýjum aðgerðapakka ESB um aukna sjálfbærni við nýtingu náttúrulegra jarðargæða.

Framleiðsla og notkun á fatnaði í Evrópu er að miklu leyti ósjálfbær eins og staðan er í dag. Í ESB er fimm milljón tonnum af fatnaði og skóm fleygt árlega sem gera um 11 til 12 kíló á hvert mannsbarn. Heildarmagn textílúrgangs í ESB er um 12,6 milljón tonn á ári. Aðeins um 22% af textílúrgangi er safnað sérstaklega til endurnotkunar eða endurvinnslu en afgangnum er fargað með brennslu eða urðun. Þessi mikla sóun á textíl skaðar náttúruna og veldur losun gróðurhúsalofttegunda langt umfram það sem nauðsynlegt er.

Með tillögunni er lagt til að tekið verði upp samræmt kerfi fyrir aukna ábyrgð framleiðenda á sviði textílframleiðslu (e. Extended Producer Responsibility - EPR). Aukin framleiðendaábyrgð felur í að framleiðendur vara eru látnir bera ábyrgð á öllum lífsferli vöru, frá því að hún er framleidd og þar til notkunartímabili hennar líkur með endurnýtingu, endurvinnslu eða förgun. Hefur framleiðendaábyrgð af þessu tagi skilað árangri í að bæta úrgangsstjórnun nokkurra vöruflokka, svo sem umbúða, rafhlaðna og raf- og rafeindatækja. Tillagan gengur þannig út á að framleiðendur standi straum af kostnaði sem hlýst af meðhöndlun textílúrgangs. Slík framleiðendaábyrgð þykir til þess fallin að hvetja framleiðendur til að draga úr sóun og auka gæði og endingu þeirra vara sem þeir framleiða.

Umrædd framleiðendaábyrgð á einnig að auðvelda aðildarríkjunum að innleiða kröfur um söfnun og flokkun á textíl frá og með árinu 2025, eins og núverandi rammatilskipun mælir fyrir um.

Í tillögunni er einnig fjallað um ólöglegan útflutning á textílúrgangi til landa sem eru illa í stakk búin til að meðhöndla slíkan úrgang á umhverfisvænan hátt og spilar tillagan að því leyti saman við fyrirliggjandi tillögu um endurskoðun reglugerðar á flutningi á úrgangi á milli landa, sbr. umfjöllun um þær tillögur í Vaktinni 26. maí sl.

Tillaga gengur nú til umfjöllunar á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Markmið um minni matarsóun

Framkvæmdastjórn ESB hefur lagt fram tillögu að breytingum á rammatilskipun ESB um úrgang þar sem lagt er til að aðildarríkin grípi til aðgerða með það að markmiði að draga úr matarsóun við matvælaframleiðslu og -vinnslu um 10% og um 30% á hvern einstakling í smásölu og neyslu (veitingahús, matvælaþjónusta og heimili) fyrir árið 2030 miðað við stöðuna eins og hún var árið 2020.

Tillagan er hluti af nýjum aðgerðapakka ESB um aukna sjálfbærni við nýtingu náttúrulegra jarðargæða.

Tæplega 59 milljónir tonna af matvælum fara til spillis innan ESB á hverju ári sem gerir rúmlega 130 kg á hvern einstakling. Áætlað virði matarsóunar er 132 milljarðar evra á ári. Yfir helmingur matarsóunar (53%) er frá heimilum, þar á eftir kemur matvælavinnsla og framleiðslugeirinn, en talið er að um 20% sóunarinnar stafi þaðan. Að minnka matarsóun hefur margþættan ávinning í för með sér: 1) það sparar matvæli til manneldis og stuðlar þar með að auknu fæðuöryggi, 2) það eykur hagræði í rekstri fyrirtækja og heimila og 3) það dregur úr umhverfisáhrifum matvælaframleiðslu og -neyslu.

Tillagan gengur nú til umfjöllunar á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Notkun á reiðufé og regluverk um stafræna evru

Í lok júní sl. lagði framkvæmdastjórn ESB fram tvær tillögur sem ætlað er að tryggja að einstaklingar og fyrirtæki í evruríkjunum geti haldið áfram að nýta sér reiðufé, en einnig að komið verði upp regluverki sem geri Seðlabanka Evrópu mögulegt að gefa út stafræna evru (e. digital euro) sem unnt verði að nota samhliða seðlum og mynt í framtíðinni.

Við undirbúning tillagnanna var áhugi almennings á áframhaldandi notkun reiðufjár kannaður. Niðurstaðan var sú að 60% svarenda vildu eiga þann kost að nota áfram seðla og mynt, en fylgi með upptöku rafrænnar evru óx hins vegar umtalsvert frá síðustu könnun. Sú þróun er meðal annars talin ein afleiðing af kórónuveirufaraldrinum. Í ljósi þessa eru tillögurnar tvær lagðar fram saman og marka þær þannig þá framtíðarsýn að almenningur eigi val um að nota reiðufé eða rafræna evru. Verði þessar tillögur samþykktar óbreyttar verður það á hendi evrópska Seðlabankans að ákveða hvort og hvenær stafrænar evrur verði í boði. Jafnframt verða einstök aðildarríki á evrusvæðinu að sjá til þess að nægt framboð sé af seðlum og mynt á hverjum tíma. Með því er verið að tryggja að hópar sem minna mega sín og treysta meira á reiðufé, eins og t.d. fatlaðir og eldra fólk, eigi greiðan aðgang að því.

Komi til útgáfu stafrænnar evru, þá verður hún jafngild reiðufé, og í raun viðbótarkostur fyrir neytendur og aðra aðila í alþjóðlegu samhengi. Notkun hennar verður í formi rafræns veskis (e. Digital Wallet) sem bæði einstaklingar og fyrirtæki geta nýtt á evrusvæðinu. Viðskiptabankar og greiðslumiðlanir munu sjá um dreifingu stafrænna evra án tilkostnaðar fyrir einstaklinga. Einstaklingar sem ekki eru með bankareikning munu geta nýtt sér pósthús eða aðra opinbera aðila til að opna stafræna evrureikninga. Rekstraraðilar, nema þeir allra smæstu, verða skyldugir til að taka á móti stafrænum evrum, en sú aðgerð kallar á að settur verði upp hjá þeim sérstakur móttökubúnaður. Upptaka stafrænnar evru er talin mikilvæg fyrir stöðu hennar sem sjálfstæðrar myntar, ekki síst ef seðlabankar vítt og breitt um heiminn fara að feta þá slóð að gefa út rafmyntir, sbr. m.a. athugun Seðlabanka Íslands á málinu, sbr. sérrit Seðlabanka Íslands, Seðlabankarafeyri, sem kom út fyrr á árinu. Jafnframt verður stafræn evra ákveðið mótvægi við sívaxandi markað með sýndarfé (e. crypto currency), sbr. sérstaka umfjöllun hér að neðan um nýja reglugerð ESB um slíka markaði.

Í tilefni af framkomnum tillögum sagði Mairead McGuinness, framkvæmdastjóri fjármálaþjónustu, fjármálastöðuleika og sameiningu fjármálamarkaða í framkvæmdastjórn ESB eftirfarandi „We are at the beginning of a long democratic process, one which will be done hand-in-hand with the European Parliament, Council – and of course, the European Central Bank, who will decide if and when to introduce the digital euro“.

Framangreindar tillögur ganga nú til umfjöllunar á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Reglugerð um markaði með sýndareignir

Ráðherraráð ESB samþykkti hinn 16. maí sl. reglugerð um markaði með sýndareignir (e. markets in crypto-assets, MiCA) á grundvelli fyrirliggjandi samkomulags í þríhliða viðræðum um efni málsins. Evrópuþingið hefur jafnframt samþykkt reglugerðina á þeim grundvelli. Er þetta í fyrsta skiptið sem ESB setur sérstakan lagaramma um markaði með sýndareignir og rafmyntir. Markmið reglugerðarinnar er að samræma reglur um viðskipti með sýndareignir því sem gildir um verðbréfaviðskipti, þ. m. t. reglur um markaðsmisnotkun.

Reglugerðin nær til útgefenda og þeirra sem veita þjónustu með rafmyntir, s.s. nytjarafmyntir (e. utility tokens or user tokens), eignatengdar rafmyntir (e. asset-referenced tokens) og stöðugleikamyntir (e. stablecoins) og er henni ætlað að vernda neytendur og fjárfesta en um leið að tryggja fjármálastöðugleika og stuðla að fjárfestingu og nýsköpun á þessu sviði.

Í reglugerðinni er að finna ákvæði um skilyrði sem uppfylla þarf til að hafa heimild til útgáfu sýndareigna, s.s. að einungis lögaðilar megi gefa þær út. Þá skilgreinir reglugerðin þjónustuveitendur sýndareigna, t.d. útgefendur sýndareigna, og viðskiptavettvanga þar sem viðskipti með þær fara fram. Þjónustuveitendur verða starfsleyfisskyldir og munu þurfa að lúta eftirliti. Þeim verður gert að uppfylla ýmis skilyrði, sambærileg við aðra þjónustuveitendur á fjármálamörkuðum, að teknu tilliti til þeirrar þjónustu sem þeir veita.

Tillaga framkvæmdastjórnar ESB að reglugerðinni var lögð fram sumarið 2021 og er hún hluti af hinum stafræna fjármálapakka ESB (e. digital finance package), en markmiðið með honum er að samræma nálgun ESB-ríkja á þessu sviði og örva tækniþróun, tryggja fjármálastöðugleika og neytendavernd.

Bent er á ítarlegri umfjöllun um MiCA-reglugerð ESB og sýndareignir í skýrslu starfshóps um tækifæri og áhættur á sviði stafrænnar fjármálaþjónustu sem forsætisráðherra skipaði og í sérriti Seðlabanka Íslands, Seðlabankarafeyri, sem kom út fyrr á árinu.

Nútíma greiðsluþjónusta og opinn aðgangur að gögnum

Framkvæmdastjórn ESB lagði í lok júní sl. fram tillögur sem lúta annars vegar að regluverki um greiðsluþjónustu og hins vegar að opnum aðgangi að fjármálaþjónustugögnum.

Markmið reglugerðanna er að auka neytendavernd á fjármálamörkuðum enn frekar og efla samkeppni milli aðila sem bjóða stafræna greiðsluþjónustu. Þetta er gert í því augnamiði að neytendur geti deilt upplýsingum með einföldum og öruggum hætti í leit sinni að betri og ódýrari fjármálaþjónustu og sparnaðarleiðum.

Markaður fyrir greiðsluþjónustu hefur breyst verulega á undanförnum árum með vaxandi notkun stafrænna lausna. Þannig hafa nýir aðilar sprottið upp sem bjóða upp á ýmsar nýjungar á þessu sviði, sem m.a. kallar á samnýtingu gagna milli banka og tæknifyrirtækja (e. fintech). Dökka hliðin á þeirri annars jákvæðu þróun er sú að ýmsar sviksamlegar og jafnframt flóknari aðferðir hafa komið fram á sjónarsviðið sem skapa áhættu fyrir neytendur og geta dregið úr trausti þeirra á fjármálakerfið. Áður nefndar tillögur eiga að bæta úr þeim hnökrum án þess að hindra þá stafrænu þróun sem er að eiga sér stað til hagsbóta fyrir neytendur.

Tillögurnar eru tvíþættar eins og áður segir og snúa annars vegar að neytendaverndinni og greiðsluþjónustunni sjálfri og hins vegar að upplýsingagjöf milli aðila. Varðandi fyrri þáttinn er um að ræða breytingar á gildandi tilskipun um greiðsluþjónustu (e. Payment Services Directive; PSD2) sem verður PSD3. Auk þess er tillaga að nýrri reglugerð um greiðslumiðlun (e. Payment Services Regulation; PSR). Samanlagt er umræddum breytingum m.a. ætlað að vera vörn gegn sviksamlegum millifærslum, bæta neytendavernd, jafna samkeppnisstöðu milli banka og annarra greiðslumiðlara, bæta aðgengi viðskiptavina að eigin upplýsingum, bæta aðgengi að seðlum og mynt, bæði í verslunum og hraðbönkum og samræma þær reglur sem gilda um greiðslumiðlun, bæði varðandi framkvæmd og viðurlög. Nái þessar tillögur fram að ganga ættu neytendur að vera nokkuð öruggir þegar um er að ræða stafrænar greiðslur og millifærslur bæði innanlands og á milli landa, hvort heldur er í evrum eða annarri mynt. Jafnframt ættu þær að leiða til aukins framboðs fjármálamarkaðarins á hvers konar greiðsluþjónustu. Tengsl eru á milli þessara tillagna og fyrirliggjandi tillögu um tafalausar millifærslur í evrum, sbr. umfjöllun um þá tillögu í Vaktinni 9. júní sl.

Seinni þátturinn snýr að aðgengi að upplýsingum viðskiptavina og samnýtingu þeirra, Þar er um ræða tillögu að nýrri reglugerð um aðgang að fjármálagögnum (e. Framework for Financial Data Access). Þar má nefna aukna möguleika fyrir viðskiptavini (þó ekki skyldu) til að deila upplýsingum á öruggan hátt í leit sinni að nýrri, ódýrari og gagnsærri þjónustu eða verkfærum til að nýta við ákvörðunartöku, og skyldu þeirra sem geyma gögnin, t.d. banka, til að afhenda þau gögn og til að hafa fullkomið vald yfir því hvaða aðilar fái aðgang að gögnunum og í hvaða tilgangi. Jafnframt er að finna í reglugerðinni tillögu að staðlaðri framsetningu á upplýsingum viðskiptavina og tæknilegri útfærslu hennar (e. technical interfaces) sem og ákvæði um ábyrgð þegar um er að ræða brot á reglum um gögn og í hvaða ferli slík brot fara (e. dispute resolution mechanisms). Markmiðið er að hvetja til framboðs á nýstárlegum fjármálaafurðum og þjónustu fyrir notendur og um leið að efla samkeppni á fjármálamarkaði. Með því ætti persónuleg þjónusta við neytendur að batna, bæði þegar kemur að fjármálaumsýslu og ráðgjöf. Í því samhengi er m.a. bent á sjálfvirka afgreiðslu á umsóknum um veðlán. Smærri fyrirtæki ættu sérstaklega að njóta góðs af þessum breytingum.

Tillagan um aðgang að fjármálaupplýsingum er liður í stefnumótun ESB um stafvæðingu fjármálamarkaðarins (e. Digital Finance Strategy) frá árinu 2020 og í raun óaðskiljanlegur hluti af stefnumótun ESB á sviði gagna (e. European data strategy), en undir þá stefnu fellur meðal annars tillaga að reglugerð um gögn (e. Data Act) sem sérstaklega er fjallað hér að neðan í Vaktinni.

Tillögurnar ganga nú til umfjöllunar á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Reglugerð um gögn

Framkvæmdastjórn ESB, Evrópuþingið og ráðherraráð ESB komust hinn 28. júní sl. að samkomulagi um efni nýrrar reglugerðar um notkun stafrænna gagna og aðgang að þeim (e. Data Act). Með reglugerðinni er komið á fót lagaramma um stafræn gögn og miðlun þeirra innan ESB.

Reglurnar fela m.a. í sér að notendur nettengdra tækja geti fengið aðgang að gögnum sem verða til við notkun þeirra. Þá verður notendum heimilt að stýra hvaða þriðju aðilar fái aðgang að umræddum gögnum. Þá er í reglunum tryggður réttur notenda til að ákveða sjálfir hvar þeir geyma gögn sín og til að skipta um hýsingaraðila ef þeir svo kjósa.

Reglugerðin gerir ráð fyrir að réttmæt stjórnvöld og opinberir aðilar geti átt rétt til aðgangs að gögnum hjá einkaaðilum í undantekningar- eða neyðartilvikum, til dæmis þegar neyðar- eða almannavarnaástand skapast og ekki er hægt að nálgast nauðsynleg gögn með öðrum hætti.

Tillaga að reglugerðinni var lögð fram í febrúar 2022, sbr. umfjöllun um málið í Vaktinni 4. mars sl. Reglugerðin er viðbót við aðra reglugerð ESB um gagnastjórnun (e. Data Governance Act) sem kynnt var 2020 og tók gildi 2022. Eru þær báðar hluti af stafrænni áætlun ESB er lýtur að stafrænum gögnum og vinnslu þeirra.

Reglugerðin bíður nú formlegs samþykkis á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við samkomulagið og er gert ráð fyrir að hún komi til framkvæmda rúmum 20 mánuðum eftir að hún he,fur verið birt í Stjórnartíðindum ESB.

Málsmeðferðarreglur um samvinnu evrópskra persónuverndarstofnana

Þann 4. júlí sl. lagði framkvæmdastjórn ESB fram tillögu að nýrri reglugerð sem hefur það markmið að straumlínulaga samvinnu persónuverndarstofnana (DPAs) er kemur að beitingu persónuverndarreglugerðarinnar (GDPR) þvert á landamæri aðildarríkjanna.

Með tillögunni eru lagðar til málsmeðferðarreglur fyrir persónuverndarstofnanir er kemur að beitingu GDPR vegna vinnslu upplýsinga um einstaklinga þvert á landamæri. Reglugerðin kveður m.a. á um skyldu þeirrar stofnunar sem ber meginábyrgð á málsmeðferð að senda viðkomandi stofnun í öðru ríki yfirlit yfir helstu álitaefni sem uppi eru í tengslum við yfirstandandi rannsókn og veita þeim þar með tækifæri til að koma að athugasemdum á rannsóknarstigi máls. Markmiðið er þannig að draga úr líkum á ágreiningi og tryggja ríkari samstöðu á meðal persónuverndarstofnana. Er kemur að einstaklingnum sjálfum er reglunum ætlað að skýra nánar hvaða gögn þeim er nauðsynlegt að leggja fram með kvörtun og að tryggja að viðkomandi sé vel upplýstur um gang máls á öllum stigum þess. Er kemur að fyrirtækjum munu nýju reglurnar jafnframt skýra stöðu þeirra og aðkomu að málum þegar yfirvöld rannsaka meint brot þeirra á persónuverndarreglum. Um leið og það er markmið reglugerðarinnar að auka réttaröryggi einstaklinga og fyrirtækja hafa tillögurnar einnig það markmið að hraða úrlausn mála.

Tillagan gengur nú til meðferðar á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

23. júní 2023 | Áherslur Spánverja og ný efnahagsöryggisáætlun Evrópusambandsins |
Að þessu sinni er fjallað um:

helstu áherslumál Spánverja fyrir komandi formennskutíð í ráðherraráði Evrópusambandsins (ESB)

efnahagsöryggisáætlun ESB

sjálfbæra fjármögnun og grænar fjárfestingar

nýjan tækniþróunarvettvang ESB

stjórnsýslu jafnréttismála

bætt vinnuskilyrði starfsmanna sem sinna störfum með milligöngu stafrænna vettvanga

eflingu félagslega hagkerfisins

kolefnisjöfnunargjald við landamæri (CBAM)

reglugerð um rafhlöður

vistvæna framleiðslu snjalltækja

tvíhliða samning milli Bretlands og Noregs um makrílkvóta fyrir árið 2023

Áherslumál Spánverja

Spánverjar taka við formennsku í ráðherraráði ESB 1. júlí nk. en þá lýkur formennskutíð Svía í ráðinu. Formennska í ráðinu gengur á milli aðildarríkja samkvæmt fyrirfram ákveðinni röð og er formennskutímabilið sex mánuðir. Stendur formennskutímabil Spánverja samkvæmt því frá 1. júlí – 31. desember 2023 en þá munu Belgar taka við formennskukeflinu en þar á eftir gerir gildandi ákvörðun ráðherraráðs ESB ráð fyrir að Ungverjar taki við formennskunni og þar á eftir Pólverjar.

Hlutverk formennskuríkis á hverjum tíma er að leiða starf og stjórna fundum í öllum deildum ráðherraráðs ESB. Þá stýrir formennskuríkið einnig samningaviðræðum fyrir hönd ráðsins við Evrópuþingið og framkvæmdastjórn ESB í þríhliðaviðræðum um löggjafarmálefni og önnur málefni. Umtalsvert áhrifavald fylgir formennskunni á hverjum tíma enda geta áherslur formennskuríkis haft mikið um það að segja hvort tiltekin mál fái framgang eða ekki.

Spánn hefur enn sem komið er ekki birt starfsáætlun sína fyrir formennskutímabilið. Á hinn bóginn hefur formennskuríkið, tilvonandi, birt stutt yfirlit yfir helstu áherslumál sem það hyggst leggja áherslu á í formennskutíð sinni og er áherslumálunum skipt í fjóra efnisflokka, en þeir eru:

Ný iðnvæðing á vettvangi ESB og varðveisla á sjálfræði og sjálfstæði ESB til aðgerða (e. Reindustrialise the EU and ensure ist open strategic autonomy)

Græn umskipti og aðlögun að breyttum umhverfisaðstæðum.

Aukið félagslegt og efnahagslegt réttlæti.

Aukin evrópsk samheldni.

Ný iðnvæðing á vettvangi ESB og varðveisla á sjálfræði og sjálfstæði ESB til aðgerða

Í áherslumáli þessu birtist skýrlega það fráhvarf frá alþjóðavæðingu sem hefur verið að þróast innan ESB frá því að kórónuveirufaraldurinn skall á og síðan með auknum þunga eftir að árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu hófst. Er það mat Spánverja að enda þótt hnattvæðing og opin og frjáls heimsviðskipti hafi löngum verið meginþemað í alþjóðapólitík ESB á viðskiptasviðinu og að sú stefna hafi átt sinn þátt í þeim hagvexti og félagslegri velferð sem tekist hefur að skapa í álfunni þá hafi báðir framangreindir atburðir afhjúpað tiltekna veikleika í efnahagslegu öryggi ESB, í framleiðslu- og aðfangakerfi ESB og á mikilvægum sviðum eins og orkuframleiðslu, aðgengi að lækningavörum, stafrænni tækni, matvælaframleiðslu o.fl. með þeim hætti að bregðast verði við. Er það jafnframt mat Spánverja að þær aðstæður sem nú eru uppi gefi tækifæri til að snúa þessari þróun við og laða að ný fyrirtæki og störf til ESB og varðveita þannig sjálfræði og sjálfstæði ESB til aðgerða.

Til að ná framangreindum markmiðum hyggst spænska formennskan leggja áherslu á tvennt. Annars vegar á framgang þeirra mála sem eru fyrirliggjandi og ætlað er að stuðla að uppbyggingu mikilvægs iðnaðar og öruggra aðfangakeðja og má ætla að þar sé meðal annars vísað til framkvæmdaáætlunar Græna sáttmálans (e. Green Deal Industrial plan) og þau mál sem þar eru undir, sbr. m.a. umfjöllun í Vaktinni 24. mars sl. Hins vegar hyggst spænska formennskan beita sér fyrir framsýnni alhliða alþjóðastefnu til að tryggja efnahagslegt öryggi ESB og sjálfræði og sjálfstæði sambandsins og viðhalda alþjóðlegri forystu ESB á sviði viðskiptamála. Vísa Spánverjar í þessu sambandi til yfirlýsingar sem samþykkt var af leiðtogum allra aðildarríkja ESB í Versölum 10. og 11. mars 2022 í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu.

Rímar framangreint áherslumál spænsku formennskunnar vel við nýframkomið stefnuskjal framkvæmdastjórnar ESB og utanríkisþjónustu ESB um efnahagsöryggisáætlun ESB sem fjallað er um hér að neðan í Vaktinni.

Græn umskipti og aðlögun að breyttum umhverfisaðstæðum

Í áhersluyfirliti Spánverja kemur fram að það sé ekki aðeins lagaleg og siðferðileg skylda ESB að sporna gegn loftslagsbreytingum og umhverfisspjöllum af þeirra völdum heldur felast mikil tækifæri í grænu umskiptunum sem m.a. geta aukið sjálfstæði ESB í orkumálum m.a. til að lækka raforkureikninga, auka samkeppnishæfni og fjölga störfum.

Spænska formennskan leggur áherslu á að hraða þessum umskiptum, svo sem með því að greiða fyrir umbótum á raforkumarkaði, með því að flýta fyrir útbreiðslu endurnýjanlegrar orku, lækkun raforkuverðs og auknum stöðugleika raforkuframleiðslukerfisins. Þannig hyggst formennskan gera sitt til að flýta framgangi löggjafartillagna sem tengjast „Fit for 55“ aðgerðapakkanum. Enn fremur hyggst Spánn stuðla að aðgerðum og framgangi tillagna til að draga úr mengun vegna úrgangs og örplasts, vistvænni hönnun á sjálfbærum vörum og framleiðslu á grænu eldsneyti. Mun Spánn beita sér fyrir því að ESB viðhaldi stöðu sinni sem leiðandi afl í baráttunni gegn loftslagsbreytingum.

Aukið félagslegt og efnahagslegt réttlæti

Spænska formennskan leggur áherslu á nauðsyn þess að tryggja að framtíðarauður og aukin landsframleiðsla komi öllum borgurum ESB til góða og verði til þess að bæta möguleika þeirra og lífskjör með jöfnum hætti með það markmið að skapa samkeppnishæft hagkerfi en líka réttlátt og umhyggjusamt samfélag.

Í þessu skyni hyggst spænska formennskan beita sér fyrir því að settar verði reglur um lágmarksskattlagningu eða viðmið við skattlagningu fyrirtækja í öllum aðildarríkjunum og að barist verði gegn skattsvikum stórra fjölþjóðafyrirtækja, sem talið er að kosti aðildarríki ESB gríðarmiklar fjárhæðir á hverju ári. Spánverjar hyggjast einnig vinna að endurskoðun reglna um langtímafjárhagsáætlun ESB og að fullnægjandi umbætur verði gerðar á fjárlagareglum og fjármálareglum með það að markmiði m.a. að skapa nauðsynlegt svigrúm fyrir fjármögnun grænna og stafrænna umbreytinga sem nauðsynlegar eru. Loks hyggst spænska formennskan beita sér fyrir því að réttindi starfsmanna verði rýmkuð á ýmsum sviðum og einnig réttindi viðkvæmra hópa eins og fatlaðs fólks, barna og kvenna sem verða fyrir ofbeldi.

Aukin evrópsk samheldni

Spánverjar leggja áherslu á mikilvægi aukinnar samheldni innan ESB á þeim óvissutímum sem nú eru.

Til að stuðla að þessu hyggst spænska formennskan beita sér fyrir aukinni samþættingu á innri markaði ESB, m.a. á sviði banka- og fjármálamarkaða (e. banking union and the capital markets union) og að yfirstandandi endurskoðun regluverks á því sviði verði lokið, sbr. m.a. til hliðsjónar umfjöllun um endurskoðun á lagaumhverfi evrópskra viðskiptabanka í Vaktinni 21. apríl sl. Þá er lögð áhersla á endurskoðun á sameiginlegum úrræðum eins og „NextGenerationEU-áætlunni“, skilvirkari og samræmdari stjórnun í málefnum farands- og flóttafólks og samræmdan stuðning við Úkraínu m.a. Loks hyggst spænska formennskan í þessu skyni vinna að því að styrkja hin samevrópsku gildi og sjálfsmynd.

Efnahagsöryggisáætlun ESB

Framkvæmdastjórn ESB og utanríkismálaþjónusta ESB birti í vikunni sameiginlegt stefnuskjal um efnahagsöryggisáætlun ESB (e. European economic security strategy).

Í skjalinu er sett fram áætlun um það hvernig lágmarka megi þá efnahagslegu áhættu sem getur falist í alþjóðlegum viðskiptasamböndum á mikilvægum sviðum í ljósi þeirrar auknu spennu sem byggst hefur upp á alþjóðavettvangi að undanförnu og um leið og leitast er við að hraða mikilvægum tæknibreytingum og varðveita að því marki sem unnt er talið, hið opna og frjálsa markaðshagkerfi. Spilar stefnuskjalið og tilgreindar bakgrunnsástæður þess vel saman við eina af megináherslum spænsku formennskunnar, tilvonandi, sem kynntar hafa verið, sbr. sérstaka umfjöllun hér að framan í Vaktinni.

Lögð er áhersla á að við töku ákvarðana á þessu sviði verði gætt meðalhófs og að ákvarðanir séu hnitmiðaðar og nægjanlegar með tilliti til efnahagslegs öryggis ESB.

Lagt er til að tekið verði upp heildstætt áhættumat, samkvæmt nánar tilgreindri aðferðarfræði, á fjórum tilgreindum sviðum:

Á sviði aðfangakeðja, þar með talið á sviði afhendingaröryggis raforku.

Á sviði mikilvægra innviða og netöryggis.

Á sviði tækniþekkingar og vernd hennar.

Á sviði er varðar efnahagslegt sjálfræði og sjálfstæði og efnahagslegra þvingana.

Samkvæmt stefnunni er stefnt að því að draga úr áhættum á framangreindum sviðum með þríþættri nálgun:

Með því að efla samkeppnishæfni innri markaðar ESB, styðja við viðnámsþol hagkerfisins og með því að fjárfesta í færni vinnuafls og í rannsóknum og þróun á sviði iðnaðar, tækni og vísinda.

Með því að vernda efnahagslegt öryggi ESB með þeim áætlunum og lagalegu úrræðum sem tiltæk eru á grundvelli meginreglunnar um meðalhóf þannig að forðast megi eins og hægt er möguleg neikvæð hliðaráhrif ákvarðana þeirra ákvarðana sem teknar eru.

Með því að efla og útvíkka samstarf og viðskiptasambönd við þriðju ríki með eins víðtækum hætti og mögulegt er, með frekari þróun og frágangi milliríkja samninga á sviði viðskipta auk þess að styðja við viðurkennt alþjóðastarf og alþjóðastofnanir eins og Alþjóðaviðskiptastofnunina (e. World Trade Organization).

Þá eru jafnframt kynntar tilteknar aðgerðir sem ætlað er að styðja við framangreint, þar á meðal:

aðferðarfræði við áhættumat,

skipulagt samráðsferli við einkageirann,

endurskipulagning á stuðningskerfi við tækniþróun og nýsköpun og nýjan tækniþróunarvettvang á því sviði, sbr. sérstaka umfjöllun um þá tillögu hér að neðan í Vaktinni,

endurskoðun reglugerðar um eftirlit með erlendum fjárfestingum,

betri innleiðingu reglugerðar um útflutningseftirlit,

rannsókn á öryggisáhættum sem stafað geta af fjárfestingum evrópskra fyrirtækja utan ESB og útflutning á starfsemi,

ráðstafanir til að verja rannsóknarfyrirtæki og rannsóknarniðurstöður þeirra fyrir misnotkun sem geta m.a. skaðað efnahagslegt öryggi,

markvissari notkun úrræða á grundvelli sameiginlegrar utanríkis- og öryggisstefnu ESB,

að utanríkisþjónustu ESB verði falið að greina sérstaklega mögulegar ógnir við efnahagslegt öryggi ESB,

að tryggt verði að sjónarmið um efnahagslegt öryggi ESB sé samþætt í allri stefnumörkun ESB gagnvart þriðju löndum.

Er orðsendingunni ætlað að leggja grunn að stefnumótandi umræðu innan aðildarríkja ESB og á vettvangi ráðherraráðs ESB og Evrópuþingsins um hvernig best verði staðið að því að vernda efnahagslegt öryggi ESB á þeim ólgutímum sem uppi eru. Er jafnframt ráðgert að stefnuskjalið komi til umræðu á fundi leiðtogaráðs ESB í Brussel í næstu viku, 29. – 30. júní.

Nýr aðgerðarpakki um sjálfbæra fjármögnun og grænar fjárfestingar

Þann 13. júní sl. kynnti framkvæmdastjórn ESB nýjar tillögur og stefnumótun til að styrkja enn frekar gildandi lagaramma sem ætlað er að stuðla að sjálfbæri fjármögnun og grænum fjárfestingum (e. sustainable finance) í aðildarríkjum ESB.

Unnið hefur verið að mótun lagaramma um sjálfbæra fjármögnun og grænar fjárfestingar um nokkurt skeið en móðurreglugerðin um flokkunarkerfi grænna fjárfestinga eftir einstökum atvinnugreinum var samþykkt árið 2020. Undanfari þeirrar reglugerðar var reglugerð frá árinu 2019 um upplýsingagjöf fyrirtækja á sviði fjármálaþjónustu um fjármögnun á grænum fjárfestingum í ársreikningum sínum. Hafa þessar reglugerðir þegar verið teknar upp í EES-samninginn. Er þessi lagaumgjörð, ásamt afleiddum reglugerðum, talin veigamikil forsenda þess að markmið Græna sáttmála ESB (e. European Green Deal) og „Fit for 55“ aðgerðaráætlunarinar geti raungerst fyrir árið 2055.

Í pakkanum nú kennir ýmissa grasa. Í fyrsta lagi eru þar kynntar breytingar á afleiddri gerð sem ber enska heitið „EU Taxonomy Climate Delegated Act“. Er þar lagt til að bætt verði við fjórum skilgreindum umhverfismælikvörðum er nota ber þegar lagt er mat á sjálfbærni fjárfestingakosta þ.e.:

Verndun vatns- og sjávarauðlinda og til sjálfbær nýting þeirra.

Umskipti yfir í hringrásarhagkerfið.

Mengunarvarnir og eftirlit.

Varðveisla og endurheimt vistkerfa og líffræðilegs fjölbreytileika.

Áður höfðu tveir umhverfismælikvarðar verið samþykktir, þ.e.:

Aðgerðir til að draga úr loftlagsbreytingum.

Aðlögun að loftlagsbreytingum.

Þessir mælikvarðar eru hryggjarstykki móðurreglugerðarinnar um flokkunarkerfi sjálfbærra fjárfestinga. Jafnframt leggur framkvæmdastjórnin til að gildissvið flokkunarkerfisins verði víkkað út einkum er kemur að iðnaði og samgöngum. Í öðru lagi eru lagðar til breytingar á „EU Taxonomy Disclosures Delegated Act“, en þær eru nauðsynlegar vegna útvíkkunar á gildissviði flokkunarkerfisins.

Þá er í pakkanum einnig að finna tillögu að nýrri reglugerð til Evrópuþingsins og ráðsins um viðurkennda ESG matsaðila (e. rating providers), en ESG stendur fyrir „Environmental, Social and Governance“. Er þessum matsaðilum ætlað að vera til halds og trausts þegar kemur að upplýsinggjöf til fjárfesta og fjármálastofnana, til dæmis við mótun fjárfestingastefnu og gerð áhættumats með tilliti til þessara þriggja þátta. Matsaðilarnir þurfa að vera óháðir viðskiptavinum sínum, einkum með tilliti til mögulegra hagsmunaárekstra. Er það mat framkvæmdastjórnarinnar að nauðsynlegt sé að sett sé sérstök reglugerð um þessa starfstétt eða fyrirtæki sem bjóða upp á slíka þjónustu til að tryggja traust og gagnsæi gagnvart viðskiptavinunum. Jafnframt er lagt til að Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin (e. European Securities and Market Authority - ESMA) annist leyfisveitingu til þessara aðila og hafi með þeim eftirlit í því skyni að tryggja gæði og áreiðanleika þjónustunar til að vernda fjárfesta og tryggja samræmt mat á þessu sviði á fjármálamarkaði ESB. Hefur framangreind reglugerðartillaga jafnframt verið birt í samráðsgátt ESB og er umsagnarfrestur til 17. ágúst nk.

Leiðbeiningar um notkun flokkunarkerfisins. Í kynningu framkvæmdastjórnarinnar er ekki aðeins að finna tillögur að nýjum eða breyttum reglugerðum heldur einnig upplýsingar og svör við helstu spurningum hagaðila sem hafa vaknað við innleiðingu regluverksins og framkvæmd þess. Vaxandi áhugi virðist vera hjá meðalstórum og stórum fyrirtækjum, sem ekki sinna fjármálaþjónustu, að nota flokkunarkerfið við ársreikningagerð sína enda þótt þau séu ekki skyldug til þess. Skýrist þetta vafalaust af auknum áhuga fjárfesta almennt á grænum fjárfestingum. Kalla fyrirtæki mjög eftir leiðbeiningum um aðferðir og framkvæmd. Framkvæmdastjórnin hefur að þessu tilefni gefið út notkunarleiðbeiningar um flokkunarkerfið. Er þar líka að finna ýmis praktísk dæmi og leiðbeiningar til fyrirtækja og er þar ekki síst horft til lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem ljóst er að geta átt erfiðaðar með að tileinka sér aðferðarfræðina vegna smæðar sinnar. Aukinn rekstrarkostnaður mun óhjákvæmilega fylgja innleiðingu á sjálfbærniregluverki fjárfestinga og fjármögnunar sem kann einnig að vera hindrun fyrir smærri aðila.

Framangreindur aðgerðarpakki mun nú koma til umræðu í Evrópuþingsins og ráðherraráði ESB. Fyrir liggur að kapp er lagt á að ljúka málinu fyrir lok ársins en ráðgert er að gerðirnar sem um ræðir taki gildi í janúar 2024. Regluverkið um sjálfbæra fjármögnun er eitt af áherslumálum núverandi framkvæmdastjórnar ESB en eins og kunnugt er verða kosningar til Evrópuþingsins á næsta ári og þá líkur jafnframt skipunartímabili núverandi framkvæmdastjórnar.

Nýr tækniþróunarvettvangur ESB

Framkvæmdastjórn ESB kynnti í vikunni tillögu að reglugerð um nýjan tækniþróunarvettvang (e. Strategic Technologies for Europe Platform - STEP). Felur tillagan í sér tiltekna endurskoðun á regluverki samstarfsáætlana- og samkeppnissjóðakerfis ESB og er tillagan viðbragð ESB við þeirri ríku þörf sem nú er uppi til að efla tækniþróun og auka fjárfestingar í mikilvægum tæknigreinum í Evrópu. Tillagan felur í sér að hinn nýji vettvangur, STEP, muni annars tiltekið utanumhald á grunni núverandi samstarfsáætlana- og sjóðakerfis ESB.

STEP er ætlað að veita öflugri stuðning við þróun og framleiðslu nýrrar tækni sem talin er mikilvægt fyrir græn og stafræn umskipti, efnahagslegt öryggi ESB og sjálfræði og sjálfstæði ESB til aðgerða.

Með STEP er gert ráð fyrir að framkvæmd núverandi samstarfsáætlana verði sveiganlegri og að í stað þess að búa til nýja sjóði þegar ný viðfangsefni koma upp sem getur verið tímafrekt verði unnt að nýta þær áætlanir sem fyrir eru s.s. Horizon Europe. Þá er gert ráð fyrir því að með STEP verði afgreiðsla umsókna og veiting styrkja til mikilvægra verkefna greiðari en áður.

Til að ná markmiðum um aukna fjárfestingu í nýrri mikilvægri tækni er gerð tillaga, í tengslum við fjárlagatillögur ESB fyrir árið 2024, um að fjármögnun tiltekinna áætlana verði aukin um samtals 10 milljarða evra, og er ráðgert að sú viðbótar fjármögnun skiptist með eftirfarandi hætti:

3 milljarðar til „InvestEU“,

0,5 milljarðar til „Horizon Europe“,

5 milljarðar til „Innovation Fund“,

1,5 milljarðar til „European Defence Fund“.

Eins og jafnan þá hafa fjárveitingar til samkeppnissjóða margföldunaráhrif er kemur að fjárfestingum, vegna krafna sem gerðar eru um mótframlög af hálfu fjárfesta. Sé litið til áhrifa af auknum framlögum til „InvestEU“ sem Ísland hefur nýlega samið um þátttöku í, sbr. umfjöllun í Vaktinni 9. júní sl., er talið að viðbótarfjármögun þar geti beint eða óbeint leitt til nýrra fjárfestinga að verðmæti allt að 75 milljarðar evra.

Ísland er þátttakandi í fjölmörgum samstarfsáætlunum ESB og hefur reynslan af þátttöku verið góð og haft afar jákvæð áhrif til eflingar á vísinda- og nýsköpunarstarfi á Íslandi, sbr. m.a. umfjöllun í Vaktinni 9. júní sl. um styrk sem nýverið rann til íslenska verkefnisins um LIFE áætlun ESB. Nái tillögur um auknar fjárveitingar til InvestEU og Horizon Europe fram að ganga, en Ísland er þátttakandi í báðum þeim áætlunum, mun það að líkindum hafa áhrif til hækkunar á greiðsluþátttöku Íslands til viðkomandi sjóða.

Endurskoðun og endurskipulagning á samstarfsáætlana- og sjóðakerfi ESB var meðal þeirra verkefna sem boðuð voru í framkvæmdaáætlun Græna Sáttmálans (e. Green Deal Industrial Plan for the Net-Zero Age), sbr. m.a. umfjallanir í Vaktinni 10. febrúar sl. og 24. mars sl., og felur framangreind tillaga í sér eftirfylgni með þeim þætti þeirrar áætlunar meðal annars.

Tillagan gengur nú til Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB til umfjöllunar.

Stjórnsýsla jafnréttismála

Í desember sl. kynnti framkvæmdastjórn ESB tillögur að tveimur nýjum tilskipunum  sem ætlað er að setja skýrari ramma um stöðu, hlutverk og valdsvið jafnréttisstofnana (e. Equality bodies) sem starfrækja ber í aðildarríkjum ESB. Samkvæmt núgildandi tilskipunum ESB á sviði jafnréttismála þá er sérhverju aðildarríki skylt að starfrækja stofnun sem hafi það hlutverk að berjast gegn mismunun svo sem á grundvelli kyns, kynþáttar og þjóðernisuppruna. Ákvæði um stöðu, hlutverk og valdheimildir þessara stofnana hafa hins vegar verið almenns eðlis og hefur framkvæmdin í aðildarríkjunum verið mismunandi sem og metnaður ríkjanna til að tryggja þessum stofnunum fullnægjandi starfsgrundvöll með fullnægjandi fjárveitingum og nægjanlegu sjálfstæði. Er nýrri tilskipun ætlað að samræma og styrkja starfsgrundvöll þessara stofnana þannig að þær verði betur í stakk búnar til að sinna því hlutverki sem þeim er ætlað.

Í þessu skyni eru lagt til að settar verði bindandi reglur m.a. um:

Aukið valdsvið, þ.e. að valdsvið jafnréttisstofnana verði víkkað út þannig að það taki jafnframt til framkvæmdar tveggja gildandi tilskipana, þ.e. tilskipunar um bann við mismunun á vinnumarkaði og hins vegar tilskipunar um bann við mismunun kynjanna í almannatryggingakerfum.

Sjálfstæði, þ.e. að gerð verður krafa um að jafnréttisstofnanir hafi stöðu sjálfstæðra stofnana í stjórnkerfi aðildarríkjanna bæði er varðar framkvæmd laga sem undir þær falla og rekstrarlega þætti.

Fullnægjandi fjárheimildir, þ.e. að jafnréttisstofnunum séu tryggðar fullnægjandi fjárheimildir til að sinna hlutverki sínu.

Jafnt aðgengi, þ.e. að tryggt sé að þjónusta jafnréttisstofnana sé aðgengileg ólíkum hópum fólks með jöfnum hætti, svo sem fötluðu fólki, og að þjónustan sé án endurgjalds.

Samráðsskyldu, þ.e. að opinberum aðilum beri skylda til að hafa samráð við og leita álits jafnréttisstofnunar þegar stefnumótun af þeirra hálfu, eftir atvikum í formi laga- og reglusetningar, tengist jafnréttismálum.

Auknar valdheimildir, þ.e. að jafnréttisstofnanir fái auknar heimildir til að rannsaka meinta mismunun og til að gefa út álit eða eftir atvikum bindandi ákvarðanir í slíkum málum, og jafnframt að þær geti haft stöðu málsaðila í slíkum málum fyrir dómi.

Vitundarvakningu, þ.e. að aðildarríki og jafnréttisstofnanir skuli leitast við að auka vitund um mikilvægi jafnréttis og þess að draga úr mismunun.

Upplýsingamiðlun, þ.e. að jafnréttisstofnanir skuli reglulega gefa út skýrslur um stöðu jafnréttismála og hafi stöðu til þess að gera tillögur um úrbætur þar sem tilefni þykir til.

Þá er í tillögunum kveðið á um að tekið verði upp reglulegt eftirlit með starfsemi jafnréttisstofnana, þ.e. að jafnréttisstofnanir skuli miðla upplýsingum um starfsemi sína til framkvæmdastjórnar ESB sem gefi á fimm ára fresti út skýrslu um stöðu og starfsemi jafnréttisstofnana í aðildaríkjum ESB.

Þann 12. júní sl. samþykkti ráðherraráð ESB afstöðu til málsins. Er ráðið þar með tilbúið til að hefja samningaviðræður við Evrópuþingið og framkvæmdastjórn ESB um endanlegt efni tilskipunarinnar.

Skýrari rammi og umgjörð um stjórnsýslu jafnréttismála almennt á Íslandi var settur með lögum nr. 151/2020 um stjórnsýslu jafnréttismála. Að ýmsu leyti má segja að sú endurskoðun hafi að nokkru leyti falið í sér svipaða nálgun og nú birtist í framangreindri tillögu. Enda þótt framkomin tillaga falli ekki undir gildissvið EES-samningsins fylgjast íslensk stjórnvöld vel með framgangi þessa máls á vettvangi ESB og er tillagan meðal annars til umræðu í vinnuhópi EFTA um jafnréttis- og fjölskyldumál.

Bætt vinnuskilyrði starfsmanna sem sinna störfum með milligöngu stafrænna vettvanga

Í síðastliðinni viku náðist samkomulag í ráðherraráði ESB um afstöðu til fyrirliggjandi tillögu framkvæmdastjórnar ESB að tilskipun um bætt vinnuskilyrði fyrir starfsmenn sem sinna margvíslegum störfum með milligöngu stafrænna vettvangfyrirtækja (e. Platform Workers). Þessi tegund atvinnu verður sífellt stærri hluti vinnumarkaðarins í Evrópu. Þekktast slíkra fyrirtækja er án efa Uber leigubifreiða- og sendlaþjónustan, sem nýlega hefur rutt sér til rúms á Íslandi. Starfsemi fyrirtækja af þessu tagi nær yfir mörg önnur þjónustusvið svo sem þýðingar, forritun auk ýmissa annarra verkefna. Er talið að nú sinni um 28 milljónir Evrópubúa vinnu í gegnum slíka rafræna vettvanga og gert er ráð fyrir því að á árinu 2025 verði sú tala komin í 43 milljónir manna. Hingað til að hafa þeir sem sinna slíkri vinnu að jafnaði verið skráðir sem sjálfstæðir verktakar en ekki starfsmenn þess fyrirtækis sem heldur úti hinum stafræna vettvangi og þykir sú staða að ýmsu leyti hafa rýrt vinnuskilyrði og réttarvernd þessara starfsmanna. Dómaframkvæmd í Evrópu hefur verið nokkuð misvísandi þar sem reynt hefur á réttmæti þessa og gaf það framkvæmdastjórninni m.a. tilefni til að leggja fram framagreinda tillögu um sameiginlegt evrópskt regluverk á þessu sviði.

Framkvæmdastjórnin lagði fram tillögu að gerðinni í desember 2021 og hefur efni hennar farið allhátt í umræðu á vettvangi ESB, ekki síst í kjölfar uppljóstrana um framferði stjórnenda Uber og um slæman aðbúnað starfsmanna þar. Félags- og atvinnumálanefnd Evrópuþingsins hefur einnig samþykkt nefndarálit um afstöðu til tillögunnar og bíður hún afgreiðslu þingsins en þar er m.a. kallað eftir því að gerð verði aukin krafa til gagnsæis algrímis (e. algorithm) sem notaðir eru í starfrækslu hinna stafrænu vettvanga.

Megintilgangurinn með tillögunni er að skýra réttarstöðu og bæta starfskjör og vinnuaðstæður þeirra sem sinna störfum með milligöngu stafrænna vettvangsfyrirtækja hvort sem þeir teljast starfsmenn viðkomandi fyrirtækis eða sjálfstæðir verktakar og tryggja að þeir geti notið félagslegrar verndar, svo sem launa í veikindaleyfum, atvinnuleysistrygginga, fæðingarorlofs o.fl. eftir því sem við á. Þá er markmiðið að tryggja sanngirni og gagnsæi við notkun algríms sem nýttir eru við skipulag vinnunnar á hinum stafræna vettvangi m.a. við úthlutun verkefna auk þess að bæta upplýsingastreymi og gagnsæi við meðferð upplýsinga. Í tillögunni eru sett fram sjö viðmið er nota skal við mat á því hvort tiltekin starfsmaður telst starfsmaður viðkomandi fyrirtækis eða sjálfstæður verktaki. Uppfylli starfsmaður þrjú af þessum viðmiðum, verði litið svo á að hann sé starfsmaður viðkomandi fyrirtækis og skuli njóta réttarstöðu sem slíkur, nema rekstraraðili geti sýnt fram á annað.

Viðmiðin snúa meðal annars að því hvernig endurgjaldi fyrir vinnuna er háttað, hvort takmarkanir séu á heimildum til að afþakka verkefni og reglum sem gilda um útlit og framkomu starfsmanna.

Nokkuð erfiðlega hefur gengið að ná samkomulagi í ráðherraráði ESB um afstöðu til gerðarinnar. Það sem helst hefur steytt á er skilgreining á því hvenær starfsmannasamband telst vera komið á. Þannig reyndu Tékkar, í formennskutíð sinni, til þrautar að ná samkomulagi í desember sl. en án árangurs. Svíar hafa jafnframt lagt mikla áherslu á að ná niðurstöðu innan ráðsins um afstöðu til málsins sem hefur nú tekist eins og framan greinir.

Þegar Evrópuþingið hefur formlega samþykkt afstöðu til málsins geta þríhliðaviðræður ráðherraráðs ESB, þingsins og framkvæmdastjórnar ESB hafist og verður áhugavert að fylgjast með þeim ekki síst þar sem fyrir liggur að ekki er fullur einhugur um efni gerðarinnar meðal aðildarríkjanna þrátt fyrir að ekkert þeirra hafi greitt atkvæði gegn henni í ráðinu. Tuttugu og tvö ríki greiddu atkvæði með þeirri afstöðu sem nú liggur fyrir en fjögur ríki sátu hjá, þ.e. Þýskaland, Grikkland, Eistland og Lettland. Þá skiluðu nokkur ríki, sem greitt höfðu atkvæði með gerðinni, sameiginlegri yfirlýsingu þar sem fram kemur að vilji þeirra standi til að ganga lengra í réttarvernd starfsmanna.

Samtök Evrópskra verkalýðsfélaga hafa lýst yfir óánægju með að ekki sé í tillögunni gengið lengra til verndar starfsmönnum og er þar vonast til að henni verði breytt í þríhliða viðræðunum. Þeir benda á að með henni sé þeim sem sinna störfum með milligöngu stafrænna vettvangfyrirtækja hvorki tryggð lágmarkslaun, né félagsleg vernd.

Gerðin er merkt EES tæk af hálfu framkvæmdastjórnar ESB en greining sérfræðinga EES-ríkjanna í því efni liggur ekki fyrir.

Efling félagslega hagkerfisins

Þann 13. júní sl. kynnti framkvæmdastjórn ESB tillögur um að ráðist verði í markvissar aðgerðir á grundvelli aðgerðaráætlunar um félagslega hagkerfið (e. Social economy) sem lögð var fram á árinu 2021. Markmið þeirrar áætlunar var styrkja félagslega hagkerfið og styðja við endurreisn efnahagslífsins í kjölfar kórónuveirufaraldursins. Skilgreining félagslega hagkerfisins er aðeins mismunandi eftir ríkjum en að jafnaði er það talið ná til óhagnaðardrifinna stofnana, utan hins opinbera stofnanakerfis, og félagasamtaka, góðgerðarsamtaka, félagslegra sjóða og fyrirtækja sem starfa í almannaþágu þar sem mögulegum hagnaði af rekstri er varið til góðgerðar- eða umhverfismála.

Í aðgerðaráætluninni voru boðaðar aðgerðir í þremur liðum;

Skapa betri lagaumgjörð og rekstrargrundvöll fyrir félagslega hagkerfið, og eru í því sambandi nefndar skattaívilnanir, hagstæðir útboðsskilmálar og reglur um ríkisaðstoð.

Skapa betri forsendur fyrir stofnun og viðgang félagslegra stofnana og endurmenntun starfsmanna og boðað að settur verði upp upplýsingabrunnur þar sem hægt er að finna allar viðeigandi upplýsingar á einum stað um möguleika á fjármögnun frá ESB auk aðgerða og stefna á þessu sviði.

Gera félagslega hagkerfið meira sýnilegt og auka vitund um verkefni þess og möguleika, einnig hugðist framkvæmdastjórnin safna upplýsingum um starfsemi félagslega hagkerfisins í Evrópu.

Með tillögunum nú er leitast við að hrinda framangreindri stefnumörkun í framkvæmd og skapa hagstæð skilyrði fyrir vöxt og viðgang óhagnaðardrifinna stofnana og vekja athygli á möguleikum þeirra til að skapa gæðastörf og styrkja efnahag aðildarríkjanna. Aðgerðirnar sem lagðar eru til eru eftirfarandi:

Sett er fram tillaga að tilmælum ráðherraráðs ESB til aðildarríkjanna um að setja fram og innleiða stefnur á sviði félagslega hagkerfisins. Talið er að fyrirtæki og stofnanir á þessu sviði geti gegnt lykilhlutverki við að búa til góð störf, stuðla að þjálfun og að auka inngildingu í samfélaginu auk þess sem þau gegna gjarnan lykilhlutverki í umönnunargeiranum og geta þannig stutt við innleiðingu á Evrópsku umönnunarstefnunni (e. Care Strategy) auk þess sem hún er til þess fallin að bæta aðgengi að vinnumarkaði og auka inngildingu (e. Inclusion).

Settur hefur verið upp upplýsingabrunnur, Social Economy gateway, en þar má finna allar upplýsingar um aðgerðaráætlunina um félagslega hagkerfið, aðila sem starfa á því sviði og væntanlega viðburði, auk þess sem gerð er grein fyrir samstarfsáætlunum ESB og möguleikum á fjármögnun verkefna með aðkomu þeirra. Þá hefur verið sett upp gátt þar sem þeir sem hyggjast bjóða í verkefni hjá ESB eða sækja um styrki til verkefna geta haft bein samskipti rafrænt við stofnanir ESB.

Kolefnisjöfnunargjald við landamæri

Í Vaktinni 16. desember sl. var greint frá því að samkomulag hefði náðst í þríhliðaviðræðum Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB um efni tillögu að reglugerð um upptöku á kolefnisjöfnunargjaldi við landamæri, (e. Carbon Border Adjustment Mechanism - CBAM). Hefur reglugerðin nú verið birt í Stjórnartíðindum ESB og mun regluverkið taka gildi í áföngum, fyrst í október nk. og að fullu 1. janúar 2026.

Til að undirbúa gildistökuna hefur framkvæmdastjórn ESB nú birt drög að fyrstu framkvæmdareglugerð CBAM, um upplýsingaskyldu innflutningsaðila á aðlögunartímabilinu sem hefst 1. október nk. og hafa þau drög jafnframt verið birt í samráðsgátt ESB og er umsagnarfrestur til 11. júlí nk.

Markmiðið með gjaldtökunni er að hindra kolefnisleka tiltekinna vara (e. carbon leakage) sem teljast hafa stórt kolefnisspor og framleiddar eru og fluttar inn frá þriðju ríkjum. Með upptöku CBAM er í reynd verið að jafna verð milli samkynja vara, sem annars vegar eru framleiddar innan ESB undir reglum ETS kerfisins um losunarheimildir (e. EU Emissions Trading System), og hins vegar innfluttra vara frá ríkjum utan ESB og EFTA, þar sem ekki er til staðar kolefnislosunarkerfi sambærilegt við ETS.

Innleiðing CBAM í áföngum - vöruflokkar. Í fyrsta áfanga mun löggjöfin einungis ná til sex vöruflokka sem framleiddir eru af kolefnisfrekum iðngreinum þar sem mikil hætta á kolefnisleka er fyrir hendi. Tveir þeirra, þ.e. raforka og vetnisorka, eiga ekki við um Ísland. Vöruflokkarnir eru:

Sement,

Áburður,

Járn og stál,

Ál og álvörur,

Raforka og

Vetnisorka.

Í viðauka I við CBAM reglugerðina má finna upptalningu á þeim tollskrárnúmerum (e. CN codes) sem falla undir hana. Sem fyrr segir hefur reglugerðin þegar tekið gildi og kemur fyrsti áfangi til framkvæmda 1. október nk. og gildir til ársloka 2025. Á því tímabili verður einungis um upplýsingasöfnun að ræða, en gjaldtakan sjálf hefst ekki fyrr en í öðrum áfanga CBAM á árinu 2026. Hefur verið rætt um að á því ári verði gildissvið regluverksins jafnframt víkkað út þannig að inn komi nýir vöruflokkar eins og plast, plastvörur og efnablöndur og síðan í þriðja áfanga, fyrir árið 2034, allir vöruflokkar sem nú falla undir ETS-kerfið. Frá þeim tímapunkti verða ekki lengur veittar gjaldfríar losunarheimildir. Segja má að CBAM sé í raun óaðskiljanlegur hluti af nýju eða breyttu ETS kerfi um sölu loftlagsheimilda.

Upplýsingar um kolefnisinnihald. Frá og með 1. október 2023 verður innflytjendum vara sem falla undir CBAM gert skylt að safna og skrá kolefnisupplýsingar þeirra. Um verður að ræða ársfjórðungslega skýrslugjöf, bæði um beint og óbeint innihald kolefnis í viðkomandi vöru. Í flestum tilvikum verður það framleiðandi vörunnar eða útflytjandi sem veitir innflytjanda umræddar upplýsingar. Þessum upplýsingum verður skilað inn í miðlægan gagnagrunn ESB, sbr. framangreind framkvæmdareglugerðardrög. Staðfesting eða formlegt eftirlit með því að upplýsingarnar séu réttar hefst ekki fyrr en árið 2026, þegar gjaldtakan eða sala á CBAM skírteinum hefst. Þá verður líka tekin upp árleg skýrslugjöf með ítarlegri upplýsingum.

Sala CBAM skírteina. Í ársbyrjun 2026 hefst gjaldtaka CBAM eins og áður var nefnt með sölu á svokölluðum CBAM skírteinum, en verð þeirra ræðst af kolefnisinnihaldi vörunnar sem flutt er inn og því kolefnisverði sem skráð er á Evrópumarkaði á hverjum tíma. Í dag er verðið 90 -100 evrur á hvert tonn af kolefni. Ef upplýsingar um kolefnisinnihald liggja ekki fyrir hafa stjórnvöld heimild til að áætla það með ákveðnu álagi eða viðurlögum. Gert er ráð fyrir að til verði viðurkenndir kolefnismatsaðilar (e. accredited verifiers) og sömuleiðis að innflytjendur CBAM vara (e. CBAM goods declarants) þurfi að afla sér sérstakrar viðurkenningar til að kaupa CBAM skírteinin. Geti innflytjendur fært sönnur á að greitt hafi verið kolefnisgjald af viðkomandi vöru í þriðja ríki skal tekið tillit til þess við ákvörðun CBAM í aðildarríkjum ESB og EFTA.

Framkvæmd CBAM - hagsmunaaðilar. Ljóst er að CBAM kerfið kallar á viðamikið utanumhald með tilheyrandi kostnaði. Þeim kostnaði verður ekki mætt með tekjum af gjaldtökunni fyrr en í fyrsta lagi árið 2026 þegar sala CBAM skírteinanna hefst. Af texta CBAM reglugerðarinnar má ráða að tollyfirvöldum í hverju ríki fyrir sig sé ætlað að annast framkvæmd kerfisins, þ.m.t. sölu CBAM skírteina og upplýsingasöfnun. Í dag eru tollyfirvöld þegar að safna ýmis konar upplýsingum um innfluttar vörur samkvæmt tollskrárnúmerum, auk þess að innheimta hvers kyns aðflutningsgjöld af innflutningi. Með því að fela tollyfirvöldum framkvæmdina að þessu leyti nást fram ákveðin samlegðaráhrif sem draga ætti úr kostnaði við framkvæmdina. Fyrir liggur að hin Norðurlöndin munu fela tollyfirvöldum framkvæmdina og að fjármálaráðherrar þeirra (skattamálaráðherra í Danmörku) munu leggja fram og bera ábyrgð á innleiðingu og framkvæmd regluverksins. Tekjur af sölu skírteinanna mun renna í ríkissjóð í tilviki EFTA ríkjanna.

Verðlagning á kolefni (CO2) samkvæmt CBAM. Þyngdin er sú stærð sem horft er til þegar kolefnisinnihald varanna er metið samkvæmt ákveðinni formúlu sem tilgreind er í viðauka IV með reglugerðinni. Kolefnisverð skráð á Evrópumarkaði á hverjum tíma er hin meginbreyta formúlunnar. Verðmæti innfluttra CBAM vara skiptir þannig engu máli við kolefnisverðlagninguna.

Frumgreining á gildissviði CBAM á Íslandi. Eins og áður hefur komið fram munu CBAM vörur framleiddar eða innfluttar frá aðildarríkjum ESB og EFTA verða undanþegnar gjaldtökunni. Þá er ekki ósennilegt að Bretland falli þar einnig undir a.m.k til framtíðar, en niðurstaða þar um liggur ekki fyrir að svo stöddu. Niðurstaða í því efni getur skipt töluverðu máli fyrir Ísland er kemur að innflutningi á áburði þar sem liðlega 20% af þeim vöruflokki kom frá Bretlandi á árunum 2021 og 2022 svo dæmi sé tekið. Vöruflokkurinn sement vegur þyngst í heildarmagni af innfluttum CBAM vörum. Mikill meirihluti sements kemur frá ríkjum ESB og EFTA og áhrif af CBAM því hverfandi fyrir þann vöruflokk. Af vöruflokknum járn og stál eru um 15% flutt inn frá þriðju ríkjum. Þar vegur þyngst innflutningur frá Kína, Indlandi og Kanada. Innleiðing á CBAM gæti haft þau áhrif að samkeppnisstaða milli umræddra viðskiptasvæða yrði jafnari vegna hærra verðs á innflutningi frá þriðju ríkjum sem er í samræmi við markmið gjaldtökunnar. Svipuð staða er uppi á teningnum þegar kemur að vöruflokknum ál og álvörur eins og með járn og stál, en 24% af innflutningi í þeim vöruflokki kemur frá þriðju ríkjum. Þar er fyrst og fremst um að ræða innflutning frá Kanada. Innleiðing CBAM ætti að minnka verðmuninn milli viðskiptasvæðanna og þar með væri markmiði gjaldtökunnar náð. Ekki er talin ástæða að fjalla um orkuflokkana tvo, þ.e. raforku og vetnisorku, sem falla undir gildissvið CBAM, enda Ísland sjálfbært hvað slíka orku varðar.

Áhrif af innleiðingu CBAM á Íslandi. Miðað við frumgreininguna hér að framan ætti innleiðing CBAM að hafa tiltölulega lítil áhrif á verð innflutnings hér á landi þegar á heildina er litið. Hækkun áburðarverðs ætti að vera hverfandi svo fremi að Bretland verði í hópi undanþeginna ríkja og þar með eru áhrif CBAM á landbúnaðargreinar nánast engin. Áhrif CBAM á sementsverð ættu einnig að vera lítil enda er mikill meirihluti sement fluttur inn frá ríkjum ESB og EFTA. Þar með ætti byggingaiðnaðurinn ekki að verða fyrir miklum áhrifum. Aftur á móti gæti meðalverð á járni, stáli, áli og vörum unnum úr þessum málmum hækkað nokkuð með innleiðingu CBAM með tilheyrandi áhrifum á byggingarkostnað, umbúðaverð og þar með mögulega ýmsar neysluvörur. Skýrt skal tekið fram að hér er einungis um frumgreiningu að ræða og er unnið að frekari greiningu á einstökum vöruflokkum reglugerðarinnar. Þá er líka til skoðunar hvernig formúlan um útreikning á kolefnisinnihaldi er samansett þannig að unnt verði að meta tekjurnar af sölu CBAM skírteina á móti þeim kostnaði sem óhjákvæmilega fylgir framkvæmd regluverksins.

Reglugerð um rafhlöður

Framkvæmdastjórn ESB lagði fram tillögu að nýrri reglugerð um rafhlöður 10. desember 2020.

Hinn 9. desember sl. náðu ráðherraráð ESB, Evrópuþingið og framkvæmdastjórn ESB niðurstöðu í þríhliða viðræðum um efni tillögunar og staðfesti Evrópuþingið þá niðurstöðu í atkvæðagreiðslu 14. júní sl.

Með tillögunni eru í fyrsta skipti settar heilstæðar reglur þar sem tekið er á þáttum er varða framleiðslu, endurnotkun og endurvinnslu rafhlaðna þar sem áhersla er lögð á að rafhlöður séu öruggar, sjálfbærar og samkeppnishæfar

Hin nýja reglugerð mun leysa af hólmi núverandi rafhlöðutilskipun frá 2006 og felur m.a. í viðbót við löggjöf um meðhöndlun úrgangs.

Rafhlöður og sjálfbær framleiðsla þeirra og endurvinnsla er ein af forsendum þess að markmið ESB um núlllosun (e. zero-emission) og kolefnishlutlaust hagkerfi geti náðst. Ljóst er að eftirspurn eftir rafhlöðum mun vaxa mikið og mikilvægt að tryggja að framboð á rafhlöðum sé nægt og að þær séu sjálfbærar í gegnum alla aðfangakeðjuna. Standa vonir til þess að nýju reglurnar muni efla samkeppnishæfni evrópsks iðnaðar og tryggja að rafhlöðum verði safnað og þær endurunnar á réttan hátt þannig að nýtanlegt efni verði endurheimt og eiturefni berist síður út í umhverfið.

Reglugerðin gildir um allar rafhlöður hverju nafni sem þær nefnast og miða kröfurnar að því að stuðla að eflingu hringrásarhagkerfisins.

Í reglugerðinni eru sett fram markmið um söfnun úrgangsrafhlaðna (63% fyrir árslok 2027 og 73% fyrir árslok 2030) og kynnt er til sögunnar sérstakt söfnunarmarkmið fyrir úrgangsrafhlöður frá léttum samgöngutækum (51% fyrir árslok 2028 og 61% fyrir árslok 2031). Þá er sett markmið um að endurnýting lithíums úr úrgangsrafhlöðum nái 50% markinu fyrir árið 2027 og 80% markinu fyrir árið 2031.

Reglugerðin kveður á um lögboðið lágmarksmagn af endurunnu efni sem nota skal í framleiðslu iðnaðarrafhlaðna og í rafgeyma og er í reglugerðinni jafnframt kveðið á um skyldu um að rafhlöðum fylgi upplýsingar um magn endurunninna efna sem notuð voru við framleiðsluna. Þá kveður reglugerðin á um endurvinnslumarkmið fyrir nikkel-kadmíum rafhlöður upp á 80% fyrir árið 2025 og 50%, fyrir sama tímamark, fyrir aðrar úrgangsrafhlöður.

Þá er í reglugerðinni kveðið á um að rafhlöðuknúin tæki séu þannig úr garði gerð að neytendur geti sjálfir skipt um rafhlöður í þeim. Rekstraraðilar fá góðan tíma til að aðlaga hönnun vara sinna að þessari kröfu eða 42 mánuði frá gildistöku reglugerðarinnar.

Vistvæn framleiðsla snjalltækja

Þann 16. júní sl. kynnti framkvæmdastjórn ESB tillögu að nýrri afleiddri reglugerð  sem ætlað er að stuðla að því að neytendur geti með skýrari hætti lagt mat á það við kaup á farsímum og spjaldtölvum að hvaða marki framleiðsla þeirra, orkunýtni og möguleg endurvinnsla sé vistvæn og sjálfbær. Er tillagan lögð fram með heimild í reglugerð ESB um orkumerkingar. Sama dag og tillagan var lögð fram samþykkti Evrópuþingið og ráðið tillögu framkvæmdastjórnar ESB að tilskipun um vistvæna framleiðslu slíka tækja, þ.e. að þau verði orkunýtnari, endingarbetri og auðveldara að gera við þau, sbr. m.a. umfjöllun í Vaktinni 1. apríl 2022.

Framangreindar ráðstafanir er ætlað að styrkja hringrásahagkerfið, spara orku, draga úr kolefnisfótspori og skila neytendum ávinningi.

Samkvæmt reglugerðartillögunni verða m.a. upplýsingar um orkunýtni og endingu rafhlöðu að fylgja snjallsímum og spjaldtölvum sem settar eru á markað, sem og upplýsingar um „viðgerðarhæfni“ þegar vara er sett á markað í fyrsta sinn á EES svæðinu. Þetta mun hjálpa neytendum að taka upplýstari og sjálfbærari ákvarðanir við kaup á þessum vörum og styðja við sjálfbært neyslumunstur.

Tillagan verður nú kynnt Evrópuþingið og ráðherraráði ESB áður en hún verður formlega staðfest af framkvæmdastjórn ESB.

Tvíhliða samningur milli Bretlands og Noregs um makrílkvóta fyrir árið 2023

Strandríki hafa verið í viðræðum, mörg undanfarin ár, um varanlega skiptingu á makrílkvóta úr Norðaustur-Atlantshafsstofninum en án árangurs. Þessi ríki og ríkjasambönd eru auk Íslands, Noregur, ESB, Bretland, Færeyjar og Grænland. Fyrir útgöngu Bretlands úr ESB (BREXIT) samdi ESB fyrir hönd Bretlands með sama hætti og það gerir fyrir hönd annarra aðildarríkja ESB en eftir BREXIT eru bæði ESB og Bretland við samningaborðið og hefur það flækt samningaviðræðurnar enn frekar.

Ríkin hafa þó undanfarin ár fallist á heildarkvóta í makríl samkvæmt tillögu frá Alþjóðahafrannsóknarráðinu (e. International Council for the Exploration of the Sea - ICES) og í desember í fyrra samþykktu ríkin að makrílkvótinn fyrir fiskveiðiárið 2023 skyldi vera 782.066 tonn. Ríkin hafa á hinn bóginn ekki geta komið sér saman um innbyrðis skiptingu kvótans og hafa aðildar því hver fyrir sig sett sér einhliða kvóta sem samanlagt hefur reynst vera 30-40% yfir ráðlögðum hámarkskvóta.

Fyrr í þessum mánuði gerðu Bretar og Norðmenn hins vegar með sér tvíhliða samning um makrílkvóta þar sem löndin ákveða einhliða að skipta með sér 58,91% alls makrílkvótans. Samkvæmt samningnum fær Noregur 31,95% í sinn hlut og Bretland 26,96%. Til að halda sig innan samþykkts heildarkvóta mætti samanlagður kvóti annarra ríkja samanlagt ekki vera hærri en sem nemur 41,09% af heildarkvótanum. Fyrirfram verður að teljast afar ólíklegt að það verði raunin enda hefur samanlögð krafa hinna ríkjanna staðið til hærri hlutdeildar. Er því fyrirséð að enn og aftur verði kvótasetning og veiðar úr markílstofninum meiri en ráðleggingar segja fyrir um og er það miður.

Í tvíhliða samningi Bretlands og Noregs er auk þess kveðið á um það að Noregur geti veitt allt að 60% af sínum kvóta í breskri lögsögu og greiði fyrir þann aðgang með 24.635 tonnum af makríl sem flyst af hlut Noregs yfir til Bretlands. Ástæðan fyrir vilja Noregs til samninga í þessa veru liggur í þeirri staðreynd að besta veiðisvæði makríls í Norður-Atlantshafi er í breskri lögsögu og hafa bæði Norðmenn og Færeyingar gert samning við Breta um veiðar í bresku lögsögunni undanfarin ár en ekki liggur fyrir hvort Færeyingar og Bretar hafi gert samning um veiðar á árinu 2023. Ísland hefur hins vegar veitt allan sinn kvóta í eigin lögsögu og á alþjóðlegu hafsvæði.

Tiltekin strandríki hafa áður gert með sér hlutasamkomulag en það var árið 2014 þegar ESB, Noregur og Færeyjar gerðu með sér samning um skiptingu makrílkvótans en skildu Ísland og Grænland eftir, en Grænland var þá nýkomið að borðinu. Loks hamlar það markmiðinu um sjálfbærar veiðar út stofninum enn frekar að Rússar hafa veitt makríl úr stofninum en eru þó ekki hluti af strandríkjahópnum sem átt hefur í samningaviðræðum.

Ísland tók við formennsku í strandríkjaviðræðunum af Bretum í vor og munu samningaviðræður hefjast að nýju í haust.

Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

09. júní 2023 | Gervigreind, tollkerfi, málefni flótta- og farandsfólks o.fl. |
Að þessu sinni er fjallað um:

væntanlega löggjöf um gervigreind

heildarendurskoðun á tollkerfi Evrópusambandsins (ESB)

tímamótaáfanga í málefnum flótta- og farandsfólks

aðild ESB að Istanbúlsamningnum

löggjafartillögur á sviði siglingaöryggis

tafalausar millifærslur í evrum

þátttöku Íslands í InvestEU áætluninni

styrkveitingu úr LIFE áætlun ESB til Íslands

stefnumörkun ESB á sviði geðheilbrigðismála

tillögu um siðanefnd ESB

nýja skýrslu Evrópuþingsins um aðgerðir gegn kolefnislosun í sjávarútvegi

drög að afleiddri reglugerð um samræmdar kröfur til ferðaskipulagningakerfa

drög að dagskrá júnífundar leiðtogaráðs ESB

Pop-up sendiráð í Amsterdam

Löggjöf um gervigreind í farvatninu

Innan stofnana ESB er nú stefnt að því að samþykkja nýja heildstæða ESB-löggjöf um gervigreind (e. Artificial Intelligence) fyrir árslok. Takist það verður það fyrsta heildstæða löggjöf á þessu sviði innan sambandsins og jafnvel í heiminum öllum og mun löggjöfin þannig marka tímamót.

Tillaga að reglugerðinni var lögð fram af framkvæmdastjórn ESB í apríl 2021 og hefur hún síðan verið til umfjöllunar á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB. Samhliða reglugerðartillögunni lagði framkvæmdastjórnin jafnframt fram orðsendingu til Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB, efnahags- og félagsmálanefndar ESB og svæðanefndarinnar þar sem lögð var fram stefnumörkun um nálgun ESB í gervigreindarmálum almennt.

Reglusetning um gervigreind hefur verið á aðgerðarlista núverandi framkvæmdastjórnar ESB allt frá því að stjórnin tók við í lok árs 2019 og er verkefnið hluti af aðgerðaráætlun stjórnarinnar á sviði stafrænnar framþróunar (e. A Europe fit for the digital age). Í febrúar 2020 birti framkvæmdastjórnin Hvítbók um gervigreind þar sem lagður var grunnur að þeirri vinnu sem nú sér fyrir endann á. Í hvítbókinni eru sett fram tvö megin stefnumið fyrir ESB á þessu sviði. Annars vegar að búa þróun gervigreindar framúrskarandi vaxtarumhverfi (e. ecosystem of excellence) og hins vegar að sett verði regluverk um gervigreind er skapi traust á tækninni (e. ecosystem of trust), sbr. nánari umfjöllun um efni hvítbókarinnar í Vaktinni 4. mars 2020.

Fyrirliggjandi tillaga framkvæmdastjórnar ESB endurspeglar þessar áherslur enda þótt áherslan í reglugerðartillögunni sé, eðli þeirra vegna, fremur á traustþáttinn. Í tillögunni er sett fram skilgreining á gervigreind sem felur í stórum dráttum í sér að gervigreind sé hugbúnaður eða hugbúnaðarkerfi sem getur dregið rökréttar ályktanir, m.a. á grundvelli tölfræði- og líkindareiknings og lært af fenginni reynslu (vélanám). Til að tryggja að skilgreining gervigreindar veiti nægilega skýr viðmið og til að greina hana frá öðrum og einfaldari hugbúnaði, er skilgreiningin afmörkuð við hugbúnaðarkerfi sem þróuð eru með vélanámsaðferðum og rökfræði- og þekkingaraðferðum. Þá eru settar fram reglur sem miða að því að herða reglur um gæði gagna, gagnsæi, mannlegt eftirlit og ábyrgð. Gerðinni er einnig ætlað að taka á siðferðilegum álitaefnum og áskorunum við beitingu gervigreindar á ýmsum sviðum samfélagsins, meðal annars við veitingu heilbrigðisþjónustu, menntunar og fjármálaþjónustu o.s.frv.

Í tillögunni er lagt til að heimilt verði að leggja á háar sektir á framleiðendur gervigreindarhugbúnaðar og þá sem miðla aðgangi að slíkum búnaði ef farið er gegn ákvæðum reglugerðarinnar og geta sektir numið allt að 30 milljónum evra eða 6% af alþjóðlegum tekjum viðkomandi aðila. Að senda rangar eða villandi upplýsingar til eftirlitsaðila getur jafnframt leitt til sektarálagningar.

Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir því að komið verði á fót evrópsku gervigreindarráði (e. European Artificial Intelligence Board) sem ætlað er að hafa umsjón með framkvæmd reglugerðarinnar og tryggja samræmda innleiðingu og framkvæmd hennar í aðildarríkjunum. Er ráðinu jafnframt ætlað að gefa út álit og tilmæli um álitamál sem upp koma við framkvæmdina og veita yfirvöldum í aðildarríkjunum leiðbeiningar.

Væntanlegri reglugerð er ætlað að draga úr líkum á því að gervigreind valdi samfélagslegum skaða á sama tíma og henni er ætlað að hvetja til jákvæðrar samfélagslegrar nýsköpunar á sviði gervigreindartækni. Í þeirri tvíþættu markmiðssetningu birtist stærsta áskorunin sem við er að glíma við reglusetningu á þessu sviði og stjórnvöld um allan heim glíma nú við. Annars vegar að ná jafnvægi á milli annars vegar nauðsynlegra takmarkanna til að vernda fólk og samfélagslega innviði og hins vegar að gæta þess að þær sömu takmarkanir komi ekki í veg fyrir að hægt verði að þróa og nýta gervigreindina með jákvæðum hætti fyrir fólk og samfélög en þar eru möguleikarnir gríðarlegir. Þá þarf að gæta þess að regluverkið skaði ekki alþjóðlega samkeppnisstöðu ESB og innri markaðarins á þessu sviði.

Tillagan byggir á áhættumiðaðri nálgun og setur skyldur á framleiðendur gervigreindarhugbúnaðar og þá sem miðla henni í hlutfalli við það hversu mikla áhættu eða skaða gervigreindin er talin geta skapað eða valdið. Með þessu verða gervigreindarkerfi sem teljast búa yfir óásættanlegri áhættu fyrir öryggi fólks og samfélagslega innviði bönnuð.

Eins og áður segir er tillaga framkvæmdastjórnarinnar nú til umfjöllunar í Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB. Hefur ráðherraráð ESB þegar mótað afstöðu sína til tillögunnar, sbr. fréttatilkynningu frá ráðiðnu 6. desember sl. og er nú jafnframt gert ráð fyrir að Evrópuþingið samþykki nefndarálit um afstöðu þingsins til tillögunnar á þingfundi í næstu viku. Þegar Evrópuþingið hefur samþykkt afstöðu sína til tillögunnar munu þríhliða viðræður Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnarinnar um endanlega gerð reglugerðarinnar hefjast.

Í fyrirliggjandi nefndaráliti um afstöðu þingsins eru lagðar til ýmsar breytingar á tillögu framkvæmdastjórnarinnar. Þannig eru m.a. lagðar til meiri takmarkanir heimilaðri virkni gervigreindarhugbúnaðar en gert er í tillögu framkvæmdastjórnarinnar, t.d. á sviði lífkennaeftirlits eftirlits (e. Biometric surveillance), á sviði tilfinningagreiningar (e. emotion recognition), og á sviði beitingar forvirkra rannsóknarheimilda af hálfu lögreglu.

Eins og áður segir þá er nú stefnt að því að því innan stofnana ESB að ljúka meðferð málsins fyrir lok þessa árs og hefur m.a. komið fram í fjölmiðlum að afgreiðsla málsins verði meðal helstu forgangsverkefna spænsku formennskunnar, en Spánn mun taka við formennsku í ráðherraráði ESB 1. júlí nk.

Í tilefni þessara greinarskrifa ákváðu greinarhöfundar Brussel-vaktarinnar að spyrja hina margumtöluðu ChatGTP gervigreindar-spjallvélina hvaða tilgangi hún þjónaði og hún svaraði orðrétt á lóðréttri íslensku:

„Ég er tilgangslaust máliðlaðandi verkfæri sem ætlað er að hjálpa fólki með upplýsingaleit, svara spurningum og veita almennar þjónustu. Ég get hjálpað þér með margt, svo sem að gefa upplýsingar um ýmsa málefni, leysa vandamál eða einfaldlega vera samræðuaðili. Ég er tilbúinn að læra og aðlaga mig að því sem þú þarft hjálp við, svo spyrðu bara hvað sem er á hjarta þér!“

Ef fólk er ekki sátt við svarið sem það fær í fyrstu tilraun getur það beðið um endurunnið svar, það var prófað:

„Tilgangur minn er að hjálpa fólki með mismunandi spurningum, gefa upplýsingar og styðja þá í að leysa vandamál eða fá betri skilning á einhverju. Ég er ætlaður að vera eins og einhvers konar "smartur vinur" sem er til staðar til að svara spurningum og veita leiðsögn á mismunandi sviðum, frá almennri þekkingu og ráðgjöfum um þema sem eru til ræðu, upp í aðstoð við verkefni eða hugmyndir sem einstaklingurinn er að vinna í. Ég er hér til að vera viðburður á netinu sem getur bæði skemmt og auðgað þig á mismunandi vegu.“

Köttur út í mýri

setti upp á sér stýri

Heildarendurskoðun á tollkerfi ESB

Um miðjan maí sl. lagði framkvæmdastjórn ESB fram tillögur að heildarendurskoðun á tollkerfi bandalagsins (e. EU Customs Reform), einni þeirri umfangsmestu frá upptöku kerfisins árið 1968. Tollkerfi ESB hefur sætt gagnrýni mörg undanfarin ár fyrir að vera þunglamalegt, gamaldags, flókið og ógagnsætt og alls ekki í stakk búið til að gegna hlutverki sínu í viðskiptalífi nútímans. Á meðan erlend vöruviðskipti hafa vaxið gífurlega á umliðnum árum, ekki síst rafræn viðskipti (e. e-commerce), hefur tollkerfið ESB lítið breyst.

Tillögurnar eru metnaðarfullar og standa vonir til þess að hið nýja tollkerfi, sem tillögurnar mæla fyrir um, geti jafnvel orðið fyrirmynd að nýju alþjóðlegu tollkerfi er kemur að vöruviðskiptum þar sem byggt verður á söfnun upplýsinga í sameiginlegan gagnagrunn. Er álitið að slíkt geti einfaldað til muna tollafgreiðslu vörusendinga fyrirtækja sem hafa áunnið sér traust á grundvelli upplýsingamiðlunar inn í kerfið. Þá er talið að með því að aðlaga kerfið að rafrænni þróun verði hægt að hraða afgreiðsluferlum til mikilla muna, einfalda eftirlit og draga úr tollsvikum og hvers kyns ólöglegum innflutningi svo sem vopna og fíkniefna.

Tillögurnar er að finna í drögum að nýrri reglugerð um tollskrá og evrópsk tollyfirvöld sem fellir úr gildi núgildandi tollagerð (No 952/2013) verði sú nýja samþykkt. Auk þess þarf að gera breytingar á tveimur öðrum reglugerðum, þ.e. um fjarsölu vara og afnám gjaldfrelsis verðlítilla sendinga og á einni tilskipun um virðisaukaskatt. Nýja reglugerðin er merkt EES-tæk af hálfu framkvæmdastjórnar ESB enda þó EES/EFTA ríkin séu ekki hluti af tollabandalagi ESB. Sú niðurstaða er til skoðunar í vinnuhópi EFTA um tollamál.

Áhættugreining og eftirlit eru grunnstefin í tillögum framkvæmdastjórnarinnar og að baki áhættugreiningu þurfi að liggja áreiðanleg gögn. Er lagt til að ný stofnun verði sett á fót sem fari með yfirstjórn tollamála í ESB og haldi utan um og reki nýja miðlæga tollupplýsingagátt (e. EU Customs Data Hub), sem verði grunnurinn að baki nýja tollakerfinu. Það þýðir að með tímanum mun tollupplýsingagáttin koma í staðinn fyrir þau hefðbundnu tollakerfi sem nú eru í notkun í aðildarríkjum ESB. Talið er að sú aðgerð ein og sér muni spara aðildarríkjunum samanlagt 2 milljarða evra (300 milljarða króna) í rekstrarkostnað árlega. Þá er rétt að vekja athygli á að þessar tillögur fela ekki aðeins í sér aðlögun að rafrænni þróun heldur eru þær líka taldar umhverfisvænar (minni pappírsnotkun o.fl.). Þá ættu þær sömuleiðis að auka samkeppnishæfni á innri markaði ESB. Tillögurnar leiða einnig til þess að afgreiðslutími gagnvart fyrirtækjum styttist til mikilla muna auk þess sem afgreiðsluferlið verður einfaldara sem sparar þeim tíma og peninga. Upplýsingagáttin ætti einnig að gera endurnýtingu gagna mögulega.

Í kynningu framkvæmdastjórnarinnar á tillögunum er talað um að þær byggi á þremum meginstoðum. Stoð I felur í sér að settur er á fót nýr samvinnuvettvangur með atvinnulífinu (e. new partnership with business). Þar er fyrst og fremst átt við nýja tollastofnun og nýju tollupplýsingagáttina, sem verður sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum. Tilkoma hennar mun leiða til þess að hægt verður að afgreiða vörur inn á innri markað ESB með mjög lítilli aðkomu tollyfirvalda án þess að gefa eftir öryggiskröfur eða varnir gegn tollundandrætti eða -svikum. Innflytjendur, sem reynast traustsins verðir (e. Trust and Check’ traders), munu jafnvel geta komið vörum sínum í umferð án aðkomu tollyfirvalda. Vert er að vekja athygli á því að þetta nýja kerfi er viðbót eða styrking á því kerfi sem nú þegar er til staðar sem gengur undir íslenska nafninu “viðkenndir rekstraraðilar” (e. Authorised Economic Operators - AEO).

Stoð II felur í sér að tekin er upp nútímalegri nálgun við tolleftirlit (e. a smarter approach to customs checks). Nýja kerfið gerir tollyfirvöldum kleift að fá betri yfirsýn yfir aðfangakeðju og framleiðsluferla tiltekinna vara sem fluttar eru inn á innri markaðinn. Þá munu aðildarríkin hafa aðgang að upplýsingunum samtímis og verða þannig betur í stakk búin til að bregðast sameiginlega við yfirvofandi hættu. Gervigreind verður notuð við greiningu gagna í tollupplýsingagáttinni sem ætti að spara yfirvöldum mikinn tíma sem væri þá hægt að nýta í virkar aðgerðir gegn innflutningi á ólöglegum varningi og bættri innheimtu aðflutningsgjalda.

Stoð III felst í nýrri nálgun á rafræn viðskipti (e. a modern approach to e-commerce). Þar er lagt til að vefsíður (e. online platforms) verði ábyrgðaraðilar fyrir greiðslu þeirra aðflutningsgjalda og annarra krafna sem leggjast á vörur seldar á vefnum og fluttar eru til aðildarríkja ESB. Hér er um ræða grundvallarbreytingu frá gildandi reglum þar sem umrædd skylda er lögð á neytandann/kaupandann eða flutningsaðilann. Með þessu verður vefsíðan í raun gerð að innflytjanda sem rukkar neytandann um endanlegt verð strax við upphaf kaupanna. Þannig á neytandinn að geta verið viss um að óvæntir kostnaðarliðir við afhendingu vöru bætist ekki við eins og algengt er í dag. Samhliða þessari breytingu er lagt til að gildandi fjárhæðarviðmið um gjaldfrjálsan innflutning, sem í dag er 150 evrur (22.500 kr.) á hverja vörusendingu, verði afnumið. Talið er að verðmæti allt að 65% af vörusendingum sem sagðar eru vera undir þessu fjárhæðarviðmiði hafi verið undirverðlagðar í upplýsingagjöf til tollyfirvalda til að komast hjá greiðslu aðflutningsgjalda.

Samkvæmt tillögunum er gert ráð fyrir að ný tollyfirvöld og tollupplýsingagáttin verði tilbúin þannig að afgreiða megi rafræn viðskipti vefsíðna frá og með árinu 2028 með framangreindum hætti. Árið 2032 eiga síðan aðrir rekstraraðilar að geta nýtt sér hana án þess að krafa sé gerð um það. Árið 2035 fer fram úttekt á því hvernig kerfið hefur reynst með það fyrir augum að gera notkun þess að skyldu frá og með árinu 2038.

Framangreindar tillögur eru nú til meðferðar í ráðherraráði ESB og á Evrópuþinginu.

Tímamótaáfangi í málefnum flótta- og farandsfólks

Ráðherrar innanríkismála funduðu á vettvangi ráðherraráðs ESB í Lúxemborg í gær, fimmtudaginn 8. júní. Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra, sótti fundinn fyrir Íslands hönd, þar sem málefni Schengen-svæðisins og svonefndur hælispakki ESB (e. The Pact on migration and asylum) voru til umræðu. Framkvæmdastjórn ESB kynnti Schengen stöðuskýrslu fyrir árið 2023 en fjallað var um þá skýrslu í Vaktinni 26. maí sl. Ráðherrar ræddu sértaklega eftirlits- og stjórnunarhætti á Schengen-svæðinu og voru almennt sammála um mikilvægi þess að aflétta eftirliti á landamærum gagnvart Rúmeníu og Búlgaríu á næsta Schengen-tímabili 2023-2024, mikilvægi skilvirkari brottvísana einstaklinga í ólögmætri för og aukinnar lögreglusamvinnu þegar kemur að skipulagðri brotastarfsemi og fíkniefnaviðskipum. Á fundinum voru áritanamálin einnig til umræðu og þá einkum nýleg orðsending framkvæmdastjórnar ESB frá 23. maí sl. um eftirlit með þeim ríkjum sem njóta áritanafrelsis inn á Schengen-svæðið (e. Communication on the monitoring of the Eu´s visa free regimes). Í orðsendingunni kemur fram að heimildin til að veita áritanafrelsi inn á svæðið hafi almennt í för með sér efnahagslegan, félagslegan og menningarlegan ávinning fyrir aðildarríki Schengen og viðkomandi þriðjuríki. Evrópa hafi þó þurft að takast á við miklar áskoranir þegar kemur að ákveðnum ríkjum sem njóta áritanafrelsis inn á svæðið og þá einkum þegar kemur að fjölda umsækjenda um vernd og ógn við innra öryggi. Það er mat framkvæmastjórnar ESB að það þurfi að endurmeta þetta kerfi, þ.e. heimildina til að veita þriðja ríki áritanafrelsi og gera ferlið við að víkja því til hliðar skilvirkara auk þess að auka þarf eftirlit og skýrslugjöf með þeim þriðjuríkjum sem fengið hafa áritanafrelsi inn á svæðið. Ráðherrar voru almennt sammála um að nýta þyrfti áritanastefnuna betur og fögnuðu áformum framkvæmdastjórnarinnar um að leggja fram tillögur að endurbættum reglum um áritanamál seinni hluta þessa árs.

Áður hefur verið fjallað um áætlun ESB um útlendingamál í Vaktinni 2. desember sl. Líkt og þar er rakið hafa ýmsir áfangar náðst frá því að hún var fyrst lögð fram árið 2016 en erfiðast hefur þó reynst að ná samstöðu meðal aðildarríkja ESB um nýjar samábyrgðarreglur þar sem m.a. yrði endurskoðað hvernig ábyrgðinni og kostnaði sem fylgir straumi flótta- og farandsfólks yfir ytri landamæri Schengen er skipt á milli aðildarríkja ESB. Þau náðu loks saman eftir langar samningaviðræður um lykilþætti áætlunarinnar, þ.e.a.s. um tvær stærstu reglugerðirnar sem varða m.a. samábyrgðarreglur, einfaldari málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd og skyldubundna flýtimeðferð á ytri landamærum. Nú þegar aðildarríkin hafa náð saman um málið á vettvangi ráðherraráðs ESB geta hafist þríhliða viðræður við Evrópuþingið og framkvæmdastjórn ESB um lokaútgáfu reglugerðanna hafist.

Aðild ESB að Istanbúlsamningnum samþykkt

Eins og fjallað var um í Vaktinni 24. febrúar sl. hefur ESB unnið að því um nokkurt skeið að fullgilda aðild sambandsins að Istanbúlsamningnum, þ.e. samningi Evrópuráðsins (e. Council of Europe) um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi. Þann 1. júní sl. náðist loks lokaniðurstaða í málinu er ráðherraráð ESB samþykkti tvær ráðsákvarðanir um aðildina og mun samningurinn öðlast gildi innan vébanda ESB rúmum þremur mánuðum eftir að fullgildingarskjalið hefur formlega verið afhent Evrópuráðinu til varðveislu.

Nýjar löggjafartillögur á sviði siglingaöryggis

Framkvæmdastjórn ESB hefur birt tillögur um breytingar á fimm aðskildum gerðum sem ætlað er að endurbæta regluverk um siglingaöryggi og koma í veg fyrir mengun frá skipum. Þrátt fyrir að siglingaöryggi sé almennt talið gott og að meiri háttar umhverfisslys, svo sem í formi olíumengunar hafi verið fátíð er árlega tilkynnt um fleiri en 2000 slys og óhöpp í siglingum innan ESB. Er tillögunum ætlað að færa aðildarríkjunum ný úrræði til þess að stuðla að umhverfisvænum og nútímalegum siglingum. Þeim er jafnframt ætlað að færa löggjöf EES til samræmis við alþjóðlega löggjöf á þessu sviði, stuðla að jafnri samkeppnisstöðu, bættri útfærslu löggjafarinnar og eftirfylgni með innleiðingu á stafrænni tækni og aukinni samvinnu aðildarríkja. Lagt er til að Siglingaöryggisstofnun Evrópu, EMSA, fái veigamikið hlutverk við innleiðingu og framkvæmd nýju reglnanna. Nýi siglingapakkinn samanstendur af eftirfarandi tillögum:

Lagðar eru til skýrari kröfur til skipaskoðana af hálfu skráningarríkis eða fánaríkis (e. flag State inspections) í samræmi við alþjóðlegar reglur á því sviði auk þess sem nánar er kveðið á um hlutverk EMSA við þjálfun skipaskoðunaryfirvalda. Tillagan greiðir auk þess fyrir aukinni miðlun upplýsinga meðal aðildarríkja um niðurstöðu skoðana og hvort kröfur séu uppfylltar í einstaka tilvikum.

Reglur um hafnaríkiseftirlit eru endurskoðaðar og útvíkkaðar þannig að þær dekki betur ákvæði alþjóðlegra samþykkta á því sviði, svo sem nýrrar samþykktar um kjölfestuvatn, um setlög (e. sediments) og brottnám skipsflaka. Tillagan uppfærir auk þess ákvæði um forgangsröðun skipaskoðana með aukinni áherslu á umhverfisþætti við áhættumat og forgangsröðun. Öðrum ákvæðum tillögunnar er ætlað að auka getu aðildarríkja við að greina og bregðast við frávikum frá kröfum og stöðlum um öryggi og umhverfisvernd. Lagt er til að gildissvið reglna um hafnaríkiseftirlit og sjóslysarannsóknir verði útvíkkað þannig að það nái til fiskiskipa yfir 24 metra að lengd.

Einnig er lagt til að aðildarríki skuli tilkynna um alvarleg sjóslys fiskiskipa undir 15 metrum að lengd og greina hvaða mögulega lærdóm megi af þeim draga. Þá er lagt til að starfsemi fánaríkiseftirlits og hafnaríkiseftirlits verði stafræn og upptaka stafrænna skírteina verði auðvelduð.

Lagt er til að EMSA veiti yfirvöldum innan aðildarríkjanna er sinna slysarannsóknum aukna aðstoð m.a. með því að hópur sérfræðinga á mismunandi sérsviðum á vegum stofnunarinnar verði þeim aðgengilegur, sé þess óskað, auk sértækra verkfæra og tækja.

Þá eru lagðar til breytingar á ákvæðum tilskipunar um hlutverk EMSA til að það endurspegli betur vaxandi hlutverk stofnunarinnar á sviði siglingaöryggis, mengunarvarna, umhverfisverndar, loftlagsbreytinga, siglingaverndar, aðgerðarstjórnunar á neyðarstund og við innleiðingu á stafrænni tækni. Meðal annars er gert ráð fyrir að stofnunin verði framkvæmdastjórn ESB og aðildarríkjum til aðstoðar við útfærslu reglna um viðskiptakerfi með losunarheimildir fyrir siglingar og reglna um vistvænt eldsneyti í siglingum.

Framangreindar löggjafartillögur hafa jafnframt verið birtar í samráðsgátt ESB og er frestur til að senda inn umsögn út júlímánuð að jafnaði. Sjá nánar hér, hér, hér, hér og hér.

Tafalausar millifærslur í evrum

Í október sl. kynnti framkvæmdastjórn ESB tillögur að nýrri reglugerð sem hefur það markmið að einstaklingar og fyrirtæki geti millifært evrur án tafar (e. Instant Payments in euro) eigi þeir bankareikning í aðildarríki ESB og EES/EFTA ríki á hagkvæman og öruggan hátt. Í skýringum með reglugerðinni segir að með henni verði einstaklingum gert kleift að millifæra fjármuni alla daga ársins hvenær sem er sólarhringsins á innan við 10 sekúndum. Er það mikil breyting frá því sem gildir í dag þar sem millifærsla getur tekið allt upp í þrjá virka daga. Hagkvæmni fyrir neytendur nái reglugerðin fram að ganga verður því augljóslega mikil. Gagnvart fyrirtækjum, ekki síst litlum og meðalstórum, bæta tillögurnar verulega peningaflæði innan fjármálakerfisins sem dregur úr kostnaði. Talið er að næstum 200 milljarðar evra séu læstar eða fastar í fjármálakerfinu á hverjum degi. Í byrjun árs 2022 voru aðeins um 11% af millifærslum í evrum framkvæmdar án tafar þannig að til mikils er að vinna. Nýlega tölur fyrir árið í ár eru í kringum 14%.

Tillögurnar fela í sér einskonar nútímavæðingu á gildandi reglugerð frá árinu 2012 um „Single Euro Payments; SEPA“ en EFTA ríkin eru öll aðilar að SEPA. Hins vegar er mjög mismunandi milli aðildarríkja ESB hvort boðið sé upp á millifærslur án tafar og sömuleiðis er kostnaður vegna þeirra mishár eftir ríkjum. Þessi staða kemur í veg fyrir að kerfið virki eins og til var ætlast sem er meginástæðan að baki tillögunum nú. Framtíð evrópsks fjármálamarkaðar (e. Capital Market Union) veltur líka að vissu leyti á að umræddar tillögur nái fram að ganga.

Reglugerðin, sem er talin EES-tæk, er nú til meðferðar í Evrópuþinginu og í Ráðherraráði ESB, sem hefur þegar mótað afstöðu til málsins. Reglugerðin er nú sömuleiðis til umfjöllunar í vinnuhópi EES/EFTA um fjármálaþjónustu.

Þátttaka Íslands í InvestEU áætluninni

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur undirritað samninga við framkvæmdastjórn ESB um þátttöku Íslands í InvestEU áætluninni. Samhliða samningum við Ísland tókust samningar milli ESB og Noregs um þátttöku í áætluninni og eru ríkin tvö þar með þau fyrstu utan ESB til að taka þátt í áætluninni.

InvestEU áætlunin er nýr hluti af samstarfsáætlunum ESB á sviði rannsókna og nýsköpunar fyrir tímabilið 2021-2027 og hafa þrettán eldri stuðnings- og hvatakerfi ESB m.a. verið felld undir hatt InvestEU til gagnsæis og einföldunar.

Ábyrgðarsjóður InvestEU hefur heimildir til ábyrgða upp á 26 milljarða evra og er honum ætlað að virkja fjárfestingar upp á um 370 milljarða evra, þar af eru um 30% ábyrgða eyrnamerktar til loftlagsverkefna. Undirbúningur fyrir þátttöku Íslands í áætluninni hefur átt sér stað í samvinnu þriggja ráðuneyta þ.e. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis og utanríkisráðuneytis.

Þátttaka Íslands, og Noregs jafnframt, í áætluninni byggir á reglugerð ESB um áætlunina nr. 2021/523 en heimild fyrir þátttöku Íslands og Noregs var staðfest með upptöku gerðarinnar í bókun 31 við EES-samninginn er fjallar um samvinnu EES/EFTA-ríkjanna og ESB á sérstökum sviðum utan marka fjórþætta frelsisins. Jafnframt hvílir aðildin á tvíhliða samningi milli Íslands og framkvæmdastjórnar ESB um þátttöku og fjárframlag Íslands.

Með þátttöku í áætluninni er opnað fyrir aðgang íslenskra aðila að ábyrgðarsjóðnum og mun háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið hafa forgöngu um kynningu á málinu fyrir mögulegum hagaðilum á Íslandi þ. á m. opinberum aðilum og sveitarfélögum. Sérstök áhersla er lögð á stuðning við lítil og meðalstór fyrirtæki, samfélagslega þátttöku og samkeppnishæfni evrópska hagkerfisins.

Evrópski fjárfestingabankinn (e. European Investment Bank - EIB) og Evrópski fjárfestingasjóðurinn (e. EuropeFan Investment Fund - EIF) munu annast 75% af heildaráætluninni. EIB er ætlað að veita bæði beinar og óbeinar lánveitingar en EIF óbeinar. Óbeinar fjárveitingar yrðu í gegnum milliliði (t.d. sjóði eða banka í þátttökulöndunum). Norræni fjárfestingabankinn (e. Nordic Investment Bank - NIB) er jafnframt framkvæmdaraðili hvað beina lánveitingu varðar.

Fyrsti styrkur úr LIFE áætlun ESB til Íslands

Ísland hefur ásamt hinum EES/EFTA-ríkjunum (Liechtenstein og Noregi) tekið þátt í samstarfsáætlunum ESB allt frá upphafi EES-samstarfsins árið 1994 og eru samningar um þátttöku landanna endurnýjaðir með reglubundnum hætti.

Yfirstandandi tímabil er frá 2021 til 2027. Samstarfsáætlununum er ætlað að styrkja rannsóknir og nýsköpun, veita fólki á öllum aldri færi á að stunda nám í öðru Evrópulandi og ýta undir samskipti á milli fyrirtækja, stofnana og einstaklinga í Evrópu.

Þátttaka Íslands í áætlunum ESB hefur haft jákvæð áhrif til eflingar vísinda-, mennta- og menningarsamstarfsemi á Íslandi sem erfitt er að meta til fjár.

Þessar áætlanir eru af ýmsum toga s.s. Horizon Europe, Erasmus +, Digital Europe, Civil Protection, Single Market Programme, EU4Health, Creative Europe, European Solidarity Corps, European Social Fund+ sbr. einnig nýr samningur Íslands um þátttöku í InvestEU áætlunni, sem sérstaklega er fjallað um hér að framan í Vaktinni. Árið 2021 gerðist Ísland þátttakandi í LIFE áætluninni (e. LIFE Programme) sem styður við verkefni á sviði loftslags- og umhverfismála.

Verkefnið Terraforming LIFEhlaut nýverið styrk upp á tæpan milljarð íslenskra króna frá LIFE áætlun ESB og er það fyrsti verkefnisstyrkur LIFE til íslensks verkefnis. Um er að ræða samstarfsverkefni Landeldis hf., Bændasamtakanna, Orkídeu, Ölfus Cluster og SMJ frá Færeyjum með stuðningi frá Blue Ocean Technology í Noregi. Verkefnið miðar að því að þróa nýja aðferð til að framleiða áburð og lífgas úr þeim lífræna úrgangi sem fellur til við fiskeldi á landi og úr landbúnaði. Það eflir hringrásarhagkerfi innlendrar matvælaframleiðslu, samhliða því að minnka kolefnisspor og stuðla að umtalsvert jákvæðari umhverfisáhrifum bæði í landbúnaði og fiskeldi.

Kostnaður við þátttöku Íslands í LIFE áætlun ESB er um 65 m.kr. á ári í 7 ár, frá 2021 til 2027. Kostnaður Íslands við þátttöku í öllum samstarfsáætlunum ESB er áætlaður um 3,7 milljarðar króna á ári.

Stefnumörkun ESB á sviði geðheilbrigðismála

Þann 7. júní sl. birti framkvæmdastjórn ESB orðsendingu til Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB, efnahags- og félagsmálanefndar og svæðanefndarinnar um þverfaglega stefnu í geðheilbrigðismálum. Markmið stefnuskjalsins er að styrkja enn frekar stoðir evrópskt samstarfs á sviði heilbrigðismála (e. European Health Union).

Forseti framkvæmdastjórnar ESB, Ursula von der Leyen, boðaði framangreinda stefnumörkun í stefnuræðu sinni síðasta haust þar sem hún hvatti til nýs átaks í geðheilbrigðismálum með eftirfarandi orðum m.a.: „Við þurfum að hugsa betur hvort um annað. Fyrir þá sem þjást af kvíða og þunglyndi þarf viðeigandi og aðgengileg úrræði á viðráðanlegu verði. Það getur skipt sköpum.“

Fyrir tíma kórónuveirufaraldursins glímdu um 84 milljónir manna innan ESB við geðheilbrigðisvanda af einhverju tagi, eða 1 af hverjum 6 einstaklingum. Þá liggur fyrir að 27% starfsfólks á vinnumarkaði ESB upplifir streitu í starfi. Á þeim fordæmalausu tímum sem faraldurinn skóp versnaði ástandið. Heimsfaraldurinn setti aukinn þrýsting á geðheilsu fólks, sérstaklega á meðal ungmenna og þeirra sem veikir eru fyrir. Árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu og afleiðingar þess hefur síðan gert stöðuna enn verri. Áætlaður árlegur kostnaður vegna geðheilbrigðisvanda nemur 600 milljörðum evra eða um 4% af þjóðarframleiðslu aðildarríkja. Því er spáð að hann haldi áfram að vaxa ef ekkert verður að gert.

Orðsendingin grundvallast á þremur megin stoðum:

Að staðið sé fyrir fullnægjandi og árangursríkum forvörnum.

Að tryggt sé aðgengi að faglegri meðferð og þjónustu á viðráðanlegu verði.

Að veitt sé aðstoð við aðlögun að samfélaginu að nýju í kjölfar meðferðar.

Góð geðheilsa verður ekki tryggð með því einu að breyta heilbrigðiskerfum þjóða og er því í stefnuskjalinu leitast við að teikna þverfaglega nálgun sem miðar að því að samþætta stefnumörkun í geðheilbrigðismálum við stefnu annarra málefnasviða. Nefnd eru nokkur mikilvæg svið eins og menntun, vinnumarkaður, menning og listir, rannsóknir og nýsköpun, almannatryggingar, umhverfismál og stafræn umbreyting.

Í stefnuskjalinu er lögð áhersla á að andleg heilsa er jafn mikilvæg og líkamleg heilsa. Bent er á úrræði og leiðir sem drifið geta áfram breytingar, bætt núverandi skipulag og eftirfylgni. Þannig eru kynnt tuttugu verkefni, nefnd flaggskip, sem nýtast eiga við að raungera viðfangsefnin. Samtals áætlar framkvæmdastjórn ESB að 1,23 milljarðar evra verði ráðstafað til að framfylgja geðheilbrigðisátakinu sem orðsendingin mælir fyrir um og er gert ráð fyrir að þeir fjármunir komi úr samstarfsáætlunum ESB, EU4Health, Horizon og Horizon Europe.

Tillaga um siðanefnd ESB

Framkvæmdastjórn ESB kynnti í gær, 8. júní, tillögu um að sett verði á fót siðanefnd ESB (e. EU Ethics Body) er falið verði að annast eftirlit og eftirfylgni með því að samræmdar siðareglur og -viðmið séu virtar í æðstu stofnunum ESB.

Tillagan er sett fram í formi orðsendingar sem beint er til þeirra stofnana ESB sem hinni nýju siðanefnd er ætlað að hafa eftirlit með en það eru Evrópuþingið, leiðtogaráð ESB, ráðherraráð ESB, Dómstól ESB, Seðlabanki Evrópu, Endurskoðunarréttur ESB, efnahags- og félagsmálanefnd ESB og svæðanefnd ESB.

Gert er ráð fyrir að samræmdar siðareglur og -viðmið muni taka til eftirfarandi þátta m.a.:

Móttöku gjafa og boðsferða.

Gagnsæi í samskiptum við hagsmunaaðila.

Skráningu hagmuna og eigna.

Vörnum gegn utanaðkomandi þrýstingi sem ógnað geta sjálfstæði starfsmana.

Hvaða störfum starfmönnum, sem látið hafa af starfi eða embætti hjá stofnunum ESB, er heimilt að sinna og með hvaða skilyrðum.

Reglna um eftirlit og eftirfylgni með siðareglum og viðurlögum

Um skyldur hverrar stofnunar fyrir sig til að birta upplýsingar um hvernig þeir innleiða og framfylgja siðareglunum innan sinnar stofnunar.

Hefur framkvæmdastjórn ESB tilkynnt að fulltrúum allra hlutaðeigandi stofnanna ESB verði boðið til fundar 3. júlí nk. til að hefja formlegt samtal og samningaviðræður um efni tillögunnar. Náist samkomulag um tillöguna er ráðgert að frá því samkomulagi verði gengið með undirritun samnings á milli stofnanna.

Ný skýrsla Evrópuþingsins um aðgerðir gegn kolefnislosun í sjávarútvegi

Í byrjun júní kom út skýrsla, sem þingnefnd um framtíð vísinda og tækni á vegnum Evrópuþingsins lét gera um aðgerðir gegn kolefnislosun í evrópskum sjávarútvegi.

Markmið með skýrslunni eru:

veita yfirsýn yfir hugsanlegar aðgerðir til að draga úr eldsneytisnotkun og losun gróðurhúsalofttegunda í sjávarútvegi,

meta kostnað af þessum aðgerðum og mögulegan ávinning af þeim og

draga fram stefnumótandi þætti til að framkvæma þessar aðgerðir.

Skýrslan var unnin af RISE, sem er rannsóknar- og ráðgjafarstofnun í Svíþjóð á sviði umhverfismála.

Í skýrslunni er farið yfir orkunotkun í sjávarútvegi, mögulegar leiðir til að draga úr orkunotkun og skoðað hvaða orkukostir geti komið í staðinn fyrir jarðefnaeldsneyti. Hver aðgerð er metin út frá möguleikum við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og kostnaði þar að lútandi auk áskorana um hvernig þær verði best framkvæmdar. Taldar eru upp aðgerðir sem hægt væri að hrinda í framkvæmd bæði til skemmri og lengri tíma, á grundvelli vísindalegra ganga, fyrirliggjandi upplýsinga og með viðtölum við sérfræðinga.

Samkvæmt skýrslunni er talið mikilvægt að nota hagstjórnartæki, svo sem skatta, gjöld og losunarkvóta til að hvetja til orkuskipta. Bann við notkun jarðefnaeldsneytis í fiskveiðum fyrir árið 2050 er talið gefa skýran langtímahvata og skapa þær aðstæður sem nauðsynlegar eru fyrir orkuskiptin. Slíkum aðgerðum þurfa að fylgja vel útfærðar fjármögnunarleiðir fyrir grænar fjárfestingar og jöfnunaraðgerðir til að forðast aukinn skammtímakostnað. Á heildina litið er talin þörf á kerfisbundnum aðgerðum til að ná fram bættri orkunýtingu og kolefnishlutlausum sjávarútvegi án þess að þær hafi önnur neikvæð umhverfisáhrif.

Í skýrslunni er á nokkrum stöðum vísað í rannsóknir og verkefni á Íslandi á þessu sviði.

Þetta mál tengist aðgerðarpakka sem framkvæmdastjórnin kynnti í febrúar um aukna sjálfbærni og viðnámsþol í sjávarútvegi og fiskeldi sem fjallað var um í Vaktinni 24. febrúar sl. Þess má einnig geta að Evrópuþingið gaf í byrjun júní út reifanir (e. briefing) annars vegar um verndun vistkerfa í hafinu og sjálfbærar fiskveiðar og hins vegar um orkuskipti í sjávarútvegi og fiskeldi sem innlegg í umræðuna um aðgerðarpakka framkvæmdastjórnarinnar.

Drög að reglugerð um samræmdar kröfur til ferðaskipulagningakerfa

Framkvæmdastjórnin hefur auglýst eftir umsögnum um drög að afleiddri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar um samræmdar kröfur til ferðaskipulagningakerfa þar sem notendum er gert kleift að skipuleggja og kaupa ferðir þar sem innifaldar eru mismunandi tegundir samgöngumáta. Markmiðið er að stuðla að kerfi sem auðveldar skipulagningu og útgáfu farmiða með hnökralausum hætti sem taka til eins eða fleiri samgöngumáta.

Frestur til að senda inn umsagnir er til 28. júní nk.

Drög að dagskrá júnífundar leiðtogaráðs ESB

Leiðtogaráð ESB mun koma saman til fundar í lok þessa mánaðar, 29. og 30. júní, og var undirbúningur fundarins og drög að dagskrá til umræðu á fundi Evrópumálaráðherra ESB 30. maí sl. Í næstu viku er ráðgert að Evrópuþingið fjalli um væntingar sínar til fundarins og áherslur.

Pop-up sendiráð í Amsterdam

Sendiráð Íslands í Brussel stóð fyrir pop-up sendiráði í Amsterdam í vikunni með samfelldri dagskrá menningar- og viðskiptaviðburða í nokkra daga. Jafnframt var fundað með stjórnvöldum í Haag og kynningarfundur um möguleika jarðhitanýtingar var haldinn þar. Sendiráðið hafði aðsetur miðsvæðis í Amsterdam og vakti töluverða athygli meðan það var opið. Viðburðir voru almennt vel sóttir og fengu umfjöllun í þarlendum miðlum. Þetta er í fyrsta skipti sem íslenskt sendiráð sprettur upp í umdæminu með þessum hætti annars staðar en í gistiríkinu. Sendiráð Hollands í Osló stóð fyrir sama konar dagskrá á Íslandi árið 2019 og má því segja að löngu hafi verið tímabært að gjalda þeim í sömu mynt.

Dagskrá og framkvæmd pop-up sendiráðsins var unnin í nánu samstarfi við Íslandsstofu og útflutningsmiðstöðvar listgreinanna, s.s. Myndlistarmiðstöð, Sviðslistamiðstöð og Útón.

Pop-up sendiráðið í Amsterdam er opið fyrir gestum fram á sunnudag.

Brussel-vaktin, fréttabréf fastanefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

26. maí 2023 | Drög að samkomulagi um aðlögun fyrir Ísland í stóra flugmálinu |
Að þessu sinni er fjallað um:

samkomulag um drög að aðlögun fyrir Ísland vegna breytinga á viðskiptakerfi með losunarheimildir fyrir flug

tillögu að nýjum reglum um skammtímaleigu íbúðarhúsnæðis

endurskoðun lyfjalöggjafar ESB

baráttuna gegn sýklalyfjaónæmi

óformlegan fund heilbrigðisráðherra ESB

stöðu efnahagsmála í aðildarríkjum ESB

tillögur um aukna neytendavernd fyrir almenna fjárfesta

reglur um flutning úrgangs á milli landa

Schengen stöðuskýrslu fyrir árið 2023

kjördag kosninga til Evrópuþingsins 2024

fund EES-ráðsins

Samkomulag um drög að aðlögun fyrir Ísland vegna breytinga á viðskiptakerfi með losunarheimildir fyrir flug

Vaktin hefur á undanförnum misserum fjallað ítarlega um fyrirhugaðar breytingar á viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir fyrir flug, sbr. nú síðast í Vaktinni 21. apríl sl. Breytingarnar varða enda mikilsverða hagsmuni Íslands og hefur umfang hagsmunagæslu íslenskra stjórnvalda í málinu verið í samræmi við það.

Löggjafarferli ESB lauk með ákvörðun ráðherraráðs ESB 25. apríl sl. Óformlegar viðræður við framkvæmdastjórn ESB um nauðsynlegar aðlaganir fyrir Ísland við upptöku gerðarinnar inn í EES samninginn höfðu þó hafist nokkru fyrr enda málflutningur Íslands vel kunnugur öllum hlutaðeigandi aðilum innan ESB eftir umfangsmikið átak sendiráðsins síðasta hálfa annað ár.

Aukinn kraftur færðist í viðræðurnar í aðdraganda leiðtogafundar Evrópuráðsins í Reykjavík 16. og 17. maí sl. með þeim árangri að samkomulag náðist um drög að efnislegri úrlausn. Voru þau drög innsigluð, með öllum nauðsynlegum fyrirvörum á tvíhliða fundi Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra með forseta framkvæmdastjórnar ESB, Ursulu von der Leyen, sem haldinn var í tengslum við leiðtogafundinn, sbr. blaðamannafund sem haldinn var í kjölfar fundarins og yfirlýsingu forseta framkvæmastjórnar ESB á þeim fundi.

Þá voru samkomulagsdrögin rædd á ríkisstjórnarfundi 19. maí sl. og jafnframt á fundi utanríkismálanefndar Alþingis 22. maí sl.

Drög að efnislegu samkomulagi fela í sér að Ísland fær heimild til að framlengja núverandi kerfi endurgjaldslausra losunarheimilda út árið 2026 og mun því geta veitt endurgjaldslausar losunarheimildir til flugfélaga vegna flugs til og frá landinu út það ár. Þann 1. janúar 2027 er hins vegar gert ráð fyrir því að allt flug út af EES-svæðinu, þ. m. t. til Ameríku, falli undir ETS-kerfið með sama hætti og flug innan Evrópu. Við það mun jafnast samkeppnisstaða tengiflugs um Ísland yfir Atlantshafið við beint flug yfir Atlantshafið og aðra tengiflugvelli í Evrópu.

Í drögum að samkomulagi felst jafnframt að árið 2026 verði áhrif af kerfinu metin, m.a. hvort og þá hvaða áhrif ETS-kerfið hefur haft á tíðni flugsamgangna við Ísland, áhrif á samkeppnisskilyrði, á kolefnisleka, á loftlagsáhrif o.fl. að teknu tilliti til framangreindrar aðlögunar fyrir Ísland. Breytist ESB löggjöfin á tímabilinu t.d. á þann veg að ákveðið verði fresta því að flug út af EES-svæðinu verði framlengt gerist það með nýrri tilskipun sem taka þyrfti upp í EES-samninginn með nýrri ákvörðun og kemur þá til skoðunar á ný hvort semja þurfi um framhald aðlagana fyrir Ísland sem myndu frá og með árinu 2027. Þróun ETS-viðskiptakerfisins hefur verið hröð á síðustu árum og er viðbúið að þróun þess haldi áfram á næstu árum. Framangreint endurskoðunarákvæði er því mikilvægt fyrir Ísland og er til þess fallið að tryggja hagsmuni landsins til lengri tíma. Til viðbótar felst í samkomulagsdrögunum að Íslandi verði tryggð sama sérlausn og Malta og Kýpur fengu við samþykkt tilskipunarinnar hjá ESB, þ.e. að verðmunur á vistvænu þotueldsneyti og jarðefnaeldsneyti verði brúaður.

Tillaga að nýjum reglum um skammtímaleigu íbúðarhúsnæðis

Þann 7. nóvember sl. lagði framkvæmdastjórn ESB fram tillögu að nýrri reglugerð er miðar að því að auka gagnsæi á sviði skammtímaleigu íbúðarhúsnæðis til ferðamanna og aðstoða opinber yfirvöld við að tryggja jafnvægi í slíkri leigustarfsemi sem hluta af sjálfbærri ferðaþjónustu.

Enda þótt skammtímaleiga íbúðarhúsnæðis geti reynst hagstæð fyrir leigusala og ferðamenn geta þær valdið vandamálum innan byggðasvæða þar sem skortur er á íbúðarhúsnæði. Er reglugerðinni ætlað að leggja grundvöll að söfnun og miðlun gagna frá leigusölum og netþjónustum sem hafa milligöngu um slíka skammtímaleigu. Tilgangurinn er að styðja við skilvirkari stefnumörkun sem svarar áskorunum sem uppi eru á þessu sviði um leið og horft er til þess að hún geti nýst til að greina þau tækifæri sem felast í starfsemi af þessu tagi.

Þá er nýjum reglum ætlað að stuðla að auknu gagnsæi er kemur að skilgreiningu á starfsemi af þessu tagi og þeim reglum sem um starfsemina gilda og auðvelda skráningu gestgjafa/leigusala.

Helstu efnisatriði nýju reglnanna eru:

Að samræmdar verði skráningarkröfur fyrir gestgjafa og skammtímaleiguhúsnæði sem þeir bjóða.

Að settar verði skýrar reglur sem tryggja að skráningarnúmer gestgjafa og húsnæðis séu birt á netþjónustusíðum milliliða.

Að tryggð verði skilvirk stafræn gagnamiðlun á milli netþjónustusíða og hlutaðeigandi yfirvalda.

Að heimila endurnýtingu þeirra gagna sem verða til samkvæmt framangreindu, t.d. við gerð hagtalna hjá Hagstofu ESB (e. Eurostat) en ennfremur við nýsköpun í ferðaþjónustu og tengdri þjónustu.

Að komið verði á skilvirku eftirliti með framkvæmd reglnanna á vegum aðildarríkjanna með möguleikum á beitingu viðurlaga ef á þarf að halda.

Tillagan er nú til umfjöllunar á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB. Gert er ráð fyrir að aðildarríkin hafi tveggja ára frest til að hrinda henni í framkvæmd, verði hún samþykkt.

Endurskoðun lyfjalöggjafar ESB

Eins og greint var frá í Vaktinni 5. maí sl. lagði framkvæmdastjórn ESB fram tillögur að endurskoðaðri lyfjalöggjöf 26. apríl sl.

Grunnur núgildandi lyfjalöggjafar ESB er að meginstofni til frá árinu 1965 og hefur grunnmarkmið laganna verið að samræma reglur á innri markaði ESB fyrir lyf um leið og lögunum hefur verið ætlað að stuðla að bættu heilbrigði og lýðheilsu. Enda þótt framkomnar tillögur nú feli í sér víðtæka endurskoðun þá standa grunnmarkmiðin óbreytt. Nýjar áskoranir kalla hins vegar á breytta nálgun og aðgerðir á ýmsum sviðum lyfja- og heilbrigðismála almennt. Þannig er litið á tillögur um breytingar á lyfjalöggjöfinni nú sem mikilvægan áfanga í stefnumörkun ESB um aukið samstarf aðildarríkja ESB á sviði heilbrigðismála almennt (e. European Health Union) en markmið þess samstarfs er að samræma undirbúning og neyðarviðbragð ríkjanna þegar lýðheilsu er ógnað þvert á landamæri, m.a. með því að tryggja aðgang að bóluefnum, lyfjum og öðrum nauðsynlegum lækningavörum.

Áskoranir sem Evrópa stendur frammi fyrir á sviði lyfja- og heilbrigðismála eru margvíslegar. Krafa er um jafnt aðgengi að bestu mögulegri heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni gegn sanngjörnu verði. Lyf gegna þar mikilvægu hlutverki allt frá forvörnum og greiningu til meðferðar sjúkdóma. Tryggja þarf góðar rekstrar- og starfsaðstæður fyrir evrópska lyfjageirann enda leggur hann mikið til hagkerfa ESB-ríkjanna, hann er nýsköpunardrifinn og þar bjóðast verðmæt þekkingarstörf. Er talið að stafræn umskipti og nýjungar í notkun gagna í rauntíma opni nýja möguleika bæði við þróun lyfja og notkun þeirra.

Ljóst er að ekki ríkir jöfnuður í aðgengi að nýjum lyfjameðferðum innan sambandsins á sama tíma og framboðsskortur á lífsnauðsynlegum lyfjum hefur reynst vaxandi vandamál. Þá eru íbúar Evrópu að eldast sem leiðir óhjákvæmilega til aukins álags á heilbrigðiskerfi landa að viðbættu auknu álagi vegna heilsufarsógna á borð við kórónuveirufaraldurinn. Á sama tíma hefur lyfjakostnaður vaxið hröðum skrefum og tekið til sín æ stærri skerf af heilbrigðisútgjöldum hvers ríkis. Ljóst þykir að þessi þróun er ekki sjálfbær og að hvorki sjúklingar né heilbrigðiskerfi einstakra ríkja geti staðið undir henni til lengri tíma og því þurfi að leita nýrra leiða. Þá hafa ríki ESB sífellt orðið háðari löndum utan sambandsins um innflutning á lyfjum og hráefnum til lyfjagerðar. Neikvæð umhverfisáhrif sumra lyfja og lyfjaframleiðslu valda einnig áhyggjum. Loks eru sífellt vaxandi áhyggjur af sýklalyfjaónæmi en samhliða framangreindum tillögum hefur framkvæmdastjórn ESB gefið út ný tilmæli um aðgerðir í baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi, en nánar er fjallað um þau tilmæli í sérstakri umfjöllun hér að neðan.

Tillögur um endurskoðun lyfjalöggjafarinnar miða að því að mæta framangreindum áskorunum. Tillögurnar byggja á lyfjastefnu ESB frá nóvember 2020 auk þess sem byggt er á lærdómum af kórónuveirufaraldrinum.

Meginmarkmið tillagnanna er að stuðla að auknu framboði og jöfnu aðgengi að öruggum og áhrifaríkum lyfjum á sanngjörnu og viðráðanlegu verði fyrir íbúa óháð búsetu. Er breyttum reglum jafnframt ætlað að hvetja til nýsköpunar og auka samkeppnishæfni lyfjaiðnaðarins á sama tíma og tekið er aukið tillit til umhverfissjónarmiða.

Löggjafartillögurnar samanstanda af tveimur nýjum gerðum, nýrri lyfjatilskipun annars vegar og nýrri lyfjareglugerð hins vegar, auk þess sem lögð er fram, eins og áður segir, tillaga til ráðherraráðs ESB um útgáfu tilmæla er miða að því að setja aukinn kraft í baráttuna gegn sýklalyfjaónæmi.

Í tillögunum er kveðið nánar á um verklag við útgáfu markaðsleyfa fyrir lyf, merkingar og eftirlit með þeim, auk þess sem nánar er kveðið á um stöðu og starfshætti Lyfjastofnunar Evrópu (EMA). Þá er gert ráð fyrir að endurskoðað regluverk leysi af hólmi núgildandi regluverk um lyf fyrir börn og sjaldgæfa sjúkdóma. Þá er í tillögunum m.a. einnig að finna reglur um samræmda stjórnun og vöktun á birgðastöðu lyfja og mögulegum lyfjaskorti og um afhendingaröryggi lífsnauðsynlegra lyfja og tilkynningarskyldu lyfjafyrirtækja ef skortur er yfirvofandi.

Tillögurnar miða að því:

Að bæta aðgengi að nýjum lyfjum á sanngjörnu verði til hagsbóta fyrir sjúklinga og heilbrigðiskerfi ríkjanna. Byggð verði upp ný hvatakerfi til að umbuna lyfjafyrirtækjum er taki tillit til lýðheilsumarkmiða, svo sem að tryggja jafnan aðgang að lyfjum í öllum aðildarríkjum og þróa og framleiða lyf sem mæta óuppfylltum læknisfræðilegum þörfum. Ferlið við útgáfu markaðsleyfa fyrir lyf verður einfaldað. Kynntar verða aðgerðir til að auka gagnsæi í opinberri fjármögnun við þróun lyfja. Þá er umbótunum ætlað að auðvelda aðgengi að samheitalyfjum (e. generic and biosimilars) og jafna aðgengi sjúklinga að slíkum lyfjum með því að stytta einkaleyfistímabil þeirra (e. standard regulatory protection) um tvö ár frá því sem nú er til að hraða því að slík lyf séu sett á markað sem hjálpar til við að lækka útgjöld sjúklinga og heilbrigðiskerfa.

Að umbunað verði fyrir nýsköpun og að samkeppnishæfni lyfjageirans verði aukin með því að einfalda og nútímavæða regluverk um þróun nýrra lyfja. EMA mun, samkvæmt nánari reglum, veita aðilum sem vinna að þróun nýrra lyfja sem þykja líkleg til að skila góðum árangri stuðning. Leitast verður við að hraða útgáfu markaðsleyfa fyrir lyf. Sé talið að nýtt lyf skipti miklu fyrir almenna lýðheilsu er málsmeðferðartíminn styttur enn frekar. Að mati framkvæmdastjórnarinnar er gert ráð fyrir því umsóknarferlið geti að jafnaði styst úr 400 dögum í 180 daga. Einföldun verkferla og aukin notkun rafrænna lausna og gervigreindar eru hér talin skipta sköpun. Þá verður heimilað að gefa út tímabundin markaðsleyfi á neyðartímum.

Að innleiða hvata til nýsköpunar. Mögulegt verði að framlengja einkaleyfisvernd lyfja undir sérstökum kringumstæðum og að uppfylltum skilyrðum og er aukinni réttarvernd auk hugverkaverndar ætlað að tryggja að Evrópa verði áfram aðlaðandi svæði fyrir fjárfestingar og nýsköpun á sviði lyfjaþróunar og framleiðslu lyfja. Aukin einkaleyfisvernd getur t.d. komið til í eftirfarandi tilvikum:

Ef lyf er sett á markað í öllum aðildarríkjum ESB.

Ef lyf mætir áður óuppfylltum læknisfræðilegum þörfum.

Ef framkvæmdar eru klínískar samanburðarannsóknir.

Að komið verði í veg fyrir skort á lyfjum. Umbæturnar setja nýjar kröfur á aðildarríki og EMA um eftirlit með lyfjaskorti þar sem EMA fær hlutverk samræmingaraðila. Hert verður á skuldbindingum fyrirtækja, m.a. verður þeim gert að hafa tiltækar áætlanir um birgðastöðu og tryggja afhendingaröryggi. Settur verði saman listi yfir lífsnauðsynleg lyf í þeim tilgangi að meta veikleika í aðfangakeðjum. Auk þess fær framkvæmdastjórnin heimildir til að taka bindandi ákvarðanir til að tryggja aðfangakeðjur sérstaklega fyrir lífsnauðsynleg lyf.

Að dregið verði úr neikvæðum áhrifum lyfja á umhverfi. Meðal annars verður veitt heimild til þess að hafna umsókn um markaðsleyfi fyrir lyf sé talið að það hafi neikvæð áhrif á umhverfi og lýðheilsu.

Í samhengi við framangreint má geta þess að nú þegar liggur fyrir Alþingi frumvarp um breytingu á lyfjalögum og lögum um lækningatæki (upplýsingar um birgðastöðu) er felur í sér að komið verði á fót upplýsingakerfi sem sýni rauntímabirgðastöðu hjá öllum aðilum sem halda slíkar birgðir. Tilgangur frumvarpsins er tvíþættur, í fyrsta lagi að skjóta lagastoð undir ákvæði reglugerðar ESB frá 25. janúar 2022 um að styrkja hlutverk Lyfjastofnunar Evrópu í viðbúnaði og viðbragði á krísutímum vegna lyfja og lækningatækja. Í annan stað er um að ræða fyrsta viðbragð heilbrigðisráðherra við skýrslu starfshóps um neyðarbirgðir sem forsætisráðuneytið gaf út í ágúst 2022.

Fram komnar tillögur um endurskoðun lyfjalöggjafar ESB fela í sér heimild fyrir notkun rafrænna fylgiseðla með lyfjum í stað pappírsseðla. Eins og fjallað var um í Vaktinni 4. nóvember sl. hefur Ísland beitt sér markvisst fyrir því um árabil að notkun slíkra rafrænna seðla yrði heimiluð og óhætt að segja að Ísland hafi átt ríkt frumkvæði að því að breytingatillaga í þessa veru hefur nú litið dagsins ljós. Auk augljósra jákvæðra umhverfisáhrifa þá getur slík heimild sérstaklega þjónað hagsmunum lítilla markaðssvæða eins og Íslands þar sem heimildin lækkar kostnað við markaðssetningu lyfja og þá einkum á litlum markaðssvæðum (málsvæðum). Er tillagan þannig sérstaklega til þess fallin að stuðla að fjölbreyttara lyfjaúrvali á slíkum svæðum.

Tillögurnar eru nú til umfjöllunar í Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Eins og fram kom í Vaktinni 5. maí sl. hafa löggjafartillögurnar jafnframt verið birtar í samráðsgátt ESB í opnu umsagnarferli og er umsagnarfrestur til 29. júní nk.

Baráttan gegn sýklalyfjaónæmi

Ofnotkun sýklalyfja á umliðnum árum og áratugum hefur leitt til aukins ónæmis hjá sjúklingum sem á tíðum gerir það að verkum að erfitt ef ekki ógerlegt er að meðhöndla sýkingar. Eru 35.000 dauðsföll  á hverju ári rakin til sýklalyfjaónæmis á Evrópska efnahagssvæðinu. Talað er um þögula faraldurinn (e. silent pandemic) í þessu sambandi en vaxandi sýklalyfjaónæmi (e. Antimicrobial Resistance, AMR) er talið ein af þremur stærstu lýðheilsuógnum sem steðja að Evrópu.

Af þessum sökum hefur framkvæmdastjórn ESB birt ný tilmæli um aðgerðir til að vinna gegn sýklalyfjaónæmi og eru þau tilmæli birt í samhengi við endurskoðun á lyfjalöggjöf ESB sem fjallað er um hér að framan þar sem sérstök áhersla er lögð á skynsamlega notkun sýklalyfja og markmið sett um að draga úr notkun sýklalyfja um 20% fyrir árið 2030.

Tilmæli framkvæmdastjórnarinnar sem nú eru til umræðu í ráðherraráði ESB byggja á fyrri tilmælum frá 2017 um aðgerðir gegn sýklalyfjaónæmi. Meginmarkmiðin eru að stuðla að þróun innlendra aðgerðaáætlana í hverju ríki, hvetja til rannsókna og nýsköpunar samhliða því að styrkja eftirlit og vöktun. Þá er tilmælunum einnig ætlað að stuðla að því að tekið verði upp nýtt fjármögnunarkerfi er stutt geti við þróun nýrra sýklalyfja en talið er að markaðsbrestur standi í vegi fyrir þróun slíkra lyfja þar sem ávinningur af sölu þeirra er lítill og áhugi fjárfesta að sama skapi lítill. Aðkoma hins opinbera sé því nauðsynleg til að tryggja framþróun á þessu sviði.

Unnið hefur verið gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis á Íslandi um árabil og er sú vinna stöðugt í gangi. Í lok nóvember á síðasta ári skipaði heilbrigðisráðherra þverfaglegan starfshóp til að móta framtíðarsýn og áætlun um aðgerðir til að sporna við útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería. Þórólfur Guðnason, fyrrverandi sóttvarnalæknir, var fenginn til að stýra hópnum. Verkefnið er unnið með matvælaráðuneytinu og ráðuneyti umhverfis-, orku- og loftlagsmála, meðal annars á grundvelli niðurstaðna í skýrslu starfshóps sem fjallaði um sýklalyfjaónæmar bakteríur í mönnum, dýrum, sláturafurðum en sú skýrsla var kynnt í ríkisstjórn í september 2021. Þar var m.a. lagt til að skipaður yrði þverfaglegur hópur til að vinna að aðgerðum á þessu sviði. Verða hin nýju tilmæli framkvæmdastjórnar ESB væntanlega tekin til skoðunar í þeim starfshópi sem nú hefur verið skipaður eins og áður segir.

Óformlegur fundur heilbrigðisráðherra ESB

Dagana 4. og 5. maí sl. fór fram óformlegur fundur heilbrigðisráðherra ESB í Stokkhólmi. Heilbrigðisráðherrum EES/EFTA-ríkjanna var boðin þátttaka á fundinum og sótti Ásta Valdimarsdóttir ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytisins fundinn fyrir Íslands hönd.

Lyfjamál og aðgengi að lyfjum voru megin umræðuefni fundarins og þar með nýjar tillögur framkvæmdastjórnar ESB að endurskoðun lyfjalöggjafar ESB, sbr. sérstaka umfjöllun um þær tillögur hér að framan í Vaktinni. Umræðan var tvískipt, annars vegar var fjallað um viðbragð og viðbúnað í krísuaðstæðum, þ.e. hvernig tryggja megi aðgang að nauðsynlegum lyfjum undir slíkum kringumstæðum og var reynslan úr kórónuveirufaraldrinum vitaskuld lögð til grundvallar í þeirri umræðu. Hins vegar var rætt um hvernig almennt megi tryggja nægan aðgang nýjum lyfjum og öðrum nauðsynlegum lyfjum.

Fram kom í máli ráðherranna að flest ríkin hefðu upplifað skort á nýjum og nauðsynlegum lyfjum síðustu mánuðina og að sá skortur væri vaxandi. Í þessu sambandi voru nefnd lífsnauðsynleg lyf eins og sýklalyf, bólgueyðandi lyf, lyf við flogaveiki og blóðþynnandi lyf. Ríkin hefðu brugðist við skortinum með einum eða öðrum hætti. Margir nefndu að listar yfir lífsnauðsynleg lyf hefðu verið gerðir og að viðhaft væri markvisst eftirlit með framboði og birgðastöðu slíkra lyfja. Þá virðast mörg ríki hafa uppi áætlanir um eigin framleiðslu tiltekinna lyfja ef annað þrýtur. Framkvæmdastjórn ESB fékk lof fyrir framgöngu sína í heimsfaraldrinum þar sem samstarf og samræmd viðbrögð voru leiðarstefið. Af umræðum að dæma má ætla að aðildarríkin vilji áfram sjá ESB í því hlutverki. Tillögur að endurskoðun lyfjalöggjafarinnar hlutu góðar viðtökur en eftir sem áður höfðu alls 19 aðildarríki, undir forystu Belgíu, skrifað undir áskorun um að gera þyrfti enn betur á þessu sviði og var bent á tilteknar hugmyndir í því sambandi.

Í ræðu Ástu Valdimarsdóttur kom m.a. fram að lítil markaðssvæði eins og Ísland búi fremur við skort á lyfjum en stærri ríki og tók hún dæmi um að framboð lyfjategunda á Íslandi væri einungis í kringum 25% af því framboði sem almennt stæði til boða stærri ríkjum. Kvað hún það ómetanlegt fyrir Ísland að fá tækifæri til að vera hluti af heilbrigðissamstarfi ESB og notaði hún tækifærið og þakkaði fyrir að Ísland hafi nýlega fengið áheyrnaraðild í stjórn nýrrar Neyðar- og viðbragðsskrifstofu ESB á sviði heilbrigðismála (e. Health Emergency Preparedness and Response Authority - HERA), en sú stofnun leikur nú eitt meginhlutverkið í viðbragðsstjórnun sambandsins á sviði heilbrigðismála í kjölfar kórónuveirufaraldursins, sbr. nánar umfjöllun í Vaktinni 21. október sl. Þá upplýsti Ásta á fundinum að fyrir Alþingi lægi frumvarp um birgðastöðu lyfja og lækningatækja svo sem einnig er greint frá hér að framan í umfjöllun um tillögur að endurskoðun lyfjalöggjafar ESB. Ásta óskaði framkvæmdastjórninni til hamingju með fram komnar tillögur að endurskoðun lyfjalöggjafar ESB. Verkefnið væri flókið, umfangsmikið og afar mikilvægt.

Auk framangreindra málefna var staða mála í heilbrigðiskerfi Úkraínu rædd sérstaklega á fundinum og tók heilbrigðisráðherra Úkraínu, Viktor Liashk, þátt í fundinum í gegn um fjarfundabúnað.

Staða efnahagsmála í aðildarríkjum ESB í lok maí 2023

Betri staða en mikil óvissa. Í gær birti framkvæmdastjórn ESB sumarspá sína um framvindu efnahagsmála fyrir árin 2023-2024. Bjart var yfir framkvæmdastjóranum Paolo Gentiloni þegar hann tilkynnti að staða efnahagsmála innan ESB væri betri en spáð hefði verið síðastliðið haust. Tekist hefði að forða bandalaginu frá kreppu og nú væri útlit fyrir ásættanlegan hagvöxt bæði í ár og á árinu 2024. Spáð hafði verið samdrætti, bæði á fjórða ársfjórðungi 2022 og fyrsta ársfjórðungi 2023, en nýjustu upplýsingar sýna mun minni samdrátt á fjórða ársfjórðungi 2022 en áður hafði verið reiknað með og hagvöxt á þeim fyrsta á þessu ári. Hins vegar var sleginn sá varnagli að ýmsar blikur væru þó enn á lofti varðandi efnahagsþróunina sem kallaði á að stjórnvöld yrðu áfram á varðbergi og tilbúin að bregðast við mögulegum áföllum. Þar verði meðal annars að horfa til þróun stríðsátakanna í Úkraínu. Þá eru uppi miklar áhyggjur af undirliggjandi verðbólguþróun sem rýrir kaupmátt heimilanna svo ekki sé minnst á tíðar vaxtahækkanir. Órói á fjármálamörkuðum undanfarið er einnig nefndur sem óvissuþáttur. Á móti vegur að staðan á orkumörkuðum hefur verið betri en áætlað var, en mikil óvissa er áfram um þróun orkuverðs.

ESB

Ísland

Árleg breyting, %

2023

2024

2023

2024

VLF*

1,0

1,7

4,8

2,6

Verðbólga*

6,7

3,1

8,8

5,0

Atvinnuleysi*

6,2

6,1

3,7

4,3

Afkoma hins opinbera

-3,1

-2,4

-2,5

-3,0

Skuldahlutfall hins opinbera, % af VLF

undir 84

undir 83

38,4

37,6

* Maíspá Seðlabanka Íslands

Hagvöxtur. Samkvæmt nýrri spá verður hagvöxtur 1% á þessu ári hjá ESB samanborið við 0,8% í fyrri spá. Á árinu 2024 verður hann líka aðeins meiri en áður var gert ráð fyrir, eða 1,7% samanborið við 1,6%. Lækkandi orkuverð er talið vera helsta ástæða batans ásamt sterkum vinnumarkaði. Jafnframt hefur einkaneysla aukist, enda bendir allt til þess að kaupmáttur ráðstöfunartekna verði jákvæður á árinu 2024 eftir nokkurra ára samdrátt. Merki eru um að vöxtur þjónustugreina sé meiri en framleiðslugreina.

Verðbólga. Neikvæði þátturinn í efnahagsspá ESB er verðbólguþróunin. Þrátt fyrir bjartari efnahagshorfur almennt helst verðbólgan áfram nokkuð há, bæði á evrusvæðinu og ESB í heild. Spáin fyrir árið 2023 er 6,7%, ívið lægri en í fyrri spám. Þar gætir áhrifa af lækkandi orkuverði. Á móti vegur að verð á öðrum neysluvörum, eins og matvælum, og sömuleiðis á ýmsum þjónustuliðum, hefur verið að hækka (e. core inflation). Hins vegar er reiknað með skörpum viðsnúningi á næsta ári, eða lækkun niður í 3,1% sem eins og áður var nefnt mun leiða til aukins kaupmáttar hjá heimilum. Þannig er gert ráð fyrir að einkaneysla þeirra aukist um 1,8% á árinu 2024, eða í takt við langtímaaukningu hennar, sem eru jákvæð tíðindi.

Staðan á vinnumarkaði ESB. Þróun á evrópskum vinnumarkaði hefur ekki verið í takt við minni hagvöxt og rýrnandi kaupmátt undanfarin ár, heldur hefur hann haldið áfram að styrkjast. Allt útlit er nú fyrir að atvinnuleysi mælist í sögulegu lágmarki á þessu ári, eða 6,2% og er gert ráð fyrir að sú þróun haldi áfram árið 2024, en þá er gert ráð fyrir að meðalatvinnuleysi innan ESB verði 6,1%. Vinnuaflsskortur er víða farinn að gera vart við sig þrátt fyrir að meira en 2 milljónir manna muni bætast við á evrópskum vinnumarkaði á árinu umfram þá sem falla út af vinnumarkaði, sem er aukning um 0,5%. Ein af ástæðunum er sú að samsetning vinnuaflsins er ekki í samræmi við eftirspurnina, sérstaklega þegar kemur að þjónustugreinunum.

Staða opinberra fjármála. Afkoma hins opinbera í aðildarríkjum ESB hefur verið að batna, meðal annars vegna meiri hagvaxtar, en einnig vegna afnáms stuðningsaðgerða tengdum kórónuveirufaraldrinum þrátt fyrir að á móti vegi aðgerðir stjórnvalda til að draga úr áhrifum af meiri verðbólgu. Nú er spáð að hallinn verði 3,1% sem hlutfall af VLF á þessu ári samanborið við 3,4% á árinu 2022. Fyrir árið 2024 er reiknað með því að hallinn haldi áfram að lækka og verði 2,4% sem hlutfall af VLF samanborið við 3% í fyrri spá. Rétt er að hafa í huga þegar horft er á þessar tölur að staða opinberra fjármála er mismunandi milli aðildaríkja ESB.

Skuldahlutfall hins opinbera. Á árinu 2022 mældist skuldahlutfall ESB ríkjanna sem hlutfall af VLF 85% eftir að hafa mælst hæst 92% árið 2020. Miðað við að framangreind spá gangi eftir mun skuldahlutfall ESB ríkjanna í heild lækka í 84% á þessu ári og fara undir 83% á árinu 2024. Rifja má upp að á árinu 2019, eða fyrir Covid-19, var þetta hlutfall 79%, eða umtalsvert lægra. Hér gildir sama og með afkomuna að skuldahlutfall aðildarríkjanna er mjög mishátt. Eins og fjallað var um í Vaktinni 5. maí sl. er nú unnið að endurskoðun á fjármálareglum ESB.

Efnahagshorfur á Íslandi samanborið við ESB. Áhugavert er að bera saman íslenskar hagspár við nýjustu spá ESB, sbr. töfluna hér að framan. Þar kemur glöggt fram að hagvöxtur á Íslandi er mun kröftugri en að jafnaði í aðildarríkjum ESB, bæði á þessu ári og því næsta. Þá er atvinnuleysi mun minna. Þá sker Ísland sig úr varðandi skuldahlutfall hins opinbera sem er meira en helmingi lægra en í aðildaríkjum ESB að meðaltali. Afkoma hins opinbera er hins vegar svipuð, en þar er gert ráð fyrir hægari bata milli ára 2023 og 2024 hjá ESB en hér á landi. Þegar kemur að verðbólguþróuninni hallar aftur á móti á Ísland, þar sem spáð er talsvert meiri verðbólgu á þessu ári og einnig því næsta en hjá ESB.

Tillögur um aukna neytendavernd fyrir almenna fjárfesta

Framkvæmdastjórn ESB lagði fyrr í vikunni fram löggjafartillögur sem ætlað er að efla neytendavernd fyrir almenna fjárfesta (e. Retail Investment Package). Með tillögunum er stefnt að því búa almennum fjárfestum traust viðskiptaumhverfi sem einfaldi fjárfestingar af þeirra hálfu, hvort sem er til styttri eða lengri tíma. Þá miða tillögurnar að því að auka traust og tiltrú almennra fjárfesta á því að unnt sé að fjárfesta á öruggan hátt og nýta sér þannig kosti fjármálamarkaðsbandalags ESB (e. EU Capital Markets Union) til fulls.

Samþykkt tillagnanna snertir á einni af þremur megináherslum í aðgerðaáætlun framkvæmdastjórnarinnar frá 2020 er varðar fjármálamarkaðsbandalag ESB, þess efnis að stefnt skuli að því að tryggja enn betur stöðu hins almenna borgara í fjárfestingarumhverfi ESB. Með tillögunum standi vonir til að einstaklingar taki virkari þátt á fjármálamörkuðum sambandsins.

Þannig felst m.a. í tillögunum að upplýsingagjöf til almennra fjárfesta verði bætt, gagnsæi aukið og aðgangur að samanburðarkostnaði með staðlaðri framsetningu bættur. Árlegt yfirlit verði birt fjárfestum þar sem þeir geta skoðað stöðu og þróun eignasafns síns með skýrum hætti og þá stendur til að tryggja að fjármálaráðgjöf sem almennum fjárfestum er veitt sé í samræmi við mat á hagsmunum þeirra. Þannig verði ráðgjafaraðilar og áhrifavaldar látnir bera ríka ábyrgð þegar kemur að villandi markaðssetningu eða markaðsmisnotkun. Einnig verði ráðist í aðgerðir til að hvetja fólk til að taka betri fjármálaákvarðanir með innleiðingu áætlana um fjármálalæsi fyrir fólk á öllum aldri í aðildarríkjunum.

Samhliða birtingu tillagnanna voru þær settar í opið samráð í samráðsgátt ESB og er umsagnarfrestur til 20. júlí nk.

Tillögurnar ganga nú til umfjöllunar í Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Flutningur á úrgangi milli landa

Þann 24. maí sl. samþykkti ráðherraráð ESB samningsafstöðu sína fyrir væntanlegar þríhliða viðræður við Evrópuþingið og framkvæmdastjórn ESB um endurskoðun á reglugerð ESB um flutning á úrgangi milli landa (Basel-reglugerðin).

Reglugerð um flutning á úrgangi milli landa innleiðir í ESB löggjöf ákvæði Basel-samningsins um eftirlit með flutningi spilliefna milli landa og förgun þeirra, en Ísland er aðili að þeim samningi, og tilheyrandi ákvörðun OECD.

Tillagan, sem lögð var fram af hálfu framkvæmdastjórnar ESB í nóvember 2021, miðar að því að tryggja að úrgangur sé aðeins sendur til áfangastaða þar sem tryggt er að hann er meðhöndlaður á réttan hátt. Þá miðar tillagan að því að nútímavæða og samræma verklagsreglur fyrir flutninga innan ESB og taka á ólöglegum úrgangsflutningi sem í einhverjum tilvikum viðgengst í skjóli ólíkra verklagsreglna og skorts á eftirliti. Væntanlegri reglugerð er ætlað að veita tryggingu fyrir því að úrgangur sem sendur er til annarra ríkja skaði hvorki heilsu né umhverfi, heldur fari sem auðlind inn í hringrásina og hafi efnahagslega jákvæð áhrif. Í samningsafstöðu ráðsins er fallist á hin víðtæku markmið tillögunnar, m.a. um að banna útflutning úrgangs til förgunar nema að uppfylltum ströngum skilyrðum, og að banna flutning á spilliefnum til ríkja utan OECD, nema viðkomandi ríki samþykki það sérstaklega og geti sýnt fram á að það meðhöndli úrganginn á umhverfisvænan hátt. Ráðið leggur til nokkrar breytingar, m.a. á skilgreiningum og á markmiði um kolefnishlutleysi.

Evrópuþingið hafði áður samþykkt samningsafstöðu sína í málinu 17. janúar sl. þar sem þrýst er á um hertar reglur innan ESB um flutninga á úrgangi. Lögð er áhersla á að endurskoðuð löggjöf verði til þess fallin að vernda umhverfið og heilsu manna á skilvirkari hátt og að nýtt verði til fulls þau tækifæri sem felast í meðhöndlun úrgangs til að ná markmiðum ESB um hringlaga og mengunarlaust hagkerfi. Evrópuþingið styður bann við útflutningi úrgangs, sem ætlaður er til förgunar innan ESB, nema í takmörkuðum og vel rökstuddum tilvikum. Útflutningur á spilliefnum frá ESB til landa utan OECD yrði einnig bannaður. Útflutningur á hættulegum úrgangi til endurnýtingar verði aðeins leyfður til landa utan OECD sem veita samþykki sitt og sýna fram á getu til að meðhöndla umræddan úrgang á sjálfbæran hátt. Jafnframt vill þingið banna útflutning á plastúrgangi til landa utan OECD og stefna að því að hætta útflutningi plastúrgangs til OECD landa í áföngum á næstu fjórum árum. Loks kallar þingið eftir leiðbeiningum frá framkvæmdastjórninni fyrir ESB ríki til að nota við framkvæmd laganna til að koma í veg fyrir og greina ólöglegan útflutning á úrgangi.

Er nú allt til reiðu fyrir þríhliða viðræður Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB um endanlegt efni fyrirliggjandi tillagna.

Schengen stöðuskýrsla fyrir árið 2023

Hinn 16. maí sl. birti framkvæmdastjórn ESB Schengen stöðuskýrslu fyrir árið 2023. Er þetta í annað skipti sem slík skýrsla er gefin út en fjallað var um fyrstu Schengen úttektarskýrslu framkvæmdastjórnarinnar í Vaktinni 10. júní sl. Úttektarskýrslum þessum, sem til stendur að gefa út árlega, er ætlað að efla eftirlit með innleiðingu og framkvæmd Schengen-samningsins og leggja grunn að umræðum ráðherra innan Schengen-ráðsins en næsti fundur ráðsins er áætlaður 8. júní nk.

Á hverju ári ferðast um 100 milljónir einstaklinga yfir ytri landamæri Schengen-svæðisins. Árið 2022 voru um 65% af alþjóðlegum ferðalögum í heiminum til Evrópu og er Schengen-svæðið því mest heimsótta svæði heims. Í skýrslunni er rakið það sem helst hefur staðið upp úr á vettvangi samstarfsins síðastliðið ár en þar ber hæst að Króatía fékk aðild að samstarfinu þann 1. janúar sl., sbr. umfjöllun í Vaktinni 16. desember sl. Þá er þess m.a. getið að sérstakur Schengen-samhæfingarstjóri (e. Schengen Coordinator) hafi tekið til starfa í júní 2022 auk þess sem reglulegar Schengen-úttektir hafa verið styrktar og efldar. Þá er þess jafnframt getið að í mars 2023 gaf framkvæmdastjórn ESB út sína fyrstu evrópsku stefnu um stjórn ytri landamæra auk þess sem endurnýjað Schengen-upplýsingakerfi (SIS) var tekið í notkun, sbr. umfjöllun í Vaktinni 10. mars sl.

Í skýrslunni tilgreinir framkvæmdastjórnin einnig nokkur mál sem hún leggur til að verði í forgangi á næsta Schengen-tímabili en þar má helst nefna innleiðingu stefnumótunar um samþætta evrópska landamærastjórnun sem hefur það að markmiði að styrkja ytri landamæri svæðisins. Þá á einnig að leggja áherslu á skilvirkari brottvísanir einstaklinga í ólögmætri för m.a. með notkun á endurbættu SIS kerfi og tilmælum framkvæmdastjórnarinnar um gagnkvæma viðurkenningu á ákvörðunum um brottvísanir. Þá er einnig fjallað um mikilvægi þess að auka innra öryggi innan svæðisins með baráttunni gegn skipulagðri glæpastarfsemi og fíkniefnaviðskiptum en í því samhengi er vísað til tilmæla framkvæmdastjórnarinnar um lögreglusamvinnu. Stækkun Schengen-svæðisins með aðild Búlgaríu og Rúmeníu er einnig talið forgangsmál af hálfu framkvæmdastjórnarinnar og síðast en ekki síst að afnema þurfi viðvarandi eftirlit nokkurra aðildarríkja á innri landamærum Schengen-svæðisins. Einungis eigi að grípa til upptöku eftirlits á innri landamærum tímabundið og í algjörum undantekningartilvikum þegar aðrar mildari aðgerðir duga ekki til. Að endingu nefnir framkvæmdastjórnin í skýrslunni að nýta eigi betur áritanastefnu ESB til að bregðast við ólögmætri för einstaklinga og öryggisógnum.

Í skýrslunni eru einnig dregin fram dæmi um bestu starfshætti innan aðildarríkja á lykilsviðum er kemur að stjórn ytri landamæra, vegabréfsáritana, lögreglusamvinnu og notkun Schengen-upplýsingakerfa og meðferð persónuupplýsinga.

Kjördagur kosninga til Evrópuþingsins 2024

Ráðherraráð ESB hefur ákveðið að kosningar til Evrópuþingsins skuli fara fram í aðildarríkjunum dagana 6. – 9. júní 2024. Kjörtímabil þingmanna á Evrópuþinginu er fimm ár og fóru kosningar í samræmi við það síðast fram árið 2019. Kosningarnar á næsta ári verða þær tíundu í röð beinna kosninga til Evrópuþingsins, en fyrsta beinu kosningarnar til Evrópuþingsins fóru fram árið 1979. Sjá hér myndbandsávarp forseta Evrópuþingsins, Robertu Metsola, til borgara ESB í tilefni af framangreindri ákvörðun.

Skipunartímabil núverandi framkvæmastjórnar ESB rennur jafnframt út á næsta ári og mun nýtt þing, í samræmi ákvæði stofnsáttmála ESB, fá það hlutverk að staðfesta tillögu leiðtogaráðs ESB að skipun forseta framkvæmdastjórnar ESB fyrir næsta fimm ára skipunartímabil og svo jafnframt að staðfesta skipun framkvæmdastjórnarinnar í heild sinni þegar hún liggur fyrir. Sem stendur spá því flestir að núverandi forseti framkvæmdastjórnarinnar, Ursula von der Leyen, verði endurskipuð sem forseti.

Fundur EES-ráðsins

EES-ráðið kom saman til fundar í Brussel 24. maí sl. Ráðið er æðsta stofnunin í sameiginlegu stofnanakerfi EES/EFTA-ríkjanna og ESB sem sett var á fót með samningnum um Evrópska efnahagssvæðið (EES). Ráðið er skipað utanríkisráðherrum Íslands, Noregs og Liechtenstein og fulltrúum ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB og hefur það meginhlutverk að vera formlegur pólitískur samráðsvettvangur um rekstur EES-samningsins. Jessika Roswall, Evrópuráðherra Svíþjóðar, en Svíar fara nú með formennsku í ráðherraráði ESB, stýrði fundinum að þessu sinni ásamt Anniken Huitfeldt, utanríkisráðherra Noregs, en Norðmenn fara nú með formennsku í fastanefnd EFTA. Auk þeirra sátu fundinn Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra Íslands, Dominique Hasler, utanríkisráðherra Liechtenstein, Maroš Šefčovič, varaforseti framkvæmdastjórnar ESB auk fulltrúa frá utanríkisþjónustu ESB.

Venju samkvæmt var staða og framkvæmd EES-samningsins almennt til umræðu. Vék utanríkisráðherra Íslands í þeim umræðum m.a. að breytingum á viðskiptakerfi um losunarheimildir fyrir flug og lét í ljós ánægju með að fyrir lægju drög að lausn um hvernig málið yrði útfært gagnvart Íslandi. Sjá nánar í fréttatilkynningu utanríkisráðuneytisins um fundinn. Auk umræðu um framangreint var alþjóðleg samkeppnishæfni innri markaðar hins Evrópska efnahagssvæðis til umræðu á fundinum og hvernig tryggja megi samkeppnishæfni hans til lengri tíma litið í ljósi alþjóðlegra áskorana.

Í tilefni fundarins gáfu EES/EFTA-ríkin frá sér yfirlýsingu þar sem lögð er áhersla á mikilvægi EES-samningsins. Þá er í yfirlýsingunni meðal annars áréttað mikilvægi þess að hagsmunir innri markaðarins í heild sinni verði hafðir í huga er kemur að uppbyggingu græns orkuiðnaðar og stafrænna umskipta, sbr. m.a. samræður ESB og Bandaríkjanna (BNA) um úrlausnir í tengslum við IRA-löggjöf BNA (e. Inflation Reduction Act ) en ítarlega hefur verið fjallað um þá löggjöf og viðbrögð ESB við henni að undanförnu í Vaktinni, sbr. m.a. umfjöllun í Vaktinni 24. mars sl.

Fyrir fund ráðsins fóru jafnframt fram óformlegar pólitískar viðræður milli ráðherranna, sænsku formennskunnar og utanríkisþjónustu ESB þar sem tvö mál voru helst til umræðu, annars vegar stuðningur við Úkraínu, aðildarferlið og hvernig ábyrgð verði komið fram gagnvart Rússum og hins vegar samskiptin við Kína. Hér má nálgast myndir frá fundinum.

Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

05. maí 2023 | Fjármálareglur, vistvænt flugvélaeldsneyti, launagagnsæi, netöryggi, lyfjalög o.fl. |
Að þessu sinni er fjallað um:

endurskoðun á fjármálareglum Evrópusambandsins (ESB)

samkomulag um tillögu um vistvænt flugvélaeldsneyti

tilskipun um launagagnsæi

tillögur um aukna samstöðu á sviði netöryggismála

endurskoðun lyfjalöggjafar

nýjar tillögur á sviði hugverka- og einkaleyfisréttar

aðgerðir gegn spillingu

útvíkkun á regluverki um landfræðilega vernd vöruheita

óformlegan fund félags- og vinnumarkaðsráðherra ESB

skýrslu um netöryggisógnir sem steðja að samgöngum

Endurskoðun á fjármálareglum ESB

Eins og reglulega hefur verið fjallað um Vaktinni að undanförnu þá hafa fjármálareglur ESB (e. Fiscal rules of Growth and Stability Pact) og endurskoðun þeirra verið mjög til umræðu á vettvangi ESB á umliðnum misserum. Reglurnar voru teknar tímabundið úr sambandi þegar kórónuveirufaraldurinn skall á og var sú aftenging síðan framlengd til loka árs 2023 í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. Hefur legið fyrir að ljúka þurfi endurskoðun reglnanna fyrir áramót, eða eftir atvikum að framlengja þær á ný, því ella munu núverandi reglur ganga í gildi að nýju. Í samræmi við framangreint hefur endurskoðun fjármálareglnanna verið meðal forgangsmála í tíð sænsku formennskunnar í ráðherraráði ESB og var málið m.a. til umfjöllunar á fyrsta fundi efnahags- og fjármálaráðherra ESB í byrjun ársins, sbr. umfjöllun í Vaktinni 27. janúar sl. Fyrir þeim fundi lá stefnumótunarskjal framkvæmdastjórnar ESB sem birt var með orðsendingu til Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB, Seðlabanka Evrópu, efnahags- og félagsmálanefndar ESB og svæðanefndarinnar 9. nóvember sl. Meginmarkmið þeirrar stefnumótunar er að ríkisfjármálaregluverkið verði sveigjanlegra en verið hefur og að horfið verði frá fyrri stefnu um „one-size-fits-all“ sem ekki er talin eiga við lengur. Miðar stefnumótunin að því að tekið verði aukið tillit til efnahagslegrar stöðu hvers ríkis á grundvelli fjögurra ára aðgerðaáætlunar sem framkvæmdastjórnin mun hafa eftirlit með. Almenn ánægja hefur verið með breytta stefnumótun á meðal aðildarríkjanna en sú ánægja hefur þó ekki verið einhlít og lýstu Þjóðverjar m.a. strax efasemdum.

Þann 26. apríl sl. lagði framkvæmdastjórn ESB síðan fram formlegar löggjafartillögur um endurskoðun ríkisfjármálareglna ESB til framtíðar. Þar er megináhersla að styrkja sjálfbærni opinberra skulda og efla hagvöxt aðildarríkjanna með sjálfbærum hætti með endurskipulagningu og fjárfestingum, einkum á sviði grænna og stafrænna umskipta sem talið er að auka muni samkeppnishæfni ESB til lengri tíma. Í tillögunum er áhersla lögð á einfalda og gagnsæja efnahagsstjórn og áætlanagerð til meðal langs tíma (e. medium term).

Sérstök áætlanagerð fyrir einstök aðildarríki, til meðal langs tíma, er í raun hornsteinn tillagnanna nú. Samkvæmt þeim eiga aðildarríkin að leggja fram aðgerðaáætlun til fjögurra ára hið minnsta þar sem sett skulu fram markmið í opinberum rekstri, aðgerðir til að taka á efnahagslegu ójafnvægi og forgangsröðun þeirra verkefna sem þarfnast endurskipulagningar og fjárfestinga. Framkvæmdastjórnin metur síðan aðgerðaáætlanir ríkjanna samkvæmt sameiginlegum mælikvörðum ESB. Standist þær prófið gera tillögurnar ráð fyrir að þær verði lagðar fyrir ráðherraráð ESB til samþykktar. Með þessari aðferðafræði er stefnt að því að búa til ferli gagnvart aðildarríkjunum er tekur tillit til mismunandi efnahagsstöðu einstakra ríkja, en eftir því hefur mjög verið kallað. Jafnframt er gert ráð fyrir að hvert aðildarríki skili árlegri skýrslu um framgang áætlunarinnar til að auðvelda framkvæmdastjórninni að hafa virkt eftirlit með framkvæmdinni.

Efnahagsleg staða aðildarríkja ESB er afar mismunandi eins og kunnugt er og hefur sá munur aukist síðustu árin í kjölfar kórónaveirufaraldurins og árásarstríðs Rússlands gagnvart Úkraínu. Sú þróun hefur leitt til þess að „one-size-fits-all“ aðferðin, sem eldri reglur byggja á, er að margra mati talin nánast ónothæf. Samkvæmt fyrirliggjandi tillögum er þó talið nauðsynlegt að viðhalda áfram því meginmarkmiði að opinberar skuldir séu sjálfbærar, á sama tíma og leitað er allra leiða til að efla hagvöxt. Samkvæmt tillögunum er aðildarríkjum ESB hins vegar ætlað að byggja aðgerðaáætlun sína á tilteknum útgjaldamarkmiðum fyrir umrætt fjögurra ára áætlunartímabil í nánu samráði við framkvæmdastjórn ESB. Útgjöldin verða þannig í raun eina beina viðmiðunin þegar kemur að eftirliti framkvæmdastjórnarinnar. Í því felst veruleg einföldun frá fyrri reglum.

Áfram verður horft á 60% viðmiðið fyrir skuldastöðuna og viðmið um 3% hámarkshalla við mat á aðgerðaáætlun aðildarríkjanna. Fari tiltekið aðildarríki yfir 3% í halla eða yfir 60% varðandi skuldastöðuna mun framkvæmdastjórnin senda viðkomandi ríki tæknilega áætlun eða leiðbeiningar (e. trajectory) yfir það hvernig það geti náð skuldunum niður í áföngum og hallanum sömuleiðis þegar horft er yfir fjögurra ára tímabil. Áfram er gengið út frá því viðmiði að árleg lágmarksleiðrétting á skuldastöðunni nemi 0,5% af vergri landsframleiðslu, VLF. Aðildarríkin sem eru undir 3% í halla og undir 60% hallamarkmiðinu munu einnig lúta eftirliti framkvæmdastjórnar ESB í formi tæknilegra leiðbeininga (e. technical information) um hvernig best sé að viðhalda þeirri stöðu út áætlunartímabilið. Frávik frá útgjaldamarkmiðum ríkjanna verða einungis veitt komi til alvarlegrar efnahagskreppu á evrusvæðinu eða innan ESB í heild, eða í þeim tilfellum þegar ESB-ríki verður fyrir höggi í ríkisbúskapnum af óviðráðanlegum ástæðum.

Í stuttu máli má segja að þótt fyrirliggjandi tillögur um endurskoðun á fjármálareglunum feli í sér meiri sveigjanleika fyrir aðildarríki ESB, eins og að framan er lýst, fela þær á sama tíma í sér meira eftirlit og miðstýringu að hálfu framkvæmdastjórnarinnar og ráðherraráðsins. Mikil pressa er á að löggjafarferlinu verði lokið á þessu ári, en umrætt endurskoðunarferli hefur verið á forgangslista framkvæmdastjórnar Ursulu von der Leyen enda kosningar til Evrópuþingsins framundan á næsta ári auk þess sem þá rennur út kjörtímabil núverandi framkvæmdastjórnar.

Framangreindar tillögur framkvæmdastjórnar ESB komu til umræðu á óformlegum fundi efnahags- og fjármálaráðherra ESB í Stokkhólmi undir lok síðustu viku. Eins og áður var það fjármálaráðherra Þýskalands, Christian Lindner, sem lýsti yfir andstöðu sinni gagnvart tillögunum gegn miklum meirihluta annarra ráðherra á fundinum. Auk Þýskalands settu Austurríki, Finnland, Svíþjóð og Tékkland einnig fyrirvara við tillögurnar og þá sérstaklega við útgjaldaviðmiðið (e. primary net expenditure). Athygli vakti að Hollendingar voru ekki í þessum hópi, en þeir fylgja gjarnan afstöðu Þjóðverja. Enda þótt hæpið sé að fyrirvari þessara ríkja mun ekki nægja til að stöðva framgang tillagnanna þá getur hann leitt til tafa á málinu en eins og áður segir þarf að ljúka málinu fyrir næstu áramót. Náist það ekki ganga eldri reglur í gildi á ný með ófyrirsjáanlegum afleiðingum Þannig er t.d. talið að Ítalía myndi þurfa að lækka opinberar skuldir sínar um 4% á ári, næstu tuttugu árin, til að ná markmiðum samkvæmt þeim reglum.

Álitið er að erfiðar samningaviðræður séu framundan meðal aðildarríkjanna á vettvangi ráðherraráðs ESB um tillögur framkvæmdastjórnarinnar og verður forvitnilegt að fylgjast með því hvernig málinu vindur fram. Samningaviðræður munu hefjast strax í þessari viku og er formleg umræða um málið fyrirhuguð á júnífundi efnahags- og fjármálaráðherra ESB. Fyrir liggur að málið verður einnig á forgangslista Spánverja sem taka við formennskukeflinu í ráðherraráðinu seinni hluta þessa árs. Öllum aðildarríkjum ESB er ljóst að einhverra lagabreytinga er þörf, en tíminn til að ná þeim fram er orðinn afar naumur. Sá kostur að framlengja óvirkni fjármálareglnanna um eitt ár í viðbót, þ.e. til loka árs 2024, er þó einnig fyrir hendi eins og áður hefur verið vikið að.

Samkomulag um tillögu um vistvænt flugvélaeldsneyti

Þann 25. apríl sl. náðist samkomulag í þríhliða viðræðum Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB um efni löggjafartillögu um vistvænt flugvélaeldsneyti (RefuelEU Aviation) en tillagan miðar að því að draga úr kolefnislosun frá flugstarfsemi og skapa jöfn samkeppnisskilyrði fyrir sjálfbærar flugsamgöngur til framtíðar. Málið er hluti af „Fit for 55“ aðgerðapakka ESB í loftslagsmálum en fjallað hefur verið um málið í Vaktinni m.a. 22. júlí sl. og 7. október sl. og þá í tengslum við umfjöllun um breytingar á viðskiptakerfi með losunarheimildir fyrir flug en málin tvö eru nátengd. Þá var sagt frá því í Vaktinni 24. febrúar sl. að umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefði skipað starfshóp til þess að skoða sérstaklega hvaða leiðir eru færar til að hraða orkuskiptum í flugi með notkun vistvæns eldsneytis í millilandaflugi og leggja fram tillögur þar að lútandi. Mun þessi gerð og þeir möguleikar sem kunna að felast í henni m.a. koma til skoðunar í þeirri nefnd. Tengt þessu eru einnig áform framkvæmdastjórnar ESB um stofnun svonefnds Vetnisbanka Evrópu, sbr. orðsendingu til Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB, efnahags- og félagsmálanefndar ESB og svæðanefndarinnar. Er gert ráð fyrir að fyrstu styrkir til framleiðslu vetnis verði boðnir út á komandi hausti úr nýsköpunarsjóði ESB á sviði loftslagsmála (e. Innovation Fund) þar sem valin framleiðsluverkefni geti fengið framleiðslustyrk fyrir hvert framleitt kíló af vetni í allt að 10 ár, sbr. nánari umfjöllun í Vaktinni 24. mars sl.

Í tillögunni eru settar fram kröfur um hvert skuli vera lágmarkshlutfall vistvæns eldsneytis í flugi og munu reglurnar gilda frá 2025 og munu kröfur um hlutfall vistvæns eldsneytis síðan fara stigvaxandi á fimm ára fresti. Þannig miðar tillagan jafnframt að því auka eftirspurn og framboð á vistvænu flugvélaeldsneyti (SAF) á sama tíma og leitast er við jafna samkeppnisskilyrði á þessu sviði. Um er að ræða mikilvægan hlekk í áformum og aðgerðum ESB til að ná loftslagsmarkmiðum sínum fyrir árið 2030 og 2050 þar sem notkun á SAF er meginleiðin til að draga úr kolefnislosun í flugi.

Málið gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Tilskipun um launagagnsæi

Ráðherraráð ESB samþykkti nýja tilskipun um launagagnsæi 24. apríl sl. og var gerðin þar með endanlega samþykkt sem lög í ESB. Evrópuþingið hafði áður samþykkt gerðina fyrir sitt leyti 30. mars sl. en fjallað var um tillögu framkvæmdastjórnar ESB að tilskipuninni í Vaktinni 18. mars sl. afstöðu þingnefnda Evrópuþingsins til hennar.

Samkvæmt tilskipuninni verður fyrirtækjum með fleiri en 250 starfmenn gert skylt að miðla upplýsingum árlega um hvað þau greiða konum annars vegar og körlum hins vegar fyrir jafnverðmæt störf. Fyrirtæki með fleiri en 150 starfsmenn þurfa að miðla slíkum upplýsingum á þriggja ára fresti og mun það fjöldatakmark lækka í 100 starfsmenn tveimur árum eftir að gerðin kemst til framkvæmda. Reynist óútskýrður launamunur kynjanna umfram 5% verða fyrirtækin að grípa til aðgerða.

Tilskipunin tryggir launafólki og umsækjendum um störf jafnframt rétt til að biðja vinnuveitanda um upplýsingar um meðallaun fyrir jafnverðmæt störf, sundurliðað eftir kyni.

Loks er í tilskipuninni kveðið á um rétt starfsmanns, sem telur að sér hafi verið mismunað um laun á grundvelli kyns, til að krefjast bóta og er sönnunarbyrði í slíkum málum lögð á vinnuveitanda.

Aðildarríkin hafa allt að þrjú ár til að innleiða ákvæði tilskipunarinnar í landslög.

Tillögur um aukna samstöðu á sviði netöryggismála

Framkvæmdastjórn ESB hefur lagt fram tillögu að nýrri reglugerð sem miðar að því að auka samstöðu innan ESB á sviði netöryggismála (e. Cyber Solidarity Act). Tillagan er viðbragð við vaxandi áhyggjum vegna aukins fjölda netárása sem ógna rekstrar- og starfsöryggi stjórnvalda, fyrirtækja og einstaklinga. Samkvæmt nýlegum rannsóknum er talið að netglæpir kosti aðila innan ESB um 65 milljarða evra á hverju ári.

Löggjafartillögurnar miða að því að gera ESB betur í stakk búið til að takast á við þessar áskoranir með því að auka og bæta samhæfingu og samvinnu milli aðildarríkja og efla þannig sameiginlega viðbragðsgetu þeirra um leið og núverandi samskipta- og viðbragðskerfi eru efld. Tillögurnar miða jafnframt að því að styðja við fyrirbyggjandi aðgerðir í þágu netöryggis, m.a. með aukinni fjárfestingu í rannsóknum og þróun og upptöku háþróaðrar tækni eins og gervigreindar og vélanáms (e. machine learning).

Markmiðið er að koma á fót samevrópskum netöryggisskildi (e. European Cyber Shield) sem verði samsettur úr netöryggiskerfum aðildarríkjanna og sérstökum netöryggismiðstöðum (e. Security Operation Centers – SOC). Er samsettu kerfi ætlað að nema netárásir og verjast þeim. Eins og staðan er í dag getur tekið allt að 190 daga að nema fágaða netárás en með framangreindu kerfi og nýtingu gervigreindar er talið að hægt sé að draga verulega úr þeim tíma. Er gert ráð fyrir að hinar nýju netöryggismiðstöðvar geti verið tilbúnar til notkunar í byrjun árs 2024 en þegar hefur verið settur af stað undirbúningur á vegum samstarfsverkefnisins Stafræn Evrópa (e. Digital Europe) þar sem unnið er að uppsetningu þriggja netöryggismiðstöðva þvert á landamæri og er Ísland aðili að því verkefni ásamt 17 aðildarríkum ESB. ESB hefur ákveðið að leggja þessu verkefni til 1,1 milljarð evra og verður það fjármagnað að mestu úr sjóðum samstarfsverkefnisins Stafræn Evrópa.

Í þessu samhengi má geta þess að Ísland tók nýverið þátt, í fyrsta sinn, í netöryggisæfingunni Skjaldborg (e. Locked Shields) sem er stærsta netöryggis- og netvarnaræfing sem Ísland hefur tekið þátt í en öndvegissetur NATO í netöryggismálum í Tallinn stendur fyrir henni. Fyrir Íslands hönd tóku þátt starfsmenn frá netöryggissveit fjarskiptastofu (CERT-IS), Landhelgisgæslu Íslands, Ríkislögreglustjóra, Seðlabanka Íslands, Reiknistofu bankanna og utanríkisráðuneyti Íslands. Ísland var í liði með Svíþjóð og bar sigur úr býtum í æfingunni en teymið var leitt af fulltrúa netvarna sænska hersins og fulltrúa íslenska utanríkisráðuneytisins.

Þá gera löggjafartillögurnar ráð fyrir að sett verði á fót neyðarviðbragðsteymi netöryggissérfræðinga (e. Cyber Emergency Mechanism) sem geti komið til aðstoðar aðildarríkjum eða stofnunum ESB ef óskað er eftir í tengslum við netárás en einnig til að veita ráðgjöf vegna fyrirbyggjandi ráðstafana, álagsprófana o.fl.

Samkvæmt tillögunum verður aðildarríkjum ESB gert að setja sér netöryggisstefnu og tilnefna lögbært yfirvald sem ber ábyrgð á eftirliti og framkvæmd hennar. Þá verður einnig gerð krafa um að ríkin deili á milli sín upplýsingum um netöryggisatvik sbr. framangreint.

Tillögurnar miða einnig að því að stuðla að auknu gagnsæi og ábyrgð í netöryggisiðnaðinum með því að koma á fót vottunarramma fyrir vörur og þjónustu sem boðin er til sölu á þessu sviði. Slíkum vottunarramma er ætlað að tryggja að fyrirtæki sem bjóða upp á netöryggishugbúnað og -þjónustu fylgi ströngustu stöðlum og séu látin svara fyrir öryggisbrot sem upp koma.

Samhliða framangreindum tillögum birti framkvæmdastjórn ESB orðsendingu til Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB um stofnun svonefndrar netöryggisakademíu (e. Cybersecurity Skills Academy). Er netöryggisakademíunni ætlað að samræma nálgun við menntun netöryggissérfræðinga og stuðla að fjölgun slíkra sérfræðinga. Er stofnsetning akademíunnar og sú stefnumótun sem felst í orðsendingunni um færniátak á þessu sviði jafnframt hluti af átakinu sem nefnt hefur verið Evrópska færniárið (e. European Year of Skills) en fjallað var um það verkefni í Vaktinni 10. febrúar sl. og 10. mars sl.

Framangreindum löggjafartillögum hefur verið fagnað af netöryggissérfræðingum og aðilum í netöryggisiðnaðinum sem líta á þær sem nauðsynlegt skref í átt að því að skapa öruggara netumhverfi fyrir alla borgara ESB.

Löggjafartillögurnar ganga nú til umfjöllunar í Evrópuþinginu og ráðherraráði ESB.

Endurskoðun lyfjalöggjafar

Framkvæmdastjórn ESB hefur lagt fram tillögur um endurskoðun lyfjalöggjafar ESB. Um er að ræða víðtæka endurskoðun, þær mestu sem ráðist hefur verið í í meira en 20 ár.

Meginmarkmið endurskoðunarinnar er að bæta og jafna framboð og aðgengi að lyfjum á viðráðanlegu verði til hagbóta fyrir neytendur á innri markaði ESB, sem aftur muni styðja við nýsköpun og efla samkeppnishæfni evrópsks lyfjaiðnaðar á sama tíma og framleiðendum lyfja verður gert að lúta strangari umhverfiskröfum.

Hátt verð á nýjum hátæknilyfjum og skortur á framboði ýmissa mikilvægra lyfja hefur verið vaxandi áhyggjuefni í rekstri heilbrigðiskerfa á umliðnum árum og fyrir sjúklinga sem þurfa á lyfjunum að halda. Endurskoðaðri lyfjalöggjöf er ætlað að mæta þessum áskorunum um leið og leitast er við að bæta og einfalda rekstrarumhverfi lyfjaiðnaðarins innan ESB, m.a. með aukinni rafrænni stjórnsýslu á sviði lyfjamála.

Löggjafartillögurnar samanstanda af tveimur nýjum gerðum, nýrri lyfjatilskipun annars vegar og nýrri lyfjareglugerð hins vegar en auk þess er lögð fram tillaga til ráðherraráðs ESB um útgáfu tilmæla er miða að því að setja aukinn kraft í baráttuna gegn sýklalyfjaónæmi.

Nánar verður fjallað um efni framangreindra tillagna í Vaktinni á næstunni.

Löggjafartillögurnar ásamt áhrifamati og fleiru hafa verið birtar í samráðsgátt ESB í opnu umsagnarferli og er umsagnarfrestur til 29. júní nk.

Nýjar tillögur á sviði hugverka- og einkaleyfisréttar

Framkvæmdastjórn ESB kynnti í síðustu viku löggjafartillögur á sviði hugverka- og einkaleyfisréttar sem ætlað er að hjálpa fyrirtækjum, sérstaklega litlum og meðalstórum, að nýta uppfinningar sínar og nýja tækni og stuðla að markmiðum sambandsins um samkeppnishæfni og svonefnt tæknilegt fullveldi eða sjálfræði (e. technological sovereignty).

Í tillögurnar samanstanda af þremur flokkum nýrra reglugerða, þ.e. tillögu að reglugerðum um stöðluð nauðsynleg einkaleyfi, um veitingu einkaleyfa í neyðartilvikum og um endurskoðun reglugerða um viðbótarverndarskírteini. Markmiðið með breytingunum er að skapa gagnsærri og skilvirkari ramma um hugverkaréttindi sem stenst framtíðaráskoranir.

Framangreindar tillögur framkvæmdastjórnarinnar fela í sér viðbót við evrópska einkaleyfakerfið (e. Unitary Patent System) sem tekið verður í notkun 1. júní nk. Þess má geta í þessu sambandi að Hugverkastofa mun standa fyrir málstofu um nýja evrópska einkaleyfakerfið 23. maí nk., sjá nánar hér.

Tillögurnar byggja á fyrirliggjandi ákvæðum og meginreglum alþjóðlegs og ESB-hugverkaréttar en þær miða að því að gera einkaleyfiskerfið skilvirkara með því að útrýma frekari uppskiptingu innri markaðarins, draga úr skriffinnsku og reglubyrði og auka skilvirkni. Umræddur einkaleyfisrammi muni styrkja rekstraraðila og lögbær yfirvöld, t.d. þegar kemur að því að vernda nýsköpun, á sama tíma og hann tryggir sanngjarnan aðgang, þ.m.t. í neyðartilvikum.

Vörumerki, hönnun, einkaleyfi og gögn eru sífellt mikilvægari í þekkingarhagkerfi nútímans. Hugverkaréttur er einn af lykildrifkröftum fyrir hagvöxt en hann hjálpar fyrirtækjum að fá verðmæti úr óáþreifanlegum eignum sínum. Iðnaðargeirar sem falla undir hugverkarétt ná t.a.m. utan um tæplega helming allrar vergrar landsframleiðslu ESB ríkja og yfir 90% alls útflutnings ESB.

Samhliða birtingu tillagnanna voru þær settar í opið samráð í samráðsgátt ESB og er umsagnarfrestur til 30. júní nk.

Tillögurnar ganga nú jafnframt til Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB til umræðu.

Aðgerðir gegn spillingu

Framkvæmdastjórn ESB kynnti í vikunni nýjar tillögur og aðgerðir til að sporna við spillingu innan ESB og á heimsvísu. Tillögurnar saman standa annars vegar af sameiginlegri orðsendingu framkvæmdastjórnar ESB og utanríkismálastjóra ESB til Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB, efnahags- og félagsmálanefndar ESB og svæðanefndarinnar um baráttuna gegn spillingu og hins vegar af tillögu að nýrri tilskipun um sama efni.

Í orðsendingunni er stefnumótun ESB á málefnasviðinu krufin og sett fram skýr sýn á skuldbindingu sambandsins um að spilling verði ekki liðin. Þá eru siðareglur og starfsreglum sem ætlað er tryggja heilindi og gagnsæi raktar og minnt á mikilvægi þess að slíkum reglum sé tryggilega framfylgt og jafnframt að þær séu reglulega endurskoðaðar og uppfærðar. Jafnframt er boðað að settur verði á fót samstarfsvettvangur gegn spillingu þar sem saman komi fulltrúar frá löggæsluyfirvöldum, stjórnsýslu, hagsmunasamtökum sem og sérfræðingar til að vinna að forvörnum og þróa hagnýtar leiðbeiningar til að draga út hættu á spillingu.

Tillaga um nýja tilskipun um varnir gegn spillingu fellur í sér endurskoðun á núverandi lagaramma ESB um varnir gegn spillingu. Helstu atriði tillögunnar eru:

Að gripið sé til fyrirbyggjandi aðgerða til að draga úr líkum á spillingu:

Með því að hlúa að menningu innan stofnana ESB og í aðildarríkjunum þar sem heilindi eru í hávegum höfð.

Með því að leita leiða til að auka vitund um mögulega spillingu m.a. með fræðslu og rannsóknum.

Með því að tryggja að hið opinbera lúti ströngustu reglum um varnir gegn spillingu, m.a. með því að leggja þær skyldur á aðildarríkin að þau setji skilvirkar reglur um opin aðgang að upplýsingum, um varnir gegn hagsmunaárekstrum, um hagsmunaskráningu opinberra starfsmanna og eftirlit með samskiptum og samspili á milli einkaaðila og opinberra aðila o.s.frv.

Með því að koma á fót sérhæfðum stofnunum er hafi það hlutverk m.a. að veita yfirvöldum fræðslu og þjálfun á þessu sviði.

Að samræma reglur um refsiverð brot og viðurlög:

Með því að samræma skilgreiningar á mismunandi tegundum spillingarbrota.

Með því að samræma viðurlög við spillingarbrotum og sjónarmið við ákvörðun refsingar vegna þeirra.

Að tryggja skilvirkar sakamálarannsóknir vegna spillingarbrota og saksókn ef tilefni er til:

Með því að tryggja lögreglu og saksóknaraembættum viðeigandi rannsóknarúrræði og burði til að sinna þessum málum.

Með því að tryggja að unnt sé að aflétta hugsanlegri friðhelgi þeirra sem lúta rannsókn eða saksókn með skilvirkum og gagnsæjum hætti.

Með því að setja lágmarks fyrningarfrest vegna spillingarbrota.

Loks er í tillögunni að finna útvíkkun á heimildum ESB til að beita refsiaðgerðum til bregðast við alvarlegum spillingarbrotum á heimsvísu.

Tillagan gengur nú til umfjöllunar í Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Útvíkkun á regluverki um landfræðilega vernd vöruheita

Ráðherraráð ESB og Evrópuþingið náðu samkomulagi í vikunni um efni nýrrar reglugerðar um vernd landfræðilegra vöruheita fyrir handverk og iðnaðarvörur. Með reglugerðinni er regluverk ESB um landfræðilegar afurðamerkingar (e. Geographical indication), sem hingað til hafa eingöngu náð yfir afurðaheiti matvæla, útvíkkað þannig að einnig verði mögulegt að fá vöruheiti handverks- og iðnaðarvara skráð með þeirri vernd sem því fylgir. Meginskilyrði skráningar verður, líkt og með matvælin, að viðkomandi handverk eða vara séu nægjanlega tengd ákveðnu landi eða framleiðslusvæði, svo sem t.d. Bohemian-gler (kristall frá Tékklandi), Limoges-postulín (frá Frakklandi) eða Solingen-hnífapör (frá Þýskalandi).

Eins og fjallað var um í Vaktinni 24. mars sl. þá hlaut íslenskt lambakjöt nýverið vernd sem skráð afurðarheiti hjá ESB sem vísar til landfræðilegs uppruna og sérstöðu íslenska lambakjötsins. Áður hafði íslenskt lambakjöt fengið vernd sem afurðarheiti á Íslandi árið 2018.

Íslensk lopapeysa fékk vernd sem afurðarheiti á Íslandi árið 2020. Með framangreindri reglugerð ESB um vernd landfræðilegra vöruheita fyrir handverk og iðnaðarvörur kunna að skapast forsendur til að fá vöruheitið „íslensk lopapeysa“ skráð hjá ESB.

Óformlegur fundur félags- og vinnumarkaðsráðherra ESB

Þann 3. og 4. maí sl. fór fram óformlegur fundur félags- og vinnumarkaðsráðherra ESB í Stokkhólmi. Félags- og vinnumarkaðsráðherrum EES/EFTA-ríkjanna var boðin þátttaka á fundinum og sótti Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, fundinn fyrir Íslands hönd.

Tvö meginviðfangsefni voru til umfjöllunar á fundinum

Hið fyrra laut að því hvernig unnt sé að mæta áskorunum á vinnumarkaði vegna misvægis í hæfni vinnuafls og þarfa atvinnulífsins og hvaða hlutverki stjórnvöld, aðilar vinnumarkaðarins, aðrir haghafar geti gegnt í þeim efnum. Sérstaklega var fjallað um það með hvaða hætti megi nýta átakið sem nefnt er Evrópska færniárið (e. European Year of Skills) sem best til að ná fram betra jafnvægi á milli þarfa atvinnulífsins og hæfni vinnuafls á innri markaðinum.

Á fundinum kom fram mikill samhljómur um mikilvægi þess að fjárfesta í menntun, þar á meðal endurmenntun og símenntun til þess að bregðast við þeim áskorunum sem uppi eru. Mikil áhersla var lögð á samvinnu og samþættingu við stefnumörkun á sviði mennta- og vinnumarkaðsmála auk þess sem mikilvægt væri að hafa víðtækt samráð við haghafa við mótun stefnu og útfærslu aðgerða. Ráðherrar skýrðu frá aðgerðum sem ráðist hefur verið í eða eru fyrirhugaðar í löndum þeirra til þess að bregðast við þessum áskorunum. Mörg landanna hafa m.a. þegar gripið til aðgerða til að laða að vinnuafl frá löndum utan ESB. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags og vinnumarkaðsráðherra, vakti í ræðu sinni athygli á því að mikilvægt væri að stefnumörkun og aðgerðir á þessu sviði byggðu á upplýsingum og gögnum um það hvaða breytingar væru framundan á vinnumarkaði. Hann skýrði frá breytingum á fyrirkomulagi fullorðinsfræðslu sem unnið væri að á Íslandi og aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk. Þá gerði hann grein fyrir aðgerðum í því skyni að auka samfélagslega virkni ungmenna sem ekki hafa náð að fóta sig í námi eða á vinnumarkaði.

Hið seinna laut að því hvernig væri unnt að tryggja nægjanlega og sjálfbæra félagslega vernd í ljósi grænna og stafrænna umskipta og lýðfræðilegra breytinga sem eru að eiga sér stað í Evrópu. Til grundvallar umræðunum lá skýrsla sérfræðihóps sem var falið að skoða leiðir til að efla félagslega vernd bæði á landsvísu og samevrópskum vettvangi.

Í skýrslunni kemur m.a. fram að hærri lífaldur og lækkuð fæðingartíðni leiði til þess að þörf er á aukinni atvinnuþátttöku fólks en verið hefur. Auk þess þarf að endurskoða félagsleg stuðningskerfi landanna og fjármögnun þeirra til þess að tryggja sjálfbærni þeirra og nægjanleika til framtíðar.

Fram kom að flest landanna séu að leita leiða til að bregðast við þessum áskorunum með því að hvetja sem flesta til atvinnuþátttöku og með því að endurskipuleggja þjónustu við eldra fólk. Mörg ríkjanna hafa einnig leitað leiða til að seinka starfslokum eldra fólks, bæði með því að hækka lögboðinn eftirlaunaaldur og með sveigjanlegum starfslokum og fjárhagslegum hvötum. Þá er leitast við að laða fleiri að umönnunarstörfum m.a. með því að bæta laun og starfsaðstæður en viðbúið er að hærri lífaldur muni leiða til aukinnar eftirspurnar eftir fólki í hjúkrunar- og umönnunarstörf.

Í framsögu Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, kom m.a. fram að mikilvægt væri að huga að fjárfestingu í velferð á öllum æviskeiðum og skýrði hann m.a. frá nýlegum breytingum á lögum í þágu barna og fyrirhuguðum breytingu á örorkulífeyriskerfinu sem miða að því að auka virkni og þátttöku þeirra sem búa við örorku. Hann skýrði einnig frá aðgerðaáætlun í málefnum aldraðra sem er ætlað að bæta andlega heilsu og vellíðan eldra fólks auk þess að nýta betur hæfileika þeirra og reynslu, samfélaginu til heilla.

Skýrsla um netöryggisógnir sem steðja að samgöngum

Þann 21. mars sl. birti Netöryggisstofnun Evrópu, (e. European Union Agency for Cybersecurity – ENISA), skýrslu um netöryggisógnir sem samgöngukerfi Evrópu búa við. Í skýrslunni er gerð grein fyrir netárásum sem greindar voru á tímabilinu janúar 2021 til október 2022, hverjir stóðu að baki þeim, greining á gögnum og þróun netöryggisógna sem beinast að flugi, siglingum, járnbrautastarfsemi og umferð á vegum. Samkvæmt greiningunni má skipta netöryggisógnum sem beinast samgöngukerfum í eftirfarandi flokka:

frysting upplýsinga og upplýsingakerfa þar sem krafist er fjármuna gegn lausn þeirra (ransomware attacks) (38%),

ársásir þar sem öryggi gagna er ógnað (e. data related threats) (30%),

plöntun vírushugbúnaðar af ýmsu tagi, (e. malware) (17%),

lokun netkerfa með fjölþátta álagsárás (e. denial-of-service (DoS), distributed denial-of-service (DDoS) and ransom denial-of-service (RDoS) attacks) (16%),

vefveiðar, þar sem reynt er að komast yfir persónuupplýsingar einstaklinga (e. phishing / spear phishing) (10%),

árásir á aðfangakeðjur (e. supply-chain attacks) (10%)

Greining skýrslunnar leiðir í ljós að flestar netárásir beinast að upplýsingakerfum. Hins vegar er sjaldgæft að árásir beinist að rekstrarkerfum samgangna.

Brussel-vaktin, fréttabréf fastanefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

21. apríl 2023 | Endurskoðun á lagaumhverfi evrópskra viðskiptabanka |
Að þessu sinni er fjallað um:

endurskoðun á lagaumhverfi evrópskra viðskiptabanka

samþykkt Evrópuþingsins á breytingum á viðskiptakerfi með losunarheimildir fyrir flug

löggjafartillögur um hálfleiðara

breytingar á tilskipun um endurnýjanlega orkugjafa

uppbyggingu innviða fyrir endurnýjanlega orkugjafa

aðgerðir til að draga úr kolefnislosun í sjóflutningum

aukið gagnsæi og minni reglubyrði með aukinni notkun rafrænna lausna í stjórnsýslu á sviði félagaréttar

samræmdar kröfur um akstur vinnuvéla á vegum

tilmæli um eflingu menntunar og þjálfunar á sviði stafrænnar færni

býflugnavænan landbúnað

nýja stefnumörkun um dróna

útboð á uppbyggingu öryggisfjarskipta um gervihnetti

Lagaumhverfi evrópskra viðskiptabanka endurskoðað

Framkvæmdastjórn ESB hefur lagt fram nýjar tillögur að lagabreytingum sem ætlað er að styrkja lagaumhverfi evrópskra viðskiptabanka með áherslu á meðalstórar og minni bankastofnanir. Um er að ræða breytingar á tveimur tilskipunum og einni reglugerð, sem varða banka í greiðsluvanda (e. Crisis Management) og innstæðutryggingakerfi þeirra (e. Deposit Guarantee Schemes - DGS). Enda þótt fjármálakerfi ESB sé talið hafi styrkst verulega á síðustu árum, meðal annars með auknu eftirliti, bættri eiginfjárstöðu og greiðsluhæfi viðskiptabanka almennt, eru framangreindar breytingar taldar nauðsynlegar til að styðja við sameiginlegan bankamarkað innan ESB (e. Banking Union). Reynslan hefur sýnt að það eru ekki hvað síst meðalstórir og minni bankar, sem hafa verið að lenda í vandræðum (þó frá því séu undantekningar eins og tilvik Credit Suisse sýnir)

Með þeim tillögum sem nú hafa verið kynntar er lagt til að yfirvöldum á sviði fjármála verði veittar valdheimildir til að skipuleggja brotthvarf fallandi fjármálafyrirtækja af markaði eftir ýmsum leiðum óháð stærð þeirra og viðskiptamódeli, ef nauðsyn krefur. Sérstaklega er horft til þess að til staðar sé fjármagnað öryggisnet til að vernda innstæðueigendur þegar fjármálastofnun lendir í vandræðum eða eftir atvikum örugg leið til að flytja innstæður frá löskuðum banka yfir í “heilbrigða” bankastofnun. Þessar öryggisaðgerðir koma þó eingöngu til þegar ljóst er að innri fjárhagsgeta hins laskaða banka reynist ekki næg til að mæta fjárhagslegu tapi og eða ef banki hefur verið lýstur ógjaldfær.

Hámarksfjárhæð innstæðutryggingaverndar er haldið óbreyttri, eða 100.000 evrur á hvern innstæðueiganda og banka. Tillögurnar gera hins vegar ráð fyrir aukinni samræmingu á tryggingaverndinni innan ESB frá því sem verið hefur, m.a. með því að fleiri aðilar eru felldir undir tryggingaverndina. Opinberir aðilar, eins og sjúkrahús, skólar og sveitarfélög, munu njóta verndar verði tillögurnar lögfestar óbreyttar, og sömuleiðis fjárfestingafyrirtæki, ýmsar greiðslustofnanir og rafmyntasjóðir að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Jafnframt er lagt til að um geti verið að ræða vernd sem nemi hærri fjárhæð en 100.000 evrum að hámarki í tilviki skyndilegrar eða óvæntrar hækkunar á innstæðu eins og þegar greiddur er út arfur eða tryggingabætur.

Í stuttu máli er ofangreindum tillögum ætlað að viðhalda jafnvægi á fjármálamarkaði, vernda skattgreiðendur og innstæðueigendur, auk þess að styðja við hagkerfi ESB ríkjanna og samkeppnistöðu þeirra. Tillagan fer nú í umræðu hjá ráðherraráði ESB og Evrópuþinginu og á seinni stigum til vinnuhóps EFTA um fjármálaþjónustu (e. WG on Financial Services).

Lög nr. 98/1999, um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, með síðari breytingum, byggir í grunninn á tilskipun ESB um innstæðutryggingar. Á árinu 2009 voru samþykktar breytingar á þeirri tilskipun (e. DSG II, 2009/14) sem enn hafa ekki verið teknar upp í EES-samninginn vegna athugasemda bæði frá Íslandi og Noregi. Athugasemd Noregs snýr að tryggingafjárhæðinni sem Norðmenn telja að eigi að vera tvöfalt hærri eða 200.000 evrur. Ísland hefur aftur á móti gert fyrirvara við mögulega ríkisábyrgð á innstæðutryggingaverndinni, sbr. meðal annars umfjöllun á Alþingi eftir að „DSG II“ kom fram á árunum eftir bankahrunið 2008. Var niðurstaðan á sínum tíma sú að fresta málinu þar sem þá var í farvatninu ný tilskipun ESB um tryggingaverndina, DGS III. Sú tilskipun var innleidd í evrópskan rétt árið 2014. Þó ýmislegt hafi verið rætt síðan DGS III tilskipunin kom fram og mikill þrýstingur hafi verið á upptöku hennar af hálfu ESB er afstaðan óbreytt.

Fyrir hefur legið um hríð að DSG III þarfnist breytinga vegna fyrirhugaðrar upptöku á samevrópskum innstæðutryggingasjóði, eða svokölluðu EDIS kerfi, (e. European Deposit Insurance Schemes) sem talinn er nauðsynlegur liður í uppbyggingu á sameiginlegum viðskiptabankamarkaði innan ESB. Hugmyndin hefur verið sú að EDIS kerfið verði byggt á tveimur stoðum. Önnur stoðin yrði innstæðutryggingakerfi aðildarríkjanna, en hin stoðin nýr sameiginlegur evrópskur innstæðutryggingasjóður sem yrði byggður upp í þremur áföngum á átta árum. Þessi breyting hefur kallað á nýja tilskipun, þ.e. DSG IV. Þegar vinnan hófst árið 2016 var gert ráð fyrir að fyrsti áfangi EDIS kæmi til framkvæmda á árinu 2020. Þessi áform mættu hins vegar andstöðu hjá ýmsum aðildarríkjum, ekki síst frá Þýskalandi, en áformin voru eftir sem áður sett ofarlega á forgangslista núverandi framkvæmdastjórnar undir forystu Ursulu von der Leyen. Haldnir hafa verið ótal fundir um málið, sem framkvæmdastjórn ESB og Evrópski seðlabankinn styðja eindregið, en án árangurs.

Segja má að framangreindar tillögur um styrkingu á viðskiptabankakerfinu feli í sér eins konar málamiðlun enda stutt í að skipunartíma núverandi framkvæmdastjórnar ljúki. Samninganefnd Evrópuþingsins í málinu hefur lýst yfir vonbrigðum með stöðu þessa máls með eftirfarandi orðum „… the opportunity to “fix the roof while the sun is shining” may have passed“.

Að lokum má geta þess að EES/EFTA ríkin lýstu öll yfir efasemdum við hugmyndina um samevrópska innstæðutryggingakerfið þegar málið var tekið fyrir í vinnuhópi EFTA um fjármálaþjónustu. Nú er að bíða og sjá hvernig málinu vindur fram á næstu mánuðum. Viðbúið er að ESB byrji nú á ný að þrýsta á EES/EFTA ríkin að innleiða DGS III og í framhaldinu þær breytingar á viðskiptabankakerfinu sem nú eru lagðar til og lýst er að framan, þ.e. DGS IV, nái þær breytingar fram að ganga.

Evrópuþingið samþykkir breytingar á viðskiptakerfi með losunarheimildir fyrir flug

Evrópuþingið samþykkti í vikunni breytingar á viðskiptakerfi með losunarheimildir fyrir flug. Eins og rakið var í Vaktinni 16. desember sl. náðist samkomulag í þríhliða viðræðum Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB um efni breytinganna fyrr í desembermánuði sl. Síðan þá hefur efnisleg niðurstaða málsins legið fyrir og var formleg lokaafgreiðsla þingsins í samræmi við efni fyrirliggjandi samkomulags svo sem við var búist. Er nú einungis beðið formlegrar afgreiðslu ráðherraráðs ESB á gerðinni, en hennar er að vænta á næstunni, og telst hún þá endanlega staðfest sem lög í ESB.

Frá því að niðurstaða í þríhliða viðræðum lá fyrir hefur hagsmunagæsla íslenskra stjórnvalda í málinu beinst að því undirbúa málatilbúnað og jarðveginn innan stofnana ESB og innan aðildarríkjanna til að ná fram aðlögun fyrir Ísland er kemur að upptöku umræddrar gerðar í EES-samninginn en formlegar viðræður um slíkar aðlaganir hefjast ekki fyrr en ESB-löggjöf hefur verið endanlega afgreidd í stofnunum ESB. Sjá nánari umfjöllun um undirbúning stjórnvalda í Vaktinni 24. febrúar sl.

Brussel-vaktin mun greina frá framgangi framangreindra viðræðna um aðlögun fyrir Ísland eftir því sem fram vindur og tilefni er til á komandi misserum.

Samkomulag um löggjafartillögur um hálfleiðara

Í febrúar á síðasta ári lagði framkvæmdastjórn ESB fram tillögur (e. The European Chips Act) sem ætlað er að styðja við öruggt framboð og aðgengi að hálfleiðurum (e. Semiconductor) innan ESB. Markmið tillagnanna er jafnframt að styðja við tæknilega forystu ESB á sviði slíkrar tækni og tryggja samkeppnisfærni sambandsins er kemur að stafrænum og grænum umskiptum en hálfleiðarar eru nauðsynlegir íhlutir í hverskyns tæknivörum allt frá farsímum til bifreiða og svo mætti lengi telja. Tillögupakkinn samanstendur af löggjafartillögum, tilmælum og orðsendingu um þessi efni. Framlagning tillagnanna kom í kjölfar framboðsskorts á hálfleiðurum sem upp kom á heimsvísu árið 2021 og olli því að víða þurfi að skera niður framleiðslu á tæknivörum. Þá hefur þróun í alþjóðamálum að undanförnu einnig undirstrikað þörfina á því að ESB hugi að sjálfstæði sínu og sjálfræði á þessu sviði sem öðrum (e. Strategic autonomy)

Þann 18. apríl sl. náðist samkomulag í þríhliða viðræðum Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnarinnar um efni framangreindra tillagna.

Tillögurnar byggja að meginstefnu á þremur eftirfarandi aðgerðum:

að byggja upp tækni- og framleiðslugetu,

að laða að fjárfestingar,

að byggja upp viðbragðskerfi sem unnt er að virkja ef framboðskortur er talinn yfirvofandi.

Gert er ráð fyrir að samanlagt verði 43 milljörðum evra varið til uppbyggingarstarfsins í gegnum sérstök samstarfsverkefni (e. Chips Joint Undertaking) með þátttöku ESB, aðildarríkja og einkaaðila.

Löggjafartillögurnar ganga nú til formlegrar afgreiðslu í Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.

Samkomulag um breytingar tilskipun um endurnýjanlega orkugjafa

Þann 30. mars sl. náðist samkomulag í þríhliða viðræðum Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB um efni fyrirliggjandi tillagna um breytingar á tilskipun um endurnýjanlega orkugjafa. Samkvæmt samkomulaginu skal stefnt að því að auka hlut endurnýjanlegrar orku í heildarorkunotkun ESB úr 32% í 42,5% að lágmarki fyrir árið 2030. Málið er mikilvægur hluti af „Fit for 55“ aðgerðarpakka ESB í loftslagsmálum sem og „REPowerEU“ áætlun ESB sem hefur það að meginmarkmiði að gera ESB óháð jarðefnaeldsneyti frá Rússlandi eins fljótt og auðið er. Sjá nánar um málið í fréttatilkynningu framkvæmdastjórnar ESB um samkomulagið.

Málið gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Samkomulag um hraðari uppbyggingu innviða, einkum rafhleðslustöðva og vetnisstöðva, fyrir endurnýjanlega orkugjafa

Þann 28. mars sl. náðist samkomulag í þríhliða viðræðum Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB um efni fyrirliggjandi tillagna sem miða að því að hraða uppbyggingu á aðgengilegum rafhleðslu- og vetnisstöðvum fyrir almenning.

Um er að ræða tillögu að nýrri reglugerð um uppbyggingu á innviðum fyrir endurnýjanlega orkugjafa (e. Alternative Fuels Infrastructure Regulation - AFIR) fyrir samgöngur í lofti, á láði og legi þar sem sett eru lögbundin töluleg markmið. Málið er hluti af „Fit for 55“ aðgerðarpakka ESB í loftslagsmálum. Sjá nánar um málið í fréttatilkynningu framkvæmdastjórnar ESB um samkomulagið.

Málið gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Samkomulag um aðgerðir til að draga úr kolefnislosun í sjóflutningum með aukinni notkun endurnýjanlegra orkugjafa

Þann 23. mars sl. náðist samkomulag í þríhliða viðræðum Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB um efni tillagna sem ætlað er að draga úr kolefnislosun frá skipum með aukinni notkun á endurnýjanlegum og kolefnislitlum orkugjöfum. Samkomulagið er viðbót við samkomulag frá 18. desember 2022 um að fella losun skipa inn í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (EU ETS) en hvort tveggja er hluti af „Fit for 55“ aðgerðarpakka ESB í loftlagsmálum. Sjá nánar um málið í fréttatilkynningu framkvæmdastjórnar ESB um samkomulagið.

Málið gengur nú til formlegrar afgreiðslu á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Tillögur um aukið gagnsæi og minni reglubyrði með aukinni notkun rafrænna lausna í stjórnsýslu á sviði félagaréttar á innri markaðinum

Framkvæmdastjórn ESB kynnti nýverið tillögu að breytingum á tilskipun um aukna notkun rafrænna lausna við framkvæmd fyrirtækjalöggjafar á innri markaðinum. Markmið tilskipunarinnar er að auka gagnsæi og minnka reglubyrði, einkum hjá fyrirtækjum sem starfa þvert á landamæri aðildarríkja á innri markaðinum. Til að ná fram auknu gagnsæi er gert ráð fyrir aukinni opinberri miðlun upplýsinga um fyrirtæki miðlægt á vettvangi ESB. Til að draga úr reglubyrði og skriffinnsku er kynnt til sögunnar meginregla um altæka skráningu (e. Once-only principle) sem miðar að því að koma í veg fyrir að fyrirtæki þurfi að leggja fram upplýsingar í hverju aðildarríki fyrir sig vilji þau stofna þar útibú. Þess í stað verði viðeigandi upplýsingum miðlað í gegnum samtengingarkerfi Evrópskra fyrirtækjaskráa (e. Business Registers Interconnection System – BRIS). Tekið verði upp samræmd ESB fyrirtækjaskírteini sem innihaldi staðlaðar grunnupplýsingar um fyrirtæki sem og stöðluð stafræn umboðsskírteini sem veitir einstaklingum rétt að koma fram fyrir hönd fyrirtækis í öðru aðildarríki.

Tillaga gengur nú til umfjöllunar í Evrópuþinginu og ráðherraráði ESB.

Samræmdar kröfur um akstur vinnuvéla á vegum

Framkvæmdastjórn ESB hefur birt tillögu að reglugerð sem ætlað er að samræma löggjöf innan aðildarríkjanna um akstur vinnuvéla, s.s. krana, lyftara og snjóruðningstækja, á almennum umferðargötum. Mismunandi reglur eru í gildi í einstökum aðildarríkjum og er tillögunni ætlað að samræma reglur, einfalda stjórnsýslu og hrinda úr vegi hindrunum við tilfærslu slíkra tækja á milli staða um leið og umferðaröryggis er gætt. Verði tillagan samþykkt er reiknað með að samræmdar reglur leiði til umtalsverðar hagræðingar hjá verktökum, leigjendum vinnuvéla og greiði fyrir markaðssetningu véla er uppfylli samræmd skilyrði fyrir akstur á almennum umferðargötum á innri markaðinum.

Tillagan gengur nú til umfjöllunar á Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Tilmæli um eflingu menntunar og þjálfunar á sviði stafrænnar færni

Í vikunni lagði framkvæmdastjórn ESB fram tvær nýjar tillögur til ráðherraráðs ESB um tilmæli sem ætlað er að stuðla að eflingu menntunar og þjálfunar á sviði stafrænnar færi á meðal borgara ESB. Eru tillögurnar settar fram sem liður í því færnisátaki sem boðað hefur verið, sbr. ákvörðun um Evrópska færniárið (European Year of Skills), sbr. umfjöllun í Vaktinni 10. mars sl. Tillögurnar eru jafnframt liður í aðgerðaráætlun ESB um stafræna menntun 2021-2027 og er ætlað að styðja aðildarríkin í því að ná markmiðum Evrópusambandsins um aukna almenna stafræna færni íbúa ESB.

Þrátt fyrir að nokkrum árangri hafi verið náð á umliðnum árum með margvíslegum aðgerðum og stuðningi við nýsköpun á þessu sviði þykir ljóst að enn vantar talsvert upp á að markmiðum varðandi almenna stafræna færni íbúa ESB sé náð. Þannig má nefna að einungis rúmlega helmingur Evrópubúa á aldrinum 16-74 ára hefur grunnfærni á stafrænu sviði auk þess sem verulegur munur er á þessu hlutfalli eftir löndum og þjóðfélagshópum. Ekki hefur heldur tekist að ná markmiðum um næga fjölgun sérfræðinga á sviði upplýsingatækni til þess að mæta þörfum atvinnulífsins á því sviði. Skort hefur á fjárfestingu í stafrænni menntun og þjálfun, tækjabúnaði, og námsefni, auk þess sem ekki hefur farið fram markvisst mat á gagnsemi þeirra aðgerða sem gripið hefur verið til.

Framangreindum tveimur tillögum er ætlað að mæta þessu.

Annars vegar er um að ræða tillögu að tilmælum um lykilþætti til að tryggja farsæla stafræna menntun og þjálfun en með tillögunni er lagður til rammi að tilhögun fjárfestinga, stjórnarhátta og uppbyggingu innviða stafrænnar menntunar og þjálfunar. Gert er ráð fyrir samstarfi allra hagaðila þar með talið einkageirans, til að ná fram sem bestum árangri.

Hins vegar er um að ræða tillögu að tilmælum um bætt framboð á stafrænni menntun og þjálfun og eru í tillögunni settar fram leiðbeiningar um hvernig bæta megi stafræna færni og kennslu fyrir alla. Settar eru fram tillögur að aðgerðum til þess að bæta framboð á stafrænni menntun og þjálfun fyrir öll skólastig sem og fyrir fullorðna. Mælt er með markvissum aðgerðum til að ná til tiltekinna hópa sem standa höllum fæti á þessu sviði en verulegur munur er á stafrænni færni eftir kyni, félagslegum og efnahagslegum bakgrunni fólks og búsetu. Leitast verður við að styðja við bestu framkvæmd á þessu sviði innan ESB-ríkja og breiða hana út, m.a. með styrkjum úr sjóðum Evrópusambandsins.

Þessar tillögur og fjölmargar aðrar sem settar hafa verið fram og tengjast Evrópska færniárinu, snúa allar að því að auka samkeppnishæfni og viðnámsþrótt Evrópu, með því að bæta menntun íbúanna þannig að nægileg stafræn þekking og færni sé til staðar til að mæta þörfum atvinnulífsins samfara grænu stafrænu umskiptunum.

Umfangsmikið og fjölbreytt styrkjakerfi hefur verið sett upp til að styðja við þessi markmið, sjá nánar hér.

Býflugnavænn landbúnaður

Frumkvæðisréttur borgara ESB-ríkja (e. The European Citizen‘s initiative) til að hafa bein áhrif á stefnu og löggjöf sambandsins er tryggður í stofnsáttmálum ESB, annars vegar í 4. mgr. 11. gr. sáttmálans um Evrópusambandið og hins vegar 1. m 24. gr. mgr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins. Bæði þessi ákvæði komu ný inn í sáttmálana við gildistöku Lissabon-sáttmálans árið 2007. Til að fá frumkvæðismál skráð og hefja söfnun undirskrifta þarf að uppfylla ýmis skilyrði. Til að frumkvæðisrétturinn verði virkur þarf síðan að minnsta kosti eina milljón undirskrifta frá íbúum a.m.k. 7 aðildarríkja. Takist að safna slíkum fjölda gildra undirskrifta hefur framkvæmdastjórn ESB tiltekinn tíma til ákveða hvort og þá hvernig brugðist skuli við. Viðbrögð geta falist í því að leggja fram tillögur að nýrri löggjöf, gefa út orðsendingu eða grípa til annarra viðeigandi viðbragða og aðgerða svo sem að hefja athugun eða rannsókn eða skipuleggja opinbert samráð.

Í byrjun mánaðarins brást framkvæmdastjórn ESB við einu slíku frumkvæðismáli sem fékk skráningu árið 2019 undir yfirskriftinni „Save bees and farmers! Towards a Bee-friendly agriculture for a healthy environment“ og var tilskildum fjölda undirskrifta til stuðnings málinu náð í september 2021. Með málinu er skorað á sambandið að sýna metnað í umhverfismálum og hefja virkar aðgerðir til að bjarga býflugum og tryggja býflugnavænan landbúnað. Býflugur og aðrir fræberar hafa átt undir högg að sækja víða um heim, m.a. vegna mikillar notkunar á skordýraeitri. Undirskriftarsöfnunin endurspeglar áhyggjur og skýran vilja hjá borgurum sambandsins til að bregðast við þeirri ógn sem steðjar að fræberum. Ein af hverjum þremur tegundum býflugna, fiðrilda og svifflugna eiga undir högg að sækja í ESB. Aðgerðirnar, sem borgararnir leggja til, felast einkum í því að:

minnka verulega notkun skordýraeiturs í landbúnaði

endurheimta líffræðilegan fjölbreytileika í landbúnaði

styðja bændur í umskiptum yfir í sjálfbæran búskap

Framkvæmdastjórn ESB hefur nú brugðist við framangreindu frumkvæði borgaranna með útgáfu sérstakrar orðsendingar þar sem stefna ESB og fyrirhugaðar aðgerðir á sviði sjálfbærrar matvælaframleiðslu undir merkjum Græna sáttmála ESB (e. European Green Deal) eru raktar s.s. stefnan Frá haga til maga (e. Farm to Fork strategies), stefnan um líffræðilegan fjölbreytileika (e. Biodiversity strategy), náttúruverndarlögin (e. Nature Restoration Law), tillögur um breytingar á reglugerð um sjálfbæra notkun skordýraeiturs (e. Sustainable Use of Pesticides Regulation), nýjar aðgerðir til varnar fræberum (e. Revised EU Pollinators ‘initiative), nýtt samkomulag um fræbera (e. New deal for Poolinators) auk almennu landbúnaðarstefnunnar (e. EU common agricultural policy) fyrir tímabilið 2023-2027.

Í tillögum um breytingar á reglugerð um sjálfbæra notkun skordýraeiturs eru sett fram metnaðarfull markmið um að draga úr notkun kemískra varnarefna í ESB, þar á meðal í landbúnaði. Í reglugerðinni er kveðið á um að dregið verði út notkun skordýraeiturs í landbúnaði um 50% fyrir árið 2030 miðað við meðaltal áranna 2015, 2016 og 2017.

Er það niðurstaða framkvæmdastjórnarinnar, með hliðsjón af framangreindu, að leggja beri áherslu á framgang framangreindra stefnumála og aðgerða fremur en að leggja til nýjar lagabreytingar. Litið er á frumkvæðismálið og þær áherslur sem þar birtast sem skýra hvatningu til stofnanna ESB um ná árangri í þeim efnum.

Ný stefnumörkun um dróna

Í nóvember sl. birti framkvæmdastjórn ESB orðsendingu til Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB, efnahags- og félagsmálanefndar ESB og svæðanefndarinnar um stefnumörkun stjórnarinnar um frekari þróun markaða með dróna. Um er að ræða 2. útgáfu stefnumörkunar á þessu sviði (e. A Drone Strategy 2.0 for a Smart and Sustainable Unmanned Aircraft Eco-System in Europe) og byggir hún á núgildandi regluverki sem stutt hefur við framþróun tækninnar og markaða með dróna. Eru drónar nú m.a. notaðir við eftirlit með innviðum, til að fylgjast með olíumengun o.s.frv. Einnig er nú t.d. unnið að því nýta dróna til að senda lyf og lækningavörur á milli heilbrigðisstofnana.

Markaður með dróna hefur vaxið hröðum skrefum og er í stefnumörkun framkvæmdastjórnarinnar lögð áhersla á að notkun dróna sé í sátt við samfélagið t.d. hvað varðar hávaða, öryggi og vernd einkalífsins. Framtíðarsýn fyrir notkun dróna horfir til nýrra notkunarsviða, s.s. í þágu neyðarþjónustu, eftirlits og fyrir mikilvæga sendingarþjónustu. Einnig er í stefnumörkuninni litið til þess að drónar geti mögulega verið nýttir til þess að flytja fólk á milli staða í framtíðinni.

Stefnumörkuninni er ætlað að varða leiðina að kröftugum neytendamarkaði með dróna. Hún leggur grunninn að öryggisreglum um rekstur dróna og setur fram ramma um öryggiskröfur sem þeir þurfa að uppfylla.

19 aðgerðir eru boðaðar og snúa þær að eftirfarandi atriðum:

Að settar verði nánari reglur fyrir lofthæfi dróna.

Að settar verði reglur um menntun og þjálfun þeirra sem stjórna svokölluðum eVOLT drónum þ.e. mönnuðum drónum, rafmagnsdrifum drónum og drónum sem gerðir eru fyrir lóðrétt flugtak og lendingu.

Að settur verði á fót nýr stafrænn vettvangur er hafi það hlutverk að styðja við þróun sjálfbærrar drónatækni.

Að unnið verði að vegvísi fyrir tækniþróun dróna þar sem rannsóknar- og nýsköpunarvinnu er forgangsraðað.

Að skilgreindar verði forsendur fyrir netöryggisvottun dróna.

Útboð á uppbyggingu öryggisfjarskipta um gervihnetti

Eins og greint var frá í Vaktinni 10. mars sl. var reglugerð um öryggisfjarskiptakerfi um gervihnetti nýlega samþykkt í ráðherraráði ESB (e. Infrastructure for Resilience, Interconnectivity and Security by Satellite - IRIS²). Á grundvelli þeirrar reglugerðar hefur framkvæmdastjórnin nú auglýst útboð á fyrsta áfanga kerfisins, sem metinn er á 2,4 milljarða evra.

Brussel-vaktin, fréttabréf fastanefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

24. mars 2023 | Framfylgd framkvæmdaáætlunar Græna sáttmálans |
Að þessu sinni er fjallað um:

framfylgd framkvæmdaáætlunar Græna sáttmálans

30 ára afmæli innri markaðarins og markmið ESB um aukna samkeppnishæfni á komandi árum

fund leiðtogaráðs ESB

fund umhverfisráðherra ESB og umræður um fráveitutilskipun o.fl.

tilskipun um grænar umhverfisfullyrðingar

tilskipun um viðgerðir á vörum

stefnumótun á sviði siglingaöryggis

skráningu afurðaheitisins „íslenskt lambakjöt“

fund sameiginlegu þingmannanefndar Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og umræður um flugmálið

heimsókn ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytis og utanríkisráðuneytis til Brussel

Næsti útgáfudagur Brussel-vaktarinnar er áætlaður 21. apríl nk.

Framfylgd framkvæmdaáætlunar Græna sáttmálans

Framkvæmdastjórn ESB hefur að undanförnu unnið hörðum höndum að framgangi framkvæmdaáætlunar Græna sáttmálans sem kynnt var með orðsendingu 1. febrúar sl. Eins og nánar er gert grein fyrir í Vaktinni 10. febrúar sl. er áætlunin í grófum dráttum byggð á fjórum meginstoðum, þ.e. (1) einföldun regluverks, (2) greiðara aðgengi að fjármögnun, (3) færnisátaki og (4) frjálsum og sanngjörnum viðskiptum og öruggum aðfangakeðjum.

Framgangur náðist er varðar þriðju stoðina þegar tekin var ákvörðun 7. mars sl. um verkefnið Evrópska færniárið (e. European Year of Skills), sbr. umfjöllun í Vaktinni 10. febrúar og 10. mars sl.

Er kemur að annarri stoðinni þá voru veigamikil skref stigin 9. mars sl. þegar ákveðið var að rýmka tímabundið reglur um ríkisaðstoð á sviðum sem teljast mikilvæg vegna umskiptanna yfir í kolefnishlutlaust hagkerfi. Samhliða voru gerðar breytingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar sem veitir undanþágur frá tilkynningarskyldu vegna ríkisaðstoðar (e. General Block Exemption), sbr. einnig nánari umfjöllun í Vaktinni 10. mars sl.

Tillaga að reglugerð um kolefnishlutlausan tækniiðnað (e. Net-Zero Industry Act) fellur undir fyrstu stoðina og var hún lögð fram 16. mars sl. Markmið og tilgangur reglugerðarinnar er að ramma inn ráðstafanir sem ætlað er að styðja við uppbyggingu á tækniiðnaði í ESB á sviði grænnar orku og orkuskipta. Reglugerðinni er þannig ætlað að auka viðnámsþol og samkeppnishæfni slíks iðnaðar í ESB. Markmiðið er að framleiðslugeta græns tækniiðnaðar innan ESB geti mætt a.m.k. 40% af þörfum innri markaðarins fyrir árið 2030. Miðar reglugerðin að því að auka fyrirsjáanleika, hraða leyfisveitingum, stuðla að nýsköpun og einfalda regluverk er varðar kolefnishlutlausan tækniiðnað. Með þessu móti er ætlunin að hvetja til fjárfestinga í allri virðiskeðju græns tækniiðnaðar, svo sem á sviði sólar- og vindorku, nýtingar sjávarfalla, jarðvarmavirkjana, rafhlöðugerðar, varmadæluframleiðslu, vetnisframleiðslu, rafeldsneytisframleiðslu og hvers kyns framleiðslu endurnýjanlegra orkugjafa en einnig m.a. við nýtingu nýrrar hátækni til framleiðslu á kjarnorku sem lágmarkar myndun úrgangs við framleiðsluna.

Í því skyni að lágmarka reglubyrði og einfalda kerfið er m.a. kveðið á um svonefnt „one stop shop“ fyrirkomulag. Skulu aðildarríki hvert fyrir sig fela einu bæru stjórnvaldi ábyrgð á öllu utanumhaldi, framkvæmd og upplýsingagjöf um leyfisveitingar vegna verkefna tengdum kolefnishlutlausum tækniiðnaði sem falla undir gildissvið reglugerðarinnar. Skal viðkomandi stjórnvald gegna ráðgjafarhlutverki um hvernig einfalda megi stjórnsýslu á þessu sviði og tryggja að framkvæmdaraðilar þurfi eingöngu að eiga samskipti við einn opinberan aðila í tengslum við leyfisveitingar.

Endurskoðun reglna um raforkumarkað ESB fellur einnig undir fyrstu stoðina um einföldun regluverks og hefur framkvæmdastjórn ESB nú birt tvær tillögur um endurskoðun reglna á því sviði. Hafa tillögurnar jafnframt verið birtar í samráðsgátt ESB, sjá hér og hér, og er umsagnarfrestur til 18. maí nk.

Tillaga að reglugerð um mikilvæg hráefni (e. Critical Raw Materials Act) fellur undir fjórðu stoðina og var hún lögð fram samhliða framangreindri tillögu að reglugerð um kolefnishlutlausan tækniiðnað. Markmið tillögunnar er að tryggja framboð og aðgang að mikilvægum hrávörum innan ESB en nægt framboð ýmissa mikilvægra hráefna er ómissandi ekki bara fyrir framgang framkvæmdaáætlunar Græna sáttmálans heldur einnig stafrænu umskiptin, geimáætlun ESB, varnarmál og svo mætti lengi telja. ESB er nú mjög háð innflutningi á ýmsum mikilvægum hráefnum og í sumum tilvikum hafa birgjar í einstökum ríkjum hálfgerða einokunarstöðu. Þannig er markmið reglugerðarinnar jafnframt að draga úr þeirri áhættu sem getur fylgt því að vera háður tilteknum birgjum að þessu leyti með því að auka eigin framleiðslu mikilvægra hráefna og endurvinnslu slíkra efna og auka fjölbreytni í aðfangakeðjum. Til að ná þessu fram á að nýta styrkleika innri markaðarins og alþjóðlegt samstarf, sbr. meðal annars áform um að koma á fót vettvangi samstarfsríkja á sviði mikilvægra hráefnaviðskipta (e. Critical Raw Materials Club) og eru töluleg markmið sett fram í þeim efnum. Þá er reglugerðinni ætlað að styðja við nýsköpun og rannsóknir á þessu sviði. Í viðaukum I og II með tillögunni eru þær hráefnategundir sem teljast mikilvægar taldar upp og skilgreindar. Reglugerðartillögunni fylgir orðsending frá framkvæmdastjórninni þar sem nánar er gerð grein fyrir stefnumörkun á sviði mikilvægra hráefna.

Margt fleira er í bígerð er varðar fjórðu stoðina og ber þar hæst samtal ráðamanna í ESB og Bandaríkjunum um aukið samstarf, sbr. m.a. sameiginlega yfirlýsingu forseta Bandaríkjanna og forseta framkvæmdastjórnar ESB frá 10. mars sl. sem birt var eftir fund þeirra sama dag í Washington.

Samhliða framangreindu kynnti framkvæmdastjórn ESB hugmyndir um stofnun svonefnds Vetnisbanka Evrópu í formi orðsendingar til Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB, efnahags- og félagsmálanefndar ESB og svæðanefndarinnar. Er orðsendingunni m.a. ætlað að senda út skýr skilaboð um að ESB leggi áherslu á aukna vetnisframleiðslu og þróun á því sviði. Er gert ráð fyrir að fyrstu styrkir til slíkrar framleiðslu verði boðnir út á komandi hausti úr nýsköpunarsjóði ESB á sviði loftlagsmála (e. Innovation Fund) þar sem valin framleiðsluverkefni geti fengið framleiðslustyrk fyrir hvert framleitt kíló af vetni í allt að 10 ár.

30 ára afmæli innri markaðarins og markmið ESB um aukna samkeppnishæfni á komandi árum

Framkvæmdastjórn ESB birti í síðustu viku tvær orðsendingar þar sem 30 ára afmæli innri markaðarins er fagnað og litið yfir farinn veg og framtíðarhorfur metnar. Kemur fram í orðsendingunum að innri markaðurinn, sem nær til á fimmta hundrað milljóna manna, þar sem um 23 milljónir fyrirtækja eru starfrækt og þar sem af 15% af vergri heimsframleiðslu á sér stað, sé án nokkurs vafa drifkraftur efnahags innan aðildarríkja ESB og að ávinningurinn af stofnun hans seint á síðustu öld verði vart metinn til fjár.

Lögð er áhersla á mikilvægi þess að áfram verði unnið að því að draga úr viðskiptahindrunum og samþjöppun á markaðinum enda sé það nauðsynlegur þáttur til að viðhalda og efla samkeppnishæfni markaðarins til lengri tíma. Fram kemur að alþjóðaviðskiptakerfið sé nú á krossgötum og að vinna þurfi markvisst að því að tryggja að Evrópa verði áfram aðlaðandi staður fyrir fyrirtæki og þar spili græn og stafræn umskipti höfuðmáli. Þannig þurfi að aðlaga innri markaðinn að breytingum sem eru að verða. Í því sambandi ítrekar framkvæmdastjórnin mikilvægi þess að gildandi reglum sé framfylgt og að dregið sé úr innleiðingarhalla á ESB-reglum í aðildarríkjunum, um leið og unnið sé markvisst að því að fjarlægja hindranir á vettvangi aðildarríkjanna, einkum hindrunum er lúta að þjónustu yfir landamæri, verslun, byggingarstarfsemi, ferðaþjónustu, viðskiptaþjónustu og grænum orkuviðskiptum.

Í því sambandi hyggst ESB halda áfram þeirri vinnu sem hefur átt sér stað á vettvangi Single Market Enforcement Task Force (SMET) og hefur nú þegar sett sér markmið um að leysa 90% þeirra mála sem rata á borð SOLVIT, sem er miðstöðvanet þvert á ríki innri markaðarins þar sem einstaklingar og fyrirtæki geta leitað ef þeir telja opinber yfirvöld brjóta á rétti sínum.

Til þess að tryggja samkeppnishæfni ESB til lengri tíma hyggst framkvæmdastjórn ESB vinna innan níu útlistaðra áherslusviða þ.e. að viðhalda virkum innri markaði, að viðhalda og tryggja aðgang að einkafjármagni og efla einkafjárfestingar, viðhalda og efla opinberar fjárfestingar, styðja við og efla rannsóknir og nýsköpun, hraða orkuskiptum, efla hringrásarhagkerfið, hraða stafrænni umbreytingu, efla menntun og færni og að tryggja sjálfræði ESB með opnum alþjóðlegum viðskiptum og nánara samstarfi við bandalagsþjóðir.

Orðsendingar þessar koma í kjölfar umræðu og áhyggjuradda sem uppi hafa verið um hvert innri markaðurinn stefni nú á tímum aukinnar ríkisaðstoðar og einangrunarhyggju, sbr. t.d. IRA-löggjöf Bandaríkjamanna (e. Inflation Reduction Act) og framkvæmdaáætlun Græna sáttmála ESB, sbr. meðal annars umfjöllun hér að framan um framfylgd þeirrar áætlunar. Er orðsendingunum og þeirri stefnumörkun sem þar er sett fram til lengri tíma vafalaust ætlað að slá á þær áhyggjuraddir.

Fundur leiðtogaráðs ESB

Leiðtogar aðildarríkja ESB komu saman til reglulegs fundar á vettvangi leiðtogaráðs ESB í gær, 23. mars, og síðan jafnframt á vettvangi evruráðsins (e. Euro Summit) í dag, 24. mars.

Árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu, refsiaðgerðir og varnar- og öryggismál almennt voru þungamiðja umræðunnar á fyrri fundardeginum. Framfylgd framkvæmaáætlunar Græna sáttmálans var einnig til umræðu, sbr. sérstaka umfjöllun um þau málefni hér að framan, og kölluðu leiðtogarnir eftir því að meðferð framkominna tillagna yrði hraðað. Þá var staða innri markaðar ESB og samkeppnishæfni markaðarins til lengri tíma til umræðu en til grundvallar þeirri umræðu lágu orðsendingar sem framkvæmdastjórn ESB gaf út í síðustu viku í tilefni af 30 ára afmæli innri markaðarins en einnig er fjallað sérstaklega um efni þeirra orðsendinga í Vaktinni hér að ofan. Auk þessa voru orku-, viðskipta-, fæðuöryggis- og innflytjendamál til umfjöllunar. Sjá nánar um ályktanir ráðsins um framangreind málefni hér. Aðalritari Sameinuðu þjóðanna, António Guterres, var sérstakur gestur fundarins og voru ýmis málefni tekin til umræðu á fundi ráðsins með honum, sjá nánar hér. Staða efnahags- og peningamála almennt og sérstaklega staða mála á fjármálamörkuðum voru umfjöllunarefni evruráðsfundarins, sbr. m.a. yfirlýsingar sem gefnar voru út í kjölfar fundarins, sjá hér og hér.

Fundur umhverfisráðherra ESB – umræður um fráveitutilskipun o.fl.

Umhverfisráðherrar ESB komu saman til fundar á vettvangi ráðherraráðs ESB þann 16. mars sl. Meðal umræðuefna á fundinum var tillaga að endurskoðaðri tilskipun um hreinsun skólps frá þéttbýli, svonefnd fráveitutilskipun, en um hana og afstöðu Íslands til málsins var fjallað í Vaktinni 10. mars sl.

Með tillögunni, sem er hluti af áætlun ESB um að ná svonefndri „núllmegnun“ (e. Zero pollution action plan) fyrir árið 2050, er lagt til að gildissvið núverandi tilskipunar verði útvíkkað þannig að skylda til hreinsunar á skólpi muni ná til smærri þéttbýlisstaða en áður, eða til fráveitu með 1.000 persónueiningar (pe.) í stað 2.000, auk þess sem kveðið er á um að stærri þéttbýli setji fram áætlun vegna yfirfalls frá regnvatni. Tillagan gerir ráð fyrir að sett verði bindandi orkuhlutleysismarkmið fyrir allar fráveitur með það að lokamarkmiði að fráveitugeirinn verði orkuhlutlaus árið 2040. Eru skólphreinsistöðvar í þéttbýli í þessu skyni hvattar til að framleiða orku úr endurnýjanlegum orkugjöfum fyrir starfsemi sína og nota seyru til að framleiða gas til reksturs þeirra.

Í umræðum um framangreindar breytingar kom fram að samstaða væri um það í ráðinu að endurskoðun tilskipunarinnar væri tímabær og var tillögunni fagnað þar sem hún miðar að því ná yfir nýjar umhverfisógnir og bæta lýðheilsu og umhverfi. Eftir sem áður væri ljóst að það væri margt í tillögunni sem þyrfti að skoða betur. Meðal annars bentu margir ráðherrar á að tímafrestir væru- sumir mjög metnaðarfullir og ljóst að erfitt yrði að uppfylla kröfur fyrir tilsettan tíma. Breytingartillögunar krefjist m.a. uppbyggingar á nýjum innviðum og því sé mikilvægt að tímafrestir séu raunhæfir. Var í þessu samhengi m.a. bent á að mörg ríki eigi enn töluvert í land til að uppfylla kröfur núgildandi tilskipunar. Þá bentu nokkrir ráðherrar á að tillagan tæki ekki nægjanlegt tillit til mismunandi aðstæðna og að í sumum tilvikum væri nær að skoða kröfur til hreinsunar út frá viðtaka og staðbundnum aðstæðum en út frá fjölda persónueininga. Þá sé mikilvægt að taka sérstakt tillit til dreifbýlli svæða og tengja fráveitumál betur við stjórn vatnamála og ríma þær áhyggjuraddir við framkomna afstöðu Íslands í málinu. Auk þess kom fram í umræðum að skýra þyrfti betur hvað væri átt við með orkuhlutleysi (e. energy neutrality). Loks voru margir ráðherrar þeirra skoðunar að framkvæma þyrfti ítarlegra áhættumat og fara í frekari kostnaðar- og ábatagreiningu.

Í máli fulltrúa framkvæmdastjórnar ESB á fundinum kom fram að framkvæmd gildandi tilskipunar hefði skilað miklum árangri og bætt vatnaumhverfi í Evrópu verulega. Nú þyrfti að halda áfram og setja markið enn hærra.

Svíar sem nú fara með formennsku í ráðherraráðinu, sem og Spánverjar sem taka munu við formennsku um mitt þetta ár, leggja mikla áherslu þetta mál og má vænta þess að markvisst verði unnið að málinu á næstunni enda þótt að tímalína áframhaldandi vinnu liggi enn sem komið er ekki fyrir.

Á fundinum samþykktu ráðherrarnir einnig samningsafstöðu (almenna nálgun) vegna væntanlegra viðræðna við Evrópuþingið og framkvæmdastjórn ESB um tillögu um breytingar á tilskipun um losun frá iðnaði. Á fundi umhverfisráðherra ESB þann 24. október 2022 var stefnumótandi umræða um tillöguna og jafnframt var farið yfir stöðu viðræðna um tillöguna á fundi ráðherranna þann 20. desember 2022. Stefnt er að því að klára málið á þessu ári.

Á fundinum fór auk þess fram stefnumarkandi umræða um tvö önnur mál. Annars vegar um tillögu um ramma utan um vottun á fjarlægingu kolefnis og hins vegar um tillögu um umbúðir og umbúðaúrgang en efnislega var fjallað um þá tillögu í Vaktinni 2. desember sl.

Tilskipun um grænar umhverfisfullyrðingar

Þann 22. mars sl. lagði framkvæmdastjórn ESB fram tillögu að tilskipun um efni og miðlun grænna umhverfisfullyrðinga. Markmið tillögunnar er að berjast gegn svonefndum grænþvotti og villandi umhverfisfullyrðingum við markaðssetningu vöru og þjónustu og tryggja að neytendur geti með skýrari hætti gengið úr skugga um að vara sem seld er undir grænum formerkjum sé það í raun og veru. Regluverkið mun jafnframt gagnast þeim fyrirtækjum sem raunverulega leggja sig fram um að auka sjálfbærni í vöru- og þjónustuframboði sínu og hlífa þeim við óheiðarlegri og ósanngjarnri samkeppni.

Framangreind tillaga kemur til viðbótar við tillögu framkvæmdastjórnarinnar frá því í mars 2022 sem einnig varðar grænar umhverfisfullyrðingar og bann við grænþvotti.

Tillagan er hluti af Græna sáttmálanum og þriðja tillögupakkanum, sem ætlað er að styðja við hringrásarhagkerfið, sbr. einnig framkomnar tillögur um viðgerðir á vörum sem fjallað eru um hér að neðan. Um fyrri tvo tillögupakkana um hringrásarhagkerfið var fjallað í Vaktinni 1. apríl sl.

Sjá nánar upplýsingablað  og vefsíðu um grænar umhverfisfullyrðingar.

Tilskipun um viðgerðir á vörum

Þann 22. mars sl. lagði framkvæmdastjórn ESB fram tillögu að nýrri tilskipun um sameiginlegar reglur sem ætlað er að stuðla að auknum viðgerðum á biluðum og skemmdum vörum. Markmiðið er að draga úr óþarfa sóun í hagkerfinu og þeim neikvæðu umhverfisáhrifum sem fylgir. Þróun síðustu áratuga hefur verið á þann veg að vörur sem bila eða skemmast eru gjarnan endurnýjaðar fremur en að gert sé við þær og líftími þeirra þannig lengdur. Er tilskipuninni ætlað að skapa hvata fyrir fólk til að láta gera við vörur sínar þegar það telst hagkvæmt auk þess sem í tillögunum felst hvatning fyrir framleiðendur vara til að þróa sjálfbærara viðskiptamódel. Þá muni aukin eftirspurn neytenda eftir viðgerðarþjónustu skila sér aukningu á framboðshlið slíkrar þjónustu.

Í tillögunni er kynnt til sögunnar ný regla sem felur í sér að neytendur eigi rétt til að óska viðgerðar þegar hún er möguleg, bæði innan og utan ábyrgðartíma vöru. Innan ábyrgðartíma vöru verður seljendum gert skylt að bjóða upp á viðgerðarþjónustu. Eftir að ábyrgð er útrunnin færist ábyrgð veitingu viðgerðarþjónustu að meginreglu yfir á framleiðanda vöru, samkvæmt nánari reglum.

Tillagan um „rétt til viðgerðar“ var kynnt í stefnumörkun um réttindi neytenda frá nóvember 2020 og í aðgerðaráætlun um hringrásarhagkerfið frá mars 2020.

Tillagan er viðbót við önnur tæki og úrræði sem ætlað er stuðla að því að neytendur taki upp sjálfbært neyslumynstur í auknum mæli í samræmi við markmið Græna sáttmálans. Á framboðshliðinni styður tilskipunin m.a. við markmið reglugerðar um visthönnun vara. Á eftirspurnarhliðinni, styður tillagan m.a. við markmið annarra tillagna sem ætlað er að efla neytendur til grænna umskipta.

Stefnumótun ESB á sviði siglingaöryggis

Þann 10. mars sl. birti framkvæmdastjórn ESB orðsendingu til Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB um endurskoðun stefnumótunar og aðgerðaáætlunar á sviði siglingaöryggis og hafverndar almennt. Með orðsendingunni er leitast við bregðast við sýnilegum ógnum á hafsvæðum sem fara vaxandi.

Mikilvægi hafsins fyrir efnahag ESB er mikið og fer vaxandi. Yfir 80% af vöruviðskiptum milli ríkja heims fer fram með sjóflutningum, um tveir þriðju af olíu og gasi er annað hvort flutt um hafsvæði eða unnið af hafsbotni. Þá fer allt að 99% af alþjóðlegum gagnaflutningum um sæstrengi.

Ráðherraráð ESB kallaði eftir endurskoðun á stefnumótun í siglingaöryggismálum um mitt ár 2021 en núgildandi stefnumótun er frá árinu 2014 og var hún síðast endurskoðuð árið 2018. Megin tilgangur siglingaöryggisáætlunar ESB er að vernda hagsmuni ESB á hafinu, þ.e. hagsmuni borgaranna, hagkerfisins og innviði og landamæri sambandsins. Henni er jafnframt ætlað að stuðla að vernd auðlinda og lífríkis hafsins og framfylgja alþjóðalögum svo sem Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þá er markmiðið að byggja upp getu til að bregðast hratt við ógnum sem upp koma og tryggja nauðsynlega menntun og þjálfun í því skyni.

Í orðsendingunni eru sex megin viðfangsefni skilgreind:

Efling viðbúnaðar á sjó, meðal annars með skipulagningu flotaæfinga á vettvangi Evrópusambandsins, aukinni strandgæslu á evrópskum hafsvæðum og betri skilgreiningu hafsvæða sem krefjast vöktunar og samræmdrar viðveru á sjó og í lofti.

Aukið alþjóðlegt samstarf, meðal annars með því að efla samstarf ESB og NATO og annarra alþjóðlegra samstarfsaðila til að framfylgja regluverki á hafinu, einkum Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna (UNCLOS).

Efling vöktunar og upplýsingaskipta, meðal annars með auknu almennu eftirliti gæsluskipa og með því að styrkja sameiginlegt upplýsingamiðlunarkerfi ESB á sviði siglingaöryggismála (e. Common Information Sharing Environment, CISE).

Aðgerðir til að auka getu til að bregðast við áhættu og ógnum, meðal annars með því að halda reglulega æfingar á sjó með sameiginlegri þátttöku borgaralegra og hernaðarlegra aðila, vakta og vernda mikilvæg grunnvirki o.s.frv.

Eflingu varnargetu, meðal annars með samræmingu krafna um varnartækni á hafi, með því að setja aukinn kraft í vinnu við þróun nýrrar tegundar herskipa, sbr. verkefnið „European Patrol Corvette“ og bæta varnir gegn kafbátum.

Aukinni þjálfun og endurmenntun, m.a. með það að markmiði að auka getu til að takast á við fjölþáttaógnir og netógnir.

Íslenskt lambakjöt hlýtur vernd sem skráð afurðarheiti í ESB

Framkvæmdastjórn ESB samþykkti skráninguna „Íslenskt lambakjöt“ (e. Icelandic lamb) sem verndað afurðarheiti í síðustu viku með tilkynningu í Stjórnartíðindum ESB. Íslenskt lambakjöt fékk vernd sem afurðarheiti á Íslandi árið 2018 og Íslensk lopapeysa árið 2020 og eru þetta einu afurðarheitin sem hafa fengið slíka vernd á Íslandi.

Lög um vernd afurðarheita voru samþykkt á Íslandi árið 2014. Tilgangur laganna er að vernda afurðarheiti sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu með það að markmiða að stuðla að neytendavernd, auka virði afurðar og koma í veg fyrir óréttmæta viðskiptahætti. Í lögunum er einnig kveðið á um vernd erlendra afurðarheita á Íslandi á grundvelli milliríkjasamnings um gagnkvæmisvernd.

Vernd afurða hefur tíðkast um árabil í nágrannalöndum okkar og á það t.d. við um osta frá Frakklandi og pylsur og hráskinku frá Ítalíu og Spáni. Í Evrópusambandinu tóku sambærileg lög gildi árið 2012.

Í gildi er samningur milli Íslands og Evrópusambandsins um vernd landfræðilegra merkinga landbúnaðarfurða og matvæla frá 2017. Samningurinn kveður á um gagnkvæma viðurkenningu á vernduðum afurðarheitum frá hvorum aðila um sig. Í samningnum eru skráð um 1200 afurðarheiti hjá ESB en engin hjá Íslandi en með skráningu afurðarheitisins Íslenskt lambakjöt af hálfu ESB verður það heiti væntanlega fært inn í samninginn við næstu endurskoðun.

Umsækjandi um vöruheitið Íslenskt lambakjöt var Icelandic lamb ehf. (áður Markaðsráð kindakjöts) sem er í eigu Landssamtaka sauðfjárbænda.

Fundur sameiginlegu þingmannanefndar EES – umræður um flugmálið

Reglulegur fundur sameiginlegu þingmannanefndar Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) fór fram í Strassborg 15. og 16. mars sl. Nefndin samanstendur af þingmönnum þjóðþinga EES/EFTA-ríkjanna, Íslands, Noregs og Liechtenstein og þingmönnum Evrópuþingsins auk þess sem Sviss á áheyrnarfulltrúa í nefndinni.

Auk almennra umræðna um framkvæmd EES-samningsins voru eftirtalin mál m.a. til umræðu; staða mála í Úkraínu, grænu umskiptin og fjármögnun þeirra, sbr. m.a. viðbrögð ESB við IRA-löggjöf Bandaríkjanna, og hvernig varðveita megi samkeppnisstöðu innri markaðar EES alþjóðlega, annars vegar, og inn á við, hins vegar, þ.e. á milli aðildarríkja EES innbyrðis. Þá voru löggjafartillögur um auknar valdheimildir framkvæmdastjórnar ESB til ráðstafana á innri markaði í neyðaraðstæðum (e. Single Market Emergency Instrument – SMEI) m.a. til umræðu, sbr. nánar um efni þeirra tillagna í Vaktinni 23. september sl.

Á fundinum flutti fastafulltrúi Noregs gagnvart ESB og núverandi formaður EES-EFTA hliðar sameiginlegu EES-nefndarinnar, Rolf Einar Fife, ræðu um það sem er efst á baugi við rekstur samningsins frá sameiginlegum sjónarhóli EES/EFTA-ríkjanna.

Í umræðum á fundinum gerði formaður Íslandsdeildar þingmannanefndarinnar, Ingibjörg Ólöf Isaksen, fyrirhugaðar breytingar á viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir fyrir flug að umræðunefni og lýsti hún því yfir og útskýrði hvers vegna það væri nauðsynlegt fyrir Ísland að fá samþykkta sérstaka aðlögun fyrir Ísland við upptöku gerðarinnar í EES-samninginn. Í máli fulltrúa framkvæmdastjórnar ESB, Thomas McClenaghan, kom fram að ESB væri afar vel kunnugt um áhyggjur Íslands af málinu og að það hefði verið rætt á fjölmörgum fundum með fulltrúum Íslands, bæði á tillögustigi og síðar í ferlinu, vísaði hann þá jafnframt til þess að fyrirhugað væri að taka málið upp á fundi síðar í vikunni og vísaði hann þar til funda ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytis og utanríkisráðuneytis með háttsettum embættismönnum framkvæmdastjórnarinnar, sbr. umfjöllun um þá fundi hér að framan. Kom fram í máli hans að tímaramminn til að ná niðurstöðu um málið væri knappur þar sem áætluð gildistaka breytinganna væri 1. janúar 2024 og að öll aðildarríki ESB þyrftu að samþykkja sérstaka undanþágu/aðlögun fyrir Ísland til að hún gæti komið til framkvæmda.

Horfa má á upptökur af fundinum á vef Evrópuþingsins, sjá hér fundarlotu þann 15. mars og hér fundarlotu þann 16. mars. Framangreindar umræður um flugmálið hefjast á fertugustu og sjöundu mínútu yfir þrjú þann fimmtánda.

Heimsókn ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytis og utanríkisráðuneytis til Brussel

Bryndís Hlöðversdóttir, ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytis, og Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytis, heimsóttu Brussel nýlega. Tilgangur fararinnar var að fylgja eftir fyrirheiti í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar þess efnis að aukin áhersla verði lögð á framkvæmd og þróun EES-samningsins þannig að hagsmunir og fullveldi Íslands í samstarfi og viðskiptum við önnur ríki verði tryggt. Ráðuneytisstjórarnir áttu fundi með háttsettum embættismönnum innan ESB, þ.e. Ilze Juhansone, sem stýrir allsherjarskrifstofu framkvæmdastjórnar ESB, næstráðanda hennar, John Watson, og Stefano Sannino, ráðuneytisstjóra utanríkisþjónustu ESB. Á fundunum var m.a. rætt um breytingar á viðskiptakerfi með losunarheimildir í flugi, sem reglulega hefur verið fjallað um hér í Vaktinni, m.a. 24. febrúar sl. og viðbrögð ESB við bandarísku IRA-löggjöfinni, sbr. framkvæmdaáætlun Græna sáttmálans, en um þau málefni hefur einnig verið fjallað ítarlega um í Vaktinni að undanförnu, m.a. 10. febrúar sl., sbr. einnig umfjöllun hér að framan um framfylgd þeirrar áætlunar.

Að auki áttu ráðuneytisstjórarnir fundi með starfsmönnum sendiráðsins þar sem skipulag hagsmunagæslu Íslands gagnvart ESB og í tengslum við rekstur EES-samningsins var rætt í víðu samhengi.

Brussel-vaktin, fréttabréf fastanefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

10. mars 2023 | Jafnréttisbaráttan, kolefnislausar bifreiðar og fráveitur |
Að þessu sinni er fjallað um:

alþjóðlegan baráttudag kvenna og refsiaðgerðir Evrópusambandsins (ESB)

ágreining um efni reglugerðar um kolefnishlutlausar bifreiðar

afstöðu Íslands til nýrrar fráveitutilskipunar ESB

fund samgönguráðherra og orkumálaráðherra ESB og viðskiptakerfi með losunarheimildir fyrir flug

fund Schengen-ráðsins

yfirlit yfir framkvæmd tilskipunar um tímabundna vernd vegna stríðsins í Úkraínu

tímabundna útvíkkun reglna um ríkisaðstoð

breytingar á gjöldum og þóknunum sem Lyfjastofnun Evrópu (EMA) innheimtir

tillögur um bætt umferðaröryggi og aukið samstarf vegna umferðarlagabrota

reglugerð um öryggisfjarskiptakerfi um gervihnetti

samkomulag um Evrópska færniárið

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna er 8. mars ár hvert og var dagurinn í ár tileinkaður jafnrétti á tímum stafrænna umbreytinga. Ljóst er að á heimsvísu er gríðarmikið verk óunnið í jafnréttismálum. Þannig lét aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, António Guterres, þau orð falla í tilefni dagsins að með sama áframhaldi myndi það taka 300 ár að ná markmiðum um jafnrétti kynjanna og ESB hefur tekið í sama streng.

Þann 7. desember 2000 samþykkti ráðherraráð ESB reglugerð um beitingu þvingunar- og refsiaðgerða gegn einstaklingum og aðilum, þar á meðal ríkjum, sem bera ábyrgð á eða taka þátt í alvarlegum mannréttindabrotum. Markmið reglugerðarinnar er berjast gegn slíkum brotum, þar á meðal ofbeldisbrotum gegn konum, á heimsvísu. Þann 7. mars sl. tók ráðherraráð ESB ákvörðun um beita regluverkinu gegn tilgreindum einstaklingum og aðilum sem hafa átt þátt í eða eru taldir bera ábyrgð á alvarlegum ofbeldisbrotum gegn konum. Af þessu tilefni lýsti utanríkismálastjóri ESB, Josep Borrell, því yfir að með þessu léti ESB verkin tala og hét því að ESB myndi berjast gegn hvers kyns ofbeldi gegn konum óháð því hvar í heiminum það ætti sér stað.

Sendiráðið stóð í samvinnu við hin norrænu sendiráðin í Brussel að morgunverðarviðburði helguðum jafnrétti í sviðslistum. Þátttakendur í pallborði komu alls staðar af Norðurlöndum og af Íslands hálfu tók þátt Anna Kolfinna Kuran.

Ágreiningur um reglugerð um kolefnishlutlausar bifreiðar frá og með 2035

Í Vaktinni 4. nóvember sl. var greint frá samkomulagi sem náðst hafði 27. október sl. í þríhliða viðræðum Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB um efni reglugerðar um nýja losunarstaðla fyrir fólksbifreiðar og minni atvinnubifreiðar. Fól samkomulagið í sér að nýskráðar bifreiðar skyldu vera kolefnishlutlausar frá og með árinu 2035, sbr. fréttatilkynningu Evrópuþingsins annars vegar og fréttatilkynningu ráðherraráðsins hins vegar sem birtar voru af þessu tilefni.

Samkomulag í þríhliða viðræðum stofnana ESB um efni löggjafartillagna markar alla jafna endanlega niðurstöðu um meginefni þeirra og markmið, enda þótt textavinnu sé ólokið og formlegri afgreiðslu bæði Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB sömuleiðis. Líður því alla jafnan nokkur tími frá því að samkomulag næst og þar til mál koma til lögformlegrar afgreiðslu.

Var framangreint samkomulag síðan staðfest 16. nóvember sl. af fastafulltrúum aðildarríkja ESB og hinn 14. febrúar sl. var reglugerðin á grundvelli samkomulagsins síðan formlega samþykkt í Evrópuþinginu. Að fengnu samþykki Evrópuþingsins skorti því aðeins formlegt samþykki ráðherraráðs ESB til að löggjöfin teldist endanlega samþykkt og var áætlað að sú afgreiðsla færi fram 7. mars sl.

Það kom því allmikið á óvart þegar talsmaður sænsku formennskunnar í ráðherraráði ESB tilkynnti um það í síðustu viku að afgreiðslu málsins í ráðinu hefði verið frestað um óákveðinn tíma. Ástæðan er uppkomin andstaða Þýskalands við afgreiðslu málsins í óbreyttri mynd, sem m.a. hefur fengið stuðning frá Ítalíu, Tékklandi, Póllandi og Búlgaríu. Sjónarmið þeirra er að ótækt sé að samþykkja reglur um kolefnishlutleysi sem miði við tiltekna tækni. Vilja þau að áfram verði heimilt, þ.e. eftir 2035, að skrá bifreiðar með brunahreyfla svo fremi sem þeir gangi fyrir vistvænu eldsneyti. Málið er sérstakt og hefur hlotið mikið umtal innan ESB og í fjölmiðlum síðan það kom upp enda afar fátítt að mál sem komin eru þetta langt í löggjafarferlinu séu stöðvuð. Þá hefur Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, m.a. þurft að þola gagnrýni úr eigin röðum um hversu seint athugasemdir ríkisstjórnar hans við málið hafa komið fram. Takist ekki að afgreiða reglugerðina í sama formi og hún var samþykkt í Evrópuþinginu, eins og nú er útlit fyrir, er ljóst að taka þarf efni hennar á ný upp í þríhliða viðræðum stofnana ESB og til annarrar umræðu í Evrópuþinginu. Aðrir möguleikar á úrlausn málsins til skemmri tíma kunna þó að vera fyrir hendi og mun það væntanlega skýrast á næstunni hver niðurstaðan verður.

Afstöðuskjal Íslands varðandi nýja fráveitutilskipun ESB

Í Vaktinni 4. nóvember sl. var fjallað um tillögur framkvæmdastjórnar ESB að strangari reglum um mengunarvarnir, um loftgæði, hreinleika yfirborðs- og grunnvatns og meðferð og hreinsun skólps frá þéttbýli.

Tillögurnar hafa verið í opnu samráðsferli og er frestur til að skila inn athugasemdum til 14. mars 2023.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur að undanförnu unnið að afstöðuskjali, og var skjalið kynnt á ríkisstjórnarfundi í dag, 10. mars og í framhaldinu sent framkvæmdastjórn ESB í gegnum samráðsgátt ESB, „Have your say“.

Ísland styður metnaðarfull markmið varðandi vernd ferskvatns og hafs og bendir á að rétt sé að hafa innbyggðan sveigjanleika í tilskipuninni til að ná þeim markmiðum, m.a. vegna þess að aðstæður í mjög strjálbýlu landi eins og Íslandi eru ólíkar þéttbýlum svæðum í Evrópu.

Ísland tók upp fyrri tilskipun ESB um fráveitumál og hefur hún verið innleidd í íslenska löggjöf að mestu leyti en töluvert vantar þó enn upp á framkvæmd hennar. Skoða þarf áætlanir um frekari umbætur í fráveitumálum í ljósi nýrrar væntanlegrar tilskipunar, sem gæti haft áhrif á kröfur í framtíðinni.

Í tillögu framkvæmdastjórnar ESB nú er aukin áhersla á nýtingu skólps sem auðlindar og gert ráð fyrir hertum kröfum um hreinsun skólps frá þéttbýli, m.a. til að takast á við mengun vegna örplasts, hættulegra þrávirkra efna og lyfjaleifa í viðbót við fyrri mengunarvarnakröfur. Einnig er gerð krafa um betri orkunýtni og kolefnishlutleysi fráveitu.

Í afstöðuskjali Íslands segir að mikilvægt sé að tengja hreinsun skólps betur við löggjöf um stjórn vatnamála, þ.e. að hreinsun á skólpi taki mið af ástandi viðtaka og rannsóknum sem segi til um hvers konar hreinsunar er þörf á hverjum stað. Brýnt sé að draga úr mengun frá uppsprettu, sem geti verið auðveldara að gera á Íslandi en víða annars staðar vegna smæðar landsins. Mikilvægt sé að fara eftir meginreglunni sem nefnd hefur verið mengunarbótareglan og felur í sér að kostnaður vegna aðgerða í fráveitumálum sé borinn af mengunarvöldum. Ísland vill leggja áherslu á mikilvægi þess að rými sé gefið fyrir nýsköpun á sviði skólphreinsunar, s.s. með náttúrumiðuðum lausnum eða öðrum kostum, þar sem þeir teljast fýsilegir. Þá er bent á að tímafrestir í tillögunni séu mjög knappir og líklegt að Ísland nái ekki að uppfylla þá.

Endurskoðun fráveitutilskipunarinnar var m.a. til umræðu á vegum hóps innan Evrópuþingsins – the European Parliament Intergroup on Climate Change, Biodiversity and Sustainable Development - þann 9. mars sl. Þessi hópur sameinar fulltrúa Evrópuþingsins (MEPs) úr öllum þingflokkum og þingnefndum til að finna sjálfbærar lausnir á nokkrum af stærstu áskorunum samtímans. Um er að ræða umræðuvettvang sem gerir þingmönnum kleift að hlusta, rökræða og móta hugmyndir og stefnur byggðar á framlagi frá mismunandi haghöfum, svo sem viðkomandi sérfræðingum, félagasamtökum, sveitarfélögum, atvinnulífinu, vísindamönnum og fræðimönnum, í viðurvist fulltrúa framkvæmdastjórnar ESB, ráðherraráðs ESB og aðildarríkjanna og sátu fulltrúar Íslands fundinn jafnframt.

Þá er gert ráð fyrir að tillögur framkvæmdastjórnarinnar komi til umræðu á fundi umhverfisráðherra ESB þann 16. mars nk.

Fundir samgönguráðherra og orkumálaráðherra ESB – Viðskiptakerfi með losunarheimildir fyrir flug

Þann 27. og 28. febrúar sl. voru haldnir óformlegir fundir samgönguráðherra og orkumálaherra ESB í Stokkhólmi. Var Íslandi boðin þátttaka á fundunum og sótti Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra fund evrópskra samgönguráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, fund orkumálaráðherra. Auk þess var haldinn sameiginlegur fundur orkumálaráðherra og samgönguráðherra sem íslensku ráðherrarnir sóttu báðir þar sem framtíð orku- og samgöngumála var rædd í samhengi.

Á sameiginlegum fundi ráðherranna voru orkuskipti í samgöngum rædd en þau eru veigamikill þáttur er kemur að umræðu um orkumál almennt. Samgöngugeirinn tekur til sín 1/3 af orkunotkun í ESB og er ábyrgur fyrir ¼ af heildarlosun gróðurhúsalofttegunda. Fram kom að fjárveitingar til grænna fjárfestinga hafi verið stórauknar og að miklar áskoranir séu fólgnar í því að tryggja næga græna orku til framleiðslu á vistvænu eldsneyti, svo sem vetni og afleiddum orkugjöfum fyrir orkuskipti í samgöngum. Þá var alþjóðleg samkeppnisstaða Evrópu á sviði græns iðnaðar til umræðu, sbr. umfjöllun Vaktarinnar að undanförnu um IRA-löggjöf Bandaríkjanna (BNA) og framkvæmdaáætlun Græna sáttmálans sem felur í sér bein viðbrögð ESB við alþjóðlegri samkeppni á sviði græns iðnaðar og orkuskipta.

Fundur samgönguráðherra

Á fundi samgönguráðherra voru áskoranir í orkuskiptum í samgöngum einnig í brennidepli, en nægt framboð á kolefnislausu eldsneyti er lykillinn að orkuskiptum en framboð er enn sem komið er ekki til staðar. Í máli Adina Valean, framkvæmdastjóra samgöngumála í framkvæmdastjórn ESB, kom fram að framkvæmdastjórnin hefði í sjálfu sér ekki skoðanir á því hvaða lausnir yrðu ofan á heldur væri það hlutverk markaðarins að finna skilvirkustu lausnirnar. Einnig kom fram að í undirbúningi væri að reisa sjö verksmiðjur sem áætlað væri að gætu framleitt um 2,2 milljónir tonna af vistvænu eldsneyti fyrir árið 2030. Meira þyrfti þó að koma til. Ráðast þyrfti í miklar fjárfestingar í samgöngutækjum og innviðum til þess að orkuskiptin næðu fram að ganga. ESB hefði ákveðið að styðja við þessar fjárfestingar í samgöngumálum með framlögum úr sjóðum sambandsins s.s. í gegnum Connecting Europe áætlunina og fleiri áætlanir og sjóði.

Sigurður Ingi Jóhannsson gerði grein fyrir þeim góða árangri sem þegar hefði náðst við rafvæðingu fólksbílaflotans og uppbyggingu rafhleðslustöðva á Íslandi. Hins vegar væru orkuskipti skammt á veg kominn varðandi þungaflutninga. Í því efni ætti eftir að yfirstíga margar áskoranir til þess að ná fram hagkvæmum lausnum, t.d. hvað varðar framleiðslu á grænni orku, vetni og rafeldsneyti, í nægjanlegu magni og á samkeppnishæfu verði og uppbyggingu orkustöðva o.s.frv.

Fundur orkumálaráðherra

Helstu umræðuefni fundarins voru skipulag orkumarkaða, sbr. þá vinnu sem nú stendur yfir um endurskoðun reglna um evrópskan raforkumarkað, og öryggi og viðbúnað til að tryggja orkuframboð næsta vetur og framtíðarstefnu í orkumálum til að tryggja samkeppnishæfni iðnaðarstarfsemi o.fl.

Á fundinum kom fram að staða orkubúskapar í Evrópu væri betri en gert hafði verið ráð fyrir í byrjun vetrar. Staða jarðgassbirgða væri betri vegna milds vetrar og minni notkunar en einnig vegna þess að gasflutningar m.a. frá Noregi, Alsír og Aserbaídsjan hefðu komið í staðinn fyrir rússneskt gas. Eftir sem áður er ljóst að Evrópa þarf að búa sig undir að staðan varðandi jarðgas geti orðið erfið næsta vetur, vegna líklegrar þurrðar á rússnesku gasi, aukinni eftirspurn frá Kína og óvenju litlu framboði á fljótandi jarðgasi. Góðri stöðu nú var þakkað sameiginlegri stefnu og aðgerðum ESB-ríkja, s.s. við innkaup og dreifingu á gasi.

Faith Birol, framkvæmdastjóri Alþjóða orkumálastofnunarinnar (IEA) flutti erindi á fundinum og fór yfir þróun orkumála á umliðnum misserum og horfur framundan. Í máli hans kom fram að staðan væri betri en búist hefði verið við. Tekjur Rússlands af sölu olíu og gass hefðu dregist saman um 40%. Stóraukning hefði orðið í fjárfestingu í endurnýjanlegri orku og varmadælum í Evrópu. Það hefði orðið 15% aukning í sölu rafbíla á milli ára. Losun hefði minnkað um 2,5% á milli ára. Næsti vetur gæti þó orðið erfiðari en sá sem nú sér fyrir endann á. Evrópa þyrfti að móta nýja iðnaðarstefnu, þar sem fyrri stefna hefði byggt um of á aðgengi að ódýrri orku þar sem 35% hennar hefði komið frá Rússlandi. Endurnýjanleg orka og rafvæðing væri framtíðin í iðnaði.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, vakti athygli á því að staða Íslands í orkumálum væri ólík stöðu flestra annarra Evrópuríkja, þar sem Ísland er sjálfu sér nægt varðandi raforku og hita, þökk sé endurnýjanlegum innlendum orkulindum. Ísland sé reiðubúið að deila sinni þekkingu, ekki hvað síst á sviði jarðhitavirkjana, en þar eigi Evrópa meiri möguleika en margir átti sig á. Ráðherra benti á að Ísland standi sig vel hvað varðar orkuskipti í vegasamgöngum. Hlutfall vistvænna ökutækja í landinu sé yfir helmingur nýskráninga og Ísland er í öðru sæti á eftir Noregi í nýskráningum rafbíla. Líkt og hjá öðrum ríkjum sé hins vegar lengra til lands er kemur að orkuskiptum í skipaútgerð og flugsamgöngum. Ísland ætli sér hins vegar einnig að vera í fararbroddi á þeim sviðum og vinna við slíkt væri þegar hafin. Ráðherra greindi frá að hann hefði skipað starfshóp sem er falið að leggja fram tillögur um hvernig megi hraða orkuskiptum í flugi, s.s. með notkun endurnýjanlegs flugvélaeldsneytis fyrir millilandaflug. Hann lagði áherslu á að stefna og reglugerðir Evrópusambandsins varðandi orkuskipti yrðu að vera sanngjarnar og þar yrði að gæta að því að raska ekki samkeppnisgrundvelli.

Viðskiptakerfi með losunarheimildir fyrir flug

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, nýttu báðir tækifærið og ræddu um fyrirhugaðar breytingar á viðskiptakerfi með losunarheimildir fyrir flug. Í máli þeirra beggja kom fram að gæta þyrfti að samkeppnistöðu flugrekstrar og þess að hið nýja kerfi yki ekki hættu á kolefnisleka. Lögðu þeir ríka áherslu á sérstöðu Íslands í þessu tilliti með vísan til landfræðilegrar legu Íslands fjarri meginlandi Evrópu sem muni að óbreyttu valda hlutfallslega meiri kostnaðarauka hjá flugfélögum og sem gera út frá Íslandi, en almennt gerist innan EES-svæðisins, þar sem kostnaður eykst í hlutfalli við fjarlægðir og eins vegna þeirrar staðreyndar að Íslendingar geta almennt ekki nýtt sér aðra samgöngumáta til að komast á milli landa innan EES-svæðisins.

Innviðaráðherra benti á að kerfið skerti sérstaklega samkeppnisstöðu alþjóðlegra tengiflugvalla innan EES-svæðisins í samkeppni við tengiflugvelli utan þess, eins og í Ameríku, Tyrklandi og fleiri stöðum. Samkeppnisstaða tengiflugvallarins á Íslandi myndi að óbreyttu skerðast sérstaklega mikið í samkeppni um flug yfir Atlantshafið vegna hlutfallslega meiri kostnaðar við kaup á ETS-losunarheimildum. Þá skjóti það skökku við að útreikningar sýni að losun kolefnis er jafnan minni í tengiflugi á milli Norður-Ameríku og áfangastaða á meginlandi Evrópu en með millilendingu á öðrum tengiflugvöllum innan svæðisins. Kerfið eins og það er sett upp geti því leitt til kolefnisleka sem væri í þversögn við tilgang viðskiptakerfisins. Skýrt kom fram að nauðsynlegt væri að leita lausna til að jafna samkeppnisstöðu Íslands að þessu leyti.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra greindi frá því að íslensk stjórnvöld hefðu gert ESB skýrlega grein fyrir sjónarmiðum sínum í þessu máli og að nauðsynlegt væri að taka tillit til þeirra. ESB hefði jafnan sýnt skilning og hagsýni er kæmi að því að takmarka og koma í veg fyrir kolefnisleka í loftslagsstefnu sinni og þau sjónarmið hlytu að verða skoðuð í þessu máli um leið og gæta yrði að meginreglunni um jafna samkeppnisstöðu á innri markaði ESB.

Fundur Schengen-ráðsins

Ráðherrar innanríkismála funduðu innan ráðherraráðs ESB í Brussel fimmtudaginn 9. mars. sl. og voru málefni Schengen-svæðisins meðal umræðuefna. Kristján Andri Stefánsson, sendiherra, sótti fundinn f.h. dómsmálaráðherra. Framkvæmdastjórn ESB kynnti nýja yfirlitsskýrslu um stöðuna á Schengen-svæðinu, þ.e. um stöðuna á ytri og innri landamærum svæðisins, um innra öryggi svæðisins, s.s. smygl á einstaklingum, ólögleg viðskipti með fíkniefni og vopn og um skipulagða glæpastarfsemi.

Í umræðum á fundinum var sérstaklega fjallað um vegabréfsáritanir og þá einkum heimild til að víkja til hliðar áður fenginni undanþágu þriðjaríkis frá áritanaskyldu inn á Schengen-svæðið (e. Visa Suspension Mechanisma). Áritanastefna ESB, sem Ísland er þátttakandi í, er í stöðugri þróun og hefur oft reynst mikilvægur liður í utanríkisstefnu ESB, t.d. á síðasta ári í aðgerðum gagnvart Rússlandi vegna innrásar í Úkraínu, og eins gagnvart Vanúatú og liprunaraðgerðum gagnvart Kósovó. Á sama tíma og áritanastefnan hefur nýst vel að mörgu leyti hafa ríkin einnig rekið sig á ákveðnar takmarkanir þegar kemur að beitingu hennar. Ráðherrar voru sammála um mikilvægi heimildar ríkjanna til að víkja til hliðar eða afturkalla áður veitta undanþágu frá áritanaskyldu, verði vart við misnotkun í miklum mæli. Þá voru þeir einnig sammála um að heimildin til að virkja kerfið væri of þröng og ferli málsmeðferðar til töku slíkra ákvarðana væri of langt og flókið. Ráðherrar voru einnig sammála um að samræmi þurfi að vera á milli þeirra viðmiða sem þriðjuríkin þurfa að uppfylla til að fá áritanafrelsi og þeirra viðmiða sem litið er til við mat á því hvort afnema eigi áritanafrelsi. Ríkin voru einnig flest sammála því að eftirlits- eða úttektarkerfi þurfi að vera til staðar. Slíkt kerfi væri til þess fallið að veita þriðjuríkjum aðhald.

Fyrrnefnd skýrsla framkvæmdastjórnarinnar um stöðuna innan Schengen-svæðisins sýnir að met hefur verið slegið innan Evrópu í tilhæfulausum umsóknum um alþjóðlega vernd frá ríkisborgurum þriðjuríkja sem undanþegin eru áritanaskyldu. Efst á listanum eru umsóknir frá ríkisborgurum Venesúela, sem nýtur áritanafrelsis inn á Schengen-svæðið. Í þessu samhengi má nefna að síðastliðin fjögur ár (2018-2022) bárust Íslandi um 900 umsóknir um alþjóðlega vernd frá Venesúela. Fjöldi umsókna jókst um 300% á milli áranna 2021 og 2022. Árið 2022 sóttu um 1.200 einstaklingar frá Venesúela um vernd á Íslandi. Þá má einnig nefna að sl. 4 mánuði hefur fjöldi umsækjenda um vernd frá Venesúela verið hærri en fjöldi umsækjenda frá Úkraínu. Sendiherra Íslands tók til máls á fundinum og benti á framangreint og á mikilvægi þessi að gripið yrði til viðeigandi aðgerða. Á fundinum kom fram hjá framkvæmdastjórn ESB að unnar verði yfirlitsskýrslur um valin ríki sem njóta áritunarfrelsis meðan unnið yrði að breytingum á umræddri reglugerð.

Sænska formennskan upplýsti ráðherranna einnig um gildistöku á endurbættu Schengen-upplýsingakerfi (e. Schengen Information System (SIS)) þann 7. mars sl. Starfræksla Schengen-upplýsingakerfisins hefur löngum þótt einn af mikilvægustu þáttum Schengen-samstarfsins en um er að ræða rafrænt gagnasafn upplýsinga frá þátttökuríkjunum til notkunar á öllu Schengen-svæðinu. Markmið Schengen-upplýsingakerfisins er að tryggja öryggi á Schengen-svæðinu, þar á meðal almannaöryggi og allsherjarreglu, en kerfið treystir eftirlit á ytri landamærum Schengen-svæðisins og greiðir fyrir samvinnu lögregluyfirvalda ríkjanna til að koma í veg fyrir og uppræta brotastarfsemi. Kerfið heldur utan um upplýsingar um eftirlýsta eða horfna einstaklinga, þriðjuríkis borgara sem dvelja ólöglega innan svæðisins, stolna muni, s.s. bíla, vopn, báta og persónuskilríki. Eftir uppfærslu á kerfinu hefur skráningarflokkum fjölgað og er því nú fleiri gögnum og upplýsingum miðlað í gegnum kerfið. Gæði upplýsinganna hefur einnig verið aukið. Endurbætt SIS er grunnurinn að yfirstandandi vinnu á þróaðasta landamæraeftirlitskerfi heims sem mun einnig samanstanda af komu- og brottfararkerfinu (e. Entry/Exit System (EES) og ETIAS-ferðaheimildakerfinu. Ráðherrar ræddu einnig fyrirsjáanlega seinkun á innleiðingu EES-kerfisins og mikilvægi þess að skýr tímalína yrði birt sem fyrst og eigi síðar en á næsta ráðherrafundi sem áætlaður er í júní nk.

Samstarfsríkjum Schengen, Íslandi, Noregi, Sviss og Liechtenstein, var boðið að sitja fund innanríkisráðherra þegar umræður um útlendingamálin fóru fram. Ráðherrar minntust flestir hörmunganna við strendur Ítalíu í lok febrúar sl. þar sem tugir einstaklinga létu lífið, m.a. börn, og voru allir sammála um að leita yrði allra leiða til að koma í veg fyrir smygl á flóttamönnum yfir Miðjarðarhafið. Í því samhengi ítrekuðu ráðherrarmikilvægi innleiðingar á aðgerðaráætlun framkvæmdastjórnar ESB fyrir ferðaleiðir flóttamanna yfir Miðjarðarhafið og um Vestur-Balkanskagann. Ráðherrar ESB ítrekuðu einnig fyrri skuldbindingar um að ná framförum með heildarpakka ESB í útlendingamálum. Þá ræddu þeir einnig innleiðingu á vegvísi Dyflinnarmála (e. Dublin Roadmap) og mikilvægi samhæfðrar nálgunar við leit og björgun á sjó.

Yfirlit yfir framkvæmd tilskipunar um tímabundna vernd vegna stríðsins í Úkraínu

Framkvæmdastjórn ESB samþykkti og birti hinn 8. mars sl. orðsendingu þar sem farið er yfir árangur við framkvæmd tilskipunar um tímabundna vernd (e. Temporary Protection Directive) en hún var virkjuð í fyrsta sinn fyrir rúmu ári, hinn 4. mars 2022 í kjölfar þess að Rússar hófu ólögmætt innrásarstríð sitt gegn Úkraínu sem varir enn.

Á þessum tíma hafa fjórar milljónir manns fengið vernd í ríkjum innan evrópska efnahagssvæðisins (EES), þar á meðal á Íslandi, en hingað til lands hafa komið á þriðja þúsund manns á flótta frá Úkraínu. Þar af hafa rúmlega 800 manns fengið útgefið atvinnuleyfi en þess má geta að um 1.900 einstaklingar eru á aldrinum 18-67 ára og má því gera ráð fyrir að atvinnuþátttaka meðal þeirra sé um 42%.

Farið er yfir viðbrögð ESB- og EES-ríkjanna á liðnu ári í orðsendingunni. Þar kemur m.a. fram að meginmarkmið tilskipunarinnar hafi verið að veita tafarlausa vernd fyrir fólk á flótta frá Úkraínu og draga eftir fremsta megni úr flækjustigi og flöskuhálsum við afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd. Í því skyni hafi verið ráðist í aðgerðir sem fólu í sér skýrar og einfaldari verklagsreglur við skráningu og útgáfu nauðsynlegra gagna. Nú ári seinna eru um milljón manns á flótta með atvinnu í álfunni og þá hefur verið ráðist í umfangsmiklar aðgerðir, með tilheyrandi fjárveitingum, til að koma húsaskjóli yfir fólkið sem flýja hefur þurft heimkynni sín.

Þá hefur verið einblínt á sérstaka vernd fyrir börn en sem stendur leitar fimmtungur úkraínskra barna hælis í Evrópu. Aðgangur að menntun og starfsþjálfun hefur verið bættur en frá og með byrjun skólaárs í september hefur um hálf milljón úkraínskra barna verið skráð í menntakerfi ESB. Að auki hefur verið komið á fót áætlun til að berjast gegn mansali og styðja við fórnarlömb stríðsglæpa. Aðgangur að heilbrigðis- og félagsþjónustu hefur þá verið bættur og tæplega tvö þúsund úkraínskir sjúklingar hafa verið fluttir til 20 ESB- og EES-ríkja og lögð hefur verið áhersla á að bæta geðheilbrigðisþjónustu og veita sálrænan stuðning.

Svokallaður samstöðuvettvangur fyrir Úkraínu (e. Solidarity Platform Ukraine), sem komið var á fót í kjölfar virkjunar tilskipunarinnar, er helsta ástæða þess að tekist hefur vel til í samræmdu viðbragði Evrópuríkja. Á grundvelli samstöðuvettvangsins og tilskipunarinnar hefur hælisleitendastofnun ESB (e. EU Agency for Asylum), Frontex – landamærastofnun ESB, og Europol – löggæslustofnun ESB komið saman til að bregðast við auknu streymi fólks frá Úkraínu til aðildarríkjanna í kjölfar stríðsins.

Í orðsendingunni kemur fram að ESB sé tilbúið að styðja Úkraínu eins lengi og þarf og hefur verndarákvæðið nú verið framlengt um eitt ár.

Reglur um ríkisaðstoð rýmkaðar

Framkvæmdastjórn ESB hefur í samræmi við þá stefnumörkum sem sett er fram í framkvæmdaáætlun Græna sáttmálans, sem ítarlega hefur verið fjallað um í Vaktinni að undanförnu, tekið ákvörðun um að rýmka tímabundið reglur um ríkisaðstoð á sviðum sem teljast mikilvæg vegna umskiptanna yfir í kolefnishlutlaust hagkerfi. Þá hefur framkvæmdastjórnin samhliða gert breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar sem veitir undanþágur frá tilkynningarskyldu vegna ríkisaðstoðar (e. General Block Exemption). Miða þessar breytingar fyrst og fremst að því að styðja við og hraða fjármögnun og fjárfestingum í grænum iðnaði innan ESB.

Frekari tíðinda er að vænta í næstu viku varðandi framfylgd framkvæmdaáætlunar Græna sáttmálans en þá hefur framkvæmdastjórnin boðað framlagningu reglugerðartillaga til Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB um kolefnishlutlausan iðnað (e. Net Zero Industry Act).

Breytingar á gjöldum og þóknunum sem Lyfjastofnun Evrópu (EMA) innheimtir

Tillögur framkvæmdastjórnar ESB um breytingar á reglugerð um gjaldskrá EMA sem lagðar voru fram 13. desember sl. eru nú til umræðu í ráðherraráðinu og á Evrópuþinginu. Núverandi gjaldskrárkerfi er komið til ára sinna, en gjöldin eru innheimt af markaðsleyfishöfum lyfja. Hluti af tekjum EMA sem innheimtar eru á þessum grunni er endurdreift til lyfjastofnana innan EES-svæðisins fyrir tilekna vinnu sem þær taka að sér við útgáfu og endurmat markaðsleyfa lyfja. Markmiðið með breytingunni er einkum að hverfa frá kerfi fastra gjalda og taka upp kerfi sem byggir á raunkostnaði við vinnuna sem innt er af hendi. Þá er einnig verið að einfalda löggjöf og tryggja sjálfbærni í samstarfi lyfjastofnana á svæðinu.

Lyfjastofnanir á EES-svæðinu, þar með talið Lyfjastofnun Íslands hafa með sér mikið og náið samstarf og hefur sérstakur vettvangur forstjóra stofnananna (Heads of Medicines Agencies - HMA) haldið utan um samstarfið. Að mati HMA eru framkomnar tillögur mikið áhyggjuefni, en samtökin hafa í skriflegu erindi til Svía, sem nú fara með formennsku í ráðherraráðinu, gert alvarlegar athugasemdir við þær. Snúa áhyggjurnar einkum að því að með tillögunum sé höggið of stórt skarð í tekjustofna lyfjastofnana í aðildarríkjunum á sama tíma og umsóknum um markaðsleyfi lyfja fjölgar og þær verða sífellt flóknari. Í þessu sambandi er bent á að tillögurnar byggi á sjö ára gömlum gögnum, en miklar breytingar hafi orðið á vinnuumhverfi sérfræðinganna sem mötin vinna frá þeim tíma, m.a. vegna áskorana sem fylgt hafa Covid-19 faraldrinum.

Dæmi er um að greiðslur til lyfjastofnana fyrir vísindalegt mat (e. Scientific advice/assessment) geti lækkað um allt að 60% gangi tillögurnar eftir. Það gæti þýtt að lyfjastofnanir almennt í Evrópu muni ekki hafa fjárhagslegt svigrúm til að sinna vísindalegu mati á öllum umsóknum vegna tekjutaps sem af þessu kann að leiða. Þannig megi búast við að lyfjastofnanir muni ekki hafa burði til að halda í þá sérhæfðu starfskrafta sem nauðsynlegir eru. Alvarlegar afleiðingar eins og lyfjaskortur og verulegar tafir á framboði nýrra lyfja gæti orðið raunin.

Hagsmunir Íslands eru töluverðir í þessu máli. Framlag Íslands við veitingu markaðsleyfa fyrir ný lyf innan EES-svæðisins hefur einkum verið á sviði vísindarannsókna og vísindaráðgjafar en á undanförnum árum hefur Lyfjastofnun Íslands skilað af sér um 8% þeirrar vinnu sem lokið er á þessum sviðum á vegum Lyfjastofnunar Evrópu (EMA). Hlutdeildin er sérstaklega mikil í samanburði við stærð stofnunarinnar. Tillögurnar munu að óbreyttu fela því í sér mikið tekjutap fyrir Lyfjastofnun sem þýðir að erfiðara verður fyrir hana að viðhalda þeirri sérfræðiþekkingu sem þarf til að vinna vísindamat. Hafa íslensk stjórnvöld komið áhyggjum sínum í þessum efnum á framfæri við ESB.

Af hálfu ráðherraráðs ESB, þar sem Svíar fara nú með formennsku eins og áður segir, hefur verið vel tekið í athugasemdirnar. Tillögurnar verða til umræðu í ráðherraráðinu 14. mars nk. en með auglýstri dagskrá þess fundar fylgir samantekt um þær áherslur sem formennskan hyggst beita sér fyrir, við endurskoðun tillagnanna. Skoða á almennar leiðréttingar á gjaldliðunum m.a. með hliðsjón af verðbólgu, þá á að endurskoða tiltekna gjaldliði þ. á m. þá sem snúa að vísindaráðgjöf og snerta Ísland hvað mest. Einnig er gert ráð fyrir aukinni aðkomu EMA og aðildarríkjanna við mótun tillagna af hálfu framkvæmdastjórnarinnar um breytingar á gjaldliðum í framtíðinni.

Tillögur um bætt umferðaröryggi og aukið samstarf vegna umferðarlagabrota

Þann 1. mars sl. birti framkvæmdastjórn ESB nýjan tillögupakka sem miðar að bættu umferðaröryggi fyrir alla vegfarendur innan ESB m.a. í samræmi við markmið ESB um að útrýma dauðaslysum í umferðinni fyrir árið 2050. Umferðaröryggispakkinn samanstendur af þremur eftirfarandi tillögum, en tvær fyrstnefndu eru merktar EES-tækar af hendi framkvæmdastjórnar ESB:

Tillaga um breytingu á tilskipun um miðlun upplýsinga milli ríkja ESB um umferðarlagabrot.
Markmiðið með tillögunni er að fækka þeim sem komast hjá refsingu fyrir umferðarlagabrot í gestaríki. Árið 2019 náðist t.d. ekki að framfylgja viðurlögum vegna umferðarlagabrota ökumanna í gestaríki í 40% tilvika, annað hvort vegna þess að ekki náðist í viðkomandi eða vegna þess að ekki var hægt að fylgja eftir sektarboði af einhverjum ástæðum. Með tillögunni verður skráningarríki ökuskírteinis gert skylt að veita upplýsingar um ökumann í slíkum tilvikum. Í tillögunni er hlutverk og ábyrgð svonefndra landstengiliða m.a. skýrt nánar svo sem í samstarfi við lögregluyfirvöld við rannsókn umferðarlagarbrota. Þá er þeim brotaflokkum fjölgað sem tilskipunin nær til.

Áhrifamat tillögunnar hefur verið sett í almennt samráð og er umsagnarfrestur til 2. maí nk.

Tillaga um breytingu á tilskipun um ökuskírteini.
Markmiðið með tillögunni er að styðja við umferðaröryggi og setja fram samræmdar tæknikröfur vegna útgáfu rafrænna ökuskírteina innan EES. Lögð eru til ný ákvæði sem kveða á um takmörkun ökuréttinda í tvö ár fyrir nýja skírteinishafa og ný ákvæði (e. zero tolerance) um akstur undir áhrifum áfengis eða annarra efna. Í tillögunni eru ákvæði um tveggja ára skilorð handhafa nýrra ökuskírteina sem leiðir til missis ökuskírteinis við endurtekin eða alvarleg brot á umferðarlögum.

Ungu fólki verður heimilt að hefja ökunám 17 ára undir leiðsögn nái tillagan fram að ganga. Þá er í tillögunni ákvæði sem útfæra betur hvernig standa skuli að mati á færni ökumanna vegna heilsufarsástæðna og eru tillögurnar m.a. settar fram með tilliti til framfara í læknavísindum. Loks fjalla ákvæði tillögunnar um þjálfun og prófun ökumanna til að auka færni þeirra við að aka á vegum sem deilt er með óvörðum vegfarendum, s.s. hjólreiðamönnum.

Áhrifamat þessarar tillögu hefur sömuleiðis verið sett í almennt samráð og er umsagnarfrestur til 2. maí nk.

Tillaga að nýrri tilskipun um samræmda gildistöku ákvarðana um ökuleyfissviptingar í ESB ríkjunum.

Með tillögunni er lagt til að sett verði upp nýtt kerfi sem gerir ESB ríkjum kleift að framfylgja sviptingu ökuleyfis þvert á öll ríki ESB vegna alvarlegra umferðarlagabrota. Tillagan nær til brota s.s. alvarleg brot á reglum hámarkshraða, akstur undir áhrifum áfengis eða annarra efna og þegar ökumaður verður valdur að banaslysi eða alvarlegum líkamsáverkum sem eru afleiðingar umferðarlagabrots.

Reglugerð um öryggisfjarskiptakerfi um gervihnetti samþykkt

Ráðherraráð ESB samþykkti 7. mars sl. reglugerð um öryggisfjarskiptakerfi um gervihnetti, en Evrópuþingið hafði áður samþykkt málið fyrir sitt leyti á grundvelli fyrirliggjandi samkomulags um efni málsins. Fjallað var um málið í Vaktinni 4. mars 2022, 24. júní sl. og nú síðast 16. desember sl. en EES/-EFTA ríkin, Ísland, Liechtenstein og Noregur hafa sameiginlega óskað eftir þátttöku í verkefninu á grundvelli EES-samningsins. Er sú málaleitan enn á umræðustigi.

Samkomulag um Evrópska færniárið

Í vikunni náðist samkomulag milli ráðherraráðs ESB og Evrópuþingsins um efni tillagna framkvæmdastjórnarinnar um að tímabilið frá 9. maí 2023 til 8. maí 2024 verði tileinkað sérstöku færniátakið og hefur átakið verði nefnt Evrópska færniárið (e. European Year of Skills). Fjallað var um verkefnið í Vaktinni 10. febrúar sl. en þar kom jafnframt fram að áætlunin hefði verið merkt EES-tæk og er gert ráð fyrir að EES-ríkin muni taka þátt í átakinu enda eru áherslur hennar í ágætu samræmi við stefnumörkun ríkjanna á þessu sviði. Nú er einungis eftir formleg afgreiðsla þings og ráðs um málið. Búið er að setja upp heimasíðu á vef Evrópusambandsins helgaða átakinu.

Evrópska færniárið kom til umræðu á fundi mennta-, æsku-, menningar- og íþróttamálaráðherra ESB. Á fundinum voru grænu umskiptin í brennidepli og samþykktu ráðherrarnir niðurstöður leiðtogafundar ESB frá því í febrúar um færni og hæfni fyrir grænu umskiptin og var tillögu framkvæmdastjórnarinnar um Evrópska færniárið fagnað auk þess sem lögð var áhersla á nauðsyn samstillts átaks Evrópuþjóða til endurmenntunar og uppbyggingar þekkingar fyrir grænu umskiptin til þess að tryggja betri störf fyrir alla og samkeppnishæfni og viðnámsþrótt evrópsks atvinnulífs til framtíðar. Í umræðum ráðherranna um málið kom m.a. fram að rétt menntun og framboð á menntun skipti sköpum til þess að unnt væri að mæta þörfum atvinnulífsins og tryggja samkeppnisfærni Evrópu.

Á fundinum ræddu ráðherrarnir einnig um mögulegar aðgerðir til þess að mæta skorti á kennurum og mikilvægi aukinnar Evrópusamvinnu til þess að laða fleiri að kennarastarfinu auk þess sem bæta þyrfti menntun kennara og starfsaðstæður. Fram kom að hæfir og vel menntaðir kennarar væru nauðsynleg forsenda þess að efla menntun og færni. Í flestum Evrópuríkjum er skortur á vel menntuðum kennurum og víðast hvar er ekki næg aðsókn í kennaranám.

Í lok fundarins var kynnt fyrirhuguð dagskrá dags evrópskra rithöfunda sem ætlunin er að efna til 27. mars nk. og verður dagurinn helgaður lestrarátaki í framhaldsskólum og munu rithöfundar heimsækja ýmsa skóla auk þess sem haldin verður ráðstefna í Búlgaríu um mikilvægi lesturs og lestrarkunnáttu.

Brussel-vaktin, fréttabréf fastanefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

24. febrúar 2023 | Ár liðið frá upphafi árásarstríðs Rússlands gagnvart Úkraínu |
Að þessu sinni er fjallað um:

árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu og hertar þvingunaraðgerðir

ályktun Evrópuþingsins í tilefni framkvæmdaáætlunar Græna sáttmálans

aðlögun fyrir Ísland við upptöku tilskipunar um viðskiptakerfi með losunarheimildir fyrir flug í EES-samninginn

fjármögnun orkuskiptaverkefna

sjálfbærni í sjávarútvegi og fiskeldi

aðild ESB að Istanbúlsamningnum

peningaþvættislista ESB

uppbyggingarsjóð EES og nýja norska úttektarskýrslu

tillögu um takmörkun kolefnislosunar frá stórum atvinnubifreiðum

samráð um reikniaðferðir við mat á kolefnislosun sendiferðabifreiða

samráð um áhrifamat á tilskipun um öryggi fiskiskipa

Árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu – hertar þvingunaraðgerðir

Í dag er ár liðið frá upphafi innrásar Rússa í Úkraínu, sem kostað hefur ótal mannslíf, rekið þúsundir á vergang og valdið orkukreppu í Evrópu og svo mætti lengi telja. Innrásin hefur eðli málsins samkvæmt, nauðsynlega og óhjákvæmilega, litað alla umræðu og stefnumótun innan ESB síðan hún hófst eins og sjá má af umfjöllunarefnum Brussel-vaktarinnar umliðið ár.

Í aðdraganda framangreindra tímamóta hefur umræða um hertar þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins (ESB) gagnvart Rússlandi farið hátt og kynnti Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, í síðustu viku tillögu um hertar aðgerðir. Í ávarpi von der Leyen útlistaði hún nánar hvað felast ætti í hinum nýju aðgerðum. Miða tillögurnar m.a. að því að fjölga vöruflokkum sem bannað verður að flytja út til Rússlands og er þar helst horft á flokka iðnaðarvara sem Rússum eru nauðsynlegar vegna stríðsrekstursins svo sem rafeindartæki, sérhæfð farartæki, vélahlutar og varahlutir í vörubíla og þotuhreyfla. Einnig stendur til að takmarka verulega útflutning á svokölluðum tvínotavörum (e. dual-use goods), hátæknivörur sem bæði geta nýst almenningi og í hernaði, sem og að auka eftirlit með rafeindahlutum sem Rússar geta nýtt í vopnakerfum sínum, svo sem í drónum, flugskeytum, þyrlum og hitamyndavélum. Er það mat framkvæmdastjórnarinnar að nái þessar nýju þvingunaraðgerðir fram að ganga hafi með þeim náðst að setja bann á allar þær tæknivörur sem fyrirfinnast á vígvellinum.

Vonir hafa staðið til að aðildarríkin kæmust að samkomulagi um framangreindan pakka þvingunaraðgerða fyrir daginn í dag, nú þegar ár er liðið frá upphafi innrásarinnar, það hefur hins vegar reynst þrautin þyngri fyrir aðildarríkin að ná fullu samkomulagi. Hafa sendiherrar aðildarríkjanna fundað stíft síðustu daga. Svo virðist sem viðræðurnar strandi á fyrirhuguðu banni við innflutningi frá Rússlandi á tilbúnu gúmmíi (e. synthetic rubber). Gúmmíiðnaðurinn skilar Rússlandi milljörðum dollara í tekjur ár hvert. Árið 2021 flutti Rússland til að mynda út gúmmí að verðmæti tæplega tveggja milljarða dollara. Verðmæti innflutnings til aðildarríkja ESB var um 700 milljónir dollara. Gúmmíið sem kemur frá Rússlandi er notað í dekk og í minna magni í aðra hluti tengda bílaframleiðslu, svo sem kúplingar. Samstaða um þetta atriði strandar á afstöðu Póllands sem vill ganga lengra í innflutningsbanni á gúmmí en lagt er upp með.

Enda þótt samkomulag um nýjar þvingunaraðgerðir liggi ekki fyrir þegar þetta er ritað má telja fullvíst að það sé einungis tímaspursmál hvenær slíkt samkomulag næst og aðgerðirnar bresta á.

Ályktun Evrópuþingsins í tilefni framkvæmdaáætlunar Græna sáttmálans

Eins og fjallað er um í Vaktinni 27. janúar og 10. febrúar sl. þá hefur ný löggjöf í Bandaríkjunum (BNA) svonefnd IRA-löggjöf (e. Inflation Reduction Act ) og viðbrögð ESB við henni, verið í brennidepli umræðunnar á vettvangi ESB að undanförnu og hefur framkvæmdastjórn ESB lagt fram og kynnt sérstaka áætlun um viðbrögð, framkvæmdaáætlun Græna sáttmálans (e. Green Deal Industrial Plan for the Net-Zero Age). Áætlunin felur í sér bein viðbrögð ESB við IRA-löggjöfinni enda þótt hún hafi einnig breiðari skírskotun til alþjóðlegrar samkeppnisstöðu græns iðnaðar í ESB.

Eins og greint var frá í Vaktinni 10. febrúar þá kom framkvæmdaáætlunin til umræðu í leiðtogaráði ESB 9. febrúar sl. og hafði afstöðu leiðtoganna til áætlunarinnar þá verið beðið með nokkurri óþreyju. Efnislegar ályktanir af fundinum reyndust þó fáar og létu leiðtogarnir sér nægja í ályktun um málið að hvetja framkvæmdastjórnina til að hraða vinnu og greiningum til undirbúnings þeirra mögulegu viðbragða sem fjallað er um í áætluninni eins og kostur væri. Á milli línanna má þó á hinn bóginn lesa að Frakkland og Þýskaland hafi náð fram kröfum sínum um áframhaldandi tilslökun á reglum um ríkisaðstoð enda þótt áhersla sé á að þær verði tímabundnar og hóflegar. Þá er af niðurstöðum fundarins óljóst hvort vilji sé til þess innan ráðsins að veita hinum nýja sjóði sem tillaga er gerð um í framkvæmdaáætluninni, svonefndum fullveldissjóði ESB (e. European Sovereign Fund), til nýtt fé og mun það væntanlega ekki skýrast fyrr en við endurskoðun fjárhagsáætlunar ESB um mitt ár.

Er gert ráð fyrir því að framkvæmdaáætlun Græna sáttmálans verði á ný til umræðu á næsta fundi leiðtogaráðsins sem áætlaður er 23. – 24. mars nk. í tengslum við umræðu um samkeppnismál, innri markaðinn og stöðu efnahagsmála almennt, sbr. niðurstöður fundar Evrópumálaráðherra á vettvangi ráðherraráðs ESB 21. febrúar sl.

Framkvæmdaáætlun Græna sáttmálans hefur jafnframt verið til umræðu í Evrópuþinginu og hinn 16. febrúar sl. samþykkti þingið þingsályktun um stefnu ESB um bætta samkeppnishæfni atvinnu- og viðskipalífs í sambandinu og um verðmæta atvinnusköpun (e. European Parliament resolution on an EU strategy to boost industrial competitiveness, trade and quality jobs).

Felur ályktunin í sér viðbrögð Evrópuþingsins við framkominni framkvæmdaáætlun Græna sáttmálans en í ályktun þingsins er þeirri áætlun fagnað um leið og skorað er á framkvæmdastjórn ESB að vinna áfram að þeim verkefnum sem þar eru boðuð til að styðja við og endurskipuleggja tækniiðnað í ESB. Beinir þingið því til framkvæmdastjórnarinnar að það verði gert meðal annars með hliðsjón af þeim áherslum sem fram koma í þingsályktuninni.

Í ályktuninni eru áherslur þingsins flokkaðar í átta efnisþætti:

Fyrirsjáanlegt og einfaldað regluverk

Orkusjálfstæði

Reglubyrði

Greiðari aðgangur að fjármögnun og tillaga um nýjan fullveldissjóð ESB

Ríkisaðstoðarreglur

Verðmæt atvinnusköpun og aukin færni vinnuafls

Frjáls og sanngjörn viðskipti og öruggar aðfangakeðjur

IRA-löggjöf BNA

Í grófum dráttum leggur þingið áherslu á eftirfarandi atriði m.a.:

Fyrirsjáanlegt og einfaldað regluverk

Að unnið verði að auknum fyrirsjáanleika í regluverki og stöðugu rekstrar- og fjárfestingaumhverfi innan ESB.

Að evrópskir iðnaðarstaðlar verði nýttir til að auka samkeppnishæfni innri markarðarins og útbreiðslu evrópska iðnaðarvara.

Að framkvæmdaáætlunin verði sniðin að því að brúa bilið á milli nýsköpunarverkefna annars vegar og framleiðslu og markaðssetningar vöru hins vegar.

Að leyfisveitingakerfi, einkum vegna sjálfbærrar orkuframleiðslu og orkudreifingar, verði einfaldað og gert fyrirsjáanlegra.

Að tryggður verði aðgangur að nauðsynlegum hráefnum sem aftur er forsenda þess að markmið í loftlagsmálum og stafrænum umskiptum geti náðst.

Að hugað verði að réttlátum umskiptum í þeirri tæknibyltingu sem framundan er.

Að framkvæmt verði áhættumat vegna regluverks og fjármögnunarkerfa og þess gætt að ekki verði til nýjar áhættur vegna efnahagstengsla við ríki og viðskiptaaðila sem ekki reka viðskipti sín á forsendum markaðshagkerfisins.

Orkusjálfstæði

Að orkubirgðir fyrir næsta vetur verði tryggðar, m.a. með því að leggja fram metnaðarfullar áætlanir og grípa til nauðsynlegra ráðstafana til að auka framleiðslugetu á hagkvæmri og hreinni orku. Í þessu sambandi fagnar þingið áformum sem kynnt eru í framkvæmdaáætlun framkvæmdastjórnarinnar um endurbætur og einföldun regluverks um raforkumálefni.

Að framleiðsla á vetni verði aukin og virkum vetnismarkaði komið á.

Reglubyrði

Að dregið verði úr óþarfa reglubyrði án þess þó að slegið sé af kröfum um neytendavernd, heilsu- og umhverfisvernd.

Að sérstakt samkeppnismat verði hluti af undirbúningi nýrrar löggjafar, þar sem tillit sé tekið til félagslegra sjónarmiða og vinnuverndar, auk þess sem litið verði til þess í matinu hvort fyrirhuguð löggjöf styðji nægjanlega við nýsköpun.

Greiðari aðgangur að fjármögnun og tillaga um nýjan fullveldissjóð ESB

Að nýjum stefnumótandi verkefnum sem ákveðið verður að ráðast í fylgi nýjar fjárveitingar og að sú endurskoðun á fjárlagaramma ESB, sem framundan er, gefi gott tækifæri til þess.

Að framkvæmdastjórnin meti kostnað og fjárfestingaáhrif aðgerða og þá með tilliti til áhrifa IRA-löggjafarinnar á ESB sem heild en einnig á einstök aðildarríki.

Að stuðningsaðgerðir verði skilyrtar því að virt séu almenn gildi og stefnumið ESB, m.a. á sviði fjármála, félags-og atvinnutengdra réttinda, umhverfisverndar, vinnuverndar o.fl. um leið og þess sé gætt að stuðningur raski ekki samkeppnisgrundvelli og öðrum grunnreglum innri markaðarins.

Að vegna breyttra áskorana í alþjóðamálum verði ESB að grípa til allra nauðsynlegra ráðstafana til að tryggja sjálfræði sitt, þar á meðal á sviði varnarmála.

Að „InvestEU-áætlun“ ESB verði efld.

Að tillaga um nýjan sjóð, fullveldissjóð ESB, verði þarfametin, meðal annars á grundvelli kortlagningar á núverandi sjóðakerfi. Þá krefst þingið þess að sjóðurinn verði ekki fjármagnaður á kostnað samheldnissjóða ESB eða með fjárveitingum sem heitið hefur verið í önnur verkefni.

Að nýir sjálfstæðir tekjustofnar ESB séu besta tækið til að tryggja framgang þeirrar forgangsröðunar sem lögð er áhersla á. Í þessu skyni hvetur þingið framkvæmdastjórnina og hlutaðeigandi aðildarríki til að ná samkomulagi um fyrirhugaða reglusetningu um skattlagningu á fjármálafyrirtæki (e. Financial transaction tax) fyrir lok júní nk.

Að nýr fullveldissjóður ESB, verði hann að veruleika, fái það skilgreinda hlutverk að styðja við sjálfræði ESB á fjölbreyttum sviðum, þar á meðal á sviði grænna og stafrænna umskipta.

Að huga þurfi að því að nýr sjóður, fullveldissjóður ESB, hafi heimildir til að styrkja orkuverkefni utan landamæra ESB ef þau eru í samræmi við markmið Græna sáttmálans.

Að eitt af markmiðum sjóðsins, þ.e. fullveldissjóðsins, verði að styðja við samhæfð viðbrögð ESB við hvers kyns vá og kreppu, sem fjármögnuð eru í gegnum sameiginleg fjárlög ESB fremur en með ósamræmdri ríkisaðstoð aðildarríkja sem hafa mismunandi getu til beinnar ríkisaðstoðar.

Að ekki verði stofnað til nýrra sjóða nema að tillaga um slíkt sé samþykkt að undangenginni hefðbundinni lagasetningarmeðferð og að nýir sjóðir verði felldir inn í fjárlagaramma ESB til að tryggja yfirsýn og eftirlit Evrópuþingsins.

Að aðildarríkin fullnýti þá möguleika sem felast í sameiginlegum opinberum innkaupum til að styðja við og styrkja grundvöll iðnaðarframleiðslu í ESB.

Að sérstaklega verði hugað að orkufrekum iðnaði þegar kemur að fjárstuðningi vegna orkuskipta.

Að rammi um skattaívilnanir sem ekki eru taldar geta skekkt samkeppnisstöðu á innri markaðinum verði endurskilgreindar.

Að málsmeðferðartími framkvæmdastjórnarinnar vegna tilkynninga um ríkisaðstoð verði styttur.

Að skilgreiningar á samkeppnismörkuðum innan innri markaðar ESB verði endurskoðaðar eftir þörfum með hliðsjón af aukinni alþjóðlegri samkeppni.

Ríkisaðstoðarreglur

Að traust regluverk um ríkisaðstoð á innri markaðinum sé undirstaða efnahagslegar velsældar í ESB, enda forsenda virkrar samkeppni.

Að einfalda þyrfti ríkisaðstoðarreglur ESB og auka sveigjanleika þeirra til að unnt sé að bregðast við áskorunum sem upp koma. Í því sambandi lýsir þingið stuðningi við hugmyndir um tímabundna tilslökun ríkisaðstoðarreglna vegna græns iðnaðar sem fram eru komnar.

Verðmæt atvinnusköpun og aukin færni vinnuafls

Að þess verði gætt við mótun stefnu á sviði iðnaðar að hún styðji við módel ESB um félagslegan markaðsbúskap, þar sem m.a. er lögð áhersla á jafnrétti kynjanna og jöfn tækifæri allra.

Að tryggja þurfi að áætlun Græna sáttmálans styðji við verðmæta atvinnusköpun, vinnuvernd, velsældaráherslur og réttlát umskipti.

Að mikilvægt sé að huga að endurmenntun og símenntun við þær umbreytingar sem framundan eru á vinnumarkaði og að þær umbreytingar kalli á endurskoðun við löggildingu og vottun á hæfni starfsmanna.

Að unnið verði að því að laða hæft vinnuafl frá þriðju löndum til ESB.

Að áætlun Græna sáttmálans og menntastefna verði samþættuð til að mæta þörfum atvinnulífsins í framtíðinni.

Frjáls og sanngjörn viðskipti og öruggar aðfangakeðjur

Að mikilvægt sé að vinna áfram að því að stofna til efnahags- og viðskiptasambanda við lýðræðisríki í heiminum og styrkja þau sem fyrir eru.

Að fram fari áhættugreining á öryggi aðfangakeðja og að leitað verði leiða til að auka fjölbreytni þeirra.

Að mikilvægt sé að nýta þau nýju lagalegu úrræði til fulls sem lögfest hafa verið um sameiginleg opinber innkaup og um erlenda styrki sem geta haft óæskileg áhrif á innri markað ESB, sbr. til hliðsjónar sérstaka umfjöllun um reglugerð um erlenda styrki í Vaktinni 10. febrúar sl.

Að úrræði reglugerðar um eftirlit með erlendum fjárfestingum og samhæfingu viðbragða (e. Foreign Direct Investment Screening Regulation) verði nýtt frekar.

IRA-löggjöf BNA

Að mikilvægt sé að leita samstarfs við BNA um lausnir sem komi í veg fyrir að fyrirtækjum innan ESB verði mismunað á grundvelli laganna og að evrópskar vörur fái sambærilega skattalega meðferð og bandarískar.

Að hraða þurfi mati á áhrifum IRA-löggjafarinnar á iðnað í ESB og samkeppnisfærni hans.

Eins og sjá má eru ályktanir þingsins almennt í góðum samhljómi við framkvæmdaáætlun Græna sáttmálans eins og hún var lögð fram og kynnt af hálfu framkvæmdastjórnar ESB. Eftir sem áður verður að líta á ályktun þingsins sem mikilvægt innlegg inn í þá umræðu sem framundan er og við undirbúning þeirra löggjafartillagna sem nú er hafinn hjá framkvæmdastjórninni. Í ályktun þingsins er einnig jafnan vísað til þeirrar vinnu og stefnumótunar sem framkvæmdastjórnin hefur boðað, þar sem við á. Á hinn bóginn má í ályktun þingsins annars vegar og í ályktunum leiðtogaráðs ESB hins vegar greina mun er kemur að fjármögnun verkefna sem ráðist verður í samkvæmt áætluninni, þar á meðal um fjármögnun fullveldissjóðsins. Er ályktun þingsins allskýr um það að nýjum verkefnum verði að fylgja nýir fjármunir á meðan spurningunni þar að lútandi er látið ósvarað, að sinni, af hálfu leiðtogaráðsins.

Eins og rakið er í Vaktinni 10. febrúar sl. þá snertir framkvæmaáætlun Græna sáttmálans íslenska löggjöf og hagmuni Íslands með margvíslegum hætti og er því nauðsynlegt að fylgjast vel með framgangi hennar og undirbúningi löggjafartillagna sem ráðist verður í til að hrinda henni í framkvæmd. Framkvæmdaáætlunin varðar einnig málaefnasvið margra ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, svo sem háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis, umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytis, menningar- og viðskiptaráðuneytis, félags- og vinnumarkaðsráðuneytis, innviðaráðuneytis, auk utanríkisráðuneytis og forsætisráðuneytis almennt.

Unnið að aðlögun fyrir Ísland við upptöku tilskipunar um viðskiptakerfi með losunarheimildir fyrir flug í EES-samninginn

Reglulega hefur verið fjallað um fyrirhugaðar breytingar á tilskipun ESB um viðskiptakerfi með losunarheimildir fyrir flug hér í Vaktinni á umliðnum misserum, sbr. umfjöllun 24. júní, 8. júlí, 22. júlí, 7. október og nú síðast 16. desember þar sem greint var frá því að efnislegt samkomulag hefði náðst í þríhliða viðræðum Evrópuþingsins, ráðherraráðsins og framkvæmdastjórnarinnar um fyrirhugaðar breytingar. Endanlegur texti tilskipunarinnar liggur nú fyrir í drögum, sbr. bréf ráðherraráðs ESB til Evrópuþingsins dags. 8. febrúar sl., og bíður málið nú einungis formlegrar afgreiðslu þingsins og ráðsins áður en tilskipunin verður birt í Stjórnartíðindum ESB. Eins og fjallað hefur verið um í Vaktinni munu breytingar sem af tilskipuninni leiða hafa afar óæskileg áhrif á samkeppnisstöðu Keflavíkurflugvallar og tíðni flugsamgangna við Ísland. Meðan á lagasetningarferli ESB stóð miðaði hagsmunagæsla íslenskra stjórnvalda að því að vekja athygli á þessum áhrifum, bæði á eyþjóðir sem ekki eiga val um aðra kosti í samgöngum og á tengiflugvelli og leggja til leiðir til útbóta. Eftir að lagasetningarferlinu lauk án þess að nægilegt tillit hafi verið tekið til þessara þátta liggur næst fyrir að leita eftir viðeigandi aðlögun fyrir Ísland við upptöku gerðarinnar í EES-samninginn.

Meðan á þríhliða viðræðum framkvæmdastjórnarinnar, Evrópuþingsins og ráðsins stóð kom Ísland á framfæri breytingartillögu sem hafði það að markmiði að jafna samkeppnisstöðu Íslands við það sem almennt gerist innan ESB. Jafnvel þótt sú tillaga hafi ekki náð fram að ganga er ljóst að framsetning hennar og það átak sem ráðist hefur verið í undanfarin misseri til að koma málstað Íslands á framfæri og flagga þeim hagsmunum sem í húfi eru, hefur ekki farið fram hjá neinum sem að málinu koma. Það undirbýr jarðveginn fyrir það samtal sem nú er að hefjast um þá aðlögun sem Ísland þarf að ná fram, a.m.k. til skemmri tíma.

Þessu til undirbúnings hefur ríkisstjórnin komið á fót tveimur starfshópum sem vinna að lausn málsins bæði til skemmri og lengri tíma. Utanríkisráðherra hefur skipað starfshóp til að fara yfir væntanlegar breytingar á tilskipun um viðskiptakerfi með losunarheimildir fyrir flug, móta tillögu að aðlögunartexta og halda utan um viðræður við framkvæmdastjórn ESB um mögulega aðlögun vegna upptöku gerðarinnar í EES-samninginn.

Þá hefur umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra skipað starfshóp til þess að skoða hvaða leiðir eru færar til að hraða orkuskiptum í flugi með notkun vistvæns eldsneytis fyrir millilandaflug og leggja fram tillögur þar að lútandi. Framþróun á því sviði hefur bein tengsl við viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir í flugi því ekki þarf að kaupa losunarheimildir fyrir notkun á vistvænu flugvélaeldsneyti. Er viðskiptakerfinu þannig beinlínis ætlað að knýja á um slíka framþróun og skapa fjárhagslegan hvata til hennar. Er starfshópnum falið að skoða fýsileika að framleiða endurnýjanlegt flugvélaeldsneyti á Íslandi og hvaða kröfur eru gerðar til slíkrar starfsemi. Í þessu skyni mun hópurinn skoða regluverk ESB um flugvélaeldsneyti samhliða löggjöf um ETS kerfið og um endurnýjanlega orkugjafa og væntanleg áhrif þess á eftirspurn eftir endurnýjanlegu eldsneyti í framtíðinni.

Í skýrslu utanríkisráðherra um framkvæmd EES-samningsins sem var til umræðu á Alþingi 21. febrúar sl. er gerð grein fyrir þessu máli og vék utanríkisráðherra einnig að málinu í framsöguræðu sinni og það gerðu einnig margir þingmenn aðrir í andsvörum sínum og ræðum. Af umræðunni má ráða að á Alþingi sé mikil og góð samstaða um mikilvægi þess að viðunandi úrlausn fáist við upptöku gerðarinnar í EES-samninginn. Er það mikilvægt veganesti í viðræðurnar framundan.

Fjármögnun orkuskiptaverkefna

Ráðherraráð ESB samþykkti formlega þann 21. febrúar sl. reglugerðarbreytingu um að fella „REPowerEU“ áætlunina undir viðnámsregluverk ESB (e. Recovery and Resilience Facility - RRF). RRF var sett á fót árið 2020 til bregðast við þeim erfiðu efnahagsaðstæðum sem upp komu í kórónuveirufaraldrinum en hefur nú fengið endurnýjað hlutverk í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu og þeirrar orkukreppu sem stríðið hefur valdið. Með breytingunni munu aðildarríkin nú geta sótt um fjármagn til orkuskiptaverkefna í gegnum fjármögnunarkerfi RRF. Viðbótarframlög upp á 20 milljarða evra verða veitt til RRF að fjármagna slík verkefni, þar sem 60% mun koma úr sérstökum nýsköpunarsjóði og 40% frá tekjum af viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS).

Samþykkt ráðsins nú kemur í framhaldi af samkomulagi sem náðist um málið í þríhliða viðræðum Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnarinnar þann 14. desember sl.

Framkvæmdastjórn ESB kynnti „REPowerEU“ aðgerðaáætlun sína í maí 2022 en um áætlunina hefur verið fjallað í Vaktinni við ýmis tilefni á undanförnum mánuðum. Áætlunin er hryggjarstykkið í orkumálaáætlun ESB til lengri tíma og miðar að því að umbylta evrópsku orkukerfi í átt að endurnýjanlegum orkugjöfum með því m.a. að draga úr eftirspurn, auka fjölbreytni orkugjafa og fjárfestingar í endurnýjanlegum orkugjöfum og þannig gera ESB óháð jarðefnaeldsneyti frá Rússlandi.

Sjálfbærni í sjávarútvegi og fiskeldi

Framkvæmdastjórn ESB kynnti í vikunni aðgerðapakka til að auka sjálfbærni og viðnámsþol í sjávarútvegi og fiskeldi. Aðgerðapakkinn er kynntur í formi þriggja orðsendinga til Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB, efnahags- og félagsmálanefndar ESB og svæðanefndarinnar auk þess sem framkvæmdastjórnin leggur fram skýrslu um framkvæmd reglugerðar um sameiginlega markaðsstefnu fyrir sjávar- og fiskeldisafurðir.

Í fyrsta lagi er um að ræða orðsendingu um aðgerðaáætlun um orkuskipti í sjávarútvegi og fiskeldi. Með hækkandi orkuverði í kjölfar árásarstríðs Rússlands gagnvart Úkraínu hefur afkoma í sjávarútvegi og fiskeldi versnað til muna. Unnið hefur verið að orkusparandi aðgerðum í sjávarútvegi og fiskeldi allt frá árinu 2009 en hins vegar hefur hægst verulega á árangri síðustu ár. Vegna hækkandi orkuverðs og ekki síður með tilliti til metnaðarfullra markmiða ESB um samdrátt í losun gróðurhúsaloftegunda, hyggst framkvæmdastjórn ESB nú hefja átak til að flýta fyrir orkuskiptum í þessum greinum. Meðal aðgerða sem fjallað er um í orðsendingunni er að endurnýjanlegir og lágkolefna orkugjafar verði raunhæfir valkostir fyrir fiskiskip, allt eftir tegund og stærð skipa. Er hér meðal annars átt við rafmagn, ammoníak, vetni, sjálfbært lífgas og lífeldsneyti og aðra nýstárlega endurnýjanlega lágkolefna orkugjafa. Þá er stefnt að því rafvæða smærri fiskibáta og þjónustubáta fyrir fiskeldi með stuðningi frá sólarrafhlöðum eða öðrum endurnýjanlegum lágkolefnis aðal- eða hjálparaflgjöfum. Sjá í þessu samhengi t.d. umfjöllun Vaktarinnar frá 13. janúar sl. um orkuskiptaverkefnið WHISPER sem íslenska verkfræðistofan Verkís leiðir og hlotið hefur styrk úr rannsóknar- og nýsköpunarsjóðum ESB. Jafnframt er stefnt að því að efla innviði hafna meðal annars með rafhleðslustöðvum.

Í öðru lagi er um að ræða orðsendingu um aðgerðaáætlun um verndun og endurheimt vistkerfa sjávar og um sjálfbærar fiskveiðar. Um 70% af yfirborði jarðarinnar er haf og er heilbrigt vistkerfi hafsins afar þýðingarmikið fyrir allt líf á jörðinni. Hafið er ein mesta uppspretta líffræðilegs fjölbreytileika og fæðu og hefur mikil áhrif á loftslag enda er hafið stór viðtaki kolefnis úr andrúmslofti. Í dag stafar mikil ógn að lífríki hafsins vegna mengunar og annarra umhverfisógna af mannavöldum.

Helstu aðgerðir sem kynntar eru í orðsendingunni eru:

að bæta fiskveiðistjórnun innan ESB,

að draga úr áhrifum fiskveiða á hafsbotninn,

að ná fram sanngjörnum og réttlátum umskiptum og hámarka nýtingu tiltækra fjármuna,

að styrkja þekkingargrunn, rannsóknir og nýsköpun,

að bæta framkvæmd, eftirlit og framfylgd fiskveiðieftirlits,

að útbúa leiðarlýsingu um hvernig best er að framkvæma ofangreindar aðgerðir með aðkomu fyrirtækja og annarra haghafa.

Í þriðja lagi er um að ræða orðsendingu um sameiginlega sjávarútvegsstefnu ESB í nútíð og framtíð með áherslu á sjálfbærni, vísindalega nálgun og nýsköpun. Markmið sjávarútvegsstefnu ESB er að tryggja sjálfbærni fiskveiða til lengri tíma og er það einnig meginstef í stefnu ESB í fiskeldismálum um leið og markmiðið er að tryggja framboð af matvælum og hagkvæm rekstrarskilyrði fyrir fyrirtæki í sjávarútvegi og fiskeldi. Stefna ESB í sjávarútvegi og fiskeldi nær til allrar virðiskeðju sjávarútvegs og fiskeldis þar sem áhersla er lögð á að viðhalda samfélagslegum og efnahagslegum styrk sjávarbyggða. Í orðsendingunni eru kynntar umfangsmiklar aðgerðir til að ná og styðja við framangreind markmið.

Samhliða framangreindum orðsendingum hefur framkvæmdastjórnin lagt fram skýrslu til Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB um framkvæmd reglugerðar um sameiginlega markaðsstefnu fyrir sjávar- og fiskeldisafurðir, en reglur um þau efni hafa verið í gildi innan ESB síðan 1970. Sameiginleg markaðsstefna er mikilvægur liður í því að ná markmiðum sjávarútvegsstefnu ESB um samkeppnishæfni, markaðsstöðugleika, og gagnsæi og um að tryggja fjölbreytt framboð sjávarfangs til neytenda.

Aðild ESB að Istanbúlsamningnum

ESB hefur komist skrefi nær því að gerast aðili að Istanbúlsamningnum, þ.e. samningi Evrópuráðsins (e. Council of Europe) um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi. Ráðherraráð ESB (e. Council of the European Union) óskaði í vikunni eftir samþykki Evrópuþingsins um að gengið yrði frá málinu með fullgildingu samningsins en þingið samþykkti í síðustu viku ályktun þar sem skorað var á ráðið að fullgilda samninginn. Alls hafa 45 ríki skrifað undir samninginn og 38 fullgilt hann, þar á meðal þó nokkur ríki ESB, en sambandið myndi með fullgildingu hljóta nokkurs konar aukaaðild. Þannig væri ábyrgðarsvið sambandsins gagnvart samningnum háð valdsviði þess sem kveðið er á um í sáttmála ESB.

Evrópudómstóllinn (e. European Court of Justice) birti árið 2021 álit þar sem gerð var grein fyrir því ESB ætti að geta fullgilt Istanbúlsamninginn án þess að fyrir lægju samþykki allra ríkja. Er það ólíkt niðurstöðu dómstólsins í máli vegna skylds samnings, mannréttindasáttmála Evrópu, en í áliti frá 2013 benti dómstóllinn á að drögin að samningi vegna fyrirhugaðrar aðildar ESB færu gegn sáttmála Evrópusambandsins en nánar var fjallað um stöðuna vegna þeirra aðildarviðræðna í Vaktinni 10. febrúar sl.

Istanbúlsamningurinn var samþykktur á vettvangi Evrópuráðsins 11. maí 2011 en hann er fyrsti bindandi samningurinn sem tekur heildstætt á baráttunni gegn ofbeldi gegn konum. Hann kveður á um réttindi brotaþola og skyldur opinberra aðila til að vernda og aðstoða þær konur sem verða fyrir ofbeldi, fræða almenning, stjórnvöld og fagaðila, sinna forvörnum gegn ofbeldi og bjóða ofbeldismönnum úrræði og meðferð. Þess má geta að Ísland undirritaði samninginn sama dag og hann var samþykktur á vettvangi Evrópuráðsins og fullgilti hann í apríl 2018.

Peningaþvættislistar ESB

Á fundi fjármála- og efnahagsráðherra ESB 14. febrúar sl. var samþykktur nýr grár/svartur listi yfir þau ríki og svæði sem bandalagið telur að hafi ekki nægar varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Sérstakur starfshópur ESB sem ber heitið “Code of Conduct Group (Business Taxation)” annast þetta verkefni, en barátta gegn skaðlegum skattareglum eru mikilvægasti hluti þess. Sá listi er sambærilegur þeim sem svokölluð FATF-samtök (e. Financial Action Task Force) tengd OECD halda úti í svipuðum tilgangi, en framkvæmdastjórn ESB á fulltrúa í FATF. Íslendingar þekkja síðarnefnda listann nokkuð vel því vorið 2018 komust samtökin að þeirri niðurstöðu að varnir Íslands gegn peningaþvætti væru ófullnægjandi. Það þýddi að Ísland fór í sérstakan athugunarflokk hjá FATF og var gefinn eins árs frestur til úrbóta.

Varð framgreint til þess að íslensk stjórnvöld réðust í margþættar úrbætur sem reyndust síðan ekki nægar því í október 2019 var Ísland sett á gráan lista FATF. Jafnframt lögðu samtökin fram aðgerðaáætlun sem íslenskum stjórnvöldum var gert að framfylgja. Vonir stóðu til að hægt yrði að fella Ísland af listanum á júnífundi FATF árið 2020, en það tókst ekki fyrr en á septemberfundi samtakanna það ár. Þó vera Íslands á listanum hafi ekki haft bein áhrif á íslenskt efnahagslíf þá skapaði hún talsverða óvissu um ýmsa þætti eins og gengisstöðugleika, erlenda lántöku og lánshæfi. Það sem kannski skipti mestu máli var að orðspor Íslands út á við varð fyrir álitshnekki. Slík staða getur haft gífurleg áhrif á atvinnulíf, ekki aðeins fjármálafyrirtæki heldur nær öll fyrirtæki sem stunda alþjóðleg viðskipti, ekki síst fyrir litla þjóð eins og Ísland sem byggir afkomu sína á viðskiptum við önnur ríki.

Var Ísland sömuleiðis um nokkurra mánaða skeið árið 2018 sett á athugunarlista ESB þrátt fyrir aðild sína að EES-samningnum vegna ónógrar skráningar á raunverulegum eigendum. Þá voru Liechtenstein og Sviss lengi vel á listanum vegna reglna í þeim löndum um bankaleynd.

Meginmarkmið ESB listans er að stuðla að bættri skattastjórnsýslu um allan heim og að tryggja að alþjóðlegir viðskiptavinir fyrirtækja í aðildarríkjum ESB virði sömu reglur/staðla og þau sem eru á innri markaði ESB. Þetta markmið er einnig ofarlega á blaði hjá FATF þar sem Ísland hefur verið virkur þátttakandi (e. OECD BEPS project). Síðan að fyrsti listi ESB birtist í desember 2017 hefur margt færst til betri vegar. Æ fleiri ríki eru farin að átta sig á þeirri staðreynd að séu þau sett á listann skaðast orðspor þeirra og þar með samkeppnisstaða. Sem fyrr segir beinir “Code of Conduct Group” fyrst og fremst sjónum sínum að skattasviðinu, en brot á skattareglum fela oftast líka í sér brot á reglum um peningaþvætti, sitt hvor hliðin á sama peningi, má segja.

ESB birtir umræddan lista tvisvar á ári, þ.e. í febrúar og október og eru helstu mælikvarðarnir gagnsæi skattareglna, sanngjörn skattlagning, innleiðing OECD BEPS reglnanna og efnisleg skilyrði þegar um er að ræða lönd sem ekki leggja tekjuskatt á fyrirtæki. Listarnir eru raunar tveir, þ.e. svartur listi og grár listi. Löndin fara á svartan lista hjá ESB ef þau neita beinlínis að bæta úr regluverki þar sem ESB telur að pottur sé brotinn. Grái listinn tekur aftur á móti til þeirra ríkja sem eru tilbúin til að breyta sínum reglum til samræmis við ESB reglurnar, enda þótt þau hafi ekki náð því að öllu leyti.

Staðan í dag er sú að samtals eru 34 ríki á lista hjá ESB. Þar af eru 16 ríki á svörtum lista en 18 á gráum. Það er sami fjöldi og var á listanum í október 2022. Hins vegar hefur ríkjum á gráa listanum fækkað um 4, þ.e. þau voru 22, á meðan þeim fjölgaði um 4 á svarta listanum og eru nú 16. Sem dæmi má nefna að Rússland var flutt af gráum lista á svartan og það sama gerðist með Bresku Jómfrúaeyjar og Kosta Ríka. Þá komu Marshalleyjar nýjar inn. Nokkur ríki voru felld af gráa listanum, s.s. Barbados, Norður-Makedónía og Úrúgvæ, en Albanía, Arúba og Curacao komu ný inn.

Uppbyggingarsjóður EES – Ný norsk úttektarskýrsla

Allt frá gildistöku EES-samningsins hafa EFTA-ríkin innan EES skuldbundið sig til að inna af hendi tiltekin framlög til að draga úr efnahagslegum og félagslegum ójöfnuði á evrópska efnahagssvæðinu með það fyrir augum að stuðla að jafnri og stöðugri eflingu viðskipta- og efnahagstengsla samningsaðila. Má jafna þessum framlögum við framlög aðildarríkjanna sjálfra til samheldnissjóða ESB (e. EU Cohesion Fund) en megin markmið slíkra sjóða er að jafna félagsleg kjör og samkeppnistöðu ríkja og svæða innan ESB um leið og þeim er ætlað að stuðla að markmiðum í loftlagsmálum. Framlög úr Uppbyggingarsjóði EES (e. EES grants) hafa á undanförnum árum runnið til verkefna í Póllandi, Rúmeníu, Búlgaríu, Tékklandi, Slóvakíu, Slóveníu, Króatíu, Ungverjalandi, Eistlandi, Litháen, Lettlandi, Portúgal, Grikklandi, Kýpur og Möltu. Við veitingu styrkja til verkefna er jafnframt leitast við að efla tvíhliða tengsl ríkjanna þriggja við viðtökuríkin. EES EFTA-ríkin semja við ESB um framlög í uppbyggingarsjóðinn til nokkurra ára í senn, nú síðast var samið vegna tímabilsins 2014–2021 en um þessar mundir eiga sér stað viðræður um framlag EES EFTA-ríkjanna fyrir næsta tímabil, þ.e. vegna áranna 2021-2027. Skrifstofa Uppbyggingarsjóðsins er staðsett í EFTA-húsinu í Brussel ásamt EFTA-skrifstofunni og Eftirlitsstofnun EFTA.

Sameiginleg framlög ríkjanna þriggja, í gegnum Uppbyggingarsjóð EES, nema alls rúmum 1,5 milljörðum evra á núverandi samningstímabili. Því til viðbótar samþykkti Noregur að greiða sérstaklega tæplega 1,3 milljarða evra á tímabilinu í gegnum sérstakan tvíhliða sjóð, Norska uppbyggingarsjóðinn. Upphaflega var áætlað að heildargreiðslur Íslands á samningstímabilinu myndu nema alls 50 milljónum evra. Þar sem landsframleiðsla (GDP) Íslands jókst á tímabilinu umfram það sem hún gerði í hinum EFTA-ríkjunum tveimur hækkaði greiðsluhlutfall Íslands hins vegar og nema heildargreiðslur af þeim sökum um 66 milljónum evra á samningstímabilinu eða um 10,2 milljörðum íslenskra króna. Þetta svarar til 4,3% af heildarframlögum EFTA-ríkjanna innan EES til uppbyggingarsjóðsins (og 2,4% ef horft er til Uppbyggingarsjóðs EES og norska sjóðsins sameiginlega).

Styrkveitingar Uppbyggingarsjóðs EES á núverandi sjóðstímabili hafa verið á eftirfarandi áherslusviðum:

Nýsköpun, rannsóknir, menntun og samkeppnishæfni.

Samfélagsleg þátttaka, atvinnuþátttaka ungmenna og bættar aðstæður fátækra.

Umhverfis- og orkumál, samdráttur í losun skaðlegra lofttegunda.

Menning og listir, frjáls félagasamtök, bættir stjórnunarhættir og grundvallarréttindi.

Innanríkis- og dómsmál.

Um 10% af fjárhæð sjóðsins, eða um 150 milljónir evra, eru nýtt til að styðja við frjáls og óháð félagasamtök í nýfrjálsu ríkjunum.

Uppbyggingarsjóðurinn skapar tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki, stofnanir, frjáls félagasamtök og einstaklinga til að taka þátt í verkefnum með samstarfsaðilum í viðtökuríkjunum. Íslensk stjórnvöld hafa í því sambandi lagt áherslu á verkefni á sviði rannsókna, nýsköpunar, menntunar og menningar, orku- og umhverfismála, samfélagslegra umbóta og jafnréttismála. Rannís, Orkustofnun og Mannréttindaskrifstofa Íslands hafa um árabil haft hlutverk sem sérstakir samstarfsaðilar íslenskra stjórnvalda vegna tiltekinna verkefna sjóðsins. Íslenskir aðilar hafa tekið þátt í yfir 300 verkefnum sem tengjast viðtökuríkjunum á núverandi tímabili. Of snemmt er að segja til um heildarfjölda verkefna á tímabilinu þar sem framkvæmdatíma samningstímabilsins lýkur ekki fyrr en vorið 2024.

Nýverið lét norska utanríkisráðuneytið vinna skýrslu um Uppbyggingarsjóð EES og norska sjóðinn. Niðurstöður skýrslunnar voru m.a. þær að dregið hafi úr efnahagslegum og félagslegum ójöfnuði innan EES á tímabilinu sem skýrslan nær yfir ljóst sé að sjóðirnir hafi haft afar jákvæð áhrif. Fyrir tilstuðlan sjóðanna hafi m.a. verið til reiðu styrkir og verkefnum komið á laggirnar sem annars hefðu átt erfitt með að fá fjármagn, einkum hvað varðar stuðning við viðkvæma og jaðarsetta hópa eins og Rómafólk, konur sem verða fyrir ofbeldi, viðkvæm börn og ungmenni og íbúa í dreifbýli og á afskekktum svæðum. Með því hafi EES-sjóðirnir stutt við getu viðtökuríkja, svæða og byggðarlaga til að stuðla að eigin þróun. Þetta eigi einkum við um verkefni á sviðum eins og rannsókna, nýsköpunar og staðbundinnr þróunar. Stuðningur EES-sjóðanna við grundvallarréttindi og góða stjórnarhætti í gegnum styrkingu hlutverks borgaralegs samfélags hafi verið sérlega mikilvægur. Um sé að ræða einstakt framlag í baráttunni gegn einræðisstraumum í Evrópu. Í nokkrum viðtökuríkjum séu EES-sjóðirnir helsta eða jafnvel eina uppspretta fjárstuðnings við borgaralegt samfélag.

Samkvæmt skýrslunni hefurUppbyggingarsjóður EES einnig haft jákvæð áhrif í Noregi. Meðal slíkra jákvæðra áhrifa má nefna að þeir stuðla að því að nýrrar þekkingar og hæfni sé aflað, veita aðgang að og afla þekkingar á evrópskum viðskiptamarkaði og stuðla að tengslamyndun fyrir norska aðila. Dæmi um óbein áhrif eru minni mengun í Noregi vegna stuðnings við græna umbreytingu í tilteknum viðtökuríkjum.

Í skýrslunni er einnig bent á að EES-sjóðurinn sé mikilvægt tæki í norskri utanríkis- og Evrópustefnu. Hann veiti Norðmönnum áhrif og sýnileika í viðtökuríkjunum og aðgang að vettvangi til að ræða lykilmál tvíhliða við viðtökuríkin og við Evrópusambandið.

Árið 2020 var unnin íslensk skýrsla um Uppbyggingarsjóð EES og áskoranir og tækifæri íslenskra aðila á sviði nýsköpunar, rannsókna, menntunar, menningar, félagslegrar þátttöku og endurnýjanlegrar orku.

Eins og áður segir eiga sér nú stað viðræður um framlag EES EFTA-ríkjanna um annað styrkjatímabil og standa þær viðræður enn yfir.

Tillaga um takmörkun kolefnislosunar frá stórum atvinnubifreiðum

Framkvæmdastjórnin kynnti þann 14. febrúar sl. nýja tillögu að reglugerð um takmörkun kolefnislosunar frá stórum atvinnubifreiðum. Tillagan gengur ekki eins langt við að draga úr kolefnislosun og lagt er til fyrir fólksbifreiðar og léttar atvinnubifreiðar, lagt er til að dregið sé úr kolefnislosun sem svarar um 90% frá árinu 2040. Losun frá stórum atvinnubifreiðum nemur sem svarar 6% af heildarkolefnislosun sambandsins. Núgildandi losunarstaðlar miða við að dregið sé úr kolefnislosun sem svarar 15% fyrir 2025 og 30% fyrir 2030. Með nýju tillögunni er lagt til að miða við 45% samdrátt í kolefnislosun frá 2030 og 65% samdrátt fyrir 2035 og loks 90% samdrátt frá 2040. Í áætlunum framkvæmdastjórnarinnar er miðað við að allir nýjir almenningsvagnar verði kolefnislausir frá 2030. Gildissvið tillögunnar er einnig útvíkkað og nær nú auk flutningabifreiða til almenningsvagna, langferðabifreiða og sendiferðabifreiða.

Tillagan nær hins vegar ekki til sorphirðubifreiða, landbúnaðartækja, neyðarbifreiða og bifreiða í notkun varnarliða.

Samhliða birtingunni var auglýst eftir ábendingum og athugasemdum við áhrifamat gerðarinnar.

Samráð um reikniaðferðir við mat á kolefnislosun sendiferðabifreiða

Framkvæmdastjórnin hefur auglýst eftir umsögnum um reikniaðferðir við mat á og eftirliti með kolefnislosun sendiferðabifreiða.

Umsagnafrestur er til 13. mars nk.

Samráð um áhrifamat á tilskipun um öryggi fiskiskipa

Framkvæmdastjórnin undirbýr áhrifamat á tilskipun 97/70 um öryggi fiskiskipa. Tilskipunin innleiðir svonefnda Torremolinos samþykkt um þetta efni sem gerð var á vettvangi Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar, en Ísland tók virkan þátt í undirbúningi þeirrar samþykktar.

Miðað er við að áhrifamatið gefi nákvæma mynd af innleiðingu tilskipunarinnar og eftirfylgni í aðildarríkjunum. Þá verði áhrifamatið nýtt til að endurmeta öryggi fiskiskipa í ljósi nýlegra tækniframfara og hvort útvíkka skuli gildissvið tilskipunarinnar þannig að hún nái yfir minni fiskiskip jafnframt.

Unnt er að senda inn umsagnir vegna málsins til 16. mars nk.

Brussel-vaktin, fréttabréf fastanefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

10. febrúar 2023 | Framkvæmdaáætlun græna sáttmálans |
Að þessu sinni er fjallað um:

framkvæmdaáætlun græna sáttmálans

fund leiðtogaráðs Evrópusambandsins (ESB)

reglugerð um erlenda styrki sem geta haft óæskileg áhrif á innri markað ESB

Evrópska færniárið 2023

óformlega fundi samkeppnis- og viðskiptaráðherra ESB og ráðherra vísindarannsókna

verðþak á rússneskar olíuvörur

tilmæli ráðherraráðs ESB til aðildarríkjanna um lágmarksframfærslu

áherslumál ESB gagnvart Evrópuráðinu 2023-2024

frumvarp til laga um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið

skýrslu um formennskutíð Íslands í fastanefnd EFTA á seinni hluta árs 2022

Framkvæmdaáætlun græna sáttmálans

Þann 1. febrúar sl. var framkvæmdaáætlun framkvæmdastjórnar ESB (e. Green Deal Industrial Plan for the Net-Zero Age) birt opinberlega í formi orðsendingar til Evrópuþingsins, leiðtogaráðs ESB, ráðherraráðs ESB, efnahags- og félagsmálanefndar ESB og svæðanefndarinnar.

Áætlunin felur í sér bein viðbrögð ESB við nýrri lagasetningu í Bandaríkjum Norður-Ameríku (BNA). svonefndri IRA-löggjöf (e. Inflation Reduction Act ), en um efni þeirrar löggjafar og boðuð viðbrögð ESB var fjallað í Vaktinni 27. janúar sl.

Markmið áætlunarinnar er að auka samkeppnishæfni evrópsks tækniiðnaðar á sviði grænnar orku og orkuskipta í samræmi við metnaðarfull markmið græna sáttmálans um kolefnishlutleysi.

Áætlunin er sett fram sem viðbót við fyrri áætlanir og stefnur ESB á þessum sviðum, sbr. einkum Græna sáttmálann (e. European Green Deal) og „REPowerEU“. Eins og vikið var að í Vaktinni 27. janúar sl., þá byggir áætlunin á fjórum meginstoðum:

Einföldun regluverks. Fyrsta stoðin snýr að því að auka fyrirsjáanleika, hraða leyfisveitingum og einfalda regluverk með það að markmiði að hvetja til fjárfestinga í allri virðiskeðju græns iðnaðar. Í þessu skyni hyggst framkvæmdastjórnin leggja fram tillögu að nýrri reglugerð „Net-Zero Industry Act“ og er áætlað að tillaga að reglugerðinni verði lögð fyrir Evrópuþingið og ráðið um miðjan mars nk. Tillagan mun spila saman við áður boðaða löggjöf um mikilvæg hráefni (e. Critical Raw Materials), en þeirrar tillögu er að vænta um miðjan mars, og endurskoðun reglna um evrópskan raforkumarkað en áform um þá endurskoðun voru kynnt í samráðsgátt ESB nýverið, sbr. sérstaka umfjöllun í Vaktinni 27. janúar sl.

Greiðari aðgangur að fjármögnun. Önnur stoðin snýr að því að byggja upp greiðari aðgang að fjármögnun og auka fjárfestingu í hreinum/grænum tækniiðnaði. Í því skyni hefur framkvæmdastjórnin leitað samráðs meðal aðildarríkjanna um að slakað verði tímabundið á ríkisaðstoðarreglum m.a. til að unnt sé að mæta þeim ívilnunum sem önnur ríki og ríkjabandalög bjóða, t.a.m. BNA og Kína. Samhliða leggur framkvæmdastjórnin til að settur verði á laggirnar nýr sjóður undir heitinu „EU Sovereignty Fund“ til að jafna aðstöðumun aðildarríkja ESB þar sem svigrúm ríkjanna til ríkisaðstoðar er mismunandi.

Færnisátaki. Þriðja stoðin snýr að því að auka hæfni og færni fólks á vinnumarkaði á sviðum tengdum grænum iðnaði og orkuskiptum enda sé aukin færni er forsenda árangurs. Hyggst framkvæmdastjórnin leggja til að stofnað verði til sérstakrar menntaakademíu á sviði framkvæmdaáætlunar græna sáttmálans (e. Net Zero Industry Academies) sem fái það hlutverk að móta endurmenntunaráætlanir á helstu þekkingarsviðum græns iðnaðar auk þess sem leitað verði leiða til að meta raunfærni einstaklinga óháð menntun og prófgráðum. Færnisátakið spilar saman við tillögu framkvæmdastjórnarinnar um að árið 2023 verði tileinkað færni, sbr. sérstaka umfjöllun hér að neðan um Evrópska færnisárið 2023.

Frjálsum og sanngjörnum viðskiptum og öruggum aðfangakeðjum. Fjórða stoðin snýr að frjálsum og sanngjörnum alþjóðaviðskiptum og uppbyggingu öruggra aðfangakeðja sem styðja við græn umskipti. Í þessu skyni hyggst framkvæmdastjórnin vinna áfram að því að efla samstarf við helstu samstarfsríki, með gerð fríverslunarsamninga og annars konar fjölþættu samstarfi sem stutt getur við græn umskipti og með því að styðja við starfsemi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (e. World Trade Organization). Þá hyggst framkvæmdastjórnin kanna möguleika á því að efna til bandalags meðal samstarfsríkja á sviði hrávöruviðskipta (e. Critical Raw Materials Club) með það að markmiði að tryggja alþjóðlegt framboð mikilvægra hráefna er styðji við fjölbreytta iðnaðarframleiðslu á samkeppnisgrundvelli (e. Clean Tech/Net-Zero Industrial Partnerships). Samhliða framangreindu mun framkvæmdastjórnin nýta þau úrræði sem hún hefur til að koma í veg fyrir að erlendir styrkir raski samkeppni á innri markaðinum, sbr. m.a. reglugerð um erlenda styrki (e. Foreign Subsidies Regulation) sem tók gildi 12. janúar sl. og kemur til framkvæmda síðar á þessu ári en sérstaklega er fjallað um þá reglugerð hér neðar í Vaktinni.

Eins og rakið var í Vaktinni 27. janúar sl. þá hefur IRA-löggjöf BNA vakið upp umtalsverðar áhyggjur innan aðildarríkja ESB og í stofnunum sambandsins. Eftir sem áður þá hafa skoðanir verið skiptar um hversu langt eigi að ganga í viðbrögðum. Hafa stóru ríkin tvö, Þýskaland og Frakkland, þrýst mjög á um að slakað verði á ríkisaðstoðarreglum til að bregðast við hinni alþjóðlegu samkeppni en vafamál er með undirtektir frá öðrum aðildarríkjum. Beinast áhyggjur minni ríkjanna, sem hafa almennt minna efnahagsleg svigrúm til ríkisaðstoðar, að því að auknar heimildir til ríkisaðstoðar geti raskað samkeppnisskilyrðum á innri markaði ESB. Einnig eru skiptar skoðanir um hvort og þá hvernig eigi að auka sameiginlegar fjárveitingar í samkeppnissjóði ESB sem veita fyrirtækjum í ríkjum með minna fjárhagslegt svigrúm styrki til græns iðnaðar samanber framangreinda tillögu um stofnun fullveldissjóðs ESB (e. EU Sovereignty Fund).

Umræða um þessi málefni virðist þó, ef eitthvað er, vera ná meira jafnvægi, enda er IRA-löggjöfin og sú hugmyndafræði sem hún byggir á um margt áþekk þeim leiðum og hugmyndafræði sem byggt er á í græna sáttmála ESB. Aðferðirnar eru þó ólíkar og skýrist það í einhverjum tilvikum af ólíkum stjórnkerfum BNA og ESB og þá fyrst og fremst þeirri staðreynd að stofnanir ESB hafa ekki miðlægt skattlagningarvald líkt og alríkisstjórnin í BNA en þar er ríkisaðstoðinni fyrst og fremst miðlað í gegnum skattkerfið. Ríkisaðstoð í formi skattívilnana innan ESB verður hins vegar ekki komið við nema með sérstökum ákvörðunum aðildarríkjanna sjálfra í hverju tilviki og þær ákvarðanir þurfa að vera innan þess ramma sem ríkisaðstoðarreglur ESB leyfa á hverjum tíma og hefur framkvæmdastjórn ESB eftirlit með því að svo sé. Megin leiðin sem ESB hefur til beinna stuðningsaðgerða er því í gegnum sjóði og samstarfsáætlanir ESB.

Orðsending framkvæmdastjórnar ESB um framkvæmdaáætlun græna sáttmálans kom til umræðu á fundi leiðtogaráðs ESB í gær, 9. febrúar, sbr. umfjöllun hér að neðan.

Umræðan um framfylgd framkvæmdaáætlunar græna sáttmálans er þó einungis á byrjunarstigi og mun halda áfram næstu vikur en beinharðar tillögur framkvæmdastjórnarinnar til ráðherraráðs ESB og Evrópuþingsins, svo sem um einfaldara regluverk í grænum iðnaði (e. Net-Zero Industry Act), um rýmkun á ríkisaðstoðarreglum og um breytt sjóðafyrirkomulag, eiga enn eftir að líta dagsins ljós.

Ísland er þátttakandi í ýmsum samstarfsáætlunum ESB, t.d. „Horizon Europe“ og hafa íslenskir aðilar aðgang að ýmsum styrktarsjóðum og fjármögnunarkerfum í gegnum þær áætlanir og hafa möguleikar þar verið vel nýttir af íslenskum aðilum í gegnum tíðina. Verði stofnað til nýrra samstarfsáætlana eða endurskipulagningar á sjóðakerfi ESB, eftir atvikum með millifærslu fjármuna á milli sjóða, þarf að gæta vel að hagsmunum Íslands í því sambandi. Þá eru reglur ESB um ríkisaðstoð hluti af EES-samningnum og því nauðsynlegt að fylgjast vel með þróun mála þar, með hliðsjón af samkeppnisstöðu íslenskra nýsköpunarfyrirtækja bæði á alþjóðlegum mörkuðum og á innri markaði ESB. Loks geta áform um einföldun regluverks á sviði græns iðnaðar og uppbyggingu vistvænna og sjálfbærra raforkuvera haft mikil áhrif á Íslandi.

Fundur leiðtogaráðs ESB

Leiðtogar aðildarríkja ESB komu saman til fundar í Brussel í gær, 9. febrúar. Volodymyr Zelenskí, forseti Úkraínu, var sérstakur gestur fundarins og var árásarstríð Rússlands gagnvart landi hans vitaskuld megin umræðuefnið sem og stuðningsaðgerðir ESB við Úkraínu. Umsókn Úkraínu um aðild að ESB var einnig til umræðu og þrýsti Zelenskí mjög á um að umsóknarferlinu yrði hraðað eins og kostur væri. Þá voru refsiaðgerðir gegn Rússlandi til umræðu. Umfang refsiaðgerða sem þegar hafa verið ákveðnar á sér engin fordæmi, samanber meðal annars umfjöllun hér að neðan um innflutningsbann ESB á rússneskri olíu og verðþak. Boðaði leiðtogaráðið að áfram yrði leitað leiða til að herða þær aðgerðir enn frekar.

Meðal annarra mála sem rædd voru á fundinum voru staða mála í Tyrklandi í kjölfar þeirra miklu náttúruhamfara sem þar hafa riðið yfir og viðbrögð ESB við þeim. Þá var staða efnahagsmála á innri markaði ESB til umræðu, viðskiptamál og málefni fjármálamarkaða, innflytjenda- og flóttamannamál o.fl.

Loks var orðsending framkvæmdastjórnar ESB um framkvæmdaáætlun græna sáttmálans (e. Green deal industrial plan for the net-zero age) tekin til umræðu, sbr. sérstaka umfjöllun um þá áætlun hér að framan. Ályktana leiðtogaráðsins um þetta efni hafði verið beðið með nokkurri óþreyju en eins og rakið er að framan hafa ólík sjónarmið komið fram af hálfu aðildarríkja um það hvað teljist viðunandi og hæfileg viðbrögð til að tryggja samkeppnishæfni evrópsk tækniiðnaðar. Ályktanir fundarins bera margvísleg merki um þær málamiðlanir sem tekist hafa. T.a.m. létu leiðtogarnir sér nægja í ályktun um þetta mál að hvetja framkvæmdastjórnina til að hraða vinnu og greiningum til undirbúnings þeirra mögulegu viðbragða sem fjallað er um í áætluninni eins og kostur væri.

Reglugerð um erlenda styrki sem geta haft óæskileg áhrif á innri markað ESB

Þann 12. janúar sl. tók gildi reglugerð um erlenda styrki (e. Regulation on foreign subsidies distorting the internal market, FSR).

Afgreiðsla reglugerðarinnar gekk hratt fyrir sig í stofnunum ESB. Framkvæmdastjórn ESB lagði fram tillögu að henni í maí 2021 og var reglugerðin samþykkt af Evrópuþinginu og ráðherraráði ESB í júní 2022 og birt með lögformlegum hætti í desember 2022. Í reglugerðinni er að finna heimildir fyrir framkvæmdastjórn ESB til að staðreyna óæskileg áhrif erlendra styrkja í viðskiptum og fjárfestingum í þeim tilgangi að tryggja jafna samkeppnisstöðu fyrirtækja á innri markaði ESB. Reglugerðin kemur til framkvæmda 12. júlí nk., en frá þeim degi getur framkvæmdastjórnin hafið rannsókn á mögulegum óæskilegum tilvikum.

Reglugerðin nær til hvers kyns efnahagsstarfsemi innan ESB; þ.m.t. samruna og slita á fyrirtækjum, opinberra innkaupa og allrar annarrar markaðsstarfsemi. Nýju reglurnar veita framkvæmdastjórn ESB heimild til að rannsaka fjárhagsleg framlög eða stuðning frá þriðja ríki til fyrirtækja, sem eru með efnahagsstarfsemi innan ESB, með tilliti til áhrifa á samkeppnisstöðu. Ef áhrifin eru talin óæskileg eða skaðleg getur framkvæmdastjórnin gripið til ákveðinna aðgerða.

Í stórum dráttum samanstendur reglugerðin af þremur meginþáttum:

Tilkynningarskyldu fyrirtækis til framkvæmdastjórnarinnar (e. Commission concentrations) þegar fyrirtæki í samrunaferli eru með veltu upp á 500 milljónir evra eða meira og fjárframlag stjórnvalda frá 3ja ríki er að minnsta kosti 50 milljónir evra (eða 10% af veltu).

Tilkynningarskyldu fyrirtækis til framkvæmdastjórnarinnar þegar fyrirtæki er þátttakandi í opinberu útboði eða innkaupum þar sem samningur hljóðar upp á 250 milljónir evra eða meira og fjárframlag er að minnsta kosti 4 milljónir evra á hvert ríki.

Í öllum öðrum tilvikum sem varða markaðsmál getur framkvæmdastjórnin haft frumkvæði að rannsókn ef grunur er talinn á mögulegri markaðsmisnotkun.

Reglugerðin veitir framkvæmdastjórninni mjög víðtækar rannsóknarheimildir til að safna upplýsingum, t.d. með vettvangsrannsóknum, bæði innan og utan ESB, og sömuleiðis til að rannsaka tilteknar atvinnugreinar eða tilteknar tegundir styrkja, vakni grunur um óæskilegan stuðning. Þá getur hún bannað samruna sem tengist styrkveitingu frá 3ja ríki og komið veg fyrir að styrkfyrirtæki fái samning í opinberu útboði. Reynist grunur um óæskilegar styrkveitingar á rökum reistur getur framkvæmdastjórnin lagt sekt á viðkomandi fyrirtæki sem nemur allt að 10% af árlegri heildarveltu þess. Almenna reglan er þó sú að styrkir undir 4 milljónum evra yfir 3ja ára tímabil eru taldir ólíklegir til að valda skaða. Auk þess eru styrkir sem falla undir verðmætamörk reglna um ríkisstyrki metnir óskaðlegir (e. non-distortive).

Dæmi um óæskilegan eða jafnvel skaðlegan stuðning eru m.a. lán án vaxta, ótakmarkaðar ábyrgðir, bein fjárframlög, sérstök skattaleg meðferð, skattafrádrættir og beinir styrkir svo eitthvað sé nefnt. Ýmislegt í þessari upptalningu minnir á þann ríkisstuðning sem mælt er fyrir um í bandarísku IRA-löggjöfinni (e. US Inflation Reduction Act), sem fjallað er um hér að framan.

Framkvæmdastjórnin hefur nú birt drög að framkvæmdareglugerð (e. implementing regulation) í samráðsgátt ESB þar sem ferlið sjálft varðandi tilkynningarskyldu fyrirtækja, tímafresti, aðgang að gögnum máls, reglur um trúnað o.fl. er útfært nánar og er umsagnarfrestur til 6. mars nk. Miðað er við að sú reglugerð taki gildi samhliða gildistöku stofnreglugerðarinnar í júlí nk. Ekki liggur fyrir endanleg afstaða til þess hvort reglugerðirnar teljist EES-tækar, en að líkindum er svo ekki.

Evrópska færniárið 2023

Í stefnuræðu sinni þann 14. september sl. boðaði Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdarstjórnar ESB, að árið 2023 yrði tileinkað hæfni í Evrópu, (e. Year of skills). Í samræmi við það lagði framkvæmdastjórn ESB þann 12. október fram tillögu að ákvörðun Evrópuþingsins og ráðsins um málið.

Markmiðið með Evrópska færniárinu 2023 er að leggja áherslu á mikilvægi þess að efla færni og hæfni starfsfólks á vinnumarkaði m.a. með endurmenntun og símenntun. Slíkt sé nauðsynlegt til að viðhalda samkeppnishæfni atvinnulífs í Evrópu og auka þátttöku fólks í atvinnulífinu Áætluninni sem sett er fram í framangreindri ákvörðun er ætlað að mæta þeim áskorunum sem uppi eru á vinnumarkaði í Evrópu vegna grænna og stafrænna umskipta. Kannanir hafi sýnt að meirihluti fyrirtækja í Evrópu telji vandkvæðum bundið að finna starfsfólk með rétta hæfni og samkvæmt DESI stuðlinum sem mælir stafræna frammistöðu, sýnir að tæplega helming Evrópubúa á aldrinum 16-74 ára skortir grunnfærni á stafræna sviðinu. Þá eru starfandi sérfræðingar á sviði upplýsingatækni í Evrópu einnig of fáir enda þótt veruleg fjölgun hafi orðið á síðustu árum.

Áætluninni er ætlað að vera samstarfsverkefni framkvæmdastjórnarinnar, Evrópuþingsins, aðildarríkjanna, opinberra aðila, aðila vinnumarkaðarins og annarra haghafa, og er þar m.a. lögð áhersla á eftirfarandi:

Að stuðlað verði að fjárfestingu í þjálfun og endurmenntun til þess að virkja evrópskt vinnuafl og aðstoða fólk við að skipta um starfsvettvang í kjölfar stafrænna og grænna umskipta.

Samþættingu menntunar og starfa með því að tryggja að rétt hæfni og þekking sé til staðar í samræmi við þarfir vinnumarkaðarins.

Leita leiða til að laða að hæft erlent vinnuafl í samræmi við þarfir atvinnulífs í Evrópu.

Sú ákvörðun að tileinka árið færni og hæfni fellur vel saman við framkvæmdaáætlun græna sáttmálans sem fjallað er um hér að framan, en færnisátak er ein af fjórum meginstoðum þeirrar áætlunar.

Evrópska færniárið var til umfjöllunar í atvinnu- og félagsmálanefnd Evrópuþingsins í byrjun vikunnar og greiddi yfirgnæfandi meirihluti nefndarmanna atkvæði með því að hefja formlegar viðræður um upptöku áætlunarinnar á grundvelli tillagna framkvæmdastjórnarinnar.

Næstu skref í málinu eru þau að þríhliða viðræður, þ.e. þingsins, ráðsins og framkvæmdastjórnarinnar, um málið geta nú hafist og gert er ráð fyrir því að Evrópska færniárið geti tekið formlega gildi í maí og standi þá til maí 2024.

Áætlunin er merkt EES-tæk en ekki er þó skylt að taka hana upp í EES-samninginn. Líklegt er þó talið að EES-ríkin muni öll taka þátt í áætluninni enda eru áherslur hennar í ágætu samræmi við stefnumörkun ríkjanna á þessu sviði. Ekki er gert ráð fyrir sérstakri nýrri fjárveitingu til þessa verkefnis en eftir því sem næst verður komist er ætlunin að fjármagna hana með fé úr European Social Fund og Just transition fund auk þess sem tengsl eru við aðrar samstarfsáætlanir ESB.

Þrátt fyrir að endanleg ákvörðun um Evrópska færniárið hafi ekki enn formlega tekið gildi hefur framkvæmdastjórnin nú þegar boðað aðgerðir sem byggja á markmiðum þeirrar áætlunar (e.Talent Booster Mechanism). Þessum aðgerðum er ætlað að tryggja viðnámsþrótt dreifbýlla svæða sem glíma við áskoranir vegna hækkaðs lífaldurs fólks og lægra hlutfalls fólks með framhaldsmenntun (iðn- eða háskólamenntun) með því að styðja við menntun, endurmenntun og að laða að fólk til þessara svæða með rétta hæfni.

Framangreindar aðgerðir voru kynntar samhliða birtingu skýrslu nú í janúar um áhrif lýðfræðilegra breytinga í álfunni. Í skýrslunni kemur m.a. fram að verulega hafi hægt á fólksfjölgun í Evrópu þannig að hlutur Evrópu í heildaríbúafjölda heimsins hafi minnkað og muni að óbreyttu halda áfram að minnka. Þá kemur fram að öldrun haldi áfram að aukast og að hlutfall fólks 65 ára og eldra sé orðið 20,8% af heild og hafi aukist frá því árið áður en þá var hlutfallið 20,6%. Á sama tíma hefur hlutfall ungs fólks, þ.e. fólks á aldrinum 15-29 ára, lækkað úr 16,6% í 16,3% en þess má geta að þetta hlutfall var 18,1% á árinu 2011.

Óformlegir fundir samkeppnis- og viðskiptaráðherra og ráðherra vísindarannsókna

Dagana 6. – 8. febrúar 2023 héldu ráðherrar samkeppnis- og viðskiptamála og ráðherrar vísindarannsókna hjá ESB óformlega fundi í Stokkhólmi. Fundur þeirra fyrrnefndu fór fram 6. - 7. febrúar á meðan ráðherrar vísindarannsókna funduðu 8. febrúar.

Fundur samkeppnis- og viðskiptaráðherrar ESB. Þann 6. febrúar sóttu ráðherrarnir viðskiptaráðstefnu þar sem sænsk nýsköpunarfyrirtæki í fararbroddi fyrir grænum lausnum kynntu afurðir sínar. Á ráðherrafundinum 7. febrúar ræddu ráðherrarnir síðan leiðir til að bæta samkeppnisstöðu á innri markaði ESB, bæði til skemmri og lengri tíma, og grænu umbyltinguna. Við tók síðan umræða með þátttöku aðila úr sænsku atvinnulífi. Áherslur þeirrar umræðu, þar sem meira var horft á aðgerðir til skemmri tíma, voru meðal annars á nauðsyn þess að innri markaður legði sitt að mörkum til grænu umbyltingarinnar og að einkafjárfestar kæmu að aðgerðum til að minnka útblástur kolefnis og síðast en ekki síst hvernig samvinna um viðskipti á alþjóðamarkaði gæti stutt við markmið um græna umbyltingu.

Fundur vísinda- og rannsóknaráðherra ESB. Á fundinum efndi menntamálaráðherra Svía, Mats Persson, til stefnumótandi umræðu um hvernig þróa mætti notkun á rannsóknagögnum frá viðeigandi rannsóknarstofnunum í því skyni að vera betur í stakk búinn til að mæta félagslegum áskorunum og styrkja samkeppni. Jafnframt ræddu ráðherrarnir um opinn aðgang að vísindaniðurstöðum og -skýrslum og hvernig útgáfureglur um vísindarannsóknir muni þróast og aðlagast að rafrænu umhverfi. Jafnframt voru áhrif rafrænnar þróunar á lýðræði og réttarríkið til umræðu. Opinn aðgangur að faglegum vísindarannsóknum er mikilvægt mál hjá mörgum aðildarríkjum ESB og var meðal annars eitt af forgangsmálum tékknesku formennskunnar.

Verðþak á rússneskar olíuvörur

Ráðherraráð ESB samþykkti laugardaginn 4. febrúar sl. að setja verðþak á olíuvörur (bensín, dísel o.fl.) sem upprunnar eru í Rússlandi eða fluttar þaðan. Ákvörðunin kemur til viðbótar við ákvörðun ráðherraráðsins frá 3. desember sl. um verðþak á hráolíu (60 USA á tunnu), sem upprunnin er í Rússlandi eða flutt þaðan, og bann við innflutningi, sbr. einnig ákvörðun ráðsins frá 6. október 2022, sbr. umfjallanir í Vaktinni 7. október, 2. desember og 16. desember sl.

Ákvörðun ráðsins nú felur jafnframt í sér endurskoðun á upphæð verðþaksins á hráolíu sem ákveðið var í 3. desember.

Frá og með 5. febrúar gilda eftirfarandi reglur um hráolíu og olíuvörur frá Rússlandi:

Innflutningur á bæði hráolíu og olíuvörum frá Rússlandi til ESB er bannaður.

Sjóflutningar á hráolíu frá Rússlandi, og önnur þjónusta því tengd, eru bannaðir ef verðið er yfir 45 dollurum á tunnu.

Sjóflutningar á bensínvörum frá Rússlandi og önnur þjónusta því tengd erubannaðir ef verðið er yfir 100 dollara tunnu.

Framangreindar ákvarðanir um verðþak á hráolíu annars vegar og olíuvörur hins vegar eru teknar sameiginlega af ESB, G7-ríkjunum og Ástralíu sem saman hafa myndað bandalag um verðþak á olíu og olíuvörur frá Rússlandi (e. Price Cap Coalition). Hugmyndafræðin er að knýja niður það verð sem Rússum býðst fyrir olíuvörur sínar um leið og þess er gætt að valda ekki of mikilli röskun á alþjóðlegum olíumarkaði og eru vísbendingar um að þessar ráðstafanir séu farnar að hafa umtalsverð áhrif á olíutekjur Rússlands.

Gert er ráð fyrir að verðþökin verði tekin til endurskoðunar um miðjan mars og síðan er ráðgert að endurskoða þau reglulega á tveggja mánaða fresti.

Tilmæli ráðherraráðs ESB til aðildarríkjanna um lágmarksframfærslu

Þann 30. janúar sl. samþykkti ráðherraráð ESB tillögu framkvæmdastjórnarinnar frá 28. september 2022 um útgáfu tilmæla um viðunandi lágmarksframfærslu til að berjast gegn fátækt og stuðla að aukinni atvinnuþátttöku í aðildarríkjunum. Lágmarksframfærsla er skilgreind sem tekjutengd fjárhagsleg aðstoð til þrautavara fyrir fólk undir tilteknum tekjumörkum til þess að það geti lifað mannsæmandi lífi.

Tilmælin eru hluti félagslegu réttindastoðarinnar ESB (e. European Pillar of Social Rights), en fjallað var um þá stefnumörkun ESB í Vaktinni 18. nóvember sl. Er tilmælunum ætlað að leysa af hólmi eldri tilmæli ráðsins frá 1992 um félagslega aðstoð og félagslega vernd, (92/441/EEC) auk þess sem þeim er ætlað að styðja við tilmæli ráðsins frá 2008 um virka þátttöku fólks með takmarkaða starfsgetu (2008/867/EC). Tilgangur tilmælanna er að berjast gegn fátækt og félagslegri einangrun og stuðla að aukinni atvinnuþátttöku með því að tryggja lágmarksframfærslu og greiðan aðgang að þjónustu fyrir einstaklinga sem geta ekki framfleytt sér sjálfir og stuðning til þeirra sem hafa starfsgetu til að leita sér atvinnu.

Enda þótt öll aðildarríki ESB hafi byggt upp félagsleg úrræði til að tryggja lágmarksframfærslu, þá er efni og umfang úrræðanna afar mismunandi milli aðildarríkja.

Tilmælin byggja á þeirri grunnhugsun að félagslegt öryggisnet sé til þess fallið að draga úr félagslegum ójöfnuði og misskiptingu innan aðildarríkjanna. Slík almannatryggingakerfi auki félagslega samstöðu og stuðli að þátttöku vinnufærra á vinnumarkaði. Vel hannað kerfi tryggi öllum viðunandi framfærslu er nægi til að lifa mannsæmandi lífi með virkri þátttöku í samfélaginu um leið og það feli í sér innbyggða hvata til atvinnuþátttöku.

Í tilmælunum felast ráðleggingar til aðildarríkjanna um hvernig koma megi á fót traustu og aðgengilegu félagslegu stuðningskerfi samkvæmt framansögðu og er m.a. mælst til þess að hlutaðeigandi hagsmunaaðilum í aðildarríkjunum sé veitt aðkoma við ákvörðun um viðunandi lágmarksframfærslu og að slíkar ákvarðanir séu endurskoðaðar reglulega til þess að tryggja nægjanleika.

Í tilmælunum er jafnframt að finna ráðleggingar um annan fjárhagslegan stuðning, s.s. félagslegt húsnæði, auk niðurgreiðslu fyrir ýmsa þjónustu, svo sem heilsugæslu, orku, leikskólagjöld og almenningssamgöngur og fleira eftir því sem við á.

Gert er ráð fyrir því að aðildarríkin geti sótt um stuðning úr European Social Fund Plus til þess að fjármagna verkefni á þessu sviði. Framkvæmdastjórnin mun hafa eftirfylgni með tilmælunum gagnvart aðildarríkjunum.

Á Evrópuþinginu hefur það verið gagnrýnt að tilmæli af þessu tagi hafi ekki dugað til þess að ná fram fullnægjandi kerfisbreytingum í aðildarríkjunum og því kunni að vera nauðsynlegt að mæla fyrir um þessi málefni með tilskipun sem sé bindandi fyrir aðildarríkin og hefur í því sambandi verið vísað til nýlegrar tilskipunar um lágmarkslaun en um þá tilskipun hefur verið fjallað í Vaktinni, nú síðast þann 27. janúar sl.

Áherslumál ESB gagnvart Evrópuráðinu 2023-2024

Ráðherraráð ESB (e. Council of the European Union) birti hinn 30. janúar sl. ályktun um helstu áherslumál sambandsins gagnvart Evrópuráðinu (e. Council of Europe) fyrir árið 2023-2024. Þess ber að geta að um er að ræða aðskildar stofnanir en Evrópuráðið var stofnað árið 1949 í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar og eru aðildarríki þess nú 46 talsins, en aðildarríki ESB eru 27. Ísland er beinn aðili að Evrópuráðinu og gegnir um þessar mundir formennsku í ráðinu. Evrópuráðið sinnir fjölbreytilegum málaflokkum eins og mannréttindamálum, félagsmálum, umhverfismálum, sveitarstjórnarmálum, menntunar- og menningarmálum ásamt samvinnu á sviði löggjafar svo að dæmi séu nefnd.

Áherslurnar sem útlistaðar eru í ályktun ráðherraráðs ESB skiptast í grunninn í þrennt: 1) að halda á lofti og verja mannréttindi, 2) verja og stuðla að lýðræði í álfunni og 3) tryggja og styrkja réttarríkið. Auk þess segir að stríðið í Úkraínu, sem nú hefur varað í tæplega ár, gefi tilefni til aukins samstarfs ráðherraráðs ESB og Evrópuráðsins. Tilefnislaus og ólögmæt innrás Rússa í Úkraínu gangi gegn hinu ríkjandi alþjóðlega skipulagi, alþjóðalögum og lýðræðislegum grunni og skipulagi stjórnmála-, félags- og efnahagskerfis Evrópu.

Aukinheldur er lögð áhersla á eflingu marghliða samvinnu (e. multilateralism) sem átt hefur undir högg að sækja í alþjóðakerfinu á undanförnum árum. Í því sambandi verði ríki að virða og koma sér saman um sameiginlegt regluverk — það sé besta leiðin til að stuðla að og viðhalda friði og öryggi.

Hvað tvíhliða vinnu ESB og Evrópuráðsins varðar muni ESB áfram beita sér á grundvelli samkomulags frá 2021 sem felur í sér innleiðingu sameiginlegrar framkvæmdaáætlunar beggja aðila, að fjárhæð 207,4 milljóna evra, og leggur ríka áherslu á mannréttindi, lýðræði og virðingu fyrir réttarríkinu.

Þá leggur ESB í ályktuninni áherslu á miðlæga stöðu mannréttinda eins og þau eru tryggð í mannréttindasáttmála Evrópu (MSE) og túlkuð af Mannréttindadómstóli Evrópu (MDE). Í því sambandi leggur ESB áherslu á mikilvægi þess að það hljóti aðild að MSE og geti þannig átt formlega aðkomu að MDE og þeim málum sem þar eru tekin fyrir. Samningaviðræður þess efnis hafa staðið yfir allt frá 2001. Samningur náðist árið 2013 en honum var hafnað af Evrópudómstólnum (e. European Court of Justice), dómstóli ESB. Viðræður hófust að nýju árið 2019 og er ekki lokið.

ins og áður segir fer Ísland með formennsku í Evrópuráðinu um þessar mundir (frá nóvember 2022 og fram í maí á þessu ári). Gefin hefur verið út áætlun sem lesa má á vefsvæði formennskunnar en hún nær hámarki þegar haldinn verður leiðtogafundur í Reykjavík dagana 16.-17. maí nk.

Ítarlegri útlistun á áherslum ESB gagnvart Evrópuráðinu 2023-2024 má finna í ályktun ráðherraráðsins hér.

Frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið

Utanríkisráðuneytið hefur birt drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið í samráðsgátt stjórnvalda.

Með frumvarpinu er lagt til að sett verði ný 4. gr., til viðbótar 3. gr. laga um Evrópska efnahagssvæðið nr. 2/1993, þess efnis að þegar lagaákvæði sem réttilega innleiðir skýra og óskilyrta reglu á grundvelli EES-samningsins er ósamrýmanlegt öðru almennu lagaákvæði skuli hið fyrrnefnda ganga framar.

Umsagnarfrestur er til 21. febrúar nk.

Skýrsla um formennsku Íslands í fastanefnd EFTA í EES-samstarfinu á seinni hluta árs 2022

EFTA hefur birt skýrslu um formennsku Íslands í fastanefnd EFTA í EES-samstarfinu á seinni hluta árs 2022. Í skýrslunni er farið yfir áherslur formennskunnar starfsemi EFTA á tímabilinu og rekstur EES-samningsins. Gert er m.a. er grein fyrir fundi EES-ráðsins sem fram fór í fyrsta skipti í húsakynnum EFTA þann 23. nóvember sl. undir formennsku Íslands og ráðstefnu sem Ísland efndi til um orkumál í byrjun desember, en frá hvorutveggju var sagt í Vaktinni 2. desember sl. Samtals voru 279 nýjar gerðir teknar upp í samninginn á tímabilinu. Í formennskutíð sinni lagði Ísland ríka áherslu á að leitað væri leiða til að bæta málsmeðferð við upptöku gerða í EES-samninginn og að minnka upptökuhallann.

Í skýrslunni er vikið að EES EFTA-álitum sem send voru til ESB á tímabilinu og hagsmunagæslu Íslands vegna væntanlegrar reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins þar sem til stendur að gera breytingar á viðskiptakerfi (ETS-kerfið) með losunarheimildir í flugi en mikil vinna hefur verið lögð í það að koma málstað Íslands á framfæri á undanförnum misserum eins og reglulega hefur verið sagt frá í Vaktinni, nú síðast 16. desember. Loks er í skýrslunni farið yfir þá hagræðingu sem náðst hefur fram undir formennsku Íslands í starfsemi EFTA í Brussel, meðal annars með sameiginlegri stoðþjónustu, sem nú er möguleg þar sem starfsemi EFTA er nú öll komin undir sama þak.

Brussel-vaktin, fréttabréf fastanefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

27. janúar 2023 | Grænn iðnaður og ríkisstuðningur |
Að þessu sinni er fjallað um:

viðbrögð Evrópusambandsins (ESB) við nýjum stuðningsaðgerðum við grænan iðnað í Bandaríkjunum

þátttöku Íslands í loftslagsbandalagi utanríkisviðskiptaráðherra

fjármálareglur ESB

fund fjármála- og efnahagsráðherra ESB

fund innanríkisráðherra ESB

opið samráð um endurskoðun reglna um evrópskan raforkumarkað

málshöfðun Danmerkur til ógildingar á tilskipun um lágmarkslaun

heimsókn formanns stýrihóps stjórnarráðsins um framkvæmd EES-samningsins

Viðbrögð ESB við nýjum stuðningsaðgerðum við grænan iðnað í Bandaríkjunum

Ef frá er talið árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu þá er um fátt meira fjallað á vettvangi ESB um þessar mundir en nýja lagasetningu í Bandaríkjum Norður-Ameríku (BNA) sem ætlað er að draga úr verðbólgu þar í landi (e. Inflation Reduction Act – IRA) en löggjöfin tók gildi um nýliðin áramót.

Mikilvægi BNA sem helsta viðskiptaaðila ESB hefur aukist enn frekar eftir innrás Rússlands í Úkraínu. Þannig áttu stórfelldir flutningar á gasi og olíu frá BNA til Evrópu stóran þátt í því hversu vel hefur gengið að fylla á varabirgðir Evrópuríkja fyrir veturinn.

Þrátt fyrir samstöðu gegn árásarstríði Rússa hefur togstreita í samskiptum ESB og BNA á sviði viðskipta- og samkeppnismála þó farið vaxandi og hafa ráðamenn í ESB helst haft áhyggjur af áhrifum framangreindrar IRA-löggjafar á græna framleiðslu- og iðnaðarstarfsemi innan ESB. Bent hefur verið á að löggjöfin geti mögulega orðið til þess að evrópsk fyrirtæki á þessum sviðum kjósi í einhverjum tilvikum að flytja starfsemi sína frá ríkjum ESB til BNA, verði ekki gripið til umfangsmikilla mótvægisaðgerða.

En um hvað snýst hin bandaríska löggjöf? Um er að ræða yfirgripsmikinn og margbrotinn löggjafarpakka sem hefur það að markmiði að draga úr verðbólgu eins og nafnið gefur til kynna en græn orkuskipti og stuðningur við grænan iðnað eru þó undirliggjandi meginmarkmið laganna þegar nánar er að gáð.

Löggjafarpakkinn skiptist í grófum dráttum í eftirfarandi hluta:

Umbætur í skattkerfi:

Kveðið er á um 15% lágmarksskatt á stórfyrirtæki, samkvæmt nánari reglum.

Kveðið er á um upptöku ófrádráttarbærs fjármagnsgjalds vegna endurkaupa á hlutabréfum er nemur 1% af gangvirði viðkomandi bréfa, samkvæmt nánari reglum.

Þá veita lögin heimild til viðbótarfjárframlaga til skattyfirvalda til þróunar skattkerfa og bættrar skattheimtu.

Aðgerðir til lækkunar á lyfjaverði.

Lögin fela í sér auknar heimildir og skyldu heilbrigðis- og sjúkratryggingastofnunar BNA til að semja um verð mikilvægustu lyfja og um gjaldskyldu þeirra framleiðenda sem ekki sýna samningsvilja, samkvæmt nánari reglum.

Lögð er skylda á lyfjafyrirtæki til að veita afslátt af frumheitalyfjum þar sem samheitalyf eru ekki í boði, ef kostnaður einstaklings fer yfir 100 dollara á ári, og verð hækkar hraðar en verðbólga, samkvæmt nánari reglum.

Innleiddar eru reglur um hámarksútgjöld sjúklinga fyrir lyf og læknisþjónustu á ári hverju.

Orkuöryggi og hreinorkustefna

Lögin framlengja skattafslátt sem verið hefur við lýði vegna framleiðslu umhverfisvænnar raforku auk þess sem innleiddar eru ýmsar frekari skatthagræðingaraðgerðir vegna framleiðslu sem stuðlað geta að slíkri vistvænni orkuframleiðslu.

Þá er með lögunum innleiddur nýr skattafsláttur fyrir kolefnishlutlausa kjarnorku sem framleidd er og seld á árabilinu frá 2024 til 2033.

Þá er skattafsláttur vegna framleiðslu lífeldsneytis framlengdur til loka árs 2024

Nýr skattafsláttur vegna sölu sjálfbærs flugvélaeldsneytis og íblöndunarefna er innleiddur, samkvæmt nánari reglum.

Nýr skattafsláttur vegna framleiðslu á vottuðu hreinu vetni, samkvæmt nánari skilgreiningu, er innleiddur.

Lögin fela í sér skattívilnanir til fyrirtækja og einstaklinga og heimila sem ráðast í orkusparandi aðgerðir til að auka orkunýtni húsa og híbýla sinna.

Skilyrði fyrir skattafslætti til einstaklinga vegna kaupa á rafknúnum ökutækjum er breytt og skattafsláttur einskorðarður við ökutæki sem framleidd eru af viðurkenndum bandarískum framleiðendum og útiloka lögin ökutæki sem framleidd eru eða sett saman af erlendum aðilum sem BNA skilgreinir óvinveitt. Einungis einstaklingar með tekjur undir ákveðnu hámarki geta nýtt sér afsláttinn og jafnframt er sett hámark á smásöluverð ökutækis til að afslátturinn fáist.

Nýr skattafsláttur er innleiddur vegna kaupa á vistvænum ökutækjum til atvinnurekstrar, samkvæmt nánari reglum.

Lögin fela í sér nýjan skattafslátt vegna framleiðslu og sölu íhluta í sólar- og vindorkuver til ársins 2032.

Lögin hvetja til aukinnar fjárfestingar í hreinni innlendri orku og er sérstakur skattafsláttur innleiddur fyrir slíka framleiðslu og varðveislu hennar (rafhlöður).

Lögin hvetja til fjárfestingar í nýjum vistvænum raforkuverum með loforði um skattafslætti og afskriftir á skömmu tíma, að uppfylltum nánar tilteknum skilyrðum.

Vistvænn landbúnaðar og skógrækt

Lögin veita heimildir til margvíslegra styrka til nýsköpunar og skattafslátta í landbúnaði og skógrækt til stuðnings grænna umskipta og kolefnisbindingar og eru sérstakar ráðstafanir á þessu sviði boðaðar í dreifbýli BNA og í byggðum frumbyggja.

Landvarnir og hagvarnir

Lögin veita forseta BNA auknar fjármögnunarheimildir og víðtækar valdheimildir til að grípa til ráðstafana til að tryggja aðgang að hráefnum og íhlutum vegna varnartengdrar framleiðslu.

Verndun hafs- og strandsvæða

Lögin veita stjórnvöldum og öðrum nánar skilgreindum aðilum á sviði verndunar hafs og stranda auknar fjárheimildir og tæknilega aðstoð við verndun hafs og strandsvæða meðal annars með hliðsjón af verðurfarsbreytingum vegna loftlagsáhrifa.

Annað

Lögin veita heimild til aukinna fjárframlaga til margvíslega sjóða og áætlana á vegum ráðuneyta og stjórnarstofnana, t.d. til að auka orkunýtingu bygginga, endurbóta í raforkuflutningakerfinu og varnir gegn þurrkum, dýralífsvernd og margt fleira.

Lögin fela einnig í sér endurskoðun og hækkun auðlindagjalda vegna orkunýtingar í þjóðlendum BNA, bæði á sjó og landi.

Loks er auknu fjármagni jafnan veitt til viðkomandi stofnana og stjórnvalda BNA til að sinna þeim nýju og auknu verkefnum sem í lögunum felast.

En hvað er það í framangreindu sem veldur ráðamönnum í ESB áhyggjum? Flest ríki glíma þessi misserin við verðbólgu og beita þau ýmsum aðgerðum í þeirri viðureign. Þá hlýtur ESB að fagna þeirri kraftmiklu og sögulegu áherslu sem lögð er á hreinorkuskipti og grænan iðnað í lögunum, áherslu sem á sér enga hliðstæðu í BNA.

Markmið ESB og BNA eru því þau sömu en hins vegar er deilt um aðferðirnar og umfang þeirra ríkisstyrkja sem í lögunum felast.

Samantekið umfang ríkisstyrkja til grænna fjárfestinga, aðallega í formi skattívilnana, í IRA-lögunum er gríðarlegt og hefur verið metið á 369 milljarða bandaríkjadala eða sem nemur rúmum 53 þúsund milljörðum íslenskra króna eða um 14-faldri landsframleiðslu Íslands.

Er óttast að þessar víðtæku skattívilnanir muni hvetja fyrirtæki á sviði grænnar iðnaðarframleiðslu til að flytja starfsemi sína frá ESB til BNA, jafnvel í stórum stíl. Þá hefur því verið haldið fram að lögin hvetji neytendur til þess að kaupa tilteknar vörur, aðallega bifreiðar, sem framleiddar eru í BNA fremur en aðrar. Þetta slær ráðamenn í ESB vitaskuld illa enda hefur mikil áhersla verið á uppbyggingu í sömu iðngreinum á umliðnum árum innan ESB og gríðarlega mikið í húfi að viðhalda henni.

Vegna þessa hafa margir stigið fram og bent á nauðsyn þess að innan ESB verði gripið til ívilnandi aðgerða sem jafnast geti á við þær sem BNA hefur innleitt með IRA-löggjöfinni, meðal annars með því að rýmka ríkisstyrkjaheimildir aðildarríkja ESB. Hafa Þjóðverjar verið í fararbroddi þessarar umræðu og Frakkar og fleiri tekið undir. Þá hefur Thierry Breton, ráðherra innri markaðsmála í framkvæmdastjórn ESB beitt sér mjög í nokkurn tíma fyrir samræmdum mótvægisaðgerðum af hálfu ESB til verndar evrópskum iðnaði. Á sama tíma hefur legið fyrir að samtal væri í gangi á milli ESB og BNA um sameiginlegar lausnir til að koma í veg fyrir grænt styrkjakapphlaup milli ríkjabandalaganna.

Til tíðinda dró svo þann 17. janúar sl. er forseti framkvæmdastjórnarinnar, Ursula von der Leyen (VdL), flutti ræðu á ráðstefnu World Economic Forum í Davos. Auk þess að fjalla um hin stóru mál líðandi stundar, þ.e. stríðið í Úkraínu og orkumálin almennt, minnti hún á nauðsyn þess að skapa jákvætt umhverfi til fjárfestinga í nýjum og endurnýjanlegum orkugjöfum og hvers konar grænni tækni til að tryggja þá framtíð sem við viljum sjá. Í ræðunni kom fram einbeittur ásetningur af hennar hálfu um að ESB verði í forystu græns iðnaðar enda muni samkeppnishæfni ríkja og ríkjabandalaga í framtíðinni ráðast af því. Kvað hún IRA-löggjöf BNA vera stórt skref í baráttunni við loftslagsbreytingar en það væri hins vegar ekkert launungarmál að ýmsir þættir laganna hefðu valdið áhyggjum innan ESB. Kom fram í ræðunni að sökum þessa væri ESB í samtali við BNA um lausnir, þ.e. hvernig evrópsk fyrirtæki geti notið góðs af IRA. Sameiginlegur slagkraftur ESB og BNA í framfaraátt á þessu sviði væri gríðarlegur ef þeim auðnaðist að láta samkeppni og viðskipti sín á milli ráða ferðinni. Þá kynnti VdL viðbragðsáætlun framkvæmdastjórnar ESB undir yfirskriftinni „Green Deal Industrial Plan“.

Iðnaðaráætlun græna sáttmálans (e. Green Deal Industrial Plan) byggist á fjórum meginstoðum:

Einföldun regluverks. Fyrsta stoðin snýr að því að hraða leyfisveitingum og einfalda regluverk um endurnýjanlega orkugjafa. Samhliða því verður sett fram tillaga að nýrri reglugerð undir heitinu „Net-Zero Industry Act“ sem á að hvetja til fjárfestinga í allri virðiskeðju græns iðnaðar.

Innleiðingu fjárfestingahvata. Önnur stoðin snýr að því að auka fjárfestingu í hreinni/grænni tækni. Í því skyni verði tímabundið slakað á ríkisaðstoðarreglum m.a. til að mæta þeim ívilnunum sem aðrir bjóða, þ.e. BNA en sömuleiðis Kína. Til að jafna aðstöðumun aðildarríkja ESB þar sem svigrúm ríkjanna til ríkisaðstoðar er mismunandi boðaði VdL að nýjan sjóð undir heitinu „EU Sovereignty Fund“

Færnisátaki. Þriðja stoðin snýr að því að auka hæfni og færni fólks á vinnumarkaði aðildarríkjanna á öllum sviðum tengdum grænum iðnaði og orkuskiptum. Árangri á þessum sviðum verður ekki náð nema með þekkingu og hæfni. Í þessu sambandi vísaði VdL til þess að árið í ár, 2023, er tileinkað þjálfun á færni einstaklinga (e. European Year of Skills).

Frjálsum og sanngjörnum viðskiptum. Fjórða stoðin snýr að frjálsum og sanngjörnum viðskiptum. Í máli VdL kom fram að tryggja yrði öruggar aðfangakeðjur fyrir grænan iðnað og í því tilliti væri unnið að því að klára fríverslunarsamninga m.a. við Mexíkó, Síle, Nýja Sjáland og Ástralíu auk þess sem unnið væri að framgangi samningaviðræðna við Indland og Indónesíu. VdL vék einnig í ræðu sinni að nauðsyn þess að huga að sambandinu við Kína en Kína hefur sett rannsóknir og nýsköpun í grænum iðnaði í öndvegi í fimm ára áætlun sinni og hvatt fyrirtæki til að flytja starfsemi sína þangað með loforðum um ódýra orku og ódýrt vinnuafl, litla reglubyrði auk ýmissa ívilnana. Á sama tíma takmarkar Kína mjög aðgang að eigin markaði. Skilaboð VdL voru skýr. Enda þótt frjáls viðskipti væru markmiðið þá yrði ESB að bregðast mjög ákveðið við ef viðskipti væru ekki sanngjörn og ekki á jafnræðisgrundvelli.

Thierry Breton, sem fer með innri markaðsmál í framkvæmdastjórn ESB, hefur upplýst að fjölmörg aðildarríki ESB hafi nú þegar ákveðið eða hafið undirbúning að umfangsmiklum mótvægisaðgerðum til þess að styðja við grænan iðnað í löndum sínum. Þá vegferð leiði stóru ríkin innan ESB m.a. Þýskaland, Frakkland, Holland, Spánn og Ítalía, og er talið að þau ætli jafnvel að leggja til allt að 2-3% af vergri þjóðarframleiðslu landa sinna til aðgerðanna.

Þá hefur ráðherra samkeppnismála í framkvæmdastjórn ESB, Margrethe Vestager, boðað tímabundnar breytingar á ríkisstyrkjareglum ESB til að mæta þeim krísuaðstæðum sem uppi eru og einnig lagt til að sérstök styrkjaáætlun verði hönnuð til verjast brotthvarfi fyrirtækja frá aðildarríkjum ESB (e. anti-relocation investment aid).

Eins og áður segir veldur þetta áhyggjum hjá minni aðildarríkjum ESB sem hafa minna svigrúm til að styrkja samkeppnishæfni fyrirtækja í löndum sínum. Framangreindur fullveldissjóður ESB (e. EU Sovereignty Fund) er svar VdL við þeim áhyggjum. Á hinn bóginn liggur ekki fyrir ákvörðun aðildarríkjanna um fjármögnun sjóðsins og hafa borist fréttir af því að andstaða sé við áform innan leiðatogaráðs ESB um aukið fjármagn í sjóðakerfið. Náist ekki samkomulag um aukin fjárframlög verður fjármagnið í hinn nýja sjóð væntanlega að koma úr þeim sjóðum sem fyrir eru, s.s. NextGenerationEU.

Þá er ljóst að framangreindar hugmyndir og áætlanir um rýmri ríkisstyrkjareglur og nýja og stærri sameiginlega styrktarsjóði samræmast illa fjármálareglum ESB, sbr. nánari umfjöllun hér að neðan í Vaktinni um þær reglur.

Þess er vænst að VdL gefi út yfirlýsingu til leiðtoga ESB ríkjanna í byrjun febrúar um væntanlegar tillögur framkvæmdastjórnarinnar um aðgerðir og að sú yfirlýsing verði síðan grunnur að umræðu um málið á leiðtogaráðsfundi ESB sem fyrirhugaður er dagana 9. og 10. febrúar nk.

Þátttaka Íslands í loftslagsbandalagi utanríkisviðskiptaráðherra

Hinn 19. janúar sl. ýttu framkvæmdastjórn ESB og 26 ríki í svokölluðu loftslagsbandalagi utanríkisviðskiptaráðherra (e. Coalition of Trade Ministers on Climate) úr vör. Ísland er meðal þeirra ríkja sem taka þátt en tilkynnt var um stofnun bandalagsins á árlegum fundi World Economic Forum í svissneska bænum Davos.

Stofnun bandalagsins tengist starfi á sviði viðskipta og umhverfismála og er meginmarkmið þess að samþætta áherslur og aðgerðir á þeim sviðum, þvert á ríki og viðskiptageira. Þannig verði leitast við að bera kennsl á leiðir til þess að gera viðskiptastefnur ríkja umhverfisvænni svo hægt sé að takast á við loftslagsvána en jafnframt tryggja framþróun. Bandalagið mun stuðla að viðskiptum og fjárfestingum í vörum, þjónustu og tækni til að laga sig að breyttu umhverfi af völdum loftslagsbreytinga. Áberandi þáttur í stefnuskrá bandalagsins er að finna leiðir til að styðja við þróunarlönd og þau lönd sem standa frammi fyrir mestri hættu vegna loftslagsbreytinga.

Forysturíki bandalagsins eru Ekvador, Evrópusambandið, Kenía og Nýja-Sjáland. Þá taka þátt, auk Íslands, Angóla, Ástralía, Barbados, Grænhöfðaeyjar, Kanada, Kólumbía, Kosta Ríka, Gambía, Japan, Suður-Kórea, Maldívur, Mósambík, Noregur, Filippseyjar, Rúanda, Sambía, Singapúr, Sviss, Úkraína, Bretland, Bandaríkin og Vanúatú. Vera má að fleiri ríki bætist við en bandalagið er opið öllum þeim ríkjum sem vilja taka þátt og láta gott af sér leiða í baráttunni gegn loftslagsvánni.

Næsti fundur ráðherra ríkja bandalagsins fer fram samhliða ráðherrafundi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (e. World Trade Organisation, WTO) snemma á næsta ári en hægt er að kynna sér starfsemina betur á vefsíðu bandalagsins.

Má segja að með stofnun bandalagsins felist ákveðið mótsvar við þeirri þróun í átt til afhnattvæðingar (e. deglobalization) sem ýmsir hafa talið að eigi sér stað um þessar mundir, sbr. meðal annars hina bandarísku IRA-löggjöf sem fjallað eru um hér að framan.

Fjármálareglur ESB (e. Fiscal rules of Growth and Stability Pact).

Svíar hafa sett fram það markmið í formennskuáætlun sinni að fjármálareglur ESB öðlist að fullu gildi að nýju fyrir árslok 2023 eftir tilslakanir vegna kórónuveirufaraldursins og nú síðast vegna Úkraínustríðsins. Grunnur að þeirri vinnu eru framkomnar tillögur framkvæmdastjórnarinnar frá því í nóvember sl. og framvinda þeirra í formennskutíð Tékklands. Markmið sænsku formennskunnar er að ná samstöðu (e. consensus) um málið fyrir mitt ár sem sé mjög brýnt að mati Svía því stjórnvöld í öllum ríkjum ESB verði að reka ábyrga efnahagsstefnu.

Eins og áður hefur verið fjallað um hér í Vaktinni sýnist sitt hverjum um hversu brýnt er að fella niður undanþáguna frá fjármálareglunum fyrir lok árs. Úkraínustríðið hefur auðvitað sett stórt strik í reikninginn varðandi aukin útgjöld hjá flestum aðildarríkjum ESB beint ofan í Covid-19 efnahagskrísuna en hvort tveggja hefur dregið verulega úr getu þeirra til að greiða niður opinberar skuldir. Suður-Evrópuríkin, eins og t.d. Grikkland, standa þar verst að vígi. Í tengslum við það hafa kviknað hugmyndir eins og þær að skuldir vegna grænna, rafrænna og félagslegra fjárfestinga hins opinbera verði undanskildar þegar kemur að mati á skuldahlutfalli einstakra aðildarríkja. Rökin eru þau að þessar fjárfestingar megi ekki bíða eigi loftlagsmarkmið ESB að nást og þeim fylgi óhjákvæmilega skuldasöfnun á næstu árum. Þá spilar þungt inn í þessa umræðu þær stórauknu ívilnanir og styrkir til græns iðnaðar sem innleiddar hafa verið bæði í Bandaríkjunum og Kína ásamt fleiri löndum sem ESB þurfi að svara með umfangsmiklum mótvægisaðgerðum, sbr. umfjöllun í Vaktinni hér að framan. Með öðrum orðum benda ýmsir á að fjármálareglan um skuldahlutfallið og raunar einnig reglan um halla hins opinbera gangi gegn loftslagsmarkmiðum ESB og geti skert samkeppnisstöðu fyrirtækja innan ESB gagnvart Bandaríkjunum, Kína o.fl. Hér þurfi einnig að huga að því hvort um sé að ræða lántöku til langtímafjárfestinga eða til skemmri tíma.

Annar galli á gildandi reglum, sem einnig er nefndur, er að ríkin geti safnað skuldum á þenslutímum en verði síðan að draga saman seglin þegar að kreppir á sama tíma og þörfin fyrir aukin útgjöld og fjárfestingar er einna brýnust. Gildandi reglur vinni með öðrum orðum gegn stöðugleika innan sambandsins. Reglunum þurfi að breyta þannig að þær verði í auknum mæli sveiflujafnandi fyrir hagkerfi ESB. Öðru vísi nái stjórnvöld ESB ríkjanna ekki tökum á efnahagsástandinu á hverjum tíma.

Sem fyrr segir kynnti framkvæmdastjórn ESB óformlegar tillögur að breytingum á fjármálareglunum á Ecofin fundi í nóvember 2022. Meginbreytingin er sú að regluverkið verði sveigjanlegra en það sem er í gildi nú. Hún felur í raun í sér viðurkenningu á því að stefnan um „one-size-fits-all“ eigi ekki við lengur. Samkvæmt tillögunum er tekið tillit til stöðunnar í hverju ríki fyrir sig. Sem dæmi geta þau ríki þar sem skuldahlutfallið fer yfir 60% lagt fram endurskoðaða efnahags- og fjármálaáætlun á grundvelli aðgerðaáætlunar sem sýnir hvernig stjórnvöld hyggjast ná skuldahlutfallinu undir 60% og hallanum undir 3%.

Árið 2021 var skuldahlutfall 14 aðildarríkja ESB yfir 60% og sama ár voru 14 ríki, oftast þau sömu, rekin með meira en 3% halla á opinberum fjármálum. Sveigjanleikanum fylgir á hinn bóginn stífari framkvæmd og eftirlit. Sem dæmi þurfa stjórnvöld þeirra ríkja sem brjóta reglurnar að leggja fram fjögurra ára aðgerðaáætlun. Sú áætlun er lögð fyrir framkvæmdastjórnina og ráðherraráðið til samþykktar. Auk þess er framkvæmdastjórninni ætlað það hlutverk að fylgjast með framvindu aðgerðanna með reglubundnum hætti. Brot á reglunum og/eða aðgerðarleysi geta einnig leitt til þess að bandalagið hætti að veita viðkomandi ríki fjármagn sem áður hefur verið samþykkt. Í vissum tilvikum veita nýju reglurnar þó frekari sveigjanleika, þ.e. að hallinn og skuldahlutfallið aukist til skemmri tíma litið í þeim tilgangi að auka hagvöxt innan næstu 4 - 7 ára.

Flest ríkin voru nokkuð ánægð með tillögurnar, en Þjóðverjar lýstu þó strax andstöðu gegn þeim. Þýski fjármálaráðherrann, Christian Lindner, sagði m.a. að "A single monetary union also needs single fiscal rules.''. Með öðrum orðum, sveigjanleiki reglnanna passar ekki inn í þá mynd. Af þessu má ljóst vera að nýjar fjármálareglur verða eitt af meginmálum Ecofin fundanna á þessu ári, eins og Svíar hafa raunar þegar boðað. Sumir nota það orðalag að endurskoðun fjármálareglnanna verði líklega „the biggest climate debate of the year“. Í þessu samhengi er rétt að minna á að stjórnvöld aðildarríkja ESB þurfa að kynna fjárlagatillögur sínar fyrir árið 2024 eigi síðar en í september á þessu ári.

Fundur fjármála- og efnahagsráðherra ESB (e. Ecofin)

17. janúar sl. var haldinn fyrsti fundur Ecofin undir formennsku Svía á fyrri helmingi þessa árs. Sænski fjármálaráðherrann, Elisabeth Svantesson, hóf fundinn með því að fara yfir megináherslur formennskunnar sem skipta má í fjóra þætti. Þeir eru a. öryggi, b. samkeppnismál, c. umbreytingar á sviði grænna lausna og orku og síðast en ekki síst d. lýðræðisleg gildi og réttarríkið (e. rule of law).

Í umfjöllun um efnahags- og fjármál (e. economic and financial affairs) var minnt á hversu dökk efnahagsstaðan væri vegna stríðsins í Úkraínu sem óhjákvæmilega skapar mikla efnahagslega óvissu í formi vaxandi verðbólgu, orkukrísu og hárra vaxta, en við þau skilyrði dregur úr neyslu, framleiðslu og fjárfestingum. Í slíku ástandi skapaðist jafnan þrýstingur á stjórnvöld að grípa til efnahagsaðgerða til að draga úr neikvæðum áhrifum á heimili og fyrirtæki. Þar þurfa aðildarríki ESB að standa saman og nota með virkum hætti þau sameiginlegu verkfæri (e. joint instruments) sem þegar eru til staðar.

Áframhaldandi fjárhagslegur stuðningur við Úkraínu er forgangsmál af hálfu Svía, bæði til skemmri og lengri tíma. Svíar munu leggja áherslu á uppbyggilegar umræður og framgang stuðningsaðgerða, bæði með tvíhliða viðræðum milli aðila og við alþjóðafjármálastofnanir. Moldóva var líka nefnd sem mögulegt stuðningsríki vegna Úkraínustríðsins. Þá var rætt um fyrirhugaðar efnahagsaðgerðir aðildarríkjanna undir formerkjum Bjargráðasjóðsins. Svíar ætla sér að þrýsta á innleiðingu þeirra sem kostur er svo unnt verði að ráðast í nauðsynlega endurskipulagningu og mikilvægar fjárfestingar sem fyrst.

Endurskoðun á fjármálareglum ESB er einnig að finna á forgangslista Svía, sbr. umfjöllun í Vaktinni hér að framan.

Umbætur í skattamálum eru sömuleiðis á lista Svía, svo sem endurskoðun tilskipunar um orkuskatt (e. energy taxation directive) sem hefur einungis óbein áhrif á EES-samninginn. Virðisaukaskattur á rafrænar vörur og þjónustu er þar líka og sömuleiðis aðgerðir gegn skaðlegri skattasamkeppni, skattundanskotum og skattsvikum. Þar vilja Svíar auka upplýsingagjöf milli landa og samvinnu skattyfirvalda. Undir sænsku formennskunni á einnig að endurbæta og nútímavæða tollabandalag ESB. Þar er sérstaklega horft til þess að hlutleysi sé viðhaft í samkeppni á alþjóðavísu.

Á sviði fjármálamarkaðar eru nefndar auknar varnir gegn peningaþvætti og hryðjuverkastarfsemi og enn er rætt um möguleikann á því að setja upp sérstaka ESB stofnun á því sviði. Sameiginlegur fjármálamarkaður (e. capital markets union) er jafnframt á meðal áherslumála sænsku formennskunnar og sama gildir um aukna vernd neytenda og fjárfesta, m.a. með auknu gagnsæi og sjálfbærni á fjármálamarkaði í huga. Að lokum er upptaka rafrænnar evru sem lengi hefur verið rætt um einnig á lista Svía.

Óformlegur fundur innanríkisráðherra ESB

Fimmtudaginn 26. janúar sl. hittust ráðherrar innanríkismála ESB og samstarfsríkja Schengen, Íslands, Noregs, Sviss og Liechtenstein á óformlegum fundi í Stokkhólmi en Svíþjóð tók við formennsku innan ráðherraráðs ESB þann 1. janúar sl. Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra, sat fundinn fyrir Íslands hönd.

Ráðherrar ræddu meðal annars mikilvægi samvinnu við þriðju ríki þegar kemur að endurviðtöku eigin ríkisborgara og hvernig auka megi skilvirkni brottvísana á þeim einstaklingum sem dvelja ólöglega innan Schengen-svæðisins. Í því samhengi var lögð áherslu á mikilvægi þess að nýta öll úrræði sem tiltæk væru til að bæta samskipti við upprunaríki. Sérstök áhersla var lögð á mikilvægi þess að nýta ákvæði 25. gr. a í reglugerð um vegabréfsáritanir (e. Visa Code) með skilvirkari og ákveðnari hætti. Samkvæmt ákvæðinu ber framkvæmdastjórn ESB reglulega og a.m.k. einu sinni á ári að leggja mat á hversu samvinnuþýð þriðju ríki eru, er kemur að endurviðtöku eigin ríkisborgara, og leggja fram skýrslu með helstu niðurstöðum þess efnis til ráðsins. Á grundvelli skýrslunnar og upplýsinga um almenn samskipti við tiltekin þriðju ríki má framkvæmdarstjórnin leggja til við ráðið að beita skuli ákveðnum takmörkunum á sviði vegabréfsáritana gagnvart þeim ríkjum sem sýna litla sem enga samvinnu, s.s. hækkun á áritanagjaldi og/eða flóknara umsóknarferli fyrir ríkisborgara viðkomandi ríkis sem sækja um vegabréfsáritun til að ferðast inn á Schengen-svæðið. Þá má einnig beita ívilnandi aðgerðum gagnvart þeim ríkjum sem standa sig vel. Ríkjandi viðhorf ráðherra á fundinum var að ef tryggja ætti trúverðugleika þegar kemur að stefnu ríkjanna í útlendingamálum og málum er varða alþjóðlega vernd skiptir sköpum að ríkin tryggi skilvirkar brottvísanir á þeim einstaklingum sem dvelja ólöglega innan Schengen-svæðisins.

Ráðherrar ræddu einnig mikilvægi þess að takast á við þennan málaflokk í góðri samvinnu allra hlutaðeigandi stjórnvalda (e. Whole-of-Government approach). Innan einstakra ríkja sé samvinna dómsmála- og innanríkisráðuneytis og utanríkisráðuneytis lykilatriði til að tryggja áframhaldandi framfarir á þessu sviði. Samvinnan sé einkar mikilvæg til að átta sig á rót vandans og einnig í baráttunni gegn í ólögmætri för einstaklinga og gegn smygli á farandfólki.

Þá ræddu ráðherrarnir báráttuna gegn skipulagðri glæpastarfsemi á stafrænni öld og mikilvægi þess að löggæsluyfirvöld hefðu aðgang að viðeigandi stafrænum gögnum í löggæslutilgangi.

Þá var innanríkisráðherra Úkraínu, Denys Monastyrskyi, minnst með einnar mínútu þögn en hann lést ásamt nokkrum öðrum í þyrluslysi í Kyiv í síðustu viku.

Opið samráð um endurskoðun reglna um evrópskan raforkumarkað

Eins og reglulega hefur verið fjallað um í Vaktinni að undanförnu þá hafa miklar verðsveiflur og verðtoppar verið í orkuverði í aðdraganda og kjölfar árásarstríðs Rússlands gagnvart Úkraínu. Hefur þetta haft í för með sér alvarleg áhrif á heimili og atvinnulíf í Evrópu og hefur ESB gripið til margvíslegra neyðarráðstafana til að takast á við hátt orkuverð og tryggja um leið afhendingaröryggi orku. Þá hefur ráðherraráð ESB hvatt framkvæmdastjórnina til að vinna hratt og markvisst að umbótum á raforkumarkaði til lengri tíma með það að markmiði að tryggja sjálfstæði ESB í orkumálum um leið og unnið er að markmiðum um kolefnishlutleysi. Í stefnuræðu Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB, í september á síðasta ári voru boðaðar umbætur á raforkumarkaði ESB og eru þessi verkefni tiltekin í starfsáætlun framkvæmdastjórnarinnar fyrir árið í ár.

Í samræmi við framangreint hefur framkvæmdastjórn ESB nú hafið opinbert samráð um endurskoðun á raforkumarkaði ESB. Leiðarljós við endurskoðunina er að innleiða breytingar sem vernda heimili og atvinnulíf betur gegn óhóflegum verðsveiflum með því að innleiða markaðstæki til að stuðla að stöðugra verðlagi og samningum sem byggjast á raunverulegum kostnaði við orkuframleiðslu þannig að tryggja megi öllum beinan aðgang að hreinni orku á viðráðanlegu verði.

Snýr endurskoðunin að raforkureglugerð ESB nr. 2019/943, raforkutilskipun ESB nr. 2019/944 og reglugerð ESB nr. 1227/2011 um heildsölu á raforku (REMIT).

Umsagnarfrestur er til 13. febrúar nk.

Núverandi raforkumarkaður ESB þykir almennt hafa reynst vel, er vel samþættur og hefur skilað efnahagslegum ávinningi og aukið afhendingaröryggi orku auk þess sem markaðurinn styður við markmið ESB um kolefnishlutleysi. Hins vegar þykja annmarkar hafa komið í ljós í því ástandi sem ríkt hefur í kjölfar stríðsins auk þess sem brýnt er að flýta umskiptum sem stefnt er að í Græna sáttmálanum og „REPowerEU“ aðgerðaáætlun framkvæmdastjórnarinnar.

Danir krefjast ógildingar á tilskipun um lágmarkslaun

Danmörk hefur lagt fram kröfu fyrir Evrópudómstólinn (e. European Court of Justice – ECJ) um ógildingu tilskipunar um lágmarkslaun sem var endanlega samþykkt af stofnunum ESB í október sl. og tók gildi þann 14. nóvember. Fjallað var um efni gerðarinnar í Vaktinni 9. september sl. Krafa Danmerkur byggir á því að með samþykkt tilskipunar um þetta efni hafi ESB farið út fyrir valdheimildir sínar samkvæmt sáttmálum sambandsins.

Evrópuþingið og ráðið hafa tveggja mánaða frest til þess að lýsa því yfir að þeir muni taka til varna og að því búnu gefst aðildarríkjum færi á að koma að málinu, annaðhvort til stuðnings Dönum eða Evrópuþinginu og ráðinu.

Gert er ráð fyrir að málsmeðferð fyrir Evrópudómstólnum geti tekið allt að tvö ár en það fer eftir því hvort og hversu mörg ríki kjósa að koma að málinu.

Í fréttatilkynningu frá danska atvinnuvegaráðuneytinu þar sem tilkynnt var um málshöfðunina kemur fram að náið hafi verið fylgst með framgangi gerðarinnar í Danmörku á meðan á vinnslu hennar stóð og hafi verið breið samstaða um að standa gegn henni í ríkisstjórn, á þinginu og hjá aðilum vinnumarkaðarins. Ákvörðun um málshöfðunina var síðan boðuð í sáttmála nýrrar ríkisstjórnar sem kynnt var 14. desember sl.

Tillaga að tilskipun um lágmarkslaun var fyrst lögð fram haustið 2020 og var nokkuð umdeild. Launasetning og laun eru mjög mismunandi innan Evrópu og ákvörðun launa er á forræði ríkjanna. Tilskipuninni er ætlað að setja umgjörð um bætt lífskjör og starfsskilyrði Evrópubúa og stuðla þannig að félagslegu réttlæti og jafnrétti í Evrópusambandinu. Í tilskipuninni er þó hvorki mælt fyrir um skyldu ríkja til þess að innleiða lögbundin lágmarkslaun né samræmingu slíkra launa, heldur er leitast við að tryggja að regluverk og umgjörð aðildarríkjanna um launasetningu sé til þess fallin að tryggja að lágmarkslaun nægi til framfærslu.

Danmörk og Svíþjóð voru einu aðildarríki ESB sem greiddu atkvæði gegn gerðinni við afgreiðslu hennar í ráðherraráði ESB í október en þó nokkrar breytingar höfðu þá verið gerðar á efni hennar til þess að koma til móts við sjónarmið landanna.

Í fréttatilkynningunni segir Ane Halsboe-Jørgensen atvinnumálaráðherra m.a.: „… það er mikilvægt að halda því til haga að tilskipunin krefst þess ekki að Danir taki upp lágmarkslaun. Þrátt fyrir það er hér um að ræða fordæmalausa löggjöf sem gerir þetta að prinsippmáli. Við krefjumst þess að laun séu ákvörðuð í Danmörku en ekki í ESB. Ríkisstjórnin hefur því ákveðið að rétt sé að fela dómstóli ESB að leggja mat á málið…“

Sænsk stjórnvöld lýstu því yfir í desember sl. að þau myndu ekki krefjast ógildingar á gerðinni, þar sem komið hafi verið til móts við ábendingar þeirra við afgreiðslu málsins. Hefur sérstakur aðili verið skipaður til að taka afstöðu til þess hvaða breytingar þarf að gera á sænsku regluverki til þess að innleiða gerðina í sænskan rétt og er honum ætlað að skila skýrslu um málið eigi síðar en 23. júní nk., sbr. nánar á vef sænsku ríkisstjórnarinnar.

Nú hafa fréttir hins vegar borist af því að nokkur þrýstingur sé á sænsk stjórnvöld, af hálfu þingmanna og aðila vinnumarkaðarins að styðja Danmörku í málarekstri fyrir Evrópudómstólunum um ógildingu gerðarinnar.

Þess má geta að aðildarríkjunum er skylt að innleiða gerðina, og frestar málshöfðunin ekki innleiðingu hennar í landsrétt aðildarríkjanna. Verði niðurstaðan hins vegar sú að gerðin verði felld úr gildi falla að jafnaði niður réttaráhrif gerðarinnar frá gildistökudegi, þó Evrópudómstóllinn geti í einhverjum tilvikum kveðið á um að einhver atriði ógiltra gerða skuli halda gildi sé þess talin þörf vegna réttaröryggis.

Tilskipun um lágmarkslaun var ekki merkt EES tæk af hálfu ESB við vinnslu hennar og samþykkt. Unnið er að greiningu tilskipunarinnar af hálfu EES/EFTA-ríkjanna en bráðabirgðaniðurstaða EFTA-skrifstofunnar og ríkjanna er að gerðin teljist ekki EES tæk.

Heimsókn formanns stýrihóps stjórnarráðsins um framkvæmd EES-samningsins

Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu og formaður stýrihóps stjórnarráðsins um framkvæmd EES-samningsins, og fyrrum ritstjóri Brussel-vaktarinnar, heimsótti sendiráð Íslands í Brussel í vikunni.

Átti Páll fund með starfsmönnum sendiráðsins þar sem farið var yfir einstök svið og stöðu mála í hagsmunagæslu Íslands gagnvart ESB vegna aðildar Íslands að samningum um Evrópska efnahagsvæðið, sbr. forgangslista ríkisstjórnarinnar.

Brussel-vaktin, fréttabréf fastanefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

13. janúar 2023 | 30 ár frá staðfestingu laga um Evrópska efnahagssvæðið |
Að þessu sinni er fjallað um:

staðfestingu laga nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið

breytingar á viðskiptakerfi með losunarheimildir og stofnun félagslegs loftslagssjóðs

orkumál – samkomulag um markaðsleiðréttingakerfi fyrir gas o.fl.

orkuskiptaverkefnið WHISPER

spillingarmál í Evrópuþinginu

30 ár frá staðfestingu samningsins um Evrópska efnahagssvæðið

Hinn 13. janúar 1993, fyrir réttum 30 árum, voru lög um Evrópska efnahagsvæðið staðfest á ríkisráðsfundi. Með þessum lögum var stjórnvöldum heimilað að fullgilda fyrir Íslands hönd samninginn um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samninginn) auk þess sem meginmáli samningsins var veitt lagagildi á Íslandi.

Til ríkisráðsfundarins hafði verið boðað að ósk þáverandi forseta Íslands, frú Vigdísar Finnbogadóttur, en hún hafði þá verið undir þrýstingi að synja lagafrumvarpinu staðfestingar og vísa á þann hátt frambúðargildi laganna til þjóðaratkvæðagreiðslu á grundvelli 26. gr. stjórnarskrárinnar. Til þess kom þó ekki en við undirritun laganna gaf forseti frá sér yfirlýsingu sem færð var til bókar. Það var á þeim tíma harla fátítt að forseti gæfi sérstaka yfirlýsingu í tengslum við undirritun laga þótt ekki væri það með öllu óþekkt.

En spólum aðeins lengra aftur í tímann. Eins og fjallað var um í Vaktinni 4. nóvember sl. voru um nýliðin áramót liðin 30 ár frá því að innri markaður ESB (e. Single Market) með sterku sameiginlegu stofnana- og reglusetningarkerfi var komið á fót á grundvelli sáttmálans um innri markað EB eða Einingarlaga Evrópu eins og þau hafa verið nefnd á íslensku (e. Single European Act). Er þrjátíu ára sögu innri markaðarins nú minnst á vettvangi ESB með margvíslegum hætti. Aðdragandi sáttmálans var langur en samningurinn var endanlega fullgiltur af öllum þáverandi aðildarríkjum EB í júní 1987 og varð skuldbindandi 1. júlí sama ár. Voru árin þar á eftir til lok árs 1992 nýtt til að undirbúa gildistöku og framkvæmd samningsins.

Samhliða fyrirhuguðum auknum efnahagssamruna aðildarríkja EB á grundvelli einingarlaganna, samanber einnig aðdraganda og undirritun Maastricht sáttmálans í febrúar 1992, varð spurningin um nánara samstarf EFTA-ríkjanna við EB áleitnari. Formlegar viðræður EFTA-ríkjanna og EB um nánara samstarf hófust árið 1989. Lauk þeim viðræðum með samningi milli Efnahagsbandalags Evrópu, Kola- og stálbandalags Evrópu og aðildarríkja þessara bandalaga annars vegar og aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) hins vegar, sem undirritaður var í Óportó í Portúgal 2. maí 1992 og við þekkjum í dag sem EES-samninginn.

Sameiginlegur innri markaður ESB og EES-EFTA ríkjanna er þungamiðja EES-samningsins og var það undirliggjandi markmið samningsaðila við undirritun að samningurinn tæki gildi um leið og framangreindur sáttmáli EB um innri markaðinn, þ.e. 1. janúar 1993. Ýmislegt varð þó til þess að það markmið náðist ekki og frestaðist gildistaka EES-samningsins um eitt ár eða til 1. janúar 1994.

Breytingar á viðskiptakerfi með losunarheimildir og félagslegum loftslagssjóði komið á fót

Samkomulag hefur náðst í þríhliða viðræðum ráðherraráðs ESB, Evrópuþingsins og framkvæmdastjórnar ESB um efni löggjafar sem felur í sér breytingar á viðskiptakerfi sambandsins með losunarheimildir (e. Emission Trading System, ETS). Löggjöfin er hluti af hinum svokallaða Fit for 55-pakka ESB sem ætlað er að tryggja að loftslagsmarkmið sambandsins um 55% samdrátt kolefnislosunar fyrir árið 2030 náist (sé miðað við losun árið 1990).

Breytingunum er ætlað að styrkja ETS-kerfið með því að útvíkka gildissvið þess auk þess sem markmið um samdrátt í losun verða hækkuð. Þannig verði nú stefnt að því að dregið verði úr losun af völdum þeirra geira sem ETS-kerfið nær utan um, sem nemur um 62%, fyrir árið 2030 (sé miðað við tölur frá 2005). Er það umtalsverð aukning frá núgildandi löggjöf, eða um 19 prósent, úr 43%. Auk þess muni samdráttur árlegrar losunar aukast, ár frá ári, úr 2,2% samkvæmt núgildandi löggjöf í 4,3% á árabilinu 2024-2027 og 4,4% frá árinu 2028.

Samkomulagið felur aukinheldur í sér að endurgjaldslausar losunarheimildir til ákveðinna fyrirtækja verði afnumdar í skrefum á komandi árum. Helst þetta í hendur við markmið kerfis um kolefnisjöfnunargjald við landamæri (e. Carbon Border Adjustment Mechanism, CBAM) sem samkomulag náðist um í síðasta mánuði og fjallað var um í Vaktinni 16. desember sl. Samkomulagið markar auk þess ákveðin tímamót en með því er fyrstu löggjöfinni sem nær til losunar af völdum skipaflutninga komið á fót. Þá felur löggjöfin í sér að komið verði á fót aðskildu viðskiptakerfi – ETS II – sem ná mun til losunar frá byggingum, vegaflutningum og ákveðnum iðngreinum. Þessu til viðbótar eru svo sérreglur um viðskiptakerfi með losunarheimildir fyrir flug en fjallað hefur verið reglulega um fyrirhugaðar breytingar á þeim reglum í Vaktinni að undanförnu, nú síðast 16. desember sl.

Samhliða framangreindu er á grundvelli löggjafarinnar komið á fót svokölluðum félagslegum loftslagssjóði (e. Social Climate Fund) en hann mun veita aðildarríkjunum sérstaka fjárhagsaðstoð til að koma til móts við viðkvæm heimili, örfyrirtæki og flutningsþega og hjálpa þeim að takast á við verðáhrif sem breytingarnar kunna að hafa í för með sér. Fyrirhugað er að fjármunir úr sjóðnum muni renna í fjárfestingar í orkunýtingarráðstöfunum, varmadælur, sólarrafhlöður og rafhreyfanleika. Sjóðurinn tekur til starfa árið 2026, áður en framangreindu ETS II-kerfi verður ýtt úr vör, og verður hann fjármagnaður með framlögum sem nema 65 milljörðum evra af fjárlögum ESB, auk 25% samfjármögnunar aðildarríkjanna.

Orkumál – samkomulag um markaðsleiðréttingarkerfi fyrir gas o.fl.

Á fundi orkumálaráðherra ESB þann 19. desember sl. náðist samkomulag um efni reglugerðar um markaðsleiðréttingakerfi fyrir gas. Reglugerðin hefur verið til umræðu í ráðinu frá því nóvember sl. og var málið jafnframt til umræðu á leiðtogaráðsfundi ESB í Brussel 15. desember sl., sbr. umfjöllun í Vaktinni 16. desember sl., sbr. einnig umfjöllun um efni þessara tillagna í Vaktinni 2. desember sl. Gert er ráð fyrir því að markaðsleiðréttingarkerfið, sem ætlað er að vernda íbúa og hagkerfið fyrir óhóflega háu gasverði og verðtoppum á markaði verði virkjað ef tilteknar aðstæður skapast á gasmarkaði. Gert er ráð fyrir að fyrirkomulagið gildi tímabundið í eitt ár frá og með 15. febrúar nk. til að byrja með. Er framkvæmdastjórn ESB ætlað að endurmeta regluverkið og hugsanlega þörf fyrir framlengingu fyrir 1. nóvember nk.

Á framangreindum fundi orkumálaráðherra voru eftirfarandi mál einnig rædd og samþykkt eftir atvikum:

Samþykkt var formlega reglugerð ráðsins um aukna samstöðu og betri samræmingu við gaskaup og gasskipti yfir landamæri og áreiðanlegri verðviðmið.

Samþykkt var reglugerð ráðsins sem setur tímabundinn ramma til að flýta fyrir uppbyggingu orkuvera þar sem framleidd er endurnýjanleg orka.

Reglugerðartillögur sem kynnar voru 15. desember 2021 um samdrátt í losun metans í orkugeiranum voru ræddar og náðist samkomulag innan ráðsins um almenna nálgun á efni tillagnanna. Um er að ræða hluta af annarri lotu tillagna sem falla undir löggjafarpakkann Fit for 55 sem miðar að því að samræma loftslags- og orkulöggjöf ESB að markmiðum um samdrátt í losun.

Tillagan kveður nánar tiltekið á um að gerðar verði nýjar kröfur til olíu-, gas- og kolaframleiðenda um að mæla, tilkynna og sannreyna metanlosun í starfsemi sinni (MRV- Measurement, Reporting, and Verification). Gert er ráð fyrir að rekstraraðilum verði skylt að skrá allar borholur og námur vandlega þannig að fylgjast megi með og rekja losun þaðan og gera viðeigandi mótvægisaðgerðir til að koma í veg fyrir og lágmarka metanlosun í rekstri þeirra.

Metan er sú lofttegund sem veldur næst mestum gróðurhúsaáhrifum á eftir koldíoxíði en talið er að rekja megi um 30% af áhrifunum til metanlosunar.

Er reglugerðinni ætlað að gera ESB kleift að standa við skuldbindingar sínar samkvæmt markmiðum um að draga úr losun metans um 30% fyrir árið 2030 sem ESB setti af stað í samstarfi við Bandaríkin á loftlagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna árið 2021 (Global Methane Pledge) þar sem yfir 100 ríki skuldbundu sig til að draga úr losun metans samkvæmt framangreindu.

Ráðið mun nú ganga til samningaviðræðna við Evrópuþingið og framkvæmdastjórn ESB (þríhliðaviðræður) um endanlegan texta reglugerðarinnar.

Ráðherrarnir samþykktu almenna nálgun gagnvart tillögu framkvæmdastjórnar ESB um breytingar á regluverki á sviði endurnýjanlegar orku.

Til upprifjunar þá lagði framkvæmdastjórnin, sem hluta af REPowerEU áætluninni, til röð breytinga á gildandi löggjöf á orkusviðinu, þ.e. tilskipun um endurnýjanlega orku (the Renewable Energy Directive (RED)), tilskipun um orkunýtni bygginga (the Energy Performance of Buildings Directive (EPBD)) og tilskipun um orkunýtni (the Energy Efficiency Directive (EED)). Verið er að endurskoða allar þrjár tilskipanirnar sem hluta af Fit for 55-pakkanum, sem framkvæmdastjórnin samþykkti árið 2021

Loks lagði tékkneska formennskan fram og kynnti áfangaskýrslu um gaspakkann svonefnda (e. Gas package) sem felur í sér tillögu að tilskipun annars vegar og tillögu að reglugerð hins vegar um sameiginlegar reglur innri markaðarins fyrir endurnýjanlega orkugjafa.

Orkuskiptaverkefnið WHISPER

Orkuskiptaverkefnið WHISPER hefur hlotið 1,4 milljarða króna styrk til fjögurra ára úr rannsóknar- og nýsköpunarsjóðum ESB á grundvelli Horizon Europe áætlunarinnar sem Ísland er þátttakandi í á grundvelli EES-samningsins.

WHISPER er fjölþjóðlegt samstarfsverkefni en íslensk fyrirtæki eru þar í meirihluta. Verkís verkfræðistofa leiðir verkefnið og aðrir íslenskir þátttakendur eru fyrirtækin SideWind, Samskip, BBA//FJELDCO og Athygli.

Verkefninu er ætlað að þróa og prófa nýsköpunarlausnir í orkuskiptum á sjó sem geta dregið verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda hjá flutningaskipum. Sjá nánar um verkefnið og styrkveitinguna á vef Verkís verkfræðistofu.

Ísland tekur þátt í fjölmörgum samstarfsáætlunum á vegum ESB þar sem víða gefast möguleikar til að afla styrkja til rannsóknar- og þróunarverkefna. Á vef EFTA má sjá yfirlit yfir áætlanir sem Ísland er aðili að. Nánari upplýsingar um einstaka samkeppnissjóði, skilyrði umsókna og fleira má finna á vef Rannís.

Spillingarmál í Evrópuþinginu

Evrópuþingið kemur saman á ný eftir jólahlé til þingfunda næstkomandi mánudag. Þingfundir hefjast með athöfn í tilefni af 30 ára afmæli innri markaðar ESB, sbr. umfjöllun um þau efni hér að framan. Þá munu Svíar sem tóku við formennsku í ráðherraráði ESB um áramótin kynna áherslur sínar fyrir þinginu á þriðjudaginn og síðan verður löggjafarstörfum framhaldið þaðan sem frá var horfið.

Alvarlegt spillingarmál sem upp kom í desember setur á hinn bóginn skugga á störf þingsins í upphafi árs. Er hér vitaskuld vísað til meintrar mútuþægni fyrrum varaforseta Evrópuþingsins, Evu Kaili, af hendi stjórnvalda í Katar, en þingið ákvað þegar í desember að víkja þingmanninum úr stóli varaforseta vegna málsins. Hefur þingmaðurinn setið í gæsluvarðhaldi frá því að málið kom upp en litið er svo á að friðhelgisreglur eigi ekki við í hennar tilviki þar sem hún hafi verið staðin að glæp.

Fleiri þingmenn sæta rannsókn vegna málsins, sem og aðstoðarmenn þingmanna og starfsmenn þingsins. Hefur forseti Evrópuþingsins af þessum sökum, að beiðni löggæsluyfirvalda sem fara með rannsókn málanna, hafið málsmeðferð í Evrópuþinginu er miðar að því að afnema þinghelgi þeirra þingmanna er tengjast málinu. Mun forseti tilkynna formlega um málsmeðferðina er þingið kemur saman á mánudaginn, í samræmi við þingsköp Evrópuþingsins. Hefur forseti óskað eftir því að málið fái forgang í störfum þingsins og er stefnt að því að niðurstaða náist fyrir 13. febrúar nk.

Jafnframt hefur forsetinn í samstarfi við forystu þingflokka á Evrópuþinginu hafið undirbúning að setningu reglna sem miða að því að auka eftirlit með gjöfum til þingmanna og uppræta spillingu.

Brussel-vaktin, fréttabréf fastanefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

16. desember 2022 | Formennskuáætlun Svía og viðskiptakerfi með losunarheimildir í flugi |
Að þessu sinni er fjallað um:

formennskuáætlun Svía

fund leiðtogaráðs Evrópusambandsins (ESB)

breytingar á viðskiptakerfi með losunarheimildir í flugi

nýjar reglur um kolefnisjöfnunargjald við landamæri

orkumál – framhald umræðna um markaðsleiðréttingakerfi fyrir gas og verðþak

fund Schengen-ráðsins

tillögur að nýjum reglum um notkun upplýsinga við landamæraeftirlit og löggæslu

gervihnattakerfi fyrir örugg fjarskipti

kvótasetningu ESB fyrir fiskveiðiárið 2023

nýja landbúnaðarstefnu ESB

afnám hindrana við útflutning á íslensku skyri

samkomulag ráðherraráðs ESB og Ungverjalands í kjölfar deilna um réttarríkið

heimsókn ráðuneytisstjóra matvælaráðuneytisins til Brussel

Formennskuáætlun Svía

Svíar taka við formennsku í ráðherraráði ESB um næstu áramót en þá lýkur formennskutíð Tékka í ráðinu. Formennska í ráðinu gengur á milli aðildarríkja samkvæmt fyrirfram ákveðinni röð og er formennskutímabilið sex mánuðir og stendur formennskutímabil Svía samkvæmt því frá 1. janúar – 30. júní 2023 en þá munu Spánverjar taka við formennskukeflinu.

Hlutverk formennskuríkis á hverjum tíma er að leiða starf og stjórna fundum í öllum deildum ráðherraráðs ESB. Þá stýrir formennskuríkið einnig samningaviðræðum við Evrópuþingið og framkvæmdastjórn ESB þegar ná þarf sameiginlegri niðurstöðu um löggjafarmálefni og önnur málefni. Umtalsvert áhrifavald fylgir formennskunni á hverjum tíma enda geta áherslur formennskuríkis haft úrslitaáhrif um það hvort tiltekin mál nái fram að ganga eða ekki.

Þann 14. desember birtu sænsk stjórnvöld formennskuáætlun sína. Ólögmætt árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu og viðbrögð við margbrotnum og alvarlegum afleiðingum þess gengur eins og rauður þráður í gegn um áætlunina á nánast öllum málefnasviðum. Er það ásetningur sænsku formennskunnar að standa vörð um grundvallargildi ESB á þeim umbrotatímum sem stríðið hefur valdið og lagalegt og efnahagslegt samstarf aðildarríkja ESB byggist á.

Áherslur sænsku formennskunnar á helstu málefnasviðum eru eftirfarandi:

Utanríkismál

Starfsemi ráðherraráðsins á sviði utanríkismála mun óhjákvæmilega og fyrst og fremst litast af stríðinu og verður sameiginleg utanríkis- og öryggisstefna ofarlega á baugi.

Áframhaldandi stuðningur við Úkraínu verður mikilvægt leiðarstef á tímabilinu – pólitískur, efnahagslegur, hernaðarlegur, félagslegur og lagalegur stuðningur.

Yfirstandandi stækkunarferli verður framhaldið.

Samstarf við helstu samstarfsaðila eins og Bandaríkin og Bretland o.fl. verði eflt.

Geta ESB til að bregðast við hvers kyns hættuástandi verði efld.

Unnið verði að því að halda uppi alþjóðalögum, lýðræði, mannréttindinum og réttarríkinu, innan ESB sem utan.

Efnahagsmál

Stríðið hefur leitt til mikillar efnahagslegrar óvissu með aukinni verðbólgu, alvarlegri orkukreppu og ört hækkandi vöxtum sem hamla hagvexti í aðildarríkjum ESB. Meginverkefni sænsku formennskunnar á sviði efnahagsmála verður að leitast við að samræma viðbrögð við kreppunni og virkja sameiginleg úrræði þar sem við á.

Dóms- og innanríkismál

Áhersla verður á innra öryggiskerfi ESB sem styrkja þarf m.a. vegna stríðsins.

Baráttan gegn skipulagðri glæpastarfsemi, hryðjuverkum og ofbeldisfullri öfgahyggju verður meðal forgangsverkefna.

Endurskoðun á regluverki vegna flótta- og farandsfólks m.a. til að tryggja skilvirka Schengen-samvinnu verður í forgangi.

Atvinnu- og félagsmál, heilbrigðismál og neytendamál

COVID-19 heimsfaraldurinn og stríðið hafa reynt á samfélagsinnviði ESB Sænska formennskan hyggst beita sér fyrir uppbyggingu á þessum sviðum.

Samkeppnishæfni

Sænska formennskan hyggst setja samkeppnishæfni Evrópu í öndvegi. Nauðsynlegt sé að gera skammtímaráðstafanir til að bregðast við aðstæðum sem stríðið, orkukreppan og vaxandi verðbólga hafa haft í för með sér. Hins vegar þurfi að gæta þess að tímabundnar kreppuráðstafanir festist ekki í sessi enda geti það skaðað samkeppnishæfni ESB til lengri tíma.

Aðeins í gegnum samkeppnishæf fyrirtæki sé hægt að skapa sjálfbæran vöxt, flýta fyrir grænum og stafrænum umskiptum. Aðgerðir á vettvangi ESB þurfa að byggjast á virkri samkeppni og samræmdu og vaxtarhvetjandi regluverki og nýsköpun.

Formennskan mun minnast þess að 30 ár eru liðin frá því að innri markaður ESB var settur á fót.

Samgöngur, fjarskipti og orkumál

Græn umskipti í orkumálum verða í öndvegi með það að markmiði m.a. að gera ESB óháð jarðefnaeldsneyti frá Rússlandi

Á sama tíma þurfa innviðir og samgöngur að vera samkeppnishæf og skilvirk.

Stafræn umbreyting verður jafnframt í öndvegi.

Landbúnaður og sjávarútvegur

Öflug matvælaframleiðsla með grænum og sjálfbærum áherslum og fæðuöryggismál verða áfram meðal helstu forgangsmála og birtist þar enn ein afleiðing stríðsins.

Umhverfismál

Markviss viðbrögð við loftslagsvánni, vernd líffræðilegs fjölbreytileika og hringrásarhagkerfið eru og verða megin forgangsmál. Markmiðið er eins og áður að draga úr nettólosun kolefnis um að minnsta kosti 55 prósent fyrir 2030 og ná fullri kolefnisjöfnun fyrir 2050.

Mennta- og æskulýðsmál, menning og íþróttir

Listrænt og menningarlegt frelsi verður sett á oddinn.

Menntun, endurmenntun og framhaldsmenntun sem hjálpað geta einstaklingum og fyrirtækjum að búa sig undir stafræn og græn umskipti verða einnig sett á oddinn.

Samhliða formennskuáætlun Svía var uppfærð þriggja ríkja áætlun birt (e. The Trio Programme) en auk Svía standa Frakkar sem fóru með formennskuna fyrri hluta árs 2022 og Tékkland sem lætur af formennsku nú um áramótin að núverandi áætlun. Tilgangur þessarar áætlunar er að skapa samfellu í áætlanagerð ráðherraráðsins.

Fundur leiðtogaráðs ESB

Leiðtogar aðildaríkja ESB komu saman til fundar 15. desember. Fjölmörg mál voru á dagskrá fundarins.

Árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu var megin umræðuefnið eins og vænta mátti. Leiðtogaráðið ítrekaði fullan stuðning sinn við Úkraínu um leið og framferði Rússlands var ítrekað fordæmt. Áframhaldandi stuðningi bæði efnahagslegum, sbr. 18 milljarða evra fjárframlag til Úkraínu sem nýlega var samþykkt, sem og hernaðarlegum stuðningi var heitið sem og stuðningi til að halda nauðsynlegum innviðum svo sem vatns- og raforkukerfum gangandi í Úkraínu yfir vetrartímann en Rússar hafa með kerfisbundnum hætti gert árásir á slíka innviði í landinu að undanförnu.

Leiðtogaráðið áréttaði stuðning sinn við rannsókn og saksókn vegna stríðsglæpa færi fram af hálfu saksóknara Alþjóðlega stríðsglæpadómstólsins (ICC). Þá beindi ráðið því til framkvæmdastjórnar ESB og utanríkismálastjóra framkvæmdastjórnarinnar að skoðaðir yrðu möguleikar á því að nýta frystar eignir rússneskra aðila til þess að styðja við enduruppbyggingu í Úkraínu.

Þá fagnaði leiðtogaráðið 9. umferð þvingunaraðgerða sem formlega var samþykkt í dag, 16. desember, í ráðherraráði ESB. Með þeim aðgerðum er um 200 einstaklingum, fyrirtækjum og rússneskum stofnunum bætt við á lista yfir þá sem falla undir aðgerðirnar og bann lagt við fjárfestingum í ýmsum rússneskum framleiðslugreinum sem nýst geta í hernaði að jafnvirði um 3 milljarða evra.

Leiðtogarnir kölluðu eftir því að orkumálaráðherrar sambandsins myndu á fundi sínum á vettvangi ráðherraráðsins nk. mánudag, 19. desember, tryggja samheldni í sameiginlegum kaupum á gasi, hraða innleiðingu endurnýjanlegra orkugjafa og koma á fót úrræðum sem nýtast til verðleiðréttar á orkumarkaði þegar þess væri þörf til að vernda neytendur og hagkerfin fyrir miklum verðsveiflum og verðtoppum í orkuverði, sbr. nánari umfjöllun um orkumálin hér síðar í Vaktinni. Þá kölluðu leiðtogarnir eftir því að hafist yrði handa við að undirbúa áætlanir fyrir veturinn 2023-24.

Efnahagsmál og samkeppnisstaða fyrirtækja í ESB voru til umræðu m.a. í samhengi við stuðningsaðgerðir sem bandarísk stjórnvöld hafa boðað til handa fyrirtækjum þar í landi. Var því beint til stofnana ESB að horfa til þess að styrkja regluverk um fjárfestingar og grípa til sameiginlegra aðgerða þar sem þörf væri.

Sameiginleg varnar- og öryggismál ESB ríkja komu til umræðu og var kallað eftir því að vinnu við innleiðingu á ýmsum vegvísum ESB í málaflokknum yrði hraðað. Þar á meðal vinnu við að auka fjárfestingar í hergagnaframleiðslu og sameiginlegum innkaupum, að styrkja netöryggissamstarf sambandsins og vinnu þess gegn fjölþátta ógnum og að lokum að styðja við og styrkja öryggisinnviði aðildarríkjanna

Staða mála í Schengen-samstarfinu kom til umræðu og var nýsamþykktri inngöngu Króatíu fagnað um leið og staða mála varðandi aðild Búlgaríu og Rúmeníu var rædd, sbr. umfjöllun um fund Schengen-ráðsins hér að neðan.

Bosnía Hersegóvína fékk formlega stöðu umsóknarríkis á fundinum en við því var búist eftir að framkvæmdastjórnin mælti með því fyrr í vetur, sbr. umfjöllun í Vaktinni 21. október 2022.

Breytingar á viðskiptakerfi með losunarheimildir í flugi

Samkomulag hefur náðst í þríhliða viðræðum Evrópuþingsins, ráðherraráðsins og framkvæmdastjórnarinnar um breytingar á núgildandi löggjöf um viðskiptakerfi með losunarheimildir fyrir flug, svonefnda ETS gerð. ítrekað hefur verið fjallað um málið í Vaktinni á undanförnum misserum, sbr. umfjöllun 24. júní, 8. júlí, 22. júlí og 7. október sem skýrist af þeim miklu hagsmunum sem eru undirliggjandi fyrir Ísland.

Viðurkennt er að umrædd gerð sem gert er ráð fyrir að taki gildi í ESB 1. janúar 2024 muni leiða til kostnaðarauka fyrir flugrekendur almennt innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Vegna landfræðilegrar legu Íslands mun hún hins vegar hafa umtalsvert meiri áhrif á samkeppnistöðu Keflavíkurflugvallar en annars staðar og á leiðakerfi flugfélaga sem nota þann flugvöll sem tengiflugvöll en annars staðar. Hið breytta kerfi er nánar tiltekið þannig uppbyggt að kostnaður vegna kaupa á losunarheimildum eykst í hlutfalli við flogna vegalengd. Meðalfjarlægð til flugvalla í Evrópu frá Íslandi er um 2.200 km, en stystu flugleiðirnar frá Íslandi eru um 1.500 km. Meðalfluglengd í Evrópu er hins vegar á bilinu 850–1.000 km. Af þessu leiðir að kostnaðaráhrifin af tilskipuninni fyrir Ísland eru margfalt meiri en meðaláhrif annars staðar í Evrópu og ljóst að þau munu hafa neikvæð áhrif á samkeppnishæfni tengiflugs um Norður-Atlantshafið og þar með tíðni flugsamganga við Ísland. Áhrifamat sem unnið var af framkvæmdastjórn ESB og fylgdi tillögu að gerðinni þegar hún var kynnt upphaflega var þeim annmörkum háð að það byggðist eingöngu á meðaltalsútreikningum. Áhrifamatið lýsir því ekki áhrifum á jaðarsvæðum eins og á við um íslenskar aðstæður.

Unnið hefur verið markvisst að því á undanförnum misserum að gera stofnunum ESB á öllum stigum stjórnkerfis þess grein fyrir framangreindu og lýsa hagsmunum og sérstöðu Íslands í þessu samhengi. Markmiðið hefur verið annars vegar að ná fram breytingu á gerðinni er komið gæti til móts við og jafnað aðstöðumun byggða á jaðarsvæðum (e. outermost regions) almennt og hins vegar að leggja grunn að því að ná fram efnislegri aðlögun fyrir Ísland sérstaklega við upptöku gerðarinnar í EES-samninginn.

Í ljósi niðurstöðu í þríhliða viðræðum stofnana ESB verður áfram unnið að því að ná fram viðeigandi aðlögun við upptöku gerðarinnar í EES-samninginn með það fyrir augum að milda áhrif hennar á samkeppnisskilyrði flugsamgangna við Íslands.

Nýjar reglur um kolefnisjöfnunargjald við landamæri

Fyrr í þessari viku náðist bráðabirgðasamkomulag í þríhliða viðræðum fulltrúa framkvæmdastjórnar ESB, Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB um að svokölluðu kerfi um kolefnisjöfnunargjald við landamæri (e. Carbon Border Adjustment Mechanism – CBAM) verði ýtt úr vör á næsta ári. Samningurinn gengur nú til ráðherraráðs ESB og Evrópuþingsins til formlegs samþykkis. CBAM fellur undir græna sáttmála ESB og er hluti af löggjafarpakkanum Fit for 55, sem ætlað er að drífa áfram breytingar svo loftslagsmarkmið sambandsins um 55% samdrátt kolefnislosunar náist fyrir árið 2030 (sé miðað við tölur frá árinu 1990).

CBAM-kerfið verður tengt viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS) fyrst um sinn og er því ætlað að koma í veg fyrir kolefnisleka yfir landamæri. Í því skyni felur CBAM í sér að kolefnisgjald verður lagt á innflutning tiltekinna vara sem eru kolefnisfrekar við framleiðslu og eru framleiddar í þriðju ríkjum – þ.e.a.s. utan ESB og evrópska efnahagssvæðisins (EES). Til að byrja með nær CBAM utan um fimm tegundir vara; járn og stál, sement, áburð, ál og rafmagn. Til umræðu er að víkka út gildissvið löggjafafarinnar þannig að hún nái utan um fleiri tegundir vara. Jafnframt kveður löggjöfin á um að framleiðendur fái svigrúm til að aðlagast breyttum aðstæðum sem gefur ESB jafnframt tækifæri til að greina nánar innflutning á framangreindum vörum. Gerð verður krafa um að fyrirtæki upplýsi ESB reglulega um innflutningstölur og umfang kolefnislosunar við framleiðslu á þessum vörum, bæði beina losun og óbeina.

Fyrirhugað er að aðlögunartímabilinu ljúki í árslok 2026 og í ársbyrjun 2027 hefjist gjaldtakan. Til að greiða kolefnisgjald undir regluverki CBAM verða fyrirtæki í innflutningi að kaupa þar til gerð vottorð sem ná yfir losun sem verður við framleiðslu þeirra vörutegunda sem falla undir CBAM og fluttar eru inn frá löndum sem kerfið nær til. Til að geta keypt CBAM-vottorð þurfa innflutningsfyrirtæki að leita sérstakrar heimildar lögbærra yfirvalda í því aðildarríki sem varan er flutt til. Að endingu er gert ráð fyrir að endurgjaldslausar losunarheimildir undir ETS-kerfinu verði afnumdar á árunum 2026-2035.

Eftirfylgni með þróun CBAM regluverki ESB er á forgangslista ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2022-2023. Hlutaðeigandi ráðuneyti munu þannig vakta hana og meta þýðingu fyrir íslenska hagsmunaaðila.

Orkumál – framhald umræðna um markaðsleiðréttingakerfi fyrir gas og verðþök

Orkumálaráðherrar ESB áttu langan fund þann 13. desember sl. þar sem reynt var að ná samkomulagi um efni reglugerðar um markaðsleiðréttingakerfi fyrir gas og hugsanlegt verðþak eða verðbil á gasi. Til umfjöllunar er verðþak eða verðbil á bilinu 160 til 220 evrur fyrir megawattstund. Niðurstaða náðist þó ekki og virðist nokkuð mikið skilja á milli einstakra aðildarríkja í málinu. Í takt við tilmæli leiðtogaráðsins er nú stefnt að því freista þess að ná fram niðurstöðu á næsta fundi ráðherranna á fundi ráðsins sem boðaður hefur verið 19. desember.

Hugsanlegt verðþak á gasi væri í línu við ákvörðun ráðherraráðsins frá 3. desember sl. um verðþak (60 USD á tunnu) á tiltekna olíu (hráolíu, jarðolíu og olíu unna úr biki) sem upprunnin er í Rússlandi eða flutt þaðan. Kom sú ákvörðun í framhaldi af ákvörðun ráðsins frá 6. október 2022 þar sem samþykkt var að banna sjóflutninga á rússneskri hráolíu til þriðju ríkja, sbr. umfjöllun í Vaktinni 7. október, sbr. einnig yfirlitsumfjöllun um orkumálin í Vaktinni 2. desember.

Eftirfarandi mál verða jafnframt til umfjöllunar og afgreiðslu á ráðsfundinum þann 19. desember en niðurstaða þeirra mála mun væntanlega litast af ályktunum leiðtogaráðsins sem fjallað er um hér að framan:

Stefnt er að formlegri samþykkt reglugerðar ráðsins um að efla samstöðu með betri samræmingu á gaskaupum, gasskiptum yfir landamæri og áreiðanlegum verðviðmiðum og reglugerð ráðsins sem setur tímabundinn ramma til að flýta fyrir uppbyggingu orkuvera þar sem framleidd er endurnýjanleg orka. Ráðherrarnir samþykktu efni þessarar reglugerðar á fundi sínum þann 24. nóvember, sbr. umfjöllun í Vaktinni 2. desember sl.

Ráðið mun ræða reglugerðartillögur um samdrátt í losun metans í orkugeiranum. Um er að ræða nýjar tillögur sem kynntar voru þann 15. desember sl. þar sem m.a. er lagt til að þess verði krafist að olíu-, gas- og kolafyrirtæki mæli, tilkynni og sannreyni (MRV- Measurement, Reporting, and Verification) metanlosun. Þessi tillaga er hluti af annarri lotu tillagna sem falla undir löggjafarpakkann fit for 55 sem miðar að því að samræma loftslags- og orkulöggjöf ESB að markmiðum um samdrátt í losun.

Ráðið mun reyna að ná samstöðu um sameiginlega nálgun aðildarríkjanna gagnvart tillögu framkvæmdastjórnar ESB um breytingar á regluverki á sviði endurnýjanlega orku, orkunýtingu og orkunýtni bygginga. Tillagan sem lögð var fram í maí sl. og er hluti af REPowerEU áætlun ESB.

Loks er gert ráð fyrir að tékkneska formennskan muni leggja fram áfangaskýrslu um stöðu umræðna um svonefndan gaspakka (e. gas package) sem áður hefur verið vikið að í Vaktinni í nokkrum tilvikum og felur í sér tillögur að sameiginlegum reglum innri markaðarins fyrir endurnýjanlega orku, jarðgas og vetni og miða að því að gera ESB kleift að ná markmiðum um kolefnishlutleysi árið 2050.

Fundur Schengen-ráðsins

Ráðherrar dóms- og innanríkismála funduðu innan hins hefðbundna Schengen-ráðs fimmtudaginn 8. desember sl. Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra sat fundinn fyrir Íslands hönd. Á fundinum fóru ráðherrar yfir heildarstöðuna á Schengen-svæðinu, þ.e. innra öryggi svæðisins og stöðuna á ytri landamærum. Ráðherrar ræddu einnig brottvísunarmálin almennt og mikilvægi góðrar samvinnu við þriðju ríki í þeim efnum. Ráðherrar ræddu einnig mikilvægi lögreglusamvinnu og skilvirkar leiðir til að vinna gegn smygli á farandfólki.

Á fundinum var jafnframt tekin formleg afstaða til þess hvort veita ætti Króatíu, Rúmeníu og Búlgaríu fulla aðild að Schengen-svæðinu en fjallað var um mögulega aðild þessara ríkja í Vaktinni 18. nóvember og 2. desember sl. Ísland auk annarra samstarfsríkja Schengen, Noregs, Sviss og Liechtenstein, hefur ekki kosningarétt innan ráðsins og tók því ekki þátt í atkvæðagreiðslunni. Aðildarríkin voru öll sammála um að veita Króatíu fulla aðild að Schengen-svæðinu og verður eftirliti á innri landamærum Króatíu því aflétt frá og með 1. janúar 2023 á landi og sjó og í lofti þann 23. mars 2023. Króatía mun einnig hefja áritanaútgáfu inná Schengen-svæðið frá og með 1. janúar 2023 auk þess sem full aðild að SIS upplýsingakerfinu verður veitt.

Líkt og fjallað hefur verið um í Vaktinni þarf einróma samþykki allra aðildarríkja eigi nýtt ríki að fá fulla aðild að Schengen-svæðinu. Slíkt einróma samþykki náðist ekki um aðild Rúmeníu og Búlgaríu vegna andstöðu Austurríkis og áður Hollands, en það hafði þó gefið til kynna að það myndi láta af andstöðu sinni ef full samstaða væri að öðru leyti fyrir hendi. Neikvæð afstaða þeirra var m.a. byggð á áhyggjum þeirra af beitingu grundvallarreglna réttarríkisins innan umsóknarríkjanna tveggja. Höfnun á aðild ríkjanna gengur þvert á álit bæði framkvæmdastjórnar ESB og Evrópuþingsins sem hafa ítrekað lýst yfir stuðningi við aðild beggja ríkjanna enda hafi þau uppfyllt öll sett skilyrði fyrir inngöngu. Óljóst er hvenær aðild Rúmeníu og Búlgaríu fer aftur á dagskrá en Tékkland hefur í formennskutíð sinni innan ráðherraráðsins sett málið í forgang. Ekki er vitað hvert framhaldið verður, hvað varðar inngöngu Búlgaríu og Rúmeníu enda liggur ekki fyrir hvort Svíþjóð, sem tekur við formennsku innan ráðherraráðsins þann 1. janúar 2023, muni setja málið á dagskrá en ekki er minnst á málið í forgangslista sænsku formennskunnar, sbr. umfjöllun um væntanlega formennsku Svía hér að framan.

Tilögur að nýjum reglum um notkun upplýsinga við landamæraeftirlit og löggæslu

Þann 13. desember sl. lagði framkvæmdastjórn ESB fram tillögu að tveimur nýjum reglugerðum sem eiga að styrkja notkun á fyrirframupplýsingum um farþega (e. Advance Passenger Information data - API). Annars vegar er um að ræða tillögu um öflun og flutning API gagna til að efla og styrkja eftirlit á ytri landamærum Schengen-svæðisins og hins vegar í löggæslutilgangi, þ.e. til að koma í veg fyrir, greina og rannsaka og við saksókn hryðjuverkabrota og alvarlegra glæpa. Tillaga framkvæmdarstjórnarinnar er ein af þeim lykilaðgerðum sem nefndar eru í stefnu framkvæmdastjórnarinnar um öryggismál frá 24. júlí 2020 (e. EU Security Union Strategy). Fyrrnefnda tillagan, sú er varðar öflun API gagna í þágu landamæraeftirlits, telst til þróunar á Schengen-regluverkinu og er því skuldbindandi fyrir Ísland.

Með svokölluðum API upplýsingum er átt við upplýsingar fengnar úr ferðaskilríki viðkomandi að viðbættum upplýsingum um ferðaleið. Á hverju ári fara yfir milljarðurfarþega um ytri landamæri Schengen-svæðisins og eru þessar upplýsingar m.a. gagnlegar til að tryggja öflugt landamæraeftirlit, til að koma í veg fyrir ólögmæta fólksflutninga og síðast en ekki síst eru þær mikilvægar til þess geta auðkennt farþega sem teljast möguleg ógn gegn þjóðaröryggi.

Breyttum reglum er m.a. ætlað að bæta notkun á API upplýsingum áður en farþegar koma að ytri landamærum Schengen-svæðisins. Nýju reglurnar munu einnig gagnast í baráttunni gegn alvarlegum glæpum og hryðjuverkum innan Evrópu. Reglunum er ætlað að loka glufum, sem einkennir núverandi löggjöf að nokkru leyti, og á sama tíma vernda evrópska staðla þegar kemur að vinnslu persónupplýsinga og miðlun þeirra.

Lykilatriði nýrrar reglugerðar um API upplýsingar um farþega:

Samræmdar reglur um söfnun API gagna.

Skyldubundin söfnun API gagna, annars vegar við landamæraeftirlit og hins vegar í löggæslutilgangi.

Bætt gæði upplýsinganna þar sem flugrekendum ber skylda til að afla þessara gagna með sjálfvirkum hætti

Staumlínulagað ferli við flutning API gagna frá flugrekendum til landsyfirvalda í gegnum nýjan beini sem verður stjórnað af tæknistofnun Evrópu eu-Lisa.

Líkt og fyrr segir telst aðeins önnur tillagan, sú er varðar öflun API gagna í þágu eftirlits á ytri landamærum Schengen-svæðisins, til þróunar á Schengen regluverkinu. Ísland er hinn bóginn ekki aðili regluverkinu sem varðar söfnun API gagna í löggæslutilgangi. Þrátt fyrir að núverandi tilskipun, sem Ísland er aðili að, varði að meginstefnu til söfnun API ganga við landamæraeftirlit, þ.e. til að koma í veg fyrir ólögmæta fólksflutninga, veitir núverandi gerð Íslandi og öðrum samstarfsríkjum Schengen, Noregi, Sviss og Liecthenstein, svigrúm til slíkrar söfnunar í löggæslutilgangi einnig. Tillögur framkvæmdastjórnarinnar nú kunna því óbreyttu að takmarka heimildir Íslands og annarra samstarfsríkja Schengen til öflunar API ganga í löggæslutilgangi.

Tillaga framkvæmdarstjórnarinnar fer nú til skoðunar innan ráðsins og þingsins og er gert ráð fyrir því að nýjar reglur taki gildi 2028. Ísland mun á grundvelli Schengen-samningsins taka þátt í mótun fyrri reglugerðarinnar innan ráðsins um söfnun API gagna í þágu eftirlits á ytri landamærum. Einnig er mikilvægt út frá hagsmunum Íslands að fylgjast með framgöngu seinni reglugerðarinnar um söfnun API gagna í löggæslutilgangi.

Gervihnattakerfi fyrir örugg fjarskipti

Samkomulag náðist milli ráðherraráðs ESB og Evrópuþingsins þann 17. nóvember sl. um tillögu framkvæmdastjórnarinnar að reglugerð sem setur af stað áætlun um uppbyggingu öruggs fjarskiptakerfis (e. EU‘s secure connectivity programme) sem áætlað er að verði tilbúið til notkunar árið 2027.

Tilgangurinn með kerfinu er tvíþættur:

Að tryggja til frambúðar aðgengi að hraðvirkum, öruggum, hagkvæmum fjarskiptum um gervihnetti á heimsvísu. Er kerfinu þannig ætlað að skjóta styrkari stoðum undir mikilvæga fjarskiptainnviði innan ESB og tryggja aðgengi löggæslu og viðbragðsaðila að öruggum fjarskiptum við aðgerðarstjórnun á neyðarstundum

Að byggja upp kerfi sem einkaaðilar geta nýtt til þess að bjóða hraðvirka netþjónustu um alla Evrópu þar með talið á dreifbýlum svæðum þar sem slík þjónusta er ekki í boði í dag.

Unnið verður að áætluninni í samvinnu við evrópsku geimvísindastofnunina (European Space Agency) og fyrirtækja á svið geimvísinda. Kerfið nýtir núverandi Govsat gervihnattakerfi sem grunn, sem verður byggt upp til þess að veita aukna þjónustu. Einstakir hlutar nýja kerfisins verða boðnir út sem samvinnuverkefni opinberra aðila og einkaaðila. Ísland hefur lýst yfir áhuga á að taka þátt í þessari áætlun en töluverða undirbúningsvinnu þarf áður en hægt er að hefja viðræður um þátttöku.

Ákvörðun fiskveiðiheimilda fyrir árið 2023

Ráðherraráð ESB samþykkti í vikunni, að undangegnum tveggja daga samningaviðræðum, úthlutun fiskveiðiheimilda fyrir árið 2023. Ákvörðun ráðsins er tekin á grundvelli sameiginlegrar sjávarútvegsstefnu (CFP) ESB og byggir á vísindalegum ráðleggingum.

Með ákvörðuninni eru settar aflatakmarkanir fyrir yfir 200 nytjastofna í Atlantshafi, Norðursjó, Miðjarðarhafi og Svartahafi. Ákvörðunin felur einnig í sér bráðabirgðaúthlutun heimilda til veiða úr fiskistofnum sem ESB deilir með Bretlandi og Noregi en ekki hefur enn náðst niðurstaða í tvíhliða viðræðum ESB og Bretlands annars vegar og ESB og Noregs hins vegar um skiptingu veiðiheimilda úr hlutaðeigandi stofnum. Umræddar bráðabirgðheimildir fela í sér tímabundna yfirfærslu núverandi veiðiheimilda til fyrstu þriggja mánuða næsta árs með 25% hlutfalli af aflamarki eins og það var umsamið fyrir árið 2022. Er einhliða ákvörðun ESB um þessar heimildir talin nauðsynleg m.a. til tryggja samfellu fyrir sjómenn og sjálfbærar fiskveiðar á viðkomandi svæðum, þar til samningar nást við Bretland og Noreg.

Ísland á í viðræðum við ESB, Bretland, Noreg, Færeyjar og Grænland um kvótasetningu í makríl úr sameiginlegum stofni í Norður Atlandshafi. Samningar um skiptingu kvóta fyrir árið 2023 hafa enn ekki tekist en reynt verður til þrautar að ná samningi á fyrsta ársfjórðungi komandi árs.

Ný landbúnaðarstefna ESB

Framkvæmdastjórn ESB samþykkti nýverið nýjar stefnumótandi áætlanir fyrir öll aðildarríki ESB, eina fyrir hvert ríki og tvær fyrir Belgíu, fyrir Vallóníu annars vegar og Flæmingjaland hins vegar og markar samþykktin nýtt upphaf sameiginlegrar landbúnaðarstefnu ESB (e. Common Agricultural Policy – (CAP)) sem gilda mun frá 1. janúar 2023.

Samkvæmt hinum nýju áætlunum munu styrkir til bænda nema 264 milljörðum evra á næstu 5 árum. Styrkjunum er ætlað að styðja við umskipti í átt að sjálfbærum og viðnámsþolnum landbúnaði og varðveita fjölbreytileika dreifbýlisins. Að auki munu einstök ríki veita viðbótarfjármagni upp á 43 milljarða evra og munu landbúnaðarstyrkir á tímabilinu því nema samtals 307 milljörðum evra á árunum 2023 til 2027. Verkefni sem ætlað er að styðja sérstaklega við jaðarbyggðir (e. outermost regions) falla utan framangreindra áætlana, svo sem styrkir við að koma framleiðslu bænda á markað og verkefni sem ætlað er að skapa atvinnutækifæri og hagvöxt á slíkum svæðum. Eru 6 milljarðar evra áætlaðir í slík verkefni á tímabilinu.

Nýjar áætlanir byggja á eftirfarandi gildum:

Sanngirni: Að upphæð beingreiðsla til bænda byggi að hluta á mati á þörf þeirra fyrir stuðning og að stutt sé við umhverfisvænan búskap með aukagreiðslum. Lendi bændur áföllum geta þeir sótt um aðstoð úr sérstökum bjargráðasjóði.

Grænnar áherslur: Þriðjungur af heildarfjármögnun landbúnaðarstefnunnar er eyrnamerktur verkefnum sem miða að því að bæta loftslag, vatnsgæði, jarðveg, líffræðilegan fjölbreytileika og dýravelferð. Markmiðið er að hvetja til nýrra og sjálfbærra búskaparhátta umfram það sem lögboðið er. Stuðningur við lífræna ræktun verður tvöfalt meiri á árinu 2027 en hann var árið 2018. Auk þess er áætlað að fjárfest verði í endurnýjanlegum orkugjöfum á bóndabýlum er skilað geti yfir 1.500 megawattstundum.

Félagslegur stuðningur: Ungir bændur verða studdir sérstaklega auk þess sem aukið fjármagn verður sett í ráðgjöf, þjálfun og miðlun þekkingar á meðal bænda og til að bæta vinnuskilyrði á býlum.

Afnám hindrana við útflutning á íslensku skyri

Ísland er með tvíhliða samning við ESB um viðskipti með landbúnaðarvörur. Samningurinn kveður annars vegar á um viðskiptafrelsi með tilteknar landbúnaðarvörur milli Íslands og ESB og hins vegar tollkvóta fyrir vörur sem teljast viðkvæmar fyrir framleiðendur á Íslandi eða í ESB eftir atvikum. Tollkvótar eru á innflutningi nautakjöts, svínakjöts, alifuglakjöts, osta og pylsa frá ESB til Íslands og eru þeir kvótar full nýttir á hverju ári. Á móti eru tollkvótar á innflutningi fyrir lambakjöt, svínakjöt, alifuglakjöt, pylsur, skyr, smjör og osta frá Íslandi til ESB. Þeir kvótar hafa ekki verið fullnýttir undanfarin ár m.a. vegna útgöngu Breta úr ESB en þangað hefur mikið verið flutt út m.a. af lambakjöti og skyri.

Tollkvóti með skyr frá Íslandi til ESB hefur hækkað undanfarin ár úr því að vera 308 tonn árið 2016 í 4.000 tonn árið 2021. Það hefur á hinn bóginn hamlað útflutningi að ESB hefur gert kröfu um að útflytjandi hafi tiltekna sögu um viðskipti með mjólkurafurðir innan sambandsins til að nýta tollkvótann, ella leggist tollur á vöruna frá viðkomandi aðila. Hefur þetta hamlað nýjum útflytjendum enda leggjast 185,2 evru tollur á hver 100 kg sem flutt eru út eða um 280 kr. á kg.

Sendiráðið í Brussel, í samvinnu við utanríkisráðuneytið og matvælaráðuneytið, hefur að undanförnu tekið málið upp við landbúnaðarskrifstofu framkvæmdastjórnar ESB og hefur framkvæmdastjórnin nú ákveðið að falla frá framangreindum kröfum um viðskiptasögu og hafa áform um breytingar á reglum þar að lútandi nú verið birtar í samráðsgátt ESB. Gert er ráð fyrir að breyttar reglur taki gildi um miðjan febrúar nk.

Samkomulag ráðherraráðs ESB og Ungverjalands í kjölfar deilna um réttarríkið

Ráðherraráð ESB ákvað í vikunni að skera, a.m.k. tímabundið, niður framlög til Ungverjalands úr bjargráðasjóðum ESB, sem nemur um 6,3 milljörðum evra. Ákvörðunin er tekin er tekin á grundvelli tillögu og umsagnar framkvæmdastjórnar ESB þar sem fram kemur að stjórnvöld í Ungverjalandi hafi ekki staðið við loforð um innleiðingu á nauðsynlegum umbótum tengdum réttarríkinu.

Upphafleg tillaga framkvæmdastjórnarinnar fól í sér að haldið yrði aftur af greiðslum upp á 13,3 milljarða evra – annars vegar 7,5 milljarða af fjárlögum ESB og hins vegar 5,8 milljarða úr bjargráðasjóðum sambandsins í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru. Fjallað var um aðdraganda þessa og umsögn framkvæmdastjórnarinnar í Vaktinni 2. desember sl. en stjórnvöld í Ungverjalandi ákváðu í mótmælaskyni að beita neitunarvaldi gegn áformum ESB í hinum ýmsu málum, t.a.m. 18 milljarða evra fjárhagsaðstoð til Úkraínu sem ætluð er í mannúðarmál, uppbyggingu og rekstur á sjúkrahúsum, neyðarskýli, innviði og grunnþjónustu í skugga stríðsins.

Ákvörðun ráðherraráðsins um að frysta greiðslu 6,3 milljarða til Ungverjalands tímabundið er þannig niðurstaða viðræðna við stjórnvöld í Ungverjalandi sem hafa nú heitið að draga til baka ákvörðun sína um að beita neitunarvaldi í lykilmálum sambandsins. Framangreind fjárhæð varðar einungis fjárlagahlutann en ráðherraráðið samþykkti að greiðsla fjármuna til Ungverja úr bjargráðasjóðnum yrði ekki fryst með því skilyrði að stjórnvöld þar í landi myndu ganga frá lykilumbótum sem snúa að vörnum gegnum spillingu og sjálfstæði dómstóla.

Í samræmi við samkomulagið samþykkt ráðherraráð ESB síðan í dag, 16. desember, nokkrar löggjafartillögur, að undangenginni skriflegri málsmeðferð, sem tengjast málinu.

Heimsókn ráðuneytisstjóra matvælaráðuneytisins til Brussel

Benedikt Árnason ráðuneytisstjóri í matvælaráðuneytinu heimsótti Brussel 7. desember sl. Erindi hans var að funda með fulltrúum ESB á málefnasviðum ráðuneytisins og með Eftirlitsstofnun EFTA auk þess fundaði hann með starfsmönnum sendiráðsins.

Hann átti fund með tveimur ráðuneytisstjórum hjá framkvæmdastjórn ESB, annars vegar með Carlina Vitcheva sem stýrir DG MARE (Maritime Affairs and Fisheries) og hins vegar með Wolfgang Burtscher sem stýrir DG AGRI (Agriculture and Rural development). Að auki fundaði hann með Árna Páli Árnasyni, stjórnarmanni hjá Eftirlitsstofnun EFTA og fleiri starfsmönnum stofnunarinnar.

Á fundinum með Carlina Vitcheva ræddi Benedikt um stöðuna í strandríkjaviðræðum um skiptingu veiðiheimilda í makríl en ESB er aðili að þeim viðræðum fyrir hönd aðildarríkja ESB, markaðsaðgang fyrir íslenskar sjávarafurðir í ESB en þar sækist Ísland eftir fullu viðskiptafrelsi auk þess sem rætt var almennt um samráð milli Íslands og ESB á sviði sjávarútvegs.

Á fundinum með Wolfgang Burtscher var megin umfjöllunarefnið tvíhliða samningur Íslands og ESB með landbúnaðarvörur en viðræður um endurskoðun þeirra samninga standa nú yfir. Þar hefur Ísland lagt áherslu á að ná fram betra jafnvægi í samninginn. Auk þess voru rædd tæknileg atriði m.a. um kröfu ESB um 25 tonna viðskiptasögu með mjólkurafurðir, sem forsendu innflutnings til ESB, sem hefur reynst íþyngjandi fyrir nýja útflytjendur íslenskra mjólkurvara en unnið hefur verið að því að leysa það mál á vettvangi sendiráðsins í Brussel. Á fundinum tilkynnti Burtscher að ESB myndi aflétta þessari kröfu, sbr. sérstaka umfjöllun í Vaktinni hér að framan.

Á fundinum með Árna Páli Árnasyni var fjallað um vandamál sem komið hafa upp í við framkvæmd EES-samningsins á Íslandi á sviði matvælaeftirlits og eftirliti með velferð dýra.

Loks kynnti ráðuneytisstjórinn skipulag, áherslur og helstu verkefni matvælaráðuneytisins fyrir starfsfólki sendiráðsins.

Brussel-vaktin, fréttabréf fastanefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

02. desember 2022 | Málefni flóttafólks, netöryggi og réttarríkið |
Að þessu sinni er fjallað um:

málefni flótta- og farandsfólks

samhæfingu hagstjórnar innan Evrópusambandsins (ESB) með hliðsjón af nýrri efnahagsspá

breytingar á netöryggislöggjöf ESB og aukin áhersla á netvarnir

umsögn framkvæmdastjórnar ESB um frammistöðu Ungverjalands við úrbætur tengdar réttarríkinu

konur í stjórnum fyrirtækja

jafnlaunadaginn

orkumál - nýjar tillögur og umræður í ráðherraráði ESB

reglur um umbúðir

fund EES-ráðsins

ráðstefnu um orkumál

Málefni flótta- og farandsfólks

Ráðherrar ESB sem fara með málefni útlendinga voru kallaðir saman á sérstakan aukafund í ráðherraráði ESB undir lok síðustu viku til að ræða mikla aukningu á flótta- og farandfólki á öllum helstu ferðaleiðum til Evrópu. Álagið vegna þessa er víða mikið í aðildarríkjunum enda hefur straumur flóttafólks vegna árásarstríðs Rússlands gagnvart Úkraínu verið gríðarlega mikill frá því að stríðið hófst.

Kveikjan af fundinum nú er vaxandi spenna við strendur Ítalíu vegna skipa og báta í einkaeigu (e. Private Vessels) sem leigð eru til frjálsra félagasamtaka sem gagngert sigla um Miðjarðarhafið til að sinna leit og björgun en mikið hefur verið fjallað um þessi málefni á evrópskum fjölmiðlum undanfarið, sjá m.a. hér.

Vandamálið er flókið því talið er að rekja megi aukningu í ólögmætum komum einstaklinga yfir Miðjarðarhafið, þar sem viðkomandi leggur líf sitt í hættu, til þess að treyst er í auknum mæli á leitar- og björgunaraðgerðir á sjó ef eitthvað fer úrskeiðis. Er talið að um 1300 einstaklingar hafi látist eða horfið á þessari ferðaleið sl. ár. Þá hefur flótta- og farandfólki á öðrum ferðaleiðum einnig fjölgað umtalsvert síðastliðið ár eða um 82% á Austur-Miðjarðarhafi og 168% á Vestur-Balkanskaga.

Vinna við mótun nýrrar sameiginlegrar stefnu og reglna í málefnum flótta- og farandsfólks á vettvangi ESB hófst árið 2015 í kjölfar gríðarlegs straums flóttamanna sem þá brast á m.a. vegna borgarastríðsins í Líbíu og Sýrlandi en talið er að þúsundir hafi drukknað í Miðjarðahafinu í þeim harmleik sem þá reið yfir.

Í upphafi skipunartíma framkvæmastjórnar Ursulu von der Leyen var lögð fram endurskoðuð útgáfa að tillögupakka í málaflokknum fyrir árin 2019-2024, svonefndur hælispakki ESB (e. The Pact on migration and asylum). Enda þótt ýmsir áfangar hafi náðst þá liggur fyrir, eins og umræðan endurspeglar, að enn hefur ekki tekist að ná samstöðu meðal aðildarríkja ESB um nýjar samábyrgðarreglur þar sem m.a. yrði endurskoðað hvernig ábyrgðinni og álaginu sem fylgir straumi flótta- og farandsfólks er skipt á milli aðildarríkjanna. Hefur það hamlað framgangi áætlunarinnar að aðildarríkin samþykktu á sínum tíma, árið 2016, svokallaða heildarnálgun í málaflokkunum (e. package approach), sem felur í sér að einstakar tillögur innan pakkans geta ekki tekið gildi fyrr en samkomulag hefur náðst um þær allar.

Í aðdraganda framangreinds aukafundar í ráðherraráðinu var á vettvangi sendiherra aðildarríkjanna kallað eftir því að framkvæmdastjórn ESB mótaði og legði fram tillögur að áætlun til að bregðast við stöðunni sem nú væri komin upp á Miðjarðarhafinu. Aðgerðaáætlunin var birt 21. nóvember og samanstendur hún af þremur meginstoðum og tuttugu minni aðgerðum. Ráðherrar voru almennt ánægðir með áætlunina og kvaðst framkvæmdastjórnin tilbúin til að útbúa sambærilega áætlun fyrir aðra helstu ferðaleiðir flótta- og farandsfólks m.a. fyrir ferðaleiðir um Vestur-Balkanskaga. Af hálfu framkvæmdastjórnar ESB var þó ítrekað að engin aðgerðaáætlun af þessu tagi gæti náð utan um þær áskoranir sem ESB glímir við er kemur að málefnum flótta- og farandsfólks. Kerfisbreytingu þurfi til samanber fyrirliggjandi tillögupakka framkvæmdastjórnarinnar sem vísað er til að framan.

Í samantekt frá tékknesku formennskunni sem gefin var út að loknum fundinum kemur fram að ráðherrarnir hafi sammælst um að Evrópa þyrfti að takast á við þessar áskoranir sem ein heild og að mikilvægt væri að ná samkomulagi um hinn sameiginlega evrópska hælispakka sem fyrst. Ráðherrar voru einnig sammála um að auka þyrfti samskipti við þriðju ríki og alþjóðastofnanir og leita leiða til að koma í veg fyrir að einstaklingar stefni lífi sínu í hættu í þeirri von að ná til Evrópu. Þá voru ráðherrar einnig sammála um að auka þyrfti aðgerðir og fjármagn til að vinna gegn smygli á farandfólki og að flýta þyrfti innleiðingu á yfirlýsingu um valkvæða samábyrgð sem flest aðildarríki samþykktu þann 22. júní sl. Á grundvelli yfirlýsingarinnar er gert ráð fyrir að Ísland muni veita 20 einstaklingum vernd og flutningsaðstoð (e. relocation).

Samstarfsríkjum ESB í Schengen-samstarfinu, Íslandi, Noregi, Sviss og Liechtenstein, var boðið að sitja fundinn. Sendiherra Íslands í Brussel, Kristján Andri Stefánsson, sat fundinn fyrir Íslands hönd. Upplýsti hann um stöðuna á Íslandi, þ.e. um aukningu á umsóknum um alþjóðlega vernd og áskoranir sem uppi eru við meðferð umsókna frá einstaklingum sem þegar hafa fengið vernd í öðru Evrópuríki. Einnig vék hann að vandamálum sem við að etja vegna aðkomu einstaklinga með vegabréf útgefin í Venesúela. Sendiherrann upplýsti jafnframt um að Ísland muni standa við yfirlýsingu um valkvæða samábyrgð sem samþykkt var í júní sl. og að mikilvægt væri að þoka áfram tillögum innan hins samevrópska hælispakka áfram sem Ísland er bundin af og varða Dyflinnarreglugerðinni, fingrafaragagnagrunninn Eurodac og reglugerðinni um forskoðun umsókna um alþjóðlega vernd.

Umræðu um málefni umsækjenda um vernd og helstu ferðaleiðir einstaklinga í ólögmætri för verður framhaldið í ráðherraráðinu á fundi dóms- og innanríkisráðherra ESB sem boðaður er 8. desember nk. Einnig munu ráðherrar ræða innrás Rússa í Úkraínu, þ.e. að teknu tilliti til innra öryggis og komu einstaklinga í leit að tímabundinni vernd innan Evrópu. Íslandi ásamt öðrum Schengen-samstarfsríkjum ESB hefur verið boðið að sitja fundinn og er ráðgert að Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra, sæki fundinn fyrir Íslands hönd. Ráðherrann mun síðan einnig sitja Schengen-ráðsfund sem haldinn er samhliða, þar sem Ísland á fast sæti, en þar verður staða mála á Schengen-svæðinu almennt til umræðu og mögulega einnig aðild Króatíu, Búlgaríu og Rúmeníu að samstarfinu, sbr. umfjöllun í Vaktinni 18. nóvember sl.

Samhæfing hagstjórnar innan ESB með hliðsjón af nýrri efnahagsspá

Í Vaktinni 18. nóvember sl. var fjallað um haustspá framkvæmdastjórnar ESB um framvindu efnahagsmála í aðildarríkjum ESB. Þann 22. nóvember var spánni fylgt eftir með útgáfu skýrslna, orðsendinga, álita og úttekta um efnahagsmál (e. 2023 European Semester) sem ætlað er að samhæfa hagstjórn meðal aðildarríkjanna á komandi misserum. Útgefin skjöl um þessi efni má nálgast hér.

Framangreind málefni verða síðan m.a. til umræðu á fundi efnahags- og fjármálaráðherra ESB sem boðaður hefur verið 6. desember.

Efnahagsmálin hafa einnig verið mjög í deiglunni á vettvangi Evrópuþingsins að undanförnu og í vikunni voru tvær nýjar rannsóknir er snúa að viðbrögðum við alþjóðlegri verðbólgu og unnar voru að beiðni efnahags- og peningastefnunefndar Evrópuþingsins birtar, sjá Tackling global inflation at a time of radical uncertainty og Managing global monetary spillovers.

Breytingar á netöryggislöggjöf ESB og aukin áhersla á netvarnir

Ráðherraráð ESB samþykkti í vikunni nýja netöryggistilskipun (NIS2). Markmið NIS2 er að styrkja viðnámsþol og viðbragðsgetu vegna netöryggisógna innan ESB. Hin nýja tilskipun felur í sér útvíkkun á gildissviði gildandi tilskipunar um netöryggismál (NIS1) til að mæta breyttum veruleika í hinum rafræna heimi. Meðal helstu breytinga samkvæmt tilskipuninni er að þar er nú greint á milli mikilvægra innviða annars vegar og nauðsynlegra innviða hins vegar. Fjöldi aðila sem eldri tilskipun náði ekki til er nú felldur undir gildissvið löggjafarinnar þar á meðal ríkisstofnanir, gagnaver, traustþjónustuveitendur, fráveitur, póstþjónustuaðilar, efnaframleiðendur, matvælaframleiðendur, lyfjaframleiðendur og fleiri framleiðslufyrirtæki sem samkvæmt nýju tilskipuninni teljast til mikilvægra og nauðsynlegra innviða. Tilskipunin fer nú í upptökuferli í EES-samninginn en fyrir liggur að innleiðing hennar á Íslandi mun kalla á breytingar á lögum nr. 78/2019 um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða.

Ráðherraráðið samþykkti einnig fyrr í nóvembermánuði nýja löggjöf um stafrænt viðnámsþol fjármálakerfisins og fjármálafyrirtækja en sú löggjöf hefur náin tengsl við hina almennu netöryggislöggjöf enda fjármálakerfið í flokki nauðsynlegra innviða.

Sjá hér samantekt og útskýringar á hinni nýju netöryggislöggjöf á vef Evrópuþingsins.

Til viðbótar framangreindu liggur nú fyrir Evrópuþinginu og ráðherraráðinu tillaga framkvæmastjórnarinnar að nýrri reglugerð þar sem lagt er til að gerðar verði netöryggiskröfur til hvers kyns nettengdra vara (e. Cyber Resilience Act) en um þá tillögu framkvæmdastjórnarinnar var fjallað í Vaktinni 23. september sl.

Þá kynnti framkvæmdastjórn ESB hinn 10. nóvember sl. nýjar og auknar áherslur á netvarnir en tilefnið er m.a. nýjar öryggisáskoranir sem ESB stendur frammi fyrir í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. Lögð er áhersla á fjóra þætti:

Aukna samvinnu aðildarríkja á sviði netvarna

Auknar öryggiskröfur í hvers kyns hugbúnaði og íhlutum sem tengist mikilvægum innviðum

Aukna fjárfestingu í mannauði á sviði netöryggismála, meðal annars í gegnum ýmsar áætlanir ESB.

Aukna samvinnu við samstarfsríki ESB á sviði netvarna.

Umsögn framkvæmdastjórnar ESB um frammistöðu Ungverjalands við úrbætur tengdar réttarríkinu

Framkvæmdastjórn ESB birti í vikunni umsögn sína þar sem komist er að þeirri niðurstöðu að stjórnvöld í Ungverjalandi hafi ekki staðið við loforð um innleiðingu á nauðsynlegum umbótum tengdum réttarríkinu.

Í ljósi þessa hefur framkvæmdastjórnin ákveðið að leggja til að haldið verði aftur af greiðslum til Ungverjalands sem nemur um 13,3 milljörðum evra. Annars vegar er um að ræða greiðslur úr sérstökum bjargráðasjóðum sambandsins í kjölfar kórónuveirufaraldursins, alls 5,8 milljarðar evra, og hins vegar greiðslur upp á 7,5 milljarða evra af fjárlögum ESB. Fjallað var um málið í síðustu Vakt, hinn 18. nóvember sl., en það var skömmu áður en innleiðingarfrestur framangreindra umbóta rann út og umsögn framkvæmdastjórnarinnar var enn óbirt.

Framkvæmdastjórnin kemst í úttekt sinni að því að þrátt fyrir að tilteknar umbætur hafi átt sér stað í Ungverjalandi hafi stjórnvöldum þar mistekist að uppfylla 17 skilyrði sem þau höfðu heitið að uppfylla fyrir 19. nóvember sl.

Reglugerð ESB um skilyrði af þessu tagi hefur verið í gildi frá 2021 og felur í stuttu máli í sér að brjóti aðildarríki sambandsins gegn gildum og reglum ESB sem snúa að grundvallarreglum réttarríkisins geti framkvæmdastjórnin lagt til við ráðherraráðið að fjárlagagreiðslum og greiðslum úr bjargráðasjóðum til viðkomandi ríkis verði haldið aftur. Stjórnvöld í Ungverjalandi og Póllandi settu sig sérstaklega upp á móti þessu kerfi þegar það var í smíðum en þau hafa á undanförnum árum verið sökuð um að veikja stoðir réttarríkisins í ýmsu tilliti.

Þessir 17 þættir sem snúa að Ungverjalandi fela m.a. í sér að ráðist verði í viðeigandi aðgerðir til að berjast gegn spillingu. Í því felist að koma á fót nýjum sjálfstæðum stofnunum sem búnar verði réttu verkfærunum og getu til að bregðast við spillingarmálum. Þá verði að efla samkeppnisumhverfi, auka gagnsæi í opinberum innkaupum, tryggja að reglur séu um hagsmunaárekstra og auknar kröfur gerðar um endurskoðun og eftirlit. Einnig verði tryggt að Evrópuskrifstofa um aðgerðir gegn svikum (OLAF) geti á áhrifaríkan hátt starfað og framkvæmt úttektir á stöðu mála í Ungverjalandi.

Þá gera úbótakröfurnar m.a. ráð fyrir því að ráðist verði í aðgerðir til að tryggja og efla sjálfstæði dómstóla, m.a. með því að auka vald hins óháða landsréttarráðs þannig að hægt sé að tryggja gagnsæi í stjórnsýslu dómstóla og takmarka líkur á því ótilhlýðileg áhrif og geðþóttaákvarðanir hafi áhrif á stjórnsýslu þeirra. Þá verði ráðist í endurskipulagningu á núverandi starfsemi hæstaréttar landsins til að takmarka hættu á pólitískum áhrifum. Einnig sé brýnt að afnema hlutverk stjórnlagadómstóls landsins við endurskoðun ákvarðana dómara sem þeir taka að beiðni opinberra yfirvalda og jafnframt að fella niður heimildir hæstaréttar til að endurskoða spurningar sem dómarar óska að vísa til Evrópudómstólsins.

Umsögn framkvæmdastjórnarinnar og tillaga verður meðal umræðuefna á fundi efnahags- og fjármálaráðherra ESB 6. desember nk. en ekki er búist við að endanlegri ákvörðun ráðherraráðsins fyrr en eftir fund leiðtogaráðs ESB 15. og 16. desember nk.

Konur í stjórnum fyrirtækja

Tímamót urðu í jafnréttismálum innan ESB urðu er tilskipun um hlutfall kvenna í stjórnun fyrirtækja var samþykkt í Evrópuþinginu. Málið hefur verið afar lengi til umræðu innan ESB en tillaga að tilskipuninni var lögð fyrir þingið og ráðið árið 2012.

Síðastliðin tvö ár hefur málið verið sameiginlegum lista framkvæmdastjórnarinnar, ráðsins og þingsins yfir löggjafartillögur sem setja skuli í forgang og náðist loks efnisleg samkomulag milli Evrópuþingsins og ráðherraráðsins um málið síðastliðið sumar.

Tilskipunin leggur þá skyldu á aðildarríkin að jafna hlutfall kvenna og karla í stjórnum skráðra fyrirtækja fyrir árið 2026. Tilskipunin leggur upp tvær leiðir í þessu efni og geta aðildarríkin valið hvor leiðin er farin. Annars vegar geta aðildarríkin valið að einskorða reglurnar við stjórnir fyrirtækja og skulu hlutföll kynjanna þá vera á bilinu 40-60%. Hins vegar geta aðildarríkin ákveðið að reglurnar taki jafnframt til þeirra sem sitja í framkvæmdastjórnum fyrirtækjanna og skall hlutfall hvors kyns um sig þá í heildina ekki vera undir 33%.

Jafnlaunadagurinn

Kynbundinn launamunur í Evrópu er metinn 13% að meðaltali konum í óhag. Sá launamunur jafngildir einum og hálfum mánaðarlaunum á ársgrundvelli. Í samræmi við það rann jafnlaunadagur Evrópu upp þann 15. nóvember sl. Á vettvangi ESB, ýmissa aðildarríkja og frjálsra félagasamtaka hefur jafnlaunadagurinn verður nýttur til að minna á báráttuna fyrir launajafnrétti kynjanna og var m.a. efnt til ráðstefnu í Brussel af þessu tilefni 4. nóvember sl.

Orkumál - nýjar tillögur og umræður í ráðherraráði ESB

Á þriðjudaginn í síðustu viku kynnti framkvæmdastjórn ESB nýjar löggjafartillögur sem hafa það að markmiði að vernda fyrirtæki og heimili í ESB fyrir háu orkuverði. Hinar nýju tillögur bætast við fjölmargar tillögur sem framkvæmdastjórnin hefur lagt fram á árinu til að bregðast við orkukrísunni sem árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu hefur valdið. Sumar tillögur hafa þegar náð fram að ganga en aðrar bíða enn afgreiðslu hjá löggjafarstofnunum ESB, ráðherraráðinu og Evrópuþinginu eftir atvikum. Fyrstu tillögur framkvæmdastjórnarinnar, er litu dagsins ljós í mars, lutu að skyldum aðildarríkjanna til að byggja upp og viðhalda gasforða, og voru þær tillögur samþykktar í ráðherraráðinu í júní. Í maí kynnti framkvæmdastjórnin síðan bráðabirgðaaðgerðir til að sporna við hækkandi orkuverði auk þess sem þá voru kynntir valkostir til lengri tíma. Á sama tíma var aðgerðaráætlun framkvæmdastjórnarinnar „REPowerEU“ kynnt en áætlunin er hryggjarstykkið í orkumálaáætlun ESB til lengri tíma og miðar að því að umbylta evrópsku orkukerfi í átt að endurnýjanlegum orkugjöfum og gera ESB óháð jarðefnaeldsneyti frá Rússlandi. Í ágúst voru síðan samþykktar ráðstafanir til að draga úr notkun á gasi. Til enn frekari ráðstafana var gripið í september í formi markaðsinngripa til að draga úr verðhækkunum og í október voru síðan kynntar nýjar löggjafartillögur til að bregðast við háu orkuverði og tryggja framboð og eru þær tillögur enn til umræðu í ráðinu eins og nánar er fjallað um hér að neðan. Hinn 9. nóvember voru síðan kynntar löggjafartillögur sem miða að því að liðka fyrir uppbyggingu og fjárfestingum í endurnýjanlegum orkuiðnaði

Þær löggjafartillögur sem framkvæmdastjórnin kynnti í síðustu viku fela síðan í sér frekari útfærslu markaðsráðstafana sem kynntar voru í október og ætlað er sporna við verðtoppum á gasi og voru tillögurnar m.a. unnar með hliðsjón af áherslum sem fram komu á fundi leiðtogaráðs ESB 20. og 21. október.

Framangreindar löggjafartillögur voru til umræðu á fundi orkumálaráðherra ESB þann 24. nóvember og náðist þar samstaða um innihald reglugerðar ráðsins um að efla samstöðu með betri samræmingu við innkaup á gasi, um flutning á gasi yfir landamæri og innleiðingu áreiðalegra verðviðmiða til að draga úr verðsveiflum á gasi og rafmagni, sbr. tillögur framkvæmdastjórnarinnar frá október sem fjallað var um í Vaktinni 21. október. Hinum nýju reglum er ætla að styðja við sameiginleg innkaup ESB-ríkja á gasi á alþjóðlegum mörkuðum. Þannig er reglunum ætlað að auka samstöðu ef raunverulegur neyðar- og gasskortur verður, tryggja betri samhæfingu, takmarka sveiflur á gas- og raforkuverði og setja áreiðanleg viðmið fyrir gasverð.

Samhæfing á vettvangi ESB miðar að því að tryggja aðildarríkjunum betri kjör við innkaup á gasi alþjóðlegum mörkuðum og er ætlað að koma í veg fyrir að aðildarríki yfirbjóði hvert annað. Þannig ber aðildarríkjum, gasfyrirtækjum og öðrum fyrirtækjum sem nota gas að upplýsa um innflutningsþörf sína. Mun ESB á þeim grundvelli láta þjónustuveitu (service provider) reikna út samanlagða eftirspurn og leita tilboða á alþjóðlegum mörkuðum til að mæta henni. Þess verður krafist að fyrirtæki innan ESB noti þjónustuveituna og að safnað verði upplýsingum um eftirspurn eftir gasi sem jafngildir að lágmarki 15% af gasgeymsluskyldum aðildarríkja fyrir árið 2023. Söfnun upplýsinga umfram það verður valfrjáls. Reglugerðin felur einnig í sér ákvæði sem eiga að tryggja aukið gagnsæi fyrirhugaðra og lokaðra útboða og innkaupa. Á fundi orkumálaráðherranna kom skýrt fram að rússneskt gas verði útilokað frá sameiginlegum innkaupum.

Reglugerðin gerir að auki ráð fyrir að þróað verði nýtt verðviðmið fyrir 31. mars nk. til að tryggja stöðuga og fyrirsjáanlega verðlagningu á gasi. Þá gerir reglugerðin ráð fyrir verðtakmörkunum vegna viðskipta sem gerð eru innan sama dags til að koma í veg fyrir óhóflegu verðflökt innan viðskiptadags.

Ef raunverulegur gasskortur á sér stað þá gera reglurnar aðildarríkjunum kleift að grípa til ráðstafana og fyrirskipa bann við ónauðsynlegri gasnotkun, t.d. upphitun utandyra og upphitun sundlauga við heimili ef það telst nauðsynlegt til að tryggja gas fyrir nauðsynlega innviði, atvinnugreinar og til upphitunar heimila, skóla og sjúkrahúsa. Aðildarríkjum verður frjálst að skilgreina hvert fyrir sig hvað teljist ónauðsynleg gasnotkun í slíkum neyðaraðstæðum.

Þá miða reglurnar að því að auðvelda aðildarríkjum að óska aðstoðar annarra aðildarríkja geti þau ekki á eigin spýtur tryggt nægjanlegt gasmagn fyrir raforkukerfi þeirra. Geta aðildarríki óskað slíkrar aðstoðar þegar það telst nauðsynlegt til að tryggja gas og raforkuframleiðslu fyrir heimili og mikilvæga innviði.

Ráðherrarnir náðu einnig samkomulagi um innihald reglugerðar sem miðar að því að flýta fyrir uppbyggingu og fjárfestingum í endurnýjanlegum orkuiðnaði. Markmið reglugerðarinnar er að einfalda leyfisveitingar vegna framkvæmda við orkuver sem framleiða endurnýjanlega orku. Sérstaklega er litið til verkefna sem mögulegt er að ráðast í með skjótum hætti og valda ekki miklum umhverfisáhrifum. Reglugerðin mun gilda í 18 mánuði en að þeim tíma liðnum verður endurmetið hvort rétt sé að framlengja hana.

Loks var ráðherrunum kynntar löggjafartillögur framkvæmdastjórnarinnar sem birtar voru í síðustu viku og vikið er að hér að framan. Af fundarniðurstöðum er ljóst að nokkur vinna er eftir við endanlegan frágang þeirrar reglugerðar.

Stefnt er að formlegri afgreiðslu þeirra tveggja reglugerða sem efnisleg samstaða hefur náðst um á næsta fundi orkumálaráðherra ESB sem áætlaður er 14. desember nk.

Nýjar reglur um umbúðir

Framkvæmdastjórn ESB kynnti í vikunni tillögur að nýjum reglum um umbúðir. Markmið reglnanna er takmarka sóun vegna umbúða og auka endurnotkun og endurvinnslu þeirra þannig að umbúðageirinn verði kolefnishlutlaus fyrir árið 2050.

Magn umbúða sem fellur til á hverju ári er gríðarlegt en talið er að hver íbúi ESB skilji eftir sig að meðaltali um 180 kg af umbúðaúrgangi á hverju ári. Verði ekki gripið til aðgerða er áætlað að umbúðaúrgangur muni aukast um 19% til ársins 2030. Er nýjum reglum ætlað að stöðva þessa þróun og er stefnt að því að draga úr umbúðaúrgangi um 15% fyrir árið 2040 miðað við stöðuna eins og hún var árið 2018.

Nánar tiltekið eru markmið reglanna þríþætt:

Að takmarka myndun umbúðaúrgangs, með því að minnka magn umbúða, takmarka óþarfa umbúðir og stuðla að fjölnota og endurfyllanlegum umbúðalausnum.

Að efla hágæða endurvinnslu á umbúðum, með því að gera allar umbúðir á ESB-markaði endurnýtanlegar á efnahagslega hagkvæman hátt fyrir árið 2030.

Að draga úr notkun á nýju hráefni í umbúðaframleiðslu m.a. með því að skapa vel starfhæfan markað fyrir endurnýtt hráefni.

Tillögur framkvæmdastjórnarinnar ganga nú til umfjöllunar í Evrópuþinginu og ráðherraráði ESB.

Samhliða framangreindum tillögum kynnti framkvæmdastjórn ESB stefnuramma um plast af lífrænum uppruna, lífbrjótanlegt plast og jarðgerðanlegt plast. Er stefnunni ætlað að marka leiðina fram á við á þessum sviðum m.a. varðandi kröfur um visthönnun fyrir sjálfbærar vörur, fjármögnunaráætlanir og alþjóðasamvinnu.

Fundur EES-ráðsins

EES-ráðið kom saman til fundar í Brussel 23. nóvember. Eins og fjallað var um í Vaktinni 18. nóvember þá er ráðið er æðsta stofnunin í sameiginlegu stofnanakerfi EES/EFTA-ríkjanna og ESB sem sett var á fót með samninginum um Evrópska efnahagssvæðið (EES). Ísland fer nú með formennsku í EES-samstarfinu og stýrði utanríkisráðherra Íslands, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðsfundinum, sem var nú í fyrsta skipti haldinn í hinu nýja EFTA húsi í Brussel.

Auk umræðu um stöðu og framkvæmd EES-samningsins almennt voru málefni Úkraínu og öryggismál í Evrópu, aðgerðir í loftlagsmálum og orkuskipti meðal umræðuefna. Sjá hér myndband frá fundinum og viðtöl við ráðsmeðlimi.

Í tengslum við ráðsfundinn áttu ráðherrarnir fund með þingmannanefnd EFTA (e. EFTA Parliamentary Committee) og ráðgjafarnefnd EFTA (e. EFTA Consultative Committee) þar sem stríðið í Úkraínu, orkukreppan og grænu orkuumskiptin voru til umræðu.

Ráðstefna um orkumál

Ísland fer um þessar mundir með formennsku í fastanefnd EFTA-ríkjanna og stóð af því tilefni fyrir málþingi um orkuskipin í EFTA húsinu í gær. Málþingið bar fyrirsögnina „Energy: Steps towards the Green Transition“ og var haldið í samstarfi við Noreg og Liechtenstein.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, opnaði málþingið og sagði frá stöðu orkumála á Íslandi. Í máli hans kom fram að þótt staðan á Íslandi væri góð væru orkuskiptin risavaxið verkefni sem ásamt metnaðarfullum markmiðum stjórnvalda um kolefnishlutleysi árið 2040 væri mikil áskorun fyrir Ísland. Þá kom fram í máli ráðherra að Ísland byggi yfir mikilli þekkingu og reynslu sem deila mætti með ríkjum Evrópu, til að mynda við jarðhitavinnslu en ónýtta möguleika á því sviði væri að finna í Evrópu. Evrópuþjóðir hafi möguleika á að nýta lághitasvæði mun betur en gert er í dag og auka þannig orkuöryggi sitt. Jarðhiti gæti orðið hluti lausnarinnar.

Halla Hrund Logadóttir, orkumálastjóri, flutti aðalerindi fundarins auk þess sem hún stýrði pallborðsumræðum í lokin. Hún sagði frá sögu jarðhitanýtingar á Íslandi, fór ítarlega yfir möguleika Evrópuríkja til eigin nýtingar og þau atriði sem þyrfti að huga að til þess að hraða innleiðingu endurnýjanlegra orkugjafa á meginlandinu. Vissulega væru áskoranir til staðar en í þeim fælust tækifæri til þess að gera betur, til dæmis í menntun og þjálfun tengdri orkumálum.

Fulltrúi Tékklands, sem fer með formennsku í ráðherraráði ESB um þessar mundir, gerði grein fyrir áherslum ESB í orkumálum á undanförnum misserum sem ítarlega hefur verið fjallað um í Vaktinni. Fulltrúi framkvæmdastjórnar ESB tók jafnframt þátt í málþinginu og fjallaði um hvernig hægt væri að nýta REPowerEU stefnu sambandsins í orkumálum til þess að hraða innleiðingu endurnýjanlegra orkugjafa. Sendiherra Noregs gagnvart Belgíu fór yfir áherslur Norðmanna á sviði endurnýjanlegra orkugjafa, orkufulltrúi sendiráðs Liechtenstein sagði frá reynslu þeirra af nýtingu sólarroku og Borgar Þór Einarsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Uppbyggingarsjóðs EES fór yfir verkefni sjóðsins á sviði orkumála og hvernig sjóðurinn gæti greitt fyrir árangri á þessu sviði.

Í lokin fóru fram pallborðsumræður þar sem Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar tók þátt auk framangreindra aðila. Þar kom fram rík áhersla á mikilvægi þess að tryggja orkusjálfstæði Evrópuríkja og afhendingaröryggi orku í álfunni. Betri orkunýting, nýsköpun og samvinna voru talin mikilvæg atriði til árangurs en tækifærin á sviði orkuskipta væru mörg og af margbreytilegum toga. Fram kom að vetni væri á meðal mikilvægustu orkugjafa til framtíðar. Þá var samhljómur um að hlutverk einkageirans, einstaklinga og fyrirtækja, væri þýðingarmikið og mikilvægt að væri að virkja ríkan vilja almennings til að vera hluti af lausninni. Gera þyrfti betur í að móta leikreglurnar og setja aukið fjármagn í innleiðingu umhverfisvænna og orkusparandi ráðstafana.

Brussel-vaktin, fréttabréf fastanefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

18. nóvember 2022 | Stríðið, staða efnahagsmála, Schengen-svæðið |
Að þessu sinni er fjallað um:

leiðtogafund G20 ríkjanna

fund utanríkisráðherra Evrópusambandsins (ESB)

fund Evrópumálaráðherra ESB

stöðu efnahagsmála í ESB

orðsendingu framkvæmdastjórnar ESB til Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB um að Búlgaría, Rúmenía og Króatía uppfylli nú öll skilyrði til fullrar aðildar að Schengen-samstarfinu

tímamótaregluverk ESB á sviði rafrænnar þjónustu

fæðuöryggi og aðgerðir ESB til að auka framboð og viðunandi verð á áburði til landbúnaðarframleiðslu

tillögu að nýjum losunarstöðlum, Euro 7, fyrir stærri ökutæki

skýrslur framkvæmdastjórnar ESB og Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um mat á árangri í loftlagsmálum

fimm ára afmæli félagslegu réttindastoðar ESB

heimsmeistaramótið í fótbolta í Katar

stefnumótun ESB um skipulag og notkun gagnasafna fyrir samgöngur

fund EES-ráðsins í Brussel í næstu viku

Leiðtogafundur G20 ríkjanna

Leiðtogafundur G20 ríkjanna var haldinn á Balí dagana 15. og 16. nóvember, en Indónesía fer nú með formennsku í G20 ríkjasamstarfinu. Leiðtogar allra ríkjanna mættu til fundarins að frátöldum forseta Rússlands, Vladímír Pútín.

ESB á aðild að ríkjasamstarfinu auk aðildarríkjanna Þýskalands, Frakklands og Ítalíu, og mættu forseti leiðtogaráðs ESB, Charles Michel, og forseti framkvæmdastjórnar ESB, Ursula von der Leyen, til fundarins fyrir hönd ESB.

G20 ríkjasamstarfið hefur reynst áhrifamikið í alþjóðamálum enda endurspegla ríkin sem þar eiga fulltrúa stærstu hagkerfi heimsins með um 80% af vergri heimsframleiðslu.

Í lok ráðstefnunnar var birt sameiginleg yfirlýsing G20 ríkjanna. Fjallað er um helstu umræðuefni ráðstefnunnar og niðurstöður frá sjónarhóli ESB í fréttatilkynningu sem birt er á vef ráðherraráðs ESB, en helstu umræðuefni voru:

Brestur í fæðu- og orkuöryggi sem árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu hefur valdið. ESB ítrekaði harða afstöðu sína gegn Rússlandi í þessum málum. Ítarlega hefur verið fjallað orkukreppuna í Vaktinni að undanförnu en nánar er fjallað um fæðuöryggismálin í Vaktinni hér að neðan.

Loftlagsmál og líffræðilegur fjölbreytileiki voru til umræðu og var almennur samhljómur um mikilvægi baráttunnar gegn loftlagsbreytingum og ítrekuðu leiðtogarnir ásetning sinn um að mæta markmiðum Parísarsamkomulagsins.

Heilbrigðismál voru til umræðu, meðal annars í ljósi reynslunnar af kórónuveirufaraldrinum og lýstu leiðtogarnir vilja til að tryggja öllum aðgang að virkum bóluefnum, greiningum og meðferð.

Samstaða var um mikilvægi stafrænnar umbreytingar ekki síst sem liður í að ná markmiðum um sjálfbæra þróun.

Tveir mikilvægir hliðarviðburðir voru haldnir í tengslum við ríkjaráðstefnuna:

Annars vegar fundur leiðtoga Nató-ríkjanna (G7) á ráðstefnunni sem boðað var til af hálfu Joe Bidens, Bandaríkjaforseta, en tilefni fundarins voru harðar loftárásir Rússa á borgaralega innviði í Úkraínu þann 15. nóvember. Gáfu leiðtogarnir út yfirlýsingu að fundinum loknum þar sem árásirnar voru fordæmdar.

Hins vegar fundur ESB og Ástralíu þar sem fjölmörg málefni voru rædd og böndin treyst. Þá fór þar fram sérstök umræða um fæðuöryggi og framboð áburðar til landbúnaðarframleiðslu, sbr. nánari umfjöllun um þau málefni hér neðar í Vaktinni.

Fundur utanríkisráðherra ESB

Utanríkisráðherrar ESB komu saman til fundar á vettvangi ráðherraráðs ESB 14. nóvember. Árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu og margþættar afleiðingar þess var, líkt og á flestum fundum ráðsins undanfarið, megin umræðuefnið. Einbeitt afstaða ESB gegn Rússlandi er eins skýr og orðið getur og mun ESB áfram vinna að því að einangra Rússland á alþjóðasviðinu og herða þvingunarráðstafanir um leið haldið verður áfram að styðja Úkraínu til verjast árásum á borgaraleg skotmörk og hernaðarlega meðal annars með þjálfun hermanna samkvæmt sérstakri áætlun (e. European Union Military Assistance Mission in support of Ukraine) en þessi áætlun var formlega hrint í framkvæmd 17. október, sbr. umfjöllun í Vaktinni 21. október sl.

Fæðuöryggismál komu einnig til umræðu á fundi ráðherranna og mikilvægi þess að halda flutningsleiðum með korn um Svartahaf opnum. Nánar er fjallað um aðgerðir ESB í fæðuöryggismálum hér neðar í Vaktinni.

Meðal annarra umræðuefna á fundinum voru:

Málefni vatnasvæðisins mikla í Afríku (e. The African Great Lakes) en jarðhiti er á svæðinu sem hugsanlega má virkja í stórum stíl.

Málefni Vestur-Balkanskaga

Málefni Írans og nýjar refsiaðgerðir ESB gegn landinu vegna mannréttindabrota stjórnvalda þar í landi.

Þá gaf ráðherraráðið frá sér nýja ályktun um stöðu kvenna, friðar- og öryggismál.

Fundur Evrópumálaráðherra ESB

Evrópumálaráðherrar ESB komu saman til fundar á vettvangi almenna ráðs ESB (e. General Affairs Council) í dag, 18. nóvember. Verkefni almenna ráðsins er m.a. að undirbúa leiðtogaráðsfundi ESB og var undirbúningur og skipulagning næsta leiðtogaráðsfundar 15. og 16. desember nk. meðal dagskrárefna fundarins í dag. Eins og við var að búast er árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu megin umfjöllunarefni fundarins, sem og varnar- og öryggismál í álfunni almennt. Þá verða orku- og efnahagsmál m.a. í deiglunni sem og samskipti við nágranna ESB til suðurs (e. Southern Neighbourhood). Sjá nánar drög að dagskrá leiðtogafundarins sem birt hefur verið.

Meðal annarra umfjöllunarefna voru málefni Ungverjalands og umgengni stjórnvalda þar í landi við ákveðnar grundvallarreglur réttarríkisins. Til að knýja fram umbætur hefur framkvæmdastjórnin gripið til þess ráðs að frysta fjárveitingar til landsins úr bjargráðasjóðum tengdum endurreisn eftir faraldurinn (Next Generation EU) og sett ákveðin skilyrði fyrir að greiðslum verði fram haldið. Er þess vænst að umsögn framkvæmdastjórnar ESB um hvort Ungverjaland hafi uppfyllt þessi skilyrði verði birt í lok þessa mánaðar en endanlegt mat í þeim efnum er í höndum aðildarríkja ESB á vettvangi ráðherraráðsins og er niðurstöðu þar að vænta fyrir árslok. Teljist Ungverjaland ekki hafa uppfyllt skilyrðin gæti svo farið að umræddar fjárveitingar falli endanlega niður, samkvæmt lögbundinni málsmeðferð sem unnið er eftir.

Auk framangreinds ræddu ráðherrarnir tengsl ESB og Bretlands, löggjafaráætlun framkvæmdarstjórnar ESB, netöryggismál o.fl.

Staða efnahagsmála í aðildarríkjum ESB í nóvember 2022

Í síðustu viku birti framkvæmdastjórn ESB haustspá sína um framvindu efnahagsmála fyrir árin 2022-2024.

Áhrif stríðsins í Úkraínu. Árið byrjaði vel með kröftugum hagvexti, en eftir innrás Rússlands í Úkraínu og þeim margvíslegu afleiðingum sem því hefur fylgt, orkukreppu og vandræðum með aðflutning mikilvægra hráefna og matvæla hefur dæmið snúist við. Þá hefur fjárhagsaðstoð til Úkraínu og flóttamannavandinn vegna stríðsins haft í för með sér veruleg fjárútlát. Innan ESB er nú unnið að því að ljúka við endurskoðun fjárlaga sambandsins fyrir næsta ár og sýna niðurstöður aukinn hallarekstur frá því sem áður var spáð, sbr. umfjöllun hér á eftir. Allir þessir þættir hafa neikvæð áhrif á þær forsendur sem nú eru lagðar til grundvallar efnahagsspám ESB til næstu ára.

Hagvöxtur. Eins og áður sagði byrjaði árið vel, m.a. með kröftugri einkaneyslu eftir harðindi sem fylgdu kórónuveirufaraldrinum og hélst sá vöxtur fram á þriðja ársfjórðung. Þá fór hækkandi orkuverð að bitna verulega á kaupmætti heimila og framleiðslukostnaði fyrirtækja sem leitt hefur til samdráttar á 4. ársfjórðungi sem nægir þó ekki að vega á móti sterkum hagvexti á fyrri hluta ársins. Fyrir árið 2022 í heild er áætlað að hagvöxtur verði 3,3%, eða heldur meiri en í sumarspánni upp á 2,7%. Upphaflega spáin hafði hins vegar gert ráð fyrir um og yfir 4% hagvexti. Útlitið er hins vegar mun verra fyrir árið 2023 þegar að ofangreind áhrif hafa komið fram með fullum þunga. Í sumarspánni var gert ráð fyrir að hagvöxtur yrði 2,3% en nú stefnir í að hann verði einungis 0,3%. Samkvæmt því má lítið út af bera til að hagvöxtur snúist í samdrátt á næsta ári. Þá er því spáð að verði 1,6% að jafnaði árið 2024.

Verðbólga. Í flestum aðildarríkjum ESB hefur verðbólga farið hækkandi í hverjum mánuði sem af er árinu 2022. Spáð er frekari hækkunum framundan og að toppi verði ekki náð fyrr en í lok ársins. Gangi það eftir mun meðalverðbólga ársins 2022 verða 9,3%. Í sumarspánni mældist hún nálægt 7%. Spáð er hægri lækkun hennar á næsta ári og að meðalverðbólga verði 7% á árinu 2023. Á árinu 2024 er reiknað með að hún lækki nokkuð skarpt og verði kringum 3% að meðaltali.

Staðan á vinnumarkaði ESB. Þróunin á evrópskum vinnumarkaði hefur ekki verið í takt við minnkandi hagvöxt og kaupmátt heldur hefur hann haldið áfram að styrkjast. Nú er svo komið að fjölgun starfa og atvinnuþátttaka hefur aldrei verið meiri en á þessu ári, auk þess sem atvinnuleysi er í sögulegu lágmarki þannig að vinnuaflsskortur hefur víða gert vart við sig. Í september mældist atvinnuleysi 6%. Þá er áætlað að 2 milljónir manna hafi bæst við á evrópskum vinnumarkaði á árinu umfram þá sem fallið hafa út af vinnumarkaði. Sú aukning svarar til 1,8%. Að öllu samanlögðu er meðalatvinnuleysi talið verða 6,2% árið 2022. Á árinu 2023 er gert ráð fyrir að vöxtur nýrra starfa haldist óbreyttur en aukist lítillega, eða um 0,4%, á árinu 2024. Út frá þeim forsendum er áætlað að atvinnuleysi verði 6,5% og 6,4% á árunum 2023 og 2024.

Staða opinberra fjármála. Á árinu 2021 var hallarekstur hins opinbera (e. general government) í aðildarríkjum ESB 4,6% sem hlutfall af VLF (e. GDP). Kröftugur vöxtur framan af ári og afnám stuðningsaðgerða vegna kórónuveirufaraldursins í ESB ríkjunum hefur dregið umtalsvert úr hallarekstrinum þrátt fyrir að á móti vegi aðgerðir stjórnvalda til að draga úr áhrifum af hærra orkuverði, til að mæta flóttamannastraumnum frá Úkraínu og aukinni fjárhagsaðstoð við Úkraínu. Nú er spáð að hallinn verði 3,4% sem hlutfall af VLF fyrir yfirstandandi ár samanborið við 3,6% í sumarspánni. Fyrir árið 2023 er reiknað með því að hallinn aukist lítillega og verði 3,6% sem hlutfall af VLF samanborið við 2,5% í sumarspánni. Skýringar á auknum halla eru minni efnahagsumsvif, auknar vaxtagreiðslur og frekari stuðningur við heimili og fyrirtæki vegna hás orkuverðs. Á árinu 2024 er talið að hann lækki á ný verði 3,2%.

Skuldahlutfallið (e. debt-to-GDP ratio). Miðað við að framangreind spá gangi eftir mun skuldahlutfall ESB ríkjanna í heild lækka talsvert milli áranna 2021 og 2022, eða úr 87,9% í 86,4%. Rétt er að nefna að skuldahlutfallið er mjög mishátt í aðildarríkjum ESB, eða frá því að vera yfir 180% af VLF í Grikklandi og undir 20% í Eistlandi. Reiknað er með að hlutfallið haldi áfram lækka á næstu tveimur árum og verði komið í 84,1% í lok árs 2024. Eins og áður hefur komið fram í Vaktinni hefur framkvæmdastjórn ESB verið að vinna að endurskoðun fjármálareglna sambandsins, en í dag eru þær óvirkar til loka árs 2023 (skuldahlutfall 70% og halli -3%.). Fyrstu tillögur litu dagsins ljós nú á dögunum og verður fjallað nánar um þær í næstu Vakt.

ESB

Ísland

Árleg breyting, %

2021

2022

2023

2021

2022

2023

VLF

5,4

2,3

0,3

4,4

5,1

2,9

Verðbólga

2,9

9,3

7,0

4,4

7,5

4,9

Atvinnuleysi

7,0

6,2

6,5

6,0

3,8

3,7

Afkoma hins opinbera

-4,6

-3,4

-3,6

-7,9

-4,9

-2,5

Skuldahlutfall hins opinbera

87,9

86,4

85,3*

52,5

49,9

49,1

*Áætlun 2023; 2024 84,2%

Fundur efnahags- og fjármálaráðherra EFTA og ESB. Þann 8. nóvember sl. hittust efnahags- og fjármálaráðherrar EFTA og ESB til að bera saman bækur um efnahagsástandið í Evrópu. Ráðuneytisstjóri fjármála- og efnahagsráðuneytis, Guðmundur Árnason, sat fundinn fyrir Íslands hönd í fjarveru ráðherra ásamt sendiherra Íslands í Brussel, Kristjáni Andra Stefánssyni. Á fundinum kom fram að staða mála nú og til næstu ára er mun betri í EFTA ríkjunum en í aðildarríkjum ESB þegar á heildina er litið. Séu hagtölur Íslands bornar saman við ESB ríkin birtist sama mynd eins og sjá má á töflunni hér að ofan. Þetta á ekki hvað síst um skuldahlutfall hins opinbera sem er langt undir viðmiðunareglu ESB og sömuleiðis hraðari bati í rekstri hins opinbera. Þá er hagvöxtur mun kröftugri, bæði þessu ári og næsta og atvinnuleysi lægra. Einnig er því spáð að verðbólgan gangi hraðar niður á Íslandi en á ESB svæðinu.

Hér þarf þó að hafa í huga að bæði í spám EFTA og ESB ríkir mikil óvissa um framvindu mála á mörgum sviðum. Þar má nefna óvissu um þróun orkuverðs, hækkandi vexti, áframhaldandi skort á aðföngum og jafnvel fullunnum vörum. Hvað gerist er engin leið að segja til um, en veturinn framundan mun væntanlega ráða miklu um hvernig mál þróast til næstu ára.

Orðsending framkvæmdastjórnar ESB um að Búlgaría, Rúmenía og Króatía uppfylli nú öll skilyrði til fullrar aðildar að Schengen-samstarfinu

Framkvæmdastjórn ESB hefur gefið út orðsendingu til Evrópuþingsins og ráðherraráðsins þar sem skorað er á ráðið að taka nauðsynlegar ákvarðanir svo unnt verði að veita Búlgaríu, Rúmeníu og Króatíu fulla aðild að Schengen samstarfinu. Því til stuðnings er í orðsendingunni rakið hvernig ríkjunum hefur tekist að innleiða Schengen-regluverkið með góðum árangri.

Þá kemur fram sú skoðun að stækkun Schengen-svæðisins muni leiða til aukins öryggis og bætts eftirlits á ytri landamærum og aukinni lögreglusamvinnu um leið og stækkunin muni efla efnahag og viðskiptalíf innan svæðisins.

Líkt og rakið var í Vaktinni 4. nóvember sl. er orðið langt um liðið síðan Búlgaría og Rúmenía luku hefðbundnu Schengen úttektarferli árið 2011. Ráðherraráð ESB staðfesti í framhaldinu að ríkin bæði hafi staðist úttektarkröfur en engin ráðsákvörðun um afléttingu eftirlits á innri landamærum hefur þó verið gefin út. Samþykki allra aðildarríkja þarf til svo slík ákvörðun verði gefin út. Í ljósi þess hversu langur tími hefur liðið frá því úttektin fór fram samþykktu bæði Rúmenía og Búlgaría í sameiginlegri yfirlýsingu í mars 2022 að bjóða hópi sérfræðinga frá aðildarríkjunum, undir forystu framkvæmdastjórnarinnar, til að skoða stöðuna og nýjustu vendingar hvað varðar innleiðingu á Schengen-regluverkinu. Heimsóknin átti sér stað í október sl. og staðfesti hún að ríkin uppfylli ekki einungis öll skilyrðin heldur hafi þau styrkt verulega alla innviði á þessu sviði. Enn fremur eru þessi tvö ríkin talin til fyrirmyndar þegar kemur að innleiðingu og beitingu Schengen-regluverksins.

Í desember 2021 staðfesti ráðið að Króatía uppfylli allar kröfur til að gerast aðili að Schengen-svæðinu en Schengen-úttekt fór fram á tímabilinu 2016 – 2020. Króatía hefur lagt sig fram við að tryggja að eftirlit á ytri landamærum samræmist kröfum um grundvallarmannréttindi en í júní 2021 setti Króatía á stofn óháð mannréttindaeftirlit með landamæratengdum aðgerðum sem snúa að farandfólki og umsækjendum um vernd.

Framfylgd málsins hefur verið meðal forgangsmála í formennskutíð Tékka í ráðherraráðinu og hyggjast þeir leggja málið fyrir ráðið á fundi dóms- og innanríkisráðherra þann 8. desember nk. Er þá gert ráð fyrir að ráðherrar muni kjósa um fulla aðild þessara ríkja að Schengen-svæðinu. Til undirbúnings þeirrar ákvörðunartöku var framangreind orðsending framkvæmdastjórnarinnar lögð fyrir sendiráðunauta aðildarríkja Schengen þann 15. nóvember sl. Á þeim fundi lýstu Búlgaría, Rúmenía og Króatía því yfir að þau væru tilbúin til að ganga í Schengen-samstarfið að fullu svo fljótt sem 1. janúar nk. Fyrir liggur að tiltekin ríki, Holland, Þýskalands, Danmörk, Svíþjóð og Slóvenía, eru enn með fyrirvara og hafa þau ekki að svo stöddu staðfest að þau muni samþykkja aðild ríkjanna á fundi ráðsins í desember. Málið mun næst koma til umræðu á fundi sendiherra aðildarríkja gagnvart ESB, líklega þann 30. nóvember og svo að lokum í ráðherraráðinu þann 8. desember eins og áður segir.

Tímamótaregluverk ESB á sviði rafrænnar þjónustu

Reglugerð á sviði rafrænnar þjónustu (e. Digital Services Act – DSA) tók gildi í aðildarríkjum ESB hinn 16. nóvember sl. Um er að ræða umfangsmikið regluverk – og raunar hið fyrsta sinnar tegundar á alþjóðavísu – sem varðar alla rafræna þjónustu sem tengir neytendur við vöru, þjónustu eða efni. Meginmarkmið DSA er að vernda neytendur og grundvallarréttindi þeirra á netinu, auka gagnsæi og skýra ábyrgð aðila sem veita þjónustu á netinu og stuðla að samkeppni, nýsköpun og vexti. DSA fjallar fyrst og fremst um milliliði (e. intermediaries) og stafræna vettvanga (e. digital platforms), svo sem hýsingaraðila, vefþjónustur, sölusíður, verslanir með smáforrit, bókunarsíður o.s.frv.

Meðal þess sem reglugerðin snertir eru takmörkuð ábyrgð milliliða og skyldur fyrirtækja vegna ólöglegs efnis, skýrari reglur um hvernig ólöglegt efni er fjarlægt, innri ferlar og kvartanir, aukið gagnsæi m.t.t. notkunar algríms, aukið gagnsæi um veitendur rafrænnar þjónustu og skyldur sem þeir þurfa að uppfylla, hvernig auglýsingum er beint að neytendum, kröfum um skýrleika staðlaðra samningsskilmála o.fl. Skyldurnar sem lagðar eru á fyrirtæki skv. reglugerðinni eru mismunandi eftir eðli starfseminnar og stærð en gert er ráð fyrir sektarheimildum.

Samhliða DSA hefur ESB haft til meðferðar tillögu að reglugerð á sviði rafrænna markaða (Digital Markets Act – DMA) en það snýr einkum að starfsemi stórra og umfangsmikilla aðila sem reka stafræna vettvanga og bjóða þjónustu við önnur fyrirtæki á innri markaðinum. Helsta markmið DMA er að koma í veg fyrir að svokallaðir hliðverðir (e. gatekeepers) viðhafi ósanngjarna viðskiptahætti gagnvart viðskiptaaðilum sínum, bæði fyrirtækjum og neytendum. DMA-reglugerðin tók gildi í ESB 1. nóvember sl.

Reglugerðirnar vegna DSA og DMA er nú til skoðunar hjá EES/EFTA-ríkjunum en þess má geta að bæði mál eru á forgangslista ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2022-2023 um mál í hagsmunagæslu Íslands gagnvart ESB vegna aðildarinnar að EES.

Fæðuöryggi og aðgerðir ESB til að auka framboð og viðunandi verð á áburði til landbúnaðarframleiðslu

Árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu hefur haft alvarleg áhrif á fæðuöryggi m.a. með víðtækum áhrifum á hrávörumarkaði um heim allan með beinum og óbeinum hætti. Þannig hefur stríðið skapað krefjandi aðstæður fyrir framleiðendur áburðar sem voru þegar í erfiðri stöðu í kjölfar kórónuveirufaraldursins. Framleiðsla köfnunarefnisáburðar er til að mynda mjög háð jarðgasi og hefur verðhækkun á gasi leitt til 149% verðhækkunar á áburði síðastliðið ár miðað við september 2021 til september í ár. Hafa bændur brugðist við með því að fresta eða draga úr innkaupum á áburði sem aukið hefur líkur á minni uppskeru á næsta ári með tilheyrandi áhrifum á framboð matvæla sem aftur leiðir til hærra matvælaverðs sem ógnað getur fæðuöryggi viðkvæmra hópa.

Til að sporna gegn framangreindu hefur framkvæmdastjórn ESB gefið út orðsendingu og ráðleggingar til aðildarríkjanna, Evrópuþingsins og ráðherraráðsins, um hvernig megi sem best bregðast við skorti og áhrifum hækkandi áburðarverðs á landbúnaðarframleiðslu og þar með á fæðuöryggi í Evrópu og á heimsvísu. Orðsendingin er sett fram í samhengi við fyrri stefnumótun ESB á þessu sviði til skemmri tíma frá því í mars sl. og landbúnaðarstefnu ESB (Farm to fork). Hvatt er til stuðningsaðgerða sem beinast annars vegar að bændum og áburðarframleiðendum innan ESB og hins vegar að löndum utan ESB, m.a. með aðkomu alþjóðlegra fjármálastofnana.

Á vettvangi ESB er ráðlagt:

Að bændum og áburðarframleiðendum verði tryggður nægur aðgangur að gasi til áburðarframleiðslu.

Að aukin áhersla verði á lífræna framleiðslu og notkun lífræns áburðar.

Að leitað verði leiða til að nota umhverfisvænni orku til áburðarframleiðslu t.d. vetni og ammoníak.

Að aukin áhersla verði á gagnsæi á áburðarmarkaði m.a. með auknum aðgangi að gögnum um framleiðslu, notkun, verð og viðskipti.

Að leiðað verði nýrra viðskiptaaðila við innflutning áburðar, svo sem frá löndum eins og Kanada, Egyptaland og Marokkó en innflutningur þaðan hefur þegar aukist. Í þessu sambandi er bent á að um 60% af öllum áburði sem notaður var í aðildarríkjum ESB fyrir innrás Rússlands í Úkraínu var flutt inn frá Rússlandi og Hvíta-Rússlandi.

Að leitað verði leiða til að minnka áburðarnotkun og hámarka næringargildi jarðvegs með réttu magni áburðar samanber markmið í landbúnaðarstefnu ESB (Farm to fork).

Ráðleggingar á heimsvísu eru af svipuðum meiði:

Að samvinna ríkja á grundvelli framleiðslu, viðskipta og fjölþjóðastefnu verði aukin

Að leita verði leiða til að minnka innflutningsþörf á áburði og bæta áburðarnýtingu og framleiðsluhætti með áherslu á ráðgjöf til bænda.

Auka gagnsæi á heimsmarkaði með áburð m.a. með því að efla alþjóðlegt markaðsupplýsingakerfi í landbúnaði.

Að ESB muni beita sér fyrir auknum fjárstuðningi til landa í gegnum alþjóða fjármálastofnanir s.s. Alþjóða gjaldeyrissjóðinn til að auka sjálfbærar fjárfestingar í landbúnaði.

Að ESB muni auka mannúðaraðstoð sína en hún er þegar komin yfir 900 milljónir evra það sem af er 2022 sem er um 55% meira en í fyrra og tæplega 80% meira en árið 2020.

Tillaga að nýjum losunarstöðlum, Euro 7, fyrir stærri ökutæki

Framkvæmdastjórnin hefur birt tillögu að nýrri reglugerð um losunarstaðal, Euro 7, fyrir stærri ökutæki sem sett eru á markað í ESB. Markmiðið með staðlinum er að draga úr losun kolefnis frá stórum ökutækjum og bæta loftgæði innan sambandsins. Staðlinum er ætlað að stuðla að þessum markmiðum með því að útvíkka próf framleiðenda ökutækja svo þau taki tillit til fleiri akstursskilyrða s.s. styttri ferða. Þá eru sett mörk fyrir losun nítrógens sem var ekki í fyrri stöðlum, sett mörk um losun frá bremsubúnaði, endingartími marka lengdur og settar reglur um endingartíma rafhlaðna í rafbílum.

Tillagan mun ganga til umræðu í Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Skýrslur framkvæmdastjórnar ESB og Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um mat á árangri í loftlagsmálum

Þann 26. október sl. kom út árleg framgangsskýrsla framkvæmdastjórnar ESB um árangur í loftlagsmálum innan ESB.

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) birti síðan sambærilega skýrslu um framgang Íslands og Noregs í átt að loftlagsmarkmiðum. Er þetta í annað skiptið sem slík skýrsla kemur út.

ESA hefur eftirlit með því að Ísland og Noregur standi við skuldbindingar sínar í loftslagsmálum og gegnir jafnframt því hlutverki að samþykkja árlega losunarúthlutun fyrir Ísland og Noreg fyrir árin 2021-2030 í samræmi við reglugerð um sameiginlega ábyrgð (e. Effort Sharing Regulation) og landnotkunarreglugerð (e. LULUCF Regulation) Tilgangur skýrslugerðarinnar er að fylgjast með framgangi Íslands og Noregs og árangri í að ná markmiðum sínum um takmörkun á losun gróðurhúsalofttegunda í starfsemi sem viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (e. EU Emissions Trading System – ETS) tekur ekki til.

Framangreindar Evrópureglugerðir voru teknar upp í EES-samninginn árið 2019 eftir að Ísland og Noregur annars vegar og ESB hins vegar ákváðu að framlengja samstarf á sviði loftslagsmála.

Niðurstöður skýrslu ESA eru að þrátt fyrir að bæði ríkin vinni skipulega að því að innleiða stefnu og ráðstafanir til að ná markmiðum sínum sýni fyrirliggjandi gögn að löndin þurfi bæði að grípa til frekari aðgerða ef ná eigi markmiðum fyrir árið 2030 í þeim geirum sem athugunin tekur til.

Fimm ára afmæli félagslegu réttindastoðar ESB

Í vikunni voru fimm ár liðin frá samþykkt félagslegu réttindastoðar ESB (European Pillar of Social Rights) en réttindastoðin var samþykkt á sérstakri ráðstefnu Evrópuþingsins, ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB sem haldin var í Gautaborg í Svíþjóð árið 2017.

Í réttindastoðinni eru sett fram 20 lykilatriði sem snúa að jöfnum tækifærum og aðgengi að vinnumarkaði, sanngjörnum vinnuaðstæðum og félagslegri vernd. Þessum atriðum er ætlað að vera leiðarljós í að byggja upp sanngjarnari Evrópu án aðgreiningar.

Í tilefni tímamótanna efndi ESB til sérstakrar ráðstefnu þar sem farið var yfir þann árangur sem náðst hefði á grundvelli réttindastoðarinnar auk þess sem verkefni, áskoranir og tækifæri framundan voru rædd.

Fjölmargar gerðir og stefnur hafa verið settar fram á grundvelli réttindastoðarinnar. Meðal þeirra má nefna gerðir sem fjalla um jöfn tækifæri og jafnrétti kynjanna, reglur um öryggi á vinnustöðum og reglur um lágmarkslaun. Sjá nánar í fréttatilkynningu framkvæmdastjórnar ESB sem send var út í tilefni tímamótanna.

Í opnunarávarpi forseta framkvæmdastjórnar ESB, Urslu von der Leyen, lagði hún áherslu á þau grunngildi ESB sem réttindastoðin væri byggð á og að þau þyrftu ávallt að vera í forgrunni. Hún nefndi sérstaklega nokkrar mikilvægar gerðir sem hafa verið lagðar fram á grundvelli þeirra markmiða sem þar koma fram, svo sem tilskipun um viðunandi lágmarkslaun og evrópska umönnunarstefnu (sjá umfjöllun í Vaktinni 9. september sl.) og tiltók að umönnun ætti að vera réttur allra en ekki forréttindi. Þá vék hún að orkuskiptaáætlun ESB og tók dæmi um hvernig unnt er að nýta tæki réttindastoðarinnar til að styðja við hana.

Heimsmeistaramótið í fótbolta í Katar

Heimsmeistaramótið í fótbolta hefst í Katar á sunnudaginn með setningarathöfn. Verður mótið sett í skugga meintra alvarlegra brota á réttindum farandverkamanna sem starfað hafa við undirbúning og uppbyggingu mannvirkja fyrir mótið en talið er að gríðarlegur fjöldi verkamanna hafi látið lífið við framkvæmdirnar vegna bágra aðstæðna og vanbúnaðar í öryggismálum. Málið var tekið fyrir á sérstökum fundi í nefnd Evrópuþingsins um mannréttindamál síðastliðin mánudag, þar sem atvinnumálaráðherra Katar, Al Bin Samikh Al Marri, sat fyrir svörum en horfa má á upptöku af fundinum hér.

Stefnumótun ESB um skipulag og notkun gagnasafna fyrir skilvirkari samgöngukerfi

Framkvæmdastjórn ESB vinnur nú að stefnumörkun um skilvirkari notkun upplýsinga og gagna við skipulagningu samgangna (e. Common European mobility data space). Tilgangur vinnunnar er að leggja grunn að greiðari aðgangi að gögnum, aukinni söfnun gagna og miðlun þeirra frá núverandi samgöngugagnabrunnum og þeim sem til verður stofnað í framtíðinni. Stefnt er að því að vinnan styðji við markmið sambandsins um sjálfbærar samgöngur og samþættingu samgöngumáta (e. multimodality). Væntanleg stefnumótun munu taka mið af þverfaglegri löggjöf sambandsins s.s. reglum meðferð upplýsinga og gagna.

Áformaskjal um stefnumótunarvinnuna hefur verið birt í samráðsgátt ESB og er frestur til að skila inn umsögnum til 7. desember.

EES-ráðið fundar í Brussel í næstu viku

EES-ráðið (EEA Council) kemur saman til fundar í Brussel í næstu viku, 23. nóvember. Ráðið er æðsta stofnunin í sameiginlegu stofnanakerfi EES/EFTA-ríkjanna og ESB sem sett var á fót með samningnum um Evrópska efnahagssvæðið (EES). Ráðið er skipað utanríkisráðherrum Íslands, Noregs og Liechtenstein og fulltrúum ráðherraráðs ESB og framkvæmdastjórnar ESB og hefur það meginhlutverk að vera formlegur pólitískur samráðsvettvangur um rekstur EES-samningsins. Ísland fer nú með formennsku í fastanefnd EFTA og mun utanríkisráðherra Íslands, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, stýra ráðsfundinum, sem fer nú í fyrsta skipti fram í hinu nýja húsi EFTA í Brussel.

Í tengslum við ráðsfundinn munu utanríkisráðherrarnir EES/EFTA-ríkjanna þriggja funda með þingmannanefnd EFTA (e. EFTA Parliamentary Committee) og ráðgjafarnefnd EFTA (e. EFTA Consultative Committee).

Brussel-vaktin, fréttabréf fastanefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

04. nóvember 2022 | Loftslagsváin, náttúruvernd og mengunarvarnir - orkuskipti |
Að þessu sinni er fjallað um:

samningsmarkmið Evrópusambandsins (ESB) á loftlagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna – COP 27

samningsmarkmið ESB á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni – COP 15

samkomulag um kolefnishlutleysi bílaflotans

tillögur framkvæmdastjórnar ESB um strangari reglur um mengunarvarnir, um loftgæði, hreinleika yfirborðs- og grunnvatns og meðferð og hreinsun skólps frá þéttbýli

orkukreppuna og framhald umræðna um ráðstafanir í orkumálum

fimmtu skýrslu framkvæmdastjórnar ESB til Evrópuþingsins og ráðsins um peningaþvættismál

mögulega aðild Búlgaríu og Rúmeníu að Schengen-samstarfinu

innri markað ESB í 30 ár

jafnréttisviku í Evrópuþinginu

undirbúning innleiðingar reglna um neyðar- og viðbragðsstjórnun á sviði heilbrigðismála þvert á landamæri

tillögur íslenskra stjórnvalda um rafræna fylgiseðla lyfja

heimsókn ráðgjafarnefndar jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til sendiráðsins

Samningsafstaða Evrópusambandsins (ESB) á loftlagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (SÞ) – COP 27

Hinn 6. nóvember nk. hefst tveggja vikna loftslagsráðstefna SÞ, COP 27, í Egyptalandi. Ríki heims koma þar saman til að leggja á ráðin um stöðu loftslagsmála og stilla saman strengi í baráttunni við loftslagsvána.

Samningsafstaða ESB fyrir ráðstefnunni var samþykkt á fundi umhverfisráðherra ESB þann 24. október sl. en á þeim fundi var jafnframt samþykkt samningsafstaða fyrri ráðstefnu SÞ um líffræðilega fjölbreytni (COP 15), sbr. sérstaka umfjöllun um þann viðburð hér á eftir. Loftslag, náttúra og líffræðileg fjölbreytni er vitaskuld nátengd. Vernd náttúru og líffræðilegs fjölbreytileika er afar mikilvægur þáttur í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Hafið, jarðvegurinn og skógarnir eru stærstu viðtakar heims fyrir upptöku og bindingu kolefnis, en geta því aðeins sinnt þessu hlutverki þegar viðtakinn er „heilbrigður“. Á hinn bóginn geta loftslagsbreytingar valdið mjög alvarlegum skaða á náttúrulegum vistkerfum. Málefni ráðstefnanna tveggja eru því nátengd.

Markmið ESB er að vera í farabroddi þegar kemur að loftlagsaðgerðum. Að mati ESB er brýnt að grípa til allra nauðsynlegra aðgerða til að ná fram áherslum Parísarsamkomulagsins og markmiðinu um að halda hlýnun jarðar innan við 1,5 °C. Af hálfu ESB er lögð áhersla á að aðgerðir fylgi markmiðum og þurfa þær m.a. að vera alþjóðlegar og samræmdar til að árangur náist fyrir komandi kynslóðir. ESB muni halda áfram að beita sér af miklum metnaði með breytingum á umhverfislöggjöf ESB og við endurheimt náttúrunnar á heimavelli sem og í samskiptum við aðrar þjóðir um allan heim.

ESB leggur áherslu á að tryggja réttlát umskipti við framkvæmd loftlagsaðgerða og að stefnt skuli í átt að sjálfbærum loftslagsþolnum hagkerfum og samfélögum þar sem tillit er tekið til allra hlutaðeigandi.

Að mati ESB þarf að gera mun betur ef takast á að ná 1,5°C markmiðinu í samræmi við Parísarsamkomulagið. Ráðherraráð ESB skorar á öll ríki að setja fram metnaðarfull markmið og stefnu, einkum helstu hagkerfi heims, m.a. með því að endurskoða og styrkja landsbundin framlög sín (NDCs - Nationally determined contributions). Ráðið ítrekaði skuldbindingu ESB og aðildarríkja þess um að halda áfram að auka alþjóðlega loftslagsfjármögnun sína og skorar á önnur ríki að gera það sama í því skyni að styðja við loftslagsaðgerðir og loftslagsmál almennt.

ESB mun á ráðstefnunni leggja áherslu á það sem unnið hefur verið að á vettvangi sambandsins að undanförnu, m.a. á áætlun um mótvægisaðgerðir og að endir verði bundinn á óhagkvæmar niðurgreiðslur á jarðefnaeldsneyti, að dregið verði úr notkun kola í áföngum og losun metans og að áætlanir í þeim efnum verði samræmdar markmiðinu um 1,5°C hámarkshækkun samkvæmt Parísarsamkomulaginu. ESB vinnur nú þegar að kappi að því að innleiða skuldbindingar sínar samkvæmt loftlagssamningum með breytingum á evrópskri umhverfislöggjöf og er reiðubúið til að auka enn frekar landsbundið framlag sitt (NDC), ef við á, í samræmi við niðurstöður yfirstandandi samningaviðræðna á grundvelli áætlunar ESB sem nefnd er „Fit for 55“ og er ætlað að styðja við markmið sambandsins um að lágmarki 55% nettó samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2030 miðað við árið 1990 og leggja þannig grunninn að markmiði ESB um kolefnishlutleysi árið 2050. Í þessu samhengi mun ESB kynna samkomulag sem náðst hefur innan ESB um kolefnishlutleysi bílaflotans í Evrópu fyrir árið 2035, en nánar er fjallað um það samkomulag hér neðar í Vaktinni. Þá vonast ESB til þess að hægt verði að tilkynna um samkomulag um tvær meiriháttar loftslagsaðgerðir til viðbótar. Annars vegar um aukna bindingu kolefnis og hins vegar um bindandi landsmarkmið um samdrátt í losun.

Hvað aðlögun að loftslagsbreytingum varðar er ESB tilbúið til að flýta fyrir aðgerðum, bæði heima fyrir í Evrópu sem og um heim allan. ESB mun leggja áherslu á að finna árangursríkar lausnir til að mæta þörfum sem viðkvæm ríki um allan heim standa frammi fyrir.

ESB leggur áherslu á mikilvægi aukinnar aðlögunargetu og -hæfni vegna loftlagsbreytinga á sama tíma og brýnt er að draga úr losun.

Sem stærsti fjármögnunaraðili loftlagsaðgerða í heiminum og ábyrgðaraðili fyrir mikilvægum þáttum í alþjóðlegri viðleitni til að takast á við loftslagsvána mun ESB hvetja aðra fjarmögnunaraðila og styrkveitendur til að auka eigin framlög með það að markmiði að tvöfalda aðlögunarfjármögnun fyrir árið 2025 miðað við árið 2019.

Orkumál eru, eins og ítarlega hefur verið fjallað um í Brussel-vaktinni að undanförnu, ofarlega á baugi í Evrópu og í heiminum öllum. Loftslagsmál og orkumál eru náskyld viðfangsefni og ljóst að umræður um orkumál verða einnig í brennidepli á ráðstefnunni.

Ísland er aðili að loftlagssamningi SÞ og mun sendinefnd Íslands sækja ráðstefnuna.

Samningsafstaða ESB á ráðstefnu SÞ um líffræðilega fjölbreytni – COP 15

Hinn 7. desember nk. hefst tveggja vikna ráðstefna SÞ um líffræðilega fjölbreytni, COP 15, í Kanada. Vonir standa til að um tímamótaráðstefnu verði að ræða þar sem stefnt er að því að að samþykkja alþjóðlegan ramma fyrir líffræðilegra fjölbreytni og setja fram markmið til leiðbeiningar um hnattrænar aðgerðir til verndar og endurheimt náttúru næsta áratug. Leiðtogar heimsins stefna að því að koma sér saman um hnattræna verndaráætlun líffræðilegs fjölbreytileika og að undirstrikað verði að það sé sameiginleg skylda mannkyns að vernda vistkerfi heimsins.

Á framangreindum fundi umhverfisráðherra ESB 24. október sl. var samningsafstaða ESB fyrir ráðstefnuna samþykkt. Ráðherraráðið hvetur í afstöðu sinni til samþykktar metnaðarfulls, alhliða og umbreytandi rammaáætlunar til verndar líffræðilegum fjölbreytileika á heimsvísu eftir 2020 sem jafnframt feli í sér langtímamarkmið til ársins 2050, sem og aðgerðamiðað plan til ársins 2030 sem muni taka á beinum og óbeinum orsökum hnignunar líffræðilegs fjölbreytileika.

Í markmiðasetningu til ársins 2030 leggur ESB m.a. áherslu á eftirfarandi:

að friða, eða varðveita í reynd, að minnsta kosti 30% af landsvæði jarðar annars vegar og hafsvæði hins vegar,

að endurheimta rýrt land og ferskvatnsvistkerfi og vistkerfi í hafinu,

að stöðva ólögmæta og ósjálfbæra matvælauppskeru og viðskipti eða hagnýtingu villtra tegunda,

stöðva hagnýtingu tegunda í útrýmingarhættu,

að stuðla að nýtingu vistvænna lausna,

að draga úr hverskyns mengunarhættu,

að innleiða sjálfbæra nýtingu líffræðilegs fjölbreytileika,

að endurskoða notkun lands og sjávar ef hún hefur neikvæð áhrif á líffræðilegan fjölbreytileika.

Ísland er aðili að samningi SÞ um líffræðilega fjölbreytni og mun sendinefnd Íslands sækja ráðstefnuna.

Samkomulag um kolefnishlutleysi bílaflotans

Evrópuþingið og ráðherraráð ESB náðu á fundi sínum 27. október sl. samkomulagi um efni löggjafartillagna um kolefnishlutleysi bílaflotans í Evrópu. Samkomulagið felur í sér að bannað verði að nýskrá bensín- og dísiknúna bíla frá og með árinu 2035 og þurfa bílaframleiðendur því að ná 100% samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda frá bifreiðum sem þeir framleiða fyrir Evrópumarkað innan þessara tímamarka. Þá verða auknar kröfur einnig gerðar til losunar bíla sem nýta jarðefnaeldsneyti og koma nýjir inn á Evrópumarkað frá og með 2030, þ.e.a.s. krafa verður gerð um að nýjir fólksbílar losi 55 prósent minna af CO₂ en árið 2021 og að sendibílar verði helmingi sparneytnari.Um er að ræða löggjöf sem varðar endurskoðun á stöðlum um losun á CO₂ frá fólks- og sendibifreiðum (e. Stricter CO₂ performance standards for cars & vans). Á meðan málið var í vinnslu sendu EES EFTA-ríkin sameiginlega umsögn til ESB þar sem tekið er heils hugar undir áform framkvæmdastjórnarinnar hvað varðar markmið ESB um kolefnishlutleysi bílaflotans fyrir árið 2035 (e. EU fleet-wide target equal to 100% reduction of CO2 emissions) þó þannig að stefna ætti að því að ná markmiðinu fimm árum fyrr, sem endurspeglar mikinn metnað EES EFTA-ríkjanna á þessu sviði.

Eins og áður segir er stefnt að því að árið 2035 verði hætt að nýskrá bifreiðar sem brenna jarðefnaeldsneyti. Þetta er í samræmi við stefnumörkun framkvæmdastjórnar ESB um sjálfbærar og snjallar samgöngur (e. Sustainable and Smart Mobility). Þar er sett fram áætlun um umbreytingu evrópskra samgangna svo ná megi grænum markmiðum á þessu sviði. Aðgerðum áætlunarinnar er ætlað að draga úr losun frá samgöngum um 90% fyrir árið 2050 og skila snjöllu, samkeppnishæfu, öruggu, aðgengilegu og hagkvæmu samgöngukerfi. Helstu aðgerðum áætlunarinnar er ætlað að styðja við orkuskipti samgöngutækja, þ.e. bíla, flugvéla og skipa til dæmis með því að tryggja nýorkustöðvar á vegum og öðrum samgönguinnviðum svo sem á flugvöllum og í höfnum. Lagt er til að styrkja samkeppnishæfni umhverfisvænni orkugjafa til dæmis með því að verðleggja kolefni í orkugjöfum. Í lok 2020 sendu EES EFTA-ríkin sameiginlegt álit þar sem tekið var undir afstöðu framkvæmdastjórnar varðandi stefnumörkun um sjálfbærar og snjallar samgöngur.

Framkvæmdastjórn ESB fagnar samkomulaginu sem náðst hefur um þessar auknu kröfur. Löggjöfin er liður í áætlun ESB um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda sem valda loftslagsbreytingum á jörðinni um 55 prósent fyrir lok áratugarins miðað við losun árið 1990 og hún er fyrsta formlega „Fit for 55“ löggjöfin sem endanlegt samkomulag næst um. Þannig markar samkomulagið fyrsta skrefið í framkvæmd „Fit for 55“ áætlunar ESB og fela í sér skýr skilaboð ESB inn á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP 27, í Egyptalandi í næstu viku, sem fjallað er um hér í Vaktinni að framan.

Auk þess sendir samkomulagið sterk skilaboð til bílaiðnaðarins og neytenda um að hægt sé að breyta samgönguvenjum og ferðast án þess að losa CO₂, enda hafa evrópskir bílaframleiðendur nú þegar sannað að þeir séu tilbúnir til að koma fram með nýjungar á þessu sviði, t.d. með auknum og sífellt hagkvæmari rafbílum sem koma á markaðinn. Hraðinn á þessum breytingum undanfarin ár er mikill og neytendur hafa tekið breytingunum fagnandi, er haft eftir Frans Timmermans sem fer fyrir Græna sáttmálanum innan framkvæmdarstjórnar ESB. Hann bendir á að þess skýru skilaboð til framleiðenda og almennings muni flýta fyrir framleiðslu og sölu á ökutækjum með litla og enga losun og setja vegasamgöngur á braut til loftslagshlutleysis fyrir árið 2050. Þessi nýja löggjöf mun því gera samgöngukerfi ESB sjálfbærara, tryggja hreinna loft í Evrópu og marka mikilvægt skref í þá átt að framfylgja Græna sáttmálanum í Evrópu. Þetta sýni glögglega að skuldbindingar ESB til að ná loftslagsmarkmiðum sínum og að árásarstríð Rússlands í Úkraínu hægi ekki á umskiptum yfir í hreina orku heldur flýtir frekar fyrir þeirri vinnu og gerir Evrópu kleift að verða fyrsta loftslagshlutlausa heimsálfan fyrir árið 2050.

Athygli hefur vakið aðeins viku eftir að framangreint samkomulag tókst lét Thierry Breton sem fer með málefni innri markaðarins í framkvæmdastjórninni í ljós ákveðnar efasemdir um að raunhæft sé að það ná framangreindum markmiðum á þeim tíma sem að er stefnt. Gæta þurfi að störfum í bílaiðnaði Evrópu og að umskiptin krefjist margfalt meira magns af ýmsum hráefnum (e. raw materials) til batterísframleiðslu en markaðurinn hafi áður haft þörf fyrir. Jafnframt sé mikilvægt að bílaflotinn hafi aðgang að grænu rafmagni, annars sé til lítils unnið.

Tillögur framkvæmdastjórnar ESB að strangari reglum um mengunarvarnir, um loftgæði, hreinleika yfirborðs- og grunnvatns og meðferð og hreinsun skólps frá þéttbýli

Þann 26. október sl. lagði framkvæmdastjórn ESB fram margþættar tillögur um strangari mengunarvarnir, um loftgæði, hreinleika yfirborðs- og grunnvatns og meðferð og hreinsun skólps frá þéttbýli

Betri loftgæði árið 2030 og markmið um núllmengun árið 2050

Heilsufarsleg áhrif loftmengunar eru mikil og telur Umhverfisstofnun Evrópu að rekja megi allt að 300.000 ótímabær dauðsföll árlega í Evrópu til lélegra loftgæða, fyrst og fremst af völdum fíngerðs svifryks. Strangari reglur eiga að stuðla að því að draga úr dauðsföllum af völdum svifryks (PM2,5) umfram viðmiðunarreglur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar eða um meira en 75% á næstu tíu árum. Loftmengun er mesta umhverfisógnin við heilsu og orsakavaldur ýmissa langvinnra sjúkdóma eins og heilablóðfalls, krabbameins og sykursýki. Slæm loftgæði hafa áhrif á alla en sérstaklega mikil neikvæð áhrif á viðkvæma þjóðfélagshópa. Þá skaðar mengað loft umhverfið, veldur súrnun, ofauðgun og skemmdum á skógum, vistkerfum og ræktuðum svæðum.

Fyrirhuguð endurskoðun á tilskipunum um loftgæði mun setja bráðabirgðamörk fyrir loftgæði fyrir árið 2030 í samræmi við ákvæði Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um leið og stefnt er að því að ná „núllmengun“ í andrúmslofti eigi síðar en árið 2050 og helst það markmið í hendur við markmiðið um kolefnishlutleysi það ár. Í þessu skyni leggur ESB til að reglulega endurskoðun á umhverfismörkum og er lagt til að árleg viðmiðunarmörk fyrir fínt svifryk (PM2,5) verði lækkað um meira en helming.

Varnir gegn mengun yfirborðs- og grunnvatns

Framkvæmdastjórn ESB leggur til endurskoðun á lista yfir efni sem geta mengað yfirborðs- og grunnvatn og að eftirlit verði hert. Ákvörðunin er byggð á uppfærðum vísindalegum gögnum. Á listann munu bætast við 25 ný efni sem sannað er að hafi neikvæð áhrif á umhverfi og heilsu auk þess sem viðmið fyrir 16 mengunarefni sem þegar falla undir löggjöfina verði uppfærð og hert, þ. á m. viðmið vegna þungmálma.

Í tillögunum er í auknum mæli tekið tillit til svonefndra „kokteiláhrifa“ þegar ólík efni blandast saman með auknum skaðlegum áhrifum.

Fráveita - Bætt og hagkvæmari hreinsun skólps

Lagt er til að tilskipun, sem er frá árinu 1991, um hreinsun skólps frá þéttbýli verði endurskoðuð

Aukin áhersla verður á nýtingu skólps sem auðlind og er stefnt að orkuhlutleysi fráveitna fyrir árið 2040 og að gæði seyru verði bætt til að styrkja hringrásarhagkerfið.

Þá verða kvaðir um endurheimt næringarefna úr skólpi, ný ákvæði um örmengun og nýjar kröfur um vöktun á örplasti endurskoðuð.

Skylda til hreinsunar á skólpi mun ná til smærri þéttbýlisstaða eða til fráveitu með 1.000 persónueiningar (pe.) í stað 2.000 samkvæmt gildandi tilskipun. Ákvæði verður um að stjórn vatnamála taki á samþættum áætlunum í stærri borgum til að hægt sé að ráða við miklar rigningar sem verða tíðari vegna loftslagsbreytinga. Að lokum, að fenginni reynslu eftir kórónuveirufaraldurinn leggur framkvæmdastjórnin til að kerfisbundið verði fylgst með tilteknum vírusum í skólpi, þ. á m. CoV-SARS-19.

Um 92% örmengunar sem finnast í skólpi í Evrópu er frá lyfjum og snyrtivörum og gera tillögurnar ráð fyrir aukinni ábyrgð framleiðanda, í samræmi við mengunarbótaregluna, þ.e. að framleiðendur greiði kostnaðinn við að fjarlægja þessi mengunarefni úr skólpi.

Tillögur framkvæmastjórnarinnar munu nú ganga til umfjöllunar í Evrópuþinginu og hjá ráðherraráðinu og í kjölfar samþykktar þeirra er gert ráð fyrir að þær komi til framkvæmda í áföngum til að gefa stjórnvöldum og atvinnustarfsemi tíma til að aðlagast reglunum og fjárfesta í nýjum innviðum þar sem þörf er á.

Orkukreppan og framhald umræðna um ráðstafanir í orkumálum

Eins og rakið var í Vaktinni 21. október sl. er nú unnið að frekari aðgerðum til að bregðast við orkukreppunni sem nú skekur Evrópu í kjölfar árásarstríðs Rússlands gagnvart Úkraínu. Fyrir liggja tillögur framkvæmdastjórnar ESB sem kynntar voru 18. október sl. í framhaldi af óformlegum fundi orkumálaráðherra ESB sem og afstaða og áherslur leiðtogaráðs ESB sem birtar voru í kjölfar fundar leiðtoganna 21. október sl. Orkumálaráðherrar ESB komu síðan saman á ný til fundar um þessi málefni 25. október sl. og vinnur framkvæmdastjórnin nú að því að móta tillögurnar frekar með hliðsjón af þeirri umræðu og áherslum leiðtoganna. Áætlað er að orkumálaráðherrar ESB komi næst saman á vettvangi ráðsins þann 24. nóvember nk. og er gert ráð fyrir að þá verði reynt að ná niðurstöðu um nýja reglugerð ráðsins er miði m.a. að því að auka samstöðu með betri samræmingu á gaskaupum, gasskiptum yfir landamæri og áreiðanlegri verðviðmiðunum á gasi og aðgerðum til að draga úr áhrifum jarðgasverðs á raforkureikninga heimila og fyrirtækja. Fréttir af ályktun fundar utanríkismálaráðherra G7-ríkjanna um verðþak á olíu frá Rússlandi munu án efa einnig hafa áhrif á umræðu um þessi mál á vettvangi ESB.

Á fundi orkumálaráðherranna 25. október náðust einnig mikilvægir áfangar er lúta að orkumálum til lengri tíma. Bar þar hæst samkomulag innan ráðsins um afstöðu til fyrirliggjandi tillagna framkvæmdastjórnarinnar um nýjar kröfur um orkunýtni bygginga. Samkomulagið felur í sér að allar nýjar byggingar verði mengunarlausar (e. zero-pollution) árið 2030 og að núverandi byggingum verði breytt á þann hátt að þær verði kolefnishlutlausar í rekstri (e. zero-emission) byggingar fyrir 2050. Breyttar reglur á þessu sviði eru hluti af aðgerðapakkanaum „Fit for 55“ og eru sérlega mikilvægar í því sambandi þar sem byggingar standa fyrir 40% af orkunotkun og 36% af orkutengdri beinni og óbeinni losun gróðurhúsalofttegunda í ESB. Ráðið mun nú ganga til viðræða við Evrópuþingið um endanlega útfærslu tilskipunarinnar. Í þessu samhengi má geta þess að Ísland fékk á sínum tíma varanlega undanþágu frá gildandi tilskipun um orkunýtni bygginga á þeim grundvelli að nánast öll orkunotkun í íslenskum byggingum kemur frá endurnýjanlegum orkugjöfum. Gætt verður að stöðu Íslands í þessu samhengi er kemur að upptöku nýrrar gerðar um þetta efni í EES-samninginn.

Þá fór fram stefnumótandi umræða á fundi orkumálaráðherranna um svonefndan gaspakka sem einnig er hluti af aðgerðapakkanum „Fit for 55“ og felur í sér tillögur að sameiginlegum reglum innri markaðarins fyrir endurnýjanlega orku, jarðgas og vetni og miða að því að gera ESB kleift að ná fram kolefnishlutleysi árið 2050.

Varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Eitt af forgangsverkefnum ESB undanfarin ár hefur verið að setja öflugan lagaramma í baráttunni gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Nýverið gaf framkvæmdastjórnin út skýrslu um áhættumat á þessu sviði og áhrif þess á innri markaðinn og milliríkjaviðskipti.

Árið 2021 var kynntur endurskoðaður lagarammi sem innihélt markmið framkvæmdastjórnar ESB til að vernda borgara sambandsins og fjármálamarkaðinn frá peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Markmiðið er að endurbæta gildandi aðferðir við að koma auga á tortryggilegar viðskiptafærslur og starfsemi í því skyni að loka glufum (e. loopholes) sem afbrotamenn nýta sér til að þvo illafengnar tekjur eins og af hryðjuverkastarfsemi á fjármálamarkaði. Þetta er meginviðfangsefnið tillagnanna þar sem núgildandi lagareglur hafa ekki reynst fullnægjandi til að taka á því vandamáli.

Þá liggur fyrir að Covid-19 krísan hefur leitt af sér ýmsar nýjar leiðir og kringumstæður sem aukið hafa hættuna á peningaþvætti í margskonar viðskiptum. Sem dæmi má nefna:

styrkveitingar til að draga úr áhrifum krísunnar,

yfirtöku misyndismanna og jafnvel glæpasamtaka á löskuðum fyrirtækjum,

aukin tækifæri fyrir glæpahópa til að afla tekna með sölu ólöglegra lyfja og bóluefna,

aukna notkun á illa fengnum skilríkjum þeirra sem stunda netverslun.

Ört vaxandi tækni hefur líka kallað á nýjar reglur um notkun ýmissa eftirlitsaðferða og upplýsingaöflunar. Ný rannsóknartæki og -aðferðir eru líka komin til sögunnar sem takmarka að einhverju leyti áhrif af gildandi reglum stjórnvalda um eftirlit og rannsóknir.

Samkvæmt nýlegri rannsókn eru næstum 31 þúsund fyrirtæki í Evrópu (þ.á.m. fasteignaumsýsla, byggingafyrirtæki, hótel, fjármálafyrirtæki og orkufyrirtæki) sem eru skráð í rússneskri eigu. Þar af eru 1.400 í eigu 33 einstaklinga (eiga a.m.k 5%) sem hafa orðið fyrir nýlegum refsiaðgerðum vegna árásarstríðs Rússlands gagnvart Úkraínu, þ.e. hinir svokölluðu ólígarkar. Sumir þeirra hafa séð við þessu með því að flytja eignarhaldið út fyrir ESB. Þetta veldur því að mjög erfitt verður að finna þær eignir sem olígarkarnir eiga enda oft faldar á bak við flókið mynstur fyrirtækja sem dreifast yfir mismunandi svæði, oft til hinna svokölluðu skattaparadísa. Sú staða gerir þeim stjórnvöldum sem vilja framfylgja nauðsynlegum refsiaðgerðum mjög erfitt fyrir. Það skapar þrýsting á að þær breytingar sem nú liggja fyrir, m.a. varðandi nauðsynlegar upplýsingar um eignarhaldið, (e. beneficial ownership) verði afgreiddar sem fyrst.

Sú tilskipun sem nú er í gildi um peningaþvætti er sú fimmta í röðinni (e. 5th Anti-Money Laundering Directive) og átti hún að koma til framkvæmda eigi síðar en í janúar 2020. Þessi tilskipun er þegar hluti af EES samningnum. Þar er að finna fjölda aðgerða og verkfæra sem eftirlitsaðilar geta nýtt sér. Betur má hins vegar ef duga skal og þess vegna er sjötta tilskipunin komin fram. Í skýrslunni sem nefnd var hér í upphafi má finna nánari greiningu á þeim breytingartillögum sem er að finna í tillögu að sjöttu tilskipuninni. Hér er látið nægja að nefna einungis eina tillögu að breytingu sem varðar misnotkun á millifærslum eða eignum eins og í tilviki rafmynta eða rafeigna (e. crypto currencies, crypto assets). Lagt er til að listi yfir eftirlitsskylda fjármálaþjónustu nái einnig til þjónustuaðila rafeigna þannig að sama gildi í öllum aðildarríkjum ESB.

Möguleg aðild Búlgaríu og Rúmeníu að Schengen-samstarfinu

Meginatriði Schengen-samstarfsins er afnám persónubundins eftirlits á innri landamærum Schengen-landanna og samvinnu evrópskra lögregluliða innan svæðisins. Markmiðið er að tryggja öryggi og greiða fyrir frjálsri för fólks innan svæðisins sem er ein af fjórum frelsisstoðum innri markaðar ESB sem Ísland á aðild að í gegnum EES-samninginn.

Schengen-samstarfsríkin eru nú 26 að tölu með um 420 milljón ríkisborgara innan sinna vébanda. Auk 22 ríkja innan ESB eiga EFTA ríkin Ísland, Liechtenstein, Noregur og Sviss aðild að samstarfinu. Enda þótt aðild að ESB leggi í raun almenna lagalega skyldu á ríki til þátttöku í samstarfinu, að uppfylltum skilyrðum, þá standa fimm ríki ESB sem stendur utan samstarfsins, þ.e. Búlgaría, Rúmenía, Króatía, Kýpur og Írland. Írland nýtur sérstöðu í þessum hópi þar sem það ber ekki, samkvæmt sérstöku samkomulagi, lagalega skyldu til aðildar að samstarfinu. Aðild Kýpur hefur ekki komist til framkvæmda og hefur í raun verið frestað um óákveðin tíma vegna flókinna landamæraaðstæðna gagnvart Tyrkneska hluta eyjarinnar. Króatía lýsti því yfir árið 2015, tveimur árum eftir að það hlaut aðild að ESB, að landið væri tilbúið til aðildar og voru niðurstöður úttektar sem birtar voru í fyrra á þann veg að ríkið uppfyllti skilyrði til aðildar.

Búlgaría og Rúmenía sem bæði urðu aðilar að ESB í byrjun árs 2007 hafa nú um langt skeið sýnt því mikinn áhuga að gerast fullgildur aðili að Schengen-samstarfinu og í þeirri viðleitni undirgengust bæði ríkin t.d. hefðbundna Schengen-úttekt, sem aðildarríkjum Schengen er gert að sæta á fimm ára fresti, til að kanna hvort þau uppfylltu skilyrði og þær kröfur sem gerðar eru til aðildarríkja Schengen-samstarfsins.. Aðild að Schengen samstarfinu gerir m.a. þær kröfur sem gerðar eru svo sem um regluverk á sviði landamæramála, upplýsingaskipta og lögreglusamvinnu.

Niðurstaða úttekta árið 2011 leiddi í ljós að bæði Búlgaría og Rúmenía töldust uppfylla skilyrði til aðildar að Schengen-samstarfinu. Í kjölfarið voru gefin út drög að ákvörðun ráðherraráðs ESB um fulla aðild ríkjanna auk þess sem Evrópuþingið lýsti jákvæðri afstöðu til inngöngu ríkjanna tveggja. Þrátt fyrir framangreint hefur ekki enn náðst samstaða í ráðherraráðinu um aðild ríkjanna að samstarfinu en einróma samþykki allra aðildarríkja þarf til. Lengi vel voru það Frakkland, Þýskaland, Finnland, Svíþjóð, Holland og Belgía sem hindruðu aðild Rúmeníu og Búlgaríu m.a. með vísan til skorts á aðgerðum gegn spillingu, skipulagðri glæpastarfsemi sem og skorti á umbótum á dómskerfinu. Þá hefur verið kallað eftir því ríkin tvö sæti nýrri formlegri úttekt enda langt um liðið frá framangreindri úttekt. Búlgaría og Rúmenía töldu hins vegar lengi vel ekki þörf á nýrri úttekt. Til tíðinda dró hins vegar í mars á þessu ári þegar ríkin buðust til þess að undirgangast valfrjálsa úttekt (e. voluntary based factfinding mission) sem gerði framkvæmdarstjórn ESB og aðildarríkjum kleift að senda fulltrúa sína til Búlgaríu og Rúmeníu til að kanna núverandi stöðu á innleiðingu Schengen-regluverksins.

Skýrslan sem unnin var í kjölfar úttektarinnar er afar umfangsmikil og var niðurstaða hennar kynnt innan vinnuhóps ráðherraráðsins um Schengen málefni (e. Schengen Matters WP) þann 26. október sl. Í stuttu máli er það niðurstaða framkvæmdarstjórnar ESB og úttektarteymisins að ríkin uppfylli enn skilyrði fyrir inngöngu í Schengen-samstarfið og að ekkert sé því til fyrirstöðu að ríkjunum verði veitt aðild.

Evrópuþingið hefur einnig haft aðildarumsóknir Búlgaríu og Rúmenínu til umfjöllunnar að undanförnu og þann 18. október síðastliðin samþykki þingið ályktun með yfirgnæfandi meiri hluta atkvæða þar sem ítrekaðar voru fyrri áskoranir þingsins til aðildarríkjanna og ráðherraráðs ESB um að fallast á umsóknir ríkjanna tveggja og skorar þingið nú á ráðið að afgreiða málið fyrir árslok 2022.

Tékkland sem nú fer með formennsku í ráðherraráði ESB hefur lagt áherslu á framgang aðildarumsókna ríkjanna tveggja og er búist við því að það muni eftir fremsta megni reyna að beita áhrifum sínum sem formmennskuríkis til ná fram einróma samþykki aðildarríkjanna um inngöngu þeirra í Schengen-samstarfið er dóms- og innanríkisráðherrar ESB koma saman til fundar á vettvangi ráðherraráðsins þann 4. desember nk.

Innri markaður ESB í 30 ár

Um næstu áramót verða liðin 30 ár frá því að innri markaður ESB (e. Single Market) eins og við þekkjum hann í dag í grófum dráttum, með sterku sameiginlegu stofnana- og endurbættu reglusetningarkerfi, komst til framkvæmda með gildistöku sáttmálans um innri markað EB (e. Single European Act) sem fól í sér fyrstu meiri háttar endurskoðun sáttmála EB frá Rómarsáttmálanum 1957. Aðdragandi sáttmálans var langur en samningurinn var endanlega fullgildur af öllum þáverandi aðildarríkjum í júní 1987 og varð skuldbindandi 1. júlí sama ár og voru árin þar á eftir til lok árs 1992 nýtt til að undirbúa gildistöku og framkvæmd samningsins.

Samhliða sífellt auknum efnahagssamruna aðildarríkja EB, samanber einnig aðdraganda og undirritun Maastricht sáttmálans í febrúar 1992, varð spurningin um nauðsyn nánara samstarfs EFTA-ríkjanna við EB, ef þau ætluðu sér að halda samkeppnisstöðu sinni, sífellt áleitnari. Fór svo að viðræður EFTA, með fullri þátttöku Íslands, og EB um nánara samstarf hófust árið 1989 og lauk þeim með samningi sem undirritaður var í Óportó í Portúgal 2. maí 1992 og við þekkjum sem EES-samninginn. Sameiginlegur innri markaður ESB og EES-EFTA ríkjanna er þungamiðja EES-samningsins og var það markmið samningsaðila við undirritun að samningurinn tæki gildi um leið og framangreindur sáttmáli EB um innri markaðinn, þ.e. 1. janúar 1993. Ýmislegt varð þó til þess að þetta markmið náðist ekki og frestaðist gildistaka EES-samningsins um eitt ár eða til 1. janúar 1994. Ekki tókst heldur að afgreiða frumvarp til laga um Evrópska efnahagsvæðið á Alþingi fyrir árslok 1992 eins og stefnt hafði verið að heldur frestaðist endanleg afgreiðsla málsins til 12. janúar 1993 og voru lögin staðfest af forseta Íslands degi síðar, 13. janúar, og tók fyrsta grein laganna, er heimilaði fullgildingu EES-samningsins, einnig gildi þann dag.

Í tilefni framangreindra tímamóta stóð þingnefnd innri markaðsmála og neytendaverndar í Evrópuþinginu fyrir ráðstefnu um reynsluna, árangurinn og þann ávinning sem innri markaðurinn hefur skilað aðildarríkjunum. Má ætla að þessi viðburður í Evrópuþinginu marki upphaf hátíðarviðburða á vettvangi ESB af þessu tilefni.

Jafnréttisviku í Evrópuþinginu

Sérstök jafnréttisvika var haldinn í Evrópuþinginu vikuna 24. – 30. október sl. og var þetta í þriðja skiptið sem slík þemavika er haldin. Af þessu tilefni efndu fjölmargar nefndir þingsins til umræðu um jafnréttismál og jafnrétti kynjanna út frá ólíkum sjónarhornum. Nálgast má nánari upplýsingar um einstaka viðburði vikunnar á vefsíðu þingsins þ. á m. upptökur af fundum og myndbönd er varða jafnréttismál.

Undirbúningur innleiðingar regla um neyðar- og viðbragðsstjórnun á sviði heilbrigðismála þvert á landamæri

Í Vaktinni 21. nóvember sl. var fjallað um nýjar reglur ESB um neyðar- og viðbragðsstjórnun á sviði heilbrigðismála. Hinum nýju reglum er ætlað að veita lagastoð fyrir samræmt viðbragð innan ESB/EES svæðisins á neyðartímum (e. Regulation on serious cross-border threats to health). Sama dag og ráðherraráðið samþykkti reglugerðina boðaði ráðuneytisstjóri heilbrigðismála og matvælaöryggis hjá framkvæmdastjórn ESB, Sandra Gallina, kollega sína frá aðildarríkjum sambandsins og EFTA-ríkunum til fundar til að ræða innleiðingu gerðarinnar sem framundan er.

Á fundinum var farið yfir reglugerðina og helstu ákvæði hennar kynnt. Í umræðu kom fram að verkefnið væri umfangsmikið og metnaðarfullt og kallaði á mikið og náið samstarf og samvinnu margra aðila, í ríkjunum heima fyrir, milli ríkja og á vettvangi ESB. Þá þyrfti einnig að tryggja samstarf við alþjóðastofnanir eins og Alþjóðaheilbrigðisstofnunina og OECD.

Ásta Valdimarsdóttir ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu sótti fundinn ásamt fulltrúa sendiráðsins í Brussel. Í innleggi sínu benti Ásta á mikilvægi þess að vinna að málinu meðan kórónaveirufaraldurinn væri mönnum enn í fersku minni. Hún þakkaði sérstaklega fyrir að Ísland fengi tækifæri til að vera aðili að sameiginlegum innkaupum nauðsynlegra aðfanga í neyðaraðstæðum. Þá gerði hún grein fyrir tillögugerð í nýju frumvarpi til sóttvarnarlaga sem nú er til meðferðar á Alþingi og reist er á reynslu Íslendinga af Covid-19 faraldrinum.

Sandra Gallina dró ekki fjöður yfir að mikil samræmingarvinna væri framundan svo tryggja mætti að reglugerðin þjónaði hlutverki sínu. Hún boðaði reglulega samráðsfundi með ráðuneytisstjórum á meðan sú vinna stæði yfir.

Rafrænir fylgiseðlar lyfja í stað pappírsseðla

Íslendingar hafa um árabil talað fyrir því á vettvangi ESB að í evrópska lyfjalöggjöf verið lögfest heimild til að nota rafræna fylgiseðla með lyfjum í stað prentaðra. Auk augljósra jákvæðra umhverfisáhrifa slíkra breytinga almennt þá getur slík heimild sérstaklega þjónað hagmunum lítilla markaðssvæða eins og Íslands þar sem smæð markaðarins gerir það að verkum að aðgengi að fjölbreyttu lyfjaúrvali er minna en almennt gerist. Þannig eru skráð lyf á Íslandi um 3.500 og hefur fjöldinn lítið breyst frá árinu 2011. Samsvarandi fjöldi skráðra lyfja á markaði á hinum Norðurlöndunum er á bilinu 9 til 14 þúsund. Fjöldi óskráðra lyfja á Íslandi er hins vegar hlutfallslega mjög mikill. Dæmi um það er fjöldi umsókna um óskráð lyf fyrir hverja 1000 íbúa. Á árinu 2020 var hlutfallið á Íslandi 133, í Noregi 36 og tæplega 4 í Svíþjóð. Rafrænir fylgiseðlar í stað prentaðra eru þannig talin möguleg leið til að auka aðgengi að skráðum lyfjum og lækka kostnað á litlum markaðs- og málsvæðum. Frá árinu 2018 hafa rafrænir fylgiseðlar lyfja verið á forgangslista ríkisstjórnar um mál sem unnið skuli að á vettvangi ESB, en mun lengra er síðan Ísland byrjaði að vinna málinu framgang.

Innan framkvæmdastjórnar ESB stendur nú yfir vinna við endurskoðun á evrópsku lyfjalöggjöfinni. Af því tilefni hefur á undanförnum mánuðum verið settur aukin kraftur í að halda framangreindum sjónarmiðum Íslands á lofti, m.a. í opnu samráði sem efnt var til á fjórða ársfjórðungi síðasta árs um endurskoðunina. Þá hafa verið haldnir fundir með fulltrúum framkvæmdastjórnarinnar sem gegna lykilhlutverki í endurskoðunarvinnuninni og var einn slíkur fundur haldinn 25. október sl. sem dr. Bjarni Sigurðsson sótti fyrir hönd heilbrigðisráðuneytisins ásamt fulltrúum frá sendiráði Íslands í Brussel. Fundurinn var jákvæður og gefur góðar vonir um framgang málsins en vænta má formlegra tillagna af hálfu framkvæmdarstjórnar ESB að endurskoðaðri lyfjalöggjöf á fyrsta ársfjórðungi 2023.

Heimsókn ráðgjafarnefndar jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til sendiráðsins

Fulltrúar ráðgjafarnefndar jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á Íslandi og starfslið komu í heimsókn í sendiráðið ásamt ráðuneytisstjóra innviðaráðuneytisins, skrifstofustjóra sveitarstjórnarmála og aðstoðarmanni innviðaráðherra. Fékk hópurinn kynningu á starfsemi sendiráðsins og því sem helst er til umfjöllunar á vettvangi ESB og EES-samningsins um þessar mundir og varðar verkefni sveitarstjórnarstigsins. Þá fékk hópurinn kynningu á því hvernig staðið væri að utanumhaldi EES samningsins og hagsmunagæslu fyrir hönd Íslands.

Brussel-vaktin, fréttabréf fastanefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

21. október 2022 | Starfsáætlun framkvæmdastjórnar ESB og orkukreppan |
Að þessu sinni er fjallað um:

starfsáætlun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB) fyrir árið 2023

fund leiðtogaráðs ESB

orkukreppuna

fund utanríkisráðherra ESB

nýjar reglur um neyðar- og viðbragðsstjórnun ESB á sviði heilbrigðismála og lærdóminn af Covid-19 heimsfaraldrinum

tillögu framkvæmdastjórnar ESB um að Bosnía og Hersegóvína fái stöðu umsóknarríkis

fund atvinnu- og félagsmálaráðherra ESB

fund sameiginlegu þingmannanefndar EES í Strassborg

heimsókn varaforseta framkvæmdastjórnar ESB, Maroš Šefčovič, til Íslands

Starfsáætlun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins fyrir árið 2023

Framkvæmdastjórn ESB birti þann 18. nóvember sl. starfsáætlun sína fyrir árið 2023. Áætlunin ber þess merki að vera sett fram við þær óvenjulegar aðstæður sem árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu hefur skapað. Er þar að finna áætlanir um frekari viðbrögð við þeim krísuaðstæðum sem skapast hafa um leið og gert er ráð fyrir að settur verði stóraukinn kraftur í framkvæmd meginstefnumiða stjórnar Ursulu von der Leyen með áherslu græna og stafræna umbreytingu (e. The European Green Deal and A Europe fit for the digital age). Áhersla á auknar hagvarnir er jafnframt áberandi en á þær lagði von der Leyen sérstaka áherslu m.a. í stefnuræðu sinni í september eins og greint var frá í Vaktinni 23. september sl.

Áætlunin er sett fram á grundvelli þriggja megin sjónarmiða:

Að þegar fengin reynsla sýni svo ekki verði um villst að ESB sé fært um að takast á við krísu af þeirri stærðargráðu sem nú blasir við.

Að krísan undirstriki mikilvægi fyrirliggjandi stefnumiða ESB m.a. um græna og stafræna umbreytingu.

Að krísan sé þess eðlis að henni verði ekki eingöngu mætt með hefðbundnum markaðsúrlausnum.

Áætlunin inniheldur m.a. 43 nýjar stefnumótandi ákvarðanir er snerta öll sex meginstefnumið stjórnarinnar sem flokkast eins og hér segir:

Grænt samkomulag (e. The European Green Deal)

Gagngerar endurbætur verði gerðar á raforkumarkaði ESB.

Samspil raforkuverðs annars vegar og gasverðs hins vegar verði aftengt.

Stofnaður verði nýr evrópskur vetnisbanki (e. European Hydrogen Bank).

Gripið verði til aðgerða til að minnka úrgang og draga úr umhverfisáhrifum úrgangs.

Löggjöf um dýravernd og dýravelferð verði tekin til endurskoðunar.

Stafræn geta og færni (e. Europe fit for digital age)

Gripið verði til aðgerða til að tryggja nægjanlegan aðgang að mikilvægum hráefnum sem þarf til að tryggja stafrænt- og efnahagslegt viðnámsþol sambandins.

Lögð verði áhersla á kynningu á ábatanum af innri markaði ESB og evrópska efnahagssvæðinu (EES) sem 30 ára reynsla endurspeglar, um leið og unnið verður að því að draga úr göllum og innleiðingarhalla á upptöku reglna í aðildarríkjunum. Í því samhengi verði m.a. lögð áhersla á stafræna stjórnsýslu.

Búið verði til samevrópskt stafrænt upplýsingakerfi um samgöngur og fjölbreytta samgöngumöguleika.

Hagkerfi sem virkar (e. An economy that works for people)

Metið verði hvort stjórn efnahagsmála standi undir væntingum, samkvæmt niðurstöðum ráðstefnu um framtíð Evrópu.

Fjármálaáætlun ESB 2021 - 2027 verði endurskoðuð í ljósi áskorana.

Lagðar verði fram nýjar tillögur um samræmdar reglur um skattlagningu atvinnustarfsemi og verða þær unnar á grunni fyrri tillagna um slíkar breytingar er kynntar hafa verið undir yfirskriftinni BEFIT (e. Business in Europe: Framework for Income Taxation). Ursula von der Leyen kom inn á þetta verkefni í stefnuræðu sinni um nauðsyn þess að skapa smáum og meðalstórum fyrirtækjum samkeppnishæft rekstrarumhverfi til framtíðar, sbr. umfjöllun í Vaktinni 23. september sl.

Ýmsar breytingar sem lúta að fjármálamarkaði eru fyrirhugaðar. Ein af þeim gerðum sem þegar er í ferli er um evrópsk græn skuldabréf sem er hluti af verkefninu sjálfbær fjármögnun og af græna sáttmálanum. Sömuleiðis eru á listanum þrjár gerðir um varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Þar er líka að finna gerðir um áhættustjórnun fjármálafyrirtækja og aðgang að upplýsingum þeirra. Þá leynist gerðin um sameiginlegt evrópskt innstæðutryggingakerfi einnig á listanum, en sú gerð hefur legið í láginni undanfarna mánuði.

Lagðar verði fram tillögur um lagalegan grundvöll fyrir hugsanlega útgáfu stafrænnar evru (e. digital euro) af hendi Seðlabanka Evrópu.

Unnið verði að atvinnutengdum félagsmálum, aukinni starfsþjálfun, sanngjörnum launum og félagslegri vernd til að styðja við félagslegan viðnámsþrótt ESB í erfiðum aðstæðum.

Efling ESB á sviði heimsmála (e. A stronger Europe in the world)

Kynnt verði stefna ESB á sviði geimmála með frið og öryggi að leiðarljósi.

Kynnt verði stefna ESB í öryggismálum hafsins.

Efnahagsþvingunarúrræði ESB verði uppfærð þannig að þeim megi einnig beita til að bregðast við og berjast gegn spillingu.

Aukin áhersla verði lögð á samskipti við ríki Suður-Ameríku og í Karíbahafinu.

Haldið verði áfram að efla samstarf við ríki sem sótt hafa um aðild að ESB, þ.e. ríki Vestur-Balkanskaga, Úkraínu, Moldóvu og Georgíu.

Efling samevrópskra lífshátta (e. Promoting our European way of life)

Leitað verði leiða til auðvelda ungu fólki innan sambandsins til að sækja sér menntun utan síns heimalands, innan sambandsins.

Átak verði gert til að laða að sérhæft starfsfólk til starfa innan sambandsins, þar sem skortur er, meðal annars með aukinni viðurkenningu á hæfni og starfsréttindum fólks utan ESB.

Innleidd verði stafræn ferðaskilríki innan Schengen-svæðisins til að auðvelda för fólks innan svæðisins.

Samstarf aðildarríkja á sviði heilbrigðismála verði eflt.

Efling og vernd lýðræðis (e. A new push for European democracy)

Lagður verði fram aðgerðarpakki til verndar lýðræðis innan ESB, m.a. fyrir utanaðkomandi áhrifum.

Haldið verði áfram að byggja upp einingu jafnræðis innan ESB með tillögum um evrópsk öryrkjaskilríki sem tryggi gagnkvæma viðurkenningu á stöðu fötlunar í aðildarríkjunum.

Áfram verði unnið að einföldun regluverks með það að markmiði að minnka reglubyrði fólks og fyrirtækja.

Framkvæmdastjórnin mun nú hefja samræður við Evrópuþingið og ráðherraráð ESB í því skyni að ná samstöðu um sameiginlegan forgangslista löggjafartillagna sem leggja þarf fram til að hrinda áætluninni í framkvæmd.

Fundur leiðtogaráðs ESB

Leiðtogar aðildarríkja ESB komu saman til fundar í Brussel í gær, 20. október, og var fundinum framhaldið í dag, 21. október. Umræðuefni fundarins voru árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu, orku- og efnahagsmál, fæðuöryggi, vernd mikilvægra innviða og samskipti ESB við þriðju ríki.

Orku- og efnahagsmál voru til umræðu á fyrri degi fundarins og sendi ráðið frá sér ályktun um þau málefni í kjölfar fundarins sem birt var liðna nótt. Í ályktuninni skorðar leiðtogaráðið á ráðherraráð ESB og framkvæmdastjórnina að komast sem fyrst að niðurstöðu um tilteknar aðgerðir sem raktar eru í ályktun ráðsins sem og um fyrirliggjandi tillögur framkvæmdastjórnarinnar, en þó eftir að áhrif þeirra hafi verið metin með fullnægjandi hætti. Þær aðgerðir sem leiðtogaráðið kallar eftir eiga að mörgu leyti samhljóm í fyrirliggjandi tillögum framkvæmdastjórnar ESB en nánar er fjallað um þær tillögur hér að neðan í sérstakri umfjöllun um orkumálin. Ljóst er þó að tillögur framkvæmdastjórnarinnar þarf nú að yfirfara vandlega og uppfæra með hliðsjón af áherslum leiðtoganna. Í lok fundarlotunnar í gær hélt forseti leiðtogaráðsins, Charles Michel, ræðu um afrakstur fundardagsins.

Árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu og margþættar afleiðingar þess var meginumræðuefni fundarins í dag. Í niðurstöðuskjali fundarins m.a. kemur fram að stöðug stigmögnun átakanna af hálfu Rússlands stofni friði í Evrópu og í heiminum í hættu. Ráðið lýsir því yfir að það sé staðráðið í að vinna gegn upplýsingaóreiðu sem ætlað sé að grafa undan sameiginlegri viðleitni til að verja fullveldi Úkraínu og alþjóðalög. Þá ítrekar ráðið að Rússland beri eitt ábyrgð á þeirri orku- og efnahagskreppu sem stríðið hafi leitt af sér.

Þá fordæmir leiðtogaráðið m.a. eldflauga- og drónaárásir á almenna borgara og innviði í Úkraínu.

Ráðið krefst þess að Rússland dragi herlið sitt til baka frá öllu yfirráðasvæði Úkraínu og ítrekar að það muni standa með Úkraínu eins lengi og þarf og muni halda áfram að veita landinu öflugan stuðning, pólitískan, hernaðarlegan og fjárhagslegan. Þá lagði leiðtogaráðið blessun sína yfir ákvörðun ráðherraráðs ESB, er fjallað er um hér að neðan í tengslum við fund utanríkisráðherra ESB, um að stofna til hernaðaraðstoðarnefndar ESB gagnvart Úkraínu sem mun styðja við þjálfun og uppbyggingu úkraínskra hersins.

Ráðið kallar eftir því að afgreiðslu almennrar fjárhagsaðstoðar til Úkraínu verði hraðað og leitað verði allra leiða til að styðja við landið með fríverslun og aðgangi að innri markaði ESB og félagslegri aðstoð.

Ráðið skorðar á stjórnvöld í Hvíta Rússlandi að láta af stuðningi sínum við Rússlandi í tengslum við stríðið.

Loks fagnar leiðtogaráðið nýjum refsiaðgerðum gegn Rússlandi sem innleiddar hafa verið.

Þá fjallaði ráðið um fæðuöryggi og mikilvæga innviði og vernd þeirra, meðal annars í ljósi skemmdarverka sem unnin voru á Nord stream gasleiðslunni, og samskipti ESB við þriðju ríki, loftlagsmál, mannréttindabrot í Íran o.fl.

Orkukreppan

Viðbrögð við orkuskorti og háu orkuverði, sem er ein afleiðing árásarstríðs Rússlands gagnvart Úkraínu, eru meðal allra brýnustu úrlausnarefna stjórnmálanna á meginlandi Evrópu um þessar mundir svo sem umræður og ályktanir leiðtogaráðs ESB sem vísað er til að framan bera með sér. Þegar hefur verið gripið til ýmissa neyðarráðstafana eins og gert hefur verið í Vaktinni að undanförnu.

Orkumálaráðherrar ESB hittust á óformlegum fundi í Prag 11. og 12. október til umræðu um þessi mál og var þar kallað eftir frekari aðgerðartillögum frá framkvæmdastjórninni um aðgerðir.

Framkvæmdastjórnin brást hratt við því kalli og voru nýjar tillögur um neyðarviðbrögð til að bregðast við háu gasverði innan sambandsins og til að tryggja gasframboð í vetur kynntar 18. október. Í þeim tillögum er eftirfarandi lagt til:

Að sameiginleg gasinnkaup verði tekin upp með það að markmiði að ná fram hagstæðara innkaupaverði, auka afhendingaröryggi og sporna gegn því að aðildarríki yfirbjóði hvert annað á heimsmarkaði.

Að nýjar verðleiðréttingarferðir verði innleiddar til skamms tíma með það að markmiði að koma á virkum markaði fyrir viðskipti með gas og til að sporna gegn verðhækkunum á afleiðumörkuðum. Í millitíðinni hyggst framkvæmdastjórnin þróa nýtt verðviðmið fyrir gas sem stutt getur við stöðuga og fyrirsjáanlega verðmyndun á markaði.

Að samstaða aðildarríkja verði styrkt með auknu gagnsæi varðandi innviði og birgðastöðu og stöðugt verði unnið að því að draga úr eftirspurn.

Er þessum aðgerðum, ásamt öðrum sem þegar hafa verið ákveðnar, ætlað að koma stöðugleika á gasmarkaðinn í vetur og til lengri tíma og draga þannig úr álagi á heimili og atvinnulíf af þessum sökum. Framangreindar tillögur þarf nú eins og áður segir að yfirfara vandlega og uppfæra með hliðsjón af áherslum leiðtogaráðs ESB.

Framkvæmdastjórnin boðar einnig áframhaldandi vinnu í tengdum málum og er í því sambandi sérstaklega tiltekið að til standi að kynna tillögur um endurskoðun á bráðabirgðaregluverki ESB um ríkisaðstoð (e. State aid Temporary Crisis Framework) síðar í þessum mánuði, sbr. m.a. umfjöllun í Vaktinni 7. október sl. Þá hyggst framkvæmdastjórnin framkvæma þarfamat á REPowerEU verkefninu í því skyni að flýta fyrir orkuskiptum og til að minnka líkur á því að óstöðugleiki skapist á innri markaðnum.

Framkvæmdastjórnin leggur einnig til að samheldnissjóðir sambandsins verði nýttir markvisst til að takast á við áhrif orkukreppunnar á íbúa og atvinnulíf í aðildarríkjunum.

Til að létta á lausafjárvanda sem mörg orkufyrirtæki standa frammi fyrir hefur framkvæmdastjórnin jafnframt sett nýjar reglur fyrir markaðsaðila er varða tryggingar, veð og ríkisábyrgð og hækkun á greiðsluþröskuldi. Þessum aðgerðum er ætlað að létta undir með fyrirtækjum og styðja við fjármálastöðugleika.

Þá hafa Orkumálastofnun ESB (ACER) og Evrópska verðbréfa- og markaðseftirlitið (ESMA) eflt samvinnu sín á milli til að til að fylgjast með og greina hugsanlega markaðsmisnotkun og misnotkun á orkumörkuðum Evrópu.

Á fundi orkumálaráðherranna var einnig fjallað um þörfina á því að ráðast í meiriháttar endurskoðun á raforkukerfinu. Í máli Kadri Simson orkumálastjóra ESB kom m.a. fram að skilja þyrfti á milli neyðarráðstafana til skamms tíma og langtímaumbóta á raforkumarkaðinum en á því sviði hyggst framkvæmdastjórn ESB leggja fram tillögu snemma árs 2023, sbr. starfsáætlun framkvæmdastjórnarinnar sem fjallað er um hér að framan. Í máli orkumálastjórans kom jafnframt fram að fyrirhuguð verðleiðrétting á gasi mætti ekki leiða til meiri gasnotkunar en ella væri. Vandinn væri ekki bundinn við komandi vetur, heldur næstu vetra þar á eftir jafnframt.

Fulltrúar Íslands tóku þátt í framangreindum fundi orkumálaráðherra og gafst þar tækifæri til að greina frá stöðu orkumála á Íslandi sem er eins og kunnugt er allt önnur og vænlegri en í flestum öðrum Evrópuríkjum, þar sem framleiðsla á endurnýjanlegri orku, með virkjun jarðhita og vatnsafls, uppfyllir orkuþörf til húshitunar og rafmagnsframleiðslu. Þó kom fram að eftir sem áður væri þörf á að auka framleiðslu endurnýjanlegrar orku á Íslandi til að mæta þörfum fyrir hrein orkuskipti í samgöngum og fiskveiðum. Ísland deildi áhyggjum af hinu erfiða ástandi í orkumálum í Evrópu og er kæmi að viðbrögðum til lengri tíma byggi Ísland yfir þekkingu á sviði orkumála, m.a. á sviði jarðhita, sem er vannýtt auðlind í Evrópu og á heimsvísu, sem gagnast gæti öðrum ríkjum og líta mætti til.

Orkumálaráðherrar ESB koma saman á ný til fundar í næstu viku, 25. október. Á þeim fundi verður leitast við að ná niðurstöðu um tilskipun um orkunýtingu bygginga og halda áfram stefnumótandi umræðu um gaspakkann svonefnda, sem felur í sér tillögur að sameiginlegum reglum innri markaðarins fyrir endurnýjanlega orku, jarðgas og vetni. Þessar tillögur eru hluti af aðgerðapakkanum „Fit for 55“ sem miðar að því að gera ESB kleift að ná fram loftslagshlutleysi árið 2050. Þá er stefnt að enn öðrum fundi orkumálaráðherra ESB um í nóvember m.a. til að ræða og samþykkja, eftir atvikum, framangreindar tillögur framkvæmdastjórnarinnar að teknu tilliti til áherslna leiðtogaráðs ESB.

Loks má geta þess að þann 18. október kom út skýrsla framkvæmdastjórnarinnar til Evrópuþingsins, ráðsins, efnahags- og félagsmálanefndar Evrópu og svæðisnefndar um stöðu orkumála 2022 (State of the Energy Union 2022).

Fundur utanríkisráðherra ESB

Utanríkisráðherrar ESB komu saman til fundar 17. október á vettvangi ráðherraráðs ESB. Árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu var megin umræðuefnið eins og við mátti búast og var einarður stuðningur ESB við Úkraínu staðfestur og undirstrikaður með ákvörðun ráðsins um stofnun hernaðaraðstoðarnefndar ESB til að styðja við úkraínska herinn (e. EU Military Assistance Mission to support the Ukrainian Armed Forces) og er nefndinni ætlað að standa að þjálfun 15.000 úkraínskra hermanna innan landamæra ESB. Þá var jafnframt ákveðið að auka fjárstuðning ESB við úkraínska varnarliðið um 500 milljónir evra en með þeirri aukningu er fjárhagsleg hernaðaraðstoð ESB komin í 3,1 milljarð evra.

Þá samþykkti ráðið nýjar refsiaðgerðir gegn tilgreindum aðilum í Íran vegna aðkomu þeirra að dauða Mahsa Amini og harkalegum viðbrögðum þeirra gagnvart mótmælendum í landinu.

Flókið samband ESB við Kína var til umræðu.

Nýafstaðnar kosningar í Bosníu og Hersegóvínu voru ræddar en kosningarnar þykja hafa heppnast vel að mati eftirlitsaðila. Þá hefur framkvæmdastjórn ESB, meðal annars með vísan til framangreinds, lagt til að ríkið fáið stöðu umsóknarríkis að ESB eins og nánar er fjallað um hér að neðan.

Auk þessa var staða mála í Líbanon og Eþíópíu rædd sem og staða ágreinings Armeníu og Aserbaísjan ásamt fleiru.

Nýjar reglur um neyðar- og viðbragðsstjórnun ESB á sviði heilbrigðismála – lærdómurinn af Covid-19 heimsfaraldrinum

Fyrr í mánuðinum samþykkti Evrópuþingið, með miklum meirihluta atkvæða nýjar reglur sem styrkja eiga getu ESB og aðildarríkja þess til að takast á við heilsufarsógnir á borð við Covid-19 heimsfaraldurinn. Hér eru á ferðinni tvær endurskoðaðar gerðir, önnur um alvarlegar heilsufarsógnir þvert á landamæri (e. serious cross-border threats to health, SCHBT) og hin um rýmkað umboð Sóttvarnarstofnunar Evrópu (European Centre for Disease Prevention and Control, ECDC). Gerðirnar tengjast efnislega og því var talið eðlilegt að afgreiða þær saman. Gerðirnar bíða nú formlegrar samþykktar ráðherraráðsins áður en þær verða birtar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins. Gerðirnar endurspegla lærdóminn af faraldrinum og eru hluti af fjölþættum aðgerðapakka framkvæmdastjórnarinnar um öflugra samstarf á sviði heilbrigðismála (e. European Health Union). Pakkinn var lagður fram í nóvember 2020 og miðar að því að efla og samþætta neyðar- og viðbragðsstjórnun sambandsins þegar lýðheilsu er ógnað þvert á landamæri. Með afgreiðslu þingsins nú tókst að ljúka aðgerðapakkanum sem lagt var upp með í nóvember 2020. Auk fyrrgreindra tveggja gerða samanstóð aðgerðapakkinn af því að styrkja og breikka hlutverk Evrópsku lyfjastofnunarinnar (European Medicines Agency, EMA) og stofnsetja neyðar- og viðbragðsskrifstofu (Health Emergency Response Authority, HERA) til að stýra undirbúningi og stjórnun neyðaraðgerða.

Í september 2021 voru tillögurnar um Evrópuskrifstofu neyðarviðbúnaðar og viðbragða vegna heilsuvár (HERA) birtar. Þær voru settar fram í tvennu lagi, í formi tilkynningar framkvæmdastjórnarinnar þar sem lýst er hlutverki, verkefnum og stjórnun skrifstofunnar og í tillögum um regluverk til að tryggja lagastoð fyrir aðgerðir á neyðartímum þegar heilsu er ógnað þvert á landamæri og þingið var að ljúka við að afgreiða. Skrifstofan tók til starfa í upphafi þessa árs og er rekin sem ein af skrifstofum framkvæmdastjórnarinnar. Með nýrri reglugerð nú er lagður nauðsynlegur lagagrundvöllur undir starf skrifstofunnar. Á grundvelli reglugerðarinnar verður ESB og aðildarríkjum gert betur kleift að sjá fyrir og bregðast við heilsuvám m.a. með því að samhæfa viðbúnaðar- og viðbragðsáætlanir bæði meðal einstakra ríkja og á vettvangi ESB, setja reglur um bætt, sveiganlegt og samþætt eftirlitskerfi og skýra verklag um sameiginleg innkaup á lyfjum, bóluefnum, lækningatækjum og öðrum nauðsynlegum björgum sem þörf er fyrir á neyðartímum. Auk þessa er gert ráð fyrir að svokölluð heilbrigðisöryggisnefnd (e. Health Security Committee) fái aukið hlutverk við stjórnun neyðar- og viðbragðsaðgerða þegar heilbrigði þjóða er ógnað. Íslendingar eiga sæti áheyrnafulltrúa í nefndinni.

Endurskoðað hlutverk Sóttvarnastofnunar Evrópu miðar að því að sjá fyrir og stjórna útbreiðslu smitsjúkdóma. Um er að ræða fyrstu endurskoðun á lögbundnum verkefnum stofnunarinnar frá því að hún var sett á fót árið 2004. Breytingunum er ætlað að styrkja ráðgjafarhlutverk stofnunarinnar gagnvart framkvæmdastjórn ESB og aðildarríkjum með söfnun upplýsinga og úrvinnslu gagna og birtingu þeirra svo betur megi undirbúa, stýra og samhæfa viðbrögð á neyðartímum.

Fyrr á árinu, 1. mars sl., tóku gildi nýjar reglur um aukið hlutverk Lyfjastofnunar Evrópu til að undirbúa og bregðast við aðstæðum á neyðartímum, sem einkum miða að því að draga úr áhrifum lyfjaskorts og styrkja stoðir undir klínískar rannsóknir og gagnsæi við útgáfu markaðsleyfa.

Möguleg þátttaka Íslands

Íslendingar hafa lýst áhuga á virkri þátttöku í neyðar – og viðbragðsstjórnun Evrópusambandsins enda reyndist samstarfið við ESB mikilvægt er kórónuveirufaraldurinn stóð sem hæst einkum varðandi sameiginleg innkaup á bóluefnum og öðrum nauðsynlegum aðföngum. Óformlegum viðræðum í þessu skyni var ýtt úr vör í haust.

Tillaga framkvæmdastjórnar ESB um að Bosnía og Hersegóvína fái stöðu umsóknarríkis

Framkvæmdastjórn ESB birti 12. október sl. skýrslu um stöðu stækkunarmála í sambandinu og hvernig ríki með stöðu umsóknarríkis standa í aðildarferlinu. Megin tíðindin sem fram koma í skýrslunni er að lagt er til að Bosnía og Hersegóvína fái stöðu umsóknarríkis hjá ESB. Í tillögunni eru útlistuð 14 forgangssvið sem stjórnvöld Bosníu og Hersegóvínu eru hvött til þess að vinna að og liðkað gætu fyrir aðild að sambandinu. Þau fela m.a. í sér að stjórnvöld ráðist í lýðræðisumbætur, berjist gegn spillingu, tryggi virkni opinberra stofnana og stuðli að fjölmiðlafrelsi.

Aðildarríki ESB eru 27 talsins eftir útgöngu Bretlands. Ríki með stöðu umsóknarríkis eru Albanía, Moldóva, Norður-Makedónía, Svartfjallaland, Serbía, Tyrkland og Úkraína. Skýrsla framkvæmdastjórnarinnar fer yfir stöðu þessara ríkja í aðildarferlinu og útlistar hvað sé ábótavant.

Í kaflanum um Svartfjallaland er bent á að stjórnvöld þurfi að gera betur í að tryggja tjáningarfrelsi íbúa landsins og fjölmiðlafrelsi, að berjast þurfi gegn spillingu og glæpastarfsemi. Til þess þurfi pólitískan stöðugleika, uppbyggilega samvinnu og samhljóm allra hlutaðeigandi aðila. Serbía fær þau tilmæli að reyna eftir fremsta megni að koma á fót stöðugri ríkisstjórn sem raunverulega geti tekist á við þessi atriði og kröfur sem almennt eru gerðar til umsóknarríkja. Má þar t.a.m. nefna að staða dómstóla verði styrkt, að barist verði gegn spillingu, glæpastarfsemi og upplýsingaóreiðu, fjölmiðlafrelsi verði eflt og tekið verði á stríðsglæpum í dómstólum innanlands. Albanía og Norður-Makedónía eru sögð þurfa að ráðast í átak í baráttunni gegn spillingu og glæpastarfsemi og að tryggja þurfi tjáningarfrelsi borgaranna og stöðu réttarríkisins.

Tyrkland, sem haft hefur stöðu umsóknarríkis frá 1999, er sagt þurfa að bregðast við þeirri pólitísku þróun sem skert hefur lýðræði í landinu og veikt réttarríkið. Þá er vísað til eldfimrar deilu Tyrklands og Grikklands, sem er aðildarríki að ESB, við Austur-Miðjarðarhaf sem flæki stöðuna. Í því sambandi ítrekar ESB kröfu sína um að tyrknesk stjórnvöld virði sjálfstæði og landhelgi aðildarríkja sambandsins. Ennfremur veiki stefna tyrkneskra stjórnvalda um að taka ekki þátt í þvingunum gagnvart Rússum, í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu, stöðu þess í aðildarferlinu. Tyrkjum er þó talið til tekna að hafa auðveldað viðræður við Rússa vegna stríðsins og fyrir að hafa gegnt lykilhlutverki í að tryggja að útflutningur á korni hafi getað haldið áfram í kjölfar innrásarinnar.

Fundur atvinnu- og félagsmálaráðherra ESB

Óformlegur fundur atvinnu- og félagsmálaráðherra fór fram í Prag á fimmtudag og föstudag í síðustu viku.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, sótti fundinn fyrir Íslands hönd.

Umræðuefni fundarins voru annars vegar afleiðingar innrásar Rússa í Úkraínu og aðlögun úkraínsks flóttafólks að vinnumarkaði í móttökulöndum og hins vegar áhrif orkukreppunnar á stöðu heimila og fyrirtækja.

Málefni flóttafólks

Skýr vilji kom fram hjá ríkjunum til þess að taka á móti flóttamönnum frá Úkraínu og hafa þau leitast við að veita flóttafólki alla mögulega aðstoð. Þá hafa nokkur ríki veitt úkraínskum flóttafólki betri réttarstöðu en almennt gildir.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, vék m.a. að þessu atriði í innleggi sínu á fundinum.

Samhljómur var um mikilvægi þess að flóttafólk komist sem fyrst á vinnumarkað í móttökuríki til að það nái að aðlagast nýju samfélagi fljót og vel. Þá þurfi einnig að leitast við að fólk fái störf við hæfi. Mikill hluti flóttafólks eru konur með börn og því er nauðsynlegt að tryggja aðgang að barnagæslu til að sá þáttur hindri þær ekki á vinnumarkaði.

Fram kom að helstu áskoranir sem ríki glími við séu sameiginlegar milli landa, þ.e. skortur á húsnæði og öðrum innviðum eftir atvikum. Þá er tungumálakunnátta jafnan áskorun þar sem gerð er krafa um þekkingu í tungumáli búseturíkis í mörgum störfum. Því væri mikilvægt að tryggja að flóttamönnum stæði til boða kennsla í tungumáli móttökuríkis. Loks þurfi að gæta sérstaklega að því að flóttafólk væri almennt í viðkvæmari stöðu en annað fólk og útsettara fyrir réttindabrotum á vinnumarkaði, ofbeldi og mansali.

Hækkandi orkuverð og fátækt

Í umræðu um orkumál kom fram að orkukostnaður væri orðinn mjög íþyngjandi fyrir stóran hluta íbúa Evrópu auk þess sem annar framfærslukostnaður hefði einnig hækkað. Hafa þyrfti í huga að þetta ætti ekki eingöngu við um þá sem verst eru settir heldur hefði millistéttin einnig orðið fyrir verulegum áhrifum auk þess sem hækkun orkukostnaðar hafi gífurleg áhrif á fyrirtækin. Því væri nauðsynlegt að beina aðgerðum ekki eingöngu að þeim sem verst eru settir heldur þurfi einnig að mæta millistéttinni með aðgerðum auk þess sem nauðsynlegt sé að tryggja áframhaldandi rekstrargrundvöll fyrirtækja til að verja störf.

Eins og kunnugt er hefur Evrópusambandið sett fram tillögur í þessu efni en flest Evrópuríkin hafa einnig sett fram úrræði til að minnka höggið af hækkuðum orkukostnaði, einkum með niðurgreiðslu á orku en einnig með niðurgreiðslu orkusparandi breytinga og orkuskipta. Athygli vakti að samkvæmt nýrri samantekt Eurofund sem kynnt var á fundinum hefur meirihluti aðgerðanna verið almenns eðlis og beinst að því að niðurgreiða orku og hækka bætur og lífeyri. Eingöngu lítill hluti úrræðanna hefur hingað til beinst að stuðningi við orkusparandi aðgerðir, en fundarfólk var sammála því að stuðningur ríkjanna þyrfti í auknum mæli að stuðla að orkusparnaði og orkuskiptum.

Nicholas Schmidt, sem fer með atvinnu- og félagsmál í framkvæmdastjórn ESB, lagði áherslu á að lykilatriðið væri að tryggja að fátækt aukist ekki. Þær stefnur og tilskipanir sem lagðar hafa verið fram stuðli að því að bæta lífskjör Evrópubúa og draga úr fátækt, m.a. tilskipun um lágmarkslaun sem nýlega var samþykkt, auk tilmæla Evrópusambandsins um lágmarksframfærslu (minimum income reccommentation). Á hinn bóginn þurfi að gæta að því að láta ekki launahækkanir leiða verðbólgu. Samheldni og samræming ríkjanna sé nauðsynleg og e.t.v. sé þörf á frekari aðgerðum á vettvangi ESB og framkvæmdastjórnin muni hlusta á allar tillögur í því efni.

Fundur sameiginlegu þingmannanefndar EES í Strassborg

Sameiginleg þingmannanefnd EES kom saman til fundar 19. – 20. október. Nefndin samanstendur af þingmönnum þjóðþinga EES-EFTA ríkjanna, Íslands, Noregs og Liechtenstein og þingmönnum Evrópuþingsins auk þess sem Sviss á áheyrnarfulltrúa í nefndinni. Árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu var til umræðu og orkukreppan sem af henni hefur leitt. Einnig var m.a. rætt um netöryggissamstarf á grundvelli EES-samningsins og samstarf á sviði öryggismála almennt. Megin umræðuefnið var þó framkvæmd og þróun EES-samningsins og staða upptöku á gerðum ESB í samninginn og innleiðingu þeirra í landsrétt aðildarríkjanna. Ísland fer nú með formennsku í EES-ráðinu og flutti sendiherra Íslands í Brussel og núverandi formaður EES-EFTA hliðar sameiginlegu EES-nefndarinnar, Kristján Andri Stefánsson, yfirlit um það sem er efst á baugi við rekstur samningins frá sjónarhóli EES/EFTA-ríkjanna. Á fundinum töluðu einnig formaður ESB hliðar sameiginlegu EES-nefndarinnar, Nicolas von Lingen, og formaður EFTA-vinnuhóps ráðherraráðs ESB, Petr Havlík. Að loknum erindum þeirra tóku þeir þátt í umræðu og svöruðu spurningum um stöðu samningsins.

Heimsókn varaforseta framkvæmdastjórnar ESB, Maroš Šefčovič, til Íslands

Varaforseti framkvæmdastjórnar ESB, Maroš Šefčovič, heimsækir nú Ísland í boði Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, utanríkisráðherra. Heimsóknin hófst 19. Október og stendur fram á laugardag 22. Október. Í umboði forseta framkvæmdastjórnarinnar hefur Šefčovič farið með ábyrgð á rekstri EES-samningsins gagnvart EFTA-ríkjunum sem aðild eiga að honum. Hann fer einnig með samskipti við Bretland, Sviss og örríkin (Andorra, Mónakó og San Marínó) auk þess að fara með fjölbreytt málefni innan framkvæmdastjórnarinnar á sviði samhæfingar á milli stofnana bandalagsins, stefnumótunar og einföldunar regluverks og umbætur lagasetningu.

Auk fundar með utanríkisráðherra átti Šefčovič fund með Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra, og utanríkismálanefnd. Þá sótti hann forseta Íslands, herra Guðna Th. Jóhannesson, heim að Bessastöðum og heimsótti alþingishúsið í boði forseta Alþingis Birgis Ármannssonar.

Šefčovič tók m.a. þátt í opnu málþingi um EES-samninginn og áskoranir 21. aldar sem fram fór í Hátíðarsal Háskóla Íslands 20. október sl. Málþingið var haldið í samstarfi við utanríkisráðuneytið, Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi og viðskiptaráð Íslands og Evrópusambandsins. Málþingið var vel heppnað og umræður líflegar en horfa má á upptöku af málþinginu á vef RÚV.

Brussel-vaktin er gefin út af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Vaktin kemur út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

07. október 2022 | Samstaða gegn Rússlandi |
Að þessu sinni er fjallað um:

samkomu evrópskra þjóðarleiðtoga (EPC)

fund leiðtogaráðs Evrópusambandsins (ESB)

áttunda pakka þvingunarráðstafana ESB gagnvart Rússlandi

neyðarráðstafanir til að sporna við háu orkuverði

reglur um ríkisaðstoð og aðgerðir aðildarríkja til bregðast við háu orkuverði

fundi fjármála- og efnahagsráðherra ESB

fund landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra ESB

ráðherrafund ESB um samkeppnismál og málefni innri markaðarins

áhrif tillagna um breytingar á ETS viðskiptakerfinu á flug til Íslands

tillögur framkvæmdastjórnar ESB um aðlögun skaðsemisábyrgðarreglna að stafrænum veruleika og hringrásarhagkerfinu

skýrslu Endurskoðunarréttar ESB um aðgerðir gegn ólögmætum fiskveiðum

Samkoma evrópskra þjóðarleiðtoga í Prag

Evrópskir þjóðarleiðtogar komu saman í Prag í gær, 6. október, á nýjum vettvangi sem nefndur hefur verið European Political Community (EPC). Þjóðarleiðtogum svotil allra ríkja Evrópu, að frátöldu Rússlandi og Hvíta Rússlandi, var boðið til fundarins og sótti Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundinn fyrir Íslands hönd. Auk þjóðarleiðtoganna sóttu fundinn forseti framkvæmdastjórnar ESB, Urslua von der Leyen, og forseti leiðtogaráðs ESB, Charles Michel. Jafnvel þótt áhersla væri lögð á að samkoman væri samstarf ríkisstjórna (e. intergovernmental) höfðu forseti leiðtogaráðs ESB og tékkneska formennskan veg og vanda af undirbúningi fundarins.

Markmið hins nýja vettvangs er að skapa leiðtogum Evrópuríkja innan og utan ESB vettvang til skoðanaskipta og stuðla að samvinnu um viðbrögð við aðsteðjandi áskorunum á viðsjárverðum tímum þegar orkukreppa vofir yfir, verðbólga fer vaxandi, samdráttar gætir í efnahagslífinu, ójöfnuður fer vaxandi, straumur flóttafólks ríður yfir og loftslagsbreytingar láta að sér kveða.

Fundurinn hófst á opnunarathöfn þar sem gestgjafinn, Petr Fiala forsætisráðherra Tékklands, bauð leiðtogana 44 velkomna. Í ávarpi sínu minntist hann vorsins í Prag þegar sovéski herinn barði niður lýðræðisumbætur í Tékkland og bar saman við árás Rússlands á Úkraínu. Á eftir honum ávarpaði Selenskí Úkraínuforseti samkomuna og síðan leiðtogar þriggja ríkja utan ESB. Jonas Gahr Störe forsætisráðherra Noregs fjallaði um orkumál í sínu ávarpi og lýsti Noreg reiðubúinn til að leggja Evrópu lið í orkukreppunni, sbr. sameiginlega yfirlýsingu hans og forseta framkvæmdastjórnar ESB sem birt var í gær. Edi Rama forsætisráðherra Albaníu lagði áherslu á að umsóknarríkin á Vestur-Balkanskaga verði ekki útundan í Evrópu og Liz Truss forsætisráðherra Bretlands sagði árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu vera baráttu milli lýðræðis og alræðis og hvatti til áframhaldandi órofa samstöðu með Úkraínu.

Að opnunarathöfn lokinni tóku við umræður á fjórum hringborðum helguð öryggi og stöðugleika annars vegar og efnahags-, orku- og loftslagsmálum hins vegar. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra stýrði umræðum á öðru síðarnefnda hringborðinu ásamt forsætisráðherra Slóveníu.

Fundinum lauk með vinnukvöldverði og blaðamannafundi þar sem fram kom að almenn ánægja væri með framtakið og að stefnt væri að því að funda áfram með þessu sniði tvisvar á ári, til skiptis í aðildarríki ESB og ríki sem ekki ætti aðild að sambandinu. Í samræmi við það var boðað Moldavía myndi efna til næsta fundar EPC á vormisseri næsta árs, þá tæki við Spánn á haustmisseri sem jafnframt fer þá með formennsku í ESB og að því loknu Bretland á vormisseri 2024.

Fundur leiðtogaráðs ESB

Óformlegur fundur leiðtoga ESB fór fram í dag, 7. október, í Prag í framhaldi af fundi EPC sem fjallað er um hér að framan.

Árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu, orkukreppan og staða efnahagsmála var megin umfjöllunarefni fundarins, sbr. fréttatilkynningu af fundinum sem birt var í kvöld.

Leiðtogar ESB munu hittast á ný 20. og 21. október nk. á og þá á formlegum leiðtogaráðsfundi og má þá fyrst vænta formlegra ályktana ráðsins um framangreind málefni.

Áttundi pakki þvingunarráðstafana ESB gagnvart Rússlandi

Ráðherraráð ESB samþykkti á fimmtudaginn hertar þvingunarráðstafanir gagnvart Rússlandi á grundvelli tillagna frá framkvæmdastjórninni. Aðgerðapakkinn er sá áttundi í röð þvingunarráðstafana gagnvart Rússlandi eftir innrásina í Úkraínu, en með þeim var fram haldið aðgerðum sem hófust árið 2014 í kjölfar hernáms Krímskaga. Megin atriði nýrra ráðstafana er að lagður er lagalegur grundvöllur fyrir innleiðingu verðþaks á olíu frá Rússlandi sem flutt er sjóleiðina frá Rússlandi. Þá verður skipum frá ESB óheimilt að sinna sjóflutningum á olíu, veita tækniaðstoð, miðlunarþjónustu o.fl. í tengslum við slíka flutninga frá Rússlandi til þriðju ríkja, þ.e. ríkja utan ESB, nema olían hafi verið keypt á eða undir verðþakinu sem ákveðið verður. Þessar aðgerðir munu gilda um útflutta hráolíu frá desember nk. og um aðrar olíuvörur frá febrúar 2023.

Tilefni hertra ráðstafana nú eru ákvarðanir rússneskra stjórnvalda um herkvaðningu óbreyttra borgara, að hluta, og yfirlýsingar um innlimun hernumdra héraða í Úkraínu.

Neyðarráðstafanir til að sporna við háu orkuverði

Orkumálaráðherrar ESB náðu á fundi sínum þann 30. september sl. pólitísku samkomulagi um aðgerðir til að sporna við háu orkuverði. Samkomulagið er í grunninn byggt á tillögum framkvæmdastjórnar ESB sem fjallað var um í Vaktinni 23. september sl. Samkomulagið var svo innsiglað í gær, 6. október, með samþykkt reglugerðar ráðsins um neyðarráðstafanir til að til að sporna við háu orkuverði, að undangenginni skriflegri málsmeðferð: Reglugerðin felur í sér

Að dregið verði úr eftirspurn: 1) Með því að draga úr notkun raforku á álagstímum á komandi vetri um a.m.k. 5%. 2) Með því að aðildarríkin stefni að því að draga úr heildareftirspurn eftir raforku um að minnsta kosti 10% til 31. mars 2023. Aðildarríkin ákveða hvert fyrir sig með hvaða aðferðum markmiðunum verði náð.

Að sett verði 180 evra verðþak á hverja MWst frá raforkuframleiðendum sem hafa skilað óvæntum hagnaði undanfarna mánuði án þess að rekstrarkostnaður þeirra hafi aukist. Við ákvörðun á þakinu er tekið tillit til þess að varðveita arðsemi rekstraraðila og forðast að hindra fjárfestingar í endurnýjanlegri orku.

Að kveðið verði á um tímabundið samstöðuframlag vegna umframhagnaðar sem myndast af starfsemi í olíu-, gas- og kolaiðnaði sem falla ekki undir tekjuhámarkið. Samstöðuframlagið verður reiknað af skattskyldum hagnaði fyrirtækjanna og geta aðildarríki nýtt ágóða af því til að veita heimilum og fyrirtækjum fjárhagslegan stuðning og þannig dregið úr áhrifum hás raforkuverðs í smásölu.

Að aðildarríkin geti tekið tímabundnar ákvarðanir um afhendingarverð raforku til lítilla og meðalstórra fyrirtækja og að slíkar ákvarðanir um verð geti í undantekningartilvikum verið undir kostnaðarverði.

Framangreindar aðgerðir eru tímabundnar og gilda frá 1. desember 2022 til 31. desember 2023. Lækkunarmarkmið orkunotkunar gilda til 31. mars 2023 og þak á markaðstekjum gildir til 30. júní 2023.

Ráðherrar ræddu jafnframt frekari möguleika á stefnumörkun til að draga úr háu gasverði, t.a.m. um mögulegt verðþak á innfluttri olíu frá Rússlandi. Eins og greint er frá hér að framan í umfjöllun um þvingunarráðstafanir gagnvart Rússlandi hefur nú náðst samkomulag meðal aðildarríkjanna um slíkt verðþak á olíu frá Rússlandi og hefur reglugerð ESB þar að lútandi þegar tekið gildi.

Eins og greint er frá hér að framan þá voru orkumálin og framangreindar aðgerðir til umræðu í dag á óformlegum leiðtogaráðsfundi ESB í Prag. Orkumálaráðherrar ESB hittast síðan á ný þann 12. október nk. þar sem þessi mál verða áfram til umræðu.

Reglur um ríkisaðstoð og aðgerðir aðildarríkja til bregðast við háu orkuverði

Aðildarríki ESB kynna nú eitt af öðru innanlands aðgerðir til að koma til móts við vanda fólks og fyrirtækja vegna hækkandi orkuverðs. Þar á meðal hefur ríkisstjórn Þýskalands tilkynnt að hún hyggist bregðast við orkukrísunni með því að leggja til 200 milljarða evra til stuðnings við neytendur og fyrirtæki í landinu. Innrás Rússa í Úkraínu hefur haft mikil áhrif á orkuframboð í Þýskalandi, líkt og víðar um Evrópu. Í þessu sambandi má benda á að um 55 prósent gasinnflutnings til Þýskalands kom frá Rússlandi fyrir stríð.

Áform Þjóðverja hafa vakið viðbrögð meðal annarra aðildarríkja og hjá framkvæmdastjórn ESB m.a. af hálfu framkvæmdastjóra efnahagsmála ESB, Paolo Gentiloni, og framkvæmdastjóra innri markaðar ESB, Thierry Breton, sem hafa lýst yfir áhyggjum af umfangi efnahagsaðgerðanna og hvernig þær muni koma til með að hafa áhrif á orkuverð og samkeppni í álfunni, enda hafi ekki öll aðildarríkin svigrúm til að greiða niður orkuverð með þessu móti.

Viðbúið er að boðaðar efnahagsaðgerðir Þjóðverja og fleiri ríkja rati á borð Margrethe Vestager, framkvæmdastjóra samkeppnismála í framkvæmdastjórn ESB. Þar þarf að leggja mat á hvort aðgerðirnar séu í samræmi við almennt regluverk ESB um ríkisaðstoð eða þá bráðabirgðaregluverk, sem fjallað var um í Vaktinni á sínum tíma, og veitti aðildarríkjum skjól í rýmri reglum sem settar voru í kórónuveirufaraldrinum (e. temporary framework). Bráðabirgðaregluverkið var framlengt í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu og er viðbúið að frekari framlenging, með ákveðnum aðlögunum, muni eiga sér stað á næstunni.

Fundir fjármála- og efnahagsráðherra ESB

Fjármála- og efnahagsráðherrar ESB komu saman til funda 3. og 4. október annars vegar á vettvangi evruhóps ESB (e. Eurogroup) og hins vegar á vettvangi ráðherraráðs ESB

Fjármála- og efnahagsráðherrar evruríkja ESB komu að venju saman degi fyrir almenna ráðherraráðsfundinn. Staða efnahagsmála á evrusvæðinu og aðgerðir stjórnvalda til að sporna við háu orkuverði og tilheyrandi verðbólguþrýstingi var eitt aðalumræðuefnið og tók framkvæmdastjóri OECD þátt í henni. Megináherslan var um nauðsyn þess að styðja við fátæk heimili og viðkvæm fyrirtæki með víðtækum bráðaaðgerðum. Þessar aðgerðir munu á hinn bóginn hafa vaxandi neikvæð áhrif á fjárlög evruríkjanna á kostnað frekari aðgerða ESB á orkusviðinu. Eins og forseti evruhópsins Pascal Donohoe orðaði það: „(Therefore,) we aim to focus our support increasingly on cost-efficient measures, in particular income measures that are exceptional, temporary, and targeted to the vulnerable”. Þá minnti hann á nauðsyn samstöðu evruríkjanna hvað varðaði aðgerðir, og að öll ríkin reru á sömu átt (e. level playing field). Jafnframt yrðu ríkin að forðast aðgerðir sem ýttu enn frekar undir verðbólguþrýstinginn. Að lokum minnti hann á Bjargráðasjóðinn (e. Recovery and Resilience Fund) sem gegnir lykilhlutverki í ráðagerð ESB, en tékkneska formennskan hefur náð samkomulagi um að bæta 20 milljörðum evra í sjóðinn gegnum REPowerEU verkefnið.

Sérstaklega var rætt um stöðu Bjargráðasjóðsins og efnahagsaðgerðir evruríkjanna (e. Euro area recommendations) í tengslum við hann. Ljóst er að ytri aðstæður hafa breyst verulega síðan sjóðurinn var settur á fót sem gæti kallað á breytingar á fyrri áformum, sbr. áðurnefnt viðbótarframlag. Brýnt er að stjórnvöld í evruríkjunum hugi að því við fjárlagagerð næsta árs hvort og þá hvernig breyta þurfi áherslum með hliðsjón af breyttum aðstæðum í góðu samráði hvert við annað.

Loks ræddu evruráðherrarnir mögulega upptöku rafrænrar evru (e. digital euro) og stöðu þeirrar athugunar. Fyrir fundinum lá skýrsla frá Evrópska Seðlabankanum, sem meðal annars var unnin í samráði við seðlabanka evruríkjanna þar sem greint var frá stöðunni. Að mörgu þarf að hyggja varðandi verkefnið og hagsmunaaðilar eru margir. Fyrir liggur að rafræn evra verður eins og hver annar formlegur gjaldmiðill, gefin út af seðlabanka, sem notuð verður í smásöluviðskiptum innan evrusvæðisins. Hún kemur þó ekki í staðinn fyrir seðla og mynt í evru (e. cash). Framkvæmdastjórn ESB áformar að leggja fram tillögu að reglugerð um rafræna evru á fyrsta ársfjórðungi 2023.

Ráðherraráðsfundur fjármála- og efnahagsráðherra ESB var haldinn 4. október. Eftirfarandi mál voru m.a. til umræðu á fundinum:

Orkuskipti ESB (e. REPowerEU). Fyrst á dagskrá ráðherranna var að móta og samþykkja afstöðu ráðsins til fjölþættra tillagna framkvæmdastjórnarinnar um orkuskipti innan ESB) og er ráðið nú reiðubúið til þríhliða viðræðna við Evrópuþingið og framkvæmdastjórnina um endanlega útfærslu áætlunarinnar. Verkefnið verður styrkt með viðbótarframlögum í Bjargráðasjóðinn upp á 20 milljarða evra eins og áður var nefnt. Auk umhverfismarkmiða er markmið þessara aðgerða að draga úr eftirspurn ESB eftir rússneskri orku og veita þeim meira sjálfræði um eigin orkuöflun og -notkun. Tékkneska formennskan hefur lagt þunga áherslu á afgreiðslu málsins og á fundinum hvatti tékkneski ráðherrann önnur aðildarríki til að tryggja hraðann framgang málsins.

Fjármálamarkaður og hátt orkuverð. Rætt var um möguleg áhrif hás orkuverðs á fjármálamarkaðinn og þá áhættu sem af því gæti hlotist. Vandamálið er fyrst og fremst tengt markaði með orkuafleiður þar sem skapast hefur óeðlilegt ástand vegna hárra orkuverða. Orkuseljendur hafa þannig lent í greiðsluerfiðleikum vegna mikilla innlausna/innkallana og í einhverjum tilvikum þurft að leita til stjórnvalda eftir stuðningi þar sem fjármálastofnanir hafa ekki verið tilbúnar að veita þessum fyrirtækjum viðbótarlán til að mæta lausafjárvandanum. Á fundinum var meðal annars rætt um hvort möguleiki væri á að nýta ríkjastyrkjareglurnar, sem enn eru í gildi til bráðabirgða, sbr. umfjöllun hér að framan, til lausnar málinu.

Fjármálaþjónusta. Á fundinum var farið yfir stöðu umfjöllunar um nýjar margþættar löggjafartillögur framkvæmdastjórnarinnar á sviði fjármálaþjónustu. Þar kennir ýmissa grasa. Má þar nefna löggjöf um peningaþvætti, reglugerð um markað með rafrænar eignir (e. Markets in Crypto Assets; MiCA) og reglugerð um græn skuldabréf. Til grundvallar umræðunni lá samantekt frá framkvæmdastjórn ESB. Um þessar tillögur var að hluta fjallað um í Vaktinni 10 júní sl.

Fundur landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra ESB

Landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherrar ESB hittust í Brussel þann 26. september á vettvangi ráðherraráðs ESB. Ráðherrarnir ræddu stöðu landbúnaðarframleiðslu innan sambandsins og í Úkraínu og hvernig tryggja mætti öruggar flutningsleiðir landbúnaðarafurða innan Úkraínu og til annarra landa. Ráðherra landbúnaðar og matvæla í Úkraínu, Mykola Solsky, var sérstakur gestur fundarins.

Ráðherrarnir fögnuðu nýjum tölum um góða uppskeru í Úkraínu, þar á meðal tiltölulega stöðugri kornframleiðslu. Einnig lýstu þeir ánægju með enduropnun hafna við Svartahaf. Tékkneski landbúnaðarráðherrann ítrekaði að Evrópusambandslöndin væru staðráðin í að styðja áfram við flutning á hveiti, maís og öðrum kornvörum frá Úkraínu til viðskiptavina í öðrum löndum.

Ráðherrarnir ræddu einnig merkingar matvæla og næringarmerkingar framan á pakkningum sem veita neytendum mikilvægar upplýsingar. Evrópusambandið er að undirbúa tillögur um breytingar á reglugerð um upplýsingar á matvælum til neytenda með það að markmiði að samræma og einfalda næringarupplýsingar þannig að þær verði meira leiðbeinandi fyrir neytendur með tilliti til hollustu þeirra. Einnig er fyrirhugað að endurskoða reglur um „best fyrir“ merkingar til að minnka matarsóun. Reglugerðin er hluti af Farm to Fork áætlun ESB. Þess má geta að eftirfylgni með framgangi þessara tillagna er á forgangslista ríkisstjórnarinnar um hagsmunagæslu Íslands gagnvart ESB vegna aðildar Íslands að EES-samningnum.

Ráðherrarnir ræddu auk þess úthlutun veiðiheimilda fyrir árið 2023 og stjórnun veiða úr stofnum sem sambandið deilir með Bretlandi. Lögð var áhersla á mikilvægi vísindalegrar ráðgjafar sem grunn fyrir komandi viðræður. Auk þess skiptust ráðherrar á skoðunum um fyrirkomulag samráðs við Noreg og önnur strandríki, sem tekið hefur breytingum í kjölfar Brexit.

Ráðherrafundur ESB um samkeppnismál og málefni innri markaðarins

Ráðherrar samkeppnismála og málefna innri markaðar ESB funduðu í Brussel á vettvangi ráðherraráðs ESB 29. september sl. Megin umfjöllunarefni fundarins voru nýjar löggjafartillögur um auknar valdheimildir framkvæmdastjórnar ESB til ráðstafana á innri markaði í neyðaraðstæðum. Fjallað var um tillögurnar í Vaktinni 23. september sl. Tillögurnar verða til áframhaldandi umræðu í Evrópuþinginu og ráðinu á næstunni.

Ráðherrarnir fjölluðu einnig m.a. um tillögur framkvæmdastjórnarinnar um vistvæna vöruhönnun (e. Ecodesign for sustainable products) en þær eru hluti af tillögupakka framkvæmdastjórnarinnar um hringrásarhagkerfið sem birtur var síðastliðið vor og fjallað var um í Vaktinni 1. apríl sl.

Áhrif tillagna um breytingar á ETS viðskiptakerfinu á flug til Íslands

Þríhliða viðræður framkvæmdastjórnarinnar, Evrópuþingsins og ráðherraráðsins um tillögur að breytingum á ETS viðskiptakerfinu í flugi og nýja gerð um íblöndun flugvélaeldsneytis hófust núna í október. Fjallað var um afstöðu Evrópuþingsins og ráðherraráðsins til tillagnanna í Vaktinni 22. júlí sl.

Utanríkisráðuneytið hefur látið útbúa líkan sem sýnir áhrif gerðanna á flug og leiðir líkanið m.a. skýrlega í ljós að neikvæð áhrif á flug til Íslands eru umtalsverð. Þrátt fyrir þær breytingar sem kynntar hafa verið sýnir líkanið að áhrif viðskiptakerfisins á samkeppnisstöðu tengiflugs og kostnað flugfélaga eru margfalt á við áhrifin af kröfum um íblöndun flugvélaeldsneytis a.m.k. fram til 2035. Ástæðan er hátt verð á losunarheimildum (80-90 evrur) sem spáð er að muni fara hækkandi. Auk þess er lagt til að úthlutun losunarheimilda án endurgjalds verði hætt frá og með 2027. Þar sem flug er jafnan eini valkosturinn fyrir ferðalög frá Íslandi og fjarlægð til áfangastaða í Evrópu er löng (að meðaltali um 2.200 km), eru áhrifin meiri hér en víðast annars staðar. Þá eykur það vandann að framboð á íblöndunarefni er lítið enn sem komið er og það efni sem í boði er er dýrt. Má reikna með því kostnaðarauki flugfélaga sem af tillögunum leiðir muni leiða til hækkunar á flugmiðaverði. Líkanið leiðir í ljós að áhrifin af tillögunum á flugrekstur gætu að óbreyttu orðið mun meiri á Íslandi en í öðrum EES-ríkjum, og þá sérstaklega á tengiflug og fjölda áfangastaða sem þjónað er frá Íslandi.

Þessa dagana er unnið að kynningu á áhrifum tillagnanna á samkeppnisstöðu flugfélaga á evrópska efnahagssvæðinu sem nota tengiflugvelli. Forsætisráðherra, utanríkisráðherra, innviðaráðherra og umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra hafa tekið málið upp á fundum með kollegum sínum. Meðal annars átti utanríkisráðherra fund um málið með utanríkisráðherra Þýskalands og innviðaráðherra með samgönguráðherra Hollands. Þá er áfram unnið þétt að hagsmunagæslu vegna málsins í sendiráðinu í Brussel og eru ráðgerðir fundir með fulltrúum fastanefnda aðildarríkja ESB og fulltrúum framkvæmdastjórnarinnar á næstunni sem og fulltrúum Evrópuþingsins, þ.á.m. umsjónarmanni málsins af hálfu þingsins sem fer með fyrirsvar í þríhliða viðræðunum sem hafnar eru.

Tillögur framkvæmdastjórnar ESB um aðlögun skaðsemisábyrgðarreglna að stafrænum veruleika og hringrásarhagkerfinu

Framkvæmdastjórn ESB hefur lagt fram nýjar löggjafartillögur er lúta að aðlögun skaðsemisábyrgðarreglna ESB að stafrænum veruleika og hringrásarhagkerfinu. Er gert ráð fyrir að endurskoðaðar reglur muni veita bæði framleiðendum vara og neytendum sem verða fyrir tjóni af völdum gallaðra vara aukið réttaröryggi auk þess sem þeim er ætlað að styðja við nýsköpun og framþróun. Þá er lögð til samræming reglna innan aðilarríkjanna um bótaábyrgð vegna tjóns sem hlýst af gervigreindarvörum. Ertu tillögurnar í samræmi við markmið hvítbókar ESB um gervigreind og framkomnar löggjafartillögur framkvæmdastjórnar ESB um gervigreind sem lagðar voru fyrir Evrópuþingið og ráðið í apríl 2021.

Skýrsla Endurskoðunarréttar ESB um aðgerðir gegn ólögmætum fiskveiðum

Endurskoðunarréttur ESB (e. European Court of Auditors) hefur sent frá sér úttektarskýrslu um aðgerðir ESB gegn ólögmætum fiskveiðum.

Í skýrslunni kemur fram að ólögmætar fiskveiðar séu meðal þeirra þátta sem helst ógna vistkerfi hafsins enda grafi þær undan viðleitni til að stýra fiskveiðum með sjálfbærum hætti.

Í skýrslunni eru aðgerðir einstakra aðildarríkja til að sporna við ólögmætum veiðum og til að koma í veg fyrir að afurðir slíkra veiða, hvort sem það eru afurðir ólögmætra fiskveiða á hafsvæðum ESB eða utan þeirra, komist á neytendamarkað skoðaðar og metnar.

Meginniðurstaða skýrslunnar er sú að enda þótt eftirlitskerfin séu til staðar séu þau fremur óskilvirk meðal annars vegna þess hversu misjafn eftirlit og viðurlagaframkvæmd er á milli aðildarríkjanna.

Mælt er með því við framkvæmdastjórn ESB að hún hlutist til um að aðildarríkin styrki eftirlitskerfi sín og tryggi að þau beiti viðurlögum gegn ólöglegum veiðum þegar við á.

Bent er á að samkvæmt sjálfbærnismarkmiðum sambandsins, sbr. heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, hafi verið stefnt að því binda enda á ólögmætar veiðar fyrir árið 2020.

Sjávarútvegur ESB er stór, bæði hvað varðar skipaflota, sem telur um 79.000 skip, og magn viðskipta með sjávarafurðir í heiminum, en innflutningur sambandsins nemur alls 34% af heimsviðskiptum.

Brussel-vaktin er gefin út af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Vaktin kemur út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

23. september 2022 | Stefnuræða Ursulu von der Leyen: Samstaða með Úkraínu, orkumál og hagvarnir |
Að þessu sinni er fjallað um:

stefnuræðu forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB),

neyðarráðstafanir í orkumálum,

leiðtogafundi í Evrópu í október,

tillögu um auknar valdheimildir framkvæmdastjórnar ESB til ráðstafana á innri markaði í neyðaraðstæðum,

tillögu um útvíkkun á gildissviði reglugerðar um netöryggi,

tillögu um bann á vörum sem framleiddar eru með nauðungarvinnu,

tillögu að nýrri löggjöf um frelsi fjölmiðla,

tillögu að tilskipun um eftirlit með hættulegum varningi,

fund landbúnaðarráðherra ESB,

samráð um endurskoðun reglna um réttindi farþega,

samráð um úthlutunarreglur fyrir afgreiðslutíma flugvéla,

samráð um reglur fyrir útreikning og framsetningu upplýsinga um losun frá samgöngum,

samráð um fyrirhugaðar breytingar á tilskipun um eftirlit með bifreiðum,

heimsókn ráðuneytisstjóra háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis til Brussel.

Stefnuræða forseta framkvæmdastjórnar ESB

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB flutti stefnuræðu sína fyrir komandi ár (e. State of the Union Speech) í Evrópuþinginu 14. september sl. Árásarstríð Rússlands gagnvart Úkraínu og áhrif þess voru nokkuð alltumlykjandi en í ræðunni lagði hún m.a. áherslu á eftirfarandi:

Áframhaldandi einarðan stuðning við Úkraínu. ESB hafi frá upphafi innrásarinnar stutt Úkraínu með vopnum, fjárframlögum, móttöku flóttamanna og hörðustu þvingunaraðgerðum sem nokkurn tíma hafi verið beitt. Fram kom að samanlögð framlög ESB til Úkraínu nemi frá upphafi stríðsins 19 milljörðum evra og boðað að 100 milljónum evra verði að auki varið til enduruppbyggingar á skólum sem skemmst hafi í árásunum.

Von der Leyen boðaði ennfremur að hún vilji veita Úkraínu fullan aðgang (seamless access) að innri markaði Evrópu. Fram kom að Úkraína hafi þegar tengst orkuneti Evrópu og að öllum innflutningstollum hafi þegar verið létt af útflutningi frá Úkraínu til ESB. Jafnframt boðaði forsetinn að Úkraína yrði tengd ókeypis reikineti Evrópu en að öðru leyti var ekki tilgreint nánar hvernig aðild að innri markaðnum yrði útfærð. Ástæða er til að fylgjast með því áfram, einnig m.t.t. áhrifa þess á Evrópska efnahagssvæðið skv. EES-samningnum.

Athygli vakti að Von der Leyen boðaði ekki nýjar þvingunaraðgerðir þennan dag en lét nægja að árétta áhrif þegar ákveðinna aðgerða. Hún sagði þær þegar farnar að bíta harkalega og lagði áherslu á að þær væru komnar til að vera. Framkvæmdastjórnin var þó fljót að bregðast við eftir að Pútín tilkynnti um herkvaðningu varaliðsins í vikunni og umræða um tillögur hennar að 8. umferð aðgerða hófst í hópi fastafulltrúa aðildarríkjanna í morgun.

Aðgerðir til að takast á við orkukreppuna. Sjá sérstaka umfjöllun um orkumálin hér á eftir.

Auknar hagvarnir. Fram kom m.a. að tryggja þyrfti aðgengi að sjaldgæfum jarðmálmum og öðrum hráefnum sem nauðsynleg væru til framleiðslu algengra íhluta s.s. örgjörva og hálfleiðara og jafnvel matvæla. Boðaði forsetinn í því samhengi m.a. sérstaka lagasetningu um aðgengi að mikilvægri hrávöru innan sambandsins (e. European Critical Raw Materials Act).

Stuðning við atvinnulífið. Í þessu samhengi vísaði forsetinn til áætlunar framkvæmdastjórnarinnar um samkeppnishæft rekstrarumhverfi til framtíðar. Fram kom að atvinnulífið væri að glíma við afleiðingar hækkandi verðbólgu og óvissu með aðföng. Brýnt væri að koma atvinnulífinu til aðstoðar og síst litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem væru hryggjarstykkið í evrópsku atvinnulífi. Sú aðstoð yrði kynnt í aðgerðaáætlun undir heitinu „SME Relief Package“ eða sérstakri aðgerðaáætlun fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.Einn hluti hennar varðar samræmdar reglur um skattlagningu fyrirtækja í Evrópu eða BEFIT, „Business in Europe: Framework for Income Taxation“. Tillagan um BEFIT er ekki ný af nálinni heldur var hún fyrst kynnt á fyrri hluta þessa árs. Áhugavert verður að fylgjast með því hvernig málinu mun vinda fram næstu mánuði. Enda þótt skattamál séu ekki hluti af EES-samningnum með beinum hætti má ætla að breyttar skattareglur innan ESB kunni að kalla á endurskoðun á íslensku skattkerfi þannig að íslensk fyrirtæki búi við sambærilegar reglur og önnur fyrirtækji á innri markaði ESB/EES.

Að ESB verði óháð jarðefnaeldsneyti frá Rússlandi. Fram kom m.a. að þess í stað verði tengsl og samstarf við áreiðanlega efld. Noregur var sérstaklega nefndur í því samhengi og haldið til haga að forsætisráðherra Noregs hafi fallist á að koma á fót starfshópi til að koma böndum á verðið.

Fjárfest verði í endurnýjanlegum orkugjöfum. Þar er vetnisframleiðsla efst á blaði og samstarf ríkja við Norðursjó og Eystrasaltið um virkjun vindorku til framleiðslu á grænu vetni lofuð sérstaklega. Forsetinn boðaði að komið verði á fót nýjum Vetnisbanka Evrópu og til hans varið 3 milljörðum evra til að byggja upp markaðinn og styðja við fjárfestingar í nýsköpun á þessu sviði.

Forystu í aðlögun vegna loftlagsbreytinga og í náttúruvernd.

Varðstöðu um lýðræði og réttarríki. Fram kom að í þessu skyni þyrfti m.a. að draga úr erlendum fjárfestingum sem geta haft áhrif á lýðræðislega þróun í Evrópu og auka samstarfið á milli lýðræðisríkja um allan heim. Augljós samhljómur er hér við áherslur Joe Bidens forseta Bandaríkjanna á þessu sviði.

Endurskoðun fjármálareglna ESB (e. fiscal rules). Fjármálareglurnar eru að uppistöðu tvær og ganga undir samheitinu „Stability and Growth Pact“ (SGP) sem á íslensku má nefna sáttmáli um stöðugleika og hagvöxt. Fyrri reglan er að halli hins opinbera verði að vera undir 3% af vergri landsframleiðslu (VLF) og sú seinni að opinberar skuldir eða skuldahlutfallið sé undir 60% af VLF. Þessar reglur voru hins vegar teknar úr sambandi vegna þeirra opinberu aðgerða sem grípa þurfti til í kórónuveirufaraldrinum en gert hafði verið ráð fyrir að þær tækju gildi á ný frá og með árinu 2024. Staðreyndin er hins vegar sú að mörg aðildarríkjanna, einkum í sunnanverðri álfunni, eru langt frá því að uppfylla reglurnar í dag og munu vart ná að aðlaga sig settu marki á tilskildum tíma. Þannig hefur um nokkurn skeið legið fyrir að endurskoða þyrfti reglurnar og var sú umræða raunar komin af stað fyrir innrás Rússlands í Úkraínu og jafnframt fyrir kórónuveirufaraldurinn.
Framkvæmdastjórn ESB stefnir að því að kynna fyrstu tillögu sína að endurskoðuðum fjármálareglum í október nk.

Hinar evrópsku fjármálareglur falla ekki undir EES-samninginn og gilda því ekki á Íslandi. Í lögum nr. 123/2015, um opinber fjármál, er kveðið á um sambærilegar fjármálareglur og lýst er að framan. Samkvæmt íslensku lögunum er afkomureglan sú að hallinn verði undir 2,5% af VLF og skuldahlutfallið ekki hærra en 30% á sama mælikvarða. Eins og kunnugt er gripu íslensk stjórnvöld til margvíslegra aðgerða, bæði sértækra og almennra, til að sporna gegn efnahagslegum áhrifum heimsfaraldursins. Þær leiddu til þess að hallinn á rekstri ríkissjóðs var um 8% af VLF árin 2020 og 2021 og skuldir ríkissjóðs samkvæmt skuldareglunni fóru í 33,4% af VLF í árslok 2021. Jafnframt var útlit fyrir að skuldahlutfallið gæti orðið um og yfir 50% árið 2023. Þessi þróun kallaði á breytingar á lögum um opinber fjármál á árinu 2020 þar sem báðar reglurnar voru teknar úr sambandi og taka ekki aftur gildi fyrr en árið 2026 að óbreyttu.

Að tími væri komin á Evrópuráðstefnu til endurskoðunar á sáttmálum ESB. Var möguleg boðun Evrópuráðstefnu sett í samhengi við kynslóðasáttmála annars vegar um allar ákvarðanir þyrfti að taka með hliðsjón af framtíð barna okkar og að slík grundvallarviðmið þyrftu að endurspeglast í sáttmálum ESB og hins vegar því að endurskoða þyrfti og bæta ákvörðunarferlið innan sambandsins sambandsins, en Von der Leyen hefur ekki dregið dul á að þörf sé á auka valdheimildir ráðsins þannig að aukinn meirihluti geti ákvarðanir á fleiri sviðum en nú er, þ. á m. í utanríkismálum.

Neyðarráðstafanir í orkumálum

Eins og vikið er að að framan fengu orkumálin sinn sess í stefnuræðu forseta framkvæmdastjórnar ESB. Ljóst er að áskoranir sem ríki ESB standa frammi fyrir vegna orkuskort og hækkandi orkuverðs eru miklar. Verkefni framkvæmdastjórnarinnar hefur verið koma fram með tillögur að ráðstöfunum sem aðildarríkin geta náð saman um og hrint í framkvæmd með skjótum hætti til að létta álagi af heimilum og fyrirtækjum. Í yfirlýsingu forseta framkvæmdastjórnarinnar, 7. september, sem greint var frá í Vaktinni, voru settar fram óformlegar tillögur sem í framhaldinu voru ræddar á fundi orkumálaráðherra ESB þann 9. september. Formlegar tillögur framkvæmdastjórnarinnar voru síðan kynntar í stefnuræðunni og eins og við var að búast eru tillögurnar áþekkar þeim sem áður voru höfðu verið kynntar. Tillögurnar eru eftirfarandi:

Að dregið verði úr eftirspurn. 1) Með því að draga úr notkun raforku á álagstímum á komandi vetri um a.m.k. 5%. 2) Með því að aðildarríkin stefni að því að draga úr heildareftirspurn eftir raforku um að minnsta kosti 10% til 31. mars 2023.

Að sett verði tímabundið tekjuþak á raforkuframleiðendur með skattlagningu og skatttekjurnar millifærðar til orkuneytanda í gegnum millifærslukerfi hvers aðildarríkis.

Að kveðið verði á um tímabundið samstöðuframlag vegna umframhagnaðar sem myndast af starfsemi í olíu-, gas- og kolaiðnaði sem falla ekki undir tekjuhámarkið. Tekjur af framlaginu yrðu sömuleiðis millifærðar til orkuneytenda í gegnum millifærslukerfi hvers aðildarríkis.

Að endurskoða og endurbæta ráðleggingar um úrræði til að bregðast við hækkandi orkuverði.

Að veitt verði heimild til tímabundinnar ríkisaðstoðar til orkuveitufyrirtækja í formi aðgangs að lausafé og ábyrgða til takast á við markaðssveiflur og til að tryggja stöðugleika á markaði til framtíðar.

Að lokum kom fram að til stæði að stofna svokallaðan Vetnisbanka og veita til hans þremur milljörðum evra en hlutverk hans verður að styðja við verkefni sem tengjast framleiðslu á vetni og stuðla þannig að myndun evrópsks vetnismarkaðar.

Enda þótt staða orkumála hafi versnað mjög frá því að innrás Rússlands í Úkraínu hófst, hefur á vettvangi ESB um allnokkurt skeið verið unnið að úrræðum til að takast á við hækkandi raforkuverð og orkuskort. Samanber m.a. „Energy Prices Toolbox“ sem samþykkt var í október 2021. Aukið var við verkfærakistuna síðastliðið vor þegar tilkynnt var um heimildir til tímabundinnar markaðsíhlutunar og langtíma umbætur á raforkumarkaði. Áætlunin „REPowerEU“ sem framkvæmdastjórnin kynnti 18. maí sl. er jafnframt í fullu gildi og snýst um að draga úr eftirspurn, auka fjölbreytni orkugjafa og fjárfestingar í endurnýtanlegum orkugjöfum.

Orkumálaráðherrar ESB munu hittast á ný 30. september á vettvangi ráðherraráðs ESB til umræðna um framangreindar tillögur og ákvarðanatöku eftir atvikum.

Leiðtogafundir í Evrópu í október

Forseti leiðtogaráðs ESB og tékkneska formennskan hafa tekið höndum saman um að boða til leiðtogafundar 44ra Evrópuríkja í Prag 6. Október nk. Til hans hefur verið vísað sem European Political Community en þörf fyrir fund af þessu tagi var fyrst nefnd af Macron Frakklandsforseta þegar hann brást við skýrslu Ráðstefnunnar um framtíð Evrópu sl. vor. Auk allsherjarsamkomu (plenary) við upphaf og lok fundarins verður fer fundurinn fram á fjórum hringborðum helguðum eftirtöldum umræðuefnum: 1) Öryggi og stöðugleiki, 2) orka og loftslagsmál, 3) efnahagsmál og 4) fólksflutningum (mobility and migration). Auk leiðtoga ESB- og EFTA-ríkjanna eru ríki á Vestur-Balkanskaga, Tyrklandi, Georgíu, Moldóvu og Úkraínu á meðal þeirra sem boðið er til fundarins.

Í framhaldi af þessum fundi kom leiðtogar ESB saman til óformlegs fundar á sama stað 7. október og seinna í mánuðinum á formlegum fundi í Brussel 20. – 21. október.

Evrópumálaráðherrar ESB komu saman til fundar 20. september sl. á vettvangi allsherjarráðs ráðherraráðsins (e. General Affairs Council) m.a. til að undirbúa fund leiðtogaráðsins. Í framhaldi af fundinum voru birt drög að dagskrá leiðtogafundarins 20. – 21. október. Samkvæmt dagskrárdrögunum verða málefni Úkraínu, orkukreppan og staða efnahagsmála megin umfjöllunarefni fundarins eins og við mátti búast.

Tillaga um auknar valdheimildir framkvæmdastjórnar ESB til ráðstafana á innri markaði í neyðaraðstæðum

Framkvæmdastjórn ESB kynnti í vikunni tillögu að löggjöf sem hefur það að markmiði að tryggja virkni innri markaðarins þegar neyðarástand steðjar að. Um er að ræða hið svokallaða Single Market Emergency Instrument (SMEI) en tillagan er kynnt í kjölfar þeirrar krísu sem innri markaðurinn stóð frammi fyrir vegna hamlana sem heimsfaraldur kórónuveiru leiddi af sér undanfarin tvö ár með tilheyrandi röskun á frjálsu flæði fólks, vöru og þjónustu. Tillögunni er þannig ætlað að tryggja að ríki innri markaðarins séu samstíga í viðbragði við neyðarástandi og að hægt verði að tryggja frjálst flæði fólks, vöru og þjónustu eftir fremsta megni við slíkar aðstæður, að aðfangakeðjur raskist ekki stórlega og að framboð og aðgangur sé að vörum og þjónustu sem mega teljast mikilvægar.

Tillagan gerir ráð fyrir að innan ramma SMEI verði komið á fót krísustjórnunarkerfi ríkja innri markaðarins sem ætlað er að leggja upp með virk samskipti og öfluga samhæfingu til að auka viðbragð við neyðarástandi. Við slíkar aðstæður muni sérstakur ráðgjafarhópur fulltrúa framkvæmdastjórnar ESB og aðildarríkjanna koma saman og leggja mat á hættuna sem um ræðir og hvernig best sé að bregðast við.

Aukin heldur verði lagðar fram aðgerðir um hvernig megi fylgjast með aðfangakeðjum við slíkar aðstæður og tryggja betur frjálst flæði mikilvægra vara og þjónustu. Í neyðarástandi geti framkvæmdastjórnin óskað eftir upplýsingum og gefið út tilmæli um að auðvelda aðgengi að þessum skilgreindu mikilvægu vörum og þjónustu og að liðkað verði fyrir opinberum innkaupum í því skyni. Í mjög svo brýnum tilfellum geti framkvæmdastjórnin sent beiðni til rekstraraðila um upplýsingar og farið þess á leit við þá að þeir panti vörur sem metnar eru í forgangi þegar neyðarástand ríkir eða að þeir gefi öðrum kosti góðar og gildar ástæður fyrir því af hverju slíkri beiðni er hafnað.

Tillagan um SMEI-löggjöfina er á forgangslista íslenskra stjórnvalda um mál í hagsmunagæslu í EES-samstarfinu fyrir árin 2022-2023.

Sendiráðið mun fylgjast náið með framgangi tillögunnar sem verður næst tekin fyrir á vettvangi Evrópuþingsins og í ráðherraráði ESB.

Tillaga um útvíkkun á gildissviði reglugerðar um netöryggi

Framkvæmdastjórn ESB hefur lagt fram tillögu um útvíkkun reglna um netöryggi (e. Cyber Resilience Act).

Núverandi Evrópureglur taka aðeins til tiltekinna nettengdra vara. Tillagan felur í sér að gerðar verða netöryggiskröfur við hönnun, þróun og framleiðslu á hvers kyns nettengdum vörum til sölu á innri markaði ESB.

Þá er m.a. í tillögunum kveðið á um tilkynningarskyldu framleiðenda nettengdra vara til að upplýsa um hvers kyns öryggisbresti.

Tillagan er hluti af áætlun ESB um að aðlaga sambandið að nýjum stafrænum tímum (e. A Europe fit for the digital age) en eftirfylgni með þeirri áætlun er meðal mála á forgangslista ríkisstjórnarinnar.

Tillagan gengur nú til umræðu og afgreiðslu í Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Tillaga um bann á vörum sem framleiddar eru með nauðungarvinnu

Í síðastliðinni viku birti framkvæmdastjórnin tillögu að nýrri reglugerð þar sem mælt er fyrir um að vörur sem eru framleiddar með nauðungarvinnu, að hluta eða öllu leyti, verði bannaðar á innri markaði ESB (e. Forced labour products ban).

Reglugerðinni er ætlað að styðja við eitt af meginmarkmiðum evrópsku réttindastoðarinnar sem er sanngjarn vinnumarkaður. The European Pillar of Social Rights Action Plan og er ætlað að styðja aðrar aðgerðir og stefnur framkvæmdastjórnarinnar á þessu sviði, s.s. stefnu ESB um réttindi barna, þar sem lagt er fortakslaust bann við nauðungarvinnu. Varðandi nauðungarvinnu er byggt á skilgreiningu alþjóðlegu vinnumálastofnunarinnar, en talið er að tæplega 27 milljónir manna séu í nauðungarvinnu á heimsvísu.

Gildissvið reglugerðarinnar er vítt og nær til allra vara hvort sem þær eru framleiddar innan ESB til neyslu innanlands eða til útflutnings og til innfluttra vara óháð því hvar þær eru framleiddar.

Yfirvöldum í hverju ríki fyrir sig, er falin framkvæmd og eftirfylgni reglugerðarinnar en gert er ráð fyrir því að settur verði upp gagnagrunnur með upplýsingum um líkleg nauðungarvinnusvæði eða vörur. Þá er gert ráð fyrir að stofnaður verði nýr vettvangur (EU Forced Labour Product Network) til að tryggja skipulagða samhæfingu og samvinnu milli þar til bærra yfirvalda í aðildarríkjunum og framkvæmdastjórnarinnar. Ennfremur hyggst framkvæmdastjórnin gefa út leiðbeiningar um hvernig fyrirtæki geti greint einkenni nauðungarvinnu í aðfangakeðjum sínum.

Tillagan gengur nú til umræðu og afgreiðslu í Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Tillaga að nýrri löggjöf um frelsi fjölmiðla

Framkvæmdastjórn ESB hefur lagt fram tillögu að nýrri rammalöggjöf um frelsi fjölmiðla (e. European Media Freedom Act). Framlagning tillögunnar var boðuð í stefnuræðu forseta framkvæmdarstjórnarinnar árið 2021. Tillaga byggir meðal annars á skýrslu framkvæmdastjórnarinnar um stöðu réttarríkisins í aðildarríkjum ESB sem fjallað hefur verið um í Vaktinni. Er nýjum reglum ætla að vernda margbreytileika og sjálfstæði fjölmiðla gegn pólitískum afskiptum og eftirliti. Þar sem starfræktir eru opinberir fjölmiðlar í almannaþágu er lögð áhersla á að tryggð sé stöðug fjármögnun þeirra. Að öðru leyti er lögð áhersla á gagnsæi eignarhalds fjölmiðla og ráðstafanir gerðar til að koma í veg fyrir og upplýsa um hagsmunaárekstra. Er lögunum ætlað að auðvelda fjölmiðlum, bæði opinberum fjölmiðlum og fjölmiðlum í einkaeigu að starfa yfir landamæri á innri markaði ESB. Sérstaklega er kveðið á um vernd gegn notkun hverskyns njósnahugbúnaðar gegn fjölmiðlum, blaðamönnum þeirra og fjölskyldum.

Lagt er til að sett verði á fót ráðgefandi stjórn fyrir fjölmiðlaþjónustu á innri markaði ESB sem skipuð verði fulltrúum fjölmiðlayfirvalda í aðildarríkjunum. Hlutverk stjórnarinnar verður m.a. að stuðla að skilvirkri og samræmdri beitingu fjölmiðlalaga innan ramma laganna, einkum með því að aðstoða framkvæmdastjórn ESB við að útbúa leiðbeiningar og reglur. Gert er ráð fyrir að stjórnin muni einnig fá heimildir til að gefa álit á ráðstöfunum og ákvörðunum í aðildarríkjunum sem hafa áhrif á fjölmiðlamarkaði eða leiða til samþjöppunar á þeim markaði.

Tillagan gengur nú til umræðu og afgreiðslu í Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Tillaga að tilskipun um eftirlit með hættulegum varning

Framkvæmdastjórn ESB hefur birt tillögu að tilskipun um endurgerð (e. codification) löggjafar um eftirlit með flutningi á hættulegum varning. Framkvæmdastjórnin leggur áherslu á einfalda löggjöf sem er aðgengileg fyrir almenning svo einstaklingar og fyrirtæki eigi auðveldar með að lesa sig til um og gæta réttar síns. Hætt sé við að löggjöf verði óskýr og torlesin þegar henni hefur verið breytt mörgum sinnum og er það vinnuregla framkvæmdastjórnarinnar að hafi tilltekinni löggjöf verði breytt mörgum sinnum skuli skoða hvort megi einfalda hana.

Með nýrri tilskipun eru sameinaðar margar gerðir sem lúta að eftirliti með flutningi á hættulegum varning á vegum. Tillagan breytir ekki núverandi löggjöf að neinu marki efnislega heldur gerir hana einfaldari og aðgengilegri.

Tillagan gengur nú til umræðu og afgreiðslu í Evrópuþinginu og í ráðherraráði ESB.

Fundur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra ESB

Fæðuöryggi og hlutverk evrópsks landbúnaðar og sjálfbær alþjóðleg matvælaframleiðsla voru meginumfjöllunarefni óformlegs fundar landbúnaðarráðherra ESB í Prag 14.-16. september. Fundinum var stýrt af tékkneska landbúnaðarráðherranum Zdeněk Nekula en auk landbúnaðarráðherra aðildarríkjanna sóttu fundinn Janusz Wojciechowski landbúnaðarmálastjóri ESB, fulltrúar frjálsra félagasamtaka og Evrópuþingsins, fræðimenn sem og landbúnaðarráðherrar Úkraínu, Georgíu og Moldavíu.

Innrás Rússa í Úkraínu sem og langvarandi áhrif heimsfaraldursins og sífellt auknar loftslagsbreytingar hafa dregið mjög úr fæðuöryggi í heiminum með tilheyrandi hækkun á heimsmarkaðsverði matvæla. Landbúnaðarráðherrar ræddu fyrst og fremst hvernig tryggja mætti næga matvælaframleiðslu og dreifingu til viðkvæmustu svæða heims, um leið og sjálfbærni væri tryggð. Ráðherrarnir voru sammála um að ESB þyrfti að bregðast við á samræmdan hátt til að hámarka sjálfbæra aukningu í landbúnaðarframleiðslu og flýta fyrir notkun tækninýjunga í landbúnaði.

Formlegur fundur landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra ESB í ráðherraráðinu verður haldinn í Brussel 26. september þar sem framangreind mál verða til áframhaldandi umræðu.

Samráð um endurskoðun reglna um réttindi farþega

Framkvæmdastjórnin hefur auglýst samráð um fyrirhugaðar breytingar á reglum um réttindi farþega. Til skoðunar er að styrkja ákvæði um réttindi gagnvart langvarandi ferðaröskun að meðtaldri ferðaröskun fyrir ferðir sem ná yfir fleiri en einn samgöngumáta. Einnig eru til skoðunar leiðir til þess að verja farþega fyrir áhættu af fjárskorti vegna tafa við endurgreiðslu farmiða og ef þarf, aðstoð við að komast heim.

Samráðið er opið til 7. desember nk.

Samráð um úthlutunarreglur fyrir afgreiðslutíma flugvéla (e. slot)

Framkvæmdastjórnin hefur auglýst eftir upplýsingum, athugasemdum og ábendingum um úthlutunarreglur á afgreiðslutíma fyrir flugvélar. Tilgangur samráðsins er að afla upplýsinga um vandamál og mögulegar lausnir sem yrði til skoðunar við áhrifamat reglnanna.

Samráðið er opið til 21. nóvember nk.

Samráð um reglur fyrir útreikning og framsetningu upplýsinga um losun frá samgöngum

Framkvæmdastjórnin hefur auglýst samráð um samræmdar reglur fyrir útreikning og framsetningu upplýsinga um losun kolefnis frá samgöngum. Tilgangurinn er að tryggja gagnsæjar upplýsingar um losun sem eru hjálplegar fyrir þá sem veita samgönguþjónustu til þess að draga úr losun.

Samráðið er opið til 17. október nk.

Samráð um fyrirhugaðar breytingar á tilskipun um eftirlit með bifreiðum

Framkvæmdastjórnin hefur auglýst samráð um tilskipun um endurskoðað regluverk um eftirlit með bifreiðum.

Megin markmið tillögunnar eru þríþætt; auka umferðaröryggi; stuðla að sjálfbærum og snjöllum samgöngum; greiða fyrir og einfalda samgöngur fyrir fólk og vörur innan sambandsins. Miklar tækniframfarir hafa leitt til upptöku flókinnar tækni í bifreiðum.

Því þykir tilefni til að endurskoða aðferðafræði við bifreiðaskoðun, tryggja virkni aðstoðarkerfa fyrir ökumenn og sjálfvirknibúnaðar í ökutækjum.

Tilgangur með reglunum er enn fremur að tryggja virkni rafbúnaðar bifreiðar yfir líftíma hennar, framkvæma nauðsynlegar prófanir á rafbúnaði og tryggja varðveislu upplýsinga, aðgang og miðlun upplýsinga um ástand og virkni bifreiða á milli aðildarríkja sambandsins.

Samráðið er opið til 28. september nk.

Heimsókn ráðuneytisstjóra háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis til Brussel

Ásdís Halla Bragadóttir, ráðuneytisstjóri háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis, heimsótti í Brussel dagana 22. og 23. september. Erindi heimsóknarinnar var að funda með fulltrúum ESB og EFTA á málefnasviðum ráðuneytisins, auk þess að kynna sér starfsemi sendiráðsins.

Átti hún fundi með tveimur ráðuneytisstjórum hjá framkvæmdastjórninni annars vegar með Roberto Viola sem stýrir DG Connect („Communications Networks, Content and Technology“) og hins vegar með Signe Ratso sem stýrir DG Research („Research and Innovation“) ásamt því að heimsækja skrifstofu EFTA og ræða við stjórnendur þar.

Á fundi sínum með Roberto Viola var mikilvægi samstarfs við ESB um netöryggismál m.a. til umfjöllunar, en tillaga að nýrri reglugerð um aukið netöryggi hefur nú verið lögð fyrir Evrópuþingið og ráðið eins og gerð er grein fyrir hér að framan. Samhliða ræddu þau óskir EFTA ríkjanna um þátttöku í NIS-Cooperation Group, í netöryggisverkefnum samstarfsáætlana ESB og þátttöku í European Cybersecurity Competence Centre.

Á fundinum með Signe Ratso var fjallað um mikilvægi þátttöku Íslands í samstarfsáætlun Evrópusambandsins svo sem í verkefninu „Horizon Europe“ á sviði rannsókna og nýsköpunar. Ráðuneytisstjóri lagði áherslu á að þátttaka Íslands hafi opnað margar dyr fyrir íslenskum vísindamönnum og að mikill áhugi á þátttöku sé mikill.

Loks kynnti ráðuneytisstjórinn nýtt skipurit háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis og hugmyndafræðina að baki fyrir starfsmönnum sendiráðsins.

Brussel-vaktin er gefin út af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Vaktin kemur út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

09. september 2022 | ESB boðar aðgerðir vegna orkuskorts og hækkandi raforkuverðs |
Að þessu sinni er fjallað um:

ráðstafanir Evrópusambandsins (ESB) vegna orkuskorts og hækkandi raforkuverðs

haustáætlun framkvæmdastjórnar ESB

tillögur framkvæmdastjórnar ESB um Evrópska umönnunarstefnu

samkomulag um efni tilskipunar um viðunandi lágmarkslaun innan ESB

tillögu framkvæmdastjórnar ESB um niðurfellingu samnings við Rússland sem greiðir fyrir útgáfu vegabréfsáritana

fund ráðherra sem bera ábyrgð á samheldnismálum í ESB

fund heilbrigðisráðherra ESB

forgangsáhrif ESB-réttar og réttarframkvæmd í Póllandi

starfsáætlun norskra stjórnvalda vegna ESB- og EES-mála fyrir starfsárið 2022-2023

ársskýrslur Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA)

Ráðstafanir Evrópusambandsins (ESB) vegna orkuskorts og hækkandi raforkuverðs

Áskoranir vegna yfirvofandi orkuskorts og hækkandi raforkuverðs, sem er ein birtingarmynd árásarstríðs Rússlands gagnvart Úkraínu, eru meðal mikilvægustu mála á vettvangi ESB nú þegar vetur nálgast með tilheyrandi aukinni eftirspurn eftir raforku, meðal annars til húshitunar. Beðið hefur verið eftir tillögum framkvæmdastjórnar ESB um hvernig tryggja eigi orkuframboð og stemma stigu við stöðugt hækkandi orkuverði. Áður hafði verið gert ráð fyrir að fyrirætlanir framkvæmdastjórnarinnar í þessu efni yrðu kynntar í stefnuræðu (State of the union speech) Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB, sem hún mun flytja á Evrópuþinginu næstkomandi miðvikudag, 14. september. Mjög hefur hins vegar verið kallað eftir því m.a. af forseta leiðtogaráðs ESB, Charles Michel, að tillögugerð um aðgerðir verði flýtt eins og kostur er. Síðastliðinn miðvikudag, 7. september, steig forseti framkvæmdastjórnarinnar síðan fram og gaf yfirlýsingu um málið.

Í yfirlýsingunni kom fram að frá því að stríðsátökin hófust fyrir hálfu ári síðan hefði ESB aukið viðbúnað sinn til muna og með því dregið úr ítökum Rússlands á orkumarkaði í Evrópu. Viðbúnaður ESB hafi snúist um að draga úr eftirspurn, auka fjölbreytni orkugjafa og fjárfestingar í endurnýtanlegum orkugjöfum (RePowerEU). Þegar hafi verið dregið úr eftirspurn og orkuforða safnað með þeim árangri að sameiginlegar orkuforðageymslur ESB væru nú með 82% afkastagetu sem væri umfram áætlanir, en þrátt fyrir það væri ljóst að gera þyrfti betur.

Í yfirlýsingunni kom fram að enda þótt aðgerðir Rússlands á gasmarkaði væru stór orsakavaldur fyrir hækkandi orkuverði og orkuskorti þá væru fleiri þættir að hafa áhrif á raforkumarkað um þessar mundir eins og loftlagsbreytingar. Vatnsafl hafi dregist saman vegna þurrka í Evrópu auk þess sem framboð á kjarnorku í ESB væri minna en verið hefði.

Í yfirlýsingu sinni kynnti Ursula von der Leyen hugmyndir að fimm aðgerðum til að takast á við hækkandi orkuverð með það að markmiði að vernda viðkvæma neytendur og fyrirtæki og boðaði jafnframt að framkvæmdastjórnin myndi leggja tillögurnar fram formlega í næstu viku.

Aðgerðirnar eru eftirfarandi:

Að fundnar verði leiðir til að spara raforku á skynsaman hátt með því að fletja út álagstoppa sem knýja raforkuverð upp. Í þessu skyni hyggst framkvæmdastjórnin leggja til að lögfest verði skylda til að draga úr raforkunotkun á álagstímum.

Að þak verði sett á tekjur fyrirtækja sem framleiða raforku með litlum tilkostnaði og að óvæntur hagnaður þeirra í núverandi aðstæðum verði nýttur til að styðja viðkvæm heimili og fyrirtæki.

Að þak verði sett á tekjur jarðefnaeldsneytisfyrirtækja og að óvæntur hagnaður þeirra verði nýttur, með sama hætti og óvæntur hagnaður raforkufyrirtækjanna, til að styðja við viðkvæm heimili og fyrirtæki og til að fjárfesta í hreinum staðbundnum orkugjöfum.

Að stuðningur verði veittur til orkuveitufyrirtækja í formi aðgangs að lausafé og ábyrgða til takast á við markaðssveiflur og til að tryggja stöðugleika á markaði til framtíðar.

Að verðþak verði sett á rússneskt gas til að draga úr tekjum Rússlands og um leið getu landsins til að fjármagna stríðsreksturinn í Úkraínu.

Tillögur forseta framkvæmdastjórnar ESB komu til umræðu á fundi orkumálaráðherra ESB sem haldinn var í dag, 9. september. Í tilkynningu sem birt var að fundinum loknum kom fram að það væru fjögur meginsvið sem aðildarríkin ætlast til að framkvæmdastjórnin grípi til aðgerða á og ríma þær áherslur að meginstefnu saman við framangreindar hugmyndir að aðgerðum, þ.e. að böndum verði komið á óvæntan hagnað raforkuframleiðenda, að skoðaðir verði möguleikar á því að verðþak verði sett á gas, að gripið verði til ráðstafana til að draga úr raforkuþörf og úrræði innleidd til að sporna við lausafjárvanda.

Ráðherrarnir hvöttu framkvæmdastjórn ESB til skjótra aðgerða á þessum sviðum.

Eins og áður segir er búist er við formlegum tillögum framkvæmdastjórnar ESB í næstu viku.

Haustáætlun ESB og helstu málefni á komandi misseri

Framkvæmdastjórn ESB birtir reglulega uppfært yfirlit yfir tillögur að nýrri Evrópulöggjöf og öðrum frumkvæðismálum sem áætlað er að teknar verða til umræðu og afgreiðslu í framkvæmdastjórninni á komandi misseri. Nýjasta yfirlitið tekur til tímabilsins frá september til desember 2022 og var birt 19. júlí sl. Skipunartími framkvæmdastjórnar Ursulu von der Leyen er nú rúmlega hálfnaður og margar gerðir í stærstu stefnumálum hennar eru því að líta dagsins ljós á næstunni. Í yfirlitinu er greint frá fjölmörgum nýjum gerðum, þ.e. löggjafartilllögum, áætlunum og aðgerðaplönum sem margar varða EES-samninginn og samvinnu Íslands við ESB.

Eins og rakið er að framan þá leikur ekki vafi á því að orkumál, orkuöflun og gríðarlegar áskoranir vegna hækkandi orkuverðs verða meðal meginviðfangsefna sem Evrópusambandið stendur frammi fyrir á komandi vetri. Þess má vænta að erfiðar samningaviðræður séu framundan milli aðildarríkjanna á vettvangi ráðherraráðs ESB og innan Evrópuþingsins og framkvæmdastjórnarinnar um efnislegt innihald löggjafarpakkans um umhverfismál sem nefndur hefur verið „Fit for 55“. Er viðbúið að umræðan á vettvangi sambandsins um loftlagsmálin muni litast af orkukreppunni og fylgist sendiráðið í Brussel náið með framvinnu þeirra mála.

Meðal annarra mála sem verða til umræðu hjá sambandinu á komandi misseri má nefna:

fæðuöryggi; landbúnaðarráðherrar ESB munu hittast tvisvar í þessum mánuði, í næstu viku í Prag og í Brussel stuttu síðar til umræðu um þessi mál,

aðfangakeðjur; tillögur eru í pípunum um aukin lagaleg úrræði til að tryggja aðföng í neyðaraðstæðum,

fjölmiðlafrelsi; jafnvægið á milli lagatakmarkana til að tryggja samkeppni og persónuvernd og nýsköpunar og framþróunar á vettvangi nútíma fjölmiðlunar verða í brennidepli,

netöryggismál; framundan er lokafrágangur nýrrar lagasetningar um netöryggi í mikilvægum innviðum auk þess sem í undirbúningi er ný lagasetning um netöryggiskröfur í ýmsum nettengdum varningi sem almenningur notar.

viðskipamál; von er löggjafartillögum frá framkvæmdastjórn ESB annars vegar um bann við viðskiptum með vörur sem framleiddar eru af verkafólki í nauðungarvinnu og hins vegar löggjöf sem mun auðvelda ESB að beita efnahagslegum refsiaðgerðum þegar tilefni þykir til,

fjármálaþjónusta; endurskoðun reglna um áhættustjórnun og innstæðutryggingar verður til umræðu,

félags- og heilbrigðismál; evrópsk umönnunarstefna, tilskipun um lágmarkslaun o.fl., sbr. umfjöllun hér síðar í Vaktinni.

Greint verður nánar frá efni og framgangi einstakra mála er varða hagsmuni Íslands sérstaklega hér í Brussel-vaktinni eftir því sem þeim vindur fram á vettvangi framkvæmdastjórnarinnar, Evrópuþingsins og ráðsins.

Tillögur framkvæmdastjórnar ESB um evrópska umönnunarstefnu

Í vikunni kynnti framkvæmdastjórnin „European Care Strategy“ eða evrópska umönnunarstefnu. Stefnunni er ætlað að tryggja gæði og aðgengi að umönnun á viðráðanlegu verði á öllu Evrópska efnahagssvæðinu, auk þess að tryggja bætt starfsskilyrði þeirra sem starfa í greininni.

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnarinnar, boðaði framsetningu slíkrar stefnu í stefnuræðu sinni í fyrra með það fyrir augum að stuðla að bættum lífskjörum Evrópubúa og auknu jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Með stefnunni er framkvæmdastjórnin að bregðast við áskorunum frá Evrópuþinginu og hagsmunaaðilum um að setja fram stefnumótandi og heildstæða nálgun vegna langtímaumönnunar en kórónuveirufaraldurinn leiddi í ljós almennar brotalamir á kerfisbundnu fyrirkomulagi umönnunar. Stefnunni er ætlað að draga fram samfélagslegt og efnahagslegt mikilvægi umönnunargeirans en talið er að árangursríkt fyrirkomulag langtímaumönnunar skipti sköpum til að bæta lífskjör borgaranna og viðhalda nauðsynlegri félagslegri vernd.

Í stefnunni er einnig boðuð endurskoðun Barselóna-markmiðanna ECEC (Early Childhood Education and Care) sem voru sett fram fyrir 20 árum. Þátttaka í menntun á forskólaaldri er talin hafa jákvæð áhrif á þroska barna og hjálpar til við að draga úr hættu á félagslegri einangrun og fátækt.

Ný viðmið hafa verið sett fram í þessu efni sem aðildarríkin eiga að stefna að því að ná fyrir 2050;

50% barna undir 3ja ára aldri séu í leikskóla (Early Childhood care)

96% barna frá 3ja ára aldri að skólaaldri séu í leikskóla

(var áður 30% og 90%)

Þá er því beint til aðildarríkjanna að tryggja að þessi þjónusta sé vönduð, á viðráðanlegu verði og aðgengileg öllum hvort heldur sem er í þéttbýli eða dreifbýli.

Lögbundinn réttur ætti að vera til leikskólavistar helst þannig að réttur til leikskóla taki við af launuðu leyfi foreldra. Tryggja þurfi nægilega langan vistunartíma – til þess að foreldrar geti tekið virkan þátt á vinnumarkaði og aðildarríkin eru sérstaklega hvött til þess að stuðla að jafnri þátttöku kynjanna og styðja við fjölskylduvænt vinnufyrirkomulag.

Hvað varðar langtímaumönnun aldraðra og fatlaðra leggur framkvæmdastjórnin til að aðildarríkin setji fram aðgerðaáætlun sem miði að því að betri og aðgengilegri umönnun sé í boði fyrir alla sem á henni þurfa að halda. Þannig þurfi að:

Tryggja að umönnun sé heildstæð, tímanleg og á viðráðanlegu verði, þannig að fólk með langtímaþjónustuþarfir geti lifað mannsæmandi lífi.

Auka þurfi fjölbreytni og framboð þjónustu svo sem heimaþjónustu, samfélagslegrar þjónustu, búsetuúrræði o. fl. Tryggja þurfi að þjónusta sé í boði bæði í þéttbýli og einnig í dreifðum byggðum. Koma þurfi á úrræðum sem nýti stafrænar lausnir og sjálfvirkni og tryggja aðgengi fólks með fötlun.

Auka kröfur sem gerðar eru til menntunar og þjálfunar starfsfólks í umönnun og setja þjónustustaðla.

Styðja við þá sem eru í ólaunuðum umönnunarstörfum, sem eru gjarnan ættingjar þeirra sem þurfa á umönnun að halda (oftast konur) með þjálfun, ráðgjöf og sálrænum og fjárhagslegum stuðningi.

Tryggja fjármagn – m.a. úr sjóðum ESB til að byggja upp úrræði.

Til þess að bæta vinnuskilyrði og þjálfun starfsfólks í umönnunargeiranum og laða fleiri, einkum karla, að þessari tegund starfa er lagt til að aðildarríkin:

Styðji við kjarasamninga og viðræður aðila vinnumarkaðarins með það í huga að bæta laun og starfsskilyrði.

Tryggja vinnuvernd og öryggi starfsmanna.

Komi á símenntun og þjálfun fyrir starfsmenn.

Leitist við að takast á við staðalmyndir kynjanna t.d. með kynningarherferðum.

Fullgildi og innleiði samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um starfsfólk sem sinnir störfum á heimili í atvinnuskyni.

Framkvæmdastjórnin hyggst styðja við framangreint með ýmsum leiðum m.a. með því að stuðla að umræðu um félagslega þjónustu á vettvangi ESB og stuðla að samstarfi um mat á hæfni og færni auk þess að styrkja rannsóknir til að leggja mat á félagslegt og efnahagslegt gildi vinnu og starfsskilyrða i umönnunargeiranum. Þá verður stutt við markmiðin með fjárveitingum úr sjóðum ESB auk þess sem settir verða fram hlutlægir mælikvarðar til þess að meta árangur ríkjanna í þessu efni.

Samkomulag um efni tilskipunar um viðunandi lágmarkslaun innan ESB

Í júnímánuði sl. náðist samkomulag í þríhliða viðræðum framkvæmdastjórnar ESB, ráðherraráðsins og Evrópuþingsins um efni væntanlegrar tilskipunar um viðunandi lágmarkslaun í aðildarríkjunum.

Gert er ráð fyrir því atkvæðagreiðsla um málið fari fram í þinginu og ráðinu nú í september og er gert ráð fyrir því að tillagan verði samþykkt.

Tilskipunin byggir á 3. gr. sáttmála um Evrópusambandið og sjöttu meginreglu Evrópustoðar félagslegra réttinda þar sem mælt er fyrir um að tryggja skuli sanngjörn lágmarkslaun, gagnsæi og fyrirsjáanleika launaákvarðana.

Tillagan hefur verið til umræðu innan ESB frá því í október 2020 þegar upprunaleg tillaga framkvæmdastjórnarinnar var lögð fram en sú tillaga reyndist talsvert umdeild. Launasetning og laun eru mjög mismunandi milli ríkja ESB og í tillögunni er tekið fram að með henni sé hvorki stefnt að því að samræma reglur um ákvörðun lágmarkslauna né fjárhæð þeirra, heldur sé tilgangurinn að leitast við að tryggja nægjanleika lágmarkslauna hvarvetna á svæðinu, meðal annars með því að:

Stuðla að því kjarasamningar verði grundvöllur launasetningar, þar sem launþegar eða samtök þeirra gera samninga við vinnuveitendur eða samtök vinnuveitenda um starfskjör og afleidd réttindi. Sú stefnumótun byggir á athugunum sem sýna að lágmarkslaun í þeim ríkjum Evrópu þar sem ákvörðun launa er byggð á kjarasamningum eru almennt hærri en í löndum þar sem lágmarkslaun eru lögbundin auk þess sem þar er minni munur á lágmarkslaunum og meðallaunum.

Tryggja reglulega uppfærslu fjárhæðar lágmarkslauna, í þeim ríkjum þar sem lágmarkslaun eru lögbundin með skýrum viðmiðum t.d. með tengingu við vísitölur framfærslukostnaðar.

Tryggja að launþegar hafi virkan aðgang að upplýsingum og réttarvernd við ákvörðun launa.

Að aðildarríkin hafi virkt eftirlit með því að lágmarkslaun séu nægileg og að viðurlög verði sett við brotum á þessu sviði. Þá er gert ráð fyrir að framkvæmdastjórnin taki saman skýrslu annað hvert ár um stöðu mála á þessu sviði.

Forsendur tillögunnar eru meðal annars þær að nægjanleg lágmarkslaun, séu til hagsbóta fyrir alla, ekki eingöngu launþega og atvinnurekendur heldur fyrir samfélagið allt og til þess fallin að tryggja hagsmuni viðkvæmra hópa á vinnumarkaði, þ.e. kvenna, ungs fólks, fatlaðs fólks, lítið menntaðra auk farandverkamanna en þessir hópar eru almennt taldir líklegri til þess að vera í láglaunastörfum.

Í tillögunni er lögð áhersla á að tekið verði tillit til mismunandi stöðu aðildarríkjanna á þessu sviði og að mótaðar verði aðgerðaráætlanir í þeim ríkjum þar sem staðan er verst til auka hlut kjarasamninga í launasetningu.

Málið er á forgangslista ríkisstjórnar Íslands vegna hagsmunagæslu Íslands gagnvart ESB vegna aðildar Íslands að EES-samningnum. Endanlegt mat á því hvort væntanleg tilskipun teljist falla undir EES-samninginn liggur ekki fyrir, en fyrsta mat sérfræðinga ESB og EFTA er að tilskipunin falli ekki undir efnislegt og landfræðilegt gildissvið EES-samningsins. Hvað sem því líður er ljóst að efni tilskipunarinnar, einkum hvað varðar kröfur viðunandi lágmarkslaun, eru allrar athygli verð.

Tillaga framkvæmdastjórnar ESB um niðurfellingu samnings við Rússland sem greiðir fyrir útgáfu vegabréfsáritana

Hinn 6. september sl. lagði framkvæmdastjórn ESB fram tillögu þess efnis að samningur ESB við Rússland, sem greiðir fyrir útgáfu vegabréfsáritana (e. Visa Facilitation Agreement with Russia), verði felldur úr gildi að fullu. Samningurinn hefur þegar verið felldur niður gagnvart rússneskum ráðamönnum og viðskiptamönnum.

Tillagan var lögð fram í kjölfar niðurstöðu óformlegs fundar utanríkisráðherra ESB þann 31. ágúst sl. en niðurstaðan var sú að Evrópusambandið geti ekki haldið úti samningi sem þessum við ríki sem rekur eyðileggjandi utanríkisstefnu, gerir hernaðarárás á umsóknarríki að ESB og virðir alþjóðaskuldbindingar að vettugi. ESB hefur gert samskonar samning við örfá önnur ríki en forsenda slíkra samninga er gagnkvæmt traust og virðing.

Tillagan var síðan samþykkt í dag, 9. september, í ráðherraráði ESB og hefur hún í för með sér að útgáfa vegabréfsáritana til rússneskra ferðamanna fer eftir almennum ákvæðum reglugerðar um vegabréfsáritanir (e. VISA CODE), þ.e. áritanagjaldið hækkar, málsmeðferðartími lengist og erfiðara verður fyrir Rússa að fá útgefna vegabréfsáritun sem gildir fyrir margar komur (e. multiple entry visa).

Um er að ræða tvíhliða samning ESB við Rússland sem Ísland er ekki beinn aðili að. Ísland er á hinn bóginn hluti af Schengen-svæðinu og í Schengen-samningnum kemur fram að Ísland hafi með þátttöku sinni í Schengen-samstarfinu skuldbundið sig til að fylgja sameiginlegri stefnu í málefnum sem varða för fólks og þá sérstaklega með tilliti til reglna um vegabréfsáritanir.

Ráðherrafundur um samheldnistefnu ESB

Dagana 1. – 2. september stóðu Tékkar, sem nú fara með formennsku í ráðherraráði ESB, fyrir óformlegum ráðherrafundi í Prag þar sem samheldnistefna ESB og byggðamál voru rædd. Innviðaráðherra var boðið að sækja fundinn en vegna anna ráðherrans sóttu ráðuneytisstjóri innviðaráðuneytisins Ragnhildur Hjaltadóttir og aðstoðarmaður ráðherrans, Sigtryggur Magnason, fundinn auk fulltrúa utanríkisráðuneytisins, Bergþórs Magnússonar, sem á sæti í stjórn Uppbyggingarsjóðs EES.

Fyrir fundinum lá að ræða hvernig mætti ná betri árangri með þeim fjármunum sem varið er til samheldnistefnu sambandsins, samræma aðgerðir ýmissa aðgerðaáætlana, skerpa áherslur og draga úr tvíverknaði á milli aðila og hvernig betur mætti nýta þá fjármuni sem varið er til samheldnissjóðsins til að bregðast við aðsteðjandi krísum eins og kórónuverufaraldrinum og orkukreppunni í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu.

Almennt töldu fundarmenn að samheldnissjóðurinn hefði gegnt mikilvægu hlutverki þegar bregðast þurfti við aðsteðjandi krísum og hefði t.d. komið að góðu gagni í kórónuveirufaraldrinum og við að taka á móti milljónum flóttamanna frá Úkraínu. Kominn væri tími til þess að snúa sér að grunnverkefni sjóðsins sem er að draga úr efnahagslegum og félagslegum ójöfnuði í Evrópu með því að styðja við langtíma fjárfestingu, styrkja byggðalög og uppbyggingu þeirra. Í úttekt um árangur samheldnisstefnunnar kom fram að hver evra sem varið hefði verið í málaflokkinn hefði skilað 2,7 evrum í auknu framlagi til landsframleiðslu sambandsins.

Á fundinum gerði Ragnhildur grein fyrir byggðaáætlun Íslands og hvernig markvisst væri unnið að því að samþætta hana við önnur verkefni ráðuneytisins svo sem uppbyggingu samgönguinnviða. Einnig væri markvisst unnið að aðkomu annarra ráðuneyta og að tengja og styðja byggðaáætlun við heilbrigðisþjónustu, menntamál og atvinnumál. Með auknum samtakamætti væri hægt að ná betri árangri.

Með skírskotun til orkukreppunnar og þeirra möguleika á jarðhitanýtingu sem er að finna í viðtökuríkjum Uppbyggingarsjóðs EES sagði fulltrúi Íslands einnig frá reynslu Íslands af hagnýtingu jarðhita í kjölfar orkukreppunnar á áttunda áratug síðustu aldar. Á þeim tíma voru flest hús á Íslandi kynt með olíu. Hátt olíuverð leiddi til þess að afar hagkvæmt var að nýta jarðhita til húshitunar. Orkukreppan leiddi því til hraðrar uppbyggingar á hitaveitum í eigu sveitarfélaga og miðlægrar miðlunar á jarðvarma til upphitunar húsa. Mikil þekking hefur því myndast á Íslandi við nýtingu jarðvarma og starfa mörg fyrirtæki á því sviði. Í dag eru nær öll hús á Íslandi hituð með jarðvarma auk þess sem hann er nýttur til umfangsmikillar framleiðslu á raforku. Mikil tækifæri leynast víða í nýtingu þessarar umhverfisvænu orku og á Íslandi er að finna þekkingu til að færa sér hana í nyt. Á fundinum gafst mikilvægt tækifæri til að segja frá reynslu Íslendinga á þessu sviði og benda á leiðir til að nýta þekkingu þeirra fyrir atbeina Uppbygginarsjóðs EES. Góður rómur var gerður að þeirri ábendingu og í lokaorðum sínum á ráðstefnunni tók Elisa Ferreira, framkvæmdastjóri ESB á sviði samheldnisstefnu þess, sérstaklega fram að innlegg Íslands á fundinum hefði verið afar gagnlegt.

Fundur heilbrigðisráðherra ESB

Heilbrigisráðherrar ESB komu saman á óformlegum fundi í vikunni í Prag, en Tékkar fara nú eins og áður segir með formennsku í ráðherraráði sambandsins. Heilbrigðisráðherrum Íslands, Noregs og Sviss var boðið að sækja fundinn. Ásta Valdimarsdóttir, ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytisins, sótti fundinn fyrir Íslands hönd í forföllum ráðherra.

Dagskrá fundarins var tileinkuð þremur málefnum sem Tékkar leggja áherslu á í formennskutíð sinni. Í fyrsta lagi stuðning Evrópuríkja við heilbrigðiskerfi Úkraínumanna, í öðru lagi mikilvægi bólusetninga gegn smitsjúkdómum og hvernig vinna megi gegn andstöðu gegn bólusetningum og í þriðja lagi baráttunni við krabbamein.

Í ræðu fulltrúa Íslands á fundinum kom fram skýr stuðningur við tillögur Tékka um að styðja við endurreisn úkraínska heilbrigðiskerfisins eins og kostur væri. Þá var tilkynnt um nýtt stuðningsverkefni af hálfu íslenska fyrirtækisins Össurar sem þekktast er fyrir framleiðslu sína á gervilimum. Verkefnið er unnið í samstarfi við úkraínska sjálfseignarstofnun og samtök sem vinna á þessu sviði, en reiknað er með að í kringum 1000 einstaklingar þurfi á gervilimum að halda í Úkraínu nú. Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að styðja verkefnið fjárhagslega.

Framkvæmdastjórn ESB notaði tækifærið í Prag, meðan ráðherrar voru á svæðinu, til að kalla saman fund í stjórn HERA (Health Emergency Preparedness and Response Authority). Til umræðu voru samningar um bóluefnakaup með fulltrúum framleiðanda frá Bavarian Nordic um bóluefni gegn Apabólu og við BioNTech, Pfizer og Moderna um umfram-magn af bóluefnum gegn Covid-19 sem ekki er lengur þörf fyrir. Framkvæmdastjórnin hefur legið undir gagnrýni aðildarríkja vegna samninganna og hefur um nokkurt skeið átt í viðræðum við þá um aukinn sveignleika til framtíðar. Sagt var frá þessari gagnrýni í Vaktinni 10. júní sl. Á fundinum náðist samkomulag um hagræðingu og aukinn sveigjanleika til aðildarríkja m.a. um að framboð bóluefna verður aðlagað eftirspurn.

Sjá nánar um fundinn og niðurstöður í fréttatilkynningu sem gefin var út að fundi loknum.

Forgangsréttur Evrópuréttar og réttarframkvæmd í Póllandi

Ný rannsókn sem unnin var að beiðni laganefndar Evrópuþingsins (JURI committee) bendir til að tiltekið fráhvarf hafi orðið frá meginreglunni um forgangsáhrif Evrópuréttar gangvart landsrétti í dómaframkvæmd pólskra dómstóla eftir að breytingar voru gerðar á skipan dómsvaldsins þar í landi.

Rannsóknin er innlegg í umræðu um þróun réttarríkisins innan einstakra aðildarríkja Evrópusambandsins en framkvæmdastjórn ESB og Evrópuþingið hafa einna helst lýst áhyggjum af þróun mála í Póllandi annars vegar og Ungverjalandi hins vegar.

Norsk stjórnvöld kynna starfsáætlun vegna ESB- og EES- mála fyrir starfsárið 2022-2023

Norska ríkisstjórnin kynnti þann 11. júlí sl. starfsáætlun sína vegna ESB- og EES-mála fyrir starfsárið 2022-2023. Í starfsáætluninni er mikilvægi Evrópusamvinnunnar og EES-samningsins fyrir norska hagsmuni undirstrikað og áherslumál norskra stjórnvalda í hagmunagæslunni gagnvart ESB skilgreind. Starfsáætlunin þjónar áþekku hlutverki og forgangslisti íslenskra stjórnvalda í hagmunagæslu gagnvart ESB vegna aðildar Íslands að EES-samningnum fyrir árið 2022-2023 sem ríkisstjórn Íslands samþykkti 10. júní sl. og greint frá í vaktinni.

Ársskýrslur Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA)

Ársskýrslur EFTA og ESA fyrir árið 2021 komu út í júlí síðastliðnum.

Í ársskýrslu ESA er fjallað um helstu samningsbrotamál sem voru til meðferðar hjá stofnuninni á árinu gegn Íslandi, Noregi og Liechtenstein, ríkisaðstoðarmál, samkeppnismál og dómsmál sem rekin voru í tengslum við málsmeðferð ESA o.fl.

Í ársskýrslu EFTA er fjallað um starfsemi EFTA í víðu samhengi, fundi EFTA-ráðsins og EES-ráðsins þar sem utanríkisráðherrar EFTA ríkjanna sitja og móta pólitíska stefnu samtakanna. Fjallað er um rekstur EES-samningsins og framlög EES/EFTA-ríkjanna í uppbyggingasjóði EES, gerð fríverslunarsamninga við ríki utan ESB o.fl.

Brussel-vaktin er gefin út af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Vaktin kemur út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

22. júlí 2022 | Seðlabanki Evrópu hækkar stýrivexti í fyrsta sinn frá 2011 |
Að þessu sinni er fjallað um:

fyrstu stýrivaxtahækkun Seðlabanka Evrópu í yfir áratug

þríhliða viðræður vegna gerða á sviði flugsamgangna og loftslagsmála

óformlegan fund evrópskra umhverfisráðherra í Prag

16 milljarða króna styrk Nýsköpunarsjóðs ESB til Carbfix

fyrirhugaða breytingu á reglugerð um afgreiðslutíma flugfélaga

nýútgefna skýrslu um stöðu réttarríkisins innan ESB

viðbragðsáætlanir í samgöngumálum í kjölfar heimsfaraldursins og innrásarinnar í Úkraínu

Vaktin fer nú í sumarfrí og kemur næst út í byrjun september 2022.

Vaxtahækkun til að stemma stigu við verðbólgu

Seðlabanki Evrópu hækkaði í vikunni stýrivexti sína um 0,5 prósentustig. Um er að ræða fyrstu stýrivaxtahækkun bankans frá 2011. Hækkuninni er ætlað að sporna við frekari verðhækkunum og verðbólgu á evrusvæðinu.

Vextir bankans eru 0,0 prósent eftir hækkunina en þeir voru fyrir neikvæðir um hálft prósentustig. Verðbólga á evrusvæðinu fór upp í 8,6 prósent í síðasta mánuði, sem er langt umfram verðbólgumarkmið bankans – 2 prósent. Evran hefur að undanförnu veikst gagnvart bandaríkjadal og var gengi beggja gjaldmiðla hið sama um stutta stund fyrr í mánuðinum. Var það í fyrsta sinn sem slíkt gerist í 20 ár.

Seðlabankinn kynnti jafnframt nýtt skuldabréfakaupkerfi sem ber heitið Transmission Protection Instrument en því er í stuttu máli ætlað að takmarka hækkun á lántökukostnaði aðildarríkja myntbandalagsins, sérstaklega þeirra sem eru með hátt skuldahlutfall, og takmarka fjárhagslega uppskiptingu á evrusvæðinu.

Christine Lagarde, forseti Seðlabanka Evrópu, sagði í kjölfar hækkunarinnar að viðbúið sé að verðbólga verði áfram óæskilega há á komandi mánuðum, m.a. sökum þrýstings af völdum verðhækkana orku og matvæla. Verðhækkanir þessar stafa meðal annars af innrás Rússa í Úkraínu en ríki á evrusvæðinu hafa í gegnum tíðina reitt sig á innflutning olíu og gass. Flutningur beggja hrávara hefur í kjölfar innrásarinnar verið mjög svo takmarkaður. Raforkuverð heimila í ríkjum ESB hefur þannig hækkað gífurlega eða um 44 prósent frá maí 2021 og til maí 2022. Mestu hækkanirnar áttu sér stað í Hollandi (167 prósent), Austurríki (122 prósent) og á Ítalíu (118 prósent).

Lagarde segir að stjórn bankans muni áfram fylgjast grannt með stöðu mála og leggja mat á hvort þörf sé á að ráðast í frekari stýrivaxtahækkanir.

Þríhliða viðræður um flugsamgöngur og loftslagsmál

Ráðherraráð ESB, Evrópuþingið og framkvæmdastjórn ESB munu senn ganga til þríhliða viðræðna sem miða að því að ná samstöðu um tvær fyrirhugaðar gerðir sambandsins sem kveða á um íblöndun flugvélaeldsneytis (RefuelEU Aviation) og breytingar á viðskiptakerfi með losunarheimildir – ETS-kerfinu. Fjallað hefur verið um tillögurnar í fyrri útgáfum Brussel-vaktarinnar, nú síðast 24. júní sl. en þær eru hluti af svokölluðum Fit for 55-löggjafarpakka framkvæmdastjórnarinnar sem ætlað er að útfæra framkvæmd ESB við að draga úr losun kolefnis um 55 prósent fyrir árið 2030 og leggja grunn að kolefnishlutleysi fyrir árið 2050.

Flugrekendur hér á landi og Isavia hafa viðrað áhyggjur sínar af áhrifum innleiðingar umræddra gerða sem muni fela í sér verðhækkun á flugmiðum til Íslands og þ.a.l. hafa áhrif á samkeppnisstöðu Keflavíkurflugvallar, einkum fyrir tengiflug yfir Atlantshafið. Nánar er fjallað um útfærslu beggja gerða, eins og þeim var stillt upp í tillögum framkvæmdastjórnarinnar, og ætluð áhrif þeirra á íslenska hagsmuni, í Vaktinni 24. júní sl.

Íslensk stjórnvöld hafa að undanförnu beitt sér mjög vegna málsins og staðið fyrir umfangsmiklu átaki við að kynna áhrif tillagnanna á Ísland sem fjarlægt eyríki og mikilvægi þess að Keflavíkurflugvöllur sé samkeppnishæfur sem tengiflugvöllur fyrir flugleiðina milli Evrópu og Norður-Ameríku. Sendiherra og aðrir fulltrúar sendiráðs Íslands í Brussel hafa í því skyni átt um 60-70 fundi með fastafulltrúum aðildarríkja ESB í Brussel, háttsettum embættismönnum framkvæmdastjórnarinnar og viðeigandi talsmönnum Evrópuþingsins. Á þessum fundum hafa hlutaðeigandi aðilum verið kynntar breytingartillögur sem ætlað er að draga úr áhrifum gerðanna á Ísland, án þess þó að dregið verði úr þætti og hlutverki Íslands við að takast á við afleiðingar loftslagsbreytinga. Þá hefur forsætisráðherra sent forseta framkvæmdastjórnarinnar, forseta leiðtogaráðs ESB og öllum leiðtogum aðildarríkjanna bréf þar sem hún lýsti yfir þungum áhyggjum af áhrifum fyrirliggjandi tillagna. Aðrir ráðherrar hlutaðeigandi ráðuneyta hafa sömuleiðis fylgt málinu eftir gagnvart sínum starfssystkinum í aðildarríkjunum og vakið athygli á hagsmunum Íslands í þessu samhengi.

Í kjölfarið hefur dregið til tíðinda og árangur náðst sem segja má að sé í samræmi við röksemdafærslu Íslands. Þær breytingartillögur sem fram hafa komið vegna gerðanna fela m.a. í sér: 1) Ákvæði um að framkvæmdastjórninni verði falið að taka út áhrif ETS-kerfisins á samkeppnisstöðu flugvalla og flugrekenda innan EES, flugtengingar (e. connectivity), íbúa fjarlægra svæða og kolefnisleka fyrir 2028. 2) Evrópuþingið samþykkti að í fororði (e. recital) RefuelEU-gerðarinnar væri texti þess efnis að nýta beri losunarheimildir til þess að jafna samkeppnisstöðu evrópskra flugfélaga. 3) Þá samþykkti ráðherraráðið í afstöðu sinni nýjan texta í fororð RefuelEU að framkvæmdastjórnin skuli gæta að mögulegum áhrifum tillögunnar til röskunar á samkeppnisstöðu evrópskra flugfélaga og kolefnisleika og huga að mótvægisaðgerðum gegn slíkum áhrifum.

Bæði ráðið og þingið samþykktu svo breytingartillögu að verja skyldi 20 milljónum losunarheimilda til þess að greiða 70 prósent af verðmun á íblöndunarefni og þotueldsneyti (er þrisvar til sexfaldur í dag) til ársins 2030. Hægt er að framlengja ákvæði til 2035. Fyrir fjarlæg svæði (þó ekki Ísland) væri heimilt að greiða allt að 100 prósent af þessum mun. Af framangreindum breytingartillögum má ráða að fyrirhuguð RefuelEU-gerð muni líklega ekki leiða til mikilla kostnaðarhækkana fyrir flugfélög til ársins 2030, hið minnsta, og þ.a.l. ekki hafa áhrif á samkeppnisstöðu, farmiðaverð eða fjarlæg svæði. Ákvæði hinnar fyrirhuguðu gerðar gera þó ráð fyrir, eins og áður hefur verið komið inn á, kröfu um vaxandi hlutfall íblöndunar á komandi árum. Áfram verður þó unnið að því að jafna samkeppnisstöðuna að því er varðar ETS-tilskipunina.

Óformlegur fundur umhverfisráðherra Evrópu í Prag

Þann 13. og 14. júlí fór fram óformlegur fundur umhverfisráðherra Evrópu í Prag í Tékklandi. Á dagskrá voru ýmis mál eins og líffræðileg fjölbreytni, umhverfisáhrif vegna innrásar Rússa í Úkraínu og áhrif breytinga loftslags á vatn, náttúru og jarðveg og hvernig ríki eru að vinna að auknu viðnámsþoli og aðlögun að loftslagsbreytingum.

Fram kom í máli Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, á fundinum að Ísland taki að fullu undir það að brýnt sé að aðgerðum verði hrint í framkvæmd til að markmið Parísarsamkomulagsins um 1,5°C hlýnun nái fram að ganga en samkvæmt milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) þarf metnaður og árangur aðgerða að margfaldast til að svo megi verða. Í nóvember næstkomandi verði loftslagsfundur Sameinuðu þjóðanna (COP27) haldinn í Egyptalandi. Gríðarlega mikilvægt sé að ríki heims standi öll við það samkomulag sem áður var gert til að koma megi í veg fyrir frekari óafturkræfar afleiðingar loftslagsbreytinga.

Jafnframt kom fram í máli ráðherra að náttúruöflin séu Íslendingum ekki ókunn og margs konar náttúruhamfarir hafi valdið slysum og tjóni. Íslendingar séu vel búnir til að takast á við slíkar áskoranir. Unnið sé að því að auka viðnámsþrótt samfélagsins og þar með milda afleiðingar loftslagsbreytinga með því að koma aðlögun að loftslagsbreytingum með skipulögðum hætti inn í áætlanir. „Þess vegna er það forgangsmál í aðlögunaráætlun Íslands að horfa til þess hvernig hægt er að varðveita umhverfið og lífríkið innan borgar- og dreifbýlisumhverfis til að auka viðnám okkar gegn loftslagsbreytingum,“ sagði Guðlaugur Þór.

Áhrif innrásar Rússa í Úkraínu á umhverfismál voru einnig á dagskrá. Stríðið hefur þegar haft gríðarlega mikil áhrif á náttúru Úkraínu, jarðvegur og fersk vatn hefur mengast mikið, svo ekki sé talað um áhrif á skóglendi og lífríkið allt. Fulltrúar ríkjanna á fundinum lýstu öll yfir miklum stuðningi við Úkraínu og lögð var áhersla á að vinna nú þegar að aðgerðaáætlun sem gripið verður til þegar stríðinu lýkur. Guðlaugur Þór lýsti yfir fullum stuðningi Íslands við úkraínsku þjóðina, mikilvægt væri að byggja upp á sjálfbæran hátt og nýta allar leiðir til að draga úr notkun á jarðefnaeldsneyti og stuðla að notkun á grænum orkugjöfum. Jafnframt tók Guðlaugur Þór fram að þau Evrópuríki sem eru háð rússneskum stjórnvöldum um jarðefnaeldsneyti hafi gert mikil mistök.

Líffræðileg fjölbreytni var einnig á dagskrá ráðherrafundarins, en vinna við rammasamkomulag um hnattrænar aðgerðir á grundvelli samnings Sameinuðu þjóðanna um líffræðilegan fjölbreytileika er nú á lokametrunum. Ráðherra hefur látið vinna grænbók um líffræðilega fjölbreytni íslenskra vistkerfa sem sett verður í samráðsgátt fljótlega. Fyrir árslok verður lokið við mótun nýrrar stefnu um verndun líffræðilegrar fjölbreytni fyrir Ísland, sem byggir á stefnu samningsins.

Fulltrúar EFTA-ríkjanna nýttu tækifærið og funduðu sérstaklega meðan á fundinum stóð. Meðal þess sem var rætt var fyrirhugaður aðildarríkjafundur loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna í nóvember (COP27) og tillögur ESB um hvernig ná eigi 55% markmiði um samdrátt í losun, en sumar tillögurnar munu óbreyttar hafa mikil áhrif á á flug og orkuskipti í flugi, sbr. umfjöllun hér fyrir ofan. Einnig var rætt um umhverfisákvæði fríverslunarsamninga EFTA.

Fyrsti stóri styrkurinn til Íslands úr Nýsköpunarsjóði ESB

Nýsköpunarsjóður ESB hefur veitt fyrirtækinu Carbfix styrk að upphæð sem nemur 16 milljörðum króna til uppbyggingar á móttöku og förgunarstöð fyrir koltvísýring sem reist verður í Straumsvík.

Nýsköpunarsjóður ESB fellur undir loftslags- og umhverfisstofnun ESB og byggir á gjöldum sem fyrirtæki innan evrópska viðskiptakerfisins með losunarheimildir, ETS, greiða fyrir losunarheimildir. ETS-kerfið hefur verið innleitt á Íslandi í gegnum EES-samninginn og íslensk fyrirtæki sem falla undir gildissvið kerfisins hafa tekið þátt í því frá árinu 2013.

Þátttaka Íslands í ETS-kerfinu gerir það að verkum að Ísland getur verið aðili að sjóðnum og íslensk fyrirtæki geta sótt í sjóðinn. Rannís sér um að kynna sjóðinn fyrir íslenskum hagaðilum. Íslensk fyrirtæki hafa áður fengið smærri styrki til grænna nýsköpunarverkefna en þetta er í fyrsta sinn sem íslenskur aðili hlýtur stóran uppbyggingarstyrk – en í þessari lotu var úthlutað sem svarar samtals nærri 280 milljörðum króna.

Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á heimasíðu Carbfix.

Sjá nánari upplýsingar um sjóðinn og úthlutunina á heimasíðu Nýsköpunarsjóðs ESB (Innovation Fund).

Birta tillögu um breytingu á reglugerð um úthlutun afgreiðslutíma á flugvöllum

Framkvæmdastjórn ESB birti á dögunum tillögu að breytingu á reglugerð um úthlutun afgreiðslutíma á flugvöllum. Er ætlunin með breytingunni að auka sveigjanleika í framkvæmd við úthlutun afgreiðslutíma til flugfélaga og auka viðnámsþrótt (e. resilience) svo hægt sé að bregðast snarlega við ófyrirsjáanlegum aðstæðum sem kunna að koma upp.

Flugumferð hefur aukist hratt að undanförnu vegna bættrar stöðu heimsfaraldursins en innrás Rússa í Úkraínu hefur að hluta til rofið flugsamgöngur innan álfunnar. Mikilvægt er að hægt sé að bregðast snarlega við tilteknum aðstæðum, s.s. þegar farsóttir geisa, náttúruhamfarir eiga sér stað eða óvæntir alþjóðlegir viðburðir setja flugsamgöngur í uppnám.

Tillagan gerir þannig ráð fyrir að krafa um nýtingarhlutfall verði færð til baka upp í 80 prósent en um leið að ákvæði um lægri nýtingu úthlutaðs afgreiðslutíma við ófyrirsjáanlegar og óviðráðanlegar aðstæður verði framlengt.

Tillagan fer nú til meðferðar hjá ráðherraráðinu og Evrópuþinginu en hægt er að lesa nánar um hana hér.

Þriðja skýrsla ESB um stöðu réttarríkisins lítur dagsins ljós

Framkvæmdastjórn ESB birti nýverið skýrslu um stöðu réttarríkisins (e. Rule of Law Report) fyrir árið 2022, en þetta er í þriðja skiptið sem slík skýrsla er gefin út. Skýrslan kemur út í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu og undirstrikar mikilvægi þess að lýðræðislegum gildum og mannréttindum sé haldið á lofti og að ekki sé grafið undan réttarríkinu.

Skýrslan greinir frá stöðu réttarríkisins innan sambandsins í heild en einnig í sérstökum landsköflum um hvert og eitt aðildarríkjanna 27. Skýrslan útlistar fjögur mismunandi áherslusvið og greinir hvernig staða þeirra er í hverju ríki fyrir sig. Sviðin eru eftirfarandi: 1) umbætur á réttarkerfinu (e. justice reforms), 2) hvernig umgjörð gegn spillingu er háttað (e. anti-corruption framework), 3) fjölmiðlafrelsi og fjölhyggja (e. media freedom and pluralism) og 4) eftirlit með stofnunum og staða óháðra og borgaralegra samtaka (e. institutional checks and balances).

Framkvæmdastjórnin leggur jafnframt fram tillögur um hvernig megi gera betur á framangreindum sviðum og er hægt að kynna sér þær betur í skýrslunni sem nálgast má hér.

Framkvæmdastjórnin birtir viðbragðsáætlanir vegna samgöngumála

Framkvæmdastjórn ESB hefur birt nýja skýrslu um þann lærdóm sem hægt sé að draga af áhrifum heimsfaraldursins af völdum COVID-19 og innrásar Rússa í Úkraínu á samgöngur. Hvort tveggja hefur haft afar mikil áhrif á fólks- og vöruflutninga í Evrópu sem núverandi regluverk var óviðbúið fyrir.

Í skýrslunni eru tilgreind tíu aðgerðasvið sem lagt er til að hafa til hliðsjónar fyrir sambandið og aðildarríki til undirbúnings þess að bregðast við alvarlegum áföllum af þessu tagi. Þ. á m. er að horfa til mögulegra ráðstafana í lagaumhverfinu, að nægilega sé stutt við flutningastarfsemi, að lágmarkssamgöngutengingar séu tryggðar o.fl.

Hér má nálgast fréttatilkynningu framkvæmdastjórnarinnar og skýrsluna.

Brussel-vaktin er gefin út af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Vaktin kemur út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

08. júlí 2022 | Áfram þarf að vakta áhrif tillagna í loftslagsmálum á flug til og frá Íslandi |
Að þessu sinni er fjallað um:

afgreiðslu umhverfisráðherra ESB á tillögum um loftslagsmál

fund heilbrigðisráðherra ESB þar sem rætt var um gagnagrunn og stefnu á heimsvísu

nýja framtíðarskýrslu um grænu og stafrænu byltingarnar

samábyrgð vegna umsókna um alþjóðlega vernd

1. umræðu í Evrópuþinginu um stafræna löggjöf

Umhverfisráðherrar ESB afgreiða loftslagstillögur

Eins og áður hefur verið fjallað um á þessum vettvangi og öðrum lagði framkvæmdastjórnin fram í júlí 2021 viðamiklar tillögur um viðbrögð í loftslagsmálum undir heitinu Fit for 55. Markmið tillagnanna er að draga úr loftslagsmengun aðildarríkjanna um að a.m.k. 55% fyrir 2030 miðað við 1990 og ná kolefnishlutleysi árið 2050. Nú ári síðar er óhætt að segja að aðildarríkjunum og Evrópuþinginu hafi gengið ágætlega að ná fram sameiginlegum niðurstöðum þótt á stundum hafi verið tekist á og leita hafi þurft málamiðlana á ýmsum sviðum bæði innan Evrópuþingsins og meðal aðildarríkjanna.

Ísland hefur fylgst mjög grannt með þessum pakka bæði í meðferð aðildarríkjanna og í þinginu þar sem miklir hagsmunir eru í húfi fyrir Ísland, einkum og sér í lagi þegar kemur að löggjöf sem tekur til flugsamgangna. Hafa fulltrúar Íslands beitt sér sérstaklega með því að kynna sjónarmið Íslands fyrir fulltrúum þingnefnda og fyrir fulltrúum allra aðildarríkja ESB og tala fyrir tilteknum breytingatillögum.

Í lok júní var haldinn maraþonfundur umhverfisráðherra ESB þar sem málamiðlanir fundust um síðustu tillögur pakkans. Má þar helst nefna að samþykkt var að banna brunahreyfla í nýjum bifreiðum frá 2035 en á tímabilinu mun framkvæmdastjórnin skoða möguleikana á að nota annars konar eldsneyti (e-fuel) fyrir þessa hreyfla en það var gert að kröfu Þýskalands.

Hvað varðar flugstarfsemi þá var samþykkt að draga jafnt og þétt úr úthlutun gjaldfrjálsra losunarheimilda til 2027 og að aðlaga ETS kerfið í flugi að alþjóðlegu gjaldakerfi sem beitt er gagnvart flugferðum utan EES. Er gert ráð fyrir því að breyttar reglur fyrir flugið gildi eingöngu í flugi innan EES (og til Bretlands og Sviss) en utan þess svæðis gildi hið alþjóðlega kerfi. Á sama tíma tókst smærri ríkjum ESB ásamt Grikkjum að knýja fram sérstakar tímabundnar lausnir þegar kemur að þeim.

Samþykkt var að setja á fót sérstakt viðskiptakerfi með losunarheimildir sem nái til húsbygginga og samgangna á landi. Einnig var að ákveðið að taka sjóflutninga inn í viðskiptakerfið með losunarheimildir. Málamiðlun náðist um að setja á fót félagslegan loftslagssjóð (Social Climate Fund) til að styðja við aðlögun heimila, fyrirtækja og notkun samgöngutækja að breyttu kerfi losunarheimilda. Verða alls 59 milljarðar evra til ráðstöfunar úr þessum sjóði frá 2027-2032 þegar þessar nýju reglur hafa gengið í gildi. Að lokum náðist samstaða meðal aðildarríkjanna um uppfærð markmið þegar kemur að geirum sem ekki falla undir kerfi losunarheimilda (til dæmis landbúnaður, sorpvinnsla og innanlandssamgöngur á sjó) og að setja markmið um að draga úr losun um 40% miðað við 2005.

Það sem tekur nú við er að aðildarríkin og Evrópuþingið setjast á komandi hausti að samningaborðinu og leita að samkomulagi um endanlegar lagabreytingar. Er ljóst að áfram þarf að vakta áhrif þessara tillagna, m.a. á flug til og frá Íslandi, og koma röksemdum um sérstöðu Íslands skýrlega á framfæri.

Rætt um samevrópskan gagnagrunn fyrir heilbrigðisupplýsingar

Fundur heilbrigðisráðherra ESB nýlega var einkum haldinn til að ræða tvö mikilvæg og brýn málefni. Annars vegar tillögur sem nú liggja fyrir um samevrópskan gagnagrunn á heilbrigðissviði (European Health Data Space, EHDS) og hins vegar endurskoðun á alþjóðlegri heilbrigðisstefnu Evrópusambandsins og hlutverki þess við að leggja heilbrigðismálum annarra ríkja heimsins lið (EU Global Health Strategy).

Í opnunarræðu Stellu Kyriakides, framkvæmdastjóra heilbrigðismála og matvælaöryggis hjá Evrópusambandinu, vakti hún m.a. athygli á að búið væri að kaupa 110 þúsund bóluefnaskammta fyrir aðildarríkin gegn apabólu. Kaupin væru gott dæmi um skjót viðbrögð framkvæmdastjórnarinnar og aðildarríkjanna og til marks um raunverulegra virkni Evrópustofnunar um neyðarviðbúnað og viðbrögð vegna heilsuvár (HERA) þegar ný ógn steðjar að. Í fyrsta skipti væru sameiginleg innkaup fjármögnuð með sjóðum Evrópusambandsins. Þá sagði hún apabóluna nú minna enn einu sinni á að til staðar þurfi að vera kerfi um alþjóðlegt samstarf (global strategy) um lýðheilsuvarnir.

Samevrópskur gagnagrunnur heilbrigðisupplýsinga (EHDS)

Tillaga framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um samevrópskan gagnagrunn heilbrigðisupplýsinga var samþykkt 3. maí sl. Gerð var grein fyrir honum í stuttri umfjöllun í Vaktinni 13. maí sl. Grunninum er ætlað að vera ein af meginstoðunum við uppbyggingu á fjölþættu öflugra samstarfi Evrópusambandsríkja á sviði heilbrigðismála (e. European Health Union). Markmiðin með grunninum eru að auðvelda einstaklingum aðgengi að eigin heilsufarsgögnum og heilbrigðisstarfsfólki að veita betri heilbrigðisþjónustu óháð staðsetningu. Þá er grunninum einnig ætlað að styrkja vísindastarf og nýsköpun auk þess að styðja við stefnumörkun stjórnmálamanna.

Ráherrar lýstu ánægju sinni með tillöguna og telja hana vera mikilvægan grunn til að skiptast á öruggum heilbrigðisupplýsingum yfir landamæri sem bæta muni heilbrigðisþjónustu til framtíðar. Covid-19 faraldurinn hafi sýnt fram á mikilvægi gagna af þessu tagi. Þá muni grunnurinn styðja við aukna skilvirkni heilbrigðisgeirans og efla vísindarannsóknir og nýsköpun á sviðinu. Nokkur ríki bentu á að grunnurinn gæti orðið til þess að styrkja samstarf einkageirans og hins opinbera sem væri af hinu góða. Ráðherrarnir telja verkefnið engu að síður vandmeðfarið og álitaefnin mörg. Hugtökin traust, öryggi og siðferði lýsa þeim ágætlega. Almenningur þarf að treysta grunninum fyrir eigin heilsufarsgögnum, í því skiptir meginmáli að öryggi gagnanna og siðferðið við meðferð þeirra sé tryggt. Þá vöktu ráðherrar athygli á að virða þyrfti fjölbreytileika ríkjanna og taka tillit til stöðu og sjálfræðis hvers og eins, en aðildarríkin eru misjafnlega á vegi stödd m.a. hvað varðar innviði, lagaumhverfi og stafræna þróun til að takast á við uppbyggingu af þessu tagi. Þá eru einnig uppi áhyggjur af kostnaði við að koma grunninum í framkvæmd.

Endurskoðun á alþjóðlegri heilbrigðisstefnu Evrópusambandsins

COVID-19 heimsfaraldurinn og áhrif innrásarinnar í Úkraínu á heilsu og heilbrigðiskerfi sýnir nauðsyn alþjóðlegs samstarfs og samvinnu. Í ljósi þess hefur framkvæmdastjórnin ákveðið að endurskoða alþjóðastefnu Evrópusambandsins í heilbrigðismálum, en núverandi stefna er frá árinu 2010. Stella Kyriakides sagði stefnuna þurfa að hafa skýrar áherslur, auk þess að vera hnitmiðuð og áhrifamikil. Í kjölfar fundar heilbrigðisráðaherra G7 ríkja 19. maí sl. tilkynnti framkvæmdastjórnin formlega að hefja ætti vinnu við þróa nýja alþjóðlega heilbrigðisstefnu þar sem allir hagsmunaaðilar eru hvattir til að taka þátt. Undanfarið hefur Evrópusambandið unnið að slíkri stefnu. Til marks um það var á fundi heilbrigðisráðherra sem haldinn var í Lyon í febrúar sl. rætt hvort og hvernig styrkja mætti hlutverk sambandsins til að leggja heilbrigðiskerfum annarra ríka heimsins lið. Þá veitti ráðherraráðið framkvæmdastjórninni heimild, 7. mars sl., til að hefja viðræður um aukið alþjóðlegt samstarf Evrópusambandsins og Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar til að undirbúa og bregðast við heilbrigðis- og lýðheilsuógnum með samræmdum hætti. Þessu til viðbótar var tilkynnt, 9. júní sl., að framkvæmdastjórnin og Bandaríkin hefðu undirritað samkomulag um samstarf á sama sviði.

Ráðherrarnir fögnuðu þessari ákvörðun. Þeir lögðu áherslu á mikilvægi þessarar stefnu við að endurskilgreina forgangsröðun í heilbrigðismálum á heimsvísu, svo sem að styrkja heilbrigðiskerfin, undirbúa og bregðast við heilbrigðiskreppum og um leið stuðla að One Health hugmyndafræðinni. Þá kölluðu ráðherrar eftir því að stefnan yrði til þess að styrkja áhrif Evrópusambandsins á heilbrigðismál á alþjóðavettvangi, en sambandið hafi sýnt sig vera leiðandi afl í samhæfðu og árangursríku viðbragði gegn Covid-19 heimsfaraldrinum.

Framtíðarskýrsla framkvæmdastjórnarinnar um grænu og stafrænu byltingarnar

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins gaf nýverið út skýrslu um framtíðarsýn þess á grænu og stafrænu byltingarnar og hvernig þær geta styrkt hvor aðra og unnið að því að ná sama markmiði. Skýrslan lítur fram til ársins 2050.

Í stuttu máli mætti segja að eitt helsta verkefni næstu ára snúi að nýtingu á endurnýjanlegum orkugjöfum og hinu snjalla dreifikerfi, sem geti bæði náð umhverfismarkmiðum sambandsins og aukið sjálfstæði þess til aðgerða (e. strategic autonomy). Endurnýjunin á orkukerfum og áherslan á græna orku bætir síðan byggingar og umhverfi borga sem leiðir til aukinna lífsgæða. Almenningssamgöngur geta á sama hátt notið góðs af þessum aðgerðum og aukin gagnasöfnun um skilvirkni þeirra og gæði ætti að verða öllum notendum til góða. Þá getur aukin gagnasöfnun nýst til þess að betur skilja framboð og eftirspurn á nauðsynlegum hrávörum, og sjaldgæfum málmum, sem nýtast t.a.m. í framleiðslu á rafhlöðum, sem m.a. nýtast í samgöngur. Sjálfbærni og endurvinnsla eru lykilhugtök þegar kemur að sjaldgæfum málmum – þarna má minnast á væntanlega reglugerð ESB um framleiðslu á örgjörvum og hálfleiðurum en hún á að auka á getu sambandsins til þess að stjórna sinni eigin stafrænu framtíð. Landbúnaður gæti sérstaklega notið góðs af aukinni gagnasöfnun og betra umhverfi, auk þess sem dregið yrði úr notkun efna sem hafa slæm áhrif á umhverfið. Það á eftir að verða nauðsynlegt að sjá til þess að allir haghafar njóti góðs af þessum miklu breytingum og vitanlega mun kostnaðurinn móta þær að einhverju leyti. Samræmdar reglur og staðlar eru verkefninu svo nauðsynleg, sem og aukin geta í netöryggismálum til þess að tryggja öll þau stafrænu gögn sem verða til í svona verkefnum.

Yfirlýsing frönsku formennskunnar um samábyrgðarkerfi umsókna um alþjóðlega vernd

Hinn 23. maí 2022 lagði franska formennskan fram tillögu að sameiginlegri yfirlýsingu sem aðildarríki Evrópusambandsins (ESB) og samstarfsríki Schengen (SAC), Ísland, Noregur, Sviss og Liechtenstein, voru beðin um að undirrita og varðar tímabundið og valkvætt samábyrgðarkerfi þegar kemur að umsóknum um alþjóðlega vernd. Yfirlýsingin er tilraun formennskunnar til að þoka áfram viðræðum um þær tillögur sem mynda heildarpakka ESB í útlendingamálum en lítið sem ekkert hefur þokast í þeim málum síðan 2016.

Ísland er einungis skuldbundið til að innleiða þær reglur innan heildarpakka ESB sem varða þróun á Schengen-regluverkinu og breytingar á málsmeðferðarreglum Dyflinnarmála og fingrafaragagnagrunni EURODAC sem rúmast innan þess samnings sem Ísland hefur gert við ESB. Ísland er því ekki skuldbundið af málsmeðferðarreglum ESB í málefnum umsækjenda um vernd og þar með reglum um samábyrgð ríkja innan ESB. Svonefnd samábyrgð (e. solidarity) í þessum skilningi kveður á um að jafna byrði innan Evrópu vegna umsókna um alþjóðlega vernd. Sum framlínuríki, þá einkum svokölluð Med5 ríkin, (Grikkland, Ítalía, Spánn, Kýpur og Malta), sem liggja að Miðjarðarhafinu og hafa löngum verið fyrsti áfangastaður flestra umsækjanda um alþjóðlega vernd, hafa lengi kallað eftir skyldubundnu samábyrgðarkerfi sem fæli í sér að aðildarríki taki við umsækjendum um vernd frá þessum tilteknu framlínuríkjum til að létta þeim róðurinn og axli þannig ábyrgð á fjölda umsækjenda um vernd til jafns við framlínuríkin. Almennt hafa önnur ríki innan Evrópu ekki verið tilbúin til að taka upp slíkt kerfi af mismunandi ástæðum. Á það einkum við um ríki sem glíma við þunga í þessum málaflokki heima fyrir, m.a. vegna þess að umsækjendur um vernd í Med5 framlínuríkjun halda áfram för sinni og sækja jafnframt um alþjóðlega vernd annars staðar (e. secondary movement). Önnur ríki vísa til þess að Dyflinnarreglugerðin sé grunnur samábyrgðar meðal þátttökuríkja. Sum ríki hafa jafnvel ekki fallist á að ábyrgð á meðferð umsækjenda um vernd verði deilt niður á önnur ríki. Hvert ríki verði að bera ábyrgð á því fólki sem komi yfir landamæri þess. Eftir því sem lengra líður á umræðuna um þennan pakka hafa sum ríki heldur harðnað í afstöðu sinni og nú er svo komið að Med5 ríkin hafa hafnað því fyrir sitt leyti að neitt úr „pakkanum“ verði afgreitt, fyrr en áformin um samábyrgð verði samþykkt. Frá því heildarpakkinn var lagður fram 2016 hafa formennskuríkin lagt kapp á að leysa þennan hnút með alls kyns tillögum en án árangurs.

Líkt og að framan er rakið er Ísland ekki skuldbundið til að innleiða samábyrgðarreglur ESB og hefur ítrekað mikilvægi þeirrar skýru afmörkunar á fundum innan ráðsins, bæði á vettvangi ráðherra og sendiherra. Ísland hefur þó ávallt lýst sig reiðubúið að axla ábyrgð en þó eingöngu á valkvæðum grundvelli og á eigin forsendum.

Ísland hefur hagsmuna að gæta þegar kemur að þeim reglugerðum sem við erum annað hvort skuldbundin af í gegnum Schengen-samstarfið, s.s. reglugerðin um forskoðun umsókna á ytri landamærum (e. Screening) og þeim reglugerðum sem við erum þátttakendur í, þ.e. Dyflinnarreglugerðinni og EURODAC og því mikilvægt að hægt verði að þoka áfram mikilvægum breytingum á þessum reglugerðum. Í yfirlýsingunni eru jafnframt lagðar skyldur á herðar aðildarríkja að hraða flutningum á grundvelli Dyflinnarreglugerðinnar og koma í veg fyrir áframhaldandi för (e. Secondary movement), sem er mikilvægt fyrir Ísland.

Yfirlýsingin er bæði tímabundin og lagalega óbindandi en samkvæmt bráðabirgðaútreikningi frönsku formennskunnar, í samræmi við reiknireglu yfirlýsingarinnar, ætti Ísland að taka við 20 einstaklingum í flutningsaðstoð á þessu árs tímabili sem yfirlýsingin gildir. Í yfirlýsingunni má þó finna ákveðna fyrirvara sem aðildarríki geta nýtt sér vegna erfiðrar stöðu heimafyrir, s.s. vegna þrýstings á móttökukerfi. Hvert ríki getur í ljósi þessa ákveðið, tímabundið, að taka ekki við einstaklingum í gegnum flutningsaðstoð, en þó er gert ráð fyrir að staðið verði við fyrirheit um móttöku innan 12 mánaða. Mikilvægt er að horfa á yfirlýsinguna og stuðning við hana í samhengi við stöðu mála hér á landi, sem einkennist af miklum fjölda fólks í búsetuúrræðum, bæði umsækjendum um vernd, Úkraínumönnum með tímabundna vernd og einstaklingum sem hafa fengið endanlega synjun og vænta má að verði fluttir úr landi á næstunni. Verður því fremur horft til þess að óbreyttu að taka á móti umræddum 20 einstaklingum á síðari hluta þessa 12 mánaða tímabils.

Enn sem komið er hafa 18 aðildarríki ESB og öll samstarfsríki Schengen, þ. á m. Ísland, sbr. ákvörðun ríkisstjórnarinnar 1. júlí sl., undirritað yfirlýsinguna. Líkt og önnur samstarfsríki Schengen undirritaði Ísland yfirlýsinguna með orðunum „in the spirit of compromise“ og veitti þannig fulltingi sitt til að leysa þann hnút sem þessi mál hafa verið í innan ráðherraráðs ESB síðan 2016. Þá verður einnig gerður fyrirvari um að undirritunin og samþykki yfirlýsingarinnar teljist hvorki til þróunar á skuldbindingum okkar gagnvart Schengen og Dublin samstarfinu og hafi því engin áhrif á skuldbindingar Íslands, þegar kemur að framtíðarfyrirkomulagi, á reglum um samábyrgð innan Evrópu. Reiknað er með að Ísland taki á móti 20 manns en móttaka fari fram síðar á tímabilinu.

Grundvallarlöggjöf um stafræn málefni – fyrstu umræðu í Evrópuþinginu lokið

Evrópuþingið lauk fyrstu umræðu fyrr í vikunni um löggjöf um stafræn málefni sem talin er marka þáttaskil á því sviði. Er þar um að ræða annars vegar reglugerð um stafrænan markað og hins vegar um stafræna þjónustu. Reglurnar beinast ekki síst að stærstu netfyrirtækjunum og varða réttindi notenda og samkeppnisreglur.

Brussel-vaktin er gefin út af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Vaktin kemur út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

24. júní 2022 | Fyrirhugaðar reglur um flug og loftslagsmál: Íslensk stjórnvöld leggja áherslu á sérstöðu landsins |
Að þessu sinni er fjallað um:

markvissa hagsmunagæslu íslenskra stjórnvalda vegna tillagna um flug og loftslagsmál

leiðtogafund ESB þar sem Úkraína var efst á baugi

endurheimt vistkerfa og nýjar tillögur í því efni

stöðuna varðandi reglur um flokkun fjárfestinga út frá umhverfissjónarmiðum

júní-fund fjármála- og efnahagsráðherra ESB

áhyggjur EFTA-ríkjanna af því að fá ekki að vera með í geimfjarskiptakerfi ESB

forgangsmál Tékka sem taka við formennskukeflinu um mánaðamótin

ráðherrafund um félagsmál þar sem rætt var um réttindi launafólks í stafrænu umhverfi

Flug og loftslagsmál: Erindi forsætisráðherra til leiðtoga ESB

Fram hafa komið miklar áhyggjur flugrekenda og Isavia af áhrifum innleiðingar Fit for 55- pakka framkvæmdastjórnarinnar á verð flugmiða til Íslands og þ. a. l. samkeppnisstöðu Keflavíkurflugvallar fyrir flug yfir Norður-Atlantshaf. Tillögur framkvæmdastjórnarinnar sem eru EES-tækar varðandi flug snúa m.a. að breytingum á viðskiptakerfi með losunarheimildir fyrir flug (ETS losunarheimildir) og kröfu um íblöndun flugvélaeldsneytis með vistvænu eldsneyti.

Í tillögu um breytingu á tilskipun um losunarheimildir er m.a. lagt til að allar losunarheimildir verði boðnar upp ekki síðar en 2027, en í dag eru 30-35% losunarheimilda veittar án endurgjalds. Þá er lagt til að losunarheimildum á markaði verði fækkað um 4,2% í stað 2,2% í núgildandi tilskipun.

Í tillögu um íblöndun flugvélaeldsneytis er lagt til að íblöndun með vistvænu eldsneyti nemi um 2% fram til 2030, 6% til 2035, 20% 2035 o.s.frv. Þrátt fyrir að verð á vistvænu flugvélaeldsneyti sé 3-9 sinnum hærra en á hefðbundnu eldsneyti eru kostnaðaráhrifin í upphafi hlutfallslega lítil samanborið við kostnaðaráhrifin af kröfum um losunarheimildir.

Kostnaður flugrekenda sem hlýst af kröfum reglugerðanna vex í hlutfalli við verð á losunarheimildum, verð á íblöndunarefni og fjárhæð skatta. Hann vex sömuleiðis í hlutfalli við flogna vegalengd. Gera má ráð fyrir að kostnaðnum verði velt yfir í verð flugmiða að því marki sem samkeppnisstaða flugrekenda á markaði leyfir.

Lagt er til að breytingarnar taki gildi 2025 og samkvæmt mati flugrekenda eru kostnaðaráhrifin af verði ETS losunarheimilda á árunum eftir gildistöku margföld áhrifin af íblöndun eldsneytis og skattlagningu flugvélaeldsneytis. Árið 2035 þegar íblöndunarkrafan fer í 20% fara kostnaðaráhrif af íblöndunarkröfu að óbreyttu að vega þyngra í heildarkostnaði. Þegar þetta er skrifað er verðið af tonni losunarheimildar um 85 evrur, en var tæplega 25 Evrur árið 2019 þegar áhrifamat tillagnanna var unnið.

Meðalflugleið til Íslands frá áfangastöðum í Evrópu er um 2.200 km en meðalflugleið innan EES er áætluð um 800-850 km. Því eru kostnaðaráhrifin af tillögunum fyrir Ísland margfalt meiri en meðaláhrif annars staðar í Evrópu. Næstmestu kostnaðaráhrifin eru á flug til Kýpur og Möltu en áhrifamat framkvæmdastjórnarinnar fyrir tillögur að breytingu á viðskiptakerfinu gagnvart flugi byggist hins vegar allt á meðaltalsútreikningum.

Tillögurnar hafa einnig áhrif á samkeppnisstöðu Keflavíkurflugvallar sem tengiflugvallar fyrir flug yfir Atlantshafið. Samkvæmt upplýsingum Isavia eru 40% farþega sem fara um Keflavíkurflugvöll tengiflugsfarþegar. Flugfélög þurfa að kaupa losunarheimildir fyrir flug frá Evrópu til Íslands. Lagt er til að fyrir flug út af EES gildi svokallað CORSIA-kerfi sem er alþjóðlegt og samþykkt af alþjóðaflugmálastofnuninni. CORSIA-kerfið gerir ráð fyrir að ríki geri mótvægisráðstafanir fyrir losun sem er umfram losun 2019, annaðhvort með kaupum á “offset-heimildum” eða umhverfisvænni tækni. Í dag hefur alþjóðlegt flug ekki náð því umfangi sem var 2019 svo ekki er enn þörf á mótvægisaðgerðum vegna CORSIA. Því þurfa flugrekendur að kaupa ETS losunarheimildir til Íslands og falla undir CORSIA frá Íslandi til N-Ameríku. Bandarískir flugrekendur með tengiflugvöll í Bandaríkjunum falla undir CORSIA alla leið frá EES til N-Ameríku og bera því engan kostnað vegna viðskiptakerfisins samanborið við kostnað vegna ETS-losunarheimilda við flug til Íslands, oft næstum hálfa leiðina.

Sendiráðið í Brussel hefur að undanförnu vakið athygli á þessum alvarlegu áhrifum tillagnanna meðal fastanefnda aðildarríkja ESB, framkvæmdastjórnarinnar og Evrópuþingsins og kynnt þeim leiðir til að jafna samkeppnisstöðuna án þess að dregið verði úr áhrifum tillagnanna í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Einnig hafa sendiráð Íslands í höfuðborgum aðildarríkja ESB verið virkjuð í þessu skyni og utanríkisráðherra hefur tekið málið upp á öllum tvíhliða fundum utanríkisráðherrum ESB að undanförnu.

Þá hefur forsætisráðherra sent forseta framkvæmdastjórnarinnar, forseta leiðtogaráðs ESB og öllum leiðtogum aðildarríkjanna bréf þar sem hún lýsti þungum áhyggjum af áhrifum fyrirliggjandi tillagna á fjarlæg eyríki sem reiða sig algerlega flugsamgöngur við önnur ríki jafnframt því sem hún áréttaði metnað Íslands í loftslagsmálum. Forsætisráðherra benti á að flug og tengdar greinar leggja allt að 14% til þjóðarframleiðslu Íslands og að skert samkeppnisstaða Íslands í flugi myndi hafa alvarleg áhrif á hagkerfið og tíðni flugsamgangna við landið.

Í bréfinu benti forsætisráðherra á að tillögurnar, eins og þær væru settar fram gagnvart jaðarríkjum EES, fælu í sér verulega hættu á svokölluðum kolefnisleka. Hækkun verðs á flugmiðum innan EES myndi beina farþegum til ríkja og flugfélaga utan EES sem ekki lúta reglum sem hefðu sambærileg kostnaðaráhrif.

Utanríkisráðherra, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og innviðaráðherra hafa einnig vakið athygli á erindi forsætisráðherra meðal sinna starfssystkina í aðildarríkjum ESB, bent á alvarleika málsins og lagt áherslu á mikilvægi þess að gerðar verði ráðstafanir til að mæta þessum sérstöku aðstæðum.

Leiðtogaráðið staðfestir að veita Úkraínu og Moldóvu stöðu umsóknarríkja

Á leiðtogafundi Evrópusambandsins 23. júní sl. var samþykkt yfirlýsing um Úkraínu og fleiri ríki sem hafa sóst eftir aðild. Fram kom að leiðtogaráðið teldi að framtíð Úkraínu, Moldóvu og Georgíu væri í Evrópusambandinu. Þá var samþykkt formlega að veita Úkraínu og Moldóvu stöðu umsóknarríkis.

Á fundinum var rætt um samstarf við önnur ríki í Evrópu. Í framhaldi af hugmyndum Macrons Frakklandsforseta, sem áður hefur verið greint frá í Vaktinni, var rætt um að bjóða líktþenkjandi Evrópuríkjum sem ekki eru aðilar að ESB upp á nánara pólitískt samstarf en verið hefur. Tilgangurinn væri að efla pólitískt samtal og samstarf um sameiginlega hagsmuni til þess að styrkja öryggi, stöðugleika og velsæld í álfunni.

Viðamiklar tillögur um endurreisn vistkerfa

Framkvæmdastjórn ESB kynnti 22. júní sl. víðtækar tillögur sem miða að því að endurreisa löskuð vistkerfi. Samhliða verður dregið úr notkun ólífræns skordýraeiturs um helming fram til ársins 2030. Þessar tillögur eru tengdar áætlunum um lífræna fjölbreytni og frá býli til borðs. Ný löggjöf um endurheimt náttúrlegs umhverfis er sögð lykilþáttur í að afstýra hruni vistkerfa og stórfelldri hnignun lífrænnar fjölbreytni. Tillögurnar ná m.a. til votlendis, fljóta, skóga, graslendis, sjávarvistkerfa og þéttbýlis. Tilgangurinn er m.a. að skapa nýtt jafnvægi lífríkis og mannlegra athafna án þess að ganga ætíð svo langt að fella tiltekin svæði undir náttúruvernd.

Græna flokkunarkerfið – þungur róður í þinginu

Í febrúar sl. var um það fjallað í Vaktinni að mikil óánægja ríkti í Evrópuþinginu með þá ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar að flokka kjarnorku og gas sem hreina orkugjafa við tiltekin skilyrði. Vonir stóðu samt til að tillagan yrði samþykkt fyrir lok febrúar. Til að fella tillöguna þurfa a.m.k. 20 aðildarríki með 65% af heildaríbúafjölda ESB að vera á móti henni og auk þess þurfa 353 þingmenn af samtals 705 að hafna henni. Segja má að mótbyr gegn tillögunni hafi orðið enn meiri en búist var við og er hún enn til meðferðar í þinginu. Nú síðast felldi umhverfis- og efnahagsnefnd þingsins breytingatillöguna. Við afgreiðsluna heyrðust raddir um að tillagan væri einungis hrossakaup milli Frakka og Þjóðverja, þ.e. Frakkar vilja kjarnorkuna og Þjóðverjar gasið (e. natural gas), og væri einungis til þess fallin að minnka tiltrú á þessu mikilvæga verkefni. Þá eru þær raddir einnig farnar að heyrast að stríðið milli Úkraínu og Rússa setji tillöguna í nýtt samhengi, einkum hvað gasið varðar. Næsta skref er að þingið sjálft tekur málið til afgreiðslu snemma í júlí og telja margir að það standi afar tæpt.

Nýir tekjustofnar til umræðu hjá fjármála- og efnahagsráðherrum ESB

Á júnífundi fjármála- og efnahagsráðherra ESB var meðal annars rætt um stöðu efnahagsmála. Eins og við var að búast var einkum staldrað við verðbólguna og þróun hennar undanfarið. Farið var yfir helstu viðspyrnuaðgerðir aðildarríkjanna einkum varðandi stöðu fátækari heimila. Samstaða var um að grípa til frekari aðgerða ef nauðsyn krefði, jafnframt því að fylgjast grannt með þróuninni.

Viðbótartekjur ESB (e. New own-resources). Eins og áður hefur verið fjallað um hér í Vaktinni þarf ESB viðbótartekjur til að fjármagna svokallaðan Bjargráðasjóð (e. Recover and Resilience Facility; RRF) sem á að styðja við efnahagslega uppbyggingu í aðildarríkjunum eftir Covid 19. Þrír flokkar tekna hafa einkum verið í umræðunni. Í fyrsta lagi sérstakur kolefnisskattur yfir landamæri (e. Carbon Border Adjustment Mechanism, CBAM), í öðru lagi nýtt ETS-kerfi varðandi losunarheimildir og í þriðja lagi skattur á alþjóðleg stórfyrirtæki á sviði stafrænnar þjónustu, þ.e. stafrænn skattur (e. Digital Tax), sem OECD hefur verið að útfæra. Á ráðherrafundinum var farið yfir stöðu mála í einstökum aðildarríkjum, en ofangreindar tillögur hafa hlotið mikinn mótbyr í evrópska þinginu. Stafræni skatturinn er enn til umræðu í ráðherraráði ESB en vonast er til að um hann náist samkomulag í byrjun júlí. CBAM hefur verið harðlega gagnrýndur af ýmsum hagsmunasamtökum, meðal annars af samtökum áliðnaðar í Evrópu. Þá mun nýtt ETS-kerfi að óbreyttu hafa mikil áhrif á íslenska flugmarkaðinn. Rétt er að taka fram að sendiráði Íslands í Brussel hafa ekki borist fyrirspurnir frá íslenskum álframleiðendum um CBAM enn sem komið er en öðru máli gegnir um flugrekendur á Íslandi, sbr. fyrri umfjöllun í Vaktinni.

Fjármálamarkaðurinn. Þá var rætt um stöðu mála á fjármálamarkaði eins og alltaf. Fyrst ber að nefna stöðuna hvað varðar breytta löggjöf gagnvart peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Þar virðast hlutirnir á réttu róli, en mikið var rætt um ALMA, nýja sameiginlega eftirlitsstofnun ESB, sem EES/EFTA ríkin hafa gert athugasemdir við. Sama er að segja um gerðina Solvency II sem snýr að tryggingastarfsemi, en ráðherrarnir samþykktu framkomnar breytingar á henni á fundinum. Meðfylgjandi er slóð á fréttatilkynningu um málið; https://www.consilium.europa.eu/en/press/press-releases/2022/06/17/solvency-ii-council-agrees-its-position-on-updated-rules-for-insurance-companies/ Næst voru samþykktar ýmsar breytingar sem varða reglugerðina um einn fjármálamarkað (e. Capital Markets Union), en afgreiðslan á móðurreglugerðinni sjálfri er í bið. Hér er um að ræða eitt af meginmálum frönsku formennskunnar og munu þeir berjast fyrir því að ná henni í gegn fyrir 1. júlí.

Stækkun evrusvæðisins. Á fundinum samþykkti ráðherraráðið að mæla með aðild Króata að evrusvæðinu og að þar yrði tekin upp evra í ársbyrjun 2023. Reiknað er með að evrópska ráðherraráðið (e. European Council) afgreiði málið endanlega á fundi sínum síðar í mánuðinum. Króatía er 20. aðildarríki ESB til að taka upp evru. Þau sem standa utan eru, auk Danmerkur og Svíþjóðar, Búlgaría, Pólland, Ungverjaland, Rúmenía og Tékkland.

Staða aðildarríkja ESB gagnvart Bjargráðasjóðnum. Á fundinum var farið yfir hvaða ríki hefðu þegar skilað áætlun um nauðsynlegar efnahagsaðgerðir til að mæta skilyrðum um aðstoð frá RRF. Áætlun Póllands var samþykkt á fundinum en þeir voru síðastir til að skila. Á meðfylgjandi slóð er að finna frekari upplýsingar um aðgerðir einstakra ríkja. https://www.consilium.europa.eu/en/press/press-releases/2022/06/17/european-semester-2022-country-specific-recommendations-agreed/.

Samningur Noregs við ESB gegn svikum á vsk. Árið 2018 gekk í gildi samningur milli norskra stjórnvalda og ESB um gagnkvæma aðstoð varðandi „administrative cooperation, combatting fraud and recovery of VAT claims“. Á umræddum fundi samþykktu ráðherrarnir beiðni framkvæmdastjórnarinnar um að hefja viðræður um endurnýjun samningsins í því skyni að styrkja enn frekar samninginn frá 2018. Hér er um mjög áhugavert mál að ræða og mun fulltrúi fjármála- og efnahagsráðherra í sendiráðinu eiga fund með sérfræðingi í norsku fastanefndinni um málið eins fljótt og kostur er. Með fylgir fréttatilkynning sem gefin var út í tilefni samþykktarinnar. https://www.consilium.europa.eu/en/press/press-releases/2022/06/17/fight-against-vat-fraud-council-authorises-deepening-cooperation-with-norway/

Önnur mál. Ýmis önnur mál voru rædd á fundinum, eins og fyrirtækjaskattlagning (e. Business Taxation – Code of Conduct Group), alþjóðlegar reglur um útboð (e. Procurement Instrument) og endurskoðun á tilskipuninni um orkuskattlagningu (e. Engergy Taxation). Ekki er talin þörf á að fara nánar yfir þau mál á þessum vettvangi.

Bráðabirgasamkomulag um aukið samstarf við lýðheilsuvarnir

Samningamenn ráðherraráðsins og þingsins náðu samkomulagi í vikunni um reglur er varða alvarlega ógn við lýðheilsu þvert á landamæri. Reglunum er ætlað að auka viðbúnað og efla viðbrögð við slíkar aðstæður, að sjálfsögu í ljósi reynslunnar af Covid 19. Gert er ráð fyrir að hægt verði að lýsa yfir lýðheilsvá á ESB-stigi sem muni hrinda af stað sameiginlegum aðgerðum er varða m.a. framboð á lyfjum.

Þessar reglur eru hluti af fjölþættum tillögum um aukið samstarf innan ESB á sviði heilbrigðis- og lýðheilsumála. Norsk og íslensk stjórnvöld hafa komið á framfæri áhuga á að vera með í þessu samstarfi.

EFTA-ríkin vilja aðild að fyrirhuguðu fjarskiptakerfi í geimnum

EFTA-ríkin þrjú, Ísland, Liechtenstein og Noregur skiluðu 17. júní sl. sameiginlegri EES EFTA-umsögn um tillögu framkvæmdastjórnarinnar að reglugerð um áætlun um öruggt fjarskiptakerfi í geimnum.

Tilgangurinn með tillögu framkvæmdastjórnarinnar er að setja á laggirnar kerfi fjarskipta sem er öruggt og hagkvæmt til lengri tíma litið. Gert er ráð fyrir stuðningi við að koma þýðingarmiklum innviðum á laggirnar, eftirliti og að kerfið bjóði upp á notkunarmöguleika sem séu afgerandi fyrir efnahag, öryggi og varnir aðildarríkjanna. Einkaaðilum verður einnig veittur aðgangur að kerfinu til að bjóða upp á þjónustu í hagnaðarskyni.

Í umsögninni er því fagnað að EFTA-ríkjunum bjóðist þátttaka. Hins vegar sé sú leið sem fyrirséð er ekki sú besta og muni í raun útiloka þátttöku. Þess í stað eigi lagalegur grunnur samstarfs að vera í EES-samningnum. Þannig verði hægt að tryggja fulla og skilvirka þátttöku EFTA-ríkjanna.

Orkuöryggi og kjarnorka meðal forgangsmála Tékka

Tékkar taka við formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins 1. júlí. Kynntu tékknesk stjórnvöld forgangsmál sín 15. júní sl. Þar kom fram að stríðið í Úkraínu myndi setja sitt mark á formennskuna, bæði að því er varðar mannúðaraðstoð, móttöku flóttamanna og stuðning við aðildarumsókn Úkraínu. Tékkar hafa ásamt Pólverjum og Eystrasaltsþjóðunum verið dyggustu stuðningsmenn aðildar Úkraínu að ESB. Áform eru um leiðtogafund þar sem Volodymyr Zelenskyy, forseta Úkraínu, yrði boðin þátttaka í október.

Annað forgangsmál er orkuöryggi. Sérstök áhersla verður lögð á að viðurkenna sess kjarnorkunnar við raforkuframleiðslu. Þetta er mjög umdeilt atriði, sbr. umræður í Evrópuþinginu um flokkun fjárfestinga sem greint er frá hér á undan. Tékkar eru þarna bandamenn Frakka sem stuðningsmenn kjarnorkunnar.

Af öðrum forgangsmálum má nefna netöryggi, efnahagslegt sjálfstæði Evrópu og lýðræðismál, sbr. nýafstaðna ráðstefnu um framtíð Evrópu.

Rætt um lágmarkslaun og vettvangsvinnu

Á fundi ráðherra félagsmála innan ESB 16. júní sl. var farið yfir stöðu helstu mála sem hafa verið í vinnslu á sviði vinnumarkaðs og félagsmála. Mest áhersla var lögð á tilskipun um lágmarkslaun en í síðustu viku náðist pólitísk sátt um efni tilskipunarinnar auk þess sem rætt var um vettvangsvinnu (e. platform work) sem verður æ fyrirferðarmeiri á evrópskum vinnumarkaði.

Fulltrúi framkvæmdastjórnarinnar á sviði atvinnu- og félagsmála kynnti efni tilskipunarinnar sem hann sagði vera mikilvægt skref í þá átt að bæta stöðu launþega í Evrópu, ekki síst þeirra í lægstu tekjuhópunum, þar sem konur, ungt fólk og ófaglært eru í meirihluta. Tilskipunin setji ramma fyrir regluverk um fullnægjandi lámarkslaun og styðji við gerð kjarasamninga um launasetningu og aðgang starfsmanna að verkalýðsfélögum. Hann lagði áherslu á að tilskipunin tæki fullt tillit til sjálfstæðis ríkjanna en hvorki er gert ráð fyrir samræmingu lágmarkslauna né samræmingu regluverks í því skyni að tryggja lágmarkslaun. Tilskipunin væri auk þess nauðsynleg til að bæta kjör í Evrópu hvað varðaði að laun dygðu til framfærslu.

Gert er ráð fyrir að endanlegur texti tilskipunarinnar verði samþykktur af Evrópuþinginu í júlí.

Vinnumálaráðherrar Svíþjóðar og Danmerkur voru þeir einu sem lýstu ekki yfir stuðningi við tilskipun um lágmarkslaun. Þeir tóku báðir fram að ekki myndi koma til þess að Svíþjóð og Danmörk myndu breyta sinni aðferðafræði við ákvörðun launa með almennum samningum á vinnumarkaði, enda væri þess ekki krafist í gerðinni að þau ríki sem hefðu virka þátttöku aðila vinnumarkaðarins, eins og háttar til í Danmörku og Svíþjóð, breyttu aðferðum sínum eða verklagi.

Tilskipunin hefur verið til skoðunar hjá sérfræðingum EFTA-ríkjanna. Bráðabirgðamat er að hún falli ekki undir gildissvið EES-samningsins.

Þá hefur loks náðst samkomulag um efni tilskipunar um skyldu fyrirtækja til að jafna hlutfall kynjanna í stjórnum og e.a. framkvæmdastjórnum fyrirtækja en framkvæmdastjórnin setti fyrst fram tillögu þessa efnis á árinu 2012, en þess má geta að ákvæði þessa efnis hafa verið í íslenskum lögum frá því á árinu 2010.

Tilskipuninni er ætlað að tryggja aukið jafnvægi kynjanna í stjórnum fyrirtækja, en þrátt fyrir að yfir 60% þeirra sem útskrifast úr háskólum í Evrópu séu konur, eru þær enn í talsverðum minnihluta í stjórnum fyrirtækja. Í tilskipuninni er gerð krafa til þess að fyrir árið 2026 verði a.m.k. 40% stjórnarmanna félaga skráðra á markaði af því kyni sem hallar á í stjórninni. Ef löndin kjósa að láta þetta einnig ná til stjórnenda í fyrirtækjunum er viðmiðið 33% af því kyni sem hallar á fyrir árið 2026. Hafi fyrirtækin ekki náð þessu markmiði er gerð krafa til þess að þau setji fram áætlun um það hvernig þau hyggjast haga kjöri stjórnarmanna til þess að markmiðinu verði náð.

Vettvangsvinna hefur orðið æ meira áberandi á vinnumarkaði að undanförnu. Um 28 milljónir manna starfa nú við stafræna vinnuvettvanga á ýmsum sviðum, og áætlað er að 2025 verði sá fjöldi kominn upp í 40 milljónir. Meginmarkmið tillögunnar snúa að því að tryggja réttarstöðu starfsmanna og auka gagnsæi og sanngirni við stýringu vinnunnar og ákvörðun endurgjalds. Þá er talið nauðsynlegt að skýra réttarstöðuna hvað varðar það að þessir vettvangar starfa gjarnan yfir landamæri.

Framkvæmdastjórnin hefur lagt áherslu á þetta mál undir forystu Frakka og búist er við því að Tékkar muni halda áfram með það í sinni formennsku.

Brussel-vaktin er gefin út af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Vaktin kemur út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

10. júní 2022 | Nýr forgangslisti hagsmunagæslu fyrir Ísland gefinn út |
Að þessu sinni er fjallað um:

nýjan forgangslista vegna hagsmunagæslu á vettvangi EES

fund vinnuhóps EFTA um fjármálaþjónustu

umsögn EFTA-ríkjanna um græn skuldabréf

fyrstu Schengen stöðuskýrsluna

árlega úttekt framkvæmdastjórnarinnar á fiskveiðum

gagnrýni á bóluefnasamninga ESB

Forgangslisti hagsmunagæslu fyrir 2022-2023 samþykktur

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun nýjan forgangslista vegna hagsmunagæslu á vettvangi EES fyrir 2022-2023. Listinn var undirbúinn af stýrihópi um framkvæmd EES-samningsins og nær til mála sem eru í lagasetningarferli á vettvangi Evrópusambandsins og metin hafa verið sem forgangsmál út frá hagsmunum Íslands. Forgangslistinn er mikilvægt leiðarljós fyrir starfsemi sendiráðsins í Brussel.

Við undirbúning listans hefur verið haft að markmiði að greina þau mál sem eru í undirbúningi á vettvangi ESB þar sem íslenskir hagsmunir eru sérstaklega í húfi. Einstaka mál eru lengra komin og bíða upptöku í EES-samninginn.

Eins og gerð var grein fyrir í síðasta forgangslista hefur framkvæmdastjórn ESB sett fram metnaðarfullar þverfaglegar áætlanir til að styrkja stöðu ESB á alþjóðavettvangi, eins og græna sáttmálann og stafræna starfsskrá sem báðar varða að miklu leyti EES-samstarfið. Í kjölfarið hafa margar tillögur á þessum sviðum verið lagðar fram sem eru að finna á forgangslistanum. Aðrir málaflokkar á listanum varða fjármálastarfsemi, jafnréttismál, lyfjamál, matvælaöryggi, orkumál, peningaþvætti, rannsóknir og nýsköpun og vinnumarkaðinn.

Samráð var haft í samráðsgátt og við utanríkismálanefnd Alþingis. Sjá nánar á vef Stjórnarráðsins.

Mörg verkefni á sviði fjármálaþjónustu hjá ESB

Ekkert lát er á nýjum reglugerðum eða breytingum á þeim eldri þegar staðan á sviði fjármálaþjónustu er skoðuð. Meirihluti þeirra hefur áhrif á íslenskan fjármálamarkað. Nýverið hélt vinnuhópur EES/EFTA (e. Working Group on Financial Services) fund á Íslandi auk ráðstefnu undir yfirskriftinni „Digital finance and cyber security in critical times“. Á henni var fjallað um nokkur af stóru málunum sem nú eru efst á baugi á vettvangi fjármálaþjónustu. Þar ber sérstaklega að nefna netöryggi og hvaða hættur blasa við fjármálafyrirtækjum í þeim efnum. Fram kom að Norðurlöndin eru í samstarfi á því sviði. Staða Íslands á sviði rafrænnar þjónustu (e. Digital Iceland) var einnig kynnt og sömuleiðis hinn svokallaði „FinTech“ pakki sem mikið er fjallað um á vettvangi ESB þessa dagana. Að lokum var áhugaverður fyrirlestur um gervigreind og hvernig nýta má þá tækni þegar kemur að netöryggi.

Á fundi EES/EFTA vinnuhópsins um fjármálaþjónustu og sömuleiðis starfshópsins um upptöku reglugerða (e. Task Force on Financial Services) var farið yfir stöðu mála og hvernig mætti gera enn betur. Í umræðunni um mikinn upptökuhalla hefur fjármálaþjónustan gjarnan verið nefnd sem eftirbátur annarra málefnasviða hvað hann varðar. Þá gleymist gjarnan að benda á að stöðugt koma nýjar gerðir frá ESB á þessu sviði þannig að fjöldatala ein og sér segir ekki alla söguna. Þar skiptir aldur/gildistaka mun meira máli, en mikill meirihluti þeirra gerða sem nú eru útistandandi eru frá þessu ári og því síðasta. Sem dæmi má taka að í upphafi yfirstandandi árs voru 122 gerðir útistandandi á sviði fjármálaþjónustu en voru í byrjun júní samtals 107 þrátt fyrir talsverða viðbót það sem af er ári. Til samanburðar var þessi tala 169 í júní 2019, 94 í júní 2020, 118 í júní 2021. Á fundi starfshópsins voru margvísleg úrræði rædd til að bæta stöðuna enn frekar og verður fróðlegt að fylgjast þróun þessa málaflokks á næstu mánuðum.

EFTA-umsögn um tillögur um græn skuldabréf

Ísland, Liechtenstein og Noregur skiluðu 25. maí sl. sameiginlegri umsögn um tillögur um evrópsk græn skuldabréf. Tillögurnar eru hluti af stefnu framkvæmdastjórnar ESB varðandi sjálfbæra fjármögnun. Þar er að finna sameiginlegar reglur um hvenær megi auðkenna skuldabréf með þessu tiltekna hætti.

Í umsögn sinni segjast EFTA-ríkin styðja viðleitni framkvæmdastjórnarinnar til að styrkja markað fyrir græn skuldabréf með því að þau lúti gæðaaðhaldi utanaðkomandi aðila.

Í tillögunum er gert ráð fyrir að ESMA, evrópsk eftirlitsstofnun með skuldabréfamörkuðum, taki á móti skráningum og annist eftirlit með þeim utanaðkomandi aðilum sem munu veita gæðaaðhald. Í umsögn EFTA-ríkjanna er lögð áhersla á að eftirlitsaðilar í hverju ríki eigi einnig að gegna hlutverki vegna þekkingar á aðstæðum á hverjum stað. ESMA geti hins vegar haft samræmingarhlutverki að gegna.

Þá hafa ríkin áhyggjur af því nýju reglurnar eigi að taka gildi skömmu eftir birtingu. Ekki verði hægt að taka þær upp í EES-samninginn og innleiða á þeim 20 dögum sem ráðgerðir eru. Til að tryggja að nýju reglurnar virki um leið á öllu svæðinu á á markaði sem er mjög þvert á landamæri sé skynsamlegra að miða við 18 mánaða frest.

Fyrsta Schengen stöðuskýrslan

Hinn 25. maí sl. kynnti framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sína fyrstu Schengen skýrslu, en stöðuskýrslan, sem gefin verður út árlega, er liður í að efla eftirlit með innleiðingu og framkvæmd Schengen-samningsins og er unnin á grundvelli nýrrar Schengen-stefnu ESB sem var kynnt á síðasta ári. Skýrslan var til umræðu bæði á Schengen Forum 2. júní sl. og á ráðherraráðsfundi dóms- og innanríkisráðherra í dag, 10. júní.

Fyrir tímabilið 2022-2023 leggur framkvæmdastjórnin megináherslu á styrka stjórn ytri landamæra, að upptaka eftirlits á innri landamærum verði síðasta úrræðið sem varir í takmarkaðan tíma og að styrkja innra öryggi svæðisins með auknu lögreglusamstarfi. Þá er einnig lögð áhersla á innleiðingu nýrra upplýsingakerfa og samhæfingu þeirra (e. interoperability), kerfisbundna skoðun á ytri landamærum og að endi sé bundinn á langvarandi eftirlit á innri landamærum.

Framkvæmdastjórnin leggur einnig áherslu á mikilvægi þess að samþykkja nýjar og endurbættar Schengen-gerðir, s.s. um reglugerð um för yfir landamæri (e. Schengen Borders Code), um aukna lögreglusamvinnu og um forskoðun umsókna á ytri landamærum (e. Screening).

Skýrslan skiptist í 5 kafla. Í fyrsta kafla er farið yfir aukið stjórnunar- og eftirlitskerfi Schengen (e. Schengen governance). Í öðrum kafla er vikið að framgangi Schengen stefnunnar sem gefin var út á síðasta ári og í kafla þrjú er farið almennt yfir stöðuna innan Schengen-svæðisins. Farið er almennt yfir stöðuna á ytri landamærum svæðisins, stöðuna á innri landamærum svæðisins, mikilvægi þess að samþykkja þau aðildarríki sem standa utan við Schengen en uppfylla skilyrðin, þ.e. Króatíu, Búlgaríu, Rúmeníu og síðar Kýpur. Í fjórða kafla er vikið að Schengen eftirlitskerfinu, niðurstöðum Schengen úttekta undanfarin ár og helstu forgangsmálum í þeim efnum. Í fimmta og síðasta kaflanum er vikið að næstu skrefum en þar kemur fram að fyrst og fremst sé mikilvægt að aðildarríki vinni að því að innleiða Schengen regluverkið með fullnægjandi hætti.

Á sama tíma og skýrslan um stöðu Schengen var gefin út birti framkvæmdarstjórnin stefnuskjal fyrir samþætta landamærastjórnun (e. Policy document - developing a multiannual strategic policy for European integrated border management) og skýrslu um kerfisbundna skoðun og uppflettingar í viðeigandi gagnagrunnum (e. report as regards the reinforcement of checks against relevant databases at external borders).

Fiskveiðar: Framkvæmdastjórnin sér batamerki

Samkvæmt árlegri úttekt framkvæmdastjórnar ESB á fiskveiðum urðu almennt framfarir á árinu 2021 í þá átt að bæta ástand fiskistofna í aðildarríkjum sambandsins. Er þá Eystrasaltið undanskilið þar sem mikilvægum nytjastofnum hnignar vegna ástands í umhverfismálum. Einnig er á brattan að sækja í Miðjarðarhafi vegna langvarandi ofveiði þótt ástand hafi heldur skánað á liðnu ári.

Kallað eftir betri samningum um kaup á bóluefnum gegn Covid-19

Í fréttamiðlum hefur komið fram að tíu Austur-Evrópuríki hafi farið þess á leit við Stellu Kyriakides framkvæmdarstjóra heilbrigðis og matvælaöryggis hjá Evrópusambandinu að framkvæmdastjórnin endurskoði samninga um kaup á bóluefnum gegn Covid-19 til þess að þeir þjóni betur tilgangi sínum. Bæði sé um offramboð á bóluefnaskömmtun að ræða auk þess sem staða ríkisfjármála aðildarríkja megi alls ekki við því að almannafé sé sólundað.

Bent er á að sá möguleiki ætti að vera fyrir hendi að segja mætti kaupsamningunum upp þegar hvorki heilsufarsleg sjónarmið eða faraldursfræðileg rök eru lengur fyrir þeim. Í öðrum tilvikum ætti að vera mögulegt að draga úr pöntunum þannig að þær endurspegli raunverulega eftirspurn eða þörf.

Talið er að Pólland hafi átt frumkvæði að málaleitan þessari en að henni standi einnig Búlgaría, Króatía, Eistland, Ungverjaland, Lettland, Litháen, Rúmenía, Slóvakía og Slóvenía.

Áður höfðu mörg ríki Austur-Evrópu vakið athygli á málinu og haft áhyggjur af að núverandi samningar um kaup á bóluefnum voru undirritaðir þegar heimsfaraldurinn stóð sem hæst og Evrópusambandið undir miklum þrýstingi frá almennum borgurum um að útvega bóluefni. Aðstæðurnar hafi í reynd þvingað sambandið til að tryggja kaup á allt of miklu magni bóluefna sem ekki er lengur þörf á. Fram kemur framkvæmdastjórnin hafi tryggt kaup á allt að 4,2 milljörðum skammta af bóluefni gegn kórónuveirunni, sem jafngildir því að vera tíu sinnum íbúafjöldi sambandsins. Í febrúar síðastliðnum höfðu 1,3 milljarðar verið afhentir.

Þó heimsfaraldurinn sé á niðurleið og viðunandi bólusetningarhlutfalli ríkjanna sé náð fela samningarnir í sér kaup á magni bóluefna sem fer langt umfram þörf og getu aðildarríkjanna til að nota þau.

Er því haldið fram að hætta sé á að bóluefnin renni út ónotuð og í því felist mikil sóun á fjármunum sem erfitt er að útskýra fyrir hinum almenna borgara. Einnig er bent á vandamál sem tengjast því að bóluefnin eru í einhverjum tilvikum afhent þegar stutt er í að þau fyrnist. Minnt er á að það hafi verið Eystrasaltslöndin sem vöktu fyrst athygli á vandkvæðunum sem þessu fylgdu og gera þyrfi kröfur um lágmarks geymsluþol efnanna í samningunum.

Þá snúa ábendingar aðildarríkjanna um betri samninga við framleiðendur einnig að því að tryggja að bóluefnin sem keypt verði verndi gegn nýjustu afbrigðum kórónaveirunnar. Auk þess er bent á nauðsyn þess að Evrópustofnun neyðarviðbúnaðar og viðbragða vegna heilsuvár (HERA) komi upp sameiginlegum birgðum á bóluefnum með kaupum á ónotuðum efnum til að takast á við næstu vá og einnig til að geta útvegað öðrum heimshlutum bóluefni með samræmdum hætti.

Brussel-vaktin er gefin út af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Vaktin kemur út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

27. maí 2022 | Dregur úr hagvexti og verðbólga eykst |
Að þessu sinni er fjallað um:

horfur í efnahagsmálum

fund EES-ráðsins

gagnrýni umboðsmanns á leyndarhyggju í tengslum við bóluefnasamninga

lagabreytingar í Póllandi sem ætlað er að koma til móts við ESB

Þriðja árið í röð eru bremsur á ríkisútgjöld teknar úr sambandi

Áhrif stríðsins í kjölfar Covid-19. Helstu umræðuefni fjármála- og efnahagsráðherra ESB, sem hittust í Brussel í byrjun vikunnar, voru efnahagsleg áhrif stríðsins milli Rússlands og Úkraínu á hagkerfi aðildarríkjanna. Þó að hagvöxtur þeirra hafi verið fremur hægur í byrjun árs benti allt til þess að hann yrði styrkari þegar líða tæki á árið. Bjartsýni ríkti almennt um efnahagsþróunina framundan þrátt fyrir að enn væru til staðar flöskuhálsar sem takmörkuðu framboð á nauðsynlegum hrávörum og að verðbólga léti á sér kræla vegna verðhækkana á orku, enda mat manna að hér væru einungis um skammtímaáhrif að ræða. Batamerki efnahagslífsins í upphafi árs stöfuðu meðal annars af sterkum vinnumarkaði með lágum atvinnuleysistölum, auknum sparnaði og hagstæðum skilyrðum á fjármálamörkuðum. Stríðið milli Rússlands og Úkraínu kollvarpaði hins vegar þessari mynd. Áhrifa þess verður eðlilega fyrst vart á meginlandi Evrópu vegna nálægðar við umrædd ríki, auk þess sem mörg aðildarríkja ESB eru mjög háð Rússlandi með innflutning á orku, bæði gasi og olíu. Sama á við um ýmsar hrávörur, einkum til matvælaframleiðslu. Ofan á þau neikvæðu áhrif bætist síðan stöðugur straumur flóttamanna frá Úkraínu, eða kringum 5 milljónir manna síðan stríðið hófst, sem kallar á endurskipulagningu og samræmingu innviða í mörgum ESB ríkjum með tilheyrandi kostnaði fyrir þau. Einnig þarf að horfa til þess að þó að Covid-krísan sé að mestu um garð gengin í Evrópu er hún enn grasserandi í Kína, sem sér Evrópubúum fyrir mikilvægum hrávörum. Sama má segja um Indland.

Hagvöxtur og verðbólga. Allir þessir þættir hafa neikvæð áhrif á þær forsendur sem nú eru lagðar til grundvallar efnahagsspám ESB til næstu ára. Þau birtast í lægri hagvexti og hærri verðbólgu en áður var spáð í nær öllum aðildarríkjum ESB, sérstaklega á árinu 2022. Þannig er því spáð að hagvöxtur á ESB ríkjunum verði 2,7% í stað 4% árið 2022 og 2,3% í stað 2,8% á næsta ári. Þá er talið að verðbólgan verði 6,8% í ár en lækki síðan niður í 3,2% árið 2023. Í fyrri spá voru samsvarandi tölur 3,5% árið 2022 og 1,7% á næsta ári. Meginskýring vaxandi verðbólgu innan ESB er hærra orkuverð. Þau áhrif og ýmis fleiri, eins og minni útflutningur á korni, jurtaolíu og landbúnaðarvörum frá Rússlandi og Úkraínu, þrýsta upp matvælaverði til viðbótar við þau sem koma til vegna tafa í flutningum víðsvegar um heiminn. Þau verðáhrif, sem hér hefur verið lýst, koma síðan aftur fram í formi óbeinna áhrifa í hækkandi verðum á margvíslegri vöru og þjónustu. Sem dæmi er undirliggjandi verðbólga, þ.e. verðbólga að frátöldum skammtímasveiflum í orkuverði og matvælaverði, talin vera kringum 3% um þessar mundir samkvæmt spám ESB.

Lægri kaupmáttur og minni neysla. Hærri verðbólga dregur óhjákvæmilega úr kaupmætti heimilanna, sérstaklega hjá þeim efnaminni sem eyða hlutfallslega meiru í kaup á mat og orku en þeir sem meira hafa milli handanna. Tvennt vegur þó á móti. Annars vegar aukinn sparnaður heimilanna á Covid-19 árunum og hins vegar góð staða á vinnumarkaði. Jafnframt hafa stjórnvöld víða reynt að sporna gegn hækkandi verði á nauðsynjum með sértækum aðgerðum, eins og tímabundinni lækkun á virðisaukaskatti o.fl. Stóra spurningin er aftur á móti sú hvort heimilin treysti sér til að ganga frekar á sparnað á þessum óvissutímum. Jafnframt á eftir að koma í ljós hvaða áhrif sá mikli fjöldi flóttamanna, sem kemur frá Úkraínu til Evrópu, hefur á heildarneyslu ESB, en sú neysla er að mestu fjármögnuð með styrkjum sem greiddir eru af viðtökuríkjum þeirra.

Staðan á vinnumarkaði ESB. Staðan á evrópskum vinnumarkaði batnaði verulega á síðasta ári. Til urðu 5,2 milljónir ný störf á sama tíma og einungis 3,5 milljónir launþega kom inn á markaðinn. Atvinnuleysi er í sögulegu lágmarki og vinnuaflsskortur hefur víða gert vart við sig, þó síst hjá ófaglærðum. Þrátt fyrir þessa þróun hefur vinnutími ekki lengst og er raunar enn undir því sem hann var fyrir Covid-19. Ekki er búist við jafnmikilli aukningu nýrra starfa á næsta ári eins og á þessu og síðasta ári og áfram mun verða vinnuaflsskortur þrátt fyrir að búist sé við að hluti flóttamanna frá Úkraínu komi hægt og bítandi inn á markaðinn. Þau áhrif koma þó ekki að fullu fram fyrr en á árinu 2023. Atvinnuleysistölur eru því taldar lækka enn frekar, eða niður í 6,7% á þessu ári og 6,5% á árinu 2023. Spáð er að laun hækki um 3,9% á mann í ár og 3,6% árið 2023. Kaupmáttur launa mun því falla verulega á yfirstandandi ári og rétt halda í horfinu á árinu 2023. Það þýðir að kaupmáttur ráðstöfunartekna heimila mun minnka um 2,8% árið 2022 en batna um 1% á næsta ári.

Minni fjárfesting árið 2022. Aðstæður eins og að framan hefur verið lýst draga óhjákvæmilega úr vexti fjárfestinga, bæði hjá fyrirtækjum og einstaklingum. Það skýrist meðal annars af minni hagnaði fyrirtækja vegna áhrifa verðhækkana á framleiðslukostnað, en líklega ekki síður af þeirri óvissu sem nú ríkir um framvinduna á heimsvísu. Vaxtaþróunin er einnig þáttur sem miklu ræður þegar fjárfestingaákvarðanir eru teknar, en vextir hafa víða verið hækkaðir á undanförnum vikum. Nú virðist aðeins tímaspursmál hvenær Evrópski Seðlabankinn tilkynnir um hækkun vaxta. Af þessu leiðir að spá ESB um aukna fjárfestingu á þessu ári er mjög varfærin, eða einungis 3,1%, þar sem kringum 2% eru í raun yfirfall frá árinu 2021. Spáin fyrir árið 2023 sýnir aftur á móti mikinn vöxt, eða um 3,6%.

Staða opinberra fjármála. Á árinu 2021 var hallarekstur hins opinbera (e. general government) í aðildarríkjum ESB 4,7% sem hlutfall af VLF (e. GDP). Samsvarandi áætlun fyrir yfirstandandi ár nemur 3,6%. Þannig munu ýmsar Covid-19 stuðningsaðgerðir renna sitt skeið á næstu mánuðum auk þess sem aukinn hagvöxtur mun styrkja stöðuna. Á móti vega aðgerðir stjórnvalda til að draga úr áhrifum af hærra orkuverði og til að mæta flóttamannastraumnum frá Úkraínu. Þær síðarnefndu ná þó ekki að vega upp fyrri áhrifin þannig að hallinn minnkar milli ára. Fyrir árið 2023 er því spáð að hallinn verði 2,5% sem hlutfall af VLF. Miðað við að framangreind spá gangi eftir mun skuldahlutfall hins opinbera fyrir ESB ríkin í heild (e. debt-to-GDP ratio) verða kringum 85%. Það er hærra hlutfall en fyrir Covid-19 krísuna. Í ljósi þess hefur framkvæmdastjórn ESB lagt til að fjármálaregla sambandsins um skuldahlutfallið verði áfram óvirk, eða til loka árs 2023. Áfram verði unnið að endurskoðun fjármálareglnanna með það fyrir augum að ná niðurstöðu á næsta ári. Þá heyrist æ oftar að eðlilegra sé að horfa á vöxt útgjalda hins opinbera sem meginviðmið fremur en afkomu eða skuldahlutfall.

ESB

Ísland

Árleg breyting, %

2021

2022

2023

2021

2022

2023

VLF

5,4

2,7

2,3

4,3

3,4

3,3

Fjármunamyndun

4,2

3,1

3,6

13,6

4,4

5,3

Atvinnuleysi

7,0

6,7

6,5

6,0

5,5

5,3

Verðbólga

2,9

6,8

3,2

4,4

5,6

3,8

Afkoma hins opinbera

-4,7

-3,6

-2,5

-8,9

-4,4

-2,8

Skuldahlutfall hins opinbera

89,7

85,2

53,2

53,3

51,6

Er líklegt að nýbirt spá ESB gangi eftir? Sú spá sem hér hefur verið reifuð er svokölluð grunnspá (e. baseline forecast) fyrir ESB ríkin í heild. Fram kom í kynningu á henni að spáin væri mikilli óvissu háð, ekki síst vegna stríðsins margumtalaða. Ef eitthvað þá er hún talin of bjartsýn. Í umræðunni heyrist jafnvel að spáin sé beinlínis óraunhæf. Sem sagt, sitt sýnist hverjum í því hversu áhættusöm spáin er og í rauninni engin leið fær önnur en sú að bíða og sjá hvernig þróun verður á næstu mánuðum. Til fróðleiks eru helstu hagtölur spárinnar dregnar saman í töflunni hér að framan, auk sambærilegra hagtalna fyrir Ísland, sem birtar voru á fundi utanríkisráðherra ESB og EFTA í vikunni.

Aðfanga- og orkuöryggi á EES-ráðsfundi

Mikilvægi grænna umskipta og aðfanga- og orkuöryggi voru á meðal umræðuefna á fundi EES-ráðsins 23. maí sl. sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sótti. Rætt var um framkvæmd EES-samningsins og meðal annars lögð áhersla á mikilvægi þess að auka þekkingu á EES-samningnum á öllum stigum. Í því augnamiði þyrfti að koma betur til skila kostum samningsins fyrir borgara og fyrirtæki. Í annað skipti í röð var ekki afgreidd ályktun um sameiginlegar niðurstöður fundarins. Í tilefni af fundinum gáfu EES/EFTA-ríkin hins vegar út sína eigin yfirlýsingu um EES-samstarfið: https://www.efta.int/sites/default/files/documents/eea/eea/EEA-EFTA-Statement_23-May-2022.pdf.

Þá átti Þórdís Kolbrún vinnuhádegisverð með Maros Šefčovič, varaforseta framkvæmdastjórnar ESB sem fer meðal annars með málefni EES-samningsins, ásamt utanríkisráðherrum Noregs og Liechtenstein.

Í lok dags var nýja EFTA húsið formlega opnað með viðhöfn að viðstöddum ráðherrum EES-EFTA ríkjanna þriggja og fulltrúa framkvæmdastjórnar ESB.

Umboðsmaður gagnrýnir leyndarhyggju í tengslum við bóluefnasamninga

Viðbrögð Evrópusambandsins við Covid-19 hafa verið jafnvægislist milli þess að bregðast skjótt við og gæta að gagnsæi. Þetta segir Emily O‘Reilly umboðsmaður sem gætir að góðri stjórnsýslu innan Evrópusambandsins.

Í viðtali við Euractiv vefsíðuna segir hún að fjarvinna hafi gert það að verkum að ýmsir vinnufundir og fundir með hagsmunavörðum hafi ekki verið skráðir eins og vera ber. Það átti líka við um tilurð bóluefnasamninga. Þá hafi framkvæmdastjórnin í fyrstu neitað að upplýsa hvaða sjö aðildarríki hefðu tekið þátt í samingagerð með framkvæmdastjórninni. Það hafi komið á óvart því það hefði nokkuð augljóslega getað hjálpað framkvæmdastjórninni að upplýsa málið og auka þannig traust á innkaupaferlinu, hún stæði sem sagt ekki ein í samningagerð heldur hefði nokkur lykilríki með sér.

Eftir að samningar voru gerðir var framkvæmdastjórnin gagnrýnd fyrir að birta þá ekki. Þeir voru síðan birtir með herkjum en þá höfðu ýmsir kaflar verið strikaðir út. Umboðsmaðurinn gagnrýnir þá menningu sem sé við lýði innan framkvæmdastjórnarinnar að gleyma of oft gagnsæissjónarmiðum. Það sama eigi við um stjórnsýslu hjá aðildarríkjunum eins og hún þekki úr fyrri störfum.

Í síðustu ársskýrslu umboðsmanns kemur einnig fram gagnrýni á að framkvæmdastjórnin hafi ekki litið á sms-skeyti sem gögn sem féllu undir opinbera stjórnsýslu. Snerist það m.a. um aðgang að smáskilaboðum sem höfðu gengið milli forseta framkvæmdastjórnar ESB, Ursulu von der Leyen, og forráðamanna lyfjafyrirtækja.

Pólsk stjórnvöld koma til móts við ESB

Pólska þingið samþykkti fyrr í vikunni að leggja niður umdeilda aganefnd innan Hæstaréttar landsins. Nefndin hefur verið sökuð um að vera handbendi stjórnvalda til að þagga niður í dómurum sem eru þeim ekki að skapi. Með þessu vonast pólsk stjórnvöld til að framkvæmdastjórn ESB losi um pyngjuna en styrkir til Póllands hafa verið frystir vegna deilna um hvort réttarríkið sé í hávegum haft í Póllandi.

Stjórnarandstaðan lagðist gegn lagabreytingum og sagði þær ekki ganga nógu langt.

Brussel-vaktin er gefin út af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Vaktin kemur út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

13. maí 2022 | Macron vill bjóða Evrópuríkjum utan ESB upp á nánara samstarf |
Að þessu sinni er fjallað um:

lyktir ráðstefnunnar um framtíð Evrópu

ræðu Macrons Frakklandsforseta um Evrópumál

reglur um græn skuldabréf

ákvörðun norsku ríkisstjórnarinnar að gera úttekt á EES-samstarfinu

tillögu um aðgerðir gegn barnaklámi

brýningu framkvæmdastjórnarinnar í Covid-19 málum

tillögu um samræmdan gagnagrunn heilsufarsupplýsinga

samráð um fjórar nýjar gerðir á samgöngusviðinu

Ráðstefnu um framtíð Evrópu lokið

Ráðstefnunni um framtíð Evrópu er nú lokið og voru tillögur afhentar við hátíðlega athöfn í Strassborg sl. mánudag, 9. maí. Það var Frakklandsforseti sem hafði átt frumkvæði að því að slík ráðstefna skyldi haldin. Í eitt ár hafa 800 evrópskir borgarar valdir af handahófi fjallað um umbætur á evrópsku samstarfi við hlið þingmanna og fulltrúa frjálsra félagasamtaka. Niðurstaðan varð sú að gerðar voru 325 tillögur til að mæta 49 markmiðum sem eiga að gera Evrópusambandið lýðræðislegra og virkara og auka valdheimildir þess á ákveðnum sviðum s.s. í umhverfismálum, heilbrigðis- og félagsmálum o.fl.

Þannig er lagt til að beina niðurgreiðslum að lífrænum landbúnaði, móta lágmarksviðmið fyrir heilsugæslu, færa kosningarétt niður í 16 ára aldur, fella brott kröfu um að öll ríki standi að ákvörðun þar sem það á enn við, s.s. á sviði utanríkismála, og færa Evrópuþinginu rétt til að eiga frumkvæði að nýrri löggjöf en frumkvæðisrétturinn hefur hingað til eingöngu verið hjá framkvæmdastjórninni.

Macron teflir fram nýrri sýn á Evrópusamstarf

Emmanuel Macron, forseti Frakklands, flutti ræðu á Evrópuþinginu í Strassborg 9. maí sl. f.h. formennskuríkis ráðherraráðsins. Ræða hans vakti töluverða athygli. Forsetinn er nýlega endurkjörinn og formennskutíð Frakka í ráðherraráði Evrópusambandsins er senn á enda. Tilefnið var afhending lokaskýrslu ráðstefnunnar um framtíð Evrópu. Þar sagðist hann sjá fyrir sér lagskipt samstarf í Evrópu. Ekki væri hægt að ætlast til að öll ríkin færðust nær auknu samstarfi á sama hraða. Í innsta kjarna yrðu ríkin sem vildu ganga lengst í samstarfi. Einnig þyrfti að bjóða upp á pólitískt bandalag fyrir ríki sem vilja tengjast Evrópusambandinu nánar. „Það hefur komið mér á óvart hvað löngunin til að halda í samband 27 ríkja hamlar því að við séum metnaðarfyllri,“ sagði hann og bætti við að menn mættu ekki óttast það að bjóða upp á mismunandi leiðir. Það eru tæplega fimm ár liðin síðan Macron flutti aðra stefnumarkandi ræðu um Evrópumálin í Sorbonne, þann 26. september 2017. Síðan þá hefur hver kreppan rekið aðra, BREXIT, Covid-19 og nú stríðið í Úkraínu. En Evrópusamstarfið hefur ekki breyst eða tekið mið af þessu. Fyrir fimm árum lagði forsetinn áherslu á átaksverkefni af ýmsum toga eins og varðandi efnahagsmál, skattamál og menntun. Nú beindi hann athyglinni að uppbyggingu og skipulagi Evrópusambandsins. Evrópa þyrfti að vera skilvirkari, sjálfstæðari, sjálfri sér nóg og opnari gagnvart nágrönnum sínum.

Það var Macron sem átti frumkvæðið að því að halda ráðstefnuna um framtíð Evrópu. Hann fagnaði útkomunni en lagði áherslu á að hér þyrfti að vera um meira að ræða en stílæfingu. Hann lýsti ennfremur ánægju með að Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnarinnar, skyldi þegar þann sama dag hafa heitið því að fylgja tillögunum eftir í stefnuræðu sinni í september næstkomandi.

Von der Leyen sagðist tilbúin að beita sér fyrir breytingum á grundvallarreglum Evrópusambandsins. Bætti hún því við að krafan um að allir væru samþykkir sem enn ætti við á tilteknum lykilsviðum ætti ekki lengur við. Síðar þann sama dag fór hún til Búdapest að reyna að sannfæra Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands, um að falla frá andstöðu við tillögu hennar að sjötta pakka þvingunaraðgerða gagnvart Rússlandi, sem felur í sér bann við innflutningi á olíu.

Emmanuel Macron gaf til kynna að hann vildi grundvallarbreytingar þrátt fyrir bitra reynslu árið 2005 þegar bæði franskir og hollenskir kjósendur lögðust gegn nýrri stjórnarskrá Evrópu. Það þyrfti að fjölga tilvikum þar sem aukinn meirihluti dugir til að ná niðurstöðu um mál. Hann kvaðst mundu taka málið upp á leiðtogafundi ESB í Brussel 23. og 24. júní. Hann veit sem er að hann nýtur stuðnings Evrópuþingsins í þessum efnum en mörg aðildarríkin eru andsnúin slíkum breytingum.

Heyrist hljóð úr horni

Málflutningi formennskuríkisins var andmælt þegar á mánudag. Þá létu í sér heyra þrettán aðildarríki (Búlgaría, Danmörk, Eistland, Finnland, Króatía, Lettland, Litháen, Malta, Pólland, Rúmenía, Slóvenía, Svíþjóð og Tékkland) og birtu sameiginlega yfirlýsingu þar sem varað er við ótímabærri endurskoðun grunnsáttmála ESB. Evrópusamstarfið virkaði vel eins og viðureignin við Covid-19 sýndi og aðgerðir til stuðnings Úkraínu sömuleiðis. Franska dagblaðið Le Monde hefur eftir fréttaskýranda að breyting á grunnsáttmálum sé ólíkleg. Mögulega hafi Macron hreyft þessu máli vegna stjórnmálaástands innanlands. Í stað þess að virða sáttmálana að vettugi líkt og einn helsti andstæðingur hans, Jean-Luc Mélenchon, boðar, þá nefni forsetinn endurskoðun þeirra.

„Í grunninn er áskilnaður um einróma samþykki orðinn undantekning og á einungis við í félagsmálum, skattamálum og utanríkismálum,“ segir heimildarmaður blaðsins á skrifstofu forsetans. Forsetinn hafi viljað draga fram kosti þess að þeir sem vilji ganga lengra í samvinnu geti gert það. Það sýni dæmin um evruna og Schengen. Vissulega óttist einhverjir Evrópu á mismunandi hraða en það verði að gefa inn til þess að Evrópa eflist.

Belti náinna samstarfsríkja

Emmanuel Macron hvatti einnig til þess að myndað yrði eins konar belti Evrópuríkja sem deila gildismati með Evrópusambandinu fyrir pólitískt samstarf og á sviði öryggis, orku, samgöngu, fjárfestinga, innviða og frjáls flæðis fólks. „Úkraína, sem er mjög fjarri evrópskum viðmiðum þegar kemur að lífskjörum og vörnum gegn spillingu, gæti verið þátttakandi án þess að þurfa að bíða niðurstöðu aðildarviðræðna sem gætu tekið áratugi,“ sagði forsetinn.

Heimildarmaður Le Monde hjá forsetaembættinu segir að það ástand heimsmála sem leiði af stríðinu í Úkraínu geri það mjög brýnt að styrkja tengsl Úkraínu, Moldovu, Georgíu og ríkjanna á vestanverðum Balkanskaga við Evrópusambandið. Forsetinn sér fyrir sér að aðild að þessu nýja bandalagi myndi ekki fela í sér sjálfkrafa aðild að ESB síðar meir og það yrði heldur ekki lokað fyrir ríki sem hefðu sagt skilið við ESB.

Frönsk stjórnvöld hafa aldrei farið leynt með fyrirvara sína gagnvart frekari stækkun sambandsins sem myndi við núverandi aðstæður flækja ákvörðunartöku enn frekar. Nú væri rík þörf á að beita sköpunargáfunni í þágu lausna sem stuðluðu að stöðugleika í Evrópu án þess að raska þeirri nánd sem skapast hefði innan ESB.

Reglugerð ESB um staðal fyrir græn evrópsk skuldabréf

Í byrjun apríl 2022 kynntu ráðherraráð ESB og evrópska þingið nýja reglugerð um græn evrópsk skuldabréf. Reglugerðin byggir á tillögum framkvæmdastjórnarinnar um að tekinn verði upp sérstakur staðall fyrir slík bréf. Staðallinn inniheldur hvaða skilyrði skuldabréfin þurfi að uppfylla til að heimilt sé að kalla tiltekna skuldabréfaútgáfu græn evrópsk bréf (e. European green bond or EUGB). Reglugerðin beinist því fyrst og fremst að skuldabréfaútgefendum. Meginskilyrðið er að bréfin standi að baki umhverfisvænum og sjálfbærum markmiðum eða fjárfestingum. Jafnframt skulu þau uppfylla önnur skilyrði „Taxonomy“ reglugerðinnar (EU 2020/852) sem oft áður hefur verið fjallað um hér í Vaktinni. Reglugerðin er sem sagt mikilvægur hluti af Græna Sáttmálanum (e. Green Deal) sem samþykktur hefur verið af aðildarríkjum ESB sem aftur er óaðskiljanlegur hluti af hinu margumtalaða Parísarsamkomulagi. Segja má að staðallinn verði einskonar gæðastimpill fyrir skuldabréfaútgáfur (e. high quality green bonds) á fjármálamörkuðum í Evrópu og annars staðar og ýti þannig undir það markmið ESB að skapa sameiginlegan fjármálamarkað (e. Capital Markets Union). Þá er talið að samræmdur staðall á þessu sviði muni draga úr hættu á grænþvotti (e. greenwashing) auk þess að gera skuldabréfamarkaðinn gegnsærri og öruggari fyrir fjárfesta, bæði einstaklinga og fyrirtæki. Vonir ESB standa jafnvel til þess að nýi staðallinn nái fótfestu á alþjóðlegum fjármálamörkuðum og komi þar með í stað þeirra fjölmörgu óformlegu sjálfbærnistaðla sem beitt hefur verið fram til þessa.

Undanfarna mánuði hefur vinnuhópur EES EFTA um fjármálaþjónustu haft reglugerðina til skoðunar. Drög að sameiginlegu áliti hópsins (e. EEA EFTA Comment) liggja nú fyrir og hafa verið send viðeigandi aðilum og stofnunum. Þar kemur fram að EES EFTA ríkin styðji tillöguna um samræmdan staðal og telji hann geta bætt umhverfisvitund og ýtt undir háleitari umhverfismarkmið á skuldabréfamarkaði. Einnig muni staðallinn samræma og bæta samkeppnisstöðu á EES svæðinu öllu sem er mjög mikilvægt, ekki síst í ljósi þess hversu hraður vöxturinn hefur verið í útgáfu slíkra skuldabréfa á Norðurlöndunum.

Í reglugerðinni er einnig að finna tillögur að skráningar- og eftirlitskerfi gagnvart þeim fyrirtækjum (e. external reviewers) sem taka að sér að meta skuldabréf á grundvelli staðalsins. Framkvæmdastjórn ESB leggur til að Evrópska verðbréfaeftirlitið (e. European Securities Markets Authorities, ESMA) annist skráninguna og hafi einnig beint eftirlit með þessum skráðu fyrirtækjum. Í áliti sínu styðja EES EFTA ríkin þessa almennu nálgun um skráningu og eftirlit fyrirtækjanna. Hins vegar leggja þau til að ábyrgðin á beinu eftirliti með matsfyrirtækjunum verði á hendi innlendra aðila (e. national supervisors) enda sé þekking á því sviði þegar til staðar í viðkomandi ríkjum. ESMA muni aftur á móti áfram gegna sínu hlutverki að vera almennur samræmingaraðili.

Að lokum er reglugerðinni ætlað að taka gildi tuttugu dögum eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum ESB (e. Official Journal of the EU) en að henni verði ekki beitt fyrr en 18 mánuðum síðar. Eins og oft áður eru tuttugu dagar alltof skammur tími fyrir upptöku reglugerða eða tilskipana í EES samninginn. Þess vegna leggur vinnuhópurinn til að 18 mánaða reglan eigi við, bæði hvað varðar gildistöku og framkvæmd reglugerðarinnar um græn evrópsk skuldabréf, enda mikilvægt að EES ríkin sem heild hefji þessa vegferð á sama tíma. Miðað við framangreind tímamörk mun reglugerðin í fyrsta lagi koma til framkvæmda í ársbyrjun 2024. Nú er bara að bíða og sjá hvort tillögur vinnuhópsins fái brautargengi hjá ráðherrum og þingmönnum ESB.

Reynslan af EES-samstarfinu verði metin

Í „Hurdalsplattformen“, stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar Noregs er áréttað að EES-samningurinn leggi grunninn að samskiptum Noregs við Evrópu. Með samþykkt ríkisráðs Noregs sl. föstudag 6. maí hefur verið skipuð óháð sjö manna nefnd til að leggja mat á reynsluna af EES-samstarfinu síðastliðin tíu ár, en tíu ár eru nú liðin frá sambærilegri úttekt, Utenfor og innenfor. Nefndin hefur víðtækt umboð til skoðunar á EES samstarfinu, öðrum viðeigandi samningum sem Noregur hefur gert við ESB og skal veita ráðgjöf um hvernig hagsmunum Noregs verður best gætt í ESB samstarfi. Í erindisbréfi nefndarinnar eru upptalin átján atriði sem nefndin skal a.m.k. skoða, þ. á m. reynsla Bretlands, Sviss og Kanada út frá þeirra samningsbundna samstarfi við ESB og mikilvægi EES samningsins fyrir norræna samvinnu og að hve miklu leyti norræn samvinna sé háð ramma EES. Skýrslu nefndarinnar skal skila til utanríkisráðuneytisins fyrir lok árs 2023 - hún skal vera hnitmiðuð og læsileg, einnig öðrum en sérfræðingum. Nefndin verður leidd af Line Eldring formanni Fellesforbundet sem er næst stærsta aðildarfélag LO (hið norska ASÍ) og stærsta fagfélag einkageirans í Noregi – sem til langs tíma hefur krafist skoðunar á valkostum við EES samninginn. Sjá nánar í fréttatilkynningu.

Tillaga sem beinist að barnaklámi vekur sterk viðbrögð

Framkvæmdastjórn ESB birti 11. maí sl. tillögu um vernd barna á netinu. Forráðamenn netþjónustufyrirtækja og félagasamtök sem beita sér fyrir vernd friðhelgi einkalífs óttast að dulkóðun skilaboða hjá WhatsApp, iMessage, TikTok, Messenger og Signal gangi þá ekki lengur upp. Samkvæmt tillögunni sem beinist að baráttunni gegn barnaklámi á að setja á laggirnar Evrópumiðstöð gegn kynferðislegri misnotkun barna. Einnig er sú skylda lögð á stærri netþjónustufyrirtæki að meta áhættuna af dreifingu barnakláms eða ósæmilegum samskiptum, að fjarlægja án tafar ólöglegt efni og gera viðvart um barnaklám sem finnst.

Samkvæmt texta tillögunnar er lögð á fyrirtækin skylda til að grípa til markvissra aðgerða til að fjarlægja efni ef yfirvöld gera viðvart. Í því augnamiði eiga þau að beita tækni sem er eins lítið ágeng og möguleg og í samræmi við lög og tækniþekkingu á hverjum tíma þannig að ekki sé skotið yfir markið. Þessi ákvæði þykja mjög víðtæk og að þau leiði til skyldu til að fylgjast með innihaldi skilaboða án þess þó að brjóta gegn friðhelgi einkalífs.

Forstjóri WhatsApp, Will Cathcart, sem er hluti af Meta-samsteypunni, líkt og Facebook og Instagram, tók djúpt í árinni á Twitter: „Það veldur gríðarlegum vonbrigðum að sjá tillögu um Evrópureglur um netið sem verndar ekki dulkóðun frá einum enda til annars.“ Vísar hann þar í tækni sem til dæmis einkennir WhatsApp og Signal þar sem skilaboð eru dulkóðuð þannig að einungis sendandi og viðtakandi geta lesið þau.

Viðbrögð Meta voru á þann veg að leggja áherslu á mikilvægi dulkóðunar, m.a. til að vernda friðhelgi einkalífs barna. Fyrirtækið einbeiti sér að því að fyrirbyggja brot með því til dæmis að koma í veg fyrir að fullorðnir geti sent skilaboð á börn sem þeir tengjast ekki.

Dot Europe, hagsmunasamtök fyrirtækja eins og Apple, Meta, TikTok og Google, lögðu áherslu á að finna þyrfti jafnvægi milli öryggis og einkalífs án þess að vega að þeirri meginreglu að bannað sé að vera með almenna síun efnis. Er þar vísað til þess að Evrópusambandið og Evrópuráðið hafa ítrekað undirstrikað að of langt væri gengið ef fyrirtæki þyrftu að hafa fyrirfram eftirlit með öllu efni sem fer um netið.

En það eru ekki bara stóru netfyrirtækin sem lýsa yfir áhyggjum. Talsmaður European Digital Rights kvað það vera fordæmlaust ef til stæði að skilaboð milljóna manna yrðu stöðugt skönnuð í leit að ólöglegu efni án þess að sérstakt tilefni gæfist til. Aðrir sögðu þessar tillögur jafngilda því að pósturinn myndi opna öll bréf og lesa þau.

Aðildarríkin hvött til að auka viðbúnað fyrir næsta heimsfaraldur

Í fréttatilkynningu framkvæmdastjórnar ESB frá 27. apríl sl. hvetur hún aðildarríki til að hafastyrka stjórn á faraldrinum og vera viðbúin komu þess næsta. Bent er á að með samstilltu átaki hafi Evrópusambandinu tekist að bjarga hundruðum þúsunda mannslífa með því að útvega bóluefni, halda innri markaði sínum gangandi, lágmarka áhrif ferðatakmarkana og virkja framleiðslugetu á nauðsynlegum og mikilvægum varningi þegar aðfangakeðjur brugðust. Þessum árangri þurfi að viðhalda.

Fyrir haustið þurfi ríki að hafa gripið til aðgerða sem tryggi árvekni og áframhaldandi samhæfðan undirbúning og viðbragð gegn næstu heilbrigðisvá. Staðan á Covid heimsfaraldrinum, sem nú er stöðug, gefi tækifæri til þess. Mælst er til þess að aðgerðirnar nái til eftirfarandi þátta:

Tryggja áframhaldandi bólusetningu gegn Covid-19 samhliða bólusetningu gegn árstíðabundinni inflúensu

Koma upp áreiðanlegu eftirlitskerfi sem lýsi raunverulegri stöðu á Covid-19faraldrinum á hverjum tíma

Halda áfram að prófa og raðgreina nægilegan fjölda sýna til að meta dreifingu afbrigða og greina ný

Fjárfesta í og endurheimta heilbrigði þjóða til framtíðar með því að meta áhrif heimsfaraldursins, m.a. vegna tafa sem orðið hafa á að veita nauðsynlega meðferð og heilbrigðisþjónustu og vegna áhrifa á geðheilsu

Styðjast við samræmdar reglur sambandsins sem tryggja örugg ferðalög, innan þess og milli annarra ríkja

Styðja við þróun næstu kynslóðar af bóluefnum og öðrum lækninga- og meðferðarmöguleikum

Vinna gegn misvísandi og röngum upplýsingum um mikilvægi bólusetninga og sóttvarna gegn COVID-19

Styðja við samræmdar alþjóðlegar aðgerðir gegn Covid-19

Þá kemur fram að auk þessa er framkvæmdastjórnin að leggja sitt af mörkum í aðgerðum til að tryggja nægjanlegt framboð á nauðsynlegum lækningatækjum og meðferðum við Covid-19 sjúkdómnum. Auglýst hefur verið útboð undir formerkjum „EU FAB“ til að tryggja nauðsynlega framleiðslugetu á bóluefnum í neyðartilfellum í framtíðinni. Útboðið beinist að bóluefnaframleiðendum með aðstöðu innan ESB/EES svæðisins og er opið til 3. júní n.k.

Til langs tíma felast aðgerðir framkvæmdastjórnarinnar í því að efla enn frekar viðbúnað við heimsfaraldrinum með samhæfðum viðbrögðum aðildarríkjanna og þjóða heims, innleiða tillögur sambandsins um heilbrigðismál (e. implementing the European Health Union), takast á við víðtækari heilsufarsleg áhrif heimsfaraldursins, þar á meðal aukið álag á geðheilsu og hraða stafrænni þróun í heilbrigðismálum.

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir okkur stödd á ákveðnum tímamótum í heimsfaraldrinum - komið sé að því að lifa með Covid-19 nú þegar faraldurinn er kominn af neyðarstigi. Áfram verði að vera á varðbergi. Enn sé smitfjöldi mikill í Evrópusambandsríkjunum og dauðsföll í heiminum mörg. Þá geti ný afbrigði veirunnar komið fram og breiðst hratt út. Allir þekki leiðina fram á við - flýta þurfi áframhaldandi bólusetningu, koma Covid-prófum og greiningu þeirra í markvissari farveg og halda áfram að samræma viðbrögð innan Evrópusambandsins.

Samevrópskur gagnagrunnur á sviði heilbrigðismála

Tillaga framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um regluverk fyrir samevrópskan heibrigðisgagnagrunn, European Health Data Space (EHDS), var birt opinberlega 3. maí sl., sjá frétt. Tillagan er merkt EES-tæk og fer nú til umræðu í ráðherraráðinu og til þingsins. Gagnagrunninum er ætlað að verða ein af meginstoðunum við uppbyggingu á öflugra samstarfi aðildarríkja Evrópusambandsins á sviði heilbrigðismála (e. European Health Union).

Gagnagrunnurinn markar nýtt upphaf fyrir stafræna heilbrigðisþjónustu meðal aðildarríkja, en með honum er lagður grunnur að traustum og öruggum aðgangi og notkun heilbrigðisupplýsinga. Hann byggir á reglum sambandsins um almenna persónuvernd (General Data Protection Regulation, GDPR), tillögum að lögum um stjórnun gagna (Data Governance Act), lögum um gögn (Data Act) og svokallaðri NIS-tilskipun um öryggi net- og upplýsingakerfa. Þá hefur Covid-19 ýtt á og flýtt fyrir stafrænni þróun innan heilbrigðisgeirans auk þess að draga fram mikilvægi þess að heilbrigðisupplýsingar geti óhindrað flætt yfir landamæri.

Markmið

Grunnurinn mun í aðalatriðum halda utan um gögn sem ætluð eru til tvenns konar nota, í fyrsta lagi að veita örugga og skilvirka heilbrigðisþjónustu (e. primary use of data) og bæta aðgengi að henni, þar sem stjórnun einstaklingsins á eigin gögnum er í forgrunni og í öðru lagi til rannsókna, nýsköpunar og stefnumörkunar (e. secondary use of data). Markmiðin eru eftirfarandi:

Að gera einstaklingum kleift að stjórna og nota eigin heilsufarsgögn með öruggum hætti óháð staðsetningu og auðvelda heilbrigðisstarfsfólki aðgang að nauðsynlegum upplýsingum hverju sinni

Að stuðla að einum innri markaði fyrir stafræna heilbrigðisþjónustu aðildarríkja þar sem gögn eru framsett með samræmdum og samhæfðum hætti

Að byggja undir og styðja við rannsóknir og nýsköpun, stefnumörkun og eftirlit. Með aðgangi að ópersónugreinanlegum heilsufarsgögnum mun hann auðvelda stjórnvöldum, stjórnmálamönnum og opinberum stofnunum pólitíska stefnumörkun og gerð laga og reglugerða. Á sama hátt veitir hann vísindamönnum og frumkvöðlum aðgengi að gögnum til rannsókna og nýsköpunar.

Samhliða verður þess gætt að grunnurinn uppfylli stranga staðla Evrópusambandsins um gagnavernd og meðferð á ópersónugreinanlegum heilsufarsgögnum.

Ávinningur

Að mati framkvæmdastjórnarinnar er ávinningurinn af grunninum margvíslegur. Borgararnir fá aðgang að eigin heilbrigðisgögnum hvenær og hvar sem er án endurgjalds. Þeir taka sjálfir ákvörðun um að deila eigin gögnum með heilbrigðisstarfsfólki, bæta við gögnum, leiðrétta röng gögn, og takmarka aðgang að þeim. Þá verður mögulegt fyrir viðkomandi að fylgjast með notkun þeirra. Tryggt verður að sjúkragögn viðkomandi eins og rafrænir lyfseðlar, myndir og myndgreiningar, rannsóknarniðurstöður, útskriftarskýrslur o.fl. verði aðgengileg á stöðluðu samræmdu formi. Samhliða er persónuverndin og öryggi gagnanna tryggt. Þessi hluti grunnsins þar sem haldið er utan um persónugreinanleg gögn mun verða þróaður áfram undir merkjum MyHealth@EU sem gengur þvert á landamæri. Gert er ráð fyrir að öll aðildarríki tilnefni þar til bært yfirvald sem ber ábyrgð á gögnunum og tekur þátt í uppbyggingu grunnsins og stafrænna innviða hans. Með því móti verða réttindi borgaranna tryggð. Fyrir heilbrigðisstarfsfólk felst ávinningurinn einkum í hraðara og öruggara aðgengi að heilsufarsgögnum sjúklings sem bæta mun meðferð hans og draga úr stjórnunarkostnaði.

Ávinningur fyrir vísindasamfélagiðer töluverður Það mun fá aðgang að miklu magni hágæða gagna á ódýrari og hagkvæmari hátt, en áður. Það mun síðan ýta undir og hjálpa til við að þróa nýjar meðferðir við sjúkdómum. Þá verður auðveldara og ódýrara fyrir stjórnvöld, stjórnmálamenn og opinberar stofnanir að fá aðgang að ópersónugreinanlegum gögnum sem tryggja eiga öryggi sjúklinga, bæta virkni og árangur heilbrigðiskerfa og lýðheilsu til lengri tíma. Frumkvöðlar munu hafa hag af auknu aðgengi að ópersónugreinanlegum stafrænum gögnum til nýsköpunar og nýr markaður fyrir staðlaðar stafrænar sjúkraskrár verður til. Strangar kröfur verða gerðar til notkunar gagnanna sem verður að vera borgurunum og heilbrigðiskerfum ríkjanna til framdráttar og hagsbóta. Leyfi fyrir notkuninni þarf að fá hjá þar til bærum aðilum eins og heilbrigðisstofnunum sem tengja á við innviði sambandsins eins og HealthData@EU og byggja þarf upp.

Gagnrýni

Þessara tillagna hefur verið beðið með óþreyju, enda viðfangsefnið flókið, viðkvæmt og afar vandmeðfarið. Fréttaveitan Politico hefur dregið fram gagnrýnisraddir sem telja að framkvæmdastjórnin hafi gengið of langt í samhæfingu og miðstýringu. Það gæti staðið verkefninu fyrir þrifum þar sem aðildarríki séu mjög misjafnlega á vegi stödd til að takast á við uppbyggingu af þessu tagi.

Samráð á samgöngusviðinu

Framkvæmdastjórnin hefur birt á samráðsvef sínum óskir um ábendingar um eftirfarandi fyrirhugaðar lagabreytingar.

Reglurammi um aðgang að gögnum sem verða til í bifreiðum.

Margvísleg gögn verða til í bifreiðum við akstur. Hægt er að safna og skrá þessi gögn svo þau verði aðgengileg á stöðluðu formi. Miðað er við að setja reglur sem stuðla að samkeppni á markaði við að veita þjónustu er byggja á jöfnu aðgengi að gögnum. Þessi gögn snúa m.a. að eftirfarandi:

Viðhaldi og viðgerðum

Deilibílum

Hreyfanleika (mobility) sem þjónustu

Tryggingaþjónustu

Hægt er að senda inn ábendingar til 22. júní sbr. eftirfarandi tengli:

Access to vehicle data, functions and resources (europa.eu)

Endurskoðun reglugerðar um stofnun Siglingaöryggisstofnun Evrópu (EMSA)

Frá því að Siglingaöryggisstofnunin var sett á fót hafa orðið miklar breytingar á áherslum í stjórnmálum á málefnasviði stofnunarinnar sem kalla á endurskoðun á reglum um hlutverk hennar. Sérstök áhersla er lögð á að aðlaga starfsemi stofnunarinnar að þeim áherslum sem koma fram í stefnumörkun Evrópusambandsins um sjálfbærar og snjallar samgöngur sem var samþykkt í desember 2020.

Hægt er að senda inn ábendingar fram til 20. júní og má nálgast samráðið í eftirfarandi tengli:

European Maritime Safety Agency – review of mandate (europa.eu)

Endurskoðun á tilskipun 96/53 um hámarksstærð þungra ökutækja,

Tilgangur endurskoðunarinnar er að styrkja núverandi regluverk við að ná ætluðum tilgangi um tryggja virkni innri markaðarins, draga úr umhverfisáhrifum og stuðla að auknu umferðaröryggi.

Samráðið stendur til 19. júlí 2022. Stefnt er að tillaga að tilskipun liggi fyrir á síðasta ársfjórðungi þessa árs sem kemur til með að falla undir EES samninginn.

Nánar um samráðið hér: public consultation as regards the evaluation of the current rules on weights and dimensions of commercial vehicles.

Endurskoðun á reglugerð um opna flugmarkaði EES

Tilgangur endurskoðunarinnar er að draga lærdóm af reynslu af Covid faraldrinum um hvernig megi stuðla að auknum fjárhagslegum styrk flugfélaga, að regluverkið stuðli að seiglu þjónustunnar og styðji við inngrip við neyðarástand, og loks að regluverkið styðji betur við stefnu framkvæmdastjórnarinnar um grænar og snjallar samgöngur.

Samráðið stendur til 26. maí 2022.

Nánar um samráðið hér: public consultation as regards the revision of the Air Services Regulation

Brussel-vaktin er gefin út af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Vaktin kemur út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

29. apríl 2022 | Enn skýrist lagaramminn um stóru netfyrirtækin |
Að þessu sinni er fjallað um:

tímamótasamkomulag um nýjar reglur um ábyrgð á efni á netinu

athugasemdir EFTA-ríkjanna við drög að reglum um öryggi vöru

samkomulag um þorskveiðar við Svalbarða

fund sameiginlegu EES-nefndarinnar sem nú var haldinn í fyrsta sinn í Berlaymont

Samkomulag um reglur um stafræna þjónustu

Allra augu munu nú beinast að framkvæmdastjórn ESB og hvernig henni muni ganga að framfylgja nýjum reglum um ábyrgð á efni á netinu sem samkomulag náðist um 21. apríl sl. Lykilatriði í því samkomulagi er að framkvæmdin verði í Brussel fremur en hjá aðildarríkjunum. Það hefur einmitt þótt helsti veikleiki persónuverndarreglugerðarinnar að þar er ábyrgðin á framkvæmd dreifðari.

Valdheimildirnar sem fylgja nýju reglunum (e. Digital Services Act) eru umtalsverðar. Í fyrsta skipti, ef undan er skilið svið samkeppnisreglna, verður framkvæmdastjórninni heimilt að leggja á sektir sem nema allt að 6% af veltu fyrirtækja eins og Facebook, Google, Twitter og Amazon á heimsvísu ef þau fjarlægja ekki falsfréttir eða gróft ofbeldisefni, svo dæmi séu tekin.

Eftir að uppljóstrarinn Frances Haugen afhjúpaði hvernig fyrirtæki eins og Meta, móðurfélag Facebook, lét sér í léttu rúmi liggja þótt skaðlegt efni breiddist út með ægihraða jókst pólitískur vilji innan ESB til að láta málið til sín taka. Segja má að fregnir af því að auðkýfingurinn Elon Musk hafi eignast Twitter undirstriki þau átök sem kunna að vera fram undan en hann hefur boðað að dregið verði úr „ritskoðun“ á þeim miðli.

Gert er ráð fyrir að nýju reglurnar taki gildi á næsta ári. Framkvæmdastjórnin hefur því einungis nokkra mánuði til að ráða u.þ.b. 150 sérfræðinga í lögfræði, tölvunarfræði og gervigreind til að mynda teymi sem á að vera nógu öflugt til að ráða við að framfylgja reglunum andspænis mörgum af stærstu fyrirtækjum heims.

Reglurnar fela í sér m.a. að

til staðar þarf að vera leið fyrir notendur að flagga ólöglegu efni,

notendur þurfa að hafa úrræði til að hnekkja ákvörðunum netþjónustufyrirtækja um hvort efni skuli aðgengilegt eða ekki,

vísindamenn fá aðgang að gögnum um starfsemi stærstu netþjónustufyrirtækjanna,

krafa er gerð um gagnsæi eins og varðandi algóriþma sem notaðir eru til að mæla með efni eða vöru við notendur,

stærstu fyrirtækjunum verður gert skylt að viðhafa áhættumat til að koma í veg fyrir að kerfi þeirra séu misnotuð,

fyrirtækjum verður skylt að bregðast skjótt við ef ógn steðjar að almannaöryggi eða lýðheilsu,

börn njóti aukinnar verndar og að auknar hömlur verði settar á notkun viðkvæmra upplýsinga í þágu hnitmiðaðra auglýsinga.

Það má segja að það sé skammt stórra högga á milli hjá Evrópusambandinu þegar kemur að reglum um stóru netfyrirtækin. Fyrir mánuði náðist samkomulag um samkeppnisreglur á stafræna sviðinu, e. Digital Markets Act.

Stuðningur EFTA-ríkjanna við aukið öryggi neytendavöru

EFTA-ríkin þrjú, Ísland, Liechtenstein og Noregur, sendu 11. apríl sl. frá sér athugasemdir við drög að reglugerð um öryggi neytendavöru. Framkvæmdastjórnin hafði birt tillögu sína 30. júní 2021. Þar er lagt til að fella brott tilskipun um þetta efni frá 2001 enda sé hún orðin úrelt. Tekist er á við áskoranir sem fylgja nýjustu tæknivörum, markaðseftirlit með hættulegri vöru aukið og gert auðveldara að innkalla vöru.

EFTA-ríkin fagna þessari tillögu og styðja meginmarkmiðið sem þar býr að baki. Tekið er undir að herða þurfi ábyrgð markaðstorga á netinu í ljósi þess að þar fara viðskipti fram í auknum mæli. Þá hafi það einnig gefið góða raun að leggja fyrirtækjum skyldur á herðar að vera með öflugt innra eftirlit.

Samkomulag milli Noregs og ESB um fiskveiðar við Svalbarða

Eftir að Bretland gekk úr ESB ákváðu Norðmenn að skipta þorskkvóta við Svalbarða milli aðila. ESB var ekki sátt við þá nálgun. Nú hefur náðst samkomulag um þetta efni.

Þegar Bretar gengu úr ESB var þeim úthlutað 5.500 tonna árskvóta á svæðinu en kvóti ESB lækkaður samsvarandi í 17.885 tonn. ESB svaraði með því að ákveða sinn kvóta upp á 28.431 tonn. Jafnframt gagnrýndi ESB almennt framgöngu Norðmanna á svæðinu og að þeir tækju sér vald sem þeir hefðu ekki með réttu.

Samkvæmt nýja samkomulaginu fær ESB kvóta upp á 19.636 tonn á ári.

Sameiginlega EES-nefndin: Fundað með gömlu sniði á nýjum stað

Sameiginlega EES-nefndin kom saman til fundar í Brussel í dag. Það er í fyrsta skipti frá því kórónuveirufaraldurinn hófst sem nefndarmenn koma saman í eigin persónu. Jafnframt var þetta í fyrsta skipti sem nefndin kemur saman í höfuðstöðvum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Berlaymont, eftir að fyrirsvar gagnvart samningnum innan ESB fluttist til almennu skrifstofu framkvæmdastjórnarinnar frá utanríkisþjónustu ESB um áramót.

Á fundinum voru teknar upp í EES-samninginn samtals 134 nýjar gerðir, en með því fer upptökuhallinn undir 500 gerðir í fyrsta skipti í langan tíma. Meðal markverðra gerða sem nú voru teknar upp í samninginn er gerð um orkunýtni bygginga, upprunareglur, gerð sem setur samræmdar reglur um hvernig upplýsingar sem krafist er við komu skipa í höfn eru veittar og reglur um flokkun sjálfbærra fjárfestinga. Hin síðastnefnda er mikilvægur liður til að ná markmiðum um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 55% árið 2030. Áður hefur verið fjallað um sjálfbæra flokkun fjárfestinga í Vaktinni 4. febrúar 2022.

Nánar er sagt frá fundinum á vefsíðu EFTA.

Brussel-vaktin er gefin út af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Vaktin kemur út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

13. apríl 2022 | Samráð um nýjan forgangslista vegna hagsmunagæslu |
Að þessu sinni er fjallað um:

nýjan forgangslista stjórnvalda vegna hagsmunagæslu í Brussel

utanríkisráðherrafund ESB þar sem Ísland og Noregur tóku þátt

fund menntamálaráðherra ESB

fund landbúnaðarráðherra ESB sem telja fæðuöryggi ekki ógnað þrátt fyrir stríðið í Úkraínu

tillögur um að vernda staðbundið handverk og iðnað

ráðstefnu um framtíð Evrópu sem er á lokametrunum

fimmta pakka þvingunaraðgerða gagnvart Rússlandi

Forgangslisti hagsmunagæslu gagnvart ESB birtur til samráðs

Í samráðsgátt stjórnvalda hafa nú verið birt drög að forgangslista fyrir hagsmunagæslu Íslands gagnvart ESB vegna aðildar Íslands að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Frestur til að veita umsagnir er til 29. apríl nk.

Listinn tekur til tímabilsins 2022-2023 en þetta er í fjórða skipti sem slíkur listi er útbúinn. Á listanum eru 27 mál sem skilgreind hafa verið sem forgangsmál hvað íslenska hagsmuni varðar. Listinn er byggður á tillögum frá ráðuneytunum, sem bera ábyrgð á að vakta sín málefnasvið.

Tilgangur forgangslistans er að auka skilvirkni í þátttöku Íslands í EES-samstarfinu og ákveða hvernig hagsmunagæslu af Íslands hálfu verði best háttað á tímabilinu. Listinn er í grunninn einskorðaður við mál sem eru á undirbúnings- eða forstigi hjá framkvæmdastjórn ESB eða mál sem komin eru á vinnslustig en þá hefur framkvæmdastjórnin þegar lagt fram tillögu að lagasetningu til ráðsins og Evrópuþingsins.

Í einstaka tilfellum eru mál á listanum þar sem búið er að taka ákvörðun hjá ESB en huga þarf sérstaklega að upptöku viðkomandi gerða í EES-samninginn, t.d. með því að fara fram á aðlaganir.

Sjá nánar um hagsmunagæslu á vettvangi EES-samstarfsins

Utanríkisráðherrafundur ESB – Íslandi og Noregi boðið

Utanríkisráðherrar Íslands og Noregs voru gestir á fundi utanríkisráðherra Evrópusambandsins (Foreign Affairs Council) í Lúxemborg mánudaginn 11. apríl. Auk þess áttu þær fund með Josep Borrell utanríkismálastjóra Evrópusambandsins. Utanríkisráðherrafundurinn snerist einkum um innrás Rússlands í Úkraínu og viðbrögð Evrópuríkja við honum en Ísland og Noregur hafa tekið virkan þátt í aðgerðum sambandsins frá því að innrásin hófst. Þetta er í fyrsta skipti sem utanríkisráðherra Íslands er boðið að sækja utanríkisráðherrafund ESB.

„Á fundinum gafst einstakt tækifæri til að ræða málin við okkar vinaþjóðir. Ég var þakklát boði Borrell sem sýnir hversu þétt við höfum staðið saman að undanförnu og hversu virk þátttaka okkar hefur verið í sameiginlegum viðbrögðum Evrópuríkja við stríðinu í Úkraínu,“ sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra. „Við lítum á EES samninginn sem einn af hornsteinum okkar utanríkisstefnu og er því mikilvægt að rækta gott samstarf og samráð við ESB.“

Þórdís Kolbrún kom á framfæri samstöðu Íslands í öllum ráðstöfunum gegn Rússlandi og Belarús, þar með talið frekari efnahagsþvingunum. „Ég lagði áherslu á að sameiginleg gildi Evrópuríkja um mannréttindi og lýðræði væru undir í þessari baráttu og hversu mikilvægt það væri að styðja Úkraínu með öllum ráðum,“ segir Þórdís Kolbrún.

Sjá nánar frétt á vef Stjórnarráðsins.

Úkraína í brennidepli á fundi menntamálaráðherra

Ráðsfundur menntamálaráðherra ESB fór fram 5. apríl sl. Helstu mál á dagskrá fundarins voru:

- Tilmæli um árangursríkt samstarf háskóla í Evrópu (e. Council recommendation on building bridges for effective European higher education cooperation)

- Niðurstöður ráðsins um evrópska stefnu fyrir háskóla (e. Council conclusions on a European strategy empowering higher education institutions for the future of Europe)

- Niðurstöður ráðsins um aukinn hreyfanleika kennaranema og kennara í Evrópu (e. Conclusions on enhancing teachers’ and trainers’ mobility, in particular European mobility, during their initial and in-service education and training)

- Umræður um hvernig efla megi krísustjórnun á sviði evrópska menntasvæðisins.

Þá gáfu ráðherrarnir frá sér yfirlýsingu um fjárfestingu í menntun en í henni kemur fram að ráðherrarnir hyggjast bæta skilvirkni, hagkvæmni og gæði þegar kemur að fjárframlögum til menntunar. Franska formennskan hvatti einnig þau ríki sem verða næst með formennsku í ráðsinu (Tékkland og Svíþjóð) að standa áfram fyrir nánu samtali milli mennta- og fjármálaráðherra ESB í þessu skyni.

Tilmæli um árangursríkt samstarf háskóla í Evrópu og niðurstöður ráðsins um evrópska stefnu fyrir háskóla

Tilmælin um árangursríkt samstarf háskóla í Evrópu og niðurstöður ráðsins um evrópska stefnu fyrir háskóla eru byggð á tillögum framkvæmdastjórnar ESB um sama efni sem birtar voru 18. janúar síðastliðinn.

Með samþykkt þessara tilmæla vilja framkvæmdastjórnin og ráðið stuðla að þéttara, skilvirkara og sjálfbærara samstarfi háskólastofnana í Evrópu.

Í stefnunni fyrir háskóla eru fjögur megin markmið sem á að ná með framkvæmd nokkurra lykilverkefna. Markmiðin eru:

- að efla evrópska vídd háskóla og vísinda

- að styðja við háskóla sem hreyfiafl evrópskra lífshátta (e. „Consolidate universities as lighthouses for our European way of life.“)

- að styrkja háskóla í hlutverki þeirra sem lykilaðila í stafrænu og grænu umbreytingunum

- að styðja við háskóla sem hreyfiafl fyrir hlutverk og forystu ESB á alþjóðavettvangi.

Vert er að benda á að niðurstöður og tilmæli ráðsins eru frábrugðin texta framkvæmdastjórnarinnar að því leyti að þau skuldbinda aðildarríkin ekki þegar kemur að umdeildustu tillögum framkvæmdastjórnarinnar, en þar ber helst að nefna reglugerðina fyrir samstarfsnet háskóla og sameiginlegu evrópsku námsgráðuna. Í þessu tilliti leggur ráðið mikla áherslu á að nota þau tæki sem þegar eru til, t.d. með Bologna ferlinu og að mikilvægt sé að standa vörð um sjálfstæði menntastofnana. Þá kemur fram í tilmælunum að öll frekari þróun á reglugerðinni og sameiginlegu prófgráðunni sé háð samþykki ráðsins.

Niðurstöður ráðsins um aukinn hreyfanleika kennaranema og kennara í Evrópu

Í niðurstöðunum eru aðildarríkin meðal annars hvött til að stuðla að betri tækifærum og að ryðja úr vegi hindrunum fyrir hreyfanleika kennara í Evrópu sem og að efla hreyfanleika kennaranema. Framkvæmdastjórnin er hvött til að stuðla að hreyfanleika kennara í gegnum Erasmus + áætlunina, til dæmis með Erasmus + Teacher Academies verkefninu. Auk þeirra jákvæðu áhrifa sem hreyfanleiki hefur á hvatningu, hæfni og starfsferil kennara sýna niðurstöður ráðsins að hreyfanleiki hefur einnig jákvæð áhrif á innlend menntakerfi með því að efla traust, samvinnu og gagnkvæman skilning milli menntakerfa aðildarríkjanna.

Umræður um hvernig efla megi krísustjórnun á sviði evrópska menntasvæðisins

Sýnt þykir að nýlegar krísur hafa haft mikil áhrif á menntakerfi Evrópu. Lokanir skóla í Covid-19 heimsfaraldrinum leiddu til þess að skólar þurftu að vinna að margs konar aðgerðum og lausnum í miklum flýti. Innrás Rússa í Úkraínu hefur skapað brýna þörf fyrir aðlögun úkraínsks flóttafólks í menntakerfum annarra landa.

Í þessu samhengi fóru fram umræður um það hvernig evrópska menntasvæðið gæti verið betur í stakk búið að takast á við slíkar krísur. Rætt var um mögulegt samhæfingarkerfi á evrópskum vettvangi sem gæti veitt aðildarríkjum betra tækifæri til samræmdra og skilvirkra viðbragða og þannig takmarkað áhrif framtíðar áfalla af þessu tagi á gæði og aðgengi að menntun í Evrópu.

Menntamálaráðherra Úkraínu ávarpaði fundinn og þakkaði stuðning framkvæmdastjórnar ESB og aðildarríkjanna um leið og hann minnti á þann gríðarlega fjölda barna sem nú væru á flótta og þyrftu enn frekari stuðning. Mariya Gabriel, framkvæmdastjóri ESB á sviði menntamála, fór yfir þær aðgerðir sem framkvæmdastjórnin hefur ráðist í á sviði menntamála eftir innrásina í Úkraínu. Um þær má lesa nánar hér. Þá sagði hún frá því að framkvæmdastjórnin hygðist leggja til að 200 milljónir evra yrðu færðar úr fjárhagsáætlun Erasmus + fyrir árið 2027 og yfir í fjárhagsáætlun fyrir árið 2023. Til þess að svo megi verða þarf samþykki bæði ráðsins og þingsins.

Svokallaður „high-level“ hópur hefur hist tvisvar á undanförnum vikum til þess að útfæra nánar þá ferla sem menntamálaráðherrar ESB og framkvæmdastjórnin komu sér saman um á óformlegum fundi menntamálaráðherra um innrásina í Úkraínu þann 16. mars, en þeir eru:

• Móttaka og skólaganga fyrir úkraínsk börn

• Úrræði fyrir kennara

• Viðhald tenginga við úkraínska menntakerfið, menningu og tungumál

• Þörf fyrir fjárhagsaðstoð

• Stuðningur við uppbyggingu úkraínska menntakerfisins þegar það verður mögulegt

Umræðurnar sýndu víðtækan stuðning aðildarríkja við Úkraínu og einnig stuðning þeirra við frekari samræmingu aðgerða sín á milli.

Fæðuöryggi í Evrópu ekki ógnað

Á ráðherrafundi landbúnaðarmála 7. apríl sl. kynnti framkvæmdastjórnin viðbrögð vegna innrásarinnar í Úkraínu og aðgerðir til að efla fæðuöryggi álfunni. Úkraína hefur stundum verið nefnd brauðkarfa Evrópu og því ljóst að áhrif á matvælaframleiðslu og framboð eru mikil. Hækkun orkuverðs og áburðar hefur einnig sitt að segja.

Ráðherrarnir lögðu áherslu á mikilvægi þess að aðstoða Úkraínumenn við að tryggja nægilegt framboð á matvælum innanlands. Þá þyrfti að efla frjálst flæði matvöru innan ESB til að héruð sem hafa reitt sig á innflutning frá Rússlandi og Úkraínu verði ekki fyrir skakkaföllum. Innan ramma sameiginlegu evrópsku landbúnaðarstefnunnar yrði framleiðsla aukin og ríkisaðstoð heimiluð. Á heildina litið væri fæðuöryggi í Evrópu ekki ógnað eins og sakir standa.

Staðbundið handverk njóti verndar

Framkvæmdastjórn ESB kynnti í dag, 13. apríl, tillögur um vernd hugverkaréttar í tengslum við staðbundið handverk og iðnhönnun. Verði tillögurnar að veruleika mun gler frá Murano-eyju við Feneyjar á Ítalíu, tweed-efni frá Donegal á Írlandi og postulín frá Limoges í Frakklandi njóta sérstakrar verndar. Þótt þessar vörur hafi hingað til haft gott orðspor þá hefur það ekki notið sérstakrar lagalegrar viðurkenningar á evrópuvísu. Innblástur að nýjum reglum er fenginn úr því þekkta kerfi sem komið hefur verið á laggirnar og varðar landbúnaðarframleiðslu, osta og vín svo dæmi séu tekin. Nýju reglurnar munu vera í þágu neytenda að því leyti að þeir geti gengið að gæðum viðkomandi vöru vísum og staðið frammi fyrir upplýstara vali. Þá stuðla reglurnar að því að færni og störf haldist í þeim héruðum Evrópu sem njóta góðs af.

Ráðstefnu um framtíð Evrópu að ljúka

Senn líður að lokum ráðstefnunnar um framtíð Evrópu en það var forseti Frakklands, Emmanuel Macron, sem beitti sér hvað harðast fyrir því að ESB efndi til ráðstefnunnar. Hugmyndina kynnti hann fyrst í blaðagrein sem hann birti í ýmsum evrópskum dagblöðum í mars 2019 en hún tekur mið af umfangsmiklu þjóðarsamráði sem Macron beitti sér fyrir um allt Frakkland til að stilla til friðar við gulvestunga sem ollu miklum ófriði í Frakklandi veturinn 2018/2019. Í mjög einfölduðu máli er markmið ráðstefnunnar að leita í grasrótina og út fyrir Brussel skrifræðið, að hlusta á og laða fram hugmyndir og tillögur frá almennum borgurum ESB-ríkja um hvert beri að stefna í Evrópu á næstu áratugum til þess að tryggja velsæld.

Eftir langar umræður náðist samkomulag milli leiðtogaráðsins, framkvæmdastjórnarinnar og Evrópuþingsins um að halda ráðstefnuna og var formlegt samkomulag stofnananna þriggja þar um undirritað 10. mars 2021.

Ráðstefnan var formlega sett á degi Evrópu, 9. maí 2021. Skipulag hennar er lagskipt og frekar flókið, enda var þess gætt að öll aðildarríkin kæmu að henni með fulltrúa úr öllum hópum og lögum hvers samfélags um sig. Sjálf hugmyndavinnan um framtíð Evrópu fer fram í vinnuhópum og málstofum þaðan sem hugmyndir og tillögur eru sendar inn á allsherjarfundi ráðstefnunnar til úrvinnslu og ákvarðanatöku. Rétt til þátttöku í allsherjarfundum hafa hátt í 600 einstaklingar. Einnig hafa almennir borgarar ESB ríkja átt þess kost að koma sjónarmiðum sínum á framfæri í samráðsgátt ráðstefnunnar.

Starf í málstofum og vinnuhópum er nú á lokametrunum og verða tillögur sem þaðan koma ræddar á næstu allsherjarfundum. Stefnt er að því að ráðstefnan skili af sér lokaniðurstöðum 9. maí næstkomandi en viðtakendur verða Charles Michel, forseti leiðtogaráðsins, Roberta Metsola, forseti Evrópuþingsins og Frakklandsforseti, Emmanuel Macron en Frakkar fara nú með formennsku í ESB. Það kemur í þeirra hlut að vinna úr niðurstöðum og gera tillögur um eftirfylgni. Trúlega er þessi framvinda málsins í samræmi við fyrirætlanir Emmanuel Macron, en það verða svo Tékkar sem fá það verkefni að útfæra og vinna úr niðurstöðum ráðstefnunnar þegar þeir taka við boðkeflinu í ESB 1. júlí nk.

Fimmti pakki þvingunaraðgerða

Enn er verið að herða aðgerðir vegna árásar Rússlands á Úkraínu. Fimmti pakki þvingunaraðgerða var afgreiddur 8. apríl sl. Í honum er m.a. lagt bann við viðskiptum með kol innan fjögurra mánaða. Eftir standa þá einkum viðskipti með olíu sem er líkt og með gasið flóknara mál. Það á sérstaklega við um ríki sem hafa reitt sig á olíu og gas frá Rússlandi, eins og t.d. Austurríki og Þýskaland en önnur aðildarríki, einkum í Mið- og Austur-Evrópu hafa sum þegar tekið sjálfstæða ákvörðun um að hætta orkuviðskiptum við Rússland. Í samræmi við yfirlýsingu Versalafundar leiðtogaráðsins 11. mars sl. hafa aðildarríkin einsett sér að gera sig eins fljótt og kostur er óháð orku frá Rússlandi og virðist mjög breið samstaða hafa skapast um það (Ungverjaland a.m.k. enn undantekningin). Þessu til viðbótar hefur komið fram að markaðurinn innan ESB er sjálfur að bregðast við með því finna eins fljótt og mögulegt er aðra birgja fyrir sína þörf fyrir olíu og gas enda undir miklum þrýstingi. Þess má geta að Evrópuþingið samþykkti með yfirgnæfandi meirihluta ályktun 7. apríl sl. þar sem krafist er að þegar í stað verði stöðvaður innflutningur frá Rússlandi á kolum, olíu og gasi.

Að öðru leyti er í pakkanum hert á á einstökum aðgerðum sem þegar hefur verið gripið til, eins og t.d varðandi fjármálagerninga, viðskipti með tæknivörur, takmarkanir á fjárfestingum Rússa innan ESB og enn frekari útvíkkun á lista yfir einstaklinga og fyrirtæki sem sæta þvingunum.

Brussel-vaktin er gefin út af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Vaktin kemur út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

01. apríl 2022 | Stóru netfyrirtækin þurfa að lúta strangari reglum |
Að þessu sinni er fjallað um:

tímamótasamkomulag um samkeppnisreglur á stafrænum markaði

nýjar fjölþættar tillögur um hringrásarhagkerfið

fjallaframleiðslu og hliðstæða vísun í uppruna evrópskrar gæðavöru

aðgerðir til að milda áhrif innrásarinnar í Úkraínu á sjávarútveg, fiskvinnslu og fiskeldi

viðbúnað til að tryggja orkuöryggi

Samkomulag um reglur um netrisana

Evrópusambandinu er oft legið á hálsi fyrir að seinagang og sundurlyndi þegar kemur að því að takast á við erfið mál. En nú hefur á einu ári náðst samkomulag um nýjar reglur sem varða starfsemi stóru netfyrirtækjanna. Reglurnar (e. Digital Markets Act) varða samkeppni þar sem eiga í hlut fyrirtæki eins og Google, Amazon og Apple. Legið hefur fyrir að gildandi almennar samkeppnisreglur dygðu ekki til að tryggja almannahagsmuni. Stafræn þjónusta verður eftirleiðis meðhöndluð líkt og um væri að ræða fjármálafyrirtæki eða orkufyrirtæki með stífari regluramma en áður.

Evrópuþingið náði ýmsum áherslumálum sínum í gegn. Þannig er nú gert ráð fyrir að fyrirtækin megi einungis nota persónuupplýsingar til beinskeyttra auglýsinga þegar fyrir liggur afdráttarlaust samþykki. Þá verður gert að skilyrði að notendur samfélagsmiðla geti deilt tilkynningum og skjölum á milli þjónustuaðila. Fyrirtæki sem ekki virða nýju reglurnar geta átt yfir höfði sér sektir sem nemi allt að 10% af veltu á heimsvísu og 20% þegar um ítrekuð brot er að ræða. Lykilatriði í samningaviðræðum innan ESB var verkaskipting milli framkvæmdastjórnarinnar og stjórnvalda í aðildarríkjunum. Niðurstaðan varð sú að það sé einungis framkvæmdastjórnin sem fari með eftirlit og eftirfylgni.

Meðal annarra atriða í nýju reglunum má nefna að leitarvélum og sambærilegum netvettvöngum verður meinað að hygla eigin vöru og þjónustu. Stærstu fyrirtækin þurfa einnig að tilkynna kaup á öðrum fyrirtækjum til þess að hægt sé að hafa auga með því hvort þau kæfi alla samkeppni í fæðingu.

Tillögur um hringrásarhagkerfið

Framkvæmdastjórnin gaf út í vikunni tillögupakka er varðar hringrásarhagkerfið. Pakkinn er annar tveggja sem eru á áætlun framkvæmdastjórnarinnar fyrir lok júlí.

Í pakkanum er að finna orðsendingu um sjálfbæra framleiðslu (e. Communication on making sustainable products the norm) en meðfylgjandi henni var einnig lögð fram vinnuáætlun fyrir árið 2022-2024 um visthönnun og orkumerkingar (e. Ecodesign and Energy Labelling Working Plan 2022-2024). Kjarninn í pakkanum er tillaga að reglugerð er setur ramma utan um kröfur til visthönnunar fyrir sjálfbærar vörur (e. Regulation establishing a framework for setting ecodesign requirements for sustainable products ). Einnig er í pakkanum að finna aðgerðaráætlun er varðar sjálfbæran textíl (e. EU strategy for sustainable and circular textiles), tillögu er varðar samræmd skilyrði fyrir markaðssetningu byggingarvara (e. Proposal for a Regulation laying down harmonised conditions for the marketing of construction products) og tillögu að nýjum reglum um valdeflingu neytenda til grænnar umbreytingar (e. empowering consumers for the green transition).

ESB stefnir að vistvænni hönnun framleiðsluvara. Gerð verður krafa um að vörur verði hannaðar til að endast lengur, auðveldara verði að uppfæra vöru, gera við vöru, endurnýja og endurvinna vöru. Reglurnar eru taldar geta haft mikil jákvæð áhrif þar sem yfir 80% af umhverfisáhrifum vöru eru ákveðin á hönnunarstigi vörunnar. Reglurnar munu ná til fjölda vörutegunda sem framleiddar eru innan ESB en einnig vara sem fluttar eru inn á ESB svæðið m.a. snjallsíma, spjaldtölva, sólarsella og hita- og kælibúnaðar. Gert er ráð fyrir að nákvæmari kröfur er varða hvern vöruflokk verði settar fram í svokölluðum framseldum gerðum (e. delegated acts) eftir að framkvæmdastjórnin hefur framkvæmt mat á áhrifum tillagnanna.

ESB stefnir einnig að því að stöðva eyðingu á óseldum vörum. Framkvæmdastjórnin leggur til að fyrirtæki taki upp ný einkunnarorð sem hvetja til þess að vörur séu gefnar í stað þess að þeim sé eytt (e. donate, don‘t destroy). Hugmyndin er sú að innan ESB verði óheimilt að eyða óseldum vörum en slíkt bann er nú þegar í gildi í Frakklandi. Sem fyrsta skref þá mun framkvæmdastjórnin fara fram á að fyrirtæki gefi upp opinberlega magn þeirra óseldu vara sem eytt er á hverju ári. Hyggst framkvæmdastjórnin skoða bann út frá vöruflokkum en ekki stærð fyrirtækja.

Framkvæmdastjórnin hefur einnig kynnt aðgerðir til að koma í veg fyrir svokallaðan grænþvott. Með tillögu sinni um valdeflingu neytenda til grænnar umbreytingar (e. empowering consumers for the green transition) ætlar framkvæmdastjórnin að kveða í kútinn almennar fullyrðingar er varða umhverfið. Bannað verður að nota hugtök eins og „umhverfisvænn“, „vistvænn“ og „grænn“ í markaðsskyni ef ekki verður hægt að sýna fram á vistvænleika vörunnar með umhverfismerki eða með öðrum leiðum sem byggja á lögbundnum ferlum. Einnig er gert ráð fyrir banni við því að fyrirtæki markaðssetji vörur sínar með sjálfbærnimerkjum sem hafa ekki vottun eða hafa ekki farið í gegnum ferli hjá opinberum aðilum.

Endurbættar reglur um uppruna landbúnaðarvöru

Framkvæmdastjórn ESB kynnti 31. mars sl. tillögur að endurbættum reglum um uppruna vöru eins og víns og osta. Tilgangurinn er að efla landbúnað sem byggir á gæðum og gömlu hefðum. Í breytingum felst það helst að skráning vöru sem óskað er að njóti verndar verður einfölduð, vernd upprunamerkinga á netinu verður samræmd því sem gerist endranær. Þá verður gert ráð fyrir þeim möguleika að um leið og vísað sé til landfræðilegs uppruna vöru sé lögð áhersla á félagslegar, umhverfislegar og efnahagslegar hliðar framleiðslunnar. „Fjallaframleiðsla“ verður tekin upp sem nýtt hugtak sem framleiðendur geti vísað til og nýtt til að undirstrika sérstöðu.

Stuðningur við sjávarútveg og fiskeldi

Framkvæmdastjórn ESB tilkynnti 25. mars sl. að búið væri að virkja neyðaraðgerðir í þágu fiskveiða og fiskeldis vegna átakanna í Úkraínu. Stríðið þar hefði mikil áhrif vegna hækkandi orkuverðs og hráefna sem nýtt eru í þessu geirum. Með þessu verður aðildarríkjunum til dæmis heimilað að bæta fyrirtækjum tekjutap og viðbótarkostnað vegna röskunar á mörkuðum.

Orkuöryggi í skugga stríðsátaka

Stríðsátökin í Úkraínu hafa haft í för með sér enn meira rask á orkumörkuðum en þegar var orðið vegna verðhækkana. Ekki er eingöngu um að ræða gríðarlega hækkun orkuverðs heldur hafa átökin sett í enn sterkari brennidepil orkuöryggi og aðgang að orku; ekki síst frá Rússlandi.

Hár orkukostnaður hefur leitt til aukinnar verðbólgu sem hefur skaðað evrópskan efnahag og haft áhrif á endurreisn efnahagsins eftir Covid-19 faraldurinn. Í október sl. kynnti framkvæmdastjórn ESB verkfærakistu aðgerða og stuðnings til að draga úr áhrifum hás orkukostnaðar á neytendur og fyrirtæki innan aðildarríkja ESB. Stuðningsaðgerðirnar hafa nýst til að draga úr kostnaði neytenda, heimila og í iðnaði, sem hefur dregið úr þrýstingnum.

Í byrjun mars gaf framkvæmdastjórnin úr orðsendingu „REPowerEU“ sem gaf aðildarríkjunum enn frekari leiðbeiningar um hvern best væri að draga úr áhrifum af hækkandi orkuverði á heimili og fyrirtæki auk leiða til að nýta mikinn hagnað nokkurra raforkuframleiðenda til að fjármagna þær aðgerðir.

ESB hefur markað stefnu að verða eins fljótt og auðið er óháð Rússlandi varðandi orku og er unnið að áætlunum í því efni sem gert er ráð fyrir að komi fram í maí.

Á fundi í Versölum í mars sl. samþykktu leiðtogar ESB ríkjanna að bregðast hratt við og fara í markvissar aðgerðir til að mæta áhrifum af hækkandi orkuverði sérstaklega á viðkvæman hóp almennings og lítil og meðalstór fyrirtæki.

Framkvæmdastjórnin hefur brugðist með því að gefa út orðsendingu þar sem fjallað er um kosti og galla ýmissa markvissra skammtímalausna til að tempra hækkanir á orkuverði (e. Communication on Security of supply and affordable energy prices: Options for immediate measures and preparing for next winter). Í orðsendingunni eru einnig lagðar til sameiginlegar evrópskar aðgerðir sem ætlað er að ráðast að rót vandans á gasmarkaðnum og að tryggja öryggi framboðs á sanngjörnu verði fyrir næsta vetur og til lengri tíma. Tillögu að reglugerð um birgðahald fyrir gas er síðan ætlað að bæta viðnámsþrótt orkukerfis Evrópusambandsins.

Þau atriði sem framkvæmdastjórnin veltir upp eru eftirfarandi:

Leiðir til niðurgreiðslu á verði raforku á smásölustigi með ýmiss konar stuðningi við heimili og fyrirtæki, þ.m.t. beinni ríkisaðstoð, lækkun skatta og gjalda o.s.frv.

Mögulegar aðgerðir á heildsölustiginu eins og með magninnkaupum sem haft gætu áhrif til lækkunar á innkaupsverði.

Þak á orkuverð.

Framkvæmdastjórnin leggur síðan mata á kosti og galla einstakra aðgerða. Helstu gallar við niðurgreiðslu á verði á smásölustigi er beinn útlagður kostnaður og áhætta fyrir jöfnun samkeppnisskilyrða. Gallar við aðgerðir á heildsölustigi er beinn útlagður kostnaður, röskun á samkeppni og röskun markaða. Gallar við aðgerðir tengdar setningu þaks á orkuverð er hátt flækjustig, röskun á framboði og áhrif á fjárfestingar. Framagreint bíður síðan nánari greiningar hjá framkvæmdastjórninni. Meginniðurstaðan er hins vegar sú að það er ekki nein ein tiltekin lausn í hendi til að takast á við hátt orkuverð og það óöryggi sem hefur skapast.

Varðandi framboð á gasi á viðráðanlegu verði þá segir í orðsendingunni að Evrópusambandsríki þurfi að standa saman og semja sameiginlega við birgja. Framkvæmdastjórnin lýsir yfir vilja til að setja á fót aðgerðarhóp um sameiginleg innkaup á gasi og vetni. Aðgerðarhópurinn myndi njóta stuðnings fulltrúa aðildarríkjanna í stýrinefnd sem starfrækt er innan ESB. Hópnum væri m.a. ætlað að undirbúa samstarf á sviði orkumála við lykilbirgja fyrir fljótandi náttúrugas (LNG), gas og vetni á svæðinu við Miðjarðarhaf, aðilum í Afríku, Austurlöndum nær og BNA. Honum væri einnig ætlað að efla notkun á innviðum fyrir gas innan ESB, sérstaklega miðstöðvar fyrir fljótandi náttúrugas en einnig geymslustaði og leiðslur.

Regluverk ESB gerir þegar ráð fyrir því að aðildarríki eigi að minnsta kosti birgðir olíu til þriggja mánaða. Í tillögu að reglugerð um gasbirgðir er gert ráð fyrir að aðildarríki tryggi að birgðir af gasi 1. nóvember ár hvert verði aldrei undir 90% af því geymslurými fyrir gas sem er til staðar en markið þó sett við 80% á árinu 2022. Með þessu er brugðist við þeirri stöðu sem kom upp á yfirstandandi vetri þar sem birgðastaðan hefur verið 20% minni en venjulega en hafa skal í huga því sambandi að 20-25% af því gasi sem notað er innan ESB á hverjum vetri kemur úr geymslurýmum. Var því ljóst að birgðastaðan var komin óþægilega nálægt hættumörkum. Ástæða þessa er fyrst og fremst rakin til þess að rússnesk fyrirtæki kusu að hafa minni birgðir innan ESB en venjan hefur verið.

Gert er ráð fyrir að birgðahaldarar séu sérstaklega vottaðir. Engir aðrir fá að halda birgðir en þeir sem hafa slíka vottun en markmiðið er að koma í veg fyrir utanaðkomandi áhrif á birgðastöðu. Þeim sem ekki hafa slíka vottun er gert að láta af hendi geymslurými sem um ræðir. Birgðahaldarar munu verða undanþegnir tilteknum gjöldum og er gert að skila reglulegum skýrslum um birgðastöðu svo eitthvað sé nefnt.

Brussel-vaktin er gefin út af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Vaktin kemur út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

18. mars 2022 | Hertar reglur um launagagnsæi í augsýn |
Að þessu sinni er fjallað um:

tillögur um launagagnsæi sem afgreiddar voru út úr nefndum Evrópuþingsins í vikunni

fund umhverfisráðherra ESB

RePowerEU

ESB og heilbrigðisþjónustu í Úkraínu

framgang tillagna um kynjahlutföll í stjórnum fyrirtækja

tillögur sem lúta að ábyrgð fyrirtækja varðandi mannréttindi o.fl.

drög að tilskipun er varðar ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi

leiðsögn um leigubílalöggjöf

Nefndir Evrópuþingsins vilja metnaðarfyllri aðgerðir gegn kynbundnum launamun

Nefndir Evrópuþingsins um jafnréttismál og vinnumál luku í gær umfjöllun sinni um tillögur framkvæmdastjórnarinnar um launagagnsæi. Nefndirnar leggja til að öll fyrirtæki með 50 starfsmenn eða fleiri (í stað 250 í upphaflegu tillögunni) þurfi að birta upplýsingar sem geri starfsmönnum auðveldara fyrir að bera saman laun og afhjúpa kynbundinn launamun. Aðferðir til að meta og bera saman laun eiga að vera byggðar á kynhlutlausum mælikvörðum og styðjast við hlutlaust mat á störfum og flokkun þeirra. Ef í ljós kemur að launamunur kynjanna sé að minnsta kosti 2,5% (í stað 5% í upphaflegu tillögunni) þurfa vinnuveitendur ásamt fulltrúum starfsmanna að láta fara fram sameiginlegt launamat og koma sér saman um aðgerðaráætlun.

Þá verður því beint til framkvæmdastjórnar ESB að koma á fót vottun til þeirra fyrirtækja þar sem kynbundnum launamun er ekki fyrir að fara.

Þingnefndirnar leggja einnig til að launaleynd verði afnumin þannig að ákvæði í ráðningarsamningum um slíkt verði óheimil. Enn fremur verði mælt fyrir um að starfsmenn og fulltrúar þeirra eigi ríkan rétt til aðgangs að upplýsingum um laun hjá vinnuveitanda, bæði einstaklingsbundið og að meðaltali og í tengslum við kyn launþega. Þá er tekið undir tillögu framkvæmdastjórnarinnar þess efnis að sönnunarbyrði fyrir því að launamunur sé ekki kynbundinn hvíli á vinnuveitanda.

Sendinefnd frá Evrópuþinginu heimsótti Ísland í nóvember sl. Samkvæmt skýrslu um ferðina var þar aflað gagnlegra upplýsinga um reynsluna af löggjöf um launajafnrétti.

Tillögur um rafhlöður þokast áfram

Umhverfisráðherrar ESB hittust á fundi 17. mars sl., í fyrsta skipti í formennskutíð Frakka. Úrgangsmálin voru ofarlega á dagskrá en einnig efnamál og loftslagsmál. Farið var yfir stöðu vinnu við að fara yfir tillögur sem eru hluti af svokölluðum „Fit for 55“ pakka. Meðal annars var rætt um kosti og galla þess að taka upp losunarheimildir í sjó- og landflutningum og í byggingariðnaði. Þá var fjallað um þrávirk lífræn efni og Minamata samninginn um kvikasilfur. Loks afgreiddu ráðherrarnir sameiginlega samningsafstöðu vegna tillagna um rafhlöður.

Reglugerð um rafhlöður

Á fundinum var samþykkt afstaða ráðsins til tillögu framkvæmdastjórnar ESB að reglugerð um rafhlöður. Markmið reglugerðarinnar er að styðja við þróun á sjálfbærum og öruggum rafhlöðum allan líftíma þeirra og að jafna samkeppnisskilyrði á innri markaðinum. Tillögunni er ætlað að styrkja ESB löggjöf um rafhlöður og úrgangsrafhlöður. Nýju reglugerðinni er einnig ætlað að tryggja framboð á rafhlöðum til orkuskipta í samgöngum og söfnun á rafhlöðum sem hafa lokið hlutverki sínu þannig að þeim verði ekki hent út í umhverfið með tilheyrandi umhverfisáhrifum. Mikilvægt er að tryggja söfnun þeirra þar sem í rafhlöðum má finna eiturefni sem geta verið skaðleg umhverfinu og heilsu manna en einnig mjög verðmæta málma sem hægt er að endurnýta.

Tillagan hefur verið lengi til umræðu á vettvangi ráðsins og Evrópuþingsins en hún var lögð fram af framkvæmdastjórn ESB í desember 2020. Í meðförum ráðsins hafa grunnstoðir reglugerðarinnar verið styrktar, m.a. er þar að finna ákvæði er varðar svokallað rafhlöðuvegabréf, takmarkanir á notkun hættulegra efna, ákvæði er varðar kolefnisfótspor rafhlaðna, framlengingu á framleiðendaábyrgð, skyldu til notkunar á endurnýjanlegu hráefni í nýjar rafhlöður ásamt kröfu um áreiðanleikakönnun á framleiðsluferli rafhlaða.

Með afstöðu ráðsins þá er gildissvið reglugerðarinnar víkkað út til tilbúinna rafhlöðueininga (e. ready-made battery modules) og til allra rafhlaðna fyrir ökutæki. Samkvæmt afstöðu ráðsins verður það hlutverk framleiðenda að safna færanlegum úrgangsrafhlöðum (e. portable waste batteries) en einnig er þar að finna markmið um söfnun á færanlegum rafhlöðum fyrir léttari samgöngumáta t.d. rafskútur og rafmagnshjól.

Réttur aðildarríkja ESB til að leggja strangari takmarkanir á notkun hættulegra efna í rafhlöður á öllum stigum framleiðsluferils þeirra er einnig tryggður.

Nýja reglugerðin mun leysa af hólmi tilskipun um rafhlöður sem er frá árinu 2006 og vera til fyllingar núgildandi löggjöf, sérstaklega þeirri er varðar meðhöndlun úrgangs.

Evrópuþingið samþykkti 10. mars sl. sína samningsafstöðu gagnvart reglugerðinni. Nú munu þríhliða viðræður hefjast milli allra aðila, þ.e. framkvæmdastjórnar ESB, ráðsins og Evrópuþingsins um reglugerðina þar sem stefnt er að því að ná samkomulagi um endanleg ákvæði reglugerðarinnar í fyrstu umræðu.

Þrávirk lífræn efni

Á fundinum kom fram stuðningur umhverfisráðherra við umboð ráðsins til að semja við Evrópuþingið um reglugerð sem hefur það að markmiði að takmarka enn frekar tilvist þrávirkra lífrænna efna (e. persistent organic pollutants (POPs)) í úrgangi. Umboðið var formlega samþykkt í COREPER, sem er nefnd fastafulltrúa aðildarríkjanna, 11. mars sl. Þrávirk lífræn efni eru efni sem eru sérstaklega hættuleg umhverfinu og heilsu manna. Til að tryggja styrkingu hringrásarhagkerfis og gæði afleidds hráefnis (e. secondary raw materials) er mikilvægt að úrgangur innihaldi ekki þessi efni. Tillaga framkvæmdastjórnarinnar að umræddri reglugerð var lögð fram í október 2021. Henni er ætlað að samræma löggjöf ESB alþjóðlegum skuldbindingum sambandsins, sérstaklega Stokkhólmssamningnum um þrávirk lífræn efni, með breytingu á núgildandi reglugerð sambandsins sem er frá árinu 2019. Í framhaldi af samþykki umhverfisráðherranna hefjast samningaviðræður við Evrópuþingið um endanlega útfærslu á reglugerðinni.

Fit for 55

Aðgerðarpakka framkvæmdastjórnar ESB er ætlað að samræma löggjöf ESB markmiði sambandsins um kolefnishlutleysi fyrir árið 2050 og markmiði um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda um allt að 55% fyrir árið 2030. Á meðal tillagnanna er nýtt ETS kerfi sem mun setja á fót kolefnismarkað fyrir vegaflutninga og upphitun bygginga þ.e. nýtt viðskiptakerfi með losunarheimildir (ETS) fyrir vegasamgöngur og byggingar. Ráðherrarnir skiptust á skoðunum um tillöguna og mögulegt framlag hennar til að ná 2030 markmiðinu. Ráðherrarnir ræddu möguleika kerfisins og þá lykilþætti sem að þeirra mati geta stuðlað að sátt um slíkt kerfi auk annarra leiða til að ná sama takmarki er varðar samdrátt í losun. Skiptar skoðanir eru um slíkt kerfi. Á fundinum kom fram stuðningur við áformin frá Svíþjóð, Danmörku, Þýskalandi, Hollandi, Finnlandi og Austurríki. Pólland og Ungverjaland eru andstæð slíku kerfi og heyra mátti efasemdaraddir frá ríkjum eins og Belgíu, Rúmeníu, Tékklandi, Spáni, Slóvakíu og Slóveníu þar sem greina mátti áhyggjur af mögulegum kostnaði almennings.

Þeir sem styðja upptöku þessa nýja ETS kerfis halda því fram að markaðurinn þurfi að skera niður losun frá vegasamgöngum en losun hefur aukist á síðustu árum. Ef ekki verði tekið á losun frá byggingum þá geti það komið í veg fyrir að loftslagsmarkmið náist. Þeir sem eru á móti telja að birgjar muni velta kostnaði vegna losunar á CO2 út í verðlag sem mun svo bitna á almenningi með hækkandi orkureikningum. Í tillögu framkvæmdastjórnarinnar að þessu nýja kerfi er ekki gert ráð fyrir að kerfið muni taka gildi fyrr en árið 2026 en umræðan hefur þyngst á síðustu mánuðum vegna hækkandi orkuverðs. Stríðið í Úkraínu hefur svo einnig haft áhrif. Til að bregðast við neikvæðum röddum um hækkun á orkuverði til almennings hefur framkvæmdastjórnin lagt til að notaðar verði tekjur af markaðnum til að styðja við lágtekjuheimili og fjárfestingar í leiðum til orkusparnaðar. Ljóst er að umræðan um þetta mál muni á næstunni verða lífleg.

Samningur um kvikasilfur

Ráðið samþykkti tvær ákvarðanir sem tengjast afstöðu ESB til aðildarríkjaþings Minamata samningsins um kvikasilfur. Samningurinn setur fram ramma utan um stýringu og takmörkun á notkun kvikasilfurs og kvikasilfursblöndu og losunar þess af mannavöldum í andrúmsloft, vatn og jarðveg í þeim tilgangi að vernda heilsu manna og umhverfið. Ákvarðanirnar snúa að ákveðnum breytingum á viðaukum samningsins og skilgreiningum hans er varðar úrgang. Aðildarríkjaþingið mun fara fram 21-25. mars nk. á Balí í Indónesíu.

Önnur mál

Á fundinum upplýstu Frakkar, sem formennskuríki í ráðinu, og framkvæmdastjórn ESB ráðherrana um 5. Umhverfisþing Sameinuðu þjóðanna sem fram fór í Nairobi í Kenýa 28. febrúar til 2. mars sl. Ráðherrarnir skiptust einnig á skoðunum um nýja tillögu að tilskipun um vernd umhverfisins með refsiákvæðum. Nýja tilskipunin skilgreinir ný lögbrot og setur fram nákvæmari ákvæði er varðar viðurlög, reglur sem er ætlað að styrkja framfylgd og ákvæði sem er ætlað að aðstoða þá sem tilkynna brot og samvinnu við eftirlitsyfirvöld. Auk framangreind ræddur ráðherrarnir leiðir til að bregðast við skógareyðingu.

REPowerEU

Stríðið í Úkraínu hefur sýnt að þörf er á hraðari umskiptum í hreina orku. 90% af því gasi sem notað er í ESB ríkjunum er innflutt og þar af er meira en 40% frá Rússlandi. Frá Rússlandi koma einnig 27% af olíuinnflutningi og 46% af kolainnflutningi ESB ríkjanna.

ESB telur að það geti orðið óháð rússnesku gasi vel fyrir lok áratugarins. Framkvæmdastjórnin gaf út orðsendingu 8. mars sl. sem ber heitið „REPowerEU: Joint European Action for more affordable, secure and sustainable energy“. Orðsendingin er sett fram í tveimur hlutum. Í fyrri hlutanum er fjallað um aðgerðir sem hægt er að grípa til til að bregðast við því neyðarástandi sem nú er uppi. Þar er m.a. nefnd lækkun á smásöluverði raforku en samkvæmt raforkutilskipun ESB er ríkjum heimilt við sérstakar aðstæður að ákveða smásöluverð til heimila og minni fyrirtækja. Einnig er nefnt að aðildarríkin veiti þeim fyrirtækjum og bændum sem orðið hafa fyrir barðinu á hækkun raforkuverðs aðstoð en samkvæmt reglum ESB um ríkisaðstoð er það heimilt í stuttan tíma. Einnig er fjallað um mikilvægi þess að tryggja nægar gasbirgðir fyrir næsta vetur og er mælt með því að strax verði hafist handa við að fylla birgðastöðvar innan ESB-ríkjanna af gasi. Framkvæmdastjórnin hyggst í apríl kynna tillögu að löggjöf sem kveður á um skyldu til þess að fylla á gas-birgðastöðvar um að lágmarki 90% fyrir 1. október ár hvert.

Síðari hluti orðsendingarinnar fjallar um REPowerEU. Þar eru nefndar leiðir til að auka þol orkukerfis ESB en fram kemur að mögulegt sé að fasa út notkun á rússnesku jarðefnaeldsneyti vel fyrir árið 2030. Leiðirnar eru settar fram í tveimur stoðum. Fyrri stoðin fjallar um að auka fjölbreytni gasbirgða með meiri innflutningi á fljótandi náttúrugasi (LNG) og innflutningi á gasi í gegnum lagnir frá öðrum birgjum en Rússum auk þess að auka hlutdeild lífmetans og vetnis.

Síðari stoðin fjallar um að draga hraðar úr því ástandi að heimili, byggingar, iðnaður og raforkukerfi séu háð jarðefnaeldsneyti með því að auka orkunýtni, auka hlut endurnýjanlegrar orku og að minnka áhrif flöskuhálsa í innviðum. Fram kemur að full innleiðing á tillögum þeim sem er að finna í „Fit for 55“ aðgerðapakka framkvæmdastjórnarinnar sem kynntur var sl. sumar muni draga úr notkun á gasi um 30% fyrir árið 2030 sem er um 100 milljarðar rúmmetra af gasi. Það, ásamt aukningu á fjölbreyttum og endurnýjanlegum lofttegundum, orkusparnaði, og rafvæðingu, eigi að geta leitt til skerðingar á innflutningi á gasi frá Rússlandi að jafnvirði 155 milljarða rúmmetra sem er það magn af gasi sem flutt var inn frá Rússlandi 2021. Nærri tveimur þriðju af samdrætti í innflutningi mætti ná innan árs.

Fram kemur að fordæmalaus innflutningur á náttúrugasi til ESB í janúar sl. hafi tryggt afhendingu á gasi fyrir þennan vetur. ESB geti flutt inn meira af náttúrugasi frá Katar, BNA, Egyptalandi og vestur Afríku á hverju ári eða sem nemur 50 milljörðum rúmmetra. Einnig sé hægt að flytja um 10 milljarða rúmmetra á ári af gasi með lögnum frá Azerbaijan, Alsír og Noregi.

Nefnt er að tvöföldun á markmiði „Fit for 55“ fyrir lífmetan geti aukið framleiðslu á lífmetani um 35 milljarða rúmmetra á ári fyrir árið 2030. Auka 15 milljónir tonna af endurnýjanlegu vetni ofan á þau 5,6 milljón tonn sem eru fyrirsjáanleg í samræmi við „Fit for 55“ geti komið í stað 25-50 milljarða rúmmetra af innfluttu rússnesku gasi fyrir árið 2030. Samkvæmt „Fit for 55“ aðgerðarpakkanum er gert ráð fyrir tvöföldun á orkuljósspennu og vindorkugetu fyrir árið 2025 og þreföldun fyrir árið 2030 sem myndi koma í staðinn fyrir árlega notkun á 170 milljörðum rúmmetra af gasi fyrir árið 2030.

Með því að flýta fyrir uppsetningu á sólarorkukerfum fyrir húsþök þá sé hægt að spara aukalega 2,5 milljarða rúmmetra af gasi. Sagt er að REPowerEU áætlunin geti flýtt fyrir nýtingu á frumlegum vetnislausnum og samkeppnishæfri endurnýjanlegri raforku í iðnaðargeirum. Auk þess segir að forsenda þess að hröðun á endurnýjanlegum orkuverkefnum geti átt sér stað sé að einfalda og stytta leyfisferli. Í maí ætlar framkvæmdastjórnin að gefa út leiðbeiningar um hvernig megi hraða leyfisveitingum fyrir verkefni er varða endurnýjanlega orku.

ESB leggur sitt af mörkum til að halda úti brýnni heilbrigðisþjónustu í Úkraínu

Stríðið í Úkraínu hefur sett mark sitt á virkni heilbrigðiskerfisins og eðlilega heilbrigðisþjónustu þar í landi eins og á aðra innviði samfélagsins. Úkraínsk stjórnvöld kalla eftir aðstoð og leggja mat á hvað brýnast er hverju sinni. Sama gera aðildarríki sambandsins og Moldóva sem taka á móti stríðum straumi flóttamanna frá Úkraínu.

Í fréttum í vikunni kom fram í viðtali við John F. Ryan aðstoðarframkvæmdastjóra ESB og yfirmann lýðheilsu að innan sambandsins sé lagt kapp á að samhæfa hjálparaðgerðir aðildarríkja, heilbrigðisstarfsfólks og frjálsra félagasamtaka til að unnt sé að veita Úkraínumönnum nauðsynlega heilbrigðisþjónustu. Til þess notar ESB öfluga innviði, stofnanir, stjórnkerfi og verkferla sem byggst hafa upp og styrkst m.a. í baráttunni við heimsfaraldurinn. Þar gegna lykilhlutverki Heilbrigðisöryggisnefnd ESB (Health Security Committee), Sóttvarnastofnun Evrópu og evrópska lyfjastofnunin.

Kallað er eftir lyfjum, lækningavörum, skyndihjálparpakkningum, sóttvönum, skýlum og tjöldum, gámum og rafgeymum svo eitthvað sé nefnt. Þá er brýn þörf fyrir súrefnisbirgðir m.a. til að sinna Covid-19 sjúklingum, en aðeins um 35% íbúa Úkraínu eru full bólusettir. Óttast er að heimsfaraldurinn geti dregist á langinn vegna ástandsins. Einnig vantar blóðbirgðir og heilbrigðisstarfsfólk til að sinna veiku fólki, þeim sem slasast hafa í átökunum og þjáist t.a.m. af brunasárum. Þá er talið nauðsynlegt að huga að geðheilbrigði fólks, en reiknað er með auknum þunga í verkefnum á því sviði eftir því sem stríðið dregst á langinn.

Þá eru uppi áhyggjur af útbreiðslu annarra smitsjúkdóma eins og mænusóttar einkum meðal barna sem eru yngri en 6 ára, en bólusetning gegn veirunni er mismunandi eftir aldri og svæðum. Þá er gert ráð fyrir að um 250 þúsund Úkraínumenn séu smitaðir af alnæmi og verði uppiskroppa með lyf.

Sjúkrahús eru skotmörk og verða fyrir tjóni. Sjúkrabílar komast ekki leiðar sinnar. Skortur er á heilbrigðisstarfsfólki, það leitar skjóls eða flýr land.

Heilbrigðisöryggisnefnd ESB gegnir lykilhlutverki við samhæfingu aðgerða

Heilbrigðisöryggisnefnd ESB (Health Security Committee) hefur á sinni könnu að samhæfa aðgerðir með heilbrigðisráðuneytum aðildarríkjanna. Nefndin hittist reglulega til að greina stöðuna og ákveða hvernig skynsamlegast sé að veita stuðning. Aðildarríkin hafa skuldbundið sig til að aðstoða Úkraínu og tryggja nauðsynlegan neyðarvarning eins og lyf, lækningatæki, hlífðarfatnað, blóðhluta, sjúkrabíla og skjólbúnað. Þá eru aðildarríkin að senda lækningateymi inn á svæðin og bjóðast til að meðhöndla slasaða úkraínska sjúklinga á sjúkrahúsum sínum. Nefndin hefur tryggt tiltekinn fjölda sjúkrarúma fyrir sjúklinga á sjúkrahúsum ríkjanna, á gjörgæsludeildum, í skurðlækningum og til meðferðar á brunasárum. Þá hefur hún leitað leiða til að flytja bráðasjúklinga til viðkomandi aðildarríkja.

Á vettvangi nefndarinnar er einnig fjallað um hvernig veita megi samfellu í umönnun flóttafólksins sem streymir frá Úkraínu til nærliggjandi ríkja. Sóttvarnastofnun Evrópu styður og leiðbeinir aðildarríkjum ESB, einkum nágrönnum Úkraínu og Moldóvu, við að greina og bregðast við smitsjúkdómum eins og COVID-19 og mænusótt.

Lyfjastofnun Evrópu hefur það hlutverk að skoða og fylgjast með hugsanlegum áhrifum stríðsins á framboð lyfja innan Evrópusambandsins og safna upplýsingum um skort á slíkum varningi. Verkefnið er einkum unnið í gegn um sameiginlega vefgátt aðildarríkja, stofnunarinnar og framkvæmdastjórnarinnar (Single Point Of Contact, SPOC) sem sett var á fót 2019 til að bæta upplýsingar aðila um skort á mikilvægum lyfjum, koma í veg fyrir lyfjaskort og ná að stjórna honum. Þá vinnur Lyfjastofnunin að því að tryggja öruggan flutning á blóði og blóðhlutum þar sem þeirra er þörf.

Kynjahlutföll í stjórnum fyrirtækja

Félags- og vinnumálaráðherrar ESB samþykktu í vikunni sameiginlega afstöðu til tillögu framkvæmdastjórnarinnar um jafnrétti kynjanna í stjórnum fyrirtækja. Élisabeth Borne, sem fer með þennan málaflokk í frönsku ríkisstjórninni, hvatti til þess að viðræðum við Evrópuþingið yrði nú hraðað. Hér væri komin mikilvæg aðgerð til að rjúfa glerþakið sem konur eiga við að etja á vinnumarkaði. Samkvæmt tillögunni eiga að minnsta kosti 33% stjórnarmanna í fyrirtækjum sem skráð eru á markaði að vera af því kyni sem hallar á. Önnur möguleg útfærsla er að 40% stjórnarmanna sem ekki eru í framkvæmdastjórn séu af því kyni sem hallar ár. Sum ríki hafa þegar tekið upp reglur af þessu tagi og er gert ráð fyrir að taka megi tillit til þess og tilskipunin eigi þá jafnvel ekki við.

Samkvæmt íslenskum lögum gildir að í stjórnum opinberra hlutafélaga og hlutafélaga þar sem starfa fleiri en 50 starfsmenn að jafnaði á ársgrundvelli skuli hvort kyn eiga fulltrúa í stjórn þegar stjórn er skipuð þremur mönnum. Þegar stjórnarmenn eru fleiri en þrír í slíkum félögum skal tryggt að hlutfall hvors kyns sé ekki lægra en 40%.

Drög að tilskipun varðandi samfélagsábyrgð fyrirtækja

Framkvæmdastjórn ESB hefur nýverið birt tillögu að tilskipun sem hefur það að markmiði að stuðla að ábyrgri háttsemi fyrirtækja og sem nær til allrar virðiskeðju þeirra. Fyrirtækjum verður gert að koma auga á og afstýra neikvæðum áhrifum af starfsemi þeirra á mannréttindi og umhverfi. Þar getur verið um að ræða barnaþrælkun, slæman aðbúnað verkamanna, mengandi starfsemi og þá sem hefur skaðleg áhrif á fjölbreytni lífríkis. Fyrir fyrirtækin munu reglurnar að sögn leiða til aukinnar vissu um réttarstöðu þeirra. Fjárfestar og neytendur munu njóta góðs af auknu gagnsæi. Reglurnar munu samkvæmt tillögunni ná til stórfyrirtækja þar sem starfsmenn eru fleiri en 500 og ársvelta meira en 150 milljónir evra. Þær ná einnig til fyrirtækja í tilteknum geirum atvinnulífs þar sem neikvæð áhrif geta verið mikil jafnvel þótt þessum stærðarmörkum sé ekki náð. Á það við um námuvinnslu, landbúnað og textíl-iðnað.

Samtök sem berjast fyrir samfélagsábyrgð í atvinnulífinu telja sumt ágætt í tillögunum en gagnrýna annað eins og að þær nái í raun einungis til 1% fyrirtækja innan ESB.

Drög að tilskipun um ofbeldi gegn konum

Framkvæmdastjórn ESB hefur lagt til tilskipun sem beinist að ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi. Þar er meðal annars kveðið á um hvernig kynferðisbrot skuli skilgreind og fjallað um réttindi brotaþola. Fram kemur að samþykki sé lykilþáttur í skilgreiningu á nauðgun en í 18 aðildarríkjum ESB er það enn skilyrði refsingar að ofbeldi hafi verið beitt.

Leiðbeiningar um reglur fyrir leigubíla og sambærilega þjónustu

Nýlega birti framkvæmdastjórnin leiðbeiningar (e. recommendation) um löggjöf fyrir leigubílaþjónustu og sambærilega þjónustu (t.d. Uber). Fram kemur í skjalinu að aðildarríkin standi frammi fyrir nýjum áskorunum sem fylgja nýrri tækni og vefbókunum. Marka þurfi stefnu sem tekur tillit til nýrra viðskiptahátta, þjónustu og aðila á markaði. Boðuð er ný tilskipun um vinnuumhverfi þeirra sem vinna við að veita þessa þjónustu.

Fram kemur í leiðbeiningunum að löggjöf um þjónustuna sjálfa sé á hendi einstakra aðildarríkja, enda sé um staðbundna þjónustu að ræða þó svo að hún sé oft veitt yfir landamæri. Hins vegar væru ýmsir þættir við að veita þjónustuna á verkefnasviði framkvæmdastjórnarinnar s.s. rétturinn til þess að stofna fyrirtæki um hana og atvinnuréttindi þeirra sem veita þjónustu. Þá segir að í löggjöf aðildarríkja skuli gæta jafnræðis á milli allra núverandi og nýrra aðila og að þjónustan búi við jöfn samkeppnisskilyrði. Mikilvægt sé að aðildarríkin endurskoði núverandi löggjöf með það að markmiði að tryggja aðgengilega, hagkvæma, áreiðanlega, örugga og gæðaþjónustu fyrir íbúa.

Fram kemur að gæta þurfi að því að löggjöfin tryggi jafnræði um réttindi þeirra sem veita þjónustuna hvort sem hún er leigubílaþjónusta eða sambærileg þjónusta og að þeir hafi jöfn tækifæri til starfans. Einfalt verði að öðlast atvinnuréttindi og að þau feli ekki í sér mismunun og markaðshindrun. Eftirfarandi eru helstu atriði leiðbeininganna:

Skilyrði fyrir starfsréttindum fyrir akstri leigubíla og sambærilegrar þjónustu séu einföld og ekki umfram það sem nauðsynlegt er. Sama gildi um rekstur leigubíla og sambærilegrar þjónustu.

Reglur styðji við notkun sjálfbærra ökutækja.

Afnema skyldu um að snúa til starfsstöðvar í lok hvers verkefnis.

Heimila að taka farþega utan starfssvæðis í bakaleið.

Reglur stuðli að bættri nýtingu ökutækis s.s. með samnýtingu (e. carpooling) ótengdra farþega á leið á sama áfangastað.

Einfalda reglur um ökumenn leigubíla s.s. kröfur um vinnuskyldu til þess að laða ökumenn að faginu, en skortur á ökumönnum er víða. Sömuleiðis reglur um sambærilega þjónustu (t.d. Uber) sem eru víða hamlandi fyrir ökumenn

Reglur til rekstraraðila séu ekki íþyngjandi og takmarkist við að ná fram settum markmiðum. T.d. reglum um lámarks fjölda ökumanna, skilyrði um fullt starf og að leyfishafi skuli sjálfur aka ökutækinu.

Í leiðbeiningunum er svo að lokum nokkuð fjallað um samþættingu leigubílaþjónustu og sambærilegrar þjónustu við almenningssamgöngur með það að markmiði að stuðla að betri nýtingu þeirra.

Brussel-vaktin er gefin út af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Vaktin kemur út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

04. mars 2022 | Ísland tekur fullan þátt í þvingunaraðgerðum er beinast að Rússum |
Að þessu sinni er fjallað um:

viðbrögð við innrás Rússa í Úkraínu

fund samgönguráðherra ESB sem fulltrúum EFTA-ríkjanna var einnig boðið til

samráð um fyrirhugaðar breytingar á reglum um ökuskírteini og umferðarlagabrot

tillögur um geimverkefni

félagslega hlið sjálfbærrar fjármögnunar

tillögu að reglugerð um hagnýtingu gagna

Mikil samstaða um viðbrögð

Innrás Rússa í Úkraínu fimmtudaginn 24. febrúar sl. hefur vakið hörð viðbrögð um allan heim. Evrópusambandið hefur samþykkt refsiaðgerðir í nokkrum áföngum og hafa EFTA-ríkin þrjú, þar á meðal Ísland, tekið þátt í undirbúningi og samþykkt aðgerðanna. Neyðarvettvangur ESB, Integrated Policy Crisis Response, verður nýttur til að ræða samhæfingu aðgerða og eiga fulltrúar Íslands þar sæti.

Neyðaraðstoð við Úkraínumenn sem eru á flótta er samræmd í gegnum almannavarnakerfi ríkja Evrópusambandsins. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra á aðild að því kerfi og þar er hjálparbeiðnum safnað saman miðlægt.

Forsætisráðherra átti í gær og fyrradag fundi með ráðamönnum hjá NATO og Evrópusambandinu um Úkraínumálið í Brussel. Utanríkisráðherra tók þátt í fundi utanríkisráðherra NATO í morgun. Þá sat dómsmálaráðherra fund starfssystkina sinna í Brussel. Ákveðið hefur verið að veita fólki frá Úkraínu tímabundna vernd af mannúðarástæðum. Sjá nánar á vef Stjórnarráðsins.

Nýsköpun og vinnuumhverfi í samgöngum

Frakkland, sem fer með formennsku í ráðherraráði ESB, boðaði til óformlegs ráðherrafundar í Le Bourget 21. og 22. febrúar sl. Innviðaráðherra var boðið til fundarins og var hann sóttur af Ragnhildi Hjaltadóttur ráðuneytisstjóra og Sigurbergi Björnssyni frá sendiráðinu í Brussel. Fundarstaðurinn var í loft - og geimferðasafninu við gamla flugvöllinn í Le Bourget í Frakklandi. Megin umfjöllunarefni fundarins voru nýsköpun í samgöngum, að draga úr losun kolefnis frá samgöngum og vinnuumhverfi starfsmanna í samgöngum.

Losun kolefnis frá samgöngum

Á fundinum ítrekuðu ráðherrarnir stuðning sinn við að flýta og auðvelda víðtæka uppsetningu rafhleðslustöðva til að mæta núverandi og framtíðarþörfum, einkum fyrir létt ökutæki, auk þess að hvetja til þróunar á endurnýjanlegu og lágkolefnavetni. Gæði þjónustu og upplýsinga fyrir notendur, samvirkni búnaðar og hagkvæmt verð eru lykilþættir fyrir þessa þróun.

Fram komu þau sjónarmið að vinna þarf að þróun tækni fyrir þung ökutæki einkum þeirra sem eru í langakstri. Famleiðendur ökutækja og notendur geta byggt ákvarðanir sínar á skýrri sýn með eðlilegum tímaramma sem þarf til þess að þróa fjölbreytta tækni fyrir fjölbreytta notkun.

Í umræðunum komu fram þau viðhorf að nauðsynlegt væri að gæta að samkeppnisstöðu evrópskra fyrirtækja og um leið að verjast kolefnisleka við orkuskipti í samgöngum. Voru samgönguinnviðir í útjaðri Evrópu s.v. sem tengiflugvellir nefnir í því sambandi.

RH sagði að í janúar voru 89% nýskráðra bílar hreinorku eða tengitvinnbílar. Vetnisvæðing þungra ökutækja væri enn hænu og egg vandamál, hvorki væru vetnisstöðvar né nægilegt úrval vetnisbíla fyrir hendi til þess að styðja við upptöku þeirra. Nauðsynlegt væri að styðja við nýsköpun bæði með styrkjum og reglusetningu.

Nýsköpun í samgöngum

Í umræðum ráðherranna komu fram sjónarmið um að flétta þyrfti saman og ná jafnvægi á milli nýrrar stafrænnar þjónustu og núverandi viðskiptalíkön starfandi fyrirtækja í greininni. Til dæmis hefur Evrópusambandið mikilvægu hlutverki að gegna í útfærslu sjálfkeyrandi ökutækja. Útfærslan krefst samræmds regluverks um öryggi, ábyrgð allra hlutaðeiganda og um gagnamiðlun.

Í ljósi umfangs þeirra breytinga sem verða vegna víðtækrar notkunar stafrænna gagna má búast við að þau komi til með að gegna lykilhlutverki í flutningageiranum. Mikilvægt er að Evrópa verði leiðandi í þessari þróun, ekki síst til þess að tryggja gagna- og netöryggi.

Ísland lagði áherslu á nauðsyn samþættra lausna, þ.e. innviða, farartækja og gagna. Horfa þyrfti til alþjóðlegra staðla. Notkun staðlaðra lausna væri mikilvæg til þess að tryggja hagkvæmar lausnir, en engu að síður mætti hún ekki hamla nýsköpun.

Betra vinnuumhverfi samgöngustarfsmanna

Til að bregðast við vaxandi vanda við að fá fólk til starfa í samgöngum þarf að grípa til markvissra ráðstafana á evrópskum vettvangi til gera samgöngustörf aðlaðandi, einkum fyrir ungt fólk og konur.

Tækifæri eru til að bæta vinnuumhverfi ökumanna í flutningum á vegum með því að nýta stafræna tækni til þess að einfalda eftirfylgni og beitingu reglna. Vinnuumhverfi farmanna hafa versnað vegna Covid faraldursins. Nokkrar tillögur eru til umræðu um samræmingu krafna um menntun og þjálfun en um leið að viðhalda samkeppnishæfni greinarinnar.

Varðandi flug þá voru ráðherrarnir sammála um þörf fyrir að stuðla að félagslegri sjálfbærni, ekki síður en umhverfislegrar og rekstrarlegrar sjálfbærni. Gera þarf ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir kolefnisleka án þess að skerða samkeppnishæfni evrópskra flugfélaga. Lagt var til að skýra þær félagslegu reglur sem gilda um flugáhafnir og starfsfólk á jörðu niðri einkum með því að skilgreina starfstöðvar og binda þannig endi á núverandi misnotkun á félagslegum reglum.

Að lokum lýstu þátttakendur yfir nauðsyn þess að jafna stöðu járnbrauta gagnvart vegsamgöngum. Sett voru fram sjónarmið um að vegfarendur greiddu einnig fyrir ytri kostnað við samgöngurnar svo sem slys, hávaða og viðhald innviða.

Ráðuneytisstjóri tók til máls undir þessum lið og benti á litla atvinnuþátttöku kvenna í samgöngum, t.d. væri hlutfall kvenna í skipstjórnarstörfum einungis eitt prósent. Hlutfall atvinnuþátttöku kvenfólks í flugi á Íslandi væri 13%, líklega sú mesta á alþjóðavísu og færi vaxandi. Kvenfólk væri helmingur mannkyns og það væri verðugt verkefni að rannsaka hvað þyrfti til að laða kvenfólk að í samgöngustörf og vinna að mögulegum úrbótum í framhaldi af því. Ráðuneytisstjóri vakti jafnframt athygli á mikilvægi samgönguöryggis í að skapa aðlaðandi vinnuumhverfi í samgöngum. Nefndi sem dæmi að árangur Íslands í siglingaöryggi, en engin banaslys hefðu orðið á sjó svo árum skipti. Það hefði leitt til aukinnar aðsóknar ungs fólks og kvenna að greininni.

Samráð um ökuskírteini og umferðarlagabrot

Framkvæmdastjórnin hefur birt á samráðsvef sínum óskir um ábendingar um eftirfarandi fyrirhugaðar lagabreytingar.

Tilskipun um ökuskírteini.

Meginmarkmið tillögunnar er að viðhalda og auka umferðaröryggi, en þörf er á breytingum til þess að bregðast við breytingum sem fylgir stafrænni tækni auk annarra breytinga í samræmi við markmið sem sett voru fram í orðsendingu um grænar og snjallar samgöngur. Eftirfarandi er tengill á samráðið: public consultation for a revision of the Directive on Driving Licences.

Tilskipun um eftirfylgni yfir landamæri vegna umferðalagabrota

Markmiðið með endurskoðuninni er að samræma verklag við gagnkvæma aðstoð við rannsókn á umferðalagabrotum, stjórnsýslu, stjórnsýslulega meðferð og meðferð refsiákvörðunar. Eftirfarandi er slóð á samráðið: public consultation for a revision of the Cross-Border Enforcement Directive.

ESB leggur fram nýjan tillögupakka um geimverkefni

Þann 15. febrúar sl. lagði ESB fram orðsendingu sem inniheldur stefnumörkun varðandi ráðstafanir um geimrusl og tillögu að reglugerð um uppbyggingu nýs fjarskiptakerfis um gervihnetti.

Orðsending með stefnumörkun um aðgang að geimnum

Í orðsendingunni kemur fram að nær 11.800 gervihnöttum hafi verið skotið á loft eftir að nýting geimsins hófst, þar af eru 4.550 enn í notkun. Áætlað er að yfir 20.000 gervihnettir til viðbótar verði sendir á loft á næstu tíu árum. Að auki er ýmis konar geimrusl á sveimi, um 128 milljón hlutir innan við einn cm að stærð, 900.000 hlutir 1 – 10 cm og 34.007 hlutir stærri en 10 cm á ferð í geimnum umhverfis jörðina. Nauðsynlegt er að taka tillit til geimrusls þegar gerðar eru áætlanir um að skjóta á loft nýjum gervihnöttum og verður það flóknara eftir því sem gervihnöttum fjölgar.

Í dag er lögð vinna í að kortleggja þessa hluti og haldin skrá yfir þá en þörf fyrir frekari gerðir á þessu sviði fer vaxandi. ESB á samstarf við BNA sem stendur framarlega við vöktun geimrusls auk fleiri ríkja. Í orðsendingunni er lagt til að efla núverandi vinnu, þróa nýja vöktunartækni, miðla upplýsingum til haghafa og stofna til alþjóðlegs samstarfs um reglusetningu og kortlagningu á nýtingu geimsins. Boðað er í orðsendingunni að ESB muni birta tillögu að löggjöf um gervihnetti, þróa staðla og leiðbeiningar um nýtingu geimsins fyrir gervihnetti.

Tillaga að reglugerð um nýtt fjarskiptakerfi um gervihnetti

Í reglugerð um EUSPA voru geimverkefni ESB færð undir eina stofnun, Geimstofnun ESB (e. EU Agency for Space Programme). Verkefni ESB eru Galileo verkefnið um þróun leiðsögukerfa, Kopernicus verkefnið um umhverfisvöktun, Govsatcom verkefnið, SST verkefnin um umhverfismál í geimnum s.s. veður og vöktun geimrusls. Ísland er aðili að Kopernikus verkefninu, að Galileo verkefninu að hluta, þ.e. Egnos hluta þess og svo hluta af SST verkefninu. Í tillögu að reglugerð sem framkvæmdastjórnin birti 15. febrúar eru lagðar nánari línur um Govsatcom verkefnið.

Í tillögunni kemur fram að almennt markmið með uppbyggingu fjarskiptanets um gervihnetti sé að styrkja viðnámsþol ríkjanna við áföllum og tryggja stjórnvöldum áreiðanlegt fjarskiptakerfi sem m.a. styður við eftirlitskerfi stjórnvalda, vernd mikilvægra innviða, stjórnun á neyðarstund og við landvarnir. Þá kemur fram að rekstraraðilar geti fengið aðgang að kerfinu og að það verði nýtt til þess að veita jaðarbyggðum aðgang að háhraðaneti.

Gert er ráð fyrir að kostnaður við verkefnið muni nema um 6 milljörðum Evra. Í reglugerðinni er kveðið á um 1,6 mia Evra framlag fyrir árin 2021-2027. Þar að auki renni fjármunir úr Horizon áætluninni, geimáætluninni, nágrannaáætluninni (Neighborhood) og fleiri áætlunum til verkefnisins. Þá er miðað við samstarfsaðilar og ríki utan ESB sem óska eftir aðgang að verkefninu muni leggja fé til verkefnisins.

Ísland óskaði eftir aðgang að verkefninu þegar það gerðist aðili að nokkrum þáttum geimverkefnisins. Niðurstaða ESB var að uppfylltum tilteknum skilyrðum um trúnaðarsamninga þyrfti að sækja sérstaklega um aðgang að áætluninni.

Félagsleg hlið sjálfbærrar fjármögnunar (e. taxonomy)

Eins og margir muna, sem fylgst hafa með málinu, varð mikill hvellur í lok síðasta árs þegar framkvæmdastjórn ESB tilkynnti breytingar á sjálfbærnimælikvarða orku, sem fól það í sér að kjarnorka og gas var stimplað sem græn orka að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Það mál er nú í biðstöðu á meðan ráðherraráð ESB og Evrópuþingið ræða tillögur framkvæmdastjórnarinnar, en skoðanir einstakra aðildarríkja á þeim eru mjög mismunandi.

Í síðustu viku birtist hins vegar endanleg skýrsla um mælikvarðann „Social Taxonomy“ sem áður hefur verið fjallað um hér í Vaktinni. Drög að umræddri skýrslu birtust í lok júlí á síðasta ári og lauk opinberu samráði um hana í september sl. en frágangur hennar og síðan birting hefur tafist þar til nú. Í henni er lögð höfuðáhersla á að ekki sé nóg að fjárfesting og fjármögnun hennar sé græn (e. sustainable) í umhverfislegu tilliti heldur verði hún einnig að standast kröfur um félagslega ábyrgð. Þó að tiltekin fjárfesting sé talin sjálfbær og skaði ekki umhverfið þá gæti hún í einhverjum tilvikum falið í sér félagsleg undirboð eða mannréttindabrot. Dæmi um það væri barnaþrælkun. Þar með væri umrædd fjárfesting fallin á sjálfbærniprófinu. Með öðrum orðum, markmiðið er að tvinna mælikvarðann „Social Taxonomy“ saman við „Taxonomy“ umhverfismælikvarðann og aðrar lagareglur sem samþykktar hafa verið í tengslum við sjálfbærniverkefnið. Þar má t.d. nefna breytingar á ársreikningalögum um birtingu upplýsinga um sjálfbærar eignir, skuldir, tekjur, gjöld o.fl.

Skýrslan, sem unnin var af sérstökum sérfræðingahópi (Platform Subgroup 4), er nú til umfjöllunar hjá framkvæmdastjórn ESB, en auk þess verður hún rædd í sérfræðingahópi sem í sitja fulltrúar allra aðildarríkja ESB og EFTA ríkjanna. Ekki er ljóst hvort efnisinnihald skýrslunnar verði lagt fram í formi afleiddrar reglugerðar eða sem breytingatillaga við móðurreglugerðina um „Taxonomy“ (Regulation (EU) 2020/852). Það er alfarið í höndum framkvæmdastjórnarinnar, en henni er ætlað að leggja fram eigin skýrslu um málið, sbr. 26. gr. í móðurreglugerðinni. Nú er bara að bíða og sjá hvað gerist!

Hins vegar er ljóst að viðbótarmælikvarði eins og sá sem hér hefur verið lýst mun flækja sjálfbærnimatið verulega og leiða til aukinnar umsýslu og þar með viðbótarkostnaðar ekki síst hjá minni fyrirtækjum. Það verður því fróðlegt að fylgjast með hvernig framkvæmdastjórnin vinnur úr málinu. Skýrsluna er að finna í heild sinni á eftirfarandi vefslóð.

https://www.financite.be/sites/default/files/references/files/280222-sustainable-finance-platform-finance-report-social-taxonomy.pdf

Tillaga að reglugerð um gögn

Framkvæmdastjórnin birti 23. febrúar sl. tillögu að nýrri reglugerð um gögn. Þar er að finna reglur um hver geti fengið aðgang að gögnum til hagnýtingar úr öllum geirum hagkerfisins. Reglugerðin er síðasti liðurinn í heildstæðri gagnastefnu Evrópusambandsins.

Reglurnar eiga að fela í sér að notendur til dæmis nettengdra tækja geti fengið aðgang að gögnum sem verða til við notkun þeirra. Einnig verður notendum heimilað að stýra því hvaða þriðji aðili fái aðgang að gögnunum. Það getur til dæmis verið vegna viðgerðarþjónustu eða til að hagnýta gögnin með öðrum hætti.

Gert er ráð fyrir aðgangi stjórnvalda að gögnum hjá einkaaðilum þegar það er nauðsynlegt, til dæmis vegna almannavarnaástands.

Brussel-vaktin er gefin út af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Vaktin kemur út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

18. febrúar 2022 | Þörf talin fyrir Covid-19 vottorðin fram á næsta ár |
Að þessu sinni er fjallað um:

heimsókn utanríkisráðherra til Brussel í vikunni

nýjan vinnuhóp sem fjallar um Covid-19 vottorðin

breytingar á tilmælum um komu frá 3ju ríkjum

fyrirhugaða vottun vegna kolefnisbindingar

fund heilbrigðisráðherra ESB sem fulltrúum EFTA-ríkjanna var einnig boðið til

heimsókn þingmanna

námskeið EFTA-skrifstofunnar um EES-samninginn sem er nú aðgengilegt á vef

Hagsmunir Íslands í brennidepli í heimsókn utanríkisráðherra

Samstarf á vettvangi EES, viðskiptamál og pólitískt samráð um alþjóðamál voru meðal umræðuefna á fundum Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra með fulltrúum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB) í vikunni.

„Aðild Íslands að EES-samningnum hefur fært Íslendingum ótvíræðan ávinning á undanförnum áratugum. Aðgangur okkar að 450 milljóna markaðssvæði er ákaflega mikilvægur, en við það bætist margvíslegt annað samstarf sem Íslendingar og aðrir íbúar á EES svæðinu njóta góðs af. Það er auðvitað mikilvægt að eiga góð og uppbyggileg samskipti milli samningsaðila og ég verð vör við velvilja í garð EES samstarfsins hjá þeim sem ég hef hitt. Á fundum mínum hef ég lagt mikla áherslu á tollfrelsi í viðskiptum með sjávarfang og lagði einnig áherslu á þýðingu þess að efla virkt samráð um utanríkispólitísk málefni, til dæmis á sviði alþjóðlegra þvingunaraðgerða. Við höfum nú þegar fundið fyrir auknum skilningi á þessu sjónarmiði,“ sagði Þórdís Kolbrún.

Þórdís Kolbrún fundaði á miðvikudag með Maros Šefčovič, varaforseta framkvæmdastjórnar ESB sem fer m.a. með málefni EES-samningsins. Auk framkvæmdar samningsins var sérstaklega rætt um áhrif mikilvægra stefnumála á borð við Græna sáttmálann og Stafræna starfsskrá ESB á innri markaðinn og sameiginleg markmið Íslands og ESB. Auk þess var farið yfir undirbúning viðræðna um nýtt samningstímabil Uppbyggingarsjóðs EES. Í því sambandi tók ráðherra sérstaklega upp málefni sem snúa að fríverslun með sjávarafurðir og endurskoðun samnings um viðskipti með landbúnaðarafurðir. Ótryggt ástand í öryggismálum í Evrópu bar einnig á góma og lagði ráðherra áherslu á mikilvægi samráðs við Ísland og hin EFTA-ríkin í EES þegar kæmi að aðgerðum eins og viðskiptalegum þvingunaraðgerðum.

Á fimmtudag átti utanríkisráðherra svo fund með Valdis Dombrovskis, framkvæmdastjóra viðskiptamála. Á fundinum var rætt um viðskipti Íslands og ESB og hugmyndir Íslands um endurskoðun á núverandi viðskiptaumhverfi, einkum fyrir sjávarafurðir auk þess sem vikið var að endurskoðun samningsins um viðskipti með landbúnaðarvörur.

„Að undanförnu höfum við sótt á um bættan aðgang fyrir sjávarafurðir inn á Evrópu, bæði til að bregðast við breyttum þörfum markaðarins en einnig til að tryggja okkur í samkeppni gagnvart öðrum þjóðum. Ég ítrekaði afstöðu okkar um að tímabært sé að hefja alvarlegar viðræður um fulla fríverslun með sjávarafurðir jafnframt því að leysa þyrfti úr þeim atriðum sem tengjast viðskiptum með landbúnaðarvörur“, sagði Þórdís Kolbrún.

Einnig átti ráðherra fund með framkvæmdastjóra landbúnaðarmála, Janusz Wojciechowski, þar sem rætt var um stöðu og framkvæmd gildandi samnings Íslands og ESB um viðskipti með landbúnaðarvörur og endurskoðun hans.

Í ferðinni kynnti ráðherra sér einnig starfsemi EFTA-skrifstofunnar, Eftirlitsstofnunar EFTA og skrifstofu Uppbyggingarsjóðs EES, í EFTA-húsinu. Tóku forstöðumenn stofnananna á móti henni og ræddu þau helstu mál á vettvangi EES-samstarfsins og í starfsemi stofnananna. Auk þessi heimsótti hún sendiráðið, heilsaði upp á starfsmenn þess og fundaði með sendiherra.

Lagt til að framlengja gildistíma reglna um stafræn vottorð

Fyrr í vikunni var boðað til fundar í vinnuhópi hjá ráðherraráði ESB sem fær það verkefni að endurskoða reglur um starfrænu Covid-19 vottorðin. Fulltrúi heilbrigðisráðuneytisins á aðild að hópnum.

Það var 14. júní 2021 sem ráðherraráðið og þingið samþykkti reglugerð 2021/953 um útgáfu Covid -19 vottorðanna og 2021/954 um útvíkkun á notkun vottorðanna fyrir lönd utan Shengen/EU svæðisins. Gerðirnar renna út 30. júní n.k., þ.e. sumrarið 2022, að óbreyttu. Ekki er talið skynsamlegt að láta reglurnar renna sitt skeið því erfitt er að sjá fyrir um þróun faraldursins næstu mánuðina. M.a. minnast menn áhrifa Delta afbrigðisins sem setti allt á hliðina sl. sumar og haust. Þá tekur langan tíma, a.m.k. fjóra mánuði að setja slíkar reglur að nýju sem þurfa samþykkt þingsins og ráðsins og koma þarf þeim í framkvæmd. Í ljósi þessa er lagt til að gildistími regluverksins og þar með vottorðanna verði framlengdur um ár eða til 30. júní 2023 en þó með það í huga að vottorðin og takmarkanirnar sem þeim fylgja verði lögð af um leið og staða faraldursins gefur tilefni til.

Auk þess eru lagðar til tvær breytingar á reglunum sem auðvelda ferðalög fólks á milli landa. Annars vegar að fjölga þeim tegundum prófa sem geta verið grundvöllur Covid-19 vottorða. Nú eru heimilaðar tvær tegundir prófa: NAAT próf, þ.m.t. RT-PCR og Rapid Antigen Tests en engin önnur antigen próf eins og ELISA. Gert er ráð fyrir að heimila þau próf sem Health Security Committee ( HSC) samþykkir og uppfylla tiltekin skilyrði. Nefndin mun gefa út lista með heimiluðum tegundum prófa.

Hins vegar að einstaklingar sem taka þátt í rannsóknum (clinical trials) á bóluefnum fái útgefin vottorð. Gert er ráð fyrir að það hjálpi til við að fá fólk til að taka þátt svo mikilvægum rannsóknum, en bóluefnin hafa sýnt sig vera besta vörnin gegn Covid sjúkdómnum. Í þessu sambandi var bent á mögulega ógn af hópnum sem fær lyfleysu (placebo) í slíkum rannsóknum.

Stefnt er að því að ljúka þessari vinnu sem fyrst.

Breytingar á tilmælum um komur frá 3ju ríkjum

Hinn 25. nóvember 2021 lagði framkvæmdastjórn ESB fram tillögu að breytingum á tilmælum ráðsins nr. 2020/912 um tímabundnar takmarkanir á ónauðsynlegum ferðum yfir ytri landamæri ESB/Schengen og hugsanlegri afléttingu þeirra takmarkana. Ákveðið var að fresta afgreiðslu tillagnanna vegna Ómíkron afbrigðisins. Undanfarnar vikur hafa Frakkar sem fara með formennsku í ráðherraráðinu leitað málamiðlunar sem felur í sér eftirfarandi:

Þröskuldur fyrir smitstuðul á undanförnu 14 daga tímabili er hækkaður úr 75 í 100 á hverja 100.000 íbúa. Vikulegt sýnatökuhlutfall verður hækkað úr 300 í 600 á hverja 100.000 íbúa.

Bólusetning með bóluefnum sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur samþykkt verður einnig metin gild með þeim fyrir vara þó að aðildarríki geti krafist þess að viðkomandi framvísi einnig PCR prófi. Einnig má krefjast PCR prófs frá einstaklingum, óháð því hvaða bóluefni þeir hafa fengið, hafi þeir ekki gilt Digital Covid Certificate (DCC) meðferðis eða annað sambærilegt vottorð og jafnframt frá einstaklingum með vottorð um fyrri sýkingu.

Almennt er för óbólusettra einstaklinga í ónauðsynlegum tilgangi ekki heimil, nema þeir framvísi vottorði um að læknisfræðilegar ástæður liggi þar að baki og eins ef þeir eru með vottorð um fyrri sýkingu, yngra en 180 daga við brottför

Börn eldri en 6 ára og yngri en 18 ára geta ferðast með því að framvísa PCR prófi séu þau ekki bólusett.

Tilmælin verða endurskoðuð að nýju þann 30. apríl til að meta hvort tilefni sé til að byggja einungis á persónubundu mati og hætta þ.a.l. með sérstakan landalista sem undanskilur ákveðin ríki ferðatakmörkunum.

Tilmælin voru rædd á meðal sendiherra þann 16. febrúar sl. og samþykkt með meirihluta samþykki aðildarríkja. Ísland kom á framfæri þeim sjónarmiðum að ganga ætti lengra við að byggja á persónubundinni nálgun og tilmælin væru heldur ströng, að teknu tilliti til meðalhófs og þess að reynslan hafi sýnt að ferðatakmarkanir hafi haft litla sem enga þýðingu við að takmarka útbreiðslu faraldursins. Þá væri Ísland einnig á þeirri skoðun að heimila ætti óbólusettum einstaklingum frá 3ju ríkjum að ferðast, framvísi þeir PCR prófi. Þá var einnig ítrekað það sjónarmið, sem Ísland hefur lagt áherslu á frá upphafi, að mikilvægt væri að aðildarríki hefðu heimild til að ákveða eigin sóttvarnaraðgerðir á landamærum, teldust þær nauðsynlegar af heilbrigðisástæðum. Einnig var vísað til sérstöðu Íslands hvað varðar landfræðilega legu.

Vottun vegna kolefnisbindingar – samráð

Til þess að ná markmiðum um kolefnishlutleysi þarf að þróa lausnir til að fjarlægja CO2 úr andrúmsloftinu og binda það varanlega í jörðu eða hafi án þess að valda tjóni á vistkerfum. Stefnt er að því að um miðja öldina muni bæði náttúrulegir ferlar og iðnferlar leiða til þess að hundruð milljóna tonna séu bundin á ári. Sem stendur stefnir ekki í að þessi markmið náist. Undanfarin ár hefur dregið úr bindingu með náttúrulegum hætti og iðnferlar eru óverulegir að umfangi. Meiriháttar hindrun í þessu sambandi er skortur á sameiginlegu ESB-viðmiði um hvað séu sjálfbærar aðferðir í þessu efni. Vottun er ekki einföld vegna þess að hætta er á að koltvíoxíð sleppi aftur út í andrúmsloftið auk þess sem mælingar og eftirlit með árangri er ekki einfalt. Þá getur þurft að beita mismunandi mælikvarða eftir því hvort binding er í náttúrulegu ferli eða iðnferli. Samráð af framkvæmdastjórnar ESB um væntanlegar reglur hófst 7. febrúar sl. og stendur fram í maí: https://ec.europa.eu/info/law/better-regulation/have-your-say/initiatives/13172-Certification-of-carbon-removals-EU-rules_en

Aukið samstarf um lýðheilsu

Óformlegur fundur heilbrigðisráðherra ríkja Evrópusambandsins undir formennsku Frakka í ráðherraráði ESB var haldinn í Grenoble 10. febrúar sl. Heilbrigðisráðherrum Íslands, Noregs og Sviss var einnig boðið á fundinn. Fyrir hönd Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra sótti Ásta Valdimarsdóttir ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytisins fundinn og fulltrúi ráðuneytisins í Brussel.

Dagskrá fundarins var tileinkuð umræðu um framtíð “Public Health Union”, þörfinni fyrir áframhaldandi samstarfi á svið heilbrigðismála og hvað ESB gæti lagt að mörkum til að koma til móts við bætta lýðheilsu jafnt innan sambandsins sem utan þess. Heimsfaraldurinn hefur beint kastljósinu að mikilvægi heilbrigðismálanna og að styrkja þurfi heilbrigðiskerfi ríkjanna til að þau verði betur í stakk búin til að bregðast við faröldrum framtíðar sem ógna heilbrigði þjóða. Ýmislegt hefur áunnist en gera þarf betur. Olivier Véran heilbrigðisráðherra Frakka opnaði fundinn og gaf tóninn þegar hann sagði „Health is the heart of Europe“ sem útleggja má “heilbrigt fólk er hjartað í Evrópu” þó þannig að virða þyrfti sjálfsákvörðunarrétt þjóðanna (respect national prerogative).

Á fundinum var rætt um þau verkfæri sem ESB hefur komið sér upp til að takast á við faraldra á borð við Covid-19. Þar gegnir lykilhlutverki ný Evrópuskrifstofa neyðarviðbúnaðar og viðbragða vegna heilsuógnar (HERA), sem tók til starfa í byrjun ársins. Hlutverk skrifstofunnar er meðal annars að sjá fyrir og undirbúa komu heilsuvár og tryggja aðgengi að nauðsynlegum bóluefnum, lyfjum og lækningabúnaði með birgðahaldi og innkaupum. Þá fær hún einnig heimildir til sameiginlegra innkaupa eins og bóluefnum þegar þörf kallar. Ísland óskar að fá aðild að skrifstofunni og taka þátt í starfsemi hennar. Ekki liggur fyrir hvort og hvernig það verður gert. Í innleggi á fundinum notaði Ísland tækifærið til að koma sjónarmiðum sínum að í þessu samhengi.

Í frétt um fundinn er tekið fram að halda verði áfram því farsæla og öfluga samstarfi og samstöðu sem einkennt hafi vinnuna innan Evrópusambandsins síðast liðin tvö ár í baráttunni við heimsfaraldurinn. Standa verði vörð um heilbrigði íbúanna. Sérstök áhersla er lögð á sjaldgæfa sjúkdóma, baráttuna við krabbamein og sýklalyfjaónæmi og geðheilbrigðismál þar sem gera má betur. Þörf sé á þverfaglegri nálgun þar sem lögð er áhersla á að flétta heilbrigði/lýðheilsu inn í stefnumörkun á öðrum sviðum samfélagsins en sviði heilbrigðismála.

Þingmenn á ferð

Það er óhætt að segja að mjög hafi dregið úr ferðum milli Reykjavíkur og Brussel síðustu tvö árin. Það voru því ánægjuleg teikn um að nú færi að rofa til þegar hópur þingmanna kom í heimsókn á dögunum. Var þar um að ræða þingmannanefnd EFTA og EES, en í henni eru Ingibjörg Isaksen, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir og Diljá Mist Einarsdóttir. Mánudaginn 7. febrúar fengu þær m.a. kynningu á störfum sendiráðsins og helstu áherslum við hagsmunagæslu af Íslands hálfu. Í kjölfarið tók sendinefndin þátt í fundi þingmannanefndar EFTA.

EES-námskeið nú aðgengilegt á vef

Tvisvar á ári heldur EFTA-skrifstofan námskeið um EES-samstarfið. Að þessu sinni var námskeiðið bæði opið fyrir staðarþátttöku og fjarfundarform. Þar var meðal annars fjallað um áhrif EFTA-ríkjanna á löggjöf ESB sem er í mótun, upptöku löggjafar í EES-samninginn og eftirlit með framkvæmda hans. Upptaka er nú aðgengileg á vef EFTA-skrifstofunnar, sjá https://www.efta.int/ og https://www.youtube.com/watch?v=VUNj7GAIaOc

Brussel-vaktin er gefin út af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Vaktin kemur út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

04. febrúar 2022 | Rýmkaðar reglur um ferðalög innan Evrópu |
Að þessu sinni er fjallað um:

endurskoðaðar reglur um ferðalög innan Evrópu

flokkun á kjarnorku og gasi sem grænna orkugjafa

yfirlýsingu um stafræn réttindi

hvernig stemma megi stigu við auknum úrgangi

EFTA-umsögn um væntanlegar reglur um peningaþvætti

nýja skýrslu sem unnin var fyrir gervigreindarnefnd Evrópuþingsins

Einstaklingsbundin nálgun í stað svæðisbundinnar

Ráðherraráð Evrópusambandsins hefur gefið út endurskoðuð tilmæli um samræmdar sóttvarnaaðgerðir til að greiða fyrir frjálsri för innan Evrópu á tímum heimsfaraldursins. Reglurnar gengu í gildi 1. febrúar, sama dag og breyttar reglur um stafræna Covid-19 vottorðið þar sem nú er kveðið á um 9 mánaða gildi bólusetningar. Þetta þýðir að sá sem fékk seinni (eða eina) skammt bóluefnis í apríl 2021 eða fyrr er ekki lengur með gilt vottorð til ferðalaga nema hann hafi fengið örvunarskammt í millitíðinni.

Samkvæmt nýju tilmælunum eiga aðgerðir að miðast við stöðu einstaklingsins í stað stöðu þess svæðis sem hann kemur frá (e. person-based approach). Undantekning er þó ef komið er frá svæði þar sem smit breiðast mjög hratt út.

Vottorðin eiga að duga

Tilmælin þýða að sá sem er með gilt stafrænt Covid-19 vottorð á ekki að þurfa að sæta neinum takmörkunum á landamærum. Vottorðið fá þeir sem 1) eru fullbólusettir, enda séu ekki liðnir meira en 9 mánuðir frá því bólusetningu lauk, en gildi vottorðs framlengist ótímabundið 14 dögum eftir að menn hafa fengið örvunarskammt; 2) geta framvísað neikvæðu PCR-prófi sem tekið var í síðasta lagi 72 klst. fyrir brottför eða neikvæðu hraðprófi (antigen prófi) sem tekið var í síðasta lagi 24 klst. fyrir brottför; 3) eru með vottorð um fyrri sýkingu sem ber með sér að ekki hafa liðið meira en 180 dagar frá fyrsta jákvæða prófi.

Aðra má skylda til að gangast undir sýnatöku fyrir eða eftir komu. Það á þó ekki við um börn undir 12 ára og þá sem eru í nauðsynlegum erindagjörðum.

Litakortið

Þessi breyttu tilmæli þýða að litakort Evrópsku sóttvarnastofnunarinnar hefur minna vægi. Það sýnir stöðu faraldursins miðað við nýja mælikvarða þar sem tilkynnt smit síðustu 14 daga eru vegin með bólusetningarhlutfalli viðkomandi svæðis. Nýtt er að staða bólusetninga á viðkomandi svæði hefur vægi. Kortið verður þó áfram birt vikulega enda er gert ráð fyrir að sérstökum takmörkunum megi beita gagnvart þeim sem koma frá dökkrauðum svæðum. Þá skal ferðalöngum einnig ráðið frá því að ferðast til slíkra svæða.

Neyðarhemill

Reglur um svokallaðan neyðarhemil hafa einnig verið endurskoðaðar. Grípa má til sérstakra takmarkana ef fram koma ný afbrigði sem valda áhyggjum, en þær verður að endurskoða reglulega.

Ljóst er að núgildandi reglur á Íslandi, þar sem bólusetningarvottorð dugir ekki eitt og sér, eru töluvert frábrugðnar þessum endurskoðuðu tilmælum. Íslensk stjórnvöld eru aðilar að tilmælunum í þeim skilningi að þau tóku þátt í undirbúningi þeirra og gengið er út frá að þau gildi á öllu Schengen-svæðinu. Tilmælin eru hins vegar ekki lagalega bindandi.

Kjarnorka og gas viðurkenndir orkugjafar?

Í síðustu Vakt var fjallað um þá tillögu sem fram var komin af hálfu framkvæmdastjórnar ESB að kjarnorka og gas yrðu viðurkenndir grænir orkugjafar í skilningi taxonomy flokkunarkerfisins. Tillagan mætti mikilli gagnrýni fyrir að ganga of langt og sumir töluðu jafnvel um að óbreytt myndi hún eyðileggja orðspor ESB sem leiðandi aðila í umræðunni um umhverfis- og loftlagsmál á heimsvísu.

Síðastliðinn miðvikudag kynnti framkvæmdastjórnin hina umdeildu tillögu opinberlega, en hún hefur tekið þó nokkrum breytingum frá fyrstu útgáfu. Mairead McGuinness, framkvæmdastjóri á sviði fjármálaþjónustu, kynnti tillöguna. Hún sagði við það tækifæri að framkomin tillaga væri ekki fullkomin, en hún færði Evrópu nær markmiðinu um kolefnishlutleysi. Markmið breytinganna var að reyna að takmarka “græn”-flokkun þessara orkugjafa með því að binda hana við tiltekin skilyrði. Gagnrýnendur hennar segja nýja tillögu hafa gagnstæð áhrif; hún gangi lengra en upprunalega tillagan. Þá heyrist hugtakið “grænþvottur (e. greenwashing)” æ oftar í umræðunni um nýju tillöguna. Eftir kynningu hennar heyrðust t.d. eftirfarandi ummæli frá talsmanni Græningja: “I’d like to report an attempted robbery, please. Someone is trying to take billions of euros away from renewables and sink them into technologies that either do nothing to fight the climate crisis, like nuclear, or which actively make the problem worse, like fossil gas."

Rétt er að taka fram að framkvæmdastjórnin náði ekki samstöðu um framkomna tillögu. Austurríki hótar framkvæmdastjórninni jafnvel málsókn og sama má segja um Lúxemborg. Nýr kanslari Þýskalands, Olaf Scholz, bendir hins vegar á að ráðherraráðið hafi enn tíma til að komast að sameiginlegri niðurstöðu í málinu. Þess má geta að Þjóðverjar ná sínu fram varðandi notkun gass í aðlögunarferlinu samkvæmt tillögunni, en hafa hingað til verið svarnir andstæðingar þess að kjarnorkan verði talin græn. Mikil gagnrýni heima fyrir beinist nú að Scholz sem þykir ekki hafa staðið sig sem skyldi í málinu.

Þá virðist ríkja mikil óánægja með tillöguna í Evrópuþinginu sem á eftir að taka hana fyrir. Flestir eru þó á því að ekki takist að fella tillögu framkvæmdastjórnarinnar, en til þess að það gerist þurfa a.m.k. 20 aðildarríki með 65% af heildaríbúafjölda ESB að vera á móti henni. Þá þurfa 353 þingmenn af samtals 705 að vera á móti til að tillagan falli. Aðildarríkin sjálf og Evrópuþingið hafa til loka næstu viku til að gefa álit sitt á tillögunni, en áform framkvæmdastjórnarinnar eru þau að afgreiða hana fyrir lok febrúar.

Yfirlýsing um stafræn réttindi borgaranna

Þann 26. janúar kynnti framkvæmdastjórnin orðsendingu til Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB um tillögu að yfirlýsingu um réttindi borgaranna og meginreglur til leiðsagnar fyrir stafræna umbreytingu sambandsins. Stafræn umbreyting samfélagsins er eitt af sex forgangsverkefnum framkvæmdarstjórnarinnar 2019-2024.

Yfirlýsingin veitir hinu opinbera og fyrirtækjum leiðsögn við þróun nýrrar tækni og þjónustu. Réttindi, frelsi og evrópsk gildi sem liggja til grundvallar löggjöf ESB almennt skulu jafnrétthá í stafrænum heimi og utan hans. Jafnframt er henni ætlað að senda skýr skilaboð til alþjóðasamfélagsins um forsendur stafrænnar umbreytingar í Evrópu.

Réttindi og meginreglur á stafrænni öld

Helstu skilaboð yfirlýsingarinnar eru að fólk og réttindi þessi verði í fyrirrúmi við þróun stafrænna lausna, að stafrænar lausnir tryggi samheldni sambandsins með jöfnum aðgangi íbúa að þjónustu, valfrelsi á netinu sé tryggt, öryggi stafrænna lausna verði aukið, stafrænar lausnir styðji við vernd einstaklinga gagnvart ólögmætum aðgerðum, styðji við valdeflingu einstaklinga og stuðli að sjálfbærri stafrænni framtíð.

Nánar tiltekið setja drögin að yfirlýsingunni fram eftirfarandi megin markmið fyrir stafræna þróun og réttindi fyrir borgarana: háhraða netaðgangur á viðráðanlegu verði fyrir alla hvar sem er, aðgangur að vel búnum kennslustofum og kennurum með stafræna færni, aðgangur fyrir alla að opinberri þjónustu, öruggt stafrænt umhverfi fyrir börn, gagnsæjar upplýsingar um umhverfisáhrif stafrænna vara, skýr yfirráð yfir persónuupplýsingum, þ.m.t. hvort þær séu nýttar, af hverjum og hvar.

Yfirlýsingin á rætur sínar að rekja til sáttmála ESB um grundvallarréttindi borgaranna, dómaframkvæmd og reynslu af  evrópskri yfirlýsingu um félagsleg réttindi. Lagt er til að fylgst verði með framvindu markmiða yfirlýsingarinnar í ársskýrslu um "Stöðu stafræna áratugarins" og aðgerðir endurskoðaðar með hliðsjón af árangri.

Næstu skref

Drögin að yfirlýsingunni fara nú til meðferðar í Evrópuþinginu og ráðherraráðinu og búist er við að þau verði afgreidd í sumar.

Endurskoða þarf reglur um úrgang í takt við hringrásarhagkerfið

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur hafið samráðsferli vegna mögulegrar endurskoðunar á rammatilskipun um úrgang. Markmiðið er að draga úr úrgangi í takt við aðgerðaáætlun um hringrásarhagkerfið. Núgildandi markmið um samdrátt í úrgangsmyndun hafa ekki gengið eftir, úrgangsmyndun virðist bara hafa aukist. Gert er ráð fyrir að tillögur verði lagðar fram vorið 2023. Tilskipunin var síðast endurskoðuð árið 2018 og voru þær breytingar teknar upp í EES-samninginn 2021.

Því má bæta við að von er á tveimur tillögupökkum frá framkvæmdastjórninni á þessu ári er varðar hringrásarhagkerfið. Hinn 30. mars nk. er von á tillögupakka I (Circular economy package I). Þar verður m.a. að finna tillögu að stefnu um sjálfbærar vörur, m.a. endurskoðun reglugerðar um visthönnun (e. Sustainable products policy initiative, including a revision of the Ecodesign Directive), endurskoðun á reglugerð er varðar markaðssetningu byggingavara (e. Review of the Construction Product Regulation), áætlun er varðar sjálfbærni textíliðnaðar (e. Strategy on sustainable textiles) og valdeflingu neytenda til grænna umskipta (e. Empowering consumers for the green transitition).

Gert er ráð fyrir að tillögupakki II (Circular economy package II) verði lagður fram 20. júlí nk. Það sem verður í þeim pakka er rammastefna um meðhöndlun á lífgrunduðu, lífbrjótanlegu og niðurbrjótanlegu plasti (e. Policy framework for bio-based, biodegradable and compostable plastics), endurskoðun á tilskipun um umbúðir og umbúðarúrgang (e. Review of the Packaging and packaging waste directive to reinforce the essential requirements for packaging and establish EU level packaging waste prevention measures and targets) og endurskoðun á tilskipun er varðar meðhöndlun á fráveituvatni (e. Review of the Urban Wastewater Treatment directive).

Umsögn EFTA-ríkjanna um fyrirhugaða löggjöf um peningaþvætti

Hinn 24. janúar síðastliðinn sendu Ísland, Liechtenstein og Noregur frá sér sameiginlega EFTA-umsögn um fyrirliggjandi löggjafartillögur um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Í umsögninni er tillögunum almennt vel tekið en þær miði að því að styrkja regluverk á þessu sviði. Einnig sé jákvætt að tillögurnar nái nú til þess þegar rafmyntir ganga kaupum og sölum.

Lýst er stuðningi við þau áform framkvæmdastjórnar ESB að auka samstarf milli eftirlitsstjórnvalda. Hins vegar eigi að einskorða beint eftirlit á Evrópuvísu við þau tilvik þegar eftirlit á landsvísu hrekkur augljóslega of skammt. Þá koma fram áhyggjur af stjórnskipulagi nýrrar eftirlitsstofnunar á sviði peningaþvættis (AMLA). Finna þurfi leiðir til að EFTA-ríkin geti tekið þar þátt í störfum í samræmi við tveggja stoða kerfið.

Stjórnskipun hins stafræna þjóðfélags í mótun: Huga þarf að samræmi og einföldun

Grundvallarlöggjöf sem varðar ýmsar hliðar stafrænnar umbyltingar er nú til meðferðar hjá Evrópusambandinu. Sérstök þingnefnd Evrópuþingsins sem fjallar um gervigreind fékk óháða sérfræðinga til að gera úttekt á samspili þessara mismunandi tillagna. Samanlagt er um nokkurs konar stjórnarskrá hins starfræna þjóðfélags að ræða sem mun hafa áhrif langt út fyrir landamæri Evrópusambandsins. Í skýrslunni er gefið yfirlit yfir allar löggjafartillögur á þessu sviði og þær settar í samhengi við gildandi rétt. Ein af niðurstöðunum er að töluvert vanti upp á heildarsamræmi og flækjustigið sé einnig óþarflega hátt.

Brussel-vaktin er gefin út af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Vaktin kemur út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

21. janúar 2022 | Franska formennskan sýnir á spilin |
Að þessu sinni er fjallað um:

óformlegan ráðherrafund heilbrigðisráðherra

kosningu nýs forseta Evrópuþingsins

þéttara samstarf háskóla

fjórða samgöngupakkann

janúarfund fjármála- og efnahagsráðherra

flokkun á gasi og kjarnorku

samráð um fjölmiðlafrelsi

ráðherrafund um landbúnað og sjávarútveg

Rætt um 4. bólusetninguna

Á óformlegum fundi heilbrigðisráðherra ESB-ríkja sem Frakkar stýrðu í dag, föstudaginn 21. janúar, var meðal annars rætt um afstöðu til 4. bólusetningar vegna Covid-19. Fram kom að meirihluti ríkja er ekki kominn á þann stað að hafa tekið slíka ákvörðun fyrir allan almenning. Menn vilja bíða og sjá hverju fram vindur og sjá vísindaleg gögn, m.a. um áhrif gegn ómíkron afbrigðinu, áður en slík ákvörðun er tekin. Flestir eru nú uppteknir við að koma 3ju sprautunni til almennings. Síðan eru einhver ríki, aðallega í Austur-Evrópu, enn að reyna að ná ásættanlegum árangri varðandi fyrstu tvær sprauturnar.

Skýrt kom fram að bólusetning sé virkasta aðgerðin gegn Covid-19. Að meðaltali hafa um 40% manna fengið örvunarskammt (3ja skammt) á EES-svæðinu skv. upplýsingum frá Evrópsku sóttvarnastofnuninni (ECDC).

Staðan er nokkuð misjöfn hvað faraldurinn varðar í aðildarríkjunum. Þar sem núverandi bylgja er lengst komin eru ríki byrjuð að aflétta aðgerðum að nýju. Heilt yfir gildir þó að hvatt er til grímunotkunar, fjarlægðarmarka þar sem því verður komið við, vinnu að heiman o.s.frv.

Víðast hvar hefur tímalengd sóttkvíar og einangrunar verið stytt og þá með hliðsjón af leiðbeiningum ECDC. Þríbólusettir einstaklingar njóta víða enn frekar góðs af styttingu sóttkvíar og einangrunar.

Nýr forseti Evrópuþingsins

Roberta Metsola var í vikunni kjörin forseti Evrópuþingsins. Hún er hægri sinnaður lögfræðingur frá Möltu og fyrsta konan til að gegna þessu embætti í 20 ár. Metsola sem fagnaði 43 ára afmælisdegi á kjördag, 18. janúar, er einnig yngsti forseti Evrópuþingsins til þessa.

Metsola var kjörin til setu á Evrópuþinginu 2013 en gegndi áður störfum í utanríkisþjónustu Möltu og hjá framkvæmdastjórn ESB. Hún er fjögurra barna móðir og segist vera af Erasmus-kynslóðinni en hún lauk meðal annars meistaragráðu við College of Europe í Brugge.

Hún er kjörin til tveggja og hálfs árs í samræmi við samkomulag stærri flokkabandalaga á þinginu.

Fyrrverandi forseti þingsins, David Sassoli, féll frá fyrir aldur fram í síðustu viku. Til stóð að hann léti af störfum í þessari viku og var Metsola talin líklegasti arftaki hans.

Stærstu flokkarnir á Evrópuþinginu sneru saman bökum í kosningunni. Er þar um að ræða European People´s Party (EPP), sósíalista og demókrata og miðjuflokk sem kennir sig við endurnýjun og stendur nærri Macron Frakklandsforseta. Hlaut Metsola 458 atkvæði af 690.

Það sem helst var talið geta unnið gegn Metsola við kosninguna var andstaða hennar við þungunarrof. Malta er eina ESB-ríkið þar sem fóstureyðingar eru alfarið bannaðar. Hún róaði þó ýmsa í aðdraganda kosningarinnar með því að heita því að standa vörð um afstöðu Evrópuþingsins í því máli frekar en eigin persónulegar skoðanir. Evrópuþingið hafi ítrekað hvatt til aukinna réttinda á þessu sviði. Þannig hefði hún nýverið, sem varaforseti þingsins, komið fordæmingu þess á framfæri í garð pólskra stjórnvalda vegna löggjafar sem beinist gegn fóstureyðingum.

Eftir því var tekið að þegar Emmanuel Macron Frakklandsforseti ávarpaði Evrópuþingið daginn eftir kjör Metsola lagði hann m.a. sérstaka áherslu á rétt til fóstureyðinga sem væri mannréttindi sem ættu heima í grundvallarlöggjöf Evrópusambandsins.

Þéttara samstarf háskóla í Evrópu

Framkvæmdastjórn EBS birti í vikunni evrópska stefnu fyrir háskóla (e. Commission Communication on a European strategy for universities )og tillögu að tilmælum ráðsins um árangursríkt samstarf háskóla í Evrópu (e. Commission proposal for a Council Recommendation on building bridges for effective European higher education cooperation).

Með stefnunni og tillögunni vill framkvæmdastjórnin stuðla að þéttara, skilvirkara og sjálfbærara samstarfi háskólastofnana í Evrópu. Bent er á að Evrópa þurfi meira á framlagi háskóla að halda nú en nokkru sinni. Á það sérstaklega við þegar horft er til þeirra stóru samfélagslegu áskorana sem við stöndum frammi fyrir, t.d. í loftslagsmálum og stafrænum málum, á sama tíma og þjóðir kljást við stærsta heimsfaraldur í heila öld og þær efnahagslegu afleiðingar sem honum fylgja. Sérstaða háskóla er mikil þegar kemur að því að vinna að lausnum að þessum stærstu áskorunum því í háskólunum mætast menntun, rannsóknir og nýsköpun.

Tilgangurinn með evrópskri stefnu fyrir háskóla er að styðja við og gera öllum háskólum í Evrópu kleift að aðlagast breyttum aðstæðum, auka drifkraft þeirra og hæfni og stuðla þannig að aukinni seiglu álfunnar til uppbyggingar að nýju að loknum heimsfaraldri og takast á við áskoranir framtíðarinnar. Stefnan er byggð á niðurstöðum Bologna ferlisins og reynslunni af fyrstu samstarfsnetum evrópskra háskóla (e. European Universities Initiative).

Í stefnunni eru settar fram aðgerðir sem eiga að styðja háskóla til þess að ná fjórum megin markmiðum:
- efla evrópska vídd háskóla og vísinda
- styðja við háskóla sem hreyfiafl evrópskra lífshátta (e. „Consolidate universities as lighthouses for our European way of life.“)
- styrkja háskóla í hlutverki þeirra sem lykilaðila í stafrænu og grænu umbreytingunum
- styðja við háskóla sem hreyfiafl fyrir hlutverk og forystu ESB á alþjóðavettvangi.

Þessum markmiðum á að ná með framkvæmd nokkurra lykilverkefna:

Fjölga samstarfsnetum evrópskra háskóla í 60 með þátttöku allt að 500 háskólastofnana árið 2024. Samstarfsnetin eru nú 41 talsins og á Háskóli Íslands aðild að einu þeirra.

Koma á reglugerð fyrir samstarfsnet háskóla sem gerir þeim kleift að fara í sameiginlega stefnumótun, sameina fjármuni og önnur aðföng. Á þessu ári verður tilraunaverkefni hleypt af stokkunum undir Erasmus+ áætluninni til undirbúnings en stefnt er að því að reglugerðin verði tilbúin um mitt ár 2024.

Koma á evrópskri námsgráðu á landsvísu um mitt ár 2024. Með gráðunni á að viðurkenna virði fjölþjóðlegrar háskólamenntunar og minnka skriffinnsku við að koma á fót sameiginlegum námsbrautum.

Efla og auka notkun rafræna evrópska nemendaskírteinisins (e. European Student Card). Um er að ræða smáforrit þar sem nemendur geta sinnt allri umsýslu vegna skiptináms síns, fyrir dvölina, á meðan henni stendur og eftir að henni lýkur. Meðal annars er stefnt að því að þróa sérstakt auðkenni fyrir hvern nemanda fyrir mitt ár 2024.

Reglugerðin fyrir samstarfsnet háskóla og evrópska námsgráðan eru umdeildar aðgerðir hjá mörgum aðildarríkja ESB og því ekki útséð með framkvæmd og innleiðingu þeirra.

Í tillögu að tilmælum ráðsins um árangursríkt samstarf háskóla í Evrópu er aðildarríkin hvött til að grípa til aðgerða og skapa viðeigandi aðstæður á landsvísu til þess að geta betur staðið að fjölþjóðlegu samstarfi á háskólastigi og árangursríkari innleiðingu evrópska menntasvæðisins.

Í þessu samhengi eru settar fram ýmsar tillögur fyrir aðildarríkin. Þar á meðal að styðja háskóla til þess að skoða mögulega útfærslu reglugerðar um samstarfsnet evrópskra háskóla, auðvelda háskólum að bjóða upp á sameiginlegar námsbrautir og sameiginlegar evrópskar námsgráður og styðja við aukinn hreyfanleika nemenda í fjölþjóðlegum námsbrautum. Þá er lagt til að aukinn fjárhagslegur stuðningur verði settur í samstarfsnet evrópskra háskóla, að standa áframhaldandi vörð um akademískt frelsi og sjálfstæði háskóla og tryggja innleiðingu „European Approach for the Quality Assurance of Joint Programmes.“

Stefnan og tillagan að tilmælunum eiga að styðja við markmið ESB um að koma evrópska menntasvæðinu á fót árið 2025 og tryggja frekari samlegð milli evrópska rannsóknasvæðisins (ERA) og evrópska háskólasvæðisins (EHEA).

Frakkar, sem fara með formennsku í ráðinu, stefna að því að fjalla um og fá samþykkt þessi skjöl á fundi ráðsins sem fram fer þann 4.-5. apríl næstkomandi. Þá er vert að benda á að þessi mál verða til umfjöllunar á óformlegum fundi ráðherra háskóla og vísinda í París þann 26. janúar en Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir sækir fundinn fyrir Íslands hönd.

Orðsending framkvæmdastjórnar ESB um evrópska stefnu fyrir háskóla

Tillaga að tilmælum ráðsins um árangursríkt samstarf háskóla í Evrópu

Fréttatilkynning framvkæmdastjórnar ESB

Framkvæmdastjórnin leggur fram fjórða samgöngupakkann

Um miðjan desember sl. birti framkvæmdastjórn ESB nýjan samgöngupakka (e. mobility package). Tillögunum er ætlað að styðja við umbreytingu í hreinar, grænar og snjallar samgöngur í samræmi við markmið græna sáttmálans. Lagt er til að það verði gert með því að styrkja lestarsamgöngur um lengri leiðir og yfir landamæri, nýta stafræna tækni í samgöngum, byggja upp orkustöðvar fyrir vistvænt eldsneyti, vinna að skilvirkari bókunar- og ferðaáætlunarkerfum fyrir ferðir (e. multimodal) með ýmsum samgöngumáta og stuðla að sjálfbærum borgarsamgöngum. Í pakkanum eru þrjár orsendingar sem innihalda stefnumörkun og aðgerðaáætlanir um:

tengingu samevrópska flutninganetsins TEN-T við flutninganet nágrannaríkja ESB.

eflingu járnbrautarsamgangna fyrir lengri leiðir (e. long distance) og yfir landamæri.

nýja rammaáætlun um samgöngur í þéttbýli.

Í pakkanum eru einnig tvær tillögur að eftirfarandi gerðum:

nýrri reglugerð um leiðbeinandi reglur fyrir uppbyggingu samevrópska flutninganetsins TEN-T sem komi í stað fyrri reglugerðar auk breytinga á tveimur fyrirliggjandi reglugerðum.

tilskipun um breytingar á tilskipun um snjallar vegasamgöngur og tengingar við aðra samgöngumáta.

Fram kemur í orðsendingunni um tengingu evrópska flutninganetsins við nágrannaríki að framkvæmdastjórnin muni vinna að því að hraða uppbyggingu samgönguinnviða sem tengja það við nágrannaríki sambandsins, s.s. vegi og hafnir, og endurnýjun þeirra með hliðsjón af stöðlum evrópska flutninganetsins. Sömuleiðis verði unnið að því að eyða flöskuhálsum í netinu, innleiddar stafrænar lausnir, unnið að uppbyggingu 5G við netið og yfirfærslu á fyrirliggjandi upplýsingakerfum sambandsins yfir landamæri og stuðlað að skilvirkari tengingum á milli samgöngumáta.

Í orðsendingu um borgarsamgöngur eru boðaðar fjöldamargar aðgerðir sem miða að því að tengja betur evrópska flutningakerfið við samgöngukerfi borga, boðaður er stuðningur og reglur um eflingu upplýsingamiðlunar um samgöngur í borgum á milli rekstraraðila og til notenda og fjallað um væntanlegar aðgerðir sem stuðla að umhverfisvænum borgarsamgöngum. Loks eru boðaðar tillögur að leiðbeiningum (e. guidance) um leigubíla og hliðstæða þjónustu (e. on demand).

Í stefnumörkun um eflingu járnbrautarsamgangna yfir landamæri eru boðaðar margvíslegar aðgerðir og fjárfestingar í lestarsamgöngum sem miða við að byggja fleiri háhraðatengingar innan Evrópu, stytta ferðatíma og fjölga tengingum við aðra samgöngumáta og gera þær skilvirkari.

Tillaga að reglugerð um breytt viðmið fyrir evrópska flutninganetið miðar að því að draga úr teppum í samgöngukerfinu m.a. með því að beina flutningum á umhverfisvæna flutningamáta, s.s. járnbrautir og vatnaleiðir. Einnig að stuðla að aukinni skilvirkni og betri tengingum við samgöngukerfi sveitarfélaga. Þá er stefnt að því að stuðla að auknu áfallaþoli flutninganetsins og loks að styrkja stjórnarhætti fyrir netið t.d. með bættu eftirliti og skýrslugjöf.

Markmið tillögu að tilskipun um breytingu á tilskipun um snjallar vegasamgöngur er að leysa úr ýmsum hnökrum sem komið hafa upp og standa í vegi fyrir skilvirkri nýtingu stafrænna kerfa fyrir samgöngur. Í gerðinni eru ákvæði sem ætlað er að stuðla að auknu framboðsöryggi og samhæfingu upplýsingakerfa, aukinni samvinnu haghafa og greiða fyrir miðlun gagna fyrir upplýsingakerfi á milli rekstraraðila og haghafa.

Lágmarkstekjuskattur á alþjóðleg stórfyrirtæki

Undanfari janúarfundar hjá fjármála- og efnahagshagsráðherrum ESB var sérstakur fundur evruríkjanna þann 17. janúar um stöðu efnahagsmála á evrusvæðinu í alþjóðlegu samhengi. Á fundinum var einnig aðalhagfræðingur OECD til skrafs og ráðagerða. Eins og við var að búast var mikið rætt um efnahagsleg áhrif Covid veirunnar á atvinnulífið, einkum þó á fyrirtækin. Þar þarf að eiga sér stað uppstokkun (e. corporate restructuring) samhliða aðstoð gagnvart greiðsluhæfi þeirra (e. solvency situation) eigi þau að eiga sér viðreisnar von. Mikil verðbólga á evrusvæðinu var einnig rædd og virðast flestir á þeirri skoðun að hún verði meiri en spár gera ráð fyrir. Sömuleiðis fór fram mikil umræða um fjármálareglur ESB (e. economic governance or fiscal framework) séð frá sjónarhóli evruríkjanna sem var einnig á dagskrá ráðherrafundarins daginn eftir

Fundur fjármála- og efnahagshagsráðherra ESB. Þetta var fyrsti fundur ráðherranna undir stjórn Frakka sem tóku við formennskunni af Slóvenum um nýliðin áramót. Drjúgur hluti fundarins fór því í að kynna áherslumál frönsku formennskunnar næstu mánuði. Eftirfarandi inngangsorð Bruno Le Maire, fjármála- og efnahagsráðherra Frakklands, lýsa í stórum dráttum þeirra sýn á stöðuna í Evrópu:

“Europe has managed to bounce back from the worst economic crisis since 1929. We took the right action at the right time. However, the crisis showed us that it is necessary to build a new economic model, based on strategic autonomy. What kind of Europe do we want to build? We want an independent Europe that is capable of defending its values, promoting investment in innovation and key technologies, and protecting the environment. We want to build a new model based on sustainable growth.”

Lágmarkstekjuskattur á alþjóðleg stórfyrirtæki. Eftir kynningu Frakka var komið að því að ræða eitt af aðaláherslumálum þeirra sem er 15% lágmarksskattlagning á hagnað fyrirtækja, gjarnan nefnd Pillar 2, því hér er í raun um tvískipta skattlagningu að ræða. Sérstakt gjald, þekkt undir heitinu Pillar 1, er hinn hlutinn af þessu tveggja stoða kerfi sem OECD gerði tillögu um síðastliðið haust. Að baki stendur það markmið að tryggja að alþjóðafyrirtæki og tæknirisar (e. multinationals and tech giants) borgi það sem þeim ber í skatt. Rétt er að taka fram að tillaga OECD um 15% lágmarkskatt tekur einungis til fyrirtækja sem eru með tekjur umfram 750 milljónir evra sem svarar til 110 milljarða króna. Í lok október 2021 samþykktu G20 ríkin einróma tillögu OECD.

Til frekari skýringa má nefna að Pillar 1 skatturinn er hugsaður sem alþjóðaskattlagning þar sem þátttökuríkin munu skipta milli sín tekjum af honum (e. International Tax Agreement). Tekjur ESB ríkjanna af skattinum munu síðan renna í Bjargráðasjóðinn sem áður hefur verið fjallað um í Vaktinni. Talið er að heildarskatturinn nemi um 125 milljörðum dollurum en ESB ríkin eiga einungis lítinn hluta af þeirri fjárhæð. Sum aðildaríkin, m.a. Eistland með sitt einfalda skattkerfi, hefur gagnrýnt þessa tillögu, vegna þess að hún geri ekkert annað en að flækja fyrirtækjaskattlagninguna. Pillar 2 þarf hins vegar að lögfesta með tilskipun (e. Directive) sem öll aðildarríkin þurfa að samþykkja þar sem um er að ræða skattamál.

Fyrir ráðherrafundinum lá tillaga frá framkvæmdastjórninni um útfærslu á fyrrgreindri skattlagningu til samþykktar. Í umræðunni um málið urðu Frakkar, sem eru með það á forgangslista sínum, fyrir fyrsta áfallinu í formannstíð sinni. Þrjú ríki, Eistland, Ungverjaland og Pólland, lýstu yfir andstöðu við málið þrátt fyrir að hafa samþykkt það þegar málið var afgreitt hjá OECD Þær raddir heyrast að Ungverjar hafi tekið málið í gíslingu vegna þess hversu erfiðlega gengur fyrir þá að fá “sinn hlut” úr Bjargráðasjóðnum og að Pólland sé að sýna þeim samstöðu. Eistland hafði þegar lýst yfir áhyggjum sínum af flóknu skattkerfi á vettvangi OECD, en samþykkti tillöguna með semingi á lokametrunum. Málið er því komið í ákveðna pattstöðu, en áðurnefnd skattlagning átti að taka gildi 1. janúar 2023. Að lokum má nefna að kolefnisskattlagning yfir landamæri (e. CBAM) er einnig eitt af forgangsmálum Frakka. Í næstu Vakt verður fjallað sérstaklega um áherslur Frakka í skattamálum ESB.

Lagabreytingar tengdar fjármálamarkaði voru einnig ræddar á fundinum, en Frakkar leggja mikið uppúr að að styrkja viðnám evrópska bankageirans, auk þess að efla eftirlit hans og áhættustýringu. Þá er baráttan og auknar varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (e. anti-money laundering and financing of terrorism) líka ofarlega á blaði hjá þeim. Ekki kom fram hvort rætt hafi verið sérstaklega um fyrirhugaðar breytingar á svokallaðri „Taxonomy“ reglugerð, þar sem Frakkar hafa barist fyrir að kjarnorka verði stimpluð sem græn orka, sbr. umfjöllun hér á eftir.

Efnahagsbati og breyttar fjármálareglur ESB. Á blaðamannafundi að loknum ráðherrafundinum lýsti Bruno Le Maire ásamt Valdis Dombrovkis hvað helst hefði verið rætt undir þessum dagskrárlið. Hann sagði að þrátt fyrir góðan efnahagsbata undanfarna mánuði væri enn blikur á lofti. Í fyrsta lagi væri enn ekki séð fyrir endann á Covid19, í öðru lagi væri hægur efnahagsvöxtur í Kína og í þriðja lagi of mikil verðbólga sem ekki sæi fyrir endann á. Þá nefndi hann að samtals 20 aðildarríki ESB hefðu þegar fengið greiðslur úr Bjargráðasjóðnum og fleiri myndu bætast við alveg á næstunni. Spurður um endurskoðun á fjármálareglunum (e. Stability Pact or Fiscal Rules) sagði hann stefnuna vera að ljúka henni fyrir árið 2026. Vinnan væri þegar hafin en hér þyrfti að vanda vel til verka. Finna þyrfti eðlilegt jafnvægi milli aukinna fjárfestinga, sem væru nauðsynlegar, og heilbrigðrar stöðu í opinberum fjármálum (e. healthy public finance) í aðildarríkjunum með raunsæi að leiðarljósi. Öllum væri ljóst að skuldastaðan væri þegar of há og því þyrfti að breyta. Hér þyrftu aðildarríkin að komast að sameiginlegri niðurstöðu (e. common grounds). Í máli hans kom einnig fram að ýmis hugtök eða mælikvarðar í fjármálareglunum eins og t.d. „structural balance“ væru orðnir úreltir. Nær væri að horfa á útgjöld hins opinbera og greiningu þeirra við endurskoðun fjármálareglnanna. Í þessu samhengi nefndi hann „New Growth Model for EU“. Fróðlegt verður að fylgjast með hvernig þessi mál þróast í formennskutíð Frakka.

Flokkun á gasi og kjarnorku

Um áramótin gaf framkvæmdastjórn ESB út hvert stefndi varðandi flokkun á orkugjöfunum gasi og kjarnorku frá sjónarhóli sjálfbærrar fjármögnunar (e. taxonomy). Í ljósi vísindalegrar ráðgjafar og stöðunnar í mismunandi aðildarríkjum þá telur framkvæmdastjórnin að jarðgas og kjarnorka hafi hlutverki að gegna við að auðvelda umbreytingu í átt að framtíð þar sem endurnýjanlegir orkugjafar ráða för. Gas og kjarnorka verði sem sagt litin með velþóknun að vissum skilyrðum uppfylltum.

Endanleg afstaða framkvæmdastjórnarinnar í þessu efni mun skýrast síðar í mánuðinum að loknu samráði um þessa afstöðu.

Eins og fyrr hefur verið nefnt eru Frakkar helstu bandamenn þess að kjarnorka verði samþykkt sem grænn orkugjafi til jafns við t.d. jarðvarma eða vatnsorku. Hafin er heiftúðug umræða um ágæti tillögu framkvæmdastjórnarinnar þar sem sitt sýnist hverjum. Á meðfylgjandi slóð úr Politico má finna ágætis sýnishorn af umræðunni um málið. https://www.politico.eu/article/the-eus-taxonomy-tussle/. Nathan Fabian, formaður ráðgjafarvettvangs framkvæmdastjórarinnar um málefnið, er til dæmis ekki sáttur við tillöguna.

Samráð um fjölmiðlafrelsi

Framkvæmdastjórn ESB hleypti í ársbyrjun af stokkunum samráði um fyrirhugaða löggjöf um fjölmiðlafrelsi. Kallað er eftir sjónarmiðum um mikilvægustu málefnin sem varði fjölmiðla á innri markaðnum. Bæði þar horft til efnahagslegrar þróunar og afkomu fjölmiðla og hindrana sem þeir verða fyrir í starfi sínu. Ekki er enn ljóst hvert verður meginefni fyrirhugaðrar löggjafar framkvæmdastjórnin er nú að safna upplýsingum um hvar helst sé talin þörf á íhlutun ESB í formi reglusetningar á þessu mikilvæga sviði.

Ráðherrafundur um landbúnað og sjávarútveg

Á ráðherrafundi 17. janúar sl. kynnti landbúnaðarráðherra Frakklands áherslur í formennskutíð Frakka á þessu sviði. Eitt meginefnið verður hvernig tryggja megi að afurðir sem fluttar eru inn uppfylli kröfur ESB á sviði umhverfis og heilbrigðismála. Þar er m.a. vísað til þess að landbúnaður hafi sem minnst kolefnisspor og að notkun lyfja sé takmörkuð. Á sviði sjávarútvegsmála verður áhersla á endurskoðun reglna um eftirlit með fiskveiðum auk þess sem efnt verður til almennrar umræðu um sameiginlegu evrópsku sjávarútvegsstefnuna og framkvæmd hennar.

Brussel-vaktin er gefin út af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Vaktin kemur út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

23. desember 2021 | Jól í skugga omicron |
Að þessu sinni er fjallað um:

jólahald í skugga nýs afbrigðis veirunnar

gildistíma bólusetningarvottorða

tillögur að breytingum á Schengen-reglum

stöðuna varðandi loftslagsmál í árslok

Betra að hafa vaðið fyrir neðan sig

Þrátt fyrir miklar umræður og skoðanaskipti undanfarnar vikur náðist ekki samstaða innan vébanda Evrópusambandsins um hertar aðgerðir á landamærum vegna omicron afbrigðis veirunnar. Þótt sérfræðingar sóttvarnastofnunar Evrópu og framkvæmdastjórn ESB legðu til að almennt yrði gerð krafa um PCR-vottorð fyrir brottför töldu mörg aðildarríkin að þar með væri fótum kippt undan ferðafrelsi sem þó væri takmarkað við núverandi aðstæður. Að auki væri mikilvægt að draga ekki úr hvata til bólusetningar en hingað til hefur hún dugað í stórum dráttum til að geta ferðast um EES-svæðið án frekari skilmála.

Umræðu um útfærslu á svokallaðri neyðarbremsu vegna nýja afbrigðisins hefur því verið slegið á frest. Sama á við um breytingar á tilmælum ráðherraráðs Evrópusambandsins um för yfir innri landamæri annars vegar og ytri landamæri hins vegar.

Staðan er því sú að á landamærum haga ríkin hlutunum hvert með sínum hætti. Írar gengu snemma hvað lengst og gerðu kröfu um að allir komufarþegar hefðu neikvætt próf meðferðis og tækju að auki daglega heimapróf í 5 daga eftir komuna.

Innanlands hafa mörg ríki einnig gripið til hertra aðgerða vegna nýrrar bylgju sem farin er að rísa vegna omicron afbrigðisins. Hollendingar, sem hingað til hafa verið frjálslyndari en margir aðrir, gengu nú hvað lengst og lokuðu öllum veitingahúsum fram í miðjan janúar. Á Spáni, þar sem bólusetning hefur gengið afbragðs vel, var samt ákveðið að allir skyldu vera með grímur á almannafæri. Hraðastur hefur vöxtur smita verið í Danmörku og þar hafa orðið alger umskipti í aðgerðum stjórnvalda frá því lýst var yfir í haust að Covid 19 væri ekki lengur samfélagsleg ógn.

Hveitibrauðsdagar nýju stjórnarinnar í Þýskalandi stóðu ekki lengi. Þar þurfti strax að takast á við erfiðar ákvarðanir um aðgerðir. Niðurstaðan varð herðing aðgerða en þó ekki fyrr en eftir jól!

Viðbrögð stjórnvalda markast að sjálfsögðu af því að óvissan er mikil um eiginleika omicron. Fyrstu áreiðanlegu tölur eru þó farnar að berast frá Suður-Afríku, þar sem omicron greindist fyrst, og Bretlandi, sem varð fyrst Evrópuríkja fyrir barðinu á afbrigðinu. Þar eru jákvæð teikn um að þótt bylgjan rísi hratt þá hnígi hún líka fljótt. Eins virðast veikindi síður alvarleg en í fyrri bylgjum.

Bólusetningarvottorð gilda í 9 mánuði

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur gefið út nýjar reglur sem fela í sér að bólusetningarvottorð gilda í 9 mánuði ef þau eru notuð á ferðalögum milli landa. Þegar reglur voru settar sl. sumar um samræmd Covid-19 vottorð var ekki kveðið sérsaklega á um gildistíma bólusetningar. Síðan hafa komið fram áreiðanlegar upplýsingar um að áhrif bólusetningar dvína eftir u.þ.b. 6 mánuði. Til þess að gefa svigrúm fyrir einstaklinga að nálgast örvunarskammt varð niðurstaðan sú að miða við 9 mánuði. Þar að auki mun breytingin nú ekki taka gildi fyrr en 1. febrúar næstkomandi.

Ekki hefur verið fastákveðinn gildistími fyrir örvunarbólusetningu enda liggur ekki enn fyrir hvenær áhrif hennar fjara út.

Tekið mið af farsóttarreynslu við endurskoðun Schengen-reglna

Hinn 14. desember 2021 lagði framkvæmdarstjórn ESB fram tillögu að uppfærðri reglugerð um för yfir landamæri (e. Schengen Borders Code). Breytingunum er ætlað að auðvelda aðildarríkjum að takast á við nýjar áskoranir þegar kemur að eftirliti, jafnt á ytri sem og innri landamærum Schengen svæðisins. Með tillögunni er leitast við að tryggja að upptaka eftirlits á innri landamærum verði einungis þrautavaraúrræði. Í tillögunni má einnig finna nýjar heimildir til að styrkja stjórn á ytri landamærum Schengen svæðisins, standi aðildarríki frammi fyrir ógn gegn almannaheilbrigði. Þar er byggt á þeirri reynslu sem hefur skapast vegna Covid 19.

Auk tillögu að breytingum á Schengen Borders Code leggur framkvæmdarstjórnin fram viðbótartillögu að reglugerð um hvernig bregðast megi við misnotkun á farandfólki í pólitískum tilgangi (e. Regulation on situations of instrumentalization in the field of migration and asylum) og er þar vísað til nýlegrar stöðu á landamærum Póllands og Hvíta-Rússlands. Umrædd reglugerð er ekki talin þróun á Schengen samstarfinu en talin ákvæðum Schengen Borders Code til fyllingar í þessum tilteknu aðstæðum.

Helstu fyrirhugaðar breytingar á Schengen reglunum eru þessar:

Standi aðildarríki frammi fyrir ógn gegn almannaheilbrigði fær ráðið heimild til setja bindandi reglur með skjótum hætti um tímabundnar takmarkanir á ónauðsynlegum ferðum yfir ytri landamæri svæðisins.

Nýr „Schengen safeguard mechanism“ kynntur til leiks sem mun heimila aðildarríkjum að bregðast við, með samræmdum hætti, þegar kemur að upptöku eftirlits á innri landamærum standi meirihluti aðildarríkja frammi fyrir sameiginlegri ógn.

Ríkari kröfur verða gerðar til aðildarríkja við gerð áhrifamats og skýrsluskila tilkynni þau um áframhaldandi upptöku eftirlits á innri landamærum.

Auka á heimild til eftirlits lögreglu (e. police checks) á landamærastöðvum og er þar vísað til heimildar í nýrri reglugerð um lögreglusamvinnu (e. Police Cooperation Code).

Takast á við ólögmæta för einstaklinga innan svæðisins með ríkari lögreglusamvinnu á milli aðildarríkja auk þess sem aðildarríki fá auknar heimildir við gerð tvíhliða endurviðtökusamninga sín á milli.

Fyrirvörum gagnvart nýja loftslagspakkanum fer fækkandi

Fundur umhverfisráðherra ríkja ESB var haldinn í Brussel 20. desember sl. Dagskrá fundarins var fjölbreytt en þau þrjú mál sem upp úr stóðu og rædd voru á fundinum eru tillögupakki framkvæmdastjórnar ESB „Fit for 55“ sem kom út í júlí sl., tillaga að reglugerð er varðar meðhöndlun rafhlaða, sem framkvæmdastjórn ESB lagði fram í desember 2020, og jarðvegsáætlun ESB til ársins 2030 (e. EU Soil strategy) sem framkvæmdastjórn ESB gaf út 17. nóvember sl.

„Fit for 55“

Í umræðum um „Fit for 55“ pakkann var farið almennt yfir stöðu á vinnu við tillögurnar í ráðinu. Áhersla var á endurskoðun ETS tilskipunar sambandsins (viðskipti með losunarheimildir), endurskoðun ESR reglugerðar (e. Effort sharing regulation), endurskoðun LULUCF reglugerðar og endurskoðun á reglugerð um staðla er varða losun CO2 frá bifreiðum (e. Setting CO2 emission performance standards for new passenger cars and for new light commercial vehicles). Einnig var fjallað um reglugerð sambandsins er varðar stofnun á „Social Climate Fund“.

Slóvenska formennskan hefur nýlega gefið út skýrslu um stöðu umfjöllunar á „Fit for 55“ í ráðinu. Ríkin voru á fundinum almennt sammála um að hraða þyrfti umræðum um tillögurnar í ráðinu. Fjallað var um innbyrðis tengingu tillagnanna og um hversu mikið ríkin þyrftu að leggja af mörkum til umræðna um þær til að skila árangri. Fram kom að taka þyrfti tillit til mismunandi stöðu aðildarríkja sambandsins og lögðu ráðherrarnir áherslu á mikilvægi réttlátrar umbreytingar (e. just transition). Ráðherrarnir létu einnig í ljós skoðanir sínar á því hvað þeir telja vera viðkvæmasta hluta tillagnanna. Ljóst er að sum ríki hafa áhyggjur af nýju ETS-kerfi er varðar vegasamgöngur og byggingar sem framkvæmdastjórn ESB hyggst setja á fót. Áhyggjurnar snúa að íþyngjandi áhrifum á almenning. Á blaðamannafundi sem haldinn var í kjölfar fundarins benti umhverfisráðherra Slóveníu á að ef taka eigi eitthvað út úr tillögupakkanum þá verði eitthvað annað að koma í staðinn. Einnig benti hann á að aðildarríkin væru orðin meðvitaðri um mikilvægi tillögupakkans í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og að fækkað hefði þeim fyrirvörum sem ríkin hefðu haft gagnvart pakkanum.

Reglugerð er varðar meðhöndlun rafhlaða

Reglugerðin er ein af lykilgerðum er varðar umskipti í hreinorku en búist er við mikilli framleiðsluaukningu á rafhlöðum fyrir árið 2023. Á ráðherrafundinum kynnti slóvenska formennskan skýrslu um framvindu viðræðna í ráðinu um tillöguna.

Í skýrslunni er að finna samantekt á þeirri umfjöllun sem farið hefur fram í tíð slóvensku formennskunnar og tiltekin þau atriði sem kalla á frekari umræður. Ráðherrarnir lögðu áherslu á að reglugerðin yrði sveigjanleg hvað varðar meðferð á úrgangsrafhlöðum og að reglugerðin yrði samþykkt sem fyrst. Fram kom í máli Virginijus Sinkevicius úr framkvæmdastjórn ESB á blaðamannafundi eftir ráðherrafundinn að hann væri bjartsýnn á að þríhliða viðræður framkvæmdastjórnar, ráðsins og þingsins gætu hafist í vor. Hann benti einnig á mikilvægi reglnanna fyrir einkageirann þar sem þeim væri ætlað að jafna aðstöðumun og samkeppnisstöðu fyrirtækja á rafhlöðumarkaði innan aðildarríkja ESB.

Jarðvegsáætlun ESB til ársins 2030

Ráðherrarnir skiptust á skoðun um áætlunina sem framkvæmdastjórnin gaf út 17. nóvember sl. Í áætluninni er lagður til rammi um áþreifanlegar aðgerðir til verndunar, endurheimtu og nýtingu jarðvegs með sjálfbærum hætti. Í áætluninni eru lagðar til ýmsar aðgerðir, bæði lögbundnar og ólögbundnar. Markmið áætlunarinnar er að auka jarðvegs kolefni (e. soil carbon) í landbúnaðarlandi, berjast gegn eyðimerkurmyndun, endurheimta rýrt (e. degraded) land og jarðveg og að tryggja að fyrir árið 2050 verði allt vistkerfi jarðvegs í heilbrigðu ástandi. Í áætluninni kemur fram að stefnt er að nýrri löggjöf er varðar heilbrigðan jarðveg á árinu 2023. Almennt lýstu ráðherrarnir ánægju sinni með framkomna áætlun. Margir ráðherranna bentu á að jarðvegur og ástand hans væri misjafn milli aðildarríkjanna og einnig hafi nokkur aðildarríki nú þegar sína eigin löggjöf er varðar meðhöndlun jarðvegs. Taka þurfi tillit til alls þess í tilvonandi löggjöf.

Brussel-vaktin er gefin út af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Vaktin kemur út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

10. desember 2021 | Frakklandsforseti kynnir formennskuáform næstu 6 mánaða |
Að þessu sinni er fjallað um

formennskuáform Frakka sem taka við keflinu 1. jan. 2022

tilmæli um blandað nám í grunn- og framhaldsskóla

gagnvirkan leiðarvísi um styrki til skapandi greina

desemberfund fjármála- og efnahagsráðherra ESB

viðtal við Timmermans framkvæmdastjóra ESB sem ber ábyrgð á græna sáttmálanum

óvæntar lyktir máls framkvæmdastjórnarinnar á hendur Þýskalandi vegna forgangsáhrifa Evrópuréttar

afstöðu ráðherraráðsins til lágmarkslauna annars vegar og launagagnsæis hins vegar

fund samgönguráðherra ESB og forfund norrænu ráðherranna

netöryggismál o.fl. sem rædd voru á fundi fjarskiptaráðherra

nýja skýrslu um þróun menntamála í Evrópu

Strategískt fullveldi Evrópu í brennidepli

Emmanuel Macron Frakklandsforseti kynnti helstu áherslur sem verði í formennskutíð Frakka í ráðherraráðinu 1. janúar til 30. júní 2022. Þrjú meginstef yrðu að endurræsa, efla og tilheyra: « relance, puissance et appartenance ». Macron berst fyrir endurkjöri á næsta ári og mun formennskan innan ESB setja svip sinn á kosningabaráttuna.

«Í hnotskurn þá verður markmið formennskunnar að færast frá Evrópu þar sem er samstarf innan landamæra okkar til Evrópu sem er voldug á heimsvísu, nýtur fullveldis, hefur valfrelsi og ræður örlögum sínum.“ Hann hygðist koma því í verk að það yrði skilgreint hvað fælist í strategísku fullveldi Evrópu: « souveraineté stratégique européenne ». Þetta hugtak sem hefði verið óhugsandi fyrir fjórum árum gerð kleift að slá því föstu að Evrópubúar hvort sem þeir væru aðilar að NATO eða ekki byggju við sameiginlegar ógnir og sameiginleg markmið.

Hann hét því að taka til hendinni í málefnum Balkanskagans. Það gengi ekki nú þegar marka þyrfti öryggisstefnu til næstu 50 ára að hafa þar óbreytt ástand. Skýra þyrfti tengslin við Albaníu, Bosníu, Serbíu, Svartfjallaland, Norður-Makedóníu og Kosovo – lönd sem eru föst í biðsal aðildar að Evrópusambandinu.

Umbætur á Schengen-samstarfinu

Annað forgangsmál yrði að Evrópusambandið gæti varið landamæri sín gagnvart fólksflutningum úr öðrum heimshlutum. Þörf væri á aukinni pólitískri leiðsögn við rekstur Schengen-samstarfsins, með hjálp ráðherrafunda. Þá nefndi hann bætt samstarf og samstöðu þegar neyð skapaðist við landamæri einhvers aðildarríkis. Einnig þyrfti að samræma betur reglur um alþjóðlega vernd og fylgd umsækjenda eða innflytjenda.

Borgaraleg þjónusta fyrir ungmenni

Macron lýsti því yfir að hann vildi setja á laggirnar evrópska borgaralega þjónustu sem öll ungmenni yngri en 25 ára gætu nýtt sér til að sækja framhaldsnám eða starfsnám, námskeið eða taka þátt í félagsstarfi. Þá væri nauðsynlegt að draga betur fram sögu Evrópu og þann sameiginlega þráð sem gengi í gegnum hana. Víða væru endurskoðunarsinnar sem vildu draga í efa sameiginleg gildi með annarlega söguskoðun að vopni. Þá varpaði Macron fram hugmynd um evrópska akademíu sem sameinaði fræði- og vísindamenn úr ýmsum áttum til að ræða og upplýsa siðferðileg málefni, tengsl manna við frelsisréttindi og stærri menningarleg verkefni.

Stafræn Evrópa

Síðast en ekki síst lagði forsetinn áherslu á að Evrópa þyrfti að gera sig meira gildandi á stafræna sviðinu. Meðal 10 stærstu fyrirtækja heims miðað við hlutabréfaverð þá væru 8 tæknirisar og enginn þeirra væri evrópskur, sagði Macron. Lagði hann til að stofnaður yrði sérstakur sjóður til að styrkja nýsköpun og sprotafyrirtæki í þessum geira.

Tilmæli um blandað nám í grunn- og framhaldsskóla

Á fundi menntamálaráðherra ESB sem fram fór 29. nóvember sl. voru m.a. samþykkt tilmæli um blandað nám á grunn- og framhaldsskólastigi. Blandað nám snýst um að nota mismunandi aðferðir við námið, með því að læra á ólíkan hátt og í ólíku umhverfi, t.d. stafrænt og í raunheimum, utan- og innandyra. Litið er á blandað nám sem tækifæri til að auka gæði og þátttöku í menntun og þjálfun. Tilgangur tilmæla ráðsins er að koma með tillögur til aðildarlandanna um hvernig hægt er að þróa og innleiða blandað nám og með því stuðla að öflugra menntakerfi.
Skólar hafa neyðst til þess að aðlagast nýjum aðstæðum í heimfaraldrinum, með því m.a. að þróa aðrar aðferðir en þá sem felst í hinni hefðbundnu kennslu sem fer fram augliti til auglitis. Í tilmælunum eru settar fram tillögur að aðgerðum, bæði til skamms tíma sem bein viðbrögð við faraldrinum, en einnig til lengri tíma. Meðal annars er mælt með því að aðildarríkin styðji nemendur við að vinna upp námstap sem þeir hafa orðið fyrir vegna lokunar skóla og að þau efli stafræna færni þeirra (og fjölskyldna þeirra). Í tilmælunum er einnig lagt til að aðildarríkin setji blandaða námsaðferðir í kennaramenntun og starfsþróun kennara, fjárfesti í háhraða nettengingu fyrir skóla og nýti til fulls fé og sérfræðiþekkingu ESB til umbóta og fjárfestingar í innviðum og kennslufræði, svo eitthvað sé nefnt.

Lagt er til að framkvæmdastjórnin styðji innleiðingu tilmælanna meðal annars í gegnum samstarfsramma ESB um menntun og þjálfun 2021-30 og vinnuhópana, og í gegnum European Digital Education Hub, School Education Gateway og eTwinning verkefnin.

Gagnvirkur leiðarvísir um styrki í skapandi greinum

Á fundi menningarmálaráðherra ESB var nýjum gagnvirkum leiðarvísi hleypt af stokkunum en hann kortleggur alla styrkjamöguleika sem eru í boði á vettvangi ESB fyrir skapandi greinar. Leiðarvísirinn, sem hefur fengið heitið CulturEU, inniheldur 75 fjármögnunartækifæri til skapandi greina úr 21 mismunandi samstarfsáætlunum ESB, þar á meðal Creative Europe, Horizon Europe, InvestEU og fleiri áætlunum.

Með leiðarvísinum er styrkjakerfi ESB gert aðgengilegra og skiljanlegra fyrir aðila hinna skapandi greina. Með örfáum „smellum“ fær viðkomandi upplýsingar um bestu styrkjamöguleikana fyrir sitt verkefni, stofnun eða fyrirtæki.

Ráðherrarnir samþykktu einnig niðurstöður um aukningu framboðs og samkeppnishæfni evrópsks hljóð- og myndefnis (e. Conclusions on increasing the availability and competitiveness of European audiovisual and media content). Fram kom að heimsfaraldurinn hefði haft gríðarleg áhrif á hljóð- og myndmiðla í Evrópu, meðal annars hefði afkoma kvikmyndahúsa hrapað um allt að 70-80% árið 2020. Á sama tíma hefði eftirspurn eftir efni á netinu aukist verulega og ásókn í áskrift að efnisveitum rokið upp. Í niðurstöðum ráðsins eru settar fram leiðbeiningar um það hvernig tryggja megi betra aðgengi að evrópsku efni, m.a. með því að styðja við aukið framboð af efni á frummálinu, kynna öflugri aðferðir til markaðssetningar og tryggja að efni kvikmynda- og hljóðsafna njóti viðeigandi verndar, sé kynnt með öflugum hætti og gert aðgengilegt um leið og hugverkaréttur sé virtur.

Á fundinum voru einnig samþykktar niðurstöður ráðsins um menningu, hágæða arkitektúr og hið byggða umhverfi sem grundvallaratriði nýja evrópska Bauhaus verkefnisins (e. Conclusions on culture, high-quality architecture and built environment as key elements of the New European Bauhaus initiative). Þá fóru fram umræður um menningararfleifð í samhengi við sjálfbæra þróun og framtíð Evrópu.

Nánar má lesa um fundinn hér.

Ekki talin þörf á frekari almennum efnahagsaðgerðum

Í byrjun vikunnar funduðu fjármála- og efnahagshagsráðherrar evruríkja ESB með fulltrúum IMF (Alþjóðagjaldeyrissjóðsins) um stöðu efnahagsmála og þróunina framundan. Sérstaklega var rætt um þá stöðu sem upp er komin með nýju afbrigði af kórónaveirunni og áhrif hennar á efnahagsmálin. Það virðist vera sameiginlegt álit um það að hagkerfi evruríkjanna séu þegar það traust að ekki sé þörf á almennum efnahagsaðgerðum eins og staðan er nú heldur nægi að grípa til sértækra aðgerða gagnvart þeim aðilum sem verst verða úti. Samtímis er talið afar mikilvægt að fylgjast vel með útgjaldavexti einstakra ríkja, einkum þeirra skuldsettu.

Virðisaukaskattur

Fundur ráðherranna í þessari viku er væntanlega sá síðasti í formennskutíð Slóvena. Var þar m.a. rætt um breytingar á tilskipun ESB um virðisaukaskatt, einkum skatthlutföllum hans. Inntak breytinganna er að samræma reglur ríkjanna jafnframt því að veita þeim meiri sveigjanleika til nýta lægri skatthlutföll og núll skattlagningu. Í tillögunum eru líka ákvæði um að afnema í áföngum undanþágur virðisaukaskatts gagnvart vörum sem hafa óæskileg áhrif á umhverfið, eins og jarðefnaeldsneyti o.fl. Markmiðið að baki þessum breytingum er að aðlaga virðisaukaskattskerfið að kröfum nútímans, ekki síst á sviði stafrænnar þróunar. Vinna við þessar tillögur hefur staðið í langan tíma og fagnaði slóvenski fjármálaráðherrann því ákaft að þetta skyldi hafa náðst í hans formannstíð. Rétt er að taka fram að breytingar á virðisaukaskatti ESB varða ekki Ísland með beinum hætti enda skattlagning ekki hluti af EES samningnum. Þó gæti verið skynsamlegt að skoða þessar breytingar nánar með „íslenskum gleraugum“ með samkeppnissjónarmið í huga.

Lagabreytingar tengdar fjármálamarkaði

Eins og fram kom á fundinum eru margvíslegar breytingar í farvatninu á fjármálamarkaði. Sumar hafa þegar verið gerðar og munu koma til framkvæmda á næstu misserum á meðan aðrar eru á vinnslustigi. Allar varða þær EES/EFTA ríkin. Skipta má umræddum breytingum í þrjá meginþætti. Í fyrsta lagi eru tillögur framkvæmdastjórnarinnar um lagabreytingar sem varða sameiginlegan innri fjármálamarkað (Capital Markets Union). Þar á meðal eru breytingar á innstæðutryggingum fjármálastofnana. Eitthvað er í land að sameiginlegar niðurstöður náist á þessu sviði. Í öðru lagi er safn lagabreytinga um varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (anti-money laundering and financing of terrorism) sem þegar hefur verið samþykkt. Á fundinum var aðallega rætt um hvernig til hefði tekist. Í þriðja lagi er safn af lagabreytingum sem varða fjármálaþjónustu (financial services). Ýmsar breytingar, sem tengjast svokallaðri „Taxonomy“ reglugerð, eru þar á ferðinni. Helst er rætt um hvað skuli flokka sem græna orku og koma orkugjafar eins og gas og kjarnorka þar helst við sögu.

Staðan varðandi áherslur ESB í loftlagsmálum

Varaforseti framkvæmdastjórnar ESB, Frans Timmermans, tjáði sig um kolefnisskatt yfir landamæri (CBAM) í viðtali við Politico fyrr í vikunni. Varðandi upptöku slíks skatts taldi hann ólíklegt að Bandaríkin gætu fallist á útfærslu ESB eins og heyrst hefur opinberlega frá John Kerry, talsmanni þeirra í málaflokknum. Þeir félagar munu ræða þessi mál frekari í vikunni og vonast Timmermans eftir einhverri málamiðlun á þeim fundi. Markmiðið sé að aðgerðirnar hverjar sem þær verða hafi sömu áhrif og ETS-kerfi ESB.

Þá viðurkenndi Timmermans að á brattann væri að sækja þegar kæmi að aðgerðum áætlunarinnar Fit for 55 vegna hækkandi orkuverðs. Þar gegna breytingar á ETS kerfinu miklu máli. Hann fullyrti að engan bilbug væri að finna hjá aðildarríkjunum hvað þetta varðar og nefndi m.a. að útvíkkun kerfisins gæti verið leið. Nefndi Timmermans þá lausn að ETS næði einnig til mannvirkja og samgangna sem gæti friðað einhver aðildarríki.

Timmermans var einnig spurður hvenær væri að vænta tillagna um breytingar á svokölluðum “taxonomy” reglum? Svarið var að það yrði fyrir jól. Jafnframt staðfesti hann að nú virtist óhjákvæmilegt að flokka þyrfti kjarnorku og gas sem hreina orku, sbr. eftirfarandi: “I think we need to find a way of recognizing that these two energy sources play a role in the energy transition, that does not make them green, but it does acknowledge the fact that nuclear being zero emissions is very important to reduce emissions, and that natural gas will be very important in transiting away from coal into renewable energy.” Segja má að hér hafi Frakkland, Pólland og ýmis önnur Austur-Evrópuríki unnið sigur gegn Þýskalandi, Austurríki o.fl. Fróðlegt verður að sjá viðbrögð nýs kanslara Þýskalands við þessum fréttum.

Framkvæmdastjórn ESB hættir málarekstri gegn Þýskalandi vegna forgangsáhrifa Evrópuréttar

Í maí 2020 komst þýski stjórnlagadómstóllinn að þeirri niðurstöðu að skuldabréfakaup Evrópska seðlabankans væru ólögleg skv. þýskum lögum (sjá nánar hér: Bundesverfassungsgericht - Entscheidungen - Beschlüsse der EZB zum Staatsanleihekaufprogramm kompetenzwidrig). Dómstóllinn var þar á öðru máli en Evrópudómstóllinn. Taldi sá fyrrnefndi sig hafa heimild til að víkja frá niðurstöðu þess síðarnefnda vegna þess að hún verið slíkum annmörkum háð að hún gæti ekki verið bindandi.

Í júní brást framkvæmdastjórn ESB við dómi þýska stjórnlagadómstólsins með því að hefja samningsbrotamál á hendur Þýskalandi (sjá nánar hér: June infringements package: key decisions (europa.eu)). Á þeim tíma töldu menn stöðu Þýskalands snúna, enda ekki á valdi framkvæmdarvaldsins þar að segja stjórnlagadómstól fyrir verkum. Dómurinn hefur einnig óhjákvæmilega verið settur í samhengi við deilur við pólsk og ungversk stjórnvöld um eðli réttarríkisins og samskipti þjóðríkja og Evrópusambandsins.

Það kom því nokkuð á óvart þegar framkvæmdastjórnin ákvað nú fyrir skemmstu að loka samningsbrotamálinu gegn Þýskalandi, með stuttri yfirlýsingu (sjá nánar hér: December infringements package: key decisions (europa.eu)). Forsendur framkvæmdastjórnarinnar fyrir því voru þríþættar, þ.e. í fyrsta lagi að Þýskaland hafi formlega gefið það út að það virði sjálfstæði, forgangsáhrif, skilvirkni og einsleitni Evrópuréttar (e. principles of autonomy, primacy, effectiveness and uniform application of Union law) sem og þau gildi sem sett eru fram í 2. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins. Í öðru lagi þar sem Þýskaland hafi ítrekað að það viðurkenni lögsögu Evrópudómstólsins og að dómar hans séu endanlegir og bindandi. Í þriðja lagi að þýsk stjórnvöld muni með virkum hætti og með öllum tiltækum ráðum komast hjá því að lenda í öðru sambærilegu máli (e. „the German government, explicitly referring to its duty of loyal cooperation enshrined in the Treaties, commits to use all the means at its disposal to avoid, in the future, a repetition of an ‘ultra vires' finding, and take an active role in that regard“).

Þrátt fyrir það að framkvæmdastjórnin hafi fallið frá samningsbrotamáli sínu, er enn óljóst hvernig þetta mál endar eða hvernig þýsk stjórnvöld geti yfir höfuð veitt ofangreindar tryggingar – enda er sem fyrr er rakið, stjórnlagadómstóllinn þýski sjálfstæður og staðan því snúin.

Lágmarkslaun verði tryggð með vorinu

Viðræðum um tilskipun um lágmarkslaun miðar ágætlega þrátt fyrir andstöðu á Norðurlöndum. Á fundi 6. desember sl. urðu vinnumálaráðherrar ESB sammála um samningsafstöðu vegna þríhliða viðræðna sem framundan eru við framkvæmdastjórnina og Evrópuþingið. Frakkar sem taka við formennsku í ráðherraráðinu hafa einsett sér að ljúka málinu fyrir sumarið.

Tillagan um lágmarkslaun var lögð fram af hálfu framkvæmdastjórnarinnar 28. október 2020. Tilgangurinn er að tryggja launþegar í ESB hafi að lágmarki nægileg laun til að fá notið verðugrar tilveru óháð því hvar þeir starfi. Þar sem launamál eru á forræði aðildarríkjanna er ekki gert ráð fyrir að tiltekin fjárhæð komi fram Evrópureglunum.

Þá er heldur ekki gert ráð fyrir að lönd þar sem laun eru ákveðin í almennum kjarasamningum þurfi að fastsetja lágmarksklaun í lögum. Í Svíþjóð og Danmörku hefur andstaðan við þessu áform eigi að síður verið hörð vegna þess að menn óttast að fjari undan norræna vinnumarkaðskerfinu svokallaða.

Evrópuþingið samþykkti breytingartillögur og samningsafstöðu í nóvember sl. gegn atkvæðum nefndarmanna frá Danmörku og Svíþjóð. Þar er að sumu leyti gengið lengra en í tillögu framkvæmdastjórnarinnar.

Niðurstaða fundar vinnumálaráðherra

Í vinnuhópi ráðherraráðsins um tillöguna hafa fulltrúar Danmerkur og Svíþjóðar þrýst á um texta sem slær skjaldborg um norræna vinnumarkaðskerfið og forræði aðila vinnumarkaðarins á ákvörðun launa. Þrátt fyrir að nokkur árangur hefði náðst ákvað fulltrúi Danmerkur að greiða atkvæði gegn niðurstöðu ráðsins í vikunni. Fulltrúi Svía var á öðru máli, m.a. til þess að geta frekar haft áhrif á framhaldið.

Nánar er fjallað um málamiðlunina sem samþykkt var í ráðinu í fréttatilkynningu  Helstu atriði eru þessi:

Heiti tilskipunarinnar, „A EU framework on adequate minimum wages“ á að gera ljóst að um rammatilskipun sé að ræða sem veiti töluvert svigrúm til útfærslu.

Virkja á aðila vinnumarkaðarins til að auka fjölda félagsbundinna og renna stoðum undir almenna kjarasamninga. Í ríkjum þar sem færri en 70% launþega eru í stéttarfélagi á að gera aðgerðaáætlun til að bæta úr því.

Í ríkjum þar sem eru eða verða lögbundin lágmarkslaun á að hnykkja á þeim með skýrum viðmiðum.

Tillagan var ekki merkt sem EES-tæk þegar hún var kynnt á sínum tíma. Það er vissulega ekki bindandi og er í raun einhliða mat framkvæmdastjórnar ESB á þeim tíma. Bráðabirgðamat sérfræðinga EFTA-ríkjanna er hins vegar á sama veg, þ.e.a.s. að þeim verði ekki skylt að innleiða tilskipunina.

Ráðherraráðið mótar afstöðu til tillögu um launagagnsæi

Vinnumálaráðherrarnir náðu einnig samkomulagi um afstöðu gagnvart tillögu um launagagnsæi. Í því felst m.a. að launþegar hafi aðgang að hlutlægum og kynjahlutlausum viðmiðum sem notuð eru til að að ákveða innan fyrirtækja laun og framgang í starfi. Þá eiga þeir líka að geta fengið aðgang að upplýsingum um greidd laun sundurliðað eftir kyni og starfstegund.

Nú er beðið eftir að Evrópuþingið ljúki umfjöllun sinni um málið þannig að þríhliða samningaviðræður geti hafist.

https://www.consilium.europa.eu/en/press/press-releases/2021/12/06/council-agrees-on-common-position-to-tackle-gender-pay-gap/

Norrænir samgönguráðherrar ræða málefni dagskrár ráðherrafundar ESB

Samgönguráðherrar ESB hittast ársfjórðungslega og var lokafundur ársins haldinn 9. desember sl. Á dagskrá eru jafnan tillögur framkvæmdastjórnarinnar að gerðum á sviði samgangna hverju sinni auk annarra mála sem efst eru á baugi.

Á dagskrá að þessu sinni var umræða um tillögur framkvæmdastjórnarinnar á samgöngusviði í loftlagsmálum sem eru hluti af „í formi fyrir 55“ pakkanum. Óskað var eftir afstöðu aðildarríkjanna til tveggja tillagna og voru þær ræddar í opinni dagskrá. Annars vegar er um að ræða reglugerð um stigvaxandi íblöndun flugvélaeldsneytis, þ.e. „ReFuelEU Aviation“, og hins vegar reglugerð um notkun umhverfisvæns eldsneytis í siglingum, „FuelEU Maritime“.

Í umræðum um reglugerðina „ReFuelEU Aviation“ voru ráðherrarnir almennt mjög jákvæðir gagnvart tillögum gerðarinnar um að auka hlut umhverfisvæns eldsneytis í flugi og mátu tillögurnar við hæfi. Sumir töldu þó að auka mætti hlut „synthetic“ eldsneytis í umhverfisvænni íblöndun. Sögðu mikilvægt að setja markið í loftlagsmálum hátt er varðar samgöngur, setja fordæmi fyrir önnur ríki og vinna að umhverfisvænum flugsamgöngum á alþjóðavísu. Gæta þyrfti að áhrifum „í formi fyrir 55“ pakkans á samkeppnishæfni gagnvart flugfélögum utan ESB. Nokkrir höfðu einnig áhyggjur af áhrifum á farmiðaverð og á samgöngur til og frá dreifbýlum svæðum þar sem úrval samgöngukosta er fábrotið.

Í umræðum um tillögu um reglugerð „FuelEU Maritime“ voru ráðherrarnir almennt sammála um nauðsyn þess að vinna að metnaðarfullum markmiðum um að draga úr losun frá siglingum. Hins vegar kom fram hjá mörgum að útfæra þyrfti betur mörg atriði tillögunnar s.s. eftirlits- og þvingunarúrræði, skilyrði um uppruna lífræns eldsneytis og svo að svigrúm væri fyrir endurnýjun vélbúnaðar skipa fyrir endurnýjanlega orkugjafa með hliðsjón af líftíma þeirra. Þá væri mikilvægt að beita sér fyrir samvinnu um verkefnið á alþjóðavísu á vettvangi Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar.

Ráðherrar Norðurlandanna hittust í kvöldverði fyrir fundinn í boði sænska samgönguráðherrans og ræddu. Kristján Andri Stefánsson sendiherra tók þátt í fundinum og upplýsti um áhyggjur Íslands af áhrifum tillagna „í formi fyrir 55“ á samkeppnisstöðu evrópskra flugfélaga og verð á flugmiðum fyrir þau svæði sem ekki eiga val um aðra samgöngumáta. Í síðustu vakt er fjallað um skýrslu samgöngu- og ferðamálanefndar Evrópuþingsins um áhrif tillagna um breytingu á viðskiptakerfi um losunarheimildar á samkeppnisstöðu flugfélaga sem byggja leiðarkerfi sitt á skiptiflugvöllum innan EES.

Ráðherrar fjarskiptamála ræða netöryggismál og fleira

Ráðherrar fjarskiptamála komu saman á vegum ráðherraráðs ESB 3. desember sl. og ræddu nokkrar tillögur framkvæmdastjórnarinnar á sviði fjarskipta- og upplýsingatækni.

Ráðið samþykkti tillögu að umræðuramma (e. general approach) fyrir netöryggisreglur fyrir fjarskipta- og upplýsingakerfi, s.k. NIS2 tillögu. Ekkert er því lengur að vanbúnaði að þríhliða viðræður hefjist á milli framkvæmdastjórnarinnar, þingsins og ráðherraráðsins. Þegar hafa netöryggisreglur verið innleiddar í lög á Íslandi í samræmi við s.k. NIS tilskipun, en í NIS2 er lagt til að útvíkka gildissviðið auk þess sem reglur eru útfærðar frekar.

Upplýsingatækni- og fjarskiptaráðherrarnir ræddu einnig nokkrar fyrirliggjandi tillögur að löggjöf á sviðinu og stöðu mála í vinnunni. Þær eru tillaga að reglugerð um gervigreind, samevrópsk auðkenni, eID, og aðgerðaáætlun fyrir stafræna umbreytingu (e. path to the digital decade), þ.e. stefnumörkunina um stafrænan áttavita.

Fram kom að vinnunni við reglugerð að gervigreind miði vel áfram og fyrir liggur samkomulag um nokkra þætti tillögunnar en ráðherrarnir lögðu mikla áherslu á að ákvæði reglugerðarinnar styðji við örugga og löglega notkun gervigreindar sem tæki mið af grundvallarréttindum borgaranna.

Þá kom fram á fundinum að samkomulag milli ráðsins, framkvæmdastjórnarinnar og þingsins lægi fyrir um reglugerð um stjórnarhætti stafrænna gagna og að slóvenska formennskan stefni að því að leggja tillögu að endanlegum texta reglugerðarinnar fram 15. desember n.k. Loks kom fram að vonast yrði að samkomulag í þríhliða viðræðum um reglugerð um reikigjöld næðist á næsta samningafundi í desember.

Vellíðan í menntakerfinu

Framkvæmdastjórnin birti í gær Education and Training Monitor, árlega skýrslu um þróun menntamála í Evrópu.

Á ári hverju er ákveðið þema tekið fyrir og í ár var viðfangsefnið vellíðan í menntakerfinu fyrir valinu, enda full ástæða til þess að skoða þann þátt í tengslum við áhrif heimsfaraldursins á nám og kennslu. Í skýrslunni er yfirlit yfir þróunina í aðildarríkjum ESB, upplýsingar um góðar starfsvenjur aðildarríkjanna á þessu sviði og upplýsingar um hvernig þau geta nýtt sér Bjargráðasjóð ESB til þess að styðja við og nútímavæða menntakerfin.

Í skýrslunni er kannað hvernig ESB miðar í átt að markmiðum sem sett hafa verið fram í stefnu og samstarfsramma fyrir menntun og þjálfun 2021-2030.

Aðildarríki ESB hafa á undanförnum árum lagt meiri áherslu á vellíðan í menntun og ráðist hefur verið í enn frekari aðgerðir til stuðnings betri líðan nemenda og kennara í heimfaraldrinum.

Þá er í skýrslunni greining á því hvar aðgerða er sérstaklega þörf, til að mynda hvað varðar skort á grunnfærni nemenda (í lestri, stærðfræði og vísindum). Samkvæmt Pisa könnuninni frá 2018 þá skortir einn af hverjum fimm 15 ára nemendum þessa grunnfærni og um 10% nemenda detta úr námi. Framkvæmdastjórn ESB hefur nú hleypt af stokkunum nýju verkefni, Pathways to School Success, til þess að snúa vörn í sókn á þessu sviði.
Verkefnið snýst um að veita aðildarríkjum ráðgjöf í stefnumótun, miðla reynslu og fræðslu á milli landanna, auk þess að skapa fjárhagslega hvata fyrir löndin svo þau ráðist í viðeigandi stefnubreytingar.

Sem fyrr er Ísland ekki með í skýrslunni sjálfri en árlega er einnig gefinn út bæklingur með yfirliti yfir helstu markmið og stöðuna í löndunum og hefur Ísland verið þar á meðal. Þær upplýsingar má nálgast hér.

Allar frekari upplýsingar eru á vefsíðu Education and Training Monitor.

Brussel-vaktin er gefin út af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Vaktin kemur út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

26. nóvember 2021 | Rætt um að setja gildi bólusetningar tímamörk |
Að þessu sinni er fjallað um:

tillögur framkvæmdastjórnarinnar um gildistíma bólusetningar

fund EES-ráðsins

hlutverk samkeppnisreglna í endurreisn efnahagslífs

samkomulag um endurskoðaða landbúnaðarstefnu

tillögur um pólitískar auglýsingar

vinnu við stafræna grundvallarlöggjöf

áhrif loftslagstillagna á flug

Framkvæmdastjórnin leggur til 9 mánaða gildistíma

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lagði til á fimmtudag, 25. nóvember, að bólusetning vegna Covid-19 myndi gilda í 9 mánuði. Þá lagði hún jafnframt til að reglur um för yfir landamæri myndu frekar taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum heldur en því landi sem ferðalangur kemur frá.

Sl. sumar var innleitt samræmt Covid-19 vottorð fyrir EES-svæðið. Þar er að finna staðfestingu á að ferðamaður hafi verið bólusettur, að hann hafi náð sér af fyrri sýkingu eða farið í próf. Nú þegar allt bendir til að vörn bólusetningar dvíni eftir 5-6 mánuði hafa aðildarríkin kallað eftir skýrari línum í þessu efni. Evrópska sóttvarnastofnunin (ECDC) hefur lagt til að heilbrigðisyfirvöld bjóði upp á örvunarskammt þegar sex mánuðir eru liðnir frá bólusetningu. Tillaga framkvæmdastjórnarinnar miðar við að veita einstaklingnum svigrúm í þrjá mánuði til að ljúka þeirri viðbótarbólusetningu. Gert er ráð fyrir að hún gangi í gildi 10. janúar næstkomandi.

Með tillögum framkvæmdastjórnarinnar verða einnig breytingar á litakóðun landa eins og hún hefur birst vikulega á korti ECDC. Kortið mun fyrst og fremst þjóna þeim tilgangi að vera til upplýsingar en þó er enn gert ráð fyrir að tillit verði tekið til þess ef farþegar kom frá grænum svæðum (þar sem verði þá engar takmarkanir á för) og dökkrauðum svæðum þar sem sérstakar ráðstafanir séu heimilaðar gagnvart viðkomandi farþegum.

Að því er varðar farþega frá löndum utan Schengen er gert ráð fyrir að hætta með sérstakan undanþágulista yfir lönd í mars næstkomandi og horfa frekar til stöðu hvers og eins farþega. Þá verður bólusetning með bóluefnum sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur samþykkt einnig metin gild, en þó með þeim fyrirvara að farþegar framvísi nýlegu PCR-prófi.

Tillögur framkvæmdastjórnarinnar eru nú til umfjöllunar í vinnuhópi á vegum ráðherraráðsins, IPCR, þar sem EFTA-ríkin eru einnig með fulltrúa. Jafnframt er til skoðunar að breyta reglugerð um Covid-19 vottorðin til þess að nýi gildistími bólusetningar verði ekki einungis tiltekinn í tilmælum heldur einnig í lagalega skuldbindandi texta.

Græn umskipti og stafræn þróun til umræðu á EES-ráðsfundi

Samstarf ríkja Evrópska efnahagssvæðisins til að tryggja lykilaðföng og hraðari græn umskipti og stafræna þróun voru meðal umræðuefna á fundi EES-ráðsins sem fram fór í Brussel 24. nóvember sl. Í umræðu um alþjóðamál samhliða fundinum var einnig rætt um samskiptin við Kína, stöðu mála í Belarús og nýjan vegvísi Evrópusambandsins á sviði öryggis- og varnarmála. Kristján Andri Stefánsson, sendiherra Íslands í Brussel, fór fyrir sendinefnd Íslands í fjarveru utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.

Á fundinum var einnig rætt um stöðu og framkvæmd EES-samningsins. Lagði Ísland áherslu á góða framkvæmd samningsins og það að standa vörð um tveggja stoða kerfi hans. Ítrekaði Ísland jafnframt kröfu sína um bættan markaðsaðgang fyrir sjávarafurðir inn til ESB. Það væri umhugsunarefni að á sama tíma og EFTA-ríkin innan EES hefðu sífellt bætt í framlög til Uppbyggingarsjóðs EES hefði markaðsaðgangur ríkjanna fyrir sjávarafurðir í besta falli staðið í stað. Þá væri mikilvægt að flýta vinnu við endurskoðun landbúnaðarsamnings Íslands og ESB til að takast á við það ójafnvægi sem í samningnum fælist.

Þingmannanefnd og ráðgjafarnefnd EFTA funduðu einnig um fríverslunarnet samtakanna í tengslum við fund EES-ráðsins. Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók þátt í fundinum með fjarfundarbúnaði en Ísland er í formennsku í EFTA-samstarfinu um þessar mundir.

EES-ráðið kemur saman til fundar tvisvar á ári og er hlutverk þess einkum að vera pólitískur aflvaki við framkvæmd EES-samningsins. EES-ráðið er skipað utanríkisráðherrum EFTA-ríkjanna innan EES og fulltrúum framkvæmdastjórnarinnar og ráðherraráðs ESB.

Sjá nánar fréttatilkynningu á vef utanríkisráðuneytisins og yfirlýsingu EFTA-ríkjanna í EES um EES-ráðsfundinn þar sem það er harmað að ekki hafi orðið samstaða um sameiginlegar niðurstöður.

Hlutverk samkeppnisreglna í endurreisn efnahagslífs

Orðsending framkvæmdastjórnar ESB um áherslur í samkeppnismálum í ljósi nýrra áskorana var birt 18. nóvember s.l.

Í orðsendingunni er áhersla lögð á sveigjanleika samkeppnisstefnu ESB og að hún sé öflugt tæki til að aðlagast breyttum aðstæðum á markaði og ekki síður til að takast á við þarfir neytenda. Þá er einnig farið yfir hlutverk samkeppnisstefnu í endurreisn efnahagslífsins, græna og stafræna umbreytingu og þrautseigju innri markaðarins.

Hér eru nokkur dæmi um nýmæli í orðsendingunni:

Stuðningur við fjárframlög Evrópuríkja í krísunni vegna Covid-faraldursins (State Aid Temporary Framwework) er framlengdur til júníloka á næsta ári.

Á næstunni verða birtar leiðbeiningar ESB vegna styrkja á sviði loftslagsmála, umhverfisverndar og orkumála (Climate, Environmental Protection and Energy Aid Guidelines). Þar verða skilgreind framlög EBS til grænnar umbreytingar; stuðningur við að ná fram kolefnishlutleysi, hringrásarhagkerfi og líffræðilegum fjölbreytileika. Einnig til þess að ná fram markmiðum um núll-útblástur í samgöngum og orkunýtni bygginga.

Þá stendur til að framkvæmdastjórnin gefi út leiðbeiningar og tryggi lagalega umgjörð fyrir sjálfbærari vörur og framleiðsluferla þeirra. Þetta yrði hluti af uppfærslu The Horizontal Block Exemption Regulations sem m.a. tekur á undanþágum vegna samruna og stærðar fyrirtækja.

Hvað stafrænu umbreytinguna varðar stendur fyrir dyrum að gera sérstakar leiðbeiningar varðandi gagnaflutning, Broadband State aid Guidelines, en þeim er ætlað að hlúa að stafrænum innviðum og stuðla að betri dreifingu slíkrar þjónustu.

Framkvæmdastjórnin hefur einnig hert eftirlit með yfirtöku og samruna fyrirtækja sem reikna má með að hindri eðlilega samkeppni í þessum geira. Í þessu sambandi er sérstaklega beint sjónum að 22. grein samrunareglugerðarinnar (Merger Regulation): https://ec.europa.eu/competition/consultations/2021_merger_control/guidance_article_22_referrals.pdf

Ofangreindu er ætlað að vera hvatning til aðildarríkjanna um að fara varlega á þessu sviði og leyfir framkvæmdastjórninni að endurskoða samruna nýsköpunarfyrirtækja á sviði stafrænna lausna sem líkleg eru til að starfa á samkeppnismarkaði.

Framkvæmdastjórnin hyggst halda áfram að styðja aðildarríkin við að berja í markaðsbresti með því að leyfa fjárfestingar í nýsköpunar- og innviðafyrirtækjum t.d. á sviði vetnis, skýjalausna, heilbrigðismála og öreindatækni.

Að lokum er þess getið að leitast verður við að hafa evrópskar samkeppnisreglur sveigjanlegar en þó skuli ávallt tryggt að innri markaðurinn verði sem fyrr samkeppnishæfur og flutningaleiðir öruggar

Samkomulag um endurskoðaða landbúnaðarstefnu

Eftir samningaviðræður í þrjú og hálft ár er samkomulag nú í höfn um breytingar á sameiginlegri landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins. Breytingarnar munu ganga í gildi í ársbyrjun 2023. Meirihluti þingmanna á Evrópuþinginu féllst á samkomulagið sl. þriðjudag og er nú beðið formlegrar afgreiðslu ráðherraráðsins. Samkvæmt samkomulaginu verða útgjöld til málaflokksins u.þ.b. 50 milljarðar evra á ári fram til 2027 en það er um þriðjungur fjárlaga ESB og fá Frakkar þar mest í sinn hlut.

Græningjar og sósíalistar lögðust flestir gegn samkomulaginu og telja ekki nógu langt gengið í þágu umhverfisverndar. Nú eru 30% stuðnings við bændur háð því skilyrði að gripið sé til aðgerða í þágu umhverfisins, eins og sáðskipta. Með nýju stefnunni hækkar þetta hlutfall í 78% að meðaltali. Þá verður fjórðungur beinna styrkja frátekinn fyrir svokallaðan grænan landbúnað sem hvert og eitt aðildarríki þarf að skilgreina í landbúnaðarstefnu sinni.

Reglur um pólitískar auglýsingar kynntar

Framkvæmdastjórnin kynnti í vikunni tillögur sem miða að því að bæta regluverk í tengslum við kosningar og lýðræðislegra umræðu. Þar er m.a. lögð til ný reglugerð um pólitískar auglýsingar. Þar er gert ráð fyrir að allar slíkar auglýsingar þurfi að vera auðkenndar sérstaklega og geyma upplýsingar um hver standi á bak við þær og hve mikið hafi verið greitt fyrir. Einnig ber auglýsendum á þessu sviði að útskýra markaðsstefnu sína og hvernig markhópur sé fundinn. Reglugerðin er merkt EES-tæk sem þýðir að lagt er upp með að hún muni einnig gilda á Íslandi.

Nýjar reglur um þetta efni voru settar á Íslandi fyrr á þessu ári, sbr. svohljóðandi ákvæði sem kom inn í lög um fjármál stjórnmálasamtaka o.fl. nr. 162/2006: „Stjórnmálasamtökum, kjörnum fulltrúum þeirra og frambjóðendum, sem og frambjóðendum í persónukjöri, er óheimilt að fjármagna, birta eða taka þátt í birtingu efnis eða auglýsinga í tengslum við stjórnmálabaráttu nema fram komi við birtingu að efnið sé birt að tilstuðlan eða með þátttöku þeirra.

Frá þeim degi er kjördagur hefur formlega verið auglýstur vegna kosninga til Alþingis, til sveitarstjórna eða til embættis forseta Íslands, svo og vegna boðaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu, skulu auglýsingar og annað kostað efni, sem ætlað er að hafa áhrif á úrslit kosninga, vera merkt auglýsanda eða ábyrgðarmanni.“

Vinnu við stafræna grundvallarlöggjöf miðar vel

Vinnu að nýrri löggjöf um stafræn málefni miðar ágætlega. Ljóst virðist að þessar reglur muni hafa áhrif mun víðar en í Evrópusambandinu. Tilgangurinn með nýju reglunum er að setja stórum netþjónustuaðilum skorður og auka neytendavernd. Í svokölluðum Digital Services Act (DSA) bálki snýst þetta um ólöglegt efni og að koma böndum á notkun algóriþma. Digital Markets Act (DMA) fjallar hins vegar um samkeppni og skilyrði hennar.

Í vikunni komu aðildarríkin sér saman um afstöðu til beggja tillagna. Evrópuþingið er ekki komið jafn langt eð búist er við afstöðu þess í byrjun næsta árs. Þá geta svokallaðar þríhliða viðræður, ráðs, þings og framkvæmdastjórnar hafist.

Samkvæmt því sem fram hefur komið hafa aðildarríkin sæst á að banna svokölluð dökk mynstur (e. dark patterns) þar sem notendur vefsíðna eru fengnir til að gera eitthvað óafvitandi eins og gerast áskrifendur að efni eða fallast á vefkökur.

Í annan stað sér ráðherraráðið fyrir sér að mjög stórar leitarvélar verði skyldaðar til að eyða ólöglegu efni tafarlaust. Þar undir falla væntanlega helst Google og Bing en einnig hópar sem fá sömu skilaboðin eins og í gegnum Telegram enda séu þeir ótakmarkað stórir. Ráðið er hins vegar ekki á því að banna markvissar auglýsingar með hjálp upplýsinga um nethegðun notenda. Þar er hluti þingmanna hins vegar á öðru máli. Annað atriði sem gæti reynst erfitt í samningaviðræðum er verkaskipting milli framkvæmdastjórnarinnar og aðildarríkja við eftirfylgni með reglum.

Tillögur „Í formi fyrir 55“ pakkans er varða flug

Í október sl. var lögð fram skýrsla í TRAN nefnd Evrópuþingsins, þ.e. samgöngu- og ferðamálanefnd þingsins, sem unnin var að beiðni nefndarinnar og fjallar um áhrif nýrra tillagna „í formi fyrir 55“ pakkans, COM(2021) 552, um að fella siglingar undir tilskipun ESB um ETS viðskiptakerfi með losunarheimildir og um breytingu á ákvæðum tilskipunarinnar sem varða flug.

Í þessari samantekt er farið yfir helstu niðurstöður skýrslunnar, en eingöngu er fjallað um áhrif tillagnanna á flugstarfsemi. Flug er nær eini samgöngumátinn fyrir almenning á Íslandi til að ferðast til annarra landa og skipta því tillögurnar miklu máli fyrir íslenskar aðstæður. Sömuleiðis hafa þær mikil áhrif á starfsemi íslenskra flugfélaga og er hér farið yfir þau atriði skýrslunnar sem geta skipt máli fyrir flugrekstur á EES svæðinu.

Einnig er stuttlega farið yfir ákvæði tveggja annarra tillagna „í formi fyrir 55“ pakkans, þ.e. tillögu að reglugerð „ReFuel Aviation“ COM (2021) 561 sem fjallar um íblöndun á flugvélaeldsneyti og svo tillögu að breytingum á tilskipun um orkuskatta, COM (2021) 563 sem lagt er til að gildi einnig fyrir eldsneyti til flugrekenda.

Tillögurnar eru merktar EES tækar og koma samkvæmt því til með að gilda á EES svæðinu, væntanlega eins og þær enda eftir umfjöllun ráðherraráðs ESB og þingsins.

Í tillögu framkvæmdastjórnarinnar um breytingu á ETS kerfinu eru ákvæði um að aðlaga ETS viðskiptakerfið að samþykktum aðildarríkja Alþjóðaflugmálastofnunarinnar um CORSIA kerfið.

CORSIA kerfið er frábrugðið ETS kerfinu á margan hátt. Það er alþjóðlegt og skuldbindur aðildarríki ICAO til að kolefnisjafna losun frá milliríkjaflugi sem er umfram losun 2019/2020. Auk þess skuldbinda þau sig til að draga úr losun, sem svarar 50% af þeirri losun sem var 2005, fyrir árið 2050. Ríki/flugfélög geta uppfyllt CORSIA skuldbindingar sínar með kaupum á losunarheimildum og með öðrum ráðstöfunum, t.d. að taka í notkun sparneytnari flugvélar, skipta yfir í umhverfisvæna orkugjafa, taka upp skilvirkari flugferla o.s.frv. Kostnaðaráhrif CORSIA samþykktarinnar á flugstarfsemi er mun minni en kostnaðaráhrif ETS kerfisins.

Tillaga um breytingu á viðskiptakerfi með losunarheimildir, ETS kerfinu, gerir ráð fyrir að núgildandi kerfi komi til með að gilda áfram um flug innan EES. Núgildandi tilskipun gildir ekki fyrir flug út af EES svæðinu, en lagt er til að það verði tekið inn í kerfið í lok árs 2023 og að ákvæði CORSIA kerfisins gildi fyrir flug á milli EES og ríkja sem eiga aðild að CORSIA samþykktinni. Lagt er til að ETS kerfið gildi áfram fyrir flug til og frá Bretlandi og í nokkrum undantekningartilfellum fyrir flug til þriðju ríkja. Þá er lagt til að frá árinu 2027 gildi ETS fyrir flug til ríkja sem eiga ekki aðild að CORSIA samþykktinni.

Lagt er til að gildissvið tillögunnar um breytingu á ETS fyrir flug verði óbreytt, takmarkist við flugvélar með að lágmarki 5,7 tonna flugtaksþyngd og ná ekki til herflugvéla, ríkisflugs, björgunarflugs, sjúkraflugs, flugvéla í slökkvistarfi, flugs vegna mannúðarmála, kennsluflugs o.fl. Gildissvið CORSIA samþykktarinnar er ekki alveg það sama, gildir t.d. ekki fyrir þyrlur.

Í tillögunni er lagt til að hætta úthlutun EUAA (byggir á sögulegri losun frá flugi) losunarheimilda, sem er 82% af heildarkvóta, án endurgjalds þannig að greitt verður fyrir allar losunarheimildir frá 2027. Einnig er lagt til að dregið verði úr framboði á EUAA losunarheimildum fyrir flug um 4,2% árlega en núgildandi lækkunarstuðull er 2%. Þegar ETS kerfið tók gildi fyrir flugstarfsemi 2012 var heildarkvóti EUAA heimilda til ráðstöfunar 95% af losun frá flugi yfir 2004-2006. Áfram geta flugrekendur keypt EUA losunarheimildir (almennar losunarheimildir sambandsins til dæmis fyrir iðnað og orkuvinnslu) fyrir starfsemi sína.

Í tillögu framkvæmdastjórnarinnar „ReFuelEU Aviation“ er sett fram krafa um að flugvélaeldsneyti verði blandað endurnýjanlegum orkugjöfum. Í upphafi verði íblöndunin 2 % árið 2025, fari í 5 % frá 2030, 20 % frá 2035, 32 % frá 2040, 38 % frá 2045 og verði 63 % frá 2050. Þar af skuli hlutfall rafeldsneytis vera 0.7 % árið 2030 og fari í 5 % frá 2035, 8 % frá 2040, 11 % frá 2045 og 28 % frá 2050. Íblöndunarkrafan er ekki bundin við flug innan EES heldur að hún taki til alls flugs við brottför frá evrópskum flugvöllum að meðtöldum flugvélum skráðum utan Evrópu. Það að krafan gildi um allt flug er ætlað að lágmarka hættu á eldsneytishagræðingu og kolefnisleka.

Sem hluta af „í formi fyrir 55“ pakkanum birti framkvæmdastjórnin einnig tillögu að breytingu á tilskipun um skattlagningu orku, COM (2021) 563 sem inniheldur tillögur um skattlagningu á eldsneyti og rafmagn sem er nýtt til að knýja flugvélar innan EES. Tillagan er merkt EES tæk og gerir ráð fyrir stighækkandi skattlagningu sem hefst 2023 og hækkar um sem svarar 0,037 Evrur (10% af lokafjárhæðinni) á ári þar til að hún nær 0,37 Evrum á líter af flugvélaeldsneyti árið 2033. Skatturinn er á orkueiningu, óháð orkugjafa, og leggst því einnig á raforku til að knýja flugvélar sem enn eru fáar hvað sem síðar verður.

Loks eru í tillögunni um breytingu á EU ETS tilskipuninni ákvæði um nýtingu tekna frá uppboði losunarheimilda, þ.e.a.s. þess hluta sem ekki rennur til framkvæmdastjórnarinnar. Skulu a.m.k. 50% tekna renna til tiltekinna aðgerða, s.s. að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, þróa endurnýjanlegt eldsneyti, til kolefnisbindingar og til að bæta orkunýtingu.

Fram kemur í skýrslunni að flugrekendur hafi almennt litið á ETS kerfið jákvæðum augum, en gagnrýnt uppsafnaða skattheimtu á flugrekstur sem sértækir farþegaskattar, álagning olíugjalda, kröfur um íblöndun eldsneytis, ETS, og CORSIA fela í sér.

Samkeppnisstaða flugrekenda skrásettra á EES svæðinu

Samkvæmt skýrslu TRAN nefndarinnar hafa breytingatillögurnar lítil áhrif á samkeppnisstöðu flugs innan EES og heldur ekki á beint flug á milli EES og þriðju ríkja. Þær hafa engu að síður í nokkrum tilfellum neikvæð áhrif á samkeppnisstöðu evrópskra flugfélaga. Stærst eru áhrifin á flugfélög sem byggja leiðakerfi sitt á tengiflugsmiðstöð á flugvelli innan EES (t.d. Amsterdam, Frankfurt, Keflavík) fyrir skiptifarþega með upphaf ferðar innan EES sem skipta á EES flugvelli í flug á leið til áfangastaðar utan EES. Flugfélögin greiða gjöld samkvæmt ETS tilskipuninni fyrir flug til og frá skiptiflugvelli innan EES, svo samkvæmt CORSIA fyrir áfram flug til áfangastaðar utan EES.

Flugfélög í beinu flugi á milli sömu áfangastaða greiða gjöld samkvæmt CORSIA kerfinu alla leið sem er mun lægra en sem svarar verði á losunarheimildum ETS. Sama gildir um tengiflugvelli utan EES (t.d. Istanbul). Þar greiða flugfélög samkvæmt CORSIA kerfinu fyrir flug á skiptiflugvöllinn og einnig áfram fyrir flugið til annars áfangastaðar í þriðja ríki.

Metið er að árlega fari um 10% farþega (af 230 milljónum) um skiptiflugvöll innan EES á leið út af svæðinu og um 15% farþega fari um skiptiflugvöll utan EES (t.d. Istanbul) á leið frá EES ríki til þriðju ríkja.

Áhrif á flugfarþega

Það er mat skýrsluhöfunda að hvorutveggja það að hætta úthlutun losunarheimilda án endurgjalds og að draga úr framboði á sértækum losunarheimildum fyrir flug muni leiða til hækkunar á kostnaði fyrir flugrekendur. Það muni endurspeglast í verði flugmiða að því marki sem flugfélögin geta velt kostnaði yfir á farþega. Kostnaðarhækkunin yrði fyrst og fremst á flugi sem fellur undir ETS kerfið.

Höfundarnir settu upp þrjár sviðsmyndir um áhrif verðs á losunarheimildum, 120 Evrur, 83 Evrur og 45 Evrur á flugmiða. Fjárhæðin 120 Evrur á tonn af losunarheimildum inniheldur mat höfundanna á áhrifum af fækkun losunarheimilda og telja þeir hana því líklega niðurstöðu. Miðað við 120 Evrur fyrir tonnið af losunarheimild gæti hækkun á verði flugmiða numið að meðaltali 9% og legið á bilinu 1,25 Evrur til 11 Evrur á farmiða eftir flugleiðum. Meðalhækkun á flugmiða yrði 6,3% og 2,6% miðað við hinar tvær sviðsmyndirnar. Kostnaðarhækkunin yrði einnig á flugmiða á flug innan EES til skiptiflugvalla (Frankfurt, Keflavík) fyrir farþega í áframflugi út af EES svæðinu.

Skýrsluhöfundarnir fjalla einungis um áhrif ETS kerfisins á flugmiða, en eins og áður var vikið að geta aðrar tillögur „í formi fyrir 55“ pakkans einnig haft áhrif á verð flugmiða til hækkunar. Óvissan um verðhækkun á flugmiðum vegna íblöndunarkröfu tillögu að RefuelEU Aviation er enn mikil þar sem markaðir fyrir vistvænt eldsneyti eru ófullkomnir og framboð enn mjög takmarkað. Verð á vistvænu eldsneyti fyrir flug er 3-10 sinnum hærra, eftir tegund eldsneytis, en verð á hefðbundnu eldsneyti og gætu áhrifin miðað við núverandi stöðu orðið mikil. Framkvæmdastjórnin gerir hins vegar ekki ráð fyrir miklum kostnaðarauka vegna íblöndunarkröfunnar fyrir flugfélögin og byggir mat sitt á þeirri forsendu að verðið mun lækka verulega þegar markaðir þroskast og framleiðslan nær hagkvæmni stærðarinnar.

Áhrif á flugstarfsemi og samfélagið

Höfundar TRAN skýrslunnar fjalla um ýmis áhrif tillögu breytinga á ETS kerfinu á flugfélög og efnahagskerfið. Í skýrslunni kemur fram að aukin gjaldtaka og minna framboð á losunarheimildum muni leiða til hærra verðs á flugmiðum á bilinu 2,7% - 9%. Miðað við þá verðteygni sem höfundarnir gefa sér leiðir hærra verð á flugmiðum til lægri eftirspurnar á flugi á milli EES áfangastaða sem svarar á bilinu 2,5-8,3%. Fyrir allt flug innan EES að meðtöldu flugi út af EES svæðinu má búast við lægri eftirspurn sem svarar 1,7% - 5,6%. Loks má búast við 03% - 0,9% lægri eftirspurn á flugi út af EES svæðinu.

Höfundarnir búast við miðað við ofangreindar forsendur að störfum innan EES gæti fækkað um 10-35 þúsund af 633 þúsund störfum innan greinarinnar.

Hærri kostnaður flugfélaga með starfsemi innan EES gæti haft ýmis hliðaráhrif, s.s. að þau verði metin lakari fjárfestingakostur alþjóðlegra fjárfesta og að hann muni draga úr getu þeirra til að endurnýja flugflota þ.e.a.s. ef þau geta ekki flutt aukinn kostnað yfir í farmiða.

Höfundar miða við að hærri gjöld ETS kerfisins samanborið við CORSIA kerfið leiði til lakari samkeppnisstöðu evrópskra flugfélaga/flugvalla sem nota skiptiflugvelli innan EES. Lakari samkeppnisstaða geti leitt til aukinnar umferðar á skiptiflugvöllum utan EES og styrkt stöðu flugrekenda skráðra utan EES á kostnað flugrekenda með staðfestu innan EES. Að mati skýrsluhöfunda getur það orsakað minni markaðshlutdeild evrópskra flugfélaga sem nýta skiptiflugvelli fyrir flug út af EES svæðinu og tilhliðrun á núverandi skipulagningu á flugi.

Þessi mismunun gæti t.d. einnig haft þau áhrif að Evrópubúar færu í auknum mæli til orlofsstaða utan EES svæðisins, t.d. Tyrklands eða Egyptalands vegna hlutfallslega lægri fargjalda.

Loks gæti mismunur á samkeppnisstöðu leitt til kolefnisleka (e. carbon leakage) við það að farþegar flytjast frá flugleiðum sem ETS gildir um yfir á CORSIA flugleiðir sem búa við vægari losunarkröfur.

Mögulegar mótvægisaðgerðir

Verði tillagan um ETS kerfið óbreytt að veruleika búa evrópsk flugfélög, sem nota skiptiflugvöll innan EES fyrir flugleiðir út af EES svæðinu, við lakari samkeppnisstöðum en þau flugfélög sem fljúga beint á milli áfangastaða eða nota skiptiflugvöll utan EES fyrir flug út af svæðinu. Skýrsluhöfundar leggja til að sett verði upp kerfi sem dregur úr þessum samkeppnismun og dragi um leið úr mögulegum kolefnisleka. Kerfið gengur út á að lækka álögur á flugfélög vegna ETS og eldsneytisgjöld í réttu hlutfalli við fjölda farþega sem halda áfram út af EES svæðinu og jafna þannig mismunandi samkeppnisstöðu á milli tengiflugs innan EES og tengiflugs utan EES og beins flugs til þriðju ríkja.

Að öðru leyti setja höfundar skýrslunnar ekki fram tillögur um að bregðast við hærra verði flugmiða. Í tilfelli flugs í Evrópu hefur almenningur oft val um aðra samgöngumáta. Almennt er gert ráð fyrir að ferðir færist í auknum mæli yfir á umhverfisvænni ferðamáta, s.s. lestir, sérstaklega ef ekki er ferðast yfir 500 km vegalengd. Litið er á hækkun kostnaðar vegna kolefnisheimilda sem eðlilegan kostnað við að bregðast við loftlagsvánni en í sumum tilfellum t.d. varðandi kolakyndingu orkuvera hefur verið rætt um að nýta tekjur af sölu losunarheimilda til þess að létta undir með viðkvæmum hópum.

Brussel-vaktin er gefin út af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Vaktin kemur út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

12. nóvember 2021 | Efnahagslífið réttir úr kútnum en ýmsar blikur á lofti |
Að þessu sinni er fjallað um:

nóvemberfund fjármála- og efnahagsráðherra ESB þar sem m.a. var skipst á skoðunum við fulltrúa EFTA-ríkjanna

nýja efnahagsspá fyrir evrusvæðið

umsögn EES EFTA-ríkjanna um stafrænu markaðslöggjöfina

afstöðu ráðherraráðsins til breytinga á reglum um vegagjöld

fjórðu Covid-bylgjuna sem rís hratt

Nóvemberfundur fjármála- og efnahagsráðherra ESB – EFTA-ríkin ná sér fyrr á strik

Fundur fjármála- og efnahagshagsráðherra ESB sl. mánudag hófst með sameiginlegum fundi þeirra með ráðherrum EFTA-ríkjanna þar sem farið var yfir stöðu efnahagsmála eftir að Covid-19 faraldurinn hefur staðið yfir í hálft annað ár. Jafnframt var rætt um framtíðarhorfur og hvaða áskoranir og tækifæri blasi við. Ísland gegnir nú formennsku í ráðherrahópi EFTA. Eftir kynningu ESB fór Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri, sem sat fundinn í fjarveru fjármála- og efnahagsráðherra, almennt yfir stöðuna í aðildarríkjum EFTA og síðan á Íslandi. Því næst fóru EFTA ráðherrarnir yfir stöðu efnahagsmála hver í sínu heimalandi. Svo virðist sem að efnahagsbatinn hafi verið hraðari og meiri hjá EFTA ríkjunum en hjá aðildarríkjum ESB almennt.

Efnahagsbatinn og þróun fjármálareglna ESB

Fyrsta umræðuefnið voru horfur í efnahagsmálum aðildarríkja ESB í samhengi við fjármálareglur sambandsins (e. fiscal framework). Í febrúar 2020 var kynnt nauðsynleg endurskoðun á regluverkinu, en í mars skall Covid kreppan á sem gjörbreytti öllum forsendum. Reglunum var kippt úr sambandi og nú blasir við aðildarríkjunum að ákveða hvenær þær verði virkar í ný sem og hvernig eða hvort eigi að endurskoða þær frá því sem gilti fyrir Covid. Hér sýnist sitt hverjum, eins og sést af orðum slóvenska fjármálaráðherrans; „Today, we exchanged initial views on the future of fiscal policy. It is necessary to continue discussions and try and find common ground”.

Bjargráðasjóðurinn (Recovery and Resilience Facility)

Fjármögnun Bjargráðasjóðsins var næst á dagskrá. Fyrst var farið yfir stöðuna í skilum aðildarríkjanna á endurreisnaráætlunum sínum um uppbyggingu og fjárfestingar næstu árin sem sjóðnum er ætlað að styðja við með styrkjum eða lánum. 26 ríki hafa skilað áætlunum sínum, en Holland fékk frest vegna stjórnarskipta. Áætlanir 22 ríkja hafa verið samþykktar , og 17 þeirra hafa þegar fengið stuðning. Hann verður veittur í áföngum eftir því sem áætlunum vindur fram í hverju ríki undir vökulum augum framkvæmdastjórnar ESB. Fram kom að hafin væri útgáfa ESB skuldabréfa, þ.á m. grænna, í fyrsta sinn í sögu þess með góðum viðtökum á fjármálamörkuðum. Rifja má upp að endurgreiðslu þeirra á að vera lokið árið 2058.

Miklar hækkanir á orkuverði

Ráðherrarnir ræddu síhækkandi orkuverð að undanförnu og neikvæð áhrif þeirra hækkana á verðbólgu. Í október mældist verðbólgan í ESB ríkjunum 4,1%, sem er hæsta mæling síðan árið 1997. Þessi þróun hefur vitaskuld óæskileg áhrif á fyrirhugaðar efnahagsaðgerðir aðildarríkjanna og þá ekki síður á félagslegar aðstæður þeirra sem minna mega sín. Framkvæmdastjórnin var beðin um að smíða einskonar verkfærakistu (toolbox) með aðgerðum til varnar frekari hækkun orkuverðs. Nokkrum þeirra hefur þegar verið beitt til að styðja þá sem verst hafa orðið úti í hækkunum.

Fjármálamarkaðurinn

Einnig var rætt um innleiðingu Basel III. Um er að ræða safn af lagabreytingum sem ætlað er að styrkja viðnám evrópska bankageirans, auk þess að efla eftirlit hans og áhættustýringu. Ljóst er af umræðunni á fundinum að framundan er stöðugt streymi af nýjum og breyttum tilskipunum og reglugerðum á sviði fjármálamarkaðar sem EES/EFTA ríkin munu síðan þurfa að innleiða til viðbótar við þær sem nú þegar eru í vinnslu.

Ný efnahagsspá

Í gær, 11. nóvember 2021, kynnti framkvæmdastjórn ESB nýja efnahagsspá fyrir evrulöndin og ESB. Þar er reiknað með að hagvöxtur á evrusvæðinu verði 5% í ár í staðinn fyrir 4.3% í vorspánni, en spáin 2022 stendur nær í stað eða verður 4,3% í stað 4,4 %. Þá var einnig birt spá fyrir 2023 upp á 2,4% hagvöxt. Sömu tölur er að finna í hagspá fyrir ESB í heild, nema fyrir árið 2023 þar sem hagvöxtur er talinn verða eilítið betri, eða 2,5%. Paolo Gentiloni, framkvæmdastjóri efnahagsmála sagði að þessu tilefni: "The European economy is moving from recovery to expansion," en við blasa þó þrjár meginhættur; 1. Aukinn fjöldi Covid – smita, en Evrópa er nú á ný orðin helsti suðupottur farsóttarinnar. 2. Aukin verðbólga vegna hækkunar orkuverðs og 3. Aukin röskun framleiðslu og flutninga á aðföngum, sem hefur veruleg áhrif á fjölda atvinnugreina.

Verðbólguspáin fyrir evrusvæðið fer úr 1,7% á þessu ári í 2,4%, en á árinu 2022 er spáð 2,2% verðbólgu samanborið við 1,3% í vorspánni. Fyrsta spáin fyrir 2023 er 1,4% sem er vel undir 2% markmiði evrópska Seðlabankans. Framkvæmdastjórnin með Dombrovskis í fararbroddi varar þó við að verðbólgan kunni að verða meiri vegna erfiðleika í aðfangakeðjunni og sömuleiðis er farið að bera á auknum launakröfum umfram framleiðni. Þessi blanda þrýstir á verðlag sem þarf að fylgjast vel með að fari ekki úr böndunum og grípa til aðgerða ef nauðsyn krefur.

Aukinn hagvöxtur ætti að draga úr hallarekstri ESB ríkjanna í heild, sem mældist 6,9% af VLF á árinu 2020. Spáin fyrir 2021 er nú 6,6%, en lækkar talsvert á árinu 2022, eða í 3,6% og enn frekar árið 2023 í 2,3%. Skuldahlutfall Evruríkjanna er talið verða 99% á þessu ári og ESB í heild 92%. Spáð er lækkun niður í 97% á Evrusvæðinu árið 2022 og 89% fyrir ESB í heild árið 23%.

Fyrirhuguð löggjöf um stafræna markaði – EES EFTA ríkin standa saman að umsögn

Ísland, Liechtenstein og Noregur sendu fyrr í vikunni inn sameiginlega umsögn um tillögu framkvæmdastjórnarinnar að löggjöf um stafræna markaði (e. Digital Markets Act). Sú löggjöf ásamt þeirri sem fjallar um stafræna þjónustu (e. Digital Services Act) eru burðarásar í viðleitni ESB til að auka öryggi neytenda í stafrænum heimi og jafna samkeppnisstöðu fyrirtækja.

Tillögunni er fagnað í umsögninni því að óbreyttu séu stærstu aðilarnir á þessu sviði í aðstöðu til að takmarka aðgengi annarra inn á markaðinn. Jákvætt sé að gera ráð fyrir skyldu til að auðvelda lóðrétta samverkun á markaði. Skoða eigi til viðbótar aðgerðir til að stuðla að láréttri samverkun þannig að netþjónustuaðilar geti fengið aðgang að viðmóti hver annars. Loks er hvatt til þess að stjórnvöld í aðildarríkjunum verði gerð virkari í að fylgja reglum eftir en samkvæmt tillögunni verður framkvæmdastjórn ESB þar mjög ráðandi afl.

Ráðherraráðið samþykkir reglur um gjaldtöku á vegum

Ráðherraráðið, Evrópuþingið og framkvæmdastjórn ESB hafa átt í þríhliða viðræðum um tillögu framkvæmdastjórnarinnar um breytingu á gildandi reglum um gjaldtöku á vegum, s.k. Eurovignette tilskipun. Tillagan var lögð fram í maí 2017 og var til umfjöllunar hjá ráðinu og þinginu fram á þetta ár. Skoðanir voru skiptar um efni tillögunnar sem birtist m.a. í afstöðu þingsins og ráðsins, en samkomulag náðist í þríhliða viðræðunum 15. júní sl. Ráðherraráðið samþykkti svo niðurstöðuna núna 9. nóvember sl. fyrir sitt leyti.

Núverandi kerfi byggir á tímagjaldi en markmið breytinganna er að hverfa frá því og nota aðra mælikvarða sem endurspegla betur umhverfisáhrif aksturs eins og vegalengd eða útblástur koldíoxíðs.

Helstu breytingar

Helstu breytingar á tilskipuninni eru að tímagjöld fyrir þungaflutningabifreiðar verða lögð niður innan átta til tíu ára frá gildistöku hennar eftir því hvernig núverandi fyrirkomulagi í einstökum ríkjum er hagað. Tilskipunin gildir um flutninga á vegum sem megin hluti alþjóðlegra þungaflutninga fer um. Hægt er að undanskilja vegi á strjálbýlum svæðum eða einstaka styttri veghluta. Aðildarríkin geta áfram notað tímagjöld á öðrum eigin vegum.

Aðildarríkin hafa einnig val um samsetta gjaldtöku fyrir þungaflutninga, t.d. tímagjald og fjarlægðargjald, þar sem annað gjaldið væri byggt á Euro eldsneytisnýtingarstaðlinum og hitt á CO2 losun ökutækisins. Einnig hafa þau val um að ákveða þá flokka ökutækja sem verða gjaldskyld, geta t.d. sleppt því að innheimta gjöld af langferðabifreiðum. Miðað er við að í boði verði gjald fyrir einn dag og svo fyrir viku eða tíu daga aðgang að gjaldskyldum vegum.

Fram hefur komið að í undirbúningi eru leiðbeiningar um útreikning á breytilegu gjaldi byggðar á losunarstöðlum fyrir CO2 losun þungaflutningabifreiða. Í byrjun nær gjaldið einungis til þungaflutningabifreiða en verður smá saman yfirfært á fleiri tegundir ökutækja. Í reglunum eru einnig ákvæði sem ætlað er að koma í veg fyrir tvöfalda ívilnun vistvænna ökutækja.

Gjaldtaka vegna ytri kostnaðar

Gjaldtaka vegna loftmengunar frá þungaflutningum tekur gildi innan fjögurra ára frá gildistöku tilskipunarinnar. Hægt er að tilkynna undanþágu frá þessu ákvæði ef sýnt er fram á að gjaldtakan hafi óæskilegar afleiðingar í för með sér, t.d. ef hún beinir þungaflutningum af gjaldskyldum vegum á aðra sem ekki eru ætlaðir fyrir slíka umferð.

Ráðstöfun tekna af gjaldtöku

Miðað er við að tekjum af valkvæðri gjaldtöku verði varið í að leysa úr umferðaálagi. Heimilt er að hækka gjöld um allt að 50% á vegum sem eru undir mjög miklu álagi að fengnu samþykki þeirra aðildarríkja sem eru háð þungaflutningum á viðkomandi vegum.

Loks eru í tilskipuninni nokkrar undantekningar frá reglum um gjaldtöku, s.s. á vegum sem eru byggðir og fjármagnaðir af veggjöldum í samvinnu við einkaaðila, fyrir ökutæki fatlaðra og umferð á dreifbýlum svæðum.

Næstu skref

Nú eftir samþykkt ráðsins fer samkomulagið í aðra umræðu Evrópuþingsins. Reglurnar taka svo gildi 20 dögum eftir birtingu í Stjórnartíðinum ESB og hafa aðildarríkin þá tvö ár til þess að innleiða þær í löggjöf sína.

Fjórða bylgjan rís hratt

Litakortið sem Sóttvarnastofnun Evrópu gefur út á hverjum fimmtudegi heldur áfram að verða rauðara. Víðast hvar eru smittölur búnar að vera á hraðri uppleið í nokkrar vikur og dauðsföllum fer hægt fjölgandi. Almennt eru þau lönd talin standa verst þar sem bólusetningar hafa gengið hægast. Staðan er álitin viðsjárverðust í Belgíu, Hollandi, Eistlandi, Grikklandi, Króatíu, Búlgaríu, Tékklandi, Póllandi, Ungverjalandi og Slóveníu. Best er staðan á Spáni, Möltu og í Svíþjóð. Annars staðar á Norðurlöndum, þ. á m. á Íslandi, eru löndin öll í næstefsta áhættuflokki.

Brussel-vaktin er gefin út af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Vaktin kemur út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

29. október 2021 | Jafnréttisnefnd Evrópuþingsins kynnir sér launajafnrétti á Íslandi |
Að þessu sinni er fjallað um:

fyrirhugaða heimsókn jafnréttisnefndar Evrópuþingsins til Íslands í næstu viku

jafnréttisviku í Evrópuþinginu

verkáætlun framkvæmdastjórnarinnar 2022

stafrænu Covid-vottorðin sem hafa slegið í gegn

grænan landbúnað

hækkandi orkuverð

flokkun kjarnorku

fund ráðuneyta um samstarfsáætlanir

fyrirhugaða úttekt Norðmanna á EES-samstarfinu

dagsektir sem lagðar hafa verið á pólska ríkið í deilu um sjálfstæði dómstóla

fyrstu skýrslu ESA um frammistöðu í loftslagsmálum

„Við viljum læra af Íslandi“

Í samtali við fréttaritara Brussel-vaktarinnar greinir Evelyn Regner, formaður jafnréttisnefndar Evrópuþingsins, frá því að hún muni koma ásamt fleiri þingmönnum til Íslands í næstu viku. Tilefnið er meðal annars umfjöllun nefndarinnar um tillögu framkvæmdastjórnar ESB að tilskipun um launagagnsæi. Sagði Regner að hér væri um mikið hitamál að ræða og mikla hagsmuni í húfi til dæmis fyrir atvinnulífið. Því vildi nefndin afla sem bestra upplýsinga um aðgerðir Íslendinga til að stuðla að jafnrétti á vinnumarkaði sem myndu síðan nýtast til að ljúka umfjöllun um breytingartillögur. Í viðtalinu fjallar Regner m.a. um nýafstaðna jafnréttisviku á Evrópuþinginu, stöðu kvenna í Afganistan og áhrif Covid-19 á jafnréttismál og stöðu kvenna. Sjá nánar hér.

Jafnréttisvika í Evrópuþinginu

Annað árið í röð var nú haldin vika jafnréttis kynjanna í Evrópuþinginu. Fór hún þannig fram að flestar þingnefndir fjölluðu sérstaklega um jafnréttisvinkla á þeim málefnum sem þær annars fjalla helst um. Með þessu móti er stuðlað að því að samþætta kynjasjónarmið við stefnumótun að öðru leyti. Meðal annars kom fram að konur hefðu að mörgu leyti farið verr út úr Covid-19 farsóttinni en karlar. Þær væru í meirihluta í störfum sem urðu fyrir barðinu á faraldrinum, eins og til dæmis í þjónustugeiranum. Þá hefðu lokanir skóla og dagvistarheimila leitt til þess að konur hefðu í meira mæli en karlar þurft að axla margfalda ábyrgð.

Fjallað var um hvernig fjármagni verður varið til endurreisnar eftir efnahagskreppu sem fylgt hefur faraldrinum. Áhersla er á verkefni sem tengjast græna sáttmálanum og stafrænni umbyltingu. Tiltölulega fá verkefni eru þar eyrnamerkt jafnréttismálum. Þó sé sérstök ástæða til að huga að því til dæmis hvernig auka megi þátttöku kvenna í tæknigeiranum, þar sem best launuðu framtíðarstörfin verði að finna.

Miðar hægt í átt að jafnrétti kynjanna

Í jafnréttisvikunni kom út ný skýrsla um stöðu jafnréttismála innan ESB. Þar er byggt á tilteknum mælikvarða til að meta stöðu mála og framfarir. Í stuttu máli miðar fremur hægt í átt til jafnréttis kynjanna og myndi taka þrjár kynslóðir á þessum hraða. Best er staðan í Svíþjóð, Danmörku, Hollandi, Frakklandi og Finnlandi. Lökust er hún í Grikklandi, Ungverjalandi og Rúmeníu og Slóvenía er eina landið þar sem staðan hefur versnað milli ára.

Þau meginsvið sem horft er til við mat á stöðu kynjanna eru þátttaka á vinnumarkaði, tekjur og eignir, menntun, völd og áhrif, tími sem varið er til félagsstarfa, heimilisstarfa og ólaunaðrar umönnunar, heilsa og líkamlegt öryggi. Þetta eru ekki alveg sömu mælikvarðar og notaðir eru í könnun World Economic Forum þar sem Ísland hefur lengi vermt efsta sætið.

Fram kemur í skýrslunni að menn hafa miklar áhyggjur af því að farsóttin muni leiða til bakslags fyrir réttindi og stöðu kvenna sem ekki sé enn komið fram í þeim gögnum sem byggt var á.

Verkáætlun framkvæmdastjórnarinnar 2022

„Eflum Evrópu saman“, er yfirskriftin á verkáætlun framkvæmdastjórnarinnar árið 2022. Áætlunin er mikilvæg vegna þess að hún veitir upplýsingar um það hvaða löggafartillögur og önnur áherslumál verði lögð fram á næsta ári. Vísbending hafði þegar verið gefin í stefnuræðu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnarinnar, fyrr í haust, en nú hafa spilin verið lögð á borðið.

Varnar- og utanríkismál verða ofarlega á baugi þegar Frakkar gegna formennsku í ráðherraráðinu fyrri hluta árs 2022. Eitt það mikilvægasta sem til stendur að afgreiða er svokallaður „strategískur áttaviti“ – leiðarvísir á þessu sviði næstu 5-10 árin. Að öðru leyti má nefna:

Heimshliðið – e. Global Gateway, þar er þróunarlöndum boðið upp á samstarf um fjárfestingar í innviðum. Rætt er um að þetta sé svar við kínversku stefnunni sem kennd er við belti og braut en áhersla verði á tengingar við grunngildi ESB.

Nýja sameiginlega yfirlýsingu ESB og NATO.

Raunverulegt evrópskt varnarsamband. Framkvæmdastjórnin mun hraða þessari vinnu.

Vegvísi um varnar- og öryggistækni. Þetta er hluti af undirbúningi „varnarmálapakka“ sem framkvæmdastjórnin vinnur að.

Stefnu um alþjóðlega samvinnu á orkumálasviðinu. Auk þess mun framkvæmdastjórnin kynna aðgerðaáætlun um að hraða stafrænni umbreytingu á orkuiðnaði, þ.e. er varðandi orkudreifingu, nýtingu orku og upplýsingaöryggi.

Aðgerðaáætlun um alþjóðlega stjórnun úthafanna.

Löggjöf um netöryggi sem hefur það markmið að fastsetja sameiginleg öryggisviðmið fyrir nettengdar vörur. Að auki vill framkvæmdastjórnin byrja vinnu við öruggt fjarskiptakerfi í geimnum sem m.a. gerir mögulegt að bjóða netþjónustu á svæðum þar sem hún er ekki fyrir hendi .

Að öðru leyti má staldra við eftirfarandi:

Loftslagsmál: ný löggjöf um vottun fyrir förgun koltvísýrings; lagalegur rammi um enga losun í samgöngum: rétturinn til viðgerða, þ.e. réttur til að fara með hluti til viðgerðar hjá þjónustuaðila að eigin vali, en það er hluti af hringrásarhagkerfinu. Tillögur um stafrænt kerfi fyrir samgöngur sem styður við aukna skilvirkni og sjálfbærni og tekur til allra helstu ferðamáta.

„Plastpakkinn“: þar með talið löggjöf til að draga úr örplasti í umhverfinu.Löggjöf um fjölmiðlafrelsi.

Tilflutningur á sakamálum milli landa. Löggjöfinni verður ætlað að styðja við baráttuna gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi.

Heildarendurskoðun á evrópsku lyfjalöggjöfinni: Í því felst tækifæri að ná fram baráttumáli Íslands til nokkurra ára um að heimila notkun rafrænna fylgiseðla með lyfjum. Málið hefur hlotið stuðning á norrænum vettvangi og sameiginlega hafa Norðurlandaþjóðirnar farið þess á leit við Evrópusambandið að reglur um fylgiseðla með lyfjum verði endurskoðaðar þannig að heimilt verði að nota rafræna fylgiseðla eingöngu. Samkvæmt gildandi reglum skulu lyfjapakkningar innihalda fylgiseðil með viðkomandi lyfi á tungumáli þess lands þar sem lyfið er selt. Fyrirkomulagið felur í sér ýmsa annmarka, ekki síst fyrir lítil málsvæði. Horft er til þess að rafrænir lyfseðlar auðveldi m.a. sameiginleg lyfjainnkaup þjóða sem stuðli að lægri kostnaði og auknu lyfjaframboði, auðveldara verði að tryggja öllum notendum lyfja upplýsingar á tungumáli sem þeir skilja og eins geti rafrænir lyfseðlar dregið úr sóun.

Í verkefnaáætluninni er einnig að finna fyrirhugaðar tillögur sem ekki verða bindandi. Þannig á að leggja fram evrópska stefnu um umönnun, allt frá barnagæslu til aðbúnaðar langveikra. Tilgangurinn er að stuðla að gæðaþjónustu fyrir alla. Í ljósi farsóttarinnar á að leggja fram tilmæli um lágmarks tekjutryggingu.

Þjóðþingin styðjast gjarnan við verkefnaáætlunina til að forgangsraða því sem til stendur að fylgjast sérstaklega með. Í nýrri skýrslu um umbætur á evrópustarfi danska þingsins er lagt til að þingið velji á hverju ári 10-20 mál í forgangi og að haldin verði árleg umræða með þátttöku leiðtoga flokkanna um þessi mál og loks að þingnefndir tilnefni framsögumenn um hvert þessara mála.

Stafrænu Covid-vottorðin slá í gegn

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur gefið út skýrslu um framkvæmd varðandi stafræn Covid vottorð. Þar kemur fram að skilríkin hafi verið veigamikill þáttur í viðbrögðum Evrópuríkja við faraldrinum. Búið sé að gefa út tæplega 600 milljón vottorð. ESB sé þarna leiðandi á heimsvísu. Fyrir utan EES-ríkin og Sviss hafa 14 lönd gerst aðilar og tæknilegar viðræður eru í gangi við 28 lönd til viðbótar. Tilkynnt var í gær að Bretar væru komnir með aðgang að þessu sameiginlega kerfi. Samtök evrópskra flugvalla hafa greint frá því að umferð farþega hafi verið tvöfalt meiri í júlí 2021 heldur en ári áður, þökk sé m.a. evrópska covid-vottorðinu. Í 20 Evrópuríkjum er vottorðið notað innanlands sem skilyrði fyrir aðgangi að stærri viðburðum, veitingastöðum, kvikmyndahúsum, söfnum o.s.frv.

Vottorðin eru þrenns konar, þ.e. bólusetningarvottorð, vottorð um fyrri sýkingu og skilríki um neikvæða niðurstöðu úr PCR-prófi eða hraðprófi. Fram kemur í skýrslunni að á Íslandi hafi verið gefin út um 530 þúsund bólusetningarvottorð. Skýringin er sú að sami einstaklingurinn getur náð sér mörgum sinnum í vottorð á Heilsuveru.

Evrópuþingið fylgjandi nýjum leikreglum í landbúnaði

Þrátt fyrir mikinn þrýsting frá hagsmunaaðilum samþykkti Evrópuþingið í síðustu viku að veita stefnunni „frá haga til maga“ brautargengi. Ályktun þingsins um þetta efni var samþykkt með 452 atkvæðum gegn 170 og 76 sátu hjá. Framsögumaður frá landbúnaðarnefnd þingsins, lét þau orð falla að bændur og neytendur þyrftu saman að axla byrðar vegna umhverfisvænni landbúnaðar. Nú þegar bændum yrði gert að draga úr notkun tilbúins áburðar, skordýraeiturs og sýklalyfja þá mætti það ekki gerast að framleiðsla færðist einfaldlega út fyrir álfuna. Styðja yrði við framleiðendur þannig að þeir gætu boðið vöru á samkeppnishæfu verði.

Sjá nánar: https://www.europarl.europa.eu/news/en/press-room/20211014IPR14914/new-eu-farm-to-fork-strategy-to-make-our-food-healthier-and-more-sustainable

Hækkun orkuverðs í deiglunni

Deildar meiningar eru um það innan Evrópusambandsins hvernig eigi að takast á við hækkandi orkuverð. Allir átta sig þó á því að til skamms tíma er hver sjálfum sér næstur. Þannig hafa 19 aðildarríki, þ.m.t. Frakkland, Ítalía, Holland og Spánn, nú þegar gripið til aðgerða heima fyrir í formi skattalækkana eða niðurgreiðslna. Framkvæmdastjórn ESB hefur gefið út svokallaða verkfærakistu til að leiðbeina aðildarríkjunum hvaða aðgerðir komi helst til greina til skamms tíma.

En til lengri tíma litið verður erfitt að finna samhljóm líkt og birtist á fundi orkumálaráðherra fyrr í vikunni. Einn hópur ríkja í norðurhluta álfunnar telur að hækkun orkuverðs sé tilfallandi vandamál sem kalli ekki á breytingar á orkustefnu sambandsins eða aðgerðum á grundvelli græna sáttmálans. Þetta kom fram í sameiginlegri yfirlýsingu Danmerkur, Eistlands, Finnlands, Þýskalands, Hollands og Austurríkis, Írlands og Lúxemborgar sem birt var mánudaginn 25. október sl.

Önnur ríki, einkum Frakkland, Spánn, Rúmenía og Tékkland, vilja breytingar á reglum sem gilda um gas og raforkumarkaði. Þannig verði meiri samræming varðandi birgðahald gass og sameiginleg innkaup að einhverju marki. Þá verði raforkuverð ekki jafn tengt gasverði og nú er. Það myndi einkum gagnast ríkjum sem nýta aðrar orkuauðlindir til raforkuframleiðslu líkt og kjarnorku.

Þriðji hópur ríkja heldur því fram að ástandið nú sýni að endurskoða þurfi áform um að draga úr notkun kolefniseldsneytis. Þar fer Pólland fremst í flokki. Landið er nú mjög háð kolavinnslu og það felur í sér viðbótarkostnað miðað við önnur ríki að þurfa að hætta henni, kostnað sem bætist við hátt orkuverð að öðru leyti, reynist það meira en tilfallandi vandamál.

Hvernig á að flokka kjarnorkuna?

Áður hefur verið um það fjallað í Brussel-vaktinni hvernig það reyndist ekki sjálfgefið að vatnsafl væri flokkað sem grænast orkugjafa í yfirstandandi verkefni framkvæmdastjórnarinnar þar sem línur eru lagðar um græna fjármögnun. Hér er vísað til svokallaðrar „taxónómíu“ þar sem starfsemi er flokkuð út frá losun koltvísýrings og afleiðinga fyrir umhverfið. En það hangir margt á spýtunni.

Á fundi sínum í Brussel, 21. og 22. október, þrýstu leiðtogar aðildaríkjanna á framkvæmdastjórnina að ákveða fyrir lok nóvember á þessu ári hvernig beri að flokka kjarnorku og gas. Það ræðst síðan af flokkun framkvæmdastjórnarinnar, þ.e. hvort kjarnorka muni teljast „græn“ eða gas ásættanlegur orkugjafi á meðan á umskiptunum stendur, að hvað marki viðkomandi geirar ná að fjármagna fjárfestingar í framtíðinni.

Hækkun orkuverðs, hefur að sögn dagblaðsins Le Monde, gefið frönskum stjórnvöldum byr í seglinn er þau mæra ágæti kjarnorkunnar: Hagkvæm orka, engin kolefnabrennsla og stöðugleiki. Þrýst er á framkvæmdastjórnina að gefa græna stimpilinn þótt ekki hafi fundist með öllu ásættanleg lausn á vandanum við kjarnorkuúrgang sem hefur slæm umhverfisáhrif. Hér njóta Frakkar stuðnings annarra þjóða sem hafa bundið trúss sitt við kjarnorkuna. En að auki hefur myndast hentibandalag við þjóðir sem búa yfir gasi, eins og Pólverjar, og þurfa að nýta það enn um sinn til að losna úr viðjum kolefnisins.

Rúmenía, Tékkland, Finnland, Slóvakía, Króatía, Slóvenía, Búlgaría, Pólland og Ungverjaland munu vera á bandi Frakka. Holland, Eistland, Írland og Grikkland eru volg. Austurríki og Lúxemborg eru mjög andsnúin en umfram allt Þýskaland. Þessi þrjú lönd geta þó ekki hnekkt ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar ef hún gefur kjarnorku græna stimpilinn. Málið er umdeilt í Svíþjóð þar sem kjarnorka leikur stórt hlutverk.

Það er hins vegar talið pólitískt flókið fyrir forseta framkvæmdastjórnarinnar, Ursulu von der Leyen, að gefa þýskum stjórnvöldum langt nef. Ekki síst vegna þess að margir í framkvæmdastjórninni eru mjög andsnúnir kjarnorkunni, til dæmis Frans Timmermans, einn af aðstoðarframkvæmdastjórunum. Blaðið hefur eftir ónefndum stjórnarerindreka að það sé þó auðveldara að horfa fram hjá andstöðu Þjóðverja nú en síðar í vetur þegar ný stjórn jafnaðarmanna og græningja er tekin við.

Frestur er á illu bestur, segir máltækið. Það er þó ekki endilega vænlegur kostur því Bretar, Bandaríkjamenn og Kínverjar eru að vinna að eigin flokkunarkerfi sem þeir munu vilja halda á lofti. Það er því ekki einungis tekist á um málefnið innan ESB heldur eru átök einnig fyrirsjáanleg á skákborði heimsveldanna.

Samstarfsáætlunum ýtt úr vör

Í vikunni boðaði utanríkisráðuneytið til samráðsfundar um undirbúning ráðuneytanna vegna framkvæmdar þeirra samstarfsáætlana sem Ísland mun taka þátt í (sjá Brussel-vaktina frá 1. október og ees.is). Áætlanir skiptast í grófum dráttum í miðstýrða samkeppnissjóði þar sem sótt er um verkefni beint til umsjónaraðila hjá ESB en Ísland hefur landstengilið sem sinnir fræðslu og upplýsingastarfi, auk þess að hvetja til umsókna. Hins vegar áætlanir sem er dreifstýrt og umsjónaraðilar í ríkjunum annast úthlutun fjármuna. Í sumum tilvikum eru áætlanirnar blandaðar. Mismunandi er hvort einstaklingar, lögaðilar eða stofnanir geti sótt um til samstarfsverkefna. Undirbúningur framkvæmdar hér á landi er mislangt á veg kominn eftir eðli áætlananna. Í sumum samkeppnissjóðunum eru fyrstu köllum eftir verkefnum þegar lokið, svo sem á sviði Horizon. Í öðrum er vinna við framkvæmd annað hvort nýhafin eða á frumstigi. Hagaðilar eru hvattir til að hafa samband við umsjónaraðila eða landstengilið hverrar áætlunar til að fá frekari upplýsingar eða til að upplýsa um áhuga á þátttöku með verkefnum (sjá nánar á ees.is).

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið leiðir starfshóp með aðkomu fjármála- og efnahagsráðuneytisins, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins þar sem unnið er að því að ganga frá þátttöku Íslands í svokallaðri InvestEU-áætlun, en innan áætlunarinnar er hægt að fá tryggingar m.a. vegna fjármögnunar stafrænna innviða og grænna fjárfestinga og orkuskipta.

Fyrirhuguð úttekt á reynslu Noregs af EES-samstarfinu

Norski þingmaðurinn Guri Melby, úr Vinstriflokknum, spurði Anniken Huitfeldt, utanríkisráðherra í Stórþinginu hvort fyrirhuguð úttekt á reynslu Noregs innan EES undanfarinn áratug, sem boðuð var í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar, myndi einnig líta til aðildar að ESB og reynslu Danmerkur, Svíþjóðar og Finnlands í þeim efnum.

Ráðherrann segir í svari að EES-samstarfið standi á traustum grunni. Stjórnarsáttmálinn tiltaki hvergi aðra kosti en EES. Hins vegar sé þörf á að framkvæma sambærilega úttekt og þá sem gefin var út 2012 (Utenfor og innenfor – „fyrir innan eða utan“) og varpaði ljósi á mikilvægi EES-samningsins fyrir Noreg og þann ábata sem hann hefði skilað í gegnum tíðina. Ný skýrsla muni styrkja og bæta opinbera umræðu um Evrópumál. Evrópska landslagið hafi breyst umtalsvert á undanförnum áratug – bæði hvað EES varðar en sér í lagi innan ESB. Án þess að ákveða ramma úttektarinnar fyrirfram segir ráðherrann að Sviss og Bretland gætu t. a m. orðið góð samanburðarlönd. Ríkisstjórnin muni greina frá umboði og skipan nefndar hvað þetta varðar þegar þar að kemur.

Dagsektir lagðar öðru sinni á pólsk stjórnvöld

Spennan magnast enn í deilum Evrópusambandsins og Póllands. Að þessu sinni lýtur ágreiningur að sjálfstæði dómkerfisins og agadeild við hæstarétt landsins. Framkvæmdastjórn ESB hefur tekið undir með mörgum dómurum í Póllandi og stjórnarandstöðunni sem telja agadeildina stangast á við Evrópurétt og grundvallarreglur um sjálfstæði dómsvaldsins. Deildin sem er pólitískt skipuð hefur vald í agamálum dómara og getur þannig verið verkfæri stjórnvalda til að losa sig við dómara eða halda þeim í skefjum. Á meðan skorið er endanlega úr þessu þá kvað Evrópudómstóllinn upp þann úrskurð 14. júlí sl. að agadeildin ætti þegar að fella niður störf vegna hættu sem af henni stafaði fyrir réttarríkið. Pólsk stjórnvöld hafa ekki farið eftir því og telja að dómskerfið sé á forræði ríkisins en ekki Evrópusambandsins. Af þeim sökum ákvað Evrópudómstóllinn 27. október sl. að leggja dagsektir á pólska ríkið sem nema 1 milljón evra á dag.

Ekki eru nema nokkrar vikur síðan Evrópudómstóllinn ákvað að leggja 500 þús. evru dagsektir á pólska ríkið vegna kolanámu sem ekki hefur verið lokað en uppfyllir ekki kröfur um umhverfisvernd.

Og síðan er þess einnig skemmst að minnast að stjórnlagadómstóll Póllands kvað upp þann úrskurð nýverið að Evrópuréttur gengi ekki framar pólsku stjórnarskránni.

ESA birtir skýrslu í fyrsta sinn um frammistöðu í loftslagsmálum

ESA birti í síðustu viku fyrstu skýrsluna um frammistöðu Íslands og Noregs við að ná loftslagsmarkmiðum. Þar kemur fram að Ísland er mjög nálægt því að ná settu markmiði árið 2030 miðað við þau gögn sem fyrir liggja. Samkvæmt skýrslunni verður samdráttur losunar CO2 28% á þeim tímamótum en skuldbinding Íslands kveður á um 29% samdrátt.

15. október 2021 | Regluverk um gervigreind vísi veginn á heimsvísu |
Að þessu sinni er fjallað um:
• umræður um gervigreind á fundi fjarskiptaráðherra ESB
• endurskoðaða stefnu ESB í málefnum Norðurskautsins
• réttindi blaðamanna og hvernig ESB fikrar sig inn á það svið
• fyrsta starfsárið hjá nýjum átakshópi gegn hindrunum á innri markaði
• athugasemdir EFTA-ríkjanna í EES við drög að reglugerð um stafræna þjónustu
• norska skýrslu um EES-vinnu ráðuneyta
• fund umhverfisráðherra ESB í aðdraganda COP26 í Edinborg
• flaggskip ESB helgað ferðaþjónustu
• gagnaleka sem varpar ljósi á afstöðu hagsmunavarða landbúnaðar til græna sáttmálans
• samráð um skoðun ökutækja og stafræna samþættingu samgönguþjónustu

Fjarskiptaráðherrar ESB fjalla um tillögur að regluverki um gervigreind

Ráðherrar aðildarríkja ESB sem fara með fjarskiptamál og málefni upplýsingasamfélagsins komu saman í gær til þess að ræða nýja tillögu framkvæmdastjórnarinnar að reglugerð um gervigreind.

Ráðherrarnir tóku almennt vel í tillöguna og lögðu áherslu á mikilvægi þess fyrir innleiðingu tækninnar að almenningur bæri traust til hennar, hún væri opin og gagnsæ. Gæta þyrfti þess að regluverkið tæki tillit til gildandi reglna ESB og færi ekki fram úr því. Þá lögðu þeir mikla áherslu á að regluverkið hindraði ekki nýsköpun og þróun á sviði gervigreindar.

Ráðherrarnir höfðu einnig ýmsar athugasemdir og ábendingar um það sem betur mætti fara við nánari útfærslu á reglugerðinni svo sem varðandi verkaskiptingu ríkjanna og framkvæmdastjórnarinnar við stjórnsýslu, skilgreiningu á hárri áhættu, útgáfu leiðbeininga ofl.

Fram kom í máli slóvenska fjarskiptaráðherrans, sem fer með formennsku í ráðherraráði ESB, að fundi loknum að tillagan sé sú fyrsta sinnar tegundar á heimsvísu og í henni er miðað við að nálgast viðfangsefnið þannig að hún greiði fyrir nýsköpun um leið og gætt er að gildum vestræns samfélags, þ.e. siðfræðilegum gildum, grunnréttindum borgaranna og frelsi. Markmiðið með reglusetningu gervigreindar sé að tryggja sameiginlegan markað fyrir gervigreind, greiða fyrir þróun tækninnar og nýtingu hennar. Þróun og notkun gervigreindar er mikilvæg fyrir hagvöxt og velferð samfélagsins í framtíðinni. Gervigreind getur hjálpað til við að vinna gegn loftlagsbreytingum, bætt heilbrigðiskerfið og stuðlað að framförum á fjöldamörkum sviðum sem ná m.a. yfir sjálfvirknivæðingu í iðnaði, framfarir í landbúnaði, samgöngum, menntun og fjármálastarfsemi.

Það er mat ráðherranna að án regluverks um gervigreind sé hætta á ófyrirséðum og hættulegum afleiðingum af notkun gervigreindar á viðkvæmum sviðum. Svarið sem tillagan hefur við þessu er að stuðla að eins konar vistkerfi sem byggir á trausti og vandvirkni um leið og grunnréttindi séu í heiðri höfð.

Tillagan er í forgangi hjá slóvensku formennskunni og miða þeir við að klára fyrstu umræðu um hana í desember. Markmiðið er að kynna fyrstu tillögu að málamiðlun fyrir lok ársins.

Framkvæmdastjóri innri markaðar ESB, Thierry Breton, vakti á fundi ráðherranna athygli á tveimur lykilatriðum:

Annars vegar mikilvægi sameiginlegrar nálgunar á gervigreind fyrir sameiginlega markaðinn sem byggir á trausti og stuðlar að bættu heilbrigði, vernd og tryggir grunngildi samfélagsins. Fram kom hjá mörgum ráðherrum mikilvægi þess að íbúar og notendur bæru traust til gervigreindar og þeirra lausna sem hún væru notuð fyrir.

Hins vegar mikilvægi þess að stuðla að nýsköpun og þróun á sviði gervigreindar þannig að Evrópa sé samkeppnishæf á þessu sviði á heimsvísu.

Þörf væri fyrir sameiginlegt regluverk sem hægt væri að útfæra hratt, væri skýrt og aðgengilegt ekki síst fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Innfluttar vörur og lausnir þyrftu einnig að uppfylla kröfur regluverksins um grunngildi evrópsk samfélags svo sem persónuvernd.

Ný stefna í málefnum Norðurskautsins - sendiskrifstofa í Nuuk

Ný stefna Evrópusambandsins í málefnum Norðurskautsins var kynnt í vikunni. Þar eru gefin fyrirheit um aukna viðleitni sambandsins til að styðja við frið, sjálfbærni og velsæld á norðurslóðum. Evrópusambandið teygir sig inn á Norðurskautið og svæðið er mikilvægt frá sjónarhóli þess vegna loftlagsbreytinga, hráefna og varnar- og öryggismála. Fram kemur að Evrópusambandið hyggist setja á laggirnar sendiskrifstofu í Nuuk á Grænlandi.

Fram kemur að Evrópusambandið hyggist setja málefni norðurslóða ofar á dagskrá í samskiptum út á við, auka svæðisbunda samvinnu og fylgjast enn betur með og bregðast við áskorunum í öryggismálum. Löggjöf um umhverfismál er varðar norðurslóðir verði hert og þrýst verði á að olía, kol og gas liggi óhreyfð í jörðu. Horft verði einnig sérstaklega til að styrkja stöðu frumbyggja, kvenna og ungmenna, m.a. með fjárfestingum í störfum sem vísa fram á veginn.

Virginijus Sinkevičius, sem fer með málefni umhverfisins, fiskveiða og hafsins í framkvæmdastjórn ESB, kynnti stefnuna á Arctic Circle ráðstefnunni í Hörpu í gær, 14. október.

ESB lætur sig varða réttindi blaðamanna

Öryggi blaðamanna er ógnað í ýmsum ríkjum Evrópusambandsins. Evrópusambandið er nú farið að láta sig þetta málefni varða í auknum mæli. Thierry Breton sem sæti á framkvæmdastjórn ESB lýsti í ræðu í apríl sl. áhyggjum af fjölmiðlafrelsi í löndum eins og Póllandi, Ungverjalandi, Slóveníu og Tékklandi. Þá var einnig skammt síðan gríski blaðamaðurinn George Kariavaz var myrtur. Kariavaz sérhæfði sig í umfjöllun um glæpastarfsemi. Breton viðurkenndi að verkfærakista sambandsins á þessu sviði væri fátækleg en þó kvaðst hann hlynntur evrópskri fjölmiðlafrelsislöggjöf. Ursula von der Leyen gerði árásir á blaðamenn einnig að umtalsefni í stefnuræðu sinni 15. september sl. og boðaði fjölmiðlafrelsislöggjöf á næsta ári.

Þann sama dag lagði framkvæmdastjórnin fram tilmæli um aukna vernd blaðamanna Í tilmælum framkvæmdastjórnarinnar frá 15. september er lögð áhersla á leiðir til að auka öryggi blaðamanna. Þetta er í fyrsta sinn sem ESB setur fram stefnutexta á þessu sviði. Fram kemur að þriðjungur árása á blaðamenn á sér stað í tengslum við mótmæli á götu úti. Þá verða konur í blaðamennsku frekar fyrir árásum en karlar og þá ekki síst þær sem fjalla um jafnréttismál.

5. október sl. var síðan birt til samráðs frumtillaga að tilskipun sem beinist gegn óréttmætum málshöfðunum á hendur blaðamönnum og mannréttindafrömuðum. Slíkt háttalag gengur undir enska heitinu SLAPP (e. Strategic lawsuits against public participation). Gert er ráð fyrir að tilskipunin sæki stoð í gr. 81.2 í sáttmálanum um starfshætti Evrópusambandsins, sem fjallar um samstarf á einkaréttarsviðinu. Af því leiðir að gerðin muni falla utan EES-samningsins.

Ráðist á hindranir á innri markaðnum

Átakshópur um frjálst flæði á sameiginlega innri markaðnum (e. Single Market Enforcement Taskforce eða SMET) hefur skilað af sér fyrstu ársskýrslu og var hún rædd á fundi ráðherra samkeppnishæfni í lok september sl. Hópurinn endurspeglar tilraun til nýrra vinnubragða þar sem framkvæmdastjórnin og fulltrúar aðildarríkjanna vinna saman að því koma auga á hindranir og meta hvort þær eigi rétt á sér.

Fram kemur að SMET hafi ákveðið að einbeita sér að fimm sviðum:

Hömlur á því að sérfræðingar bjóði fram þjónustu sína tímabundið eða tilfallandi þvert á landamæri: fyrirfram eftirlit með því hvort skilyrði eru uppfyllt. Farið hefur verið yfir slíkar kröfur í aðildarríkjunum og bent á möguleika til að fella úr gildi kröfur sem ekki miða beinlínis að því að vernda heilsu og öryggi viðtakenda þjónustu.

Hömlur er varða landbúnaðarvörur. Brögð hafa verið að því, ekki síst á tímum farsóttarinnar, að aðildarríki hygli eigin landbúnaðarvöru til dæmis í opinberum útboðum eða með því að skylda smásala til að bjóða upp á tiltekið hlutfall af innlendri framleiðslu.Farið hefur verið yfir málið, bent á hvaða aðgerðir til stuðnings landbúnaði heima fyrir séu heimilar, og þau ríki sem eiga í hlut hvött til að endurskoða sína nálgun.

Viðurkenning á starfshæfni – yfirdrifnar kröfur um fylgiskjöl. Komið hefur í ljós að enn er sums staðar verið að gera kröfur um að frumriti skjala sé framvísað eða staðfestri útgáfu á pappír sem rímar illa við notkun á stafrænum ferlum og hægir á málum.

Vottunarkerfi í byggingariðnaði og hömlur á flæði vöru sem ekki lýtur stöðluðum kröfum. Hér hefur komið í ljós misbrestur á því að ríki viðurkenni vöru sem markaðssett hefur verið löglega í öðru aðildarríki sem er þó grundvallarregla. Ein leið fram á við er að stjórnvöld muni að nota sameiginlegt tilkynningarkerfi um markaðseftirlit á grundvelli reglugerðar 2019/515.

Óþarfa skriffinnska vegna starfmanna sem koma á vegum starfsmannaleigu.

SMET fundaði nú síðast 13. október og þá kynntu Frakkar og Hollendingar nýja tillögu að viðfangsefni sem er afnám hindrana fyrir því að settar séu á laggirnar hleðslustöðvar fyrir rafbíla. Komið hefur í ljós að skortur á slíkum innviðum er ein helsta hindrunin fyrir því að fólk kaupi sér rafbíla.

Athugasemdir EFTA-ríkjanna við drög að reglugerð um stafræna þjónustu

EES EFTA ríkin fagna tillögu framkvæmdastjórnarinnar um reglugerð um stafræna þjónustu (e. Digital Services Act, DSA) og taka undir þörfina á að uppfæra regluverk í ljósi þess hve mikilvæg slík þjónusta er fyrir efnahagslífið, samfélagið og lýðræðið. Í athugasemdum við tillöguna frá 29. september sl. er lýst yfir stuðningi við það tvíþætta markmið að styrkja sameiginlega markaðinn fyrir stafræna þjónustu til að stuðla að nýsköpun og styðja við öruggara netumhverfi fyrir borgarana. Minnt er á mikilvægi tjáningarfrelsis andspænis þörfinni fyrir að fjarlægja ólöglegt efni. Hér eigi að standa vörð um meginreglur sem endurspegluðust á sínum tíma í tilskipuninni um rafræna þjónustu, þ.e. varðandi takmarkaða ábyrgð hýsingar- og milligönguaðila.

Að því er varðar hnitmiðaðar auglýsingar þá segjast EFTA ríkin þrjú vera hlynnt auknum varúðarráðstöfunum að því er varðar notkun á persónusniði og beinskeyttustu auglýsingum sérstaklega þegar börn og viðkvæmir hópar eiga í hlut.

Norsk skýrsla um EES-vinnu ráðuneyta

Nefnd um úrbætur í EES-vinnu ráðuneyta í Noregi hefur nýlega skilað ítarlegri skýrslu. Kveikjan að starfi nefndarinnar var hneyksli sem upp kom er í ljós kom röng túlkun stjórnvalda á reglum um rétt til bótagreiðslna þegar dvalið væri í öðru EES-ríki (NAV-málið svokallaða).

Helstu niðurstöður í skýrslunni eru þessar:

Umfang EES-reglna heldur áfram að aukast. Fjöldi svokallaðra framkvæmdagerða sem framkvæmdastjórnin gefur út hefur aukist. Þá hefur reglugerðum fjölgað á kostnað tilskipana. Mjög misjafnt er eftir málefnasviðum hversu ítarlegar EES-reglurnar eru.

Gæðum lagasetningar, vandaðri innleiðingu og réttri framkvæmd ber að gera hærra undir höfði.

Við hagsmunagæslu ber að gæta þess að reyna að hafa áhrif á fyrri stigum í löggjafarferli ESB. Beita skal kröftum í samræmi við hversu mikilvægt mál er fyrir Noreg og hvers megi vænta að ná fram á ólíkum stigum.

Í þágu aukinnar samræmingar verði sett á laggirnar sérstök nefnd um almenn lögfræðileg álitamál er snúa einkum að innleiðingu EES-skuldbindinga í landsrétt.

Tekið er undir fyrri tillögur í annarri skýrslu um stafrænt stuðningskerfi fyrir EES-vinnuna og þar m.a. vitnað í íslenska EES-gagnagrunninn.

Samráði um nýjar EES-reglur þarf að haga í samræmi við eðli máls. Í tilviki reglugerða er til dæmis í stórum dráttum ekkert svigrúm til að hafa áhrif á efni reglna eftir að þær hafa verið samþykktar innan ESB.

Aðlögunartextar sem samþykktir eru af sameiginlegu EES-nefndinni eru formlega séð hluti af viðkomandi EES-gerð. Vinnan við aðlögunartexta er því löggjafarvinna. Mælt er með því að unnið verði að því með hinum EFTA-ríkjunum tveimur að orða aðlögunartexta skýrar og gera þá aðgengilegri.

Gera þarf átak í því að gera EES-reglur aðgengilegar þannig að uppfærð og gildandi útgáfa reglna sé í einu og sama skjalinu. Stungið er upp á að EFTA-skrifstofan fái hlutverk í þessu sambandi. Þá er mælt með því að við útgáfu norsks lagasafns sé betur auðkennt hvaða reglur stafi frá EES-samstarfinu.

Ráðuneytin þurfa að standa sig betur í að fylgjast með nýjum dómum frá EFTA-dómstólnum og ESB-dómstólnum. Ein leið gæti verið sú að þau þurfi að gera árlega grein fyrir dómaþróun í samhæfingarnefnd á sviði EES-mála.

Auka þarf hæfni starfsmanna í ráðuneytunum í EES-málum. Þar er nefnt mikilvægi námskeiða, leiðbeininga og handbóka, sjónarmiða við ráðningar í sérfræðingsstöður og stjórnendastöður og að nýttir séu möguleikar til starfsnáms og starfsmannaskipta hjá Evrópustofnunum.

Norska fjármálaráðuneytið hefur nú útbúið breytingar á leiðbeiningum um vinnslu stefnumótandi skjala (n. utredningsinstruksen) þar sem tekið er mið af ofangreindum tillögum. Samráð um þær breytingar er opið fram í janúar nk.

Hitað upp fyrir Edinborg

Fundur umhverfisráðherra ríkja ESB var haldinn í Lúxemborg 6. október 2021. Dagskrá fundarins var yfirgripsmikil en á honum var rætt um m.a. „Fit for 55“ tillögupakka framkvæmdastjórnar ESB, hækkun orkuverðs í Evrópu og nýja skógræktaráætlun ESB til ársins 2030. Samþykkt var ályktun um undirbúning fyrir COP26 fundinn sem haldinn verður í Glasgow 31. október – 12. nóvember 2021 og einnig samþykku ráðherrarnir tillögu að breytingu á Árósareglugerð sambandsins.

„Fit for 55“

Í umræðum um „Fit for 55“ pakkann þá var sjónum aðallega beint að endurskoðun á ETS tilskipun sambandsins, endurskoðun á ESR reglugerð (e. Effort sharing regulation), LULUCF reglugerð og reglugerð um staðla er varðar losun CO2 frá bifreiðum (e. Setting CO2 emission performance standards for new passenger cars and for new light commercial vehicles). Einnig var rætt um reglugerð er varðar stofnun á „Social Climate Fund“.

Pakkinn sem framkvæmdastjórn ESB kynnti 14. júlí sl. samanstendur af fjölda tillagna sem tengjast innbyrðis og annað hvort breyta núgildandi löggjöf eða leggja til nýja löggjöf. Umræðan á fundinum snerist að mestu um þessi innbyrðis tengsl og framlag þeirra til aukins metnaðar ESB á sviði loftslagsmála. Ráðherrarnir ræddu um áhrif tillagnanna á ríkin sjálf og mismunandi atvinnuvegi auk áhrifa á almenning. Umræða fundarins snerist mest um útvíkkun ETS kerfisins til vegasamgangna og bygginga en loftslagssjóðnum, sem til stendur að stofna, er einmitt ætlað að jafna út efnahagsleg og félagsleg áhrif milli ríkja ESB og innan þeirra af útvíkkun kerfisins. Gert er ráð fyrir að ríkin fjármagni sjálf a.m.k. helming áætlana sinna um stuðning með hagnaði þeim sem myndast af uppboði á heimildum í nýja kerfinu.

COP26

Í ályktun umhverfisráðherra um COP26 fundinn er lögð áhersla á mikilvægi þess að ríki heims bregðist við neyðarástandi í loftslagsmálum og að brugðist sé við með jöfnum og sanngjörnum hætti þvert á ríki heims. Í ályktuninni er að finna ákall til ríkja heims um að þau setji fram metnaðarfull landsmarkmið (NDC) til Parísarsáttmálans og að viðurkennt verði að þörf sé á aukinni sameiginlegri viðleitni til aðlögunar að loftslagsbreytingum.

Ályktunin er almennt umboð fyrir COP26 fundinn. Nákvæmara umboð fyrir samningamenn ESB hvað varðar fjárhagslega þætti var samþykkt í formi ályktunar á fundi Efnahags- og fjármálaráðs Evrópusambandsins (e. Ecofin) 5. október sl.

Hækkun orkuverðs

Að beiðni Grikklands, Spánar og Póllands var á fundinum rætt um hækkun orkuverðs í Evrópu. Miklar umræður urðu á fundinum og aukinn þrýstingur hefur myndast á framkvæmdastjórnina að koma með lausnir. Óttast er að skortur á viðbrögðum geti grafið undan markmiðum Græna sáttmálans og þeim tillögum sem boðaðar eru í „Fit for 55“ pakkanum. Framkvæmdastjórnin hefur bent á að aðeins 20% af hækkuninni megi rekja til loftslagsstefnu sambandsins. Fram kom að búið er að setja málið á dagskrá fundar ráðsins sem haldinn verður 21.-22. október nk. Framkvæmdastjórnin mun fyrir þann fund leggja fram orðsendingu þar sem verða tillögur til að sporna við hækkunum.

Skógræktaráætlun ESB

Á fundinum skiptust ráðherrarnir á skoðunum er varðar nýja skógræktaráætlun ESB. Áætlunin er eitt af flaggskipum Græna sáttmálans og byggir á áætlun sambandsins er varðar líffræðilega fjölbreytni til ársins 2030. Áætluninni er ætlað að stuðla að því að markmiði ESB er varðar loftslagsmál og líffræðilega fjölbreytni verði náð. Umræðurnar á fundinum snerust að mestu um hvort að ný skógræktaráætlun endurspeglaði nægjanlega vel ályktun ráðsins er varðar áætlun um líffræðilega fjölbreytni til ársins 2030 og hvort að skógræktaráætlunin sé nægjanlega góður grunnur fyrir ESB til að vera leiðandi í sjálfbærri skógrækt á heimsvísu.

Árósareglugerð

Á fundinum var samþykkt afstaða til breytinga á Árósareglugerð sambandsins um aðgang að réttlátri málsmeðferð er varðar umhverfismál. Samþykki afstöðu ráðsins til breytinganna kemur í kjölfar samkomulags er náðist við Evrópuþingið í júlí sl. og er lokaskrefið í samþykktarferlinu. Breyting á reglugerðinni er tilkomin vegna ákvörðunar eftirlitsnefndar Árósasamningsins um að ESB hefði gerst brotlegt við 3. og 4. mgr. 9. gr. Árósasamningsins. Ákvörðun eftirlitsnefndarinnar kom í kjölfar kvörtunar frá árinu 2008 er laut að skorti á heimild almennings til að óska eftir endurskoðun á ákvörðunum sem teknar voru af hálfu stofnana ESB ef þær ákvarðanir gætu stangast á við löggjöf er varðar umhverfismál.

Ferðaþjónustan fær pláss um borð í flaggskipi Evrópusambandsins

Sumum finnst eflaust að verið sé að bera í bakkafullan lækinn þegar minnst er á áherslur ESB á græna og stafræna umbreytingu. Þetta er hins vegar rétt að byrja og raunhæf verkefni að líta dagsins ljós.

Nú hefur EBS skilgreint stuðningskerfi eða flaggskip sem ætlað er að létta undir með aðildarríkjum við innleiðingu þessara áherslna. Þessi svokölluðu flaggskip eru rannsóknarverkefni sem hugsuð eru til allt að tíu ára og er ætlað að greiða leiðina að betra samfélagi. Flaggskipunum er ætlað að virkja háskóla- og vísindasamfélagið, atvinnugreinar og ríki til að takast á við risaverkefni á sviði tækni og vísinda. Markmið verkefnanna er að stuðla að því að ESB verði áfram leiðandi afl á þessu sviði og árangurinn skili sér í jákvæðum breytingum fyrir þjóðfélög og efnahagskerfi.

Þetta eru svokölluð tæknileg stuðningsverkefni (TSI - Technical Support System) sem lengi hafa verið við lýði þó að ferðaþjónustan hafi ekki verið formlega með (vissulega tengist greinin inn í margt annað). Ekki er um útdeilingu fjárstyrkja að ræða heldur fjárfestingu sem birtist í tæknilegri aðstoð og ráðgjöf til að stuðla að umbótum á ýmsum sviðum. Þrettán höfuðsvið hafa verið valin og varða þau m.a. stafræna stjórnsýslu, stafræna heilbrigðisþjónustu, stafræna fjármálaþjónustu og félagslegar umbætur auk verkefna sem snúa að endurnýjanlegum orkugjöfum - og ferðaþjónustu. Er þetta sem sagt í fyrsta sinn sem ferðaþjónustan fær pláss í kerfi af þessu tagi og er ástæðan auðvitað það högg sem greinin varð fyrir í heimsfaraldrinum.

Í þessu prógrammi er ætlað að beina athyglinni að því að ,,þróa tæki fyrir sjálfbærara og stafrænna kerfi í ferðaþjónustunni". Tveir aðgerðarpakkar hafa verið skilgreindir; öðrum er ætlað að styðja hagstofur aðildarríkjanna við að þróa hagtölur enn frekar og ljúka við innleiðingu ferðaþjónustureikninga (e. tourism satellite accounts) sem eru hliðarreikningar þjóðhagsreikninga og er ætlað að leggja mat á hlut ferðaþjónustunnar í hagkerfinu og þróun hennar sem atvinnugreinar. Ferðaþjónustureikningar taka til útgjalda innlendra sem og erlendra ferðamanna.

Hinum pakkanum (þeim síðari) er ætlað að styðja við uppbyggingu sjálfbærra áfangastaða/svæða með því m.a. að veita íbúum, frumkvöðlum og stefnumarkandi aðilum nýjustu tölfræðigögn svo byggja megi ákvarðanir t.d. um stofnun fyrirtækja í greininni á marktækum upplýsingum.

Hagsmunasamtök í landbúnaði bíta í skjaldarrendur

Evrópsk hagsmunasamtök í landbúnaði vilja grundvallarbreytingar á stefnu framkvæmdastjórnarinnar sem kölluð hefur verið frá haga til maga (e. farm to fork) og er þáttur í græna sáttmálunum. Franska dagblaðið Le Monde komst yfir ýmis vinnuskjöl úr herbúðum COPA-Cogeca sem eru samtök sem eru málsvarar 10 milljón bænda í Evrópusambandinu.

Þar kemur fram sá ásetningur að fellt verði brott úr tillögu framkvæmdastjórnarinnar það bindandi markmið að minnka notkun á sýklalyfjum í eldi og skordýraeitri um 50% fram til ársins 2030. Sama á við um tillögu um að dregið verið úr notkun á tilbúnum áburði. Þá leggjast samtökin einnig gegn banni í áföngum við því að skyldar dýrategundir séu aldar undir sama þaki. Tilgangurinn með tillögu um slíkt bann er að draga úr hættu á að upp komi smitsjúkdómar sem geti borist milli skepna og manna.

Þá kemur fram í þessum skjölum einnig andstaða við áform um auknar kröfur til afurða um sykur-, fitu- og saltmagn. Sama á við um hömlur á markaðssetningu er lúta að upplýsingagjöf til neytenda um uppruna, framleiðsluaðferðir og dýravelferð.

Loks má lesa úr gögnum þeim sem dagblaðið komst yfir að til standi að reyna að fá atkvæðagreiðslu í Evrópuþinginu sem áætluð er í næstu viku frestað fram í nóvember þannig að betri tími gefist til að koma sjónarmiðum bænda og annarra framleiðenda landbúnaðarafurða á framfæri.

Opið samráð um endurskoðun reglna um skoðanir ökutækja

Framkvæmdastjórnin hefur birt áform og tímaáætlun varðandi endurskoðun á gildandi tilskipun um skoðun ökutækja. Finna má tillöguna hér: roadmap on a new proposal for a directive revising the roadworthiness package.
Óskað er eftir ábendingum og athugasemdum við áformin fyrir 1. nóvember 2021.

Í tilkynningu framkvæmdastjórnarinnar segir að almennt markmið með tillögunni sé að bæta umferðaröryggi, stuðla að sjálfbærari og snjallari umferð og greiða fyrir og einfalda frjálsa för fólks og vöru innan sambandsins. Sértæk markmið séu að tryggja að ný tækni, s.s. rafrænn öryggisbúnaður og rafræn aðstoðarkerfi bílstjóra, virki sem skyldi yfir líftíma tækjanna, bæta mælingatækni við útblástur bifreiða og bæta gagnavörslu og miðlun gagna sem safnað er og haldið er utan um varðandi ökutæki og skoðun þeirra.

Opið samráð um nýjar reglur um stafræna samþættingu samgönguþjónustu

Framkvæmdastjórnin hefur hafið opið samráð um áform um nýjar reglur um samþættingu samgöngumáta. Með samráðinu á að ná til skipulagningar ferða og kaupa á farmiðum á netinu fyrir ferðalög þar sem fleiri en einn samgöngumáti koma við sögu.

Meðal annars er tilgangur með reglunum að auka áreiðanleika og gegnsæi samninga milli fyrirtækja sem stunda smásölu á ferðum á landi og á legi. Með því er dregið úr hættu á ámælisverðri framkomu fyrirtækja sem sjá um slíka þjónustu. Einnig er tilgangurinn að stuðla að greiðari og umhverfisvænni samgöngum.

Samráðið er opið til 2. nóvember 2021.

Nánar um samráðið hér: roadmap for a new regulation on digital services integrating different transport nodes.

Brussel-vaktin er gefin út af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Vaktin kemur út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

01. október 2021 | Samkomulag í höfn um víðtækar samstarfsáætlanir |
Að þessu sinni er fjallað um:

• aðild að samstarfsáætlunum ESB

• langþráða lausn varðandi BEREC – samstarfsvettvang stjórnvalda í fjarskiptum

• aðild Íslands að EGNOS – sem styður við leiðsögu- og staðsetningarkerfi

• ráðherrafundi um samgöngumál, orkumál og neytendavernd

Samið um þátttöku EFTA-ríkjanna í samstarfsáætlunum ESB

Ísland verður með í 10 samstarfsáætlunum ESB á tímabilinu 2021-2027. Formlega var gengið frá samningum um þetta efni á fundi sameiginlegu EES-nefndarinnar 24. september sl. Framlag Íslands verður rúmlega 30 milljarðar kr. á tímabilinu og er það umtalsverð aukning frá síðasta tímabili. Í staðinn njóta íslenskir aðilar góðs af fjölþættu vísinda-, nýsköpunar-, mennta- og menningarsamstarfi (Horizon Europe, Erasmus+ og Creative Europe) auk áætlana á sviði umhverfismála, stafrænnar umbyltingar, heilbrigðismála o.fl. Sjá nánar

Fjarskiptaregluverk ESB, kóðinn, tekið upp í EES samninginn

Með ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar 24. september sl. um að taka fjarskiptaregluverk ESB, sk. Kóða-tilskipun og BEREC-reglugerð, inn í EES samninginn lauk ágreiningi EES EFTA ríkjanna og ESB um upptöku á fjarskiptapakkanum frá 2009 í EES samninginn. Upptaka pakkans frá 2009 strandaði á reglugerð um BEREC sem er samstarfsvettvangur eftirlitsstofnana aðildarríkjanna. BEREC hefur samkvæmt ákvæðum regluverksins hlutverk við að framfylgja löggjöfinni. Regluverkið, sem er bæði frá 2009 og 2018 þegar því var breytt, kveður á um að BEREC skuli við ákveðin skilyrði gefa út álit um markaðsráðstafanir sem framkvæmdastjórninni beri að hafa til hliðsjónar við stjórnvaldsákvarðanir. Ákvæði reglugerðarinnar um BEREC frá 2009 tók ekki viðeigandi tillit til tveggja stoða fyrirkomulags EES samningsins því eftirlitsstofnanir EES EFTA ríkjanna höfðu ekki rétt til aðkomu að mótun álita BEREC með viðeigandi hætti að því að gat varðað hagsmuni EES EFTA ríkjanna. Ágreiningurinn leiddi til þess að fjarskiptapakkinn frá 2009 beið upptöku í EES samninginn. Í fjarskiptapakka frá 2018, s.k. kóða, er ný reglugerð um BEREC án ákvæða í andstöðu við tveggja stoða kerfið. Þar er opnað á aðild EFTA-ríkjanna þriggja að BEREC án atkvæðisréttar.

Ísland gerist aðili að EGNOS áætluninni

Framkvæmdastjórn ESB hefur samþykkt aðild Íslands að EGNOS hluta Galileo áætlunar sambandsins. EGNOS er stuðningskerfi við GPS og Galileo staðsetningar- og leiðsögukerfin sem gerir kleift að nýta þessi kerfi við verkefni sem krefjast mikillar nákvæmni og áreiðanleika, s.s. við að stýra flugvél til lendingar á flugvelli.

Í tilefni aðildar Íslands fær Ísland rétt til setu á fundum stjórnarnefndar EGNOS verkefnisins og var fulltrúa Íslands boðið í fyrsta fundinn í vikunni. Sigurbergur Björnsson, fulltrúi samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins í Brussel, sótti fundinn fyrir hönd ráðuneytisins. Undir sérstökum dagskrárlið í tilefni af nýtilkominni þátttöku í EGNOS áætluninni var Ísland boðið velkomið í samstarfið. Fulltrúi Íslands tók til máls og sagði að forsendur og markmið fyrir þátttöku Íslands og framlagi til verkefnisins væri að tryggja að þjónusta EGNOS kerfisins væri aðgengileg um allt yfirráðasvæði Íslands. Í dag er þjónustan eingöngu í boði um austurhluta landsins. Ísland væri reiðubúið að vinna með stofnuninni eins og þyrfti til að stuðla að slíkri uppbyggingu.

Fulltrúi Íslands átti í framhaldi af stjórnarnefndarfundinum fund með Matthias Petschke framkvæmdastjóra geimvísindaáætlunar ESB og Jean-Marc Pieplu verkefnastjóra EGNOS þar sem m.a. farið var yfir aðstæður á Íslandi. Á fundinum rætt um stækkun þjónustusvæðis EGNOS svo það næði yfir allt yfirráðasvæði Íslands, hvernig væri best að standa að málum og hver næstu skref þyrftu að vera. Verkefninu er stýrt frá Toulouse í Frakklandi auk þess sem helstu verktakar í verkefninu hafa þar aðsetur.

Sjálfbærar og snjallar samgöngur til umræðu

Á óformlegum fundi í Brdo pri Kranju í vikunni ræddu samgönguráðherrar ESB tillögu framkvæmdastjórnarinnar að reglugerð um uppbyggingu orkustöðva, en hún er hluti af löggjafarpakkanum "Fit for 55". Ráðherrarnir hvöttu til skýrra markmiða, uppbyggingar á neti hleðslustöðva og stöðva fyrir aðra vistvæna orkugjafa fyrir samgöngur.

Spáð er að eftirspurn eftir samgöngum muni áfram vaxa á næstu áratugum. Að mati samgönguráðherranna vísar stefnumörkun sambandsins um sjálfbærar og snjallar samgöngur veginn um hvernig megi ná þessu markmiði og tryggja sveigjanlegt, samkeppnishæft, öruggt, aðgengilegt og hagkvæmt samgöngukerfi.

Samgöngur hafa dregist mjög saman vegna COVID-19 faraldursins, en fundurinn mat það svo að við endurreisn hagkerfisins ætti að vinna að grænni og snjallari samgöngum sem væru sveigjanlegar gagnvart mögulegri vá. Liður í því er tillaga um uppbyggingu innviða fyrir vistvænt eldsneyti og um bindandi markmið í því efni fyrir alla samgöngumáta til að tryggja lágmarks aðgengi að vistvænu eldsneyti.

Samgönguráðherrarnir voru sammála um þörfina á metnaðarfullri og samræmdri skipulagningu innviða í aðildarríkjunum sem stuðli að markmiðum sambandsins um samdrátt í losun fyrir árið 2030. Ráðherrarnir lögðu áherslu á að farsæl umbreyting yfir í vistvænt eldsneyti krefðist uppbyggingar á orkustöðvum sem væru aðgengilegar fyrir allan almenning og fyrirtæki í samgöngu- og flutningsþjónustu. Tillagan að reglugerð um uppbyggingu orkustöðva myndi tryggja nauðsynlega útfærslu á stöðluðum og notendavænum orkustöðvum fyrir hrein ökutæki um allt EES. Á sama tíma stuðlar þessi nálgun að notkun vistvænna farartækja og opnar ný tækifæri fyrir ESB iðnaðinn.

Ráðherrarnir mátu mikilvægt að flýta uppbyggingu á nauðsynlegum innviðum fyrir notendur vistvænnar orku svo þeir gætu ferðast greiðlega um Evrópu. Skilyrði þess að notendur færðu sig yfir í vistvæn ökutæki væri greiður aðgangur að vistvænu og hagkvæmu eldsneyti sem væri einfalt í notkun. Þannig væri hægt að flýta fyrir vexti markaðarins fyrir vistvæn farartæki og taka mikilvægt skref fram á við í átt að 55% samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2030. Loks væri það stór áskorun að samræma aðgerðir framleiðenda vistvænna bifreiða og þeirra sem rækju stöðvar fyrir vistvæna orkugjafa.

Óformlegur fundur orkumálaráðherra

Fundurinn var haldinn í Ljubliana en eins og kunnugt er fer Slóvenía með formennsku í ESB á seinna tímabili þessa árs. Jernej Vrtovec, innanríkisráðherra Slóveníu, stýrði fundinum. Kadri Simson, framkvæmastjóri (e. Commissioner) orkumála hjá ESB sat einnig fundinn og tók þátt í umræðum.

Áhersla ráðherranna var sem fyrr á orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum og orkunýtingu. Þá var farið yfir rafvæðingu samgangna á stórum skala á sameiginlegum fundi orkumála- og samgönguráðherra sem haldinn var við sama tækifæri.

Orkuframleiðsla og orkunotkun valda 75% af kolefnisútblæstri í ESB og voru ráðherrarnir sammála um að hraða þyrfti skiptum yfir í græna orku. Fóru þeir yfir uppfærð lagafrumvörp sem heyra undir svokallaðan Fit for 55 pakka, annars vegar varðandi innspýtingu í upptöku endurnýjanlegra orkugjafa og hins vegar um orkunýtingu (energy efficiency).

Sem fyrr eru aðildarríkin misjafnlega í stakk búin til að takast á við markmið um aukinn samdrátt í losun fyrir 2030. Því héldu áfram umræður um hvað skuli liggja til grundvallar útreikningum á aðstæðum og kostnaði hvers ríkis og í framhaldinu óhjákvæmilegum fjárhagsstuðningi.

Ráðherrarnir beindu einnig sjónum að hækkandi orkuverði innan ESB sem er m.a. vegna veðurfars (kuldar/hitar) og þróunar verðs á heimsmarkaði en ESB hefur ekki ekki tæki til að hafa áhrif á markaðsverðið. Einstök ríki hafi hins vegar gripið til ráðstafana til að milda áhrifin. Í máli sínu við lok fundarins sagði Hr. Vrtovec að draga mætti mjög úr frávikum á markaðsverði ef ríki drægju úr hæði (dependancy) á innflutt jarðefnaeldsneyti og settu þungann á innlenda og kolefnisminni orkugjafa.

Á sameiginlega fundinum með samgönguráðherrunum var áherslan á náið samstarf á milli þessara málaflokka til að takast á við áskoranir varðandi rafvæðingu samgangna; regluverk, tækni og framkvæmd. Þverlæg nálgun sé nauðsynleg, hvort tveggja er varðar hleðsluinnviði og raforkukerfi. Það myndi einnig stuðla að rafvæðingu á stærri skala (þungaflutningar, almenningssamgöngur o.s.frv.).

Risafjárfestingar í hleðsluinnviðum eru framundan og í þessu sambandi var sem fyrr bent á aðstöðumun aðildarríkjanna sem mörg hver eru mjög dreifbýl og markaðslausnir freisti því ekki. Þar til einkaaðilar/markaðurinn er reiðubúinn þarf fyrsta kastið að treysta á sjóði á borð við Endurreisnaráætlun Evrópu (Recovery and Resilience Plan) og orkutengingasjóðinn CEF (Connecting Europe Facility).

Þá var kallað eftir áherslu á stafrænar lausnir, aðgang að upplýsingum, gagnsæi í verðlagningu og einfaldar greiðsluaðferðir.

Neytendavernd og fjármálaþjónusta netinu

Óformlegur fundur ráðherra neytendamála var haldinn í lok september. Fundurinn var hvort tveggja fjarfundur og staðfundur sem stýrt var frá Ljubliana. Auk ráðherranna var umboðsmönnum neytenda (e. Consumer Protection Commissioner) og helstu sérfræðingum á þessu sviði boðið til fundarins. Alls voru fulltrúar á fundinum því um sextíu talsins.

Zdravko Počivalšek ráðherra efnahags- og tækniþróunar í Slóveníu stýrði fundinum. Didier Reynders, framkvæmdastjóri DG-Just, sem neytendavernd heyrir undir hjá ESB, tók einnig þátt í fundinum.

Áherslan var á þá þrjá málaflokka þar sem mjög hefur reynt á neytendavernd síðasta hálft annað árið eða svo; netverslun, fjármálaþjónustu á netinu og ferðaþjónustu. Á meðan heimsfaraldurinn hefur valdið gríðarlegri uppsveiflu í verslun og fjármálaþjónustu á netinu hefur ferðaþjónustan hins vegar átt verulega undir högg að sækja. Í ávarpi sínu við upphaf fundarins benti Hr. Počivalšek því á mikilvægi þess að taka þessi mál sérstaklega til umræðu.

Undanfarin tvö ár hefur veitendum fjármálaþjónustu á netinu fjölgað mjög. Vanþekking margra á því hvernig netvangar (e. online platforms) virka og einnig samningar sem þar eru gerðir getur leitt til verulegra skakkafalla fyrir neytendur. Þar sem yfir 70% neytenda versla nú á netinu þarfnast tilskipun um öryggi vöru (General Product Safety Directive) endurskoðunar þar sem hún hentar ekki stafrænum heimi. Því hefur framkvæmdastjórnin nú birt tvær tillögur á sviði neytendaverndar, annars vegar tilskipun um neytendalán (Consumer Credit) og hins vegar reglugerð um almennt öryggi vöru. TiIlögurnar eru hluti af Neytendadagskrá ESB (New Consumer Agenda).

Ráðherrarnir fögnuðu þessum tillögum að regluverki um öryggi vöru (matvara heyrir þó ekki hér undir) á innri markaði Evrópska efnahagsvæðisins, hvort sem hún er til sölu á netinu eða í hefðbundnum verslunum, eða þegar um áþreifanlega vöru eða þjónustu er að ræða.

Hvað ferðaþjónustuna varðar sammæltust ráðherrarnir um nauðsyn þess að kanna og leggja mat á pakkferðatilskipunina (e. Package Travel Directive) sem nú er í gildi. Öfgakenndar aðstæður sem faraldurinn olli hafi sýnt fram á vankanta hennar fyrir hvort tveggja neytendur og fyrirtæki.

Didier Reynders sagði frá yfirstandandi endurskoðun á pakkaferðatilskipuninni (sem Ísland hefur fylgst vel með). Endurskoðunin beinist að raunhæfum dæmum varðandi gjaldþrot ferðaskrifstofa en einnig hvernig standa skuli að endurgreiðslu á pakkaferðum til viðskiptavina

Í lok fundarins sagði Počivalšek, ráðherra og fundarstjóri, það hafið yfir vafa að snöggar, farsælar og samstíga aðgerðir ESB séu aðildarríkjunum í hag. Á herðum allra ríkjanna hvíli sú lykilábyrgð að vernda neytendur og með réttri löggjöf verði neytendur framtíðarinnar enn betur varðir.

Brussel-vaktin er gefin út af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Vaktin kemur út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

17. september 2021 | Von der Leyen leggur áherslu á sjálfstæði Evrópu |
Að þessu sinni er fjallað um

stefnuræðu forseta framkvæmdastjórnarinnar

nýja skýrslu þar sem framkvæmdastjórnin rýnir í framtíðina

nýmæli við skattlagningu orku

fund sameiginlegrar þingmannanefndar EES í Reykjavík

septemberfund fjármálaráðherra ESB

Bjartara yfir en fyrir ári síðan

Ursula von der Leyen flutti Evrópuþinginu stefnuræðu sína 15. september sl., hið árlega State of the Union ávarp. Þetta er í annað skipti sem hún flytur þinginu boðskap sinn með þessu sniði. Í því eru lagðar línurnar fyrir helstu málin á næsta starfsári. Það má segja að mest áhersla hafi verið lögð á aukið sjálfstæði Evrópu til athafna, en það er orðið kunnuglegt stef í málflutningi framkvæmdastjórnarinnar sl. ár (strategic autonomy). Í því skyni ræddi hún um hálfleiðara og örgjörva, samvinnu aðildarríkjanna í hernaðar- og upplýsingamálum, sem og í netöryggismálum og heilbrigðismálum. Hún lagði þó einnig áherslu á samvinnu við önnur ríki og árangur sem hún hefði skilað, eins og í baráttunni við heimsfaraldurinn. Engu að síður yrðu ríki heims að leggja meira af mörkum til þess að takast sameiginlega á við stærstu áskorun okkar tíma, loftslagsbreytingar.

Heimsfaraldurinn – bóluefni

Fyrir ári síðan má segja að von der Leyen hafi staðið með storminn í fangið, önnur bylgja faraldursins í uppsiglingu og bóluefnin ókomin. Ári síðar hefur hún náð markmiðum sínum um að bólusetja meira en 70% Evrópubúa og ESB flutt út meira bóluefni en nokkur annar, reyndar hefur mest af því verið selt en ESB hefur einnig gefið meira bóluefni en aðrir ̶ í lok þessa árs hafa meira en 250 milljónir skammta verið gefnar. Áríðandi væri að hraða bólusetningu heimsbyggðarinnar allrar og í ræðunni skuldbatt hún sig til að gefa aðrar 200 milljónir skammta þeim ríkjum sem mest þyrftu á þeim að halda. Jafnframt kom fram að 1,8 milljarðar skammta væru til reiðu fyrir örvunarbólusetningu.

ESB og heilbrigðismál – ný stofnun

Fyrir ári síðan boðaði von der Leyen að styrkja þyrfti valdheimildir framkvæmdastjórnarinnar á sviði heilbrigðismála (European Health Union) og auka viðbragðsflýti ef og þegar faraldur af þessu tagi bæri aftur að garði. Í því skyni var nú kynnt til leiks ný stofnun HERA (Health Emergency Preparedness and Response Authority). Til hennar á að verja 50 milljörðum evra á sjö árum en mörgum þykir hún þó ekki jafn metnaðarfull og sambærilegar stofnanir annars staðar, eins og BARDA í Bandaríkjunum. Hlutverk hennar verður að leitast við að koma í veg fyrir eða draga úr hættu á að fleiri faraldrar geti brotist út með því að samhæfa viðbrögð, framkvæma rannsóknir og tryggja öryggi nauðsynlegra aðfanga, ef til þess kæmi.

Efnahagsmál

Efnahagur Evrópu hefur að miklu leyti náð sér á strik. Nítján ríki hefðu að sögn von der Leyen þegar rétt úr kútnum og búist væri við því að á næsta ári yrðu öll Evrópulönd komin á sama stig og fyrir heimsfaraldurinn. Hagvöxtur hefði verið meiri í Evrópu en bæði í Bandaríkjunum og Kína á síðasta ársfjórðungi. Þá sagði hún að á næstu vikum yrði nauðsynlegt að ná samkomulagi til framtíðar um fjárhagsreglur sambandsins en aðildarríkin hafa undanfarið skipað sér í tvær fylkingar, syðri hlutinn vilji slaka á reglunum en sá nyrðri vilji halda þeim eins og þær eru.

Innri markaðurinn – sjálfstæði álfunnar

Innri markaðurinn verður brátt 30 ára. Í upphafi faraldursins hefði þurft að verja hann en síðar hefði innri markaðurinn reynst drifkraftur þeirra breytinga sem komið hefðu Evrópu á þann stað sem hún er í dag. Fyrir stafrænan innri markað væri nauðsynlegt að fjárfesta í tæknilegu sjálfstæði (tech sovereignty). Í því samhengi gerði hún hálfleiðara (semi-conductors) að umræðuefni og lagði áherslu á að Evrópa væri ekki uppá aðra komin með örgjörva. Þeir haldi þjóðfélaginu gangandi á marvíslegan hátt en Evrópa sé þó uppá Asíu komin með framboðið á þeim. Á því hafi mjög hægt að undanförnu. Evrópa verði að geta þróað og markaðssett sína eigin örgjörva og boðaði löggjöf á því sviði (European Chips Act).

Félagsleg réttindi

Von der Leyen minntist heilbrigðisstarfsfólks og framlags þeirra til að koma heimsbyggðinni í gegnum faraldurinn. Í því samhengi ræddi hún um félagsleg réttindi launafólks og hét því að styrkja viðleitni til að bjóða uppá mannsæmandi störf, betri vinnuskilyrði, heilbrigðisþjónustu og jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Að tryggja félagslegan jöfnuð sé líka spurning um sanngjarna skattlagningu, þ. á m. fyrirtækja. Ef þau skili hagnaði sé það vegna þess að þau eru starfrækt í samfélagi sem býr við sterka innviði, skilar þeim menntuðu starfsfólki sem nýtur góðrar heilbrigðisþjónustu og býr við öflugt velferðarkerfi. Af þessum sökum muni ESB fljótlega kynna til sögunnar löggjöf ætlaða til þess að elta uppi fjármuni sem skotið er undan skatti og styðji viðleitni OECD til þess að ná samstöðu um að koma á alþjóðlegum lágmarksskatti á fyrirtæki.

Æskan

Von der Leyen varð tíðrætt um æskuna, áhrif faraldursins á hana og ábyrgð eldri kynslóða gagnvart hinum yngri. Ákveðið hafi verið að árið 2022 verði helgað æskunni (e. Year of European Youth). Komið verði upp nýrri áætlun, ALMA, sem geri ungu fólki kleift að starfa tímabundið í öðru aðildarríki, byggt á fyrirmynd ERASMUS fyrir námsmenn. Ungu fólki verði einnig tryggð áhrif og möguleikar til þátttöku í Ráðstefnunni um framtíð Evrópu (Conference on the Future of Europe) og áréttaði að framkvæmdastjórnin hefði skuldbundið sig til að fylgja eftir því sem þessi ráðstefna myndi samþykkja.

Loftslagsmálin

Unga fólkið knýi líka á um breytingar í umhverfismálum. Þau vilji ganga lengra, takast á við vandann af meira afli og vinna hraðar að settu marki. Flóðin í Belgíu og Þýskalandi og skógarbrunar í Grikklandi og Frakklandi sl. sumar hafi opnað augu margra og skýrsla Sameinuðu þjóðanna (IPCC skýrslan) hafi fært vísindalegar sannanir fyrir að loftslagsbreytingar séu af manna völdum. ESB hafi sett markið við 55% samdrátt árið 2030 og kynnt þinginu og ráðinu umfangsmiklar lagabreytingar til að ná því marki í júlí sl. (Fit for 55). Til að draga úr áhrifum þessara aðgerða á viðkvæma hópa verði stofnaður sérstakur sjóður Social Climate Fund auk þess sem framlög til að hlúa að líffræðilegum fjölbreytileika verði tvöfölduð.

COP26

Von der Leyen hét einnig á ríki heims að láta til sín taka á COP26 ráðstefnunni í Skotlandi og leggja fram útfærðar áætlanir um hvernig þau hyggist ná settu marki Parísarsáttmálans. Hún hvatti Kína til þess að hætta notkun kola og vera metnaðarfyllri í áætlunum sínum. Þá sagði hún frá því að ESB myndi bæta fjórum milljörðum evra við loftslagsjóð ætluðum þróunarríkjum og hvatti Bandaríkin til þess að auka verulega við aðstoð sína. Þá talaði hún fyrir tillögum um að verðleggja mengun enn frekar, m.a. innviðauppbyggingu og byggingar, en tillögurnar hafa verið gagnrýndar fyrir að ætla neytendum að borga brúsann.

Evrópskt varnarbandalag

Fram kom í ræðunni að NATO þurfi að svara áleitnum spurningum um hvað fór úrskeiðis í Afganistan. ESB vinni með aðalframkvæmdastjóra NATO að nýrri sameiginlegri yfirlýsingu (new EU-NATO Joint Declaration) sem verði kynnt fyrir árslok. Evrópa gæti hins vegar og væri reiðubúin að leggja meira af mörkum og færði rök fyrir hvers vegna þörf væri á því að mynda evrópskt varnarbandalag (e. European Defence Union). Hingað til hafi skort til þess pólitískan vilja en ef hann væri fyrir hendi, væri margt hægt að gera. Tók hún sem dæmi að nauðsynlegt væri að byggja upp betra þekkingarnet innan ESB og vinna að samhæfingu herja. Hugsanlega væri einnig hægt að afnema virðisaukaskatt af evrópskum hernaðargögnum keyptum af aðildarríkjum. Ekki væri lengur hægt að ræða varnamál án þess að fjalla um netöryggi. Verjast þurfi netógnum með sameiginlegri netvarnastefnu og nýrri löggjöf. Meta þurfi sameiginlega hverjar ógnirnar séu og hvernig við þeim verði brugðist. Í því skyni muni vegvísir ESB í varnar- og öryggismálum (Strategic Compass) gegna ákveðnu lykilhlutverki en einnig þurfi að skoða hvaða leiðir eru færar innan núverandi heimilda í stofnsáttamála ESB. Í því skyni muni hún ásamt Macron Frakklandsforseta boða til leiðtogafundar um evrópskar varnir þegar Frakkar fara með formennsku ráðsins á fyrri hluta næsta árs.

Flóttamannamál

Von der Leyen lýsti samstöðu með Litháen, Lettlandi og Póllandi í viðureigninni við flóttamannastrauminn frá Hvíta Rússlandi og tók undir með þeim að því fælist ný tegund fjölþáttaógnar sem ætlað væri að grafa undan stöðugleika í Evrópu. Í tengslum við þetta hvatti hún til að ný stefna í innflytjenda- og flóttamannamálum (Asylum and Migration Pact) sem ráðið hefur haft til umfjöllunar frá því á síðasta ári verði afgreidd sem fyrst. Tafir á því feli í sér veikleika sem andstæðingarnir muni nýta sér og spila á meðan þeir eru fyrir hendi, þ. á m. þeir sem stunda smygl á fólki og gera sér neyð þess að féþúfu.

Grundvallargildin

Í lokin minnti forsetinn á að samstarf Evrópusambandsríkjanna sé byggt á lýðræði og öðrum sameiginlegum grundvallargildum, þ. á m. fjölmiðlafrelsi. Þessi arfleifð sé samofin því sem skilgreini samfélög okkar í dag. Við höfum öll skuldbundið okkur til að virða þau og verja og falið dómstólunum að standa um þau vörð. Þeir eigi lokaorðið og dóma þeirra beri að virða og framfylgja í hverju og einu aðildarríkjanna. Það sé ekki aðeins göfugt markmið heldur brýn nauðsyn og viðvarandi áskorun. Úttektir á stöðu réttarríkisins og lögmætisreglunnar (e. Rule of law reports) muni framvegis innihalda tilmæli um það sem betur megi fara í hverju ríki um sig. Orð séu til alls fyrst en þeim verði að fylgja efndir á þeim fyrirheitum sem gefin eru. Engin ríki voru nefnd í þessu sambandi en engum blandast þó hugur um við hver er átt.

Rýnt í framtíðina: 10 áherslusvið ESB

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins gaf 8. september síðastliðinn út í annað sinn framtíðarskýrslu sína: Strategic Foresight Report – The EU's capacity and freedom to act. Þar eru leidd rök að því að í samtímanum megi greina fjóra megin þróunardrætti á heimsvísu:. 1) Loftslagsbreytingar og umhverfisáskoranir, 2) Stafrænar ofurtengingar og tækniumbylting, 3) Lýðræði og önnur grunngildi eru á undanhaldi, 4) Breytingar á valdahlutföllum og fólksfjölda. Jafnframt er bent á 10 svið þar sem Evrópusambandið geti sótt fram og skapað sér sérstöðu:

Sjálfbær og viðnámsmikil heilbrigðis- og matvælakerfi

Orka sem er laus við kolefni og á viðráðanlegu verði

Aukin hæfni í stjórnun gagna, gervigreind og nýjustu tækni

Tryggt og fjölbreytt framboð af ómissandi hráefni

Forysta á heimsvísu í mótun staðla

Þrautseig og framtíðarheld efnahags- og fjármálakerfi

Mannauður í takt við metnaðarfull áform ESB

Aukinn öryggis- og varnarviðbúnaður og útrás út í geim

Samstarf á heimsvísu um frið, öryggi og farsæld allra

Þrautseigar stofnanir

Gert er ráð fyrir að framkvæmdastjórnin taki mið af ofangreindu í vinnu sinni á þessu kjörtímabili. Þá er tengslanet ráðherra framtíðarmálefna í aðildarríkjunum að störfum sem á að byggja upp hæfni til fyrirhyggju.

Síðar í mánuðinum mun framkvæmdastjórnin ljúka samráði um samanburð á aðildarríkjunum að því er varðar viðnámsþrótt. Sá samanburður á að vera framlag til nýs mælikvarða á frammistöðu ríkja, þar sem litið er heildsætt til velsældar fremur en fyrst og fremst til landsframleiðslu.

Breytt orkuskattlagning ESB mikilvægur liður í að ná loftslagsmarkmiðum

Framkvæmdastjórn ESB hefur lagt fram tillögu að nýrri tilskipun sem ætlað er að umbylta ríkjandi kerfi varðandi skattlagningu orkugjafa. Að mati ESB er núgildandi tilskipun sem tók gildi 2003 (Energy Taxation Directive 2003/96/EC - ETD) úrelt vegna þeirra róttæku breytinga sem orðið hafa á sviði loftslags- og orkumála á þessum tveimur áratugum. Gamla tilskipunin er sem sagt ekki lengur í takti við ríkjandi áherslur um nauðsyn þess að draga stórkostlega úr losun gróðurhúsalofttegunda. Þá vanti einnig alla hvata í ETD til að orkunotendur fjárfesti í grænum tæknilausnum.

Tillagan er hluti af stærra regluverki sem ætlað er að ná fram markmiðum sambandsins á sviði loftslags- og orkumála, sem birtist í The European Green Deal og einnig í Fit for 55, um 55% nettó samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2030 miðað við árið 1990. Rétt er að nefna að endurskoðun á reglum um losunarheimildir, oftast kallað ETS-kerfið, er hluti af þessu regluverki.

Markmið nýrrar tilskipunar er að draga mjög úr notkun jarðefnaeldsneytis. Annars vegar með því að hækka verðið með aukinni skattlagningu og hins vegar með því að endurskoða undanþágur og ívilnanir sem nú eru til staðar varðandi notkun jarðefnaeldsneytis hjá ýmsum atvinnugreinum. Þetta á t.d. við olíunotkun í landbúnaði og fiskveiðum en myndi einnig ná til orkufreks iðnaðar sem notar kol og olíu. Þá myndi ný tilskipun útrýma undanþágum fyrir flug- og sjósamgöngur til að ýta undir notkun á hreinu eldsneyti.

Tillagan er nú til umfjöllunar hjá Evrópuþinginu og Ráðinu. Eftir afgreiðslur þar munu EES/EFTA ríkin fá tilskipunina til nánari skoðunar og meta hvort hún sé EES-tæk. Þó að skattamál falli ekki með beinum hætti undir EES-samninginn er ljóst að tilskipunin kann að hafa áhrif á regluverkið um ríkisstyrki og samkeppnismál almennt, sem þarf að fylgjast vel með. Gert er ráð fyrir að tilskipunin taki gildi í ársbyrjun 2023 og komi til framkvæmda í nokkrum áföngum.

Fjölbreytt dagskrá á þingmannafundi í Reykjavík

Sameiginleg þingmannanefnd EES fundaði í Reykjavík 25. ágúst síðastliðinn. Dagskráin var fjölbreytt og var meðal annars rætt um loftslagsmál og nýjar tillögur ESB í því efni, rafræn Covid-19 vottorð sem dæmi um árangursríka Evrópusamvinnu og nýjar samstarfsáætlanir sem hleypt verður af stokkunum í ársbyrjun 2022. Þá var meðal annars einnig fjallað um Norðurslóðamál. Sjá frásögn og myndir á vef EFTA.

Sjálfbær fjármálastefna rædd á fundi fjármála- og efnahagsráðherra ESB

Dagana 10. og 11. september hittust fjármála- og efnahagsráðherrar ESB á óformlegum fundi í formennskuríkinu Slóveníu, m.a. til að ræða um hvers konar fjármálastefnu (e. fiscal policy) aðildarríkin ættu að reka á komandi árum. Samhljómur var um að áhrif loftslagsmála á stöðugleika fjármálakerfisins og þar með efnahagslífið réðu mestu um hvernig útfæra ætti stefnuna. Aukin fjárfesting í grænum og stafrænum verkefnum væri lykill að því að ríki ESB næðu sér upp úr Covid-kreppunni. Fjármögnun þeirra fjárfestinga er mikilvægur þáttur og þar skiptir stöðugur og heilbrigður fjármálamarkaður öllu máli. Jákvæð teikn eru um að efnahagsþróunin verði hagstæðari á þessu ári og því næsta heldur en áður var spáð og er nú útlit fyrir 4,8% meðalhagvöxt á árinu 2021 og 4,5% árið 2022 í aðildarríkjum ESB. Þá þróun þakka ráðherrar ESB hversu vel hefur til tekist með bólusetningar gegn Covid-veirunni og þeim stuðningsaðgerðum sem stjórnvöld gripu til.

Haldið verður áfram á sömu braut á næsta ári, en eftir það verða aðildarríkin smám saman að draga úr hallarekstri sínum og skuldasöfnun. Þó verða þau að gæta að því að stefna ekki sínum efnahagslega bata eftir Covid 19 í hættu og þar skiptir sjálfbær fjármögnun fjárfestinga miklu. Þar er Bjargráðasjóði ESB (e. Next Generation EU mechanism) ætlað stórt hlutverk. Rétt er að vekja athygli á að í tengslum við fundinn var kynnt áhugaverð skýrsla undir heitinu “A green fiscal pact: climate investment in times of budget consolidation”.

Verkefnið hvernig eigi að laga fyrirtækjaskattlagningu að stafrænni þróun (e. adapting corporate tax reform to the digital age) var líka til umræðu á fundi ráðherranna, sbr. samkomulag OECD ríkjanna og G20 fyrr á árinu. Lýstu aðildarríkin yfir samstöðu varðandi nauðsyn þessarar aðlögunar sem vonandi lyki með heildarsamstöðu á alþjóðavettvangi.

Brussel-vaktin er gefin út af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Vaktin kemur út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

03. september 2021 | Umfangsmiklar aðgerðir í loftslagsmálum |
Að þessu sinni er fjallað um:

tillögur sem útfæra þá fyrirætlan að ná 55% samdrætti í losun fyrir 2030

boðaða nýja stofnun um peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

vinnu við tillögur um lágmarkslaun

Löggjafarpakki markar leið fram til 2030

Þann 14. júlí 2021 kynnti framkvæmdastjórn Evrópusambandsins þverlægar tillögur að lagabreytingum, pakka sem nefndur hefur verið „Fit for 55“, en honum er ætlað er að styðja við markmið sambandsins um 55% nettó samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2030, miðað við árið 1990. Jafnframt leggur pakkinn grunn að markmiði Evrópusambandsins um kolefnishlutleysi árið 2050. Tillögurnar koma í kjölfarið á nýjum lögum um loftslagsmál sem samþykkt voru í vor. Í pakkanum er að finna tillögur að breytingum á átta núgildandi lögum sambandsins en einnig tillögur að fimm nýjum lagabálkum. Tillögurnar ná yfir mörg málefnasvið eins og loftslags- og orkumál, samgöngur, byggingar, landnýtingu og skógrækt. Með tillögunum fylgdi mat á áhrifum tillagnanna þar sem horft var til innbyrðis tengsla allra tillagnanna. Niðurstaða matsins var að heppilegast væri að að fara blandaða leið til að ná settu markmiði í samdrætti í losun, þ.e. blanda saman aðgerðum er snúa að verði, setningu markmiða og staðla og veitingu stuðnings (e. pricing, targets, standards and support measures).

Orkumál

Ljóst er að þörf er á 90% samdrætti í losun frá samgöngum innan ESB fyrir árið 2050 til að ná kolefnishlutleysi. Staðlar er varða losun á CO2 frá bifreiðum verða endurskoðaðir sem og reglur um uppbyggingu innviða fyrir endurnýjanlega orkugjafa er mun fjölga hleðslustöðvum innan Evrópu. Einnig verði áfram unnið að sjálfbærni rafhlöðumarkaðarins í því sambandi.

Til að takast á við losun frá sjóflutningum og frá flugi verður notkun á meira mengandi eldsneyti í þeim geira gerð kostnaðarsamari fyrir eldsneytisbirgja. Í flugi er gert ráð fyrir að notað verði svokallað e-fuels en einnig verði umhverfisvænna eldsneyti blandað saman við hefðbundið eldsneyti á flugvöllum innan ESB svæðisins (e. ReFuelEU: More sustainable aviation fuels). Settar verða nýjar kröfur um hámarkslosun á þau skip sem fara um hafnir ríkja innan ESB. Boðið verður upp á umhverfisvænna eldsneyti í þessu skyni (e. FuelEU: Cleaner maritime fuels). Endurskoðun á tilskipun um orkuskatt mun svo gera notkun slíks eldsneytis eftirsóknarverðari (e. Energy taxation Directive) en þar er til dæmis stefnt að því að útrýma undanþágum sem verið hafa fyrir flug og samgöngur á sjó og ýta undir notkun á hreinu eldsneyti.

Í tillögunum er gert ráð fyrir að sett verði á fót nýtt landamæraaðlögunarkerfi fyrir kolefni (e. New Carbon Border Adjustment Mechanism) sem á að taka á kolefnisleka yfir landamæri frá þeim ríkjum sem hafa ekki sama metnað í loftslagsmálum og Evrópusambandið. Auka álögur verða því lagðar á innflutning ákveðinna vara eins og sements, áburðar, járns og stáls, áls og rafmagns. Athuga ber að kerfið mun ekki ná til vöru sem er upprunnin hjá EFTA ríkjunum þar sem þau ríki eru aðilar að ETS kerfinu. Gert er ráð fyrir umbreytingarferli sem mun ná yfir árin 2023 til 2025.

Orkunotkun er ábyrg fyrir 75% af allri losun gróðurhúsalofttegunda innan ESB, orkusparnaður og notkun endurnýjanlegra orkugjafa er því lykillinn að störfum, vexti og samdrætti í losun. Til að ná 2030 markmiðinu þá er með endurskoðun á tilskipun um endurnýjanlega orku (e. Renewable Energy Directive) gert ráð fyrir að hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa verði aukið í 40% úr 32%. Það mun ýta undir notkun annarra orkugjafa eins og vetnis. Upplýsingar um hlutfall hvers ríkis til að ná sameiginlegu markmiði verða settar fram. Samdráttur í orkunotkun mun draga úr losun og orkukostnaði fyrir neytendur og iðnaðinn. Endurskoðun tilskipunar um orkunýtni (e. Energy Efficiency Directive) mun endurspegla aukinn metnaði í markmiðum um orkunýtni og að þau verði gerð bindandi. Þetta er talið munu leiða til 9% samdráttar í orkuneyslu fyrir árið 2030.

ETS-kerfið

Hornsteinn „Fit for 55“ pakkans er ETS-kerfið en með tillögunum verður það kerfi styrkt og útvíkkað enn frekar til annarra geira. Reynsla af ETS-kerfinu er talin sýna að viðskipti með losunarheimildir er árangursrík leið til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda með hagkvæmum hætti og getur hagnaður af kerfinu nýst til að styðja við umbreytingu í græna framleiðslu og til að örva nýsköpun.

Með tillögum framkvæmdastjórnarinnar er gert ráð fyrir að þeir geirar sem endurskoðun ETS regluverksins nær til muni þurfa að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 61% samanborið við árið 2005. Til að ná þessu markmiði þarf að draga úr árlegum losunarheimildum.

Framkvæmdastjórninn leggur til að ETS-kerfið verði smám saman útvíkkað til sjóflutninga á árunum 2023-2025 og gera tillögur að lagabreytingum ráð fyrir slíku. Einnig verður þrengt að losunarheimildum í fluggeiranum og mun í áföngum verða dregið úr veitingu losunarheimilda sem hafa verið ókeypis.

Gert er ráð fyrir upptöku sérstaks ETS-kerfis fyrir vegasamgöngur og byggingar. ETS-kerfi fyrir vegasamgöngur ásamt samhliða uppbyggingu innviða fyrir aðra orkugjafa (e. New infrastructure for alternative fuels) er ætlað að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í samgöngum. Á sama hátt mun viðskiptakerfi sem nær til bygginga hraða orkuskiptum í upphitun og kælingu húsnæðis. Gert er ráð fyrir að farið verði samhliða í aðgerðir til að auka orkunýtni bygginga. Endurskoðun á tilskipun um orkunýtni í byggingum, sem áætlað er að fara í síðar á þessu ári, mun leggja til ákveðin viðmið til að hraða endunýjun húsnæðis sem ýtir undir betri orkunýtni og markmið um endunýjun og samdrátt í losun frá byggingariðnaðinum.

Framkvæmdastjórnin leggur til að ETS kerfi fyrir samgöngur og byggingar verði sett upp frá og með árinu 2026. Gert er ráð fyrir að ábyrgðin verði sett á herðar framleiðenda og birgja eldsneytis í stað þess að hún leggist á einstaka heimili og notendur vegsamgangna og að smá saman verði dregið úr losunarheimildum sem muni leiða til samdráttar í heildarlosun.

Sameiginleg ábyrgð og LULUCF

Í pakkanum er að finna tillögur að breytingu á reglugerð um sameiginlega ábyrgð (e. Effort sharing). Tillagan mun færa aðildarríkjum ESB vald til að grípa til aðgerða á landsvísu sem varða samdrátt í losun frá byggingum, samgöngum, landbúnaði, úrgangi og frá smáiðju. Tillagan er talin geta leitt til samdráttar í losun um 40% innan ESB svæðisins í framangreindum geirum miðað við árið 2005. Hlutfall hvers ríkis mun áfram byggja á vergri landsframleiðslu miðað við höfðatölu þar sem einnig verður tekið tillit til aðstæðna í hverju ríki auk kostnaðarhagkvæmni.

Framkvæmdastjórnin telur að auka þurfi umfang kolefnisviðtaka eins og skóga, jarðvegs, votlendis og mýrlendis, hafs og vatnshlota. Setja þurfi land og náttúru í fyrsta sæti þegar kemur að landbúnaði og auka jarðvegsgæði til að tryggja fæðuöryggi. Í samræmi við þetta er í pakkanum lögð til breyting á LULUCF reglugerðinni. Framkvæmdastjórnin leggur til, sem hluta af þeim breytingum, aukinn metnað til stækkunar á náttúrulegri kolefnisbindingu. Í tillögunum er lagt til að markmiðið verði 310 milljónir tonna af CO2 árið 2030. Sett verða bindandi markmið fyrir hvert aðildarríki. Aðildarríkin munu hafa ákveðinn sveigjanleika varðandi að skipta upp framtaki sínu í kolefnisbindingu milli aðgerða sem farið er í á grundvelli reglugerðar um sameiginlega ábyrgð og LULUCF.

Ný skógræktaráætlun ESB var kynnt samhliða „Fit for 55“ pakkanum en síðar á árinu er von á nýrri jarðvegsáætlun, löggjafartillögum er varða endurreisn náttúru og tillögu að kolefnis landbúnaði.

Annað

Auk framangreinds er gert ráð fyrir aðgerðum er efla nýsköpun, samstöðu og að dregið verði úr áhrifum aðgerða á viðkvæma hópa í gegnum sjóði eins og nýjan „Social Climate Fund“ og uppfærða „Modernisation and Innovation Funds“.

Framkvæmdastjórnin leggur áherslu á að til að græn umbylting geti átt sér stað þurfi að efla menntun og þjálfun starfsfólks þannig að vinnumarkaður á ESB svæðinu hafi hæft starfsfólk og sé samkeppnishæfur. Grænar áherslur er því að finna í áætlunum eins og Erasmus+.

Fjárhagsáætlun ESB ásamt Bjargráðasjóði ESB eru sérstaklega sniðin að því að styðja við græna umbreytingu. 30% af samstarfsáætlunum ESB eru helgaðar stuðningi við loftslagsaðgerðir t.d. í gegnum samræmdar stefnur, landbúnað og LIFE áætlunina. 35% af Horizon sjóðnum er ætlaður í grænar fjárfestingar. Auk þess ber aðildarríkjum að nýta 37% af framlögum sínum úr Bjargráðasjóðnum í græna umbreytingu.

Tillögur „Fit for 55“ hafa verið sendar Evrópuþinginu og Ráðinu til frekari meðferðar og samþykktar í samræmi við hefðbundið ferli slíkra tillagna innan ESB. Búist er við að ferlið framundan muni geta tekið allt upp undir tvö ár.

Tillögur um peningaþvætti

Framkvæmdastjórn ESB birti 20. júlí tillögur sem miða að því að styrkja regluverk um peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Þungamiðjan er þar að komið verði á fót nýrri stofnun á þessu sviði. Sú stofnun á að hafa beint eftirlit með fjármálastofnunum sem taldar eru fela í sér mesta áhættu og starfa í mörgum aðildarríkjum eða þar sem hætta er yfirvofandi. Þá mun hún starfa með eftirlitsstjórnvöldum í aðildarríkjunum og samræma aðgerðir þeirra eftir þörfum. Tillögurnar taka mið af tæknibreytingum sem orðið hafa í fjármálageiranum og fjalla þannig m.a. um rafmyntir og samtengingu skráa um bankareikninga.

Lágmarkslaun - sérstaða á Norðurlöndum

Ráðherraráðið og Evrópuþingið eiga nú í samningaviðræðum um tilskipun um lágmarkslaun og tilskipun um launagagnsæi. Norðurlöndin hafa haft áhyggjur af hvoru tveggja vegna þess að tillögurnar kunni að grafa undan skipan vinnumarkaðar þar sem meginreglur endurspeglast í samningum frekar en löggjöf. Slóvenska formennskan lagði fram málamiðlun um lágmarkslaunin 7. júlí. Gert er ráð fyrir að vinnu- og félagsmálanefnd Evrópuþingsins fjalli um málið síðar í þessum mánuði. Dagblaðið Le Monde greindi frá því á dögunum að Elisabeth Borne vinnumálaráðherra Frakklands hefði heimsótt Danmörku og Svíþjóð seinni hluta ágúst til þess fyrst og fremst að skilja betur andstöðu í þessum löndum við lágmarkslaunin. Heimsóknin var liður í undirbúningi Frakka fyrir að taka við formennsku í Evrópusambandinu á næsta ári en þeir leggja mikla áherslu á að tillögurnar um þetta efni hljóti afgreiðslu í vetur.

Brussel-vaktin er gefin út af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Vaktin kemur út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

09. júlí 2021 | Áherslumál slóvensku formennskunnar |
Að þessu sinni er fjallað um

áherslumál Slóvena sem tóku við formennsku í ESB 1. júlí sl.

samráðsskjal um stafrænan áttavita

stefnumótun í málefnum dreifbýlis

endurskoðun á hlutverki Siglingastofnunar Evrópu

varfærna afstöðu ráðherraráðsins til tillagna um hert eftirlit með fiskveiðum

tillögur í loftslagsmálum sem væntanlegar eru 14. júlí nk.

Vaktin fer nú í sumarfrí og kemur næst út í lok ágúst 2021.

Auka þurfi viðnámsþrótt Evrópusambandsins

Slóvenar tóku við formennsku í ráðherraráði ESB 1. júlí sl. Eins og venja er hafa þeir birt lista yfir helstu áherslumál. Þar er vitnað til þess að farsóttin hafi sýnt mikilvægi samheldni og samræmdra viðbragða. Þess vegna verði aukinn viðnámsþróttur Evrópusambandsins forgangsmál. Í því sambandi verði lögð áhersla á aukið samstarf í heilbrigðismálum (European Health Union). Evrópusambandið eigi ekki að vera öðrum háð í sama mæli og verið hefur varðandi til dæmis lækningavörur.

Sökum þess að líf og vinna hafi á tímum farsóttar færst yfir netheima þá hafi samfélög orðið viðkvæmari fyrir netglæpum. Þess vegna verði lögð áhersla á netvarnir. Sambandið verði að vera við því búið að þurfa að verjast stórfelldum tölvuárásum.

Þá þurfi að styðja við endurreisn alls hagkerfisins og lífs í samfélagi. Eitt forgangsmál verði því að hrinda endurreisnarsjóðnum í framkvæmd og stuðla að því að landsáætlanir um endurreisn hljóti skjóta afgreiðslu. Sama á við um skammtímastuðning sem kenndur er við næstu kynslóðar ESB. Hvort tveggja eigi að miða fyrst og fremst að grænni og stafrænni umbyltingu samfélagsins.

Loftslagsmálin verði áfram ofarlega á baugi. Þar muni COP26 ráðstefnan í Glasgow verða tækifæri fyrir ESB að sýna metnað í verki og ganga undan með góðu fordæmi, sbr. áform um að draga losun gróðurhúsalofttegunda saman um 55% 2030 samanborið við árið 1990. Farsóttin hafi hraðað stafrænni þróun samfélagsins. Fyrir vikið sé enn brýnna að endurbæta löggjöf um stafræna þjónustu og markaði, sbr. þær tillögur sem verið hafa til umræðu í vetur.

Að því er varðar grundvöll Evrópusambandsins þá hyggjast Slóvenar leggja áherslu á réttarríkið. Leita þurfi leiða til að styrkja framfylgd laga og reglna, jafnvel með eins konar hugarfarsbreytingu. Öryggi innan sambandsins sé forgangsmál og leita þurfi leiða til að styrkja enn frekar Schengen-samstarfið. Þá muni slóvenska formennskan fjalla um neikvæða þróun mannfjölda sums staðar innan Evrópusambandsins.

Á sviði utanríkis- og öryggismála verði lögð áhersla á tengslin yfir Atlantshafið, samstarf við Bandaríkin og innan NATO. Vestur-Balkanskaginn muni einnig fá sérstaka athygli og umbætur í efnahagsmálum þar. Markmiðið sé meðal annars að bjóða ungu fólki í viðkomandi löndum upp á jákvæða framtíðarsýn.

Framkvæmdastjórnin birtir samráðsskjal um stafrænan áttavita

Framkvæmdastjórn ESB birti samráðsskjal um verkefnið stafrænan áttavita 22. júní sem lýkur 3. ágúst n.k. Leitað er eftir samtali og viðbrögðum frá hagsmunaaðilum sem nýtist við að móta verkefnið nánar. Í kjölfarið, 27. júní, birti svo framkvæmdastjórnin tímasetta verkefnisáætlun um þróun áttavitans.

Fjallað er nánar um stafrænan áttavita í orðsendingu sem framkvæmdastjórnin birti 9. mars. Í stuttu máli inniheldur orðsendingin tillögur að mælikvörðum fyrir stafræna umbyltingu og mælingu árangurs við að ná þeim. Markmiðin eru fjögur og snúa að uppbyggingu stafrænnar hæfni almennings og sérfræðinga, uppbyggingu öruggra og sjálfbærra stafrænna innviða, stafrænni umbyltingu viðskiptahátta og uppbyggingu opinberrar þjónustu.

Stefnumörkun til 2040 fyrir dreifbýl svæði ESB sett fram til umsagnar

Framkvæmdastjórnin birti 30. júní sl. framtíðarsýn fyrir dreifbýl svæði undir yfirskriftinni: Í átt að sterkari, samtengdum, þrautseigum og hagsælum dreifbýlum svæðum fyrir 2040. (e. Towards stronger, connected, resilient and prosperous rural areas by 2040).

Framkvæmdastjórnin sér fyrir sér að gerður verði dreifbýlissáttmáli (e. rural pact) milli opinberra aðila og hagsmunaaðila sem hreyfi við málum sem miða að því að uppfylla þarfir og væntingar íbúa á dreifbýlum svæðum. Samhliða verði sett saman verkefnisáætlun sem stuðli að nánari samvinnu á milli svæða, um nýjar leiðir til að laða að nýsköpunarfyrirtæki, um að skapa ný eftirsóknarverð störf, að byggja upp nýja og endurbætta færni launþega, um að tryggja betri innviði og þjónustu á svæðunum, að styrkja sjálfbæran landbúnað og stöðu fjölbreyttra atvinnuhátta.

Sterkari samfélög

Lykillinn að því að finna lausnir og fjárfestingatækifæri sem sniðin eru að aðstæðum á hverju svæði er m.a. að stuðla að jafnri þátttöku kynjanna við stefnumótun og ákvörðunartöku í samráði við breiðan hóp hagsmunaaðila og stjórnvöld á öllum stigum. Nýsköpun og stafrænar lausnir eru mikilvægur þáttur við að bæta og auka framboð á þjónustu og ýta undir framþróun samfélagsins í heild.

Samtengdar byggðir

Mikilvægt er að viðhalda og endurbæta almenningssamgöngur og upplýsingainnviði sem eru grundvallarskilyrði fyrir betur tengdum dreifbýlissvæðum. Framþróun dreifbýlla svæða er háð góðum samgöngutengingum á milli svæða, byggðalaga og við borgarsamfélög.

Þrautseigar byggðir

Vernd náttúruauðlinda, endurheimt landslags (e. restoration of landscapes) og varðveisla menningararfleifðar, grænn búskapur og styttri aðfangakeðja stuðlar að seiglu gagnvart loftlagsbreytingum, náttúruvá og efnahagslegum samdrætti á dreifbýlum svæðum. Þjónusta sem verndar vistkerfi og kolefnishlutlausar lausnir eiga oft uppruna sinn á dreifbýlum svæðum sem gegna mikilvægu hlutverki í sjálfbærum vistkerfum og hringrásarhagkerfinu.

Hagsæld

Hagsæld getur orðið meiri á dreifbýlum svæðum með fjölbreyttari hagkerfi með nýjum atvinnugreinum sem styrkja atvinnu og hafa virðisaukandi áhrif á búskap og matvælaframleiðslu. Byggja þarf fjölbreyttara atvinnulíf á stefnumörkun um sjálfbært nærhagkerfi að meðtöldum ráðstöfunum um að gera umhverfið aðlaðandi fyrir fyrirtæki og auka stafræna færni. Þannig er stuðlað að því að halda sanngjörnum hluta verðmætasköpunar landbúnaðar í héraði.

Endurskoðun á hlutverki og verkefnum Siglingastofnunar Evrópu

Framkvæmdastjórnin vinnur að endurskoðun á hlutverki Siglingastofnunar Evrópu, sem Ísland á aðild að, og hyggst leggja fram tillögur um breytt hlutverk stofnunarinnar á fjórða árshluta 2022. Framkvæmdastjórnin hefur birt tímasetta áætlun á samráðsvef sínum (roadmap on the review of the mandate of the European Maritime Safety Agency (EMSA) og óskar eftir hugmyndum hagsmunaaðila um málið. Til skoðunar er að skerpa á hlutverki stofnunarinnar í stafrænni þróun og sjálfbærni, styrkja lagagrunn starfseminnar, styðja betur við systurstofnanir í aðildarríkjum og auka hlutverk stofnunarinnar í verndar og öryggismálum allt frá sjóránum til netglæpa.

Eftirlit með fiskveiðum: Ráðherraráðið vill fara hægar í sakirnar

Á ráðherrafundi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra ESB í lok júní sl. var samþykkt samningsafstaða vegna tillögu framkvæmdastjórnarinnar um eftirlit með fiskveiðum. Þar er almennt lagt til að draga heldur í land miðað við áform framkvæmdastjórnarinnar. Þannig leggur ráðið til breytingu á reglum um hverju megi skeika þegar borinn er saman áætlaður afli samkvæmt veiðidagbók og veginn afli við löndun. Auka eigi svigrúm vegna lítils afla og varðandi tilteknar fisktegundir. Þá leggur ráðið til að rafrænt fjareftirlit (í formi myndavéla eða skynjunarbúnaðar) verði einungis skylda þegar bátar eru lengri en 24 metrar og hætta á brotum er talin mikil. Ennfremur verði dregið úr kröfum um rekjanleika sjávarfangs miðað við tillögur framkvæmdastjórnarinnar sem Evróþingið hafði tekið undir. Þannig verði ekki gerð krafa um nýtingu stafrænnar tækni og krafan einungis látin ná til ferskfisks en ekki unnins, niðursoðins, frysts, reykts eða saltaðs. Samtök sem berjast fyrir hertu eftirliti með fiskveiðum hafa gagnrýnt þessa nálgun ráðherraráðsins.

Mikilvægar tillögur í loftslagsmálum væntanlegar um miðjan júlí

Von er á tillögum framkvæmdastjórnarinnar um næstu skref í loftslagsmálum 14. júlí næstkomandi. Verður þar um að ræða tillögur um hvernig eigi að ná því markmiði að samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda verði 55% árið 2030 miðað við árið 1990. Meðal væntanlegra tillagna eru endurskoðaðar reglur um viðskipti með losunarheimildir og aðgerðir til að takast á við kolefnisleka yfir landamæri.

Brussel-vaktin er gefin út af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Vaktin kemur út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

25. júní 2021 | Átök um grundvallarmál á leiðtogafundi |
Að þessu sinni er fjallað um

leiðtogafund ESB þar sem tekin var staðan á viðureigninni við Covid-19

gagnrýni á nýja ungverska löggjöf sem þykir vega að samkynhneigðum

ágreining innan ESB um afstöðu til Rússlands

·vinnu við nýja ferðamálastefnu ESB

·ný loftslagslög

afstöðu ráðherraráðsins til reglna um reiki og gjaldtöku fyrir þungaflutninga á vegum

Kapphlaup milli bólusetninga og nýrra afbrigða

Í yfirlýsingu frá leiðtogafundi ESB sem fram fór 24. og 25. júní er því fagnað að vel gangi með bólusetningar og að staða faraldursins fari almennt batnandi. Þó megi ekki missa dampinn í bólusetningum og vera þurfi á varðbergi vegna nýrra afbrigða veirunnar.

Delta afbrigðið svokallaða sem verið hefur ráðandi í Bretlandi um skeið færist í aukana víða annars staðar. Afbrigðið er meira smitandi en önnur og leggst á þá sem ekki hafa hlotið bólusetningu. Í mörgum ríkjum er það áhyggjuefni að þótt töluvert sé í land að ná fram hjarðónæmi með bólusetningu hefur dregið mjög úr aðsókn almennings. Er nú rætt í fullri alvöru, til dæmis í Frakklandi, að skylda fólk í bólusetningu.

Þá var undirstrikað af hálfu leiðtoganna mikilvægi samkomulags sem tekist hefur um stafrænt Covid-19 vottorð en reglur í því efni eiga að taka gildi innan EES og Sviss 1. júlí. Íslendingum og fleirum gefst þegar kostur á að fá slík samræmd vottorð með QR-kóða. Fram hefur komið hjá framkvæmdastjórn ESB að nú þurfi að gæta þess að skönnun á slíkum vottorðum sé sem skilvirkust. Óþarfi sé til dæmis að skanna þau bæði fyrir brottför og við komu til áfangastaðar.

Það er til marks um batnandi ástand að nýlega var ákveðið að aflétta ferðatakmörkunum gagnvart allmörgum ríkjum og svæðum utan Schengen, þ.e.a.s. Albaníu, Bandaríkjunum, Hong Kong, Líbanon, Macao, Norður-Makedóníu, Serbíu og Tævan. Bætast þau við ríki sem fyrir voru eins og Ástralía, Japan, Ísrael og Nýja Sjáland.

Hörð viðbrögð við ungverskum lögum um börn og samkynhneigð

Á fyrri degi leiðtogafundarins var gerð hörð atlaga að forsætisráðherra Ungverjalands vegna nýrra laga þar í landi sem þykja fela í sér grófa mismunun vegna kynhneigðar. Um er að ræða lagabreytingu sem taka á gildi 1. júlí næstkomandi. Frumvarpi sem átti upphaflega að beinast gegn barnaklámi var breytt á þann veg að bannað væri að veita börnum aðgang að efni sem sýndi eða hvetti til samkynhneigðar eða kynskipta.

Fyrir leiðtogafundinn höfðu 17 aðildarríki, þar á meðal Frakkland, Þýskaland, Spánn og Ítalía, skrifað sameiginlegt bréf þar sem leiðtogaráðið og framkvæmdastjóri SÞ, sem er boðsgestur ráðsfundarins, er minnt á grundvallargildi í Evrópu og harmaðar eru ógnir við mannréttindi og einkum bann við mismunun vegna kynhneigðar.

Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands, hafnaði því við komuna til Brussel að lögin beindust að samkynhneigðum. „Þau snúast um uppeldi barna í kynferðismálum,“ sagði hann og minnti á að hann hefði sjálfur þegar samkynhneigð var bönnuð undir kommúnistastjórn barist fyrir réttindum samkynhneigðra. Fjölmiðlar hafa bent á að þessi lagabreyting nú er ekki sú fyrsta sinnar tegundar. Á síðasta ári var m.a. samþykkt stjórnarskrárbreyting í Ungverjalandi sem kemur í raun í veg fyrir að tveir karlar eða tvær konur geti ættleitt barn.

Umræðurnar um þetta efni voru harkalegar á leiðtogafundinum á fimmtudag. Orban fékk helst stuðning frá pólskum og slóvenskum starfsbræðrum sínum. Haft var eftir Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, að Ungverjaland ætti ekkert erindi í ESB með þessum nýju lögum. Ef gildi sambandsins hentuðu ekki þá ættu Ungverjar að virkja 50. gr. sáttmálans, sem væri einmitt til þess að gera ríkjum kleift að segja sig úr sambandinu, sbr. Brexit. Xavier Bettel, forsætisráðherra Lúxemborgar, dró fram persónulega reynslu sína þegar hann sagði að fyrir sig hefði það að vera samkynhneigður ekki verið val. Þannig dró hann fram að forsendurnar að baki ungversku löggjöfinni væru rangar.

Opinberlega viðurkenndu ýmsir leiðtoganna að umræðurnar hefðu verið óvenju harkalegar og tilfinningaþrungnar. Michael Martin, forsætisráðherra Írlands, sagðist ekki hafa farið í grafgötur með að nýja löggjöfin væri skaðleg fyrir ungt fólk og þarna hefðu ungversk stjórnvöld farið yfir ákveðin mörk.

Ekki tímabært að stíga í vænginn við Rússa

Á leiðtogafundinum var því hafnað að stefna að fundi evrópskra ráðamanna með Vladimir Pútín Rússlandsforseta. Þjóðverjar og Frakkar höfðu lagt slíkt til en mikil andstaða reyndist vera við þau áform.

„Það er of snemmt því fram að þessu höfum við ekki séð nein róttæk umskipti hjá Pútín,“ var haft eftir Gitanas Nauseda, forseta Litháens. „Það væri misráðið að skuldbinda sig til viðræðna án nokkurra skilyrða.“ Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hafði hins vegar lagt áherslu á mikilvægi þess að taka upp þráðinn í slíkum samskiptum æðstu ráðamanna.

Vinna við ferðamálastefnu ESB komin á fulla ferð

Eins og fram hefur komið sendi leiðtogaráð ESB frá sér ályktun um ferðamál í maí á þessu ári þar sem kom fram að í árslok 2021 skuli birta samevrópskrar stefnu í ferðamálum, European Agenda for Tourism 2030/2050. Í henni skal m.a. koma fram hvernig styðja má við stafræna og græna umbreytingu greinarinnar, í samræmi við grunnstefnu ESB, og efla þannig samkeppnishæfni hennar gagnvart öðrum atvinnugreinum.

Í framhaldinu hófst framkvæmdastjórn ESB þegar handa og lagði nýlega fram ítarlega áætlun, eða vinnuskjal, um ákveðnar sviðsmyndir og það hvernig framkvæmdastjórnin sér fyrir sér verklagið við stefnumótunina.

Í áætluninni er tekið á helstu áskorunum sem greinin stendur frammi fyrir og einnig sett fram mælanleg markmið sem stefnt skal að því að ná árið 2030. Þá kemur fram tillaga að samstarfi, og verkaskiptingu á milli framkvæmdastjórnar og aðildarríkjanna en einnig hvernig atvinnugreinin sjálf og hagsmunasamtök verða kölluð að borðinu. Samtímis birtingu plaggsins bauð Thierry Breton, framkvæmdastjóri innri markaðsmála, upp á samráð um áætlunina sem standa mun til 15. september n.k.

Í viðauka er lýsing á hugsanlegu ferðamynstri eftir Covid-19. Rannsóknir ESB vísa í sitthvora áttina í þessu efni, annars vegar er krafa um sjálfbærni og minni áhugi á „massa túrisma“ en hins vegar eru vísbendingar um allt verði eins og það var fyrir faraldur.

Talið er að m.a. eftirtalin atriði muni hafa mest áhrif á ferðaþjónustu, sumt til skemmri tíma, annað til lengri:

Viðskiptaferðir. Þrýstingur á að að fjarfundir haldi áfram og að ekki þurfi að mæta á vinnustað. Þarna geta leynst tækifæri fyrir ferðamannastaði með afbragðs nettengingu þar sem fólk muni í auknum mæli tvinna saman vinnu og ferðalögum.

Ferðalög nær heimabyggð. Þau muni halda áfram til ársins 2022 þegar reiknað er með að ferðamynstur verði svipað og 2019.

Áhrif efnisveitna. Netflix bætti við sig 26 milljón áskrifendum í faraldrinum. Líklegt verði að teljast að margir þeirra staða sem birtast í þáttum og kvikmyndum verði eftirsóttir áfangastaðir á næstunni.

Auknar kröfur um hreinlæti. Í áðurnefndri könnun töldu 75% þátttakenda mikið öryggi í ströngum hreinlætisreglum á ferðamannastöðum.

Sama dag og þessi vinnuáætlun framkvæmdastjórnarinnar var birt boðaði ESB ráðgjafanefnd um ferðamál til fyrsta fundar um stefnumótunarvinnuna. Þar hélt Alessandra Priante, yfirmaður Evrópudeildar Alþjóðaferðamálastofnunarinnar (UNWTO) áhugaverða tölu um stöðu ferðaþjónustunnar á heimsvísu. Evrópu gengur langbest allra heimsálfa að endurreisa atvinnugreinina á meðan hinar álfurnar horfa til ársins 2024 sem fyrsta eðlilega ferðamannaársins eftir faraldurinn. Ljóst sé að milljarðar á milljarða ofan hafa horfið úr hagkerfum flestra landa og skaðinn gríðarlegur.

Annars var efni fundarins fyrst og fremst að ræða hugmyndir um nýtt mælaborð í evrópskri ferðaþjónustu enda nauðsynlegt að horfa til fleiri þátta en hagtalna þegar lagt er mat á þýðingu greinarinnar.

Fulltrúar Rannsóknarstofnunar ESB (Joint Research Center, með höfuðstöðvar á Ítalíu) kynntu hugmyndafræðina. Um yrði að ræða útvíkkun á annarri tölfræði en þeirri sem fyrir er, t.d. sem Hagstofa Evrópusambandsins (Eurostat) tekur saman og birtast einnig í svokölluðum Tourism Satellite Accounts TSA (hliðarreikningi við þjóðhagsreikninga), sem Ísland tók upp árið 2008. Nú á að leitast við að mæla t.d. umhverfislega þætti, félagslegt álag o.s.frv. Þessu var misvel tekið á fundinum og spurt út í tilgang og fjármögnun.

Ísland stendur vel að vígi á þessu sviði þar sem svokallaður Jafnvægisás ferðamála hefur verið tekinn upp (2019) en hann er stjórntæki til að meta reglulega áhrif ferðaþjónustu á umhverfi, innviði, samfélag og efnahag landsins. Jafnvægisásinn kemur til með að nýtast við ákvarðanatöku vegna álagsstýringar á ferðamannastaði í þeim tilgangi að stuðla að jafnvægi og sjálfbærri þróun.

Vinnustofur um einstaka efnisþætti stefnumótunarvinnunnar munu taka til starfa í september og mun fastanefndin í samráði við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið gæta þess að vera með fulltrúa þar eftir því sem þörf krefur.

Næsti fundur í ráðgjafanefndinni verður væntanlega um miðjan október n.k. en í millitíðinni mun framkvæmdastjórnin halda áfram vinnu við stefnumótunina og fara yfir niðurstöður ofangreindrar könnunar.

Ný loftslagslög formlega afgreidd

Evrópuþingið afgreiddi í vikunni nýju loftslagslögin svokölluðu. Þau fela í sér að samdráttur í losun gróðurhúsaloftegunda verði að minnsta kosti 55% 2030 miðað við það sem var árið 1990.

Ráðherraráðið nær samkomulagi um afstöðu til reglugerðar um reiki

Í samningsafstöðu ráðherraráðsins sem kynnt var 16. júní sl. eru lagðar til nokkrar breytingar miðað við reglugerðartillögu framkvæmdastjórnarinnar, m.a. að auka vernd og gagnsæi gagnvart notendum, t.d. farþega á ferjum, gagnvart reikiþjónustu sem nýtir innviði utan bandalagsins s.s. gervihnetti og skýra betur hlutverk ólíkra eftirlitsstofnana gagnvart reikiþjónustu. Þá er kveðið á um hlutverk BEREC við að halda utan um tengileiðir til neyðarþjónustu 112 innan hvers ríkis bandalagsins.

Þá er orðalagi reglugerðarinnar sem kveður á um gæði þjónustunnar breytt og kveður nú á um að gæðin skuli ekki vera minni en í heimaríki notandans ef innviðir gestaríkisins (s.s. aðgengi að 4G eða 5G sendum) styðji við jafngóða þjónustu.

Loks leggur ráðherraráðið til að hámarksgjöld fyrir reiki verði hærri en tillaga framkvæmdastjórnarinnar lagði til, að heildsala mínútugjalda verði hæst 0,027 Evrur í stað 0,022, heildsala SMS í reiki verði hæst 0,007 í stað 0,004 Evrur og heildsölugjöld fyrir gagnaflutninga í reiki verði hæst 2,25 Evrur í stað 2,00 fyrir hvert gígabæti. Sömuleiðis er lagt til að ákvæði um frekari lækkanir í framtíðinni á þessum gjöldum verði breytt þannig að lækkunin verði minni.

ITRE nefnd þingsins á eftir að taka afstöðu til tillögu framkvæmdastjórnarinnar og í framhaldi af því hefjast samningaviðræður þessara þriggja stofnana (ráðs, þings og framkvæmdastjórnar) um endanleg ákvæði reglugerðarinnar.

Samningsafstaða um gjaldtöku af þungaflutningum á vegum (EUROVIGNETTE)

Ráðherraráðið náði einnig 16. júní sl. saman um afstöðu sína til tillögu framkvæmdastjórnarinnar um samræmda gjaldtöku fyrir þungaflutninga á vegum. Tillagan var lögð fram fyrir fjórum árum síðan og var hún afar umdeild meðal aðildarríkjanna sem náðu ekki að samræma afstöðu sína til hennar. EFTA-ríkin sendu ráðinu umsögn þar sem lögð var áhersla á sveigjanlega útfærslu á reglum um gjaldtöku þar sem aðildarríkin hefðu nægilegt svigrúm til þess að aðlaga gjaldtökuna að aðstæðum í hverju ríki fyrir sig. Í stuttu máli þá má segja að niðurstaða ráðsins sé í þessa átt, hún veiti góðan sveigjanleika til útfærslu í hverju ríki um sig, en setur um leið ramma um gjaldtökuna sem þó gengur ekki eins langt og lagt var til.

Gert er ráð fyrir að afstaða þingsins liggi fyrir fljótlega og að samningaviðræður hefjist á milli ráðsins, þingsins og framkvæmdastjórnarinnar að svo búnu.

Brussel-vaktin er gefin út af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Vaktin kemur út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

11. júní 2021 | Endurskoðun reglna um för yfir innri landamæri |
Að þessu sinni er fjallað um

rýmkaðar reglur um för yfir innri landamæri

fund umhverfisráðherra ESB þar sem reglur um rafhlöður og úrbætur á innleiðingu Árósasamningsins voru ofarlega á baugi

ECASIS vinnunefnd EFTA

Endurskoðun tilmæla um för yfir innri landamæri EES/Schengen

Samkomulag náðist í dag, föstudag, um endurskoðun tilmæla ráðherraráðsins um för yfir innri landamæri EES/Schengen (Council Recommendation (EU) 2020/1475 of 13 October 2020 on a coordinated approach to the restriction of free movement in response to the COVID-19 pandemic).

Helstu breytingar eru þessar:

Litakóðunarkerfið breytist þannig að slakað er á kröfum (fleiri lönd verða græn og appelsínugul).

Breytt viðmið varðandi hvaða aðgerða megi grípa til á landamærum gagnvart komufarþegum frá mismunandi litum svæðum (t.d. ekki gert ráð fyrir að farþegar sem koma frá appelsínugulum svæðum með neikvætt PCR-próf sæti skimun).

Tekið fram að þeir sem eru bólusettir eða hafa náð sér af fyrri sýkingu eigi ekki að sæta sóttvarnaaðgerðum á landamærum (t.d. sýnatöku).

Börn undir 12 ára verði undanskilin sóttvarnaaðgerðum (t.d. sýnatöku).

Heimilað að grípa til neyðarráðstafana (svokallaður neyðarhemill) ef upp koma ný afbrigði sem valda áhyggjum. Það gæti falist í að komufarþegar frá slíkum svæðum sæti viðbótarráðstöfunum eins og sýnatöku og sóttkví.

Samræming tímalengdar, sem vottorð um fyrri sýkingu gilda, þ.e. í 180 daga.

Skilgreint er hvað teljist full bólusetning, þ.e. a) bólusetning með tveimur skömmtum af bóluefni þegar það á við, b) bólusetning með einum skammti þegar það á við, c) bólusetning með einum skammti ef viðkomandi hefur áður sýkst.

Ljóst er að sumt í tilmælunum stangast á við framkvæmd á Íslandi en íslensk stjórnvöld hafa haldið því til haga að aðildarríkin eigi að hafa forræði á sóttvarnaraðgerðum auk þess sem landfræðileg einangrun sé viðurkennt sjónarmið sem geti réttlætt strangari aðgerðir en ella. Síðast en ekki síst eru tilmælin ekki lagalega bindandi.

Gert er ráð fyrir að nýju tilmælin verði afgreidd formlega 15. júní næstkomandi.

Væntanlegar reglur um rafhlöður ofarlega á dagskrá

Umhverfisráðherrar ESB-ríkjanna hittust á fundi í Lúxemborg 10. júní sl. Á fundinum var tilvonandi reglugerð ESB er varðar rafhlöður rædd en hún inniheldur m.a. markmið um endurvinnslu rafhlaða og kröfur er varða áreiðanleikakönnun á vinnslu hráefna (e. raw material mining). ESB leggur áherslu á að búið verði að samþykkja reglugerðina fyrri hluta næsta árs og fyrir árið 2023 þegar búist er við sprengingu í framleiðslu á geymissellum (e. battery cell). Um er að ræða mjög ítarlega og tæknilega reglugerð. Sum aðildarríki ESB eru því svartsýn á að tímasetningar um samþykki reglugerðarinnar muni standast.

Á fundinum var samþykkt ályktun ráðsins um nýja stefnu ESB er varðar aðlögun að loftslagsbreytingum (e. New EU strategy on adaptation to climate change) sem gefin var út í febrúar sl. Í ályktuninni er lýst yfir stuðningi við stefnuna en í henni er sett fram langtímasýn ESB um loftslagsþolið samfélag sem er að fullu lagað að óhjákvæmilegum áhrifum loftslagsbreytinga fyrir árið 2050. Áætlunin er ein af lykil aðgerðum Græna sáttmála ESB. Áætlunin leggur áherslu á betri gögn og betri nýtingu þeirra gagna sem til eru, náttúrulegar lausnir (e. nature-based solutions), samþættingu við fjárhagslegar og efnahagslegar athuganir og eflingu alþjóðlegra aðgerða á sviði aðlögunar að loftslagsbreytingum sem er í samræmi við Parísarsamninginn. Ráðið leggur áherslu á mikilvægi þess að aðlögun að loftslagsbreytingum verði höfð að leiðarljósi við efnahagslega uppbyggingu í kjölfar Covid-19. Með ályktuninni eru lagðar pólitískar línur fyrir framkvæmdastjórn ESB í innleiðingu stefnunnar en einnig mun hún verða leiðarvísir við skil á aðlögunaráætlun ESB til Parísarsamningsins fyrir loftslagsráðstefnu SÞ (COP26) sem haldin verður í Glasgow í haust.

Brugðist við athugasemdum við innleiðingu Árósasamningsins

Á fundi umhverfisráðherranna var einnig rætt um tilvonandi breytingu á reglugerð ESB um Árósasamninginn. Tillaga að breytingu á reglugerðinni er tilkomin vegna athugasemda eftirlitsnefndar samningsins við innleiðingu hans í ESB rétt. Fundið var að því að réttur almennings til þess að fá athafnir eða athafnaleysi ESB á sviði umhverfismála endurskoðað væri ekki nægilega tryggður. Þríhliða viðræður Evrópuþingsins, ráðsins og framkvæmdastjórnarinnar um tillöguna standa fyrir dyrum nú þegar afstaða Evrópuþingsins til breytinganna liggur fyrir.

Mikið undir hjá ECASIS vinnunefnd EFTA

Mánudaginn 7. júní var haldinn fjarfundur í ECASIS vinnunefnd EFTA. Vinnunefndin fjallar um gerðir á sviði fjarskipta, netöryggis, fjölmiðlunar, opinn gagna og stafrænnar tækni. Umfjöllunarefni nefndarinnar tengjast flestar einu mikilvægasta markmiði framkvæmdastjórnar ESB, þ.e. um stafræna umbreytingu hagkerfisins.

Á árinu hafa komið fram tillögur að gerðum um gervigreind og reikigjöld. Undir lok síðasta árs komu fram tillögur að gerðum um reglusetningu stafrænnar þjónustu sem margir stærstu netrisar samtímans veita s.s. Google, Amazon, Facebook, Youtube og svo framvegis. Þá fjallar nefndin einnig um nýjar tillögur að gerðum um netöryggi, um stjórnhætti opinna gagna og fleiri mikilvægar tillögur.

Tillögur að gerðum um stafræn mál eru oft flóknar og getur ein gerð varðað löggjöf á mörgum sviðum s.s. um persónuvernd, samkeppnismál, viðskiptareglur, netöryggi og reglur um fjölmiðla. Viðamestu gerðirnar spanna því málefnasvið margra ráðuneyta og krefst greiningarvinna á gerðunum mikils og náins samstarfs margra ráðuneyta og stofnana.

Brussel-vaktin er gefin út af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Vaktin kemur út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

04. júní 2021 | Stefnt að styrkingu Schengen-samstarfsins |
Að þessu sinni er fjallað um:

nýja stefnu um Schengen-svæðið,

fund EES-ráðsins,

nýafstaðna ráðherrafundi um samgöngur og fjarskipti,

ályktun ráðherraráðs ESB um ferðaþjónustu og loks

fund vísindamálaráðherra ESB.

Ný Schengen-stefna

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnti nýja Schengen stefnu (e. Strategy towards a fully functioning and resilient Schengen area) 2. júní sl.

Schengen er stærsta svæði innan Evrópu sem heimilar frjálsa för sem meira en 400 milljón ríkisborgarar Evrópu og gestir geta nýtt sér. Schengen varðar ekki einungis landamæramál heldur einnig hagkerfi ríkjanna.

Undanfarin ár hafa tvær umfangsmiklar áskoranir tengst Schengen-svæðinu. Fyrst var það fordæmalaus fjöldi umsækjenda um alþjóðlega vernd árið 2016 og nú heimsfaraldur. Þessar áskoranir leiddu til ósamræmdra aðgerða á landamærum ríkjanna og takmarkana á frjálsri för þar sem ríki fóru í auknum mæli að taka upp eftirlit á innri landamærum. Þeirri stefnu sem framkvæmdastjórn ESB kynnir nú er ætlað að endurbyggja og styrkja Schengen-svæðið enn frekar. Stefnan tekur á þremur meginstoðum Schengen-svæðisins.

Öflugri og öruggari ytri landamæri. Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu hefur verið efld til muna, ný og bætt skráningarkerfi munu einnig líta dagsins ljós, s.s. Entry/Exit System (EES) og European Travel Information and Authorsation System (ETIAS) en kerfunum er m.a. annars ætlað halda betur utan um för inn og út af svæðinu.

Stefnt er að svæði án eftirlits á innri landamærum. Svo það takist ber að tryggja og efla aðra þætti Schengen-samstarfsins, s.s. efla öryggi á ytri landamærum með ríkari lögreglusamvinnu, öflugu vegabréfsáritanakerfi, sameiginlegu evrópsku brottvísunarkerfi og bættu flóttamannakerfi.

Schengen þarf að búa yfir öflugu stjórnkerfi. Slíkt fæst með gagnkvæmu trausti aðildarríkja og sameiginlegri ábyrgð. Vilji er til þess að færa vinnslu Schengen-úttekta í hverju aðildarríki á pólitískt stig þar sem ráðherraráð ESB og Evrópuþingið geta rætt niðurstöður þeirra og mögulegar aðgerðir.

Nánari upplýsingar um nýja Schengen stefnu framkvæmdastjórnar ESB.

Málamiðlun um breytingar á reglum um samevrópskt loftrými

Samgönguráðherrar ESB hittust á ársfjórðungslegum fundi sínum 3. júní nú í fyrsta skiptið frá árinu 2019 saman á fundarstað. Fundirnir eru haldnir til skiptis í Brussel og í Lúxemborg og eru júní fundirnir jafnan í Lúxemborg sem var tilfellið núna. Mörg mál voru á dagskrá fundarins til ákvörðunar, umræðu og kynningar. Þau mál sem voru lögð upp til ákvörðunartöku voru afstaða ráðsins til tillögu framkvæmdastjórnarinnar um breytingar á reglugerð um samevrópskt loftrými SES2+, um breytingar á tilskipun um leigu flutningabifreiða án bílstjóra og um viðurkenningu á atvinnuskírteini farmanna frá ríkjum utan ESB fyrir ráðningu á skip í siglingum á vatnaleiðum. Þá fjölluðu ráðherrarnir um drög að afstöðu ráðsins til stefnumörkunar á sviði járnbrauta og stefnumörkun um umhverfisvænar og snjallar samgöngur.

Afstaða samgönguráðherra (e. general approach) til breytinga á reglugerð um SES2+

Ráðherrarnir fjölluðu meðal annars um málamiðlun og tillögu formennskuríkisins Portúgals um afstöðu ráðsins (e. general approach) til tillagna framkvæmdastjórnarinnar um breytingu á reglugerð ráðsins um samevrópskt loftrými s.k. SES 2+. Samhliða fjölluðu ráðherrarnir einnig um tillögu að breytingu á reglugerð EASA sem gerir ráð fyrir nýjum verkefnum stofnunarinnar á sviði flugumferðastjórnunar. Öll ríkin studdu málamiðlunartillögu Portúgals og var hún samþykkt á fundinum.

Í afstöðu ráðsins eru lagðar til töluverðar breytingar á tillögu framkvæmdastjórnarinnar sem tryggja betur yfirráð ríkjanna yfir lofthelgi sinni, þ.e. auka aðkomu flugmálayfirvalda í hverju ríki um sig að ákvörðunartöku um stjórnun loftrýmisins. Áður en tillagan var tekin til atkvæðagreiðslu tók framkvæmdastjóri samgönguskrifstofu ESB til máls og sagði að með málamiðlun ráðherranna myndu markmið um hagkvæmni og aukna skilvirkni flugstjórnar ekki nást fyllilega sem og markmið um að draga úr losun frá flugi. Nokkur ríki lögðu áherslu á að í samningaviðræðum framundan við framkvæmdastjórnina og Evrópuþingið yrði leitað leiða til þess að styrkja ákvæði reglugerðarinnar sem styðja við aukna skilvirkni í flugumferðarstjórnun, aukna hagkvæmni þjónustunnar og minni losun frá flugi.

Evrópuþingið hefur ekki lokið umfjöllun sinni um tillögu framkvæmdastjórnarinnar að reglugerð um SES2+. Þegar afstaða þingsins liggur fyrir hefjast samningaviðræður stofnanna þriggja um endanlega útfærslu nýrrar reglugerðar um SES2+. Miðað við viðbrögð framkvæmdastjórnarinnar gæti tekið tíma að ná ásættanlegri endanlegri niðurstöðu.

Afstaða samgönguráðherra til breytinga á tilskipun um leigu flutningabíla án ökumanna

Tillagan um breytingu á tilskipuninni hefur verið í um fjögur ár til skoðunar hjá ráðherraráðinu. Henni er ætlað að stuðla að hagkvæmni á flutningamarkaði með því að greiða fyrir leigu á flutningabílum á milli ríkja. Með því eiga flutningafyrirtæki auðveldara með að leigja flutningabifreiðir tímabundið og þannig bregðast við tímabundinni aukningu í eftirspurn. Ráðherraráðið leggur til nokkrar breytingar sem ætlað er vinna gegn neikvæðum áhrifum á skatttekjur ríkjanna, auðvelda eftirlit og draga úr stjórnsýslubyrði. Ríkin voru í megin atriðum sammála um málamiðlunina. Ekki ber lengur mikið í milli framkvæmdastjórnarinnar, þingsins og ráðsins og ekki er búist við að langan tíma taki að ná niðurstöðu um málið.

Stefnumörkun um vistvænar og snjallar samgöngur

Ráðherrarnir fjölluðu einnig um stefnumörkun framkvæmdastjórnarinnar sem sett er fram í orðsendingu um umhverfisvænar og snjallar samgöngur. Í stuttu máli tóku þeir undir sýn framkvæmdastjórnarinnar um að ná kolefnishlutleysi í samgöngum árið 2050. Markmiðinu yrði náð með aðgerðum s.s. að styðja við og stuðla að orkuskiptum, nýsköpun í samgöngum, innleiðingu stafrænnar tækni og með gjaldtöku fyrir losun.

Stjórnarhættir um rafræn gögn: Hvatt til að skoða betur alþjóðaleg hlið mála

Ráðherrar sem fara með fjarskipta- og upplýsingatæknimál í aðildarríkjum ESB hittust 4. júní á ársfjórðungslegum fundi sínum sem að jafnaði er í Lúxemborg á þessum tíma.

Stafræn mál, undir yfirskriftinni: „Europe fit for the Digital Age“, eru í forgangi hjá framkvæmdastjórninni og hefur hún birt nokkrar mikilvægar tillögur á því sviði. Á dagskrá fundarins voru þrjár slíkar tillögur til umfjöllunar en vinnan við þær er enn skammt á veg komin og afstaða ráðsins til þeirra í mótun. Þær eru um stjórnarhætti um rafræn gögn (e. Data Governance Act), netöryggi (e. Cypersecurity NIS2) og stafrænan áttavita til 2030 (2030 Digital Compass).

Stjórnarhættir um rafræn gögn

Kynnt var skýrsla um stöðu vinnunnar við að móta afstöðu ráðsins til tillögu að reglugerð um stjórnarhætti um rafræn gögn (e. European data governance). Unnið er að því að skýra gildissvið tillögunnar og ákvæði hennar gagnvart gildandi löggjöf á þessu sviði og miðað við að ljúka verkinu sem fyrst. Fram komu sjónarmið um að nauðsynlegt væri að skoða hvernig löggjöf ESB í þessu efni samræmist löggjöf annarra ríkja utan sambandsins þar sem málið væri alþjóðlegt í eðli sínu. Metið er að vinnunni við að ná samstöðu innan ráðsins miði vel áfram og ekki sé langt í sameiginlega niðurstöðu.

Netöryggi – NIS 2

Kynnt var skýrsla um framvindu við að móta afstöðu ráðherranna til málsins. Líflegar umræður áttu sér stað í ráðherraráðinu um tillöguna og er byrjað að móta skriflega afstöðu ráðsins. Unnið er með ábendingar um endurskoðun gildissviðs reglnanna og að þær samræmist löggjöf sambandsins um leið og skoðuð verði tenging hennar við löggjöf í mismunandi málaflokkum. Ráðherrarnir sögðu málið afar mikilvægt og brýnt að klára það sem fyrst. Lögðu þeir áherslu á að samhæfa og vinna að auknu netöryggi lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Ekki síður að tryggja netöryggi upplýsingakerfa stjórnvalda sem eru í síauknum mæli að verða fyrir árásum. T.d. kom fram að nýlega hefði heilbrigðisupplýsingakerfi Íra orðið fyrir alvarlegri árás og sömuleiðis stjórnsýsluvefur Belga. Samstarf við vinaríki utan Evrópu þyrfti til þess að bregðast við og sporna gegn netárásum sem oft koma yfir landamæri.

Stafrænn áttaviti 2030

Á fundinum fjölluðu ráðherrarnir um þær áherslur sem töldu mikilvægastar í stefnumörkun í orðsendingu um stafræna áttavitann 2030 sem setur fram stafræn markmið fyrir ESB. Meðal annars var undirstrikað mikilvægi þess að hafa skýr stafræn markmið, að stafræn umbreyting væri mikilvæg fyrir endurreisn hagkerfisins, mikilvægi nýsköpunar, mikilvægi menntunar fyrir stafræna umbreytingu og mikilvægi einfalds skýrs regluverks á þessu sviði. Þá komu fram sjónarmið um að í stefnumörkunina vantaði umfjöllun um jafnrétti, netöryggi og gervigreind og bent var á mikilvægi rafrænnar auðkenningar til þess að markmið stefnumörkunarinnar náist.

Stafræn málefni og græni sáttmálinn til umræðu hjá EES-ráðinu

Samvinna ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu í baráttunni við kórónuveirufaraldurinn og afleiðingar hans voru í brennidepli á fjarfundi EES-ráðsins 28. maí síðastliðinn. Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, stýrði fundinum af hálfu EFTA-ríkjanna í EES. EES-ráðið, er skipað utanríkisráðherrum EES EFTA-ríkjanna og fulltrúum framkvæmdastjórnar og ráðherraráðs ESB. Fundurinn var sá fyrri af tveimur fundum ráðsins á þessu ári. Í sameiginlegri ályktun er farið ítarlega yfir ýmsa þætti EES-samtarfsins. Getið er um væntanlega nýja löggjöf um stafræn málefni sem muni stuðla að öryggi, sanngirni og lögmæti á innri markaði fyrir stafræna þjónustu. Þá segir að þörf sé á miklum metnaði, samtakamætti og brýnum aðgerðum til að hraða umbreytingu yfir umhverfisvæna framtíð þar sem komið væri á jafnvægi í loftslagsmálum. Vinna væri í gangi við að endurskoða fjölmargar EES-gerðir á sviði umhverfismála sem hluti af pakka til að ná fram 55% samdrætti losunar gróðurhúsalofttegunda árið 2030. Þar sé meðal annars mikilvægt að finna leiðir til að fjárfestingar einkaaðila beinist að grænum verkefnum.

Sjá einnig frétt á vef utanríkisráðuneytisins um fundinn.

Ályktað um framtíð evrópskrar ferðaþjónustu

Í skugga þess að ferðaþjónusta og samgöngur urðu jafn harkalega fyrir barðinu á heimsfaraldrinum og raun ber vitni ályktaði ráðherraráðið í síðustu viku um framtíðarsýn í evrópskri ferðaþjónustu

Ályktunin, sem ber yfirskriftina Ferðaþjónusta í Evrópu næsta áratuginn; sjálfbær, þrautseig, stafræn og félagsleg, sýnir með skýrum hætti vilja ráðsins til að endurreisa atvinnugreinina. Auk efnahagslegrar þýðingar sé greinin ekki síður mikilvægur hlekkur í verndun og kynningu evrópskra gilda og menningararfs.

Í ályktun ráðsins kemur fram að í árslok 2021 sé stefnt að birtingu samevrópskrar stefnu í ferðamálum, European Agenda for Tourism 2030/2050. Í henni skal m.a. koma fram hvernig styðja má við stafræna og græna umbreytingu greinarinnar, í samræmi við grunnstefnu ESB, og efla þannig samkeppnishæfni hennar gagnvart öðrum atvinnugreinum. Einnig er bent á þá möguleika sem felast í þeim bjargráðasjóðum ESB sem ætlað er að styðja aðildarríkin við uppbygginguna í kjölfar Covid-19.

Fram kemur að öflugur innri markaður renni stoðum undir styrkingu atvinnugreinarinnar en einnig er bent á þýðingu þess að skilgreina þarfir lítilla fyrirtækja í ferðaþjónustu svo að þau geti virkað sem hreyfiafl í byggðaþróun og fjölgun nýrra starfa.

Í samræmi við það sem hefur verið ofarlega á baugi í umfjöllun um ferðaþjónustu á vettvangi ESB undanfarin ár er mikilvægi jafnréttis kynjanna, menntunar og ýmiss konar þjálfunar, t.d. í stafrænum lausnum, undirstrikað m.a. til að ungt fólk sækist eftir því að hasla sér völl í greininni.

Eins og nærri má geta er komið inn á mikilvægi loftslags- og umhverfismála og nauðsyn þess að atvinnugreinin leggi sitt af mörkum varðandi bætta nýtingu hráefna, kolefnislosun, vatnsnotkun og förgun sorps. Einnig er komið inn á mikilvægi nýsköpunar t.d. í samgöngum, byggingu mannvirkja og á sviði stafrænna lausna, eins og áður segir.

Jafnframt felst í ályktuninni hvatning til aðildarríkjanna, sem núna skipuleggja sumarið, um að vera markviss og samhent í sóttvörnum á þeim stöðum sem ferðamenn sækja.

Gera má ráð fyrir að á fundi ferðamálanefndar framkvæmdastjórnarinnar 22. júní n.k. verði fjallað nánar um ályktunina og hvernig standa skuli að gerð samevrópskrar ferðamálastefnu.

Ályktun ráðherraráðsins: https://www.consilium.europa.eu/media/49960/st08881-en21.pdf

Vonir bundnar við aukinn hreyfanleika vísindamanna

Ráðsfundur vísindamálaráðherra ESB fór fram í lok síðustu viku. Á meðal helstu atriða á dagskrá fundarins voru:

Samþykkt texta reglugerðar um EuroHPC (European High Performance Computing Joint Undertaking) sem er verkefni á sviði ofurtölva en íslensk stjórnvöld hafa þegar gefið ESB til kynna áhuga sinn á þátttöku í því

Niðurstöður ráðsins um bætt starfsumhverfi vísindafólks á evrópska rannsóknasvæðinu svo gera megi rannsóknir að eftirsóttum starfsvettvangi ( e. Council conclusions on Deepening the European Research Area: providing researchers with attractive and sustainable careers and working conditions and making brain circulation a reality)

Kynning á nýrri orðsendingu framkvæmdastjórnar ESB um alþjóðlega samvinnu á sviðum rannsókna og nýsköpunar (e. Global Approach to Research and Innovation).

Á fundinum ræddu ráðherrarnir hvernig undirbúa mætti innleiðingu og framkvæmd hins nýja evrópska rannsóknasvæðis til næstu tíu ára. Umræðurnar koma í framhaldi af ráðsniðurstöðum um nýja evrópska rannsóknasvæðið sem samþykktar voru í desember síðastliðnum.

Eitt af lykilatriðunum á hinu nýja evrópska rannsóknasvæði er að gera starfsvettvang vísindamanna eftirsóknarverðari og stuðla að frekari hreyfanleika vísindamanna um álfuna og taka niðurstöður ráðsins á þessu sérstaklega.

Ýmislegt hefur þegar áunnist þegar kemur að þessum málum, m.a. með Euraxess starfatorginu sem veitir upplýsingar um laus störf í rannsóknum, COST verkefnum sem styrkja vísindafólk til þess að byggja upp samstarfsnet og MSCA áætluninni sem veitir styrki til samstarfsneta háskóla, stofnana og fyrirtækja, auk einstaklingsstyrkja til framúrskarandi nýdoktora.

Hins vegar eru enn ýmsar hindranir í veginum og í niðurstöðum sínum hvatti ráðið aðildarríkin og framkvæmdastjórnina eindregið til þess að efla enn frekar samstarfið og skuldbindingar sínar á þessum sviðum. Leggur ráðið m.a. til að komið verði á fót kerfi sem heldur utan um upplýsingar um hreyfanleika vísindamanna um álfuna, metur vinnuumhverfi og -aðstæður og stuðlar að kynjajafnrétti. Þá eru samstarfsnet háskóla (e. European University Alliances) hvött til að taka að sér tilraunaverkefni um ný ráðningarkerfi fyrir nýliða, auk starfsþjálfunar og umbunarkerfa.

Framkvæmdastjórn ESB er einnig að vinna að ýmsum verkefnum til þess að bæta starfsumhverfi vísindamanna, m.a. eru í vinnslu tillögur að nýjum siðareglum fyrir ráðningu vísindamanna (e. code of conduct for recruiting researchers) þar sem settar verða fram reglur og skyldur bæði fyrir vísindamennina og vinnuveitendur þeirra. Dæmi um annað verkefni er nokkurs konar flokkunarkerfi (e. taxonomy) fyrir rannsóknarstörf til þess að búa til sameiginlegan ramma sem hægt er að styðjast við til þess að hægt sé að skoða og meta aðstæður í mismunandi löndum. Ekkert af þessu verður þó bindandi fyrir aðildarríkin heldur er einungis verið að búa til ákveðinn grundvöll til þess að efla og bæta starfsumhverfi vísindafólks í Evrópu.

Fréttatilkynning og bakgrunnsgögn fundarins.

Brussel-vaktin er gefin út af sendiráði Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Vaktin kemur út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins.

Ábyrgðarmaður er Kristján Andri Stefánsson sendiherra.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].

21. maí 2021 | Búið í haginn fyrir ferðasumar |
Sendiráðið í Brussel fylgist náið með því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins. Undanfarið hefur þetta borið hæst:

Stafræn Covid-19 vottorð – samkomulag í höfn

Samkomulag náðist í vikunni um útfærslu á stafrænum Covid-19 vottorðum sem eiga að auðvelda ferðalög mill landa í sumar. Viðræður ráðherraráðsins og Evrópuþingsins voru snarpar en í gær var tilkynnt að samkomulag væri í höfn.

Reglurnar sem nú hefur náðst eining um fela í sér að Covid-19 tengd vottorð verða gefin út á samræmdan hátt innan EES og Sviss þannig að þau séu tekin gild á landamærum. Gert er ráð fyrir að vottorðin verði komin í gagnið 1. júlí næstkomandi. Ísland hefur tekið þátt í viðræðum um nýju reglurnar og ekki síður í tæknilegum undirbúningi. Miðað er við að reglurnar gangi í gildi um leið í ESB og EFTA-ríkjunum.

Reglurnar ná yfir bólusetningarvottorð, vottorð um fyrri sýkingu og PCR-vottorð, allt vottorð sem nú þegar er verið að meta á landamærum Íslands með ærinni fyrirhöfn. Fyrirsjáanlegt er því að samræmd stafræn vottorð með QR kóða muni stórlega einfalda umsýslu á Keflavíkurflugvelli. Vottorðin munu einnig ná til viðurkenndra hraðprófa. Í reglunum er einnig tekið fram að vottorðin megi nota innanlands í samræmi við reglur á hverjum stað. Sum ríki eru þegar byrjuð að gera vottorð um til dæmis bólusetningu að skilyrði fyrir því að taka þátt í fjölmennum samkomum svo dæmi sé tekið.

Ein veigamesta breytingin sem varð á drögum að reglugerð ESB var sú að nú segir að aðildarríkin skuli ekki gera viðbótar sóttvarnakröfur til þeirra sem ferðast til þeirra með vottorð nema þær séu nauðsynlegar og hóflegar. Forræði aðildarríkja á sóttvörnum er því að einhverju leyti rammað inn. Á Íslandi hefur til dæmis verið gerð sú viðbótarkrafa á bólusetta ferðamenn að þeir undirgangist eina sýnatöku á landamærum. Að einhverju marki endurspeglar þessi viðbót þó gildandi réttarástand í aðildarríkjunum, þ.e.a.s. stjórnvöld eru á hverjum tíma bundin af grunnreglum um meðalhóf og málefnaleg sjónarmið.

Evrópuþingið hafði meðal annars lagt áherslu á að vottorðin ættu að vera aðgengileg öllum á ódýran hátt. Í aðfararorð reglugerðar er nú komin inn klausa þar sem aðildarríkin eru hvött til að tryggja framboð Covid-19 tengdra prófa sem almenningur hafi efni á. Framkvæmdastjórn ESB mun einnig verja 100 milljónum evra í að aðstoða aðildarríkin við að gera ódýr próf aðgengileg.

Aðgerðaáætlun í mengunarmálum

Framkvæmdastjórn ESB gaf út í síðustu viku orðsendingu um aðgerðaráætlun er miðar að því að draga úr mengun lofts, vatns og jarðvegs: (e. EU Action Plan: Towards Zero Pollution for Air, Water and Soil).

Í aðgerðaráætluninni, sem er hluti af Græna sáttmála ESB, er sett fram sýn ESB til ársins 2050 um heim þar sem mengun er svo lítil að hún sé ekki skaðleg heilsu manna og náttúrulegum vistkerfum. Auk þess eru í aðgerðaráætluninni sett fram skref til að ná því markmiði.

Áætlunin tengir saman allar viðeigandi stefnur ESB til að takast á við og koma í veg fyrir mengun, með sérstaka áherslu á stafrænar lausnir. Endurskoðun á viðeigandi löggjöf ESB mun leiða í ljós hvar þörf verður á nýrri löggjöf og hvar verður einfaldlega þörf á betri framkvæmd.

Aðgerðaráætlunin setur fram lykil aðgerðir til ársins 2030 sem hafa það að markmiði að draga úr mengun sem næst uppruna hennar. Markmiðin eru, miðað við núverandi stöðu:

Auka loftgæði til að draga úr ótímabærum dauðsföllum vegna loftmengunar um 55%;

Auka vatnsgæði með því að draga úr úrgangi, plastúrgangi í hafi um 50% og örplasti í umhverfi um 30%;

Auka gæði jarðvegs með því að draga úr næringartapi og úr notkun skordýraeiturs um 50%;

Fækka um 25% þeim vistkerfum innan ESB þar sem loftmengun ógnar líffræðilegri fjölbreytni;

Draga úr hlutdeild fólks sem býr við langvarandi röskun tengda umferðarhávaða um 30%, og

Draga umtalsvert úr myndun úrgangs og 50% úr myndun heimilisúrgangs.

Í aðgerðaráætluninni er að finna fjölmargar tímasettar aðgerðir til ársins 2024 sem sjá má í viðauka hennar. Sumar varða endurskoðun löggjafar en aðrar kveða á um betri eftirfylgni við það sem komið er og allt þar á milli. Áætlunin er samtengd öðrum áætlunum og markmiðum ESB, m.a. efnaáætlun ESB, markmiði um kolefnishlutleysi, líffræðilegri fjölbreytni og auðlindanýtingu.

Opnað fyrir bólusetta ferðamenn frá 3ju ríkjum

Samkomulag hefur náðst innan Evrópusambandsins um breytingar á tilmælum um ferðatakmarkanir frá þriðju ríkjum vegna Covid-19 nr. 912/2020. Helstu breytingar eru:

1) Þeir sem eru fullbólusettir með bóluefnum viðurkenndum af Evrópsku lyfjastofnuninni eða með neyðarsamþykki WHO (og 14 dagar eru liðnir frá bólusetningu) eiga að geta ferðast til og innan svæðisins án þess að sæta aðgerðum á borð við skimun og sóttkví. Bólusettir ferðamenn frá þriðju löndum geta því ferðast til svæðisins.

2) Skilgreining á „grænu“ svæði er breytt, þannig að í stað þess að nýgengi þurfi að vera undir 25, þá þarf það að vera undir 75. Áfram þarf hlutfall jákvæðra prófa að vera undir 4% svo land geti talist „grænt.“ Tilmælin fela í sér að ekki séu í gildi landamæraaðgerðir gagnvart þeim sem koma frá „grænum“ svæðum, hvort sem þeir eru bólusettir eða ekki.

3) Aukin áhersla er á vöktun ólíkra afbrigða veirunnar og mun Evrópsku sóttvarnastofnuninni (ECDC) meðal annars vera falið að gefa út kort sem sýnir dreifingu afbrigða sem valda sérstökum áhyggjum eða vert þykir að fylgjast með.

Skattlagning í þágu loftslagsmála – grýtt leið framundan

Nýlega birtist eftirfarandi yfirskrift í Politico: „Europe’s plan to tax the world into climate ambition”, í lauslegri þýðingu: „Áform ESB í skattamálum til að hvetja alþjóða-samfélagið til aðgerða í loftslagsmálum.” Bakgrunnurinn var ræða Frans Timmermans, yfirábyrgðaraðila Græna sáttmálans hjá ESB, á fundi með bandarískri þingnefnd. Þar sagði hann að þetta væri varnarleikur ESB fyrir evrópskar atvinnugreinar gegn kolefnisleka (e. carbon leakage) eða samkeppni frá löndum með slakar loftlagsvarnir. Hér er Timmermans að vísa til áforma um að leggja sérstakan skatt á innfluttar vörur með hátt kolefnisinnhald, en á ensku gengur skatturinn undir nafninu “ Carbon Border Adjustment Mechanism (CBAM)”. Fyrir liggur að þessi áform ESB falla ekki sérlega vel að þeirri loftlagsáætlun sem Biden, forseti Bandaríkjanna, mun kynna alþjóðasamfélaginu innan skamms. Orðrómur er um að talsmenn Hvíta hússins hafi sent ESB þung varnaðarorð þess efnis að þeir síðarnefndu eigi að setja þessi áform sín á ís (e. deep freeze). Kína tekur jafnvel enn dýpra í árinni en Bandaríkin. ESB hefur hins vegar bent á sér til varnar að CBAM sé í raun spegilmynd ETS gagnvart ríkjum fyrir utan bandalagið sem ekki gera þá kröfu til mengandi fyrirtækja að kaupa losunarheimildir. Sú staðreynd skapi ójafna samkeppnistöðu evrópskum fyrirtækjum í óhag sem CBAM sé ætlað að laga. Með greiðslu skattsins séu innflytjendur að kaupa “losunarheimildir” fyrir innfluttar vörur með háu kolefnisinnihaldi eða “certain goods” eins og það er orðað. Flest bendir því til þess að leiðin framundan í þessu máli fyrir ESB sé nokkuð grýtt.

Stafræn skattlagning – viðskiptaþvinganir í uppsiglingu

Bandarísk stjórnvöld hyggjast beita viðskiptaþvingunum í formi tolla
gegn sex tilteknum ríkjum sem þegar leggja stafrænan skatt (e. digital tax) á stóru tölvufyrirtækin eins og Google og Facebook. Þar af eru fjögur Evrópuríki, þ.e. Austurríki, Bretland, Ítalía og Spánn en einnig Indland og Tyrkland. Sambærilegur skattur í Frakklandi er hins vegar í bið gagnvart Bandaríkjunum. Heyrst hefur að af þessu geti orðið í byrjun júní og þær gildi í sex mánuði. Það er skoðun margra að með þessu séu Bandaríkin að skapa sér meiri tíma í þeim samningaviðræðum sem nú eiga sér stað hjá OECD um stafræn mál, þ. á m. stafræna skattlagningu. Röksemdir bandarískra sérfræðinga eru þær að stafræni skatturinn beinist fyrst og fremst að bandarískum tölvufyrirtækjum og skekki samkeppnisstöðu þeirra. Önnur ríki, m.a. aðildarríki ESB, segja að þau séu einungis að biðja um að fá sanngjarnan hlut af hagnaði stórra alþjóðafyrirtækja, sem starfi þvert á landamæri og hagi starfseminni þannig að skattlagning verði sem lægst. Það verður spennandi að sjá hvernig þessi mál þróast næstu vikurnar, en áform ESB voru þau að aðildarríkin væru búin að lögfesta slíka skattlagningu fyrir 1. júlí nk.

Fyrirtækjaskattar - vegvísir

Í vikunni kynnti framkvæmdastjórn ESB áhugaverðan vegvísi (e. roadmap/communication) um framtíðarstefnu í skattlagningu fyrirtækja (e. Business Taxation for the 21st Century). Þó skattamál falli ekki almennt undir EES samninginn er margt í þessum vegvísi sem er vert að skoða nánar í alþjóðlegu samhengi, enda ýmsir þættir samofnir þeirri vinnu sem Ísland tekur þátt í innan OECD. Þar ber hæst tillögur OECD um endurskoðun fyrirtækjaskatta í alþjóðlegu tilliti, bæði hvað varðar skattlagningarrétt einstakra ríkja en einnig hugmyndir um lágmarksskattlagningu. Bandarísk stjórnvöld hafa þannig lagt til 15% lágmarksskatt. Sú hugmynd tengist raunar umræðunni um stafrænan skattinn sem áður var fjallað um. Í niðurstöðukafla vegvísisins má finna eftirfarandi yfirlýsingu með tilvísun í þá þróun sem orðið hefur nú þegar alþjóðlega, þ. á m. á vettvangi OECD. “At EU level, we must build on this progress and take forward a similarly ambitious business taxation agenda that ensures fair and effective taxation and that supports productive investment and entrepreneurship”. Þessi boðskapur gengur eins og rauður þráður gegnum vegvísinn og ekki ósennilegt að höfði til fleiri ríkja en aðildarríkja ESB.

Aðgengi allra að menntun

Mennta- og æskulýðsmálaráðherrar ESB, undir formennsku Portúgal, héldu fund í byrjun vikunnar. Í niðurstöðum fundarins um jafnræði og jafnt aðgengi allra að menntun og þjálfun er vakin athygli á mikilvægi jafnræðis til að allir nái árangri í námi og einnig að búa til nýja hvata til samstarfs á þessu sviði bæði í Evrópu og á landsvísu. Í niðurstöðunum kemur fram að félagslegur og efnahagslegur bakgrunnur sé enn mikilvægasti þátturinn í námsárangri nemenda í Evrópu sem veldur því að verulegur hluti ungs fólks öðlast ekki nauðsynlega grunnfærni eða félagslegan hreyfileika (e. social mobility).

Í niðurstöðunum kemur fram að Covid-19 heimsfaraldurinn hafi valdið miklu álagi á menntakerfi og leitt til víðtækrar notkunar stafrænnar kennslu og náms. Mikilvægt sé að tryggja að heimsfaraldurinn skapi ekki frekara misrétti. Jafnframt er lögð áhersla á að stafræn tækni geti skapað ný tækifæri til að efla menntun og þjálfun án aðgreiningar. Heimsfaraldurinn hefur einnig sýnt fram á nauðsyn þess að huga að líðan og andlegri heilsu nemenda og kennara.

Þá segir að jafnrétti, nám án aðgreiningar og aðgengi allra að menntun sé grundvallarregla í menntun og þjálfun en engu að síður sé það áskorun að ná þessu fram í aðildarríkjum ESB. Í niðurstöðunum er því skorað á framkvæmdastjórnina og aðildarríkin að vinna saman að stefnumótun til þess að draga úr brottfalli, auka hæfni og koma í veg fyrir atvinnuleysi. Aðildarríkin eru hvött til að bjóða upp á námstækifæri fyrir alla, auðvelda aðgengi að hágæða leikskólavistun, taka á kennaraskorti þar sem það á við og auka stuðning við kennara, svo eitthvað sé nefnt. Framkvæmdastjórnin er m.a. hvött til að þróa áfram leiðbeiningar fyrir stefnumótun um þessi málefni fyrir aðildarríkin og setja á fót fleiri sérfræðingahópa til að stuðla að jafnræði í menntun.

Niðurstöðurnar má nálgast hér.

Stefnumörkun í málefnum hafsins

Framkvæmdastjórn ESB gaf í vikunni út nýja stefnu í málefnum hafsins og er hún kennd við bláa hagkerfið. Fram kemur að umhverfisvænni umgengni við hafið sé nauðsynlegur þáttur í að ná markmiðum Græna sáttmálans. Fiskveiðar, sjávareldi, ferðaþjónusta tengd hafi og strönd, flutningar á sjó, hafnir og skipasmíðaiðnaðurinn – allir þessir geirar atvinnulífsins verða að draga markvisst úr neikvæðum áhrifum á umhverfi og loftslag.

Helstu atriði í stefnunni eru þessi:

Ná þarf markmiði um kolefnishlutleysi með því að þróa endurnýjanlega orkuframleiðslu á hafi, orkuskiptum við sjóflutninga og „grænni“ hafnarstarfsemi. Gert er ráð fyrir að fjórðungur raforkuframleiðslu ESB muni tengjast hafinu árið 2050 – þar sem vindur, sjávarföll og öldur, meðal annars, verða virkjuð.

Innleiða þarf hringrásarhagkerfi með breytingum á hönnun veiðarfæra, endurnýtingu skipa og báta, niðurlagningu olíuborpalla og aðgerðum gegn plastiog örplasti í sjó.

Vernda ber fjölbreytt lífríki og fjárfesta í náttúrunni. Ef tekst að friða 30% af hafsvæði Evrópusambandsins eins og áður hefur verið boðað í stefnu um fjölbreytt lífríki þá mun það stuðla að endurheimt vistkerfa og fiskstofnar braggast.

Búa þarf strendur og strandbyggðir undir breytingar vegna hækkunar yfirborðs sjávar. Horfa þarf til annarra lausna en varnargarða.

Matvælaframleiðsla sem nýtir auðlindir hafsins þarf að vera sjálfbær. Von er á tillögum á næsta ári um kröfur til markaðssetningar á sjávarafurðum og upplýsinga til neytenda. Hert eftirlit með fiskveiðum, notkun þörunga og þangs og margháttuð nýsköpun mun stuðla að því að vernda hafsvæði og lífriki þeirra. Þá hefur framkvæmdastjórnin gefið út leiðarvísi um sjálfbært sjávareldi. Þar er bent á kosti slíkrar matvælaframleiðslu umfram landbúnað frá sjónarhóli loftslagsmála.

Ísland og Noregur skoða þátttöku í þekkingarsetri og rannsóknarneti ESB um netöryggismál

Framkvæmdastjórn ESB birti í september 2018 tillögu að reglugerð um að stofna þekkingarsetur um netöryggismál sem tengdist netöryggisstofnunum í aðildarríkjunum. Reglugerðin tengdist utanríkis- og öryggismálum ESB og var ekki merkt sem EES tæk. Ráðherraráðið og Evrópuþingið hafa fjallað um tillöguna og birti ráðherraráðið í desember afstöðu til niðurstöðu samninga stofnana ESB og tillögu um veigamiklar breytingar á tillögunni sem hafa áhrif á hagsmuni Íslands og Noregs gagnvart henni. Framkvæmdastjórnin hefur samþykkt breytingarnar og er vænst að þingið afgreiði þær formlega í vikunni.

Í stuttu máli mun setrið verða staðsett í Búkarest og fjármagnað af sjóðum Digital Europe sem er eyrnamerktur netöryggismálum og af Horizon áætluninni. Ísland og Noregur eru þátttakendur í báðum þessum áætlunum. Reglugerðin gerir ráð fyrir að setrið fjalli um ráðstöfun fjármuna Horizon og Digital Europe til netöryggisverkefna.

Setrið verður stofnað sem lögaðili með takmarkaðan líftíma, þ.e. yfir núverandi sjö ára fjárhagstímabil. Gert er ráð fyrir að hvert og eitt aðildarríki ESB eigi fulltrúa í stjórn setursins. Þá er gert ráð fyrir að a.m.k. ein stofnun í hverju ríki verði í tengslaneti stofnunarinnar að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Að auki reki stofnunin tengslanet við sérfræðinga og fyrirtæki á sviði netöryggismála. Henni er ætlað að auka þekkingu á netöryggi og styrkja það með því að miðla þekkingu, reynslu og lausnum á því sviði.

Reglugerðin er ekki hluti af EES skuldbindingum EES-EFTA ríkjanna. Ísland og Noregur vinna að hagsmunamati á reglugerðinni og skoða hvort farið verður þess á leit að taka hana inn í EES samninginn á grundvelli ákvæða samningsins um samstarfsáætlanir.

Heimildir til refsiaðgerða vegna netárása framlengdar

Í vikunni ákvað ráðherraráð ESB að framlengja um eitt ár heimildir sambandsins til að beita refsiaðgerðum gagnvart einstaklingum eða samtökum sem taka þátt í netárásum og fela í sér utanaðkomandi ógn fyrir sambandið eða aðildarríki þess.

Nú sæta átta einstaklingar og fjögur samtök refsiaðgerðum fyrir margvíslegar netárásir og felast þær aðallega í ferðabanni og kyrrsetningu eigna. Viðkomandi er gefið að sök meðal annars að hafa gert árás á OPCW, eftirlitsstofnun um bann á efnavopnum, og á upplýsingakerfi þýska þingsins.

Samkvæmt reglunum er einnig heimilt er að refsa einstökum ríkjum utan bandalagsins eða alþjóðlegum stofnunum sé það metið nauðsynlegt til þess að ná markmiðum utanríkis- og öryggisstefnu bandalagsins.

Viðskiptastefna ESB í deiglunni

Fimmtudaginn 20. maí var haldinn fundur utanríkisviðskiptaráðherra ESB. Ýmislegt var þar til umræðu, s.s. bætt samskipti yfir Atlantshafið, endurbætur á Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO), auk endurskoðunar viðskiptastefnu Evrópusambandsins.

Merkja má nýja vinda í samskiptunum yfir Atlantshafið með nýjum stjórnvöldum í Bandaríkjunum. Ráðherrarnir voru upplýstir um stöðu viðskipta milli Evrópusambandsins og Bandaríkjanna, og skiptust óformlega á skoðunum við viðskiptafulltrúa Bandaríkjanna, Katherine Tai. Þyngst þar vó samtalið um tolla á stál, ál og farþegaflugvélar (Airbus/Boeing). Aukinnar þíðu gætir á þessu sviði og í sameiginlegri yfirlýsingu frá 17. maí sl. lýstu aðilarnir sig reiðubúna að hætta stigmögnun gagnkvæmra tolla og hefja þess í stað uppbyggilegt samtal á þessu sviði.

Á ráðherrafundinum tókst aðildarríkjum ESB ekki að ná saman um niðurstöður um nýja viðskiptastefnu ESB (e. trade policy review), sem lögð var fram af framkvæmdastjórn ESB í febrúar sl.

Drög að nýrri viðskiptastefnu ESB hafa þrjú meginmarkmið:

að styðja við enduruppbyggingu og nauðsynlega umbreytingu efnahags sambandsins með græn og stafræn markmið að leiðarljósi

að hafa áhrif á þróun alþjóðareglna í átt til sjálfbærrar og sanngjarnar alþjóðavæðingar

að auka getu ESB til að framfylgja hagsmunum sínum og réttindum, þ. á m. þegar sambandið þarf að standa á eigin fótum.

Til að ná þessum markmiðum hefur framkvæmdastjórnin sett fram sex forgangsmál:

Endurbætur á Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO); ESB sér mikilvægan samstarfsgrundvöll við nýja Bandaríkjastjórn í þessum efnum.

Styðja við græna umbreytingu og efla ábyrgar og sjálfbærar virðiskeðjur; sambandið íhugar m.a. að setja skorður gegn vörum sem unnar eru í nauðungarvinnu.

Styðja við stafræna umbreytingu og þjónustuviðskipti; ESB kallar m.a. eftir alþjóðlegum reglum og viðmiðum á stafræna sviðinu, m.a. á vettvangi WTO.

Styrkja áhrif ESB á þróun alþjóðlegs regluverks; sambandið hyggst auka samráð við líktþenkjandi samstarfsríki á lykilsviðum, m.a. við Bandaríkin um græn og stafræn málefni á vettvangi tvíhliða viðskipta- og tækniráðs.

Styrkja samstarf ESB við nágrannaríki og Afríku; hér er m.a. tekið fram að ESB muni styrkja hið nána efnahagslega samstarf innan Evrópska efnahagssvæðisins.

Styrkja áherslu ESB á framkvæmd og eftirlit með viðskiptasamningum, og tryggja jöfn samkeppnisskilyrði; hér er m.a. í skoðun að setja upp stefnu um útflutningslán, til að tryggja betri samkeppnisskilyrði við fyrirtæki sem njóta ríkisstyrkja utan sambandsins. Þannig mætti einnig hvetja til grænna fjárfestingaverkefna.

Skoðanaskipti aðildarríkjanna undanfarnar vikur hafa m.a. lotið að því hversu mikil áhrif önnur svið, s.s. áherslur í loftslagsmálum og mannréttindum, eigi að hafa á þróun viðskiptastefnunnar og einstaka viðskiptasamninga sambandsins. Segja má að það verði sífellt erfiðara fyrir sambandið að gera viðskiptasamninga við einstök ríki vegna þess hversu mikið önnur mál blandast í umræðuna.

Þá hefur verið tekist á um hugtakið „open strategic autonomy“. Hugmyndin í hnotskurn er að áskorunum dagsins sé best mætt með meiri alþjóðasamvinnu en ekki minni. Þannig hyggst ESB í senn vera sjálfu sér nægt, en einnig styðja við opin alþjóðleg viðskipti. Í umræðunni má skilja á milli þeirra sem telja verndarhyggju að einhverju marki nauðsynlega og hinna sem vilja aukið viðskiptafrelsi. Norðurlöndin hafa skipað sér í hóp hinna síðarnefndu eða það sem kallað er „Nordic free-trade advocates“. Gera má ráð fyrir áframhaldandi umræðu um þetta á næstunni, enda að einhverju leyti tekist á um grundvallargildi sambandsins.

Nánari upplýsingar um niðurstöður ráðherrafundarins má finna hér: https://www.consilium.europa.eu/en/meetings/fac/2021/05/20/.

08. maí 2021 | Árangursrík hagsmunagæsla |
Ísland aftur undanskilið útflutningseftirliti með bóluefnum

Á fimmtudag birti ESB nýja reglugerð 2021/734 um útflutningseftirlit með bóluefnum við Covid-19 þar sem Ísland var skýrlega undanskilið eftirlitinu ásamt öðrum EES/EFTA-ríkjum. Í rökstuðningi fyrir þessari breytingu er í reglugerðinni vísað á skýran hátt til þátttöku EES/EFTA-ríkjanna í innri markaðnum á grundvelli EES-samningsins. Felst í því mikilvæg viðurkenning á málflutningi stjórnvalda sem bentu strax á að eftirlitið væri skýrt brot á samningnum og þátttöku okkar í innri markaðnum, enda væri á þeim grundvelli óheimilt að mismuna Íslandi með þessum hætti. Með þessu móti hefur ekki aðeins málflutningur stjórnvalda skilað þeim árangri sem að var stefnt heldur er einnig skjalfest af hálfu framkvæmdastjórnarinnar að það var EES-samningurinn sem réði um það úrslitum og þar með skuldbindingar á grundvelli hans.

Útflutningseftirliti með bóluefnunum var komið á í lok janúar eftir að væntingar um framleiðslu og dreifingu bóluefnis í Evrópu stóðust ekki. Ísland var ásamt öðrum EES/EFTA-ríkjum undanskilið gildissviði reglugerðarinnar í upphafi en þegar það var framlengt í lok mars varð breyting þar á. Utanríkisþjónustan hleypti þá strax af stokkunum herferð bæði gagnvart framkvæmdastjórn, utanríkisþjónustu og aðildarríkjum ESB. Fór hún fram jafnt í Brussel, Reykjavík og höfuðborgum aðildarríkjanna og náði hámarki með fundi utanríkisráðherra og Valdis Dombrovskis viðskiptastjóra ESB 30. apríl sl. Fundinum lauk með því að Dombrovskis sagðist hafa meðtekið sjónarmið utanríkisráðherra og myndi gera forseta framkvæmdastjórnarinnar grein fyrir þeim. Daginn eftir greindi Ursula von der Leyen forsætisráðherra frá því í símtali að Ísland yrði hér eftir skýrt undanþegið eftirlitinu.

Sögulegir leiðtogafundir í Porto

Hápunktur formennsku Portúgals hjá Evrópusambandinu er ráðstefna háttsettra leiðtoga Evrópuríkja og fulltrúa stofnana, aðila vinnumarkaðarins og borgaralegra félagasamtaka sem fram fór í gær og í kjölfarið óformlegur leiðtogafundur sem haldinn var í dag, 8. maí, undir heitinu Social Summit.

Á leiðtogafundinum var afgreidd ályktun um félagslegar hliðar Evrópusamvinnunnar, svokölluð Porto-yfirlýsing. Markmið ráðstefnunnar var að ræða bestu leiðir til að efla félagslegar aðgerðir til að mæta áföllum í kjölfar Covid-19 plágunnar og þeim áskorunum sem Evrópa stendur frammi fyrir vegna umhverfis- og loftslagsmála ásamt breytingum sem stafræn tækniþróun hefur í för með sér.

Félagslega réttindastoðin – European Pillar of Social rights - er hornsteinn þeirrar stefnumótunar sem nú fer fram á vegum Evrópusambandsins og afl þeirra hluta sem gera skal. Félagslega stoðin var upphaflega sett fram árið 2015 og samþykkt á fundi í Gautaborg í nóvember 2017.

Öflugar umræður fóru fram á fundinum sjálfum og í þremur vinnustofum þar sem fjallað var um atvinnu og störf, færni og nýsköpun, velferð og félagslega vernd. Mikil samstaða var á fundinum um mikilvægi félagslegra aðgerða til að tryggja almenn félagsleg réttindi og velferð allra.

Fram kom að öflugur vinnumarkaður er undirstaða þeirra þátta sem skipta mestu máli fyrir velferð þegnanna. Heimsfaraldurinn hefur haft áhrif á stöðu unga fólksins og margra viðkvæmra hópa á vinnumarkaði. Fram kom að huga þyrfti sérstaklega að fátækt, öryggi barna, kjörum unga fólksins og stöðu kvenna á vinnumarkaði. Aðgerðum hefur verið beitt til að styðja við einstaklinga og fyrirtæki sem eru í vandræðum. Á fundinum kom fram að nú væri mikilvægt að efla atvinnusköpun og renna stoðum undir möguleika fólks til að mæta breyttum forsendum á vinnumarkaði í tengslum við hraðar tæknilegar og lýðfræðilegar breytingar. Í brennidepli eru aðgerðir til að efla hæfni og þekkingu – lykilorðin eru menntun, endurmenntun og símenntun. Sérstaklega var undirstrikuð nauðsyn þess að aðilar vinnumarkaðarins kæmu að borðinu við útfærslu og framkvæmd nauðsynlegra aðgerða.

Á fundinum kom einnig fram mikil eindrægni um mikilvægi samstarfs Evrópuríkjanna til að mæta erfiðleikum í kjölfar Covid-19 og þeim stóru áskorunum sem framundan eru.

Í lokin undirrituðu fulltrúar sameiginlega niðurstöðu um að virkja aðgerðaráætlun félagslegu stoðarinnar og þrjú markmið sem stefnt er að fyrir 2030 sem samþykkt voru 6. mars síðastliðinn. Markmiðin eru:

Að a.m.k. 78% íbúa á aldrinum 20-64 ára hafi atvinnu

Að a.mk. 60% fullorðinna hljóti starfsþjálfun eða endurmenntun á hverju ári

Að þeim sem eru í áhættuhópi vegna fátæktar eða félagslegrar útskúfunar fækki um a.m.k. 15 milljónir manna, þar af a.m.k. 5 milljónir barna.

Sterkur innri markaður styðji viðreisn efnahagslífs í Evrópu

Endurskoðuð iðnaðaráætlun Evrópusambandsins (New Industrial Strategy for Europe) var lögð fram 5. maí s.l.

Tekið skal fram að uppfærða áætlunin tekur fyrst og fremst á áskorunum vegna Covid-19 en er í grunninn óbreytt. Stefnunni er því sem fyrr ætlað að leiða græna þróun á sviði framleiðslugreina og byggir á Græna sáttmálanum (The European Green Deal) og einnig þeirri stafrænu umbreytingu, sem tengist Stafrænni starfskrá (Digital Future of Europe).

Uppi var orðrómur um ágreining innan framkvæmdastjórnarinnar um framsetninguna en skýringin á lítilsháttar töfum á birtingunni er líklega sú ítarlega gagnaöflun og greining sem fram fór og er birt samhliða áætluninni sjálfri.

Upphaflega stefnan var lögð var fram 10. mars á síðasta ári, eða daginn áður en Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin lýsti yfir heimsfaraldri vegna Covid-19.

Allt breyttist sem sagt í einu vetfangi og við blöstu hindranir á frjálsri för fólks, varnings og þjónustu auk truflana í framleiðsluferlum og framboði. Þá eru hér nokkrar tölur sem sýna við hvað er að fást:

6,3% samdráttur í efnahagslífi ESB

60% samdráttur í veltu lítilla og meðalstórra fyrirtækja 2020

1,7% fækkun starfsmanna lítilla og meðalstórra fyrirtækja 2020, eða 1,4 milljónir starfa

45% fyrirtækja munu draga úr fjárfestingum 2021

Það kom því ekki á óvart þegar ráðherraráð ESB kallaði eftir því í október s.l. að stefnan yrði uppfærð í ljósi faraldursins og leitast við að hafa hana skýrari en áður. Jafnframt þyrfti að aðlaga lagaramma ESB á sviði samkeppnismála að breyttum veruleika á alþjóðavísu.

Stefnan hvílir á þremur meginstoðum:

Þrautseigum innri markaði.

Kerfisbundnu óhæði Evrópu.

Stuðningskerfi vegna grænnar og stafrænnar byltingar.

Merking hugtaksins „kerfisbundið óhæði“ eða strategic autonomy hefur verið nokkuð á reiki en í þessari stefnu er hún skýr: Evrópa er ekki sjálfri sér næg með mikilvægar vörur og hráefni t.d. til lyfjaframleiðslu og íhluti í tölvur auk ýmissa sjaldgæfra steintegunda, t.d. demanta. Þessi staðreynd kom sér afar illa á meðan faraldurinn stóð sem hæst.

Búið er að skilgreina 137 mikilvægar vörutegundir sem Evrópulönd þurfa að flytja inn frá öðrum svæðum og er helmingur þeirra frá Kína (52%) en þar næst frá Víetnam (11%) og Brasilíu (5%). Sumt má leysa með nýjum fjárfestingum til að tryggja fjölbreyttari framleiðslu en annað, sbr. fágæt náttúruleg hráefni, kallar á aukna endurvinnslu og nýsköpun.

Hvað nýsköpunina varðar er stefnt að því að létta byrðar regluverks og tryggja sanngjarna samkeppnisstöðu nýsköpunarfyrirtækja og frumkvöðlavænt umhverfi. Þarna vega samkeppnis- og ríkisstyrkjareglur þungt.

Samkvæmt áætluninni er hvorki stefnt að því að vernda iðnað sem ekki er samkeppnishæfur né styðja verndarstefnu, heldur skapa réttar aðstæður fyrir frumkvöðla til að koma hugmyndum í framkvæmd og fyrir fyrirtæki af öllum stærðum til að vaxa og dafna.

Þá er hnykkt á því að evrópskur iðnaður megi ekki sofna á verðinum gagnvart ríkjum eða starfsemi utan ESB sem grefur undan sanngjarnri samkeppni á innri markaðinum eða alþjóðlega. Því er ljóst að samkeppnisreglur þurfa með einhverjum hætti að rúma hvort tveggja ríkisaðstoð og samruna stórra fyrirtækja.

Gildistími þessarar iðnaðaráætlunar er út starfstíma framkvæmdastjórnar ESB eða til ársloka 2024.

Hjá fastanefnd Íslands í Brussel fjallar sérstök teymi um græna og stafræna þróun en einnig er unnið að greiningu ýmissa þátta iðnaðaráætlunarinnar hjá EFTA og í viðkomandi ráðuneytum heima í Reykjavík.

Lagt til atlögu við erlenda ríkisstyrki

Í vikunni lagði framkvæmdastjórn ESB fram tillögu um hvernig best væri að hafa eftirlit með “samkeppnishamlandi styrkjum erlendis frá” (e. distortive foreign subsidies). Þá er átt við styrki sem ríki utan ESB veita fyrirtækjum sínum sem síðan undirbjóða fyrirtæki á innri markaði. Með þessu er ESB að vernda fyrirtæki sem eiga uppruna í aðildarríkjum sambandsins (e. home-grown companies) gegn ofurefli erlendra fyrirtækja, ekki síst þeirra sem eru upprunnin í Kína. Þessi tillaga er óaðskiljanlegur þáttur af iðnaðaráætlun ESB sem sagt var frá hér fyrir ofan. Þessi barátta ESB hefur staðið í áratugi og hefur verið mikill þyrnir í augum þeirra sem berjast fyrir sanngjarnari samkeppni erlendis frá. Sú skoðun endurspeglast m.a. í eftirfarandi ummælum Valdis Dobrovskis, varaforseta framkvæmdastjórnar ESB. “They distort markets and provide competitive advantages on the basis of the support received, rather than on the quality and innovativeness of the products concerned.”

Verði fyrrgreind tillaga lögfest mun hún veita bandalaginu vald til að rannsaka stóra samruna hjá fyrirtækjum innan ESB við fyrirtæki utan þess og sömuleiðis opinber útboð þegar í hlut eiga fyrirtæki sem hafa fengið erlenda ríkisstyrki. Þung viðurlagaákvæði er að finna í tillögunni, eins og þau að sekt geti numið allt að 10% af veltu fyrirtækisins sem brýtur reglurnar. ESB eru líka veitt ýmis þvingunarúrræði í tillögunni, s.s. kröfu um endurgreiðslu ríkisstyrkja og tilkynningarskyldu til ESB fari styrkfjárhæð yfir tiltekin fjárhæðarmörk. Sem dæmi má fjárhæðin ekki fara yfir 5 milljónir evra á 3ja ára tímabili, en sé fjárhæðin undir telst styrkurinn ekki samkeppnishamlandi. Bent hefur verið á að þetta hámark sé langt yfir því viðmiði sem framkvæmdastjórnin setti fyrst fram í áætlun sinni (e. White Paper) fyrir ári síðan sem var 200 þúsund evrur. Gagnrýnendur tillögunnar hafa m.a. bent á að hækkunin sé merki um að ESB sé að hopa vegna hótana Kína en aðrir segja að þarna sé bandalagið að reyna að koma í veg fyrir nýtt “kalt stríð”.

Efasemdir um nýjan staðal fyrir ferðaþjónustu

Ráðgjafanefnd ESB um ferðamál, TAC – Tourism Advisory Committee,
hélt fjarfund fimmtudaginn 6. maí 2021. Um var að ræða framhald af fundi nefndarinnar 20. apríl s.l. þar sem fjallað var um tilllögu framkvæmdastjórnar ESB að samevrópskum staðli, sem ætlað væri að létta undir með ferðaþjónustu í Evrópu, gera reglur um hreinlæti og sóttvarnir sambærilegar á milli landa, og sýnilegar. Þar með yrði Evrópa sem heild traustvekjandi áfangastaður, ekki síst fyrir þá sem koma frá öðrum heimsálfum.

Á milli fundanna gafst ferðamálayfirvöldum aðildarríkjanna færi á að mynda sér skoðun á ávinningi þessa staðals umfram þá staðla/viðmið sem ríkin hafa tekið upp eftir að heimsfaraldurinn skall á.

Þá var nafni staðalsins breytt á milli funda, úr European Tourism Health Seal í
European Tourism Covid-19 Health Seal.

Fundurinn hófst á því að fulltrúi frá spænska staðlaráðinu fór yfir staðalinn, handbókina og fyrirhugaða innleiðingu hans á Spáni. Gert er ráð fyrir að staðallinn (CWA 5643) verði tilbúinn þar í lok maí, innleiddur maí til júní og síðan sýnilegur á öllum ferðamannastöðum.

Ríkin skiptust í tvö horn og lýstu t.d. Austurríki, Danmörk, Finnland, Holland, Pólland, Ungverjaland og Þýskaland yfir að þau myndu halda sig við þann innanlandsstaðal sem þegar er í gildi. Áhugi hjá atvinnugreininni sjálfri væri einnig takmarkaður.

Austurríki og Pólland voru þó á því að eðlilegt væri fyrir þá sem halda utan um staðalinn heima fyrir að fara yfir kröfurnar í nýja staðlinum og uppfæra og aðlaga eftir þörfum.

Búlgaría, Grikkland, Írland, Portúgal og Slóvenía eru einnig með eigin staðal en vilja gjarnan skoða nýja staðalinn í því skyni að taka upp samhliða og/eða uppfæra gildandi staðal. Þó þurfi að skýra nánar kostnað og utanumhald.

Fulltrúi Íslands þakkaði framkvæmdastjórninni fyrir frumkvæðið en kom jafnframt á framfæri því sjónarmiði íslenskra ferðamálayfirvalda að upptaka á nýjum staðli væri ekki heppileg þegar atvinnugreinin sér loks til sólar. Gæti einnig orðið dýr og tímafrek. Ísland myndi því áfram nota staðalinn Clean&Safe sem Landlæknir og Ferðamálastofa hafa verið með í stöðugri þróun og halda utan um.

30. apríl 2021 | Mikilvægir áfangar í loftslagsmálum |
Samkomulag í augsýn um ný loftslagslög

Eftir 14 klukkustunda samningalotu miðvikudaginn 21. apríl sl. náðist loks niðurstaða í þríhliða viðræður Evrópuþingsins, ráðherraráðsins og framkvæmdastjórnarinnar um nýju evrópsku loftslagslögin (e. New European Climate Law).

Aðal þrætuefni viðræðnanna var markmið ESB um að lágmarki 55% samdrátt í losun gróðurhúsaloftegunda fyrir árið 2030 en Evrópuþingið hafði sl. haust samþykkt 60% samdrátt fyrir árið 2030. Málamiðlun náðist í samningaviðræðunum með því að ESB ríkin samþykktu að þak yrði sett á framlag til bindingar kolefnis (e. carbon removal) úr andrúmslofti vegna landnotkunar, landbúnaðar og skógræktar. Framkvæmdastjórnin samþykkti að taka til skoðunar að fjölga kolefnisviðtökum (e. carbon sinks) sem myndi auka samdrátt í losun í 57%, þó ákvæði þess efnis sé ekki að finna í lagafrumvarpinu. Framkvæmdastjórnin samþykkti að setja á fót óháða ráðgefandi vísindastofnun, The European Scientific Advisory Board. Stofnunin mun hafa það hlutverk að vera ráðgefandi við aðlögun stefna ESB að markmiði um kolefnishlutleysi. Einnig var samþykkt að taka upp markmið um samdrátt í losun fyrir árið 2040 en markmiðið mun byggja á hversu mikið ESB ríkjunum verður heimilt að losa af gróðurhúsalofttegundum til ársins 2050 án þess að brjóta gegn Parísarsáttmálanum. Mun 2040 markmiðið verða sett fram í síðasta lagi innan sex mánaða fyrir stöðutöku hjá öllum aðildarríkjum Parísarsáttmálans sem fram á að fara árið 2023 í samræmi við sáttmálann. Einnig var samþykkt í samningaviðræðunum að eftir árið 2050 yrði stefnt á neikvæða losun gróðurhúsalofttegunda.

Málið er þó ekki í höfn þar sem formlega á eftir að samþykkja lögin á Evrópuþinginu og í ráðinu en ekki er búist við öðru en að um formsatriði sé að ræða. Með samþykkt laganna mun markmið um að lágmarki 55% samdrátt í losun fyrir árið 2030 og kolefnishlutleysi árið 2050 verða lagalega bindandi fyrir ESB. Hvað varðar markmið um kolefnishlutleysi þá nær markmiðið til ESB í heild sinni, þ.e. ekki er um að ræða að hvert ríki innan ESB verði kolefnishlutlaust fyrir árið 2050.

Vegasamgöngur og byggingar falli undir ETS

Á tveggja daga alþjóðlegri ráðstefnu um loftslagsmál sem sett var fimmtudaginn 22. apríl sl., á degi jarðar, tilkynnti Ursula von der Leyen um fyrirhugaðar breytingar á viðskiptakerfi með losunarheimildir (e. Emissions Trading Scheme, ETS). Kerfið gegnir lykilhlutverki í aðgerðum ESB gegn loftslagsbreytingum. Með viðskipakerfinu eru takmörk sett á heildarlosun gróðurhúsalofttegunda frá rekstraraðilum og flugrekendum sem falla undir kerfið. Von der Leyen boðaði að kerfið yrði útvíkkað þannig að það næði einnig til vegasamgangna og bygginga (e. road transport and buildings) og yrði það hluti af stefnupakka ESB sem nefndur hefur verið „í form fyrir 55“ (e. Fit for 55) sem er væntanlegur í júní nk. Ekki ríkir samstaða innan framkvæmdastjórnar ESB um að setja vegasamgöngur undir ETS kerfið þar sem talið er að það geti leitt til hærra eldsneytisverðs sem muni bitna á fátækari íbúum Evrópu. Ekki liggur heldur fyrir hvort vegasamgöngur og byggingar verði hluti af núverandi ETS kerfi eða hvort um verði að ræða sér kerfi. Talið er líklegra að síðari kosturinn verði valinn. Einnig hefur verið rætt um að útvíkka kerfið enn frekar þannig að það nái til flutningastarfsemi en fréttir af því eru frekar óljósar eins og er.

Guðmundur Ingi tók þátt í óformlegum umhverfisráðherrafundi

Óformlegur fundur umhverfisráðherra ríkja ESB og EFTA ríkjanna var haldinn 23. apríl í boði Portúgals sem er í formennsku í Ráðherraráði ESB. Fundurinn var haldinn með fjarfundasniði.

Meginefni fundarins var aðlögun að loftslagsbreytingum með áherslu á áskoranir tengdar áhrifum loftslagsbreytinga á vatn, hækkun sjávarborðs, þurrka og vatnsbúskap og hvernig við því skuli brugðist. ESB hefur nýlega gefið út aðgerðaráætlun er varðar aðlögun að loftslagsbreytingum (e. The new EU Climate Adaptation Strategy). Á fundinum var rætt um aðgerðaráætlunina í alþjóðlegu samhengi, áskoranir við aðlögun að loftslagsbreytingum er varða aukna hættu á þurrkum og samþættingu aðgerða í loftslags- og umhverfismálum við stefnur ESB og fjármögnunarverkfæri. Á fundinum kynnti Patricia Espinosa, framkvæmdastjóri Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (UNFCCC), vegvísi sem miðar að því að gera COP-26 loftslagsráðstefnuna, sem haldin verður í Glasgow í nóvember nk., að merkum áfanga í baráttunni við loftslagsbreytingar.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra sótti fundinn og gerði vinnu íslenskra stjórnvalda við aðlögunarstefnu vegna loftslagsbreytinga að umtalsefni.

Guðmundur Ingi sagði íslensk stjórnvöld nú vinna að gerð sinnar fyrstu aðlögunaráætlunar, sem móta muni grunn stefnumótunar- og aðlögunarvinnu framtíðar. Sagði ráðherra íslensk stjórnvöld fylgast vel með aðlögunarvinnu og áætlunum ríkja ESB og að sú stefna ESB að leggja áherslu á aðlögunaraðgerðir sem miða að því að efla vistkerfi og viðnámsþrótt þeirra sé í takt við stefnu íslenskra stjórnvalda.

Guðmundur Ingi sagði Íslendinga einnig mæta áskorunum af völdum loftslagsbreytinga sem tengjast vatni og vatnsstjórnun. Ólíkt ríkjum Suður-Evrópu væri vandinn hins vegar frekar aukin úrkoma og meiri rigningar þó svo að vissulega hafi langir þurrkakaflar líka orðið áhyggjuefni á sumum svæðum á síðustu árum.

Guðmundur Ingi sagði bráðnun jökla annað dæmi um miklar áskoranir vegna loftslagsbreytinga og hlýnun og súrnun sjávar. „Röskun vistkerfa sjávar er risastórt viðfangsefni fyrir Ísland enda hefur hún samfélags- og efnahagslegar afleiðingar fyrir okkur, jafnt fyrir þær byggðir landsins sem byggja afkomu sína á fiskveiðum sem og fyrir efnahag þjóðarinnar í heild.“

Á fundinum lýstu ráðherrarnir yfir mikilvægi þess að afla betri þekkingar á áhrifum loftslagsbreytinga og viðurkennt var að vatn væri veigamikill þáttur í þeirri aðlögun sérstaklega hvað varði áhrif þurrka og breytinga í úrkomumynstri.

https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2021/04/23/Radherrafundur-um-adlogun-ad-loftslagsbreytingum/

https://www.2021portugal.eu/en/news/issues-of-climate-change-adaptation-must-head-the-european-political-agenda/

Bókmenntaverðlaun Evrópusambandsins (EUPL) 2021

Tilnefningar til Bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins voru kynntar fyrr í aprílmánuði. Verðlaunin eru veitt árlega og þeim ætlað að kynna upprennandi rithöfunda víðs vegar um Evrópu. Á hverju ári er völdum löndum boðin þátttaka í verðlaununum, nú í ár eru þau 14 talsins, og hlýtur einn höfundur frá hverju landi um sig verðlaunin.

Ísland er eitt þeirra fjórtán landa sem tekur þátt í ár og eru tilnefndu verkin eftirfarandi:

Hansdætur eftir Bennýju Sif Ísleifsdóttur.
Svínshöfuð eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur.
Dauði skógar eftir Jónas Reyni Gunnarsson.
Delluferðin eftir Sigrúnu Pálsdóttur.
Strendingar eftir Yrsu Þöll Gylfadóttur.

Vinningshafar verða tilkynntir þann 18. maí næstkomandi.

Markmið Bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins er að varpa ljósi á menningarleg verðmæti evrópskra samtímaskáldverka, auka dreifingu þeirra innan álfunnar og hvetja til menningarsamræðna milli þjóða. Nánar má lesa um verðlaunin hér: https://www.euprizeliterature.eu/

Grænar fjárfestingar

Framkvæmdastjórn ESB birti 21. apríl sl. áfanganiðurstöður vinnu við að skilgreina hvaða fjárfestingarkostir teljist umhverfisvænir (e. taxonomy). Þetta er talið vera mikilvægur þáttur til að beina fjárfestingum að sjálfbærum verkefnum og stuðla að því að loftslagsmarkmiðum verði náð. Hart hefur verið barist á bak við tjöldin um aðferðir og nálgun í þessu efni enda gríðarlegir hagsmunir í húfi. Flokkun á til dæmis vatnsorku og jarðhita hefur tekið breytingum í kjölfar samráðs sem framkvæmdastjórnin efndi til og nefnt hefur verið áður í Brussel-vaktinni. Að einhverju marki hefur þar verið tekið tillit til sjónarmiða úr þeim geira endurnýjanlegra orkugjafa. Nánara mat, frá sjónarhóli íslenskra orkufyrirtækja, á þó ugglaust eftir að fara fram á næstu vikum.

Sjá nánar: https://www.ec.europa.eu/commission/presscorner/detail/en/ip_21_1804

Tillögur um reglur um gervigreind

Framkvæmdastjórn ESB lagði 21. apríl sl. til nýjar reglur sem hafa það markmið að auka traust á gervigreindartækni. Er tæknin þar flokkuð eftir áhættu. Sumri tækni þarf til dæmis að mati framkvæmdastjórnarinnar að leggja blátt bann við, eins og þeirri sem gerir stjórnvöldum kleift að gefa borgurunum félagsleg stig eða hefur áhrif á háttsemi þeirra í andstöðu við frjálsan vilja. Önnur tækni er talin fela í sér mikla áhættu sem kalli á stífar reglur og eftirlit áður en hún verði leyfð. Það á við um notkun gervigreindar í lykilinnviðum eins og samgöngukerfi, mannauðsstjórnun, löggæslu, útlendingamálum og dómskerfinu svo dæmi séu tekin. Flest tækni á þessu sviði er hins vegar talin tiltölulega meinlaus og kalli þá ekki á sérstaka reglusetningu. Það á við um tölvuleiki til dæmis og netpóstsíur.

Sjá nánar https://ec.europa.eu/commission/presscorner/detail/en/ip_21_1682

EFTA-álit um gjaldtöku í vegakerfinu

Tilskipun ESB um gjaldtöku af þungaflutningum á vegum (e. Eurovignette) hefur verið til endurskoðunar undanfarin ár. Vinnunefnd EFTA um samgöngur sendi frá sér tillögu að EFTA áliti til EFTA undirnefndar II í dag föstudaginn 30. apríl. Í álitinu styðja EES-EFTA ríkin meginatriði breytingartillögu sem ætlað er að ýta undir loftlagsvænar vegsamgöngur og setja ramma um gjöld fyrir notkun á vegakerfinu. Í álitinu hvetja EFTA ríkin til að góður sveigjanleiki verði í endanlegum útfærslum gerðarinnar án þess að fórna markmiðum um að draga úr losun né leiða til mismununar, þ.e. í formi verkfærakistu þar sem aðildarríkin geti fundið lausnir sem henta hverju og einu ríki fyrir sig. Sömuleiðis að endanleg útfærsla gerðarinnar taki mið af ólíkum gjaldtökuaðferðum ríkjanna við að fjármagna vegaframkvæmdir. Loks er í álitinu hvatt til þess að skýr greinarmunur sé gerður á almennum notendagjöldum á vegum og sértækri tímabundinni gjaldtöku s.s. vegna samvinnuverkefna sem ætlað er að fjármagna afmarkaðar framkvæmdir á meðan verið er að greiða fyrir fjárfestinguna.

20. apríl 2021 | Samræmd Covid-19 vottorð í augsýn |
Ráðherraráðið tilbúið í viðræður við Evrópuþingið

Sendiherrar ESB-ríkjanna samþykktu 14. apríl sl. umboð til viðræðna við Evrópuþingið um tillögu að samræmdum Covid-19 vottorðum (Stafrænt grænt vottorð eins það er kallað). Gert er ráð fyrir að vottorðin verði komin í gagnið í lok júní. EFTA-ríkin taka þátt í tæknilegum undirbúningi og gert er ráð fyrir að reglur taki gildi á sama tíma alls staðar á Evrópska efnahagssvæðinu og í Sviss. Ríkisstjórnin samþykkti fyrir sitt leyti að fyrirliggjandi drög að reglugerð fái flýtimeðferð innan EFTA-stoðarinnar.

Helstu breytingar sem orðið hafa á tillögunni eftir að framkvæmdastjórnin lagði hana fram eru þessar:

Tekið er sérstaklega fram að Stafræna græna vottorðið sé ekki forsenda þess að hægt verði að nýta sér ferðafrelsi. Þetta birtist m.a. í því að með nýja kerfinu verða ekki einungis gefin út bólusetningarvottorð heldur einnig vottorð um bata af fyrri sýkingu eða um niðurstöður sýnatöku.

Sérstakt ákvæði fjallar um alþjóðlegt samstarf. Er þar tekið á útgáfu vottorða til þeirra sem eru ríkisborgarar EES-ríkja, þar búsettir eða löglega staddir en hafa fengið til dæmis bólusetningu í 3. ríkjum.

Ákvæði um vernd persónuupplýsinga hafa verði styrkt á grundvelli sameiginlegs álits evrópskra persónuverndaryfirvalda.

Gert er ráð fyrir aðlögunartíma í sex vikur eftir gildistöku reglnanna. Er þar tekið tillit til ríkja eins og Þýskalands og Svíþjóðar sem lögðu á það áherslu að það yrði gríðarlegt átak að tengja dreifstýrt heilbrigðiskerfi við nýja vottorðakerfið.

Gert er ráð fyrir að Evrópuþingið samþykki sitt samningsumboð á fundi 26.-29. apríl. Í kjölfarið geta þríhliða viðræður ráðherraráðsins, þar sem Portúgal er í forystu þessa stundina, við Evrópuþingið og framkvæmdastjórnina hafist.

Stefna gegn skipulagðri glæpastarfsemi og mansali

Framkvæmdastjórn ESB kynnti 14. apríl sl. nýja stefnu í viðureign við skipulagða glæpastarfsemi. Fram kemur í fréttatilkynningu að þeir sem stundi skipulagða glæpi sé fljótir að laga sig að nýjum aðstæðum. Í heimsfaraldrinum megi sjá að glæpastarfsemi hafi aukist á netinu og vörusvik tengd lækningavörum og bóluefnum hafi farið vaxandi. Tekjur af skipulagðri glæpastarfsemi í álfunni eru taldar nema um 140 milljörðum evra á ári. Áberandi hluti skipulagðrar glæpastarfsemi er fíkniefnasmygl og sala, fjársvik og mansal. Með nýju stefnunni stendur til að brjóta upp viðskiptamódel glæpamanna og raska möguleikum til skipulags.

Nánar tiltekið á að

efla löggæslu og samstarf dómsmálayfirvalda þvert á landamæri,

auka áherslu á rannsókn tiltekinnar glæpastarfsemi eins og umhverfisglæpa og mansals, framkvæmdastjórnin birti einmitt þennan sama daga nýja stefnu í því efni, þar sem lögð er áhersla á fyrirbyggjandi aðgerðir, til að draga úr eftirspurn, og markvissar aðgerðir til að vernda konur og börn sem verða fyrir mansali,

sjá til þess að glæpir borgi sig ekki með því að herða á reglum um að gera ávinning upptækan og peningaþvættisúrræðum,

auka færni löggæslunnar á sviði stafrænnar tækni.

Aprílfundur fjármála- og efnahagsráðherra ESB

Staða efnahagsmála. Eins og á fyrri fundum á yfirstandandi ári var aðalumræðuefnið á fundinum í dag, 16. apríl, staða og horfur í efnahagsmálum aðildarríkja ESB. Ný efnahagsspá mun þó ekki liggja fyrir fyrr en í maí, en samkvæmt febrúarspánni er útlit fyrir 3,7% meðalhagvöxt á árinu 2021 og 3,9% árið 2022 í aðildarríkjum ESB. Flest bendir til þess að vöxturinn verði fremur minni en meiri í ljósi þess hversu óhönduglega hefur gengið með bólusetningar gegn Covid-veirunni. Þá fóru ráðherrarnir yfir niðurstöður fundar G20 ríkjanna sem haldinn var 7. apríl sl. Í grófum dráttum kemur þar fram að horfur í efnahagsmálum hafi batnað það sem af er ári samanborið við mikinn samdrátt 2020, aðallega vegna herferðar í bólusetningum og áframhaldandi stuðningsaðgerða stjórnvalda. Hins vegar sé staðan misjöfn milli landa og enn mjög brothætt vegna nýrra afbrigða af veirunni og vandræða kringum bólusetningar í mörgum ríkjum. Þeir þættir sem G20 telur að verði að leggja áherslu á til að efla hagvöxt að nýju er að hjálpa þeim sem verst hafa orðið úti í faraldrinum, eins og ungt fólk, konur og ófaglært launafólk.

Staða Bjargráðasjóðsins. Umræða um Bjargráðasjóðinn var á sínum stað. Engin formlega samþykkt Endurreisnaráætlun (National Recovery Plan) hefur enn borist frá aðildarríkjunum, en skilafrestur rennur út 30. apríl. Fjármögnun ESB á Bjargráðasjóðnum með skuldabréfaútgáfum hvílir m.a. á samþykkt slíkra áætlana frá öllum aðildarríkjum ESB. Þá mun efnahagsaðstoð ESB við einstök ríki ráðast af því að ákveðin grunnskilyrði séu til staðar sem eiga að endurspeglast í endurreisnaráætlun þeirra. Til upprifjunar má nefna að ESB stefnir að árlegri skuldabréfaútgáfu upp á 150-200 milljarða evra næstu 4-5 árin og verður því einn stærsti skuldabréfaútgefandi evrabréfa á alþjóðlegum fjármálamarkaði. Endurgreiðslu þeirra á að vera lokið 2058.

Viðbótartekjur ESB (New own-resources). Fjármögnun Bjargráðasjóðsins kallar óhjákvæmilega á umræðu um nýja tekjuöflun ESB ríkjanna, þ.e. sérstakan kolefnisskatt yfir landamæri (Carbon Border Adjustment Mechanism, CBAM)) og stafræna skattinn (Digital Tax), sem OECD hefur verið að útfæra, enda hanga endurgreiðslur á skuldabréfum ESB saman við innleiðingu þessara skatta.

Mikill áróður er í gangi gegn kolefnisskattinum einkum frá Kínverjum, en efasemdarraddir hafa einnig heyrst frá Bandaríkjunum. Að undanförnu hefur ESB reynt að gera lítið úr áhyggjum USA, sbr. frétt í Financial Times með yfirskriftinni “EU rebuffs US concerns over carbon border tax threat”.

Jákvæðari umræða heyrist hins vegar um stafræna skattinn á grundvelli vinnu OECD og viðbragða USA. Í Politico í gær er haft eftir frönskum yfirmanni skattamála hjá framkvæmdastjórn ESB að skatturinn muni aðeins hitta fyrir 5-6 bandaríska tæknirisa. ESB virðist því ætla að taka minna skref en upphaflega var áformað, sbr. eftirfarandi ummæli. “We will … construct something which is soft enough to make sure we do not create obstacles to the digitalization of our economies,” sagði yfirmaðurinn. “The last thing anyone would want is to create tensions with our trade partners, starting with the United States.”

Fjármálamarkaðurinn. Þá var rætt um stöðu mála á fjármálamarkaði. Þar lúta áhyggjur manna fyrst og fremst að því að fyrirtæki í erfiðleikum vegna faraldursins fái ekki nægilega greitt aðgengi að nauðsynlegri fjármögnun. Umræða um „Banking Union“ og „Capital Markets Union“ var líka á sínum stað en fátt nýtt að frétta í þeim málum.

27. mars 2021 | Vík milli vina vegna bóluefna |
Sendiráðið í Brussel fylgist náið með því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins. Undanfarið hefur þetta borið hæst:

Stórveldaslagur

Í yfirlýsingu leiðtogafundar ESB-ríkjanna 25. mars er vikið að nauðsyn þess að herða eftirlit með útflutningi bóluefnis í samræmi við óskir framkvæmdastjórnar ESB. Daginn áður hafði framkvæmdastjórnin gefið út að herða ætti á reglum sem gilt hafa frá 1. febrúar sl., sbr. frásögn hér fyrir neðan. Nú á ekki einvörðungu að beita þeim gegn fyrirtækjum sem virða ekki skuldbindingar sínar gagnvart ESB – líkt og gert var þegar komið var í veg fyrir að AstraZeneca flytti 250.000 skammta til Ástralíu – heldur á einnig að horfa til stöðunnar í viðtökuríkinu.

Það blasir við að sögn Le Monde að spjótum er hér einkum beint að Bretlandi. Ekkert bóluefni hefur verið flutt út frá Bretlandi á meðan búið er að flytja þangað frá meginlandinu 21 milljón skammta (einkum Pfizer BioNTech). Samt hafði samningur framkvæmdastjórnarinnar við AstraZeneca gert ráð fyrir að efni frá tveimur verksmiðjum í Bretlandi myndi þjóna markaði í Evrópusambandinu.

Að sögn blaðsins hafði forseti framkvæmdastjórnarinnar ekki varað aðildarríkin við áður en nýju reglurnar voru tilkynntar. Undirtektir voru að sögn misjafnar. Ríki þar sem er umfangsmikil lyfjaframleiðsla eða þar sem hefur ríkt frjálslyndi í efnahagsmálum eins og Írland, Belgía og Svíþjóð hafa látið í ljósi áhyggjur. Þannig kvaðst Stefan Löfven forsætisráðherra Svíþjóðar óttast viðskiptastríð um bóluefni sem væri mikið áhyggjuefni þar sem ekkert land og engin heimsálfa væri óháð aðföngum við framleiðslu bóluefna.

Emmanuel Macron, forseti Frakklands, kvaðst bera fullt traust til framkvæmdastjórnarinnar því það væri nauðsynlegt að verja hagsmuni Evrópuríkja. Það væri ekki pláss fyrir einfeldni á þessu sviði. Í Bandaríkjunum væri séð til þess að bandarískir hagsmunir gengju fyrir og ekkert hefði verið flutt úr frá Bretlandi. Koma þyrfti í veg fyrir að aðrir nældu sér í bóluefni framleidd í Evrópu á meðan fyrirtækin sem ættu í hlut stæðu ekki við skuldbindingar sínar.

Því væri hins vegar ekki að neita, sagði Frakklandsforseti að Bandaríkin hefðu skotið Evrópu ref fyrir rass í bóluefnakapphlaupinu meðal annars með því að sýna meira frumkvæði og með því að vera fremur reiðubúin til að taka áhættu. Evrópubúar þyrftu að læra af þessu nú þegar kæmi að því að undirbúa næstu kynslóð bóluefna.

Útflutningur bóluefna til EES EFTA-ríkjanna nú háður leyfi – stjórnvöld mótmæla kröftuglega

Eftir að ljóst var í janúar sl. að framboð á bóluefni í Evrópu yrði ekki eins og væntingar stóðu til tók Evrópusambandið upp tímabundið eftirlit með útflutningi bóluefnis, sbr. reglugerð 2021/442. Ísland sem tekur þátt í sameiginlegum bóluefnainnkaupum með ESB og fær þeim úthlutað í réttu hlutfalli við höfðatölu eins og annars staðar í Evrópu var ásamt öðrum EES/EFTA-ríkjum undanþegið eftirlitinu, einnig þegar það var framlengt hinn 11. mars sl.

Þann 24. mars sl. samþykkti framkvæmdastjórn ESB hins vegar nýja reglugerð þar sem gerðar eru breytingar á þessu. EFTA-ríkin eru m.a. felld brott af undanþágulistanum. Ástæðan sem ESB gefur fyrir breytingunni er sú að tryggja hafi þurft gagnsæi um flutning bóluefna milli landa og koma í veg fyrir að ríkin á undanþágulistanum yrðu notuð til að komast fram hjá kröfunni um útflutningsleyfi. Þá var því bætt við að áður en leyfi væri veitt skyldi meta framleiðslugetu í viðtökuríkinu og gagnkvæmni, þ.e.a.s. hvort einhverjar hömlur væru á útflutningi á bóluefni eða tengdum bóluefnisframleiðslu til Evrópusambandsins. Einnig mætti taka tillit til stöðu faraldursins og bólusetningar í viðtökuríkinu.

Íslensk stjórnvöld hafa mótmælt umræddri breytingu á ákvæðum reglugerðar nr. 2021/442 harðlega. Í því sambandi hafa þau bent á að það brjóti gegn ákvæðum 12. gr. EES-samningsins að gera kröfu um útflutningsleyfi vegna útflutnings frá ríkjum ESB til EES EFTA-ríkjanna. Einnig hefur verið bent á að Ísland taki fullan þátt í samstarfi ESB-ríkjanna í innkaupum og dreifingu bóluefna. Þá hafa þau minnt á að sambandið leiðrétti á síðasta ári samsvarandi reglugerð um útflutningsleyfi fyrir hlífarbúnað, en í upphaflegri reglugerð hafði útflutningur á slíkum búnaði frá ríkjum ESB til Íslands og hinna EES EFTA-ríkjanna ekki verið undanþeginn kröfunni um útflutningsleyfi.

Forsvarsmenn ESB hafa svarað því að til að breytingarreglugerðin muni hvorki hafa áhrif á bóluefnasamstarf ESB og Íslands né afhendingu bóluefna til Íslands á grundvelli þess samstarfs.

Aukafundur í sameiginlegu EES-nefndinni

Mótmælum íslenskra stjórnvalda hefur verið komið á framfæri beint við framkvæmdastjórn ESB, sem og einstök aðildarríki sambandsins. Í þessum samtölum hefur því verið komið skýrt á framfæri að íslensk stjórnvöld krefjist þess að umrædd reglugerð verði tafarlaust endurskoðuð og gerð sú breyting að útflutningur á bóluefnum til Íslands verði á ný undanþeginn kröfunni um útflutningsleyfi. Þá var í gær haldinn verði sérstakur aukafundur í sameiginlegu EES-nefndinni til að fara yfir málið og þar sem kröfu um breytingu á reglugerðinni var komið formlega á framfæri. Fulltrúar Íslands og Noregs töluðu þar einni röddu og Liechtenstein tók undir þann málflutning þótt ríkið í sé annarri stöðu að því leyti að það kaupir bóluefni af Sviss.

Þrýst á alþjóðlega lausn varðandi stafrænan skatt

Á leiðtogafundi ESB í vikunni var undirstrikað að tafarlaust þyrfti að komast að niðurstöðu um skattlagningu á alþjóðleg netfyrirtæki (e. digital taxation) og brýnt væri að rekstraraðilar greiddu sanngjarna hlutdeild þegar kemur að stafrænum skatti (e. digital levy). ESB aðhyllist alþjóðlega lausn í samræmi við það sem Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) hefur verið að vinna að undanfarna mánuði. Hins vegar ef slíkt bæri ekki árangur fyrir sumarið 2021 þá væru ESB-ríkin tilbúin að taka af skarið og leggja fram eigin tillögu að reglum. Slíka tillögu ætti að innleiða í löggjöf ESB í síðasta lagi fyrir 1. janúar 2023.

Sjálfstæði og fullveldi í stafrænum málum

Leiðtogarnir lögðu á fundi sínum áherslu á mikilvægi stafrænnar umbyltingar við að ná efnahagslegum bata eftir covid-kreppuna og bentu á mikilvægi hennar fyrir framþróun, vernd, samkeppnishæfni og velmegun samfélaganna. Enn fremur bentu þeir á þörfina á að styðja frekar við og stuðla að gagnsæi, stafrænu sjálfstæði og sjálfsákvörðunarrétti Evrópu í stafrænum málum. Leiðin til þess væri að byggja á styrkleikum Evrópu á þessu sviði og draga úr veikleikum hennar með vel ígrunduðum aðgerðum, með opnum mörkuðum og í gegnum þátttöku í alþjóðlegri samvinnu. Nýleg orðsending framkvæmdastjórnarinnar um „stafrænan áttavita“ væri skref í þessa átt. Leiðtogarnir lögðu til við ráðherraráðið að vinna úr tillögum orðsendingarinnar sem fyrst undirbúa og kortleggja stafræna þróun Evrópu næsta áratuginn. Auk þess lögðu þeir til við framkvæmdastjórnina m.a. að

greinamikilvæga (e. strategic) tækni og tæknigeira sem ástæða væri til að móta stefnu fyrir

styðja stafrænu umbyltinguna á breiðari grunni bæði yfir ESB og innan einstakra ríkja sem nær til allra þátta sem skipt geta máli, s.s. menntunar, samkeppnisreglna, rannsókna, iðnaðarstefnu, nýsköpunar og fjármögnunarleiða

·nýta stafræn gögn og kerfi, að teknu tilliti til persónuverndar, til nánari hagsbóta fyrir samfélagið, umhverfið og hagkerfið

·vinna hratt að afgreiðslu nýrra tillagna framkvæmdastjórnarinnar um „digital markets act“, „digital services act“ og „digital governance act“ með það að markmiði að styrkja stafrænan markað. Einnig að styðja við söfnun og bætt aðgengi að opnum gögnum og með því jafna samkeppnisaðstöðu gagnvart rannsóknum og nýsköpun.

Áhersla á aukna samkeppnishæfni Evrópu

Portúgal, formennskuríki leiðtogaráðs Evrópusambandsins, stóð mánudaginn 22. mars sl. fyrir óformlegum ráðherrafundi ESB og EFTA um samkeppnishæfni. Áherslan á fundinum var á styrkingu innri markaðar ESB, aukna samkeppnishæfni Evrópu og sanngjörn samkeppnisskilyrði. Einnig var áhersla á stafræn málefni sem ESB hefur sett í forgang ásamt loftslagsmálum.

Pedro Siza Vieira, ráðherra efnahagsmála í Portúgal, stýrði fundinum og háttsettir fulltrúar framkvæmdastjórnarinnar tóku einnig þátt, þau Margrethe Vestager, varaforseti samkeppnismála, og stafrænnar framtíðar en hún kynnti m.a. stafrænan áttavita ESB til ársins 2030, og Thierry Breton, framkvæmdastjóri innri markaðsmála.

Fyrir Íslands hönd sóttu fundinn Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, sem jafnframt er ráðherra samkeppnismála, Kristján Andri Stefánsson, sendiherra Íslands gagnvart ESB, og Heimir Skarphéðinsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, en hann er formaður vinnuhóps EFTA um innri markaðinn og samkeppnismál. Þórdís Kolbrún sló jákvæðan tón í upphafi síns máls og taldi ýmis tækifæri felast í þeim hremmingum sem kórónaveiran hefði valdið. Hún varaði þó við að ríkin innan ESB/EFTA væru hugsanlega of háð aðföngum frá þriðju ríkjum í ýmsum framleiðsluferlum eins og komið hefur í ljós undanfarið í heilbrigðismálum og benti á nauðsyn þess að auka óhæði ríkjanna við endurskoðun iðnþróunarstefnu ESB (Industrial Strategy).

Þá benti ráðherra m.a. á mikilvægi nýsköpunar til að auka óhæði ríkja og bæta lífsgæði borgaranna. Nýsköpun sé hins vegar oft í höndum lítilla fyrirtækja. Allra ráða þurfi því að leita til að létta byrðar vegna íþyngjandi regluverks en einnig tryggja sanngjarna samkeppnisstöðu nýsköpunarfyrirtækja og frumkvöðlavænt umhverfi með nútímalegum samkeppnis- og ríkisstyrkjareglum. Allt þetta megi yfirfæra á þá miklu nýsköpun sem nú stendur yfir í heilbrigðisvísindum. Þá þurfi evrópskt viðskiptaumhverfi að hafa hraðar hendur varðandi nýsköpun í stafrænum lausnum.

Samhljómur ríkti á fundinum um mikilvægi innri markaðarins í endurreisn efnahagslífsins að loknum heimsfaraldri og um nauðsynlegar aðgerðir sem nýst geta ríkjum og fyrirtækjum beint, einnig í innviðauppbyggingu og þjálfun starfsfólks í stafrænum lausnum.

Orka og loftslag í brennidepli

Í þessari viku var haldin í netheimum fjölsótt ráðstefna undir yfirskriftinni: Hreinorkuskipti, hornsteinn Græna sáttmálans eða Clean Energy Transition: the cornerstone of the European Green Deal.

Ráðstefnan var skipulögð af European Business Summit með atbeina m.a. framkvæmdastjórnar EBS, Evrópska fjárfestingarbankans, stórra orkufyrirtækja og fjölmiðla á borð við Bloomberg og New York Times.

Þingmenn Evrópuþingsins, háttsettir fulltrúar ESB ásamt forsvarsmönnum í orkugeira, loftslagsmálum, háskólasamfélagi og atvinnulífi tóku þátt í vel skipulögðum pallborðsumræðum sem stýrt var af fjölmiðlafólki með sérþekkingu á sviði orku- og loftslagsmála.

Markmið ESB um 55% minni útblástur 2030 (miðað við 1990) og kolefnishlutleysi álfunnar 2050 voru rauði þráðurinn í því hvernig þátttakendur nálguðust umræðuefnið.

Margt áhugavert kom fram og greinilegt að fyrirtæki sem vinna orku úr t.d. kolum eru verulega hugsi. Þó alls ekki jafn neikvæð og mátt hefði reikna með.

Eins og kunnugt er hyggst ESB setja gríðarlega fjármuni í bjargráðasjóð sem er hluti af endurreisnaráætlun vegna heimsfaraldursins og við úthlutun styrkja úr honum verður skýr áhersla á m.a. stafrænar lausnir og ekki síður verkefni sem stuðla að sjálfbærni. Þar munu fjárfestingar á sviði orkuskipta eflaust koma sterkar inn. Úthlutun úr þessum sjóði er ekki hafin en aðildarríkin hafa svigrúm til 30. apríl n.k. til að leggja fram rökstuddar óskir og áætlanir.

Fulltrúi evrópskra flugrekenda sagði á ráðstefnunni að hann liti alls ekki svo á að kórónafaraldurinn tefji sett markmið um orkuskipti í flugi. Bráðnauðsynlegt sé að halda áfram að leita leiða og hreinlega ekki um neitt val að ræða. Það verði hins vegar ekki gert nema með ríkisaðstoð enda megi reikna með að fyrst um sinn verði hver flugferð 5-6 sinnum dýrari en nú er. Þannig spilar þetta saman, atvinnulífið og opinberi geirinn og var andinn á ráðstefnunni afar jákvæður þarna á milli.

Það sem allir voru sammála um var að án aðkomu og sáttar við almenning gæti leiðin að stóra markmiðinu orðið grýtt, sbr. gulvestamótmælin í Frakklandi 2018 og 2019 þegar stjórnvöld voru harðlega gagnrýnd fyrir ,,að hafa misst tengsl við raunveruleikann“ er gjöld á jarðeldsneyti voru hækkuð stórlega. Því þurfi að tryggja að fátækari hópar í samfélaginu verði ekki skildir útundan og lendi í að bera stóraukinn kostnað vegna skipta yfir í endurnýjanlega orkugjafa.

Einnig voru svokallaðar sjálfbærar fjárfestingar til umræðu enda liggur fyrir reglugerð ESB 2020/852 um að koma á fót ramma um sjálfbæra fjárfestingu. Flokkunarkerfið fyrir sjálfbærar fjárfestingar, sem verið er að móta, er sagt vera lykilskref í átt að markmiði ESB um kolefnishlutleysi fyrir árið 2050 og jafnframt mikilvægasta og brýnasta aðgerðin í aðgerðaáætlun ESB á sviði sjálfbærra fjármála.

Ráðherraráðið samþykkir stefnumótun um netöryggi

Ráðherraráð ESB samþykkti 22. mars sl. tillögur framkvæmdastjórnarinnar og utanríkismálastjóra sambandsins um stefnu í netöryggismálum þess. Stefnan leggur línurnar að ráðstöfunum ESB til að vernda borgara og fyrirtæki innan ESB fyrir ógnum á netinu, stuðla að öruggum upplýsingakerfum og að vernda opið, frjálst og öruggt net á alþjóðavísu.

Í tillögunum segir að netöryggi sé ómissandi undirstaða fyrir þrautseigri (e. resilient), grænni og stafrænni Evrópu. Það sé lykilþáttur við viðhalda opnu hagkerfi og vinna að auknu frjálsræði í viðskiptum.

Í greinargerð ráðherraráðsins um málið eru dregin fram nokkur verkefni netöryggisstefnunnar sem ráðið leggur áherslu á að ráðist verði í á næstu árum, m.a. eftirfarandi:

Stofnun verndarstöðva (e. Security Operation Centers) víðsvegar um ríki ESB sem fylgjast með netumferð og lesa í vísa um netárásir.

Vinna að því að viðbrögð við netárásum falli betur að og verði hluti af neyðarviðbragðskerfi ESB. Undirbúa sameiginlega rekstrareiningu fyrir netöryggi (e. Joint Cyper Unit) sem ætlað er að veita neyðarstjórnunarkerfi ESB netöryggismála nákvæmar (e. focus) upplýsingar um netöryggisógnir, stuðla að tímanlegum viðbrögðum við ógnum, miðla upplýsingum, samhæfa æfingar og viðbrögð við ógnum.

Vinna hratt að innleiðingu öryggisráðstafana fyrir 5G net og vinna áfram að ráðstöfunum til þess að tryggja vernd 5G neta og framtíðarkynslóða farneta.

Styðja við þróun öflugra dulkóðunaraðferða og samhliða tryggja leiðir fyrirlögregluyfirvöld og dómsvaldið við að framfylgja lögum jafnt á netinu sem utan þess.

Finna leiðir til þess að auka skilvirkni tengslanets í þágu vefsins (e. efficiency of the cyber diplomacy toolbox) með áherslu á samtal sem eykur skilning á netöryggi og stuðlar að sameiginlegri sýn hagsmunaaðila á alþjóðavísu t.d. gagnvart hugverkarétti. Markmiðið er aðvinna gegn kerfislægum sjónarmiðum sem eru andstæð aðfangakeðjum, stofnunum og ferlum lýðræðisins og mikilvægum innviðum og þjónustu.

Styrkja samvinnu við alþjóðastofnanir og vinaríki við að efla skilning á landslagi netógna. Ráðið leggur áherslu á þau sjónarmið að öflug samvinna yfir Atlantshafið í netöryggismálum stuðli að vernd, stöðugleika og velmegun ríkjanna.

Setja saman áætlun um uppbyggingu á getu til þess að vinna að framþróun netsins utan landamæra ESB með það að markmiði að auka notkunarmöguleika ogseiglu netsins á alþjóðavísu.

Í niðurstöðu ráðherraráðsins er farið ítarlega yfir sjónarmið ráðsins og þær aðgerðir sem ráðið leggur áherslu á.

Að lokum hvetur ráðherraráðið framkvæmdastjórnina og utanríkismálastjóra sambandsins að setja saman ítarlega áætlun um framkvæmd tillagnanna. Ráðherraráðið áformar að fjalla um eigin framkvæmdaáætlun um tillögurnar, sem verði reglulega endurskoðuð og uppfærð í samvinnu við framkvæmdastjórnina og utanríkismálastjóra ESB.

19. mars 2021 | Vonir bundnar við samræmt vottorðakerfi vegna Covid-19 |
Sendiráðið í Brussel fylgist náið með því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins. Undanfarið hefur þetta borið hæst:

Tillaga að samræmdu vottorðakerfi vegna Covid-19

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins birti 17. mars sl. tillögu að samræmdu vottorðakerfi vegna Covid-19. Tilgangurinn er ekki síst að greiða fyrir frjálsri för milli landa. Gert er ráð fyrir að reglurnar gildi um Ísland, Noreg, Liechtenstein og Sviss. Þessum ríkjum gefist þannig kostur á að eiga aðild að nýju vottorðakerfi sem feli í sér rétt til útgáfu samræmdra vottorða og skyldu til viðurkenningar vottorða frá öðrum. Um er að ræða tillögu að bindandi reglugerð sem fer í hefðbundið lagasetningarferli hjá ráðherraráðinu og Evrópuþinginu en vonir standa til að reglurnar taki gildi áður en ferðamannasumarið hefst fyrir alvöru, þ.e. ekki síðar en í júnílok.

Þessarar tillögu hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu frá því að leiðtogar ESB-ríkjanna gáfu út yfirlýsingu um það í lok febrúar að stefnt skyldi að aukinni samræmingu í vottorðamálum til að stuðla að frjálsri för milli landa. Fram kemur að ósamræmið, sem hafi ríkt, hafi leitt til vandkvæða fyrir ferðamenn sem fái vottorð sín ekki viðurkennd auk þess sem dæmi séu um að fölsuðum gögnum sé framvísað og er vitnað til nýlegrar viðvörunar Europol í því sambandi.

Í orðsendingu framkvæmdastjórnarinnar sem einnig var birt 17. mars eru aðildarríkin hvött til að taka samræmda afstöðu til enduropnunar landamæra. Hvert skref á þeirri vegferð verði skilvirkara og trúverðugra ef það er hluti af samevrópskri nálgun. Reynslan sýni að takmarkanir á einum stað í álfunni hafi áhrif á alla. Sama muni væntanlega eiga við þegar kemur að því að aflétta hömlum. Þess vegna sé sameiginleg nálgun nauðsynleg.

Nánar um tillögu um sameiginlegt vottorðakerfi

Í tillögunni um þetta nýja „grænkort“ er þess gætt að hún verði ekki túlkuð sem forréttindi fyrir þá sem hafa fengið bólusetningu. Þannig mun nýja kerfið ná yfir fleiri vottorð en bólusetningarvottorð og því geta nýst fleirum til ferðalaga. Í grunninn er miðað við bólusetningu með bóluefnum sem hlotið hafa blessun á Evrópuvísu en þó er ekki loku fyrir það skotið að vottorð megi gefa út í nýja kerfinu fyrir önnur bóluefni sem einstaka aðildarríki viðurkenna.

Vottorð í því nýja kerfi sem komið verður á laggirnar (Digital Green Certificate eins og það er kallað) verður sönnun þess að einstaklingur hafi verið bólusettur gegn Covid-19, fengið neikvæða niðurstöðu úr prófi (PCR eða viðurkennd hraðpróf) eða náð sér eftir Covid-19 sýkingu. Aðildarríkjunum ber að gefa vottorðið út einstaklingum að kostnaðarlausu, í rafrænu formi eða á pappír. Það mun innihalda strikamerki (QR-kóða) til að tryggja öryggi og sannleiksgildi vottorðs. Framkvæmdastjórnin mun koma á fót kerfi til að tryggja að hægt verði að sannreyna vottorð hvar sem er innan svæðisins og veita tæknilegan stuðning. Áfram verður á forræði aðildarríkja að ákveða hvaða sóttvarnarráðstafanir megi fella niður fyrir ferðamenn en taka verður vottorðin gild sem sönnun þess að skilyrði séu til staðar.

Staðan gagnvart 3. ríkjum

Fram kemur í tillögunni að nýju reglugerðinni um samræmdu vottorðin sé ekki ætlað að hafa áhrif á Schengen-reglur um það hverjir mega koma inn á svæðið frá 3ju ríkjum. Þar gilda enn tilmæli um bann við ónauðsynlegum ferðum (með örfáum undantekningum fyrir ríki þar sem staða faraldurs hefur verið metin þannig að slíkt sé óhætt). Ekki er í þeim tilmælum gert ráð fyrir að vottorð um bólusetningu eða bata af fyrri sýkingu heimili undanþágu.

Í orðsendingu framkvæmdastjórnarinnar kemur fram að mikilvægur þáttur í enduropnun sé að leyfa örugg ferðalög frá 3ju ríkjum. Ráðherraráðið er hvatt til að fylgjast vel með þróun mála í ríkjum utan ESB, sérsaklega þar sem tekist hefur að ná faraldrinum verulega niður yfir lengra tímabil til dæmis með hjálp bóluefna sem sannreynt hefur verið að virki. Mikilvægur þáttur sé einnig útbreiðsla nýrra afbrigða sem valda áhyggjum. Til að byrja með muni framkvæmdastjórnin fylgjast með framkvæmd fyrrgreindra gildandi tilmæla og leggja til breytingar eftir því sem tilefni er til. Það gæti, að sögn, falið í sér aðlögun tilmælanna að nýja vottorðakerfinu eða aðgerðir á vettvangi WHO og Alþjóða flugmálasamtakanna sem muni þegar fram líða stundir geta auðveldað afléttingu takmarkana gagnvart ferðalöngum frá þriðju ríkjum sem geti sýnt vottorð um tilheyrandi Covid-19 stöðu sem sé nægilega áreiðanlegt og samræmi við það kerfi sem þá verði komið í notkun í Evrópuríkjum. Gert er ráð fyrir að framkvæmdastjórnin þurfi að samþykkja slíka útvíkkun fyrir fram.

Fyrstu viðbrögð

Fyrstu viðbrögð úr ferðageiranum hafa verið jákvæð. Flugmálasamtök í Evrópu hafa þannig hvatt til þess að tillögurnar verði afgreiddar með hraði. En jafnframt þurfi tímasetta áætlun um hvenær einstök skref í átt til opnunar verði stigin. Sjá https://www.iata.org/en/pressroom/pr/2021-03-17-01/

Yfirlýsingar í tilefni af stafrænum degi

Haldið var upp á svokallaðan Stafrænan dag 2021 í dag, 19. mars. Ráðherrar EES-ríkjanna undirrituðu þrjár yfirlýsingar um fjarskiptatengingar, græna stafræna tækni og bætt regluumhverfi fyrir nýsköpunar- og sprotafyrirtæki. Skuldbindingar sem þar má finna varða leiðina að grænni og stafrænni umbyltingu næstu árin. Fyrir Íslands hönd undirrituðu Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, yfirlýsingarnar.

Fyrir fundinn voru til umfjöllunar þrjár yfirlýsingar um Gagnatengingar innan Evrópu og við aðrar heimsálfur, þ.e. „Data Gateway“, skilyrði og stuðning við sprotafyrirtæki til að vaxa og dafna, þ.e. „Startup Nations Standard“ og svo græna og stafræna umbreytingu samfélagsins, þ.e. „Green and Digital Transformation“. Fjallað var um yfirlýsingarnar í sérstökum dagskrárlið fyrir hverja um sig. Fram kom að til þess að Evrópa yrði leiðandi á sviði stafrænnar þróunar á heimsvísu þyrfti öflugar fjarskiptatengingar bæði innan Evrópu og við aðrar heimsálfur. Þær væru skilyrði fyrir stórgagnavinnslu, skýjalausnum og vinnslu með ofurtölvu óháð landamærum.

Undir dagskárliðnum um sprotafyrirtæki var fjallað um hvernig mætti styðja betur við þau og vöxt þeirra. Ýmsar Evrópuþjóðir, t.d. Spánverjar, Frakkar og Þjóðverjar hafa stofnað sjóði sem hafa það hlutverk að styðja við stofnun og vöxt sprotafyrirtækja, og hvöttu til samstarfs hugvitsmanna yfir landamæri. Fram kom að mikil gróska er í sprotafyrirtækjum í Evrópu en mörg þeirra nái ekki að vaxa nema helst þau sem færa sig til Norður-Ameríku. Talið er þar veiti kerfið betri stuðning við vöxt slíkra fyrirtækja.

Miklar umræður áttu sér stað um efni yfirlýsingarinnar um „Green and Digital Transformation“ Undir þessum lið tóku til máls bæði ráðherrar ýmissa ríkja Evrópusambandsins og forstjórar fjögurra stórfyrirtækja. Almennt voru ræðumenn sammála því að til þess að ná árangri þyrftu þessir þættir að fara saman. Ekki væri hægt að ná markmiðum um kolefnislaust samfélags án virkrar nýtingu upplýsingatækninnar. Hægt væri að ná fram umtalsverðum orkusparnaði t.d. með virkri stýringu við rekstur bygginga. Þá væru orkunýtnari tölvur og smárásir í sífelldri þróun. Sama gildir um snjallvæðingu í samgöngum og svo framvegis. Þá voru fundarmenn sammála um að traust og gagnsæi notenda væri forsenda þess að upplýsingatæknin nýttist sem skyldi í opinberri stjórnsýslu og viðskiptum.

Félagsmálaráðherrar funda í aðdraganda leiðtogafundar í Porto

Ráðherraráð ESB boðaði félags- og vinnumálaráðherra til óformlegs fjarfundar 15. mars sl. til þess að ræða vinnumarkað og félagsmálastefnu ESB. Gerðu löndin grein fyrir stöðu mála og þeim aðgerðum sem gripið hefur verið til. Einnig var fjallað um aðgerðaáætlun sem kynnt var 4. mars sl. Almenn ánægja var hjá fundarmönnum og stuðningur við framvindu mála.

Ráðherrarnir ræddu um leiðir til að styrkja jafnrétti kynjanna en hallað hefur á stöðu kvenna í faraldrinum. Lögð var áhersla á að samþætta jafnréttisstefnu og aðgerðaáætlunina.

Framkvæmdastjórn ESB upplýsti ráðherrana um nýlega stefnumótun (grænbók) í málefnum aldraðra, en hún er liður í að takast á við lýðfræðilegar áskoranir í Evrópu.

Á fundinum var einnig rætt um að setja upp Evrópuvettvang um málefni heimilislausra þann 21. júní sem miðar að því að auðvelda aðildarríkjum að deila upplýsingum stöðu mála og kynna skilvirk viðbrögð við hinum ýmsu þáttum þessa mikilvæga félagslega viðfangsefnis.

Portúgal sem nú fer með formennsku í ESB leggur höfuðáherslu á félagsleg úrræði og aðgerðir í kjölfar heimsfaraldursins. Á vinnumarkaði er staða unga fólksins í forgrunni ásamt þeim hópum sem standa höllum fæti í samfélaginu og hafa átt erfitt uppdráttar í atvinnuleysi og með skertum lífskjörum vegna Covid-19.

Ráðherrafundir og aðgerðaáætlun ásamt viðtækri umræðu í ESB og í aðildarríkjum um stöðu mála og aðgerðir eru undanfari endurnýjunar á félagslegu stoðinni (European Pillar of Social Rights) sem fyrirhuguð er á leiðtogafundi 7.-8. maí í Porto.

Viðsnúningur höktir

Meginumræðuefnið á mars-fundi fjármála- og efnahagsráðherra ESB var staða og horfur í efnahagsmálum aðildarríkjanna. Talsvert hökt hefur verið í viðsnúningnum, meðal annars vegna tafa í bólusetningum gegn Covid-19. Samkvæmt nýjustu spá Seðlabanka Evrópu mun evrópska hagkerfið ekki taka almennilega við sér fyrr en á milli 2. og 3. ársfjórðungs, en meðaltöl um hagvöxt eru svipuð. Þannig er útlit fyrir 3,7% meðalhagvöxt á árinu 2021 og 3,9% árið 2022 í aðildarríkjum ESB.

Reglugerð um Bjargráðasjóðinn (Recovery and Resilience Facility, líka kallaður Next Generation EU; NGEU) hefur nú verið samþykkt og birtist í evrópsku stjórnartíðindunum (OJ) þann 18. mars. Aðildarríkin 27 eru þegar farin að senda framkvæmdastjórninni endurreisnaráætlun sína með formlegum hætti, en lokafrestur til þess er til 30. apríl. Nú þegar hafa sex ríki sent inn sína áætlun, þar á meðal Ítalía, sem fær hlutfallslega mesta aðstoð frá sjóðnum. Þá hefur Belgía sent inn bráðabirgðaáætlun, en belgíska stjórnskipulagið skapar hér miklar flækjur eins og flestum sviðum. Ekkert hefur enn borist frá stóru aðildarríkjunum, Frakklandi og Þýskalandi, enda munu þau bera fremur lítið úr býtum miðað við Suður- og Austur-Evrópuríkin sem fóru mun verr út úr faraldrinum.

Samþykkt fjárlög Bjargráðasjóðsins nema 750 milljörðum evra. Umsóknir um lán eða styrki úr sjóðnum verða að uppfylla tvö meginskilyrði. Annað er að 37% af umbeðnu framlagi verði tengt loftlags- og umhverfismarkmiðum. Hitt er að 20% af framlaginu sé vegna stafrænna fjárfestinga og endurbóta. Hér endurspeglast grunnáherslur ESB, þ.e. græni sáttmálinn og stafræn starfskrá. Ljóst er að framkvæmdastjórnin leggur ofuráherslu á Bjargráðasjóðinn sem tæki til að ýta aðildarríkjum ESB á flot aftur svo það er eins gott að vel takist til alveg frá byrjun.

Rætt var lauslega um nýja tekjuöflun ESB ríkjanna, þ.e. sérstakan kolefnisskatt yfir landamæri (Carbon Border Adjustment Mechanism, (CBAM)) og stafræna skattinn sem OECD er að útfæra. Evrópskur þungaiðnaður (stál, sement o.fl.) beitir sér nú af miklu afli gegn kolefnisskattinum, sem virðist vera að hafa áhrif í Evrópuþinginu ef marka má síðustu fréttir þaðan. Til fróðleiks má einnig nefna að sérlegur loftlagsboðberi Joe Bidens Bandaríkjaforseta, John Kerry, sagði í viðtali við Financial Times nýverið að umrædd skattlagning væri til þrautavara sem lýsir í hnotskurn gagnrýni stóru iðnríkjanna utan ESB á áform ESB á þessu sviði. Kínverjar hafa verið einna harðastir í gagnrýni sinni á þessa skattlagningu og tala um brot á samningi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar. Hins vegar gæti eitthvað verið að rofa til hvað varðar stafræna skattinn ef marka má ummæli Jane Yellen seðlabankastjóra Bandaríkjanna á fundi G20 í lok febrúar um vinnu OECD. Þar sagði hún að Bandaríkin myndu taka fullan þátt í vinnu OECD og útkoman þar yrði bindandi fyrir öll bandarísk fyrirtæki. Hún hlaut fyrir það mikið hrós frá Frakklandi og Þýskalandi. Niðurstaða OECD á að liggja fyrir um mitt ár.

Stefnumótun varðandi greiðslukerfi fyrir einstaklinga

Á ráðherrafundi fjármála- og efnahagsráðherra var einnig var fjallað um öruggar greiðslur eða millifærslur einstaklinga (Retail Payment Strategy) á fjármálamarkaði á grundvelli nýútgefinnar stefnu framkvæmdastjórnar ESB á þessu sviði. Hér er ekki hvað síst verið að horfa á öryggi neytenda í ljósi ört vaxandi stafrænnar þróunar á fjármálamarkaði (FinTech; fjártækni). Stefnt er að því að einstaklingar geti framkvæmt greiðslur yfir landamæri jafn auðveldlega og í eigin landi og án viðbótarkostnaðar.

12. mars 2021 | Línur lagðar um stafræna þróun í Evrópu fram til 2030 |
Sendiráðið í Brussel fylgist náið með því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins. Undanfarið hefur þetta borið hæst:

Annasöm vika að baki

Sendiráðið gekkst í vikunni fyrir vefviðburði í samstarfi við Grænvang Íslandsstofu og EFTA helguðum nýsköpun og íslenskum tæknilausnum í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Viðburðurinn var liður í formennskuáætlun Íslands í fastanefnd EFTA í EES-samstarfinu á fyrri hluta þessa árs og miðaði að því að setja íslensk sprotafyrirtæki og frumkvöðla í samhengi við Græna sáttmála ESB og stefnumið hans. Viðburðurinn hófst með ávarpi Kristjáns Andra Stefánssonar sendiherra og Joao Sarmento fulltrúa portúgölsku formennskunnar í ráðherraráði Evrópusambandsins en síðan tóku við kynningar á starfsemi fyrirtækjanna Carbfix, Carbon Recycling International, Pure North og Circular solutions. Í framhaldi af þeim fóru fram líflegar umræður undir röggsamri stjórn Höllu Hrundar Logadóttur, eins af stofnendum og stjórnendum Arctic Initiative við Harvard háskóla. Viðburðurinn var vel sóttur og vakti athygli meira en 70 þátttakenda, þ. á m. frá Evrópuþinginu, framkvæmdastjórninni og fastanefndum aðildarríkja Evrópusambandsins.

Í upphafi vikunnar tók sendiráðið þátt í norrænum jafnréttisviðburði á alþjóðlega kvennadaginn 8. mars sem norrænu sendiráðin í Brussel stóðu fyrir. Viðburðurinn var helgaður þátttöku kvenna í stjórnmálum og hófst með opnunarávarpi Kristjáns Andra f.h. norrænu sendiherranna. Aðalerindi flutti Marianne Hamilton sænskur rithöfundur en síðan fóru fram pallborðsumræður með þátttöku Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra, Karen Melchior frá Danmörku og Silvia Modig frá Finnlandi sem báðar eiga sæti á Evrópuþinginu og Astrid Hoem leiðtoga ungliðahreyfingar frá Noregi.

Á þriðjudag fór einnig fram fundur EFTA ríkjanna með EFTA vinnuhópi ráðs Evrópusambandsins. Þar gerði Sesselja Sigurðardóttir, staðgengill sendiherra, grein fyrir áherslum EES-EFTA ríkjanna næstu mánuði í formennskutíð Íslands. Þá fræddust fundargestir um helstu mál á borði vinnuhópsins og áttu skoðanaskipti um það sem er efst á baugi í EES EFTA-samstarfinu. Þar á meðal var gerð grein fyrir rótgróinni þátttöku EES EFTA-ríkjanna í samstarfsáætlunum ESB og undirbúningi áframhaldandi þátttöku í næsta tímabili (2021-2027).

Og á miðvikudag fór fram fundur ráðgjafarnefndar EFTA með fastanefnd EFTA-ríkjanna. Í upphafi fundarins var Halldórs Grönvöld minnst en hann var þrívegis formaður ráðgjafarnefndarinnar og átti sæti í henni í 20 ár samfleytt. Ísland er í formennsku fastanefndarinnar þetta misserið og kom því í hlut Kristjáns Andra að flytja nefndinni skýrslu fastanefndar um það sem efst hefur verið á baugi síðustu misserin og horfur framundan í EES EFTA-samstarfinu. Forseti Eftirlitsstofnunar EFTA og sendiherrar EFTA-ríkjanna gerðu einnig grein fyrir helstu áherslum hver frá sínum sjónarhóli en síðan gafst fulltrúum ráðgjafarnefndarinnar tækifæri til að bera fram spurningar og skiptast á skoðunum við sendiherrana. Af hálfu ráðgjafarnefndarinnar var spurt um Græna sáttmála og Stafrænu starfsskrána og áhersla lögð á að sendiráðin fylgist með frá upphafi, greini fljótt þá hagsmuni sem í húfi eru og taki þátt í mótun gerða frá byrjun.

Stefnumörkun um stafræna þróun í Evrópu

Framkvæmdastjórnin birti 9. mars orðsendingu (e. Communication) sem fjallar um framtíðarsýn, markmið og leiðir fyrir stafræna þróun í Evrópu til ársins 2030. Stafrænar lausnir eru að mati ESB lykillinn að umbreytingu hagkerfisins í áttina að þrautseigu kolefnislausu hringrásarhagkerfi. Orðsendingin er svar við ákalli ráðherraráðsins um „stafrænan áttavita“ fyrir sambandið og er lagt til að helstu áhersluþættir áttavitans við að ná fram stefnunni verði eftirfarandi.

Góð færni borgara við að nýta stafrænar lausnir og að færir tæknimenn vinni á sviði stafrænna lausna. Markmið um að fyrir árið 2030 geti að minnsta kosti 80% borgara nýtt stafrænar lausnir sér til gagns og að starfandi verði a.m.k. 20 milljónir tæknimanna innan sambandsins.

Öruggir, áreiðanlegir og sjálfbærir stafrænir innviðir. Öll heimili í Evrópu hafi aðgang að minnsta kosti 1 Gb tengingu og öll þéttbýl svæði hafi aðgang að 5G farsímaþjónustu. Sjálfbær framleiðsla í Evrópu á hátæknismárásum og leiðandi á heimsvísu skuli nema a.m.k. 20% af heimsframleiðslu. Fyrsta skammtatölvan (e. quantum computer) í Evrópu verði komin í notkun 2030.

Stafræn umbreyting fyrirtækja. Fyrir árið 2030 skuli þrjú af hverjum fjórum fyrirtækjum nýta sér skýjalausnir, snjalltækni og stórgögn (e. big data). Að minnsta kosti 90% fyrirtækja skuli nýta grunn upplýsingatækni (e. basic level of digital intensity).

Opinber þjónusta á netinu. Árið 2030 skuli öll lykil þjónusta hins opinbera vera aðgengileg á netinu; allir borgarar skuli geta nálgast heilsufarsupplýsingar á netinu; og 80% borgara noti stafræn auðkenningu.

Framkvæmdastjórnin leggur til að unnið verði hratt að skilgreiningu verkefna yfir landamæri fyrir sameiginlega þátttöku fleiri ríkja, til þess að bregðast við mismunandi stöðu ríkja í stafrænni þróun. Þá sér framkvæmdastjórnin fyrir sér að vinna að framgangi þessarar stefnu með því að leita eftir stofnun viðskiptanefndar með þátttöku Bandaríkjanna um samstarf á sviði hátækni. Einnig leggur framkvæmdastjórnin til að stofnaður verði nýr sjóður sem ætlað er að styrkja aðildarríkin í uppbyggingu fjarskiptainnviða (e. connectivity).

Framkvæmdastjórnin miðar við að hefja fljótlega víðtækt samráð um einstök atriði stefnumörkunarinnar þ.m.t. um ramma „stafræna áttavitans“, utanumhald og ofangreindar tillögur um árangursmarkmið. Samráðinu er ætlað að skila tillögu að skilgreindu verkefni og útfærslu á formlegu utanumhaldi þess (e. governance). Miðað er við að tillagan verði lögð fyrir ráðið og þingið á þriðja ársfjórðungi 2021.

Framkvæmdastjórnin sér fyrir sér að árangursvísarnir um verkefnið verði útfærðir nánar og skýrsla um framvindu stafrænnar þróunar birt árlega.

Tillaga um launagagnsæi

Þrátt fyrir að launajafnrétti kynjanna sé tryggt í Rómarsáttmálanum, og ýmsum reglum á grundvelli hans, er launamunur kynjanna talinn vera 14,1% innan Evrópusambandsins. Fyrir utan misréttið sem í því felst eru ýmsar neikvæðar afleiðingar fyrir stöðu kvenna, þar með talin skert lífeyrisréttindi en þar er munurinn á kynjunum 33%. Framkvæmdastjórnin lagði 4. mars sl. til nýja tilskipun um launagagnsæi sem er ætlað að stuðla að breytingum á þessu sviði. Hér er um að ræða eitt af forgangsmálum Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnarinnar. Nýju úrræðin sem lögð eru til í tilskipuninni eru tvíþætt, aukið gagnsæi í launamálum og réttarfarshagræði fyrir þá sem telja á sig hallað.

Launagagnsæi fyrir umsækjendur um störf – Vinnuveitendur munu þurfa að láta í té upplýsingar um byrjunarlaun í starfi þegar auglýsing er birt eða áður en atvinnuviðtal fer fram. Þá verður vinnuveitendum óheimilt að spyrja umsækjendur um þau laun sem þeir hafa haft í gegnum tíðina.

Réttur til upplýsinga fyrir starfsmenn – Starfsmenn munu eiga rétt á því að fá upplýsingar um laun sem gera þeim kleift að bera sig saman við aðra í svipuðum störfum.

Skýrslugjöf um launamun – Vinnuveitendur með að minnsta kosti 250 starfsmenn verða að birta upplýsingar um launamun kynjanna í fyrirtækinu. Þeir verða síðan að láta starfsmönnum í té ítarlegri upplýsingar.

Sameiginlegt launamat – Þegar launamunur kynjanna reynist vera 5% eða meiri skv. fyrrnefndri skýrslu og ekki er hægt að rökstyðja hann með hlutlægum hætti verður að fara fram úttekt í samstarfi við fulltrúa starfsmanna.

Bætur vegna mismununar – Starfsmenn sem teljast hafa orðið fyrir mismunun munu geta fengið bætur sem nema vangoldnum launum.

Sönnunarbyrði á vinnuveitanda – Það hvílir á herðum vinnuveitanda að sýna fram á að launamunur milli kynjanna styðjist við hlutlæg rök.

Tillagan fer nú til meðferðar hjá Evrópuþinginu og ráðherraráðinu. Nýja tillagan kemur til viðbótar við gildandi tilskipun frá 2006 um jöfn tækifæri og jafna meðferð karla og kvenna á vinnumarkaði. Vinna er hafin hjá EFTA-skrifstofunni og sérfræðingum á Íslandi, í Noregi og Liechtenstein við að meta tillöguna með tilliti til EES-samningsins.

Tillaga að endurskoðuðum reglum um reikiþjónustu farsímafyrirtækja

Framkvæmdastjórnin birti 21. febrúar sl. tillögu að endurskoðuðum reglum um reiki Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council on roaming on public mobile communications networks within the Union (recast) sem í stuttu máli, auk nokkurra breytinga, framlengir líftíma núverandi löggjafar um tíu ár verði tillagan samþykkt. Forsenda þessarar tímasetningar, gildistími til 2032, er spá um að eftir tíu ár hafi þjónusta farsambanda tekið miklum breytingum með fimmtu kynslóð farsíma frá því sem við þekkjum núna. Óvíst er að þá verði þörf fyrir reglusetningu sem þessa.

Sólarlagsákvæði er í núgildandi reglugerð um reiki og fellur hún að óbreyttu úr gildi um mitt ár 2022. Fyrstu reikireglur yfir EES tóku gildi árið 2009. Þær hafa tekið breytingum og nú síðast um mitt ár 2017 þegar reglan „Roam like at home“ var lögfest. Með henni gildir heimaverðskrá farsímafyrirtækis notanda innan alls Evrópska efnahagssvæðisins séu gagnasendingar notandans innan hóflegra marka. Gagnasendingar frá snjallsímum á Evrópumarkaði margfölduðust eftir gildistöku reglugerðarinnar. Gagnasendingar í reiki jukust yfir 400% á milli áranna 2016 og 2017.

Í tillögu framkvæmdastjórnarinnar eru lögð til stiglækkandi hámarksheildsölugjöld reikiþjónustu fyrir talsamband, gagnasamband og SMS á gildistíma reglugerðarinnar. Þar eru einnig að finna nokkur ákvæði sem ætlað er að einfalda regluverk og draga úr íþyngjandi kröfum í framkvæmd hennar. Til dæmis eru felld niður ákvæði um aðgreiningu smásöluþjónustu sem fellur undir reglugerðina og þeirrar sem er undanskilin ákvæðum hennar, einfaldaðar reiknireglur um lúkningagjöld, reglur um umreikning á milli gjaldmiðla einfaldaðar og loks skýrslugjöf til eftirlitsaðila einfölduð og gerð skilvirkari.

Leyst úr vanda nema í flugvirkjanámi

Nám flugvirkja fer eftir EES reglum og er undir eftirliti Flugöryggisstofnunar EASA sem m.a. viðurkennir námsskrár og skóla sem sinna kennslunni. Að námi loknu fá nemar skírteini sem gerir þeim kleift að starfa sem flugvirkjar hvar sem er á EES svæðinu.

Námið á Íslandi er á vegum breskra aðila sem hafa tilskilin leyfi frá EASA til kennslu. Í samskiptum Samgöngustofu við Flugöryggisstofnun Evrópu, EASA, kom fram sú lagalega túlkun stofnunarinnar á Brexit-samningnum að ekki væru lagaleg skilyrði til að viðurkenna áfanga í námi flugvirkja með óútgefin skírteini fyrir 1. janúar sl. Flugvirkjanám er afar kostnaðarsamt fyrir nemendur og áttu um 200 nemendur það á hættu að þurfa að endurtaka áfanga í náminu með tilheyrandi kostnaði og fyrirhöfn.

Sendiráðið í Brussel vann að lausn málsins með samgönguskrifstofu ESB og í samvinnu við samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Samgöngustofu. Eftir nokkur samskipti við samgönguskrifstofu ESB fannst lausn og 4. mars barst svo tilkynning frá EASA og framkvæmdastjórninni um að nám fyrir 1. febrúar yrði viðurkennt í samræmi við núgildandi reglur.

Fjórða bóluefnið samþykkt

Tilkynnt var 11. mars að bóluefni frá Janssen (sem er hluti af Johnson & Johnson samsteypunni) hefði hlotið skilyrt markaðsleyfi innan ESB. Er þar um fjórða bóluefnið að ræða gegn Covid-19 sem leyft er. Evrópusambandið hefur tryggt aðildarríkjunum allt að 400 milljón skammta en einn slíkur dugir hverjum einstaklingi ólíkt því sem á við um hin bóluefnin þrjú.

Boðað hefur verið að framkvæmdastjórnin kynni 17. mars næstkomandi tillögu að reglum um heilsufarsskilríki sem einstaklingar sem hafa verið bólusettir, fengið neikvætt Covid-19 próf eða hafa veikst og náð sér aftur geti framvísað. Vonir standa til að slíkt rafrænt skírteini (Digital green pass eins og það er kallað á ensku) geti auðveldað ferðalög milli landa.

EES-EFTA athugasemd við matvælastefnu ESB

Í byrjun mars sl. lögðu EES-ríkin fram sameiginlega EES-EFTA-athugasemd gagnvart ESB hvað varðar F2F stefnuna svokölluðu, en slíkar athugasemdir eru ein þeirra leiða sem EES-EFTA ríkin geta beitt til þess að taka þátt í mótun löggjafar ESB. Í athugasemdunum sem lögð voru fram gagnvart ESB er almennum stuðningi lýst við „Farm to fork“ stefnuna hvað varðar sjálfbær matvælakerfi, þar sem m.a. er vísað til þeirrar vinnu sem unnin hefur verið á vettvangi EES/EFTA-ríkjanna eins og til dæmis aðgerðir við að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmis. Í athugasemdinni er lögð áhersla á að sameiginleg landbúnaðar- og sjávarútvegsstefna ESB séu utan EES-samningsins. Þá er einnig lögð áhersla á að frumkvæðisvinna að lagasetningu sem er EES-tæk verði metin heildstætt með tilliti til áhrifa á matvælakerfi, umhverfisáhrifa og samfélagslegra markmiða.

Sameiginlegar EES-EFTA athugasemdir snúast ekki einungis um tækifærið til að hafa áhrif á lagasetningu heldur einnig að standa vörð um hagsmuni ríkjanna sem standa að athugasemdinni og gera ríkin sýnilegri. Vert er að hafa í huga að um er að ræða stefnu sem hefur áhrif á þá löggjöf sem tekin hefur verið upp í EES-samninginn og innleidd hefur verið á Íslandi.

Bakgrunnur

Grænn sáttmáli fyrir Evrópu (e. Green Deal) er eitt fyrirferðamesta málið á dagskrá núverandi framkvæmdastjórnar Evrópu. Um er að ræða umfangsmikla áætlun sem ætlað er að tryggja áframhaldandi hagsæld Evrópu sem byggir á því að vistkerfi jarðarinnar séu heilbrigð og nýting náttúruauðlinda sjálfbær. Sáttmálanum er ætlað að tryggja kolefnishlutlausa Evrópu árið 2050 og því verði gripið til markvissra aðgerða til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda auk þess að aðlaga samfélög og efnahagskerfi Evrópu að áhrifum loftslagsbreytinga. Þá er sáttmálanum ætlað að stuðla að hringrásar hagkerfi og vernda náttúruauðlindir og líffræðilegan fjölbreytileika.

Frá býli til borðs

Liður í græna sáttmálanum er hin svokallaða „Farm to fork“ (F2F) stefna sem ætlað er að tryggja umskipti í sjálfbært matvælakerfi innan ESB sem verndar fæðuöryggi og tryggja aðgang að hollum matvælum frá heilbrigðri plánetu. Stefnan er sérstök að því leyti að þetta er í fyrsta sinn sem matvælastefna ESB hefur heildstæða stefnu sem nær yfir öll stig matvælakeðjunnar og setur bæði neytendur og framleiðendur í forgrunn. Stefnunni er ætlað að draga úr umhverfis- og loftslagsspori matvælaframleiðslu ESB, styrkja framleiðslu matvæla, vernda heilsu íbúa Sambandsins og tryggja lífsviðurværi þeirra.

Stefnan leggur fram nokkur meginmarkmið sem Evrópusambandið hyggst ná fyrir árið 2030, þ.m.t.

að draga úr notkun og hættu á varnarefnum um 50%,

draga úr notkun áburðar um a.m.k. 20%,

draga úr sölu á sýklalyfjum til notkunar í eldisdýrum og fiskeldi um 50%

·og að 25% af landsvæðinu skuli nýtt í lífrænan búskap.

Þá leggur stefnan áherslu á að komið verði á lögboðnum samræmdum merkingum matvæla (e. Front of Pack Labelling) innan 2 ára.

Stefnunni fylgir aðgerðaráætlun með 27 átaksverkefnum sem unnið skal að til ársins 2025. Tvö þessara átaksverkefna eru tiltölulega almenn, er það annars vegar rammi um sjálfbæra matvælaframleiðslu sem setur sameiginlegar meginreglur og skilgreiningar og hið síðara er gerð viðbragðsáætlunar til að tryggja framboð og aðgang að matvælum og kom það verkefni til vegna Covid-19 faraldursins. Þá eru 25 átaksverkefni sem snúa að setningu nýrra reglugerða eða endurskoðun gildandi reglugerða eins og t.d.:

að tryggja sjálfbæra matvælaframleiðslu (frumframleiðsla),

stuðla að sjálfbærri vinnslu og flutningum (fæðukeðja),

stuðla að sjálfbærri og heilbrigðri neyslu,

·og að draga úr matarsóun (öll virðiskeðjan).

Evrópusambandið hefur lýst áhuga sínum á að EES/EFTA-ríkin taki þátt í gerð viðbragðsáætlunar vegna fæðuframboðs á krepputímum.

Fyrir liggur að stefnan er víðtæk og átaksverkefnin sem undir hana heyra falla bæði utan og innan EES-samningsins. Þá verður einnig að hafa í huga að upp kunna að koma álitamál hvað verkefni þessi varðar sem tengjast matvælalöggjöfinni sem tekin hefur verið upp í EES-samninginn en eiga uppruna sinn í sameiginlegu landbúnaðar- og/eða sjávarútvegsstefnu ESB sem Ísland er ekki aðili að.

Mikilvægt er að Ísland vakti þá vinnu sem heyrir undir F2F-stefnuna sem fer fram á vettvangi ESB sem varðar jafnt beina sem og óbeina hagsmuni Íslands.

Aðgerðaáætlun um félagsleg réttindi

Framkvæmdastjórn ESB kynnti 4. mars sl. aðgerðaáætlun um félagsleg réttindi fram til 2030. Stefnt er að því að a.m.k. 78% íbúa á aldrinum 20-64 ára hafi atvinnu, a.mk. 60% fullorðinna hljóti starfsþjálfun á hverju ári og þeim sem séu í áhættuhópi vegna fátæktar eða félagslegrar útskúfunar fækki um a.m.k. 15 milljónir manna.

26. febrúar 2021 | Leiðtogar ræða öryggis- og varnarmál og taka stöðuna á faraldrinum |
Sendiráðið í Brussel fylgist náið með því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins. Undanfarið hefur þetta borið hæst:

Fundur leiðtogaráðs Evrópusambandsins með aðalframkvæmdastjóra NATO

Í dag, föstudag, fór fram seinni lota fundar leiðtogaráðs Evrópusambandsins. Þessi lota var helguð öryggis- og varnarmálum og hófst á ávarpi Jens Stoltenberg aðalframkvæmdastjóra NATO. Stoltenberg lagði áherslu á að hvað varðar NATO sé meginverkefnið meðan á Kóvíð standi að tryggja að heilbrigðiskrísan breytist ekki í öryggiskrísu. Ýmsar ógnir séu til staðar, s.s. aðgerðir Rússlands, aukin harka í hryðjuverkum, vandaðar netárásir, ris Kína og áhrif loftslagsbreytinga á öryggismál. Evrópa og Norður Ameríka þurfa saman að glíma við þessar ógnir.

Af hálfu ESB var m.a. áhersla lögð á umræður um brýna hagsmuni evrópskri öryggis- og varnarmálastefnu, þ.e. að styrkja stefnu Evrópusambandsins í öryggis- og varnarmálum, að styrkja getu ESB til að geta gripið til sjálfstæðra aðgerða og ýta undir brýna hagsmuni og gildi bandalagsins á alþjóðasviðinu, og loks að bæta samband ESB við bandamenn í öryggis- og varnarmálum, sérstaklega NATO. Einnig var rætt hvernig auka mætti viðnámsþrótt ESB gegn netárásum og blönduðum ógnum (e. hybrid threats).

Charles Michel, forseti leiðtogaráðsins, lýsti því yfir að sambandið hygðist styrkja samstarf við NATO og að unnið yrði náið með nýjum stjórnvöldum í Bandaríkjunum. Æðsti fulltrúi sambandsins í utanríkis- og öryggismálum, Joseph Borell gerði grein fyrir þróun á svokallaðs áttavita (e. strategic compass) sem mun vera leiðarvísir ESB í öryggis- og varnarmálum (sjá nánar hér: https://eeas.europa.eu/headquarters/headquarters-homepage/89047/towards-strategic-compass_en). Undirbúningur að gerð hans hófst í tíð þýsku formennskunnar og lýkur þegar Frakkar taka við. Áttavitanum er ætlað að styrkja öryggis- og varnarsamtarf ESB, en er enn sem komið verk í vinnslu.

Einnig var rætt um bandalagið til suðurs (e. southern partnership), sem er grundvallað á sameiginlegri sögu og landafræði. Samstarf ESB við nágranna þess til suðurs inniheldur tíu samstarfslönd; Alsír, Egyptaland, Ísrael, Jórdaníu, Líbanon, Líbíu, Marokkó, Palestínu, Sýrland og Túnis. Markmið þess er að styrkja stöðugleika og öryggi á svæðinu. Hugmyndir eru um aukinn metnað og frekari samvinnu í því skyni að verja brýna hagsmuni Evrópusambandsins á svæðinu. Þannig mun 2,3 milljörðum Evra vera veitt til stuðnings þangað vegna Kóvíð, bæði til heilbrigðismála en einnig til efnahagslegrar uppbyggingu.

Rætt var um aðgerðaráætlun ESB, sem kynnt var fyrr í vikunni. Aðgerðaráætlunin snýst um hvernig nýta mætti borgaralegan-, hergagna- og geimiðnaðinn í borgaralegum tilgangi t.d. Eurodrone. ESB mun nota fjármuni úr sameiginlegum sjóðum til að þróa slíka tækni.

Enda þótt NATO sé gríðarlega mikilvægt fyrir ESB, þá þarf ESB að taka sjálft ábyrgð á eigin öryggi. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, sagði það vera vandamál hversu brotakennd hernaðargeta Evrópusambandsins væri. Þróa þyrfti aflann sameiginlega, deila styrk (e. resources), þannig samlegð (e. interoperability) yrði úr. Vísaði hún í því samhengi til PESCO (e. Permanent Structured Cooperation) og CARD (e. the Coordinated Annual Review on Defence). Meðlimir leiðtogaráðsins, enda þótt mikilvæg skref hefðu verið tekin í þá átt, hyggjast dýpka og auka samvinnu á sviði öryggis- og varnarmála sem og að auka útgjöld til varnarmála. Í því skyni skuldbundu leiðtogarnir sig til að:

Bæta virkni ESB á sviði borgaralegrar og hernaðarlegra þátttöku, m.a. gegnum Evrópsku friðarstofnunina (e. European Peace Facility),

Hvetja aðildarríki til að nýta betur CARD og nota að fullu PESCO,

Styrkja varnartækni og iðnaðargrunn Evrópu, m.a. gegnum Evrópska varnarsjóðinn (e. European Defence Fund),

Tryggja öruggan aðgang að geimnum, netheimum og alþjóðlegum hafssvæðum, og bæta hreyfanleika herja gegnum Evrópu.

Leiðir til að auka framboð bóluefnis og bólusetningarvottorð

Á fyrri degi leiðtogafundar ESB, þ.e. í gær, fimmtudag, var staðan tekin á faraldrinum, þ. á m. leiðir til að auka framleiðslu og dreifingu bóluefnis og bólusetningarvottorð.

Fyrir fundinn lagði framkvæmdastjórnin ríka áherslu á að hún vinni náið með bóluefnisframleiðendum að því að auka framleiðslugetu þeirra og tryggja að þeir geti staðið við gerða samninga, m.a. í samstarfi við aðra lyfjaframleiðendur. Jafnframt að hún vinni náið með aðildarríkjum að því að geta hrint bólusetningaráætlunum í framkvæmd um leið og rætist úr framboðinu. Á öðrum ársfjórðungi er búist við að 300 milljón skammtar fari í umferð í samanburði við 50 milljón skammta á þeim fyrsta, þar af hafi 29 milljón þegar verið dreift. Það þýði að 6,4% ESB-borgara hafi verið bólusettir eða 8% fullorðinna. Samkvæmt áætlunum framkvæmdastjórnarinnar er búist við lokið verði við að bólusetja 70% fullorðinna í ESB eða 255 milljón manns.

Forseti leiðtogaráðsins Charles Michel sagði eftir fundinn að framleiðsla bóluefnis haldi áfram að vera í algerum forgangi og unnið sé að framleiðsluaukningu. Bóluefni séu þegar framleidd á 41 stað í Evrópu, en hægt væri að virkja miklu fleiri. Hann hvatti til að framleiðendur leggi saman krafta sína í því skyni og nefnd voru dæmi af því tagi. Hann gekk þó ekki lengra í að knýja þau til samstarfs og athygli vakti að von der Leyen áréttaði að ekki stæði til að skylda lyfjaframleiðendur til samstarfs (voluntary sharing of licensing).

Í máli von der Leyen kom fram að nýju afbrigðunum héldi áfram að vaxa fiskur hrygg. Breska afbrigðið hafi þegar komið fram í öllum aðildarríkjum nema einu, s-afríska í 14 og brasilíska í 7. Af þeim sökum þurfi að leggja aukna áherslu á raðgreiningu jákvæðra sýna og fjárfesta í þróun og uppfærslu bóluefna til samræmis við niðurstöður þeirra. Fram kom að framkvæmdastjórnin muni verja 200 milljónum evra til að gera aðildarríkjum kleift að raðgreina sýni í auknum mæli.

Fram kom í máli Michel og von der Leyen að einhugur hafi verið um að vinna sameiginlega að þróun bólusetningarvottorðs (vaccine certificate) í því skyni að draga úr ferðatakmörkunum og hleypa lífi í ferðaþjónustu. Ekkert mæli á móti því að aðildarríkin vinni hvert að sinni tæknilausn en framkvæmdastjórnin þurfi að tryggja að mismunandi tækni geti talað saman (interoperable). Hátæknifyrirtækin Apple og Google hafi þegar boðið fram ákveðnar lausnir í því skyni en talið er að þróun þeirra geti tekið allt að 3 mánuði. Á hinn bóginn sé mörgum öðrum spurningum ósvarað, bæði að því er varðar notkun þeirra og þýðingu. Mikilvægt sé að tryggja samræmda nálgun í því samhengi. Að svo stöddu liggi t.a.m. ekki fyrir vísindalegar niðurstöður um hvort bólusettur einstaklingur geti áfram smitað aðra jafnvel þótt fyrstu vísbendingar frá niðurstöðum rannsókna í Ísrael bendi til að svo sé ekki. Mörg ríki óttist að einstaklingum verði mismunað eftir því hvort þeir hafi slík vottorð eða ekki. Önnur bendi á að vottorðin verði til í einni eða annarri mynd hvort eð er. Betra sé að ESB stígi fram og samræmi útgáfu þeirra. VDL tók undir það og sagðist vonast til að margt af þessu skýrist fyrir leiðtogafundinn í mars.

Von der Leyen lagði einnig áherslu á að ESB hafi tvöfaldað framlag sitt til Covax og veiti nú stærstu framlögin til þess samstarfs eða 2,2 milljarða evra. Fyrstu 600.000 skammtarnir á þess vegum hafi þegar ratað til Ghana. Auk Afríku muni V-Balkan og S-Ameríka njóta góðs af Covax samstarfinu. Enginn verði óhultur fyrr en allir séu það.

Framkvæmdastjórnin finnur að landamæralokunum

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur varað sex aðildarríki við því að hindranir sem þau hafa komið upp á landamærum sínum vegna farsóttarinnar gangi of langt. Ríkin sex eru Þýskaland, Belgía, Danmörk, Finnland, Ungverjaland og Svíþjóð. Það eru einkum þýsk stjórnvöld sem hafa sætt gagnrýni fyrir að grípa til takmarkana sem hafa haft afdrifarík áhrif á umferð um landamærin frá nágrannaríkjum eins og Tékklandi, Slóvakíu og Austurríki. Framkvæmdastjórnin vísar í tilmæli ráðherraráðsins frá því í október og sem endurskoðuð voru fyrir skemmstu. Eru ríkin sex krafin svara um það hvernig aðgerðirnar samræmist þessum sameiginlegu viðmiðunum.

Viðbúnaður vegna nýrra afbrigða veirunnar

Framkvæmdastjórn ESB hefur að skerpt á áherslum sínum í viðureign sinni við heimsfaraldurinn með því að kynna til leiks nýja viðbragðsáætlun, nefnd HERA Incubator. HERA er skammstöfun fyrir nýja stofnun sem þegar hafði verið tilkynnt að sett yrði á laggirnar (e. European Health Emergency Preparedness and Response Authority) og er því um nokkurs konar vísi að þeirri stofnun að ræða. Eftir að hafa legið undir ámæli fyrir hægagang og tafir á dreifingu bóluefnis, er þessari áætlun fyrst og fremst ætlað að auka viðbragðsflýti í baráttunni gegn nýjum veiruafbrigðum og hefta útbreiðslu þeirra. Samkvæmt henni munu vísindamenn, líftæknifyrirtæki, framleiðendur og stjórnvöld í ESB-ríkjum og heim allan taka höndum saman um aðgerðir til að greina hratt ný afbrigði, þróa bóluefni við þeim, flýta markaðssetningu þeirra og auka framleiðslugetu lyfjaframleiðenda.

Meðal aðgerða sem gripið verður til er að:

Verja 75 milljónum evra til að þróa próf sem nema ný afbrigði og stuðla að raðgreiningu þeirra.

Verja 150 milljónum evra til að auka rannsóknir og upplýsingaskipti um ný afbrigði.

Stofna til samstarfs um klínískar rannsóknir 16 aðildarríkja og 5 samstarfsríkja þeirra, þ.á m. Ísraels og Sviss, og skiptast á upplýsingum um niðurstöður, m.a. að því er varðar börn og ungmenni.

Flýta samþykki fyrir nýjum bóluefnum byggðum á verkferlum fyrir afgreiðslu markaðsleyfa fyrir bóluefni við nýjum inflúensu-stofnum.

Styðja við framleiðslu nýrra og aðlagaðra bóluefna við nýjum afbrigðum.

Vinna með framleiðendum að því að tryggja öryggi afhendingar og draga úr líkum á að flöskuhálsar myndist.

Hvetja til samvinnu milli framleiðenda og auka framleiðslugetu innan ESB.

Áætlun um aðlögun að loftslagsbreytingum - þú tryggir ekki eftir á

Framkvæmdastjórn ESB samþykkti 24. febrúar sl. nýja áætlun er varðar aðlögun að loftslagsbreytingum. Markmið áætlunarinnar er að Evrópusambandið verði loftslagsþolið (e. climate-resilient ) samfélag árið 2050. Eitt af því sem takast þarf á við er tryggingavernd vegna tjóns af hamfaratjóns sem rekja má til loftslagsbreytinga. Að sögn framkvæmdastjórnarinnar eru einungis um 35% af slíku tjóni tryggð. Hætt er þá við að reikningurinn lendi að stærstum hluta hjá skattgreiðendum. Framkvæmdastjórnin sér fyrir sér að fá tryggingageirann til að axla meiri ábyrgð í þessu efni.

Nýja áætlunin byggir á eldri áætlun Evrópusambandsins frá árinu 2013 um sama efni og á endurmati hennar frá árinu 2018. Með nýju áætluninni er Evrópusambandið að stíga skref frá skipulagningu yfir í innleiðingu aðgerða til aðlögunar að loftslagsbreytingum. Framkvæmdastjórnin hefur óskað eftir stuðningi við áætlunina frá þingi og leiðtogaráði Evrópusambandsins. Framkvæmdastjórnin hvetur einnig hagsmunaaðila að taka virkan þátt í innleiðingu áætlunarinnar. Sjá nánar: https://ec.europa.eu/clima/sites/clima/files/adaptation/what/docs/eu_strategy_2021.pdf

Bráðabirgðafyrirgreiðsla til að takast á við atvinnuleysi

Á fundi fjármálaráðherra ESB 16. febrúar sl. var margt á dagskrá sem endranær. Samkvæmt venju höfðu ráðherrar Evrulandanna fundað deginum áður þar sem farið yfir mikilvægi og stöðu evrunnar í fjármálamörkuðum í dag. Ljóst er að stjórnarskiptin í Bandaríkjunum og aukin þátttaka þeirra á alþjóðavettvangi mun styrkja dollarann á ný á kostnað evrunnar með tilheyrandi vonbrigðum fyrir ESB.

Í upphafi fundar var rætt um fjármálamarkaðinn og lagabreytingar sem þar eru í gangi. Eins og áður er fjártæknipakkinn (FinTech package) og sameiginlegur innri markaður ESB um fjármálastofnanir (Banking Union) ásamt sameiginlegum innstæðutryggingasjóði þar efst á blaði.

Aðalumræðuefni var þó eins og við var að búast staða og horfur í efnahagsmálum aðildarríkjanna. Inn í hana fléttaðist umræða um Bjargráðasjóðinn (Recovery and Resilience Facility) og hvenær honum verður ýtt úr vör. Fyrst var fjallað efnahagshorfur fyrir ESB í heild. Eftir meira en 6% samdrátt VLF, á árinu 2020 er útlit fyrir 3,7% hagvöxt á árinu 2021 og 3,9% árið 2022, þökk sé bólusetningu við kórónavírusnum. Gert er ráð fyrir svipaðri þróun í heimsbúskapnum á sama tímabili. Áhersla var hins vegar lögð á það að hér væri einungis um meðaltöl að ræða. Mörg aðildarríki hefðu farið mun verr út úr faraldrinum efnahagslega en önnur, sem þýðir að hraði í endurreisn þeirra verður mismunandi.

Reglugerðin um Bjargráðasjóðinn hefur þegar verið samþykkt. Hún var birt í Stjórnartíðindum ESB þann 18. febrúar. Í framhaldinu munu aðildarríkin hvert fyrir sig senda framkvæmdastjórninni endurreisnaráætlun sína með formlegum hætti, en lokafrestur er til 30. apríl. Framkvæmdastjórnin hefur síðan 2 mánuði til að fara yfir þær, þ.e. til loka júní, en þá tekur ráðherraráðið við með sínar fjórar vikur. Það verður því ekki fyrr en í haust (ágúst-sept.) sem endanleg niðurstaða liggur fyrir um hvernig stuðningur ESB dreifist á einstök aðildarríki.

Eins og áður hefur verið fjallað um mun ESB ráðast í útgáfu skuldabréfa sem fjármagna eiga Bjargráðasjóðinn að mestu leyti. Þegar er komin í gang bráðabirgðafyrirgreiðsla, nefnd SURE (Support to mitigate Unemployment Risks in an Emergency), til að draga úr hættu á atvinnuleysi. Hér er um lánveitingu

Milljarðar evra

Skipting %

1. Ítalía

27,40

30,3

2. Spánn

21,30

23,6

3. Pólland

11,20

12,4

4. Belgía

7,80

8,6

5. Portúgal

5,90

6,5

6. Rúmenía

4,10

4,5

7. Grikkland

2,70

3,0

8. Írland

2,50

2,8

9. Tékkland

2,00

2,2

10. Slóvenía

1,10

1,2

11. Króatía

1,00

1,1

12. Slóvakía

0,63

0,7

13. Litháen

0,60

0,7

14. Búlgaría

0,51

0,6

15. Ungverjaland

0,50

0,6

16. Kýpur

0,48

0,5

17. Malta

0,24

0,3

18. Lettland

0,19

0,2

Samtals

90,30

100,0

að ræða sem getur numið allt að 100 milljörðum evra í heild og upphæð lánsins fer eftir því hversu alvarleg áhrifin eru í hverju ríki. Með öðrum orðum, markmið SURE er að vernda borgara ESB fyrir alvarlegum neikvæðum áhrifum kórónavírusins, bæði félagslega og efnahagslega. Að baki þessum lánum er solidarísk ábyrgð aðildarríkjanna sem byggir á þjóðartekjum þeirra eins og þær voru við samþykkt fjárlaga ESB fyrir árið 2020. Ráðherraráðið hefur þegar samþykkt lán fyrir um 90,3 milljarða evra til 18 aðildarríkja samkvæmt þessari áætlun, þar af hafa 53,5 milljarðar evra verið greiddir til 15 ríkja. Lánveitingarnar skiptast eins og fram kemur í töflu 1 að framan. Þar sést að Ítalía, Spánn og Pólland taka til sín 66,3% af heild, eða tvær evrur af hverjum þremur. Leiða má að því líkur að skipting endurreisnarfjármagnsins úr Bjargráðasjóðnum verði eitthvað svipuð þessari í töflu 1. Það sem helst kemur á óvart er hversu hátt Belgía raðast í skiptingunni.

Næst var rætt um nýjar tekjuöflunarleiðir (new own resources) og lögfestingu þeirra. Þar vegur þyngst skattlagning netfyrirtækja (digital taxation) og aukinn kolefnisskattlagning, m.a. yfir landamæri (cross-border CO2 tax). Á fundinum kom fram að sex aðildarríki hefðu þegar lögfest umrædda skattlagningu en öll ríkin 27 þurfa að gera slíkt hið sama fyrir mitt ár, eða áður en ráðist verður í skuldabréfaútgáfu ESB í júní á þessu ári sem á að fjármagna Bjargráðasjóðinn.

Að lokum átti að samþykkja ESB listann (EU black list) yfir ósamvinnuþýð ríki eða svæði í skattamálum. Það tókst hins vegar ekki vegna ágreinings um hvort Tyrkland ætti að fara á listann eða ekki, en Tyrkir hafa verið mjög tregir að afhenda nokkrum aðildarríkjum ESB gögn um bankainnstæður evrópskra ríkisborgara. Sömuleiðis hafa verið í gangi nokkuð lengi vandræði hvað varðar sambærileg upplýsingaskipti við Bandaríkin (FATCA). Vonast er til að við valdaskiptin þar leysi þau mál.

12. febrúar 2021 | Tökin hert á ytri og innri landamærum |
Sendiráðið í Brussel fylgist náið með því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins. Undanfarið hefur þetta borið hæst:

Tvenn tilmæli uppfærð

Ráðherraráð Evrópusambandsins samþykkti í fyrstu viku febrúar breytingu á tvennum tilmælum sem eiga við um takmarkanir á ferðafrelsi vegna Covid-19. Í ljósi stöðu faraldursins í álfunni og hættunnar af stökkbreyttum afbrigðum veirunnar er hér í báðum tilvikum um að ræða hertar reglur.

Aðildarríkin ættu, skv. breytingum á tilmælum um ytri landamæri Schengen, að krefjast þess af öllum einstaklingum sem ferðast frá 3ju ríkjum, hvort sem þar er í nauðsynlegum tilgangi eða ekki, að þeir geti framvísað neikvæðu PCR-prófi sem tekið er í fyrsta lagi 72 klst. fyrir brottför. Undantekning er þó gerð varðandi ríkisborgara ESB ríkja eða þá sem þar eru búsettir innan ESB og geti þá farið í PCR-próf eftir komu.

Þá gildir að komi farþegi frá ríki þar sem afbrigði veirunnar, sem veldur áhyggjum, hefur verið greint þá skuli mæla fyrir um sóttkví og viðbótarpróf eftir komu. Sjá nánar https://www.consilium.europa.eu/media/48152/st_5712_2021_rev_2_en.pdf

Að því er varðar tilmæli um innri landamæri Schengen er tekinn upp nýr litaflokkur fyrir kort sem Evrópska sóttvarnastofnunin birtir, þ.e. dökkrautt, ef smittíðni er yfir 500/100.000 undanfarnar 2 vikur. Þess nýi litur bætist við grænan, appelsínugulan og rauðan.

Hvatt er til þess að þegar farþegar komi frá dökkrauðum svæðum þá sé krafist prófs sem tekið er fyrir brottför og sóttkvíar við komuna. Sams konar aðgerðir gætu átt við um svæði þar sem er mikil útbreiðsla afbrigða veirunnar sem valda áhyggjum. Með prófi er vísað bæði til PCR-prófs og viðurkennds skyndiprófs.

Þó er gert ráð fyrir að þegar íbúar eru að snúa heim þá geti þeir farið í próf við komuna í stað prófs fyrir brottför. Sjá nánar https://www.consilium.europa.eu/media/48122/st05716-en21-public.pdf

Ef endurskoðuð tilmæli ESB eru borin saman við íslenskar reglur, þ.e. einkum reglugerð heilbrigðisráðherra nr. 18/2021 um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19, þá má benda sérstaklega á tvö atriði þar sem munur er á nálgun.

Reglugerðin gerir ekki ráð fyrir að framvísað sé neikvæðu prófi fyrir brottför á meðan tilmæli ESB gera það varðandi komur frá dökkrauðum svæðum innan EES og frá 3ju ríkjum (sbr. þó undanþágu fyrir þá sem eru á heimleið og geta þá farið í próf við komuna í staðinn).

Reglugerðin undanskilur þá sóttvarnaraðgerðum á landamærum sem geta framvísað vottorðum um fyrri sýkingu sem er afstaðin eða bólusetningarvottorði. Tilmæli ESB taka ekki sérstakt tillit til slíkra einstaklinga.

Samráð um aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur hafið opið samráð um aðgerðir til að takast á við ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi. Þátttakendur eru beðnir að svara ítarlegum spurningalista og verða niðurstöður notaðar til að undirbúa löggjafartillögur sem framkvæmdastjórnin hefur boðað síðar á þessu ári. Samráðið stendur frá 8. febrúar til 10. maí.

Fundur sameiginlegu EES nefndarinnar

Óvenjumargar gerðir voru teknar upp í EES samninginn þegar sameiginlega EES nefndin kom saman á fyrsta fundi sínum á þessu ári, en hann fór fram 5. febrúar sl. og var það jafnframt fyrsti fundur á formennskutímabili Íslands sem hófst um áramótin. Á fundinum voru 170 gerðir teknar í samninginn í 85 sameiginlegum ákvörðunum nefndarinnar. Þetta er mikið stökk upp á við sé miðað við síðastliðið ár þegar fjöldi ákvarðana á hverjum fundi var lengst af á bilinu 20-30 og fjöldi gerða á bilinu 25-45.

Eins og endranær kennir ýmissa grasa á listanum en gerðir á sviði heilbrigðis dýra og plantna voru flestar eða 75 talsins. Þrjár gerðir á listanum voru teknar inn á hann með hraði en þær tengjast aðgerðum ESB sem rekja má til heimsfaraldurs; ein er á sviði ríkisaðstoðar og tvær varða flugafgreiðslu og flugrekstrarleyfi. Einnig má þar finna gerðir sem varða losun koltvísýrings frá ýmiss konar ökutækjum, gerðir á sviði fjármálaþjónustu og gerðir um vefsetur opinberra aðila og smáforrit þeirra fyrir snjalltæki, svo eitthvað sé nefnt. Loks má nefna gerðir sem varða leyfileg efni í hársnyrtivörum og naglalökkum sem teknar voru upp í samninginn að þessu sinni.

Skattlagning á alþjóðleg netfyrirtæki

Eitt heitasta umræðuefnið á vettvangi ESB þessa dagana, ef frá er talin bólusetning gegn Covid19, er væntanleg skattlagning netrisa eins og Amazon, Facebook, Google o.fl. á alþjóðavísu. Efnahags- og framfarastofnunin í París, OECD, hefur undanfarna mánuði unnið hörðum höndum að því að finna aðferð til þess, m.a. í umboði ESB og G20 ríkjanna. Í lok janúar var haldinn fundur um málið þar sem fram kom mikill vilji til að fá niðurstöðu í því sem allra fyrst. Eins og við var að búast heyrðust þó ýmsar efasemdaraddir á fundinum, m.a. um aðferðir við skattlagninguna og einnig hvort skynsamleg lausn fyndist yfirhöfuð.

Nú beinast sjónir allra að nýskipuðum fjármálaráðherra Bandaríkjanna, Janet Yellen, en Bandaríkin ásamt Kína hafa hingað til verið helstu andstæðingar hugmyndarinnar. Ekki er ólíklegt að málið komi til tals á fundi seðlabankasérfræðinga G20 ríkjanna þann 26. febrúar nk. þar sem Janet Yellen verður viðstödd ásamt sínum sérfræðingum. Það eru ekki hvað síst aðildarríki ESB sem bíða spennt eftir viðbrögðum Yellen, enda liggur fyrir vilji þeirra til að taka upp slíkan skatt frá miðju þessu ári. Sú skattlagning er liður í því að borga til baka þá 750 milljarða evra sem þau þurfa að taka að láni fyrir Bjargráðasjóðinn (e. Recovery Fund) sem endurvekja á efnahagskerfi aðildarríkjanna eftir faraldurinn.

Samráð um breytingar á tilskipun um vernd umhverfisins

Fyrirhugaðar eru breytingar á tilskipun um vernd umhverfisins með refsiákvæðum. Opið samráð er hafið á vef framkvæmdastjórnarinnar og stendur það yfir til 3. maí nk. Markmið tilskipunarinnar, sem hefur verið innleidd í Íslenskan rétt með lögum nr. 44/2017 https://www.althingi.is/altext/stjt/2017.044.html , er að vernda umhverfið með refsiákvæðum, viðeigandi viðurlögum og samvinnu yfir landamæri. Samkvæmt mati framkvæmdastjórnarinnar hefur núgildandi tilskipun ekki náð markmiði sínu. Með breytingunni á að taka til endurskoðunar gildissvið tilskipunarinnar, tegund og stig viðurlaga við brotum, dómsmálasamstarf, skipulagða glæpi, söfnun tölfræðigagna og löggæslu. Sjá á vef framkvæmdastjórnarinnar: https://ec.europa.eu/info/law/better-regulation/have-your-say/initiatives/12779-Improving-environmental-protection-through-criminal-law

29. janúar 2021 | Óvissa vegna nýrra afbrigða veirunnar |
Sendiráðið í Brussel fylgist náið með því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins. Undanfarið hefur þetta borið hæst:

Enn reynir á þolrifin

Á meðan almenn bjartsýni ríkti fyrir nokkrum vikum vegna nýrra bóluefna sem litu dagsins ljós hvert á fætur öðru þá hefur heldur þykknað upp að undanförnu. Evrópusambandið hefur þurft að verja innkaupastefnu sína og áform lyfjafyrirtækjanna um afhendingu hafa riðlast. Enn er þó opinber stefna Evrópusambandsins að hægt verði að bólusetja um 70% fullorðinna fyrir júnílok eins og kom fram á leiðtogafundi í liðinni viku. Það sem veldur mestum ugg eru hins vegar ný afbrigði veirunnar sem breiðast hraðar út en þau upphaflegu og þar sem óvissa ríkir að einhverju marki um hvort bóluefni dugi.

Ekkert lát er á útbreiðslu farsóttarinnar í Evrópu og stjórnvöld sjá sig knúin til að herða aðgerðir bæði innanlands og á landamærum. Ljóst er að næstu vikur og mánuðir verða erfiðir vegna þess að enn þarf að höfða til samstöðu og þolgæðis almennings án þess að hafa skýr svör um hvenær komist verði úr kófinu.

Hertar aðgerðir á landamærum

Almenn afstaða Evrópuríkjanna virðist vera sú að ferðalögum milli ríkja og jafnvel innan þeirra eigi að halda í lágmarki til að hamla gegn útbreiðslu farsóttarinnar. Af þeim sökum er nú til umræðu að herða sóttvarnaaðgerðir á landamærum. Þannig leggur framkvæmdastjórn ESB til að komufarþegum frá ríkjum utan EES verði gert að framvísa neikvæðu PCR-prófi fyrir brottför. Sama eigi við um komufarþega innan EES sem komi frá þeim svæðum þar sem smittíðni er hæst. Er lagt til að bæta eldrauðum lit við vikulegt kort Evrópsku sóttvarnastofnunarinnar til að endurspegla svæði þar sem smitttíðnin er yfir 500/100.000 íbúa sl. 14 daga. Sjá nánar: ec.europa.eu/commission/presscorner/detail/en/ip_21_195

Hóta útflutningshömlum

Það olli óróa í vikunni að lyfjafyrirtækið AstraZeneca kvaðst ekki geta uppfyllt fyrirheit um afhendingu bóluefna. Svo virðist sem fyrirtækið telji skuldbindingar gagnvart öðrum en ESB-ríkjum ganga að einhverju leyti framar. Framkvæmdastjórinn sem ber ábyrgð á heilbrigðismálum hótaði því fyrir vikið að settar yrðu á útflutningshömlur til að þvinga lyfjafyrirtækið til að standa við orð sín. Minnti hún á að tvær af fjórum verksmiðjum fyrirtækisins sem framleiða myndu bóluefnið væru innan ESB-landa. ec.europa.eu/commission/presscorner/detail/en/speech_21_267

Beðið í ofvæni eftir Bjargráðasjóðnum

Á fundi efnahags- og fjármálaráðherra ESB 19. janúar sl. var fjallað um þau mál sem efst eru baugi á þeirra sviði næstu vikur og mánuði. Þar bar hæst umræðu um reglur Bjargráðasjóðsins svokallaða (Recovery and Resilience Facility) og framkvæmd þeirra sem aðildarríkin bíða óþreyjufull eftir að komist í gagnið, ekki síst þau sem verst hafa orðið úti í kórónaveirukreppunni. Valdis Dombrovskis, sem var talsmaður framkvæmdastjórnarinnar á fundinum, sagði að framundan væru mörg og stór verkefni fyrir aðildarríkin, en undirbúningur þeirra hefði gengið vel. Þegar hefðu ellefu aðildarríki skilað drögum að endurreisnaráætlunum sínum (Recovery Plans), en formlega samþykktar áætlanir þurfa að liggja fyrir áður en aflað verður lánsfjár til að fjármagna sjóðinn. Vonast er til að Evrópuþingið samþykki reglugerð um stofnun sjóðsins í febrúar fyrir formlega samþykkt leiðtogaráðsins þannig að hún komi til framkvæmda fyrir lok febrúar. Áhugavert verður að fylgjast með framvindu þessa flókna og viðamikla verkefnis á næstu vikum. Hér verður án efa tekist á um útfærslur einstakra ríkja á áætlunum og sömuleiðis um útgreiðslureglur sjóðsins (disbursement rates).

Áherslumál portúgölsku formennskunnar tóku líka mikið pláss á fundinum, en innleiðing Bjargráðasjóðsins er eitt af þeim. Annað mikilvægt mál er styrking efnahags- og myntbandalagsins þar sem sameiginlegur innstæðutryggingasjóður er ofarlega á blaði. Frekari aðgerðir gegn peningaþvætti eru líka ræddar undir þessum hatti. Þriðja áherslumálefni Portúgala er að takast á við nýjar áskoranir, þ.á m. á sviði umhverfis- og stafrænna umbreytinga. Þar kennir ýmissa grasa eins og stafræn og sjálfbær þróun fjármálamarkaðarins og áframhaldandi vinna við skattalegar áskoranir í stafrænu hagkerfi. Einnig undirbúningur að upptöku nýrra tekjustofna sem tengist fjármögnun Bjargráðasjóðsins. Þar má, auk stafræna skattsins, nefna upptöku kolefnisskatts yfir landamæri og fleiri umhverfisskatta.

Lán í vanskilum/frystingu, og meðferð þeirra eftir kórónaveirukreppuna, voru einnig rædd á fundinum, en hlutfall þeirra af eignasöfnum bankanna hefur farið hækkandi. Árið 2017 samþykkti leiðtogaráðið aðgerðaáætlun varðandi meðferð slíkra lána, en ljóst er að hana þarf að endurbæta og hraða þeim aðgerðum sem út af standa í ljósi ástandsins nú. Þar er sérstaklega horft til þess að skapa eftirmarkað fyrir slík lán til að skapa betri möguleika á að viðskiptabankar geti losað sig við slík lán úr eignasöfnum sínum. Öðru vísi verða þeir vart tilbúnir til að fjármagna þær nýju fjárfestingar sem nauðsynlegt er að fara í til að efnahagshjólin fari að snúast á ný. Í tengslum við þessa umræðu fóru ráðherrarnir yfir stöðu lagafrumvarpa á sviði fjármálaþjónustu, þar meðal innstæðutryggingar og fjártæknipakkann (FinTech package).

Að lokum má nefna umræðu um kerfisáhættuskýrslu 2021 og tilmæli um efnahagsaðgerðir á evrusvæðinu. Í sambærilegri skýrslu frá í febrúar 2020 kemur fram að níu aðildarríki hafi fengið formlegar viðvaranir (in-depth reviews; IDRs) um að grípa til aðgerða (Frakkland, Holland, Írland, Króatía, Portúgal, Rúmenía, Spánn, Svíþjóð og Þýskaland) og nú bætast a.m.k. þrjú við, þ.e. Grikkland, Ítalía og Kýpur. Nokkur önnur lönd eru talin í hættu eins og Danmörk og Ungverjaland. Eftirfarandi er slóð á kerfisáhættuskýrsluna 2021 ec.europa.eu/info/sites/info/files/economy-finance/alert_mechanism_rep.

Utanríkissamskipti á sviði loftslags- og orkumála

Sem upptaktur í undirbúningi ESB fyrir loftslagsráðstefnuna í Bretlandi síðar á þessu ári (COP 26) hefur staðið yfir þróun á áherslum ESB í utanríkissamskiptum á sviði loftslags- og orkumála. Á ráðherrafundi 25. janúar sl. voru samþykktar ítarlegar niðurstöður sem nálgast má hér: www.consilium.europa.eu//media/48057/st05263-en21.pdf?utm_source=dsms-auto&utm_medium=email&utm_campaign=Council+adopts+conclusions+on+climate+and+energy+diplomacy.

Áherslur ESB lúta m.a. að hvatningu til allra ríkja heims að auka skuldbindingar sínar þegar kemur að takmörkun útblásturs. Þá er vísað til tengingar loftslagsmála við öryggis- og varnarmál og mikilvægi þess að styrkja samstarf á því sviði, sérstaklega á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Þá er vísað til framlags ESB þegar kemur að því að hraða alþjóðlegri fjármögnun á sviði loftslagsmála. Í orkumálum mun ESB leggja áherslu á hröðun orkuumbreytingar í heiminum og tækniþróun þegar kemur að endurnýjanlegum orkugjöfum. Hluti af þeirri stefnu verður að letja fjárfestingar í innviðum sem tengjast jarðefnaeldsneyti í þriðju ríkjum, með áherslu á Afríku.

Samráð um innstæðutryggingar

Framkvæmdastjórn ESB efnir nú til samráðs um endurskoðun reglna um innstæðutryggingar. Þar er meðal annars leitað eftir afstöðu almennings og hagsmunaaðila til þess hvort taka eigi upp evrópskt innstæðutryggingakerfi. Þetta málefni er á forgangslista ríkisstjórnarinnar.

Innri markaðurinn í brennidepli

Á meðal þess sem fram kemur í iðnaðarstefnu ESB frá 2020 (e: Industrial Strategy) er að sterkur innri markaður sé lykillinn að því að ná megi markmiðum ESB um grænar sem stafrænar áherslur.

Til að styðja aðildarríki ESB og EFTA löndin enn frekar við innleiðingu og framkvæmd allra þeirra reglna sem gilda um innri markaðinn hefur verið sett á laggirnar sérstakur hópur, SMET (Single Market Enforcement Task-force), sem er ætlað að greina helstu hindranir á virkni innri markaðsins.

Ljós sé að Evrópa þurfi að þétta raðirnar enn frekar og nýta sameiginlegan kraft innri markaðarins. Stök ríki standi ekki undir þeim viðfangsefnum sem við blasa. Bregðast þurfi hratt við nýjustu tæknibyltingunni, sem stendur fyrir dyrum, og tryggja verði að hún verði borgurum ESB happadrjúg. Því þurfi öfluga, en jafnframt skýra, stefnu svo takast megi á við stór mál eins og aðgang að orku, hráefni, tölfræðilega gagnagrunna og ekki síst nauðsyn þess að mannauðurinn búi yfir réttu færninni.

Evrópskur iðnaður þarf að taka stefnu ESB um kolefnishlutleysi og sjálfbærni föstum tökum svo álfan verði reiðubúin fyrir framtíðina og hæf í alþjóðlegri samkeppni. Stafræna byltingin, sem og grænar áherslur, skapar ný tækifæri en einnig áskoranir, sérstaklega ef halda á samstöðu og forðast mismunun á milli þjóðfélaga. Það er ljóst að sum svæði verða fyrir meiri áhrifum en önnur og þá er mikilvægt að skilgreina vel þá þekkingu og færni sem nauðsynleg er í iðnaði og huga að þjálfun og endurmenntun starfsmanna.

Samkvæmt áætluninni er hvorki stefnt að því að vernda ósamkeppnishæfan iðnað né styðja verndarstefnu, heldur skapa réttar aðstæður fyrir frumkvöðla til að koma hugmyndum í framkvæmd og fyrir fyrirtæki af öllum stærðum til að vaxa og dafna. Þá er hnykkt á því að evrópskur iðnaður megi ekki sofna á verðinum gagnvart ríkjum eða starfsemi utan ESB sem grefur undan sanngjarnri samkeppni á innri markaðinum eða alþjóðlega. Ekki liggur fyrir hvernig sætta á þessi markmið en ljóst að samkeppnisreglur þurfa með einhverjum hætti að rúma hvort tveggja ríkisaðstoð og samruna stórra fyrirtækja.

EFTA löndunum hefur verið boðið að taka þátt í starfi SMET og eru vonir bundnar við að á fundi SMET nú í lok þessari viku takist að ná betur utan um þetta víðfeðma verkefni. Ísland tekur þátt í starfi SMET.

15. janúar 2021 | Aðgangur að bóluefni í brennidepli |
Sendiráðið í Brussel fylgist náið með því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins. Undanfarið hefur þetta borið hæst:

ESB svarar gagnrýni á pöntun bóluefna

Framkvæmdastjórn ESB hefur legið undir ámæli að undanförnu fyrir hæga framvindu bólusetninga í Covid-faraldrinum. Hefur þá til dæmis verið bent á að Bandaríkin, Bretland og Ísrael byrjuðu fyrr en ESB-ríkin að bólusetja með bóluefni sem er þó þróað og framleitt í Evrópu.

Forseti framkvæmdastjórnarinnar svaraði þessari gagnrýni á blaðamannafundi 8. janúar sl. um leið og hún tilkynnti um að ESB hefði tryggt sér aðgang að tvöföldu því magni sem áður hafði verið pantað frá Pfizer/BioNTech, samtals 600 milljón skammta. Bólusetningarátakið var jafnframt aðalumræðuefnið í hádegisverði hennar með fastafulltrúum ESB 13. janúar sl.

Af svörum framkvæmdastjórnarinnar má ráða að tafir á dreifingu bóluefnisins í upphafi sé helst að rekja til þriggja mismunandi þátta:

Eftirspurnin hafi verið langt umfram framleiðslugetu lyfjaframleiðendanna jafnvel þótt ESB hafi þegar sl. sumar útvegað þeim lán til að auka hana.

Markaðsleyfi Lyfjastofnunar Evrópu séu öruggari en neyðarleyfin sem veitt hafi verið annars staðar en krefjast lengri undirbúningstíma

Flöskuhálsar hafi komið fram við skipulagningu dreifingar í aðildarríkjunum sums staðar vegna skorts á innviðum

Þegar framkvæmdastjórnin hóf gerð forkaupsréttarsamninga í júní sl. vissi enginn hver lyfjaframleiðendanna yrði hlutskarpastur í kapphlaupinu um gerð bóluefnisins. Verðin fóru hækkandi og til að tryggja sér ákveðna hlutdeild höfðu fjögur Evrópuríki frumkvæði að því að tryggja sér 400 milljón skammta frá AstraZeneca. Framkvæmdastjórnin tók þessa samninga yfir enda var hún talin vera í betri stöðu til að semja bæði um verð og stærri skammta af hverjum framleiðenda, auk þess að geta tryggt jafnan aðgang aðildarríkjanna. Til að leggja ekki öll eggin í sömu körfu var samið við fleiri framleiðendur um mismunandi stóra skammta. Gagnrýnin nú beinist m.a. að því að framkvæmdastjórnin hafi sóað dýrmætum tíma í að þjarka við lyfjafyrirtækin um verð á bóluefni sl. sumar og ekki veðjað á rétta hesta. Samið hafi verið um stórar pantanir á ódýrara bóluefni við AstraZeneca o.fl. sem skemur voru á veg komin með þróun þeirra en minni skammtar hafi á hinn bóginn verið pantaðir af dýrara efni frá Moderna og Pfizer/BioNTech jafnvel þótt niðurstöður prófana þeirra hafi þá þegar lofað góðu. Þetta hafi orðið til að Ísrael, Bandaríkin og Bretland hafi náð ákveðnu forskoti með sínar pantanir jafnvel þótt stærsta einstaka pöntunin hjá Pfizer/BioNTech – fyrst 300 milljónir skammta og nú 600 milljónir – komi frá ESB.

Af hálfu framkvæmdastjórnarinnar hefur Stella Kyriakides (Health commissioner) hafnað því að tafir á bólusetningu stafi af slæmri skipulagningu. Flöskuhálsar í dreifingu bóluefnis í Evrópu stafi öðru fremur af takmarkaðri framleiðslugetu lyfjaframleiðendanna (production capacity shortage). Margir þessara framleiðenda hafi ekki verið stórir, s.s. BioNTech og Moderna. Framkvæmdastjórnin hafi því sl. sumar liðkað fyrir að Pfizer/BioNTech fengju 100 milljón evru lán frá Evrópska fjárfestingarbankanum (EIB) til að auka framleiðslugetu sína og að hún sé reiðubúin að greiða fyrir að meira verði lagt af mörkum í því skyni bæði fyrir Pfizer/BioNTech og aðra lyfjaframleiðendur.

Framkvæmdastjórnin hefur einnig bent á að fleiri bóluefni séu á næsta leiti og að framkvæmdastjórnin hafi þegar tryggt 450 milljón ESB-borgurum og nágrönnum þeirra meira en 2 milljarða skammta frá 7 mismunandi lyfjaframleiðendum.

Pfizer/BioNTek fékk markaðsleyfi í lok desember, Moderna fyrr í janúar og þá hefur verið boðað að AstraZeneca fái markaðsleyfi í lok janúar og Janssen (Johnson & Johnson) um miðjan febrúar. Tvö hin síðarnefndu eru talin mun auðveldari í flutningi en tvö hin fyrrnefndu, auk þess sem ekki þarf að bólusetja nema einu sinni með bóluefni frá Johnson & Johnson til að tryggja hámarksvirkni. ESB hefur tryggt sér 200 milljón skammta af því með möguleika á að bæta við pöntunina.

Tímalínur um afhendingu eru eftir sem áður nokkuð óljósar. Í máli Von der Leyen 8. janúar sl. kom fram að Evrópa muni hafa aðgang að nægu bóluefni innan öruggs tímaramma (Europe will have more than enough vaccines in a reliable time frame) og á fundi með fastafulltrúum gagnvart ESB 13. janúar taldi hún að í apríl myndi vandinn fremur snúa að vörslu bóluefnanna (storage capacity) og getu aðildarríkjanna til að dreifa þeim og bólusetja.

Þrátt fyrir að þetta lofi góðu eru nákvæmar upplýsingar um afhendingu enn af skornum skammti. Í máli Von der Leyen 8. janúar sagði hún að 75 milljónir skammta af seinni pöntuninni frá Pfizer/BioNTeck yrðu til reiðu á öðrum ársfjórðungi 2021. Mögulega stendur það í tengslum við opnun nýrrar verksmiðju Pfizer/BioNTech í Þýskalandi í næsta mánuði en vonir eru bundnar við að það muni hraða framleiðslunni töluvert. Áður hafði komið fram að fyrirtækið væri ekki skuldbundið til að hafa lokið afhendingu á 2/3 fyrri pöntunarinnar frá ESB fyrr en í september á þessu ári og þyrfti ekki að standa skil á síðasta þriðjungnum nema fyrir árslok.

Framkvæmdastjórnin hefur einnig verið gagnrýnd fyrir að undirbúningur markaðsleyfis af hálfu Lyfjastofnunar Evrópu (EMA) virðist taka mun lengri tíma en annars staðar, þ. á m. í Bandaríkjunum og í Bretlandi. Því hefur stofnunin svarað með því að benda á ákveðinn greinarmun á þeim leyfum sem hún veitir annars vegar og Bretland og Bandaríkin hins vegar. Munurinn er fólginn í því að bráðaleyfin í Bretlandi og Bandaríkjunum létti í raun allri ábyrgð af framleiðendum bóluefnisins en það eigi ekki við um skilyrt markaðsleyfi EMA.

Flugrekendur saka ESB um skilningsleysi

Í því skyni að koma til móts við vanda flugfélaga vegna kórónufaraldursins lagði framkvæmdastjórn ESB fram tillögu í lok árs 2020 um að létta á kröfum um nýtingu lendingartíma (slots) flugfélaga en úthlutun lendingartíma hefur ávallt farið eftir skýrum reglum til að tryggja nýtingu flugvalla, hlutleysi og gagnsæi.

Hingað til hafa reglurnar kveðið á um að nýta þurfi 80% lendingartíma til að fá að halda þeim í næstu flugáætlun en nýju reglurnar kveða á um að lækka þröskuldinn í 40%. Samhliða voru kynnt ýmis skilyrði til að tryggja samkeppnisstöðu flugvalla og flugfélaga og koma í veg fyrir svokölluð ,,draugaflug“, eða að hálftómum vélum sé flogið til að koma í veg fyrir að félögin missi lendingartímann, sem er eingöngu til þess fallið að auka útblástur gróðurhúsalofttegunda.

Tillagan byggir á spám um að farþegafjöldi sumarið 2021 verði að lágmarki 50% af fjöldanum 2019 og 40% sé því raunhæft viðmið.

Flugrekendur eru fjarri því sáttir og telja þessa spá óraunhæfa. Nauðsynlegt sé að ganga lengra í ljósi mesta krísuástands í þessum geira sem sögur fara af. Framkvæmdastjórn ESB hafi algjörlega hunsað ráðleggingar þessara aðila og sérfræðiálit þeirra sé að engu haft.

Tillagan er nú til umfjöllunar í Evrópuþinginu og ráðinu og leitast þessir aðilar, með fulltingi Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, IATA, við að hafa áhrif þar í von um liprari reglur og að fá þröskuldinn lækkaðan jafnvel niður í 20%.

Fastanefndin í Brussel mun fylgjast með framvindu málsins.

Endurskoðuð neysluvatnstilskipun

Í desember samþykkti Evrópuþingið endurskoðun á neysluvatnstilskipun sem unnið hefur verið að síðan í febrúar 2018. Nýja tilskipunin mun tryggja öllum Evrópubúum öruggari aðgang að vatni. Á sama tíma eru settar metnaðarfullar kröfur varðandi drykkjarvatn, í takt við háleit markmið fyrir eiturefnalaust umhverfi sem tilkynnt var um í „Græna sáttmálanum“. Tilskipunin byggir á tillögum sem framkvæmdastjórnin lagði fram á sínum tíma. Löggjöf þessi fellur undir skuldbindingar Íslands samkvæmt EES-samningnum, þá hefur þetta mál verið á forgangslista ríkisstjórnarinnar. Árið 2018 var sérfræðingahópur skipaður af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu til að vinna að endurskoðun á regluverki um neysluvatn og til að vera til ráðgjafar á þessu sviði.

Portúgalska formennskan – félagslegar áherslur

Portúgalir tóku við formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins 1. janúar sl. Þeir hyggjast meðal annars leggja áherslu á félagslega stoð Evrópusamvinnunnar. Þannig verði fjallað um framtíðarþróun starfa, góð vinnuskilyrði, símenntun og félagslega samheldni. Fylgt verði eftir drögum að tilskipun um lágmarkslaun og mikilvægi samtals aðila vinnumarkaðar og kjarasamninga. Mótuð verði evrópsk stefna um öryggi og hollustuhætti við vinnu, sem væri ekki síst mikilvægt sem viðbrögð við farsóttinni. Þá verði jafnréttismál ofarlega á baugi, þar með talið launagagnsæi og jöfn kynjahlutföll í stjórnum fyrirtækja.

Að öðru leyti mun áframhaldandi samræming á viðbrögðum við heimsfaraldri Covid-19 verða fyrirferðarmikil í formennskutíð Portúgala, ásamt grænni uppbyggingu og stafrænni umbyltingu samfélagsins. Sjálfstæð og sjálfbær Evrópa er einnig í forgrunni, meðal annars þegar kemur að nauðsynlegum innviðum, nýsköpun og tækni. Þá munu Portúgalar einnig leggja áherslu á tengsl Evrópusambandsins við umheiminn og horfa til þess að styrkja samskipti við Bandaríkin og Indland svo eitthvað sé nefnt.

Fríverslunarsamningar Breta í stað EES-aðildar

Bretland og Evrópusambandið (ESB) náðu samkomulagi um viðskipta- og samstarfssamning á aðfangadag (e. UK-EU Trade and Cooperation Agreement ). Samningnum verður beitt til bráðabirgða frá og með 1. janúar 2021 til 28. febrúar 2021, þegar ráðgert er að samningurinn taki gildi til frambúðar.

Samningurinn samanstendur af hefðbundnum fríverslunarsamningi auk málaflokka sem alla jafna er ekki fjallað um í fríverslunarsamningum, s.s. um samstarf á sviði samhæfingar almannatryggingakerfa, innri öryggismála, sjávarútvegsmála (fiskveiðiheimilda), loftferða og rannsókna.

EFTA-ríkin þrjú innan EES, Ísland, Noregur og Liechtenstein, hafa verið í samhliða viðræðum við Bretland um víðtækan fríverslunarsamning. Samningur ESB og Bretlands mun hafa jákvæð áhrif á þessar fríverslunarviðræður og er þess vænst að þeim ljúki fljótlega á þessu ári.

Kjarnahagsmunir Íslands á sviði viðskipta við Bretland voru tryggðir með bráðabirgðafríverslunarsamningi sem gerður var 8. desember sl.

Samningurinn tryggir óbreytt tollkjör vegna vöruviðskipta við Bretland. Þá hafa átt sér stað bréfaskipti á milli Íslands og Bretlands um matvælaeftirlit, tæknilegar reglugerðir og flæði persónuupplýsinga til að tryggja að Bretland veiti Íslandi ekki lakari meðferð en það mun veita ESB eftir áramót.

Jafnframt hafa flugsamgöngur á milli Íslands og Bretlands verið tryggðar með undirritun loftferðasamnings nú skömmu fyrir jól.

Niðurstöður Bretlands og ESB á sviði sjávarútvegs varða Ísland ekki beint, því Bretland og Ísland deila ekki öðrum fiskistofnum en flökkustofnum, en um þá er samið í strandríkjaviðræðum viðkomandi ríkja. Vert er að minna á að fyrr í haust undirrituðu sjávarútvegsráðherrar ríkjanna samstarfssamning á sviði sjávarútvegs sem býður upp á aukið samstarf ríkjanna og útvegarins í þessum mikilvæga málaflokki.

Umsögn íslenskra stjórnvalda um flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar

Eins og sagt var frá í síðasta fréttabréfi hafa drög að afleiddum reglugerðum er lúta að flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar verið birt í samráðsgátt Evrópusambandsins. Fjármála- og efnahagsráðuneytið og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hafa sent inn sameiginlega umsögn þar sem flokkun vatnsaflsvirkjana sem fjárfestingarkosts er andmælt í drögum framkvæmdastjórnarinnar. Orkustofnun og Orkuveita Reykjavíkur sendu einnig inn andmæli við kröfum sem gerðar eru til jarðvarmavirkjana í samanburði við virkjun vind- og sólarorku. Hér eru slóðir að umsögnum þeirra:

https://ec.europa.eu/info/law/better-regulation/have-your-say/initiatives/12302-Sustainable-finance-EU-classification-system-for-green-investments/F1346298

https://ec.europa.eu/info/law/better-regulation/have-your-say/initiatives/12302-Sustainable-finance-EU-classification-system-for-green-investments/F1346279

Mikill fjöldi umsagna barst í samráðsferlinu og er búist við að fyrstu niðurstöður þess verði kynntar á kynningarfundi sem framkvæmdastjórnin hefur boðað til í lok janúar.

18. desember 2020 | Metnaðarfyllri markmið í loftslagsmálum |
Sendiráðið í Brussel fylgist náið með því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins. Síðustu tvær vikur hefur þetta borið hæst:

Formennskuáætlun Íslands

Á fyrri hluta næsta árs mun Ísland gegna formennsku í Fastanefnd EFTA og þannig leiða samræmingu á afstöðu EES/EFTA ríkjanna og vera í forsvari fyrir þau í samskiptum við Evrópusambandið. Fyrir liggur formennskuáætlun Íslands þar sem lögð er áhersla á áframhaldandi samvinnu um viðbrögð við heimsfaraldrinum, að standa vörð um framkvæmd og uppfærslu EES-samningsins og virka hagsmunagæslu við mótun gerða sem varða innri markaðinn. Jafnframt verður formennskan nýtt til að kynna framlag Íslands til nýsköpunar í loftslags- og orkulausnum í samhengi við Græna sáttmála ESB og markmið um að draga úr losun gróðurhúslofttegunda um 55% árið 2030.

Rammi um starfsemi netvanga

Frumvörp að stafrænni þjónustulöggjöf ESB (Digital Services Act) og stafrænni markaðslöggjöf (Digital Markets Act) voru kynnt til sögunnar 15. desember s.l. og er löggjöfinni ætlað að leysa af hólmi tuttugu ára gamalt regluverk um rafræn viðskipti (e-Commerce).

Um er að ræða yfirgripsmikinn lagapakka sem er ætlað að leiða stafræna framtíð Evrópu, styrkja innri markaðinn enn frekar og fjalla um ábyrgð þjónustuaðila svo vernda megi grunngildi ESB sem snúa m.a. að réttindum og vernd íbúa álfunnar.

Netvangar (online digital platforms) af ýmsu tagi hafa stóreflt innri markað ESB og veitt neytendum aðgang að fjölbreyttara vöruúrvali og þjónustu. Viðskipti yfir landamæri, og þar með stækkun markaða, hafa ekki síður gefið fyrirtækjum tækifæri til að vaxa og eflast. Það er þó öllum ljóst að netið er einnig farvegur fyrir ólöglegan varning, hatursumræðu og aðra umdeilda háttsemi.

Löggjöfinni er fyrst og fremst ætlað að efla innri markaðinn á sviði rafrænnar þjónustu og auka samkeppnishæfni Evrópu á þessu sviði en einnig að tryggja öryggi viðskiptavinarins og taka á augljósum vandamálum. Er það gert með því að setja ramma utan um netvanga, þar á meðal markaðstorg, samfélagsmiðla, leitarvélar, vídeóleikjasvæði og aðra þjónustu á netinu. Mun löggjöfin því m.a. fjalla um ólöglegt efni sem birt er, auglýsingasiðferði og falsfréttir.

Jafnframt er löggjöfinni ætlað að höggva í samkeppnisforskot risafyrirtækja á borð við Apple, Amazon, Facebook og Google en eins og staðan er núna má segja að þessir stóru aðilar ráði markaðinum og neytandinn því verulega háður þeim. Ætlunin er að skylda þau til að hleypa að minni framleiðendum hugbúnaðar og þjónustu.

Tímasetning á birtingu frumvarps að stafrænni þjónustulöggjöf er að margra mati fullkomin þar sem COVID ástandið hefur heldur betur sýnt fram á hvernig almenningur og atvinnulíf treystir á rafræna þjónustu.

Í Brussel eru þó einnig uppi efasemdir um að frumvörpin verði samþykkt með hraði enda aðildarríkin með mjög mismunandi áherslur á þessu sviði. Þá muni stórfyrirtækin sem sótt er að halda áfram að verjast fimlega.

Hvað sem því líður er um að ræða stórmál sem á eftir að hafa veruleg áhrif á heimsvísu.

Áætlun um netöryggi

Framkvæmdastjórn ESB gaf 16. desember sl. út nýja netöryggisáætlun sem er ætlað að styrkja viðbúnað sambandsins gegn netógnum. Áætlunin inniheldur tillögur að löggjöf, fjárfestingum og stefnumótandi verkefnum, sem ná til innviða, fullveldis ESB í tæknimálum og styrkingar alþjóðasamvinnu á þessu sviði. Í tengslum við þetta kom einnig út ný tillaga að netöryggistilskipun (NIS 2) sem varðar EES. NIS-tilskipunin miðar að því að efla og samhæfa öryggisstig í net- og upplýsingakerfum mikilvægra innviða samfélaga og þar með viðnámsþrótt gegn netógnum. Markmiðið með þessari nýju tillögu er að bæta úr annmörkum á gildandi tilskipun, víkka út gildissvið og aðlaga hana að nýju landslagi þegar kemur að netógnum.

Samkomulag um afgreiðslu fjárhagsáætlunar til lengri tíma

Í tæka tíð fyrir leiðtogafund ESB 10. og 11. desember sl. náðist samkomulag um útistandandi atriði vegna nýrrar 7 ára fjárhagsáætlunar og bjargráðsjóðs. Pólverjar og Ungverjar höfðu lagst gegn afgreiðslunni vegna tengingar sem ákveðin hafði verið fyrr á árinu við meginreglur réttarríkisins. Fyrir fundinn lögðu Þjóðverjar til að áður en hægt væri að grípa til þess að svipta aðildarríki rétti til fjárframlaga vegna vandamála á þessu sviði væri hægt að bera fyrirkomulagið undir Evrópudómstólinn. Það mun gera það að verkum að 1-2 ár geta liðið áður en á nýja úrræðið reynir. Í yfirlýsingu frá leiðtogafundinum er áréttað að um þrautavaraúrræði er að ræða, til dæmis þarf að vera ótvírætt orsakasamhengi milli annmarka í lýðræðis- og réttindamálum og fjárhagslegs tjóns sem Evrópusambandið gæti orðið fyrir. Pólsk og ungversk stjórnvöld féllust á þessa málamiðlun.

Þessi lausn málsins skiptir máli fyrir Ísland vegna þess að samstarfsáætlanir ESB eru þá fjármagnaðar, að minnsta kosti af hálfu sambandsins, og ættu þá að geta byrjað á fyrri hluta næsta árs, eins og ráð hefur verið gert fyrir. Það á sérstaklega við um áætlanir sem eru fastar í sessi, eins og Horizon Europe og Erasmsus+, en lengri tíma gæti tekið fyrir nýjar áætlanir eins og Health og Invest EU að komast í gagnið.

Uppfærð loftslagsmarkmið

Leiðtogaráð ESB ákvað á fundi sínum 10. desember sl. að uppfæra markmið ESB um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fram til ársins 2030. Markmið ESB er nú að nettó samdráttur verði að lágmarki 55% þegar árið 2030 er borið saman við árið 1990. Fyrra markmið á þessu tímabili var 40% en Evrópuþingið hefði viljað ganga enn lengra og ákveða 60% samdrátt. Breyta þarf löggjöf sambandsins til að hún endurspegli þessi markmið. Til lengri tíma er markmiðið um kolefnishlutleysi 2050 óbreytt.

Fram kemur í niðurstöðum fundarins ( www.consilium.europa.eu/media/47296/1011-12-20-euco-conclusions-en.pdf) að markmiðinu verði náð með sjálfbærum efnahagslegum vexti, nýjum störfum, aukinni lýðheilsu og með því að örva nýsköpun í grænni tækni.

Öll ESB ríkin standa saman að ákvörðuninni sem byggir að sögn á sanngirni og samstöðu þar sem ekkert ríki er skilið eftir. Ná verði nýju markmiði um samdrátt með því að verja samkeppnishæfni ESB og taka þurfi tillit til mismunandi aðstæðna innan ríkja ESB og möguleika þeirra til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Tryggja þurfi orkuöryggi allra ríkja ESB þannig að orka verði á viðráðanlegu verði fyrir heimili og fyrirtæki. Einnig þurfi að virða rétt aðildarríkjanna til að ákveða hvers konar orku þau vilji nota til að ná sameiginlegu markmiði fyrir árið 2030.

Fjármögnun verður með framlögum úr opinbera geiranum sem og frá atvinnulífinu, auk þess sem framkvæmdastjórn ESB mun setja fram tillögu er varðar græn skuldabréf (e. EU green bond standard) í júní 2021 í síðasta lagi.

Framkvæmdastjórnin mun einnig meta hvernig allir geirar efnahagslífsins geti best lagt sitt af mörkum til 2030 markmiðsins. Í því sambandi mun framkvæmdastjórnin leggja til nauðsynlegar tillögur ásamt mati á áhrifum þeirra á umhverfi, efnahag og félagslegar aðstæður í aðildarríkjunum þar sem tekið verður tillit til orku- og loftslagsáætlana hvers ríkis.

Framkvæmdastjórnin mun m.a. einnig leita leiða til að styrkja viðskiptakerfi með losunarheimildir (ETS kerfið), leggja til aðgerðir sem ýta undir nýsköpun í þróun kolefnishlutlausrar tækni í orkufrekum iðnaði og leggja til landamæraaðlögunarkerfi fyrir kolefni (e. Carbon border adjustment mechanism).

Fram kemur að leiðtogaráðið muni setja fram frekari leiðbeiningar áður en framkvæmdastjórnin leggur fram sínar tillögur og muni m.a. verða fjallað um framtíð „Effort sharing regulation“ við það tækifæri.

Grænt flokkunarkerfi fjárfestingarkosta („Taxonomy“) og vatnsorka

Evrópusambandið samþykkti nýlega reglugerð um flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar (e. sustainable investments). Þessi reglugerð gerir ráð fyrir að skilyrði fyrir því hvaða fjárfestingar verði taldar sjálfbærar eða grænar verði skilgreind í afleiddum reglugerðum (delegated acts). Þar undir getur fallið hvers kyns starfsemi sem talin er geta haft veruleg áhrif á umhverfið, bæði jákvæð eða neikvæð. Drög að þessum afleiddu reglugerðum hafa verið birt í samráðsgátt Evrópusambandsins og eru því enn í mótun. Þegar þær hafa verið afgreiddar má hins vegar búast við því að þær verði teknar upp í EES-samninginn. Hluti þeirra á að koma til framkvæmda á árinu 2022.

Orkuframleiðsla leikur stórt hlutverk þegar kemur að aðgerðum í loftslagsmálum. Fram til þessa verið talið að raforkuframleiðsla með vatnsafls- og jarðvarmavirkjunum, eins og við Íslendingar þekkjum best, uppfylli öll skilyrði til að teljast sjálfbær. Almennt er ekki ástæða til að óttast að svo verði ekki áfram. Á hinn bóginn virðist í fyrirliggjandi drögum sem raforkuframleiðsla með vatnsorku sé talin hafa minni græn áhrif en sólarorka og vindorka, sem er nýtt í sambærilega framleiðslu. Jafnframt hefur viðmið fyrir CO2 útblástur við framleiðslu raforku með vatnsafli verið hækkað frá því sem áður var áætlað en það skapar ákveðna hindrun fyrir hefðbundnar vatnsaflsvirkjanir. Sérfræðingar og hagsmunaaðilar á þessu sviði, bæði hér á landi og á annars staðar á Norðurlöndum, eru sammála um að sérfræðingar ESB hafi gengið of langt hvað þessi sjálfbærniviðmið fyrir vatnsorku varðar og verður athugasemdum og mótmælum við það komið á framfæri við framkvæmdastjórn ESB. Standa vonir til að mark verði tekið á þeim ríkjum sem mesta reynsluna hafa á þessu sviði. Þess ber að geta að mörg aðildarríki ESB gerðu sambærilegar athugasemdir við mat á vatnsorkunni eins og Norðurlöndin. Rétt er að taka fram að Ísland, Liechtenstein og Noregur hafa einungis áheyrnarrétt en ekki tillögurétt í þessari vinnu. EES/EFTA ríkin geta þó komið athugasemdum á framfæri við umfjöllun mála þar sem þau telja sig hafa hagsmuna að gæta eins og gagnvart þessu sem hér um ræðir.

Endurskoðuð dýraheilbrigðislöggjöf

Á fundi sameiginlegu EES-nefndarinnar 11. desember sl. var meðal annars ákveðið að taka nýja dýraheilbrigðislöggjöf ESB upp í EES-samninginn. Nýja löggjöfin á að taka gildi innan ESB 21. apríl 2021. Löggjöfin (e. Regulation (EU) 2016/429 on Animal Health) er um smitandi dýrasjúkdóma og um breytingu og niðurfellingu tiltekinna gerða á sviði dýraheilbrigðis. Ísland fellur ekki undir þessa löggjöf nema að því leyti er varðar fiskisjúkdóma, merkingar og rekjanleika nautgripa, innflutning dýraafurða, framleiðslu og dreifingu dýraafurða og tilkynningarskylda dýrasjúkdóma. Sérfræðingar hafa unnið að undirbúningi og greiningu hinna ýmsu gerða. Ekki er talið að þurfi lagabreytingu til að innleiða þann hluta löggjafarinnar sem Ísland þarf að innleiða. Settar verða reglugerðir m.a. á grundvelli laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma.

Stefnt að grænu flugi 2035

Framkvæmdastjórn ESB gaf út nýja samgöngustefnu 9. desember sl. Áhersla er lögð á vistvænar samgöngur sem eigi að leiða til þess að losun gróðurhúsalofttegunda minnki um 90% fram til ársins 2050. Flugið er þar mikil áskorun því jafnvel þótt nýjar flugfélagar séu sparneytnari en þær eldri þá er spáð áframhaldandi vexti í farþegaflugi. Stefnt er að því að stærri flugfélagar sem gangi fyrir endurnýjanlegum orkugjöfum verið komnar á markað árið 2035. Sjá ec.europa.eu/commission/presscorner/detail/en/IP_20_2329

Aðgerðaáætlun um lýðræði

Framkvæmdastjórn ESB gaf 3. desember sl. út aðgerðaáætlun um lýðræði. Þar kemur fram að lýðræði geti einungis þrifist þar sem er tjáningar- og upplýsingafrelsi. Stafræna byltingin hafi gerbreytt stjórnmálunum. Kosningabarátta fari nú að verulegu leyti fram á netinu. Því fylgi nýir möguleikar til að ná til kjósenda og þátttökumöguleikar, sérstaklega fyrir ungt fólk, aukist. Samhliða hafi nýir veikleikar komið í ljós og erfiðara sé orðið að vernda lýðræðislegt kosningaferli fyrir röngum og villandi upplýsingum og öðrum bolabrögðum. Starfræna þróunin hafi opnað möguleika á dulinni fjármögnun stjórnmálastarfs, tölvuárásir geti stofnað mikilvægum innviðum kosninga í hættu, blaðamenn sæti ofsóknum á netinu og rangar upplýsingar og þær sem ýti undir öfgaviðhorf dreifist hratt á samfélagsmiðlum, stundum vegna skipulagðra herferða. Þá magni algóriþmar stundum upp þessi neikvæðu áhrif.

Gildandi reglur um gagnsæi og jafnræði að því er varðar fjármögnun kosningabaráttu og útsendingartíma fyrir auglýsingar og kynningar henti ekki í stafrænu umhverfi. Verkfæri til kosningabaráttu á netinu verða enn öflugri þegar hægt er að samþætta persónuupplýsingar og gervigreind við sálræn persónusnið og flóknar aðferðir til einstaklingsbundinnar nálgunar. Í sumum tilvikum á persónuverndarreglugerðin við. En í öðrum ræðst svigrúmið af viðmiðum viðkomandi netþjónustufyrirtækis auk þess sem lögsögumál flækja málin. Áhyggjur af gagnsæi og ábyrgð slíkra fyrirtækja eru viðbótar áskorun. Stundum annast þau fréttamiðlun en eru jafnframt hliðverðir fyrir aðra án þess að lúta endilega reglum í viðkomandi landi.

Aðgerðaáætlunin beinist að stofnunum Evrópusambandsins, ríkisstjórnum, löggjafarþingum sem bera höfuðábyrgð á að tryggja að lýðræðið virki á eðlilegan máta en einnig að öðrum stjórnvöldum, stjórnmálaflokkum, fjölmiðlum, frjálsum félagasamtökum og netþjónustufyrirtækjum. Settar eru fram aðgerðir til að styðja frjálsar og sanngjarnar kosningar og öfluga lýðræðislega þátttöku, styðja frjálsa og sjálfstæða fjölmiðla og berjast gegn röngum og villandi upplýsingum.

Fram kemur að aukin þátttaka í nýlegum kosningum í Evrópusambandinu sýni að kjósendur hafi enn trú á atkvæðagreiðslu til að láta í ljós skoðanir og draga fulltrúa til ábyrgðar. Á sama tíma eru samfélagsmiðlar einn farvegur fyrir tilraunir til að hafa óeðlileg áhrif á almenningsálitið, letja til þátttöku í kosningum og draga þýðingu kosninga í efa. Þá hafa verið færðar fram sannanir um erlenda íhlutun.

Kjósendur og stjórnvöld verða að geta greint uppsprettu og tilgang pólitískra auglýsinga að því er segir í aðgerðaáætluninni. Á netinu er oft erfitt að greina pólitísk efni sem borgað hefur verið fyrir og halda því aðskildu frá öðru pólitísku efni, ekki síst vegna þess að oft getur það litið út fyrir að vera upprunalegt efni sem stafi frá öðrum. Þetta skapar réttaróvissu fyrir þjónustuveitendur, almannatengsla, en einnig fyrir stjórnmálaflokka og frambjóðendur og allan almenning og hefur áhrif á ábyrgð og eftirlit.

Framkvæmdastjórnin hyggst á árinu 2021 leggja fram tillögu að reglum um gagnsæi kostaðs pólitísks efnis. Þessi tillaga verður til viðbótar við reglur um auglýsingar á netinu í löggjöf um stafræna þjónustu með það fyrir augum að lagaramminn verði skýr í tæka tíð fyrir kosningar til Evrópuþingsins vorið 2024. Reglurnar munu beinast að þeim sem kosta borgað efni og öðrum hlutaðeigandi. Þá verður metið hvort þörf sé á sérstakri nálgun á meðan kosningabarátta stendur yfir. Tillagan mun skýra hverjir og hvers konar kostað efni falli undir auknar gagnsæiskröfur. Hún mun styðja við ábyrgð og gera kleift að fylgja eftir viðkomandi reglum. Þá mun framkvæmdastjórnin skoða að takmarka frekar beinskeyttar herferðir (e. micro-targeting) og notkun á sálfræðilegum svipmyndum (e. psychological profiling) í stjórnmálalegu samhengi. Þá kemur til álita að leggja sérstakar afmarkaðar og hóflegar skyldur á milligönguaðila á netinu, auglýsingafyrirtæki og fleiri í samræmi við stærð þeirra og áhrif (til dæmis merking efnis, geymsla gagna, birting upplýsinga, gagnsæi um verð, mælikvarðar á markvissa markaðssetningu og mögnun skilaboða). Þá gætu ákvæði fjallað um eftirlit sérstakra eftirlitsstofnana og skapað stoð fyrir samreglunar (e. co-regulatory) viðmið og fagleg viðmið.

Þá hyggst framkvæmdastjórnin auka viðbúnað til að styðja við bakið á kosningaferlum í aðildarríkjunum. Þegar er til staðar Evrópska samstarfsnetið um kosningar (e. European Cooperation Network on Elections), NIS-samvinnuhópur (e. Network and Information Systems Cooperation Group) og bráðaviðvörunarkerfi (Rapid Alert System). Gert er ráð fyrir að teymi sérfræðinga veiti ráðgjöf um til dæmis netöryggi og kosningar og sakamálarannsóknir sem tengjast starfsemi á netinu. Áfram verði hvatt til samstarfs stjórnvalda í aðildarríkjum varðandi sérstakar áskoranir eins og þær sem tengjast kosningabaráttu, eftirliti með kosningum, úrskurðum um ágreiningsmál og raunhæfum úrræðum. Hjálplegt muni vera að skilgreina kosningakerfi og ferla sem ómissandi innviði.

Þá verði sjónum einnig beint að jafnræði milli keppinauta í kosningum og jafnvægi í fjölmiðlaumfjöllun, hafandi í huga að hefðbundnir fjölmiðlar og netmiðlar lúta ekki sömu reglum. Nýta megi sérþekkingu fjölmiðlaeftirlitsstofnana í aðildarríkjunum sem saman myndi ERGA (e. European Regulators Group for Audiovisual Media Services) og siðanefnda og slíkra aðila sem fjölmiðlarnir hafa sjálfir komið á laggirnar. Í þessu sambandi er sérstaklega mikilvægt að standa vörð um heilindi í blaðamennsku og ritstjórn í tengslum við kosningar.

03. desember 2020 | Jólin í brennidepli |
Sendiráðið í Brussel fylgist náið með því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins. Í vikunni bar þetta hæst:

Jólahald með breyttu sniði

Evrópska sóttvarnastofnunin varar eindregið við að slakað verði á sóttvarnaaðgerðum um jólin. Kom þetta fram í máli Andreu Ammon, forstöðumanns stofnunarinnar, á fundi heilbrigðisráðherra ESB í gær, 2. desember. Fram kom hjá henni að smittíðni fari vissulega minnkandi í álfunni að meðaltali og sama eigi við um hlutfall smita af heildarfjölda sýna sem tekin eru. En þetta væru meðaltöl, í sumum ríkjum hefði farsóttin líklega náð hámarki en í öðrum væri hún enn á uppleið. Þá fjölgaði dauðsföllum enn og innlögnum á gjörgæslu. „Ég verð að undirstrika,“ sagði Ammon, „að það eru engin rök fyrir því að draga nú úr varúðarráðstöfunum.“ Ef slakað yrði á rétt fyrir jól myndi innlögnum fjölga í janúar. Ef slakað yrði á fyrr þá kæmi aukið álag fram um jólin. Sömu skilaboð komu fram í máli Stellu Kyriakides, framkvæmdastjóra ESB á sviði heilbrigðismála. Nú látast um 5000 manns á dag í ESB af völdum farsóttarinnar. Hún kvaðst skilja væntingar um að geta nú farið að slaka á. En staðan væri ekki sambærileg við sl. vor. Smit væru fleiri og aðstæður óhagstæðari að vetri til. Halda þyrfti núverandi takmörkunum – ekki síst um hátíðirnar – allt þar til bóluefni væri komið í víðtæka dreifingu.

Skíðasvæði í Austurríki opnuð með miklum takmörkunum

Þrátt fyrir að Angela Merkel kanslari Þýskalands hafi hvatt til þess á dögunum að Evrópubúar héldu skíðalaus jól tilkynntu stjórnvöld í Austurríki í gær að skíðasvæði þar yrðu opin. Takmarkanir eru þó það miklar að ekki má búast við ferðamannastraumi. Þannig verða hótel og gististaðir lokaðir og allir sem koma frá áhættusvæðum (smittíðni meira en 100/100.000 síðustu 14 daga) þurfa í 10 daga sóttkví. Það á við um flest nágrannalönd Austurríkis.

Ný tilmæli um jólahald og fleira

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins gaf í gær, 2. desember, út tilmæli um skjól yfir vetrarmánuðina andspænis Covid-19. Þar er gefið yfirlit yfir stöðuna varðandi þau úrræði sem virka best og horfur varðandi skyndipróf og bóluefni. Ekki standi rök til að slaka á yfir jólin. Hvetja eigi almenning til að einskorða samskipti við tiltekinn afmarkaðan hóp yfir jólin. Ef heimiluð séu samkvæmi þar sem fleiri koma saman en ella, vegna jólanna, þá sé ráðlegt að viðkomandi séu í sóttkví dagana á undan og eftir.

Staðan varðandi bóluefni

Forstöðumaður Evrópsku lyfjastofnunarinnar (EMA), Emer Cooke, hefur staðfest að sl. þriðjudag, 1. des., hafi borist umsóknir um markaðsleyfi fyrir bóluefni frá Pfizer/Biontech og Moderna. Umsóknir verði afgreiddar eins hratt og unnt er, væntanlega 29. desember fyrir það fyrrnefnda, og 12. janúar hið síðarnefnda. Þar hjálpaði til að EMA hefði byrjað að meta umsóknirnar fyrir allnokkru á grundvelli bráðabirgðagagna.

Á blaðamannafundi í tengslum við fund heilbrigðisráðherra ESB var spurt hvort sambandið væri of svifaseint í samanburði við Bretland sem gaf út tímabundið markaðsleyfi fyrir Pfizer/Biontech bóluefnið í gær, 2. desember. Stella Kyriakides, framkvæmdastjóri ESB á sviði heilbrigðismála, svaraði því til að öryggi bóluefnis væri í fyrirrúmi. Borgararnir yrðu að geta treyst því. Leyfisveitingunni yrði hraðað eins og kostur er. Þá kom fram hjá henni að bóluefnið sem slíkt væri ekki svarið heldur bólusetning. Vísaði hún þar til áskorana sem tengjast því að fá fólk til að gangast undir bólusetningu. Minnt var einnig á að ESB legði áherslu á að öll aðildarríkin fengju aðgang að bóluefni á sama tíma á jafnræðisgrundvelli.

Allir vildu Lilju kveðið hafa

Sendiherra Þýskalands í London, Andreas Michaelis, minnti bresk stjórnvöld á það að bóluefnið sem þar hefði nú hlotið tímabundið markaðsleyfi væri ekki eingöngu Bretum að þakka. „Af hverju er svona erfitt að viðurkenna að þetta skref ber vott um gríðarlegt alþjóðlegt átak og árangur,“ skrifaði hann á Twitter í gær, 2. desember. Þótt þýska fyrirtækið Biontech hefði þarna skipt sköpum þá væri engin ástæða til þjóðrembings. Þar vísaði hann til þess að aðstoðarráðherra í Orku- og efnahagsráðuneytinu, Alok Sharma, hafði lýst því stoltur yfir á Twitter að Bretland væri fyrsta ríkið sem hefði samið við Pfizer/Biontech og nú yrðu Bretar fyrstir til að taka það í notkun. Heilbrigðisráðherra Bretlands, Matt Hancock, hafði áður undirstrikað að Brexit gerði það að verkum að hægt hefði verið að heimila bóluefnið fyrr en í Evrópusambandinu.

Framtíð Schengen-samstarfsins

Á samráðsfundi um framtíð Schengen sem haldinn var 30. nóvember sl. var rætt um nauðsyn þess að efla samstarf aðildarríkjanna. Þátttakendur voru ráðherrar dóms- og innanríkismála og þingmenn á Evrópuþinginu. Af Íslands hálfu tóku þátt í fundinum ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytisins, sendiherra Íslands í Brussel og fulltrúi dómsmálaráðuneytisins í sendiráðinu. Helstu áskoranir nú eru tengdar Covid-19, þjóðaröryggismálum og komu umsækjenda um alþjóðlega vernd frá nálægum löndum sunnan og austan Evrópusambandsins. Þótt Schengen-snúist á yfirborðinu um landamæramál þá er þýðing frjálsrar farar yfir innri landamæri afar mikil fyrir efnahag og lífsgæði í aðildarríkjunum.

Umræður snerust um leiðir til að meta jafnharðan framkvæmd Schengen-reglna með það fyrir augum að koma auga á veikleika og bæta úr þeim. Þá var fjallað um mögulega endurskoðun reglna til að aflétta núverandi hömlum á umferð um innri landamæri Schengen og tryggja að reynist síðar nauðsynlegt að setja slíkar takmarkanir þá sé það neyðarúrræði sem standi í afmarkaðan tíma. Þátttakendur voru sammála um að ytri landamærin þyrfti að tryggja betur. Taka þyrfti sem fyrst í notkun nýtt kerfi sem heldur utan um ferðir um ytri landamæri (Entry/Exit System og European Traveller Information and Authorisation System).

Aukið samstarf löggæsluyfirvalda var gert að umtalsefni og umbætur í yfirstjórn Schengen-svæðisins.

Umræður voru líflegar enda hafa landamæramálin sjaldan verið jafn ofarlega á baugi og upp á síðkastið. Sum ríki voru gagnrýnd fyrir landamæratakmarkanir vegna Covid-19 sem stönguðust á við Schengen-reglur. Önnur kölluðu eftir mun strangara eftirliti með ytri landamærum sem væri forsenda þess að frjáls för innan svæðis gæti gengið upp.

Framkvæmdastjórn ESB áformar að leggja til nýja Schengen-stefnu um mitt næsta ár. Næsti samráðsfundur af þessu tagi verður vorið 2021.

Schengen-samstarfið hófst fyrir 35 árum. Nú eru aðildarríkin 26, þar með talið Ísland.

Auka þarf hlut rannsókna og nýsköpunar

Óformlegur fjarfundur vísindamálaráðherra ESB fór fram 27. nóvember sl. Á fundinum var rætt um markmið fyrir fjárfestingu í rannsóknum og nýsköpun sem sett hafa verið fram í orðsendingu framkvæmdastjórnarinnar um framtíð evrópska rannsóknasvæðisins, stöðu samningaviðræðna um fjárlagaramma ESB og Horizon Europe reglugerðina, þróun í opnum vísindum, sér í lagi EOSC (European Open Science Cloud) og Open Science Policy Platform, stöðu mála við undirbúning samfjármögnunarverkefna (svokallaðra „institutionalized partnerships“), sameiginlega vísindayfirlýsingu um viðbragðsáætlanir vegna heimsfaraldra og vinnuáætlun portúgölsku formennskunnar í ráðherraráðinu fyrir komandi tímabil.

Ráðherrarnir staðfestu á fundinum markmið um að áfram skyldi stefnt að því að 3% af landsframleiðslu ESB verði ráðstafað í rannsóknir og nýsköpun. Hlutfallið hefur í raun staðið í stað síðan 2010 og stendur nú í 2.19%.

Mikilvægi þess að efla og styrkja tæknilegt fullveldi (e. Technological sovereignty) Evrópu var einnig til umræðu en það hugtak hefur verið afar áberandi í pólitískri umræðu eftir að COVID-19 faraldurinn brast á. Leiðtogar ríkjanna hafa áhyggjur af því að álfan sé ekki nægilega sjálfstæð gagnvart bandarískum og kínverskum áhrifum og yfirráðum á sviði tækni en á hinn bóginn gjalda vísindamenn og talsmenn iðnaðar varhug við því að þrengja um of möguleika til samstarfs.

Þýski vísindamálaráðherrann fór yfir helstu mál sem hafa verið á dagskrá þýsku formennskunnar, sem fyrir utan samningaviðræður um Horizon Europe og framtíð Evrópska rannsóknasvæðisins voru: miðlun til almennings og þátttaka hans í vísindum, Bonn-yfirlýsingin um frelsi til vísindalegra rannsókna og mikilvægi kortlagningar græns vetnis (e. Green hydrogen). Varðandi það síðastnefnda hyggjast Þjóðverjar halda vinnustofu fljótlega sem ætlað er að kortleggja yfirlit yfir grænt vetni í Evrópu.

27. nóvember 2020 | Vonarglæta í viðureign við Covid-19 |
Stefnumótun hjá Evrópusambandinu og starf fastanefndarinnar í Brussel við að gæta hagsmuna Íslands.

Samningar um bóluefni

Þær jákvæðu fréttir hafa verið að berast undanfarnar vikur að bóluefni gegn Covid-19 sé í augsýn og verði komið í gagnið á næstu mánuðum. Framkvæmdastjórn ESB hóf snemma undirbúning að samræmdri stefnu og viðbrögðum við útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins og birti í júní sl. evrópsk markmið tengd bóluefni við sjúkdóminum (https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?qid=1597339415327&uri=CELEX%3A52020DC0245). Í ljósi þess að ekki var vitað hvaða bóluefni myndu standast kröfur um virkni og öryggi ákvað ESB að hafa vaðið fyrir neðan sig og hefja viðræður við nokkra aðila. Þessir lyfjaframleiðendur eru:

AstraZeneca

Janssen

Sanofi

CuraVac

Moderna

Pfizer/BioNTech

Reithera

Valneva

Novavax

Framkvæmdastjórn ESB hefur nú þegar undirritað samninga við sex framleiðendur, AstraZeneca, Janssen, Sanofi, Pfizer/BioNTech, CuraVac og Moderna.

Vinnuhópur undir forystu heilbrigðisráðuneytisins tók til starfa í byrjun september 2020 og hefur sinnt undirbúningi og framkvæmd á kaupum á bóluefni gegn COVID-19 sjúkdómnum. Kaup á bóluefnum fyrir Íslands hönd fara fram á grundvelli samninga Evrópusambandsins við lyfjaframleiðendur. Nánar tiltekið er það Svíþjóð sem annast samskiptin við Ísland, Noreg og Sviss (fyrir sína hönd og Liechtenstein) og mun tryggja þessum ríkjum aðgang að bóluefni með sömu skilmálum og ríkjum ESB. Svíar fá í sinn hlut skerf sem samsvarar fólksfjölda í ríkjunum fimm.

Þegar ESB hefur náð samningum við lyfjaframleiðendur taka íslensk stjórnvöld afstöðu til þess hvort gengið verði inn í þá samninga í hverju tilviki.

Fjarfundur EES-ráðsins

Samstarf ríkja Evrópska efnahagssvæðisins á tímum kórónuveirufaraldursins var í brennidepli á fjarfundi EES-ráðsins 18. nóvember sl. EES-ráðið kemur saman til fundar tvisvar á ári en það er skipað utanríkisráðherrum EFTA-ríkjanna innan og fulltrúum framkvæmdastjórnar og ráðherraráðs ESB. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra lagði á fundinum áherslu á að samstarf ríkjanna á Evrópska efnahagssvæðinu hafi haft mikla þýðingu í kórónuveirufaraldrinum. Það hafi m.a. náð til aðgangs að hlífðarbúnaði fyrir heilbrigðisstarfsfólk, aðgangs að lyfjum og að bóluefni í nánustu framtíð sem og samvinnu hvað varðar för yfir landamæri. Þá kom hann inn á áskoranir vegna útgöngu Breta, landbúnaðarsamning Íslands og ESB og tollfrelsi fyrir íslenskar sjávarafurðir. Sjá nánar frétt á vef utanríkisráðuneytisins.

Á myndinni er Kristján Andri Stefánsson sendiherra (fyrir miðju) með starfssystkinum sínum frá Noregi og Liechtenstein.

Efling sameiginlegs viðbúnaðar í heilbrigðismálum

Framkvæmdastjórnin kynnti 11. nóvember sl. áform um bættan viðbúnað í heilbrigðismálum í ljósi reynslunnar af Covid-19. Til stendur að styrkja Evrópsku sóttvarnastofnunina og Lyfjastofnun Evrópu. Einnig er að vænta tillögu um að komið verið fót nýrri stofnun (EU Health Emergency Response Authority).

Tilmæli vegna ferðatakmarkana verða hluti Schengen

Tilmæli ráðherraráðs Evrópusambandsins um samræmda nálgun á ferðatakmarkanir hafa nú verið tekin upp sem þróun á Schengen-regluverkinu. Ísland á eftir að staðfesta þetta formlega fyrir sitt leyti. Þetta breytir því ekki að tilmælin eru ekki lagalega bindandi. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og ráðherraráðið vinna engu að síður áfram í því að hvetja aðildarríkin til að fara eftir þeim til dæmis að því er varðar flokkun ríkja og svæða eftir áhættu. Miðað við nýjustu kort frá Evrópsku sóttvarnastofnuninni (ECDC) er staðan á Covid-19 faraldrinum nú skást á Íslandi, Írlandi, Noregi og í Finnlandi. Nýjustu tölur benda til að daglegur fjöldi nýsmita í álfunni hafi náð hámarki í þessari bylgju en ráðamenn hafa þó áhyggjur af jólunum.

Ljóst er að lykilþáttur í viðbúnaði aðildarríkjanna eru sýnatökur og skimanir. PCR-prófin svokölluðu eru þar enn talin áreiðanlegust en þau eru ekki aðgengileg hverjum sem er og oft getur tekið nokkra daga að fá niðurstöður. Vonir eru því bundnar við þróun hraðvirkari prófa. Framkvæmdastjórnin hefur gefið leiðbeiningar í því efni og Evrópska sóttvarnastofnunin sömuleiðis. Í síðarnefnda skjalinu kemur fram að enn sem komið er ekki mælt með skyndiprófum á farþegum sem eru á leið til landa þar sem útbreiðsla smita er lítil.

Fjárhagsáætlun og bjargráðasjóður í uppnámi

Ekki hefur tekist að ljúka afgreiðslu fjárhagsáætlunar og bjargráðasjóðs ESB vegna andstöðu Pólverja og Ungverja við að greiðslur úr sjóðnum yrðu bundnar skilyrði um að viðtakendur virði meginreglur réttarríkisins. Frekar óljóst orðað skilyrði um þetta var hluti samkomulags sem tókst á fjögurra nátta fundi leiðtogaráðsins í júlí og ljóst að því var ætlað að styðja viðleitni framkvæmdastjórnarinnar að halda þessum ríkjum við ákveðnar grundvallarreglur réttarríkisins (s.s. sjálfstæði dómstóla og frjáls félagasamtök). Einnig er ljóst að ekki hafði dregið úr þýðingu þessa skilyrðis eftir meðferð málsins í Evrópuþinginu og í þríhliða samningum framkvæmdastjórnarinnar, ráðsins og Evrópuþingsins um afgreiðslu pakkans. Pólland og Ungverjaland geta reyndar ekki stöðvað að skilyrðið verði hluti pakkans og greiðslur til þeirra þannig komnar undir mati framkvæmdastjórnarinnar og ráðsins. Ákvörðun um að sækja lánsfé til að fjármagna bjargráðasjóðinn á markaði krefst hins vegar samþykkis allra (e. unanimity). Þar náðu ríkin tvö tangarhaldi á öllum pakkanum og halda því afgreiðslu fjárhagsáætlunarinnar og bjargráðasjóðsins upp á samtals 1.82 milljarða evra í heljargreipum á meðan.

Í yfirlýsingu sem forsætisráðherrar Ungverjalands og Póllands sendu frá sér 26. nóvember sl. kemur fram að þeir standi þétt saman í þessu efni og hvorugt ríkið muni fallast á lausnir sem hinu mislíki. Er því útlit fyrir átakafund þegar leiðtogar ESB hittast 10. og 11. desember næstkomandi.

Ný lyfjastefna

Ný lyfjastefna Evrópusambandsins sem var kynnt 25. nóvember sl. hvílir á fjórum stoðum. Í fyrsta lagi að tryggja sjúklingum aðgang að lyfjum á viðráðanlegu verði og ráða bót á skorti á úrræðum á tilteknum sviðum (sjaldgæfir sjúkdómar og sýklalyfjaónæm). Í öðru lagi að styðja við samkeppnishæfni, nýsköpun og lífvænleg skilyrði evrópsks lyfjaiðnaðar og þróun umhverfisvænni gæðalyfja. Í þriðja lagi að auka viðbúnað í lyfjamálum þegar upp kemur neyð, til dæmis að því er varðar aðgang að lyfjum og dreifingu þeirra. Í fjórða lagi að Evrópusambandið láti til sín taka á heimsvísu með því að stuðla að metnaðarfullum gæða- og öryggisviðmiðum fyrir lyf. Stefnan gerir ráð fyrir breytingum á núverandi löggjöf á þessu sviði sem fellur undir EES-samninginn. Tillagan var kynnt í sérfræðinganefnd ráðsins 27. nóvember.

Tillaga að reglugerð um aukið aðgengi að gögnum

Framkvæmdastjórn ESB birti 25. nóvember sl. nýja tillögu að reglugerð um stýringu gagna (e. data governance). Er þetta fyrsti áfangi í að framfylgja nýrri gagnastefnu sem á að auðvelda nýtingu upplýsinga í verðmætasköpun. Í tillögunni, sem gert er ráð fyrir að verði hluti af EES-samningnum, er stungið upp á fyrirkomulagi sem stuðlar að því að hægt sé að endurnota opinbert gögn sem hafa hingað til hafa verið undanþegin vegna réttinda annarra (persónuauðkennanleg gögn, gögn sem lúta viðskiptaleynd eða höfundarétti). Aðildarríkin munu þurfa að koma á fót miðstöð til að styrkja nýsköpunarfyrirtæki, vísindamenn og opinberar stofnanir í að finna leiðir til að nýta gögn án þess að vega að lögmætum verndarhagsmunum. Þá er lagt til að hlutlausir gagnamiðlarar verði settir á fót til að stuðla að flæði gagna milli fyrirtækja. Sérstakt stjórnvald á síðan að hafa eftirlit með slíkri miðlunarþjónustu. Loks er hvatt til þess að gögn séu í auknum mæli gerð aðgengileg í almannaþágu. Samtök sem vinna að slíku geta fengið opinbera skráningu til þess að öðlast aukið traust samfélagsins. Evrópsk sérfræðinganefnd á síðan að aðstoða framkvæmdastjórnina við að framfylgja nýju reglugerðinni. Tillagan verður kynnt í sérfræðingahópi ráðherraráðsins 30. nóvember. Málefnið fellur undir stafrænu starfsskrána sem er á forgangslista ríkisstjórnarinnar.

Aðgerðaáætlun um hugverkarétt

Framkvæmdastjórnin kynnti nýja aðgerðaáætlun um hugverkaréttindi 25. nóvember sl. Þar eru meðal annars boðaðar aðgerðir til að einfalda aðgengi að vernd hugverka og hvetja lítil og meðalstór fyrirtæki til dáða, en einungis 9% fyrirtækja bera sig eftir því að tryggja sér vernd hugverka sem verða til í starfsemi þeirra. Þá vill framkvæmdastjórnin skoða betur að handverk fái vernd tengda uppruna líkt og landbúnaðarvörur hafa fengið (dæmi kampavín og feta-ostur). Þannig megi nýta evrópska menningararfleifð til aukinnar verðmætasköpunar.

Áhyggjur af litlum og meðalstórum fyrirtækjum

Á árlegri ráðstefnu sem kallast European Business Summit og fulltrúi fjármála- og efnahagsráðuneytisins á sendiskrifstofunni í Brussel sótti var fjallað um endurreisn efnahagslífs í álfunni. Ráðstefnan fór fram 16. og 17. nóvember sl. og þar voru samankomnir framkvæmdastjórar ESB, þingmenn, fulltrúar atvinnulífs og fræðimenn af ýmsu tagi.

Mikið var rætt um að það væru lítil og meðalstór fyrirtæki (e. Small and Medium Enterprises) sem væru í mestri þörf fyrir fjármögnun í stöðunni í dag. Þar skipti stafræn þróun höfuðmáli. Talsmaður Google í Evrópu hélt því fram að fyrirtækið hefði sína sérstöku stafrænu dagskrá sem miðaði að því að gera fyrirtækið kolefnishlutlaust á árinu 2030. Stefnan væri sett á að skapa 2.000 græn störf í Evrópu á næstu árum. Jason Warner framkvæmdastjóri hjá drykkjaframleiðandanum Anheuser-Busch flutti mjög áhugavert erindi. Staðan nú væri einfaldlega „economic disaster“. Fyrirtækið væri í því að halda viðskiptavinunum á floti í stað þess að selja þeim framleiðslu sína. Engin leið væri að sjá fyrir endann á því (we can´t take the world for granted). Fjöldi starfsmanna hjá fyrirtækinu væri samtals 7.500 í Evrópu. Lagði hann ofuráherslu á nauðsyn þess að hraða allri stafrænni uppbyggingu.

Stjórnandi umræðunnar spurði hvaða aðgerðir væru brýnastar fyrir evrópsk fyrirtæki. Svarið var stuðningsaðgerðir eins og þegar hefði verið ráðist í, en það mætti ekki hætta þeim of snemma. Slíkt gæti leitt til viðbótarkreppu. Nefndi hann í því samhengi Basel III; það megi alls ekki skerða möguleika lítilla og meðalstórra fyrirtækja til að ná sér í viðbótarfjármagn eins og ástandið er. Þau eru að glíma við samanlögð áhrif frá Covid 1 og Covid 2. Þau þurfa á stuðningsfjármagni að halda, m.a. með sveigjanlegri ríkisstyrkjareglum. Einn þátttakandi tók svo sterkt til orða að 60% af öllum litlum og meðalstórum fyrirtækjum í Evrópu þyldu tæpast nema örfáar vikur í viðbót. Ferðaþjónustan hefði orðið verst úti. Útgáfa ferðatékka (e. tourist voucher) var nefnd sem ein aðgerð til að koma atvinnugreininni í gang aftur.

Sumir þátttakendur vísuðu til að draga þyrfti lærdóm af fyrri kreppu, þ.e. fjármálakreppunni. Valdis Dombrovskis sem fer með viðskiptamál í framkvæmdastjórn ESB varaði sterklega við því að ganga of langt í þeim samanburði, því í þeirri kreppu hefði „fjármálakerfið eða – markaðurinn verið vandamálið, en í þeirri sem nú gengi yfir væri fjármálakerfið hluti af lausninni“ (e. the banking sector is a part of the solution not the problem). Greiður aðgangur að fjármagni væri nauðsynlegur til að ráðast í viðbótarfjárfestingar. Jafnframt lagði hann áherslu á mikilvægi þess að vinna saman og að leysa þyrfti alþjóðleg vandamál á alþjóðavettvangi. Lokaorð hans voru að nú þyrfti að einblína á að hrinda aðgerðum í framkvæmd (e. implementation; put things in action). Það ætti að gera með framtíðina, en ekki fortíðina í huga.

Forgangslisti samþykktur í ríkisstjórn

Ríkisstjórnin samþykkti 3. nóvember lista yfir forgangsmál hagsmunagæslu Íslands gagnvart Evrópusambandinu 2020-21. Á listanum eru einkum mál sem eru í undirbúningi á vettvangi ESB og þar sem íslenskir hagsmunir eru sérstaklega í húfi. Þó eru sum málin eru lengra komin og bíða upptöku í EES-samninginn.

Tvö stærstu málefnin sem framkvæmdastjórn ESB hefur sett á oddinn eru hinn svokallaði Græni sáttmáli og Stafræna starfsskráin. Þetta endurspeglast í forgangslistanum. Aðrir málaflokkar á listanum eru matvælaöryggi, orkumál, samgöngumál, jafnréttismál, fjármálaþjónusta, peningaþvætti, rannsóknir og nýsköpun, lyfjamál, vinnumarkaðurinn, almannatryggingar og samspil sóttvarna og ferðafrelsis.

Sjá nánar frétt á vef Stjórnarráðsins.

30. október 2020 | Covid-19 efst á baugi en stefnumótun á öðrum lykilsviðum tekin að skýrast |
Stefnumótun hjá Evrópusambandinu og starf fastanefndarinnar í Brussel við að gæta hagsmuna Íslands.

Vonir bundnar við skyndipróf og bóluefni

Í ljósi þess að farsóttin hefur verið á uppleið hvarvetna í álfunni síðustu vikur ákvað framkvæmdastjórn ESB að gefa út tilkynningu, 28. okt. sl., þar sem gefið er yfirlit yfir fyrirhugaðar aðgerðir sambandsins á þessu sviði. Fram kom í máli Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnarinnar, að aðildarríkin glímdu ekki einungis við farsóttina heldur einnig minnkandi langlundargeð almennings. En nú væri ekki rétt tíminn til að slaka á. Búast mætti við miklum vexti í farsóttinni á næstu vikum, önnur bylgjan væri risin af miklum krafti. Ljóst er að mikilvægustu ákvarðanirnar á þessu sviði eru teknar af stjórnvöldum í hverju ríki en framkvæmdastjórnin getur stuðlað að samhæfingu og gagnkvæmri aðstoð.

Á blaðamannafundi í kjölfar leiðtogafundar 29. október sl. sem fram fór með fjarfundabúnaði, staðfesti Charles Michel, forseti ráðherraráðsins, að umræðan þar hefði einkum snúist um samræmdar aðgerðir tengdar sýnatöku og rakningu annars vegar og dreifingu bóluefnis hins vegar. Hann sagði ríkan vilja vera meðal leiðtoganna að vinna samhent og einhuga að því að vinna bug á aðsteðjandi vanda. Í því skyni væru þeir reiðubúnir að fjalla áfram um tillögu framkvæmdastjórnarinnar að stefnumörkun um sýnatöku (Recommendation on Covid-19 testing strategies, including the use of rapid antigen tests), gagnkvæma viðurkenningu sýnatökuvottorða, samvirkni rakningarappa, samræmt form fyrir skráningu farþega og samræmda lengd sóttkvíar.

Varðandi bóluefni sagði Michel leiðtogana einnig vera einhuga um að vinna áfram að viðmiðum um jafnræði við dreifingu bóluefnis, skiptast á upplýsingum um forgangsröðun í hverju ríki um sig og undirbúa viðeigandi aðstæður og aðbúnað fyrir flutning og miðlun efnisins.

Von der Leyen gerði nánar grein fyrir næstu skrefum á eftirfarandi hátt:

að öflun og miðlun þeirra upplýsinga sem aðildarríkin láti Evrópsku sóttvarnastofnuninni í té (ECDC) verði samræmd,

að komið verði upp vettvangi þar sem sérfræðingar stjórnvalda í aðildarríkjunum og Evrópusambandsins geti skipst á upplýsingum,

að hraðað verði eins og kostur er að votta og samræma hraðvirku sýnatökuna (antigen testing), með því móti verði gagnkvæm viðurkenning vottorða möguleg og greitt verður fyrir nauðsynlegum ferðum milli landa, en framkvæmdastjórnin hefur þegar fest kaup á skyndiprófum fyrir 100 milljónir evra sem útdeilt verður til aðildarríkjanna,

að greiða fyrir að mismunandi rakningaröpp verði samvirk og gagnist til rakningar yfir landamæri. Að svo stöddu séu eingöngu 3 öpp af 22 samstillt en stefnt verði að því hin 19 verði einnig stillt saman í næsta mánuði.

að farþegaskráning verði samræmd (passenger locator form). Í því skyni verði sett af stað tilraunaverkefni í nóvember en fyrir lok árs verði öll form orðin samræmd. Að svo stöddu séu 11 mismunandi form í gangi.

Varðandi bóluefni sagði Von der Leyen:

Að löggildingu þeirra verði hraðað eins og kostur er án þess að slegið verði af kröfum til nákvæmni og öryggis. Áður hafði komið fram hjá henni að í besta falli væri hægt að byrja bólusetningu í stórum stíl í apríl 2021.

Að dreifing þeirra lúti sjónarmiðum um jafnræði þannig að allir fái bóluefni á sama tíma og með sömu skilyrðum. Jafnframt þurfi aðildarríkin að huga að innviðum í samræmi við blueprint sem framkvæmdastjórnin láti í té.

Framkvæmdastjórnin hafi þegar gert forkaupssamninga við þrjú lyfjafyrirtæki og samningar við þrjú önnur séu í burðarliðnum. Einnig sé von á einu til viðbótar. Bóluefnin munu koma í áföngum og ekki öll á sama tíma.

Tillaga framkvæmdastjórnarinnar um samræmda nálgun á ferðatakmarkanir

Ráðherraráð Evrópusambandsins samþykkti 13. október síðastliðinn tilmæli um samræmda nálgun á ferðatakmörkunum (e. Council Recommendation on a coordinated approach to the restriction of free movement in response to the COVID-19 pandemic). Tilmælin byggjast á tillögu framkvæmdastjórnar ESB frá 4. september sl. sem greint var frá í síðasta fréttabréfi.

Tilmælin, sem ekki eru bindandi, byggja á því að forræði á sóttvarnaaðgerðum er fyrst og fremst hjá aðildarríkjunum. Hins vegar beri að leitast við að samræma nálgun til að hefta ferðafrelsi sem minnst.

Í tilmælunum er kveðið á um tiltekin lykilviðmið þegar ákvörðun er tekin um að hefta frjálsa för vegna COVID-19 faraldursins: a) 14 daga nýgengi smita á hverja 100.000 íbúa; b) hlutfall jákvæðra sýna af heildarfjölda tekinna sýna undanfarna viku; c) svonefnt „sýnatökuhlutfall“, þ.e. fjöldi sýna sem tekinn er á hverja 100.000 íbúa undanfarna viku.

Á grundvelli upplýsinga frá aðildarríkjunum birtir Sóttvarnastofnun Evrópu vikulega sérstakt marglitt kort yfir aðildarríkin, sundurgreint eftir svæðum, þar sem fram kemur hversu mikil smithætta er á hverju svæði fyrir sig. Kortið byggi einnig á upplýsingum frá Íslandi, Liechtenstein og Noregi.

Þær meginreglur gilda síðan samkvæmt tilmælunum að ekki sé heimilt að beita takmörkunum (t.d. sóttkví eða sýnatöku) á för einstaklinga frá „grænum“ svæðum og sóttkví skuli ekki beitt gagnvart einstaklingum sem ferðast í nauðsynlegum tilgangi. Þá er gert ráð fyrir gagnkvæmri viðurkenningu á niðurstöðum sýnatöku vegna Covid-19 sem framkvæmd er af vottuðum aðilum og að þróað verði evrópskt forskráningarform (e. Passenger Locator Form).

Þá er gert ráð fyrir að aðildarríkin taki tillit til sérstöðu tiltekinna svæða, m.a. vegna landfræðilegrar einangrunar.

Næstu skref

EFTA ríkin þrjú eru nú að skoða hvort ástæða sé til að tilmælin verði hluti af EES-samningnum. Einnig er ráðherraráð ESB að athuga hvort eðlilegt sé að líta á tilmælin sem þróun á Schengen-regluverkinu. Við undirbúning tilmælanna var þeirri afstöðu íslenskra stjórnvalda komið á framfæri að aukið samstarf í þessu efni væri æskilegt, til dæmis að því er varðar miðlægt áhættumat ECDC, gagnkvæma viðurkenningu vottorða og forskráningu farþega. Nálgunin á Íslandi nú væri hins vegar að sumu leyti önnur en tilmælin ganga út frá. Þannig lytu nú allir komufarþegar til landsins sömu reglum óháð því hvaðan þeir koma og óháð tilgangi farar. Endanlegt forræði yfir sóttvörnum væri hjá hverju ríki og hafa þyrfti í huga mismunandi aðstæður, t.d. landfræðilega legu.

Peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Nýverið bárust þau gleðitíðindi að Ísland yrði fjarlægt af hinum svokallaða „gráa lista“ FATF, en það eru alþjóðleg samtök ríkja um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, sem Ísland hefur átt aðild að frá 1992. Samtökin hafa m.a. eftirlit með eftirfylgni og framkvæmd reglna sem ætlað er að uppræta og koma í veg fyrir fjármögnun hryðjuverka með peningaþvætti. Til að þrýsta á um tilteknar umbætur á Íslandi var það sett á gráan lista í september í fyrra og hefur því setið þar í liðlega ár, eftir að samtökin komust að þeirri niðurstöðu að þrjár aðgerðir stæðu enn út af hvað úrbætur varðaði. Þær voru:

Aðgangur að upplýsingum um raunverulega eigendur. Skrá hjá ríkisskattstjóra.

Upplýsingakerfi og fleiri starfsmenn á skrifstofu fjármálagreininga hjá lögreglu.

Eftirlit með eftirfylgni við þvingunaraðgerðir og yfirsýn yfir starfsemi almannaheillafélaga.

Í kjölfar vettvangsathugunar FATF í lok september var það staðfest af hálfu sérfræðinga samtakanna að þær aðgerðir sem Íslandi var gert að grípa til í því skyni að komast af umræddum lista væru fullnægjandi og ríkur pólitískur vilji hjá íslenskum stjórnvöldum til að halda áfram vinnu við að styrkja varnir Íslands gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Íslensku lögin um peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 140/2018, með síðari breytingum, byggja að meginstofni til á fjórðu tilskipun ESB um sama efni og að hluta á þeirri fimmtu (the Fourth and Fifth Anti- Money Laundering Directive). Sú síðarnefnda tók gildi í byrjun ársins í aðildarríkjum ESB og var síðan tekin upp í EES-samninginn um mitt þetta ár.

Markmið hennar er að auka enn frekar á gagnsæi reglnanna sem um eftirlit með peningaþvætti gilda, auk þess að herða á sektarákvæðum þeirra. Þá er í fyrsta sinn komið inn ákvæði um rafmyntir og eigendur þeirra sem þurfa að lúta sömu skyldum og eftirliti og hefðbundnar myntir. Reglur og eftirlit með fyrirframgreiddum debit- og kreditkortum eru líka hertar og mega nú ekki vera hærri en 150 evrur í stað 250 evra. Ljóst er af þessu að ESB er full alvara með að herða eftirlit með peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og loka þeim götum (loopholes) sem í ljós hafa komið, m.a. með nýrri tækni, auk þess að hækka verulega viðurlög við slíkum brotum. Mikil ábyrgð og auknar skyldur í formi upplýsingagjafar til eftirlitsaðila eru lagðar á þau fyrirtæki sem sýsla með fjármuni, ekki bara hefðbundin fjármálafyrirtæki, heldur einnig ýmsar fagstéttir eins og endurskoðendur, lögfræðinga, fasteignasala o.fl. Reynsla síðustu ára með tilheyrandi óánægju almennings hefur leitt í ljós að veruleg þörf var á að breikka eftirlitssviðið og sömuleiðis að samræma betur aðgerðir milli ríkja.

Aðgerðum ESB á þessu sviði er þó engan veginn lokið. Í maí sl. birti framkvæmdastjórn ESB áætlun sína um frekari aðgerðir, einkum gegn þriðju ríkjum þar sem hætta á peningaþvætti er mikil (e. high-risk) https://ec.europa.eu/info/publications/200507-anti-money-laundering-terrorism-financing-action-plan_en. ESB birtir „svartan“ lista yfir þessi ríki en ekki gráan lista eins og FATF. Nokkur munur getur verið á þessum listum en þeir eru í sífelldri endurskoðun. Sama gildir um aðferðafræðina að baki þeim.

Það sem helst er talið hamla í baráttunni gegn peningaþvætti innan ESB er ósamræmi í framkvæmd regluverksins. Það vandamál hefur m.a. komið í ljós í Covid-19 faraldrinum á undanförnum mánuðum þar sem glæpasamtök hafa verið að nýta sér ástandið. Framkvæmdastjórn ESB hefur því verið falið það hlutverk að kortleggja hvað megi betur fara varðandi frekari samræmingu framkvæmdar, betra eftirlit og samstilltari aðgerðir aðildarríkjanna, m.a. með nánara samstarfi aðila sem eru að eiga við efnahagsbrot (Financial Intelligence Units (FIUs). Jafnframt mun ESB efla tengsl sín innan FATF enn frekar. Fastlega er búist við að tillögur að lagabreytingum muni sjá dagsins ljós fyrri hluta árs 2021.

Sérfræðingar sendiráðsins/fastanefndarinnar í Brussel munu fylgjast grannt með þróuninni á þessu mikilvæga sviði næstu misserin, en það fellur undir vinnuhóp um fjármálaþjónustu (WG on financial services). Málaflokkurinn er hins vegar á forræði dómsmálaráðuneytisins á Íslandi.

Tillaga að tilskipun um lágmarkslaun

Framkvæmdastjórn ESB lagði 28. október sl. fram tillögu að tilskipun um lágmarkslaun. Framkvæmdastjórn ESB lítur á kórónuveirufaraldurinn sem enn frekari ástæðu til þess að halda áfram að vinna að áætlun um evrópsk lágmarkslaun til þess að draga úr launabili og fátækt. Vinnumálaráðherrar Norðurlandanna hafa í tvígang skrifað bréf til framkvæmdastjórnar ESB – nú síðast í júnímánuði í kjölfar ráðherrafundar til að undirstrika að hugsanleg evrópsk lágmarkslaun mættu ekki brjóta í bága við norræna líkanið. Norrænu vinnumálaráðherrarnir lögðu áherslu á að ESB verði að styðja við samfélagslega umræðu og ákvörðun launa með kjarasamningum en ekki setja lög um lágmarklaun sem ná til landa sem þegar eru með kjarasamningakerfi sem virkar. Framkvæmdastjórn ESB hefur lagt áherslu á að tillagan muni ekki hafa áhrif á kerfi þeirra landa sem byggja á kjarasamningum. Þess má geta að tillagan er ekki auðkennd svo af hálfu framkvæmdastjórnarinnar að hún varði EES.

Verkáætlun framkvæmdastjórnarinnar fyrir 2021

Framkvæmdastjórn ESB birti 19. október sl. verkáætlun sína fyrir árið 2021. Leiðarljósið er heilbrigðara og réttlátara samfélag og umbreyting þess til lengri tíma í grænna hagkerfi sem er reiðubúið fyrir stafræna öld. Þar má finna áform um löggjöf á þeim sex málefnasviðum sem tilgreind voru í pólitísku leiðarstefi framkvæmdastjórnarinnar sem forseti hennar, von der Leyen, kynnti fyrir ári síðan. Á meðan fyrsta ár framkvæmdastjórnarinnar fór í að marka stefnu er nú boðað að tími sé kominn til að leggja fram beinharðar tillögur til útfærslu hennar.

Græni sáttmálinn

Í síðasta fréttabréfi var greint frá stefnuræðu von der Leyen í september þar sem hún fór ítarlega yfir næstu skref undir merkjum græna sáttmálans. Til stendur á næsta ári að leggja fram tillögur sem miða að 55% samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir 2030. Áhersla verður á endurnýjanlega orkugjafa, orkunýtni bygginga, landnotkun, orkuskatta, bindandi markmið um samdrátt losunar hjá hverju ríki og viðskipti með losunarheimildir. Fyrirkomulag til að bregðast við svokölluðum kolefnisleka yfir landamæri er í bígerð. Þá eru boðaðar tillögur um hringrásarhagkerfið, líffræðilega fjölbreytni og stefnuna um „frá býli til matar“.

Stafræna starfsskráin

Framkvæmdastjórnin einsetur sér að kynna á næsta ári vegvísi með markmiðum sem ná beri fyrir 2030 og varða nettengingar íbúanna, stafræna hæfni og stafræna opinbera þjónustu. Áhersla verður lögð á friðhelgi einkalífs, rétt til fjarskiptatenginga, tjáningarfrelsi, frjálst flæði gagna og netöryggi. Boðuð er löggjöf um öryggi, ábyrgð, grundvallarréttindi og gervigreind. Boðuð er tillaga um evrópskt stafrænt auðkenni. Þá er gert ráð fyrir að evrópska iðnaðarstefnan verði uppfærð í ljósi Covid-19 faraldursins og að gerð verði tillaga að löggjöf til að bæta starfsskilyrði þeirra sem vinna hjá stórum netþjónustufyrirtækjum.

Framtíðarþróun Schengen-samstarfs verður í deiglunni

Margt fleira er á dagskránni. Má þar nefna stefnu í málefnum Norðurskautsins og nýja stefnu um framtíð Schengen-samstarfsins. Útlendingamál, peningaþvætti, kynbundið ofbeldi og fjármögnun evrópskra stjórnmálaflokka eru einnig meðal málefna þar sem tillögur munu koma fram á næsta ári.

Endurnýjun bygginga til að auka orkunýtni

Framkvæmdastjórn ESB birti 14. október sl. stefnu um endurnýjun bygginga til að auka orkunýtni þeirra (e. Renovation Wave Strategy). Markmiðið er að tvöfalda tíðni endurnýjunar bygginga í sambandinu á næstu 10 árum. Gert er ráð fyrir að allt að 35 milljónir bygginga muni ganga í endurnýjun lífdaga og að 160 þúsund græn störf verði til. Í stefnunni er sjónum fyrst beint að þremur þáttum: Brotthvarf frá kolefniseldsneyti til hitunar og loftkælingar, átak til hagsbóta þeim sem ekki hafa efni á húshitun og varðandi þær byggingar þar sem orkunýtni er lökust og loks endurnýjun opinberra bygginga. Þá er endurskoðun tilskipunar um endurnýjanlega orku á döfinni og þá einkum að herða á markmiðum um húshitun og loftklælingu með endurnýjanlegum orkugjöfum.

Nýtt evrópskt Bauhaus

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB kynnti fyrir skemmstu nýtt metnaðarfullt verkefni sem á að stuðla að nýsköpun í byggingarlist og hönnun. Byggingariðnaðurinn sé ábyrgur fyrir 40% af losun gróðurhúsalofttegunda. Hefðbundin byggingarefni, steinsteypa og stál, séu gríðarlega óumhverfisvæn. Nýja verkefnið er kennt við Bauhaus sem átti uppruna sinn í Weimar 1919.

24. september 2020 | Farsóttin aftur í vexti |
Stefnumótun hjá Evrópusambandinu og starf fastanefndarinnar í Brussel við að gæta hagsmuna Íslands.

Tillaga framkvæmdastjórnarinnar um samhæfingu aðgerða á landamærum

Þróun mála síðsumars hefur fært Evrópubúum heim sanninn um að baráttan við farsóttina er langt í frá að baki. Vorið hafði einkennst af ákveðinni bjartsýni vegna þess að harðar aðgerðir höfðu náð að draga mjög úr smitum og ferðalög milli landa gátu hafist á ný. En þegar leið á sumarið tók faraldurinn sig víðast hvar upp að nýju. Aftur var farið að grípa til takmarkana á för milli EES-ríkja.

Framkvæmdastjórn ESB hefur gefið tóninn um að nú þurfi að samræma betur aðgerðir á landamærum til að varðveita ferðafrelsi eins og hægt væri. Tillaga hennar í þessu efni kom fram 4. september sl., ec.europa.eu/commission/presscorner/detail/en/IP_20_1555. Þar er lagt til að Sóttvarnastofnun Evrópu (ECDC) fái það hlutverk að framkvæma sameiginlegt áhættumat fyrir aðildarríkin. Gefa beri út kort með litum sem endurspegli stöðu farsóttarinnar í hverju landi eða á hverju svæði. Horft verði þar til smittíðni undanfarna 14 daga, fjölda sýna sem tekin eru og hlutfalls jákvæðra sýna af heildarfjölda rannsakaðra sýna. Aðgerðir aðildarríkjanna sem hefti för milli landa þurfi að taka mið af þessu þannig að í grunninn verði einungis gerð krafa um sóttkví eða sýnatöku hjá farþegum sem koma frá rauðmerktum löndum.

Tillagan hefur fengið stuðning meðal annars frá samtökum í ferða- og flutningageiranum: aci-europe.org/downloads/content/Joint%20Industry%20Letter%20to%20EC%20President%2017%20September%202020%20-%20final.pdf

Ráðherraráðið fjallar um tillögu framkvæmdastjórnarinnar

Tillaga framkvæmdastjórnarinnar hefur síðan verið til umfjöllunar hjá ráðherraráðinu. Efnisleg umræða fer fram í sérfræðingahópi sem kallast Integrated Political Crisis Arrangements (IPCR) en reglulega eru línur einnig lagðar á fundum fastafulltrúa ESB ríkjanna auk Íslands, Noregs, Liechtenstein og Sviss. Ákveðið var í upphafi að nálgast málið skref fyrir skref og byrja á því sem væntanlega væri auðveldara að ná samkomulagi um, þ.e. gagnasöfnun og áhættumati ECDC, áður en farið yrði að ræða aðgerðir aðildarríkjanna á grundvelli áhættumats.

Ljóst er að það er langt í land að samstaða náist um aðgerðir á grundvelli áhættumats enda leggja mörg ríki áherslu á forræði sitt á sóttvarnaráðstöfunum. Sum ríki eru hins vegar þegar farin að laga sína stefnu að tillögum framkvæmdastjórnarinnar, sbr. belgísk stjórnvöld, sem tilkynntu 22. september sl. að ekki yrði lengur bannað að ferðast til rauðmerktra svæða þótt sterklega væri varað við því, sjá brusselstimes.com/news/belgium-all-news/132385/how-belgium-lifting-its-travel-ban-for-red-zones-impacts-travellers/.

Sýnatökustefna vegna Covid-19

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins gaf 17. september sl. út tilmæli um sameiginlega nálgun á sýnatökur vegna Covid-19 ec.europa.eu/health/sites/health/files/preparedness_response/docs/common_testingapproach_covid-19_en.pdf. Skjalið er byggt á svörum aðildarríkjanna auk Noregs, Bretlands, Sviss, Bosníu-Herzegóvínu og Úkraínu við spurningalista heilsuöryggisnefndar Evrópusambandsins. Þar kemur meðal annars fram að fimm ríki geri kröfu um að komufarþegar forskrái sig líkt og gildir á Íslandi. Þetta eru Belgía, Frakkland, Írland, Ítalía og Lettland. Á Írlandi gildir að þeir sem sleppa því að fylla út slíkt eyðublað eigi yfir höfði sér sektir allt að 375.00 kr. eða fangelsi í allt að sex mánuði.

Þá er mælt með því að Evrópuríki hugi að því á haustmánuðum að þörf muni verða á því að taka sýni vegna inflúensu. Það kunni að kalla á aukna forgangsröðun við sýnatöku vegna Covid-19. Jafnframt sé hyggilegt að nota sem mest fjölþætt PCR-próf sem geti greint ýmsar öndunarfærasýkingar í sama sýninu, þar á meðal Covid-19 og inflúensu.

Í upphafi faraldursins voru mörg ríki að glíma við skort á búnaði til að anna sýnatöku í samræmi við eftirspurn. Það breyttist þegar leið á árið þótt enn sé mikill munur milli landa á því hversu auðvelt aðgengi að sýnatöku er. Upp á síðkastið er aftur farið að bera á því að flöskuhálsar séu að koma upp og biðtími eftir niðurstöðum úr sýnatöku að lengjast.

Evrópska sóttvarnastofnunin hefur líka nýlega gefið út leiðbeiningar um sýnatökustefnu, sjá www.ecdc.europa.eu/en/publications-data/covid-19-testing-strategies-and-objectives.

Evrópuþingið ályktar um frjálsa för

Evrópuþingið ályktaði 17. september sl. um samhæfingu áhættumats vegna Covid-19 og afleiðingar fyrir Schengen-samstarfið og innri markaðinn (www.europarl.europa.eu/doceo/document/TA-9-2020-0240_EN.html). Lýst er yfir áhyggjum af því að ólík viðbrögð aðildarríkjanna við aukningu smita upp á síðkastið og takmarkanir á frjálsri för milli landa skerði verulega grundvallarréttindi almennings og raski innri markaðinum. Sum ríki hafi lokað landamærunum að mestu, önnur krefjist sóttkvíar við komu til landsins sem sé mismunandi löng, í einhverjum tilvikum sé krafa um neikvætt PCR-próf, en mismunandi hve gamalt það megi vera, forskráning, þar sem hennar er krafist, sé mismunandi, mat á áhættu frá ólíkum svæðum álfunnar sé ósamræmt og engin sameiginleg nálgun varðandi notkun á grímum. Kallað er eftir því meðal annars að ein sameiginleg stefna ríki um sýnatökur og að niðurstöður séu viðurkenndar af öllum aðildarríkjum. Þá sé æskilegast að sýnataka fari fram fyrir brottför og ríkin þurfi að koma sér saman um lista yfir stjórnvöld sem geti staðfesta áreiðanleika vottorða. Lýst er yfir stuðningi við frumkvæði framkvæmdastjórnarinnar í þessum efnum, sbr. hér fyrir ofan.

Stefnuræða von der Leyen

Forseti framkvæmdastjórnar ESB, Ursula von der Leyen flutti stefnuræðu í Evrópuþinginu 17. september. Tæpt ár er liðið frá því hún tók við embætti og setti strax umhverfismál og stafrænu umskiptin rækilega á dagskrá sem tvo höfuðása í starfsáætlun framkvæmdastjórnarinnar. Óhætt er að slá því föstu að báðir þessir pólar standi óhaggaðir í stefnu forsetans enda áréttaði hún að heimsfaraldurinn hefði í raun ljáð þeim báðum aukið vægi. „Ímyndið ykkur hvernig það hefði verið að takast á við faraldurinn áður en upplýsingatæknin kom til," brýndi hún fyrir þingheimi og nýtti samhengið til að árétta að fylgja þyrfti fast eftir stefnumörkun um þróun upplýsingasamfélagsins. Faraldurinn hafi í raun hraðað stafrænni nýsköpun og brýnt sé að auka fjárfestingu í geiranum. Lagði hún til að 8 milljörðum evra verði varið til að þróa nýja kynslóð ofurtölva og að næsti áratugur verði helgaður stafrænni framþróun: Europe's digital decade.

Sama eigi við um loftslagsvána þar sem afleiðingarnar af því að bregðast ekki við náttúruvá í tæka tíð blasi þegar við í heimsfaraldrinum. Með skírskotun til þess lagði hún til að dregið verði úr losun gróðurhúslofttegunda hraðar en áður var stefnt að eða um 55% í stað 40% fyrir árið 2030. Jafnframt lagði hún til að 37% af 750 milljarða evra Bjargráðasjóði ESB myndi renna til að fjármagna Græna sáttmálann. Það er og í takt við það sem þingið hefur kallað eftir og leiðtogafundurinn í júlí tók undir.

Nánar um loftslagsmálin

Í ræðu von der Leyen kom fram að meginmarkmiðið sé að Evrópa verði fyrsta kolefnishlutlausa heimsálfan fyrir árið 2050. Eftir nánari skoðun, sem fram fór m.a. með víðtæku mati á áhrifum og samráði, legði framkvæmdastjórn ESB til að markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2030 yrði hækkað í að lágmarki 55%. Ljóst væri að hækkun markmiðs úr 40% í 55% væri mjög stórt stökk fyrir sum ríki ESB en ekki nægjanlega stórt stökk fyrir önnur ríki ESB. Mat á áhrifum sýndi hins vegar að efnahagur og iðnaður sambandsins gæti tekið á sig og væri tilbúinn til þess að hækka markmið um samdrátt. Í því sambandi vísaði VDL til þess að henni hefði borist bréf frá u.þ.b. 170 forkólfum í viðskiptalífi og iðnaði sem kalli á að markmið um samdrátt í losun verði sett í a.m.k. 55% (www.corporateleadersgroup.com/reports-evidence-and-insights/pdfs/business-and-investor-ceo-letter-on-eu-2030-ghg.pdf/view ).

Þá greindi hún frá því að innan ESB sé unnið að gerð fyrirkomulags til að mæta „kolefnisleka“ út fyrir Evrópusambandið. Fyrirkomulaginu er ætlað að bregðast við þeim aðstæðum að eftir því sem sambandið dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda er meiri hætta á að skaðleg starfsemi flytjist út fyrir Evrópusambandið eða að vörur sem eru framleiddar innan sambandsins lúti í lægra haldi fyrir innfluttum vörum með meira kolefnisspor. Við þessu má bregðast með því að leggja gjald á innflutning til þess að tryggja að verð á innfluttri vöru endurspegli kolefnisspor hennar.

Með því að ná markmiði um a.m.k. 55% samdrátt í losun fyrir árið 2030 verði markmið um kolefnishlutlausa Evrópu fyrir árið 2050 raunhæfari auk þess sem skyldum Parísarsáttmálans verði frekar mætt. Ef önnur ríki heims feta í fótspor ESB þá mun verða mögulegt að halda hækkun hitastigs jarðar undir 1,5 °C.

Öll löggjöf ESB er varðar lofslags- og orkumál verður að sögn forseta framkvæmdastjórnarinnar endurskoðuð fyrir næsta sumar (sumar 2021) þannig að hún verði „í formi fyrir 55“ ( e. fit for 55). ESB mun auka viðskipti með losunarheimildir, auka notkun endurnýjanlegrar orku ásamt því að bæta orkunýtni og endurskoða orkuskatta.

Ný stefna framvæmdastjórnar ESB í útlendingamálum

Ný stefna framkvæmdarstjórnar ESB var birt 23. september 2020 og fylgja stefnunni alls 11 tillögur. Ber þar helst til tíðinda að lagt er til að fyrirliggjandi tillaga að breytingum á Dyflinnarreglugerðinni verði dregin til baka og að tekið verði upp nýtt kerfi fyrir meðferð umsókna um alþjóðlega vernd. Nýtt kerfi á að stuðla að sanngjarnri samábyrgð aðildarríkja á umsóknum um alþjóðlega vernd, skilvirkari málsmeðferð við meðferð umsókna og brottvísanir og forskoðun umsókna um alþjóðlega vernd á ytri landamærum Schengen-svæðisins svo tryggja megi þeim alþjóðlega vernd sem þurfa á henni að halda fljótt og örugglega. Nýja stefnu framkvæmdarstjórnarinnar og tillögur henni tengdar má sjá hér: ec.europa.eu/commission/presscorner/detail/en/ip_20_1706

18. maí 2020 | Farsóttin í rénun – hvað tekur við? |
Stefnumótun hjá Evrópusambandinu og starf fastanefndarinnar í Brussel við að gæta hagsmuna Íslands.

Ákvarðanir um stórtækar efnahagsaðgerðir enn í mótun

Leiðtogar ESB héldu fjórða fjarfund sinn um COVID-19 farsóttina 23. apríl síðastliðinn. Ákveðið var stefna að því að stofna endurreisnarsjóð sem yrði nægilega digur og gæti nýst þeim svæðum og greinum innan Evrópusambandsins sem hefðu orðið harðast úti. Framkvæmdastjórn ESB var falið að greina nánar þarfirnar og koma með tillögu sem væri í samræmi við þá áskorun sem blasir við. Þar skyldi jafnframt gerð grein fyrir tengslum við regluleg fjárlög ESB sem einnig yrði að laga að ríkjandi ástandi og eftirköstum þess. Áformin skýrðust nánar þegar fjármálaráðherrar evru-ríkjanna funduðu 8. maí sl. Fram kom að unnið væri að þrenns konar öryggisneti, fyrir launafólk, fyrirtæki og aðildarríki. Væntanlegt öryggisnet fyrir ríkin gengur undir nafninu Farsóttarkreppustuðningur (Pandemic Crisis Support). Öll aðildarríkin myndu geta notið góðs af og stuðningur gæti numið að jafnaði 2% af landsframleiðslu. Lánin yrði til 10 ára á hagstæðum kjörum og þau bæri að nýta til að fjármagna heilbrigðisþjónustu og farsóttarvarnir.

Lífi blásið í ferðaþjónustu og för milli landa

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins gaf 13. maí sl. út ýmsar leiðbeiningar um hvernig eigi að endurvekja ferðalög milli landa og ferðaþjónustu. Í tilkynningu um áfangaskipta og samhæfða nálgun í þá átt að endurreisa ferðafrelsi og afnám landamæraeftirlits á innri landamærum eru sett fram ýmis meginsjónarmið í þessu efni: Fyrst eigi að slaka á ferðatakmörkunum milli svæða þar sem staða farsóttarinnar er svipuð, byggt á upplýsingum frá European Centre for Disease Prevention and Control (ECDC). Ríkin þurfi þar að gæta jafnræðis þannig að opnað sé samtímis á umferð frá öllum öðrum svæðum í sambærilegri stöðu. Jafnframt skuli horft til getu heilbrigðiskerfis til að taka á móti fólki (sjúkrahús, prófanir, eftirlit og smitrakning). Í öðru lagi lagi sé það forsenda tilslakana að hægt sé að tryggja að farþegar geti haldið hæfilegri fjarlægð frá öðru fólki frá brottfararstað til áfangastaðar. Ef það er ekki unnt þá skuli gripið til annarra ráðstafana sem tryggi sambærilega vernd, sbr. til dæmis smitrakningarforrit (vísað er til leiðbeininga ECDC um það efni). Þá geti aðildarríkin ef svo ber undir notað prófanir á farþegum þegar þeir snúa heim til að fylgjast með hættu á endurvakningu veirunnar hvort sem slíkar prófanir eru kerfisbundnar, byggðar á áhættumati eða slembiúrtaki.

Réttur farþega til að fá endurgreitt þegar flug eða pakkaferð er felld niður er áréttaður í tilmælum framkvæmdastjórnarinnar. Jafnframt er þar mælt með því að gripið sé til aðgerða til að inneignarnótur verði fýsilegri kostur og að þær njóti til dæmis réttarverndar við gjaldþrot.

Þá hafa verið gefnar út leiðbeiningar um samverkan smitrakningarforrita. Aðildarríkin eru hvött til að gæta að því að slík forrit, sett upp í síma notandans, virki þvert á landamæri. Slíkt muni stuðla að auknum ferðavilja og heilsufarslegu öryggi farþega. Með samverkan (interoperability) sé einkum vísað til þess að forritin vari ferðamann við ef þeir eru í nálægð við annan einstakling sem veitt hefur sínu forriti upplýsingar um að hann sé mögulega smitaður.

Vegvísir til að aflétta sóttvarnarráðstöfunum

Framkvæmdastjórn og ráðherraráð Evrópusambandsins gáfu 15. apríl sl. út sameiginlegan vegvísi í átt að afléttingu sóttvarnarráðstafana. Þar kemur fram fyrr eða síðar verði að slaka á ströngum sóttvarnarráðstöfunum sem nauðsynlegar voru í byrjun en það verði gerast með ábyrgum hætti. Fram kemur að óhjákvæmilega muni smit í einhverjum tilvikum skjóta aftur upp kollinum því veiran sé komin til að vera. Það séu einkum þrír mælikvarðar sem horfa eigi til við mat á því hvort tímabært væri að draga úr sóttvarnaraðgerðum: a) Faraldursfræðileg sjónarmið um að farsóttin sé í rénun byggð á fjölda nýsmita, sjúkrahúsvistunum og sjúklingum í gjörgæslu. b) Geta heilbrigðiskerfisins til að bregðast við ef farsóttin hjarnar við í kjölfar tilslakana. c) Hæfni stjórnvalda til að fylgjast með farsóttinni, þ.m.t. geta til að framkvæma skimanir í stórum stíl, smitrakning og aðstaða til að setja fólk í sóttkví og einangrun. Síðar kunni mótefnamælingar að bætast í verkfærakistuna.

Þá er lögð áhersla á að aðildarríkin gangi í takt enda sé við sameiginlegan vanda að etja sem láti engan ósnortinn. Halda skuli eftirfarandi meginreglur í heiðri: i) Aðgerðir eigi að byggjast á vísindum þar sem lýðheilsa sé þungamiðjan. ii) Samhæfa eigi aðgerðir ella geta áhrifin verið neikvæð fyrir öll aðildarríki og leitt til pólitísks núnings. Vissulega séu aðstæður mismunandi en að lágmarki ættu aðildarríkin að upplýsa hvert annað og framkvæmdastjórnina fyrir fram um tilslakanir. iii) Gagnkvæm virðing og samstaða enda sé mikill ávinningur fólginn í því ef aðildarríkin nýti sér styrkleika hvert annars. Þótt gagnrýnt hafi verið í byrjun að samstöðu skorti hafi undanfarnar vikur sýnt hve samvinna geti verið þýðingarmikil með því að sjúklingar hafi verið sendir milli landa í takt við afkastagetu sjúkrahúsa, flæði heilbrigðisstarfsfólks milli landa og miðlun hlífðarbúnaðar og öndunarvéla milli landa hafi komið til sögunnar. Þá hafi verið unnið saman að því að flytja ESB-borgara heim með flugi frá öðrum heimshlutum.

Loks eru sett fram nokkur tilmæli til aðildarríkja um næstu skref: Aðgerðir eigi að vera í áföngum og hæfilegur tími látinn líða milli áfanga á leið til afléttingar ráðstafana að fullu. Markvissar ráðstafanir leysi smám saman almennar af hólmi. Til dæmis eigi að vernda viðkvæma hópa sérstaklega og lengur en aðra. Þá eigi að bjóða upp á örugga valkosti í stað almennra bannákvæða. Þannig verði hægt að beina spjótum sérstaklega að áhættusamri háttsemi og heimila almenna hefðbundna atvinnustarfsemi smám saman. Til dæmis megi auka hreinlæti á fjölförnum og fjölmennum stöðum og sjá starfsfólki eða viðskiptavinum fyrir hlífðarbúnaði í stað þess að loka alveg fyrir þjónustu.

Aukinn sveigjanleiki lánastofnana

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins samþykkti 28. apríl breytingar á reglum um fjármálastofnanir til að auðvelda þeim að styðja við bakið á heimilum og fyrirtækjum. Breytingarnar varða reglur um eiginfjárhlutfall, reikningsskil og varúð.

Fundur forsætisráðherra og forseta framkvæmdastjórnarinnar

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins áttu fjarfund 6. apríl þar sem þær ræddu fyrst og fremst um heimsfaraldur COVID-19 og efnahagsleg áhrif hans. Þær fóru yfir efnahagsaðgerðir Evrópusambandsins og árangur þeirra sóttvarnaráðstafana sem gripið hefur verið til. Forsætisráðherra fór yfir stöðu faraldursins á Íslandi, fjölda greininga og smita og helstu áskoranir.

Þá ræddu þær stöðu loftslagsmála, sameiginleg markmið um samdrátt gróðurhúsalofttegunda og mögulegt samstarf um tæknilausnir til að ná kolefnishlutleysi. Þær ræddu aðgerðaáætlun Evrópusambandsins um fjórðu iðnbyltinguna og stöðu kynjajafnréttismála, sérstaklega kynbundið ofbeldi. Að lokum fór forsætisráðherra yfir EES-tengd málefni og mikilvægi náins áframhaldandi samstarfs innan EES-svæðisins.

Fundurinn var haldinn með fjarfundabúnaði og kom í stað fundar sem til stóð að halda þann sama dag í Brussel.

Eftirfylgni varðandi kolefnisföngun

Á fundi forsætisráðherra og forseta framkvæmdastjórnarinnar kom sérstaklega til tals samstarf um reglur um kolefnisföngun. Síðan hefur það gerst að settur hefur verið á laggirnar starfshópur til að vinna að innleiðingu efnisreglna tilskipunar 2009/31/EB sem fjallar um kolefnisföngun og geymslu. Sú aðferð við kolefnisföngun og geymslu sem mælt er fyrir um í tilskipuninni fellur illa að íslenskum aðstæðum. Ísland hefur verið með aðra aðferð sem var þróuð á Íslandi. Íslensk stjórnvöld hafa verið í samtali við framkvæmdastjórn ESB um hvernig væri hægt að aðlaga regluverkið að íslenskum aðstæðum. Væntanlega mun verða tekið upp samtal við ESB varðandi mögulegar breytingar á regluverki ESB til að það geti átt við um fleiri aðstæður en nú er og þá verður kannað hvort að sameiginlegur starfshópur gæti nýst í þeim tilgangi.

Þátttaka Íslands í óformlegum ráðherrafundum ESB

Eftir að COVID-19 faraldurinn braust út hefur íslenskum stjórnvöldum í auknum mæli, miðað við það sem áður var, verið boðin þátttaka í óformlegum ráðherrafundum ESB. Einkum á það við um heilbrigðisráðherra, samgönguráðherra, og menntamálaráðherra. Eins og venjan er, á grundvelli Schengen samstarfsins, hefur dómsmálaráðherra tekið þátt á formlegum sem óformlegum fundum.

Ráðherrar eða embættismenn á Íslandi eða hjá fastanefndinni hafa sótt þessa fundi, sem hafa undantekningarlaust verið haldnir með fjarfundabúnaði.

02. apríl 2020 | Aðgerðir vegna COVID-19 |
Stefnumótun hjá Evrópusambandinu og starf fastanefndarinnar í Brussel við að gæta hagsmuna Íslands.

Tekist á um fjármögnun efnahagsaðgerða

Leiðtogafundur ESB var haldinn með fjarfundabúnaði 26. mars síðastliðinn. Ekki fékkst niðurstaða um aðgerðir til stuðnings þeim ríkjum sem hafa orðið verst úti af völdum COVID-19 farsóttarinnar. Samkvæmt fréttatilkynningu var Evru-hópnum svokallaða (fjármálaráðherrar þeirra 19 ríkja sem hafa tekið upp evruna) falið að útfæra nánar innan tveggja vikna mögulegar ráðstafanir.

Samkvæmt fjölmiðlum vilja ítölsk stjórnvöld að gefin verði út skuldabréf í evrum sem ríkin standi saman á bak við til að fjármagna endurreisn efnahagslífsins og njóta þar stuðnings Frakka, Spánverja og fleiri á meðan Hollendingar, Þjóðverjar, Finnar og Austurríkismenn hafi miklar efasemdir.

Lagt til að auka slaka í ríkisfjármálum

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lagði til 20. mars sl. að aukinn slaki verði gefinn í ríkisfjármálum aðildarríkja og að virkjað verði varúðarákvæði í Stöðugleika- og vaxtarsamningnum. Fallist ráðherraráðið á þessa tillögu mun það gera aðildarríkjunum kleift að takast á við afleiðingar farsóttarinnar á efnahagslíf án þess að vera bundin af skorðum sem venjulega eru við hallarekstri ríkissjóðs.

Samhæfð efnahagsleg viðbrögð

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins gaf 13. mars út orðsendingu um samhæfð efnahagsleg viðbrögð við farsóttinni (Communication on a Coordinated economic response to the COVID-19 outbreak). Þar eru nefndar aðgerðir sem heimilt er að grípa til án þess að fari í bága við ríkisaðstoðarreglur. Þannig geti aðildarríkin breytt reglum almennt í þágu fyrirtækja (frestað innheimtu opinberra gjalda, niðurgreitt skammtímaverkefni á öllum sviðum til dæmis). Þá geti stjórnvöld greitt bætur vegna tjóns sem fyrirtæki verða fyrir með beinum hætti vegna farsóttarinnar. Það geti sérstaklega átt við um ferðaþjónustu, samgöngur, verslun og gisti- og veitingahúsageirann.

Lögð er áhersla á samstöðu ESB-ríkja þannig að áfram sé hægt að flytja nauðsynjavörur milli landa. Sama eigi við um lyf og lækningavörur.

Sveigjanlegar reglur um ríkisaðstoð

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins samþykkti 19. mars tímabundinn ramma um ríkisaðstoð til að styðja við efnahagslífið andspænis COVID-19 farsóttinni (Temporary Framework). Þar eru sérstaklega nefndar fimm leyfilegar aðgerðir og skilyrði fyrir þeim útlistuð: 1. Beinir styrkir, skattaívilnanir á afmörkuðum sviðum og lán, 2. Ríkisábyrgð á lánum fyrirtækja, 3. Niðurgreidd lán á hagstæðum vöxtum, 4. Opinber stuðningur við fyrirtæki í gegnum bankakerfi, 5. Skammtímagreiðsluvátrygging vegna útflutnings. Aðgerðum af þessu tagi hefur verið markaður tímarammi út árið 2020.

Þá hefur Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) sett upp teymi til að aðstoða Ísland, Noreg og Liechtenstein við túlkun ríkisstyrkjareglna og til að bregðast skjótt við fyrirspurnum stjórnvalda.

Hömlur á útflutningi hlífðarbúnaðar

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ákvað 14. mars síðastliðinn að leggja hömlur á útflutning hlífðarbúnaðar sem nýst gæti til að takast á við farsóttina af völdum COVID-19. Var það gert með reglugerð (ESB) 2020/402. Sjá fréttatilkynningu framkvæmdastjórnarinnar.

EFTA-ríkin mótmæltu því að við þessa ákvörðun væri ekki tekið tillit til náinna tengsla við þau. Í framhaldinu breytti framkvæmdastjórnin ákvörðun sinni þannig að EFTA-ríkin skyldu undanskilin, með reglugerð (ESB) 2020/426. Sjá fréttatilkynningu frá EFTA-skrifstofunni.

EFTA-ríkin hafa hvert fyrir sig haft til skoðunar að fyrir vikið verði hömlur lagðar á útflutning á sambærilegum búnaði frá þeim og hafa reglur þess efnis þegar verið settar í hinum EFTA-ríkjunum.

Aðgengi að hlífðarbúnaði og lækningavörum

Framkvæmdastjórn ESB hefur staðið fyrir útboðum vegna kaupa aðildarríkjanna á hlífðarbúnaði og lækningavörum sem þörf er á í viðureigninni við farsóttina. Er þetta gert á grundvelli samkomulags aðildarríkjanna um sameiginleg útboð sem Noregur og Bretland hafa átt aðild að. Í vikunni var tilkynnt að Ísland væri nú einnig orðið aðili að samkomulaginu.

Framkvæmdastjórnin gaf út tilmæli 13 mars sl.. til aðildarríkjanna um að eftirlitsaðilar gerðu það sem í þeirra valdi stæði til að umsóknir um markaðssetningu á nýjum vörum og búnaði á þessu sviði gætu hlotið skjóta afgreiðslu. Eftirlitsstofnun EFTA gaf í kjölfarið úr sambærileg tilmæli.

Þá var ákveðið 20. mars sl. að evrópskir staðlar á þessu sviði yrðu gerðir aðgengilegir án endurgjalds þeim fyrirtækjum sem hefðu áhuga á. Þannig mætti stuðla að aukinni framleiðslu á nauðsynlegum vörum án tafa og að uppfylltum heilbrigðis- og öryggisstöðlum.

Staðlar á þessu sviði voru líka uppfærðir 24. mars samkvæmt tilkynningu frá framkvæmdastjórninni. Þá hefur verið ákveðið að framkvæmdastjórnin komi upp varabirgðum af ýmsum búnaði sem nýst geti þar sem þörfin er mest hverju sinni.

Takmörkun á ónauðsynlegum ferðum yfir ytri landamæri ESB og Schengen-svæðisins

Í því skyni að hefta útbreiðslu COVID-19 mælti framkvæmdastjórn ESB með því 16. mars sl. að aðildarríkin myndu í 30 daga setja hömlur á ferðir frá þriðju ríkjum. Eftir að þessi tillaga var samþykkt af leiðtogum ESB eru þessar hömlur nú í gildi í öllum aðildarríkjum ESB (nema Írlandi) og samstarfsríkjum Schengen (Ísland, Liechtenstein, Noregur og Sviss). Í kjölfarið gaf framkvæmdarstjórnin út leiðbeiningar um innleiðingu og framkvæmd á framangreindum ferðatakmörkunum, hvernig megi aðstoða ríkisborgara aðildarríkjanna við að komast aftur til síns heima og fyrirkomulag við útgáfu vegabréfsáritana. Þá gaf framkvæmdarstjórnin jafnframt út leiðbeiningar um frjálsa för vinnuafls, þ.e. þeirra sem vinna þvert á landamæri.

Umferð um innri landamæri ESB og Schengen-svæðisins

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur lagt áherslu á að aðildarríkin verði að stilla saman strengi þegar kemur að takmörkun umferðar um landamæri milli ríkjanna. Ef tafir verði á vöruflutningum þá geti það valdið alvarlegum vandræðum. Þetta eigi ekki hvað síst við um flutning á lyfjum, hlífðarbúnaði og annarri vöru til sjúkrahúsa, læknastofa og hjúkrunarheimila.

Í þessu ljósi gaf framkvæmdastjórnin 16. mars sl. út leiðbeiningar um landamæraeftirlit á innri landamærum ESB og Schengen-svæðisins. Í kjölfarið fylgdu leiðbeiningar 20. mars sl. um grænar akreinar (green lanes) þar sem allir vöruflutningar ættu að geta farið í gegn með að hámarki 15 mínútna töf.

Vannýttar heimildir til flugtaks eða lendingar

Farsóttin hefur leitt til þess að flugumferð hefur dregist stórlega saman. Gildandi reglur kveða á um að við úthlutun afgreiðslutíma á flugvöllum skuli tekið tillit til nýtingarreynslu viðkomandi flugfélags. Hafa flugfélög þurft að nýta 80% af heimildum sínum til að halda rétti sínum við endurúthlutun. Undanþágur hafa einungis verið leyfðar ef flug hafa fallið niður vegna lokunar flugvalla, flugbanns á tilteknar gerðir flugfélaga eða af hliðstæðum orsökum. Þetta hefur haft þær afleiðingar að flugfélög hafa í sumum tilvikum séð sig knúin til að viðhalda flugi án þess að það svaraði kostnaði og afgreiðslutímar hafa ekki verið lausir fyrir aðra sem hefðu viljað nýta þá. Evrópusambandið samþykkti því 30. mars sl. breytingu á reglum um þetta efni og er kveðið á um að á tilteknu tímabili á þessu ári skuli horft fram hjá áhrifum farsóttarinnar þegar nýtingarreynsla flugfélaga verður skoðuð við endurúthlutun heimilda. Sjá Regulation (EU) 2020/459 of the European Parliament and of the Council of 30 March 2020 amending Council Regulation (EEC) No 95/93 on common rules for the allocation of slots at Community airports.

Gert er ráð fyrir að þessi nýja gerð verði tekin uppi í EES-samninginn innan tíðar.

Réttindi flugfarþega

Stórfelld röskun á flugi gerir það að verkum að fyrirhuguð ferðalög almennings hafa farið úr skorðum. Um þetta efni gilda ítarlegar reglur um réttindi flugfarþega. Framkvæmdastjórn ESB gaf 18. mars sl. út leiðbeiningar um túlkun gildandi reglna þar sem meðal annars er tekið á því að hvaða marki flugfélög geta boðið upp á inneignarnótu í stað endurgreiðslu.

Leiðbeiningar um erlendar fjárfestingar

Undanfarnar vikur hafa fjölmiðar flutt fréttir af því að kínverskir aðilar kunni að vilja nýta sér kreppu í Evrópu í tengslum við COVID-19 til að hasla sér enn frekar völl í heilbrigðisgeiranum. Þá vakti einnig athygli að Trump Bandaríkjaforseti hefði að sögn freistað þess að ná sérleyfissamningum við danskt fyrirtæki sem hygðist framleiða bóluefni gegn veirunni.

Framkvæmdastjórn ESB gaf 25. mars 2020 út leiðbeiningar (guidelines) um erlendar fjárfestingar á tímum lýðheilsukreppu og viðkvæmrar stöðu í efnahagsmálum. Markmiðið er að vernda fyrirtæki innan sambandsins og mikilvægar eignir sem tengjast heilbrigðismálum, rannsóknum í læknavísindum, líftækni og innviðum sem eru ómissandi fyrir öryggi og allsherjarreglu, án þess þó að grafa undan almennt jákvæðu viðhorfi til erlendrar fjárfestingar.

Fram kemur í fréttatilkynningu framkvæmdastjórnarinnar að tryggja verði að erlendar fjárfestingar dragi ekki úr getu sambandsins til að mæta þörfum borgara sinna fyrir heilbrigðisþjónustu. Sú staða kunni að vera uppi að eftirspurn fyrirtækja eftir fjármagni og lágt hlutabréfaverð bjóði hættunni heim.

Þá er minnt á reglugerð Evrópusambandsins um skimun erlendra fjárfestinga sem samþykkt var í mars 2019. Þar er mælt fyrir um að aðildarríkin og framkvæmdastjórn ESB skiptist á upplýsingum um erlendar fjárfestingar með það fyrir augum að hægt sé að grípa inn í og leggja til varnaraðgerðir. Reglugerðin tekur að fullu gildi 11. október næstkomandi. Í nýju leiðbeiningunum eru aðildarríkin hvött til að bíða ekki boðanna heldur hefja nú þegar innleiðingu reglugerðarinnar.

Þess má geta að reglugerðin er utan við gildissvið EES-samningsins þar sem hún fellur undir öryggis- og varnarmál.

Matvælaöryggi

Landbúnaður hefur orðið fyrir skakkaföllum vegna minnkandi eftirspurnar í kjölfar COVID-19 farsóttarinnar. Til að styðja við bændur hefur framkvæmdastjórnin framlengt umsóknarfrest vegna styrkja innan ramma sameiginlegu landbúnaðarstefnunnar. Þá hefur verið vakin athygli á því að sveigjanlegar reglur um ríkisaðstoð geti nýst bændum og öðrum matvælaframleiðendum.

Áhrifin á sjávarútveg, fiskvinnslu og fiskeldi eru síst minni. Fyrir utan sveigjanlegu ríkisstyrkjareglurnar geta fyrirtæki á þessu sviði notið góðs af fjárfestingarátaki sem kennt er við kórónuveiruna og styrkja úr sjávarútvegs- og fiskveiðisjóði ESB.

Þá hefur framkvæmdastjórnin verið með til skoðunar að liðka fyrir flutningi matvæla milli landa, mögulega með breytingum á reglum í því augnamiði meðal annars að hraða og einfalda afgreiðslu hjá stjórnvöldum sem framfylgja heilbrigðiskröfum.

Samstarf um rannsóknir

Mikill þrýstingur er nú á rannsóknasamfélagið að koma með lausnir sem duga í viðureign við farsóttina. Skjót upplýsingamiðlun er lykilatriði til að auka skilning á líffræði, faraldursfræði, smitleiðum og þróun COVID-19 veirunnar.

Lífupplýsingastofnun Evrópu (EBI), Evrópska rannsóknarstofnunin í sameindalíffræði (EMBL), framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og fleiri vinna nú að því að koma á laggirnar evrópsku gagnamiðlunarkerfi sem yrði tengt við Evrópska opna vísindaskýið (EOSC).

09. mars 2020 | Evrópsku loftslagslögin – stefna í jafnréttismálum |
Stefnumótun hjá Evrópusambandinu og starf fastanefndarinnar í Brussel við að gæta hagsmuna Íslands.

Stefnumarkandi skjöl um loftslagsmál

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins birti 4. mars 2020 nokkur stefnumarkandi skjöl um loftslagsmál. Tengjast þau því markmiði að Evrópusambandið nái loftslagshlutleysi árið 2050.

Þar má fyrst nefna tillögu að reglugerð um umgjörð til að ná fram loftslagshlutleysi. Í daglegu tali hefur þessi nýja reglugerð verið kölluð „evrópsku loftslagslögin“ (e. European Climate Law). Fram kemur að ef ekki er gripið til sérstakra aðgerða þá muni núverandi stefna einungis fela í sér samdrátt losunar um 60% fram til 2050. Í tillögunni er gert ráð fyrir að markmiðið um loftlagshlutleysi 2050 verði fest í lög ESB. Jafnframt verði þar lagðar línur um hvernig því markmiði verði náð, um reglulegt mat á árangri og um úrræði til að bregðast við ef eitthvað bregður út af. Þau úrræði felast meðal annars í því að framkvæmdastjórnin beini opinberum tilmælum til aðildarríkjanna. Aðildarríkin eiga síðan að taka mið af þeim í anda samstöðu og skila skýrslu um úrbætur. Ennfremur er lagt til að framkvæmdastjórnin fái heimild til að setja afleidda löggjöf til að stuðla að því að markmiðið náist.

Í tillögunni er ekki sett fram tiltekið markmið fyrir árið 2030 eins og sumir bjuggust við. Þess í stað er lagt til að framkvæmdastjórninni verði falið að framkvæma mat á áhrifum á því hvernig megi fyrir það tímamark ná, á ábyrgan hátt, 50-55% minnkun losunar í samanburði við árið 1990. Skal framkvæmdastjórnin hafa lokið þessari vinnu í september 2020.

Þá er lögð til breyting á reglugerð (EU) 2018/1999 um orkusamband og loftslagsmál í þá veru meðal annars að í hverju aðildarríki skuli setja á fót umræðuvettvang um loftslags- og orkumál með þátttöku sveitarfélaga, óháðra félagasamtaka, atvinnulífs, fjárfesta, annarra hagsmunaaðila og almennings.

Í öðru lagi birti framkvæmdastjórnin til samráðs frummat á áhrifum á endurskoðun tilskipunar um orkuskatt. Fram kemur að endurskoða þurfi ýmis skattfríðindi sem jarðefnaeldsneyti njóti, til dæmis í samgöngum í lofti og á hafi. Þessi tilskipun hefur ekki verið tekin upp í EES-samninginn.

Í þriðja lagi birti framkvæmdastjórnin til samráðs frummat á áhrifum á aðgerðum til að koma í veg fyrir „kolefnisleka“ út fyrir Evrópusambandið. Tillagan gengur undir nafninu landamæraaðlögunarkerfi fyrir kolefni (e. Carbon border adjustment mechanism). Hugsunin er sú að eftir því sem sambandið dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda er hætta á að skaðleg starfsemi flytjist annað eða að vörur sem séu framleiddar innan ESB lúti í lægra haldi fyrir innfluttum vörum með meira kolefnisspor. Við þessu megi bregðast með því að leggja gjald á innflutning til þess að tryggja að verð á innfluttri vöru endurspegli kolefnisspor hennar. Þess verði gætt að tillagan rými við reglur WTO og aðrar alþjóðlegar skuldbindingar.

Loks má nefna að framkvæmdastjórnin hyggst einnig koma á laggirnar svokölluðum loftslagssáttmála (e. Climate Pact). Markmiðið er að virkja almenning og félagasamtök og hvetja til fyrirmyndar aðgerða og háttsemi eins og varðandi samgöngur, endurnýjun bygginga, orkuframleiðslu, neyslu og fjölgun grænna svæða. Bjóða á upp á tækifæri og vettvang til að þróa nýjar aðferðir og lausnir. Hafið er opið samráð um hvernig eigi nánar að útfæra loftslagssáttmálann.

Jafnréttisstefna 2020-2025

Framkvæmdastjórn ESB gaf í dag út fimm ára stefnu um jafnrétti kynjanna. Fram kemur að þótt ríki Evrópusambandsins séu í fararbroddi á þessu sviði í heiminum þá sé enn við kynbundið ofbeldi að eiga og staðalímyndir. Ein af hverjum þremur konum innan ESB hafi orðið fyrir líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi. Og jafnvel þótt fleiri konur en karlar útskrifist úr háskóla þá séu laun þeirra að meðaltali 16% lægri en karla og einungis 8% af æðstu stjórnendum stærstu fyrirtækja innan ESB séu konur.

Í þessu ljósi setur framkvæmdastjórnin fram lykilaðgerðir til næstu fimm ára og einsetur sér að jafnréttismál séu tekin til skoðunar á öllum sviðum stefnumótunar innan sambandsins. Minnt er á að tvö helstu viðfangsefni samtímans, loftslagsmálin og stafræna umbyltingin, feli einnig í sér jafnréttisáskoranir.

Helstu aðgerðir eru þessar:

Víkkuð verði út skilgreining á refsiverðu athæfi, þar sem samræming innan ESB er möguleg, þannig að hún nái yfir kynbundið ofbeldi gegn konum. Í fyrirhugaðri löggjöf um stafræna þjónustu verði gerðar skýrari kröfur til þeirra sem reka netgáttir í því augnamiði að takast á við ólöglega háttsemi á netinu eins og stafrænt ofbeldi sem beinist gegn konum.

Þá hefur verið ýtt úr vör opnu samráði um aðgerðir til að auka gagnsæi í launum, með það fyrir augum að framkvæmdastjórnin geti sett fram tillögur um bindandi fyrirmæli fyrir árslok, sjá https://ec.europa.eu/info/law/better-regulation/have-your-say/initiatives/12098-Strengthening-the-principle-of-equal-pay-between-men-and-women-through-pay-transparency . Jafnlaunavottun er þar nefnd sem ein möguleg leið. Framkvæmdastjórnin mun jafnframt herða á því að aðildarríkin virði skuldbindingar um samræmi milli vinnu og einkalífs, sbr. tilskipun um það efni. Aðgerðir til að jafna stöðu kynjanna varðandi lífeyrisréttindi (tillit sé tekið til hlés í starfi vegna umönnunar) eru einnig fyrirhugaðar.

Framkvæmdastjórnin mun ýta á að tillögur hennar frá 2012 um jafnstöðu kynjanna í stjórnum fyrirtækja nái fram að ganga (en þar var gert ráð fyrir að hvort kyn ætti a.m.k. 40% „non-executive“ fulltrúa). Þá verður stutt við þátttöku kvenna í stjórnmálum, meðal annars með tilliti til kosninga til Evrópuþingsins 2024. Stefnt sé að fullu jafnræði kynjanna í öllum stjórnunarstöðum innan stofnana ESB fyrir árslok 2024.

Sjá einnig fréttatilkynningu framkvæmdastjórnarinnar

04. mars 2020 | Hvítbók um gervigreind o.fl. |
Stefnumótun hjá Evrópusambandinu og starf fastanefndarinnar í Brussel við að gæta hagsmuna Íslands.

Verkáætlun framkvæmdastjórnarinnar

Framkvæmdastjórn ESB samþykkti 29. janúar 2020 verkáætlun fyrir þetta ár. Þar er að finna áætlun um hvernig hrundið verði í framkvæmd áformum sem birtust í leiðarvísi forseta framkvæmdastjórnarinnar, Ursulu von der Leyen, um stefnumörkun til framtíðar (e. political guidelines). Leiðarvísirinn ber yfirskriftina „Samband sem setur markið hærra“, en þar er kastljósi ekki síst beint að umhverfismálum og stafrænni umbyltingu.

Stefnumarkandi skjöl um stafræn málefni

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) kynnti 19. febrúar 2020 þrjú stefnumarkandi skjöl um stafræn málefni.

Í orðsendingu um stafræna framtíð ESB (e. Shaping Europe´s digital future) kemur fram að stafræn tækni sé að gerbreyta heimi okkar daga; starfsháttum, viðskiptum, för fólks um hnöttinn og samskiptum þess. Tækni af þessu tagi sé vaxandi uppspretta gagna og upplýsinga sem nýta megi sameiginlega til verðmætasköpunar án fordæma. Breytingin sem nú sé í uppsiglingu, sé ekki minni í sniðum en iðnbyltingin. Nýta beri til fullnustu þau tækifæri sem umbreytingin hefur í för með sér, ekki einungis í þágu atvinnulífsins, heldur einnig fólks í daglegu lífi, og renna þar með stoðum undir „fullveldi Evrópu í tæknimálum“ (e. European technological sovereignty).

Í orðsendingunni kemur fram að framkvæmdastjórnin muni á næstu fimm árum einbeita sér að því að ná þremur markmiðum á þessu sviði sem geri Evrópuríkjum kleift að varða leiðina að stafrænni umbyltingu sem þjóni hagsmunum almennings með því að virða sameiginleg evrópsk gildi:

Tækni sem virkar fyrir almenning. Vísað er til þess að þróa beri og bjóða upp á tækni sem skiptir raunverulega máli fyrir daglegt líf almennings. Þarna standi fyrir dyrum að auka samlegðaráhrif fjárfestinga í rannsóknum og nýsköpun. Stafræn umbreyting opinberrar stjórnsýslu sé einnig mikilvægt atriði. Í álfunni verði að fjárfesta meira í grunnstoðum eins og 5G (og í framtíðinni 6G) fjarskiptakerfum og hátækni (e. deep tech) á borð við ofurtölvun og skýjalausnir. Þá verði að efla netöryggi til þess að almenningur geti treyst nýrri tækni. Þá þurfi að efla menntun og starfsþjálfun á þessu sviði bæði vegna þess að fyrirtækin þurfa hæft starfsfólk en líka til að allir eigi þess kost að taka virkan þátt í samfélaginu. Tryggja þurfi sanngirni umbreytinga þannig að konur fari ekki halloka.

Efnahagslíf þar sem sanngirni og samkeppni eru við lýði. Vísað er til sameiginlegs snurðulauss innri markaðar þar sem fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum geti keppt á jafnræðisgrundvelli og þróað stafræna tækni sem gerir þau samkeppnishæf á heimsvísu og þar sem neytendur geta treyst því að réttindi þeirra séu virt. Draga verði úr því að Evrópuríki séu háð tæknilausnum sem þróaðar hafa verið annars staðar. Upplýsingar og gögn séu grunnurinn að því að þróa nýjar vörur og þjónustu. Þess vegna verði að gera átak í því að gögn séu aðgengileg öllum og að til verði evrópskt gagnasvæði (e. European data space) sem lúti evrópskum reglum og gildum. Fara þurfi yfir samkeppnisreglur og ríkisstyrkjareglur og meta hvort stafræna umbreytingin kalli þar á breytingar. Þá þurfi að bregðast við þeirri stöðu að örfá fyrirtæki sópi til sín bróðurhluta hagnaðar vegna verðmætasköpunar í upplýsingahagkerfinu. Skattlagning sé þar eitt tæki sem komi til athugunar.

Opið, lýðræðislegt og sjálfbært samfélag. Vísað er til þess að skapað verði umhverfi þar sem borgararnir hafa vald yfir athöfnum sínum og samskiptum og þeim upplýsingum sem þeir láta af hendi bæði á netinu og utan þess. Mörkuð verði evrópsk leið að stafrænni umbyltingu sem styrki sameiginleg lýðræðisleg gildi, virðingu fyrir grundvallarréttindum og stuðli að sjálfbæru, loftslagshlutlausu hagkerfi þar sem auðlindir og aðföng eru nýtt á skilvirkan hátt. Evrópuríki hafi vísað veginn með persónuverndarreglugerðinni og reglum um samstarf rafræns viðskiptavettvangs og fyrirtækja (e. platform-to-business cooperation). Haldið verði áfram á sömu braut til að tryggja að sömu reglur gildi um ólöglega háttsemi á netinu og utan þess. Í þessu sambandi beri að stefna að því að rafrænt persónulegt auðkenni (eID) hvers og eins verði viðurkennt á heimsvísu. Þá þurfi að standa vörð um lýðræðið og finna svör við tilraunum til að afvegaleiða kjósendur með fölskum áróðri. Loftslagsmálin fléttast inn í stafrænu umbreytinguna. Stafrænar lausnir geta leitt til skynsamlegri orkunotkunar og tæknigeirinn sjálfur þarf að verða umhverfisvænn en hann nýtir nú 5-9% af allri raforku í heiminum. Gagnaver og fjarskiptakerfi þurfa að gæta betur að orkunýtni og reiða sig meira á endurnýjanlega orkugjafa.

Í Hvítbók um gervigreind (e. White Paper on Artificial Intelligence – A European approach to excellence and trust) kemur fram að þróun á þessu sviði sé ör. Gervigreind muni hafa mikil áhrif á líf fólks með því að bæta heilbrigðisþjónustu, auka framleiðni í landbúnaði, stuðla að aðlögun að og temprun á loftslagsbreytingum og auknu öryggi Evrópubúa svo fátt eitt sé nefnt. Gervigreind fylgi einnig margvísleg áhætta eins og ógagnsæ ákvarðanataka, mismunun á grundvelli kyns eða af öðrum ástæðum, brot á friðhelgi einkalífs auk annarrar notkunar í glæpsamlegum tilgangi. Til þess að mæta áskorunum verði Evrópusambandið að marka sína leið fram á við sem byggist á evrópskum gildum.

Í hvítbókinni eru sett fram tvö megin stefnumið fyrir Evrópusambandið. Annars vegar að búa þróun gervigreindar framúrskarandi vaxtarumhverfi (e. ecosystem of excellence) og hins vegar að regluverk um gervigreind skapi alhliða traust (e. ecosystem of trust).

Framúrskarandi vaxtarumhverfi. Gert er ráð fyrir að framkvæmdastjórnin endurskoði á þessu ári gildandi aðgerðaáætlun um þróun gervigreindar. Stefnt er að fjárfestingum á þessu sviði innan ESB sem nemi að minnsta kosti 20 milljörðum evra á ári. Meðal annars er talað um að það verði innbyggt í gervigreindartækni að velja umhverfisvæna kosti. Núverandi rannsóknarmiðstöðvar á sviði gervigreindar í Evrópu séu of smáar til að geta keppt á heimsvísu. Við þessu þurfi að bregðast með markvissum hætti. Lögð er áhersla á að opinber stjórnsýsla og þjónusta nýti gervigreind og bent er á að nú þegar sé tækni fyrir hendi sem unnt væri að taka upp í stórum stíl í heilbrigðisþjónustu og samgöngumálum.

Regluverk sem skapar alhliða traust. Rifjað er upp að á síðasta ári vann sérfræðingahópur á vegum framkvæmdastjórnarinnar leiðbeiningar um traustvekjandi gervigreind (e. Guidelines on trustworthy AI). Þar komu fram þau megin skilyrði sem þróun og beiting gervigreindar ætti að lúta: Mannleg aðkoma og eftirlit, tæknileg gæði og öryggi, vernd friðhelgi einkalífs, gagnsæi, fjölbreytni og sanngirni og bann við mismunun, félagsleg og umhverfisleg velsæld og loks ábyrgð. Framkvæmdastjórnin er að endurmeta þessar meginkröfur í ljósi viðbragða. Flest bendi til að mörg þessara skilyrða sé nú þegar að finna í lögum og reglum en það sé helst gagnsæið og mannlegt eftirlit sem þarfnist nánari útfærslu.

Evrópsk gagnastefna (e. European strategy for data).

Með gagnastefnunni er sett fram það leiðarljós að gera Evrópusambandið og innri markaðinn að upplýsingahagkerfi sem skarar fram úr á heimsvísu vegna nýsköpunar og öryggis gagna. Fram kemur að ekki sé gert ráð fyrir yfirgripsmikilli löggjöf um efnið heldur þurfi að fylgjast vel með þróun og grípa inn í þegar þörf krefur og fikra sig áfram með því að leyfa tilraunir á afmörkuðum sviðum. Þó megi gera ráð fyrir ESB-löggjöf um samevrópsk gagnasvæði sem til verði á afmörkuðum málefnasviðum. Þar verði tekið á því hvaða gögn megi nota undir hvaða kringumstæðum, flæði gagna yfir landamæri og stöðlun gagna. Tekið er dæmi af gagnasöfnum úr heilbrigðisþjónustu í Finnlandi og Frakklandi sem gerð hafa verið aðgengileg til rannsókna og nýsköpunar.

Framkvæmdastjórnin áformar einnig að ýta úr vör aðgerðum til að mjög verðmæt opinber gagnasöfn verði gerð aðgengileg öllum. Þá verði metin þörf á löggöf um samskipti milli aðila í upplýsingahagkerfinu til að stuðla að því að fyrirtæki geti nýtt gögn hvers annars.

Samhliða nýrri löggjöf eftir atvikum muni Evrópusambandið stuðla að og fjármagna samevrópsk gagnasvæði á mikilvægum sviðum. Því tengjast áform um að tengja betur saman evrópskar skýjalausnir sem eru í boði eða eru í þróun sem byggist á öruggri gagnameðhöndlun í samræmi við evrópskrar reglur og þar sem orkunýtni er til fyrirmyndar.

Komið hefur fram að skjölin sem kynnt voru 19. febrúar sl. marki einungis fyrstu skref í þá átt að umbreyta lífi Evrópubúa með almannahagsmuni að leiðarljósi. Hvítbókin um gervigreind verður aðgengileg í samráðsgátt sambandsins til 19. maí nk., auk þess sem framkvæmdastjórnin mun samhliða falast eftir viðbrögðum og athugasemdum við gagnastefnunni. Áform framkvæmdastjórnarinnar um stafræna framtíð ESB gera einnig ráð fyrir að tekið verði frumkvæði á sviði ofurtölvunar (e. quantum computing), nýrrar kynslóðar fjarskiptatækni (5G og 6G), stafræns öryggis, menntunar og færniþjálfunar (e. skills agenda), svo eitthvað sé nefnt.

Fjárlagaviðræður báru ekki árangur

Leiðtogum ESB mistókst að ná saman um ramma að fjárlögum tímabilsins 2021 – 2027 á fundi sínum í Brussel 20. – 21. febrúar sl. og er nú búist við að þeir komi aftur saman á næstu vikum.

Ríkin fjögur, Austurríki, Danmörk, Holland og Svíþjóð, sem hafna því að fjárlagaþakið verði hækkað umfram það sem nemur 1% þjóðartekna aðildarríkja, munu hafa staðið fast á sínu. Munu þau einnig hafa notið stuðnings Þýskalands í því efni. Það auðveldar ekki eftirleikinn að Evrópuþingið þykir nú líklegt til að hafna hverri þeirri fjárlagatillögu sem ekki tekur á stöðu réttarríkisins í Póllandi og Ungverjalandi (svokölluðu 7. gr.-ferli), en forseti leiðtogaráðsins, Charles Michel, hefur verið gagnrýndur fyrir að slaka of mikið til gagnvart ríkjunum tveimur í því skyni að fá þau til að fallast á samdrátt í greiðslum til samstöðusjóða sambandsins.

Út af fyrir sig kemur ekki á óvart að samningaviðræður aðildarríkja ESB um fjárlagarammann til lengri tíma séu bæði tímafrekar og þungar í vöfum. Að þessu sinni setur þó útganga Breta úr sambandinu stórt strik í reikninginn (upp á u.þ.b. 75 milljarða evra yfir tímabilið), auk þess sem framkvæmdastjórnin hefur sett fram metnaðarfullar áætlanir, ekki síst á sviði loftslagsmála og stafrænnar tækni, sem kosta mun fúlgur fjár að framkvæma.

Skipulag hagsmunagæslu

Hagsmunagæsla af hálfu fastanefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu byggist meðal annars á forgangslista sem ríkisstjórnin samþykkir reglulega að höfðu samráði við utanríkismálanefnd Alþingis. Flest ráðuneyti eiga nú fulltrúa í fastanefndinni og skipta þeir með sér verkum í samræmi við málefnaskiptingu ráðuneyta og tryggja jafnframt samráð við ráðuneytin heima fyrir. Sendiherrann og annað starfslið úr utanríkisráðuneytinu koma einnig að málum eftir þörfum. Tvö helstu stefnumál Evrópusambandsins í tíð nýrrar framkvæmdastjórnar kalla sérstaklega á þverfaglega nálgun og því hafa verið mynduð sérstök teymi um að vakta Græna sáttmálann og Stafrænu starfsskrána (yfirheiti yfir ýmsar fyrirhugaðar aðgerðir vegna stafrænnar umbyltingar og þróunar upplýsingasamfélagsins).

Hagsmunagæslan varðar fyrst og fremst málefni sem eru á undirbúningsstigi innan ESB en hún getur einnig náð til mála sem búið er að afgreiða innan ESB og bíða þá upptöku í EES-samninginn.

Yfirlit yfir EES mál 2014-2019
- Yfirlit af vettvangi Evrópusamstarfs í Brussel. September 2019
- Yfirlit af vettvangi Evrópusamstarfs í Brussel. Nóvember 2018
- Yfirlit af vettvangi Evrópusamstarfs í Brussel. Apríl 2018
- Yfirlit af vettvangi Evrópusamstarfs í Brussel. Janúar 2018
- Yfirlit af vettvangi Evrópusamstarfs í Brussel. Nóvember 2017
- Yfirlit af vettvangi Evrópusamstarfs í Brussel. Október 2017
- Yfirlit frá sendiráði Íslands í Brussel. Apríl 2017
- Yfirlit frá sendiráði Íslands í Brussel. Janúar 2017
- Yfirlit frá sendiráði Íslands í Brussel. Febrúar 2016
- Yfirlit frá sendiráði Íslands í Brussel. Desember 2015
- Yfirlit frá sendiráði Íslands í Brussel. Október 2015
- Yfirlit um EES-málefni. Júlí 2015
- Yfirlit um EES-málefni. Júní 2015
- Yfirlit um helstu gerðir samþykktar innan ESB. Febrúar - maí 2015.
- Yfirlit um EES-málefni. Febrúar 2015.
- Yfirlit um helstu gerðir samþykktar innan ESB í desember 2014 og janúar 2015
- Yfirlit um EES-málefni. Desember 2014.
- Yfirlit um helstu gerðir samþykktar innan ESB. Október - nóvember 2014
- Yfirlit um EES-málefni. Nóvember 2014
- Yfirlit um helstu gerðir samþykktar innan ESB. Júní - september 2014
Yfirlitsskýrslur sendiráðsins
- Yfirlitsskýrsla sendiráðsins vegna fyrri hluta árs 2014
- Yfirlitsskýrsla sendiráðsins vegna seinni hluta árs 2013
- Yfirlitsskýrsla sendiráðsins vegna fyrri hluta árs 2013
- Yfirlitsskýrsla sendiráðsins vegna seinni hluta árs 2012
- Yfirlitsskýrsla sendiráðsins vegna fyrri hluta árs 2012
- Yfirlitsskýrsla sendiráðsins vegna seinni hluta árs 2011
- Yfirlitsskýrsla sendiráðsins vegna fyrri hluta árs 2011
- Yfirlitsskýrsla sendiráðsins vegna fyrri hluta árs 2010
- Yfirlitsskýrsla sendiráðsins vegna seinni hluta árs 2009
- Yfirlitsskýrsla sendiráðsins vegna fyrri hluta árs 2009
- Yfirlitsskýrsla sendiráðsins vegna seinni hluta árs 2008
- Helstu áherslur Tékklands í formennsku ESB fyrri hluta árs 2009
- Yfirlitsskýrsla sendiráðsins vegna fyrri hluta árs 2008
- Yfirlitsskýrsla sendiráðsins vegna seinni hluta árs 2007
- Yfirlitsskýrsla sendiráðsins vegna fyrri hluta árs 2007
- Yfirlitsskýrsla sendiráðsins vegna seinni hluta árs 2006
- Yfirlitsskýrsla sendiráðsins vegna fyrri hluta árs 2006
EES-samningurinn
Ísland er nátengt öðrum ríkjum Evrópu í sögulegu, pólítísku, efnahagslegu og menningarlegu tilliti. Ríki Evrópusambandsins (ESB) eru mikilvægasta markaðssvæði Íslands og meirihluti Íslendinga sem sækir sér menntun og atvinnu erlendis leitar þangað. Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samningurinn) hefur síðan 1994 verið ein megin undirstaða þessara tengsla.
Frekari upplýsingar:
Schengen samstarfið
Frá 25. mars 2001 hefur Ísland verið þátttakandi í samstarfi með öðrum Evrópuríkjum sem kennt er við Schengen. Samvinna þessi felur í sér að fellt hefur verið niður eftirlit með ferðum fólks yfir sameiginleg landamæri 22 ríkja sem eiga aðild að ESB, sem og Íslands, Noregs, Liechtenstein og Sviss. Á sama tíma hefur eftirlit verið styrkt gagnvart öðrum ríkjum utan svæðisins.
Hafa samband
Ábending / fyrirspurnSkilaboðin hafa verið send ráðuneytinu til afgreiðslu.
Takk fyrir.